POPULARITY
Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - Iceherbs.is Það mætti halda að við Pétur höfðum tekið ákvörðun um að kaupa íbúðina okkar vegna nágranna okkar, en hinum megin við götuna búa hjónin María Rut og Ingileif Friðriksdóttir, sem eru líka okkar bestu vinkonur. Okkur hefur lengi langað að taka upp þátt öll saman, en við höfum eytt ófáum stundum saman og rætt mikið saman sem hefði alltaf verið efni í góðan þátt. En í dag eru skemmtilegir hlutir að gerast, María og Pétur eru í framboði í Alþingiskosningunum yfirvofandi og erum við Ingileif auðvitað þeirra stærstu klappstýrur. Við ræðum saman um breytingar sem fólkið vill ásamt því að fara örlítið undir skinnið og ræðum okkar eigin sambönd hvað hefur verið áhrifaríkt til að halda góðu sambandi gangandi. Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Ég get ekki sagt ykkur hvað er gaman að fá mitt besta fólk til mín í spjall, en á síðustu vikum og mánuðum höfum við María, Ingileif og Pétur eytt miklum tíma saman og bardúsað ýmislegt. Við förum yfir síðustu vikur, almenna gleði, haustþing Viðreisnar sem við sóttum, eftirminnilega ferð til Hrútafjarðar og Pétur og María fara yfir Evrópusambandið, sem ég veit að margir eru áhugasamir um núna þegar við erum vonandi að fara fá nýja ríkisstjórn og vonandi varanlegar breytingar og bætingar í landinu okkar. Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Bpro - www.bpro.is Hin ástsæla, hæfileikaríka og ein af mínum allra bestu vinkonum Ingileif Friðriksdóttir kom LOKSINS í Helgaspjallið, og við ræðum svolítið um það í þættinum. Ingileif er mikil fjöllistakona sem fylgir engum reglum um hvernig á að vinna í þessu lífi, hún gerir nákvæmlega þangað sem ástríðan tekur hana og gerir það allt með miklum sóma. Nýjasta verk hugarheim Ingileifar er skáldsagan Ljósbrot, ný bók sem komin er í verslanir. Ingileif segir okkur frá því hvernig þessi bók varð til og hvernig hún fann sjálfstraustið til að dýfa sér í það verkefni. Ingileif er eins insperandi og þær gerast og það er mér mikill heiður að vera vinur hennar og enn meiri heiður að fá hana í Helgaspjallið. Ljósbrot fæst í öllum helstu bókabúðum landsins og algjört must að kaupa sér eintak! Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi í Reykjavík var gestur þáttarins í þessu sinni og kom með vel hlaðna fimmu en þar sagði hann frá eftirminnilegum mótmælum sem hann hefur sótt í gegnum tíðina. Það sem gerir friðsamleg mótmæli eftirminnileg og áhrifamikil er frumlegheitin að sögn Stefáns. Í seinni hluta þáttarins var tónlistin í forgrunni og þar var hálfgert nafnakall. Öll tónlistin sem þá hljómaði innihélt íslensk mannanöfn, þar sem sungið var til eða um fólk með nöfn eins og Rögnvaldur, Ingileif, Símon, Sturla og Stjáni - en umsjónarmaður þáttarins er einmitt aldrei kallaður Stjáni.
Ingileif Friðriksdóttir hefur vakið mikla athygli fyrir þáttagerð og aktivisma tengdan Hinseginleikanum. Hún var gestur Felix að morgni Gleðigöngudagsins og sagði af fimm ákvörðunum sem hafa mótað líf hennar. Í síðari hluta þáttarins mætti gamalkunnur gestur, Karl Ágúst Ipsen, sagði nýjustu fréttir af Dolly Parton og spilaði nokkur lög listamanna sem hafa orðið hetjur í hinsegin samfélaginu
Ingileif Friðriksdóttir hefur vakið mikla athygli fyrir þáttagerð og aktivisma tengdan Hinseginleikanum. Hún var gestur Felix að morgni Gleðigöngudagsins og sagði af fimm ákvörðunum sem hafa mótað líf hennar. Í síðari hluta þáttarins mætti gamalkunnur gestur, Karl Ágúst Ipsen, sagði nýjustu fréttir af Dolly Parton og spilaði nokkur lög listamanna sem hafa orðið hetjur í hinsegin samfélaginu
Ljósmyndarinn, hlaðvarpstjarnan og áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt og áhugavert spjall ásamt stórvinonu sinni dagskrárgerðakonunni, framleiðandanum og áhrifavaldinum Ingileif Friðriksdóttur.Helgi hefur verið áberandi undanfarin ár á samfélagsmiðlunum en er hann meðal annars meðlimur einnar vinsælustu bloggsíðu landsins Trendnet.is ásamt því að vera vinsæll tískuljósmyndari og stjórnandi hlaðvarpsins Helgarspjallið.Ingileif hefur í nógu að snúast þessa daganna en fyrir utan að vera ólétt og að standa í framkvæmdum, rekur hún framleiðslufyrirtækið Ketchup productions og framleiða þau meðal annars sjónvarpsþættina LXS, Samstarf, Húgó og Afbrigði en er hún einmitt stjórnandi þess þáttar.Helgi og Ingileif hafa þróað með sér virkilega fallega vináttu í gegnum árin og eru þau mjög náin.Í þættinum ræddum við meðal annars um interventionið sem Ingileif og María tóku á Helga sem hann vill meina að hafi bjargað lífi sínu, brúðkaupsveislu Ingileifar sem Helgi veislustýrði með glæsibrag, hinseginleikann, vináttuna og margt fleira.Svo prófaði ég þau að sjálfsögðu í því hversu vel þau þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:Brynjuís - https://brynjuis.is/Smitten - https://smittendating.com/
Gestir mínir í dag eru þær Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir. Þær eru gjörsamlega frábærar og magnaðar! Það var hrikalega gaman, yndislegt, fræðandi, gott og áhugavert að spjalla við Ingileif og Maríu. Þú ert frábær! Ást og friður.
Svo margar spurningar! Erum við að taka þessum þætti allt of alvarlega? mátti Ivan brjóta reglurnar??Gestir þáttarins: Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir.Styrktaraðilar þáttarins eru Salt express og Nine Kids.
Ingileif Friðrikdsóttir og María Rut Kristinsdóttir eru sannkallaðar kjarnakonur sem búa yfir þeim eiginleika að segja alveg einstaklega skemmtilegar sögur og hafa þær lent í allskonar ævintýrum á tíma sínum saman. Ingileif og María hafa verið saman síðan 2013 en þær giftu sig eftirminnilega á Flateyri árið 2018 og eiga þær saman tvo stráka. Það væri auðveldlega hægt að henda í góða bók um alla þá flottu hluti sem þær hafa gert í gegnum tíðina hvort sem það er í tengslum við pólitík, fjölmiðla, bókaútgáfu, aktivisma, og svo lengi mætti telja. Í þættinum sögðu þær mér meðal annars frá ansi skrautlegum fyrstu kynnum Maríu við tengdarforeldra sína, óþæginlegri tilraun Ingileifar til þess að vera rómantísk í karaoke og fyrstu kynnum þeirra í leigubíl síðla nætur árið 2013 en hafa þær verið óaðskiljanlegar síðan þá. Þátturinn er í boði:Blush.is - https://blush.is/Ajax - https://verslun.ojk.is/#stockitems/src:ajaxSpaðinn - https://spadinn.is/
Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir höfundar Vertu þú spjalla við Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttir um bókina og hvernig hún hvetur til víðsýni og fordómaleysis í Sölkuvarpinu. Hvað er það sem gerir mig að mér? Hvað er það sem gerir þig að þér? Öll erum við einstök á okkar hátt. Við eigum öll rétt á að vera nákvæmlega eins og við erum. Það skiptir ekki máli hverju við klæðumst, hverjum við verðum skotin í, hvaða kyni við upplifum okkur í, hvaðan við erum eða hverju við höfum áhuga á. Við megum öll vera eins og okkur langar til. Ingileif og María Rut halda úti fræðsluvettvanginum Hinseginleikinn. Hér má lesa nánar um bókina: https://www.salka.is/products/vertu-thu
Hvað gerir þú til að leggja þitt af mörkum í þágu umhverfisins? Við getum öll gert betur, og í þessum þætti ræða Ingileif og María það sem þær hafa gert og hvernig við getum tekið skref í átt að grænni framtíð. Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is
Hver er skjátíminn þinn? Er það fyrsta sem þú gerir þegar þú vaknar að opna símann þinn, og það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? Hvers vegna erum við öll svona miklir fíklar miðlanna? Ingileif og María ræða skuggahliðar samfélagsmiðla og hvernig við getum passað okkur að nota þá bara til góðs. Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is
Á tímum eins og þeim sem við lifum núna er mjög auðvelt að leiðast, enda mjög margt leiðinlegt í gangi í heiminum. Hvernig getum við unnið með þetta og látið okkur síður leiðast? Ingileif og María ræða hvað hefur hjálpað þeim í að komast í gegnum síðustu vikur og mánuði. Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is
Hvað eru draumar og af hverju dreymir okkur? Ingileif og María ræða um drauma, heilann og allt það undarlega sem við mannfólkið vitum svo ótrúlega lítið um. Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is
Þvo hendur og spritta, setja upp maska, knúsa engan, forðast mannamót, snerta ekkert og halda sig heima. Það er nú ekki að furða að þetta allt saman valdi einhvers konar kvíða hjá okkur öllum! Ingileif og María ræða um hinn svokallaða sóttkvíða, hvenær hann er farinn að vera úr hófi og hvernig er best að díla við hann. Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is.
Af hverju er mikilvægt að við pælum í pólitík? Ingileif og María fara yfir það hvers vegna það er nauðsynlegt að mynda sér skoðun, kjósa og taka þátt í lýðræðissamfélagi. Þátturinn er í boði Chito Care og Playroom.is.
Hvernig getum við elskað okkur meira og hvað er sjálfsást í raun? Ingileif og María reyna að finna svörin við því, sem þær eru samt enn að leita að. Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is
Hvernig líður þér í dag? Tilfinningar eru alls konar og það er allt í lagi að líða eins og manni líður. Ingileif og María ræða tilfinningar og hvernig þeim finnst best að tækla sínar tilfinningar. Þátturinn er í boði Chito Care og Playroom.is.
Hvers vegna upplifum við hlutina ólíkt? Og hvers vegna platar minnið okkur stundum? Ingileif og María velta upp ýmsum pælingum um upplifanir, og afhjúpa sannleikann á bakvið stórhættulega lífreynslu og sprenghlægilega upplifun á gamlársdag. Þátturinn er í boði Chito Care og Playroom.is.
Hvers vegna hlýðum við yfirvaldi og förum eftir því sem okkur er sagt? Hlýðni og fylgispekt eru viðfangsefni dagsins, þar sem María fer yfir áhugaverðar rannsóknir og þær Ingileif ræða ýmsa vinkla hlýðni og fylgispektar í samfélaginu, á tímum Covid. Þátturinn er í boði Chito Care.
Af hverju erum við stöðugt að velta okkur upp úr því hvað öðru fólki finnst? Eigum við ekki bara öll að vera nákvæmlega eins og við erum í friði, hvað svo sem öðrum finnst um það? Ef við viljum ganga með kúrekahatt alla daga, vera alltaf í grænum skóm, já eða baða okkur nakin útí læk - þá skulum við bara gera það! Ingileif og María ræða það hvers vegna við ættum öll að hætta að pæla í öðru fólki og fara að láta okkur vera aðeins meira sama.
Hvað er að vera svona og hvað er að vera hinsegin? Ingileif og María ræða hinseginleikann í tilefni Hinsegin daga sem fóru fram á dögunum. Hvernig er það að vera hinsegin einstaklingar á Íslandi í dag, og hvers vegna skilgreinum við okkur hinsegin þegar við erum ekkert öðruvísi en næsta manneskja?
Fjölskyldur eru alls konar. Í þessum þætti fara Ingileif og María yfir mismunandi fjölskylduform og mikilvægi þess að búa til pláss fyrir alls konar fjölskyldur í samfélaginu - ásamt því að ræða sína upplifun af því að skapa fjölskyldu saman. Þátturinn er í boði Domino's og Chito Care.
Í 10. þætti Raunveruleikans fara Ingileif og María um víðan völl og leyfa flæðinu að ráða. Þátturinn er með aðeins öðru sniði en vanalega, og laus í reipunum - en það er líka sumar og það má! Þær rifja upp ýmis bernskubrek og vandræðaleg augnablik, í bland við hinn víðfræga sannleikann eða kontór, SPK - já eða rússneska póstinn. Meira um það í þættinum! Þátturinn er í boði Domino's og Chito Care.
Eftir fjölda áskorana ákváðu Ingileif og María, í tilefni af tveggja ára brúðkaupsafmæli sínu, að helga nýjasta þátt Raunveruleikans þeirri mannlegu athöfn að gifta sig. Giftingar geta verið alls konar og eru jafn mismunandi og fólkið sem kýs að innsigla ást sína með þeim hætti. Hjónurnar fara um víðan föll, ræða eigið brúðkaup og umstangið sem því fylgdi auk þess að rifja upp ýmsar minningar því tengdu. Þátturinn er í boði ChitoCare og Dominos og var tekinn upp í „stúdíó-ömmu“ á Flateyri.
Ferðasumarið 2020 er hafið og í þetta skiptið munu líklegast flestir ferðast innanlands. En hvert er skemmtilegast að fara, hvar eru bestu náttúrulaugarnar og er hringurinn í raun hringurinn án mikilvægasta landshlutans? Ingileif og María fara á léttum nótum yfir ferðalög um landið og deila sögum af sínum ferðalögum. Gleðilegt ferðasumar!
Við leitum mörg hver allt lífið að hinni einu sönnu lífshamingju. En hvað raunverulega gerist þegar við setjum hamingjuna á slíkan stall? Erum við of upptekin við að leita að einhverju, og gleymum að sjá hvað er beint fyrir framan okkur? Ingileif og María ræða um hamingjuna, hvað hún er og hvernig við getum séð hana allt í kringum okkur, ef við erum tilbúin að horfa.
Fordómar eru víða og eiga sér ýmsar birtingarmyndir. En hvernig upprætum við þá? Í þessum þætti Raunveruleikans ræða Ingileif og María mikilvægi þess að horfast í augu við eigin fordóma, hvers vegna fjölbreytileikinn er mikilvægur og hvernig forréttindi okkar geta oft blindað okkur.
Hvað er það sem gerir fólk að góðum manneskjum? Viljum við verða bestu manneskjur í heimi? Ingileif og María ræða ýmsar manngerðir, hvernig hægt er að leggja sig fram við að verða betri og velta því upp hvað það er sem raunverulega skiptir máli í þessu lífi.
Ástin er stórkostleg og mögnuð en oft erfið og flókin. Ingileif og María ræða ýmsar hliðar ástarinnar og opna sig upp á gátt um sína eigin veikleika, vonir og væntingar.
Öll óttumst við eitthvað, hvort sem sá ótti er rökréttur eða órökréttur. Myrkfælni, flughræðsla, innilokunarkennd og lofthræðsla er til dæmis ótti sem margir kannast við. Ingileif og María opinbera sinn mesta ótta, þar sem sumt er vissulega órökréttara en annað. Lag: Þormóður Eiríksson
Í fyrsta þætti Raunveruleikans ræða Ingileif og María um sjálfsmynd, leitina að sjáfum sér og því hvort við séum öll að feikaða. Lag: Þormóður Eiríksson
Ingileif Ástvaldsdóttir aðjúnkt við menntavísindasvið HÍ og stundakennari við HA: Möguleikar í fjarkennslu í skólastarfi og staða Kristján Freyr Halldórsson rokksstjóri: Aldrei fór ég suður tónlistahátíðin verður haldin. En hún verður rafræn, streymt á netinu án gesta. Edda Olgudóttir: Vísindaspjall um hormónið sem lætur okkur hika í augnablik þegar okkur bregður við.
Ingileif Ástvaldsdóttir aðjúnkt við menntavísindasvið HÍ og stundakennari við HA: Möguleikar í fjarkennslu í skólastarfi og staða Kristján Freyr Halldórsson rokksstjóri: Aldrei fór ég suður tónlistahátíðin verður haldin. En hún verður rafræn, streymt á netinu án gesta. Edda Olgudóttir: Vísindaspjall um hormónið sem lætur okkur hika í augnablik þegar okkur bregður við.
Í þessum þætti ræddi ég við Maríu Rut. Hún var 18 ára þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn og var gengin rúmar 17 vikur þegar það kom í ljós að hún værir ólétt. Meðgangan gekk vel og hún tókst á við þetta hlutverk með mögnuðum hætti. Til að mynda voru allmargir mættir inná fæðingarstofuna stuttu eftir að litli strákurinn hennar fæddist, eitthvað sem myndi ekki beint viðgangast í dag. Hún og konan hennar, Ingileif, eignuðust svo strák sumarið 2019 og María fer yfir það hvernig hún sem aðstandandi upplifði meðgönguna með konunni sinni og hvernig það var að vera í fæðingunni en hafa upplifað þessa hluti sjálf. Í lokin komum við svo inná hvað það er mikilvægt að mæður treysti á sjálfa sig í stað þess að hlusta á alla aðra í kringum sig. Þátturinn er í boði Dimm og Litla gleðigjafans.
Rokkstjörnur, 15. ágúst, svart fluga, álpappírsflipar og margt fleira kemur fyrir í þættinum.
Með miklum breytingum á löggjöf undanfarna áratugi hefur það orðið mun auðveldara fyrir hinsegin fólk að eignast börn. Fyrir þessar miklu breytingar gat samkynja par hins vegar ekki eignast barn saman hér á landi. Þetta þekkja hjónin Hanna Katrín Friðriksson og Ragnhildur Sverrisdóttir sem fluttu af landi brott fyrir um 20 árum til að freista þess að búa til barn. Í þættinum spjallar Ingileif við þær hjón um ferðalag þeirra í þá átt að búa til fjölskyldu, sem ekki var alltaf auðvelt. Þátturinn er sá sjötti og síðasti í sex þátta hlaðvarpsseríu um hinseginleikann, sem gefin er út í tilefni 50 ára afmælis Stonewall-uppþotanna í New York og 20 ára afmælis Hinsegin daga á Íslandi. Þáttastjórnandi: Ingileif Friðriksdóttir
Tungumálið hefur mikil áhrif á það hvernig við getum tjáð okkur um okkar kynhneigð og kynvitund og er okkur því mjög mikilvægt. En hvers vegna notum við til dæmis orðið hinsegin sem regnhlífarhugtak yfir lesbíur, homma, tvíkynhneigða, transfólk, intersex fólk, eikynhneigða, pankynhneigða osfrv.? Og hvers vegna er mikilvægt fyrir okkur að geta tjáð okkar kynhneigð, kynvitund og kyntjáningu í tungumálinu? Í þættinum spjallar Ingileif við Þorbjörgu Þorvaldsdóttir um tungumálið og Vallý Hirst um persónulega reynslu af því að rekast á veggi kynjaðs tungumál. Þátturinn er sá fimmti í sex þátta hlaðvarpsseríu um hinseginleikann, sem gefin er út í tilefni 50 ára afmælis Stonewall-uppþotanna í New York og 20 ára afmælis Hinsegin daga á Íslandi. Þáttastjórnandi: Ingileif Friðriksdóttir
Við fengum til okkar mesta power couple Íslands þær Maríu og Ingileif. Þær hafa haft mikil áhrif og báðar verið á lista yfir framúrskarandi Íslendinga. Einhvernveginn virðast þær vekja athygli hvert sem þær fara fyrir frábær og mikilvæg störf, saman eða í sitthvoru lagi. Þær eru stofnendur Hinseginleikans sem að er fræðsluvettvangur fyrir fjölbreytileikann. Þær búa yfir svakalegri reynslu sem að við að við getum öll lært af og nýtt okkur!
Konurnar Ingileif og María hafa verið áberandi í hinsegin baráttunni á Íslandi meðal annars með stofnun Hinseginleikans sem er núna Instagram, sjónvarpsþáttur og hlaðvarp!
Umsjón: Matthías Már Magnússon og Lovísa Rut Kristjánsdóttir. Poppland dagsins var stútfullt af allskonar fólki og farið var um víðan völl í tónlistinni að vanda. Við heyrðum í Bubba Morthens símleiðis og spjölluðum um nýja lagið hans Án Þín. Rapparinn Chase kíkti í heimsókn og sagði okkur frá nýja laginu hans og Páls Óskars, Stjörnur. Söngkonan Ingileif var einnig að gefa út nýtt lag, lagið Heim sem hún kynnti fyrir okkur. Arnar Eggert og Andrea Jónsdóttir fóru yfir plötu vikunnar. Svo heyrðum við í Hatara og Bashar Murad sem eru á norðurleið og leika fyrir dansi í Sjallanum í kvöld, spjölluðum við þá um nýja lagið og myndbandið. Quarashi - Stun Gun Queen - Somebody To Love Radiohead - Jigsaw Falling Into Place Bubbi Morthens - Aldrei Fór Ég Suður Bubbi Morthens - Án Þín The Clash - Should I Stay Or Should I Go Green Day - Time Of You Life Egill Ólafsson - Ekkert Þras Laura Branigan - Gloria David Bowie - Diamond Dogs David Bowie - Rebel Rebel Bloodgroup - Hips Again Eyjólfur Kristjánsson - Gott Jet Black Joe - I Know Ingileif - Heim Talking Heads - Road To Nowhere National - Light Years Mahmood - Soldi Björgvin Halldórsson - Himinn og Jörð Chase, Páll Óskar - Stjörnur Mac Demarco - Nobody Banks - Gimme The Verve - Bitter Sweet Symphony Capital Cities - Kangaroo Court Hatari - Klefi (Bashar Murad) Daði Freyr - Endurtaka Mig Hot Chip - Hungry Child Elton John - Bennie And The Jets
Það hefur varla farið framhjá neinum að handíðar njóta gríðarlegra vinsælda hér á landi og á samfélagsmiðlum má m.a. finna bæði handóða prjónara og heklara. Áhugamálin teyma menn víða og nú um helgina dvelur stór hópur íslensks handverksfólks í Edinborg, þar sem fram fer árleg Garnhátíð. Heiða Pálrún Leifsdóttir var á línunni og veitti okkur innsýn í stemninguna. Í umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks á þriðjudagskvöld, þar sem fjallað var um sjálfsvíg á geðdeild Landspítalans, kom m.a. fram að í kjölfarið hefðu fimm af átta geðdeildum spítalans fengið falleinkunn í öryggisúttekt. Forstjóri Landspítalans segir uppsafnaða viðhaldsþörf mikla og María Einisdóttir, framkvæmdastjóri geðsviðs, kom til okkar og útskýrði stöðu mála. Hinseginleikinn leit fyrst dagsins ljós á Snapchat árið 2016, sem fræðsluvettvangur um allt hinsegin. Hann er hugarfóstur Ingileifar Friðriksdóttur og Maríu Rutar Kristinsdóttur og hefur síðan m.a. birst landsmönnum sem fræðsluþáttaröð á RÚV. Nú hefur Hinseginleikinn hins vegar hreiðrað um sig á Instagram og þær Ingileif og María kíktu í kaffi og sögðu okkur hvað er á döfinni. Í gær bárust fréttir af því að héraðsdómur Reykjaness hefði dæmt mann til að greiða fyrrverandi sambýliskonu sinni bætur eftir að hann seldi eigur hennar þegar hún leitaði í Kvennaathvarfið. Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Kvennaathvarfsins, ræddi við okkur um dóminn og sagði okkur frá starfinu í athvarfinu síðustu misseri, bæði góðar fregnir og miður góðar fregnir. Anna Sigríður Þráinsdóttir kom til okkar og fjallaði um íslenskt mál að venju. Tónlist: Stebbi og Eyfi - Helga. Kacey Musgraves - Space cowboy. Björk - Hidden place. Hafdís Huld - The bargain store. Warmland - Further. Bubbi og Stjörnur - Velkomin. Stjórnin - Ég fæ aldrei nóg af þér.
Gestur Matta er söngkonan Ingileif Friðriksdóttir.
Í þessum þáttum um menntun og framtíðina liggur þungi umræðunnar á menntun, fremur en framtíðinni, en samt er aðalatriðið að velta því fyrir sér hvert verður form, inntak og gildi menntunar (fyrir einstakling og samfélag) eftir 20-40 ár, þ.e. á árunum 2040-2060, þegar unga fólkið sem nú er hefja sína skólagöngu verður í blóma lífsins. Flest af þessu fólki mun upplifa mun hraðari breytingar á sínum lífsferli en við þekkjum nú, þótt sumum okkar þyki nóg um nú þegar. Breytingarnar munu sjást hvarvetna: Ekki síst í daglegu menningarlegu umhverfi, en einnig m.a. í samsetningu jarðarbúa, búsetu og skiptingu gæða, í nýtingu auðlinda, í breytingum á loftslagi, þróun tækni og nýtingu hennar, í atvinnuvegum og atvinnumenningu, í þekkingarsköpun og nýtingu skilnings og þekkingar. Allt þetta vekur spurningar um hlutverk og síðan inntak og form menntunar þegar horft er til næstu áratuga. Ekki er verið að ræða stöðu eða frammistöðu skólakerfisins í dag - leitast er við að horfa eftir megni til framtíðar og er þess vegna að mörgu leyti allt önnur umræða en verið hefur um skólamál (eins mikilvæg og hún þó er). Gestur þáttarins er Ingileif Við munum ekki hafa framtíðarspár eða pælingar um framtíðina sem sérstakt viðfangsefni heldur flétta þær inn í samtöl við alla viðmælendur. Þetta ræðst einkum af þeim ásetningi að hafa menntun, hlutverk hennar og eðli í brennidepli, en það hefur eiginlega vantað í vangaveltur um framtíðina undanfarna áratugi. Gestur þáttarins er Ingileif Ástvaldsdóttir.
Ingileif starfar sem skólastjóri Þelamerkurskóla. Brautskráðist með BEd gráðu frá Kennaraháskóla Íslands 1999 og meistaragráðu í stjórnun menntastofnana 2009. Hún hefur áhuga á upplýsingatækni í skólastarfi, skapandi greinum, útiveru og hreyfingu og mörgu öðru skemmtilegu. Það sem var rætt í þættinum: Flipgrid.com barabyrja.is https://about.me/ingileif Collaborative Professionalism eftir Andy Hargreaves og Michael T. O´Connor Chromebook tölvur […]
Þáttur kvöldsins er afar fjölbreyttur og skemmtilegur, og hann flækist út um víðan völl eins og venjulega. Allt er þetta að sjálfsögðu íslensk tónlist, en það gætir svo sannarlega vors í henni, þótt veðrið sé ekki alveg komið á þann stað. Við kíkjum á nýja breiðskífu með Volta og svo heyrum við ný lög með Bríeti, Írisi Guðmundsdóttur, Rímnaríki, Sögu Matthildi, Svavari Elliða, Ingileif, Árný, Magnúsi Gunnarssyni, Kríu, Stepmom, Aroni Can, Yung Mahican, Daníel Óliver Sveinssyni og Hellidembu. Lagalisti Langspils 198: 1. Aflausn - Íris Guðmundsdóttir 2. In too deep - Bríet 3. Peter Pan - Saga Matthildur 4. Afmæli - Svavar Elliði 5. We Were on a Road - Magnús Gunnarsson 6. Higher - Árný 7. No snitch boys - Stepmom 8. Humidity - Kría 9. At last - Ingileif 10. Fuglabúrið - Volta 11. River - Volta 12. Heal - Volta 13. Aldrei heim - Aron Can 14. Hólkur - Yung Mahican 15. Drunk - Daníel Óliver Sveinsson 16. Lost - Jón Jónsson 17. Andvökunætur - Rímnaríki 18. Lifetime - Gusgus 19. Loving none - Sykur 20. Kynsnillingur - Páll Óskar 21. Mamma - Hellidemba 22. Orka jarðar - Hellidemba 23. Morgunsvæf - Hellidemba Hefurðu samið ótrúlega gott lag, sem þér finnst að eigi að spila í útvarpi? Sendu inn lag í þáttinn og hver veit... Langspil er á dagskrá Rásar 2 á sunnudagskvöldum frá 19.20-21.00. Umsjón: Heiða Eiríksdóttir