Hvað er að frétta?

Follow Hvað er að frétta?
Share on
Copy link to clipboard

Hvað er að frétta? er vikulegur þáttur í umsjón Helgu Margrétar Höskuldsdóttir þar sem hún fer yfir heitustu málefni vikunnar með góðum gestum.

RÚV Núll


    • May 29, 2019 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 18 EPISODES


    Search for episodes from Hvað er að frétta? with a specific topic:

    Latest episodes from Hvað er að frétta?

    22. - 29. maí

    Play Episode Listen Later May 29, 2019


    Gestir í þessum síðasta þætti fyrir sumarfrí eru Ásgerður Ólöf Ásgeirsdóttir, formaður Ungra Evrópusinna, og Karen Björg Þorsteinsdóttir, góðvinur þáttarins. Þær ræða kosningar á Evrópuþingið sem fóru fram fyrir helgi sem og afhjúpunina á Twitter notandanum Boring Gylfi Sig sem reyndist vera leikarinn Þórir Sæmundsson.

    evr gestir karen bj
    15. - 22. maí

    Play Episode Listen Later May 22, 2019


    Gestir vikunnar eru Samúel Karl Ólason og Geir Finnsson, Game of Thrones sérfræðingar með meiru. Meðal umræðuefna þessa vikuna eru auðvitað endalok Game of Thrones, Palestínufánasveiflur Hatara á lokakvöldi Eurovision og málþóf Miðflokksmanna á Alþingi.

    8. -15. maí

    Play Episode Listen Later May 15, 2019


    Gestir vikunnar eru Lovísa Rut Kristjánsdóttir, dagskrárgerðarkona og bókmenntafræðingur, og Ísak Hinriksson, alþýðumaður. Þau spá í spilin fyrir Eurovision og velta fyrir sér skaðabótakröfum í Guðmundar- og Geirfinnsmálið.

    1. - 8. maí

    Play Episode Listen Later May 8, 2019


    Gestir vikunnar eru Silja Rán Arnarsdóttir, lögfræðingur, og Tómas Guðjónsson, upplýsingafulltrúi og aðstoðarmaður þingsflokks Samfylkingarinnar. Þau ræða mál Neytendastofu gegn meintum duldum auglýsingum Páls Óskars og Emmsjé Gauta og þungunarrofsfrumvarpið sem heitar umræður hafa skapast um á Alþingi.

    24. apríl - 1. maí

    Play Episode Listen Later May 1, 2019


    Gestir vikunnar eru Kristín Ólafsdóttir blaðamaður og Guðmundur Felixson sviðshöfundur þau ræða heitustu mál vikunnar, nýjar vendingar í Klaustursmálinu og mjaldur sem gripinn var við strendur Noregs og talið er að stundi njósnastarfsemi fyrir rússneska herinn.

    10. - 17. apríl

    Play Episode Listen Later Apr 17, 2019


    Gestir vikunnar eru Margrét Helga Erlingsdóttir, blaðamaður á Vísi, og Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, laganemi. Umræðuefni vikunnar eru hræðilegur bruni Notre Dame kirkjunnar í París og handtaka Julian Assange, stofnanda Wikileaks.

    3. - 10. apríl

    Play Episode Listen Later Apr 10, 2019


    Gestir vikunnar eru Geir Finnsson, varaborgarfulltrúi og afþreyingariðnaðarsérfræðingur og Ásgerður Ólöf Ásgeirsdóttir, stjórnmálafræðinemi og stjórnarmeðlimur í Ungum Evrópusinnum. Þau ætla að ræða heitasta mál vikunnar, þriðja orkupakkann, og svo auðvitað Game of Thrones sem byrjar aftur á sunnudaginn.

    27. mars - 3. apríl

    Play Episode Listen Later Apr 3, 2019


    Gestir vikunnar eru Snorri Másson, blaðamaður á Morgunblaðinu, og Karen Björg Þorsteinsdóttir, uppistandari. Við ræðum misvel heppnuð aprílgöbb sem litu dagsins ljós á mánudag sem og kjaraviðræðurnar sem eitthvað virðist vera farið að sjá fyrir endann á.

    20.-27.mars

    Play Episode Listen Later Mar 27, 2019


    Gestir vikunnar eru þau Jóel Ísak Jóelsson, viðskiptajöfur og áhugamaður um flugfélög, og Inger Erla Thomsen, aktívisti og stjórnmálafræðinemi. Þau ræða bæði risamál vikunnar sem er auðvitað mögulegt gjaldþrot Wow air og svo umhverfsimálin sem hafa verið áberandi síðustu vikur eftir sýningu þáttarins Hvað höfum við gert?

    13.-20.mars

    Play Episode Listen Later Mar 20, 2019


    Gestir vikunnar eru þau Jóna Þórey Pétursdóttir, meistaranemi í lögfræði og nýkjörinn forseti stúdentaráðs, og Eiríkur Búi Halldórsson, stjórnmálafræðinemi og glímuáhugamaður. Þau ræða meðal annars dóm Mannréttindadómstóls Evrópu sem féll í síðustu viku og varð til þess að Sigríður Á. Anderssen, nú fyrrverandi dómsmálaráðherra, sagði af sér og bardaga Gunnars Nelson sem fram fór um helgina.

    6.-13.mars

    Play Episode Listen Later Mar 13, 2019


    Hvað er að frétta? er komið aftur eftir örstutt vikufrí en gestir þáttarins eru Una Stefánsdóttir, tónlistarkona, og Sigurður Bjartmar Magnússon, fyndnasti háskólaneminn. Þau ræða meðal annars ásakanir á hendur Michael Jackson um barnaníð sem hafa komist í hámæli í vikunni, um mótmæli hælisleitenda við Austurvöll og viðbrögð lögreglunnar við þeim.

    20.-27.febrúar

    Play Episode Listen Later Feb 27, 2019


    Gestir vikunnar eru Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, laganemi og borðtennisspilari, og Inga Sara Guðmundsdóttir, meistaranemi og óskarssérfræðingur. Umræðuefni dagsins er annars vegar 91.óskarsverðlaunahátíðin sem haldin var nú síðasta sunnudag og hins vegar gerum við heiðarlega tilraun til að útskýra verkföllin og kjaraviðræðurnar sem hafa einokað fréttaumræðu síðustu vikna.

    13.-20.febrúar

    Play Episode Listen Later Feb 20, 2019


    Gestir vikunnar eru Vilhelm Neto, leikari og grínisti, og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, formaður Landssamtaka íslenskra stúdenta. Umræðuefni vikunnar er einmitt meðal annars Verkfall fyrir loftslagið sem landssamtökin standa fyrir ásamt Sambandi íslenskra framhaldsskólanema, við ræðum líkar nýjar franskar á KFC og strumpabæ.

    kfc gu umr febr gestir sambandi landssamtaka vilhelm neto verkfall
    6.-13.febrúar

    Play Episode Listen Later Feb 13, 2019


    Starkaður Pétursson, spjátrungur og mannvitsbrekka, og Tinna Björg Kristinsdóttir, hlaðvarpskona og skemmtikraftur, eru gestir vikunnar og ræða meðal annars Grammy verðlaunin, eitrað slím og ofmetið beikon.

    30.janúar-6.febrúar

    Play Episode Listen Later Feb 6, 2019


    Í þætti vikunnar spjallar Helga við Jakob Birgisson, uppistandara og íslenskunema, og Ingunni Láru Kristjánsdóttur, leikara og greenscreen grínara, um veggjöldin og framtíð Snapchat eftir að Sólrún Diego ákvað að hætta á miðlinum.

    23.-30.janúar

    Play Episode Listen Later Jan 30, 2019


    Gestir vikunnar eru Guðmundur Felixson, sviðhöfundur og dagskrárgerðarmaður, og Lovísa Rut Kristjánsdóttir, poppspekúlant og útvarpskona. Við ræðum meðal annars 36 klukkutíma blakkátið sem komst í fréttirnar í vikunni sem og Eurovision lögin sem tilkynnt voru um helgina.

    16-23. janúar

    Play Episode Listen Later Jan 23, 2019


    Gestir þáttarins þessa vikuna eru Tómas Geir Howser Harðarson, betur þekktur sem Tilfinninga Tómas, og Guðný Ljósbrá Hreinsdóttir, áhugamaður um málefni líðandi stundar. Í þættinum ræðum við meðal annars Seðlabankabrjóstamyndirnar og hashtaggið #10yearchallenge sem var afar áberandi á samfélagsmiðlum í vikunni.

    9.-16. janúar

    Play Episode Listen Later Jan 16, 2019


    Gestir í þessum fyrsta þætti Hvað er að frétta? eru Karen Björg Þorsteinsdóttir, uppistandari og tískuspekingur, og Hafsteinn Níelsson, snappari og hamborgaraflippari. Stærstu mál vikunnar eru krufin, þar á meðal eggið sem braut Instagram og það hvort við eigum að seinka klukkunni hér á Íslandi.

    hva gestir karen bj

    Claim Hvað er að frétta?

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel