POPULARITY
Mannréttindaráðstefna World Pride var haldin í síðustu viku í höfuðborg Bandaríkjanna – en ráðstefnan er hluti af stærstu hinsegin viðburðarröð heims og dregur að sér þátttakendur, sérfræðinga og leiðtoga alls staðar að úr heiminum til að ræða stöðu og framtíð mannréttinda hinsegin fólks. Fulltrúar Samtakanna 78 og Hinsegin daga tóku meðal annarra þátt í ráðstefnunni og í dag koma þeir í heimsókn til okkar - þær Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna 78, og Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga – til að gera upp ráðstefnuna. Fyrstu samfélagslögreglumennirnir á Íslandi tóku til starfa fyrir rúmum sex árum síðan. Síðan hefur verkefnið vaxið hratt og nú eru starfandi samfélagslöggur á flestum lögreglustöðvum landsins. Við ræðum við Unnar Þór Bjarnason, reynda samfélagslöggu, um hvernig megi skapa traust og tengsl milli lögreglunnar og almennings og hvernig lögreglan hefur stigið inn í erfið mál tengd unglingum og ungu fólki. Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, fræðir okkur um loftslagsbreytingar og mjólkurvörur. Tónlist í þættinum: Japanese Breakfast - Slide Tackle Suki Waterhouse - Supersad
Utanríkisráðherra fordæmir loftárásir Ísraelshers á Gaza í nótt sem bundu enda á tveggja mánaða vopnahlé. Hún tekur undir með Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna, að stríðsrekstur Ísraela á Gaza beri öll einkenni þjóðarmorðs. Nærri þrjú hundruð blaðsíður af gögnum varpa ljósi á hvers vegna nýtt meðferðarheimili fyrir börn hefur enn ekki risið í Garðabæ. Bygging heimilisins virðist hafa verið svæfð þegar Barnaverndarstofa var lögð niður.
Fimmtudagur 13. mars Fasísk sveifla, gróandi, ásakanir, heilahvel, tálbeitur, feðraveldi og endurhæfing Magnús Helgason sagnfræðingur og Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúI ræða við Gunnar Smára um hvernig Donald Trump er að breyta Bandaríkjunum. Hversu miklar geta þær breytingar orðið? Og munu þær ganga til baka í næstu pólitísku sveiflu. Lexí Líndal, plötusnúður og listakona og Máni Emeric Primel, leikari ræða um reynslu sína af Janus endurhæfingu sem nú á að loka og sorgina yfir því að öll þessi einstaka sérfræðiþekking sem hefur byggst þar upp til endurhæfingar fyrir ungt fólk með einhverfu og fjölþættan vanda sé nú í hættu. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Helga Gunnlaugsson afbrotafræðing um tálbeitur, en það fyrirbæri er mikið í umræðunni núna í tengslum við hræðilega glæpi á Íslandi. María Pétursdóttir, formaður málefnastjórnar Sósíalistaflokks Íslands og Sara Stef Hildar varaformaður framkvæmdastjórnar ræða við Oddnýju Eir um hitamál flokksins eftir gagnrýni lítils hóps flokksins og uppgjör eins félaga og ásakanir um einelti, útskúfun, þöggun og ólýðræði. Hildur Dagbjört Arnardóttir fer fyrir samfélagsverkefninu Gróanda og hefur byggt upp nytjagarð sl. 9 ár sem fólkið á Ísafirði hefur aðgang að, endurgjaldslaust. Mannréttindafréttaritari okkar, Arna Magnea Danks ræðir um nýjustu aðgerðir Trömpstjórnar og innlends æsings vegna þátttöku sumra í kvennagöngu og spurningarinnar ,,Hvað er kona?” Hún segir okkur frá því hvernig tilvera hennar er ögrun við feðraveldið, eins og fokkmerki og frá nýrri bíómynd sem hún leikur í, Ljósvíkingar sem hefur fengið lof úti í heimi. Elín Agla Briem, þjóðmenningarbóndi, segir frá reynslu sinni af lífinu á Ströndum, af pólitískum átökum sem urðu persónulegar og segir frá nýjum heilahvelsrannsóknum sem setja pólaríseringu í nýtt samhengi og mannskepnuna í ný tengsl við náttúruna.
Nærri fjögur þúsund tillögur bárust um hvernig hægt væri að hagræða í ríkisrekstrinum. Gylfi Ólafsson, sem á sæti í hagræðingarhópnum, fer yfir vinnu hópsins og í hljóðver ræða þau Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Ólafur Stephensen, formaður FA, um þetta útspil forsætisráðherra og hvaða vonir sé hægt að gera sér um það. Síðar í Speglinum verður fjallað um sérstakt skilnaðarmál sem kom til kasta Mannréttindadómstóls Evrópu en eiginmaðurinn hélt því fram að kynlífsleysi væri skilnaðarsök.
Í dag fjöllum við um vatn eina dýrmætustu auðlind Íslands. Þekking okkar á ástandi vatns er takmörkuð og ásókn í það eykst stöðugt. Umhverfis- og orkustofnun hlaut á dögunum 3,5 milljarða styrk frá Evrópusambandinu til að koma betra skikki á vatnamál á Íslandi, fráveitukerfi Ísafjarðarbæjar og tjörnin í Reykjavík eru á meðal þess sem nýtur góðs af. Við ræðum þetta við Hólmfríði Þorsteinsdóttur sérfræðing hjá Umhverfis- og orkustofnun. Hvernig höldum við ráðherrum ábyrgum ef þeir brjóta af sér í starfi? Tilheyra ráðherra elítuhópi sem verður aldrei sóttur til saka vegna brota í embætti? Að mati Hauks Loga Karlssonar, dósents í lögfræði við Háskólann á Birföst, er núverandi kerfi til að halda ráðherrum ábyrgum ómarkvisst, og jafnvel ógagnlegt. Aðeins einu sinni hefur ráðherra verið sóttur til saka vegna meintra brota í embætti, sem endaði ekki betur en svo að ferlið var kært til Mannréttindadómstóls Evrópu. Pétur Magnússon ræddi við Hauk Loga um refsiábyrgð ráðherra og hinn sérkennilega Landsdóm. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, færir okkur gersemar úr safninu. Að þessu sinni rifjar hún leiðsögumannastörf Vigdísar Finnbogadóttur. Tónlist í þættinum: ÁSGEIR TRAUSTI - Lifandi Vatnið. Bright Eyes - Shell games
Meginregla er að réttarhöld eru opin en venjan hér í kynferðisbrotamálum er að þau séu lokuð til að verja persónulega hagsmuni. Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari segir sterk rök fyrir því að opna slík réttarhöld, vilji brotaþoli senda þau skilaboð að hann hafi ekkert til að skammast sín fyrir, líkt og hin franska Giselle Pélicot gerði. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Kolbrúnu. Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Human rights watch, eða Mannréttindavaktin, sem eru með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum, bættust í dag í stækkandi hóp þeirra sem saka Ísraelsmenn um stórfelld mannréttindabrot, brot á alþjóðalögum og sáttmálum og alvarlega glæpi sem stappa nærri þjóðarmorði. Mannúðar- og mannréttindasamtökin Læknar án Landamæra komast að svipaðri niðurstöðu í sinni skýrslu, sem líka kom út í dag. Ísraelar svara samtökunum eins og öllum öðrum sem saka þá um stríðsglæpi og þjóðarmorð, með ásökunum um lygar og gyðingahatur. Hvað gerir jólalag að jólalagi? Er það textinn sem er sunginn eða er til ákveðinn jólahljómur? Freyr Gígja Gunnarsson leitar svara við þeirri áleitnu spurningu hjá tónlistarmanninum Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Þriðjudagur 10. desember Hervæðing, mannréttindi, listamannalaun, einstaklingurinn og o.k. Guttormur Þorsteinsson formaður og Soffía Sigurðardóttir ritari miðnefndar Samtaka hernaðarandstæðinga andmæla hernaðaruppbyggingu í Keflavík og breyttum áherslum fráfarandi ríkisstjórnar í öryggis- og varnarmálum. Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Árni Kristjánsson ungliða- og aðgerðastjóri Amnesty og Edda S. Arhúrsdóttir ungliði segja okkur frá mannréttindabaráttu á tímamótum, bíómynd, svartri skýrslu og helstu áskorunum dagsins í dag. Þórhallur Guðmundsson stjórnsýslufræðingur ræðir ágalla við núverandi kerfi listamannalauna. Lárus Ýmir Óskarsson kvikmyndagerðarmaður ræðir samband menningar og stjórnmála. Hann segir áhrif einstaklinga á söguna ofmetin. Í lokin segir séra Sigurður Ægisson frá uppruna og notkun orðsins o.k., en hann hefur skrifað heila bók um efni.
Við ætlum að bjóða upp á ís í samfélaginu í dag, eða samtal um ís; hafís, klakastíflur, freðna jörð jafnvel hláku. Ingibjörg Jónsdóttir, dósent í landfræði við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands, þekkir vel til þessarar höfuðskepnu, vatns á föstu formi og hún kemur til okkar hér rétt á eftir. Mannréttindasamtökin Amnesty International komast í nýrri rannsóknarskýrslu að þeirri niðurstöðu að nægilegur grundvöllur sé til þess að halda því fram að Ísraelsríki hafi framið og haldi áfram að fremja þjóðarmorð á Gaza. Ungliðadeild Íslandsdeildar samtakanna stóð fyrir mótmælum á Austurvelli nú í hádeginu. Við heyrum hljóðið í viðstöddum. Við förum svo í okkar reglulegu heimsókn á Þjóðaskjalasafninu. Bára Stefánsdóttir, skjalavörður rýnir með okkur skjöl tengd Þjóðleikhúsinu. Tónlist og stef í þættinum: Beatles, The - Here comes the sun. JÓNAS SIG & ÓMAR GUÐJÓNS - Baráttusöngur uppreisnarklansins (Tónatal 2021). Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund). PAUL SIMON - 50 Ways To Leave Your Lover.
Miðvikudagurinn 25. september Forseti, biskup, vinnumansal, Vg, fréttir og hrepparígur Guðrún Karls Helgudóttir biskup og Halla Tómasdóttir forseti koma að Rauða borðinu og ræða vaxandi tilfinningu fyrir að samfélagið hafi sveigt af braut. Adam Kári Helgason, eftirlitsfulltrúi Fagfélaganna og Eflingar, Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur á lögfræði- og vinnumarkaðssviði ASÍ, Gundega Jaunlinina, varaformaður Verkalýðsfélagsins Hlífar og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands ræða vinnuframsal, starfsmannaleigur og brot á réttindum launafólks. Halla Gunnarsdóttir varaformaður VR ræðir tillögu sína og annarra fyrir flokksþing, um að stjórnarsamstarfinu verði slitið strax. Sigurjón Magnús Egilsson kemur og ræðir pólitík og fréttir vikunnar við blaðamennina Sigtrygg Ara Jóhannsson og Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur. Í lokin segir dr. Bjarki Þór Grönfeldt stjórnmálafræðingur okkur frá hrepparíg og ólíkan kúltúr milli bæjarfélaga.
Heimsglugginn fjallaði þessa vikuna um vaxtalækkun í Bandaríkjunum, Bromma-flugvöll í Stokkhólmi, stríðið í Úkraínu, skýrslu Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um Venesúela og Mossad, leyniþjónustu Ísraelsmanna. Mossad er almennt talin bera ábyrgð á sprengjutilræðum gegn Hisbollah-liðum í Líbanon.
Miðvikudagurinn 18. september Niðurskurðarstefna, borgarlína, borgaraleg óhlýðni og Ólympíuleikar Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar segir okkur frá bók Clöru Mattei hagfræðiprófessor um Auðvaldsskipulagið og svelti- eða niðurskurðarstefnu. Sanna Magdalena Mörtudóttir Sósíalisti og Dóra Björt Guðjónsdóttir Pírati deila um borgarlínu. Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki á Menntavísindasviði Háskóla Íslands ræða um gildi mótmæla og borgaralegrar óhlýðni. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson sagnfræðinemi og íþróttafréttamaður segir okkur frá för íslenskra keppenda og fylgdarliðs á Ólympíuleikana í London 1948.
Hin 73 ára Annie og 71 árs Robert höfðu verið gift lengi og áttu fallegt samband, fallega fjölskyldu og voru einnig mjög auðug, en Robert hafði stundað mikil viðskipti í gegnum tíðina og Annie var virk í samfélaginu. Robert hafði hins vegar lennt í því leiðinlega veseni að þurfa að höfða málsókn á hendur 12 aðila vegna vangreiddra skulda, en það fór í gegn og lífið hélt áfram. Robert mætti svo heim einn daginn og tók eftir því að konan hans var horfin, og ekki leið á löngu þar til honum barst bréf, bréf sem gerði honum það ljóst að Annie hafði verið rænt. Yfir 150 áskriftarþættir eru inni á www.pardus.is/mordskurinn en þú getur hlustað fyrir aðeins 1.390 kr.- á mánuði! Þátturinn er í boði Define The Line Sport en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn
Mannréttindasamtökin Amnesty International birtu á mánudag skýrslu um stöðu réttarins til friðsamlegra mótmæla í tuttugu og einu Evrópuríki og niðurstöðurnar eru sláandi: Þessi grundvallarréttur borgara í lýðræðisríkjum á undir högg að sækja, og það eru stjórnvöld sem sækja að honum, leynt og ljóst, með margvíslegum hætti. Ævar Örn Jósepsson fjallar um þetta og ræðir við Önnu Lúðvíksdóttur, framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty International. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason.
Þrettán íslenskar ungliðahreyfingar krefjast þess að ný útlendingalög verði samin í samráði við sérfræðinga í málaflokknum, mannréttindasamtök og hagsmunaaðila. Þau fordæma breytingarnar sem á að gera á útlendingalögunum og krefjast þess að allar lagabreytingar séu gerðar með mannréttindi að leiðarljósi. Við ræddum við Árna Kristjánsson frá ungliðahreyfingu Amnesty og Aníta Soley Scheving frá Andófi. Nýlega var birt skýrsla um stöðu hafsins víða um heim á vegum alþjóðahaffræðinefndarinnar. Við ræddum við Hrönn Egilsdóttur, sviðsstjóra hjá hafrannsóknastofnun og fulltrúa íslands í framkvæmdastjórn alþjóðahaffræðinefndarinnar um þær ógnir sem steðja að hafinu. Edda Olgudóttir kom svo í Vísindaspjall. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir.
Í þessum þætti af Þjóðháttum tala Dagrún og Sigurlaug við hana Önnu Margréti Hrólfsdóttur, þjóðfræðing og framkvæmdastjóra Endó samtakanna.
Gestir Vikulokanna eru Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata, Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar og Stefán Vagn Stefánsson þingmaður Framsóknarflokks. Þau ræddu talningamálið og niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu, stöðuna í Grindavík, fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, ástandið í Miðausturlöndum og vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu um að íslenska ríkið hafi gerst brotlegt krefst viðbragða en mögulega án þess að breyta stjórnarskrá segir fyrrverandi dómari við dómstólínn. Aðhald eða bókhaldsbrellur - sýn stjórnmálamanna á nýbirta fjármálaáætlun veltur á því hvaðan er horft. Børsen, hin fjögurhundruðára gamla kauphöll Dana brann í dag, næstum til grunna. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur segir að skaðinn sé gríðarlegur fyrir Dani. Húsið komi heilmikið við sögu Íslands.
Við tölum um hönnun og samspil hönnunar og mannréttinda. Anna María Bogadóttir arkitekt ætlar að ræða þau mál í tengslum við Hönnunarmars sem hefst síðar í mánuðinum og þar sem hún heldur fyrirlestur á mannréttindamorgnum í Mannréttindahúsinu. Við tökum á móti Önnu Maríu hér á eftir og pælum meðal annars í hugtakinu algild hönnun. Mannætubókmenntir: um næringarfræði þýðinga - svona hljóðar yfirskrift erindis sem Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingarfræði við Háskóla Íslands, flytur í dag á fyrirlestri á vegum félags íslenskra fræða. Við ætlum að ræða við Gauta um listina að þýða texta úr einu tungumáli eða menningarheimi yfir í annan, velta fyrir okkur stöðu þýðinga og að hvaða leyti þýðingar geti talist mannát. Svo heyrum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi í lok þáttar.
12. mars 2024 Sex manns eru í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglu á meintum brotum Quangs Lé, öðru nafni Davíðs Viðarssonar, sem grunaður er um peningaþvætti, skipulagða glæpastarfsemi og vinnumansal. Búið var að rannsaka málið í langan tíma í samvinnu fjölmargra aðila, áður en lögreglan lét til skarar skríða á 25 stöðum um land allt. Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra segir vinnumansal líklega útbreiddara á Íslandi en flestir telja og rannsóknir á mansalsmálum ganga of hægt og illa. Ævar Örn Jósepsson ræðir við hann. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir Alþingi skulda þjóðinni að ljúka samtalinu um breytingar á stjórnarskrá. Hún fundar reglulega með formönnum allra flokka á Alþingi, síðast á föstudag, og telur að breið samstaða sé að minnsta kosti um að fjölga meðmælendum þeirra sem ætli að bjóða sig fram til embættis forseta. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Katrínu. Frá því að Bola Tinbu tók við forsetaembætti í Nígeríu í maílok í fyrra hafa 3.964 mannrán verið framin í landinu, um það bil 450 á mánuði. Þetta er nokkur fjölgun frá því árið á undan og er fjölgunin meðal annars rakin til verstu efnahagskreppu í landinu í áratugi. Ásgeir Tómasson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.
Yfir 70 palestínskir flóttamenn frá Gaza lentu á Keflavíkurflugvelli upp úr hádegi í dag. Reykjavíkurborg tekur á móti stórum hluta þeirra. Fólkinu býðst að koma í skóla- og fjölskyldumiðstöð sem koma á - á laggirnar í Reykjavík á næstu vikum. Þannig á að gefa fólki færi á að kynnast í lífinu í landinu. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Sögu Stephensen og Dagbjörtu Ásbjörnsdóttur, verkefnisstjóra fjölmenningar í leik- og grunnskólum Reykjavíkurborgar. Konur komu saman í dag, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, og kröfðust jafnréttis og aukinna mannréttinda. Á Ítalíu var lýst yfir kvennaverkfalli. Ásgeir Tómasson sagði frá. Á um tíu ára tímabili var sett upp getnaðarvarnarlykkja hjá um 4.500 grænlenskum konum, mörgum á barnsaldri. Þetta var gert til að stemma stigu við fólksfjölgun í landinu, Anna Kristín Jónsdóttir sagði frá og talaði við Kristjönu Guðmundsdóttur Motzfeldt, sem bjó um árabil á Grænlandi.
21. febrúar 2024 Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands fagnar mörgu í heildarsýn í málefnum útlendinga og hælisleitenda en setur spurningarmerki til dæmis við breytingar á viðmiðum um fjölskyldusameiningu, styttingu dvalarleyfa og áform um lokuð búsetuúrræði. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana. Mikil eldsumbrot hafa verið á Reykjanesskaga síðustu misseri og ár. Eldgos, neðansjávargos, eru líka vel þekkt á hafsbotninum á Reykjaneshrygg, út af skaganum og Reykjanesi sjálfu, og Eldey, ein stærsta súlubyggð heims, varð til í einu slíku. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur, sem hefur lengi rannsakað Reykjaneshrygginn, fræðir Ragnhildi Thorlacius og hlustendur um hann. Möguleikar Úkraínumanna til að herja á rússneska innrásarliðið frá sjó aukast talsvert þegar þeir fá í hendur tíu orrustubáta og fleiri hergögn, sem Svíar færðu þeim að gjöf. Andvirði þeirra er 7,1 milljarður sænskra króna, hátt í 95 milljarðar íslenskir. Pål Jonsson varnarmálaráðherra greindi frá gjöfinni á fundi með fréttamönnum í Stokkhólmi. Hann sagði að sænski herinn hefði séð um að velja hergögnin sem send yrðu til Úkraínu. Ásgeir Tómasson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Grindavík er ekki staður sem fjölskyldur geta búið á eins og staðan er núna og líklegra að einhver ár líði frekar en mánuðir áður en það breytist, segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðvísindamaður í viðtali við Ævar Örn Jósepsson. Fyrirtækið Zephyr áætlar að byggja upp allt að 500 megavatta vindorkugarð í landi Klaustursels á Jökuldal í Múlaþingi. Ásta Hlín Magnúsdóttir ræddi við Jónínu Brynjólfsdóttur, forseta sveitarstjórnar Múlaþings og Gunnar Guðna Tómasson, framkvæmdastjóra vatnsafls hjá Landsvirkjun. Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir stríðandi fylkingar fyrir botni Miðjarðarhafs hunsa alþjóðalög, traðka á Genfarsáttmálanum og brjóta mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hann og Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, eru sammála um að án tveggja ríkja lausnarinnar svonefndu verði ekki friður í heimshlutanum. Ásgeir Tómasson tók saman.
Samfélag eftir máli heitir nýútkomin bók. Í henni fjallar Haraldur Sigurðsson skipulagsfræðingur um skipulag þéttbýlis á síðustu öld; um stefnur og strauma, hugsjónir og átök. Haraldur var gestur Morgunvaktarinnar, og við blöðuðum í bókinni og spjöllum vítt og breitt um skipulag þorpanna, bæjanna og borgarinnar. Björn Malmquist fréttamaður í Brussel var líka með okkur. Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna koma saman seinna í vikunni og ræða meðal annars stækkunarmál sambandsins ? einnig ræddi hann við starfsmann Sambands íslenskra sveitarfélaga í Brussel, Óttar Frey Gíslason. Mannréttindadagurinn var í gær, 10. desember. Þá voru 75 ár liðin frá samþykkt Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna, sem síðan hefur lagt grunn að mannréttindastarfi í heiminum. Við veltum því fyrir okkur í dag hvernig Ísland og Íslendingar umgangast mannréttindaskuldbindingar með Margréti Steinarsdóttur framkvæmdastjóra Mannréttindaskrifstofu Íslands. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Lee, Brenda - Weep no more my baby. Þórarinn Ólafsson, Jón Páll Bjarnason, Árni Egilsson, Útlendingahersveitin, Árni Scheving, Pétur Östlund - Get out of town.

Síðasti örþáttur Árna Snævarr um Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna fór í loftið í þættinum í dag. Rætt var við Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, um yfirlýsinguna. Traust til stofnana og stjórnmála var til umræðu á Morgunvaktinni í dag. Er fólk hætt að treysta stjórnvöldum, og ef svo er, hvað hefur það í för með sér? Viktor Orri Valgarðsson er nýdoktor í stjórnmálafræði við Háskólann í Southampton og hefur rannsakað traust. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, sem síðar í dag fær heitið FF7, var með okkur. Meðal þess sem við ræddum var boðað verkfall flugumferðarstjóra og áhrif þess, og áform um að hefta heimagistingu. Niðurstöður PISA könnunarinnar voru áfram til umræðu. Brynhildur Þórarinsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri og rithöfundur, og Þorvar Hafsteinsson, formaður Heimilis og skóla, ræddu við okkur. Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Bee Gees - To love somebody. Ylja - Dansaðu vindur. Una Torfadóttir - Stundum.

Árni Snævarr fjallaði áfram um Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna í tilefni af 75 ára afmælis hennar. Í örþætti dagsins var sjónum beint að því hvað felist í því að mannréttindi séu algild og hvernig yfirlýsingin liti út, ef hún væri samþykkt í dag .Rætt var við Valgerði Pálmadóttir hugmyndasagnfræðingur, Guðmund Alfreðsson fyrrverandi prófessor, Rósu Magnúsdóttur prófessor og Kára Hólmar Ragnarsson lektor. Aðstæður í efnahagsmálum eru um margt óhagstæðar almenningi: Hér er talsverð verðbólga og háir vextir. Við höfum samt séð það svartara, t.d. á níunda áratugnum þegar óðaverðbólga geisaði. Þá var gerður lífskjarasamningur sem tók til fleiri þátta en launahækkana; markmiðið var að bæta lífskjör fólks. Þessi samningur varð svo grunnurinn að þjóðarsáttinni nokkrum árum seinna. Þröstur Ólafsson, þá framkvæmdastjóri Dagsbrúnar, mótaði lífskjarasamninginn á sínum tíma, hann var hjá okkur. Borgþór Arngrímsson fór yfir dönsk málefni, minkamálið svokallaða heldur áfram og nýr ráðherra Venstre þurfti að fara í veikindaleyfi aðeins viku eftir að hafa tekið við lyklum að skrifstofunni. Þá ræddum við um nýtt tjald og svið á Hróarskelduhátíðinni og um dönsku jólahlaðborðin. Fjallvegunum í þjóðvegakerfinu fækkaði um einn í síðustu viku þegar umferð var hleypt um nýja veginn fyrir Hallsteinsnes á Vestfjörðum; um hinn margumtalaða Teigsskóg. Nú þarf ekki lengur að aka yfir Hjallaháls. Við ræddum þessa samgöngubót við Þórdísi Sif Sigurðardóttur, sveitarstjóra Vesturbyggðar, og röbbuðum líka um eitt og annað fleira er varðar sunnanverða Vestfirði. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Donovan - Catch the wind. Sigrún Harðardóttir, Orion - Enginn veit. Helmig, Thomas - Det er mig der står herude og banker på. Cumanana, Vásquez, Abelardo - Prendeme la vela = Light my candle.

Snemma í þættinum var fluttur fyrsti hluti stuttþáttaraðar Árna Snævarr, upplýsingafulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum, um Mannréttindayfirlýsingu SÞ í tilefni þess að 75 ár eru liðin frá samþykkt hennar. Árni ræddi stuttlega við Val Ingimundarson prófessor, Kára Hólmar Ragnarsson lektor og Rósu Magnúsdóttur prófessor. Í spjalli um efnahag og samfélag fjallaði Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, m.a. um fyrirfram greiddan arf en mikið hefur verið um slíkt að undanförnu sem sést best á auknum tekjum ríkissjóðs af erfðafjárskatti. Einnig var rætt um aukin framlög ríkisins til sveitarfélaga vegna málaflokks fatlaðs fólks og Kauphallarskráningu Ísfélagsins. Arthúr Björgvin Bollason sagði tíðindi frá Þýskalandi. Tillögur um að gangsetja að nýju kjarnorkuver í Þýskalandi eru efst á baugi í stjórnmálunum enda umdeildar mjög. Úlfar og almenningssamgöngukerfið í Berlín voru einnig til umræðu. Öld var á laugardag frá fæðingu Mariu Callas sem var fremsta sópransöngkona heims á sinni tíð. Ævi hennar var erfið og einkenndist af miklum átökum. Magnús Lyngdal Magnússon, óperuunnandi og tónlistargagnrýndandi Morgunblaðsins, sagði frá Callas. Tónlist: In the mood - Glenn Miller, Buttons and bows - Dinah Shore, Einnig voru leikin brot úr upptökum með Mariu Callas syngja verk eftir Bellini, Verdi og Puccini. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Hvítir veggir, hvítir sloppar og börn í hvítum rúmum; þau skorti örvun og umhyggju á vöggustofum Reykjavíkur. Foreldrarnir fengu ekki að snerta þau og varla að heimsækja þau. Þetta hafði oft varanleg áhrif á líf og heilsu barnanna. Þau sættu illri meðferð að dómi nefndar sem hefur rannsakað starfsemina. Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur hefur aflýst fundi með tyrkneska körfuboltamanninum Enes Kanter Freedom sem hefur barist fyrir mannréttindum í heimalandi sínu en einnig gagnrýnt trans fólk. Forsetinn ætlar að hitta manninn. Einungis tveir þingmenn Norðvesturkjördæmis, af átta, boðuðu komu sína að hitta sveitarstjórnarmenn á Vestfjörðum. Stjórnarmaður í fjórðungssambandi Vestfjarða furðar sig á áhugaleysinu. Jón Fosse handhafi Nóbelsverðlaunana í bókmenntum í ár er krefjandi skáld fyrir nútímalesendur, segir Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson rithöfundur, sem er útgefandi verkanna. Stuðningur við Úkraínumenn er að vonum helsta umræðuefnið á leiðtogafundi Evrópska stjórnmálavettvangsins í Granada á Spáni. Nýtt vandamál er þó komið upp sem einnig þarf að takast á við: fjöldaflótti armenskra íbúa frá héraðinu Nagorno-Karabakh í Aserbaísjan til Armeníu. Þangað streymdu rúmlega eitt hundrað þúsund manns á fáum sólarhringum. Áætlað er að eftir séu um tuttugu þúsund, flest í héraðshöfuðborginni Stepanakert. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred. Annalísa Hermannsdóttir stjórnaðir fréttaútsendingu.

Umhverfisstofnun er að fara af stað með átaksverkefni sem snýr að menguðum jarðvegi. Fólk sem veit af svæðum þar sem úrgangur var brenndur eða olíu hellt niður er beðið að láta stofnunina vita. Kristín Kröyer, sérfræðingur í teymi mengunareftirlits hjá Umhverfisstofnun ræðir þetta verkefni við okkur. Sigríður Dóra Magnúsdóttir var í gær skipuð nýr forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Við ætlum að ræða við hana um hennar sýn á þróun heilsugæslunnar til framtíðar og hvernig hún sér fyrir sér að taka á manneklu og öðrum vandamálum sem hafa plagað stofnunina. Við hringjum í Sævar Helga Bragason, stjörnufræðikennara sem segir okkur frá vígahnetti sem hann sá við Raufarhöfn í vikunni. Stefán Gíslason flytur okkur umhverfispistil á lögfræðilegum nótum. Loftslagsmálaferli eru umfjöllunarefni dagsins og einkum væntanleg fyrirtaka Mannréttindadómstóls Evrópu á máli portúgalskra ungmenna sem hafa stefnt fjölda ríkja fyrir að standa ekki við loforð sín í loftslagsmálum.

Ævar Sigmar Hjartarson Formaður húsfélags í húsi við Hvaleyrarbraut, sem brann í gær, segist sjálfur ítrekað hafa bent bæjaryfirvöldum á að ólögmæt búseta væri í húsinu. Leigusalar virðast fela fyrir nágrönnum sínum að þeir leigi út rými í atvinnuhúsnæði til búsetu. Landmæraverðir í Sádi-Arabíu fremja fjöldamorð á flóttafólki frá Eþíópíu sem reynir að komast inn í landið, samkvæmt nýrri skýrslu Mannréttindavaktarinnar. Um 850 er enn saknað eftir mikla gróðurelda á Havaí. Eldarnir eru þeir mannskæðustu í Bandaríkjunum í meira en öld. Staðfest er að 114 hafa látist. Bandaríkjaforseti sækir eyjarnar heim í dag. Grænþörungar í vatnsbóli Skagamanna ollu að öllum líkindum óbragði af drykkjarvatni þar. Vatnsbólið hefur verið hreinsað. Steingrímur Örn Ingólfsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Kvarna sem selur sorpkvarnir segir eftirspurn og áhuga á kvörnunum hafa aukist merkjanlega eftir að nýtt flokkunarkerfi var tekið í gagnið á höfuðborgarsvæðinu. Jón Trausti Kárason forstöðumaður vatns og fráveitu hjá Veitum segir veitukerfið ekki í stakk búið til þess að taka á móti lífrænum úrgangi. Neyðarástand ríkir í húsnæðismálum Háskólans á Hólum, segir Hólmfríður Sveinsdóttir rektor. *** Í byrjun árs í fyrra er talið að tæplega tvö þúsund hafi búið í ósamþykktu atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Líklegt er að þeir séu mun fleiri í dag. Stefnt er að því að breyta regluverki svo fólk geti tímabundið skráð lögheimili sitt í atvinnuhúsnæði. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Regínu Valdimarsdóttur, teymisstjóra á brunavarnasvið Húsnæðis -og mannvirkjastofunar. Miðað við nýútkomna tölfræði Hagstofunnar má gera ráð fyrir að rúm 60% þeirra sem hefja nám á framhaldsskólastigi núna ljúki því innan sex ára. Það er í það minnsta raunin með þá sem hófu nám haustið 2017. Nú er byrjað að greina sérstaklega hvort innflytjendur klára framhaldsskólann. Þá kemur í ljós að tæp 67% þeirra sem fluttu til landsins fyrir sjö ára aldur, og byrjuðu í framhaldsskóla luku náminu, en aðeins tæp 37% þeir sem fluttu til landsins sjö ára eða eldri. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Stellu Blöndal dósent við HÍ. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, var hrærður þegar hann þakkaði Dönum á þeirra eigin tungu fyrir að ætla að gefa Úkraínuher nítján F-16 orrustuþotur. Jafnframt taka Danir að sér að þjálfa úkraínska flugmenn, flugvirkja og starfslið til að þjónusta þoturnar. Ásgeir Tómasson sagði frá. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Jón Þór Helgason. Fréttaútsendingu stjórnaði Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Nettur þéttur þáttur. Maður rændi 12 ára dreng fyrir að gera dyraat, reyndar ekki í fyrsta skipti og ekki annað. Þú átt ekki að óttast orðið píka, hversu oft áttu að nota handklæði áður en þú setur það í þvottinn og nokkur, tja furðuleg ráð til að gæla við brjóst. Lögrelgudagbókin auðvitað á sínum stað og afi gamli deyr rétt áður en hann leysir út vændiskonu vinninginn sinn...hmmm. Góða skemmtun !
Bann við palestínska fánanum á almannafæri, fleiri landtökubyggðir á landsvæði Palestínumanna og umdeild yfirhalning á dómskerfinu eru á meðal þess sem ný ríkisstjórn í Ísrael hefur boðað. Benjamín Netanjahú er snúinn aftur sem forsætisráðherra í ríkisstjórn sem er sögð mesta harðlínustjórn í sögu Ísraels. Ólöf Ragnarsdóttir ræddi við Magnús Þorkel Bernharðsson, prófessor í sögu Miðausturlanda, um áherslur nýrrar ríkisstjórnar. Og við sérfræðing í málefnum Ísraels og Palestínu og stjórnmálaskýranda í Tel Aviv sem er ekki bjartsýn á friðarferlið og segir að draumurinn um sjálfstæða Palestínu hafi aldrei verið jafn fjarlægur. Svo fjöllum við líka um dauðarefsingar. Íranska ríkið hefur verið harðlega gagnrýnt af alþjóðasamfélaginu síðan mótmælin gegn klerkastjórninni brutust þar út í september. Og þeir sem stjórna í Íran hika ekki við að taka fólk af lífi. Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandið fordæma aftökurnar sem eru sagðar byggja á ósanngjörnum réttarhöldum og þvinguðum játningum. Ríkisstjórnir hinna ýmsu vestrænu ríkja hafa sömuleiðis fordæmt aftökurnar, meðal annars ríkisstjórn Bandaríkjanna, en Bandaríkin eru einmitt eitt af löndum heims þar sem dauðarefsingar eru enn uppi á borðinu. Að minnsta kosti 579 fangar í 18 löndum voru teknir af lífi árið 2021, samkvæmt skýrslu Amnesty International. Samtökin benda á að dauðadómum og aftökum hafi fjölgað í ríkjum sem hafa beitt henni mikið hingað til. 108 lönd heimsins hafa afnumið dauðarefsingar. En hvað réttlætir dauðarefsingar, hvernig er þeim beitt í heiminum og hver eru rökin á móti þeim? Sunna Valgerðardóttir ræddi við heimspekiprófessorinn og siðfræðinginn Salvöru Nordal - um fortíð, nútíð og mögulega framtíð, þessarar refsingar refsinganna, hinn óaftturkræfa dauða, sem enn er við lýði í 55 löndum heimsins. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Spegillinn 8. desember 2022 Formaður Flokks fólksins segir að neyðarástand ríki á leigumarkaði. Hún segir að þær hækkanir sem nú eru boðaðar vera til marks um gegndarlausa græðgi leigufyrirtækja. Formaður leigjendasamtakanna segir hækkanir leigufélagsins Ölmu með því versta sem gerist á markaðnum. Nýr dómur Evrópudómstólsins um fyrningu orlofs er fordæmisgefandi. Atvinnurekendur eru ábyrgir fyrir því að starfsfólk fái svigrúm til að fara í frí. Þetta er mat forseta ASÍ Dæmi eru um að sjúklingar þurfi að greiða um 200 þúsund krónur í komugjöld á ári hjá sérfræðilæknum. Margt smátt gerir eitt stórt. Einn alræmdasti vopnasali heims var sendur til Rússlands í skiptum fyrir körfuboltastjörnuna Brittney Griner. Hann var dæmdur í 25 ára fangelsi í Bandaríkjunum fyrir að selja vopn sem átti að nota gegn Bandaríkjamönnum. ----- Karlmaður á þrítugsaldri var tekinn af lífi í Íran í dag fyrir að hafa tekið þátt í víðtækum mótmælum sem staðið hafa víða um landið síðan í september. Hann var sakfelldur og dæmdur til dauða fyrir að hafa truflað umferð á götu í höfuðborginni Teheran og sært öryggisvörð með sveðju fljótlega eftir að mótmælaaldan skall yfir. Yfirvöld segja það jafngilda því að hafa lýst yfir stríði gegn almættinu. Dómurinn féll fyrir mánuði. Aftökunni hefur víða verið mótmælt. Mannréttindasamtök segja að réttarhöldin hafi verið sviðsett. Þau segja að enn fleiri mótmælendur eigi á hættu að verða teknir af lífi. Fleiri en tíu hafa verið dæmdir til dauða að undanförnu fyrir ýmsar sakir. Kristján Sigurjónsson fjallar um Íran. Holger Münch, yfirmaður í þýsku lögreglunni greindi frá því í dag að tveir hefðu bæst í hóp fólks sem er grunað um að hafa ætlað að ráðast að þinghúsinu og steypa stjórnvöldum, nú lægju 54 undir grun en líklegt væri að enn bættist í þann hóp. Aðgerðir lögreglu hafa verið þær viðamestu um áratuga skeið, þúsundir lögreglumanna tók þátt í þeim, húsleit var gerð á meira en 150 stöðum víðs vegar í sambandslýðveldinu og vopn fundust á að minnsta kosti fimmtíu af þeim, 25 hafa þegar verið handteknir. Münch sagði að hópur sem í væru tugir jafnvel hundruð hefðu ekki bolmagn til að bylta þýska ríkinu en engu að síður væri þarna varhugaverð blanda fólks sem aðhylltist hættulegar og órökréttar skoðanir og skirrðist ekki við að grípa til ofbeldis, sumir byggju yfir miklu fjármagni, aðrir vopnum og kunnáttu í að beita þeim. Því hefði verið fyllsta ástæða til að grípa inn í. Guðmundur Hálfdánarson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands tekur undir að erfitt sé að hugsa ekki til fyrri hluta síðustu a

Thad Phillips var þrettán ára gamall þegar hann vaknaði við það að einhver var að bera hann út úr sínu eigin húsi. Honum fannst það ekkert skrítið enda sofnaði hann oft í sófanum, en í þetta skipti var hann borinn út úr húsinu. Hann skildi lítið hvað var í gangi en hafði litlar áhyggjur, þar til hann var skyndilega mættur í hús til ókunnugs manns þar sem hann gat hvergi farið. Þátturinn er að sjálfsögðu í boði Scrub Daddy Ísland en með kóðanum mordskurinn fáið þið 20% afslátt af öllum vörum inni á www.scrubdaddyisland.is Viltu meira efni? Áskrift kostar 990kr.- á mánuði og það er engin binding: www.pardus.is/mordskurinn Samfélagsmiðlar: www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn
Rúmur mánuður er í að heimsmeistaramótið í knattspyrnu hefjist í Katar. Mótið er haldið í skugga ásakana um gróf mannréttindabrot þarlendra stjórnvalda gegn farandverkafólki. Opinberum tölum stjórnvalda í Katar yfir þá sem hafa látist við uppbyggingu fyrir heimsmeistaramótið ber alls ekki saman við tölur sem fjölmiðlar og mannréttindasamtök hafa. Þau síðarnefndu segja þúsundir farandverkamanna hafa látist frá áriu 2010 þegar Katar var valið sem mótshaldari árið 2022. Stjórnvöld í Katar skrá hins vegar andlát langflestra verkamanna af náttúrulegum orsökum. Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson fjalla um heimsmeistaramótið í skugga mannréttindabrota og ræða við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamann og Bryndísi Bjarnadóttur, herferðastjóra Íslandsdeildar Amnesty International. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, boðaði til kosninga fyrr í þessari viku. Þær fara fram fyrr en áætlað var, nánar tiltekið 1. nóvember. Fjórir danskir stjórnmálaflokkar hafa skipt um forystu á kjörtímabilinu sem sömuleiðis hefur einkennst af ýmsum hneykslismálum. Hallgrímur Indriðason fer yfir pólitíkina í Danaveldi og nýtur aðstoðar Boga Ágústssonar í yfirferð sinni. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur um erlend málefni, um allt það sem gerist ekki ekki á Íslandi. Umsjón með þættinum hafa Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Salma al-Shehab hefur verið dæmd í 34 ára fangelsi í Sádi-Arabíu fyrir að endurtísta umfjöllun um mannréttindamál í landinu. Al-Shebab var handtekin við komuna til landsins frá Bretlandi þar sem hún var í doktorsnámi við háskólann í Leeds. Þessi harði dómur er til marks um hversu hart yfirvöld í landinu taka á allri mannréttindabaráttu undir forystu krónprinsins Mohammeds bin Salmans. Hann hefur þó lýst yfir að hann vilji breyta landinu og færa í átt að nútímanum en tekur samt af mikilli grimmd á allri andstöðu og má minnast þess að sádiarabískir leyniþjónustumenn myrstu blaðamanninn Jamal Kashoggi í Tyrklandi fyrir fjórum árum. Á sama tíma reyna Sádi-Arabar að hvítþvo sig á alþjóðavettvangi með því að ausa fé í íþróttaviðburði eins og röð golfmóta og þeir hafa einnig keypt enska knattspyrnufélagið Newcastle. Þetta var meðal þess sem Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu við Boga Ágústsson í Heimsglugga vikunnar. Þau ræddu einnig stöðuna í sænskum stjórnmálum rúmum þremur vikum fyrir kosningar. Þar stefnir í mjög spennandi kosningar. Lítil spenna virðist hins vegar um leiðtogakjör í breska Íhaldsflokknum þar sem allt bendir til að Liz Truss beri sigurorð af Rishi Sunak. Þá var tveggja manna minnst í lokin með einu lagi. Þetta eru Elvis Presley og þýski leikstjórinn Wolfgang Petersen sem lést í vikunni. Í fyrradag voru 45 ár frá dauða Presleys. Petersen notaði þjóðlag frá Schwaben í Suðvestur-Þýskalandi, Muss i denn í kvikmynd sinni Das Boot. Textinn er á svabískri þýsku, muss i denn, muss i denn zum Städtele hinaus; verð ég þá að fara og skilja þig eftir, Und du, mein Schatz, bleibst hier? Það var mjög vinsælt að syngja lagið í upphafi ferðalaga og leiðangra, ekki síst meðal sjómanna, bæði í kaupskipaflotanum og herflotanum. Þannig er það notað í Das Boot. Lagið er meðal þekktustu þjóðlaga Þjóðverja, og það er til í mjög mörgum útgáfum, Marlene Dietrich, Mireille Mathieu og Nana Mouskouri hafa flutt það en þekktasta útgáfan í hinum enskumælandi heimi er án efa Wooden Heart sem Elvis Presley söng 1960 í kvikmyndinni G.I. Blues, sem fjallar um bandaríska hermenn í Þýskalandi. Presley var einmitt í hernum þar þegar hann gegndi tveggja ára herskyldu frá 1958-60. Lagið fór víða í efsta sæti á vinsældalistum.

Shannon var 9 ára gömul þegar hún hvarf skyndilega á leið sinni heim úr skólanum. Áhyggjufull móðir hennar tilkynnti hana týnda og rannsókn lögreglu leiddi ekkert í ljós, svo strax var hafist handa við að athuga hvort henni hafi einfaldlega verið rænt. Hún fannst svo að lokum um 24 dögum eftir mannránið. Ræningi hennar stóð fjölskyldunni nær en öllum grunaði. Viltu meira efni: www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn