Podcasts about vilhelm neto

  • 12PODCASTS
  • 79EPISODES
  • 1h 17mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Oct 24, 2024LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about vilhelm neto

Latest podcast episodes about vilhelm neto

Rauða borðið
Rauða borðið 23. okt - Pallborð ungliða, pólitíkin, flokkur innflytjenda, leikhús, búverkabyltingin

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 24, 2024 218:59


Miðvikudagur 23. október Pallborð ungliða, pólitíkin, stjórnmálaafl innflytjenda, leikhús og forn vinnumenning Við hefjum leik á umræðu ungs fólks, heyrum hvað þeim finnst að stjórnmálaflokkar ættu að setja á oddinn nú fyrir kosningarnar. Þau Jósúa Gabríel Davíðsson, Valgerður Birna, Karl Héðinn Kristjánsson og Viktor Pétur Finnsson ræða málin með Birni Þorláks umsjónarmanni í beinni útsendingu. Að þeirri umræðu lokinni koma þau Oddný G. Harðardóttir þingmaður, Vigdís Hauksdóttir fyrrum þingmaður, Björg Eva Erlendsdóttir fyrrum fréttamaður og Sigmundur Ernir, sem er bæði fyrrum ritstjóri og fyrrum þingmaður og ræða ýmsa anga stjórnmálanana og bregðast að einhverju leyti við orðum unga fólksins. Jasmina Vajzovic ætlar svo að segja okkur frá höfnun og útilokun sem hún upplifði eftir röðun á lista Viðreisnar. Hún upplýsir um hugmyndir um stofnun nýs stjórnmálaflokks, sem aðeins yrði skipaður innflytjendum. Gunnar Smári fjallar um Óskalandið, gamandrama í Borgarleikhúsinu, og ræðir við leikstjórann Hilmi Snæ Guðnason og leikarana Esther Talíu Casay og Vilhelm Neto. Einnig kynnum við nýlega bók um forna búskaparhætti, Bjarni Guðmundsson kennari er höfundur hennar og segir hann okkur frá bókinni og efni hennar.

Jákastið
#143 Vilhelm Neto

Jákastið

Play Episode Listen Later Mar 6, 2024 62:48


Gestur dagsins er Vilhelm Neto eða Villi Neto. Villi er leikari, grínisti, samfélagsmiðlastjarna og margt fleira. Hann er gjörsamlega frábær og magnaður. Það var gott, gaman, yndislegt, fræðandi og áhugavert að spjalla við Villa. Þú ert frábær! Ást og friður. Jákastið er í boði: - Dressmann - Payday - Egils Kristall - Gullið Mitt - Matstöðin - Mi Búðin - KS Protect - Dirty Burger and Ribs - Sjóvá -  Osteostrong

Tveir Fellar
#66 Vilhelm Neto

Tveir Fellar

Play Episode Listen Later Aug 9, 2023 82:47


Vilhelm eða Villi Neto er 30 ára leikari. Hann ólst upp í Portúgal þar sem hann var laminn af skólastýru sinni. Góður maður Í alvöru https://www.vilhelmneto.com --- Send in a voice message: https://podcasters.spotify.com/pod/show/tveirfellar/message

port hann vilhelm vilhelm neto
Mannlegi þátturinn
Villi og Vigdís föstudagsgestir og paellur með Sössu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 12, 2023


Föstudagsgestirnir okkar að þessu sinni eiga margt sameiginlegt, þau eru bæði í skemmtanabransanum, koma fram saman, til dæmis í uppistandi, og þau eru bæði Eurovision áhugafólk, Vigdís Hafliðadóttir, uppistandari, söngkona í hljómsveitinni Flott og handritshöfundur og Vilhelm Neto, leikari og uppistandari. Þau eru einnig saman með þáttinn Villi og Vigdís ferðast um heiminn sem sýndir eru hjá Sjónvarpi Símanum. Við spjölluðum við þau i dag meðal annars um Eurovision keppnina, mögleikann á því að þau taki þátt í henni og væntanlega grínplötu frá Villa. Það var óvenjulegt matarspjall í dag. Í fjarveru okkar konu, Sigurlaugar Margrétar, sem dvelur á Spáni um þessar mundir við rannsóknarstörf, þá var samt spænsk stemmning svífandi yfir vötnum í matarspjallinu. Sassa Eyþórsdóttir kom til okkar og fræddi okkur um paellur, spænska hrísgrjónaréttinn sem rekur sögu sína til Valencia. Það þarf að ýmsu að huga þegar góð paella er löguð. Tónlist í þættinum í dag: Calm After the Storm / The Common Linnets (Ilse Delange, JB Meijers, Rob Crosby, Matthew Crosby, Jake Etheridge) Siren / Malcolm Linhcon (Robin Juhkental) Det star et billede av dig pa mit bord / Rollo og King(Sören Poppe,Thomas Brekling og Stefan Nielsen) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Villi og Vigdís föstudagsgestir og paellur með Sössu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 12, 2023 50:00


Föstudagsgestirnir okkar að þessu sinni eiga margt sameiginlegt, þau eru bæði í skemmtanabransanum, koma fram saman, til dæmis í uppistandi, og þau eru bæði Eurovision áhugafólk, Vigdís Hafliðadóttir, uppistandari, söngkona í hljómsveitinni Flott og handritshöfundur og Vilhelm Neto, leikari og uppistandari. Þau eru einnig saman með þáttinn Villi og Vigdís ferðast um heiminn sem sýndir eru hjá Sjónvarpi Símanum. Við spjölluðum við þau i dag meðal annars um Eurovision keppnina, mögleikann á því að þau taki þátt í henni og væntanlega grínplötu frá Villa. Það var óvenjulegt matarspjall í dag. Í fjarveru okkar konu, Sigurlaugar Margrétar, sem dvelur á Spáni um þessar mundir við rannsóknarstörf, þá var samt spænsk stemmning svífandi yfir vötnum í matarspjallinu. Sassa Eyþórsdóttir kom til okkar og fræddi okkur um paellur, spænska hrísgrjónaréttinn sem rekur sögu sína til Valencia. Það þarf að ýmsu að huga þegar góð paella er löguð. Tónlist í þættinum í dag: Calm After the Storm / The Common Linnets (Ilse Delange, JB Meijers, Rob Crosby, Matthew Crosby, Jake Etheridge) Siren / Malcolm Linhcon (Robin Juhkental) Det star et billede av dig pa mit bord / Rollo og King(Sören Poppe,Thomas Brekling og Stefan Nielsen) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Heitt á könnunni með Ása
#45 - Villi Neto & Vigdís Hafliða

Heitt á könnunni með Ása

Play Episode Listen Later May 4, 2023 103:42


Leikarinn, grínistinn og uppistandarinn Vilhelm Neto mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt samstarfskonu sinni og vinkonu tónlistarkonunni, grínistanum og uppistandaranum Vigdísi Hafliðadóttur.Villi Neto hefur verið áberandi ansi lengi í íslensku samfélagi en kom hann fyrst uppá sjónarsviðið í gegnum samfélagsmiðlana og var hann duglegur við að senda frá sér sketsa sem slógu rækilega í gegn. Í dag er Villi menntaður leikari og starfar við Borgarleikhúsið ásamt því að vera meðlimur í uppistand hópnum VHS sem hafa notið mikilla vinsælda.Vigdís er einmitt ásamt honum Villa meðlimur hópsins VHS og fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða á sýninguna þeirra VHS velur vellíðan. En ásamt uppistandinu og að skrifa grínefni er hún einnig söngkona hljómsveitarinnar FLOTT en hafa þær einmitt notið gríðarlegra vinsælda og spennandi tímar framundan.Villi og Vigdís eiga einlægt og fallegt vinasamband sem heyrist greinilega á spjalli okkar.Í þættinum ræddum við meðal annars um grínið og hvenær þau ákváðu að stíga inní þá senu, leiklistina og samfélagsmiðlana, tónlistina, tækifærið sem þau fengu á að ferðast milli eyja saman og búa til sjónvarp og margt fleira. Svo prófaði ég þau að sjálfsögðu í því hversu vel þau þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:Smitten - https://smittendating.com/

Lestin
Samlíðan sem valdatæki, Holy Spider og VHS velur vellíðan

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 23, 2023


Við fjöllum um samlíðan í upphafi þáttar. Alda Björk Valdimarsdóttir birti greinina Ég heyri það sem þú segir í Ritinu, tímariti hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Þar fjallar Alda um samlíðan sem valdatæki, skort á samlíðan og muninum á henni og samúð. Við förum í bíó með Kolbeini Rastrick kvikmyndarýni þáttarins sem segir okkur frá kvikmyndinni Holy Spider, skuggalega kvikmynd um voðaverk raðmorðingja í heilögu borginni Mashhad í Íran. Við lítum líka á björtu hliðarnar, hlæjum aðeins og veljum vellíðan. Sýningin VHS: velur vellíðan er að fara af stað í Tjarnarbíó og Lestin fylltist af grínistum. Vilhelm Neto, Stefán Ingvar Vigfússon og Hákon Örn Helgason komu í heimsókn og sögðu frá kjaraviðræðum grínista við áhorfendur og vali sínu á vellíðun fram yfir að krefjast og biðja.

Lestin
Samlíðan sem valdatæki, Holy Spider og VHS velur vellíðan

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 23, 2023 56:35


Við fjöllum um samlíðan í upphafi þáttar. Alda Björk Valdimarsdóttir birti greinina Ég heyri það sem þú segir í Ritinu, tímariti hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Þar fjallar Alda um samlíðan sem valdatæki, skort á samlíðan og muninum á henni og samúð. Við förum í bíó með Kolbeini Rastrick kvikmyndarýni þáttarins sem segir okkur frá kvikmyndinni Holy Spider, skuggalega kvikmynd um voðaverk raðmorðingja í heilögu borginni Mashhad í Íran. Við lítum líka á björtu hliðarnar, hlæjum aðeins og veljum vellíðan. Sýningin VHS: velur vellíðan er að fara af stað í Tjarnarbíó og Lestin fylltist af grínistum. Vilhelm Neto, Stefán Ingvar Vigfússon og Hákon Örn Helgason komu í heimsókn og sögðu frá kjaraviðræðum grínista við áhorfendur og vali sínu á vellíðun fram yfir að krefjast og biðja.

Já OK
Kambsránið

Já OK

Play Episode Listen Later Mar 23, 2022 27:38


Vilhelm Neto, fær aftur til sín Hafþór Óla, sem er farinn að vera kunnugur hlustendum Já OK! Fjölnir er á fullu að undirbúa Hetju í Tjarnarbíó, en hlustendur okkar fá afslátt með að virkja afsláttarkóðann "jaokhetja" á tix.is Í þessum þætti spjöllum við um CSI:Kambur

fj haf vilhelm neto
Já OK
Erpur á Eddunni, buxnalaus með byssu.

Já OK

Play Episode Listen Later Mar 2, 2022 51:24


Í þessum þætti tekur Vilhelm Neto viðtal við Erp, um ákveðið atvik, mjög umtalað atvik á sínum tíma. Viðtalið um atvikið fer svo út í algjört rugl, þó serstaklega að tala um Johnny Naz og íslenskt sjónvarp sem hefur ekki litið dagsins ljós í langan tíma. Ekki gleyma að kíkja á nýja laginu hans, Slaki Babarinn : https://open.spotify.com/track/1rtqbbF3ZN7KprgC2kkJE2?si=4b71593716fa4dc5 Fjölnir skilar kveðju en hann er um þessar mundir að vinna í leikverkinu "Hetja" sem verður sýnt í Tjarnarbíó í Apríl.

erp ekki tjarnarb vilhelm neto
Já OK
Pylsa/Pulsa

Já OK

Play Episode Listen Later Feb 23, 2022 37:53


Bæjarins Beztu. Mest sígildi pylsustaðurinn í Reykjavík. SS pylsur, þekktasti pylsuframleiðandi landsins. Vilhelm Neto og Hafþór Óli fara yfir stóru pylsumálin í þessum þætti, eða ættum við að segja stóru pulsumálin? Við ætlum allavega að tala um kjötið þarna í görnunum.

Mannlegi þátturinn
Villi Neto föstudagsgestur og matarspjall með Villa

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 14, 2022


Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag var leikarinn og grínarinn Vilhelm Neto. Hann hefur gert garðinn frægann undanfarin ár, aðallega í gríni, flestir ættu að muna eftir honum úr tveimur síðustu áramótaskaupum, þar sem hann meðal annars lék manninn sem ætlaði að halda í sér andanum í gegnum Covid og svo Gunnar á Hlíðarenda í Hollywood útgáfunni að Njálu. Það var gaman að ræða við hann um æskuna og uppvöxtinn, bæði í Portúgal og á Íslandi, en faðir hans er portúgalskur. Við ræddum einnig um leiklistina og námið í Danmörku, gamanefnið á samfélagsmiðlum og svo hvernig hefur gengið eftir að hann kom aftur til landsins úr námi. Sigurlaug Margrét kom svo að sjálfsögðu til okkar í dag í matarspjall dagsins. Við fengum Villa Neto, föstudagsgest Mannlega þáttarins, til að sitja áfram með okkur og ræða við okkur um mat. Þar var portúgalskur matur fyrirferðamikill, saltfiskur, kolkrabbi, djúpsteiktar sardínur, djúpsteiktur áll og kýldar kartöflur. UMSJÓN ÞORGERÐUR ÁSA AÐALSTEINSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Villi Neto föstudagsgestur og matarspjall með Villa

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 14, 2022 50:00


Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag var leikarinn og grínarinn Vilhelm Neto. Hann hefur gert garðinn frægann undanfarin ár, aðallega í gríni, flestir ættu að muna eftir honum úr tveimur síðustu áramótaskaupum, þar sem hann meðal annars lék manninn sem ætlaði að halda í sér andanum í gegnum Covid og svo Gunnar á Hlíðarenda í Hollywood útgáfunni að Njálu. Það var gaman að ræða við hann um æskuna og uppvöxtinn, bæði í Portúgal og á Íslandi, en faðir hans er portúgalskur. Við ræddum einnig um leiklistina og námið í Danmörku, gamanefnið á samfélagsmiðlum og svo hvernig hefur gengið eftir að hann kom aftur til landsins úr námi. Sigurlaug Margrét kom svo að sjálfsögðu til okkar í dag í matarspjall dagsins. Við fengum Villa Neto, föstudagsgest Mannlega þáttarins, til að sitja áfram með okkur og ræða við okkur um mat. Þar var portúgalskur matur fyrirferðamikill, saltfiskur, kolkrabbi, djúpsteiktar sardínur, djúpsteiktur áll og kýldar kartöflur. UMSJÓN ÞORGERÐUR ÁSA AÐALSTEINSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Heilahristingur
Sjónvarps- og kvikmyndahristingur - Undanúrslit I

Heilahristingur

Play Episode Listen Later Dec 12, 2021


Leikar eru teknir að æsast í sjónvarps- og kvikmyndahristingi. Í dag kemur í ljós hvert annað liðið verður sem keppir til úrslita á annan dag jóla. Það er hörkuviðureign á dagskrá þegar Hugleikur Dagsson og Sandra Barilli mæta liði Vilhelm Neto og Snjólaugar Lúðvíksdóttur.

undan snj hugleikur dagsson sandra barilli vilhelm neto
Heilahristingur
Sjónvarps- og kvikmyndahristingur - Undanúrslit I

Heilahristingur

Play Episode Listen Later Dec 12, 2021


Leikar eru teknir að æsast í sjónvarps- og kvikmyndahristingi. Í dag kemur í ljós hvert annað liðið verður sem keppir til úrslita á annan dag jóla. Það er hörkuviðureign á dagskrá þegar Hugleikur Dagsson og Sandra Barilli mæta liði Vilhelm Neto og Snjólaugar Lúðvíksdóttur.

undan snj hugleikur dagsson sandra barilli vilhelm neto
Heilahristingur
Sjónvarps- og kvikmyndahristingur - Átta liða úrslit

Heilahristingur

Play Episode Listen Later Nov 14, 2021


Heilahristingur snýr aftur í dag og nú með nýju þema. Fram að jólum verður sjónvarps- og kvikmyndahristingur en allar spurningar munu tengjast sjónvarpsþáttum eða kvikmyndum með beinum eða óbeinum hætti. Átta lið hefja æsilega útsláttarkeppni þar til eitt lið stendur uppi sem sigurvegari í úrslitaþætti á annan dag jóla. Júlía Margrét Einarsdóttir verður þeim Jóhanni Alfreð og Helga Hrafni til halds trausts við spurningagerð og sem spyrill í seríunni. Í þessari fyrstu viðureign mæta skemmtikraftarnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Eva Ruza Miljevic liði uppistandaranna Snjólaugar Lúðvíksdóttur og Vilhelm Neto í hörkuspennandi keppni.

Heilahristingur
Sjónvarps- og kvikmyndahristingur - Átta liða úrslit

Heilahristingur

Play Episode Listen Later Nov 14, 2021


Heilahristingur snýr aftur í dag og nú með nýju þema. Fram að jólum verður sjónvarps- og kvikmyndahristingur en allar spurningar munu tengjast sjónvarpsþáttum eða kvikmyndum með beinum eða óbeinum hætti. Átta lið hefja æsilega útsláttarkeppni þar til eitt lið stendur uppi sem sigurvegari í úrslitaþætti á annan dag jóla. Júlía Margrét Einarsdóttir verður þeim Jóhanni Alfreð og Helga Hrafni til halds trausts við spurningagerð og sem spyrill í seríunni. Í þessari fyrstu viðureign mæta skemmtikraftarnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Eva Ruza Miljevic liði uppistandaranna Snjólaugar Lúðvíksdóttur og Vilhelm Neto í hörkuspennandi keppni.

24/7
Villi Neto

24/7

Play Episode Listen Later Sep 7, 2021 55:16


Vilhelm Neto er leikari. Í þættinum ræðir Villi leiklist, skilning fyrir ólíku fólki, símanotkun, það góða í mannverunni, bólusetningar og margt fleira. Það voru heldur betur hæðir og lægðir í þessu spjalli. Eina stundina var grenjaði úr hlátri en á þeirri næstu rætt um háalvarleg málefni. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/ 

Já OK
iittala, Omaggio, Moomin og við

Já OK

Play Episode Listen Later Feb 24, 2021 29:55


Af hverju dettum við stundum í að vilja ákveðinn hlut svona mikið? Er það því við erum lítil þjóð? Er það því við viljum vera eins og nágranninn? Er það því við eigum of mikinn pening sem við þurfum bara að eyða? Fjölnir Gísla og Vilhelm Neto fara í málið, en fyrst, þarf Fjölnir að heyra smásögurnar hans Villa.

Já OK
Jóladagatal Sjónvarpsins

Já OK

Play Episode Listen Later Dec 23, 2020


Í þessum þætti af Já OK! setjast Fjölnir Gísla og Vilhelm Neto í fljúgandi baðker og fjalla um eitthvað sem margir muna vel eftir. Fyrir mörgum gerði þetta jólin og jafnvel er þetta byrjunin á framhaldsþáttafíkn Íslendinga. Mun Blámi komast aftur heim til plánetunnar sinnar? Finna þeir Völund? Mun Lovísa fá fluguppfinninguna í jólagjöf? Hvar eru Pú og Pa?

Já OK
Íslensk kvikmyndahús

Já OK

Play Episode Listen Later Dec 16, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fara Fjölnir Gísla og Vilhelm Neto í enn eina gönguna í gegnum Reykjavík. Þeir standa fyrir framan Bíó Paradís og spurja sjálfa sig: “hvað ætli mörg kvikmyndahús hafi starfað á Íslandi?“ Úff yfir allt landið er það langur listi. En hvernig byrjaði kvikmyndamenningin hér á landi?

fj reykjav parad vilhelm neto kvikmyndah
Já OK
Flugsaga Íslands - Seinni hluti - Flugslysið í Colombo á Sri Lanka.

Já OK

Play Episode Listen Later Nov 18, 2020


Af eilífðarljósi bjarma ber, / sem brautina þungu greiðir. / Vort líf, sem svo stutt og stopult er, / það stefnir á æðri leiðir. / Og upphimin fegri en auga sér / mót öllum oss faðminn breiðir. Þann 15. nóvember 1978 brotlenti Flugleiðavélin Leifur Eiríksson í Colombo á Sri Lanka. Þetta er eitt mannskæðasta flugslys Íslandssögunnar. Í þessum þætti þræða Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto söguna um þau fimm sem lifðu af og hver orsök slysins voru. Þessi þáttur er seinni hluti af tveimur þáttum um Flugsögu Íslands. Tónlist og hljóðmynd eftir Fjölni Gíslason.

af fj vort seinni flugs colombo sri lanka vilhelm neto
Já OK
Hugi.is

Já OK

Play Episode Listen Later Oct 7, 2020


Fjölnir Gíslason (fjolnirg) og Vilhelm Neto (villineto) setja á sig VR gleraugun og stökkva inn í netheima til að gerast hugarar. Hugarar tala um allskonar, en hafa mest áhuga á Counter Strike og Háhraða. Í heimi með fullt af rifrildum lesa þeir nokkra áhugaverða þræði, tala um QAnon og þróun netsins.Strákarnir detta í eitthvað rosalegt skap á netinu.Þetta er hin alræmda síða hugi.is

Já OK
Fjalla-Eyvindur

Já OK

Play Episode Listen Later Oct 1, 2020


Í þessum þætti af Já OK! bregða Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto sér í útileigu, þó ekki þá útilegu sem þeir hefðu kosið sér, heldur útlægð, upp til fjalla í óbyggðum. Reynið bara að ná þeim. Þeir munu alltaf ná að stinga af á handahlaupum.

fj fjalla vilhelm neto
Já OK
Galdrar á Íslandi

Já OK

Play Episode Listen Later Sep 9, 2020


Í þessum þætti af Já OK! ætla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto, ásamt gesti þáttarinns Magnúsi Rafnssyni sagnfræðing, að berja, gelda, bíta, slá, blinda, klóra flengja. Brenna, reka útlegð á, aflífa og hengja.

magn fj vilhelm neto
Já OK
Helgi Hóseasson

Já OK

Play Episode Listen Later Jul 29, 2020


Fjölnir Gíslason, Vilhelm Neto og Atli Sig setja á sig sérhannaða skyrhanska og taka þaulæfð skyrskot beint í „ríkisóstjórnina“. Sá á skyrið sem á það skilið. Já, þessi þáttur fjallar um Helga Hóseason, oft kallaður mótmælandi Íslands og maðurinn sem næst hefur komið því að afskíra sig þrátt fyrir að hafa ekki fyllt út nein eyðublöð. Krosslafur, ríó og Sameinuðu þjóðirnar koma við sögu en ekki á þann hátt sem þið haldið.

fj helgi sameinu helga h vilhelm neto
Já OK
Skyndibitakeðjur sem sárt er saknað

Já OK

Play Episode Listen Later Jul 22, 2020


Í þessum þætti af Já OK! eru Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto vel nærðir og saddir. Þessi þáttur er svona post-hamborgaramáltíð þáttur. Ekki póst Burger King þáttur samt, og ekki post-McDonalds heldur, þótt það væri kannski hægt. Með fullan maga er farið yfir alla staði sem hafa fyllt á manni magan í gegnum tíðina en ekki lifað af gagnrýna garnagaul Íslendinga. Stjáni Blái reyndi að selja okkur kjúlla, Ungfrú Wendy sá um sína hermenn og Tommi fór í útrás. Við nutum þess alls.

Já OK
Blómey og Óskar

Já OK

Play Episode Listen Later Jul 1, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um sjálfsþurftarbúskap og hjón sem áttu heldur betur sérkennilegt líf. Að fara í heimsókn til þeirra var eins og að stíga aftur í tímann. Ekkert vatn, ekkert rafmagn, enginn sími, ekkert klósett. Þetta eru hjónin Blómey og Óskar.

fj skar ekkert vilhelm neto
Já OK
Hvíta Stríðið

Já OK

Play Episode Listen Later Jun 24, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gísla og Vilhelm Neto um pólítíska augnsýkingu, greiða hjá forsetanum, mögulegt sóttkví, tengsl nútímans við fortíðina og að allt fari í hringi. Hvíta Stríðið eða Drengsmálið? Tjah, fer eftir hvaða sagnfræðing þú spyrð.

str fj hv vilhelm neto
Já OK
Kokteilsósuís

Já OK

Play Episode Listen Later Jun 3, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um hvað það er sem gerir íslending að íslending. Eru það skattsvik? Eða sundfíkn? Eða er það jafnvel bara að nota sólgleraugu í rigninguu? Sennilega er það margt og ekki hægt að negla það niður en þeir hafa þó á rannsóknarstofu sinni reynt að finna hver kjarninn er. Þetta er tilraun 1 af mörgum.

fj eru vilhelm neto
Já OK
Silvía Nótt

Já OK

Play Episode Listen Later May 27, 2020


Í þessum þætti af Já OK! skiluru fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um eina alvöru Eurovision stjörnu Íslands OK?! Þú veist?hún bara þú veist?OMG! Þið verðið bara að hlusta á þáttinn skiluru! Miklu betri en einhver nördi að tala um eitthvað leiðinlegt stöff fattaru?

Já OK
Þvottakonurnar

Já OK

Play Episode Listen Later May 20, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um þá daga þar sem þvottavélar voru ekki til og hvernig sú lúxus vara breytti lifnaðarháttum íslendinga. En hvernig fórum við að því að þvo föt og önnur klæði fyrir daga þvottavélanna? Jú, sú saga er einmitt áhugaverðari en maður heldur. Við kynnum: Þvottakonurnar.

fj vilhelm neto
Já OK
Jörundur hundadagakonungur (seinni hluti)

Já OK

Play Episode Listen Later May 13, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um okkar fyrsta íslenska konung. Ekki? Kannski ekki. En hann var algjör hundur. Hann tók yfir Ísland í nokkrar vikur. Samt ekkert illa meint. Þetta var mjög franskt allt saman. Eða tasmanskt? Nei, breskt! Við kynnum: Jörundur hundadagakonungur.

Já OK
Jörundur hundadagakonungur (fyrri hluti)

Já OK

Play Episode Listen Later May 6, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um okkar fyrsta íslenska konung. Ekki? Kannski ekki. En hann var algjör hundur. Og hann heillaðist af þeirri “tólgparadís“ sem Ísland er. Þessi þáttur er fyrsti partur af tveim. Við kynnum: Jörundur hundadagakonungur.

fj fyrri vilhelm neto
Já OK
Íslenskir Sirkuslistamenn

Já OK

Play Episode Listen Later Apr 29, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um fólk sem hefur náð langt í mörgu sem flestir geta ekki, eins og að glíma við skógarbjörn. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa sett Ísland á kortið á einn eða annan hátt. En þetta eru þau Ólöf, Jóhann, Baldur, Konni og Jóhannes. En hvað á allt þetta fólk sameiginlegt? Jú þau voru öll Íslenskir Sirkuslistamenn.

baldur fj konni vilhelm neto
Já OK
Braggamenning og Ástandið

Já OK

Play Episode Listen Later Apr 22, 2020


Í þessum þætti af Já OK! stíga Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto í moldina og fara í kúluvarp í braggahverfinu, meðan þeir reyna að átta sig á ástandinu og skilja hvað nákvæmlega sé í gangi þarna. Hver eru þessir hermenn? Af hverju eru þeir flottari en við? Hvaðan kemur þessi fúkalykt?

af hva hver fj vilhelm neto
Já OK
Jón Páll Sigmarsson

Já OK

Play Episode Listen Later Apr 15, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um hin blíðlega risa sem við áttum einu sinni. Þessi manneskja var ein af þeim sem settu Ísland á kortið. Hann var heimsfrægur. Og hafa margir reynt að stíga í hans spor, eftir hans tíð. Þessi þáttur er svakalegur. En hann er samt ekkert mál, fyrir hann Jón Pál!

fj hann vilhelm neto
Já OK
Björn Sv. Björnsson

Já OK

Play Episode Listen Later Apr 8, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um svartasta sauð Íslendinga... eða svo sögðu Danir. Þeir fíra upp hjól pressunnar og láta aróðursmaskínuna óma um allar trissur, en að þessu sinni er það SS hermaðurinn, og sonur fyrsta forseta lýðveldisins, Björn Sv. Björnsson.

bj ss sv fj danir vilhelm neto
Já OK
Skattlausa árið

Já OK

Play Episode Listen Later Apr 1, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um skattlaust ár á Íslandi?Já þið heyrðuð rétt! Eitt ár þar sem enginn þurfti að borga skatt?EITT ÁR ÞAR SEM ENGINN ÞURFTI AÐ BORGA SKATT

fj eitt vilhelm neto
Já OK
Guðrún Á. Símonar (seinni hluti) ásamt Hönnu Ágústu

Já OK

Play Episode Listen Later Mar 25, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason, Vilhelm Neto og Hanna Ágústa enn og aftur um engan annan en hina víðsfrægu Guðrúnu Á. Símonar. Þessi þáttur er seinni partur af tveim þáttum, en í þetta skiptið stíga þau inn í boxhringinn þar sem Guðrún stóð á móti Guðlaugi Rósinkranz og grandskoða leikhúsgagnrýni sem skrifuð var af henni. Kannski ein frægasta leikhúsgagnrýni hér á landi?

Já OK
Guðrún Á. Símonar (fyrri hluti) ásamt Hönnu Ágústu

Já OK

Play Episode Listen Later Mar 18, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason, Vilhelm Neto og Hanna Ágústa um engan annan en hina víðsfrægu Guðrúnu Á. Símonar. Þessi þáttur er fyrri partur af tveim þáttum, enda mikið hægt að tala um hana Guðrúnu. Og svo ekki má gleyma vinkonu hennar Þuríði Pálsdóttur, en þær tvær fóru með ljúfa söngtexta, eins og “Mjá mjá mjá mjááááá“.

Já OK
Vinstri umferð á Íslandi

Já OK

Play Episode Listen Later Mar 11, 2020


Í þessum þætti af Já OK! spenna Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto bílbeltin og ferðast í kringum heimin á vinstrihelming vegarins á meðan þeir rifja upp hvernig bílfloti íslendinga byrjaði og þegar það þótti eðlilegt að keyra vinstra meigin á veginum. EN SVO ALLT Í EINU BREYTA ÞEIR UM VEGARHELMING! Afhverju?

fj afhverju umfer vinstri vilhelm neto
Já OK
Djammið 2007

Já OK

Play Episode Listen Later Mar 4, 2020


Í þessum þætti af Já OK! ætla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto að græða á daginn og grilla á kvöldin. Þeir ætla að halda upp á afmælið sitt í Monakó og ykkur er öllum boðið. Tina Turner mun leika fyrir dansi og 50 Cent mun slútta kvöldinu. Hver veit nema að John Cleese mæti? Þetta verður bara svona lítið afmæli, líkt og nokkrir íslendingar gerðu árið 2007?munið þið djammið 2007?

Já OK
Hrekkjalómafélagið

Já OK

Play Episode Listen Later Feb 26, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um Hrekkjalómafélagið frá Vestmannaeyjum. Og já þetta var í alvörunni félag. Það voru alveg félagsgjöld og allskonar.

Já OK
Birgitta Dúkkan

Já OK

Play Episode Listen Later Feb 19, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um dúkku, en ekki bara hvaða dúkku sem er heldur dúkku sem margir sögðu að hún færi “EKKI INNÁ ÞETTA HEIMILI!!!“. En þessi dúkka er engin önnur en, víðfræg þó ekki uppselda, Birgitta Dúkkan.

fj vilhelm neto
Já OK
Skaftáreldar

Já OK

Play Episode Listen Later Feb 12, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla jarðeðlisfræðingarnir Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um eitt mannskæðasta eldgos Íslands. Hvað er það sem veldur jarðskjálftum og eldgosum? Allt það og meira í þessum þætti. Skaftáreldar. Ps. Þeir eru ekki jarðeðlisfræðingar.

Já OK

Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um Gimli. Þið haldið kannski að við séum að tala um fasteignasöluna Gimli eða staðurinn sem fólk fer ef það lifir af Ragnarök í norrænni goðafræði, en neeeeiiii?þeir ætla að fjalla um Gimli, sveitafélag í Manitoba-fylki í Kanada, einnig þekktur sem höfðustaður Íslands!

Já OK
Íslenski fáninn

Já OK

Play Episode Listen Later Jan 29, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um Íslenska fánann?eða sem sagt fánana?alla fjóra. Hver er þinn uppáhalds Íslenski fáni?

hver fj vilhelm neto
Já OK
Baróninn á Hvítárvöllum

Já OK

Play Episode Listen Later Jan 22, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um ævi, sem og þann sorga endi af hinum merka Charles Gauldrée-Boilleau. Betur þekktur sem Baróninn á Hvítárvöllum eða Baróninn á Barónstíg.

bar fj hv llum vilhelm neto
Já OK
Básendaflóðið

Já OK

Play Episode Listen Later Jan 15, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um bæinn Básenda. Hvar voru Básendar og hvernig hvarf bærinn? Hver var Hinrik og hvernig komst hann og fjölskylda hans lífs af? Hvað var Villi að þvælast í Ungverjalandi? Og við hvað vann Fjölnir? Öllum þessum spurningum verðu svarað, nema einni, í þættinum um Básendaflóðið.

Já OK
Bland í poka með Villa

Já OK

Play Episode Listen Later Jan 8, 2020


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um allskonar sem þeim hefur langað að fjalla um en ekki náð í heilan þátt. Þetta er svona eins og bland í poka fyrir 100kr.

Já OK
Fyrsta Áramótaskaupið

Já OK

Play Episode Listen Later Jan 1, 2020


Í þessum þætti af Já OK! eru Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto þreyttir heima á nýársdegi að ræða um áramótaskaup. Sáu þið skaupið? Hvað er fyrsta skaupið sem þið munið eftir? Hvenær var fyrsta áramótaskaupið?

hva fj fyrsta hven vilhelm neto
Já OK
Upphaf andatrúar á Íslandi

Já OK

Play Episode Listen Later Dec 25, 2019


Í þessum þætti af Já OK! fá Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto til sín gest, en það er enginn annar en Daníel G. Daníelsson, sagnfræðingur. Þeir eru búnir að slökkva ljósin inn í stúdíóinu og hann Daníel ætlar að fræða strákana um uppruna andatrúar á Íslandi. Svo jafnvel taka þeir smá borðdans?eða þeirra útgáfu sem var byggð á misskilningi.

fj svo upphaf vilhelm neto
Já OK
Frostaveturinn mikli

Já OK

Play Episode Listen Later Dec 18, 2019


Í þessum þætti af Já OK! sækja Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto í sig veðrið. Þeir hafa drukkið alltof mikið kaffi og ætla nú að fara að fjalla um veður?VEÐUR!!! Drekka kaffi og fjalla um veður. Hvað gæti verið skemmtilegra en það? Og ekki bara veður, heldur veður í gamla daga?

hva fj vilhelm neto
Já OK
Tivolí í Vatnsmýrinni

Já OK

Play Episode Listen Later Nov 20, 2019


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um fyrsta tívolí garðinn í Reykjavík. Spá svo í hvaða tæki eru skemmtileg, hvaða tæki eru hræðileg og hvaða tæki fær þá til að verða óglatt. Einnig komast þeir að því að þeir kunna ekkert í Bingó. Við kynnum Tívolí í Vatnsmýrinni.

Já OK
Rapp á Íslandi ft. Kilo

Já OK

Play Episode Listen Later Nov 13, 2019


Í þessum þætti af Já OK! fá Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto góðan gest til sín, engan annan en Kilo. Þeir þrír sátu í þungum þönkum inn í stúdíó hjá RÚV og ræddu um uppruna íslensku rappsenunar á mjööög alvarlegum nótum. Lag í endan: Smjörvi - SÆTARI SÆTARI

Já OK
Axlar-Björn

Já OK

Play Episode Listen Later Nov 6, 2019


Í þessum þætti af Já OK! eru Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto hræddir því í þetta sinn takast þeir á við sögu Axlar-Björns. Gisti enginn hjá Gunnbirni sem klæðin hefur góð. Ekur hann þeim í Ígultjörn. Rennur blóð eftir slóð og dilla ég þér jóð?BÚ! Efni í þættinum er ekki við hæfi barna og óttasleginna.

fj efni axlar vilhelm neto
Poppland

Umsjón: Matthías Már Magnússon og Lovísa Rut Kristjánsdóttir Poppland í góðu stuði í dag, allskonar tónlist, ný og gömul. Airwaves flytjandi dagsins er finnski tónlistarmaðurinn Jesse Markin. Vilhelm Neto kíkti við og sagði frá spjalli hans við Eurovision sigurvegarann Salvador Sobral, heppinn hluatandi hringdi inn og fékk par af miðum á tónleikana hans. Svo er að sjálfsögðu plata vikunnar, Sykurbað sem er í höndum Ástu Kristínar Pjetursdóttur. Valdimar - Stimpla Mig Út Ásgeir Trausti - Bernskan Megas & Senuþjófarnir - Lengi Skal Manninn Reyna Hera - How Does A Lie Taste Maus - Síðasta Ástin Fyrir Pólskiptin Guðmundur Rafnkell - Dagur Nýr Vök - Autopilot Ásta - Sykurbað Jónas Sig - Höldum Áfram Raven - Hjartað Tók Kipp Beggi Smári - Brostu Hipsumhaps - Bleik Ský Sykur - Svefneyjar Of Monsters and Men - Mountain Sound Karma Brigade - Vertigo Fræ - Dramatísk Rómantík Nýdönsk - Flugvélar Billie Eilish - All The Good Girl Go To Hell Sophie Ellis Bextor - Murder On The Dancefloor Elísabet Ormslev - Sugar Pink & Nate Ruess - Just Give Me A Reason Aron Can & Friðrik Dór - Hingað Þangað Human League - Don?t You Want Me Bruce Springsteen - There Goes My Miracle Ásta - Vinasúpa Birgir - Letting Go Lizzo - Good As Hell Leaves - Breathe Berndsen - Þorsti Júníus Meyvant - Ain?t Gonna Let You Drown Björgvin Halldórsson - Aðeins Sextán Sycamore Tree - Fyre Nouvelle Vague - Teenage Kicks Salvador Sobral - Amar Pelos Dois John Grant - Marz Bubbi Morthens - Regnbogans Stræti Jesse Markin - Blood Sigríður Th. og Sigurður Guðmundsson - Vindar Að Hausti David Bowie - Let?s Dance Prins Póló - Niðrá Strönd

Poppland
31.10.2019

Poppland

Play Episode Listen Later Oct 31, 2019


Umsjón: Matthías Már Magnússon og Lovísa Rut Kristjánsdóttir Poppland í góðu stuði í dag, allskonar tónlist, ný og gömul. Airwaves flytjandi dagsins er finnski tónlistarmaðurinn Jesse Markin. Vilhelm Neto kíkti við og sagði frá spjalli hans við Eurovision sigurvegarann Salvador Sobral, heppinn hluatandi hringdi inn og fékk par af miðum á tónleikana hans. Svo er að sjálfsögðu plata vikunnar, Sykurbað sem er í höndum Ástu Kristínar Pjetursdóttur. Valdimar - Stimpla Mig Út Ásgeir Trausti - Bernskan Megas & Senuþjófarnir - Lengi Skal Manninn Reyna Hera - How Does A Lie Taste Maus - Síðasta Ástin Fyrir Pólskiptin Guðmundur Rafnkell - Dagur Nýr Vök - Autopilot Ásta - Sykurbað Jónas Sig - Höldum Áfram Raven - Hjartað Tók Kipp Beggi Smári - Brostu Hipsumhaps - Bleik Ský Sykur - Svefneyjar Of Monsters and Men - Mountain Sound Karma Brigade - Vertigo Fræ - Dramatísk Rómantík Nýdönsk - Flugvélar Billie Eilish - All The Good Girl Go To Hell Sophie Ellis Bextor - Murder On The Dancefloor Elísabet Ormslev - Sugar Pink & Nate Ruess - Just Give Me A Reason Aron Can & Friðrik Dór - Hingað Þangað Human League - Don?t You Want Me Bruce Springsteen - There Goes My Miracle Ásta - Vinasúpa Birgir - Letting Go Lizzo - Good As Hell Leaves - Breathe Berndsen - Þorsti Júníus Meyvant - Ain?t Gonna Let You Drown Björgvin Halldórsson - Aðeins Sextán Sycamore Tree - Fyre Nouvelle Vague - Teenage Kicks Salvador Sobral - Amar Pelos Dois John Grant - Marz Bubbi Morthens - Regnbogans Stræti Jesse Markin - Blood Sigríður Th. og Sigurður Guðmundsson - Vindar Að Hausti David Bowie - Let?s Dance Prins Póló - Niðrá Strönd

Já OK
Leiðtogafundurinn í Höfða

Já OK

Play Episode Listen Later Oct 30, 2019


Í þessum þætti af Já OK! hittast Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto í einvígi í Höfða og ræða um takmörkun á vígbúnaði og deilu- og mannréttindamál. Þeir virðast ekki vera sammála. Hvor þeirra gefur undan fyrst? Hvor þeirra mun fyrstur lækka skotvopnin. Þeir blikka ekki augum! Fjölnir hvessir brýnnar. Vilhelm færi stráið úr hægra munnvikinu yfir í vinstra. Framhjá fýkur gulur bónus plastpoki. Spenna er rafmögnuð! Við kynnum, Leiðtogafundurinn í Höfða.

Já OK
Geirfuglinn

Já OK

Play Episode Listen Later Oct 16, 2019


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um hérna?ballhljómsveitina?nei sorry það er annað! Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um?royal búðing?nei nei vá! Sorry nú kemur þetta! Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um?Geirfuglinn! YES þarna kom það! Smá athyglisbrestur í gangi í þessum þætti.

sm fj vilhelm neto
Já OK
Álfatrú

Já OK

Play Episode Listen Later Oct 9, 2019


Í þessum þætti af Já OK! spurja Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto hvorn annan hvort þeir trúi á álfasögur, fræðast svo um uppruna álfatrúarinnar og krifja til mergjar hvernig bílum álfar keyra á. Trúir þú á álfasögur?

fj vilhelm neto
Já OK
Sædýrasafnið í Hafnarfirði

Já OK

Play Episode Listen Later Oct 2, 2019


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um ákveðið dýrasafn í Hafnarfirði sem kennt var við sædýr, en þar gastu heldur betur séð fleiri dýr en bara sædýr. Ekki var æskilegt að klappa þeim þó það var stundum hægt með því að teygja sig inn fyrir girðinguna. Við kynnum Sædýrasafnið í Hafnarfirði.

fj ekki hafnarfir vilhelm neto
Já OK
Geimverur á Snæfellsjökli

Já OK

Play Episode Listen Later Sep 25, 2019


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um stórmerkileg atburð sem skeði ekki, en margir héldu og spáðu að myndi ske. Erum við ein í heiminum? Eða eru aðrar vitsmunaverur á meðal okkar í alheiminum? Er bóndinn að segja satt? Og þurfa geimverur kannski mögulega að kaupa sér ný geimskip? Allt þetta í þessum þætti af Já OK! Geimverur á Snæfellsjökul!

er allt fj erum vilhelm neto
Já OK
Vímulaust Ísland

Já OK

Play Episode Listen Later Sep 11, 2019


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um vímulaust Ísland árið 2002. Strákarnir tóku upp þáttinn í beinni í Endalausa útvarpinu.

str fj vilhelm neto
Já OK
Sveitasíminn

Já OK

Play Episode Listen Later Aug 28, 2019


Þetta eru Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto, halló halló, í þessum þætti af Já OK! halló, fjöllum við um sveitasímann.

fj minn vilhelm neto
Já OK
Þorskastríðin

Já OK

Play Episode Listen Later Aug 21, 2019


Í þessum þætti af Já OK! sigla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um Atlantshaf á lítilli trillu með Hauk Morthens í botni, tilbúnir með togvíraklippurnar til að verja landhelgina okkar. Bretar skulu passa sig!

fj bretar vilhelm neto
Já OK
Vistarbandið

Já OK

Play Episode Listen Later Aug 14, 2019


Í þessum þætti af Já OK! stíga Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto til nýaldar og reyna að leysa þá stóru stærfræðiþraut hvað eitt kúgildi var mikið. Ari á eina kú en Stína á sex kýr. Hversu margar kýr þarf Stína að gefa Ara til þess að hann geti borgað sig úr vistarbandinu?

fj hversu vilhelm neto
Já OK
Kanasjónvarpið

Já OK

Play Episode Listen Later Aug 7, 2019


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um bzzz&%!#? We interrupt this program with a very special announcement all the way from RÚV where Fjölnir Gíslason and Vilhelm Neto will talk about the Armed Forces Radio and Television Service Keflavik or AFRTS Keflavik, aka Radio TFK, aka Kanasjónvarpið!

Já OK
Bjarni Björnsson

Já OK

Play Episode Listen Later Jul 31, 2019


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um Bjarna Björnsson...bíddu ha? hver?

fj bjarni vilhelm neto
Já OK
Íslenzka

Já OK

Play Episode Listen Later Jul 24, 2019


Þeir húskarlar; Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto gera góð skil, íslenskri tungu og uppruna orðanna í kapítula þessum af þættinum Já OK!

fj vilhelm neto
Já OK
Borgarkringlan

Já OK

Play Episode Listen Later Jul 10, 2019


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um uppruna kringlunar, verslunarkjarna fyrir bíla og koma með frábæra lausn á hvað skal gera við flugvöllinn í Reykjavík. Gleeeeðileg Jóóóól!

fj reykjav vilhelm neto
Já OK
Hemmi Túkall

Já OK

Play Episode Listen Later Jul 3, 2019


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um engan annan en Hemma Túkall, sem sópaði að sér smápeningum og miðað við menntun hans þá má segja að hann hafi tekið Bubba í bakaríið í túkallatogi.

Já OK
Gamlar íslenskar íþróttir

Já OK

Play Episode Listen Later Jun 26, 2019


Í þessum þætti af Já OK! stíga Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto inn í hringinn, heilsast, koma saman, taka stöðu, taka tökum og glímast við gamlar íslenskar íþróttir.

fj vilhelm neto
Já OK
Bjórlíki

Já OK

Play Episode Listen Later Jun 19, 2019


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um bjórlíki, hið fræga bjórbann og snerta svo aðeins á því sorgaratviki þegar McDonalds hætti á Íslandi

mcdonalds fj vilhelm neto
Já OK
Tímaflakkarinn

Já OK

Play Episode Listen Later Jun 12, 2019


Í þessum þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um fyrsta íslenska tölvuleikinn og opna upp á gátt sinn innri tölvunörd. Bíbb búbb bíbb babb, insert disk...loading...loading

fj vilhelm neto
Já OK
Kaffibætir

Já OK

Play Episode Listen Later Jun 5, 2019


Í þessum fyrsta þætti af Já OK! fjalla Fjölnir Gíslason og Vilhelm Neto um kaffibæti, en hann notuðu Íslendingar um árabil til að drýgja alvöru kaffi. Það var þó einn sem ekki var hrifinn af bætinum, sjálfur Halldór Kiljan Laxness.

fj halld vilhelm neto
Hvað er að frétta?

Gestir vikunnar eru Vilhelm Neto, leikari og grínisti, og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, formaður Landssamtaka íslenskra stúdenta. Umræðuefni vikunnar er einmitt meðal annars Verkfall fyrir loftslagið sem landssamtökin standa fyrir ásamt Sambandi íslenskra framhaldsskólanema, við ræðum líkar nýjar franskar á KFC og strumpabæ.

kfc gu umr febr gestir sambandi verkfall vilhelm neto landssamtaka
Mjólkurbræður
17. 16yo Villy Neto HOT (ft. Vilhelm Neto)

Mjólkurbræður

Play Episode Listen Later Oct 9, 2017 59:31


Vilhelm Neto (a.k.a. Villi naglbítur) mætir í mjólkurhellinn til Salómons og Arnórs og ræðir Danny Devito, Ítalíu, IBS (ISIS sjúkdómana) sem og hann baktalar skipuleggjanda skrúðgöngu "The train is coming"