Podcasts about kristj

  • 300PODCASTS
  • 4,643EPISODES
  • 1h 13mAVG DURATION
  • 1DAILY NEW EPISODE
  • Sep 28, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026

Categories



Best podcasts about kristj

Show all podcasts related to kristj

Latest podcast episodes about kristj

Mannlegi þátturinn
Íslenski dansflokkurinn, gullmoli úr safni frá 1995 og Gísli lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 28, 2026 54:35


Við héldum áfram yfirreið okkar yfir það sem er að gerast á fjölum leik- og sviðlistahúsanna í vetur. Í þetta sinn var það Íslenski dansflokkurinn, en Lovísa Ósk Gunnarsdóttir er listdansstjóri þar á bæ. Hún sagði okkur frá dansflokknum og dansvetrinum framundan. Svo fengum við gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn var brotið sem við fengum að heyra frá árinu 1995, úr þætti Þorsteins J. Vilhjálmssonar „Sumar í Héraði“ þar sem hann hafði farið um sveitina með upptökutæki og rætt við fólk í Dölunum. Þar heyrðum við samtal þriggja kvenna sem eru allar um nírætt þar sem þær sitja og hnýta heklubönd og karpa um allskonar ótengda hluti, peninga, kleinubakstur og skaphöfn hvorrar annarrar. Þetta voru þær Steinunn Gunnarsdóttir Grænumýrartungu í Hrútafirði, Margrét Oddsdóttir Jörfa í Haukadal og Gísla Sigríður Kristjánsdóttir frá Teigi í Hvammssveit. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Gísli Hvanndal íslenskukennari og meðlimur í leshringnum Austurlandahraðlestri. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gísli talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Svanvængjuð þrá e. Valdimar Tómasson Næsta stríð e. Ásgeir H. Ingólfsson Bók vikunnar e. Snæbjörn Arngrímsson Íslensk óhamingja e. Bragi Páll Sigurðarson bækur Steinars Braga og þjóðsagan Djákninn á Myrká Tónlist í þættinum: Komdu með / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Svantes lykkelige dag / Povl Dissing (Benny Andersen) Nótt / Friðrik Ómar Hjörleifsson (Gunnar Þórðarsson, texti Þorsteinn Erlingsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Bylgjan
Reykjavík síðdegis 25.09.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Sep 25, 2026 62:05


Í þessum þætti: Guðmundur Ingi Kristinsson fyrrverandi barna- og menntamálaráðherra Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins Símatími: Hólmfríður - Kristján - Þór - Arngrímur - Jón  Friðrik Einarsson "Taxí hönter" Þórunn Sigurðardóttir framkvæmdastjóri mannvirkja og markaðseftirlits hjá HMS um dauðans alvöru ef brunahólfandi innihurðir virka ekki Árni Sigfússon fyrrverandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar

gu sj reykjav sigur hms kristj sigf arngr hafsteinsd reykjanesb
Bylgjan
Bítið - fimmtudagur 24. september

Bylgjan

Play Episode Listen Later Sep 24, 2026 82:46


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Tómas Kristjánsson, lektor við Sálfræðideild Háskóla Íslands og Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnisstjóri hjá Lífsbrú miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá embættis landlæknis, ræddu stöðu sjálfsvígsforvarna. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokks, hefur setið hringinn í kringum borðið í atvinnulífinu. Hún ræddi vinnumarkaðsmódelið við okkur. Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, ræddi varnarmál við okkur. Ragnar Ómarsson, formaður Matsmannafélags Íslands, ræddi við okkur um ástandsskoðanir fasteigna. Gunnar Dofri  Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, ræddi við okkur um sóðaskap við grenndarstöðvar sem kostar 100 milljónir á ári.

gu sj ragnar kristj frams heimi hafsteinsd sorpu fimmtudagur
Mannlegi þátturinn
Jakob og Karl um 60 ára afmæli MH, Pabba Reif, vísindaspjallið um heilann

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 23, 2026 52:50


Þann 24. september 1966 var Menntaskólinn við Hamrahlíð settur í fyrsta skipti og árið 1972 var hann fyrsti skólinn til að taka upp áfangakerfi. 60 ára afmæli skólans verður fagnað svo um munar næsta laugardag með dagskrá frá morgni til kvölds. Ofursveit skólans mun koma fram, Hamraskáld að fornu og nýju lesa úr verkum sínum, boðið verður uppá gönguleiðsögn um skólann og margt fleira. Tveir fyrrverandi nemendur og nú meðlimir í Ofursveit MH, Jakob Frímann Magnússon og Karl Sigurðsson Baggalútur komu í þáttinn í dag. Pabba Reif er heitið á nýju dansverki sem frumsýnt verður eftir áramót í Tjarnarbíói. Aðstandendur sýningarinnar auglýsa nú eftir þáttakendum fyrir verkið, en leitað er eftir feðrum og ungmennum, sem munu svo dansa saman í sýningunni. Í kynningartexta segir að í verkinu munu feður fá tækifæri til að tengjast ungmennum sínum í gegnum dans og tónlist. Anna Kolfinna Kuran sagði okkur betur frá þessu verkefni og opnum danstíma á sunnudaginn í Dansverkstæðinu á Hjarðarhaga á sunnudaginn, en hún er danshöfundur verksins. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að heilinn hafi tvo mismunandi uppruna í fósturþroska. Þessi vitneskja auðveldar vísindahópum sem eru að rannsaka sjúkdóma í heilastofninum, en heilastofninn á líklega uppruna sinn í öðrum stofnfrumum en t.a.m. framheilinn. Edda útskýrði þetta betur í þættinum. Tónlist í þættinum: Við arineld / Erla Stefánsdóttir (Magnús Eiríksson, texti Kristján frá Djúpalæk) 10 dropar af sól / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason) Eldur / Gissur Páll (Sveinn M Sveinsson, texti Steinn Steinarr) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

dj magn reif eir edda kristj svo tveir menntask jakob fr hamrahl tjarnarb baggal karl sigur
Rauða borðið
Rauða borðið 22. sept - Efnahagsmál, gunguháttur, ný skáldsaga, Grænland og næring

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 22, 2026 296:16


Þriðjudagur 22. september Efnahagsmál, gunguháttur, ný skáldsaga, Grænland og næring Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku og Ragnar Sigurður Kristjánsson hagfræðingur Viðskiptaráðs ræða við Gunnar Smára um fjárlögin og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og hætturnar í efnahaginum þar sem verðbólga, vaxandi atvinnuleysi og merki um stöðnun draga um dökka mynd. Auka þarf kröfur til skólabarna, segir Sverrir Norland rithöfundur, bankamaður og lögfræðingur. Hann ræðir hugrekki og aumingjaskap og ýmislegt þar á milli í samtali við Björn Þorláks. Margrét Bjarnadóttir danshöfundur, myndlistarmaður, leikhúskona og margt fleira hefur sent frá sér skáldsöguna Varkár, sem er einskonar skáldævisaga og fjallar um konu sem heitir Margrét og lifir lífi sem er líkt lífi höfundarins. Margrét segir Gunnari Smára frá bókinni og sjálfum sér, og muninum á þessu tvennu. Rasmus Gjedssø Bertelsen prófessor í Tromsø ræðir við Gunnar Smára um ásælni Trump til Grænlands, varnarsamninga Grænlands og Ísland, tengingu Kanada til Evrópu og hverju það kann að breyta fyrir okkur og norðurslóðir. Ásdís Olsen ræðir við Elísabetu Reynisdóttur (Beta Reynis), næringarþerapisti og næringarfræðing um togstreitu við akademíuna og hvernig hún hefur leyst úr áföllum og lært lexíur.

Aftenpodden
Et forsvar for positiv nasjonalisme

Aftenpodden

Play Episode Listen Later Sep 18, 2026 44:38


Rødt-politiker Mímir Kristjánsson dro til USA for å skrive bok om Norges første fotball-VM på 28 år. Der møtte han norske supportere, eufori, vikinghjelmer, allsang – og han kom hjem til et Norge som plutselig ønsket å ro i takt. Programleder Lars Glomnes startet sommeren med å forakte hele estetikken, men noen uker senere satt han selv på Karl Johan og rodde. Hva var det egentlig som skjedde? Kristjánsson mener både VM-jubelen og folkesorgen etter kong Haralds død viser at nordmenn kan, og vil, ha et nasjonalt fellesskap.

Mín skoðun
X 977 - Mín skoðun. 7.þáttur -18092026

Mín skoðun

Play Episode Listen Later Sep 18, 2026 60:02


Heil og sæl. Það er nóg um að vera í þætti dagsins. Davíð Smári þjálfari Njarðvíkur í fótbolta kemur í heimsókn og við förum um víðan völl. Garpur Elísabetarson spjallar við mig um Bakgarðshlaupið sem hefst á morgun, laugardag og Bolli Már Bjarnason Þróttari og Kristján Gylfi Guðmundsson Fylkismaður koma í heimsókn og hita upp fyrir 100 milljón króna leikinn á Laugardalsvelli á morgun. Takk fyrir að hlusta og takk LENGJAN og POULSEN. 

P4s Radiofrokost
Tre kjeltringer i studio

P4s Radiofrokost

Play Episode Listen Later Sep 17, 2026 40:00


I dag får vi ett innblikk in i Øystein, Eirin og Bjørns kriminelle fortid. Mímir Kristjánsson kommer på besøk for å prate om både fotball-VM og vennskapet med Erlend Mørch. Øystein tøyer strikken med å gå i sokkelesten på jobb i dag, men er det egentlig greit? Svaret kan du høre i dagens episode! Episoden kan inneholde målrettet reklame, basert på din IP-adresse, enhet og posisjon. Se smartpod.no/personvern for informasjon og dine valg om deling av data.

On Wisdom
68: Special Series Trailer: 5 Episodes on the Science of Wisdom

On Wisdom

Play Episode Listen Later Sep 16, 2026 2:04


From 28th September Hosted by Igor Grossmann and Charles Cassidy 01 - EXEMPLARS AND NARRATIVES Cristine Legare - Dan McAdams - Laurie Paul 02 - METACOGNITION AND JUDGMENT Gordon Pennycook - Tom Costello - Steven Fleming 03 - MEASURING WISDOM Judith Glück - Monika Ardelt - Eranda Jayawickreme 04 - INTERVENTIONS AND TRAINING Judith Glück - Ethan Kross - Kristján Kristjánsson 05 - WISDOM FRONTIERS Dilip Jeste - Barry Schwartz - Justin Brienza

Þjóðmál
#457 – Helgarvaktin með Ásdísi Kristjáns og Herði – Það þarf alvöru verkfæri ef það á að laga eitthvað

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Sep 11, 2026 92:50


Ásdís Kristjánsdóttir og Hörður Ægisson ræða fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, boðaðar skattahækkanir, leikþáttinn við kynningu frumvarpsins, líkurnar á því að rekstur ríkissjóðs komist yfir núllið og falleinkunn markaðarins yfir frumvarpinu með vaxandi verðbólguvæntingum. Einnig er rýnt í stjórnmálin og stefnuræðu forsætisráðherra og mögulega hefndarför utanríkisráðherra, íslenska hlutabréfamarkaðinn og skort á einkafjárfestum, stórfjárfestingar í tækni og gervigreind erlendis og efnahagsáhyggjur í borgarpólitíkinni. Þá eru fastir liðir á sínum stað, hraðaspurningar, hrós vikunnar auk þess sem viðmælendur reima á sig skóna og stíga á svið.

Bylgjan
Bítið - föstudagur 11. september

Bylgjan

Play Episode Listen Later Sep 11, 2026 89:19


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Herdís Storgaard, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Miðstöðvar slysavarna barna, settist niður með okkur. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, fór yfir skattareiknivél á vi.is. Lilja Nótt Þórarinsdóttir, leikkona og einn af handritshöfundum seríunnar Boltamömmur og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður fóru yfir sviðið. Jón Þórðarson og Rikka Sigríksdóttir - og Sigríkur litli, sögðu okkur frá Sigríði Hrund sem fæddist langt fyrir tímann. Brynjólfur J. Baldursson, stjórnarformaður Reykjabaðanna, ræddu Reykjaböðin við okkur.   Guðjón Einar Guðmundsson, bráðatæknir og slökkviliðsmaður og Brynjólfur Pétursson, lýsingahönnuður, tækniteiknari og kerfisstjóri eru báðir í námi við háskólann á Bifröst.

gu herd kristj sigr bifr brynj baldursson hrund heimi gunnar sigurbj
Mannlegi þátturinn
Eyjólfur Kristjánsson föstudagsgestur og matarminningar um fisk

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 11, 2026 53:31


Föstudagsgesturinn okkar í dag var engin annar en Eyfi, Eyjólfur Kristjánsson. Hann hefur víða komið við í íslensku tónlistarlífi og hefur verið einn af vinsælustu tónlistarmönnum landsins síðustu áratugi. Hann er að gefa út glænýja plötu og við heyrðum tvö lög af henni í þættinum. Eyfi ólst upp í Vogahverfinu, fór snemma að spila á gítar og spilaði snemma á kvöldvökum í Kerlingafjöllum þar sem íslendingar fóru gjarnan í skíðaferðir en þar vann hann sem skíðakennari. Hann var hluti af Vísnavinum og Hálft í hvoru. Eyfi tók þátt í fyrstu undankeppni Eurovision árið 1986 og hefur svo auðvitað staðið á stóra sviðinu í keppninni erlendis og lagið hans Nína er enn í dag sungið af öllum kynslóðum við hin ýmsu tækifæri. Bítlavinafélagið, sólóferillinn, bandarísk tónlist æskunnar, siglingar á skemmtiferðaskipum og margt fleira var rætt í spjallinu við Eyjólf í dag. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo á sínum stað og í dag ákváðum við að tala um matarminningar, góðar og slæmar og umræðuefnið var fiskur í þetta sinn. Tónlist í þættinum: Dagar / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Við getum allt / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson) Hang on baby / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Bylgjan
Reykjavík síðdegis 09.10.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Sep 10, 2026 69:53


Í þessum þætti: Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins vill banna búrkur á Íslandi áður en það verður að vandamáli Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar og Ingibjörg Ísaksen þingmaður Framsóknarflokksins um átakalínur þingsins í vetur Símatími: Tryggvi - Helga - Guðmundur - Hafdís - Kristján Ingólfur Bender aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir frost á byggingamarkaði muni hafa víðtæk áhrif Saga Kjartansdóttir sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ um vistráðningar grunar að Au-pair kerfið sé misnotað hér á landi Rósa Signý Gísladóttir doktor í málvísindum og dósent við HÍ um heyrðu-ha málfar í fjölmiðlum Bjarki Hvannberg er sprenglærður verkfræðingur sem fær ekki kennsluréttindi því tölvan segir nei

ing bender reykjav kristj ingibj frams hafd samtaka samfylkingarinnar
Lestin
Ímyndunarafl Bergs Ebba

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 9, 2026 54:33


Öld ímyndunaraflsins nefnist ný bók eftir Berg Ebba Benediktsson, rithöfund og fyrirlesara - sem vill ekki láta kalla sig framtíðarfræðing. Í bókinni skorar hann samtímann á hólm og veltir fyrir sér stöðu mennskunnar á tímum gervigreindar. Fríða og Kristján spjalla við Berg um gervigreind, bækur, líkamleika og kapítalisma.

Rauða borðið
Rauða borðið 9. sept - Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 9, 2026 237:31


Miðvikudagur 9. september Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg munu án efa skerða viðkvæma þjónustu við börn og ungmenni og auka hættu á ójöfnuði. Þetta segir Árni Gunnarsson forvarnafulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Kristján Sigurjónsson ritstjóri FF7 ræðir við Gunnar Smára um kosningarnar í Svíþjóð, sem verða um helgina. Verða stjórnarskipti? Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir snýr aftur á Samstöðina eftir hlé og ræðir ásamt Birni Þorláks álitamál í geðheilbrigðisþjónustu. Bergur Ebbi Benediktsson, höfundur, fyrirlesari og uppistandari, segir Gunnari Smára frá nýju bókinni sinni sem fjallar um mennsku og gervigreind. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Víði Sigurðsson íþróttasérfræðing um fótbolta.

Bylgjan
Sprengisandur 06.09.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Sep 6, 2026 89:31


Páll Magnússon stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Staðan í ferðaþjónustunni - þar sem aukin skattheimta er farin að hafa áhrif á framþróun og fjárfestingar í greininni. Staða einkarekinna fjölmiða - ekki síst í ljósi þess að sjónvarpsfréttir Sýnar/Stöðvar 2 voru lagðar niður nú í vikunni. Gestalistinn: Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar Guðmundur H. Björnsson og Magnús E. Kristjánsson markaðs- og sölustjórar Sýnar og Árvakurs Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Helga Guðrún Johnson og Sigmundur Ernir Rúnarsson sem voru með í að búa til fréttastofu Stöðvar 2 á sínum tíma. Þórir Guðmundsson fjölmiðlamaður er á síma.

Bylgjan
Bítið - miðvikudagur 2. september

Bylgjan

Play Episode Listen Later Sep 2, 2026 85:00


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Haraldur Benediktsson, oddviti í Hvalfjarðarsveit, ræddi við okkur um verkefni sveitarfélagsins. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjórinn í Kópavogi, ræddi við okkur um efnahagshorfurnar. Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála hjá KEF, fór yfir farþegatölur og framtíðarhorfur Brynjar Freyr Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, ræddi við okkur um nýja gosdrykkjaverksmiðju. Krista og Siggi Hall komu til okkar og ræddu heimshornadaga Eldum rétt. Auddi um Arvo

gar kristj arvo kef heimi hvalfjar
Rauða borðið
Synir Egils 30. ágúst - Dagurinn eftir þjóðaratkvæði

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 30, 2026 133:27


Sunnudagurinn 30. ágúst Synir Egils: Dagurinn eftir þjóðaratkvæði Við förum yfir stöðu samfélagsins daginn eftir þjóðaratkvæði um Evrópusambandið. Fyrst með þeim Kristján Kristjánssyni fyrrum umsjónarmanns Sprengisands, nú umsjónarmanns Kastljóss, Aðalsteini Kjartanssyni aðstoðarritstjóra Heimildarinnar og Sirrý Hallgríms fyrrverandi aðstoðarkonu ráðherra. Síðan koma þingkonurnar Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, María Rut Kristinsdóttir, Dagbjört Hákonardóttir og Rósa Guðbjartsdóttir og meta áhrifin af niðurstöðunni. Þá fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.

gu kristj eftir evr fyrst egils gunnlaugsd dagbj
Vikulokin
Kjördagur, uppsagnir og kjaramál

Vikulokin

Play Episode Listen Later Aug 29, 2026 57:00


Í Vikulokunum í dag var rætt um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, kjarasamninga og verðbólgu. Ingvar Þór Björnsson hefur þáttinn á að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna við Ólaf Þ. Harðarson, stjórnmálafræðing, Guðmund Heiðar Helgason, almannatengil og Ragnheiði Kristjánsdóttur, sagnfræðing. Í öðrum hluta voru uppsagnir Reykjavíkurborgar í vikunni ræddar. Þar voru Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar gestir þáttarins. Í þriðja hluta voru kjaramál í brennidepli þegar Ingvar tók á móti Arnaldi Sölvi Kristjánssyni, formanni fjármálaráðs, Birgittu Ragnarsdóttur, stjórnarmanni í VR, og Kristínu Hebu Gísladóttur, framkvæmdastjóra Vörðu.

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - þriðjudagur 25. ágúst 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Aug 25, 2026 88:00


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Björn Kristjánsson sérfræðingur hjá FÍB Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra um vexti Símatími Ásgrímur L. Ásgrímsson framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs um uppsagnir hjá borginni Samúel Karl Ólason fréttamaður Sýnar um viðskiptastríð Kanada og Bandaríkjanna Gísli Már Gíslason prófessor emeritus í vatnalíffræði við Háskóla Íslands um geitunga Jónas Már Torfason bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi

Fram og til baka
Tónaflóð og enski boltinn

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Aug 22, 2026 117:00


Í þessum þætti af Fram og til baka fengu þau Felix og Nanna til sín sparkspekingana Kjartan Atla Kjartansson og Kristjönu Arnarsdóttur til að ræða enska boltann sem fór af stað um helgina. Svo er Menningarnótt haldin hátíðleg um helgina og Tónaflóð, tónleikar Rásar 2, verða á sínum stað á Arnarhóli. Þar kemur fram úrvalslið tónlistarmanna, þar á meðal JóiPé og Króli, sem kíktu í stúdíó til Nönnu og Felix þar sem þau ræddu til að mynda upphaf samstarfsins og það sem er framundan hjá þeim félögum.

kr fram nanna kristj svo enski menningarn arnarsd arnarh
Videoleigan
Spider-Man: Brand New Day (2026)

Videoleigan

Play Episode Listen Later Aug 20, 2026 128:23


Er fjórða myndin í seríunni mögulega sú besta?Tímakóði:Spjall - 00:00Eftir No Way Home - 12:50Doomsday - 36:00Leikstjóri og illmenni - 41:30Undirbúningur og tökur - 51:23Eftirvinnsla - 1:12:20Gagnrýni og spoilers - 01:19:58Fylgstu með á www.facebook.com/videoleigan og á Instagram @videoleiganhladvarpSendu okkur línu á videoleiganhladvarp@gmail.com„Að horfa á myndband“ röddin í upphafi er einhver sem allir VHS unnendur þekkja, goðsögnin Gylfi Pálsson.Þemalag Videoleigunnar er samið af Kristjáni Sturla Bjarnasyni.

Fotbolti.net
Enski boltinn - Það á að vera gaman að horfa á Liverpool

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Aug 18, 2026


Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst næstkomandi föstudag. Liverpool tók þá ákvörðun eftir síðasta tímabil að reka Arne Slot og ráða Andoni Iraola og núna hefst áhugaverður kafli hjá félaginu. Það á að vera skemmtilegt að horfa á Liverpool en það var ekki raunin að mestu leyti undir stjórn Slot. Stuðningsmenn vonast til að það verði breyting á því undir stjórn Iraola. Kristján Atli Ragnarsson og Baldvin Már Borgarsson, stuðningsmenn Liverpool, mættu í Coke stúdíóið í spjall til að fara yfir stöðuna hjá félaginu sínu núna þegar stutt er í tímabil.

Bylgjan
Sprengisandur 26.08.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Aug 16, 2026 94:26


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Evrópumál, staðan og horfurnar Ólafur Þ. Harðarson, próf emeritus við HÍ Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur Já og nei hreyfingar eru hnífjafnar, hvaða mun ráða úrslitum, hvað hefur markað baráttuna og hvernig raðast atkvæðin eftir flokkslínum og öðrum breytum í kosningum. Evrópumál Atvinnulíf og Evrópa Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur, stjórnarkona í Já til að sjá Bjarnheiður Hallsdóttir, forstjóri og eigandi Katla Travel Hvers vegna er stærstur hluti atvinnulífsins andsnúinn nánari samruna við Evrópu?  Evrópumál, sagan og framtíðin Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra Umrót í alþjóðamálum er greinilegt og það kallar á endurmat á stöðu Íslands, hver verður framtíð Evrópusamstarfs, EES samningsins þar með talið í fyrirsjáanlegri framtíð.

Podcast með Sölva Tryggva
Gamalt og gott: Kristján Jóhannsson með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Aug 14, 2026 59:58


Kulturmisjonen
#88 – Kulturmisjonens guide til Sosialistenes guide til Bibelen

Kulturmisjonen

Play Episode Listen Later Aug 14, 2026 55:40


Politikerpersonlighetene og kjærestene Sofie Marhaug og Mímir Kristjánsson har lest Bibelen sammen og skrevet bok om det. Boka har solgt som, ja, som en Bibel, og har ligget på bestselgerlistene gjennom sommeren.Funker politikernes teologiske briller? Og yter de Bibelens kompleksitet rettferdighet? Og hva er greia med at kristennorge ikke kan få nok av ateister som snakker om Gud?

Bylgjan
Bítið - föstudagur 14. ágúst

Bylgjan

Play Episode Listen Later Aug 14, 2026 67:18


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Finnur Oddsson, forstjóri Haga, ræddi við okkur um matvöruverð frá ýmsum áttum. Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Póstsins, settist niður með okkur og fór yfir starfsemi Póstsins og gjaldskrárhækkanir. Fréttir vikunnar með Tinnu og Kristjáni. Símatími    

Bylgjan
Sprengisandur 09.08.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Aug 9, 2026 93:17


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: 10 - 10.30Evrópumál/fullveldi og sjálfstæði Stefán Stefán Már Stefánsson, prófessor Emeritus er einn helsti sérfræðingur okkar um Evrópumál, hann leggur mat á umfang framsal ríkisvalds til ESB ef af inngöngu verður. Evrópumál/sjávarútvegur Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, forstjóri Vinnslustöðvarinnar Hversvegna vill sjávarútvegurinn ekki ganga í ESB og draga úr gjaldmiðlaáhættu og auka tollfrjálsan aðgang að stórum mörkuðum? Forstjóri Vinnslustöðvarinnar svara þessum spurningum og fleiri Evrópumál/hagkerfið Gauti B. Eggertsson, prófessor við Brown háskóla í USA Jón Helgi Egilsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands Báðir þessir menn hafa verið áberandi í umræðu um hagkerfið og þróun þess á síðustu vikum, en hver eru hin hagrænu rök fyrir því að leita eftir inngöngu i Evrópusambandið, hvað mælir með og hvað gegn? Evrópumál/landbúnaður Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna Bændasamtökin hafa yfirfarið hina sameiginlegu landbúnaðarstefnu ESB og telja hana tæpast samræmast íslenskum landbúnaði enda flytjist ákvörðunarvald að stórum hluta úr landi með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir innlenda matvælaframleiðslu.

Bylgjan
Sprengisandur 02.08.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Aug 2, 2026 95:39


Kristján Kristjánsson styrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.   Í þessum þætti:   Efnahags- og evrópumál Arnór Sighvatsson, fyrrverandi aðstoðarseðlabankastjóri Arnór Sighvatsson, fyrrverandi aðstoðarseðlbankastjóri, ræðir afstöðu sína til þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst og þá skoðun sína að Evran henti íslenska hagkerfinu vel. Hann telur efnahagslegt fullveldi best tryggt með inngöngu í ESB og þátttöku í gjaldmiðlabandalagi. Hvalveiðar Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna Árni Sverrisson segir reynslu sjó- og skipstjórnarmanna skýra um áhrif gríðarlegrar fjölgunar hvala á fiskistofna við Íslandsstrendur. Bregðast verði við en umfram allt hvetur hann til miklu umfangsmeiri rannsókna á vistkerfi hafsins og samspili tegunda sem þar eru. Efnahagsmál/Laxeldi á landi Lárus S. Ásgeirsson stjórnarformaður Laxeyjar í Vestmannaeyjum Lárus Ásgeirsson rekur möguleika Laxeyjar og annarra landeldisfyrirtækja í laxi til næstu ára. Spár gera ráð fyrir því að Íslandi taki forystu á þessu sviði innan fárra ára. Gríðarlegir möguleikar á verðmætaaukningu í útflutningi að hans mati.

hann esb kristj sverrisson
Bylgjan
Sprengisandur 26.07.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jul 26, 2026 94:32


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Sjávarútvegur/Evrópumál Kristján Vigfússon, dr. í stefnumótun við HR Kristján ræðir rannsóknir sínar á íslenskum sjávarútvegi og forskoti hans í alþjóðlegum samanburði og veltir upp möguleikum á auknum umsvifum íslenskra fyrirtækja ef til kæmi aðild að ESB. Dómsmál Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Dómsmálaráðherra ætlar ekki að aðhafast neitt í fyrirkomulagi á sölu áfengis, þrátt fyrir miklar breytingar á því og niðurstöður dómstóls um lögmæti þeirra breytinga. Hvernig hyggst hún bregðast við starfsemi erlendra veðmálafyrirtækja á Íslandi og skyldum málum, t.d, tekjuöflun stórra samfélagsmiðlafyrirtækja,  þar sem lögsaga íslenska ríkisins er ekki ótvíræð. Stjórnmál/Evrópumál Sigríður Á Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar Hveru alvarleg mistök voru það hjá utanríkisráðherra að lleiðrétta ekki frétt þar sem haft var ranglega eftir henni að ráðherrann hefði rætt við forsætisráðherra Hollands um varanlega undanþágur fyrir Íslendinga frá sjávartúvegsstefnu ESB? Kjarasamningar Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ  Er orðið ljóst að taka þarf upp kjarasamninga í haust - verðbólgutölur benda til þess en hvað vill forseti ASÍ að gerist. samtökin hafa talað fyrir ráðstöfunum í efnahagsmálum frá í febrúar en litla athygli fengið.

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - miðvikudagur 22. júlí 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jul 22, 2026 74:50


Öll viðtöin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Arnar Jökull Agnarsson ábyrgðarmaður þjálfunar flugáhafna hjá Icelandair - um protocol í flugstjórnarklefa Dagur B Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar um skýrslu sem unnin var að frumkvæði og beiðni Alþýðusambandsins, Samtaka atvinnulífsins, Félags atvinnurekenda og Viðskiptaráðs árið 2014 Símatími Davíð O Arnar yfirlæknir hjartalækninga Landspítala - Hvernig á maður að bregðast við gagnvart hitabylgju Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi - um 12 ára gamla skýrslu varðandi ESB inngöngu Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri samtaka um ferðaþjónustu - erum við að nýta Ísland sem svalan vikomustað Krstján Aðalsteinsson formaður málarameistarafélags Íslands Hvernig líður málurum hér á höfuðborgarsvæðinu í rigningunni? Það er afkomubrestur í útimálningu á suðvestur horninu

reykjav esb kristj hvernig icelandair landsp samtaka samfylkingarinnar
Steve Dagskrá
HM half time show, litblinda í Krikanum og stunguvesti í strætó.

Steve Dagskrá

Play Episode Listen Later Jul 21, 2026 68:21


Messi og legacyið eftir Cucurella, Brazell að hreyfa nálina, Kristján Flóki fattar sjálfan sig og Dude looks like a lady.

Spegillinn
Valdaskipti í Bretlandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 20, 2026 10:00


Húsbóndaskipti urðu í bústað breska forsætisráðherrans að Downingstræti 10 í Lundúnum í dag, þegar Keir Starmer flutti þaðan og Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri í Manchester og nýkjörinn þingmaður Verkamannaflokksins flutti þar inn. Bretar eru á meðal okkar næstu nágranna og helstu bandalags- og viðskiptaríkja, og því ekki úr vegi að forvitnast aðeins um þessi valdaskipti, ef það er rétta orðið, og þá sem þar eiga í hlut. Hvað gerði Starmer og hvað gerir Burnham? Ævar Örn ræddi þetta við Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðing, sem þekkir vel til breskra stjórnmála. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Bylgjan
Sprengisandur 19.07.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jul 19, 2026 93:43


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Ferðaþjónusta/skattheimta Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF Ferðaþjónustan er ósátt við ríksstjórnina, ósátt við nýja skatta og þá stefnu sem ríkisstjórnin hefur í atvinnumálum. Þrátt fyrir samtal milli greinar og atvinnuvegaráðuneytisins telur ferðaþjónustan alltof langt gengið í innleiðingu nýrra skatta.    Loftslagsmál/alþjóðasamningar Bjarni Már Magnússon, lögmaður Fjallað um ráðgefandi álit Alþjóðadómstólsins í Haag um skyldur ríkja í loftslagsmálum, álit sem þykir marka tímamót vegna þess hversu afdráttarlaus það er um ábyrgð ríkja í þessum málaflokki og skyldur þeirra, skyldur sem jafnvel höggva í þjóðarrétt.  Evrópumál Birgir Ármannsson, fyrrverandi fors. Alþingis Dagbjört Hákonardóttir, alþingismaður Framhald umræðu um Evrópumál, afsal eða framsal fullveldis til Evrópusambandsins, nauðsynlegar stjórnarskrárbreytingar ef til inngöngu kemur og útfærslu þeirra.  Bretland/stjórnmál Erlingur Erlingsson, sagnfræðingur Erlingur sem búsettur eru í Bretlandi, fer yfir nýjustu hræringar í breskum stjórnmálum, nýr forsætisráðherra tekur við 20. júlí, sá áttundi á 10 árum, þessi breyting undirstrikar enn og aftur ólguna í breskum stjórnmálum. 

Bylgjan
Sprengisandur 12.07.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jul 12, 2026 93:06


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Lofslagsmálhitabylgjur Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands Hitabylgjur eru margfalt tíðari í Evrópu en þær voru fyrir fáeinum árum, engin heimsálfa hitnar hraðar - hvað er á seyði og mun þessi þróun halda áfram? Hvað segir þessi staða okkur um loftslagsbreytingar á jörðinni?  Evrópumál Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við HA Munu Íslendingar glata fullveldi sínu og sjálfstæði við að ganga í Evrópusambandið ef af yrði? Hver yrðu áhrif á lögsögu íslenskra dómstóla? Hversu víðtækt er vald Evrópusambandsins í raun og veru? Menntamál Inga Sæland, menntmálaráðherra Áhyggjur af menntakerfinu eru miklar, námsgagnaframleiðsla í skötulíki, einkunnagjöf orkar tvímælis og alþjóðlegur samanburður erfiður - hver eru áform ráðherra til að vinda ofan af þessari þróun?  Megas/tónlist/menning Jónatan Garðarsson, fjölmiðlamaður Jónatan Garðarsson er manna fróðastur um sögu íslenskrar tónlistar, hann fjallar um Megas, áhrif hans og feril nú þegar hann er allur. Listamaðurinn sem þjóðin elskaði og hataði í senn. 

Þjóðmál
#438 – Kaffispjall með Kristján Inga – Atvinnulífið þarf að hlaupa hraðar í gervigreindarkapphlaupinu

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Jul 7, 2026 77:45


Kristján Ingi Mikaelsson ræðir um það hvernig gervigreind er að umbylta viðskiptalífinu, hvernig stjórnendur þurfa að líta á gervigreind sem viðskiptalega stefnumótun og nýja tekjustrauma en ekki bara tækniverkefni, hvernig ströng regluvæðing hefur orðið til þess að Evrópa hefur dregist aftur úr Bandaríkjunum í tækniþróun, þann ótta sem kann að ríkja um atvinnumissi, hvað ungt fólk þarf að temja sér og margt fleira sem snýr að þessari hröðu tækniþróun sem nú eru að eiga sér stað.

Bylgjan
Sprengisandur 05.07.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jul 5, 2026 88:53


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Skólamál Jón Pétur Zimsen alþingismaður Kolfinna Jóhannesdóttir, skólastjóri Kvennaskólans Samræmi í einkunnagjöf grunnskóla er hverfandi, enn einn þátturinn í menntakerfinu sem virðist hafa farið úrskeiðis hin síðari ár.  Innviðaframkvæmdir Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lifeyrissjóðs Sérstakt innviðafélag hefur verið stofnsett á Íslandi. Mjög er horft til Færeyjar af þessu tilefni þar sem byggð hafa verið hver jarðgöngin á fætur öðrum síðustu 25 árin, á meðan Íslendingar hafa þvargað um forgangsröðun á sama sviði. Ólafur ræðir afstöðu lífeyrissjóða sem fjárfesta í stórum innviðaverkefnum á Íslandi. Evrópumál Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur og stjórnarkona í Heimssýn Erna hefur gagnrýnt harðlega hugmyndir um að matvælaverð lækki verulega á Íslandi við inngöngu í ESB og telur þær byggðar á óskhyggju.  Stjórnmál/Reykjavíkurborg Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar Pétur gagnrýnir hagræðingaraðgerðir nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur.

Harm og Hegseth
Mímir Kristjánsson og Bibelen

Harm og Hegseth

Play Episode Listen Later Jul 1, 2026 31:26


Over gjennomsnittet fotballinteresserte Mímir Kristjánsson er på besøk. Det blir snakk om den ene kvelden som skapte overskrifter i alle landets aviser, å skrive bok om Bibelen og alkohol. Hva er egentlig tredje mosebok-knekken? Og hva blir neste bok fra Mimír? Produsert av Ingrid Alice Mortensen.

Lestin
Ósamhverfur fótbolti, Boards of Canada, Primavera Sound og sumarmenning

Lestin

Play Episode Listen Later Jul 1, 2026 33:12


Lestin er á leiðinni í sumarfrí eftir vikuna og Lóa og Kristján nefna það menningarefni sem hefur setið á hakanum á tímabilinu. Halldór Armand Ásgeirsson fjallar um HM 2026 og að þessu sinni fjallar hann um assymetrískan fótbolta eins og hans birtist í sigri Paragvæ á Þýskalandi og assymetrískan hernað eins og hann birtist í stríði Bandaríkjanna og Írans. Við fáum svo tónlistarpistil um Primavera Sound tónlistarhátíðina og nýja plötu Boards of Canada. Það er Davíð Roach Gunnarsson sem segir frá.

Lestin
Mat Dryhurst, Midillinn.com, fótboltabullur og útlendingar

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 29, 2026 55:30


Fyrir tveimur vikum tókum við upp Lestina í lifandi flutningi með áhorfendum í Iðnó. Þá sögðum við frá sýningunni Strange Rules sem var opnuð í Feneyjum í maí, sýning sem tekst á við nýja tækni og kynnir til leiks hugtakið reglulist, protcol-art. Í þætti dagsins ræðum við nánar við einn sýningarstjóranna, breska listamanninn Mat Dryhurst. Við ræðum um regluverk heims, tvíhöfða orma og höfundarétt á tímum gervigreindar. Við leitum svo uppi íslenska protcol-list og ræðum við aðstandendur grínfréttasíðunnar og samfélagsmiðilsins, Midillinn.com. Þetta eru listamennirnir Þórður Hans Baldursson og Kristján Thorlacius Finnsson. Einar Már Jónsson sendir okkur svo pistil frá París um fótboltabullur, útlendingaandúð og ömmu sem var borin á kóngastól milli gatna í miðjum óeirðum.

kristj fyrir einar m feneyjum lestina
Bylgjan
Reykjavík síðdegis - mánudagur 29. júní 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jun 29, 2026 66:13


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Birta Karen Tryggvadóttir hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs um útborgunardag í gær Rod Coronado leiðangursstjóri aðgerðar 86 um borð í skipinu Bandero Símatími Sigurjón Þórðarson þingmaður Flokks fólksins Ólafur Kristjánsson, Óli tölva, hjá netkynning.is um lög og reglur varðandi gervigreind Steinþór Gislason byggingarverkfræðingur hjá Eflu verkfræðistofu Aron Guðmundsson íþróttafréttamaður Sýnar um stórtíðindi í boltanum

Bylgjan
Sprengisandur 26.06.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jun 28, 2026 96:33


Páll Magnússon stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin í farveru Kristjáns Kristjánssonar.   Í þessum þætti: Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkv.stj. Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Jóhann Helgi Stefánsson, frkv.stj. Landsambands veiðifélaga um fiskeldi. Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður og þáttastjórnandi á Morgunblaðinu, og Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar um Evrópumálin og þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri um harkalega hagræðingu í rekstri borgarinnar. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands um átak til að efla samræðu meðal ungs fólks um framtíðina.

hei stef sn magn kristj evr morgunbla halla t samtaka sindrad hildur bj
Segðu mér
Jana Birta Björnsdóttir og Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir frá Tabú

Segðu mér

Play Episode Listen Later Jun 24, 2026 40:05


Jana Birta og Kolbrún koma frá Tabú sem er feminísk fötlunarhreyfing,. Þær eru að safna fyrir áheitum fyrir RVK maraþonið, en söfnunarféð fer til styrktar starfsemi TAbú sem og ferðalag til London. Þar ætla þær að skoða myndlistarsýningu með verkum Fridu Kahlo.

Vikulokin
Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson og Stefán Vagn Stefánsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jun 13, 2026 57:53


Rætt var um þinglok og stóru málin á þingi í Vikulokunum 13. júní. Ingveldur Anna Sigurðardóttir, nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknar, voru viðmælendur. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

bj sj stef sn sigur kristj ingvar umsj frams vagn samfylkingarinnar
Tid er penger - En podcast med Peter Warren

00:01 1999 igjen: to skrekkfilm-hiter og «this time it's different»00:04 Rekordbelåning og margin debt på all time high00:05 Opsjonsjaget vi ikke har sett siden 198700:08 Short gamma, marketmakere og spiralen som ga «Red Friday»00:14 Ingenting virket: bare lang volatilitet beskyttet00:17 Laveste korrelasjoner på to år og VIX opp 40 prosent00:18 Bank of America: «here be dragons» og ledighet mot inflasjon00:20 Bilen, AI og Jevons-paradokset00:24 SpaceX som datasenterselskap, ikke rakettselskap00:30 Børsnotering denne uka: 1770 milliarder og Musks absolutte makt00:31 S&P-nekten mot FTSE, Russell og MSCI00:32 Lockup-kalenderen og dagen å frykte: seks måneder og fire dager00:35 Grok mot Groq og «race to zero» i modellene00:40 Midtøsten: Trump mot Netanyahu og oljeprisen00:44 Hva folk ikke ser på nå: bear flattening og carry trades som ryker00:47 Dollar over 161 og japansk intervensjon00:49 Hudson River Trading og datasenteret i Norge00:51 Norge har misforstått seg selv: fisk, olje, rå kraft og nå compute00:53 Å raffinere compute: Skygard, spillvarme og 10X på krafta00:58 Compute som multiplikator: fra 10x-ere til 100x-ere01:00 Budsjettforliket, Mímir Kristjánsson og minstepensjonistene01:05 Å prestere når alt er mulig: fokus, nysgjerrighet og flytskjemaer01:11 Telefonen som heroin: reels, 24-timers reset og hjernen tilbake01:19 Trikkedrapet og situational awareness01:24 Varsler i stedet for å glo på skjermen: gull/sølv og momentum01:35 1998: LTCM, doblede posisjoner og banken som tapte 900 millioner01:45 Andrew Left, Citron og short-saken som ble svindel01:50 Oraclum, superforecasters og nordmannen på topp01:56 Drewry-indeksen, VM-frakt og Fifas fredspris til Trump Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Podcast með Sölva Tryggva
#441 Elín og Gísli með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later May 25, 2026 110:23


https://solvitryggva.is/ Parið Gísli Bachman og Elín Kristjánsdóttir hafa gengið í gegnum mikinn storm undanfarin ár eftir að Gísli var nafngreindur og myndbirtur í Kompás-þætti, þar sem hann sagði óviðeigandi hluti í starfi sínu sem stjörnuspekingur. Hann hefur misst sex störf á undanförnum árum vegna þáttarins og álagið á fjölskylduna hefur vægast sagt verið mikið. Í þættinum er sagan öll rakin, sem er skólabókardæmi um hve gríðarleg áhrif opinber umfjöllun getur haft og hvernig afleiðingarnar geta endað úr takti við allt sem gæti þótt eðlilegt. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Ingling - https://ingling.is/ Kush.is - https://www.kush.is/

Dark Dice
Season 2 | Ep. 34 | Sunward

Dark Dice

Play Episode Listen Later Apr 1, 2026 73:04


The team is lost within the realm of nightmares... Unnatural Horrors is now available in hardcover! Story by Travis Vengroff & K.A. Statz (Game Masters)Produced, Edited, and with Sound Design by Travis Vengroff Co-Sound Design, Co-Editing by Asbjørn GuldagerExecutive Producers: Dennis Greenhill, Carol Vengroff, AJ Punk'n, & Maico VillegasMixing and Mastering by Finnur NielsenTranscriptions by Asbjørn Guldager & Travis VengroffCast:Narrator / Co-Game Master – Travis VengroffNarrator / Co-Game Master – K.A. StatzFather Sindri Westpike – Eyþór ViðarssonRowena Granitepike / Glóey Westpike – Hem BrewsterSoren Arkwright – Peter Joeseph LewisSister Solana – Eyrún Inga MagnúsdóttirSister Marisol – Iona CampbellMother Helia – K.A. StatzSister Solite – Sam YeowCelègon – Eyþór ViðarssonSolite Choir – Eyrún Inga Magnúsdóttir, Sunna Líf Sólveigardóttir, Halla Tryggvadóttir, Bryndís Eva Erlingsdóttir, & Sandra Lind ÞorsteinsdóttirMusic:Music Director / Arranged by - Travis VengroffMusic Engineer (Musiversal) - Gergő Láposi "Empty Hearts" & "Danse Silencieuse" – Arranged and Performed by Travis Vengroff with Cello by Sam Boase-Miller and stock media provided by avinograd/ Pond5, Written and Performed by Andrey Vinogradov "Blood Red Ice" Written and performed by Enzo Puzzovio, rearranged and performed by Ryan McQuinn, with Budapest Strings & Choir by Musiversal "Theme of the Realmweaver" - Written and Mixed by Steven Melin, Orchestrated by Christopher Siu, with Additional Copyist Catherine Nguyen, Lyrics & Translations by Travis Vengroff, Violin by Matheus Garcia Souza, Budapest Strings Recorded by Musiversal, Choir Recorded by Budapest Scoring "Virtues of the Destined" – Written by Yuzo Koshiro, Orchestrated and Mixed by Steven Melin, Lyrics & Translations by Travis Vengroff & Florian Seidler, Woodwinds by Kristin Naigus, Violin by Matheus Garcia Souza, Hurdy-Gurdy by Matthias Loibner, Hammered Dulcimer by Kyle Paxton, Glockenspiel by Travis Vengroff, Budapest Strings, Choir, and Brass recorded by Musiversal Between Time Editions of "Theme of the Realmweaver" & "Craftsman's Creed" – Arranged and Performed by Steven Melin. Craftsman's Creed, Written by Yuzo Koshiro "Solite Ohm" & "His Dark Majesty / Solite Song" – Written by Travis Vengroff, Lyrics by Travis Vengroff & Kristján Atli Heimisson, Arranged and Conducted by Eyrún Inga Magnúsdóttir, Performed by the Solite Choir - based on Funeral Rites of Celègon by Eyþór Viðarsson & Hem Brewster Dark Dice art by Allen Morris with lettering by Kessir RilinikiThis is a Fool and Scholar Production.Check out our Merch: www.DarkDice.comFree Transcripts are also available: https://www.patreon.com/posts/dark-dice-22460850 Special Thanks to:You, our Patreon supporters! | Hem Brewster | Our Fool & Scholar Discord Lampreys! | Carol Vengroff Content Warnings:Cults, Faith, Fire, Poison, Tongues, Torture (Spiritual) Learn more about your ad choices. Visit megaphone.fm/adchoices

The White Vault
Goshawk | Ep. 30

The White Vault

Play Episode Listen Later Mar 10, 2026 36:04


In a final stand, Dragana confronts Amelia as the new guard and old guard clash. Credits: Written & Created by K. A. Statz Co-Created, Produced, & Directed, with Foley and additional Editing by Travis Vengroff Co-Directed, with Dialogue Editing by Rikke Rømer Edited, with Sound Design, Mixing & Mastering by Finnur Nielsen Executive Producers Dennis Greenhill, AJ Punk'n, Carol Vengroff, & Maico Villegas Script Editing by W. K. Statz & Travis Vengroff Translations in Icelandic by Kristján Atli Heimisson Japanese by Hinako Matsumoto Tagalog by Luis Cruz Serbian by Tanja Milojevic Cast: Iffy Talno – Lauren Tucker Adele Fathers Tsįą – Marcy Edwards Dragana Vuković – Tanja Milojevic Kidlat Tolentino – Luis Cruz Dís Eldrúnsdóttir – Hildur Magnusdottir Kōsuke Iwai – Daisuke Tsuji Mika Fathers Tsįą – Denise Halfyard Arna Dísdottír – Hrafnhildur Orradóttir Dr. Amelia Murray – Beth Eyre Jón Mattíasson – Rói Einarsson Sara Dísdottír – R. Hildottír Gunnar Jónsson – M. Hildursson Iwai Matriarch – Meg Kubota Nurse – Luke Roberts Music arranged and remixed by Travis Vengroff “Goshawk" (Main Theme), "Svalbardia" & "Reunion" – Written and Performed by Dayn Leonardson, based on "Unsealed" by Brandon Boone “Night Dew" – Written and Performed by Noriko Tadano “Dredged from the Deep" – Written and Performed by Steven Melin Cover Art by Adam Tubak Lettering by K.A. Statz This is a Fool and Scholar Production. We are a two person creative team and we can only create this show because of fan support! Please support us on Patreon: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://www.patreon.com/FoolandScholar⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Free Transcripts are available: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://www.patreon.com/posts/91167855⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Check out our Merch: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://www.foolandscholar.com/store⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Special Thanks to: Our Patreon supporters! | Carol Vengroff | David Cummings | Kristján Atli Heimisson Learn more about your ad choices. Visit megaphone.fm/adchoices

The White Vault
Goshawk | Ep. 29

The White Vault

Play Episode Listen Later Feb 24, 2026 27:15


Episodes are available on Patreon two weeks ahead of the public :) ...Bloopers coming soon! Dragana and the team prepare for the final confrontation. Credits: Written & Created by K. A. Statz Co-Created, Produced, & Directed, with Foley and additional Editing by Travis Vengroff Co-Directed, with Dialogue Editing by Rikke Rømer Edited, with Sound Design, Mixing & Mastering by Finnur Nielsen Executive Producers Dennis Greenhill, AJ Punk'n, Carol Vengroff, & Maico Villegas Script Editing by W. K. Statz & Travis Vengroff Translations in Icelandic by Kristján Atli Heimisson Japanese by Hinako Matsumoto Tagalog by Luis Cruz Serbian by Tanja Milojevic Cast: Iffy Talno – Lauren Tucker Adele Fathers Tsįą – Marcy Edwards Dragana Vuković – Tanja Milojevic Kidlat Tolentino – Luis Cruz Dís Eldrúnsdóttir – Hildur Magnusdottir Kōsuke Iwai – Daisuke Tsuji Voice – Finnur Nielsen Mika Fathers Tsįą – Denise Halfyard Music arranged and remixed by Travis Vengroff “Goshawk" (Main Theme) & "Northern Paranoia" – Written and Performed by Dayn Leonardson, based on "Unsealed" by Brandon Boone Cover Art by Adam Tubak Lettering by K.A. Statz This is a Fool and Scholar Production. We are a two person creative team and we can only create this show because of fan support! Please support us on Patreon: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://www.patreon.com/FoolandScholar⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Free Transcripts are available: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://www.patreon.com/posts/91167855⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Check out our Merch: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://www.foolandscholar.com/store⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Special Thanks to: Our Patreon supporters! | Carol Vengroff | David Cummings | Kristján Atli Heimisson Learn more about your ad choices. Visit megaphone.fm/adchoices

The White Vault
Goshawk | Ep. 28

The White Vault

Play Episode Listen Later Feb 10, 2026 31:38


Episodes are available on Patreon 2 weeks ahead of the public :) Iffy, Dragana, and the others form a plan, while Adele and Kidlat search for a way out. Credits: Written & Created by K. A. Statz Co-Created, Produced, & Directed, with Foley and additional Editing by Travis Vengroff Co-Directed, with Dialogue Editing by Rikke Rømer Edited, with Sound Design, Mixing & Mastering by Finnur Nielsen Executive Producers Dennis Greenhill, AJ Punk'n, Carol Vengroff, & Maico Villegas Script Editing by W. K. Statz & Travis Vengroff Translations in Icelandic by Kristján Atli Heimisson Japanese by Hinako Matsumoto Tagalog by Luis Cruz Serbian by Tanja Milojevic Cast: Iffy Talno – Lauren Tucker Adele Fathers Tsįą – Marcy Edwards Dragana Vuković – Tanja Milojevic Kidlat Tolentino – Luis Cruz Dís Eldrúnsdóttir – Hildur Magnusdottir Kōsuke Iwai – Daisuke Tsuji Mika Fathers Tsįą – Denise Halfyard Music arranged and remixed by Travis Vengroff “Goshawk" (Main Theme) & "Reunion" – Written and Performed by Dayn Leonardson, based on "Unsealed" by Brandon Boone Cover Art by Adam Tubak Lettering by K.A. Statz This is a Fool and Scholar Production. We are a two person creative team and we can only create this show because of fan support! Please support us on Patreon: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://www.patreon.com/FoolandScholar⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Free Transcripts are available: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://www.patreon.com/posts/91167855⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Check out our Merch: ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠https://www.foolandscholar.com/store⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ Special Thanks to: Our Patreon supporters! | Carol Vengroff | David Cummings | Kristján Atli Heimisson Learn more about your ad choices. Visit megaphone.fm/adchoices