POPULARITY
Categories
Hin margumtalaða Bókun 35 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið er orðin að dómsmáli, eftir að ESA, eftirlitsstofnun EFTA, tilkynnti í morgun að stofnunin hefði vísað þessu máli til EFTA dómsstólsins. ESA hefur um langt skeið krafist þess að bókun 35 yrði innleidd í íslenskt lagaumhverfi, en málið er umdeilt; frumvarp um bókunina hefur í fjórgang verið lagt fram á Alþingi - nu síðast fyrir nokkrum dögum. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sem var þá utanríksráðherra Sjálfstæðisflokks lagði fyrst fram frumvarp um hana vorið 2023 en það kom aldrei til annarar umræðu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur tvisvar áður lagt fram frumvarp um bókun 35 og mælir væntanlega fyrir því fjórða sinni í byrjun næstu viku. Björn Malmquist fréttamaður í Brussel ræddi við Árna Pál Árnason, einn þriggja stjórnarmanna í ESA um ákvörðun stofnunarinnar um málsókn og tímasetningu hennar, og Ævar Örn Jósepsson ræðir við Gunnar Þór Pétursson lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík um málsóknina og bókunina sjálfa. Eins og fram hefur komið í Speglinum ríkir mikið ójafnvægi á byggingamarkaði. Í nýlegri skýrslu HMS kom fram að á landinu eru um 1.900 íbúðir sem eru fullbúnar en hafa ekki selst og standa tómar. Margar þeirra hafa staðið tómar í meira en eitt ár - og slíkar íbúðir eru hvergi fleiri en í Hafnarfirði, eða 213. Rúnar Pálmason ræðir þessa óvenjulegu stöðu við Orra Björnsson, formann bæjarráðs Hafnarfjarðar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
The unfortunate, inexcusable events just a stone's throw from the EVR studios --- in which a longtime proprietor of a cookbook store was arrested after tangling with the security team supervising the endless queue for the Amex Harry Styles pop-up --- have completely overshadowed a recent harrowing experience of my own. There's been no media coverage to date of my being physically ejected from a Godsmack show for making fun of the band's merch table. I understand why the other story is considered newsworthy (and an egregious assault on a community pillar), but let me remind you all that Providence's Amica Mutual Arena (fka The Dunkin' Donuts Center, or if you prefer, "The Dunk") is a public space built with taxpayer money. True, I've never paid taxes in Rhode Island, but I do own many Lightning Bolt records and that should count for something.
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Ásgeir Jónsson mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp handbolta helgina hér heima og erlendis. Valur og FH byrja Evrópuævintýrið í vikunni. Mikið um óvænt úrslit í Olís deild karla. Hvernig eru liðin í Olís deild karla að hefja tímabilið? Erlingur Richardsson hefur tekið við þjálfun hjá Minden í Þýskalandi og fengum við þær upplýsingar í miðjum þættinum. Olís deild kvenna hefst aftur í vikunni. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mánudagur 28. september Kjaramál, Óshlíðarmálið, Allsherjarþingið, SÁÁ, ESB og fjölmiðlar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins ræða um kjaramálin við Gunnar Smára og stöðuna innan verkalýðshreyfingarinnar. Þeir Páll Halldór Halldórsson og Þórhallur Hilbert segja frá því Óshliðarmálinu í viðtali við Ásdísi Olsen. Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi fer yfir allsherjarþingið með Gunnari Smára, metur ræður sem þar voru haldnar, um framtíð Sameinuðu þjóðanna og næsta aðalritara. Mikil ólga er innan og utan SÁÁ þessa dagana.Kristín Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvernig vandinn horfir við henni. Thomas Möller já-ari og Erna Bjarnadóttir nei-ari ræða við Gunnar Smára um stöðu Íslands gagnvart Evrópu í ljósi þjóðaratkvæðagreiðslunnar og þess hversu langt Evrópusambandið er til í að teygja sig Kanada. Óðinn Jónsson, blaðamaður og fyrrum fréttastjóri Rúv, spáir í spilin um framtíð frétta og fjölmiðlunar hér á landi í samtali við Björn Þorláks. Hvað breytist þegar keppinautar Rúv hverfa frá þjónustu, einn á fætur öðrum?
This week we had a real Buffalo legend on the Nickel City Soundtrack Podcast! We had Eric Van Rysdam aka EVR. Depending on how old you are you know EVR for different things. EVR is/was DJ, the man at Home Of the Hits and a musician in bands. EVR is a great friend of the show, he's assisted on a few episodes because of his knowledge of the subjects that we were interviewing. EVR has touched pretty much every part of the music scene here and has contributed to all of those scenes. We talked to EVR about getting into music and just part of life and career. We definitely have more to talk to him about and we will in the future. For now enjoy this! Episode Music Is "I pay the rent" by the Good
This week we had a real Buffalo legend on the Nickel City Soundtrack Podcast! We had Eric Van Rysdam aka EVR. Depending on how old you are you know EVR for different things. EVR is/was DJ, the man at Home Of the Hits and a musician in bands. EVR is a great friend of the show, he's assisted on a few episodes because of his knowledge of the subjects that we were interviewing. EVR has touched pretty much every part of the music scene here and has contributed to all of those scenes. We talked to EVR about getting into music and just part of life and career. We definitely have more to talk to him about and we will in the future. For now enjoy this! Episode Music Is "I pay the rent" by the Good
Þriðjudagur 22. september Efnahagsmál, gunguháttur, ný skáldsaga, Grænland og næring Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku og Ragnar Sigurður Kristjánsson hagfræðingur Viðskiptaráðs ræða við Gunnar Smára um fjárlögin og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og hætturnar í efnahaginum þar sem verðbólga, vaxandi atvinnuleysi og merki um stöðnun draga um dökka mynd. Auka þarf kröfur til skólabarna, segir Sverrir Norland rithöfundur, bankamaður og lögfræðingur. Hann ræðir hugrekki og aumingjaskap og ýmislegt þar á milli í samtali við Björn Þorláks. Margrét Bjarnadóttir danshöfundur, myndlistarmaður, leikhúskona og margt fleira hefur sent frá sér skáldsöguna Varkár, sem er einskonar skáldævisaga og fjallar um konu sem heitir Margrét og lifir lífi sem er líkt lífi höfundarins. Margrét segir Gunnari Smára frá bókinni og sjálfum sér, og muninum á þessu tvennu. Rasmus Gjedssø Bertelsen prófessor í Tromsø ræðir við Gunnar Smára um ásælni Trump til Grænlands, varnarsamninga Grænlands og Ísland, tengingu Kanada til Evrópu og hverju það kann að breyta fyrir okkur og norðurslóðir. Ásdís Olsen ræðir við Elísabetu Reynisdóttur (Beta Reynis), næringarþerapisti og næringarfræðing um togstreitu við akademíuna og hvernig hún hefur leyst úr áföllum og lært lexíur.
Þórarinn ræðir við Hannes Hólmstein Gissurarson um Evrópumálin, söguna, Ísland, stjórnmálin og margt fleira.Hannes segir já-hreyfinguna hafa átt erfitt með að tapa en Hannes segir hana skiptast í þrjá hópa; bitlingabetlara, nöldrara og naívista. Hann segir hreyfinguna hafa leikið af sér en að það hafi samt komið honum á óvart að 47% þjóðarinnar hafi stutt hana í þjóðaratkvæðagreiðslunni.Einnig er rætt um mál Magnúsar Skjöld og Baldurs Þórhallssonar en Hannes ræddi í Spursmálum að þeir hefðu báðir þegið fé frá Evrópusambandinu og þykir honum að Baldur og Magnús hefðu átt að gera grein fyrir því í kosningabaráttunni.Auk þessa er rætt um vald, afhverju Íslendingar voru fátækir, hvort Þorgerður Katrín eigi að segja af sér, Þráinn Eggertsson, Heiðar Guðjónsson og nýja bók Hannesar sem nefnist Conservative-Liberal Thought in the Nordic Countries.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.einpaeling.iseða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Þ. ÞorgrímssonBæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isKaldiHD - Iðn- og tækniþjónustaHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á hrafnadalur@einpaeling.is
Við fræddumst um Matsmannafélag Íslands í dag, en Ragnar Ómarsson formaður þess kom í þáttinn. Fasteignakaup eru stærsta fjárfesting sem flestir Íslendingar ráðast í. Samt eru enn uppi álitaefni um upplýsingagjöf við sölu fasteigna, réttindi kaupenda og seljenda og meðferð byggingargalla. Þarna koma matsmenn til sögunnar og Ragnar sagði okkur frá starfi þeirra og ráðstefnu Matsmannafélagsins sem verður á fimmtudaginn. Núna í október mun Líney Emma Jónsdóttir dýralæknir klára nám í nálastungum fyrir hross og gæludýr. Við heyrðum í henni í þættinum í dag og hún sagði okkur frá ráðstefnu sem haldin er hér á landi og hefst á morgun þar sem dýralæknar hvaðanæva að úr heiminum hittast og bera saman bækur sínar. Þar á meðal er hópur dýralækna sem notar nálastungur í sínum meðhöndlunum. Líney Emma vonast til að það takist að vekja athygli Íslendinga á viðurkenningu og útbreiðslu nálastungu í dýralækningum í heiminum í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í veðurspjallið. Það sem kom við sögu í dag var hitarnir í Evrópu sem hafa slegið öll met, afleiðingar El Nino sem er afar öflugur og svo eru haustlitirnir farnir að sýna sig hér heima, erum við með söknuð og trega í sumarlok eða hvað? Að lokum heyrðum við ljóðið Gangnadagsmorgunn eftir Sigurð Óskar Pálsson frá Borgarfirði Eystra. Tónlist í þættinum: Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson Litlir kassar / Þokkabót (Pete Seeger, texti Þórarinn Guðnason) Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Granata & Verard, texti Jóhanna G. Erlingsson) Spánardraumur / Hljómsveit Ingimars Eydal (Caerts, Roozenstraten, texti Einar Haraldsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Dagbjört Hákonardóttir er þingmaður Samfylkingarinnar. Hún er bjartsýn á framtíðina og telur að ríkisstjórnin standi keik þrátt fyrir að þjóðaratkvæðagreiðslan um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið hafi ekki fallið henni í hag.Rætt er um verðbólguna, stjórnmálin, EES samninginn, Alþingi, ríkisstjórnina og stjórnarandstöðuna.
we're on the precipice of marking the 25th anniversary of a horrible event that would usher in an unprecedented nũ-normal era of authoritarianism and mass surveillance. EVR management would have you believe the webcam to the station's on-air booth is currently off-line due to “technical issues” but could the reason really be they're afraid of the truth coming out : that when the camera is turned to first avenue, passers-by have their likenesses captured and sent directly to Planatir, Leidos,James Dolan and somewhat inexplicably, guitarist Warren Haynes. Perhaps so he and Dolan can have something else in common to talk about, I really don't know.Anyhow, I'm happy to continue this technical snafu ruse for as long as it takes (or one more week, which ever ends first)
Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir um pólitíska stöðu og horfur innan ríkja í Evrópu. Við rýnum í þróunina í Þýskalandi og Frakklandi - tveimur áhrifamestu ríkjum innan ESB - og hvernig innri krísur í þessum lykilríkjum hafa áhrif á stöðu sambandsins allt í heild sinni. Sérstaklega er sjónum beint að nýlegum kosningasigrum AfD í Þýskalandi og vaxandi fylgi stjórnmálaflokka víðs vegar um álfuna sem eru langeygðir eða efagjarnir á frekari samruna innan ESB. Þá er ræddur vaxandi og djúpstæður ágreiningur á milli aðildarríkja þegar kemur að útlendingamálum, landamæravörslu og menningarmálum, breyttan pólitískan veruleika, andstöðu við frekari miðstýringu og minnkandi samkeppnishæfni og aðra þætti sem reyna sífellt meira á þolrif álfunnar.
Njáll segir frá bók sinni" Evrópsku járnfákarnir" sem var að koma út.
Olís-deild karla er farin af stað og hinar deildirnar hefjast um helgina. Boltinn er farinn að rúlla í Evrópu. Óvænt félagaskipti síðustu daga og nýtt félag í Grill66-deildinni. Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Kiddi Bomba fóru yfir allt það helsta í Rapyd stúdíóinu.
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson rýna í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu, ósigur ríkisstjórnarinnar í málinu, stöðu einstakra ráðherra að lokinni, hvað lesa skuli i mikla kjörsókn, hvernig kosningabaráttan fór fram og fleira sem snýr að þessu máli sem lagðist eins og mara yfir þjóðfélagið í sumar. Þá ræðum við um þær áskoranir sem eru framundan, bæði á vettvangi stjórnmála og í hagkerfinu og margt fleira.
Í Vikulokunum í dag var rætt um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, kjarasamninga og verðbólgu. Ingvar Þór Björnsson hefur þáttinn á að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna við Ólaf Þ. Harðarson, stjórnmálafræðing, Guðmund Heiðar Helgason, almannatengil og Ragnheiði Kristjánsdóttur, sagnfræðing. Í öðrum hluta voru uppsagnir Reykjavíkurborgar í vikunni ræddar. Þar voru Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar gestir þáttarins. Í þriðja hluta voru kjaramál í brennidepli þegar Ingvar tók á móti Arnaldi Sölvi Kristjánssyni, formanni fjármálaráðs, Birgittu Ragnarsdóttur, stjórnarmanni í VR, og Kristínu Hebu Gísladóttur, framkvæmdastjóra Vörðu.
Þórður Pálsson, efnahagsráðgjafi Þjóðmála, og Orri Hauksson mæta í líflegan þátt þar sem efnahagsmálin og stjórnmálin eru í brennidepli. Þeir rýna í nýja könnun Viðskiptablaðsins, þar sem yfirgnæfandi meirihluti telur ríkisstjórnina standa sig illa í efnahagsmálum, ásamt því að leggja mat á þróun væntingavísitölunnar, Evrópusambandsleiðangur ríkisstjórnarinnar, flótta utanríkisráðherra undan alvöru viðtölum, hreyfingar í veðbönkum, skattalækkanir hægri manna í sveitastjórnum og skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og margt fleira. Loks eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.
Við verðum á þjóðaratkvæðagreiðslu-nótunum í dag. Meirihluti Norðmanna er sem fyrr andvígur því að ganga í Evrópusambandið en sífellt fleiri norskir stjórnmálamenn virðast telja að það verði erfiðara að ræða ekki um það. Og sérstaklega nú þegar þjóðaratkvæðagreiðslan um áframhald aðildaviðræðna Íslands við ESB fer fram. Að baki er um margt áhugaverð kosningabarátta tveggja fylkinga, Já til að sjá og Áfram Ísland. Eva Heiða Önnudóttir, stjórnmálafræðingur, er komin til okkar og ætlar að gera upp undanfarnar vikur.
Íslenski, enski og Evrópukeppnin eru á meðal þess sem Helgi Fannar og Hörður Snævar ræða í þætti vikunnar.Þá er farið yfir helstu fréttir liðinnar viku og sitt hvað fleira einnig.
Baldur Þórhallsson prófessor og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræddu breytt öryggisumhverfi frá sjónarhóli smáríkja í Heimsglugganum. Baldur líkir Bandaríkjaforseta við mann sem beitir fjölskyldu sína ofbeldi. Á föstudag verður fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við Háskóla Íslands. Yfirskrift fundarins: Nýjar ógnir, nýjar áherslur: Smáríki og breytt öryggisumhverfi Evrópu. Baldur og Vilborg verða í pallborði og ræða þessi mál þar. Þau voru sammála um að Íslendingar komist ekki hjá því að auka útgjöld til varnarmála. Bogi ræddi einnig um vandræði danska flotans við Grænland þar sem hætt var við eftirlitsferð sem Hvidbjørnen átti að fara í til Grænlands. Ástæðan er að ekki tókst að manna skipið.
Deilur um tollasamning snúast um margt en líklega síst eiginleg viðskipti. Eliza Reid segir skaðann sem þetta hefur valdið ekki hverfa svo glatt. Traustið sé rofið. Það lítur út fyrir að aðildarríkjum Evrópusambandsins fjölgi á næstu árum en viðhorf borgara sambandslandanna til þess eru misjöfn. Um 60% háskólamenntaðra, sem eru yngri en 45 ára, hafa fengið aðstoð frá öðrum en lánastofnunum við fasteignakaup, samkvæmt nýrri könnun BHM.
Í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslu Íslendinga um mögulegar aðildarviðræður að Evrópusambandinu fékk Flugvarpið Erlend Gíslason lögmann í viðtal til að ræða stuttlega um hvaða áhrif innganga í ESB hefði fyrir flugið; þessa stóru grein hérlendis sem þúsundir hafa atvinnu af með beinum og óbeinum hætti. Erlendur er einn eiganda LOGOS og hann hefur um árabil sérhæft sig í flugrétti og fjármögnun flugvéla og starfar á því sviði m.a. fyrir flugfélög, flugvélaleigufyrirtæki og fjármögnunaraðila. Í þættinum er líka fjallað stuttlega um ETS umhverfisskattana og hvernig hagsmunagæslu Íslands var óbótavant við innleiðingu kerfisins í gegnum EES á sínum tíma. Þá gagnrýnir Erlendur harðlega hvernig innviðaráðherra setti á afturvirka reglugerð í kjölfarið á falli Play haustið 2025. Reglugerðin hafi komið illa við íslensk fyrirtæki í flugrekstri og rýrt traust og tiltrú í viðskiptum erlendra flugvélaleigusala við Íslendinga.
Með því að ganga til liðs við ESB tökum við okkur stöðu innan tollmúra ríkjabandalags. Okkur verður bannað að athafna okkur utan múranna án sérstaks leyfis og þátttöku allra annarra aðildarlanda. Í stað þess að horfa á heiminn allan ætlar ríkisstjórnin að festa Ísland inn í tollabandalag og færa ákvörðunarvald um viðskiptasamninga okkar til Brussel. Heimurinn er stærri en Evrópusambandið. Hagvöxtur, fólksfjölgun og nýir markaðir verða á næstu áratugum að verulegu leyti utan Evrópu. Bandaríkin verða áfram efnahagslegt og tæknilegt stórveldi. Asíuríki sækja fram. Norðurslóðir fá aukið efnahagslegt og hernaðarlegt vægi í framtíðinni. Tækifærin blasa við en við Íslendingar, öðrum þjóðum fremur, þurfum frelsi til að grípa og nýta tækifærin. 29. ágúst mun ég segja nei takk við því að leggja upp í ferðalag til Brussel. Og um leið segi ég já við innri markaði Evrópu í gegnum EES. Já við áframhaldandi samstarfi innan EFTA. Já við nánari tengslum við Bandaríkin. Já við auknum samskiptum við Bretland og Kanada. Já við auknum viðskiptum við Asíu. Já við því að kanna nýtt samstarf á Norður-Atlantshafi. Já við eigin viðskiptastefnu. Já við því að Íslendingar ráðum áfram yfir sjávarauðlindum okkar. Já við því að við nýtum orkuauðlindir á okkar forsendum. Og já við þeirri hugmynd að lítil þjóð geti í krafti fullveldis verið opin fyrir öllum heiminum án þess að þurfa að tilheyra pólitísku ríkjasambandi 27 annarra þjóða. Já við því að við stöndum á eign fótum meðal vina og bandamanna. Já við því að við grípum tækifærin sem bíða okkar.
Myndu Íslendingar afsala sér fullveldinu með því að ganga í Evrópusambandið, eða er innganga einmitt besta leiðin til að tryggja raunverulegt fullveldi Íslands til framtíðar. Um þetta hafa verið skrifaðar ótal skoðanagreinar undanfarnar vikur í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna við ESB. Í þætti dagsins ætlum við að reyna að skilja betur þetta hugtak, hvað það þýðir, og hvort að skilningur okkar á því hafi breyst frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki árið 1918. Við spjöllum við Guðmund Jónsson prófessor í sagnfræði.
I usually try to stay away from promotional gimmickry on the program — I am sure you'll agree between the musical selections and my effervescent commentary, no such pandering is required to maintain a vast audience. However, under considerable pressure from EVR management, this week I have been tasked with giving away 2 tickets to the American Film Institute's Lifetime Achievement Award ceremonies honoring Breckin Meyer. Yeah, I know, “second prize is four tickets”, I use that line every Levitation Festival. But really, in this instance, second prize really _is_ four tickets. And third prize is Breckin Meyer (you'll have to supply your own crate and/or shock collar). All details will be explained in the chat but please keep in mind, if you've won Breckin Meyer during an EVR show over the last six months, you're not eligible. Give someone else a chance!
Bítið á Bylgjunni með Heimi, lilju og Ómari. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, settist niður með okkur. Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu, ræddi við okkur um skoðanakannanir og þróun þeirra fyrir stóra daginn. Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar og Vigdís Hauksdóttir, félagi í Heimssýn, skiptust á skoðunum um Evrópusambandið. Thelma Lind Karlsdóttir fór yfir sína sögu með mígreni. Egill Heiðar Anton Pálsson, Borgarleikhússtjóri ræddi við okkur um leikárið. Séra Sigurvin og séra Jóna Hrönn ræddu um sextíu ára afmæli Garðakirkju. Unnur Helga Möller frá bókasafni Hafnarfjarðar ræddi við okkur um hátíðina Heima og himingeima.
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson mæta í líflegt samtal þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan um aðild að Evrópusambandinu og orkumálin eru í brennidepli. Við rifjum upp vel heppnað bjórkvöld Þjóðmála á Selfossi, fjöllum um eftirvæntinguna fyrir Þjóðfundi Þjóðmála á föstudaginn kemur, rýnum í Epic-stuðlana, beinum sjónum okkar að einkaviðtali Rúv við utanríkisráðherra nokkrum dögum fyrir kosningar og ósvöruðum spurningum um sjávarútvegsmál. Þá er rætt um grein Þórðar í Morgunblaðinu í morgun og þá staðreynd að orkumál hafa gleymst í umræðunni þó svo að vitað sé að ESB mun sækjast eftir íslenskri orku.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri Keystrike, ræddi við okkur um ríkisstuddar netárásir. Valgeir Þór Jakobsson, framkvæmdastjóri Samfés, ræddi við okkur um unglingadrykkju og fleira. Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, skiptust á skoðunum um Evrópusambandið. Elín Vigdís Guðmundsdóttir, formaður SÁTTar, samtaka um átraskanir og aðrar raskanir, ræddi átraskanir karlmanna. Pétur Oddbergur Heimisson, framkvæmdastjóri Jazzhátíðar Reykjavíkur, ræddi við okkur um jazzhátíðina.
Mál ungrar móður í Bandaríkjunum hefur vakið athygli um allan heim en hún er ákærð fyrir að hafa orðið þremur börnum sínum að bana. En málið hefur ekki bara vakið upp spurningar um sekt eða sakleysi hennar heldur hefur það einnig hrundið af stað umræðum um andlega heilsu mæðra og geðheilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum. En við byrjum á þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildaviðræðna við Evrópusambandið. Umræðan í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu á laugardaginn hefur að sumu leyti einkennst af ofgnótt á skoðunum en skorti á dýpri lýðræðislegri greiningu að dómi lektors við HÍ.
Kolbeinn Tumi Daðason stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Þjóðin er klofin í afstöðu sinni til þjóðaratkvæðagreiðslunnar um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið og Alþingi Íslendinga sömuleiðis. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og varaformaður Viðreisnar, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins takast á um þessi mál. Sjónarmið eru ólík í atvinnulífinu varðandi kosti og galla Evrópusambandsins. Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair og Sveinn Logi Sölvason, forstjóri Emblu Medical móðurfélags Össurar, deila sjónarmiðum sínum. Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands og Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna ræða mögulega ESB-aðild út frá sjónarhorni háskólasamfélagsins og neytenda. Guðni Th. Jóhannesson prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseti Íslands setur Evrópumálin og ekki síst fullveldi okkar Íslendinga í samhengi.
Hvaða áhrif kann aðild að Evrópusambandinu að hafa á íslenska launþega? Svarið við þeirri spurningu er kannski ekki einfalt. Nær öll löggjöf Evrópusambandsins um réttindi launþega hefur þegar verið tekin upp á Íslandi í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Hrafnhildur Kristinsdóttir lögfræðingur ræðir vinnurétt. Farsóttasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er nánast tilbúinn en fæst ekki samþykktur. Alma Möller, heilbrigðisráðherra, ræðir málið.
Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, ræðir um utanríkismál og mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu í sérstökum aukaþætti Þjóðmála. Albert færir rök fyrir því að sérstaða Íslands útiloki í reynd aðild án þess að gengið sé á grundvallarhagsmuni þjóðarinnar. Í spjallinu er rýnt í þá óvissu sem fylgir því að hefja viðræður án skýrra markmiða, við ræðum um reynsla Norðmanna af sambærilegu ferli og greint er á milli varanlegra og tímabundinna undanþága. Albert útskýrir hvers vegna ESB mun vart gefa eftir í grundvallarreglum um ýmis atriði sem snúa að Íslandi auk þess sem rætt er um hvernig hátt hlutfall endurnýjanlegrar orku hér á landi skapar árekstra við loftslagsstefnu sambandsins. Þá er litið til sögulegs sjálfstæðis í átakamálum auk þess sem rætt er um það sem sumir vilja kalla „breytta heimsmynd“ og hvort að hún kalli á afdrifaríkar ákvarðanir af hálfu Íslands.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Örn Valdimarsson, stærðfræðikennari í Menntaskólanum við Sund, ræddi við okkur um kerfi sem hann hannaði sem heitir Rubric. María Fjóla Harðardóttir, fyrrverandi forstjóri Hrafnistu, ræddi við okkur um málefni aldraðra. Stefán Pálsson, sagnfræðingur og meðlimur í Áfram Ísland og Jónas Hagan, fjárfestir og situr í stjórn Já til að sjá, skiptust á skoðunum um Evrópusambandið. Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild HÍ, velti vöngum yfir stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands. Fótboltamaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson spjallaði við okkur um Reykjavíkurmaraþonið og framtíðina.
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, mætir í efnismikið og upplýsandi spjall um stöðu og framtíð íslensks landbúnaðar. Trausti rýnir í nýútkomna skýrslu um afleiðingar mögulegrar ESB-aðildar Ísland og litlar væntingar til þess að Ísland fái undanþágur frá sameiginlegu landbúnaðarstefnu sambandsins. Hann svarar jafnframt gagnrýnisröddum sem telja samtökin teikna upp hræðslumynd auk þess að ræða hvort aðgangur að Evrópumarkaði gagnist íslenskum bændum í raun. Þá ræðir Trausti einnig um tækifærin í íslenskum landbúnaði, þá framþróun sem hefur átt sér stað og hverju búast megi við í framtíðinni, mikil vægi fæðuöryggis, kynslóðaskipti og nýliðun í greininni og margt fleira.
Svo mjótt er á munum milli þeirra sem ætla að segja já og nei við því að Ísland hefji á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið að ekki er hægt að segja til um hvernig fer 29. ágúst . Í síðasta þjóðarpúlsi Gallups sagðist rétt rúmur helmingur, fimmtíu og eitt og hálft prósent, myndu segja já en fjörutíu og átta og hálf prósent nei. Þessi munur er ekki marktækur. Um sjö prósent sögðust ekki hafa gert upp hug sinn. En að hve miklu leyti fælu aðildarviðræður, ef til þeirra kæmi, í sér aðlögun að regluverki Evrópusambandsins og hver var reynslan þegar Ísland var í viðræðum eftir umsóknina 2009? Margrét Einarsdóttir prófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti segir að heilmikil aðlögun að regluverki ESB hafi falist í samningnum um evrópska efnahagssvæðið sem var gerður fyrir rúmum þrjátíu árum og aðild að Schengen-samstarfinu. Á sínum tíma þegar rætt var um aðild hafi verið samið um að ekki yrði ráðist í laga- eða stofnanabreytingar áður en aðild væri samþykkt og hún telur að sama yrði ef farið yrði í viðræður nú. Loftslagsbreytingar hafa orðið til þess að gróðureldar eru erfiðari viðureignar en nokkru sinni. Áhrif þeirra gætir líka víða.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræddi við okkur um stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands á miðvikudag. Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur um fánalögin. Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fyrrverandi þingmaður og situr í stjórn Evrópuhreyfingarinnar, ræddu innflytjendastefnu Evrópusambandsins. Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir, stjórnendur Skuggavaldsins, ræddu ýmsar kenningar sem hafa kviknað um ESB. Katrín Björk Birgisdóttir, sparnaðarséní og minimalisti, ræddi við okkur um leiðir til að minnka drasl á heimilinu. Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, var á línunni.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Evrópumál, staðan og horfurnar Ólafur Þ. Harðarson, próf emeritus við HÍ Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur Já og nei hreyfingar eru hnífjafnar, hvaða mun ráða úrslitum, hvað hefur markað baráttuna og hvernig raðast atkvæðin eftir flokkslínum og öðrum breytum í kosningum. Evrópumál Atvinnulíf og Evrópa Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur, stjórnarkona í Já til að sjá Bjarnheiður Hallsdóttir, forstjóri og eigandi Katla Travel Hvers vegna er stærstur hluti atvinnulífsins andsnúinn nánari samruna við Evrópu? Evrópumál, sagan og framtíðin Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra Umrót í alþjóðamálum er greinilegt og það kallar á endurmat á stöðu Íslands, hver verður framtíð Evrópusamstarfs, EES samningsins þar með talið í fyrirsjáanlegri framtíð.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Skoðað er hvaða félög gerðu bestu hlutina í sumarglugganum, hitað upp fyrir næstu umferð í Bestu deildinni, rætt um Evrópuleiki Víkings og Vals og Lengjudeildin skoðuð. Í seinni hluta þáttarins er Ísak Óli Ólafsson fyrirliði FH á línunni og Daníel Geir Moritz ræðir um enska boltann sem er að rúlla af stað.
Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Þeir Jón Haukur Baldvinsson og Bjarni Gaukur Sigurðsson komu í Coke stúdíóið til að ræða um sitt uppáhalds félag, Aston Villa. Aston Villa vann Evrópudeildina á síðustu leiktíð og fer núna aftur inn í Meistaradeildina. Unai Emery er heldur betur búinn að gera magnaða hluti fyrir félagið.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, ræddi við okkur um orkumál og ESB. Ólafur Ísleifsson og Ólafur Arnarson skiptust á skoðunum um Evrópusambandið og Evruna. Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður Leigjendasamtakanna og Anna Kristín, varaformaður samtakanna, ræddu við okkur um heimsókn sænska sjónvarpsins og leigumarkaðinn. Embla Bachmann, rithöfundur og dagskrárgerðarkona, settist niður með okkur og ræddi símtalafóbíu unga fólksins. Elko hornið.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Þorvaldur Flemming var í beinni frá Danmörku. Séra Jóna Hrönn Bolladóttir settist niður með okkur og ræddi við okkur um upplifanir fólks sem missir foreldri skyndilega. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins og Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingar ræddu við okkur um orkumálin og Evrópusambandið. Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, ræddi stöðuna á veitingamarkaði þegar kemur að byggingarfulltrúm og heilbrigðiseftirliti. Stefán Ólafur Stefánsson, stofnandi Ekki gefast upp og Berglind Eva Eggertsdóttir, þjálfari ræddu við okkur um líkamsrækt fyrir ungmenni með kvíða og þunglyndi. Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra ræddi Njálu og Njálufélagið. Hjalti Úrsus Árnason ræddi heim kraftalyftinga og Sterkasta mann Íslands.
Þessi þáttur er í boði Húðfegrun - hudfegrun.is Við Heiðdís erum hér og þar þegar kemur að þessari blessuðu þjóðaratkvæðagreiðslu, svo við fengum til okkar skýra og stórgáfaða, en h´ún heitir Snærós Sindradóttir og er framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar. Við vildum fræðast og fræða ykkur, svo hér fræðumst við saman. Lovjú -
Ef innganga í Evrópusambandið yrði samþykkt verður að breyta ákvæðum i stjórnarskrá og leyfa framsal valds til þess; en það er flókið verkefni og alls ekki einhlítt hvernig að þvi yrði staðið segir Davíð Þór Björgvinsson lögfræðingur. Danir vilja auka viðveru hers í Færeyjum – áforma æfingar, eftirlitsflug orrustuþotna og heimsóknir herskipa. Heini í Skorini, dósent í alþjóðastjórnmálum við Fróðskaparsetur Føroya, segir að atburðir þessa árs, einkum á Grænlandi, hafi breytt þessari sýn Færeyinga á varnarmál. Úlfur hrellir íbúa á Suðvestur-Jótlandi, því hann hefur ítrekað birst í húsagörðum og við útiveitingahús.
Magnús Haukur og Arnar Páll settust niður í hljóðver og fóru yfir 15. umferð Bestu deildar kvenna, spáðu í spilin fyrir komandi umferð og ræddu Evrópuævintýri Blika. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
Sumarþættir Heimskviða halda ótrauðir áfram og í dag ætlum við að heimsækja nágranna okkar í Færeyjum og huga bæði að jarðgöngum og handbolta. Það eru fáir jafn duglegir að gera jarðgöng og Færeyingar - í það minnsta miðað við höfðatölu. 23 tvíbreið jarðgöng eru þar núna - ríflega tvöfalt fleiri en á Íslandi. Nú eru Færeyingar með háleitar áætlanir um næstlengstu neðansjávargöng í heimi, sem yrði jafnframt langdýrasta framkvæmd í sögu Færeyja. En þessar áætlanir er umdeildar, bæði efnahagslega og pólitískt. Hallgrímur Indriðason segir okkur allt um málið. En Færeyingar eru ekki bara duglegir að gera jarðgöng, þeir eru alltaf að verða betri í handbolta. Það sannaðist á Evrópumóti karla í handbolta í janúar þegar færeyska landsliðið sigraði hjörtu margra áhorfenda. Þeir komust reyndar ekki áfram á mótinu, en áfanginn og árangurinn vakti athygli víða. Og okkur langaði að forvitnast um uppgang handboltans í Færeyjum. Við tölum við íslenskan handboltaþjálfara í Færeyjum sem segir okkur frá ótrúlegum uppgangi handboltans þar, en Færeyingar fjölmenntu til Osló þar sem landsliðið þeirra vann sinn fyrsta leik á stórmóti. Þeir komast ekki áfram í milliriðil en hátt í sjö þúsund Færeyingar fylgdu liðinu.
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin í skugga þess að almyrkvi á sól er framundan. Strákarnir rifja upp vel heppnað golfmót Þjóðmála sem fram fór í gær og bjórkvöld Þjóðmála um hábjartan dag í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Þá er rætt um sjálfsmörk þeirra sem telja að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið, villandi málflutning um tengingu sænsku krónunnar við evru, framleiðslu Rúv á efni fyrir Já til að sjá hreyfinguna, nýjar fylgismælingar og stöðuna í veðbönkum, vandræðalega aðdáun yfirmanns Maskínu á utanríkisráðherra og fleira. Við veltum því líka upp hvort að nú þegar sé búið að skaða samfélagið með því hvernig fulltrúar Viðreisnar og Samfylkingar hafa talað um atvinnulífið, hagkerfið, gjaldmiðilinn og fleira. Loks eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.
Íslenskur landbúnaður stendur á krossgötum, segir í skýrslu Bændasamtakanna um mögulega aðild að Evrópusambandinu. Bændur hafa boðað aukabúnaðarþing 14. ágúst og þar á að ræða og álykta um þessi mál. Í skýrslunni sem kynnt var í morgun er á um 130 síðum og í átta köflum farið yfir hvort í ESB-aðild fælist fyrst og fremst tæknileg breyting eða kerfisbreyting fyrir íslenskan landbúnað og sjónum beint að ákvörðunarvaldi, stuðningskerfi, markaðsvernd, heilbrigði búfjár og sérstökum framleiðsluskilyrðum. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Sigurbjörgu Ottesen, formann milliþinganefndar Bandastamtakanna, en nefndinni var falið að greina áhrif mögulegrar ESB-aðildar og aðildarviðræðna á íslenskan landbúnað. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Verslunarmannahelgin 2026. Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er áfram í sumarútgáfu, frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta. Besta deildin, Evrópuleikirnir, Lengjudeildin og í lokin er farið yfir í erlenda fótboltann. Það var slegist í Keflavík, Valur komst áfram í Evrópu og Þróttur vann toppslag Lengjudeildarinnar.
Þórður Gunnarsson ræðir við Arnar Bjarna Eiríksson, bónda og athafnaskáld í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Arnar Bjarni varpar ljósi á áskoranir og tækifæri í íslenskum landbúnaði og deilir sýn sinni á nýsköpun í landbúnaði og rekstur hans auk mikilvægi þess íslenskar sveitir haldist í byggð. Rætt er um mögulegt aðlögunarferli að Evrópusambandinu og áhrif þess á íslenskan landbúnað, hver áhrifin af inngöngu í Evrópusambandið yrðu á hann, staðreyndir um áhrif innlendra matvæla á verðlag á Íslandi og margt fleira.
Þátturinn er aftur frumfluttur í hlaðvarpi í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir allt það helsta. Hver er bestur í Bestu?, bikargleði Mosfellinga, öflug Evrópuvika, spennandi Akureyrarslagur framundan og er 64 liða HM kannski málið eftir allt saman?