Podcasts about samfylkingarinnar

  • 30PODCASTS
  • 355EPISODES
  • 1h 16mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • Jun 6, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about samfylkingarinnar

Latest podcast episodes about samfylkingarinnar

Spegillinn
Starfsáætlun tekin úr sambandi og stóru málin eftir

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 6, 2025 20:00


Það er vandséð hvernig á að ljúka þingstörfum og nánast hægt að fullyrða að þinglok verða ekki á föstudag í næstu viku; það er ekki búið að afgreiða stærsta málið á yfirstandandi þingi úr nefnd; veiðigjaldið og í dag var sett á dagskrá bókun 35 við litla hrifningu sumra þingmanna stjórnarandstöðunnar. Þegar menn voru að setja sig í stellingar bárust svo tíðindi af nýrri ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar sem olli nokkru uppnámi. Þau Arna Lára Jónsdóttur, varaformaður þingflokks Samfylkingarinnar og Bergþór Ólason, formaður þingflokks Miðflokksins, fóru yfir stöðuna.

Spegillinn
Snemmsumarshvellur og mótmæli gegn útlendingum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 2, 2025 20:00


Norðanóveður er í spánni. Óvissustigi hefur verið lýst yfir á Austurlandi, Austfjörðum og Suðuarusturlandi og gildir langt fram á morgundaginn. Katrín Agla Tómasdóttir, veðurfræðingur tekur undir að þetta sé ekki einsdæmi snemmsumars en mjög óvenjulegt á þessum tíma. Hret á þessum árstíma getur bitnað illa á bændum, þeir þurfa að vera fljótir að stökkva til og koma kindum og nýfæddum lömbum í skjól og huga að gróðri sem kominn er mun lengra kominn en oftast áður. Sigurgeir Hreinsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar, hvetur bændur til að vera á tánum en vonar hretið núna verði ekki eins slæmt og fyrir ári. Á laugardag var haldinn fundur á Austurvelli á vegum hóps sem nefnist Ísland þvert á flokka á Facebook. Fundarmenn kröfðust aðgerða í útlendingamálum - og fundurinn hefur verið kallaður rasistasamkoma af sumum á samfélagsmiðlum. Nokkur af þeim atriðum sem fólkið á Austurvelli krafðist að yrði breytt eru þegar til skoðunar hjá stjórnvöldum. Einar Jóhannes Guðnason, varaformaður Freyfaxa sem er ungliðahreyfing Miðflokksins og var á fundinum er ekki sáttur við að vera stimplaður rasisti. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, beinir gagnrýni sinni að þeim sem töluðu á fundinum.

Vikulokin
Jón Ólafur Halldórsson, Arna Lára Jónsdóttir og Breki Karlsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later May 31, 2025 57:51


Gestir Vikulokanna eru Jón Ólafur Halldórsson formaður Samtaka atvinnulífsins, Arna Lára Jónsdóttir þingmaður Samfylkingarinnar og Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna. Þau ræddu meðal annars verðbólgu og vaxtamál, kílómetragjöld, nýtt fasteignamat, Íslandsbankasölu og samrunaviðræður á bankamarkaði. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

gu halld arna umsj samtaka samfylkingarinnar neytendasamtakanna breki karlsson
Vikulokin
Dagbjört Hákonardóttir, Erlingur Erlingsson og Þórir Jónsson Hraundal

Vikulokin

Play Episode Listen Later May 24, 2025 57:46


Í Vikulokunum var rætt við Dagbjörtu Hákonardóttiu, þingmann Samfylkingarinnar og nefndarmann í utanríkismálanefnd Alþingis, Erling Erlingsson, hernaðarsagnfræðing, og Þóri Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum við Háskóla Íslands, og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í síma frá útlöndum. Til umræðu var meðal annars ástandið á Gaza og hvað alþjóðasamfélagið getur gert, og friðarviðræður Rússlands og Úkraínu. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir

Rauða borðið
Rauða borðið 8. maí - Trillur, Grænland, ófriður, trans, þingkona og börn

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 8, 2025 302:31


Fimmtudagur 8. maí Trillur, Grænland, ófriður, trans, þingkona og börn Strandveiði byrjaði í vikunni. Gunnar Smári ræðir við Kjartan Sveinsson, formann Félags strandveiðimanna, um gildi veiðanna og verðmæti fyrir þjóðarbúið. Ný sláandi heimildarmynd um uppljóstrun á áður óþekktu arðráni á Grænlandi er til umræðu hjá Oddnýju Eir. Sólveig Ásta Sigurðardóttir, bókmenntafræðingur og ný-doktor á hugvísindasviði HÍ, Már Wolfgang Mixa, dósent í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Bryndís Björnsdóttir, myndlistarkona og doktorsnemi í mannfræði og Linda Lyberth Kristiansen sérfræðingur i málefnum árþjóða hjá Arctic Circle, ræða um Grænland og nýlenduhyggju. Átök hafa brotist út milli Indlands og Pakistan og bæta þau enn við ófriðinn í heiminum. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri um þau átök en ekki síður um stefnu Bandaríkjastjórnar í alþjóðamálum og þá sérstaklega í Evrópu. Arna Magnea Danks, leikkona, leikstjóri, kennari, og mannréttinda-fréttaritari okkar segir Oddnýju Eir frá nýjustu Trans-tíðindin í tengslum við pólitík heima og heiman. Hinn óþekkti þingmaður þessarar viku er tónlistarkonan Ása Berglind Hjálmarsdóttir, ný þingkona Samfylkingarinnar. Ása Berglind ræðir líf sitt á persónulegum nótum við Björn Þorláks en í þættinum eru flest umræðuefni leyfð - önnur er pólitík! Eydís Ásbjörnsdóttir, þingkona og talsmaður barna á Alþingi segir okkur Oddnýju Eir frá helstu baráttumálum í málefnum barna um land allt og sérstaklega út frá sjónarhorni landsbyggðarinnar.

Rauða borðið
Rauða borðið: Gaza, Cecot, 500 milljarðar, tollar, kosningar og fangelsi

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 5, 2025 277:21


Mánudagur 5. maí Rauða borðið: Gaza, Cecot, 500 milljarðar, tollar, kosningar og fangelsi Ísraelsstjórn samþykkti í morgun áætlun um að herða hernaðaraðgerðir á Gaza og leggja alfarið undir sig landsvæðið. Stjórnin hvatti íbúa til að færa sig til suðurs og von er á miklum blóðsúthellingum. Ingólfur Gíslason, kennari við menntavísindasvið er vel inni í málunum og ræðir við Maríu Lilju um nýjustu fréttir frá svæðinu. Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar ræðir við Sigurjón M um hve flókið það virðist að eiga næstum 500 milljarða króna á Ís­landi amk fyrir stórútgerðina. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, efast um rétt Bandaríkjamanna á réttlátri málsmeðferð, eins og stjórnarskrá Bandaríkjanna kveður á um. Hann hefur sent hundruði “ólöglegra innflytjenda” í öryggisfangelsið Cecot í el Salvador. Eyjólfur Eyvindsson, tónlistamaður er sérfróður um fangelsið og ræðir við Maríu Lilju. Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára um tolla og efnahagsstefnu Donald Trump, sem hann segir að byggi á hagfræðikenningum Ravi Batra og sé raunhæf leið til að vinna gegn ójöfnuði í Bandaríkjunum. Páll Þórðarson efnafræðiprófessor í Sydney segir Gunnari Smára frá kosningabaráttunni í Ástralíu þar sem mikill viðsnúningur varð, það sem leit út fyrir að geta orðið stórsigur íhaldsmanna varð á endanum sögulegur ósigur. Er þetta enn eitt merkið um áhrifin af Trump, sem virðist hafa kallað bakslag yfir nýja hægrið. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu - félags fanga, tekur að sér leiðsegja Gunnari Smára um yfirfull fangelsi og langa biðlista. Hverjir sitja í fangelsi sem ekki ættu að vera þar og hverjir komast ekki í afplánun?

Vikulokin
Ásta Guðrún Helgadóttir, Björn Ingi Hrafnsson og Ragnar Kristjánsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Apr 19, 2025 59:49


Gestir Vikulokanna eru Ásta Guðrún Helgadóttir aðstoðarmaður þingflokks Samfylkingarinnar, Ragnar Kristjánsson hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs og Björn Ingi Hrafnsson aðstoðarmaður formanns Miðflokksins. Þau ræddu meðals annars um tollastefnu Bandaríkjanna og áhrif hennar á alþjóðaviðskipti, stefnu Trumps gagnvart háskólum í Bandaríkjunum, hatursorðræðu á samfélagsmiðlum og fasteignamarkaðinn á Íslandi. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Þjóðmál
#309 – Páskaþáttur – Andrés og Stefán Einar koma beint af Jómfrúnni

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Apr 19, 2025 113:55


Eftir að hafa snætt á Jómfrúnni mættu þeir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson beint í Þjóðmálastofuna til að fara yfir allt það helsta um og fyrir páska. Við ræðum um andverðugleikasamfélagið sem sumir vilja skapa, það hvernig sumir líta á alla verðmætasköpun sem eign hins opinbera, pólitíska stöðu forsætisráðherra og framgöngu húskarla Samfylkingarinnar og margt, margt fleira.

Rauða borðið
Synir Egils 30. mars - Veiðigjöld, átök, börn og Flokkur fólksins

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 30, 2025 158:25


Sunnudagurinn 30. mars Synir Egils: Veiðigjöld, átök, börn og Flokkur fólksins Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og ræða fréttir vikunnar og stöðu stjórnmálanna. Salvör Nordal umboðsmaður barna kemur og ræður stöðu barna, en mörg mál hafa komið upp undanfarið sem benda til þess að þau börn sem eru í vanda séu ekki gripin. Styr hefur staðið um Flokk fólksins undanfarnar vikur. Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður flokksins ræðir pólitíkina, ríkisstjórnina og flokkinn.

Vikulokin
Hildur Sverrisdóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Halla Hrund Logadóttir

Vikulokin

Play Episode Listen Later Feb 15, 2025 57:45


Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins og Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins ræða fréttir vikunnar. Umræður vikunnar fjölluðu meðal annars um deilur um þingflokksherbergi, stefnuræðu forsætisráðherra, þingmálalista ríkisstjórnarinnar, frumvarp umhverfisráðherra um breytingar á raforkulögum, borgarmál í Reykjavík, ofbeldi meðal barna í Breiðholtsskóla og kjör ræstingafólks hér á landi.

Vikulokin
Heiða Björg Hilmisdóttir, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Jón Gnarr

Vikulokin

Play Episode Listen Later Feb 8, 2025 57:51


Gestir vikulokanna voru þau Heiða Björg Hilmisdóttir, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, og Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi borgarstjóri. Þau ræddu meðal annars vendingar í borgarstjórn þar sem meirihlutinn er sprunginn og viðræður um myndun nýs meirihluta standa yfir, stöðuna í kjaradeilu kennara og alþjóðamál út frá yfirlýsingum Bandaríkjaforseta í vikunni.

Rauða borðið
Synir Egils 2. feb - Nató-krísan, verkföll, sparnaður, styrkir og VR

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 2, 2025 160:36


Sunnudagurinn 2. febrúar Synir Egils: Nató-krísan, verkföll, sparnaður, styrkir og VR Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Andrea Sigurðardóttir blaðakona á Morgunblaðinu, Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona Samfylkingarinnar og Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórnmálafræði og ræða frérttir vikunnar og stjórnmálaástandið. Þeir bræður taka líka púlsinn á pólitíkinni og fá svo frambjóðendur til formanns VR til að ræða félagið, verkalýðsbaráttuna og stöðu launafólks: Bjarni Þór Sigurðsson stjórnarmaður í VR, Flosi Eiríksson viðskiptafræðingur, Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Þorsteinn Skúli Sveinsson sérfræðingur hjá Byko setjast að Rauða borðinu.

Spegillinn
Þingið framundan og sænsk börn sem sprengja sprengjur

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 31, 2025 20:00


Guðmundur Ari Sigurjónsson og Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins - tókust á um hvað er framundan. Það má kannski segja að forsmekkurinn að þingvetrinum hafi fengist í gær þegar deilt var um hver ætti að fá hvaða herbergi í þinghúsinu; skrifstofustjóri Alþingis er búinn að kveða upp sinn dóm, Sjálfstæðisflokkurinn heldur sínu herbergi en málinu virðist hvergi nærri lokið. Undanfarið hafa dunið sprengingar í Svíþjóð nær daglega. Í janúarmánuði einum hefur verið sprengt rúmlega þrjátíu sinnum við íbúðarhús og verslanir og flestar eru sprengingarnar í suðurhluta Stokkhólms. Lögreglan segir ástandið mjög alvarlegt og það takmarkist ekki aðeins við Stokkhólm.

Vikulokin
Sigmar Guðmundsson, Bryndís Haraldsdóttir og Víðir Reynisson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jan 25, 2025 57:41


Gestir Vikulokanna eru: Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar, Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks og Víðir Reynisson þingmaður Samfylkingarinnar. Þau ræddu meðal annars um rýmingar í Neskaupstað og á Seyðisfirði, samgöngumál, Donald Trump bandaríkjaforseta, vopnahlé á Gaza, kjaradeilu kennara og komandi formannskjör í Sjálfstæðisflokknum. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Spegillinn
Sparnaður í samráðsgátt og klamydía ógnar kóalabjörnum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 3, 2025 20:05


En það vakti nokkra athygli þegar Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, fór þá leið að óska eftir ábendingum frá almenningi um hvernig væri hægt að spara í ríkisrekstrinum. Ekki stóð á viðbrögðunum; nærri fimmtán hundruð athugasemdir hafa verið sendar inn á samráðsgátt stjórnvalda og þar má sjá allskonar hugmyndir; leggja niður RÚV, loka landinu fyrir hælisleitendum, hætta að veita áfengi í veislum og fækka sendiráðum. Fresturinn til að skila inn umsögn rennur út í lok mánaðar og eftir það fer sérstakur hópur á vegum forsætisráðuneytisins yfir ábendingarnar. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingmaður Samfylkingarinnar, fara yfir málið. Klamydía ógnar tilvist einhverrar allra krúttlegustu skepnu heims - kóala- eða pokabjarnarins ástralska. Vísindamenn vinna hörðum höndum að því að þróa bóluefni til að forða þeim frá útrýmingu.

Spegillinn
Hvað þarf ný ríkisstjórn að hafa í huga og nýi franski forsætisráðherrann?

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 13, 2024 20:06


Francois Bayrou nýr forsætisráðherra Frakklands tók formlega við keflinu nú síðdegis. Hans bíður það vandasama verkefni að koma saman ríkisstjórn og afgreiða fjárlög franska ríkisins - að ekki sé nú minnst á að standa af sér mögulega tillögu um vantraust á franska þinginu. Fátt ef nokkuð virðist geta komið í veg fyrir að ríkisstjórn Samfylkingarinnar,Viðreisnar og Flokks fólksins verði mynduð, það á að byrja að skrifa stjórnarsáttmála eftir helgi og það virðist ekki útilokað að ný ríkisstjórn líti dagsins ljós jafnvel fyrir áramót.

Rauða borðið
Rauða borðið 11. des: Kosningafúsk, fangelsismál, bókaspjall, loftslagsmál, þungarokk og ættarfylgja

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Dec 11, 2024 268:02


Rauða borðið miðvikudagur 11. desember Kosningafúsk, fangelsismál, bókaspjall, loftslagsmál, þungarokk og ættarfylgja Við bjóðum uppá hlaðborð ólíkra mála hér við rauða borðið miðvikudagskvöldið ellefta desember, nú þegar stekkjastaur ætti að vera að skrölta til byggða. Það eru þó engir jólasveinar á meðal gesta okkar í kvöld. Björn Þorláksson ríður á vaðið ásamt umboðsmanni framboðs Samfylkingarinnar sem er ekki sáttur við meðferð atkvæða. Þá koma fulltrúar fanga í Afstöðu til Maríu og ræða brýnar úrbætur á fangelsismálum. Þær Oddný Eir og Vigdís Grímsdóttir taka lifandi og lífrænt spjall um bækur. Þorgerður María, hjá landvernd lítur við og köttar krappið í umræðunni um loftslagsmál. María og Oddný fara svo á hugarflug með hávaðarokkurum í osme og Björn lokar svo þættinum með harmrænni ættarfylgju. Útsendingu stýrðu Laufey Líndal og Pétur Fjeldsted. Spenniði eyrun vel það er gott spjall framundan.

Podcast með Sölva Tryggva
Kristrún Frosta með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Nov 28, 2024 100:41


https://solvitryggva.is/ Kristrún Frostadóttir er formaður Samfylkingarinnar. Henni hefur skotið hratt upp á stjörnuhimininn í stjórmálunum og flokkur hennar hefur undanfarið ítrekað mælst stærsti flokkur landsins. Í þættinum ræða Kristrún og Sölvi um hlutverk ríkisins, íslenskt samfélag, feril Kristrúnar, stjórnmálin og margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/

Ein Pæling
#370 Alma Möller - (S) Alþingiskosningar 2024

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Nov 26, 2024 59:54


- Hver er stefna Samfylkingarinnar í einkarekstri heilbrigðiskerfisins?- Er kerfið að fara að laga kerfið?- Hversu mikið fjármagn þarf heilbrigðiskerfið?Þessum spurningum og fjölmörgum fleirum er svarað í þessum þætti!

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - fimmtudagur 21. nóvember 2024

Bylgjan

Play Episode Listen Later Nov 21, 2024 75:12


Öll viðtölin úr þætti dagsins: Steinunn Erla Thorlacius um heilaskoðun Bjarki Sigurðsson fréttamaður og Þorvaldur Þórðarson um eldgosið á Reykjanesi Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar Þórarinn Hjaltason samgönguverkfræðingur um tafir í umferðinni á Íslandi Þorvaldur Flemming Jensen um 16 Svía sem ætlaði að fremja leigumorð í Kaupmannahöfn  

Rauða borðið
Rauða borðið 21. nóv - Sjókvíaeldi, ESB, húsnæðiskrísa, smáfyrirtækjaskattamál, Gaza

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Nov 21, 2024 386:13


Fimmtudagur 21. nóvember Sjókvíaeldi, ESB, húsnæðiskrísa, smáfyrirtækjaskattamál, Gaza Í beina útsendingu í kvöld mæta vaskir frambjóðendur og talsmenn, þau Karl Héðinn Kristjánsson, Sósíalisti, Gísli Rafn Ólafsson, Pírati, Mörður Árnason, Samfylkingu og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd til að ræða um sjókvíeldi, eldgos og önnur eldheit kosningamál. Þau Haraldur Ólafsson hjá Heimssýn og Helga Vala Helgadóttir hjá Evrópuvaktinni eru á öndverðum meiði um hvort Ísland eigi að ganga í ESB. Við heyrum rökræðu þeirra á millum. Við höldum síðan áfram að ræða húsnæðiskrísuna á markvissan máta með fulltrúa Leigjendsamtakanna, Yngva Ómari Sighvatssyni sem tekur frambjóðendur nokkura flokka í próf og í dag mæta þeir Jóhann Páll Jóhannsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar, Grímur Grímsson, frambjóðandi Viðreisnar og Ragnar Þór Ingólfsson, frambjóðandi Flokks fólksins. Spurning dagsins er hvernig líður almenningi í samfélaginu, við spyrjum fólk á förnum vegi. Síðan segir Sigmar Vilhjálmsson, formaður Atvinnufélagsins okkur frá hvernig skattaumhverfi fyrirtækja hyglir hinum stóru á kostnað smáfyrirtækja og Benjamín Julian, verkefnastjóri Verðlagseftirlits Alþýðusambandsins, fræðir okkur um samkeppnina á dagvörumarkaði. Illugi Jökulsson, rithöfundur segir okkur frá allri fegurðinni sem finna má í hversdeginum en hann hefur í nokkur ár fangað lítil augnablik, glefsur úr lífum fólks og gefið út í bókinni "Rétt áðan". Í Radió Gaza koma þau saman Gígja Sara Björnsson, Valgeir Skorri Vernharðsson, Hjálmtýr Heiðdal og Snæbjörn Brynjarsson sem öll standa fyrir viðburðum á næstu vikum. Áherslurnar og aðferðirnar eru kannski ólíkar en meginstefið er það sama, mannréttindi. Að lokum heyrum við í oddvita Sósíalista í Norðvesturkjördæmi, Guðmundi Hrafni sem spjallar við Sigurjón Magnús Egilsson í Oddvitaspjalli Rauða borðsins.

Spegillinn
Uppgjör við blogg, verkföll og lýðræðið í Þýskalandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 15, 2024 20:00


Gömul bloggskrif Þórðar Snæs Júlíussonar, frambjóðanda Samfylkingarinnar, sem birtust undir dulnefni á bloggsíðu fyrir rúmlega tuttugu árum hafa vakið upp umræðu um hvort nauðsynlegt sé að gera upp það tímabil þegar nafnlaus skrif viðgengust í athugasemdakerfum fjölmiðla og bloggheimum. Skrif sem oft beindust að nafntoguðum konum og þeir sem þannig skrifuðu þurftu fæstir að bera á þeim ábyrgð. Þar til kannski nú. Full þörf er á að samræma vinnulöggjöf á almennum og opinberum markaði segir prófessor við Háskóla Íslands, ákvæði um verkföll séu til dæmis ekki þau sömu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Gylfa Dalmann Aðalsteinsson. Þótt níu af hverjum tíu Þjóðverjum séu sannfærðir um að lýðræði sé æskilegasta stjórnarfarið eru aðeins um fjórir af tíu ánægðir með hvernig það virkar í Þýskalandi um þessar mundir. Og nær tveir af hverjum tíu eru að einhverju leyti sammála þeirri fullyrðingu, að einræði geti verið betri valkostur „í ákveðnum aðstæðum.“

Jákastið
#184 Kristrún Frostadóttir

Jákastið

Play Episode Listen Later Nov 10, 2024 86:01


Gestur minn þessa vikuna er Kristrún Frostadóttir. Kristrún er formaður Samfylkingarinnar, hagfræðingur og margt fleira. Hún er gjörsamlega frábær og mögnuð. Það var gott, gaman, yndislegt, fræðandi og áhugavert að spjalla við Kristrúnu. Þú ert frábær! Ást og friður.  Jákastið er í boði: - Sjóvá - Pizza Popolare - Netgíró - Egils Kristall  - Payday

Ein Pæling
#354 Jóhann Páll Jóhannsson (S) - Alþingiskosningar 2024

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Nov 4, 2024 69:39


Mun stefna Mette Fredriksen í Danmörku vera innleidd á Íslandi komist Samfylkingin í stjórn? Hver verður stefna Samfylkingarinnar í heilbrigðis- og efnahagsmálum? Þessu er svarað hér.Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling

Þjóðmál
#261 – Helgarvaktin undirbúin – Könnun um afstöðu til Dags

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Nov 1, 2024 58:00


Andrea Sigurðardóttir og Þórður Gunnarsson ræða um allt það helsta á vettvangi stjórnmálanna, hvernig fylgi flokka er að þróast, hvernig kosningabaráttan er háð, deilur innan Samfylkingarinnar, hvaða áhrif niðurstöður kosninga hafa á fjármál stjórnmálaflokkanna og margt fleira. Þá er greint frá nýrri könnun sem unnin var fyrir Þjóðmál, þar sem spurt var um afstöðu fólks til þess að Dagur B. Eggertsson, fv. borgarstjóri, tæki sæti ofarlega á lista Samfylkingarinnar.

Stundin
Pressa #26: Unga fólkið tekst á í Pressu

Stundin

Play Episode Listen Later Oct 25, 2024


Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður og oddviti Pírata í Reykjavík Norður, verður gestur Pressu í dag ásamt Snorra Mássyni fjölmiðlamanni, sem sækist eftir oddvitasæti hjá Miðflokknum og Jóhanni Páli Jóhannssyni, þingmanni Samfylkingarinnar.

Bylgjan
Sprengisandur 20.10.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Oct 20, 2024 97:46


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins um stjórnmálin.   Sigríður Andersen fyrrverandi ráðherra um stjórnmálin. Össur Skarphéðinsson fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar um pólitíkina. Lilja Alfreðsdóttir alþingismaður um pólitíkina.

Podcast með Sölva Tryggva
#314 Kristrún Frosta með Sölva Tryggva (Áskriftarþáttur)

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Oct 16, 2024 20:00


Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Kristrún Frostadóttir er formaður Samfylkingarinnar. Henni hefur skotið hratt upp á stjörnuhimininn í stjórmálunum og flokkur hennar hefur undanfarið ítrekað mælst stærsti flokkur landsins. Í þættinum ræða Kristrún og Sölvi um hlutverk ríkisins, íslenskt samfélag, feril Kristrúnar, stjórnmálin og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/

Bylgjan
Sprengisandur 15.09.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Sep 15, 2024 95:14


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði við HÍ um samfélagsmál. Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Bjarni Benediktsson forsætisráðherra um stjórnmál. Snæbjörn Guðmundsson formaður Náttúrugriða og Eggert Valur Guðmundsson Oddviti Rangárþings Ytra um orkumál. Halla Gunnarsdóttir varaformaður VR um samfélags- og efnahagsmál. 

Spegillinn
Skeytasendingar hjá ráðherrum ríkisstjórnarinnar og öldrun

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 19, 2024 20:00


Það hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með stjórnmálum að það hafa verið skeytasendingar milli stjórnarflokkanna síðustu daga og vikur; þær hófust með umræðu um ókeypis skólagögn, fóru svo yfir í umræðuna um orkumál og þá sérstaklega vindorkuna, síðan útlendingamálin og náðu eiginlega hámarki þegar flokksráð VG ákvað að samþykkja ályktun þar sem ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að frysta tímabundið greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna var fordæmd. Jóhann Páll Jóhannsson og Bryndís Haraldsdóttir, þingmenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins, komu í hljóðstofu. Eflaust hafa einhverjir, sem komnir eru á miðjan fimmtugsaldurinn, vaknað einn daginn og hugsað; getur verið að ég hafi virkilega elst um mörg ár á einni nóttu? Já er svarið, ef marka má nýja rannsókn vísindamanna við Stanford-háskóla, rannsókn sem öldrunarlæknir segir að sé gott innlegg í umræðuna en beri að taka með ákveðnum fyrirvara.

Vikulokin
Jóhann Friðrik Friðriksson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Björn Leví Gunnarsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jul 27, 2024 57:46


Gestir Vikulokanna eru Jóhann Friðrik Friðriksson þingmaður Framsóknarflokks, Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrrverandi þingmaður VG og Samfylkingarinnar og Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata. Þau ræddu forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, skautun í umræðu um stjórnmál, verðbólgu, verðandi forseta og Brimborg, samræmd próf og Ólympíuleikana í París. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Þjóðmál
#227 – Einu sinni var hægri flokkur – Vandræði Samfylkingar í útlendingamálum

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Jun 20, 2024 64:30


Andrés Magnússon og Þórður Gunnarsson ræða um tillögu að vantrausti á matvælaráðherra sem felld var á Alþingi í dag, hvort og þá hvaða áhrif tillagan hefur á stjórnarsamstarfið, viðhorf stjórnvalda til hvalveiða og atvinnulífsins yfirleitt, fráleitar tillögur ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum, þögn formanns Samfylkingarinnar í útlendingamálum, fylgistap hægri flokka sem gleyma erindi sínu, tölur sem sýna enn einu sinni að ríkisstarfsmenn eru með hæstu launin í landinu, minnkandi samkeppnishæfni landsins og margt fleira.

Óli Björn - Alltaf til hægri
Eldar í húsi Samfylkingarinnar

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Feb 29, 2024 15:50


Þegar spurðist út að formaður Samfylkingarinnar telji nauðsynlegt að breyta stefnunni í málefnum hælisleitenda fóru margir af taugum. Stór orð voru látin falla. Svo mikill var pólitíski skjálftinn innan raða Samfylkinga að tveir gamlir formenn töldu sig nauðbeygða til að taka til varna fyrir Kristrúnu. Össur Skarphéðinsson hafnaði því að Kristrún hafi verið að boða stefnubreytingu og í svipaðan streng tók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Kristrún hafi bara verið með „almennar vangaveltur um ýmsar hliðar þessara mála. Ingibjörg Sólrún hafði hins vegar áhyggjur af því að hinar almennu „vangaveltur“ Kristrúnar væru að ala á sundrungu innan flokksins: „Látum ekki siga okkur hverju á annað.“ Stefnubreyting eða ekki stefnubreyting? Kannski skiptir svarið ekki öllu en hitt er augljóst að Kristrún Frostadóttir talar með allt öðrum hætti en þingmenn og frambjóðendur Samfylkingarinnar hafa gert á undanförnum árum. Og það er lítill samhljómur með orðum Kristrúnar og ályktana flokksins.

Þjóðmál
#198 – Gömlu byssurnar sóttar upp í hillu – Ríkisstjórnin með fyrirvara ofan á fyrirvara

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Feb 23, 2024 66:22


Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir allt það helsta á vettvangi stjórnmálanna. Þeir ræða um skrautlega uppákomu í þinginu, hvernig umræða um útlendingamál hefur tekið breytingum, krísustjórnun RÚV fyrir hönd Samfylkingarinnar, ríkisstjórnarsamstarfið, stöðu fjölmiðla, hlaðvarpsframleiðslu opinberra stofnana og margt fleira.

Bylgjan
Sprengisandur 28.01.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jan 28, 2024 92:49


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðum um þjóðmálin. Í þessum þætti: Þórdís Ingadóttir prófessor við HR um alþjóðalög. Bryndís Haraldsdóttir og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir alþingismenn um innflytjendamál.  Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra og Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar um efnahagsmál. Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðamálum um alþjóðamál.

Vikulokin
Björg Eva Erlendsdóttir, Sigurður Hannesson og Hjálmar Sveinsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Dec 16, 2023 57:47


Gestir Vikulokanna eru Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar, Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, og Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Þau ræddu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, loftslagsbreytingar, raforkumál og umhverfisvernd. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Vikulokin
Björg Eva Erlendsdóttir, Sigurður Hannesson og Hjálmar Sveinsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Dec 16, 2023


Gestir Vikulokanna eru Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar, Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, og Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Þau ræddu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, loftslagsbreytingar, raforkumál og umhverfisvernd. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Vikulokin
Stefán Pálsson, Sigurður Örn og Helga Vala

Vikulokin

Play Episode Listen Later Dec 9, 2023


Gestir Vikulokanna eru þau Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi VG, og Sigurður Örn Hilmarsson, formaður Lögmannafélags Íslands. Þau ræða stríðið á Gaza, viðbrögð alþjóðasamfélagsins, stríðsglæpi, viðbrögð íslenskra stjórnvalda, PISA-könnunina og stöðu lögreglunnar. Sunna Valgerðardóttir hefur umsjón með þættinum og Lydía Grétarsdóttir stjórnar útsendingu.

Vikulokin
Stefán Pálsson, Sigurður Örn og Helga Vala

Vikulokin

Play Episode Listen Later Dec 9, 2023 55:00


Gestir Vikulokanna eru þau Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi VG, og Sigurður Örn Hilmarsson, formaður Lögmannafélags Íslands. Þau ræða stríðið á Gaza, viðbrögð alþjóðasamfélagsins, stríðsglæpi, viðbrögð íslenskra stjórnvalda, PISA-könnunina og stöðu lögreglunnar. Sunna Valgerðardóttir hefur umsjón með þættinum og Lydía Grétarsdóttir stjórnar útsendingu.

Vikulokin
Jóhann Páll Jóhannsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Dec 2, 2023


Gestir Vikulokanna eru Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar, Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks og Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata. Þau ræddu framsal íslenskra ríkisborgara til útlanda, siðareglur þingmanna, efnahagsmál og þjóðarpúls Gallup um fylgi stjórnmálaflokka. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Marteinn Marteinsson

Vikulokin
Jóhann Páll Jóhannsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Dec 2, 2023


Gestir Vikulokanna eru Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar, Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks og Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata. Þau ræddu framsal íslenskra ríkisborgara til útlanda, siðareglur þingmanna, efnahagsmál og þjóðarpúls Gallup um fylgi stjórnmálaflokka. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Marteinn Marteinsson

Vikulokin
Jóhann Páll Jóhannsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Dec 2, 2023 55:00


Gestir Vikulokanna eru Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar, Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks og Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata. Þau ræddu framsal íslenskra ríkisborgara til útlanda, siðareglur þingmanna, efnahagsmál og þjóðarpúls Gallup um fylgi stjórnmálaflokka. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Marteinn Marteinsson

Vikulokin
Kristrún Frostadóttir, Jódís Skúladóttir og Guðbrandur Einarsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Nov 4, 2023


Gestir Vikulokanna eru Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar, Jódís Skúladóttir þingmaður Vinstri grænna og Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu sjókvíaeldi, stefnu íslenskra stjórnvalda varðandi átökin á Gaza, efnahagsmál og komandi kjaraviðræður og jarðskjálftana á Reykjanesskaga. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Vikulokin
Kristrún Frostadóttir, Jódís Skúladóttir og Guðbrandur Einarsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Nov 4, 2023 55:00


Gestir Vikulokanna eru Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar, Jódís Skúladóttir þingmaður Vinstri grænna og Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu sjókvíaeldi, stefnu íslenskra stjórnvalda varðandi átökin á Gaza, efnahagsmál og komandi kjaraviðræður og jarðskjálftana á Reykjanesskaga. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Þjóðmál
#171 – Markaðurinn lítill í sér – Vesen að eiga vildarpunkta – Bótaþegar á rafmagnsbílum

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Oct 26, 2023 56:00


Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um hlutabréfamarkað í ládeyðu, flókna stöðu Marel og það hvort að verið sé að skortselja félagið, erfiðleika þingmanna við að eiga vildarpunkta, um verkalýðsleiðtoga sem eru ekki takt við félagsmenn sína, gagnrýni formanns Samfylkingarinnar á skattalækkanir fyrir tekjulága, afslátt við sölu á hlut í Hampiðjunni, litla framleg matvöruverslana, ríkisstyrk til rafmagnsbílaeigenda og margt fleira.

Spegillinn
Verndun lax í ólagi, vargöld á Haítí og kommúnistarapp

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 3, 2023 9:36


Maður á sextugsaldri sem fannst látinn í heimahúsi í Bátavogi í austurborg Reykjavíkur á laugardagskvöld fyrir einni og hálfri viku var myrtur. Fimm flokka þyrfti til að mynda ríkisstjórn án Samfylkingarinnar miðað við niðurstöður Þjóðarpúls. Kaupmáttur dróst saman í fyrra, en jókst ekki eins og Hagstofa hafði áður greint frá. Búist er við að Seðlabankinn tilkynni á morgun um fimmtándu stýrivaxtahækkunina í röð. Nýtt bóluefni gegn HPV-veirunni veitir góða vörn gegn kynfæravörtum og krabbameini. Í fyrsta sinn verða önnur kyn en stúlkur bólusett. Þúsund manna lið frá Kenía fær það verkefni að aðstoða her og lögreglu á Haítí við að ráða niðurlögum glæpahópa sem halda þjóðinni í heljargreipum. Verndun villts lax og eftirlit með sjókvíaeldi er greinilega ekki í lagi, segir prófessor í umhverfisrétti sem telur Ísland bregðast skyldum sínum til að verja líffræðilega fjölbreytni. Ungliðahreyfing kínverska kommúnistaflokksins nýtir rappara - sem áður voru í ónáð - til að ná til ungs fólks. Flokkinn vantar nýtt blóð. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Kári Guðmundsson. Fréttaútsendingu stjórnaði Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Spegillinn
Verndun lax í ólagi, vargöld á Haítí og kommúnistarapp

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 3, 2023


Maður á sextugsaldri sem fannst látinn í heimahúsi í Bátavogi í austurborg Reykjavíkur á laugardagskvöld fyrir einni og hálfri viku var myrtur. Fimm flokka þyrfti til að mynda ríkisstjórn án Samfylkingarinnar miðað við niðurstöður Þjóðarpúls. Kaupmáttur dróst saman í fyrra, en jókst ekki eins og Hagstofa hafði áður greint frá. Búist er við að Seðlabankinn tilkynni á morgun um fimmtándu stýrivaxtahækkunina í röð. Nýtt bóluefni gegn HPV-veirunni veitir góða vörn gegn kynfæravörtum og krabbameini. Í fyrsta sinn verða önnur kyn en stúlkur bólusett. Þúsund manna lið frá Kenía fær það verkefni að aðstoða her og lögreglu á Haítí við að ráða niðurlögum glæpahópa sem halda þjóðinni í heljargreipum. Verndun villts lax og eftirlit með sjókvíaeldi er greinilega ekki í lagi, segir prófessor í umhverfisrétti sem telur Ísland bregðast skyldum sínum til að verja líffræðilega fjölbreytni. Ungliðahreyfing kínverska kommúnistaflokksins nýtir rappara - sem áður voru í ónáð - til að ná til ungs fólks. Flokkinn vantar nýtt blóð. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Kári Guðmundsson. Fréttaútsendingu stjórnaði Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Vikulokin
Lilja Dögg, Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín

Vikulokin

Play Episode Listen Later Sep 2, 2023


Gestir Vikulokanna eru Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Rætt var um brotthvarf Helgu Völu Helgadóttur af þingi, hvalveiðar, sem voru leyfðar í vikunni, efnahagsmál, húsnæðismál og fleira. Umsjónarmaður: Bergsteinn Sigurðsson Tæknimaður: Þorbjörn G. Kolbrúnarson

Vikulokin
Lilja Dögg, Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín

Vikulokin

Play Episode Listen Later Sep 2, 2023 55:00


Gestir Vikulokanna eru Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Rætt var um brotthvarf Helgu Völu Helgadóttur af þingi, hvalveiðar, sem voru leyfðar í vikunni, efnahagsmál, húsnæðismál og fleira. Umsjónarmaður: Bergsteinn Sigurðsson Tæknimaður: Þorbjörn G. Kolbrúnarson

Helgaspjallið
Þáttur 144 - Kristrún M. Frosta formaður Samfylkingar um stöðuna á Íslandi í dag á mannamáli -

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Jun 26, 2023 97:04


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla *Þessi þáttur kom seinna út en áætlað var, í byrjun þáttar vitna ég í þátt 142. Kristrún Mjöll Frostadóttir er fædd árið 1988 og á þeim tíma hefur hún lokið BS gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í alþjóðafræðum frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum, með áherslu á hagstjórn og alþjóðafjármál og meistaragráðu í hagfræði frá Boston-háskóla í Bandaríkjunum. Takk og bless. En hún hefur einnig unnið sem sem sérfræðingur í greiningardeild bandaríska fjárfestingabankans Morgan Stanley, aðalhagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands og Kviku banka, takk og bless aftur! Núna er hún rísandi kona fólksins í starfi sínu sem formaður Samfylkingarinnar og var þetta hin besta kona að fara yfir sturlaða stöðu landsins og tala um spillinguna og í raun og veru sem á sér stað innan Alþingis. Kristrún var fullkominn viðmælandi og skafar ekki af hlutunum og segir eins og er. Eins og hún segir sjálf, þetta snýst ekki um að við hin þurfum að vera hápólitísk til að taka þátt í umræðunni, heldur láta í okkur heyra og kjósa. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar