Þórarinn Jónas og Björgvin BigBo stýra sókninni í nýjum podcast þætti Hauka. Fjallað verður um fótboltasumarið og almennt um knattspyrnudeild Hauka. Spjallað við leikmenn, nýja og gamla og rifjað upp góðar sögur.
Sóknarmaðurinn Marteinn Gauti fær til sín þá Ásgeir Ingólfs og stjörnuna Guðjón Pétur, GPL5. Ræða þeir um síðustu ár, pepsimax og tímabilið núna. Geiri guli, aumingja mogginn og margt fleira.
Sóknarmaðurinn geðþekki Marteinn Gauti fær frábæra gesti til sín. Fiðluleikarinn Sæunn Björnsdóttir og vinamargi þjálfarinn Jakob Leó Bjarnason. Gera þau upp tímabilið í fyrra, bikarleikinn á móti Víking Rvk. og fyrstu 2 leikina í Lengjudeildinni.
Hann Marteinn Gauti mun stýra sókninni hjá sóknarmönnum séra friðriks, enda afbragðssóknarmaður af gamla skólanum. Copa mundia takkaskór, litla legghlífar, sokkar uppá miðjan kálfa og vel girtur eins og Lee Cattermole. Marteinn Gauti fær aðstoðarþjálfarann og herramanninn Þórarinn Jónas. Þeir eru ekki tveir, heldur er stálmúsin Þórður Jón með þeim og fara þeir yfir leikmenn meistaraflokks karla.
Jakob, Sigurbjörn og Arnaldur fá til sín fyrirliða karlaliðsins Ásgeir Þór Ingólfsson. Farið var yfir sumarið, þjálfaraskiptin og lúxusgírinn. Eftir viðtal við Ásgeir þá fara þeir Jakob, Addi og Sibbi yfir kvennaleikinn og segja skemmtilega sögu sem gerðist á lokahófi Hauka.
Þeir Addi og Sibbi fara fyrst yfir Keflavíkur leikinn hjá strákunum. Svo fá þeir hinn frábæra þjálfara Jakob Leó til sín í spjall. Hefir það er svo stutt spjall um komandi leiki og Luxor leikmenn liðana valdir.
Sóknarmennirnir Jakob, Addi og Sibbi fá til sín dr. Kjöta eða Birgir Magnús. Þar fara þeir yfir síðustu leiki og spjalla við Bigga um allt og ekkert. Birgir segir sína hlið af slagsmálunum við Gunna Nelson í Tiger og allt sem kemur við fótbolta. Frábær hlustun með kaffibollanum.
Þeir Addi, Sibbi og Jakob fara yfir stóru málin. Þjálfaraskiptin og hvað hann Daníel Snorri gerði á Reykjavíkurmaraþoninu. Síðustu leikir karla og kvennaliðsins ræddir og fleira.
Þeir Addi, Sibbi og Jakob fara yfir síðustu leiki hjá kvenna- og karlaliðinu. Slúðurhornið, allar sögurnar og leikmannamál. Harðfiskurinn hans Búa og pilot-inn hans Tóta. Luxorleikmenn og margt fleira.
Þeir Arnaldur, Sigurbjörn og Jakob leikmenn KÁ fara yfir síðustu leiki mfl. karla og kvenna, Mikið slúðrað, Vilko vöfflur og Heimir Hallgríms. Wilfred Bony og Lúxor leikmenn leikjana valdir. Skemmtileg hlustun með kaffibollanum og Vilko Vöfflum.
Eftir stutta pásu hafa drengirnir Arnaldur, Jakob og Sigurbjörn leikmeinn Knattspyrnufélags Ásvalla tekið við keflinu og munu halda áfram með podcastþættina vinsælu. Í þeirra fyrsta þætti er fyrverandi þjálfari þeirra drengja og núverandi þjálfari Búi Vilhjálmur. Þar fara þeir yfir hans tíma hjá félaginu ásamt því að ræða aðeins um kvennaliðið.
Aukaþáttur: Viðtal við Söru Björk, íþróttamann ársins 2018 og mikla Haukakonu. Hún segir frá uppgangi sínum í Haukum, meiðslin og æfingarnar.
Hér taka Sóknarmenn Séra Friðriks viðtal við þjálfara meistaraflokks karla, Kristján Ómar Björnsson. Upphafið, varaliðið, flotholtið, styrktarþjálfun og meiðsli ásamt rætt um nýju leikmennina.
Létt spjall við okkar eina sanna #GPL10. í þessum þætti förum við yfir upphafsárin í Haukum, öll félagsskiptin, Íslandsmeistari, sænskur bikar- og deildarmeistari, veikindin og margt margt fleira.
Sóknarmennirnir fóru yfir úrslitin hjá bæði karla og kvennaliðum félagsins í Lengjubikarnum ásamt því að skoða leikmannabreytingar á liðunum frá síðasta tímabili. Af hverju spilaði fyrrverandi Haukamaðurinn Gunnlaugur Fannar ekki gegn sínum gömlu félögum um síðustu helgi? Hvernig hófst þjóðsagan um Lagarfljótsorminn? Svörin við þessum spurningum er að finna í þætti vikunnar.
Sóknarmenn Séra Friðriks er hlaðvarp knattspyrnudeildar Hauka og í fyrsta þætti taka þeir Þórarinn Jónas Ásgeirsson og Björgvin Stefánsson viðtal við hinn eina sanna Ásgeir Þór Ingólfsson! Þetta er þáttur sem enginn má láta fram hjá sér fara!