POPULARITY
10. umferð Bestu deildar karla gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir og Valur Gunnars eru í hljóðveri og fótboltalýsandinn Kristinn Kjærnested, fyrrum formaður KR, er gestur. Víkingur vann toppslaginn gegn KR, Stjarnan gerði markajafntefli gegn Breiðabliki í fyrsta leik Jóns Þórs og ÍA vann Val. FH vann sinn fyrsta sigur í Keflavík, ÍBV fór illa með Þór og Fram vann KA í markaleik.
Ómar Ólafsson flugstjóri á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Hann fór í flugnám um miðjan sjöunda áratuginn og hefur sinnt ótrúlega fjölbreyttum störfum á langri starfsævi hjá fjölda flugfélaga. Má þar nefna Flugfélagið Þór í Keflavík, flugþjónustu Björns Pálssonar, Vængi, Arnarflug, Transwede ab í Stokkhólmi, Sudflug GmbH og Condor í Þýskalandi. Að loknum atvinnuflugmannsferli réði hann sig til Flugmálastjórnar Íslands, nú Samgöngustofu þar sem hann sinnti eftirliti með flugrekstri í tæpan áratug. Ómar flýgur enn sér til ánægju á Cessnu 185 og stendur að veglegri uppbyggingu ásamt fleirum í Múlakoti í Fljótshlíðinni. Einkar áhugavert spjall við flugstjóra sem hefur upplifað og tekið þátt í gríðarlegum breytingum og þróun atvinnuflugs hérlendis og erlendis um áratuga skeið.
Upptaka frá ”live podcast” viðburði Icelandair sem haldinn var í samvinnu við Flugvarpið 7. maí 2026. Rætt er við þau Lindu Gunnarsdóttur director chief pilots office, Snorra Tómasson director network and scheduling og Guðberg Ólafsson manager operations control center. Spjallað er um starf þeirra hjá Icelandair og hvernig mismunandi deildir félagsins vinna í sameiningu við að halda tengimiðstöðinni í Keflavík og öllu flugi félagsins í gangi, alla daga allt árið um kring. Áhugavert spjall sem veitir örlitla innsýn í flókin verkefni við rekstur Icelandair.
Innkastið eftir 7. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Maggi Hödd. KR og Fram gerðu jafntefli, Valur vann Breiðablik, FH tapaði fyrir KA, Víkingur vann ÍBV, Þór tapaði fyrir ÍA og jafntefli varð niðurstaðan í leik Keflavíkur og Stjörnunnar.
Karl Alvarsson er fyrrverandi flugumferðarstjóri og lögfræðingur og hefur unnið ýmis sérfræðistörf tengd fluginu. Hann er í dag formaður Fagráðs um flugmál sem er innviðaráðherra til ráðuneytis í málaflokknum og er þar að auki formaður skipulagsnefndar fyrir Keflavíkurflugvöll. Í þættinum er rætt við Karl um skipulagsmálin, þá einkum í Reykjavík. Karl gagnrýnir að alþjóðaflugvöllurinn í höfuðborginni, sem jafnrframt er hjartað í innanlandssamgöngukerfinu, skuli háður starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti borgarinnar. Hann ræðir líka um fyrirkomulag skipulagsmála á Keflavíkurflugvelli og um helstu verkefni sem þar eru framundan. Ásælni flugfélaga í að hafa leyfi til flugrekstrar á Möltu eru líka til umræðu í þættinum og þeirri spurningu varpað fram hvort íslensk stjórnvöld geti gert eitthvað til að efla íslenska flugrekendur í alþjóðlegri samkeppni. Áhugavert spjall fyrir alla þá sem vilja fylgjast með í flugmálum.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Halldór Jörgen Olesen er ritstjóri Verðbólguvaktarinnar, verdbolga.net, og hefur tekið saman kostnað við sex stærstu kosningaloforðin. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri FF7, ræddi við okkur um ferðamannabransann og flugið. Elísabet Ingunn Einarsdóttir er í 2.sæti fyrir Sjálfstæðisflokk á Seltjarnarnesi og Skafti Harðarson, oddviti Miðflokks á Nesinu, settust niður með okkur. Goðsagnirnar Magnús Kjartansson og Jakob Frímann ræddu útitónleika í Keflavík næstu helgi. Milla Ósk Magnúsdóttir, eiginkona Einars Þorsteinssonar, oddvita Framsóknar í Reykjavík, gefur öðrum mökum frambjóðenda góð ráð.
Innkastið eftir 5. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Almarr Ormarsson. Tveir rosalegir grannaslagir á laugardegi, Blikar fóru með þrjú stig heim með þyrlunni, ótrúlegur leikur í Kaplakrika, ÍA vann Stjörnuna og Víkingur vann Keflavík. Hermann Hreiðarsson tjáir sig um lætin í göngunum og Tryggvi Guðmundsson er í beinni frá Eyjum.
Innkastið eftir 3. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Víkingur vann stórleikinn, Valsmenn sannfærandi, baráttusigur Þórs, KR rúllaði yfir ÍBV, ÍA og KA er enn án sigurs og bitlausir Blikar gerðu markalaust jafntefli gegn Keflavík.
Rætt er við Guðrúnu Hrefnu Kolbeinsdóttur flugvirkja hjá Icelandair um hennar starf við skipulagningu á viðhaldi flugvéla sem hún hefur starfað við í á annan áratug. Guðrún Hrefna segir líka frá því hvernig það kom til að hún fór í flugvirkjanámið á sínum tíma til Danmerkur og hvernig hún fann sína fjöl þar þrátt fyrir að hafa aldrei í bernsku haft sérstakan áhuga á að gera við og laga hluti. Guðrún Hrefna er af Suðurnesjunum og er ein þeirra sem bjó í Grindavík þegar rýma þurfti bæinn vegna jarðhræringa og býr nú Keflavík. Áhugavert spjall við öfluga konu þar sem sjónum er beint að fjölbreyttum störfum flugvirkja og ekki síst skipulagi viðhalds á farþegaþotum í dag.
Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar rýna Strikerinn og Jónfrí í spennandi undanúrslit Bónus deildarinnar þar sem nóg er um að vera. Helsta spurningin sem brennur á mönnum er hvort Stjörnumenn geti staðið af sér storminn gegn firnasterku liði Tindastóls, sérstaklega þar sem þeir verða án lykilmannanna Ægis Þórs og Orra Gunnarssonar. Á sama tíma er velt upp hvort Valur mæti með aukna orku og sjálfstraust inn í einvígið gegn Grindavík eftir að hafa haft betur í krefjandi fimm leikja seríu gegn Keflavík, eða hvort þreytan fari að segja til sín gegn deildarmeisturunum.Umræðan snýst einnig að því hvort Grindavík geti haldið sínu striki og haldið áfram að vinna mikilvæga leiki eða hvort Stólarnir séu einfaldlega á þeim stað að þeir muni rúlla yfir alla mótstöðu á leið sinni að titlinum. Sérfræðingarnir fara yfir styrkleika Tindastóls sem virðist vera að toppa á réttum tíma en spá líka í spilin hjá þeim liðum sem eru komin í sumarfrí. Sérstök athygli er beind að Keflavík og hvaða breytingar þurfi að eiga sér stað í herbúðum þeirra í sumar til að liðið geti aftur blandað sér af alvöru í baráttuna um stóru titlana á næsta tímabili.Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
Full mönnuð Endalína kom saman og gerði upp oddaleik Vals og Keflavíkur, til hamingju Valur.Allt í boði Marion Herrafataverslun, Brons, Comfyballs, Hótel Kef og Viking Lite (Léttöl)
Innkastið í beinni á X977. Önnur umferð Bestu deildarinnar er gerð upp. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars í fiskabúrinu á Suðurlandsbraut. Mönnum var heitt í hamsi og dómararnir í sviðsljósinu. KR og Stjarnan eru með fullt hús en Keflavík og KA hafa ekki náð að koma sér á blað. Farið er yfir alla leikina og hitað upp fyrir næstu umferð sem verður spiluð á miðvikudag og fimmtudag.
Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar fara þeir Árni Jó, betur þekktur sem Strikerinn, og Jónfrí yfir dramatíkina í 8-liða úrslitum Bónus deildar karla. Miðpunktur umræðunnar er svakalegur sigur Stjörnunnar gegn KR, sem sendi Vesturbæinga beint í sumarfrí ásamt liðum ÍR og Njarðvíkur. Farið er yfir hvernig Garðbæingar sýndu mikla seiglu á meðan vonbrigðin í Vesturbænum eru rædd í þaula.Sjónum er einnig beint að öðrum einvígum þar sem yfirburðir Tindastóls vöktu verðskuldaða athygli og lýst er yfir ákveðinni vantrú á gengi Grindvíkinga. Þá er spennan í hámarki fyrir oddaleik Vals og Keflavíkur, en gestirnir rýna í það hvað muni skilja á milli liðanna í lokaleiknum um sæti í undanúrslitum.Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
Are you enjoying this? Are you not? Tell us what to do more of, and what you'd like to hear less of. The Reykjavík Grapevine's Iceland Roundup brings you the top news with a dash of local views. In this episode, Grapevine publisher Jón Trausti Sigurðarson is joined by Grapevine editor-in-chief Bart Cameron, and Grapevine friend and contributor Sindri Eldon to roundup the stories making headlines in the past week. On the docket this week are: Pop Legend Björgvin Halldórsson PassesBjörgvin Halldórsson passed on April 9th last week, a week short of his 75th birthday. Björgvin, or “Bo” may be a bit hard to explain to non-Icelandic audiences, but he started out as Iceland's first teen pop-star in the late 60s, and went on to have a prolific music career and series of hits, along with becoming a larger-than-life character in Icelandic life.Eleven “parties” in the running in Reykjavík's upcoming municipality elections. One “party” in the town of VopnafjörðurThe municipality elections will take place for all municipalities in Iceland, on 16 May. Excitement seems to vary between places, as eleven entities turned in a candidate list for the elections in Reykjavík, while one such list of candidates was sent in for the elections in Vopnafjörður, east Iceland.Icelandair Pilot On Last Flight, “Hedgehops” Over HometownLast Friday, an Icelandair passenger jet flying to Keflavík from Frankfurt, made a very low and unauthorized flyover over the Westman Islands. The pilot was celebrating his last flight, by flying low over his home town, and as is reported, much to the satisfaction of the passengers onboard, but to the chagrin of the residents of the Westman Islands. Man Wakes Up, Sees Notice Of Own Demise In NewspaperSölvi Guðmundarson woke up last Friday to the unpleasant experience of reading about his own death in Iceland's last remaining daily paper, Morgunblaðið.Government Announces Three Pronged Plan To Battle InflationIn short, the government announced that they'd be 1) lowering VAT on fuel from 25% to 11%, 2) more diligently watching changes in prices, 3) Spending 500 million ISK to increase access to EV charging stations. Opposition members were unsurprisingly unimpressed, but so were union leaders.New Report On The Town Of Grindavík, Advices Against Families With Children Moving To The Town. The report was met with little enthusiasm by some of the Support the show------------------------------------------------------------------------------------------SHOW SUPPORTSupport the Grapevine's reporting by becoming a member of our High Five Club: https://grapevine.is/high-five-club/Or donate to the Grapevine here:https://support.grapevine.isYou can also support the Grapevine by shopping in our online store:https://shop.grapevine.is------------------------------------------------------------------------------------------This is a Reykjavík Grapevine podcast.The Reykjavík Grapevine is a free alternative magazine in English published 18 times per year, biweekly during the spring and summer, and monthly during the autumn and winter. The magazine covers everything Iceland-related, with a special focus culture, music, food and travel. The Reykjavík Grapevine's goal is to serve as a trustworthy and reliable source of information for those living in Iceland, visiting Iceland or interested in Iceland. Thanks to our dedicated readership and excellent distribution network, the Reykjavík Grapevine is Iceland's most read English-language publication.You may not agree with what we write or publish, but at least it's not sponsored content.www.grapevine.is
Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke gera upp sunnudagsleikina í Bestu deildinni. Fyrstu umferð er lokið. Þórsarar byrja á sigri á Hlíðarenda, KR náði að landa dramatískum sigri gegn nýliðum Keflavíkur og Stjarnan gerði góða ferð til Akureyrar. Jafntefli í Eyjum og í Úlfarsárdal.
Rætt er við Arnar Friðriksson framkvæmdastjóra flugfélagsins Norlandair um starfsemi félagins sem er með höfuðstöðvar sínar á Akureyri. Félagið er með 7 flugvélar í rekstri og flug félagsins er gríðarlega mikilvægt ekki bara fyrir Akureyringa heldur landsmenn alla. Félagið er með sjúkraflugsvakt allan sólarhringinn allt árið um kring, sinnir áætlunarflugi innanlands og síðast en ekki síst sinnir það fjölbreyttum leiguflugsverkefnum með Twin Otter flugvélum í krefjandi aðstæðum á Grænlandi. Arnar ræðir vítt og breitt um um flugmálin, innanlandsflugið, útboðsmálin og rekstrarumhverfi fyrir lítið flugfélag eins og Norlandair. Einnig er farið yfir þær aðstæður sem sköpuðust 26. febrúar síðastliðinn þegar margar þotur lentu á Reykjavíkurflugvelli og fyrir vikið varð völlurinn ekki nothæfur um tíma fyrir sjúkra- og áætlunarflug. Áhugavert spjall þar sem hlustendur fá örlitla innsýn í rekstur Norlandair. Viðtalið var tekið upp í lok mars inni í F-27 flugvél Landhelgisgæslunnar á Flugsafni Íslands á Akureyri.
Það styttist óðfluga í að Besta deildin fari af stað en 22 dagar eru til stefnu. Nýliðum Keflavíkur er spáð neðsta sætinu í spá Fótbolta.net. Þeir Egill Darri Einarsson og Helgi Bergmann Hermannsson, stuðningsmenn Keflavíkur, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu um komandi tímabil hjá sínum mönnum.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum og Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, ræddu orkumál á köldum svæðum. Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur ræddi kvikusöfnun á Reykjanesinu við okkur. Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála á Keflavíkurflugvelli, ræddi umferð um völlinn. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, brást við stýrivaxtahækkun Seðlabankans. Vala Guðnadóttir og Þrándur Ingvarsson mættu frá Söngskólanum í Reykjavík og sögðu okkur frá Öskubusku. Guðrún Elsa Giljan Kristjánsdóttir frá Verk og vit og Viktor Sigurjónsson frá Steypustöðinni settust niður með okkur.
Í þættinum er fjallað um atburðina þann 26. febrúar þegar veðurskilyrði í Keflavík breyttust undraskjótt sem olli því að margar farþegaþotur og fleiri flugvélar urðu frá að hverfa og neyddust til að lenda á sínum varaflugvöllum í Reykjavík og á Akureyri og á Egilsstöðum. Varaflugvellirnir sönnuðu svo sannarlega gildi sitt þennan dag og á allt starfsfólk í fluginu sem að kom mikið hrós skilið fyrir fagleg vinnubrögð á öllum stigum. Í þættinum er rætt við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing um veðrið sem skall á suðvesturhorni landsins þennan dag, um veðurspárnar og hvenrig megi mögulega bæta þær. Ásgeir Gunnar Stefánsson aðstoðar-yfirflugstjóri Icelandair fer yfir viðbrögð félagsins þegar 15 farþegaþotur þess urðu frá að hverfa í Keflavík og loks er rætt við Sigrúnu Björk Jakobsdóttur framkvæmdastjóra innanlandsflugvalla ISAVIA um viðbrögð á varaflugvöllunum og hvað læra megi af þessum viðburði.
Sjötti maðurinn kom saman og ræddi stöðuna í efstu tveimur deildum karla.Til umræðu er síðasta og næsta umferð í Bónus deild karla, kraftröðun fyrir deildina og margt, margt fleira.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Aron Nökkvi Ólafsson einn þriggja eigenda hárgreiðslustofunnar Studio 109 við Rangársel og Pétur Didriksen hjá reykvorn.is Elías Blöndal Guðjónsson annar eigenda Santé og Lára G Sigurðardóttir læknir og doktor í lýðheilsuvísindum ræddu við okkur um áfengissölu Símatími Þorvaldur Þórðarsson eldfjallafræðingur um Eldey og nálægðin við Keflavíkurflugvöll Jónas Atli Gunnarsson yfirhagfræðingur hjá HMS um verktakalánin Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins um hvernig má koma til móts við barnafjölskyldur í skattalegu tilliti Beta Reynis um lækningarmátt næringarinnar
Vilhjálmur Árnason og Þorsteinn Víglundsson fara yfir fréttir vikunnar á bóndadegi. Við ræðum um nýjustu vendingar í baráttunni um Grænland, væntanlegt prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík, ástæðu þess að Þorsteinn sagði skilið við Viðreisn og almennt um stjórnarsamstarfið, þróun á fylgi flokkanna, hvernig Össur Skarphéðinsson skólaði Sigmar Guðmundsson til, stöðuna í efnahagsmálum, framboð Þorsteins til formennsku í Samtökum iðnaðarins, framboð Vilhjálms í oddvitasæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Keflavík og margt fleira.
Aukasendingin fékk strikerinn Árna Jó í kaffi til að fara yfir fréttir vikunnar, síðustu umferð í Bónus deild karla, VÍS bikarkeppnina (þó ekki leik Keflavíkur og Vals), áhugaverða tölfræði og margt, margt fleira.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
Aukasendingin fékk góðvin þáttarins Mumma Jones til þess að fara yfir sviðið í Bónus deild karla.Til umræðu eru fréttir vikunnar, 20 vinsælustu fréttir ársins á Körfunni, síðasta umferð Bónus deildar karla, hvernig liðin koma undan hátíðum, sigurganga Vals, hvaða lið eru líklegust til að gera atlögu í vor, Remy Martin til Keflavíkur, breytingar á Skaganum og margt fleira. Þá er farið yfir lista af leikmönnum sem áttu góð tímabil eða úrslitakeppni á Íslandi áður en þeir týndust, eða sáust ekki aftur í íslenskum körfubolta.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
Rætt er við Sveinbjörn Indriðason forstjóra ISAVIA um reksturinn á Keflavíkurflugvelli í tilefni af nýrri farþegaspá fyrir árið 2026. Spáin gerir ráð fyrir töluverðri fækkun farþega um völlinn og munar þar mestu um 15% færri tengifarþega. Sveinbjörn segir að þessi fækkun muni hægja á framkvæmdum á vellinum, tekjurnar minnki á sama tíma og kostnaður hækkar sem hefur áhrif á afkomuna. Hann leggur samt áherslu á að ISAVIA horfi í gegnum tímabundna niðursveiflu, haldi uppi góðri þjónustu og allt verði tilbúið til að grípa tækifærin þegar umferð og farþegum fjölgar á ný um tengimiðstöðina. Forstjórinn ræðir einnig málefni Reykjavíkurflugvallar, afturvirka reglugerð innviðaráðherra eftir fall Play, samningamál við flugumferðarstjóra og margt fleira. Áhugavert spjall við forstjóra ISAVIA- fyrirtækis sem er í lykilhlutverki í flugmálum okkar Íslendinga.
In this episode, we speak with Nanna Baldvinsdottir, co-founder of IðunnH2, about how Iceland's unique energy system could turn the country into a green fuel bridge between Europe and North America. A veteran of Iceland's power sector, Nanna has spent two decades working in renewables before turning to hydrogen and e-fuels development.Nanna shares how IðunnH2 is developing a 300 MW, ~70,000 tonne-per-year e-SAF project near Keflavík International Airport, designed first to decarbonise Icelandic aviation and only then supply the wider world via book-and-claim. She explains why social licence for new wind power, local energy security, and predictable permitting make Iceland a testbed for scaling e-fuels where other regions are still stuck on the drawing board.Nanna discusses:Why SAF, not hydrogen export, came out on top in IðunnH2's feasibility work – and how switching mid-study unlocked a path to true commercial scale rather than niche pilot projects.The Helguvík project: locating a commercial-scale e-kerosene facility a stone's throw from Iceland's main international airport, using 100% renewable power contracted via long-term PPAs.Book-and-claim as a strategic tool: using it to serve committed early partners like Luxaviation and other motivated buyers outside Iceland, while keeping the bulk of production for Icelandic decarbonisation.Moving beyond “Jet A price parity”: why chasing price parity with fossil jet fuel misses the point since jet fuel is heavily subsidised and untaxed, and how 15-year price stability can be more valuable to airlines than simply being the cheapest.Her role as a “system builder”: why e-fuel plants are far more complex than traditional power projects, and what it takes to keep partners aligned on timelines, risk, margins, and ambition.The wider Icelandic hydrogen roadmap: how aviation, maritime, and road transport could all draw on the same hydrogen and e-fuels backbone as the market matures.Learn more about the innovators who are navigating the industry's challenges to make sustainable aviation a reality, in our new book “Sustainability in the Air: Volume 2.” Click here to learn more.Feel free to reach out via email to podcast@simpliflying.com. For more content on sustainable aviation, visit our website green.simpliflying.com and join the movement. It's about time.Links & more:IðunnH2Why Iceland? - IðunnH2SAF – IðunnH2Hydrogen and E-fuels Roadmap for IcelandNanna Baldvinsdottir - LinkedInEU ReFuelEU Aviation Mandate
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála hjá Keflavíkurflugvelli, ræddi farþegaspá fyrir næsta ár við okkur. Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálasálfræði við Háskóla Íslands, ræddi við okkur um bræðibeitu, orð ársins hjá Oxford-orðabókinni. Stefanía Benónísdóttir, rannsóknarlektor og faglegur leiðtogi hins nýja Gervigreindarseturs Háskóla Íslands og Hafsteinn Einarsson, lektor í tölvunarfræði, ræddu nýtt Gervigreindarsetur. Kristinn Aron Hjartarson, þjálfari og fyrrverandi knattspyrnumaður, ræddi við okkur um spilafíkn. Hrefna Hallgrímsdóttir kynnti okkur fyrir nýju spili - Töfraspilið.
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Á grunni Kanaútvarpsins komu gullaldarár Keflavíkur í knattspyrnu og lífinu þar sem þeir mættu Real Madrid og Hafsteinn Guðmundsson, Herra Keflavík, skipulagði magnaða tveggja vikna ferð til Costa del Sol með viðkomu á Santiago Bernabeau.
Gerð hefur verið orkuspá fyrir Ísland af Landsneti, Raforkueftirlitinu og Umhverfis- og orkustofnun. Þegar hún var kynnt var töluvert rætt um takmarkanir í flutningsgetu raforku og jafnvel þótt meira verði virkjað er ekki tryggt að hægt sé að koma orku til notenda. Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets segir að gera þurfi gangskör að því að bæta flutningskerfið, Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur lögreglustjórans á Suðurnesjum hefur áhyggjur af börnum sem gæti þurft að vista í lokaðri brottfararstöð við Keflavíkurflugvöll og telur að hálfur milljarður á ári dugi ekki til að reka hana. Hún segir það hins vegar mannúðlegra en að láta fólk hafast við á flugvellinum í marga daga eða sitja í gæsluvarðhaldi.
Rætt er við bræðurna Snorra og Jón Karl Snorrasyni um landssöfnun sem nú er í gangi til að bjarga flugvélaflaki þristsins Gunnafaxa af Sólheimasandi. Þeir bræður hafa á undanförnum vikum unnið að verkefninu ásamt Ólafi Eggertssyni bónda á Þorvaldseyri. Gunnfaxi var í eigu Þristavinafélagsins og hafði verið í geymslu í skýli á Keflavíkurflugvelli um árabil. Eigendafélag Sólheimasands keypti vélina fyrr á þessu ári til að koma í stað þeirrar sem brotlenti á Sandinum fyrir rúmlega hálfri öld og hefur verið mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Þeir Snorri og Jón Karl segjast hóflega bjartsýnir á að takist að safna nægu fé til að koma vélinni í skjól á Skógum en biðla til áhugasamra, bæði einstaklinga og fyrirtækja að taka þátt í verkefninu. Hægt er að leggja málefninu lið með því að leggja inn á söfnunarreikning Vina Gunnfaxa: kt: 621025-1710 og reikningsnúmer: 0515-26-989860.
Ingi Garðar Erlendsson básúnuleikari, tónskáld, kennari og Reykvíkingur ársins, brennur fyrir tónlistarkennslu. Sjálfum var honum rétt básúna í tónlistarskóla Keflavíkur þegar hann var tíu ára, hljóðfæri sem hefur fylgt honum síðan. Hann lærði kennslu, tónsmíðar og hljóðfræði í Reykjavík og Den Haag, og hljóðfæraviðgerðir í Wales. Ingi Garðar stofnaði ásamt félögum sínum Slátur, samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík, og hefur alla tíð verið hluti af hinni tilraunakenndu jaðarsenu þó hann hafi komið mjög víða við í íslensku tónlistarlífi, bæði sem höfundur og útsetjari. Nýverið hlaut hann íslensku menntaverðlaunin, fyrir afar árangursríkt starf með skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar, en sem stjórnandi hljómsveitarinnar hefur hann komið nemendum sínum í allskyns ólík verkefni tengd hljómsveitum og leikhúsum. Í Víðsjá dagsins segir Ingi Garðar frá sinni eigin leið í tónlistinni og óbifandi trú á skapandi mætti og samfélagslegu afli hennar.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Garðar Atli Jóhannsson, ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Verkþekkingu, ræddi við okkur vítt og breitt um byggingariðnaðinn. Heiðbrá Ólafsdóttir, kúabóndi og situr í stjórn Miðflokksins, ræddi við okkur um hrámjólk. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins ræddu blikur á lofti í íslensku samfélagi. Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, skoðaði samgöngur til og frá Keflavíkurflugvelli. Jón Þór Víglundsson frá Landsbjörgu ræddi Neyðarkallinn sem fer í sölu í dag. Helga Arnardóttir fór yfir nýja þáttinn sinn, Blóðbönd.
Öll viðtölin úr þætti dagsins: Steinþór Jónsson hótelstjóri á Hótel Keflavík leggur til endurskoðun fánalaga svo hægt verði að flagga miklu oftar Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra um Ljósið Símatími Lilja Sigrún Jónsdóttir formaður íbúasamtaka Laugardals um Sundabraut Sigurður G Guðjónsson hæstarréttarlögmaður um dóm Hæstarréttar í vaxtamálinu Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður XD og fulltrúi Íslands á þingi NATO Fróði Steingrímsson formaður stjórnar félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði um aðgerðir Hildur Ýr Ísberg íslensku- og bókmenntafræðingur og kennari við MH um Laxness
Laun handhafa forsetavalds og ferðakostnaður fyrstu tólf mánuði Höllu Tómasdóttur í forsetaembætti námu yfir þrjátíu milljónum króna. Fyrirhugað er að breyta fyrirkomulagi handhafalaunanna. Framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands segir löngu tímabært að Akureyrarflugvöllur verði viðurkenndur sem önnur gátt inn í landið til jafns við Keflavík. Hún vísar þar meðal annars til Grænlands þar sem brátt verða þrír nýir alþjóðaflugvellir. Þá glíma Færeyingar við sömu árstíðasveifluna og Ísland og vilja fjölga ferðamönnum yfir veturinn.
Aðeins einn leikur er eftir af Lengjudeildinni, sjálfur úrslitaleikur umspilsins þar sem Keflavík og HK munu mætast á Laugardalsvelli. Haraldur Örn og Sverrir Örn fóru vel yfir sviðið ásam Sigurði Höskuldssyni þjálfara Þórs. Fyrri hlutið þáttarins var einmitt alfarið tileinkað Þór og Sigurður fór vel yfir tímabilið.
Þórsarar unnu úrslitaleikinn gegn Þrótturum og vinna því Lengjudeildina. Keflavík vann Selfoss og felldi þá niður í 2. deildina og um leið fóru bakdyraleiðina upp í umspilið. ÍR missti af umspilinu í loka leik þar sem þeir töpuðu fyrir Fylki.Stefán Marteinn Ólafsson mætti aftur að stýra þættinum og með honum voru Sverrir Örn og Haraldur Örn.
Rætt er við Önnu Björk Bjarnadóttur framkvæmdastjóra þjónustu og rekstrar ISAVIA á Keflavíkurflugvelli en undir hennar svið falla mörg fjölbreytt verkefni á flugvellinum. Má þar nefna hreinsun og viðhald flugbrauta, turninn í Keflavík, öryggisleit, flugvernd og margs konar þjónusta við farþega. Anna Björk fer í þættinum vítt og breitt yfir verkefnin í Keflavík og hvernig ISAVIA hefur breytt sinni nálgun á síðustu árum í allri þjónustu við flugfélögin og farþega, en á sama tíma að tekist á við áskoranir sem fylgja stöðugum vexti í flugumferð um völlinn.
An Icelandic Cruise Episode 63: Show Notes In mild protest against our usual summer holiday trend, Tom decided to go on a big trip, and today, we unpack everything he experienced on his Icelandic cruise aboard the Holland America Rotterdam. We begin with Tom's transatlantic flight in economy (the horror!) before learning about local transport options when traveling from Amsterdam to Rotterdam. Tom goes on to deliver an overview of the Holland America cruise line as we hear about the on-board food quality, housekeeping and safety protocols, how they live entertainment measures up against Royal Caribbean's benchmark, and everything you need to know about the Holland America casino. We also unpack multiple chance encounters Tom had with familiar faces, as well as his highlights from the ports and tourist attractions he visited. To end, Tom details his journey home on a low-cost carrier airline, and Trevor offers a sneak peek into his upcoming cruise on one of the Mediterranean's largest vessels. Key Points From This Episode: [00:00] How Tom's summer trip began with a transatlantic flight in economy to Amsterdam. [06:43] Getting to port: How he traveled from Amsterdam to Rotterdam. [15:16] An overview of the Holland America Rotterdam. [16:18] Food quality on board, how the main dining room works, and housekeeping protocols. [20:18] How the live entertainment measures up against the Royal Caribbean benchmark. [23:01] Chance encounters with familiar faces, sharing points and rewards, and gift cards. [29:21] Highlights of the Holland America casino. [33:48] The ports and attractions Tom visited, starting with Norway and ending in Iceland. [45:08] Departing from Keflavík International Airport on a low-cost carrier. [48:40] Tom's final thoughts on Holland America, and a peek at Trevor's upcoming cruise. Quotes: “For a six-hour flight across the Atlantic, the economy experience was not bad at all. It was very reasonable and pretty comfortable. Lately, all my transatlantic flights have been economy, one stop over the Atlantic, and they've been working out so far.” — @TktweetsKim [05:18] “The quality of food was very high, and we only did complimentary food; we didn't go to any specialty restaurants.” — @TktweetsKim [16:48] “One of the things that always separates a cruise experience from almost any other vacation experience [is] the ability to have a meal at the same time, with the same waiter, [and] at the same table. You get this feeling like you're a local by the second or third day.” — @tmount [17:51] “The live music was good, and if you're a music lover, you'll probably find something to enjoy. [However], if you're looking for an ice show or acrobatics or a Broadway musical, I don't think you're going to find it on Holland America.” — @TktweetsKim [21:58] “I'm so glad I didn't have to buy too much in Iceland because everything is expensive there.” — @TktweetsKim [42:21] Links Mentioned in Today's Episode: Holland America Rotterdam KLM Royal Dutch Airlines Winmatch365 Chase Sapphire Airport Lounges Hyatt Place Amsterdam Airport JetBlue Hurdy Gurdy Travel Podcast Princess Cruises Norwegian Fjords Cruises Celebrity Cruises Carnival Cruise Line Royal Caribbean Cruises Episode 33: Cruise Loyalty with Traveling Well for Less' Debra Schroeder Port of Rotterdam Ålesund City & Surroundings Akureyri, Iceland | Arctic Wonders on a European Cruise Mývatn Nature Baths Goðafoss Waterfall Ísafjörður, Iceland | Wild Westfjords on an Iceland Cruise Keflavík International Airport Icelandair WOW Air The Ritz-Carlton Thomas Kim on X Trevor Mountcastle on X The Milenomics Podcast Network
Rætt er við Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra og ráðherra flugmála á Íslandi. Farið er vítt og breitt yfir sviðið um málefni flugsins og m.a. rætt um varaflugvallagjaldið og uppbyggingu flugvallakerfisins, málefni innanlandsflugsins og Reykjavíkurflugvallar, ISAVIA og uppbyggingu í Keflavík, menntamál flugsins og almennt um stefnu stjórnvalda í þessari stóru atvinnugrein okkar. Eyjólfur hefur vakið athygli fyrir skelegga framgöngu fyrir hagsmunum flugsins og talað opinskátt og af skynsemi þegar kemur að málefnum Reykjavíkurflugvallar og fleira. Hann vill efla Ísland sem flugþjóð allt frá grasrótinni og upp í alþjóðaflugið og tryggja samkeppnishæfni íslenskra flugfélaga.
Hear about travel to Northern Iceland as the Amateur Traveler talks to Monika from PlanPackExplore.com about her recent trip through the center of Iceland to the less-visited northern part of the country. Why should you visit Northern Iceland? Monika says, "I'm a self-proclaimed Iceland lover. I went there for the first time in 2022, by accident, which is a long story, but we ended up in Iceland, and literally after six days, started planning the second trip. Then we went back. I went back the third time with my dad, trying to show him the country, never planning trip number four. I cannot get enough of Iceland. So I was pretty familiar with Iceland by now, and I'm happy to share what I know." Monika's route begins the moment you land at Keflavík International Airport outside of Reykjavík. ... https://amateurtraveler.com/travel-to-northern-iceland/ Learn more about your ad choices. Visit megaphone.fm/adchoices
Are you enjoying this? Are you not? Tell us what to do more of, and what you'd like to hear less of. The Reykjavík Grapevine's Iceland Roundup brings you the top news with a healthy dash of local views. In this episode, Grapevine publisher Jón Trausti Sigurðarson is joined by Heimildin journalist Aðalsteinn Kjartansson, and Grapevine friend and contributor Sindri Eldon to roundup the stories making headlines in recent weeks. On the docket this week are: ✨ Two French tourists were found dead at a hotel in Reykjavík last Saturday. A third person, a woman, has been detained. Police suspect a double homicide. The woman detained, along with the two victims are reported to have had stab wounds. Investigation is ongoin.✨Icelandic low fair airline Play Air, may soon move its operations abroad following a takeover bid by some of the current management of the company.✨A man who had been missing on Esja on last Monday and Tuesday was found dead on the slopes of Kistufell, a part of Mt. Esja. He was discovered around 16:00 on Tuesday.✨The orca that stranded earlier this week in Grafarvogur, Reykjavík, was euthanised. After swimming back out to sea on Wednesday, it stranded again on Friday at Kjalarnes. According to MAST's Chief Veterinary Officer, the decision was made with animal welfare as the guiding principle.✨An old Douglas Dakota aircraft, purchased this March by the landowners of Sólheimasandur from the Icelandic DC-3 Friends Association, has been transported from Keflavík Airport to rural South Iceland. The plan is to place the fuselage near the famous US Navy plane wreck, which has become one of the South Coast's most visited tourist attractions.✨ A potential disaster was narrowly avoided when a training aircraft lost its nose wheel over Austurvöllur while approaching Reykjavík Airport. The wheel landed in front of the Alþingi building. No one was injured, and the plane touched down safely at Reykjavík Airport.------------------------------------------------------------------------------------------SHOW SUPPORTSupport the Grapevine's reporting by becoming a member of our High Five Club: https://steadyhq.com/en/rvkgrapevine/You can also support the Grapevine by shopping in our online store: https://shop.grapevine.is------------------------------------------------------------------------------------------ This is a Reykjavík Grapevine podcast.The Reykjavík Grapevine is a free alternative magazine in English published 18 times per year, biweekly during the spring and summer, and monthly during the autumn and winter. The magazine covers everything Iceland-related, with a special focus culture, music, food and travel. The Reykjavík Grapevine's goal is to serve as a trustworthy and reliable source of information for those living in Iceland, visiting Iceland or interested in Iceland. Thanks to our dedicated readership and excellent distribution network, the Reykjavík Grapevine is Iceland's most read English-language publication. You may not agree with what we write or publish, but at least it's not sponsored content.www.grapevine.is
Are you enjoying this? Are you not? Tell us what to do more of, and what you'd like to hear less of. The Reykjavík Grapevine's Iceland Roundup brings you the top news with a healthy dash of local views. In this episode, Grapevine publisher Jón Trausti Sigurðarson is joined by Heimildin editor Aðalsteinn Kjartansson, and Grapevine friend and contributor Sindri Eldon to roundup the stories making headlines in recent weeks. On the docket this week are: ✨We talk about a search for a lost person on Mt. Esja, a search which started on Monday, June 9th, and was still ongoing when this show aired.✨ We also discuss last weeks fatality at Brúará, a river mid way between the town of Laugarvatn and Geysir hot springs on the Gold Circle. ✨The city of Reykjavík has announced the return of the ferris wheel that sat on the city's harbour last summer to mixed reviews. We discuss those mixed reviews and debate the location of the wheel.. ✨ A law was passed last week forcing airlines flying to Iceland to hand their passenger lists over to the Icelandic authorities. Apparently this had an immediate effect as members of the well known crime syndicate (or biker gang) Banditos were turned away in Keflavík Airport over the weekend.✨The Grindavík SARS Þorbjörn announced they would be selling red caps with saying "Make Grindavík Great Again", then quickly thought better of it. We discuss the fact that at least Grindavík has built a wall, of sorts.✨Also, don't drink the water in the Blue LagoonAnd finally, here is a list to The Reykjavík Grapevine's summer playlist, as promised:https://open.spotify.com/playlist/5Z0aHSg3SmBYpNuCMCacdy?si=e198fc8ba73c427a------------------------------------------------------------------------------------------SHOW SUPPORTSupport the Grapevine's reporting by becoming a member of our High Five Club: https://steadyhq.com/en/rvkgrapevine/You can also support the Grapevine by shopping in our online store: https://shop.grapevine.is------------------------------------------------------------------------------------------ This is a Reykjavík Grapevine podcast.The Reykjavík Grapevine is a free alternative magazine in English published 18 times per year, biweekly during the spring and summer, and monthly during the autumn and winter. The magazine covers everything Iceland-related, with a special focus culture, music, food and travel. The Reykjavík Grapevine's goal is to serve as a trustworthy and reliable source of information for those living in Iceland, visiting Iceland or interested in Iceland. Thanks to our dedicated readership and excellent distribution network, the Reykjavík Grapevine is Iceland's most read English-language publication. You may not agree with what we write or publish, but at least it's not sponsored content.www.grapevine.is
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Smalinn, einn af okkar alvirtustu Pepsimönnum, mætti og fór yfir langan og farsælan feril sinn hjá Völsungi, smá í Þór, Keflavík, Bryne, KR, SonderjyskE, Stjörnunni og FH og minntist á að hann hefði spilað með Fjölni.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 9. maí. Dregið í fyrstu umferð Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda og Baldvin Már Borgarsson ræðir um Lengjudeildina. Gestir þáttarins eru Halldór Snær Georgsson og júlíus Mar Júlíusson sem gengu í raðir KR frá Fjölni fyrir yfirstandandandi tímabil. Rýnt er í komandi umferð í Bestu deildinni.
Í þættinum er rætt við Tómas Ingason framkvæmdastjóra tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair. Nú fer í hönd umfangsmesta áætlun í sögu félagsins og markmiðið er að draga úr árstíðarsveiflunni og auka flugið utan háannatíma. Tómas fer hér m.a. yfir þá breytingu sem er að verða á félaginu með nýjum og langdrægari flugflota, samkeppnina við bæði stóru flugfélögin yfir Atlantshafið og ekki síður við lággjaldaflugfélögin sem fljúga til og frá landinu. Tómas segir að stöðugt sé unnið að þróun á áætlun félagsins bæði til skemmri og ekki síður lengri tíma. Þar er horft til þess hvernig best megi tengja fjarlægari áfangastaði inn í leiðakerfið og efla Keflavíkurflugvöll sem öfluga tengimiðstöð í samvinnu við ISAVIA.
Endalínan leitaði í heimahagana, til þjálfara Keflavíkur, Sigurðar Ingimundar eftir að 8 liða úrslitin kláruðust þetta árið. Hann fór yfir leiki vikunnar, ásamt því að fara með okkur í gegnum hlutina eftir að hann tók við karlaliði keflavíkur.Allt saman í samstarfi við Brons!, Soho, KEF Spa, Viking Lite (Léttöl) og Comfyballs!
Rætt er við Einar Örn Ólafsson forstjóra lággjaldaflugfélagsins PLAY í tilefni af ársuppgjöri félagsins fyrir 2024. Tap af rekstrinum var rúmir 4 milljarðar króna á árinu en að teknu tilliti til niðurfærslu á yfirfæranlegu skattalegu tapi nemur heildartapið um 9 milljörðum. Forstjórinn er samt brattur fyrir komandi mánuði en segir það taka tíma að breyta kúrsinum á félaginu eins og boðað hefur verið. Ætlunin er að færa 3 vélar félagsins til dótturfélags Play á Möltu sem leigðar verði í arðvænleg verkefni. Um leið verði fókus á arðbærar flugleiðir til og frá Keflavík og minni áhersla á tengiflug til Bandaríkjanna.
Are you enjoying this? Are you not? Tell us what to do more of, and what you'd like to hear less of. The Reykjavík Grapevine's Iceland Roundup brings you the top news with a healthy dash of local views. In this episode, Grapevine publisher Jón Trausti Sigurðarson is joined by Heimildin journalist Aðalsteinn Kjartansson, and Grapevine friend and contributor Sindri Eldon to roundup the stories making headlines in recent weeks.On the docket this week are:✨ Avalanches in the Eastfjords✨ The first birth in over three decades in the town of Seyðisfjörður.✨ 2024 was the coldest year of the century in Iceland, so far.✨ A death of a mink under suspicious circumstances in downtown Reykjavík✨ Former Icelandic PM defence of Elon Musk's recent hand gestures.✨ A curious case of a masked man repeatedly defecating on a car.✨ The missing Drug Detection dog in Keflavík International Airport.------------------------------------------------------------------------------------------SHOW SUPPORTSupport the Grapevine's reporting by becoming a member of our High Five Club: https://steadyhq.com/en/rvkgrapevine/You can also support the Grapevine by shopping in our online store: https://shop.grapevine.is------------------------------------------------------------------------------------------This is a Reykjavík Grapevine podcast.The Reykjavík Grapevine is a free alternative magazine in English published 18 times per year, biweekly during the spring and summer, and monthly during the autumn and winter. The magazine covers everything Iceland-related, with a special focus culture, music, food and travel. The Reykjavík Grapevine's goal is to serve as a trustworthy and reliable source of information for those living in Iceland, visiting Iceland or interested in Iceland. Thanks to our dedicated readership and excellent distribution network, the Reykjavík Grapevine is Iceland's most read English-language publication. You may not agree with what we write or publish, but at least it's not sponsored content.www.grapevine.is
Rætt er við Guðmund Tómas Sigurðsson nýráðinn flugrekstrarstjóra Icelandair um ýmsar stórar áskoranir framundan í rekstrinum. Endurnýjun flugflota félagsins er hafin og nú þarf að ákveða hvort áfram eigi að reka breiðþotur eða eingöngu mjóþotur í framtíðarleiðarkerfi Icelandair. Guðmundur Tómas fer yfir óásættanlega stöðu á Reykjavíkurflugvelli og útskýrir hvers vegna hindranir í útreiknuðum flugferlum geta aftrað því að flugfélög geti notað völlinn á öruggan og eðlilegan máta. Guðmundur segist bjartsýnn á að Icelandair nái markmiðum í rekstrinum og geti vaxið og dafnað á næstu árum með Keflavík sem öfluga tengimiðstöð.