POPULARITY
Evrópumótið í fótbolta hefst núna á föstudaginn með opnunarleik Þýskalands og Skotlands. Það er afar spennandi mót framundan og mörg lið sigurstrangleg. Guðmundur Aðalsteinn fékk nýverið Gunnar Birgisson og Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamenn á RÚV, í heimsókn til að hita upp fyrir mótið. Farið var í gegnum alla riðlana og liðin skoðuð. Skemmtileg yfirferð svona stuttu fyrir mót.
Það var boðið upp á ruglaða skemmtun í ensku úrvalsdeildinni um helgina, frábæra fótboltaleiki. Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Arnar Laufdal og Baldvin Már Borgarsson, erkifjendur úr 3. deild karla, í heimsókn í dag til þess að ræða um leiki helgarinnar. Farið var yfir ótrúlegan dóm í leik Manchester City og Tottenham, hugmyndafræði Ange og Kompany, magnaða endurkomu Liverpool, ömurlegt United og margt fleira.
Það var skemmtileg helgi í ensku úrvalsdeildinni, og þá var sunnudagurinn sérstaklega áhugaverður. Hæhæ tvíeykið, Helgi Jean Claessen og Hjálmar Örn Jóhannsson, gera upp helgina og þá aðallega stórleik Liverpool og Tottenham en þeir eru stuðningsmenn þessara tveggja liða; Helgi heldur með Liverpool og Hjálmar með Tottenham. Skemmtileg saga af Grétari Rafni Steinssyni, sem er núna háttsettur hjá Tottenham, er á meðal þess sem kemur við sögu í þessum fjöruga þætti.
Skemmtileg og óvenjuleg grínmynd um hjón sem langar að eignast barn og taka upp á því að nappa einu af ríkum hjónum. Ungi drengurinn sem þau ræna heillar alla upp úr skónum, og keppast því enn fleiri aðilar um umsjá hans.

Góðan daginn, fimmtudaginn! Haldiði ekki bara að það sé kominn einn þáttur í viðbót! Alltaf jafn merkilegt. Þáttur dagsins er þemaþáttur, þ.e.a.s. við skoðum aftur íslensk mál sem tekin eru fyrir í þáttunum Ummerki. Bylgja segir frá máli þar sem kona virðist mögulega kannski, líklegast, hafa myrt manninn sinn en Unnur hinsvegar tekur fyrir almenna umfjöllun á bankaránum á Íslandi. Enginn myrtur hjá henni í dag! Skemmtileg tilbreyting. Í boði Artasan, Stöð 2 plús og Ristorante.
Gestur vikunnar er mannfræðingurinn Jónína Einarsdóttir, deildarforseti félags-, mannfræði- og þjóðfræðideildar Háskóla Íslands og prófessor í mannfræði við Háskóla íslands. Jónína lærði þróunarfræði í Uppsalaháskóla og kláraði BA próf og doktorspróf í mannfræði frá Stokkhólmsháskóla. Jónína hefur í gegnum starfsferil sinn lagt mikla áherslu á þróunarstarf, börn og fjölskyldur. Í þessum þætti segir Jónína okkur frá leið sinni í gegnum mannfræðinámið, störfum sínum í Gíneu-Bissaú og rannsóknum sínum hérlendis á börnum, meðal annars siðnum að senda börn í sveit.
Eldklár lögreglukona í miðríkjum Bandaríkjanna fær morðgátu upp í hendurnar þegar hún kemur að undarlegu bílslysi í vegarkanti. Rannsókn málsins leiðir hana til bílasala sem virðist við fyrstu sýn ekki hafa allt mjöl hreint í sínu pokahorni. Skemmtileg ræma um morðmál og ótrúlegar afleiðingar.

Hilda kemur til okkar og segir okkur frá sinni fæðingarreynslu en hún á 2 að baki. Hún átti í fyrra skiptið á Landspítalanum þar sem hún þurfti sýklalyf í æð í fæðingunni og ákvað svo að eiga heima í seinna skiptið. Í báðum fæðingunum notaði hún haföndun til að koma sér í gegnum verkina. Skemmtileg frásögn frá magnaðri móður.
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson tóku fyrir nokkur umræðuefni fyrir Pepsi Max-deild karla í sumar. Hvernig verða sögulínur deildarinnar? Skemmtileg umræða um íslenska boltann. Daníel Geir Moritz, eigandi ÍBV, var einnig á línunni.
Í átjánda þætti Koma svo! er rætt við Gísla Ólafsson, uppeldis- og menntunarfræðing og forstöðumann í frístundaheimilinu Glaðheimum. Er rangt að vera fáránlega lengi að klára nám? Hvað er það við krakka sem gerir þau fáránlega skemmtileg fyrirbæri? Hvernig er að vera í samsettri fjölskyldu? Er alltaf tekið tillit til barnanna? Er sameiginlegt dagatal lífsnauðsyn?
Skemmtileg flugferð þessa vikuna, Freysafésið fékk að finna fyrir því eftir að finna veikan punkt á strákunum. Ný facebook síða og gjafaleikur. Ekki missa af þessari veislu.
í Gestaboð mættu leikararnir Björn Thors, Ebba Katrin Finnsdóttir og leikstjórinn Una Þorleifsdóttir og ræddu Atómstöðina, Búa og Uglu. Skemmtileg umræða skapaðist um fótbolta og leiklist.

Þeir Arnaldur, Sigurbjörn og Jakob leikmenn KÁ fara yfir síðustu leiki mfl. karla og kvenna, Mikið slúðrað, Vilko vöfflur og Heimir Hallgríms. Wilfred Bony og Lúxor leikmenn leikjana valdir. Skemmtileg hlustun með kaffibollanum og Vilko Vöfflum.
Ekkert lið er með fullt hús þegar tvær umferðir eru að baki í Pepsi-Max deildinni. Skemmtileg byrjun á mótinu. Íslenska Innkastið er fullskipað að þessu sinni. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og svo er mættur, í boði skattgreiðenda, Gunnar Birgisson. 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar er gerð upp. Færeyskt fíaskó í Laugardal, dramatík og dómaramistök í Árbæ, vond frammistaða Íslandsmeistara á Akureyri, furðuleg ummæli þjálfara ÍBV halda áfram, ósannfærandi Stjörnumenn, HK-ingar eru komnir á blað, Gunni giskar og Inkasso-hornið.
Í dag fá fulltrúar allra grunn- og leikskóla í Reykjavík afhenta 30.000 segla með áprentuðum upplýsingum um skjátíma barna og verður þeim dreift til allra leik- og grunnskólabarna í Reykjavík. Foreldrafélög í Breiðholti og skólastjórnendur hafa um árabil átt mjög gott samstarf um ýmis málefni og fyrir um þremur árum kom upp sú hugmynd að gera segul um skjátíma þar sem skjátímanotkun er stöðugt að aukast og foreldrar þurfa að kunna að umgangast þessa nýju tækni og vera börnunum fyrirmynd. Við fengum í heimsókn til okkar Birnu Sif Bjarnadóttur, skólastjóra Ölduselsskóla, Guðmund Magnús Daðason fyrir hönd foreldrafélaganna fimm í Breiðholti, Kjartan Helga Guðmundsson og Bríeti Glóð Pálmadóttur nemendur í Ölduselsskóla sem töluðu um hvaða áhrif það hefur að gera skólann símalausan. Matur hefur mikinn mátt. Á síðustu árum hefur rannsóknum á tengslum mataræðis og ADHD fleygt fram. Í kvöld verður haldinn fræðslufundur ADHD samtakanna, þar sem Dr. Bryndís Eva Birgisdóttir, næringarfræðingur og Dr. Bertrand Lauth, geðlæknir fjalla um rannsóknir á tengslum ADHD og mataræðis. Hrannar B. Arnarsson, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna var í símanum og sagði frekar frá. Ása Baldursdóttir kom til okkar í dag og sagði okkur frá nokkrum áhugaverðum hlaðvörpum. Í síðustu viku voru það svikahrappar og morð, en í þetta sinn sagði hún okkur frá áhugaverðum hlaðvörpum sem fjalla um sófasérfræðinga, hlaðvarp um föður umsjónarmannsins, sem skrifa erótískar bókmenntir, og að lokum hlaðvarp sem fjallar um þær glímur sem nýbakaðar mæður þurfa að takast á við. UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Arnljótur Sigurðsson heimsækir þáttinn og segir frá radd- og tónlistarþjörkum. Skemmtileg tóndæmi fylgja spjallinu við Arnljót að venju. Einnig er leikin í þættinum tónlist nokkurra notenda nútíma tónlistarþjarka. Holly Herndon, Bon Iver og Jacob Collier eru þar á meðal. Og sá sem límir saman ólíka tíma í tónlist þáttarins er Quincy Jones.