POPULARITY
Klipparinn, Andri Berg og Geiri Gunn gerðu upp úrslitaleik Vals og Fram. Fram eru Íslandsmeistarar árið 2025. Úrslitaeinvígið hjá Val og Haukum er komið af stað og þar leiða Valsstelpur 1-0. Tókum rúnt um Evrópu og FH-ingar styrkja sig í karla og kvenna.
Fengum Hafnfirðinginn geðþekka - Ómar Frey Rafnsson til okkar í Domino's stúdíóið. Ómar skaust fram á sjónarsviðið árið 2001 þegar hann lék undir stjórn Willums Þórs hjá Haukum. Seyðisfjörður, kjöt á grillið og Liverpool eru Englandsmeistarar.
Skyldusigur í Grikklandi og meintur föðurlandssvikari að taka við Haukum! by Handkastið
Í þætti dagsins er komið víða við. Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari Hauka í körfubolta er í spjalli. Þar förum við yfir Bónusdeildina, afhverju tók hann við Haukum og afhverju hætti hann með kvennalið Keflavíkur ásamt þessu tölum við aðeins um tónlist. Þórhallur Dan er á línunni og við ræðum um Liverpool-Man.Utd. Inter og AC Milan, kjör íþróttamanns ársins ásamt fleiru. Svanhvít er svo á línunni og við tölum enska deildarbikarinn, ítalska boltann, Bónusdeildina og förum aðeins í slúðrið. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
Ponzan, Andri Berg og EuroBelli yfir fyrstu 5 leikina í Olísdeild karla þar sem Gróttumenn sitja á toppnum eins og allir spáðu fyrir tímabil. Karen Knúts er mætt aftur á parketið hjá Fram og spilað var til úrslita í heimsmeistarakeppni félagsliða.
Leiðin á Laugardalsvöll heldur áfram á miðvikudaginn þegar 16-liða úrslitin í Fótbolta.net bikarnum verða leikin í heild sinni. Það eru nokkrir mjög svo áhugaverðir leikir framundan en við hitum upp í dag með því að spjalla við Baldvin Má Borgarsson, þjálfara Árbæjar. Hans menn hafa verið að gera flotta hluti í 3. deildinni en þeir mæta Víkingi Ólafsvík, sem er í þriðja sæti í 2. deild, á miðvikudag. Svo hringjum við til Húsavíkur þar sem markamaskínan Jakob Gunnar Sigurðsson er á línunni. Jakob Gunnar er aðeins 17 ára gamall en hann hefur farið á kostum í sumar. Völsungur mætir Haukum, en Jakob gerði þrennu í síðasta leik á Ásvöllum.
Stutt og skorinort kvölddropp. Gósentíð í félaginu. Þvílíkt og annað eins. Stelpurnar okkar að fara í úrslitaeinvígið við Hauka á morgun, strákarnir unnu Njarðvík í körfunni í gær og leiða nú einvígið. Í fótboltanum kemur KA í heimsókn á afmælisdaginn á laugardag og stelpurnar voru suður með sjó í kvöld. Svo er það Afturelding í handboltanum og handan við hornið er úrslitaeinvígi um Evrópubikarinn við Olympiacos. Við fórum yfir allt þetta helsta en handboltinn var í fyrirrúmi. Sérfræðingurinn Arnar Daði var á línunni og við spáðum í úrslitakeppnirnar í Olís og hituðum fyrir Evrópuævintýrið sem er framundan. Í seinni hlutanum slógum við svo á þráðinn til Gústa Jó og hituðum fyrir úrslitaeinvígið í handboltanum kvennamegin, sem hefst á morgun á Hlíðarenda, þar sem við mætum Haukum. Mætum öll!
Liverpool vann deildabikarinn í gær eftir frábæran úrslitaleik gegn Chelsea á Wembley. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari kvennaliðs Fram, og Jón Aðalsteinn Kristjánsson, þjálfari 2. flokks karla hjá Haukum, fóru yfir leikinn ásamt undirrituðum. Óskar er stuðningsmaður Liverpool og Nonni er stuðningsmaður Chelsea. Einnig er farið yfir aðra leiki helgarinnar á Englandi en lengst af var rætt um úrslitaleikinn frá því í gær.
17.umferð Olís-deildar karla var gerð upp af Sérfræðingnum, Gaupa og Benna Grétars. - Valsmenn unnu torsóttan sigur í Garðabænum - Lítil sem engin framþróun á liði KA á milli ára - Óli Gúst þarf CBD olíu og það strax - Hvað gengur mönnum til í Haukum? - Gróttan gat fagnað í sólarhring - Leikþáttur Basta gekk enganveginn upp gegn FH - Afturelding náði fram hefndum í Eyjum - Hvort vilja Fram eða Haukar mæta ÍBV eða Aftureldingu í 8-liða? - Bryggjan Brugghús leikmaður 17.umferðar - Skita 17.umferðar í boði Skolphreinsun Ásgeirs - Gaupi myndi frekar skúra Hólmsheiðina en að fara í 2. bundesliguna
15.umferðin í Olís-deildinni var gerð upp í þætti kvöldsins. Slúðurmolarnir voru fjölmargir og áhyggjuefnin ekki færri. Hvaða fimm félög heyrðu í Halldóri Jóhanni? Hvert fer Einar Baldvin? Rasimas hefur fengið kveðjubréfið á Selfossi og AP4 hefur fengið hvíld fyrir bikarleikinn gegn Haukum. Sjö umferðir eftir og staðan í fallbaráttunni er stórhættuleg.
Handboltahetjan Kári Kristján Kristjánsson hefur vakið mikla athygli í Stofunni þar sem fjallað er um leiki Íslands á EM 2024. Kári Kristján var gestur Felix og fjallaði um fimm handboltaleiki sem breyttu lífi hans. Kári ólst upp í Vestmannaeyjum og varð snemma ákveðinn í að verða handknattleiksmaður. Hann átti feril með ÍBV, Haukum, Val og liðum í Sviss, Þýskalandi og Danmörku. Hann lenti líka í erfiðum veikindum sem hafa haft áhrif á ferilinn.
Hjörtur Leó er orðinn spenntur fyrir HM og er himinlifandi yfir góðum sigri strákanna á Haukum um daginn. Linda Björk Hilmarsdóttir, Guðrún Herborg Hergeirsdóttir og fyrirliðinn Richard Sæþór Sigurðsson mættu í SelfossTV hljóðverið til Hjartar og fóru yfir málin. Auk þessa alls tók Hjörtur upp símann og náði sambandi beint til Noregs og spjallaði við nýjasta landsliðsmann okkar Selfyssinga, Kötu Maríu Magnúsdóttur. Veislan er að hefjast! Dagskráin framundan: HM Fim 30. nóv kl 17 Ísland - Slóvenía Lau 2. des kl 17 Ísland - Frakkland Mán 4. des kl 17 Ísland - Angóla Mfl kk Fim 30. nóv kl 19.30 Grótta - Selfoss Lau 9. des kl 15.00 KA - Selfoss fim 14. des kl 19.30 Selfoss - Afturelding
Aukasendingin kom saman með þeim Guðmundi Auðunn og Hraunari Karl til þess að ræða fréttir vikunnar, stöðuna í Subway deildunum, vonleysi í Keflavík, Breiðablik og Stjörnunni og vonina í Grindavík, Haukum og Hetti. Þá ræða þeir grein Jose Colorado um kaup og kjör atvinnumanna á Íslandi.Einnig er farið yfir þrjár af þeim stærri tillögum sem voru samþykktar á þingi KKÍ í gær og þá er farið yfir úrvalslið leikmanna sem eru á fyrsta ári með sínu félagi sem lið ættu án nokkurs vafa að reyna að semja við fyrir næsta tímabil sem fyrstAukasendingin er í boði Subway, Lykils og Kristalls.
Körfuboltaparið Helena Sverrisdóttir og Finnur Atli Magnússon kíktu við hjá mér í virkilega áhugavert og skemmtilegt spjall fyrir skemmstu.Helena er ein okkar allra fremsta körfuboltakona fyrr og síðar en hefur hún spilað mikilvæga rullu hjá sínum félagsliðum sem og með landsliðinu. Hún er ein fárra íslenskra kvenna sem farið hefur út í atvinnumennsku í körfubolta og spilaði hún meðal annars í Slóvakíu, Ungverjalandi og Póllandi. Hún hefur unnið til fjölda verðlauna á ferlinum og margsinnis verið kosin leikmaður ársins hér heima fyrir. Í dag spilar Helena með uppeldisklúbbnum Haukum ásamt því að kenna samfélagsfræði í Áslandsskóla í Hafnarfirði.Finnur á ekki síður glæstan körfubolta feril að baki en lagði hann skóna á hilluna eftir síðasta tímabil, þá búinn að spila körfu í meistaraflokki í 20 ár og á sínum ferli verið reglulegur leikmaður landsliðsins. Í dag vinnur Finnur sem sjúkraþjálfari á öldrunarheimilinu Sóltúni.Finnur og Helena höfðu vitað að hvort öðru um þó nokkurt skeið áður en þau fóru að slá sér saman enda körfubolta heimurinn lítill og þau bæði nokkuð áberandi í boltanum. Það var þó ekki fyrr en systir Helenu auglýsti að Helenu bráðvantaði followers á snapchat að Finnur ákvað að stökkva á tækifærið og síðan var ekki aftur snúið.Í þættinum ræddum við meðal annars um körfuboltalífið og hvar áhuginn kviknaði, atvinnumennskuna úti og menningarmun, rómantíkina, brúðkaupið ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar allt liðið tók á móti þeim þegar þau komu heim af fyrsta deitinu sínu.Reykjavíkurblóm - https://flowers.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/Brynjuís - https://brynjuis.is/Augað - https://www.augad.is/
656.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er Viðar Halldórsson, formaður aðalstjórnar FH, í löngu viðtali. Við förum yfir opið bréf Viðars til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, stöðu FH og hvernig Viðar vildi sjá uppbyggingu hjá Haukum er varðar knatthús. Við förum yfir eignir FH og ég spyr hvort FH ætli að leggja til við bæjarstjórn að bærinn kaupi eignir FH. Þetta er aðeins það helsta sem kemur fram í þessu góða spjalli okkar. Njótið.
Leikin eru nokkur lög eftir Magnús Kjartansson sem hann hljóðritði með hljómsveitunum Trúbroti og Júdasi, eitt lag sem Ruth Reginalds syngur, eitt lag með hljósmveitinni Haukum og þrjú lög sem Vilhjálmur Vilhjálmsson syngur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru nokkur lög eftir Magnús Kjartansson sem hann hljóðritði með hljómsveitunum Trúbroti og Júdasi, eitt lag sem Ruth Reginalds syngur, eitt lag með hljósmveitinni Haukum og þrjú lög sem Vilhjálmur Vilhjálmsson syngur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru nokkur lög eftir Magnús Kjartansson sem hann hljóðritði með hljómsveitunum Trúbroti og Júdasi, eitt lag sem Ruth Reginalds syngur, eitt lag með hljósmveitinni Haukum og þrjú lög sem Vilhjálmur Vilhjálmsson syngur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag. Í þættinum fjölluðu þeir um leiki 3 í undanúrslitum karla þar sem að Haukum tókst að halda lífi í einvíginu gegn ÍBV en Selfoss féll úr leik eftir að hafa tapað einvíginu gegn Val 3-0. Þá fóru þeir yfir leiki 2 í undanúrslitum kvenna þar sem að KA/Þór jafnaði einvígið gegn Val með sigri á heimavelli sínum fyrir norðan. Fram er hins vegar komið í 2-0 gegn ÍBV. Að lokum fóru þeir yfir nýjustu fréttir og slúður í handboltaheiminum en það er allt að fara í gang á félagaskiptamarkaðunum þessa daganna.
Lovísa Björt Henningsdóttir, leikmaður Hauka, er viðmælandi 12. útgáfu af Undir Körfunni. Lovísa fer yfir tímann sinn hjá Haukum ásamt því að koma inn á ævintýrin í Bandaríkjunum og Danmörku.Haukar eru tvöfaldir bikarmeistarar en Lovísa ræðir einnig nýjasta titilinn ásamt því að fara yfir reynslu liðsins af þátttöku í Eurocup.Deildin í ár hefur sjaldan verið eins jöfn. Einungis sjö lið spiluðu í deildinni í ár eftir brotthvarf Skallagríms og Lovísa er sannfærð um að tími sé kominn til að fjölga liðum í efstu deild.Ásamt þessu eru að sjálfsögðu fastir liðir eins og venjulega, stemningin í klefanum, spurningar af Subway spjallinu, draumalið samherja Lovísu og úrvalslið hennar í Subway-deild kvenna.Umsjón: Atli ArasonUndir Körfunni er í boði Subway, Lykils og Kristalls.
Kæru hlustendur. Endanlínan kemur til ykkar beint úr WhiteFox Stofunni eftir glæsilega Bikarhelgi í Smáranum. Við óskum Stjörnunni og Haukum innilega til hamingju með sína Bikarmeistaratitla ásamt öllum þeim yngri flokka liðum sem unnu glæsilega bikarsigra um helgina. EN þá að því sem skiptir máli - hvernig er landslagið eftir þessa bikarviku ? - Hversu líklegir eru Stjörnumenn í framhaldinu eftir 2 frábæra sigra og með titil í farteskinu ? - Valur , Keflavík og Þór Þ , hvaða lið þarf að hafa mestar áhyggjur inní framhaldið eftir að hafa misst af Bikarnum ? - Kef Dynasty án málms ? Kannski ekkert dynasty eftir allt saman og er þetta orðið sálrænt ? - Hvaða leikmenn verða The Big Dawgs og eigna sér fyrirsagnirnar í Playoffs ? - Hvaða leikmenn eru líklegir að valda okkur vonbrigðum eða standast ekki væntingar í Playoffs ? Endalínan í boði WhiteFox , Cintamani , VikingLite og Kef Restaurant & Diamond Suites
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp átjánda þátt vetrarins. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson og Gestur Guðrúnarsson Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist í 9.umferð Olísdeildar karla auk þess að velja Klakaleikmenn leikjanna. Ásbjörn Friðriksson (FH), Björgvin Páll Gústavsson (Val), Einar Baldvin Baldvinsson (Gróttu), Arnór Viðarsson (Stjörnunni), Atli Báruson (Haukum) og Hrannar Bragi Eyjólfsson (Stjörnunni). Í lok þáttar fóru þeir aðeins yfir tvö málefni, annars vegar staða handboltans á Akureyri en Árni Rúnar Jóhannesson formaður handknattleiksdeildar Þórs Akureyri skrifaði grein um það mótlæti sem félagið finnur fyrir hjá bæjarstjórn Akureyrar. Hins vegar fóru þeir aðeins yfir greinarnar sem Arnar skrifaði á handbolti.is þar sem að hann viðrar þær hugmyndir um að fækka liðum í úrvalsdeild.
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist í 6.umferð Olísdeildar karla. Vandræði norðanmanna halda áfram og það er ljóst að þeir séu komnir í djúpa holu og þeir þurfi að nota landsliðfríið vel til þess að stilla saman strengi sína. Þá fannst þeim ummæli Basta fyrir leikinn gegn Haukum og þeir félagar spurðu sig að því hvaða taktík þetta væri hjá honum. Í lok þáttar fóru þeir aðeins yfir aðstöðu mál í Færeyjum en þeir hafa ákveðið að byggja nýja keppnishöll og þeir hvetja íslensk yfirvöld að taka frændur okkar í Færeyjum til fyrirmyndar og jafnvel hreinlega fá tekningar af húsinu og hefjast handa við að byggja. Að venju voru Klakaleikmenn leikjanna valdir og eftirtaldir leikmenn eru gjaldgengir í þá kosningu sem fer í gang á samfélagsmiðlum þáttarins: Phil Döhler (FH), Gunnar Steinn Jónsson (Stjörnunni), Sigtryggur Rúnarsson (ÍBV), Aron Rafn Eðvarðsson (Haukum) og Blær Hinriksson (Aftureldingu)
Drengirnir í Hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar skelltu sér í Klaka stúdíóið sitt í dag og gáfu út nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange ogKristinn Guðmundsson Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það markverðasta sem gerðist í 1.umferð Olísdeildar kvenna. HK liðið ölli þeim vonbrigðum og þá í sérílagi spilamennskan þeirra í seinni hálfleik gegn Haukum en þessi lið eru líkleg til að berjast um það hvort liðið fari í umspil í vor. Þá kom byrjun Aftureldingar gegn Val þeim á óvart og voru þeir í raun bara nokkuð ánægðir með spilamennsku þeirra þó að sigur Valsstúlkna hafi vissulega verið sannfærandi. Að lokum völdu þeir þá leikmenn sem koma til greina sem Klaka leikmaður umferðarninnar en það eru þær Hildigunnur Einarsdóttir (Val), Hafdís Renötudóttir (Fram), Birta Lind Jóhannsdóttir (Haukum) og Martha Hermanssdóttir (KA/Þór).
Drengirnir í Hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar skelltu sér í Klaka stúdíóið sitt í dag og gáfu út nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Kristinn Guðmundsson og Arnar Gunnarsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það markverðasta sem gerðist í 1.umferð Olísdeildar karla. Þeir lýstu ánægju sinni með nýliða deildarinnar, HK og Víking og hrósuðu þjálfurum liðanna fyrir að þora að prófa nýjunar og með smá herslumun hefðu bæði þessi lið getað náð í stig úr leikjum sínum. Þá fóru þeir aðeins yfir ummæli Arnars Daða þjálfara Gróttu eftir leikinn gegn Val þar sem að hann óskaði eftir meiri virðingu fyrir því sem hann væri að gera. Þeir félagar voru sammála því að það væri þannig að virðing væri eitthvað sem væri áunnin og því væri ekki vænlegt til árangurs að vera uppnefna menn í viðtölum ef að þú vilt fá virðingu frá viðkomandi. Að lokum völdu þeir þá leikmenn sem koma til greina sem Klaka leikmaður umferðarninnar en það eru þeir Rúnar Kárason (ÍBV), Björgvin Páll Gústavsson (Val), Ólafur Ægir Ólafsson (Haukum), Guðmundur Bragi Ástþórsson (Aftureldingu) og Sigurjón Guðmundsson (HK).
Landsliðskonurnar Alexandra Jóhannsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eru gestir Heimavallarins. Þær eru aðeins tvítugar en eru báðar komnar í stórlið í þýsku úrvalsdeildinni. Þær ólust upp í FH og Haukum og voru báðar komnar snemma í stór hlutverk í sínum liðum. Árið 2018 tóku þær báðar stökkið yfir í Breiðablik, slógu í gegn og æfa núna á hverjum degi með þýskum landsliðsvélum í einni bestu deild heims. Við fórum meðal annars yfir fyrstu árin í meistaraflokki með FH og Haukum, yngri landsliðin, markmiðin, félagaskiptin yfir í Breiðablik og fyrsta árið í atvinnumennsku.
Það er stór vika framundan á Hlíðarenda. Eftir dramatíska lokamínútu gegn ÍBV er meistarflokkur karla í handbolta komið í úrslitaeinvígi gegn systurfélaginu Haukum. Stórleikur á Hlíðarenda annað kvöld og við fengum engan annan en Óskar Bjarna Óskarsson, aðstoðarþjálfara liðsins í stutt spjall til að fara yfir úrslitakeppnina fram að þessu og hituðum svo upp fyrir einvígið um Íslandsmeistaratitilinn. Í seinni hlutanum fórum við stuttlega yfir síðustu leiki Vals í knattspyrnunni, spáðum í spilin fyrir leikinn gegn Blikum á miðvikudag og hvað kynni að koma upp úr hattinum í fyrramálið þegar dregið verður í Evrópukeppninni þar sem Valsmenn verða í hattinum.
Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar var á ferðinni í kvöld þar sem þeir tóku upp sinn 70.þátt. Að þessu sinni fjölluðu umsjónarmenn þáttarins um seinni leikina í undanúrslitum í Olísdeild karla Að Ásvöllum tóku heimamenn í Haukum á móti Stjörnunni þar sem að gestunum tókst heldur betur að gera atlögu að sæti í úrslitum með því að veita Haukum harða keppni. Garðbæingar náðu að sýna að það eru veikleikar í þessu Haukaliði en því miður fyrir gestina reyndust Haukar þó aðeins sterkari á lokakaflanum. Valsmenn tóku á móti ÍBV að Hlíðarenda í hreint út sagt geggjaðir stemmningu. Leikurinn var mjög kaflaskiptur þar sem að heimamenn voru með frumkvæðið lengst af. En gestirnir úr eyjum neituðu að gefast upp og náðum góðum lokakafla en það var þó fyrir frábæran varnarleik hjá Einari Þorsteini Ólafssyni að Valsmenn náðu að komast í úrslitaeinvígið gegn Haukum í næstu viku.
Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar var á ferðinni í kvöld þar sem að umsjónarmenn þáttarins fjölluðu um fyrri leikina í undanúrslitum í Olísdeild karla Í Vestmannaeyjum áttust tóku heimamenn á móti Valsmönnum þar sem var boðið uppá hörkuleik. Valsmenn reyndust sterkari aðilinn í seinni hálfleik og fóru með sigur af hólmi. Lokamínúta leiksins var þó æði skrautleg þar sem að Agnar Smári Jónsson gerði sig sekan um klaufaskap þegar hann hindraði ÍBV í að taka innkast og dómarar leiksins dæmdu víti og gáfu Agnari rautt spjald sem var hárréttur dómur hjá góðum dómurum leiksins þeim Antoni Gylfa Pálssyni og Jónasi Elíassyni. Heimamenn skoruðu úr vítinu og náðu að minnka muninn niður í 2 mörk en Anton Rúnarsson náði að skora mark fyrir Valsmenn frá miðju og tryggði þeim þriggja marka sigur og þetta mark gæti reynst dýrmætt í þessu Evrópukeppnis fyrirkomulagi. Í Garðarbænum byrjuðu heimamenn virkilega vel í leiknum gegn Haukum en þeir komust í 4-1. En það tók gestina ekki langan tíma að átta sig á því leikurinn væri hafinn og náðu fljótt undirtökunum á leiknum. Heimamenn reyndu hvað þeir gátu að minnka muninn en Haukarnir sigldu sigrinum heim að lokum 28-23. Umdeilt atvik varð í leiknum þegar að Björgvin Páll Gústavsson markvörður Hauka fór með fótinn í andlitið á leikmenni Stjörnunnar og þáttastjórnendur þáttarins voru allir sammála um að Björgvin Páll hefði verskuldað rautt spjald fyrir þetta framferði.
Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar var á ferðinni í kvöld þar sem að umsjónarmenn þáttarins fjölluðu um seinni leiki Hauka og Aftureldingar annars vegar og FH og ÍBV hins vegar í 8-liða úrslitum í Olísdeild karla. Leikur Hauka og Aftureldingar var engin flugeldasýning og spilamennska mosfellingar var mikil vonbrigði og félagarnir í hlaðvarpsþættinum vonuðust eftir að þeir myndu gefa Haukum meiri samkeppni. Leikur FH og ÍBV var hins vegar háspennu leikur þar sem spennustigið var hátt eðli máli samkvæmt. FH-ingar voru með frumkvæðið í leiknum og var útlit fyrir að þeir myndu vinna þetta einvígi en þegar að 2 mínútur voru eftir gerði Arnar Freyr Ársælsson leikmaður FH sig sekan um dómgreindarleysi þegar hann lét reka sig útaf fyrir kjaftbrúk. Vestmannaeyingar nýttu sér liðsmuninn og komust inní leikinn og fór svo að lokum að þeir skoruðu jöfnunarmarkið þegar nokkrar sekúndur voru eftir og tryggði ÍBV þannig áfram í undanúrslitin.
Farið er yfir átta liða úrslit Dominos deildar karla og þá oddaleiki sem á dagskrá eru á morgun föstudag, en þar mun Stjarnan taka á móti Grindavík og Valur og KR mætast um síðustu sætin í undanúrslitunum. Þá voru bæði Tindastóll og Þór Akureyri send í sumarfrí á dögunum og farið er yfir hvernig framhaldið geti verið fyrir norðan. Þá er undir lokin spáð fyrir um úrslitaeinvígi Dominos deildar kvenna, en Valur mun taka á móti Haukum í fyrsta leik einvígis kl. 20:30 í Origo höllinni í kvöld.Aukasendingin er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram. Þá er Lykill fjármögnun einnig aðalstyrktaraðili.Umsjón: Davíð EldurGestir: Máté Dalmay & Ísak Wium
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar gáfu frá sér sinn 59.þátt í dag en umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson. Í þættinum í dag fóru þeir yfir leikina í 21.umferð í Olísdeild karla. Þar héldu Haukar uppteknum hætti og rúlluðu yfir andstæðing sinn og það með því að leyfa óreyndari mönnum að spila mikið. Undir lok þáttar fóru þeir yfir umspilið í Grill66 deild karla og þeir félagar voru vægast sagt fyrir miklum vonbrigðum með Fjölni. En þeir voru að sama skapi virkilega ánægðir með framgöngu Harðarmanna í einvígi sínu á móti Víkingum. Þeir félagar sjá fyrir sér að Víkingur verði með í Olísdeild karla á næstu leiktíð. Þá völdu þá leikmenn sem koma til greina sem BK leikmaður 21.umferðar í Olísdeild karla. Þeir sem tilnefndir eru að þessu sinni eru: Andri Már Rúnarsson (Fram), Guðmundur Bragi Ástþórsson (Haukum), Einar Sindrason (FH), Adam Thorstensen (Stjörnunni), Þorgils Jón Svölu Baldursson (Val) og Fannar Friðgeirsson (ÍBV)
54.þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar fór í loftið í dag. Að þessu sinni var þátturinn í umsjón Jóa Lange, Gests Guðrúnarsonar. Að þessu sinni fóru þeir yfir lokaumferðina í Olísdeild kvenna þar sem bar hæst úrslitaleikur Fram og KA/Þórs um deildarmeistaratitilinn. Þeir félagar hrósuðu norðanstúlkum fyrir að hafa sýnt mikinn karakter í leiknum og náð að snúa leiknum sér í hag í seinni hálfleik eftir að hafa átt í töluverðum erfiðleikum í þeim fyrri. En þeir voru sammála því að KA/Þór átti þenna titil skilið enda hafa þær spilað virkilega vel í vetur og leikmenn liðsins hafa stigið verulega upp og bætt sinn leik frá því í fyrra ásamt því að hafa fengið Rut Jónsdóttur til liðs við sig. Þeir ræddu svo möguleika HK í umspilu um sætið í Olísdeild kvenna en þeir telja að Kópavogsliðið muni klára það umspil en þær þurfa þó að vera á tánum því að þar bíða hættulegir andstæðingar. Þá fóru þeir yfir úrslitakeppnina í Olísdeild kvenna og rýndu í möguleika liðanna þar. Þeir spá því að Valur hafi betur gegn Haukum og að Stjarnan geri sér lítið fyrir og slái út lið ÍBV. Að lokum völdu þeir hvaða leikmenn koma til greina sem BK leikmaður 14.umferðar. Þær sem eru tilnefndar að þessu sinni eru, Thea Imani Sturludóttir (Valur), Ásta Björt Júlíusdóttir (ÍBV), Rakel Sara Elvarsdóttir (KA/Þór) og Eva Björk Davíðsdóttir (Stjörnunni )
Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar gaf út sinn 53.þátt í dag. Að þessu sinni var þátturinn í umsjón Jóa Lange, Gests Guðrúnarsonar og Arnars Gunnarssonar. þeir félagar fóru yfir leikina í 18.umferð í Olísdeild karla. Það helsta sem kom þeim á óvart í þessari umferð var hversu illa Þórsarar fóru með tækifærið að ná í 2 stig gegn Fram en þeir telja að þetta hafi verið lykilleikur fyrir þá ef þeir ætluðu sér að halda sætinu sínu í Olísdeildinni. Þá telja þeir að Valsmenn séu vaknaðir og eins og þeir séu að spila þessa daganna eru þeir til alls líklegir í úrslitakeppninni. Þá enduð þeir þáttinn á eldheitum umræðum um stöðu handboltans á Akureyri en þeir félagar Gestur og Arnar hafa miklar skoðanir á hlutunum fyrir norðan. Þeir segja að eina vitið að það sé bara eitt lið á Akureyri og ganga svo langt að vilja hreinlega að handknattleiksdeildir KA og Þórs verði lagðar niður og nýtt félag verði stofnað með yngriflokkastarfi og meistaraflokks starfi. Að lokum völdu þeir hvaða leikmenn koma til greina sem BK leikmaður 18.umferðar. Þeir sem eru tilnefndir að þessu sinni eru, Lárus Helgi Ólafsson (Fram), Geir Guðmundsson (Haukum), Einar Þorsteinn Ólafsson (Valur ), Theodór Sigurbjörnsson (ÍBV) og Adam Thorstensen (Stjörnunni )
Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar gaf út sinn 52.þátt í dag. Að þessu sinni var þátturinn í umsjón Jóa Lange og Gests Guðrúnarsonar. Í upphafi þáttar ræddu þeir hlutverk eftirlitsmanna á leikjum en það hafa komið upp atvik að undanförnu sem kalla á breytt verklag. Þeir félagar voru með ýmsar pælingar hvað það varðar. Þá fóru þeir yfir leikina í 13.umferðinni í Olísdeild kvenna. Þar sem þeir lýstu yfir vonbrigðum sínum með framgöngu ÍBV í vetur en þeir áttu von á meiru frá þeim. Þeim finnst lítið skipulag á sóknarleik liðsins og hreinlega lýstu eftir Hrafnhildi Hönnu Þrastardóttur en það hefur ekki sést mikið til hennar í vetur. Aðra sögu er að segja um lið Hauka en þeir félagar hafa verið gríðarlega ánægðir með frammistöðu þeirra í vetur þar sem að liðið hefur sýnt framfarir í hverjum leik og þeir félagar gengu svo langt að útnefna Gunnar Gunnarsson þjálfara Hauka sem þjálfara ársins í Olísdeild kvenna. Að endingu fóru þeir yfir næstu umferð en þar ber náttúrulega hæst leikur Fram og KA/Þórs sem er úrslitaleikur um deildarmeistaratitilinn og strákarnir eiga von á hörkuleik þar og spá því að úrslitin ráðist á lokasekúndum leiksins. Þeir vonast til þess að Fram nái að koma sem flestum áhorfendum inní Safamýrina og vona að forráðarmenn félagsins séu byrjaði á að skipuleggja það. Að lokum völdu þeir hvaða leikmenn koma til greina sem BK leikmaður 13.umferðar. Þær sem eru tilnefndar að þessu sinni eru, Helena Rut Örvarsdóttir (Stjörnunni), Berta Rut Harðardóttir (Haukum), Jónína Hlín Hansdóttir (Fram) og Aldís Ásta Heimisdóttir (KA/Þór)
51.þáttur í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag. Að þessu sinni var þátturinn í umsjón Jóa Lange og Arnars Gunnarsson. Í upphafi þáttar fóru þeir yfir landsleiki Íslands gegn Litháen þar sem þeir voru sammála því að þetta hafi verið léleg frammistaða og hreinlega krefjast að íslenska landsliðið geri betur. Eins vilja þeir sjá liðið spila annað varnarafbrigði því þeir telja að þetta vera fullreynt með þessa vörn. Svo fóru þeir yfir leikina í 17.umferðinni í Olísdeild karla. Þar sem þeir voru ánægðir með það hvernig Valsmenn svöruðu eftir tapið gegn Þór á dögunum og leikmenn liðsins sýndu sitt rétta andlit. Þá voru þeir ekki eins ánægðir með frammistöðu Þórsara gegn Haukum þar sem leikmenn liðsins voru eins og byrjendur í íþróttinni á tímabili. Að lokum fóru þeir yfir hvað væri framundan í Olísdeild karla og völdu hvaða leikmenn koma til greina sem BK leikmaður 17.umferðar. Þeir sem eru tilnefndir að þessu sinni eru, Björgvin Hólmgeirsson (Stjörnunni), Orri Freyr Þorkelsson (Haukum), Martin Nagy (Val), Einar Sverrisson (Selfoss) og Stefán Huldar Stefánsson (Gróttu)
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust niður í hljóðverið sitt og tóku upp sinn 50. þátt en að þessu sinni rættu þeir um 16.umferðina í Olísdeild karla. Hæst bara í þessari umferð óvæntur sigur Þórs á Val og þeir félagar hrósuðu norðanmönnum mjög fyrir hvernig þeir mættu í þennan leik og voru sérstaklega ánægðir með framlagið hjá Karolis Stropus í þessum leik. Að sama skapi voru þeir fyrir miklum vonbrigðum með lið Vals en þeir félagar telja þá vera ein mestu vonbrigði vetrarins. Kvartettinn eru þá á þeirri skoðun að Haukar séu með yfirbuðarlið í deildinni á þessu tímabili og þeir sjá hreinlega ekki hvaða lið ætli sér að koma í veg fyrir að þeir verði Íslandsmeistarar. Þá fóru þeir yfir hvað væri framundan í Olísdeild karla og völdu hvaða leikmenn koma til greina sem BK leikmaður 16.umferðar. Þeir sem eru tilnefndir að þessu sinni eru, Björgvin Hólmgeirsson (Stjörnunni), Jovan Kukobat (Þór Ak.), Ólafur Ægir Ólafsson (Haukum), Vilius Rasimas (Selfoss) og Kári Kristján Kristjánsson (ÍBV)
Í þessum þætti fóru þeir Jói Lange og Gestur yfir 13.umferðina í Olísdeild karla. En þó byrjuðu þeir á því að fara aðeins yfir ”stóra” kennitölu málið en í dag kom yfirlýsing frá HSÍ um það að Vængir Júpíters væru með gilt keppnisleyfi og því gætu þeir haldið keppni áfram í Grill66 deild karla. Þeim félögum þykir þó skrýtið að það teljist í lagi að vera með félag í gangi í allan þennan tíma án þess að vera með virka kennitölu og velta fyrir sér hlutum eins og hvort leikmannasamningar sem eru gerðir á óvirkri kennitölu geti talist löglegir. Þá völdu þeir þá leikmenn sem koma til greina sem BK leikmaður 13.umferðar en það eru þeir Björgvin Páll Gústavsson (Haukum), Tandri Már Konráðsson (Stjörnunni), Egill Magnússon (FH), Hergeir Grímsson (Selfoss), Lárus Helgi Ólafsson (Fram) og Þorgils Jón Svölu Baldursson (Val).
Kæru hlustendur, Endalínan er mætt í jólaskapi með JólaKalda og heldur áfram að breiða út fagnaðarerindið , íslenskan körfubolta. Þrátt fyrir að það séu ennþá hópar sem mega ekki æfa þá verðum við að fagna því skrefi að liðin í efstu deildunum megi komast aftur inná parketið og við vonumst eftir risavöxnu ári 2021. Við förum yfir stöðuna í dag og hvað þetta gerir fyrir liðin að mega koma saman á þessum tímapunkti, keppnisbann til 13.janúar og hvort það sé bjartsýni að klára öll mót og bikarkeppni og mögulega sumarhátið í júní ! Við förum yfir helstu leikmannafréttir og pælingar , Ingvi Þór er mættur í Ólafssal og spilar með Haukum eftir áramót og við tókum aðeins stöðuna á honum eftir heimkomuna frá Þýskalandi. Þetta og meira til , Kalda spurningin , Landsliðsumræða, útlendingabreytingar og aðrar fabúleringar beint úr Litlu White Fox stofunni. #Endalinan #KaldiBruggsmiðja #Nicoland #WhiteFox #PodcastStodin
Í þættinum í dag fengum við til okkar fulltrúa frá tveimur liðum í Olísdeild kvenna til þess að spjalla við okkur. Jakob Lárusson og Fanney Þóra Þórsdóttir frá FH voru hjá okkur í fyrri hluta þáttar en svo komu þau Gunnar Gunnarsson og Rakel Sigurðardóttir frá Haukum í seinni hlutann.
Helena Sverrisdóttir leikmaður Vals og íslenska landsliðsins var gestur í upptöku af Boltinn Lýgur Ekki nú í vor. Í þættinum fór hún yfir ferilinn til þessa, stöðuna í dag, framtíðina og margt fleira.Helena hóf unga að leika bæði með meistaraflokki og landsliði. Var aðeins 12 ára þegar hún hefur feril sinn með Haukum og tveimur árum seinna, er hún 14 ára þegar hún er komin í A landslið Íslands. Síðan þá hefur hún leikið á mörgum stöðum, háskólabolta í Bandaríkjunum, með sterkum liðum í Slóvakíu, Ungverjalandi og í Póllandi, sem og með uppeldisfélagi sínu í Haukum og Vali í Dominos deildinni.Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.Gestur: Helena SverrisdóttirUmsjón: Davíð Eldur og Sigurður OrriDagskrá00:00 - Létt Hjal02:30 - Upphafið hjá Haukum07:30 - Meistaraflokkur 12 ára og Haukar 2000-200710:30 - Háskólaboltinn með TCU 2007-201118:00 - Atvinnumennska í Slóvakíu, Ungverjalandi og Póllandi 2011-201539:30 - Heim til Hauka aftur 2015-201847:00 - Erfið ferð til Ungverjalands53:30 - Gengið til liðs við Val 201801:03:30 - Kvennaíþróttir í vandræðum vegna Covid-1901:10:00 - A landsliðið 14 ára og Ísland 2002 til dagsins í dag01:23:00 - Framtíðin01:27:50 - Ef Helena væri ekki í körfubolta01:31:00 - Draumalið samherja og hverjar hefur verið erfiðast að dekka
Andri Geir Gunnarsson, annar af þáttastjórnendum Steve Dagskrá, veit allt um takkaskó auk þess að vera einn af dáðustu sonum ÍH. Hann hefur upplifað tímana tvenna, enda af týndu gullkynslóðinni auk þess sem hann söðlaði um á yngri árum og skipti úr uppeldisfélagi sínu Haukum yfir í stjörnumprýtt lið Breiðabliks í 3. flokki. Andri fór yfir bestu samherja sína, gleðistundirnar og sorgirnar, í almennu luppgjöri sínu við fótboltann og lífið hjá Draumaliðinu.
Helena Sverrisdóttir leikmaður Vals og íslenska landsliðsins var gestur í síðustu upptöku af Boltinn Lýgur Ekki. Í þættinum fór hún yfir ferilinn til þessa, stöðuna í dag, framtíðina og margt fleira.Helena hóf unga að leika bæði með meistaraflokki og landsliði. Var aðeins 12 ára þegar hún hefur feril sinn með Haukum og tveimur árum seinna, er hún 14 ára þegar hún er komin í A landslið Íslands. Síðan þá hefur hún leikið á mörgum stöðum, háskólabolta í Bandaríkjunum, með sterkum liðum í Slóvakíu, Ungverjalandi og í Póllandi, sem og með uppeldisfélagi sínu í Haukum og Vali í Dominos deildinni.Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.Gestur: Helena SverrisdóttirUmsjón: Davíð Eldur og Sigurður OrriDagskrá00:00 - Létt Hjal02:30 - Upphafið hjá Haukum07:30 - Meistaraflokkur 12 ára og Haukar 2000-200710:30 - Háskólaboltinn með TCU 2007-201118:00 - Atvinnumennska í Slóvakíu, Ungverjalandi og Póllandi 2011-201539:30 - Heim til Hauka aftur 2015-201847:00 - Erfið ferð til Ungverjalands53:30 - Gengið til liðs við Val 201801:03:30 - Kvennaíþróttir í vandræðum vegna Covid-1901:10:00 - A landsliðið 14 ára og Ísland 2002 til dagsins í dag01:23:00 - Framtíðin01:27:50 - Ef Helena væri ekki í körfubolta01:31:00 - Draumalið samherja og hverjar hefur verið erfiðast að dekka
Helgi Hrafn Ólafsson settist niður með Guðrúnu og Sigrúnu Ámundadætrum og ræddi við þær um undanúrslit Geysisbikarsins, en þar munu þeirra konur í Skallagrím mæta Haukum í undanúrslitum.Upptakan er í röð þar sem sest er niður með þjálfurum og leikmönnum og spáð í spilin fyrir bikarvikuna.Þátturinn er hluti af Sibbaspjalli, en það er bæði aðgengilegt sem podcast inni á iTunes og öðrum veitum, sem og á myndbandi hér fyrir neðan.
Helgi Hrafn Ólafsson settist niður með Ólöfu Helgu Pálsdóttur Woods og ræddi við hann um undanúrslit Geysisbikarsins, en þar munu hennar konur í Haukum mæta Skallagrím í undanúrslitum.Upptakan er í röð þar sem sest er niður með þjálfurum og leikmönnum og spáð í spilin fyrir bikarvikuna.Þátturinn er hluti af Sibbaspjalli, en það er bæði aðgengilegt sem podcast inni á iTunes og öðrum veitum, sem og á myndbandi hér fyrir neðan.
Mikael Nikuláson hefur vakið athygli í podcastþættinum Dr. Football undanfarin misseri. Hann tók við þjálfun 2. deildar liðs Njarðvíkur í haust eftir 10 ára fjarveru úr þjálfun. Hann er gestur í podcastþættinum Miðjunni þessa vikuna. Meðal efnis: - Hætti í fótbolta í fjögur ár til að djamma og vinna í tískubransanum - Stoltur af endurkomu í frábært Fylkis lið - Útihlaupin hjá Óla Þórðar - Fyrstu árin í þjálfun með ÍH - Skilur ekki afhverju Brynjar markvörður yfirgaf félagið - Búið að semja við Rúnar um að verja mark Njarðvíkur - Er að semja við Sean De Silva sem lék með Haukum í fyrra - Ætlar upp í 1. deild og spila á sama hóp þar - Eins og David Beckham á djamminu eftir að Dr. Football hófst - Ræddi við Guðmann Þórisson um að koma í Njarðvík - Kemur Hjörvar Hafliðason í þjálfarteymið?
Það er óhætt að segja að EM hingað til hafi verið kaflaskipt hjá strákunum okkar. Svekkjandi tapi gegn Slóvenum var fylgt eftir með góðum sigri á Portúgölum. Gestur þáttarins var Árni Stefán Guðjónsson, þjálfari mfl.kv. í Haukum. Í lok þáttar voru 10 heppnir þátttakendur dregnir út í Coolbet getraunaleiknum. Þátturinn er í boði BK-Kjúklings
Í Leikmannamálum að þessu sinni var miðherji Hauka, Lovísa Björt Henningsdóttir. Hún ræðir hvað fjölskyldan hennar ræðir við kvöldmatarborðið, hvernig árin hennar í Bandaríkjunum voru og seinasta leik gegn Val. Lovísa hefur sterkar skoðanir á landsliðum Íslands og telur að bæði lið geti gert betur og segir hvað henni finnst að vanti í íslensku afreksmennskuna. Liðsfélagar hennar í Haukum bera á góma sem og þjálfari hennar og hún ber saman NCAA og Dominosdeildina. Að lokum metur hún hvort að hún eða Hilmar Smári, bróðir hennar, sé betri í körfubolta.
Strákarnir mættir í Coca-Cola studíóið. Fá til sín Þórir Ólafs sem spilaði með Haukum og er núverandi aðstoðarþjálfari Selfossar. Rætt um Selfoss leikinn hjá strákunum sem og stelpuleikinn á móti Stjörnunni. Pumaspurningin og margt fleira.
Nýr íþróttafulltrúi Þórs Jón Stefán Jónsson, eða Jónsi eins og hann er jafnan kallaður, hefur tekið við starfi íþróttafulltrúa Þórs. Jónsi hóf knattspyrnuþjálfun hjá Þór árið 2003 og um tíma var hann yfirþjálfari yngri flokka félagsins. Þá hefur Jónsi einnig starfað sem knattspyrnuþjálfari hjá Val og Haukum, auk Tindastóls þar sem hann er m.a. þjálfari meistaraflokks kvenna.
Í þessum þætti er rætt við Jón Axel Guðmundsson leikmann Davidson háskólans og landsliðsins. Farið er um víðan völl í podcastinu, allt frá uppvaxtarárum hans í Haukum til framtíðarinnar í NBA deildinni. Jón Axel hefur leikið við góðan orðstýr í háskólaboltanum síðustu ár og var til að mynda valinn bestur í A10 deildinni þar fyrir frammistöðu sína á síðustu leiktíð. Þetta og margt fleira í Podcasti Körfunnar. Efnisyfirlit: 00:00 - Létt hjal01:00 - Upphafið14:00 - Út í háskóla til Davidson29:00 - Stephen Curry áhrifin32:00 - March Madness36:00 - NBA draumurinn44:00 - Yngri landsliðin og U20 ævintýrið49:00 - Kominn í A landsliðið53:00 - Dominos deildin & Grindavík
Aukaþáttur: Viðtal við Söru Björk, íþróttamann ársins 2018 og mikla Haukakonu. Hún segir frá uppgangi sínum í Haukum, meiðslin og æfingarnar.
Selfyssingar eru Íslandsmeistarar í handknattleik í fyrsta skipti eftir tíu marka sigur á Haukum á heimavelli í kvöld! Við fórum yfir þennan svakalega leik, afhroð Hauka og allt Selfossliðið í þætti kvöldsins með Ragnari Njálssyni. Við óskum Selfyssingum til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn! Þátturinn er í boði BK Kjúklings!
Selfyssingar eru komnir með pálmann í hendurnar eftir sigur á Haukum í framlengdum spennutrylli í DB Schenkerhöllinni í kvöld. Lærisveinar Patta Jó. þurfa nú aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér þann stærsta. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.
Úrslitaeinvígið hófst í kvöld þegar Selfoss vann fimm marka sigur á Haukum á Ásvöllum. Einar Örn Jónsson mætti í Handkastið og fór yfir leikinn með Sérfræðingnum og Ponzunni. Einnig spáðum við í spilin fyrir leik tvö sem fram fer á föstudaginn á Selfossi. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.
Gestur þáttarins að þessu sinni er góðvinur þáttarins, Benedikt Grétarsson íþróttafréttamaður og mikill handboltaáhugamaður. Selfyssingar eru komnir í úrslit og mæta þar annað hvort Haukum eða ÍBV sem mætast í fjórða leik á miðvikudaginn. Við fórum yfir leik kvöldsins þar Selfoss sló Val úr leik. Einnig fórum við yfir leik Hauka og ÍBV sem fór fram í gærkvöldi og öll lætin sem hafa einkennt það einvígi. HSÍ tilkynnti í dag að Elías Már væri hættur sem aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins og við fórum ofan í saumana í því máli. Auk þess ræddum við aðeins um Final4 sem fram fer í Köln og umspilið í Grillinu. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.
Létt spjall við okkar eina sanna #GPL10. í þessum þætti förum við yfir upphafsárin í Haukum, öll félagsskiptin, Íslandsmeistari, sænskur bikar- og deildarmeistari, veikindin og margt margt fleira.
Arnar Helgi Magnússon fékk góða gesti til að fara yfir stöðu mála og hita upp fyrir stórleik Selfoss og Hauka. Gestir þáttarins voru rándýrir að þessu sinni, Sebastian "Basti knows" Alexandersson og Andri "Krummi" Hallsson. Svona dýrt prógram væri ekki möguleg án stuðnings en þessi þáttur er í boði Red Bull, en kunnugir segja að Red Bull veiti vængi Farið er yfir tíma Basta hjá Selfossi, stöðu mála hjá kvennaliði Selfoss og síðasta leik karlaliðs Selfoss. Hitað vel upp fyrir stórleikinn gegn Haukum, farið yfir ógnir og tækifæri. Allt þetta og meira til með útúrdúrum og bransasögum. Við hvetjum alla til að fjölmenna á leikinn gegn Haukum á Sunnudaginn 24. mars kl 19:30. Og helst að taka fulla upplifun á þetta og mæta í Selið kl 18:00, fá sér borgara skeggræða við annað stuðningsfólk og sjá þjálfarafund. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: 1 2 Selfoss, Love Guru
Gestir þáttarins að þessu sinni voru þau Tómas Þór Þórðarson og Þorgerður Anna Atladóttir. Farið var yfir síðasta leik 4. umferðar í Olís-deild karla og rýnt í stuðlana í næstu leikjum auk þess sem farið var yfir síðustu leiki í Olís-deild kvenna og spáð í næstu leiki. - Selfyssingar náðu í tvö stig í Eyjum þrátt fyrir ómannlega frammistöðu Kolla í marki ÍBV. - Stjörnustelpur komu til baka eftir hrunið gegn Fram og unnu HK á heimavelli. - Ekkert gengur hjá Elíasi Má og stelpunum hans í Haukum. - Umræða um landsliðsval Gumma Gumm. - Á Viktor Gísli heima í landsliðinu miðað við frammistöðu hans í vetur? - Hversu svekktur er Janus Daði? - Hver er Sigvaldi Guðjónsson? - Hvert á maður að setja peninginn sinn á Coolbet í næstu umferð? Allt þetta og miklu meira til í nýjasta þætti Handkastsins.
Fram og til baka 26.08.2018 Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins var Fast Car með Tracy Chapman frá árinu 1987. Fimman - Laufey Helga Guðmundsdóttir lögfræðingur Laufey Helga er Hafnfirðingu og lögfræðingur hjá Umhverfis og auðlindaráðuneyti. Fimman hennar voru staðir sem hafa mótað hana eða haft mikil áhrif Hafnarfjörður sem verður alltaf “heima“, sjálfbært samfélag með bókasafninu, fótbolta og handbolta í Haukum og tónlistarskólanum. Helsinki en þar var Laufey skiptinemi í lögfræði 2006-2007. Hún sagði frá frábæru menntakerfi Finna en einnig baráttunni um fyrstu Eurovision miðana og Eurovision í Helsinki vorið 2007. Vín en þar var Eurovision haldið 2015. Laufey sagði frá gleðinni þegar Eiríkur Hafdal og Flosi Jón Ófeigsson unnu söngvakeppni Eurovision klúbbanna með This is my life. Baldvin Þór Bergsson birtir frétt á rúv.is með fyrirsögninni “Ísland vann Eurovision“. Kænugarður og Eurovision 2017. Laufey fór í nokkur sjónvarpsviðtöl meðal annars í vinsælasta morgunþætti Úkraínu og uppskar að vera beðin um sjálfur með borgarbúum. Hún sagði líka af hrifaríkri skoðunarferð í Chernobyl. Nuuk en þangað fór Laufey í vinnuferð síðasta haust. Hún upplifði flugferðina frá Köben eins og að vera fleygt 20 ár aftur í tímann. Á Grænlandi var það svo náttúran, berskjaldað umhverfið og vinalegt fólk sem hafði mikil áhrif á hana. Viðtal - Sigurður Guðmundsson tónlistarmaður sem sagði frá stórtónleikum í Hörpu þar sem fram koma reyndustu og hæfileikaríkustu hljómborðsleikarar landsins ásamt öðru úrvals tónlistarfólki. Tónleikarnir eru til að safna fyrir Hammond orgeli til heiðurs Bjarka Friðrikssonar sem lést 19 ára gamall, ungur og upprennandi Hammondleikari. Stofnað hefur verið félag utan um Hammondið sem mun halda utan um rekstur þess í samstarfi við Hörpu tónlistarhús sem mun sjá um að hýsa hljóðfærið. Fréttagetraun - sigurvegari Ósk Davíðsdóttir í Garðabæ
Fram og til baka 26.08.2018 Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins var Fast Car með Tracy Chapman frá árinu 1987. Fimman - Laufey Helga Guðmundsdóttir lögfræðingur Laufey Helga er Hafnfirðingu og lögfræðingur hjá Umhverfis og auðlindaráðuneyti. Fimman hennar voru staðir sem hafa mótað hana eða haft mikil áhrif Hafnarfjörður sem verður alltaf “heima“, sjálfbært samfélag með bókasafninu, fótbolta og handbolta í Haukum og tónlistarskólanum. Helsinki en þar var Laufey skiptinemi í lögfræði 2006-2007. Hún sagði frá frábæru menntakerfi Finna en einnig baráttunni um fyrstu Eurovision miðana og Eurovision í Helsinki vorið 2007. Vín en þar var Eurovision haldið 2015. Laufey sagði frá gleðinni þegar Eiríkur Hafdal og Flosi Jón Ófeigsson unnu söngvakeppni Eurovision klúbbanna með This is my life. Baldvin Þór Bergsson birtir frétt á rúv.is með fyrirsögninni “Ísland vann Eurovision“. Kænugarður og Eurovision 2017. Laufey fór í nokkur sjónvarpsviðtöl meðal annars í vinsælasta morgunþætti Úkraínu og uppskar að vera beðin um sjálfur með borgarbúum. Hún sagði líka af hrifaríkri skoðunarferð í Chernobyl. Nuuk en þangað fór Laufey í vinnuferð síðasta haust. Hún upplifði flugferðina frá Köben eins og að vera fleygt 20 ár aftur í tímann. Á Grænlandi var það svo náttúran, berskjaldað umhverfið og vinalegt fólk sem hafði mikil áhrif á hana. Viðtal - Sigurður Guðmundsson tónlistarmaður sem sagði frá stórtónleikum í Hörpu þar sem fram koma reyndustu og hæfileikaríkustu hljómborðsleikarar landsins ásamt öðru úrvals tónlistarfólki. Tónleikarnir eru til að safna fyrir Hammond orgeli til heiðurs Bjarka Friðrikssonar sem lést 19 ára gamall, ungur og upprennandi Hammondleikari. Stofnað hefur verið félag utan um Hammondið sem mun halda utan um rekstur þess í samstarfi við Hörpu tónlistarhús sem mun sjá um að hýsa hljóðfærið. Fréttagetraun - sigurvegari Ósk Davíðsdóttir í Garðabæ
Framundan eru tveir landsleikir hjá A-landsliði kvenna í undankeppni Eurobasket. Leikirnir eru gegn Slóvakíu og Portúgal, mikil breyting er á leikmannahóp liðsins. Helsta breytingin er sú að fyrirliði landsliðsins og besti leikmaður Íslands Helena Sverrisdóttir á von á barni og er ekki með. Hún settist niður með podcasti Karfan.is og ræddi ferilinn, Dominos deildirnar og landsleikina. Hvað gerðist hjá Haukum á síðasta tímabili? Hver er stærsti sigurinn á ferlinum og er einhver séns á að Haukar falli í ár? Svör við þessum spurningum og mörgum fleiri má finna í Podcasti vikunnar. Gestur vikunnar: Helena Sverrisdóttir Umsjónarmenn: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur
Á morgun hefjast lokaúrslit Dominos deildar kvenna með fyrstu viðureign Hauka og Vals í DB Schenker Höllinni í Hafnarfirði. Degi seinn fara lokaúrslit Dominos deildar karla svo af stað í Síkinu á Sauðárkróki með fyrsta leik Tindastóls og KR. Podcast Körfunnar fékk aðstoðarþjálfara Hauka, Vilhjálm Steinarsson, til þess að rýna í báðar viðureignir, fara yfir viðsnúning Hauka síðasta árið og ræða nokkra hluti sem hafa verið að gerast síðustu daga í deildinni. Umsjón: Davíð Eldur og Ólafur Þór Dagskrá: Ferill Vilhjálms, frá Haukum til Keflavíkur og til baka (01:00) Viðsnúningur Hauka frá síðasta tímabili (09:00) 8 lið úrslitin gegn Keflavík (21:00) Undanúrslitin gegn KR (26:30) Úrslitasería Tindastóls og KR (39:00) Úrslitasería Hauka og Vals (51:00) Þjálfaraskipti félaga síðustu daga og umræður (62:00) Betri Þjálfun podcast hans og Guðjóns (75:00)