POPULARITY
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar fer fyrir hagræðingarhópi sem hefur hafið störf, ræddi við okkur um mögulega hagræðingu innan borgarkerfisins. Þorvaldur Flemming var í beinni útsendingu frá Danmörku og fór yfir boltann. Tónlistarkonan Greta Salóme og íþróttafréttamaðurinn Valur Páll Eiríksson fóru yfir fréttir vikunnar. Óli tölva kom í heimsókn með vefsíðuna heimspuls.is. Davíð Rúnar Bjarnason ræddi við okkur um Icebox sem er í kvöld. Lalli töframaður ræddi við okkur um Töfrasprota.
Miðvikudagur 10. júní Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga Margrét Friðriks á frettin.is ræðir spillta íslenska yfirstétt sem hún segir stöðugt vinna gegn sér. Hún ræðir nýfallinn ærumeiðingadóm, eigin áfallasögu og gönguna með Jesú Kristi í samtali við Björn Þorláks og Ásdísi Olsen. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um heimsmálin, stríðin og ESB. Hallgrímur Oddsson hagfræðingur í Brussel ræðir glænýja skýrslu um ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja. Tollar, gjaldmiðlar og geópólitískar sviptingar koma til umræðu í spjalli hans við Björn Þorláks. Bjarni M. Bjarnason rithöfundur hefur varið tímanum á kaffihúsum undanfarið. Ekki til að slæpast heldur til að skrifa doktorsritgerð! Björn Þorláks ræðir við Bjarna. „Þjáningin varð fæðingarhríðir skilningsins”, segir Marta Eiríksdóttir, kennari og jógakona um erfiðustu ár ævi sinnar í samtali við Ásdísi Olsen.
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti en dugir það vopn í baráttunni þegar lykilástæður eru utan landssteinanna? Rætt við Katrínu Ólafsdóttur, lektor í hagfræði, Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins og Höllu Gunnarsdóttur, formann VR. Mælanleg áhrif eru á lífsgæði og atvinnulíf á Norðurlandi eftir að reglubundið flug til útlanda frá Akureyri festi sig í sessi. Rætt við Þórodd Bjarnason, prófessor við Háskóla Íslands.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Stefanía Hulda Marteinsdóttir frá bidlisti.is og Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, settust niður með okkur. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi við okkur um launaþróun opinberra starfsmanna. Matthías Bjarnason, oddviti Framsóknar í Árborg er 26 ára og Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalista í Reykjavík er 25 ára. Petra Sigurðardóttir, tannlæknir frá Tannlæknaþjónustunni, ræddi tannheilsu eldri borgara. Gunnar Dan, geimverusérfræðingur ræddi svakalegar vendingar í Bandaríkjunum. Sebastian Óli, samfélagsmiðlafréttamaður hjá RÚV, fór yfir hvernig flokkarnir í borgarstjórnarkosningum hafa staðið sig á samfélagsmiðlum. Enski Boltinn
Bandaríkjaforseti hefur að undanförnu skaðað trúverðugleika Nato meira á nokkrum vikum en Rússlandsforseti hefur náð að gera á margra ára tímabili. Þetta er mat Petr Pavel Tékklandsforseta og fyrrverandi hershöfðingja og formanns herforingjaráðs NATO á stöðunni sem upp er komin innan bandalagsins eftir árás Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran. Pavel segir gagnrýni Trumps ósanngjarna. Ævar Örn Jósepsson fjallar um málið. Aldursdreifing Norðurlandabúa er að breytast, frjósemi minnkar og hefur aldrei verið minni, og þeir eldast hratt. Borgirnar seiða til sín yngra fólk og innflytjendur en þeir eldri verða eftir í sveitunum. Fólksfjölgun hefur verið mun meiri í þéttbýlinu. Þóroddur Bjarnason prófessor segir þá greiningu ekki eiga við að öllu leyti hér. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hann. Orkuskipti í landbúnaði var til umfjöllunar á vefþingi sem haldið var í dag, þar sem íslenskir og erlendir þátttakendur veltu fyrir sér hvaða tækifæri felast í slíkum orkuskiptum fyrir íslenskan landbúnað. Ottó Elíasson er framkvæmdastjóri Eims, sem einblínir á orku-, auðlinda-, og loftslagsmál, Ágúst Ólafsson talar við hann. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Föstudagur 27. mars Vikuskammtur: Vika 13 Gestir Laufeyjar Líndal eru að þessu sinni Ægir Máni Bjarnason, listarmaður og aðgerðarsinni, Davíð Sól Páls, kennari og aktivisti, Miriam Petra Ómarsdóttir Awad, sérfræðingur og ráðgjafi og Hjálmtýr Heiðdal, formaður félagsins Ísland-Palestína og eftirlaunamaður.
Gestur okkar í kvöld er Birkir Bjarnason fyrrum atvinnumaður og landsliðsmaður í knattspyrnu en hann lagði nýverið skónna á hilluna eftir glæsilegan feril.Birkir er landsleikjahæsti leikmaður í sögu Íslands með 113 leiki.Birkir spilaði m.a með liðum á borð við Aston Villa, Basel, Sampdoria, Brescia og fleiri góðum liðum…Við munum gefa okkur góðan tíma til að fara yfir ferilinn hjá Birki hér í kvöld.Umræðuefni í þættinum:UpphafiðStandard LiegeÍtalíaBaselAston VillaKatar og BresciaTyrkland, Viking aftur og aftur í BresciaLeikmenn sem Birkir spilaði meðLandsliðiðFramtíðinRiddaraspurningarKalda stríðiðÞessi þáttur er í boði:KaldiÍslandssjóðirSmáríkiðGrillmarkaðurinnHeimaformKrónanBad MickeyOrka NátturunnarGIGGÓELKOECITLengjanDave&JonsFrumherjiNjótið vel kæru hlustendur.
Björn Bjarnason, fv. ráðherra, fer yfir stöðuna og það helsta úr stjórnmálunum. Við ræðum um Evrópusambandsvegferð ríkisstjórnarinnar, hrossakaupin við Flokk fólksins, viðræður utanríkisráðherra við erlenda aðila sem vita meira um stöðu mála heldur en Íslendingar, hvernig reynt er að grafa undan samskiptum Íslands og Bandaríkjanna, þróun mála með Grænland, stöðuna og samstarf ríkja á Norðurslóðum og margt fleira.
Samsýningin Auðlindagarðar fjallar um venslin á milli stóriðju og stafrænna innviða samtímans, þar sem stórar ákvarðanir um náttúruauðlindir eru teknar í sterílu skrifstofuumhverfi og sú náttúra sem flest okkar sjá er á skjáhvílum vinnutölvanna okkar. Listamennirnir, þau Agnes Ársælsdóttir, Hrafkell Tumi Georgsson, Sölvi Halldórsson og Eleni Iermia, vinna staðbundið inn í Slökkvistöðina, sem var áður hluti af Áburðarverksmiðju ríkisins. Við lítum þar við í síðari hluta þáttar. Tumi Árnason fjallar um nýafstaðna tónleika Caput hópsins í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli Jóns Nordal. Og við komum við í Höggmyndagarðinum þar sem myndlistarkonan Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnason sýnir um þessar mundir skúlptúra sem hún kallar Tilfinningasteina, en þeir eru afsprengi rannsóknar hennar á tilfinningalegum orðaforða, sem hún segist ekki vera neitt sérstaklega góð í sjálf.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Páll Pálsson fasteignasali um samanburð á fasteignamörkuðum Íslands, Þýskalands og Írlands Jón Bjarnason fyrrverandi fyrrverandi ráðherra um ESB Símatími Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair og sérfræðingur í flugrekstri um lágt gengi Icelandair Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku og loftslagsráðherra um að rýmka eignarnámsheimildir stjórnvalda í opinberum framkvæmdum. Andri Hrafn Sigurðsson sálfræðingur
Þriðjudagur 24. febrúar Höfuðborgarsvæðið, lagaleg álitamál, landsbyggðir, Íran og gervigreind Gunnar Salvarsson ræðir við Sigurjón Magnús um breytingar á höfuðborgarsvæðinu. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lagaleg álitamál og réttarheimspeki þar sem mál Margrétar Löf kemur meðal annars við sögu og viðtal við hana á Rúv í gær. Doktor Þóroddur Bjarnason ræðir byggðir landsins í tengslum við tækniumbreytingar. María Lilja Þrastardóttir ræðir við Kjartan Orra Thorsson um Íran. Björn Þorláks ræðir við Þorstein Siglaugsson heimspeking og sérfræðing í gervigreind um samfélagsbreytingar.
Öll viðtölin í þætti dagsins ásamt símatíma: Atli Stefán Yngvason framtíðarstjóri Mílu og einn stjórnenda Tæknivarpsins um sjálfkeyrandi Teslu CyperTaxi sem er með engu stýri og er á leið í fjöldaframleiðslu í apríl. Hægt að leigja hann fyrir 60 USD á dag. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands um bráðamóttöku Símatími Björgvin Jón Bjarnason forstjóri Hreinsitækni sem sér um þrifin á götum borgarinnar. Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins um Grímur Grímsson Páll Pálsson fasteignasali hjá Pálson fasteignasölu
Anthony SanFilippo and Chris Therien are LIVE from Chickie's & Pete's in Warrington, PA! Oliver Bonk and Carson Bjarnason of the Lehigh Valley Phantoms join the show to talk about their careers and the season thus far. Then, Ant and Bundy dive into the latest stories around the Flyers.
NPR's classical critic Tom Huizenga joins host Robin Hilton for our first spin of the best songs we're hearing in 2026, including new ones from Big Thief's Buck Meek, the genre-hopping artist Joji, “fragile hope” from composer Daníel Bjarnason and more. Featured artists and songs:1. Buck Meek: “Gasoline,” from ‘The Mirror'2. Pekka Kuusisto & Sam Amidon: "Way Go, Lily" (Arr. by Nico Muhly / Adapted for orchestra by Bernard Rofe), from ‘Willows'3. Joji: “Love You Less,” from ‘P*** In The Wind'4. Joyce DiDonato & Time for Three: “Because I could not stop for Death," from ‘Emily - No Prisoner Be'5. Jana Horn: “Don't think,” from ‘Jana Horn'6. Daniel Bjarnason & The Iceland Symphony Orchestra: “Fragile Hope,” from ‘The Grotesque and the Sublime' Support the show by leaving a review on Apple, Spotify, or wherever you listen to podcasts. And tell a friend!Questions, comments, suggestions or feedback of any kind always welcome: allsongs@npr.orgLearn more about sponsor message choices: podcastchoices.com/adchoicesNPR Privacy Policy
We are back for Episode 121! The Flyers arguably just had their best game of the season, where we saw rookie Denver Barkey score his 1st NHL goal. - Team USA and CAN are not going to the Gold Medal game - How did the prospects fare in the tournament? - Questions from fans - Can they fix the power play, or is it deeper than the surface? - Bjarnason and Kolosov updates - Dvorak contract extension talks - Dan Vladar refuses to slow down and alot, lot more! Follow us on X, Facebook, and Instagram: @TheLibertyYell
Björn Bjarnason fer yfir stöðuna í aðdraganda jóla og ræðir um ársafmæli ríkisstjórnarinnar, hverju hún hefur áorkað og hverju ekki, almennt um stöðuna í stjórnmálum, tilraunir til þess að festa Rúv í sessi á kostnað annarra fjölmiðla, hvort og þá hvaða hagsmuna verið sé að gæta í Evrópumálum, óskir Bandaríkjaforseta um að taka yfir Grænland og áhrif þess á Íslands, og margt fleira.
Fimmtudagur 18. desember ESB eða ekki, Reynsluboltar, list, trú, Sjálfstæðisflokkurinn og íslenskan Magnús Skjöld fyrir hönd Evrópuhreyfingarinnar sem vill inngöngu Íslands í ESB og Haraldur Ólafsson Heimssýn sem berst gegn inngöngu í ESB ræða kosti og galla aðildar Íslendinga að ESB. Björn Þorláks stýrir rökræðunni.Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður eru reynsluboltar vikunnar og ræða fréttir vikunnar, þjóðmál, menningu, árið 2025 og jólin. Píratar verða ekki til eftir nokkur ár, segir Björn Leví. Björn Þorláks ræðir við þau. Byltingunni hefur verið frestað vegna skorts á ríkisfjármagni. Listamaðurinn Almar Steinn Atlason opnar sýningu í Gluggagallaríinu Stétt. Gunnar Smári ræðir við hann.Mikil umræða hefur verið á árinu 2025 um hvort stjórnmálahreyfingar hafa gengið til góðs. Vilhjálmur Bjarnason, fyrrum þingmaður, ste ig fram fyrir nokkrum mánuðum og ræddi pólitísk hrossakaup og menningarlausan Sjálfstæðisflokk nú orðið í samtali við Björn Þorláks. Við endurflytjun það. Muhammed Emin Kizilkaya, doktorsnemi í félagsfræði við Háskóla Íslands og meðlimur í Félagi Horizon, sr. Matthildur Bjarnadóttir, prestur í Vídalínskirkju og MA í trúarbragðafræði og sr. Sigurvin Lárus Jónsson prestur í Vídalínskirkju og doktor í nýjatestamentisfræðum ræða við Gunnar Smára um kristni og Islam á Íslandi, fordóma milli trúarbragða og hvernig skapa megi frið og sátt í samfélaginu. Viðtalið er endurflutt. Á árinu sem er að líða höfum við sinnt íslenskri tungu í nokkrum mæli. Þórarinn Eldjárn þjóðskáld gefur nokkur hollráð um það hvernig við komum í veg fyrir að missa íslenskuna úr huga og hjarta. Björn Þorláks ræddi við hann, við endurflytjum viðtalið.
Mánudagur 15. desember Týnd börn, stjórnmál, hávaði, sjálfsvíg og tónlist Jón K. Jacobsen, faðir drengsins sem dó á Stuðlum, ræðir við Björn Þorláks um börnin sem kerfið virðist hunsa. Tilefni viðtalsins er sláandi viðtal við mæðgin í síðustu viku hér á Samstöðinni um fíkn, geð, úrræði og úrræðaleysi. Hann ræðir dapurleg örlög margra barna og ungmenna sem eru vistuð á Stuðlum og meðferðarúrræðið Yes We Can. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræðir stöðu stjórnar og minnihluta sem og framboð Sönnu og borgarmálin. Málþóf ber einnig á góma. Björn Þorláks ræðir við Ólaf. Vinnuaðstæður í leikskólum eru mjög mismunandi og hljóðvist barna eitt þeirra atriða sem virðast í misgóðu lagi. Fyrir skemmstu voru veitt íslensku hljóðvistarverðlaunin í flokki leikskóla. Leikskólinn Aldan á Hvolsvelli vann fyrstu verðlaun. Magnús Skúlason formaður dómnefndar og Kristín Ómarsdóttir formaður Íslenska hljóðvistarfélagsins, sem einnig var hljóðhönnuður Öldunnar ræða við Björn Þorláksson um hljóðið, fegurðina og fleira í skipulagsmálum. Endurflutningur tveggja viðtala verður í þættinum. Gunnar Smári ræðir við fjóra karla af mismunandi kynslóðum, Anton Ísak Óskarsson, Ármann Örn Bjarnason, Baldvin Frederiksen og Bjarna Karlsson, um sjálfsvíg og áhrif þeirra á aðstandendur. Hvernig glíma karlar við sorg og dauða? Og við spyrjum: Hvað var í gangi í Þingeyjarsýslunni til forna þegar hópur karla tók það upp hjá sér nánast upp úr engu að spila á fiðlu líkt og enginn væri morgundagurinn? Herdís Anna Jónsdóttir, víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands ræðir það dularfulla mál.
Leiðir til byggðafestu var yfirskrift verkefnis sem kláraðist á dögunum. Þar var leitað leiða til að efla byggð á þeim landsvæðum sem mest eiga undir sauðfjárrækt, í Dölum, Ströndum, Reykhólasveit og á Norðurlandi vestra. Unnin var greining á tækifærum til að efla byggð í þessum sveitum og síðar unnið að tillögum til úrbóta regluverks og staðið fyrir fræðslu heimamanna. Hlédís Sveinsdóttir og Björn Bjarnason stýrðu verkefninu, þau setjast hjá okkur í upphafi þáttar og segja okkur nánar frá því. Hver jól njóta mörg hundruð börn góðs af starfsemi Hjálparkokka, félagssamtaka sem aðstoða fátækar fjölskyldur að kaupa jólagjafir handa börnunum sínum. Hildur Oddsdóttir og Birna Kristín Sigurjónsdóttir, formaður og varaformaður Hjálparkokka, setjast hjá okkur seinna í þættinum til að segja okkur meira um starfsemi Hjálparkokka.
Gestur minn þessa vikuna er Þóroddur Bjarnason. Þóroddur er félagsfræðingur, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands og margt fleira. Hann er gjörsamlega frábær og magnaður. Við ræddum meðal annars um jákvæðni, félagsfræði almennt, félagsfræði nútímans, áskoranir félagsfræðinnar, rannsóknir Þórodds og háskólasamfélagið. Þú ert frábær! Ást og friður. Jákastið er í boði: - Pizza Popolare- 15% afsláttur með kóðanum JAKASTID - KS Protect - Egils Kristall - World Class
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Garðar Atli Jóhannsson, ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Verkþekkingu, ræddi við okkur vítt og breitt um byggingariðnaðinn. Heiðbrá Ólafsdóttir, kúabóndi og situr í stjórn Miðflokksins, ræddi við okkur um hrámjólk. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins ræddu blikur á lofti í íslensku samfélagi. Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, skoðaði samgöngur til og frá Keflavíkurflugvelli. Jón Þór Víglundsson frá Landsbjörgu ræddi Neyðarkallinn sem fer í sölu í dag. Helga Arnardóttir fór yfir nýja þáttinn sinn, Blóðbönd.
Linktree: https://linktr.ee/AnalyticJoin The Normandy For Additional Bonus Audio And Visual Content For All Things Nme+! Join Here: https://ow.ly/msoH50WCu0KIn this Notorious Mass Effect segment, Analytic Dreamz delivers a comprehensive analysis of Rosalía's groundbreaking 2025 single “Berghain” featuring Björk and Yves Tumor, the lead track from her upcoming album Lux, releasing November 7 via Sony Music. Clocking in at 3:26, the Nicolás Méndez-directed video amassed 3M+ YouTube views in 24 hours and 6M+ by October 29, hitting #2 globally on Trending while debuting Top 5 on Spotify Spain and trending in Germany, Iceland, and Latin America. Filmed across Berlin and Barcelona, the multilingual masterpiece in German, English, and Spanish blends organ, choir, synth bass, and London Symphony Orchestra strings conducted by Daníel Bjarnason. Analytic Dreamz dissects symbolic scenes—from Catholic iconography and a wounded heart jewel to Snow White animal motifs, a dissolving sugar cube nod to Kieslowski's Three Colors: Blue, and a white dove ascension signifying rebirth post-heartbreak with subtle Rauw Alejandro references like the fox and garnet medallion. Fashion highlights include archival Alexander McQueen Fall 2002 shredded dress, Spring 2003 rosary sandals, Givenchy Spring 1997 fringed top, and Balenciaga Spring 2004 cutout piece, curated by José Carayol to evoke holiness and reincarnation. Lux's 18-song, four-movement structure features collaborators Carminho, Estrella Morente, Silvia Pérez Cruz, and shifts from Motomami's urban edge to orchestral spirituality, with 300K+ pre-saves and 1.2M+ Instagram likes signaling massive impact. Analytic Dreamz explores lyrics like “Ich halte viele Dinge in meinem Herzen” and Björk's “divine intervention” bridge, positioning “Berghain” as Rosalía's boldest evolution yet.Support this podcast at — https://redcircle.com/analytic-dreamz-notorious-mass-effect/donationsAdvertising Inquiries: https://redcircle.com/brandsPrivacy & Opt-Out: https://redcircle.com/privacy
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokks, ræddi landbúnaðinn. Hörður J. Oddfríðarson, verkefnisstjóri hjá SÁÁ, spjallaði við okkur um fordóma gagnvart fólki með fíknisjúkdóma. Friðrika Hjördís Geirsdóttir og Margeir Vilhjálmsson fóru yfir sviðið. Gunnar Dan Wiium, geimverusérfræðingur og hlaðvarpsstjórnandi, ræddi við okkur um 3i-Atlas. Logi Einarsson, menningarmálaráðherra var á línunni og ræddi streymisveituskatt. Hilmar Jökull, formaður Tólfunnar og Kristján R. Bjarnason, ritari Tólfunnar kíktu í spjall og ræddu landsleikina framundan. Gítarleikarinn Björn Thoroddsen spilaði og spjallaði.
Miðvikudagur 10. september Gaza, sjálfsvíg, reynsluboltar, Fjallabak og söngkennsla Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um kröfur á íslensk stjórnvöld um aðgerðir gegn Ísrael vegna þjóðarmorðsins á Gaza. Metur ríkisstjórnin það svo að Bandaríkin muni beita okkur refsingum ef við beitum Ísrael aðgerðum sem geta bitið? Gunnar Smári ræðir við fjóra karla af mismunandi kynslóðum, Anton Ísak Óskarsson, Ármann Örn Bjarnason, Baldvin Frederiksen og Bjarni Karlsson, um sjálfsvíg og áhrif þeirra á aðstandendur. Hvernig glíma karlar við sorg og dauða? Sigurjón fékk til sín þrjá góða gesti; Steingerði Steinarsdóttur, Lárus Guðmundsson og Ólaf Arnarson. Þau töluðu um margt. T.d. Hvað Rússum gengur til að ógna Póllandi, Miðflokkinn og Snorra Másson, fjárlagafrumvarpið, ræðu forseta Íslands við þingsetninguna og sitt hvað fleira. Gunnar Smári fór á Fjallabak og í Borgarleikhúsinu, leikrit kl byggt á smásögu sem líka gat af sér bíómyndina Brokeback Mountain. Valur Freyr Einarsson leikstjóri og leikararnir Hjörtur Jóhann Jónsson og Björn Stefánsson koma að Rauða borðinu og ræða erindi og inntak þessarar sögu af ungum mönnum sem fella saman hugi í samfélagi sem vill ekki viðurkenna ást þeirra. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir söngkona og skólastjóri Söngskólans ræðir leiðir til að minnka efnahagslega stéttaskiptingu í tónlistarnámi barna og koma fleiri börnum í nám. Björn Þorláks ræðir við hana.
Miðvikudagur 3. september Kastljósumræðan, hafstraumar, Sjálfstæðisflokkurinn, Reynsluboltar og mótmælendur Það veldur umtalsverðri vanlíðan hjá aðstandendum trans fólks að hlusta á vanstillta orðræðu Snorra Mássonar og sjá undirtektirnar. Þetta segir Þórgnýr Dýrfjörð, faðir transeinstaklings í samtali við Björn Þorláksson. Stefán Jón Hafstein sem hefur skrifað mikið um umhverfismál ræðir ögurstundina sem nú er uppi. Miklu varðar að Íslendingar ekki síður en aðrar þjóðir breyti hegðun sinni til að vernda hlýja hafstrauma og fleira. Björn Þorláks ræðir við Stefán. Reynsluboltar Sigurjóns Magnússonar verða á dagskrá en þar ræðir folk þjóðmálin. Gestir þáttarins eru Guðmundur Þ. Ragnarsson, Vilborg Oddsdóttir, Margrét Sanders og Þorsteinn Sæmundsson. Lögregluaðgerðir við Hlemm-Mathöll. María Lilja ræddi við vitni. Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður segir sinn gamla flokk, Sjálfstæðisflokkinn óþekkjanlegan. Hann segir minnkandi ítök valdaflokkanna gömlu eiga sér skýringar sem hann ræðir í samtali við Björn Þorláksson. Og við endum þáttinn á ofbeldi gegn mótmælendum. Daníel Thor Bjarnason, Helga Ögmundardóttir og Margrét Baldursdóttir eru öll virk í hreyfingunni fyrir frjálsri Palestínu. Þau lýsa fyrir Maríu Lilju hvernig þau hafa öll orðið fyrir líkamlegu ofbeldi á mótmælum undanfarið og hvernig lögregla og fjölmiðlar eiga þátt.
"Ich bin von Natur aus ein dramatischer Komponist", sagt Daníel Bjarnason. Und dabei geht es dem 46-Jährigen nicht nur um große musikalische Gesten, sondern vor allem ums Geschichtenerzählen, ums Malen überwältigender wie detailreicher Klangbilder. Heute ist Bjarnason eine der bedeutendsten künstlerischen Stimmen Islands, vielfach ausgezeichnet und sorgt weltweit für frischen Wind in den Konzertsälen.
Anthony SanFilippo, Russ Joy, and Chris Therien are joined by Flyers goalie prospect Carson Bjarnason. Topics include his career thus far, tattoos, his love of art, and more.
Mánudagur 11. ágúst Palestína, pólitík, brennivín & sport, ESB og danslög við fiðlu Qussay Oddeh, íslenskur Palestínumaður, ræðir við Gunnar Smára um ástandið í Palestínu. Sem hefur aldrei verið verra. Ólafur Þ. Harðarson og Eva H. Önnudóttir prófessorar í stjórnmálafræði ræða við Björn Þorláks um stöðu ríkisstjórnarinnar, stjórnarandstöðu og gat í hinu pólitíska litrófi. Markaðsöflin vilja normalisera drykkju á íþróttaviðburðum segir Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Er Íslandi betur borgið í ESB eða utan? Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Ágúst Ólafur Ágústsson aðstoðarmaður borgarstjóra og Erna Bjarnadóttir hagfræðingur hjá Bændasamtökunum kryfja málin með Birni Þorláks. Atli Freyr Hjaltason, þjóðfræðingur ræðir við Maríu Lilju um útgáfu Danslaga fyrir fiðlu, gleymd menningarverðmæti Jónasar Helgasonar.
Björn Bjarnason fer yfir ein skrautlegustu þinglok sögunnar, hvernig hin svokallaða verkstjórn ber ekki nafn með rentu, Flokk fólksins sem virkar eins og hækja fyrir erfið mál ríkisstjórnarinnar, hvort að forseta þingsins sé stætt á að gegna því embætti áfram, nýjan sendiherra í Brussel sem er ætlað að liðka til fyrir umsóknarferli að Evrópusambandinu og margt fleira sem snýr að íslenskum stjórnmálum. Þá ræðum við líka um stöðuna á erlendum vettvangi, til að mynda hvort að vestræn ríki hafi stutt við bakið á Úkraínu eins og þau höfðu sagst ætla að gera og fleira.
Mannréttindaráðstefna World Pride var haldin í síðustu viku í höfuðborg Bandaríkjanna – en ráðstefnan er hluti af stærstu hinsegin viðburðarröð heims og dregur að sér þátttakendur, sérfræðinga og leiðtoga alls staðar að úr heiminum til að ræða stöðu og framtíð mannréttinda hinsegin fólks. Fulltrúar Samtakanna 78 og Hinsegin daga tóku meðal annarra þátt í ráðstefnunni og í dag koma þeir í heimsókn til okkar - þær Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna 78, og Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga – til að gera upp ráðstefnuna. Fyrstu samfélagslögreglumennirnir á Íslandi tóku til starfa fyrir rúmum sex árum síðan. Síðan hefur verkefnið vaxið hratt og nú eru starfandi samfélagslöggur á flestum lögreglustöðvum landsins. Við ræðum við Unnar Þór Bjarnason, reynda samfélagslöggu, um hvernig megi skapa traust og tengsl milli lögreglunnar og almennings og hvernig lögreglan hefur stigið inn í erfið mál tengd unglingum og ungu fólki. Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, fræðir okkur um loftslagsbreytingar og mjólkurvörur. Tónlist í þættinum: Japanese Breakfast - Slide Tackle Suki Waterhouse - Supersad
Gunnlaugur og Ármann ræða hlaðvarpið sitt Flimtan og fáryrði þar sem þeir ræða fornbókmenntir og upp á síðkastið hafa þeir rætt um óperur,
Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir um stöðu ríkisstjórnarinnar eftir afsögn menntamálaráðherra, þau ósköp sem hafa gengið yfir á fyrstu þremur mánuðum ríkisstjórnarinnar, ummæli sem hann lét falla um Flokk fólksins í hlaðvarpi Þjóðmála í byrjun ársins og fleira. Þá er rætt um stefnu og orðræðu Bandaríkjaforseta í garð vestrænna ríkja, stöðu mála í Úkraínu, hvort að vestræn ríki þurfi að friðþægjast við Rússa á einhverjum tímapunkti og fleira úr alþjóðamálunum - en einnig um öryggis- og varnarmál hér heima fyrir og hvernig þau mál eru líkleg til að þróast næstu misseri.
Í dag gerum við upp viðtalsröð okkar um framtíðir og framtíðarsýnir, sem lauk í síðustu viku og hafði staðið yfir í rúmar fjórar vikur. Í þessum viðtölum könnuðum við framtíðarvonir fólks sem tók þátt í framtíðarfestivali Borgarbókasafnsins, sem var haldið í lok janúar, en þær Dögg Sigmarsdóttir og Martyna Karólína Daniel, verkefnastjórar á Borgarbókasafninu, koma til okkar til að gera upp festivalið og viðtölin sem við tókum í kringum það. Við ætlum að fjalla um möguleika fólks með fötlun til að afla sér menntunar. Nýlega fór af stað atvinnumiðað nám ætlað fötluðum hjá öllum símenntunarmiðstöðvum á landinu. Hjá símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, Símey, útskrifuðust sex nemendur á síðustu önn og samtals útskrifuðust 56 á landsvísu. Við spjöllum við Jennýju Gunnarsdóttur, verkefnastjóra hjá Símey, og Daníel Smára Bjarnason, sem er nýlega útskrifaður af námskeiðinu og starfar nú hjá Fagkaupum. Hátt í 60% íbúa jarðar búa í þéttbýli og útlit er fyrir að hlutfallið hækki ört á næstu árum. Þá ver fólk á Vesturlöndum nær öllum sínum tíma innandyra. Páll Líndal, umhverfissálfræðingur, fjallar um þetta í pistli dagsins.
Við ræðum við Róbert Bjarnason, frumkvöðul og sérfræðing í gervigreind, um nýtt gervigreindartól sem kemur frá Kína, DeepSeek. Hver er munurinn á DeepSeek og OpenAi og ChatGPT? Er eitthvað merkilegt við DeepSeek? Hallveig Kristín Eiríksdóttir, sviðslistakona, er hugsi eftir HM í handbolta. Það hafa margir íslendingar spilað með Gummersbach. Hvar er Gummersbach og hvernig bær er það? Kornukópía nefnist tónleika kvikmynd Bjarkar Guðmundsdótttur sem frumsýnd verður 1. febrúar, fyrst á Íslandi, síðar um heim allan. Leikstjóri myndar er Ísold Uggadóttir, framleiðandi Sara Nassim. Myndin byggir að mestu á tónlist af plötu hennar Utopia, þar sem hún kemur inn á mál sem eru henni hugleikin, þar á meðal umhverfismál, jafnrétti og femínisma. Björk sest niður með Önnu Gyðu Sigurgísladóttur í þætti dagsins.
Andri Rúnar Bjarnason, sóknarmaður Stjörnunnar, er sérstakur gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu þennan föstudaginn. Andri er stuðningsmaður Manchester United sem hefur farið býsna vel af stað á árinu 2025. Man Utd vann endurkomusigur á Southampton í gær þar sem Amad Diallo skoraði þrennu. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir þættinum og Magnús Haukur Harðarson er að venju með. Farið er yfir síðustu leiki og stöðuna í deildinni.
Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar að sækjast ekki eftir endurkjöri sem formaður Sjálfstæðisflokksins, formannstíð Bjarna, stöðu flokksins og almennt yfir stöðuna í íslenskum stjórnmálum. Þá er einnig rætt um stöðuna í alþjóðastjórnmálum, valdatöku Trump síðar í þessum mánuði, veikleika ESB-ríkjanna, stöðuna í Úkraínu og margt fleira.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 7. desember. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fréttir vikunnar og fá svo tvo góða gesti í heimsókn. Andri Rúnar Bjarnason kvaddi Vestra og gekk í raðir Stjörnunnar nýlega. Elías Ingi Árnason dómari ræðir um dómgæsluna og mistökin sín sem gerðu Skagamenn bálreiða.
In questa puntata:- Focus: pochi, ma spesso buoni. In Islanda con Leonardo Piccione
In this episode I host Carson Bjarnason of the Brandon Wheat Kings. Carson was drafted in the 2nd Round by Philadelphia in the 2023 NHL Draft. Carson has won a gold medal for Canada and a bronze as well.
Liverpool stuðningsmenn eru í skýjunum þessa dagana en það er óhætt að fullyrða að liðið þeirra sé það besta í Evrópu um þessar mundir. Hvern hefði grunað það fyrir tímabilið? Útvarpsmennirnir Bolli Már Bjarnason og Heiðar Austmann komu í heimsókn í dag og fóru yfir tímabilið hjá Liverpool til þessa en liðið er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fimm stiga forskot. Þá var einnig farið yfir aðra leiki helgarinnar; tíma Ruud van Nistelrooy hjá Manchester United, vandræði Manchester City og margt fleira.
Bolli Már Bjarnason er uppistandari og útvarpsmaður, veiðimaður líka, og margt fleira. Í þættinum ræðum við jólin og rjúpurnar, áhugamál og fjölskyldulíf, vinnu og peninga. Lífið á Íslandi er líka til umræðu sem og samanburður við Japan.Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 19. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltatíðindi vikunnar, landsliðið, lokabaráttuna í Bestu deildinni og fleira. Hörður Snævar Jónsson ritstjóri 433.is er á línunni og ræðir um landsliðið og framtíð Age Hareide landsliðsþjálfara en Hörður telur framfarirnar ekki nægilega miklar undir hans stjórn. Ragnar Páll Bjarnason formaður fótboltadeildar Fylkis ræðir um vonbrigðatímabil í Árbænum og spennandi þjálfararáðningu. Reiði stuðningsmanna ÍR, nýtt undirlag Laugardalsvallar og ýmislegt fleira kemur við sögu!
Við hittum Bjarna Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóra og píanóleikara á bílaverkstæði við Smiðjuveg í þætti dagsins. Bjarni mun halda þar tónleika um næstu helgi sem eru hluti af tónlistarhátíðinni State of the Art sem hefst á morgun og stendur til 12.október. Við munum einnig kynna okkur skýrslu sem heitir Framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar á Íslandi. Hún er unnin fyrir Menningar- og viðskiptaráðuneytið af Ágústi Ólafi Ágústssyni hagfræðingi. Ágúst Ólafur og Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknarseturs Skapandi greina, verða gestir okkar í dag. Nína Hjálmarsdóttir verður einnig með okkur í þætti dagsins, en hún fór að sjá Eltum veðrið, sem frumsýnt var í þjóðleikhúsinu á föstudag.
Björn Bjarnason var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu Atlantshafsbandalagið en 75 ár eru í dag frá því stofnsáttmáli bandalagsins var undirritaður. Björn er fyrrverandi ráðherra og alþingismaður og jafnframt sérfræðingur um utanríkis-, öryggis- og varnarmál. Norræna ráðherranefndin fékk hann fyrir nokkrum árum til að gera tillögur um eflingu norræns utanríkismálasamstarfs. Bjarni Benediktsson, faðir Björns, var utanríkisráðherra 1949 og undirritaði Atlantshafssáttmálann fyrir hönd Íslands.
Dylan and Dan return to talk Hunter McDonald arriving in Lehigh, Barkey hits 100 points, Bjarnason's season and Kolosov's ETA, Phantoms playoff push, re-signing TK, analyzing the Flyers' rebuild, more!
Gestur þáttarins er fyrrum landsliðsmaðurinn og núverandi leikmaður KR, Theódór Elmar Bjarnason. Umsjón hafa Helgi Fannar og Keli.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 21. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar, Andri Rúnar Bjarnason á línunni, Smári Gunnarsson leikstjóri Heimaleiksins og Valgeir Lunddal gestir.
Flyers trounced in preseason opener, five players cut, Bjarnason signs ELC, and Scott Laughton chirps Jim.
In the feature interview, presented by Sense Arena, Bjarnason walks us through life as the top-ranked North American goalie in the 2023 NHL Draft, from managing questions from teams (and their big-name managers) at the NHL Combine in Buffalo, to the draft floor in Nashville, where the Flyers traded up to pick him in the second round, to his first NHL Development Camp in Philadelphia. There are plenty of incredible takeaways and tips that come from that last part, including some invaluable lessons on managing your on-ice vision habits and reading the play, that you won't want to miss. Bjarnason also walks us through his roots in the position, including going from a late start as a goalie to the WHL (despite not being drafted as a bantam, another great lesson), how his passion was fuelled by Miikka Kiprusoff and drawing pictures of goalies when he was younger, learning to play the guitar, the evolution of his mental game (and the hazards of being too laid back) and so much more.It really is a can't miss interview, but that's not all you won't want to miss. While we forego our usual in-person trip to The Hockey Shop Source for Sports, they still helped us bring you a great second guest this week. Kaylie Dankevy, shares a glimpse into her life as the goalie product manager for CCM, and insights into the research behind a couple new pieces of gear in stores now, and some exciting hints at what's still to come, both later this summer and in subsequent seasons.
In this EP I read from an interview I did with Halldor Bjarnasion. Halldor was born with Cerebral Palsy and despite his disability, has carved quite a career and life for himself. I wanted to tell his story, and we both agreed that his speech would be to challenge for the listener. So in this episode, I endeavor to represent his voice and bring you through a small part of the life of an incredible human. After graduating from high school Halldor attended university in Winnipeg where he earned an honors degree in political science. He then attended Queen's University in Kingston, Ontario where he received his Bachelor of Laws degree. After graduating from Queen's in 1989 he again faced some challenges in finding a firm that would allow him to article, but finally managed to do so with an established firm in Toronto's Bay Street area. He was called to the Ontario Bar in 1991 and then moved to Vancouver where he was called to the Bar in 1993.During all of these years, Halldor was also involved in sports. His accomplishments are many, leading to 2 medals in the 1988 Paralympic Games in Seoul, gold in the 1500 M, and silver in the 3000 m trike events. After many more competitions, he again competed at the Paralympic Games in 1992 in Barcelona. He was inducted into the Manitoba Sports Hall of Fame for his achievements in Seoul and served on the CPISRA Athletes Commission for 4 years. He was a member of the CCPSA Constitutional Committee from 1987 – 1989. Halldor is also the recipient of many other awards: the Governor Generals Medal, the Terry Fox Humanitarian Award, and a community service award from the BC branch of the Canadian Bar Association.Over the years Halldor has been involved in many organizations: the Law Society of BC's Disability Advisory Committee, the Law Society of BC's Equity and Diversity Committee, the BC Sports Medicine Council, the Planned Lifetime Advocacy Network, and the Neil Squire Foundation, just to name a few. Halldor has also been an educator, teaching at UBC, West Coast School of Massage, and Langara College. He is a successful publisher, having written a book with co-author Lynda Cannell. He has also written a second book on the history of the Winnipeg Fire Dept, proving that his dreams as a little boy are still lurking somewhere in the back of his mind!Since 2003 Halldor has been working for the Vancouver firm Access Law Group. He is an inspiration not only to his co-workers but his clients and all who have had the pleasure of meeting and dealing with him. His sense of humor is infectious, and he has a smile you don't easily forget. I hope you enjoy this podcast, I know I enjoyed telling his story.If you liked this EP, please take the time to rate and comment, share with a friend, and connect with us on social channels IG @Kingopain, TW @BuiltbyScott, LI+FB Scott Livingston. All things LYM at www.LYMLab.com, download your free Life Lab Starter Kit today and get busy living https://lymlab.com/free-lym-lab-starter/