Blekvarpið

Follow Blekvarpið
Share on
Copy link to clipboard

Blekvarpið er hlaðvarp meistaranema í ritlist við Háskóla Íslands.

Blekvarpið

  • Jun 3, 2020 LATEST EPISODE
  • monthly NEW EPISODES
  • 24m AVG DURATION
  • 15 EPISODES


Search for episodes from Blekvarpið with a specific topic:

Latest episodes from Blekvarpið

Möndulhalli - Ritstjóraspjall

Play Episode Listen Later Jun 3, 2020 49:55


Í þættinum eru þrír af sex ritstjórum Möndulhalla mættir í viðtal. Það eru Sahara Rós Ívarsdóttir, Einar Kári Jóhannsson og Hólmfríður María Bjarnadóttir. Rebekka Sif mun stjórna umræðum. Einnig má heyra brot úr þremur sögum en þær eru eftir Ólöfu Sverrisdóttur, Örvar Smárason og Rebekku Sif Stefánsdóttur. Möndulhalla má finna í öllum betri bókabúðum og á heimasíðu Unu útgáfuhúss.

Möndulhalli - Höfundaspjall

Play Episode Listen Later May 26, 2020 46:30


Í þættinum ræða fjórir af tíu höfundum smásagnasafnsins Möndulhalla um sköpunarsögu bókarinnar. Hægt er að tryggja sér eintak af Möndulhalla á heimasíðu Unu útgáfuhúss, utgafuhus.is eða í öllum betri bókabúðum eftir 28. Maí. Í þættinum má einnig heyra brot úr sögum eftir Marinellu Arnórsdóttur, Hauk Hólmsteinsson og Sigríði Helgu Jónasdóttur. Rebekka Sif Stefánsdóttur er umsjónarmaður þáttarins.

Handritaskrif

Play Episode Listen Later May 4, 2020 50:35


Í fimmta þætti ræða Rebekka Sif og Marinella við Dominique Gyðu Sigrúnardóttur, leikkonu, handritshöfund og ritlistanema, um handritaskrif. Í þættinum má einnig heyra einleik eftir Ólöfu Sverrisdóttur og leiksenuna „Stefnumótið“ eftir Þuríði Sóleyju Sigurðardóttur.

Með öðru sniði

Play Episode Listen Later Apr 13, 2020 24:47


Þátturinn í dag verður með öðru sniði. Vegna veirunnar skæðu gátum við ekki tekið viðtal í þetta skiptið en biðluðumst í staðinn til höfunda til að senda okkur örsögur og ljóð. Þátturinn er því uppfullur af glænýju efni eftir ritlistarnema sem að við vonum að gleðji eyru og eirðarlausar sálir. Sögurnar eru fjölbreyttar og væri gaman að heyra frá ykkur, kæru hlustendur, hvað ykkur finnst um þetta snið þáttarins. Höfundar lesa sjálfir upp sögurnar. Njótið.Höfundar og sögur þáttarins:Kristín Nanna Einarsdóttir – TímaglasÓlöf Sverrisdóttir – Fiskur á þurru landi Vignir Árnason – KóvítiBerglind Ósk Bergsdóttir – SjálfstýringRebekka Sif Stefánsdóttir – AfhjúpunHlín Leifsdóttir – Ekkó og NarkissaMarinella Arnórsdóttir – OrðafárÞuríður Sóley Sigurðardóttir - Ferðalag Covid

Smásögur og örsögur

Play Episode Listen Later Mar 21, 2020 47:43


Í þættinum í dag ætlum við að ræða um smásögur og örsögur. Rebekka og Marinella taka óformlegt viðtal við Gunnhildi Jónatansdóttur og fáum svo að heyra sögur eftir Ásdísi Ingólfsdóttur og Hlín Leifsdóttur.

Ritrýni og ritvinir

Play Episode Listen Later Mar 1, 2020 55:43


Í öðrum þætti Blekvarpsins fáum við til okkar góðan gest, hana Berglindi Ósk Bergsdóttur, ljóðskáld og tölvunarfræðing. Hún er á sínu fyrsta ári í ritlist. Þema þáttarins er ritrýni og ritvinir. Fyrst heyrum við viðtal við Berglindi og upplestur hennar á nýrri sögu. Í seinni part þáttar má heyra Rebekku Sif, Þuríði og Marinellu ritrýna texta og umræður þeirra.

Hvað er ritlist?

Play Episode Listen Later Feb 9, 2020 41:37


Í þættinum í dag ræða Rebekka Sif Stefánsdóttir, Marinella Arnórsdóttir og Þuríður Sóley Sigurðardóttir, ritlistarnemar, þær stóru spurningar: Hvað er ritlist? Af hverju erum við í ritlist? Hvað fær maður út úr því að fara í ritlistarnám á meistarastigi? Svo fáið þið að heyra smásögu eftir Gunnhildi Jónatansdóttur sem áður hefur verið gefin út í bókinni „Það er alltaf eitthvað“ sem kom út hjá Unu útgáfuhúsi vorið 2019. Í lok þáttarins er svo hljóðbútur frá skriftarkvöldi Blekfjelagsins sem hefur yfirskriftina „Látum blekið leka”, þar heyrast verk í vinnslu eftir Núma Arnarson og Vigni Árnason.Upptökur og eftirvinnsla: Rebekka Sif Stefánsdóttir.Tónlist eftir Kevin MacLeod, lagið heitir The Show Must Be Go. (https://filmmusic.io -https://incompetech.com)License: CC BY (http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/)

Hefðir - 8. þáttur

Play Episode Listen Later Feb 3, 2020 7:14


Í lokaþætti Hefða verða sögur eftir fjóra ritlistarnema lesnar upp. Höfundur les nema að annað komi fram. Í þessum þætti eru sögur eftir Örvar Smárason, Ragnheiði Guðbjargar Hrafnkelsdóttur (Lára Kristín Sturludóttir les), Sigrúnu Björnsdóttur og Sonju B. Jónsdóttur. Umsjón og klipping: Rebekka Sif Stefánsdóttir. Upptökur: Gunnhildur Jónatansdóttir.

Hefðir - 7. þáttur

Play Episode Listen Later Feb 3, 2020 7:19


Nú munu fjórir ritlistarnemar lesa upp örsögu, hver saga er aðeins 93 orð. Sögurnar má finna í Hefðum - Jólabók Blekfjelagsins. Umsjón og klipping: Rebekka Sif Stefánsdóttir. Upptökur: Gunnhildur Jónatansdóttir.

Hefðir - 6. þáttur

Play Episode Listen Later Feb 3, 2020 7:43


Í sjötta þætti verða sögur eftir fjóra ritlistarnema lesnar upp. Höfundur les nema að annað komi fram. Í þessum þætti eru sögur eftir Elínu Eddu Þorsteinsdóttur, Jónínu Óskarsdóttur, Brynjar Jóhannesson og Katrínu Vinther Reynisdóttur (Lára Kristín Sturludóttir les). Umsjón og klipping: Rebekka Sif Stefánsdóttir. Upptökur: Gunnhildur Jónatansdóttir.

Hefðir - 5. þáttur

Play Episode Listen Later Feb 3, 2020 6:52


Nú munu fjórir ritlistarnemar lesa upp örsögu, hver saga er aðeins 93 orð. Sögurnar má finna í Hefðum - Jólabók Blekfjelagsins. Umsjón og klipping: Rebekka Sif Stefánsdóttir. Upptökur: Gunnhildur Jónatansdóttir.

Hefðir - 4. þáttur

Play Episode Listen Later Feb 3, 2020 6:39


Nú munu fjórir ritlistarnemar lesa upp örsögu, hver saga er aðeins 93 orð. Sögurnar má finna í Hefðum - Jólabók Blekfjelagsins. Umsjón og klipping: Rebekka Sif Stefánsdóttir. Upptökur: Gunnhildur Jónatansdóttir.

Hefðir - 3. þáttur

Play Episode Listen Later Feb 3, 2020 6:43


Nú munu fjórir ritlistarnemar lesa upp örsögu, hver saga er aðeins 93 orð. Sögurnar má finna í Hefðum - Jólabók Blekfjelagsins. Umsjón og klipping: Rebekka Sif Stefánsdóttir. Upptökur: Gunnhildur Jónatansdóttir.

Hefðir - 2. þáttur

Play Episode Listen Later Feb 3, 2020 7:17


Nú munu fjórir ritlistarnemar lesa upp örsögu, hver saga er aðeins 93 orð. Sögurnar má finna í Hefðum - Jólabók Blekfjelagsins. Umsjón og klipping: Rebekka Sif Stefánsdóttir. Upptökur: Gunnhildur Jónatansdóttir.

Hefðir - 1. þáttur

Play Episode Listen Later Feb 3, 2020 7:00


Í fyrsta þætti verða sögur eftir fjóra ritlistarnema lesnar upp. Höfundur les nema að annað komi fram. Í þessum þætti eru sögur eftir Gunnhildi Jónatansdóttur, Arnór Kára Egilsson, Rebekku Sif Stefánsdóttur og Ólöfu Sverrisdóttur. Umsjón og klipping: Rebekka Sif Stefánsdóttir. Upptökur: Gunnhildur Jónatansdóttir.

Claim Blekvarpið

In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

Claim Cancel