POPULARITY
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Guðlaug María Bjarnadóttir, formaður Lindar, félags fólks með meðfædda ónæmisgalla og Súsanna Antonsdóttir, gjaldkeri félagsins, ræddu við okkur um vitundarvakningarviku. Þóra Jónasdóttir, yfirdýralæknir Matvælastofnunar, ræddi alvarleg mál er varðar ofbeldi og hótanir gegn starfsfólki MAST. Tommi Steindórs, dagskrárstjóri X-ins 977 og Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður á Sýn, fóru yfir fréttir vikunnar. Jón Jósep Snæbjörnsson, viðskiptatengslastjóri Aurbjargar og Baldvin Egill Baldvinsson, fjártæknisérfræðingur ræddu bráðsniðugt lífeyristól. Sigga Ósk, nýkrýnd Ungfrú Ísland, og Manuela Ósk, keppnishaldari mættu í spjall. Óskar Einarsson, Gospelfrömuður kíkti í spjall. Jakob Frímann Magnússon settist niður með okkur.
Hin 850 ára saga af Flóres og Blankiflúr var eins konar metsölubók miðalda og gífurlega vinsæl um alla Evrópu, meðal annars hér á landi. Nýverið hafði lítið félag í þorpinu Assenede í Belgíu frumkvæði að því að sagan yrði saumuð út í 93 metra refil og hafði samband við fræðimenn þeirra 12 landa þar sem eldgamlar þýðingar á sögunni hafa fundist. Síðasta árið hafa þrjár íslenskar konur setið við og saumað út senu úr sögunni, sem þær munu afhenda í Belgíu í næstu viku. Við hittum eina þeirra, refilssaumskonuna Kristínu Bjarnadóttur, í síðari hluta þáttar. Trausti Ólafsson rýnir í sýninguna Ég, Jóhanna, sem sýnd er í Tjarnarbíói, og við lítum til Feneyja, því það styttist í opnun á Feneyjatvíæringnum í myndlist. Ásta Fanney Sigurðardóttir fer fyrir Íslands hönd og hefur sýning hennar fengið titilinn Pocket Universe, en verkið samanstendur af vídeóverki, hljóðverki, skúlptúrum og gjörningum. Sýningarstjórar eru þau Margrét Áskelsdóttir og Unnar Örn og við sláum á þráðinn til þeirra í þætti dagsins.
Græn, gul og rauð samskipti og samspil við taugakerfið er nokkuð sem við skoðuðum í þættinum í dag. Hvernig streita hefur áhrif á öll samskipti og hvernig við skynjum okkur sjálf og aðra ólíkt eftir því hvort við erum í jafnvægi eða í streitu. Gyða Dröfn Tryggvadóttir kom í þáttinn, en hún er með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu frá Háskólanum í Reykjavík og hefur einnig lokið námi í uppeldis- og áfallafræðumn Piu Mellody. Talandi um græn samskipti, þá töluðum við um Grænu gönguna sem fer fram á fimmtudaginn á Sumardaginn fyrsta. Og ekki nóg með það, heldur verður hátíðarsamkoma í lok göngunna í Hljómskálagarðinum, svo er það svokallaður Grænn pallur, þar sem frambjóðendur í sveitastjórnarkosningunum framundan munu ræða grænu málin og svo er það hápunkturinn, tónlistarveislan Hálendishátíð í Iðnó þar sem þekkt tónlistarfólk leggur náttúrunni lið með sinni tónlist. Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar og Snæbjörn Guðmundsson jarðfræðingur og formaður Náttúrugriða komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá þessu. Að lokum var það Heilsuvaktin. Að þessu sinni talaði Helga Arnardóttir við Auði Bjarnadóttur dansara, leikstjóra og jógakennara sem hefur kennt jóga í tæp 30 ár og verið ein af frumkvöðlum á sviði meðgöngujóga sem hefur verið afar vinsælt. Auður hefur líka kennt hundruðum kvenna að verða jógakennarar undanfarna tvo áratugi. Hún segir þær ekkert endilega allar verða kennarar en námið nýtist þeim í að ná tökum á streitu, jafnvel kulnun og hreinlega jafnvægi í lífinu. Tónlist í þættinum í dag: Í grænum mó / Ellý Vilhjálms og Hljómsveit Svavars Gests (Sigfús Halldórsson, texti Gestur Guðfinnsson) Bíldudals grænar baunir / Jolli & Kóla (Valgeir Guðjónsson) Græna byltingin / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Við fórum á Þjóðskjalasafnið og hittum Indriða Svavar Sigurðsson skjalavörð og hann sagði okkur afar merkilega sögu. Hann hafði heyrt að langafi hans hafi veirð einn 9 manna sem urðu fyrir eldingu við bæinn Auðnar á Vatnsleysuströnd 16. mars árið 1865. Þessi viðburður hafði vakið mikla athygli á sínum tíma og Indriði, verandi skjalavörður, hóf að leita að heimildum á safninu. Hann fann nokkrar frumheimildir um þetta undarlega og voðalega slys, þar á meðal skýrslu sem Jón Hjaltalín landlæknir skrifaði og sendi heilbrigðisyfirvöldum í Danmörku. Við heyrðum meira um þessa ótrúlegu sögu í þættinum í dag. Rabbarbarinn á uppruna sinn í Kína og hefur því ferðast langa leið áður en hann festi rætur í íslenskum görðum sem fjölært nytjagrænmeti. En getum við hugsanlega nýtt þessa áhugaverðu plöntu betur? Við veltum því fyrir okkur í dag með Björk Bjarnadóttur, umhverfis- þjóðfræðingi, en hún heldur einmitt erindi um það í Fróðleikskaffi á Borgarbókasafninu Árbæ í dag. Lesandi vikunnar var Dóra Lena Christians verslunarstjóri í Bóksölu stúdenta og meistaranámsnemi í almennri bókmenntafræði. Hún er nýkomin aftur til landsins eftir að hafa sótt stóru bókamessuna í London. Við fengum hana til að segja okkur aðeins frá því en svo auðvitað líka þeim bókum sem hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Tónlist í þættinum: Meiriháttar / Rósa Guðrún Sveinsdóttir (Rósa Guðrún Sveinsdóttir) Í dansi með þér / Ingibjörg Þorbergs, Marzbræður og Kvartett Jans Morávek (Pablo Beltran Ruiz, texti Þorsteinn Sveinsson) And I love her / The Beatles (Lennon & McCartney) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Bítið á Bylgjunni með Heimi. Lilju og Ómari. Sara Sigurðardóttir skrifaði áhugaverðan pistil um gervigreind á Íslandi. Gunnar Þór Geirsson, formaður félags íslenskra heimilislækna, var á línunni og ræddi ástand heilsugæslunnar. Kristján Ingi Mikaelsson og Máni Pétursson fóru yfir það helsta í vikunni. Halla Karen Johnsdóttir ,stjórnarkona UAK og Embla Líf Hallsdóttir, ráðstefnustýra ræddu við okkur um áhugaverða ráðstefnu á morgun. Hjónin Addi Fannar og Yesmine Olsson sögðu okkur frá áhugaverðum gesti sem mætir í Hörpu í næstu viku. Ívar og Þórey, helvítis hjónin, ræddu matarmarkaðinn í Hörpu. Kristbjörg Bjarnadóttir, annar stofnandi Smakk sem verður líka á matarmarkaðinum í Hörpu, settist niður með okkur.
Miðvikudagur 18. febrúar Vændi, ill meðferð á börnum, áfengi, Trump, VG og sniðganga Jón Gnarr þingmaður og Guðný S. Bjarnadóttir stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundnu ofbeldi ræða við Gunnar Smára um vændi, slaufun, ábyrgð og annað sem tilheyrir umræðunni um átök milli kynjanna. Gunnar Sigurðsson leikstjóri og ferðaþjónustuaðili segir sögu sína í samtali við Björn Þorláks en Gunnar var sviptur skólagöngu sem barn og flakkaði milli heimila. Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum fer yfir umræðu sl. daga um aðgengismál að áfengi með Maríu Lilju. Bjarni Randver Sigurvinsson guð- og trúarbragðafræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræða við Gunnar Smára um áhrif Trump, ekki síst kröfu hans manna um Evrópa verði eins og Bandaríki Trump. Stefán Pálsson, Líf Magneudóttir og Maarit Kaipainen fara yfir stöðuna hjá VG. Þau bjóða sig öll fram í forvali VG og eru á því að flokkurinn standi á tímamótum. Björn Þorláks ræðir við þau. Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, sjálfboðaliði hjá sniðgönguhreyfingunni ræðir við Maríu Lilju um sniðgöngu fyrir Palestínu og segir frá viðburði sem haldinn verður í Norræna húsinu tengdum málefninu.
Fasteignasalan Pálsson býður upp á þennan þátt ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar: Lítið hefur heyrst frá þolendum eftir háværar byltingar undanfarin ár. Má túlka það sem svo að byltingarnar hafi skilað árangri eða eru aðrar ástæður fyrir þögn þolenda? Við fáum innsýn í reynslu Guðnýjar af íslenska réttarkerfinu en gagnrýni hennar leiddi meðal annars til þess að verklagi lögreglunnar var breytt. Guðný er ein margra kvenna sem hafa kært ofbeldi en mál hennar var látið niður falla þrátt fyrir sterk gögn. Viðmælandi: Guðný S. Bjarnadóttir stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundnu ofbeldi. Tekið upp í desember 2025.
Kristín hefur unnið lengi við líknar og lífslokahjúkrun, en hún stofnaði Vonarbrú og segir frá því öllu, en félagið styrkir stríðshrjáðar barnafjölskyldur á Gasa.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Jó Fel um myndlistarsýningu í Sundlauginni á Selfossi Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins um gjalskrárhækkanir ríkisins og afleiðingar af því á verðbólgu og kjarasamninga Símatími Matthildur Sveinsdóttir yfirlögfræðingur hjá Neytendsastofu um hilluverð og kassaverð Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknasetri um norðurslóðir Ragnheiður Bjarnadóttir formaður samninganefndar sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga um að á sama tíma og biðlistar lengjast íhuga 40% sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga að hætta störfum
Bítið á Bylgunni með Heimi, Lilju og Ómari. Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, ræddi hina hliðina á raforkumarkaðinum. Gísli Tryggvason, lögmaður fór yfir ýmis erfðamál, svo sem flýtingu og seinkun arfs. Yngvi Ómar Sigrúnarson, varaformaður Leigjendasamtakanna, ræddi svarta skýrslu um húsnæðismarkaðinn. Guðrún Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri STEFs, ræddi nýjan Tónheilsusjóð STEFs. Gunna Húnfjörð, eigandi Dharma heilsunuddstofu, ræddi við okkur um átakið Égnúar. Græjuhornið.
Eru þið nokkuð með rödd sem spannar fjórar áttundir? Nei? Það var hún Hallbjörg Bjarnadóttir með! Shiiiii
144 stúlkur frá tíu knattspyrnufélögum á höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í rannsókninni SKORA sem Sigurður Skúli Benediktsson, aðjúnkt á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, stóð fyrir ásamt fleirum. Markmið rannsóknarinnar var meðal annars að kanna tengsl á milli getuskiptingar og ánægju á meðal íslenskra 12 ára stúlkna í knattspyrnu. Við ræðum niðurstöður rannsóknarinnar við Sigurð Skúla. Hringborð Norðurslóða, Arctic Circle, er haldið í Hörpu 16-18 október. Innrás Rússa í Úkraínu hefur haft mikil áhrif á starf Heimskautsráðsins og hefur gert það að verkum að Arctic Circle er orðinn mikilvægur alþjóðlegur vettvangur til að ræða framtíð Norðurslóða. Matthildur María Rafnsdóttir, samskiptastjóri Arctic Circle, ætlar að segja okkur frá starfi Arctic Circle í síbreytilegum heimi. Almenningsbókasöfn um land allt sameina krafta sína undir merkjum verkefnisins Læsi á stöðu og baráttu kvenna í tilefni af Kvennaári 2025. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með lestur, samveru og bókmenntir í forgrunni. Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands og Hólmfríður María Bjarnadóttir, sérfræðingur á Borgarbókasafninu settust niður með Ástrós Signýjardóttur og ræddu við hana um stöðu jafnréttisbaráttunnar og fjölbreytta dagskrá á bókasöfnum landsins á næstu vikum. Tónlist í þætti: Álfablokkin - KK Band A Little Grim - Ólöf Arnalds Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir
Miðvikudagur 1. október Trumptíminn, hampur, heimsmálin, Alþingi, ónæmiskerfið og söngur Við ræðum ástandið í Bandaríkjunum á miðvikudögum við Rauða borðið. Þá er Trumptíminn. Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræða nýjustu tíðindi úr landi Trump og hvaða áhrif þau munu hafa. Athafnakonan Tóta Jónsdóttir er frumkvöðull í hamprækt á Íslandi. Hún leiðir Maríu Lilju í allan sannleika um þessa mögnuðu, forboðnu jurt sem er til svo margra hluta nytsamleg. Við ræðum við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um heimsmálin, ekki síst nýjustu vendingar Trump gagnvart Gaza og Úkraínu. Málþóf fékk falleinkunn á málþingi um starfshætti Alþingis. Að kalla úrræði til að stöðva eilífðarvél í ræðuflutningi kjarnorkuákvæði vekur aulahroll hjá lagaprófessor. Mörður Árnason fyrrum þingmaður og Indriði H Þorláksson, fyrrum skattstjóri ræða þingið í samtali við Björn Þorláks. Guðlaug María Bjarnadóttir, Súsanna Antonsdóttir halda fyrirlestur fyrir áhugasama um vanvirkni í ónæmiskerfi, sjúkdóm sem hrjáir fjölda fólks en fáir þekkja. Þær ræða við Maríu Lilju um heilsuna. Jóhann Helgason og Edda Borg koma að Rauða borðinu spjalla, spila og syngja í tilefni af nýrri sólóplötu Jóhanns og tónleikum með honum, Eddu og Gömmunum í Bæjarbíói.
Lind, félag fólks með meðfædda ónæmisgalla, vill vekja athygli á því að félagsmenn þess geta þurft á ævilangri lyfjagjöf að halda. Fram að þessu hafa flestir farið inn á sjúkrahús á þriggja til fjögurra vikna fresti í lyfjagjöf og þurfa þá að sækja lyfjagjöfina á Landspítala sama hvar á landinu þau búa. En annar möguleiki er lyfjagjöf undir húð með dælu heima einu sinni í viku og sá möguleiki eykur lífsgæði sjúklinga verulega, tekur t.d. minni tími frá vinnu og skóla, fyrir utan mikinn sparnað fyrir heilbrigðiskerfið. Í þessari viku heldur félagið tvo fræðslufundi, annan fyrir fagfólk í heilbrigðiskerfinu og hinn fyrir almenning. Guðlaug María Bjarnadóttir, leikkona og kennari hefur átt við meðfæddan ónæmisgalla að stríða alla ævi, kom í þáttinn í dag ásamt Sigurveigu Þ. Sigurðardóttur lækni og sérfræðing í barna- og ónæmislækningum. Við forvitnuðumst svo um málþingið Álfastund, um álfa og huldufólk, sem verður haldið í Borgarnesi á laugardaginn. Þar verða flutt stutt erindi frá ólíkum sjónarhornum sjáenda, fræðafólks, listafólks og almennings. Bryndís Fjóla Pétursdóttir garðyrkjufræðingur, heilari og starfandi völva, kom í þáttinn ásamt Sigríði Ástu Olgeirsdóttur sviðslistakonu en þær munu báðar tala á málþinginu. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni, hann var í beinu sambandi frá Ísafirði þar sem hann sækir ráðstefnuna SNOW2025, sem haldin er í tilefni þess að nú eru um 30 ár frá snjóflóðunum miklu 1995. Hann sagði okkur aðeins frá því sem þar fer fram og til dæmis nýju skafrennings- og snjósöfnunarlíkani sem hann og sonur hans, Sveinn Gauti, kynntu þar. Svo sagði Einar okkurfrá fellibyljunum Humberto og Imeldu sem að óbreyttu gætu orðið að skaðræðislægð með stefnu á Bretlandseyjar og munu líka hafa áhrif á spánna hér á landi í lok vikunnar. Tónlist í þættinum í dag: Ég veit þú kemur / GDRN og Magnús Jóhann (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ) Puppet on a String / Sandie Shaw (Bill Martin, texti Phil Coulter) Kall sat undir kletti / Þokkabót (Jórunn Viðar, texti Halldór Björnsson) You've Lost that Lovin' Feeling / Righteous Brothers (Phil Spector, Cynthia Weil og Barry Mann) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIr
Öll viðtölin úr þætti dagsins: Rúnar Freyr Gíslason framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Andri Snær Magnason og vindmylluver Kristinn Már Gunnarsson framkvæmdastjóri og stofnandi Baridi í Tansaníu um vinnslu á kopar grafit og liþíum Gummi Ben um leik Frakka og Íslendinga Anna Margrét Bjarnadóttir verkefnastjóri Guls september hjá embætti Landlæknis
Rætt er við Önnu Björk Bjarnadóttur framkvæmdastjóra þjónustu og rekstrar ISAVIA á Keflavíkurflugvelli en undir hennar svið falla mörg fjölbreytt verkefni á flugvellinum. Má þar nefna hreinsun og viðhald flugbrauta, turninn í Keflavík, öryggisleit, flugvernd og margs konar þjónusta við farþega. Anna Björk fer í þættinum vítt og breitt yfir verkefnin í Keflavík og hvernig ISAVIA hefur breytt sinni nálgun á síðustu árum í allri þjónustu við flugfélögin og farþega, en á sama tíma að tekist á við áskoranir sem fylgja stöðugum vexti í flugumferð um völlinn.
Fimmtudagur 28. ágúst Umhverfisvernd, eldri borgarar, hatursorðræða og málsmeðferðir kynferðisbrota Árni Finnsson, Náttúruverndarsamtökum Íslands, Kristín Vala jarðfræðingur og Björg Eva Erlendsdóttir hjá Landvernd segja að innan stjórnmálanna virðist náttúru- og umhverfisvernd eiga sér fáa málsvara þessa dagana. Björn Þorláks ræðir við þau. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Guðbjörgu Hjaltadóttur hjúkrunarfræðing og aðstandanda um vanda eldri borgara við að fá hjúkrunarrými. Arna Magnea Danks, kennari og aktívisti varar við málflutningi Snorra Mássonar sem hún segir ala á fordómum. Björn Þorláksson ræðir við Örnu. Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar ræðir við Maríu Lilju um nýfallinn dóm MDE og hvaða áhrif hann kann að hafa á þolendur kynferðisofbeldis hér á landi sem lengi hafa óskað eftir réttarbótum í málaflokkinn.
Björg Magnúsdóttir fjölmiðlakona, Kristín S. Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur og stofnandi Vonarbrúar, Natalie G Gunnarsdóttir nemi og Sindri Freysson rithöfundur.
Hvers vegna er Spotify enn á ný til umræðu? Hvað gerði þessi streymisrisi af sér að þessu sinni? Nýverið voru sagðar fréttir af því að tónlistarfólk hygðist fjarlægja efni sitt af Spotify í mótmælaskyni við fjárfestingar stofnandans Daniel Ek. Við veltum fyrir okkur kostunum og göllum Spotify í samtali við tónlistarfólk, útvarpsfólk og framkvæmdastjóra STEF. Rætt er við Sigurlaugu Thorarensen í BSÍ, Árna Húma Aðalsteinsson tónskáld, Þorstein Hreggviðsson útvarpsmann á Rás 2 og Guðrúnu Björk Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra STEF.
Í kvöld er lokaþáttur af sumarþáttunum þar sem fréttir Ríkissjónvarpsins færast yfir á venjulegan tíma á morgun. Við segjum fréttir með okkar lagi á Samstöðinni klukkan sjö, Gunnar Smári, María Lilja og Sigurjón Magnús finna samhengið í fréttunum. Þau koma síðan til að ræða fréttirnar og ástandið í heiminum og samfélaginu þau Þórir Jónsson Hraundal miðausturlandafræðingur, Nichole Leigh Mosty doktorsnemi, Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Sigtryggur Ari Jóhannsson, ljósmyndari og blaðamaður. í lokin kemur Soffía Bjarnadóttir að Rauða borðinu og segir frá bók sinni Áður en ég brjálast, um ástina, trans, þunglyndi, ummyndanir, miðaldur og margt fleira sem þar kemur fram.
Við segjum fréttirnar með okkar lagi á Samstöðinni, klukkan sjö þegar engar fréttir eru í Ríkissjónvarpinu. Kristín Valberg, forstöðukona Bjarkarhlíðar, Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar samtaka gegn kynferðisofbeldi og Silja Höllu Egilsdóttir og Margrét Baldursdóttir, fulltrúar Druslugöngunnar, ræða sýknudóma og vopnavæðingu ný-nasista á kynferðisofbeldi og fleiri mál. Eiríkur Bergmann prófessor á Bifröst tekur stöðuna á pólitíkinni eftir ansi heitt sumarþing og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri ræðir varnarsamning Íslands og Evrópusambandsins, Evrópusambandsaðild Íslands og stöðuna í Úkraínu.
Fyrir 50 árum síðan stofnaði semballeikarinn Helga Ingólfsdóttir tónlistarhátíð sem í dag er sú elsta og jafnframt stærsta sinnar tegundar á landinu. Fjölmörg ný íslensk tónverk hafa orðið til fyrir Sumartónleika í Skálholti, en hátíðin hefur líka skapað sér sess sem mikilvæg tónlistarhátíð langt út fyrir landsteinana. Við rifjum upp umfjöllun um upphafskonu Sumartónleikanna og ræðum við núverandi listrænan stjórnanda hátíðarinnar, Benedikt Kristjánsson. Við heyrum líka síðasta heimspekipistil í bili frá Freyju Þórsdóttur, sem að þessu sinni fjallar um athygli og einmanaleika í samhengi við róttæka tæknivæðingu nútímans. Og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í nýútkomna skáldsögu Soffíu Bjarnadóttur, Áður en ég brjálast. En við byrjum á því að kynna okkur hátíð sem fer fram á Raufarhöfn um helgina. Berglind María Tómasdóttir, flautuleikari og listrænn stjórnandi hátíðarinnar leit við í hljóðstofu.
Björk segir frá Rabarbarahátíðinni á Blönduósi.
Soffía Bjarnadóttir, rithöfundur, ljóð- og leikskáld, heimsækir okkur í dag og segir frá nýútgefnu skáldverki sínu sem nefnist Áður en ég brjálast. Um er að ræða feminískt skáldverk um ástir, ólík breytingarferli og lífsreynslu róttækrar móður sem leitar heim í skáldskapinn þar sem goðsagnaverur vappa um. Við hugum einnig að tónlist því listahátíðin Reykjavík Fringe hóf göngu sína í gær og stendur út vikuna. Tónlistarkonan Heather Ragnars verður með tvenna tónleika á hátíðinni og leit við hjá okkur í hljóðstofu. Við rifjum einnig upp lestur Bríetar Héðinsdóttur úr rúmlega þúsund ára gamalli dagbók Sei Shónagon. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Anna María Björnsdóttir.
Oft eru gerðar miklar kröfur um samskiptahæfileika í atvinnuauglýsingum, jafnvel í störfum þar sem þeirra er ekki þörf. Þetta getur haft útilokandi áhrif fyrir einhverfa sem búa oft yfir öðrum styrkleikum sem nýtast vel í starfi. Eru gáfur jafnvel að fara til spillis vegna þess að vinnumarkaðurinn er of einsleitur? Í meistararitgerð með yfirskriftinni: Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga, rannsakar Bjarney L. Bjarnadóttir þessi mál. Við ræðum við hana um rannsóknina hér á eftir. Og í dag flytjum við líka sérstakan pistil úr smiðju Estherar Jónsdóttur, pistlahöfundar Samfélagsins. Pistill dagsins fjallar um hafið og í honum komum við meðal annars við á eyjunni Maui, í kvikmyndahúsi í Reykjavík á frumsýningu merkilegrar kvikmyndar, í Háskólasetri Vestfjarða og á stöndinni við Hólmavík.
Svipmynd Víðsjár er af bókinni Götuhorni; Skáldtextar innblásnir af íslenskri myndlist, sem var gefin var út af Listasafni Íslands og Reykjavík bókmenntaborg UNESCO. Á blaðsíðum birta 15 rithöfundar texta sem þeir skrifa út frá listaverkum í safneign Listasafns Íslands. Textarnir eru í mörgum mismunandi stílum og túlka, prjóna við, líkja eftir og/eða greina listaverkin. Götuhorn er því skemmtilegt bland í poka af listaverkum og textum sem fara sínar eigin leiðir í samskiptum við verkin. Í svipmyndinni heyrum við frá fjórum rithöfundum sem skrifuðu í bókina, þeim Maríu Elísabetu Bragadóttur, Karólínu Rós Ólafsdóttur, Jóni Kalmani Stefánssyni og Margréti Bjarnadóttur.
Textíllistakonan Guðrún Bergsdóttir skapaði á jaðrinum en ævistarf hennar hefur markað djúp og mikilvæg spor í íslenskri listasögu. Nýverið opnaði yfirlitssýning á verkum hennar í Gerðarsafni og við hittum þar sýningarstjórann, myndlistarkonuna Hildigunni Birgisdóttur í þætti dagsins. Við heyrum líka viðtal við kvikmyndagerðarkonuna Kumjönu Novakovu um kvikmyndina Silence of Reason, sem fjallar um hina alræmdu þjóðarhreinsun í Bosníu á tíunda áratugnum og sláum á þráðinn hjá tónskáldinu Báru Gísladóttur og danshöfundinum Margréti Bjarnadóttur sem frumsýna á föstudag sviðsverkið Cooler Stars Glow Red á SPOR hátíðinni í Árósum.
Welcome to the PRESSURISED version of episode 58, just the science, none of the waffle We are still talking about Antarctica, the continent that keeps on giving! For this month's interview, we speak with Devin Harrison - Marine Geoscientist/Postdoctoral Researcher at Kelpie Geoscience - Devin is a postdoctoral research fellow at Kelpie Geoscience. His research utilises high-resolution topographic models of the seafloor and complementary geophysical and geospatial datasets to understand the geomorphic evolution and process landform relationship of the deep sea and the continental shelves. Devin is particularly interested in the glacial geomorphological record and the evolution of glacial environments from the last glacial maximum (~20-25 thousand years ago) to the present day. We're really trying to make this project self-sustaining, so we have started looking for ways to support the podcast. Here's a link to our page on how to support us, from the free options to becoming a patron of the show. We want to say a huge thank you to those patrons who have already pledged to support us: Elena Thanks again for tuning in; we'll deep-see you next time! Check out our podcast merch here! Feel free to get in touch with us with questions or your own tales from the high seas on: podcast@deepseapod.com We'd love to actually play your voice so feel free to record a short audio note! We are also on BlueSky: @deepseapod.com Twitter: @DeepSeaPod Instagram: @deepsea_podcast Keep up with the team on social media Twitter: Alan - @Hadalbloke Thom - @ThomLinley Instagram: Thom - @thom.linley Inkfish - @inkfishexpeditions BlueSky: Thom @thomaslinley.com Reference list Dowdeswell, J.A., Canals, M., Jakobsson, M., Todd, B.J., Dowdeswell, E.K. and Hogan, K. (eds.), 2016. Atlas of Submarine Glacial Landforms: Modern, Quaternary and Ancient, The Geological Society of London, London. vol. 46, 618pp. doi:10.1144/M46. Batchelor, C.L., Christie, F.D.W., Ottesen, D., Montelli, A., Evans, J., Dowdeswell, E.K., Bjarnadóttir, L.R. and Dowdeswell, J.A., 2023. Rapid, buoyancy-driven ice-sheet retreat of hundreds of metres per day. Nature, vol. 617, issue 7959, p.105-110. Doi:10.1038/s41586-023-05876-1. Smith, J.A., Graham, A.G.C., Post, A.L. et al. The marine geological imprint of Antarctic ice shelves. Nat Commun 10, 5635 (2019). Seafloor surficial sediment variability across the abyssal plains of the central and eastern Pacific Ocean Credits Theme: Hadal Zone Express by Märvel Logo image: Lance Wordsworth (Inkfish Media)
We are still talking about Antarctica, the continent that keeps on giving! Alan and Thom discuss trying to stop working momentarily, constructing a treehouse, and acquiring a shark. In the news, we rattle off a list of newly discovered species with some very cool (but hard to pronounce) names. There has been a lot of squiddy news. Footage of divers swimming with a giant squid has resurfaced; in an exclusive for the podcast, Alan has recorded more amazing Magnapinna (bigfin or elbow squid) footage. And the biggest bit of news: the colossal squid has been seen alive in its natural habitat for the first time! Thom and Kat were part of the press conference. Megalodon (the not-deep-sea and very extinct shark) has been reassessed based on what we do know. It was likely longer and slimmer than we thought, and we have estimations for their speed and size at birth. We also have a new coelacanth population and a classic car found in the deep. For this month's interview, we speak with Devin Harrison - Marine Geoscientist/Postdoctoral Researcher at Kelpie Geoscience - Devin is a postdoctoral research fellow at Kelpie Geoscience. His research utilises high-resolution topographic models of the seafloor and complementary geophysical and geospatial datasets to understand the geomorphic evolution and process landform relationship of the deep sea and the continental shelves. Devin is particularly interested in the glacial geomorphological record and the evolution of glacial environments from the last glacial maximum (~20-25 thousand years ago) to the present day. We're really trying to make this project self-sustaining, so we have started looking for ways to support the podcast. Here's a link to our page on how to support us, from the free options to becoming a patron of the show. We want to say a huge thank you to those patrons who have already pledged to support us: Elena Thanks again for tuning in; we'll deep-see you next time! Check out our podcast merch here! Feel free to get in touch with us with questions or your own tales from the high seas on: podcast@deepseapod.com We'd love to actually play your voice so feel free to record a short audio note! We are also on BlueSky: @deepseapod.com Twitter: @DeepSeaPod Instagram: @deepsea_podcast Keep up with the team on social media Twitter: Alan - @Hadalbloke Thom - @ThomLinley Instagram: Thom - @thom.linley Inkfish - @inkfishexpeditions BlueSky: Thom @thomaslinley.com Follow Kat on Bluesky: @autsquidsquad.bsky.social Twitter: @ALCESonline Reference list News New Species A new species of hound shark from the northern Indian ocean, Iago goplakrishnani New genus and species of feather duster worm from the hydrocarbon seeps in the Gulf of Mexico. – Seepicola viridiplumi Five new trench isopods in the Haploniscus belyaevi complex. And a new dumbo octopis, Grimpoteuthis feitiana Megalodon New paper on the meg Tyler Greenfield's blog Divers swim with giant squid Divers Encounter a Live Giant Squid Swimming on the Ocean Surface https://youtu.be/gZxGGQc_hRI?si=ZmRhwaIF2T9RV-Lk – original video The colossal squid has been seen! Original video with Kat's voiceover Kat's piece in The Conversation Deep-sea classic car Interview Dowdeswell, J.A., Canals, M., Jakobsson, M., Todd, B.J., Dowdeswell, E.K. and Hogan, K. (eds.), 2016. Atlas of Submarine Glacial Landforms: Modern, Quaternary and Ancient, The Geological Society of London, London. vol. 46, 618pp. doi:10.1144/M46. Batchelor, C.L., Christie, F.D.W., Ottesen, D., Montelli, A., Evans, J., Dowdeswell, E.K., Bjarnadóttir, L.R. and Dowdeswell, J.A., 2023. Rapid, buoyancy-driven ice-sheet retreat of hundreds of metres per day. Nature, vol. 617, issue 7959, p.105-110. Doi:10.1038/s41586-023-05876-1. Smith, J.A., Graham, A.G.C., Post, A.L. et al. The marine geological imprint of Antarctic ice shelves. Nat Commun 10, 5635 (2019). https://doi.org/10.1038/s41467-019-13496-5 Seafloor surficial sediment variability across the abyssal plains of the central and eastern Pacific Ocean https://www.frontiersin.org/journals/earth-science/articles/10.3389/feart.2025.1527469/full Credits Theme: Hadal Zone Express by Märvel Logo image: Lance Wordsworth (Inkfish Media) Song of the month: The Midnight Zone by SLADE
Í Skagafirði er unnið að því að endurheimta skóglendi, í Brimnesskógum, en þar var blómlegur skógur á landnámsöld. Steinn Kárason garðyrkjumeistari og umhverfishagfræðingur er frumkvöðull að þessu, hann kemur í þáttinn og segir okkur allt um þetta. Í síðustu viku fjölluðum við um mót gervigreindar og tónlistar – og veltum því fyrir okkur hver væri höfundur verks sem framleitt er af gervigreind. Í dag nálgumst við svipaðar spurningar frá allt annarri átt – frá sjónarhorni lögfræðinnar. Hvaða áhrif hefur þróun gervigreindar á höfundarétt? Hafliði K. Lárusson lögmaður kíkir til okkar og spjallar við okkur um gervigreind og lögfræði. Samfélagið gluggaði í dómskjöl úr safni Þjóðskjalasafnins - um sifjaspellsmál í Dalasýslu á 18. öld - þar sem ung kona, Kristín Bjarnadóttir, var dæmd til refsingar fyrir að eignast barn með stjúpföður sínum. Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skjalavörður á Þjóðskjalasafninu segir okkur frá máli Kristínar. Tónlist í þættinum í dag: Borges, Lô, Nascimento, Milton - Cravo e canela. Silvana Estrada - Chega de Saudada/No more blues
Í hverri viku bætast að meðaltali um 50-60 nýir bílar í umferðina á höfuðborgarsvæðinu og við ákváðum að forvitnast um Borgarlínuna í þættinum í dag. Framkvæmd Borgarlínunnar er skipt í 6 lotur og fyrsta lota nær frá Hamraborg í Kópavogi að Krossmýrartorgi í Reykjavík og áætlað er að hún verði fullbúin árið 2031. Atli Björn Levy tók við starfi forstöðumanns Verkefnastofu Borgarlínunnar fyrir nokkrum mánuðum. Hann er samgönguverkfræðingur og leiðir Borgarlínuverkefnið og hann kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir stöðuna. Nú stendur yfir Tannverndarvikan og til okkar í dag kom Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir tannlæknir og fyrrverandi formaður Tannlæknafélagsins. Lögð er áhersla á rétta tannhirðu, tengsl munnheilsu og andlegrar vellíðunar, forvarnir gegn verkjum og sýkingum og fleira sem Jóhanna fræddi okkur um tannheilsu í þættinum. Svo heyrðum við um verkefni á Suðurnesjum, þar sem er til dæmis kortlögð íþróttaiðkun barna með fötlun og aðgerðaráætlun með það fyrir augum að auka þáttöku þeirra og barna af erlendum uppruna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Þáttaka meðal einstaklinga með fötlun í skipulögðu íþróttastarfi er ekki nema 4% og sú prósenta er jafnvel enn lægri á Suðurnesjum. Sigurður Friðrik Gunnarsson og Petra Ruth Rúnarsdóttir, svæðisfulltrúar ÍSÍ og UMFÍ á Suðurnesjum, komu í þáttinn og sögðu okkur meira frá þessu. Tónlist í þættinum í dag: Kata rokkar / Björk Guðmundsdóttir og Tríó Guðmundar Ingólfssonar (Theódór Einarsson) Waterloo Sunset / The Kinks (Ray Davies) Líttu sérhvert sólarlag / Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson (Bragi Valdimar Skúlason) Ástarsæla / Hljómar (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ólafur Guðmundsson, umferðaröryggissérfræðingur ræddi við okkur um hraðahindranir, auglýsingaskilti og fleira. Sælín Sigurjónsdóttir ræddi sín mál, en hún á heima á Reyðarfirði en móðir hennar á Egilsstöðum. Anna Birna Almarsdóttir, prófessor við Lyfjafræðideild Kaupmannahafnarháskóla og verkefnisstjóri Sofðuvel-átaksins, settist niður með okkur og ræddi svefn. Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar - Samtaka gegn kynbundnu ofbeldi, ræddi við okkur um hræðilega frásögn Kathryn Gunnarsson. Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur um laun borgarstjóra og borgarfulltrúa. Símatími
Páll Magnússon stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Guðrún Hafsteinsdóttir nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins um stjórnmál. Hörður Arnarsson forstjóri Landsvirkjunnar og Jóna Bjarnadóttir framkvæmdastjóri um virkjanamál. Valgerður Rúnarsdóttir yfirlæknir á Vogi og Helga Þórarinsdóttir læknir á geðdeild Landspítalans um hugvíkkandi efni. Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands um trúmál.
Strandlengja Íslands er 5000 kílómetrar að lengd og stjórnvöld hafa síðastliðin fjögur ár unnið að því að hreinsa hana með markvissum hætti. Fyrirtækjum og félagasamtökum býðst að sækja um styrk til þess að taka að sér ákveðinn hluta strandlengjunnar, ganga fjörur og tína netadræsur og annað plastrusl. Átakið er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í plastmálefnum og nú er lokaár þess runnið upp. Hvernig hefur gengið? Við ætlum að ræða það við Sóleyju Bjarnadóttur, sérfræðing í Teymi hafs og vatns hjá Umhverfis- og orkustofnun. Í dag halda Stígamót upp á 35 ára afmæli, og af því tilefni er ýmislegt spennandi á döfinni: málþing, bíósýningar og ýmislegt fleira. Í dag förum við aðeins yfir þriggja og hálfs áratuga baráttu Stígamóta gegn ofbeldi, hugum jafnvel að framtíðinni í þeim málum, og fáum til okkar Drífu Snædal, talskonu Stígamóta, og Parísi Önnu Bergmann, unga baráttukonu gegn ofbeldi. Edda Olgudóttir kemur svo til okkar í vísindaspjall í lok þáttar. Þar verða krúttleg dýr í fyrirrúmi, krúttleg dýr í krísu.
Það má segja að Kristín S. Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur á Svalbarðseyri, búi í tveimur heimum. Þegar hún er ekki í vinnunni í heimahlynningunni á Akureyri er hún vakin og sofin yfir því að styðja fjölskyldur á Gaza, fjárhagslega en ekki síður andlega. Segja má að hún reki óformleg hjálparsamtök og í kringum þau hefur skapast stórt samfélag. Grunnskóli, framhaldsskóli, háskóli… en hvað svo? Símenntun tekur sífellt á sig nýjar og nýjar myndir og fjölmörg halda áfram að sækja sér menntun að lokinni hefðbundnu skólagöngu, oft þegar þau skipta um starf, fá stöðuhækkun, eða jafnvel bara þegar tölvukerfið í vinnunni er uppfært. Við ræðum við Ingunni S. Unnarsdóttur Kristensen, forstöðukonu Opna háskólans, um Opna háskólann, símenntun og gervigreind. Tónlist og stef úr þættinum: Nai Barghouti - Li Fairuz Tolentino, Ife - Distante Canção. Joan Baez - There But For Fortune.
Síðustu daga og vikur hafa birst óhugnanlega fréttir um ofbeldi karla gegn konum. Kynbundið ofbeldi gegn konum er ekkert nýtt en stundum verða frásagnirnar yfirþyrmandi, eins og þessar fréttir bera vitni um. Samkvæmt embætti ríkislögreglustjóra var í fyrra óskað eftir 97 nálgunarbönnum, í langflestum tilvikum eru þetta konur að verja sig gegn körlum sem hóta þeim líkamlegu og andlegu ofbeldi. Það þarf ekki annað en að fletta upp á vef Landsréttar og slá upp orðinu nálgunarbann til að sjá hversu langt karlar eru reiðubúnir að ganga gagnvart konum, - því kynbundið ofbeldi gegn konum er jú fyrst og fremst vandamál karla, segir María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur hjá ríkislögreglustjóra. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við hana. Bashar al-Assad, sem á dögunum var hrakinn frá völdum í Sýrlandi á örfáum dögum eftir nær aldarfjórðung á forsetastóli, er kominn til Rússlands, þar sem stjórnvöld veittu honum og fjölskyldu hans hæli af mannúðarástæðum, eins og það var orðað af ónafngreindum heimildarmanni Interfax-fréttastofunnar rússnesku. Bashar al-Assad, sem er augnlæknir að mennt, tók við forsetaembættinu af föður sínum, Hafez al-Assad, sem lést árið 2000, eftir nær þrjátíu ár á valdastóli. Samtals fóru þeir feðgar því með alræðisvald í Sýrlandi – og beittu því af hörku - í hartnær 55 ár, eða frá árinu 1971, þegar Hafez tókst að hrifsa til sín öll völd eftir röð valdarána áratuginn á undan. Ævar Örn Jósepsson stiklar á stóru í valdatíð al-Assads eldri. Seint í október skrifuðu fulltrúar samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, SVEIT og Virðingar stéttarfélags undir kjarasamning sem felur í sér lakari kjör og minni rétt en samningur milli Samtaka atvinnulífsins og Eflingar/Starfsgreinasambandsins. Efling hefur reiknað út að þar muni um rúmlega fimmtíu þúsund krónum í meðalmánuði. Virðing varð til eftir að Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu í fyrra að Eflingarsamningurinn skyldi gilda. Finnbjörn A. Hermannsson forseti Alþýðusambands Íslands segir að Virðingu megi kalla gervistéttarfélag vegna þess hvernig sambandi atvinnurekendanna og þeirra sem gera samninginn er háttað. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Finnbjörn. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Undanfarna mánuði hefur bandaríski tónlistarmaðurinn og útgefandinn Sean Combs, betur þekktur sem Puff Daddy eða Diddy, verið reglulega í fréttum. Ástæðan eru holskefla hryllilegra ásakana um ofbeldi, kynferðisofbeldi, kúganir - ákærur fyrir mansal og skipulagða glæpastarfsemi. En þrátt fyrir ásakanirnar hafa hlustunartölur Diddy á streymisveitum rokið upp síðustu vikur - og þetta virðist raunar vera reglan frekar en undantekningin þegar stórstjörnur eru sakaðar um ofbeldi. Við pælum í slaufunum og streymisveitum. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, er doktorsnemi við Háskóla Íslands þar sem hún rannsóknar hvernig stafræn þróun hjá hinu opinbera hefur áhrif á réttindi fatlaðs fólks. Á dögunum fór hún af stað með nýja Facebook síðu, Tækni án hindrana. Tónlistarkeppnin Pan-Arctic Vision var haldin í Nuuk þann 12. Október síðastliðinn. Keppnin er svipuð Eurovision í sniði en ólík að því leyti til að hún er yfirlýst pólitísk og hafnar hugmyndum um þjóðríkið og landamæri, en miðjusetur jaðarett þjóðbrot á norðurslóðum. Katrín Helga Ólafsdóttir ræðir við Snæbjörn Helga Arnarson Jack um hátíðina.
Undanfarnar vikur hafa hörmulegar fréttir dunið á Íslendingum og tilfinning margra virðist vera að óhamingja sé að aukast í samfélaginu, aftenging, kvíði, þunglyndi, einmanaleiki, ofbeldi. Við setningu Alþingis í síðustu viku settu fjölmargir þingmenn og forseti Íslands þetta í samhengi við snjallsímanotkun. Snjallsíminn er nýr djöfull sem allir geta sameinast um að kenna um allt sem úrskeiðis fer. En samt virðist enginn vilja eða geta staðið í vegi fyrir framgangi þessarar tækni. Hið opinbera jafnt og markaðurinn neyðir fólk í að snjallvæðast og nota snjallsímana til æ fleiri verka. Í Lestinni í dag ætlum við að velta fyrir okkur þessum mótsagnakennda þrýstingi. Er snjallsíminn bara hentugur blóraböggull stjórnmálamanna? Eða er hann raunverulega að hola samfélög okkar að innan? Lóa og Kristján setjast niður með Atla Harðarsyni, heimspekingi, Viðari Halldórssyni, félagsfræðingi, og Ingu Björk Margrétar Bjarnadóttir, doktorsnemi.
Í þættinum kíkjum við inn á Mokkakaffi við Skólavörðustíg. Þar var opnuð á dögunum sýning á pínupínu litlum vatnslitamyndum í stórum álrömmum. Og myndefnið á myndunum kemur allt úr einu og sama afmæliskortinu. Það er Hildigunnur Birgisdóttir, myndlistarmaður sem nú sýnir líka verk sín fyrir Íslands hönd á tvíæringnum í Feneyjum, sem hefur sett þessar litlu dularfullu myndir upp á veggina á Mokka í sýningu sem hún kallar Innilegar hamingjuóskir með afmælisdaginn. Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, heldur áfram umfjöllun sinni um félagsleg húsnæði hér á landi. Í dag er hún með hugan við þátt lækna í uppbyggingu Reykjavíkurborgar. Að lokum hugum við að söngkonunni og skemmtikraftinum Hallbjörgu Bjarnadóttur og kynnum okkur menningarólgu við landnám djasstónlistar á Íslandi.
Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis, fer yfir þá möguleika sem felast í bættri orkunýtni í þessum nýjasta þætti Grænvarpsins.
Auður Bjarnadóttir, eigandi Jógasetursins og dásamlegur meðgöngujógakennari, kom beint úr tíma með fullan sal af verðandi mæðrum sem dönsuðu og önduðu ásamt Birnu Almarsdóttur sem á brátt von á sér. Þær ræddu við Guðrúnu Ingu Torfadóttur um undirbúning fæðingar, stuðning maka, að vinna sig í gegnum tilfinningar sem vakna á meðgöngu og góðar möntrur sem hjálpa við að sjá fyrir sér góða fæðingu. Dásamlegt spjall sem fer í góðan sarpinn með öðrum þáttum Virðingar í uppeldi sem fjalla um fæðingar.
Matthildur ræðir áfallahjálp, samkenndina og hversu mikilvægt það er fyrir Grindvíkinga að vita að fólki er ekki sama.
Umboðsmaður alþingis birti á föstudag álit á reglugerð matvælaráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, um frestun á hvalveiðum síðasta sumar, þar sem hann segir þessa reglugerð ekki hafa átt sér nægilega skýra stoð í lögum og að ekki hafi verið gætt að kröfum stjórnsýsluréttar um að gæta meðalhófs, þegar hún var innleidd nánast daginn áður en veiðar áttu að hefjast. Umboðsmaður bendir í sínu áliti á að ráðherra hafi verið með dýravelferarsjónarmið í huga en lögin snúist ekki um dýravelferð - heldur verndun stofnsins og viðhald hans, og segir ráðherra ekki hafa horft til grundvallarreglna um atvinnurétt og atvinnufrelsi. Eva Heiða Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði, rýnir í stöðuna með Ævari Erni Jósepssyni. Baráttu Benjamíns Netanjahús, forsætisráðherra Ísraels, við hæstarétt landsins er ekki lokið. Meirihluti dómaranna - naumur að vísu - samþykkti á nýársdag að synja lögum staðfestingar sem þingið samþykkti í fyrrasumar. Samkvæmt þeim á að draga úr eftirlitshlutverki hæstaréttar með lagasetningum þingsins. Þannig getur rétturinn fellt lög úr gildi ef hann telur að þau gangi gegn grunnlögunum svonefndu, sem koma í staðinn fyrir hefðbundna stjórnarskrá. Og þetta er ekki allt, eins og Ásgeir Tómasson fer yfir í Spegli dagsins. Ýmis búnaður á heilbrigðisstofnunum er óaðgengilegur fólki í ofþyngd. Dæmi eru um að fólk passi ekki í rúm, segulómtæki og hjólastóla. Það verður gjarnan til þess að sá hópur fólks veigrar sér við að leita eftir heilbrigðisþjónustu. Amanda Guðrún Bjarnadóttir fer yfir þetta mál með Helga Þór Leifssyni, framkvæmdastjóra klínískrar þjónustu á sjúkrahúsinu á Akureyri og Sólveigu SIgurðardóttur, formanni Samtaka fólks með offitu.
8. janúar 2024 Umboðsmaður alþingis birti á föstudag álit á reglugerð matvælaráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, um frestun á hvalveiðum síðasta sumar, þar sem hann segir þessa reglugerð ekki hafa átt sér nægilega skýra stoð í lögum og að ekki hafi verið gætt að kröfum stjórnsýsluréttar um að gæta meðalhófs, þegar hún var innleidd nánast daginn áður en veiðar áttu að hefjast. Umboðsmaður bendir í sínu áliti á að ráðherra hafi verið með dýravelferarsjónarmið í huga en lögin snúist ekki um dýravelferð - heldur verndun stofnsins og viðhald hans, og segir ráðherra ekki hafa horft til grundvallarreglna um atvinnurétt og atvinnufrelsi. Eva Heiða Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði, rýnir í stöðuna með Ævari Erni Jósepssyni. Baráttu Benjamíns Netanjahús, forsætisráðherra Ísraels, við hæstarétt landsins er ekki lokið. Meirihluti dómaranna - naumur að vísu - samþykkti á nýársdag að synja lögum staðfestingar sem þingið samþykkti í fyrrasumar. Samkvæmt þeim á að draga úr eftirlitshlutverki hæstaréttar með lagasetningum þingsins. Þannig getur rétturinn fellt lög úr gildi ef hann telur að þau gangi gegn grunnlögunum svonefndu, sem koma í staðinn fyrir hefðbundna stjórnarskrá. Og þetta er ekki allt, eins og Ásgeir Tómasson fer yfir í Spegli dagsins. Ýmis búnaður á heilbrigðisstofnunum er óaðgengilegur fólki í ofþyngd. Dæmi eru um að fólk passi ekki í rúm, segulómtæki og hjólastóla. Það verður gjarnan til þess að sá hópur fólks veigrar sér við að leita eftir heilbrigðisþjónustu. Amanda Guðrún Bjarnadóttir fer yfir þetta mál með Helga Þór Leifssyni, framkvæmdastjóra klínískrar þjónustu á sjúkrahúsinu á Akureyri og Sólveigu SIgurðardóttur, formanni Samtaka fólks með offitu.
4. janúar 2024 Umskurður á drengjum af trúarlegum ástæðum er umdeilt mál hér á landi. Sigurður Kristinsson, prófessor í heimspeki segir mikilvægt að mismunandi lífsskoðanir séu virtar og telur það geta haft skaðaminnkandi áhrif, ef umskurður standi til boða á heilbrigðisstofnunum. Umskurður drengja hafi djúpstæða, táknræna og trúarlega merkingu fyrir lítinn hóp fólks hér á landi, og beri þvi frekar vitni um umhyggju foreldra en vanhæfni. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við SIgurð. Stríðið í Úkraínu hefur staðið í tæp tvö ár. Svo virðist sem heldur hafi dregið úr stuðningi Vesturlanda við Úkraínu í stríði þeirra við innrásarher Rússa. Þar er þó ekki allt sem sýnist, segir Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur. Bæði Evrópusambandið og Bandaríkin geti gert ýmislegt til að styðja við bakið á Úkraínumönnum, þrátt fyrir andstöðu ákveðinna afla á báðum stöðum. Hann telur Úkraínumenn geta bætt vígstöðu sína með áframhaldandi stuðningi Vesturlanda, en sér þó ekki fyrir endann á stríðinu í bráð. Ævar Örn Jósepsson talaði við Erling. Frakkar kalla hann Þurs og vísa þar til hvorutveggja útlits hans og hegðunar. Kunnasti og umdeildasti kvikmyndaleikari Frakka, Gérard Depardieu, er enn og aftur í sviðsljósinu en ekki fyrir kvikmyndaleik frekar en fyrri daginn. Að þessu sinni þótti mörgum hann fara yfir strikið með hneykslanlegum ummælum sem birtust fyrir jól, þótt jafnvel sjálfur Frakklandsforseti reyni að koma þessari þjóðargersemi til varnar. Jón Björgvinsson segir frá. Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason
4. janúar 2024 Umskurður á drengjum af trúarlegum ástæðum er umdeilt mál hér á landi. Sigurður Kristinsson, prófessor í heimspeki segir mikilvægt að mismunandi lífsskoðanir séu virtar og telur það geta haft skaðaminnkandi áhrif, ef umskurður standi til boða á heilbrigðisstofnunum. Umskurður drengja hafi djúpstæða, táknræna og trúarlega merkingu fyrir lítinn hóp fólks hér á landi, og beri þvi frekar vitni um umhyggju foreldra en vanhæfni. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við SIgurð. Stríðið í Úkraínu hefur staðið í tæp tvö ár. Svo virðist sem heldur hafi dregið úr stuðningi Vesturlanda við Úkraínu í stríði þeirra við innrásarher Rússa. Þar er þó ekki allt sem sýnist, segir Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur. Bæði Evrópusambandið og Bandaríkin geti gert ýmislegt til að styðja við bakið á Úkraínumönnum, þrátt fyrir andstöðu ákveðinna afla á báðum stöðum. Hann telur Úkraínumenn geta bætt vígstöðu sína með áframhaldandi stuðningi Vesturlanda, en sér þó ekki fyrir endann á stríðinu í bráð. Ævar Örn Jósepsson talaði við Erling. Frakkar kalla hann Þurs og vísa þar til hvorutveggja útlits hans og hegðunar. Kunnasti og umdeildasti kvikmyndaleikari Frakka, Gérard Depardieu, er enn og aftur í sviðsljósinu en ekki fyrir kvikmyndaleik frekar en fyrri daginn. Að þessu sinni þótti mörgum hann fara yfir strikið með hneykslanlegum ummælum sem birtust fyrir jól, þótt jafnvel sjálfur Frakklandsforseti reyni að koma þessari þjóðargersemi til varnar. Jón Björgvinsson segir frá. Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason
8. desember 2023 Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins gagnrýnir harðlega framferði Ísraelshers á Gaza. Sprengjuherferðin sé orðin með hinum umfangsmestu í sögunni og eyðileggingin í borgum á svæðinu sambærileg ef ekki meiri en í Þýskalandi í síðari heimsstyrjöldinni. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna greiðir í dag atkvæði um tafarlaust vopnahlé á Gaza. Bandaríkjamenn ætla ekki að styðja það. Ásgeir Tómasson sagði frá. Ísland er eina Norðurlandaþjóðin án opinberrar stefnu í málefnum fanga og fangelsa. Slík srefna er forsenda raunverulegra og nauðsylegra umbóta í málaflokknum, segir Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga á Íslandi. Meðal aðgerða sem grípa þarf til svo landsbyggðin verði aðlaðandi fyrir ungt fólk er að bæta almenningssamgöngur og húsnæðismál og auka tækifæri til menntunar í samræmi við atvinnulíf. Þetta er mat Norræna ungmennaráðsins. Amanda Guðrún Bjarnadóttir sagði frá og talaði við Selmu Dís Hauksdóttur sem á sæti í ráðinu. Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknuimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.
8. desember 2023 Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins gagnrýnir harðlega framferði Ísraelshers á Gaza. Sprengjuherferðin sé orðin með hinum umfangsmestu í sögunni og eyðileggingin í borgum á svæðinu sambærileg ef ekki meiri en í Þýskalandi í síðari heimsstyrjöldinni. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna greiðir í dag atkvæði um tafarlaust vopnahlé á Gaza. Bandaríkjamenn ætla ekki að styðja það. Ásgeir Tómasson sagði frá. Ísland er eina Norðurlandaþjóðin án opinberrar stefnu í málefnum fanga og fangelsa. Slík srefna er forsenda raunverulegra og nauðsylegra umbóta í málaflokknum, segir Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga á Íslandi. Meðal aðgerða sem grípa þarf til svo landsbyggðin verði aðlaðandi fyrir ungt fólk er að bæta almenningssamgöngur og húsnæðismál og auka tækifæri til menntunar í samræmi við atvinnulíf. Þetta er mat Norræna ungmennaráðsins. Amanda Guðrún Bjarnadóttir sagði frá og talaði við Selmu Dís Hauksdóttur sem á sæti í ráðinu. Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknuimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.
ÍR tryggði sér um helgina sigur í 2. deild og þar með sæti í Lengjudeildinni að ári. Þær Lovísa Guðrún Einarsdóttir og Sandra Dögg Bjarnadóttir voru í lykilhlutverkum hjá ÍR-liðinu og eru gestir Heimavallarins að þessu sinni. Þátturinn er sem fyrr í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.