POPULARITY
Í fréttum í gær, 10.júní, fagnaði framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, Anna Lára Steindal, því að íslensk stjórnvöld hafi fullgilt valfrjálsri bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hún segir það hana vera mikla réttarbót. En hvað er þessi bókun og hvað þýðir hún og hverju breytir hún? Anna Lára kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir það af hverju þetta skiptir svona miklu máli. Nú líður senn að sögulegu afreki Sigurgeirs Svanbergssonar sjósundskappa, en hann ætlar að synda niður Lagarfljót til að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna á Austurlandi og um land allt. Sigurgeir stefnir á að láta til skara skríða um leið og veður leyfir, vonandi næsta mánudag, 15.júní. Enginn hefur áður reynt slíkt afrek í leirlitu Lagarfljótinu. Björgunarsveitin Brimrún hefur staðið með honum í undirbúningnum og hefur kortlagt fljótið og leiðina sem liggur frá Fljótsdal niður að Lagarfossvirkjun, nærri 50 kílómetrar og áætlað er að sundið taki um 24 klst. Guðrún Birna Le Sage markaðsstjóri Pietasamtakanna sagði okkur betur frá þessu og starfi samtakanna í dag. Svo hélt Jónatan Garðasson áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði hann um Svavar Gests. Líklega hafa fáir ef nokkur komið að íslenskri tónlist með jafn fjölbreytilegum hætti og Svavar gerði en segja má að framlag hans í því samhengi sé ómetanlegt. Jónatan sagði okkur betur frá ferli og lífi Svavars í þættinum. Tónlistin í þættinum: Dís / Ragnheiður Gröndal (Jóhann Jóhannsson, texti Bragi Valdimar Skúlason og Ragnar Kjartansson) Allur lurkum laminn / Bubbi Morthens (Hilmar Oddsson) Þórsmerkurljóð / Ragnar Bjarnason og Hljómsveit Svavars Gests (lagahöfundur ókunnur, texti Sigurður Þórarinsson) Hvert er farið blómið blátt? / Ragnar Bjarnason og Ellý Vilhjálms með Hljómsveit Svavars Gests (Pete Seger, texti Valgeir Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fimmtudagur 11. júní Flokksórói, menntun öryrkja, lögblind börn, ESB og list Þórarinn Snorri Sigurgeirsson stjórnmálafræðingur og skristofufstjóri hjá Þroskahjálp er einn hvatamanna yfirlýsingar fjölda fólks úr Samfylkingunni gegn stefnubreytingar forystu flokksins í málefnum flóttafólks. Hann segir Gunnari Smára hvers vegna. Anna Margrét Bjarnadóttir, Hrönn Stefánsdóttir og Þórdís Bjarnleifsdóttir ræða fötlun og fjárhag, aðgengi að tækifærum í samtali við Björn Þorláks. Ekki sitja allir við sama borð er kemur að menntamöguleikum við HÍ. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Sigurlaugu Gísladóttur móður þriggja lögblindra drengja um lífið og tilveruna og baráttu við kerfið. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur telur einsýnt að Ísland eigi af menningarlegum orsökum ekki síður en efnahagslegum samleið með ESB. Einangrun landsins er stórvarasöm að mati Guðmundar Andra og válegir straumar í vestri. Björn Þorláks ræðir við hann. Á sunnudaginn opnar ný sýning í gluggagalleríinu STÉTT í Bolholti 6. Berglind Ágústsdóttir listakona segir Laufeyju Líndal frá list sinni.
Sería Sögufélags er ný ritröð um Íslandssögu þar sem vandaðar rannsóknir eru settar fram í lifandi frásögn. Bækurnar eru ríkulega myndskreyttar og er hver bók um sig nákvæmlega 100 blaðsíður. Ragnheiður Kristjánsdóttir er ein af fyrstu höfundum í þessum nýjum bókaflokki og hún kom til okkar í dag. Bók Ragnheiðar nefnist Þurfamenn fá mannréttindi, en árið 1927 var gerð breyting á íslenskum fátækralögum en fram að því var gert ráð fyrir að þau sem þáðu fátækrastyrk væru svipt ýmsum borgaralegum réttindum, svo sem atvinnufrelsi og kosningarétti. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV kom til okkar með gullmola af safninu eins og hún hefur gert annan hvern mánudag í vetur. í dag kom hún með tvo fréttaauka frá árinu 1955 frá heimsókn forseta Íslands, Ásgeirs Ásgeirssonar, til Noregs. Fyrst stutt umfjöllunum Bjarna Guðmundssonar blaðaafulltrúa utanríkisráðuneytisins ferðina og svo frá heimkomu forsetahjónanna og móttökunum sem þau fengu, ræðu Auðar Auðuns bæjarstjóra og Ásgeirs sjálfs. Helga Lára sagði okkur meira frá þessu í þættinum. Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Andri Fannar Óttósson starfsmaður BUGL, barna- og unglingageðdeildar Landspítalans. Hann ætlar sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Andri talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ljóðasafn Einars Braga, Lunch Poems e. Frank O'Hara Morgunþula í stráum e. Thor Vilhjálms Faðir vorið Selurinn Snorri Skólaljóðin og Íslendingasögurnar Tónlistin í þættinum: Sól bros þín / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Negril / Bjartmar Guðlaugsson (Bjartmar Guðlaugsson) Gott er að lifa / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fimmtudagur 04. júní Vitsmunakreppa, þurfamenn, bókmenntir, listir og neytendamál Sverrir Norland rithöfundur ræðir þverrandi áherslu á vitsmuni en aukinn þunga á öryggi í samtali við Björn Þorláks. Ragnheiður Kristjánsdóttir prófessor segir Gunnari Smára frá breytingum á fátæktarlögum 1927 þar sem þurfamenn fengu meðal annars kosningarétt, en fram að því missti fólk þann rétt ef það þáðu stuðning frá sveitarfélögunum. Ásdís Olsen ræðir við Vilhjálm Pétursson verðlaunahafa hjá Forlaginu. Emilía Bergsdóttir trúður og Álfheiður Karlsdóttir dansari ræða við Ásdísi Olsen un glænýjan menningarþátt sem hleypt verður af stokkunum á morgun. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum fer yfir helstu áskorarnir íslenskra neytenda um þessar mundir. Vextirnir, olían, maturinn og húsnæðið verða til umræðu. Björn Þorláks ræðir við Breka.
Fimmtudagur 28. maí Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið Steingrímur Ólafsson er einn fárra Íslendinga sem starfar á olíupalli. Hann lýsir þeirri reynslu í samtali við Björn Þorláks og spáir fyrir um framtíð jarðefnaeldsneytis. Aðalsteinn Tryggvason blaðamaður á Heimildinni, Steingerður Steinarsdóttir, blaðamaður, Lifðu núna og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða fréttir líðandi stundar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri ræðir við Gunnar Smára Egilsson um heimsmálin, Íransstríðið og fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Nuru A. Rashid leikskólakennara frá Singapúr um 30 ár á Íslandi. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláksson um lagaleg álitamál, tengd fréttum líðandi stundar.
Fimmtudagur 21. maí Rasismi, hinsegin bakslag, reynsluboltar, Rauði krossinn og draumar Brynjar Karl hjá körfuboltafélaginu Aþenu saknar ekki fráfarandi meirihluta Reykjavíkurborgar, enda hafa samskipti hans og borgarinnar verið stirð á umliðnum árum. Hann ræðir við Björn Þorláks og segist reiður, enda sé borgin beint eða óbeint að stuðla að rasisma. Alexandra Briem, Arna Magnea Danks og Svenný Kristins voru allar ofarlega á listum framboða til sveitarstjórna í nýafstöðnum kosningum. Þær lýsa bakslagi. Oddný Harðardóttir, fyrrum þingmaður, Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri og Ólafur Arnarson blaðamaður ræða fréttir vikunnar. Dýrtíð, vextir, ESB og sveitarstjórnarkosningarnar verða meðal umræðuefna. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Þorsteinn Valdimarsson verkefnastjóri Rauða krossins og Kristín Hjörleifsdóttir kennari ræða um íslenskukennslu fyrir útlendinga. Ragnheiður Davíðs stýrir umræðunni. Þeir eru ekki margir sem fara í gegnum tónlistarnám í FÍH á 20 árum. Þorvaldur Sigurbjörn Helgason stígur á stokk í kvöld með útskriftartónleikum úr rytmískri deild. Hann hóf nám við skólann árið 2006. Björn Þorláks ræðir við Þorvald um drauma sem rætast.
Þriðjudagur 12. maí Viðskiptaráð, kæra á Rúv, lögfræðital, skólakerfið, læsishrun og mjúkir karlmenn Gunnar Smári ræðir við Björn Brynjúlf Björnsson framkvæmdastjóra um stefnu og markmið Viðskiptaráðs, fyrirferð þess í samfélaginu og hverjum það þjónar. Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hafa kært Rúv til Fjölmiðlanefndar. Árni Guðmundsson talsmaður samtakanna telur að Rúv stundi ólöglega auglýsingasölu. Þá ræðir Árni aðgengi barna og ungmenna að áfengi netsölufyrirtækja. Ragnheiður Stephensen kennari við Garðaskóla ræðir við Gunnar Smára um umræðuna um skólakerfið sem hefur orðið ákafari á undanförnum árum, kannski aldrei meiri en nú. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks um lagaleg álitaefni, gjarnan tengd fréttum líðandi stundar. Kreditkort borgarstjóra, normalíseringu ofbeldis og fleiri álitamál ber á góma. Sigríður Ólafsdóttir dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands ræðir við Gunnar smára um læsi og lesskilning. Margir ungir karlmenn þurfa að nota Viagra í kynlífi segir Númi Snær Katrínarson nuddari og Crossfit þjálfari. Hann lýsir því fyrir Ásdísi Olsen hvernig hugvíkkandi efni hafa hjálpað honum að gefa eftir inn í mýktina og njóta lífsins.
Fimmtudagur 7. maí Niðursveifla, rógsherferð, leigjendur og göngugarpur Stefán Ólafsson prófessor og sérfræðingur hjá Eflingu ræðir niðursveiflu í efnahagskerfinu, skaðlega peningamálastefnu og skort á virkri hagsstjórn við Gunnar Smára. Reynsluboltarnir Stefán Pálsson sagnfræðingur, Björk Vilhelmsdóttir félagsráðgjafi og Hallur Magnússon atvinnurekandi ræða rógsherferðir, harðnandi slag um borgina, ESB og minkabana. Björn Þorláks stýrir þættinum. Yngvi Ómar Sigrúnarson og Guðmundur Hrafn Arngrímsson, núverandi og fyrrverandi formenn Leigjendasamtakanna, ræða við Gunnar Smára um stöðuna á húsnæðismarkaði og stöðu leigjenda. Einar Skúlason forsvarsmaður gönguhópsins Vesens og vergangs ræðir við Ragnheiði Davíðsdóttur um mikilvægi útivistar og hreyfingar.
Fimmtudagur 30. apríl Stríðsástand, líf í hjólastól, reynsluboltar, borgarmálin og fyrirmyndir Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir fyrst óöryggið í heiminum, alvarlegar afleiðingar Íransstríðsins, krísu Trump og fleira í samtali við Björn Þorláks. Víðir Þorsteinsson hefur verið í hjólastól frá 1980. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við hann og eiginkonu hans, Sigríði Sóleyju Friðjónsdóttur um lífið og tilveruna. Víðir Þorsteinsson hefur verið í hjólastól frá 1980. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við hann og eiginkonu hans, Sigríði Sóleyju Friðjónsdóttur um lífið og tilveruna. Nokkrir efstu fulltrúar Viðreisnar í Reykjavík ræða nokkur kosningamál og áherslur í samtali við Björn Þorláks. Davíð Sól Páls, Arna Magnea Danks og Chaiwe Sól Patiwa Drífudóttir eru öll kennarar í grunnskólum og hafa víðtæka reynslu í að koma til móts við börn með mismunandi bakgrunn og þarfir. Þau tala um skólastarfið, börnin, takmarkanir og áskoranir skólakerfisins í heild, og ekki síst um mikilvægi þess að börn hafi sterkar fyrirmyndir í skólastarfinu og samfélaginu öllu. Laufey Líndal Ólafsdóttir ræðir við þau í lok þáttar.
Þriðjudagur 28. apríl Rótin, menguð jörð, spilling, vakning og verðhækkanir Rótin hefur sent kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna synjunar Sjúkratrygginga á aðgangi að upplýsingum í samningi stofnunarinnar við SÁÁ. Kristín I Pálsdóttir ræðir við Maríu Ragnheiður Þorgrímsdóttir, íbúi í Hvalfirði, segir að mengun frá stóriðjusvæðinu á Grundartanga sé orðin að dragbít sem hamli framþróun hjá sveitarfélaginu. Björn Þorláks ræðir við hana. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir spillingu og lagaleg álitamál sem tengjast fréttum líðandi stundar í samtali við Björn Þorláks. Gunnar Dan uppljómaðist eftir taugaáfall en hann segir sjálfsblekkingu, fals, lygar og ofbeldi hafa einkennt líf sitt fram að því. Ásdís Olsen ræðir við hann. Verðhækkanir virðast á fullu þessa dagana og takmörkuð bjartsýni gagnvart komandi verðbólgumælingum. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, fer yfir tillögur að úrbótum í samtali við Björn Þorláks.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur beint frá Alaska. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, fór yfir víðan völl og kom með mikil og jákvæð tíðindi úr orkuheimum. Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks og Snorri Másson, þingmaður Miðflokks, fóru yfir menntamálin og ræðu Ingu Sæland sem gerði allt vitlaust. Sigurður Ágúst Sigurðsson, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, settist niður með okkur. Elín Vigdís Guðmundsdóttir, formaður SÁTTar, samtaka um átraskanir og tengdar raskanir, settist niður með okkur. Arinbjörn Hauksson, markaðsstjóri Elko, ræddi við okkur um tæki sem aðstoða við vorhreingerningar. Ragnheiður Thorsteinsson, formaður Stangveiðifélags Reykjavíkur, ræddi fund sem félagið stendur fyrir í kvöld. Krista og Snorri frá Eldum rétt komu í heimsókn.
Mánudagur 13. apríl Íransstríðið, vinstrið, fíkn, húsbyggingar og sjálfsvinna Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir fall Orban í Ungverjalandi og fíaskóið sem Íransstríðið virðist vera fyrir Trump. Björn Þorláks ræðir við hann. Svenný Kristins, Davíð Arnar Stefánsson og Esther Bíbí Ásgeirsdóttir ræða við Maríu Lilju sem fulltrúar nýs framboðslista vinstrisins í Hafnarfirði. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Áslaugu Einarsdóttur, móður sem hefur glímt við fíknisjúkdóm og misst bæði forsjá og umgengni við barn sitt. Ingvar Jónsson byggingameistari ræðir við Björn Þorláks í tengslum við breytt landslag húsbygginga hér á landi og ber aumingjaskap landsmanna á góma. Ásdís Olsen ræðir við Helgu Snjólfsdóttur verkfræðing sem opinberaðist sjálfri sér eftir að hafa keyrt á vegg.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Sigurður Þ. Ragnarsson Siggi Stormur hjá veður ehf um lægðirnar sem koma í núna í bunum Marinó G. Njálsson leiðir starfshóp um nýtt húsnæðislánakerfi Símatími Árni Sigfússon stjórnarformaður Eyjaganga Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka um yfirvofandi olíukreppu Sigrún A Þorsteinsdóttir sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS og Ragnheiður Þorkelsdóttir forstöðumaður upplifunar og vöruþróunar hjá VÍS Helgi Bachmann ferðaðist nýverið til Kyiv í Úkraínu
Samsýningin Auðlindagarðar fjallar um venslin á milli stóriðju og stafrænna innviða samtímans, þar sem stórar ákvarðanir um náttúruauðlindir eru teknar í sterílu skrifstofuumhverfi og sú náttúra sem flest okkar sjá er á skjáhvílum vinnutölvanna okkar. Listamennirnir, þau Agnes Ársælsdóttir, Hrafkell Tumi Georgsson, Sölvi Halldórsson og Eleni Iermia, vinna staðbundið inn í Slökkvistöðina, sem var áður hluti af Áburðarverksmiðju ríkisins. Við lítum þar við í síðari hluta þáttar. Tumi Árnason fjallar um nýafstaðna tónleika Caput hópsins í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli Jóns Nordal. Og við komum við í Höggmyndagarðinum þar sem myndlistarkonan Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnason sýnir um þessar mundir skúlptúra sem hún kallar Tilfinningasteina, en þeir eru afsprengi rannsóknar hennar á tilfinningalegum orðaforða, sem hún segist ekki vera neitt sérstaklega góð í sjálf.
Fimmtudagur 19. mars Efnahagsóvissa, ESB, eldhugi og áföll Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, bregst við umælum fjármálaráðherra í dag um að of miklar launahækkanir séu aðalhvati verðbólgunnar. Finnbjörn segir í samtali við Björn Þorláks stöðuna ekki bjarta og ræðir málin með gagnrýnum hætti. Magnús R. Einarsson leiðsögumaður og fyrrum dagskrárgerðarmaður til áratuga á Rúv, ræðir samanburð lífskjara á Íslandi og á meginlandi Evrópu. Honum finnst umræða stjórnarandstæðinga heimóttarleg eins og kemur fram í samtali hans við Björn Þorláks. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Svein Rúnar Hauksson lækni um ævi, störf og áhugamál. Dr. Sigrún Sigurðardóttir hefur skrifað bók um áföll sem er ansi skýr og aðgengileg almenningi. Hún ræðir bókina og farangurinn sem mörg okkar bera í spjalli við Björn Þorláks.
Fimmtudagur 12. mars Þjóðtungudeila, hópmorð, villuáróður, þolmörk ferðaþjónustu og kynusli Eiríkur Rögnvaldsson íslenskumaður hefur verið sakaður um að láta pólitískar skoðanir villa sér sýn þegar hann svarar fyrirspurnum á Vísindavefnum er varða íslenska tungu. Eiríkur bregst við í samtali við Björn Þorláks og ræðir einnig stöðu íslenskrar tungu.Þórdís Ingadóttir lagaprófessor, Hjálmtýr Heiðdal og Qussay Odeh, fulltrúar félagsins Ísland Palestína ræða við Maríu Lilju um Gaza og álitsgerð Íslands í máli Suður-Afríku gegn Ísrael um ætlað brot gegn sáttmála SÞ um hópmorð. Doktor Lára G. Sigurðardóttir lýðheilsufræðingur bregst við villuáróðri um skaðleysi áfengisBjörn Þorláks ræðir við Láru. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Börk Hrólfsson leiðsögumann um ástandið í ferðamálum á Íslandi. Beta Skagfjörð leikari, Sindri Sparkle uppistandari og leikstjórinn Aron Martin ræða við Björn Þorláks um leiksýninguna: Ég Jóhanna.
Mánudagur 9. mars VG, einhverfa, gervigreind og kosningar Rósa Björk Brynjólfsdóttir er nýr formaður Vinstri grænna. Hún var kjörin með rússneskri kosningu. Rósa hefur áður verið í VG, en sagði úr flokknum þegar Katrín Jakobsdóttir myndaði ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki. Eyrún Halla Kristjánsdóttir nemi, Guðlaug Svala Kristjánsdóttir, sjúkraþjálfari og einhverfufræðari, Halldóra Hafsteins, stuðningsfulltrúi og aktívisti, Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir hönnuður og kynjafræðingur ræða málefni einhverfra á forsendum einhverfra. Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður er þegar farinn að nota gervigreind í sínum störfum. Hann gerir ráð fyrir að víða verði gervigreind notuð til að dæma í einföldum dómsmálum. Hann segir jafnframt að það vanti löggjöf um hvernig megi nota gervigreind í dómsmálum. Silja Sóley Birgisdóttir oddviti sósíalista, Kristín Kolbrún Waage miðflokki ræða sveitastjórnarkosningarnar.
Fimmtudagur 5. mars Einhverfa, offita, reynsluboltar og 80's Guðrún Eva Bell Jónsdóttir og Hjörtur Hlífar, einhverfur sonur hennar, ræða áskoranir í stuðnings kerfunum við Ragnheiði Davíðsdóttur. María Lilja fær til sín félagsráðgjafann og aðgerðarsinnann Töru Margréti Vilhjálmsdóttur en hún gagnrýnir nýjar tillögur heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um sérstaka aðgerðaáætlun vegna offitu. Reynsluboltarnir að þessu sinni eru þau Björk Vilhelmsdóttir, Björn Leví Gunnarsson og Sólveig Anna Jónsdóttir. Þau ræða fréttir líðandi stundar við Björn Þorláksson. Ása Lind Finnbogadóttir og Laufey Líndal mæta til Maríu Lilju til að kynna viðburð hvar þær hyggjast í félagi við fleiri plötusnúða endurvekja gleymdar perlur níunda áratugarins.
Andri Snær Magnason er nýkominn til landsins eftir að hafa fylgt eftir heimildarmyndinni Time and Water, sem gerð er upp úr bók hans Um tímann og vatnið. Myndin hefur verið sýnd til dæmis á Sundance kvikmyndahátíðinni og vakti mikla athygli. Við fengum Andra til að segja okkur frá myndinni og hvernig hún kom til og hver væri munurinn á henni og bókinni. Svo tókum við aðeins með honum stöðuna í loftslagsmálum, því það er auðvitað það sem Andri skrifaði um í bókinni, sem kom út árið 2019, þar sem hann notaði sögur af forfeðrum sínum og ættingjum til þess að fjalla um loftslagsvísindin og þær breytingar sem eru að verða sem hafa áhrif á allt líf á jörðinni. Við ræddum hvernig umræðan hefur breyst undanfarnið, til dæmis þegar Bandaríkjastjórn hefur afturkallað ákvaraðnir um hættu vegna gróðurhúsalofttegunda. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var svo Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni. Við fengum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gunnar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Einn, tveir þrír, fjór... Bítlarnir í tímanna rás e. Craig Brown (Þýð. Helgi Ingólfsson) Tune in e. Mark Lewisohn Ævisögur Charles Mingus, Thelonious Monk og Chet Baker Bækur Braga Ólafssonar, Braga Páls Sigurðsson og Ólaf Gunnarsson Kokkáll e. Dóra DNA Bjarmalönd e. Val Gunnarsson Reyndu aftur, ævisaga Magnúsar Eiríkssonar e. Tómas Hermannsson Boy on Fire um Nick Cave e. Matt Mordue The Big Midwwk, Life inside the Fall e. Steve Hanley Tónlist í þættinum í dag: Frost / Pálmi Gunnarsson og Ragnheiður Gröndal (Pálmi Gunnarsson, Ragnheiður Gröndal, Stefán Örn Gunnlaugsson) Frostrósir / Haukur Morthens (Freymóður Jóhannsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Sólveig Ragnheiður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri og ráðgjafi hjá Strata Advisory, ræddi við okkur um erfiða stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Benedikta Eik Eiríksdóttir, stofnandi samtakanna Mitt DNA - Samtök rangfeðraðra, settist niður með okkur. Þórir Garðarsson, framkvæmdastjóri og Alexandra Briem, formaður Borgarráðs, ræddu Borgarlínu. Sigga Heimis, iðnhönnuður og fagstjóri nýrrar deildar í Háskólanum í Reykjavík, settist niður með okkur. Guðrún Árný og Heiðar í Botnleðju ræddu Britpop veislu í Bæjarbíói.
Þriðjudagur 3. febrúar Forval Vg, íslensk menning, Inngrip vegna olíufélaganna og fjölmiðlar Við hefjum leik á umræðu fjögurra frambjóðenda í VG. Átta vilja verða borgarfulltrúar VG í borgarstjórnarkosningum í vor. Auður Alfífa Ketilsdóttir, Finnur Ricart Andrason, Steinar Harðarson og Hlynur Már Ragnheiðarson sem gefa kost à sér í forvali, ræða við Björn Þorláks um framboðið, áherslur og möguleikana. Gígja Sara Björnsson sviðslistakona, Páll Baldvin Baldvinsson eftirlaunamaður, Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og Sverrir Norland rithöfundur ræða við Gunnar Smára um íslenska menningu á viðsjárverðum tímum. Runólfur Ólafsson hjá FÍB ræðir hvort hið opinbera þurfi með inngripi að siða olíufélögin svo verðhækkanir á eldsneyti fari ekki úr böndunum sem hefur áhrif á verðbólgu. Saga olíufélaga er blóði drifin er kemur að verðsamráði hér á landi. Björn Þorláks ræðir við Runólf. Skúli Bragi Geirdal hjá Netvís kynnir samnorræna könnun sem sýnir að Íslendingar hegða sér sumpart töluvert með öðrum hætti en hinar norðurlandaþjóðirnar er kemur að notkun fjölmiðla og samfélagsmiðla. Fjölmiðlalæsi er ekki upp á marga fiska hér á landi. Björn Þorláks ræðir við Skúla.
Fimmtudagur 8. janúar Reynsluboltar, vonda ESB, Tourette og sönglög Oddný Harðardóttir fyrrum þingmaður og ráðherra, Halldór Guðmundsson menningarfrömuður og Steingerður Steinarsdóttir blaðamaður taka púlsinn á fréttum líðandi stundar og tíðaranda. Alþjóðamálin, ESB, staða íslenskunnar, bókajólin að baki og prófkjör verða til umræðu. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Ögmundur Jónasson fyrrverandi þingmaður, ráðherra og formaður BRSB segir Gunnar Smára hvers vegna hann vill ekki að Ísland gangi í Evrópusambandið. Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir, uppistandari, segir Ragnheiði Davíðsdóttur frá lífinu með Tourette og hvernig hún sér og túlkar heiminn í gegnum húmor. Þorvaldur Gylfason tónskáld og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari ræða tónlistina og tónleika fram undan í Hörpu, sem verða kvikmyndaðir í bak og fyrir. Vængjasláttur fugla kemur við sögu. Björn Þorláks ræðir við þau.
Jasmina Vajzovic stjórnmálafræðingur kom í þáttinn í dag en hún hefur áralanga reynslu af því að vinna í málefnum innflytjenda, hælisleitenda og flóttafólks auk þess að vera sjálf innflytjandi, en fjölskylda hennar þurfti að flýja heimkynni sín í Bosníu undan stríðsátökum á tíunda áratugnum. Hún hefur verið dugleg að tjá sig og svara umræðu um innflytjendur sem hefur farið vaxandi hér á landi og reyndar víðar. Hún hefur innsýn og reynslu sem fáir hafa í þessum málaflokki. Hún hefur til dæmis bent á að frjálslega sé oft farið með tölur og tölfræði og hugtök í þessari umræðu sem hún útskýrði í þættinum í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo í veðurspjallið í dag. Hann tala fyrst lítillega um veður nýliðins árs. Hitametið margumtalaða og sveiflunan milli ára frá 2024 til 2025. Svo er það veturinn í Evrópu og gömlu mýtuna um þegar það er kalt á Íslandi er milt í Evrópu og öfugt. Á það ekki við nú? Svo að lokum talaði Einar um rakann í loftinu og þurrt inniloftið. Skilgreiningar eins og rakastig og daggarmark lofts. Tónlist í þættinum: Byrjaðu í dag að elska / Geirfuglarnir (Rokkmúsirnar) Hver stund með þér / Kvartett Einars Scheving og Ragnheiður Gröndal (Einar Valur Scheving) Unforgettable / The Ink Spots (Irving Gordon) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Við helltum okkur í sælkera- og hátíðarmatarspjall í dag með sérfræðingi. Hinrik Örn Lárusson er einn færasti matreiðslumaður landsins. Hann er nánast alinn upp í atvinnueldhúsi, en fjölskylda hans rak Hótel Heklu og hann tók sínar fyrstu kokkavaktir sem nemi 15 ára á Hótel Sögu. Hann hefur keppt fyrir hönd Íslands var matreiðslumaður ársins á íslandi 2024 og vann evrópukeppnina 2025. Í dag rekur hann með félögum sínum Sælkerabúðina, Lux veitingar og nýja veitingastaðinn Brasa í Turninum á Smáratorgi. Við ræddum við Hinrik um hátíðarmatinn, hvernig á að hantera hinar ýmsu tegundir kjöts, sósurnar og bara ýmislegt sem viðkemur hátíðarmatnum. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Í dag ræddi hann við okkur um tilfinningalífið í aðdraganda jóla. Jólin eiga auðvitað að vera tími ljóss og friðar og er það vonandi hjá sem flestum. En það er ekki fram hjá því litið að þau geta líka reynst öðrum erfið, af ýmsum ástæðum. Valdimar Þór fór með okkur yfir þetta í dag. Tónlist í þættinum í dag: Jólin með þér / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) Himnasending / Eivör Pálsdóttir og Stefán Hilmarsson (Odd Norstoga, texti Kristján Hreinsson) Aðfangadagskvöld / Helga Möller (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Við verðum á faraldsfæti í þætti dagsins. Við hefjum þáttinn með heimsókn í Hússtjórnarskólann, sem er staðsettur á Sólvallagötu í Reykjavík. Skólinn hefur starfað óslitið frá árinu 1942. Ég kíkti í skólann í gær og ræddi þar við Mörtu Maríu Arnarsdóttur, skólameistara, um námið og hið árlega opna hús sem er í skólanum á morgun. Á ferð okkar Mörtu Maríu um skólann hittum við fleiri kennara sem deildu með okkur ýmsu áhugaverðu. Frá Sólvallagötunni höldum við svo í Hafnarfjörð en skólakór Öldutúnsskóla fagnar 60 ára starfsafmæli í ár, en kórinn var stofnaður árið 1965. Í gegnum árin hefur kórinn ferðast víða og sungið á fjölda tónleika en á sunnudaginn er komið að árlegum jólatónleikum kórsins í Hafnarfjarðarkirkju. Kórinn var við æfingar í gær, ég kíkti við og hlýddi á undurfagran barnasöng og ræddi við Brynhildi Auðbjargardóttur, kórstjóra, en hún var sjálf í kórnum sem barn. Frá barnasöngnum höldum við svo í Skógræktarfélag Hafnarfjarðar og hittum Steinar Björgvinsson, framkvæmdastjóra en þar á bæ eru allir að undirbúa sig fyrir sölu jólatráa. Steinar segir okkur allt um meðhöndlun jólatrjáa og af hverju stafafuran er uppáhalds lifandi jólatré Íslendinga. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir. Tónlist þáttarins: Saman - Lay Low og Ragnheiður Gröndal
Fimmtudagur 4. desember Pawel, engin göng, Rreynsluboltar, heilaskaði, fæðingarorlof og íslenskan Pawel Bartoszek formaður utanríkismálanefndar ræðir við Gunnar Smára um öryggismál Íslands og Evrópu, framtíð Nató og aukin útgjöld Íslands vegna stríðsins í Úkraínu. Eyþór Stefánsson er í hópi íbúa fyrir austan sem furða sig á forgangsröðun stjórnvalda er kemur að jarðgangagerð. Hann ræðir í tilfinningaríku samtali við Björn Þorláks hug Seyðfirðinga. Blaðamennirnir Helga Arnardóttir, Ágúst Borgþór Sverrisson og Steingerður Steinarsdóttir ræða mál skólastjóra Borgarholtsskóla, samgönguáætlun, Úkraínu, offitu og fleiri fréttamál. Þátturinn er í umsjá Björns Þorláks. Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheillar og Valgerður Sverrisdóttir, fyrrum ráðherra, ræða við Ragnheiði Davíðsdóttur um reynslu sína af heilaskaða, fyrstu einkenni og forvarnir. Hver er saga fæðingarorlofs á Íslandi og hvernig hefur það þróast í samhengi við önnur lönd? Laufey Líndal fær tvo fræðimenn úr Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, þær Guðnýju Björk Eydal, prófessor, og Ásdísi Arnalds, lektor, til að fara yfir sögu fæðingarorlofsins og þær þjóðfélagsbreytingar sem það hefur haft í för með sér. Listaskáldið góða, Þórarinn Eldjárn, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvort við töpum okkur sjálfum ef við missum íslenskuna út úr huga og höndum.
Fimmtudagur 27. nóvember Nató, heimilisleysi, reynsluboltar, fallnir múrar og íslenskan Soffía Sigurðardóttir hernaðarandstæðingur ræðir við Maríu Lilju um hernaðarbandalagið m.t.t. frétta dagsins. Einar Ingi Kristinsson og Guðbjörg Inga Guðjónsdóttir tala um reynslu sína af götunni. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við þau. Fjölmiðlakonan Sirrý Arnardóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson blaðamaður og Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastýra Kvenréttindafgélags Íslands fara yfir helstu mál. Fúin kerfi, pólitíkin, hernaður og fleira verður til umræðu. Björn Þorláks ræðir við þau. Þegar múrar falla, er heiti nýrrar bókar eftir Hörð Torfason. Þar rekur hann hvað varð að gera til að múrar féllu. Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, fer yfir helstu tíðindi jólabókaflóðsins og setur útgáfu hér innanlands í samhengi við varnarbaráttu íslenskrar tungu. Björn Þorláks ræðir við hann.
Fimmtudagur 20. nóvember Reynsuboltar, friðarplan, krabbamein, gervigreind og skáldið Sigurjón Magnús tekur á móti reynsluboltum og ræðir um fréttir vikunnar og vettvang dagsins: Viðar Eggertsson leikari, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi skemmta hvort öðru og okkur með spjalli um daginn og veginn. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir friðarplan Trump við Gunnar Smára og hvort honum takist að troða því ofan í kokið á Úkraínu og Evrópu. Hannes Rúnar Hannesson varaformaður Krafts og Melkorka Matthíasson sem starfar hjá Ljósinu ræða við Ragnheiði Davíðsdóttur um sára reynslu sína af krabbameini. Stefán Atli Rúnarsson er viðskiptafræðingur, fjölmiðlatækni og eigandi ChatGPT námskeið.is þar sem hann kennir fólki að umgangast gervigreindina. Hann sagði Gunnari Smára frá sinni reynslu og sýn á þetta furðufyrirbrigði sem gervigreindin er. Kristín Ómarsdóttir skáld ræðir við Gunnar Smára um bækur sínar um langömmu sína, um skáldskapinn, tímann, tímamótin og fleira sem skemmtilegt er að spjalla um.
Fimmtudagur 13. nóvember Háskólafólk, reynsluboltar, blindrasýn og Gunnar Gunnars Gauti Kristmannsson prófessor í þýðingafræðum og deildarforseti íslensku og menningardeildar og Brynja Elísabeth Halldórsdóttir Gudjonsson dósent í gagnrýnum menntunarfræðum bæði við Háskóla Íslands ræða við Maríu Lilju um fyrirhugaðar breytingar á dvalarleyfum til nema utan Evrópu. Styr hefur staðið um fullyrðingar dómsmálaráðherra þess eðlis að nemendur frá Pakistan, Nígeríu og Ghana misnoti háskólana til að fá dvalarleyfi hér á landi. Háskólafólk kannast hreint ekki við slík athæfi. Reynsluboltarnir Ólafur Arnarson, Páll Ásgeir Ásgeirsson og Steingerður Steinarsdóttir ræða mál sem hæst fer í þjóðmálum og fréttum þennan daginn. Þau eru öll blaðamenn. Björn Þorláks hefur umsjón með umræðunni. Brynja Arthúrsdóttir og Halldór Sævar Guðbergsson ræða um reynslu sína við Ragnheiði Davíðsdóttur en þau eru bæði alblind. Saga Gunnars Gunnarssonar rithöfunar Aðventa verður lesin upp á fjölda tungumála og ævistarfi hans fagnað. Skúli Björn Gunnarsson forstöðumaður og Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur ræða við Björn Þorláks um arfleifð Gunnars og sviðsljós líðandi stundar.
Fimmtudagur 6. nóvember Jamaíka, reynsluboltar, kynlífsverkafólk, Birta og skotveiðimenn Claudia A. Wilson segir Laufeyju Líndal frá eftirleik fellibylsins Melissu sem reið yfir eyjarnar í Karabíska hafinu í síðustu viku. Claudia ólst upp á eynni Jamaíku og segir okkur frá samfélaginu þar sem nú bíða ýmsar áskoranir. Bogi Ágústsson, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Björg Eva Erlendsdóttir ræða fréttir og tíðaranda líðandi stundar, efnahagsmál, trúverðugleika opinberra stofnana, umhverfismál, nýjan borgarstjóra í New York og fleira. Björn Þorláks hefur umsjón með þættinum. Ari Logn frá Rauðu regnhlífinni samtökum kynlífsverkafólks mætir til Maríu Lilju og fer yfir nýlega ráðstefnu um málefni fólks í kynlífsvinnu. Halldóra Kristin Guðjónsdóttir og Linda Sólveig Birgisdóttir fjalla um skyndilegan dauða sona sinna. Einnig segja þær frá Birtu, landssamtökum, sem halda utan um fólk sem lendir í skyndilegu fráfalli barna sinna en það er Ragnheiður Davíðsdóttir sem ræðir við þær. Skotveiðimenn ætla ekki að una aðgerðalaust úrskurði sem hefur leitt til lokunar skotsvæðis þeirra í Álfsnesi. Áki Ármann Jónsson, formaður Skotvís og Róbert Reynisson formaður Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis ræða við Björn Þorláks.
Katla Gunnarsdóttir er það sem kallað er smörrebrauðsjómfrú að mennt. Frá því hún lauk sveinsprófi hefur hún starfað á frokostveitingastaðnum Tívolíhallen í eigu smörrebrauðsjómfrúnnar Helle Vogt, en hún rekur eldhúsið uppá gamla mátann með klassísku smörrebrauði og dönskum réttum. Katla er þessa dagana með annan fótinn á landinu en hún er meðal annars að bíða eftir leyfi frá Reykjavíkurborg í samstarfi við veitingastaðinn Hosiló um að opna klassískan Smörrebrauðsstað í Safnahúsinu á Hverfisgötunni. Katla sinnir líka meistaraverkefni frá DTU í Kaupmannahöfn en þar kemur síld við sögu. Við spjölluðum við Kötlu í þættinum. Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum heldur reglulega námskeið fyrir sjúkraliða og annað fagfólk í heilbrigðisgeiranum, en í lok þeirra spyrja þau þáttakendur hvaða námskeið þau myndu vilja að MSS stæði fyrir næstu önn. Óskanámskeið talsvert margra var námskeiðið „Örmagna heilbrigðisstarfsfólk“. Og það er skemmst frá því að segja að námskeiðið hefur verið sett á um miðjan nóvember og Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir, leiðbeinandi á námskeiðinu, var hjá okkur í dag og sagði frá námskeiðinu og örmagna heilbrigðisstarfsfólki. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Þór Tulinius, leikari, leikstjóri, leikskáld, leiðsögumaður og nú rithöfundur. Við fengum hann til að segja okkur frá nýrri skáldsögu sinni, Sálnasafnarinn, og svo auðvitað því sem hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Þór talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ilmurinn eftir Patrick Suskind Jötunsteinn e. Andra Snær Magnússon Bók vikunnar e. Snæbjörn Arngrímsson Í skugga trjánna e. Guðrúnu Evu Mínervudóttur Samuel Beckett og Harold Pinter Tónlist í þættinum í dag: Sjóddu frekar egg / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason) Begin the Beguin / Ella Fitzgerald (Cole Porter) The Sun Ain't Gonna Shine Anymore / The Walker Brothers (Bob Crewe & Bob Gaudio) I'll Come Running Back to You / Sam Cooke (Sam Cooke) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Þjóðarspegillinn fer nú fram í Háskóla Íslands og í þætti dagsins ætlum við að ræða við fyrirlesara þriggja erinda. Byggingargallar hafa lengi verið til umræðu á Íslandi. Í nýrri rannsókn er lagt mat á eðli og umfang galla í nýbyggðum fjölbýlishúsum á höfuðborgarsvæðinu og hvernig ábyrgðar- og eftirlitskerfi virka í framkvæmd. Frumniðurstöður benda til að núverandi ábyrgðar- og eftirlitskerfi nýbygginga virkar ekki sem skyldi. Stefán Hrafn Jónsson, prófessor á félagsvísindasviði Háskóla Íslands, ætlar að segja okkur allt um þetta. Að huga að andlegri heilsu á vinnustöðum þar sem andlegt álag er mikið skiptir verulegu máli, ekki aðeins fyrir vellíðan starfsmanna heldur einnig fyrir árangur og starfshæfni stofnunarinnar í heild. Laufey Sif Ingólfsdóttir ætlar að segja okkur frá rannsókn sinni á tilfinningavinnu fangavarða á Íslandi. Sérstök áhersla var lögð á að skoða hvernig starfið hefur áhrif á andlega líðan, faglega sjálfsmynd og viðbrögð við álagi, auk þess að greina hvaða úrræði og stuðning fangaverðir hafa til að mæta krefjandi aðstæðum. Eru íslensk heimili undirbúin fyrir hamfarir? er heiti erindis sem Guðný Björk Eydal og Ragnheiður Hergeirsdóttir eru með. Þær segja frá niðurstöðum þriggja kannanna þar sem spurt var hvernig heimilisfólk hagar sínum viðbúnaði. Guðný og Ragnheiður koma í lok þáttar og deila með okkur helstu niðurstöðum. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir. Tónlist þáttarins: EMILÍANA TORRINI - Animal Games. LENNY KRAVITZ - 5 More Days 'Til Summer. PAUL SIMON - You Can Call Me Al.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Friðbjörn Sigurðsson, læknir og Steinunn Gestsdóttir, prófessor í sálfræði fóru yfir fund sem fer fram á morgun um langvinn einkenni Covid. Símatími. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, ræddi fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar. Guðný Björk Eydal, prófessor í félagsráðgjöf og Ragnheiður Hergeirsdóttir, lektor í sömu grein, fóru yfir áhugaverða rannsókn sem þær hafa framkvæmt síðustu ár. Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju og Ingibjörg Thors, einn eigandi og sálfræðingur hjá sálfræðiþjónustunni Mín líðan, ræddu nýja þjónustu í Lyfju appinu. Örn Árnason, leikari og Bragi Þór Hinriksson, leikstjóri og handritshöfundur, ræddu nýju bíómyndina Víkina. Greipur Ásmundarson og Birkir Fannar Snævarsson mættu og ræddu klifur. Aftanfrá.
Miðvikudagur 22. október Stjórnarskrá, baráttubíó, breytingarskeiðið, kyn og gervitónlist Hvar er nýja stjórnarskráin? 13 ár eru liðin síðan Alþingi boðaði til þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá. Hjörtur Hjartarson ræðir við Björn Þorláks. Barði Guðmundsson og Hrafnhildur Gunnarsdóttir eru höfundar heimildarmyndarinnar Bóndinn og verksmiðjan sem fjallar um baráttu Ragnheiðar Þorgrímsdóttur á Kúludalsá gegn mengun frá álverinu í Hvalfirði. Þau segja Gunnari Smára frá myndinni auk annarra verka. Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs, greinir frá staðli um aukna ábyrgð vinnuveitenda á stuðningi við konur á breytingaskeiði. Björn Þorláks ræðir við Helgu Sigrúnu. Arnar Pálsson prófessor lífupplýsingafræði við Háskóla Íslands segir Gunnari Smára frá fjölbreytileikanum í náttúrunni og hversu illa tvíhyggja mannsins heldur utan um hinn líffræðilega raunveruleika. Eru kynin fleiri en tvö? María Lilja ræðir að lokum við Óla Dóra, menningarvita og plötusnúð um gervigreindartónlist.
Upplifir þú sálrænt öryggi á þínum vinnustað? Það er mikilvægt að finna til öryggis í hópnum á vinnustað, geta tjáð sig frálst á fundum fyrir framan aðra og þora að vera maður sjálfur. Ein skilgreining á sálrænu öryggi er einmitt sú meðlimir teymis upplifi öryggi til að taka félagslega áhættu og vera berskjaldaðir. Hilja Guðmundsdóttir ráðgjafi hjá Mental og sérfræðingur í Mannauðsstjórnun kom í þáttinn í dag. Tónlistarhátíðin Óperudagar er í fullum gangi og stendur til 26.oktober. Aðstandendur hátíðarinnar og fjölmargir þátttakendur standa fyrir fjölbreyttum söngverkefnum í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Borgarbyggð og Reykjanesbæ. Á hátíðinni er boðið upp á um 40 viðburði fyrir alla aldurshópa og um 200 listamenn frá ýmsum löndum koma fram. Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir verkefnisstjóri sagði okkur frá því helsta á Óperudögum í þættinum. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Hjálmar Waag Árnason, fyrrverandi alþingismaður, skólameistari og kennari. Hjálmar þýddi bókina Marta, Marta eftir færeyska rithöfundinn Marjun Syderbö Kjelnæs, sem við fengum hann til að segja okkur aðeins frá og svo auðvitað líka frá þeim bókum sem hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Hjalmar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Brennu Njálssaga Talað við dýrin e. Konraud Loreenz Meðan eldarnir brenna e. Stacu Ný og nið e. Jóhannes úr Kötlum Ljóðasafn Steins Steinarr Halldór Laxness Bláskjár Riddarinn Rauðgrani Dísa ljósálfur Bækur um göngu- og hjólaleiðir Lög í þættinum í dag: Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín (Þorgrímur Haraldsson, Sveinbjörn Bjarki Jónsson, texti Páll Óskar Hjálmtýsson) Það þarf fólk eins og þig / Rúnar Júlíusson (Buck Owens, texti Rúnar Júlíusson) Mamma / Luciano Pavarotti & Ricky Martin (B. Cherubini, A Cesare Bixio) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Tvö viðfangsefni hafa áhrif á okkur öll hvort sem við höfum áhuga á þeim eða ekki: heilsa og peningar. Fólk hefur mjög mismunandi viðhorf til peninga og hegðun okkar þegar kemur að fjármálum fer gjarnan frekar eftir tilfinningum okkar til þeirra en því sem við mögulega kunnum og vitum. Hjónin Georg Lúðvíksson og Kristrún Tinna Gunnarsdóttir þýddu saman bókina Sálfræði peninganna eftir Morgan Housel sem er nýkomin út. Þau komu til okkar í dag og sögðu okkur frá bókinni og þeirra sameiginlega áhugamáli, en eins og þau segja sjálf þá er fjármálanördar hugtak sem á ágætlega við um þau. Ragnheiður Gröndal tónlistarkona var ein af þeim sem hlaut starfslaun til eins árs, sem tónskáld og tónlistarflytjandi. Hún segir að það hafi verið kærkomið að fá næði og rými til eigin tónsmíða og er með mörg járn í eldinum. Við heyrðum í henni í þættinum og hún leyfði okkur að heyra nýtt lag sem er ekki enn komið út. Svo var það Heilsuvaktin. Akureyrarklíníkin hefur á einu ári frá stofnun tekið á móti rúmlega fimm hundrað manns sem greinst hafa með langvinnan Covid sjúkdóm. Friðbjörn Sigurðsson einn úr læknateyminu þar segir sjúkdóminn einkennast af mikilli örmögnun og ofsaþreytu og að sjúklingar sem greinist með hann hafi hvað mesta sjúkdómsbyrði af öllum sjúkdómum sem Friðbjörn hefur komist í kynni við sem fyrrverandi krabbameinslæknir. Hann sé enn ólæknanlegur og læknar viti ekki hvaða lyf og meðferðir reynist bestar fyrir sjúklinga. Það sé þó von því mikil vitundarvakning hafi orðið undanfarin misseri um sjúkdóminn. Friðbjörn segist hafa trú á því að lækning eða lyf finnist samhliða auknum rannsóknum í náinni framtíð. Helga talaði við Friðbjörn á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Verst af öllu / Ríó Tríó (Evert Taube, texti Jónas Friðrik Guðnason) Allar mínar götur / Halli Reynis og Vigdís Jónsdóttir (Halli Reynis) Ég þakka / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Það eru ekki allir sem finna „einu og réttu“ leiðina í því sem þau vilja gera í lífinu. Sumir vita upp á hár hvað þau vilja læra og vinna við, jafnvel frá því þau voru mjög ung, en svo er líka töluvert margir sem hafa ekki hugmynd um hvað þau vilja verða „þegar þau verða stór“. Magnús Árni Skjöld Magnússon, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, er einn þeirra. Hann fór úr einu í annað, sökkti sér á bólakaf í mismunandi áhugamál, mismunandi nám, vinnur, jafnvel mismunandi trúarbrögð en áttaði sig svo á því að kannski væri það bara allt í lagi, kannski væri það einmitt hans leið. Hann að minnsta kosti skrifaði bókina Hvernig ég varð jógakennarinn í Kabul, þar sem hann fer yfir sína sögu og reynslu og aðferð sem hann bjó til sem hefur nýst honum og gæti jafnvel nýst fleirum. Magnús sagði okkur betur frá bókinni og þessu í þættinum. Lilja Katrín Gunnarsdóttir leikkona bakaði í sólarhring árið 2016 og safnaði fé fyrir Kraft og nú, níu árum síðar, ætlar hún að endurtaka leikinn og baka í sólarhring núna um helgina til styrktar Berginu headspace. Þau hjónin Lilja Katrín og Guðmundur Ragnar Einarsson og þeirra börn urðu fyrir áfalli í byrjun árs þegar fóstursonur þeirra, Guðni Alexander Snorrason, lést aðeins tvítugur að aldri. Þau Lilja og Guðmundur komu í þáttinn í dag. Svo komu þær Ragnheiður Steindórsdóttir og Guðný Gústafsdóttir. En þær eru tvær af þeim sem standa að almannaheillafélaginu Vonarbrú sem stofnað var í vor. Tilgangur félagsins er meðal annars að safna fjármagni til að styrkja u.þ.b. 70 stríðshrjáðar barnafjölskyldur sem búa við mjög erfiðar aðstæður á Gaza. Markmiðið er að veita þessum fjölskyldum nauðsynlegan stuðning við kaup á mat, hreinlætisvörum og öðrum mikilvægum nauðsynjum. Þær sögðu okkur frá félaginu og starfi þess í dag, en frekari upplýsingar um það má finna á www.vonarbru.is. Tónlist í þættinum í dag: Leiðin okkar allra / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson, texti Einar Georg Einarsson) Golden Brown / The Stranglers (Dave Greenfield, Hugh Cornwell, Jean Jacques Burnel, Jet Black) Þetta loft / Sigurður Halldór Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Eliza Reid, sagnfræðingur, rithöfundur og fyrrverandi forsetafrú. Við fórum með henni aftur á æskuslóðirnar í Ottawa í Ontario fylki Kanada, þar sem hún fæddist og ólst upp. Hún sagði okkur frá, tónlistarnámi, kórsöng, ferðalögum til Afríku og Asíu og þegar hún kom fyrst til Íslands. Svo fórum við með henni á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og ræddum auðvitað líka um nýju bókina hennar Diplómati deyr. Í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti í dag töluðum við um súkkulaðikökur, franskar súkkulaðikökur, skúffukökur og fleiri týpur. Tónlist í þættinum í dag: Allt í fína / Ragnar Bjarnason og Ragnheiður Gröndal (Karl Olgeirsson) Hafið þennan dag / Hera (Hera Hjartardóttir) What I Wouldn't Do / Serena Ryder (Serena Ryder & Jerrod Bettis) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Fasteignamarkaðurinn er gjarnan í fréttum af ýmsum ástæðum. Fasteignaverðið og þróun þess, framboð á íbúðum,leiguíbúðum og nú síðast nýtt fasteignamat. Við ákváðum því að skoða aðeins hver er staðan á fasteignamarkaðinum í dag. Monika Hjálmtýsdóttir formaður Félags fasteignasala kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir sviðið og skoða stöðuna og hvert fasteignamarkaðurinn er að stefna. Við fjöllum gjarnan um útivist og göngur, gönguleiðir og svo framvegis. Í dag forvitnuðums viðt aðeins um göngu og útivist sem eru öðruvísi, eða hvað? Hún kallast Leiðin og er vissulega ganga, en líka sviðslistaverk, þar sem þáttakendum, eða kannski frekar gestum, er boðið í performatífa pílagrímsgöngur á nokkrum stöðum á landinu, þar sem markmiðið er að rannsaka ferðalagið sem form. Steinunn Knúts Önnudóttir sviðslistakona kom í þáttinn í dag, en hún stendur að þessum göngum, og við fengum hana til að útskýra betur fyrir okkur þessar göngur. Tónlist í þættinum í dag: Veldu stjörnu / Ellen Kristjáns og John Grant (Ellen Kristjáns, texti Bragi Valdimar Skúlason) Draumur / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir, texti Steinn Steinarr) Töfrabörn / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Það er eitthvað dularfullt við súrdeig. Þetta lifandi efni sem þarf að næra, klappa og fylgjast með eins og það sé gæludýr. Það andar, bólgnar út og deyr ef maður sinnir því ekki. Sumir elska það, aðrir fá nældu bara við tilhugsunina. Í þessum þætti ætlum við að skoða hvað súrdeig er eiginlega, hvaðan það kemur, hvernig það virkar og af hverju fólk er svona heltekið af því. Ég fékk Ragnheiði Maísól Sturludóttur til mín, sem hefur bæði brennt brauð og bakað fullkomin skorpubrauð, og við ræðum allt frá örverum og smjörklípu yfir í þolinmæði og nördaskap. Ef fólk hefur áhuga á að vita meira um súrdeig er hægt að hlusta á þættina hennar Ragnheiðar í spilara Rúv hér: https://www.ruv.is/utvarp/spila/surinn/36330/aqf153 Umsjón: Atli Már Steinarsson
Bítið á Bylgjunni með Lilju, Ómari og Yngva. Miðvikudagurinn 23. apríl 2025. * Reynir Þór Eggertsson, Eurovision-sérfræðingur, var á línunni og ræddi um Eurovision og hvaða lönd mega taka þátt. * Kristján Hálfdánarson, formaður húsfélagsins Árskógum 7, settist niður með okkur. * Systkinin Andri Jónsson og Ragnheiður Eva Lárusdóttir er fólkið á bak við Ríteil. * Hjónin Theodór Francis Birgisson og Katrín Katrínardóttir mættu í spjall um hjónalífið og myndlist. * Simmi Vill kynnti okkur fyrir matvælum sem eiga eftir að slá í gegn í grillveislunni í sumar. * Óli Palli sagði okkur frá HEIMA í Hafnarfirði. * Eyþór Ingi kom og fór á kostum.
Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur
Við sögðum í dag frá ráðstefnu sem haldin verður í Hörpu á fimmtudaginn þar sem umfjöllunarefnið verður öldrunarþjónusta framtíðarinnar og tækni. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Öldrunarþjónusta á gervigreindaröld: Nýsköpun í öldrunarþjónustu og aukin lífsgæði aldraðra. Þar verður sérstaklega fjallað um hvaða áhrif gervigreindin og tæknin, eins og til dæmis róbótar, hafa á umönnun aldraðra nú og í framtíðinni. María Fjóla Harðardóttir forstjóri Hrafnistu kom í þáttinn. Í dag, eins og undanfarna mánudaga, kom Georg Lúðvíksson til okkar með það sem við köllum fjármálin á mannamáli. Í þetta sinn talaði hann um heppni og óheppni þegar kemur að fjármálunum. Georg útskýrði þetta betur fyrir okkur í spjallinu. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Reynir Lyngdal leikstjóri, en hann er einn þriggja leikstjóra nýrrar þáttaraðar, Reykjavík 112, sem eru spennuþættir byggðir á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur DNA. En hann sagði okkur auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Reynir talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Sporðdrekar e. Dag Hjartarson Múffu e. Jónas Reyni Lunga e. Pedro Gunnlaug Garcia DNA e. Yrsu Sigurðardóttur Astrid Lindgren bækurnar um Tinna og Tobba, Ástrík Michel Houellebecq Tove Jansen Tónlist í þættinum í dag: Freistingar / Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson og Bragi Valdimar Skúlason) Ryðgaður dans / Valdimar (Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson) Þú bíður (allaveganna eftir mér) / Ragnheiður Gröndal (Magnús Þór Jónsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Á föstudaginn verður íslensk-pólsk veforðabók opnuð formlega, en hún hefur verið í undirbúningi undanfarin ár. Orðabókin mun nýtast þeim fjölmörgu íbúum Íslands sem hafa pólsku að móðurmáli og Stanislaw Bartoszek, málfræðingur, skjalaþýðandi og ritstjóri veforðabókarinnar, kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá bókinni og þessu stóra verkefni. Slóðin á veforðabókina verður www.pl.is Fjöldi rannsókna hefur sýnt fram á að heilsutengdur ávinningur af því að hreyfa sig úti sé margfaldur á við það að hreyfa sig inni. Kolbrún Kristínardóttir yfirsjúkraþjálfari á Æfingastöðinni er mikil áhugamanneskja um útilíf og heilsu og hefur leitt skipulagðar fjölskyldugöngur og fræðslu um málefnið víðsvegar, nú síðast með erindinu „Af hverju að vera inni þegar vonin er úti?“ á Læknadögum. Kolbrún kom í þáttinn í dag. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag ræddum við við hann um logn og ótal samheiti fyrir lognið. Svo eru það loftslagsmálin, en árið 2024 fór meðalhækkun hitastigsins í heiminum í fyrsta skipti yfir eina og hálfa gráðu og Einar talaði um nálgun ýmissa þjóða í þessum málum þessa dagana. Tónlist í þættinum í dag: Með þér / Ragnheiður Gröndal (Bubbi Morthens) Við stóran stein / Hildur Vala (Valgeir Guðjónsson) The Windmills of Your Mind / Helena Eyjólfsdóttir og Hljómsveit Ingimars Eydal (Alan Bergman, Marilyn Bergman og Michel Legrand) Dátt er blessað lognið / Þrjú á palli (höf. lags ókunnur, texti Jónas Árnason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Innkaupapokinn eftir leikhópinn Kriðpleir og Elísabetu Jökulsdóttur, sem nú er í sýningu í Borgarleikhúsinu, byggir á 30 ára gömlu verki Elísabetar, Mundu töfrana. Verkið hefur fylgt Elísabetu í meira en þrjá áratugi og líka skotið rótum í öðrum verkum hennar. Hún reyndi að koma verkinu á fjalirnar en fékk oftast þau svör að það væri of ljóðrænt og vantaði allan strúktúr. En nú hefur leikhópnum Kriðpleir tekist að móta um það strúktúr og afraksturinn er Innkaupapokinn. Við ræðum við tvo meðlimi Kriðpleirs í þætti dagsins, þau Ragnar Ísleif Bragason og Ragnheiði Maísól Sturludóttur. Við fáum líka til okkar í hljóðstofu þjóðfræðinginn Dagrúnu Ósk Jónsdóttur, sem hefur rannsakað birtingarmyndir kynbundins ofbeldis í íslenskum þjóðsögum og Birnir Jón Sigurðsson flytur sinn þriðja pistil sinn í örvæntingarpistlaröðinni Hvað varð um gæskuna? Pistill dagsins er tileinkaður stjórn, glundroða og mönnum sem reyna bókstaflega að sigrast á dauðanum. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri FF7.is, var á línunni og ræddi ferðamál vítt og breitt. Ragnheiður K. Jóhannesdóttir Thoroddsen fór yfir sína Endó-sögu. Símatími Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra settist niður hjá okkur og ræddi allt frá lífeyrissjóðum til RÚV. Hrefna Björk Sverrisdóttur og Arnar Þór Ólafsson, stjórnendur þáttanna Viltu finna milljón á Stöð 2, ræddu við okkur um fjármál.
Hvernig tökumst við á við breytta heimsmynd vegna loftslagsbreytinga, hnignunar líffræðilegs fjölbreytileika og annarra umhverfisógna. Á dögunum kom út samnorrænt greinasafn sem fjallar um hlutverk lista, bókmennta og skapandi athafna í að bregðast við þessum breytingum. Auður Aðalsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit, er annar ritstjóra safnsins og hún ætlar að kíkja til okkar til að ræða þetta áhugaverða safn, ásamt Önu Stanicevic, doktor í menningarfræðum frá Háskóla Íslands og lektor við Háskólann í Helsinki. Svokallaðar básabúðir þar sem fólk getur leigt bás undir notaðar flíkur skjóta víða upp kollinum þessa dagana. Bræðurnir Hlynur Snær Jóhannesson og Styrmir Jarl Rafnsson opnuðu eina slíka á Selfossi í ársbyrjun, alveg við þjóðveginn í miðju iðnaðarhverfi. Arnhildur hitti Hlyn á ferð Samfélagsins um Suðurlandið í síðustu viku og ræddi við hann um reksturinn og hringrásarhugsunina á bak við hana. Og síðan ætlum við að heyra áður óflutt viðtal við Ragnheiði Kristjánsdóttur, prófessor í sagnfræði við HÍ. Við ræddum við hana í kringum alþingiskosningarnar síðasta nóvember um listabókstafi og ýmislegt fleira sem tengist pólitík. Viðtalið var aldrei flutt vegna óviðráðanlegra aðstæðna, en í lok þáttar fær það loksins að líta dagsins ljós.
Við hefjum þáttinn á því að fara í kirkju. Augljós kallast sýning sem opnaði þann 8.desember í Neskirkju og stendur yfir fram til 20.janúar. Þar sýnir Þórdís Erla Zoega ljósaverk sem sækja innblástur í kirkjuglugga og vinnur með sjónrænar skynvillur sem hvetja áhorfandann til að líta inn á við. Við kynnum okkur einnig nýtt verk, Mörsugur, óperu fyrir rödd með rafhljóðum og myndbandsverki, byggða á ljóðsögu eftir Ragnheiði Erlu Björnsdóttur. Mörsugur varð til í samsköpunarferli Ásbjargar Jónsdóttur tónskálds, Heiðu Árnadóttur söngkonu og Ragnheiðar Erlu Björnsdóttur ljóðskálds og tónskálds og nú fyrir helgi kom út bókverk með ljóðsögunni, ásamt grafískum útfærslum og stillum úr myndverki sem Ásdís Birna Gylfadóttir vann við Mörsug. Þær Heiða og Ásbjörg koma til okkar í hljóðstofu og segja okkur nánar af verkefninu. Trausti Ólafsson rýnir í Kött á heitu blikkþaki sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu þann 28.desember.
Ragnheiður Lárusdóttir steig fram á ritvöllinn 2020 með ljóðabókina 1900 og eitthvað og hlaut í kjölfarið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og tilnefningu til Maístjörnunnar. Þessi fyrsta ljóðabók hennar byggði á bernskuminningum að vestan, en sú næsta, Glerflísakliður, fjallaði meðal annars um veikindi móður Ragnheiðar og erfiðan skilnað. Í síðustu bók sinni, Kona/Spendýr sem kom út 2022 beindi hún sjónum sínum almennt að hlutverki kvenna, sem lifa í heimi hönnuðum af körlum. Í sinni nýjustu ljóðabók, Veður í æðum, er Ragnheiður einnig persónuleg og yrkir um þá lífsreynslu að missa dóttur sína í heim fíkninnar, en líka um fegurðina og lífið sem gengur sinn vanagang þrátt fyrir allt. Halla ræðir við Ragnheiði í þætti dagsins. Við fáum líka bókarýni frá Sölva Halldórssyni, sem að þessu sinni rýnir í nýútkomna glæpasögu Nönnu Rögnvaldsdóttur, Þegar sannleikurinn sefur. En við hefjum þáttinn á því að grúska aðeins í gömlum teikningum. Nú eru til sýnis og sölu í Gallerí Fold æskuteikningar Alfreðs Flóka sem flestar eru frá árunum 1948-1952. Teikningarnar varðveittust innan fjölskyldunnar og þar má sjá inn í hugarheim hins unga Flóka og þekkja kunnugleg stef sem birtust í listaverkum hans ferilinn allan. Framan af voru hugðarefnin dæmigerð fyrir 11 og 12 ára gamlan strák, löggur og bófar, indjánar og kúrekar, þjóðsögur og ævintýri, Charlie Chaplin og Mikki mús, táfýla og yfirburðir KR svo eitthvað sé nefnt. Mikill húmor er í mörgum teikningunum, en einnig ber á ádeilu. Við lítum við á Rauðarárstígnum og ræðum um sýninguna við sýningarstjórann, Iðunni Vignisdóttur. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Sérfræðingurinn, Klipparinn og Ragnheiður Júlíusdóttir fara yfir EM kvenna. Hverjar gætu hætt og hverjar eru næstar inn? Hverjar gætu farið út og er eitthvað betra að fara út? Spáð var í spilin fyrir 13.umferð Olís-deildar karla sem hefst annað kvöld.