Podcasts about sverrisd

  • 32PODCASTS
  • 118EPISODES
  • 1h 4mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • Apr 9, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about sverrisd

Latest podcast episodes about sverrisd

Mannlegi þátturinn
Viltu finna milljón, trérennismíði og Spánarpóstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 9, 2025 52:52

Við héldum áfram að skoða heimilisfjármálin í dag og skoðuðum í dag þætti sem hafa verið í sýningu á Stöð 2 og kallast Viltu finna milljón. Þar taka þrjú pör, eða þrjár fjölskyldur, þátt í að taka í gegn heimilisbókhaldið, þau fá ýmis verkefni og áskoranir með það að markmiði að bæta fjárhag sinn og að búa til venjur til framtíðar þegar kemur að fjármálunum. Í upphafi skoða þau til dæmis tekjur heimilisins og útgjöld og að lokum, eftir fimm mánuði er farið yfir stöðuna og hvaða árangri þau hafa náð í að bæta stöðu heimilisins. Hrefna Björk Sverrisdóttir og Grétar Halldórsson sömdu samnefnda bók og Hrefna, sem er annar stjórnandi þáttanna, kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þáttunum og hversu miklu er hægt að breyta á tiltölulega skömmum tíma. Félag trérennismiða á Íslandi fagnar í ár 30 ára afmæli og heldur af því tilefni sérstakan listviðburð í samstarfi við Hönnun & Handverk (H&H) að Eiðistorgi. Í aprílmánuði mun félagið taka yfir sýningarrými Handverks og hönnunar. Þar munu félagar setja upp fullbúna vinnustofu þar sem þeir vinna svo að trérenniverkum á staðnum og fólk getur komið og skoðað handverkið þegar það verður til. Edda Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Handverks og hönnunar, og Andri Snær Þorvaldsson, formaður Félags trérennismiða á Íslandi komu í þáttinn. Svo fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Magnús er núna staddur á Spáni þar sem hann bjó um hríð fyrir nokkrum árum. Hann segir okkur frá þeirr góðu tíð sem ríkir á Spáni þar sem hagvöxtur er sá mesti í Evrópu. Sem þykir merkilegt því þar stjórna sósíalistar sem hingað til hafa ekki verið taldir snjallir i kapitalisma. Hann segir aðallega frá Alicante, borginni sem hann bjó í á sínum tíma og þykir ennþá vænt um. Tónlist í þættinum í dag: Verðbólgan / Brimkló (Björgvin Halldórsson, texti Kjartan Heiðberg) Láttu mig gleyma / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og Þórður Árnason, texti Þórður Árnason) Augun mín / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Jennifer Juniper / Donovan (Donovan) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Bylgjan
Bítið - mánudagur 24. mars 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Mar 24, 2025 100:34

Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.   Sigfús Ólafur Helgson, sjómaður og allt, ræddi við okkur um magnaða ferð eldri sjómanna til Hull og Grimsby. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokks, ræddi málefni Ásthildar Lóu og fyrirtækja- og stofnanaleikskóla.   Margrét Sverrisdóttir ræddi við okkur um hrottalegt heimilisofbeldi sem hún mátti þola. Símatími   Ásmundur Friðriksson, guðfaðir Skötumessunnar, var á línunni og ræddi mikilvægi góðgerðarstarfs. Arngrímur Egill Gunnarsson og Andri Þór Bergmann, stofnendur Garðfix, ræddu við okkur um slátturóbotarekstur.

Bylgjan
Bítið - mánudagur 17 mars 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Mar 17, 2025 88:38

Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.   Kristján Sigurjónsson, ritstjóri FF7.is, var á línunni og ræddi ferðamál vítt og breitt. Ragnheiður K. Jóhannesdóttir Thoroddsen fór yfir sína Endó-sögu.   Símatími   Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra settist niður hjá okkur og ræddi allt frá lífeyrissjóðum til RÚV. Hrefna Björk Sverrisdóttur og Arnar Þór Ólafsson, stjórnendur þáttanna Viltu finna milljón á Stöð 2, ræddu við okkur um fjármál.

Samfélagið
Samfélagið á hugvísindaþingi

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 7, 2025 58:15

Samfélagið heilsar af hugvísindaþingi í Háskóla Íslands. Í dag ætlum við meðal annars að hamra járnið á meðan það er heitt, eða eins og sagt er á þýsku - Das Eisen muss man schmieden solange es heiß ist. Við ræðum orðatiltæki, sem tengjast fornu handverki eða iðnaði og eru oft til í mörgum tungumálum við Oddnýju G. Sverrisdóttur, prófessor í þýsku. Og við ræðum við fleiri fræðimenn um fleira spennandi, til dæmis um Fjalla-Eyvind og göngu Jóhanns Sigurjónssonar yfir Vatnahjallaveg árið 1908, jötunmeyjar, goðsagnaljóðlist og vistskáldskap 21. aldar, nýjar og hátæknilegar rannsóknaraðferðir í fornleifafræði og iðhorf fólks til íslensks táknmáls og þeirra sem kenna íslensku sem annað mál.

Vikulokin
Hildur Sverrisdóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Halla Hrund Logadóttir

Vikulokin

Play Episode Listen Later Feb 15, 2025 57:45

Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins og Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins ræða fréttir vikunnar. Umræður vikunnar fjölluðu meðal annars um deilur um þingflokksherbergi, stefnuræðu forsætisráðherra, þingmálalista ríkisstjórnarinnar, frumvarp umhverfisráðherra um breytingar á raforkulögum, borgarmál í Reykjavík, ofbeldi meðal barna í Breiðholtsskóla og kjör ræstingafólks hér á landi.

Hospitality Design: What I've Learned
Sigurlaug Sverrisdóttir

Hospitality Design: What I've Learned

Play Episode Listen Later Jan 22, 2025 62:04

Icelandic hotelier Sigurlaug Sverrisdóttir has built a reputation for her innovative approach to creating immersive guest experiences.Growing up in a small town near Reykjavik, she developed a deep connection to Iceland's rugged natural beauty, a bond that would later shape her career.After nearly two decades with Icelandic Airline, Sigurlaug returned to Iceland in 2013, where she transformed a former geothermal power plant staff building into the ION Adventure Hotel—a boutique property that  blends with the surrounding volcanic landscape.Her collection of properties, including a second hotel in Reykjavik, embodies her dedication to connecting guests with Iceland's vibrant culture and authentic spirit.Thank you for listening! For more of our great interviews, find us at hospitalitydesign.com.

Spegillinn
Vandi drengja í skólum landsins, lífeldsneyti úr matarafgöngum og dauði Dauðahafsins

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 6, 2024 20:00

6. júní 2024 Það kom á óvart hvað tungumálið er stór breyta, segir Tryggvi Hjaltason, höfundur nýrrar skýrslu um stöðu drengja í menntakerfinu sem unnin var að beiðni menntamálaráðuneytisins. Þótt staðan sé vond er botninum sennilega ekki náð en það er hægt að ná miklum og mælanlegum árangri með ákveðnum aðgerðum, segir Tryggvi, í samtali við Frey Gígju Gunnarsson. Tilraunir með lífeldsneyti skiluðu betri niðurstöðum en Garðar Kári Garðarsson, rannsakandi í Háskólanum á Akureyri, hafði þorað að vona. Hann segir mikilvægt að fólk hugi að umhverfinu, og þróar leiðir til þess að vinna lífeldsneyti úr matarafgöngum. Selma Margrét Sverrisdóttir tók saman. Dauðahafið, margrómað fyrir einstakt landslag, vistkerfi og sögulegt gildi, er að þorna upp. Þetta saltvatn á landamærum Jórdaníu, Palestínu og Ísraels fer stöðugt minnkandi vegna óstjórnar og ofnýtingar vatns, sem rekja má til viðvarandi ófriðar á svæðinu. Þrír menn, sem af sögulegum og samtímalegum ástæðum ættu að flokkast sem óvinir, ákváðu að vekja athygli á vandanum með því að synda saman þvert yfir Dauðahafið, fyrstir manna. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Spegillinn
Kaup Landsbankans á TM, stríðið í Súdan og verðandi mæður í ofþyngd

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 15, 2024 20:00

15. apríl 2024 Bankasýslan skilaði á föstudag skýrslu um kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Bankasýslan finnur kaupunum og aðdraganda þeirra flest til foráttu og undrast að valin hafi verið eina leiðin sem hvorki kallaði á aðkomu né samþykki hluthafa. Kaupin hafa dregið dilk á eftir sér og sýnist sitt hverjum, eins og Freyr Gígja Gunnarsson fer yfir í umfjöllun sinni um málið. Við heyrum í Helgu Björk Eiríksdóttur, fráfarandi bankaráðsformanni Landsbankans, Tryggva Pálssyni, stjórnarformanni Bankasýslunnar, Lilju Dögg Alfreðsdóttur viðskiptaráðherra og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra. Fyrir réttu ári, 15. apríl 2023, brutust út blóðug átök milli súdanska stjórnarhersins og hinnar vopnuðu hreyfingar RSF í Kartúm, höfuðborg Súdans. Tólf mánuðum síðar eru hátt í tíu milljónir karla, kvenna og barna á vergangi, Tugþúsundir almennra borgara hafa verið drepnar og tugir þúsunda dáið af völdum hungurs og sjúkdóma sem rekja má beint til stríðsins, aðallega börn. Þótt stríðið hafi staðið í ár er sagan á bak við það heldur lengri. Ævar Örn Jósepsson stiklar á stóru í þeirri blóðugu sögu og ræðir við Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi. Mikilvægt er að ræða um ofþyngd og offitu af nærgætni og forðast fordóma, segir Kamilla Dóra Jónsdóttir læknanemi, sem vann að nýlegri rannsókn á þyngd kvenna á meðgöngu. Rannsóknin sýnir að 30% þeirra flokkuðust með offitu við upphaf meðgöngunnar. Selma Margrét Sverrisdóttir tók saman og ræddi við Kamillu Dóru. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.

Karfan
Fyrstu fimm: Helena Sverrisdóttir

Karfan

Play Episode Listen Later Apr 7, 2024 58:43

Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer Hafnfirðingurinn Helena Sverrisdóttir yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hún spilaði með á feril sínum.Helena lagði skóna á hilluna sem leikmaður Hauka í nívember síðastliðnum. Haukar eru hennar uppeldisfélag, en þar hóf hún að leika með meistaraflokki félagsins 12 ára gömul árið 2000. Frá Haukum fór hún 2007 til TCU í bandaríska háskólaboltanum þar sem hún lék til 2011. Eftir það tóku við nokkur góð ár í atvinnumennsku á meginlandi Evrópu, þar sem hún lék fyrir sterk lið í Ungverjalandi, Slóvakíu og Póllandi. Eftir að hún kom til baka til Íslands lék hún fyrir Hauka, Val og síðan Hauka aftur, þar sem hún var í nokkur tímabil aðstoðarþjálfari þeirra liða.Helena var í 12 skipti valin körfuknattleikskona Ísland og í 7 skipti besti leikmaður efstu deildar. Á feril sínum á Íslandi vann hún 5 Íslandsmeistaratitla og í 5 skipti bikarkeppnina. Þá varð hún tvisvar slóvaskur meistari og vann bikarkeppnina þar í þrjú skipti.Helena hóf einnig ung að leika fyrir íslenska landsliðið, aðeins 14 ára gömul árið 2002, en í heild lék hún 81 leik fyrir Ísland. Þann síðasta lék hún í nóvember gegn Tyrklandi heima í Ólafssal, en í leiknum á undan hafði hún sett nýtt landsleikjamet með sínum 80. leik.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.

Spegillinn
Noregskonungur veikur í Malasíu, málefni kvótaflóttamanna, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 1, 2024 20:00

Norðmenn óttast að Haraldur konungur sé alvarlega veikur þar sem hann liggur á sjúkrahúsi í Malasíu. Hann er þar í fríi frá störfum. Búið er að senda sjúkraþotu á vegum hersins og lið lækna á staðinn en alls er óvíst hvenær konungur verður fluttur heim. Gísli Kristjánsson sagði frá. Gerður Gestsdóttir, ormaður flóttamannanefndar, vonar að hægt verði að að taka við kvótaflóttamönnum í ár en það hefur ekki verið gert frá 2020. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana. Kristín Snorradóttir, teymisstjóri í Bjarmahlíð, þolendamiðstöð á Akureyri, segist finna fyrir því að þolendur af öllum kynjum verði fyrir alvarlegri brotum en áður. Aðeins einn starfsmaður starfar í miðstöðinni sem stendur þrátt fyrir að hún þjónusti þolendur um allt land. Selma Margrét Sverrisdóttir tók saman.

Vikulokin
Guðmundur Ingi Þóroddsson, Hildur Sverrisdóttir og Jóhann Friðrik Friðriksson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Feb 3, 2024 57:44

Stjórnmálin, fylgi flokkanna, fangelsismálin, Grindavík og útlendingar á Íslandi er meðal þess sem Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu - félags fanga, Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, og Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmaður Framsóknarflokksins, ræða í þættinum. Umsjónarmaður er Sunna Valgerðardóttir og Jón Þór Helgason stýrir útsendingu.

Spegillinn
Jarðhræringar og ferðaþjónusta, sameining háskóla og óveður í Noregi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 2, 2024 20:19

2. febrúar 2024 Jarðskjálftahrinur og tíð eldsumbrot hafa einkennt síðustu fjögur ár á Reykjanesskaganum. Halda mætti að þetta hefði veruleg áhrif á þá kviku og mikilvægu atvinnugrein sem ferðaþjónustan er. Engu að síður stefnir í metár í farþegafjölda segir Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri, sem reiknar með 2.4 milljónum erlendra gesta til landsins. Formlegar viðræður um sameiningu Háskólans á Bifröst og Háskólans á Akureyri hefjast í næstu viku. Í viðtali við Selmu Margréti Sverrisdóttur segir Bjarni Már Magnússon, forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst, að viðhorf starfsfólks sé almennt jákvætt og miklar breytingar á skólanum síðustu ár gefi góða reynslu fyrir komandi viðræður. Áhyggjur norðanmanna af sameiningunni séu óþarfar. Selma Mikið óveður hefur gengið yfir norðanverðan Noreg síðasta sólarhring. Óttast er að ný óveðurslægð komi upp að Þrændalögum í nótt. Einn maður slasaðist alvarlega en annars er mikið tjón og víða á eigum manna. Veðurfræðingar segja að viðlíka óveður komi aðeins tvisvar á öld að jafnaði. Gísli Kristjánsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Samfélagið
Viðbrögð við hamförum í Noregi, sláturbóla og súnur, dýraspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 17, 2023 55:00

Jarðfallið í Gjerdrum í Noregi er mörgum minnisstætt, þetta var í lok desember 2020, mörg hús gjöreyðilögðust og tíu létust. Þessar hamfarir eru um margt ólíkar þeim sem nú standa yfir í Grindavík - en í báðum tilfellum hafa yfirvöld þurft að bregðast við - tryggja öryggi og afkomu íbúa. Við ræðum viðbrögð yfirvalda hér og í Noregi við náttúruhamförum við Herdísi Sigurgrímsdóttur, stjórnmálafræðing, hún er nýflutt heim frá Noregi og starfaði þar sem sviðsstjóri umhverfis- og loftslagsmálahjá héraðs yfirvöldum í Stafangri. Flestir smitsjúkdómar sem hrjá okkur mannfólkið berast úr dýrum, þannig sjúkdómar eru kallaðir súnur og meðal þeirra er sláturbóla, hvimleið veirusýking sem borist getur úr sauðfé í menn. Þóra Sverrisdóttir, sjúkraliði, rekstrarfræðingur og sauðfjárbóndi á Stóru Giljá í Húnavatnssýslu, sýktist af sláturbólu á dögunum og batinn dróst á langinn vegna þess að læknir sem hún leitaði til skar í bóluna. Fleiri bændur hafa fengið þetta nýverið og deilt myndum af bólum, ýmist á höndum eða andliti. Við ræðum við Þóru um reynslu hennar, en líka við Pétur Skarphéðinsson lækni á eftirlaunum sem oft fékkst við svona sýkingar í gamla daga og Magnús Gottfreðsson, smitsjúkdómalækni. Fugl aldarinnar var á dögunum kosinn á Nýja-Sjálandi og úrslitin óvænt. Vera Illugadóttir segir frá.

Samfélagið
Viðbrögð við hamförum í Noregi, sláturbóla og súnur, dýraspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 17, 2023

Þjóðmál
#159 – Helgarvaktin með Hildi Sverrisdóttur

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Sep 8, 2023 64:15

Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir um það helsta á vettvangi stjórnmálanna, ríkisstjórnarsamstarfið, hvort að pólitískt erindi Sjálfstæðisflokksins felist eingöngu í því að bæta eða breyta vondum málum í þinginu, hvernig pólitísk umræða endar oft út í skurði, hvort það sé rangt fyrir stjórnmálamenn að sækjast eftir völdum, hvaða flokk hún vildi síst vilja hafa á þingi og margt fleira.

Morgunvaktin
Efnahagur og samfélag, Berlínarspjall og Ungar athafnakonur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 25, 2023

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór yfir nýja þjóðhagsspá Landsbankans, samræmda vísitölu neysluverðs í Evrópu og verð á eldsneyti í efnahag og samfélagi. Landsbankinn gerir ráð fyrir að verðbólgan verði áfram mikil og eins muni stýrivextir hækka enn frekar. Arthur Björgvin Bollason fjallaði um mótmæli umhverfissamtakanna Síðasta kynslóðin í Berlín í gær en aðgerðarsinnar innan samtakanna límdu sig við malbikið og töfðu umferð víða í borginni. Í Þýskalandi er einnig mótmælt í menningarlífinu. En þar er það ákvörðun yfirvalda í Baden-Würtemberg að gera bók Wolfgangs Köppens, Tauben im Gras (Dúfur í grasi), að skyldulesningu. Hugrún Elvarsdóttir og Kristín Sverrisdóttir, sem báðar sitja í stjórn Ungra athafnakvenna, fræddu hlustendur Morgunvaktarinnar um stöðu ungra kvenna í athafnalífinu og hvers vegna félagið var stofnað fyrir níu árum. Enn er langt í land að það náist jafnrétti milli kynjanna og staðan hefur versnað á heimsvísu vegna heimsfaraldurs og stríðsátaka í Úkraínu. Tónlist: A man and a half - Wilson Pickett, Tenderly - Ella Fitzgerald og Louis Armstrong, Fljúgðu mér til tunglsins - Heimilistónar. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Morgunvaktin
Efnahagur og samfélag, Berlínarspjall og Ungar athafnakonur

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 25, 2023 130:00

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór yfir nýja þjóðhagsspá Landsbankans, samræmda vísitölu neysluverðs í Evrópu og verð á eldsneyti í efnahag og samfélagi. Landsbankinn gerir ráð fyrir að verðbólgan verði áfram mikil og eins muni stýrivextir hækka enn frekar. Arthur Björgvin Bollason fjallaði um mótmæli umhverfissamtakanna Síðasta kynslóðin í Berlín í gær en aðgerðarsinnar innan samtakanna límdu sig við malbikið og töfðu umferð víða í borginni. Í Þýskalandi er einnig mótmælt í menningarlífinu. En þar er það ákvörðun yfirvalda í Baden-Würtemberg að gera bók Wolfgangs Köppens, Tauben im Gras (Dúfur í grasi), að skyldulesningu. Hugrún Elvarsdóttir og Kristín Sverrisdóttir, sem báðar sitja í stjórn Ungra athafnakvenna, fræddu hlustendur Morgunvaktarinnar um stöðu ungra kvenna í athafnalífinu og hvers vegna félagið var stofnað fyrir níu árum. Enn er langt í land að það náist jafnrétti milli kynjanna og staðan hefur versnað á heimsvísu vegna heimsfaraldurs og stríðsátaka í Úkraínu. Tónlist: A man and a half - Wilson Pickett, Tenderly - Ella Fitzgerald og Louis Armstrong, Fljúgðu mér til tunglsins - Heimilistónar. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Mannlegi þátturinn
Kambey hlýjuhof, Svæðisgarðurinn Snæfellsnes og póstkort

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 1, 2023 50:00

Við fræddumst í dag um Kambey hlýjuhof í Ölfusi. Parið Andrea Eyland og Þorleifur Kamban standa á bak við Kambey, sem þau kalla andrými fyrir foreldra. Þau eiga hrúgu af börnum, eins og þau orða það sjálf, og hafa gert bók, sjónvarpsþætti og hlaðvarp um barneignir frá flestum hliðum, en eins og þau segja þá er það markmið þeirra að gera heiminn örlítið betri fyrir foreldra og börn. Ólöf Þóra Sverrisdóttir kom í þáttinn ásamt Andreu Eyland og þær sögðu okkur betur frá Kambey. Hvað er Svæðisgarður? Hvaða tilgangi þjónar hann og hvert er markmiðið? Svæðisgarðurinn Snæfellsnes var stofnaður 2014 að evrópskri fyrirmynd og er sá eini sinnar tegundar á Íslandi. Framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins er Ragnhildur Sigurðardóttir og hún sagði okkur í dag frá leyndardómum garðsins og Snæfellsness og fræðslukvöldi Vitafélagsins í kvöld í Sjóminjasafninu Grandagarði, þar sem Ragnhildur mun segja frá Svæðisgarðinum. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins sagði hann frá Alicante og nokkrum dögum þar og svo heimferðinni til Vestmannaeyja. Magnús er einn af sófaspesíalistum sem pæla í samgöngum milli Eyja og lands og setur fram hugleiðingar sínar í þeim efnum. Þar á eftir segir hann frá minnkandi fiskneyslu landsmanna sömuleiðis tilraunum til að draga úr kjötneyslu í Evrópusambandinu, en hún er þar tvöföld á við heimsmeðaltal. Tónlist í þættinum í dag: Verðbólgan / Brimkló (Björgvin Halldórsson og Kjartan Heiðberg) Bewitched, bothered and bewildered / Cher og Rod Stewart (Hart & Rodgers) New Blue Moon / Traveling Wilburys Paris In the Spring / Jo Basile og félagar (Revel & Kern) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Kambey hlýjuhof, Svæðisgarðurinn Snæfellsnes og póstkort

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 1, 2023

36 táknmálsafsteypur, fjármálaráð og áramótaveðrið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 28, 2022

Við fengum Júlíus Birgir Jóhannsson í viðtal í dag, en hann missti alla heyrn fyrir 5 árum og sjónin minnkaði mjög mikið, í dag hefur hann einungis 10-15 gráðu sjón á hvoru auga. Ekki er vitað hvað olli þessu heyrna- og sjóntapi hjá Júlíusi, en hann ákvað strax og heyrnin byrjaði að versna að læra táknmál hjá Samskiptamiðstöð heyrnalausra og heyrnaskertra, en tók eftir því þar að mörg áttu erfitt með að skilja táknin á plakatinu sem sýndi öll táknin og hreyfingu þeirra. Hann lagði höfuðið í bleyti og til að gera langa sögu stutta þá bjó hann til afsteypur af höndum að gera öll táknin í íslenska stafrófi táknmálsins, með punktaletri ásamt skrifmáli á fallegri og sterkri undirstöðu og eru allar 36 hendurnar í mismunandi lit, allt til að auðvelda nemendum við að læra táknmálið. Júlíus Birgir sagði okkur sína sögu og sögu táknmálshandanna í þættinum í dag. Lilja Þórhallsdóttir, ráðgjafi hjá Sjónstöðinni kom með Júlíusi sem táknmálstúlkur. Hrefna Björk Sverrisdóttir skrifaði bókina Viltu finna milljón ásamt Grétari Halldórssyni. Í bókinni fara þau yfir mörg ráð til að halda utan um heimilisbókhaldið, grynnka á skuldum, minnka neyslu og í leiðinni spara fé. Í bókinni eru ráð sem tengjast daglegu lífi, hvernig hægt er að gera litlar breytingar sem geta sparað talsverðan pening. Hrefna Björk kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir nokkur góð ráð og hvernig bókin getur nýst lesendum. Svo kom Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur í sitt vikulega veðurspjall. Snjónum kyngdi niður og víðast hvar á landinu voru hvít jól. Einhverjum fannst jafnvel miklu meira en nóg af snjó þessi jólin, enda hefur færð á vegum víða verið. Elín Björk fór í dag með okkur yfir kuldakastið undanfarið og hvernig spáin er fyrir áramótin. Tónlist í þættinum í dag: Það fæddist barn í Betlehem / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) Gull í mund / Bogomil Font (Blane, Martin og Sigtryggur Baldursson) White Christmas / Dean Martin (Irving Bell) Have Yourself a Merry Little Christmas / Ella Fitzgerald (Hugh Martin og Ralph Blane) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
36 táknmálsafsteypur, fjármálaráð og áramótaveðrið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 28, 2022 50:00

Morgunútvarpið
29. júní - fornleifar, hvalveiðar, málsóknir, dagdrykkja, mótmæli

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 29, 2022

Fornleifafræðingar sem vinna að uppgreftri á Seyðisfirði eru farnir að finna heilleg hús á svæðinu frá því á elleftu öld - en grafið er í kringum bæinn Fjörð, sem samkvæmt Landnámu var fyrsti bærinn í Seyðisfirði. Við ræddum við Ragnheiði Traustadóttur, fornleifafræðing sem stýrir uppgreftrinum. Hvalveiðar eru mikið í umræðunni þessa dagana. Fjölmiðlamaðurinn Óðinn Jónsson skrifaði viðhorfspistil á vefinn Túristi.is í gær þar sem hann lísti því sem fyrir augu bar í ferð sinni í Hvalfjörðinn. Hann sagði okkur frá heimsókninni. Í gær var birt í Samráðsgátt stjórnvalda tillaga Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, að breytingu á reglugerð um löggiltar iðngreinar. Við ræddum þessar breytingar við Hilmar Harðarson, formann Samiðnar, en OECD hefur bent á að Ísland eigi heimsmet í fjölda iðngreina sem krefjast löggildingar. Í gær var greint frá því að þremenningar úr atvinnulífinu, þeir Ari Edwald, Þórður Már Jóhannesson og Hreggviður Jónsson hefðu kært Vitaliu Lazareva og Arnar Grant fyrir tilraun til fjárkúgunar. Vitalia steig fram í lok síðasta árs og upphafi þessa og sakaði mennina um kynferðisofbeldi gegn sér. En hvernig er með málsóknir gegn þolendum og er það fjárkúgun að gera tilraun til að semja um bætur sér til handa eftir að brotið var á manni? Hún kom til okkar, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir talskona Stígamóta. Fréttablaðið fjallaði í gær um tvöföldun í dagdrykkju gamalmenna. Formaður SÁÁ sagði alkóhólistum fjölga ört í hópi eldri borgara landsins og að beinbrot, óhamingja og svefntruflanir væru meðal fylgifiska ofneyslu. Við ræddum þessa þróun við Ingibjörgu H. Sverrisdóttur, formann Félags eldri borgara. Boðað hefur verið til samstöðu- og kröfufundar um aðgerðir hér á Íslandi til að bregðast við þeirri hættu sem hinseginfólk stendur frammi fyrir í kjölfar hryðjuverkaárásar á hinsegin-klúbb í Osló. Í kröfugerð hópsins sem að fundinum stendur kemur fram að ofbeldi og hatursorðræða gegn hinsegin fólki hafi aukist hér á landi á undanförnu og að teikn séu á lofti um að bakslag hafi orðið í réttindabaráttunni. Skipuleggjendur fundarins, þau Hjalti Vigfússon og Ingileif Friðriksdóttir koma til okkar í lok þáttar. Tónlist: Það þarf fólks eins og við - Rúnar Júlíusson Getting started - Sam Fender Come and Get your Love - Redbone Turn up the sunshine - Tame Impala Young Americans - David Bowie Me Gustas Tu - Manu Chao Áður en dagur rís (ft. Birnir) - GDRN All I Need - Jake Bugg

Play Episode Listen Later Jun 29, 2022 130:00

Samorkuþing, málfar og tvöþúsundvandinn

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 9, 2022 55:00

Samfélagið sendir meðal annars út frá Hofi á Akureyri þar sem fram fer fjölmenn ráðstefna Samorku, Samorkuþing. Þar hittast fulltrúar félaga og fyrirtækja í orkugeiranum og veitustarfsemi og skiptast á skoðunum og upplýsingum. Lovísa Árnadóttir upplýsingafulltrúi Samorku og Kristín Sóley Björnsdóttir viðburðastjóri í Hofi ræða um þingið og tilgang þess. Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar segir frá framtíðarsýn Landsvirkjunar Sunna Mjöll Sverrisdóttir sérfræðingur í hitaveitu hjá Veitum lýsir áskorunum tengdum þéttingu byggðar og uppbyggingu íbúðarsvæða. Málfarsmínúta Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV: Flutt veðrur innslag frá árinu 1998 um tvöþúsundvandann sem margir sem óttuðust á sínum tíma, mikil óvissa var tengd hvernig tölvukerfi tækju við aldamótunum og ráðstafanir voru töluverðar.

Samfélagið
Samorkuþing, málfar og tvöþúsundvandinn

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 9, 2022

21. feb. - Fóstur, Ólympíuleikar, læknar, veður, menntun og sameining

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 21, 2022 130:00

Félag fósturforeldra setur nýtt hlaðvarp í loftið í vikunni þar sem markmiðið er að fræða fólk um fóstur. Þau Guðlaugur Kristmundsson formaður Félags fósturforeldra og Hildur Björk Hörpudóttir stjórnarmaður komu til okkar og sögðu okkur af þessu nýja verkefni og starfsemi félagsins. Við tókum íþróttaspjall mánudagsins fyrr en vanalega þegar við fengum Eddu Sif Pálsdóttur íþróttafrétta- og dagskrárgerðarkonu til okkar, en hún er nýkomin heim af vetrarólympíuleikunum í Kína. Við fengum að heyra af lífinu á leikunum. Læknafélag Íslands hefur gert alvarlegar athugasemdir við drög að frumvarpi til útlendingalaga þar sem lagt er til að hægt sé að skylda hælisleitendur í læknisskoðun svo greiða megi leið stjórnvalda til brottvísunnar þeirra. Félagið telur hreinlega að í lagaákvæðinu sem um ræðir felist brot á læknaeiðnum. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands var gestur okkar. Það eru appelsínugular veðurviðvaranir í kortunum um land allt seinnipartinn. Við heyrðum í Elínu Björk Jónasdóttur, vakthafandi veðurfræðingi á Veðurstofunni og beint í kjölfarið í Karen Ósk Lárusdóttur fulltrúa Landsbjargar en björgunarsveitir um land allt eru í startholunum vegna veðurofsans. Anna Björk Sverrisdóttir aðjúnkt við HÍ og þroskaþjálfi kom til okkar og sagði okkur frá niðurstöðum doktorsritgerðar sinnar sem fjallar um menntun nemenda með þroskahömlun á framhaldsskólastigi í ljósi kenninga um inngildandi menntun og félagslegt réttlæti, en niðurstöður Önnu Bjarkar benda m.a. til þess að kerfið viðhaldi ójöfnuði og félagslegu óréttlæti gagnvart öllum nemendum, ekki bara þeim fötluðu. Anna Björk fór betur yfir þetta með okkur. Um helgina fóru fram nokkrar atkvæðagreiðslur um sameiningu sveitarfélaga. M.a. var sameining Akrahrepps og sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkt, en Akrahreppur er 10. fámennasta sveitarfélag landsins með 210 íbúa og alla í dreifbýli. Til gamans heyrðum við í Agnari H. Gunnarssyni bónda á Miklabæ og fyrrverandi oddvita Akrahrepps en hann er einn þeirra ríflega 50 íbúa sem ekki voru hlynntir sameiningunni. Tónlist: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Lítill drengur. Carole King - You've got a friend. Al Green - Here I am - Come and take me. Sigrún Stella - Baby blue. Bríet - Sólblóm. Magni og Ágústa Eva - Þar til að storminn hefur lægt. Suede - Beautiful ones. Gayle - abcde (Forget you).

bj gu ve sigr magni stur vilhj anna bj steinunn sverrisd bjarkar hildur bj menntun landsbjargar
Morgunútvarpið
21. feb. - Fóstur, Ólympíuleikar, læknar, veður, menntun og sameining

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 21, 2022

bj gu ve sigr magni vilhj anna bj steinunn sverrisd bjarkar hildur bj menntun landsbjargar
Morgunútvarpið
5. nóv - Rafíþróttir, heilbrigðisráðherra, atvinnumál og athafnakonur

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Nov 5, 2021 130:00

Lokaorrustan í heimsmeistaramótinu í tölvuleiknum League of Legends verður háð í Laugardalshöll á morgun. Við ræddum við Ólaf Hrafn Steinarsson, formann Rafíþróttasamtaka Íslands, um mótið og sívaxandi vinsældir rafíþrótta. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ákvað í gær að framlengja óbreytta reglugerð um sóttvarnaráðstafanir á landamærum til 15. janúar. Við ræddum við Svandísi um stöðuna í faraldrinum og um stjórnarmyndunarviðræður. Atvinnumál gerenda eða annarra sem hafa af einhverjum sökum misst æruna, hafa verið áberandi í vikunni í kjölfar viðtalsins við Þóri Sæmundsson leikara á þriðjudag. Við ræddum þessi atvinnumál almennt og fengum til okkar Kristjönu Gunnarsdóttur skrifstofustjóra ráðgjafar á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Og upp úr klukkan átta voru Fréttir vikunnar á sínum stað. Að þessu sinni er af nægu að taka. Hingað komu blaðamennirnir Jakob Bjarnar Grétarsson af Vísi og Aðalheiður Ámundadóttir einn fréttastjóra Fréttablaðsins. Í byrjun næstu viku halda Ungar athafnakonur úrslit í mótinu Global Goals World Cup. Við ræddum við Kristjönu Björk Barðdal, ráðstefnustjóra Ungra athafnakvenna, og Kristínu Sverrisdóttur, viðskiptastjóra samtakanna. Í lok þáttar sláum við svo heldur betur á létta strengi, eða jafnvel tregafulla því hinar sívinsælu Skoppa og Skrítla eru að leggja skóna á hilluna. Leikkonurnar að baki Skoppu og Skrítlu, þær Linda Ásgeirsdóttir og Hrefna Hallgrímsdóttir komu til okkar og fóru yfir ferilinn.

Samfélagið
Tvíburar og dúxar, vistheimt, skipulagsmál

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jun 1, 2021 55:00

Sigurbjörg Erla Pétursdóttir Biering úr Menntaskólanum í Kópavogi, Óskar Atli Magnússon úr Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og Elísa Sverrisdóttir úr Verzlunarskóla Íslands: eru öll útskriftarnemar og dúxar í sínum árgöngum. Þau komu Samfélagið í spjall um lífið og tilveruna og komust að því að þau eru öll tvíburar! Halldóra Björk Bergþórsdóttir og Pétur Halldórsson úr stjórn Landverndar: Hvað er endurheimt vistkerfa og hvers vegna hafa SÞ sett vistheimt í forgang næsta áratuginn? Páll Líndal, umhverfissálfræðingur: um skipulagsmál á Akureyri og Djúpavogi.

Mannlegi þátturinn
Einstök börn, Ólöf í Vogabúi og Ármann lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 31, 2021 55:00

Félagið Einstök börn hlaut á föstudaginn fjölskylduviðurkenningu SOS Barnaþorpanna á Íslandi árið 2021. Eliza Reid, forsetafrú og velgjörðasendiherra SIS afhenti Guðrúnu Helgu Harðardóttur framkvæmdastjóra Einstakra barna viðurkenninguna, en SOS Barnaþorpin hafa veitt þessa viðurkenningu frá árinu 2016 til aðila sem vinna mikilvæg störf í þágu barnafjölskyldna á Íslandi. Guðrún Helga kokm í þáttinn í dag ásamt Ólöfu Þóru Sverrisdóttur, sem er móðir barns sem er skjólstæðingur félagsins og einnig var Hans Steinar Bjarnason upplýsingafulltrúi SOS Barnaþorpanna með í för. Nú streyma ferðamenn til landsins og spurning hve stór hluti af þeim skilar sér austur, vestur, norður og á Suðurlandið. Við slógum á þráðinn norður í land til Ólafar Hallgrímsdóttur bónda í Vogabúi við Mývatn en þar er hið fræga Vogafjós. Þar er hægt er að fá sér ljúffengan málsverð og horfa á kýrnar í fjósinu um leið. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Ármann Jakobsson, prófessor í íslensku og rithöfundur. Við fengum að vita hvaða bækur Ármann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Já OK
Sunnefa Jónsdóttir (ásamt Tinna Sverrisdóttir og Margrét Kristín Sigurðardóttir)

Já OK

Play Episode Listen Later Apr 7, 2021 35:04

Ó, vei þeim sem með órétt lög umgangast og þau tíðka mjög, sannleiknum meta sitt gagn meir, svívirðing drottni gjöra þeir.

Mannlegi þátturinn
Matjurtarækt, Félag eldri borgara og Ragnheiður lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 15, 2021 55:00

Opnað verður fyrir umsóknir Reykvíkinga um matjurtagarða í borginni, en um 600 matjurtagarðar eru leigðir út á vegum borgarinnar. Sigurður Unuson er nemi í Landbúnaðarháskólanum, lærði áður Vistrækt og er í stjórn félagasamtaka sem standa að Seljagarði Borgarbýlis. Síðustu þrjú ár hafa þau haldið uppskeruhátíð með litlum grænmetisútimarkaði, tónlist, veitingum og þar sem gestir gátu fræðst um Seljagarð. Sigurður kom í þáttinn í dag og fræddi okkur t.d. um matjurtarrækt, einærar og fjölærar jurtir, ætan sjálfsprottin gróður og ræktunaraðferðir. Félag eldri borgara í Reykjavík á 35 ára afmæli í dag og formaður þess Ingibjörg Sverrisdóttir kom í þáttinn og sagði frá starfsemi félagsins og við ræddum einnig um kjör eldri borgara. Félagsmenn eru um 12 þúsund, svo þetta er með fjölmennari félögum á landinu. Félagsstarfið er smám saman að fara í gang á ný eftir lægð í vetur. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Ragnheiður Kristjánsdóttir, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og ein fjögurra höfunda bókarinnar Konur sem kjósa. Bókin hlaut nýlega Fjöruverðlaunin og Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslanna auk tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Morgunútvarpið
10. mars - Framför, Spænska veikin, garðklippingar, veitingar og Spánn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Mar 10, 2021 130:00

Framför, félag karla með blöðruhálskirtilskrabbamein og aðstandenda er félag sem vinnur í því að bæta lífsgæði og efla hagsmunagæslu fyrir karla með krabbamein í blöðruhálskirtli, en um 80 prósent karla sem greinast með slíkt krabbamein virðast sækja sinn stuðning til maka. Guðmundur G. Hauksson er framkvæmdastjóri Framfarar og hann sagði okkur meira. Heimsfaraldurinn sem nú gengur yfir er ekki sá fyrsti í mannkynssögunni eins og við vitum. Fyrir ríflega öld geisaði Spænska veikin og olli miklum usla hér á landi og erlendis og eðlilega hefur talsvert verið gert af því að bera þessa atburði saman. Fyrir ríflega tveimur áratugum gerði Elín Hirst þætti um spænsku veikina sem vöktu mikla athygli enda kom talsvert fram af nýjum upplýsingum í þeim. Sjónvarpið endursýnir nú þessa þætti og er seinni hlutinn er á dagskrá í kvöld. Elín kom til okkar. Þó það sé bara mars hefur verið vor í lofti undanfarið og marga klæjar í lófana að fara að taka til í garðinum, klippa tré og runna og gera fínt. En hvað má klippa á þessum tíma? Það veit Magnús Hlynur Hreiðarsson og hann var á línunni hjá okkur á milli morgunsundsins og morgungöngunnar. Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði sendu í gær frá sér ákall til stjórnvalda um hertar aðgerðir á landamærum. Samtökin lýsa yfir þungum áhyggjum af smitum sem berast um landamærin og krefjast hertara eftirlits og skýrari leiðbeininga við landamærin. Við töluðum við Hrefnu Björk Sverrisdóttur frá SFV. Svo brugðum við okkur suður til Spánar og og heyrðum þar í Jóhanni Hlíðar Harðarsyni sem sagði okkur tíðindi að sunnan þar sem baráttudagur kvenna, kýr á sorglegu ferðalagi og stjórnmál komu við sögu. Tónlist: Sálin hans Jóns míns - Lestin er að fara. Celeste - Love is back. Krummi - Frozen teardrops. Páll Óskar - Söngur um lífið. Bubbi Morthens - Á horni hamingjunnar. R.E.M. - Shiny happy people. Gloria Gaynor - I will survive.

Flakk
28012021 - Flakk - Flakk um Vatnsholt

Flakk

Play Episode Listen Later Jan 28, 2021

Leigumarkaðurinn hefur stækkað hér á landi undanfarin ár, margt kemur til, íbúðir eru dýrar, bankahrun hafði sitt að segja fyrir áratug og svo eru einstaklingar sem kjósa að leigja fremur enn að kaupa. Bjarg leiguíbúðir hefur verið kraftmikið og byggt víða, en Bjarg er félag á vegum verkalýðsfélaganna. Vildarhús er nýtt félag sem hyggst byggja leiguíbúðir fyrir eldri borgara, um er að ræða litla lóð í Vatnsholti við Sjómannaskólann og þar hyggst félagið að byggja 51 íbúð. Við ætlum að fræðast um framkvæmdina, ræða um stöðu eldri íbúa borgarinnar í húsnæðismálum og til þess höfum við fengið Ólaf Örn Ingólfsson framkvæmdastjóra Vildarhúsa og Ingibjörgu H. Sverrisdóttur formann félags eldri borgara í Reykjavík en einnig er rætt við arkitektinn Aðalheiði Atladóttur hjá A2F arkitektum.

Morgunútvarpið
15. jan.- Leikhús, þorrablót, orð ársins, veitingarekstur, Lífsbiblían

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 15, 2021 130:00

Leikhúsin geta nú loks hafið sýningar að nýju og hjá Leikfélagi Akureyrar var nýlega frumsýndur gamanleikurinn Fullorðin. Gígja Hólmgeirsdóttir spjallaði við tvo af leikurum verksins, þau Birnu Pétursdóttur og Vilhjálm B. Bragason, og hvernig er að geta staðið aftur á sviðinu með áhorfendur í salnum. Við ræddum þorrablótin um daginn og hvernig fólk hyggst fara nýjar leiðir í þeim efnum. Einn þeirra sem ætlar að bjóða upp á rafrænt þorrablót um land allt er Guðjón Þór Guðmundsson veitingamaður og við heyrðum aðeins í honum með hvernig það verður útfært. Um 600 manns kusu orð ársins í Facebook hópnum Málfarslögreglan. Atli Týr Ægisson er maðurinn á bakvið síðuna og hann var á línunni hjá okkur og sagði okkur frá hópnum og hvaða orð var valið orð ársins. Samtök fyrirtækja í veitingarekstri hafa sent frá sér áskorun til stjórnvalda þar sem þau eru hvött til bregðast við erfiðri stöðu veitingageirans tafarlaust áður en fleiri veitingastaðir gefast upp og falla með tilheyrandi kostnað fyrir samfélagið. Emil Helgi Lárusson og Hrefna Björk Sverrisdóttir komu til okkar og ræddu þessa stöðu. Flestar bækur koma út fyrir jólin ár hvert en sú bók sem situr nú á toppi sölulistans núna kom út eftir áramót. Það er Lífsbiblían eftir þær Öldu Karen Hjaltalín og Silju Björk Björnsdóttur. Þær stöllur komu til okkar í morgunspjall. Tónlist: Buff - Enginn nema þú. Elvis Costello - Alison. Sigrún Stella - So cold. Greentea Peng - Hu Man. Big Country - Look away. Bubbi Morthens - Á horni hamingjunnar. Herra Hnetusmjör - Stjörnurnar. The Weeknd - Save your tears. Daði Freyr og Ásdís - Feel the love. Bee Gees - Nights on Broadway.

Morgunútvarpið
24. des. - Heimilisiðnaður, Björn Valur, jólahald, kirkjugarðar, bíó

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 24, 2020 130:00

Áslaug Sverrisdóttir sagnfræðingur hefur ritað hundrað ára sögu Heimilisiðnaðarfélags Íslands í bókinni Handa á milli. Hulda heimsótti hana og fræddist um íslenskan heimilisiðnað í fortíð og nútíð. Björn Valur Gíslason fyrrum alþingismaður og núverandi skipstjóri snéri nýlega heim til Akureyrar eftir fjögurra mánaða úthald á sjó. Hann stýrir skipinu Emeraude sem gert er út frá Frakklandi og upphaflega stóð til að túrinn yrði tveir mánuðir en alheimsfaraldur Covid-19 setti hressilegt strik í þann reikning. Við hringdum í Björn Val og heyrðum aðeins af ævintýrum hans á sjó. Við fórum líka í heimsókn á Hlíð, öldrunarheimili Akureyrar. Þar spjallaði Gígja Hólmgeirsdóttir við fólk í dagþjálfunardeild, forvitnaðist um starfsemina um jólin og heyrði dýrmætar jólaminningar. Á Íslandi er sterk hefð fyrir því að heimsækja kirkjugarða á aðfangadag og kveikja á kertum við leiði ættingja. Oft verður umferð mikil og við tókum stöðuna hjá Kára Aðalsteinssyni í Kirkjugörðum Reykjavíkur sem var á línunni hjá okkur. Við spáðum svo aðeins í jólabíómyndir og sjónvarpsþætti, núna þegar fólk verður að mestu leyti heima í huggulegheitum um jólin og svo opnuðum við símann og buðum fólki að taka þátt í kosningu á manneskju ársins. Tónlist: Baggalútur - Jólin eru okkar (ft. Valdimar Guðm. og Bríet). Sigurður Guðmundsson - Það snjóar. Paul McCartney - Wonderful Christmas time. KK og Ellen - Meiri snjó. Elín Ey - Jólaljósin. Elly Vilhjálms - Ég sá mömmu kyssa jólasvein. The Pouges and Kirsty McColl - Fairytale of New York. Ragnhildur Gísladóttir og Brunaliðið - Jóla-jólasveinn. David Bowie og Bing Crosby - Peace on Earth / Little drummer boy. Brenda Lee - Rockin around the Christmas tree.

Víðsjá
Heimilisiðnaður, menningaríhald, framliðnar bækur og tíðarandatal

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 29, 2020 55:00

Í dag fagnar Sögufélagið útkomu bókarinnar Handa á milli, en hún fjallar um sögu Heimilisiðnaðarfélagsins. Rætt er við höfund bókarinnar, Áslaugu Sverrisdóttur sagnfræðing, í þætti dagsins, um bókina og það hvernig áherslur félagsins í hundrað ár hafa speglað þjóðfélagið hverju sinni. Sverrir Norland rithöfundur birti á dögunum pistil um endalok bókabúðar Máls og menningar við Laugaveg og velti þar meðal annars fyrir sér hvernig megi mögulega blása nýju lífi í bókaverslanir í bókmenntaborginni Reykjavík. Rætt var við Sverri í Víðsjá fyrir hálfum mánuði eða svo, en pistill hans birtist fyrst á facebokk-síðu Sverris en síðan í Stundinni undir yfirskriftinni ,,Löngu tímabær dauði bókabúðar Máls og menningar." Á þessu máli eru fleiri vínklar, Gréta Sigríður Einarsdóttir, ritstjóri Iceland Review, segir sína skoðun í Víðsjá í dag. Hermann Stefánsson rithöfundur kveður sér hljóðs þættinum og gluggar í nokkrar bækur sem eiga það sameiginlegt að vera sagðar ekki beinlínis af þessum heimi. Einkum skoðar Hermann rit nafna síns Hermanns Jónassonar (1858-1923), en hann kom á framfæri ýmsum leiðréttingum á Njálu sem vitruðust honum í draumi. Í þættinum einnig tíðarandatal í skugga kórónuveiru, bandarískra forsetakosninga, ofl.

Sögur af landi
Flakkað um Grenivík

Sögur af landi

Play Episode Listen Later Sep 25, 2020

Í þessum þætti er flakkað um Grenivík í Grýtubakkahreppi við Eyjafjörð. Rætt er við Guðnýju Sverrisdóttur sem var sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi og Grenivík í 27 ár. Hún gefur okkur innsýn inn í þróunina á svæðinu síðustu ár. Einnig verður rætt við hjónin Jón Stefán Ingólfsson og Jórlaugu Daðadóttur sem reka verslunina Jónsabúð í hjarta þorpsins. Því næst er farið í heimsókn til hjónanna Bjarna Arasonar og Þórunnar Indíönu Lúthersdóttur sem hafa frá árinu 2016 rekið ferðaþjónustufyrirtækið Cape Tours þar sem farið er í persónulegar ævintýraferðir út frá Grenivík. Að lokum verið spjallað við Gísla Gunnar Oddgeirsson um árangur íþróttafélagsins Magna í knattspyrnu. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Vikulokin
Hildur, Ingibjörg og Magnús Karl

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jun 20, 2020

Gestir Vikulokanna voru Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi, Ingibjörg H. Sverrisdóttir, nýkjörin formaður félags eldri borgara í Reykjavík, og Magnús Karl Magnússon, prófessor við Háskóla Íslands. Rætt var um skimanir við landamærin, yfirvofandi verkfall hjúkrunarfræðinga, samgöngur í höfuðborginni og mótmæli kaupmanna á Laugavegi, mál Þorvaldar Gylfasonar sem hefur dregið dilk á eftir sér og fleira. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson Tæknimaður: Mark Eldred

Vikulokin
Hildur, Ingibjörg og Magnús Karl

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jun 20, 2020 55:00

Gestir Vikulokanna voru Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi, Ingibjörg H. Sverrisdóttir, nýkjörin formaður félags eldri borgara í Reykjavík, og Magnús Karl Magnússon, prófessor við Háskóla Íslands. Rætt var um skimanir við landamærin, yfirvofandi verkfall hjúkrunarfræðinga, samgöngur í höfuðborginni og mótmæli kaupmanna á Laugavegi, mál Þorvaldar Gylfasonar sem hefur dregið dilk á eftir sér og fleira. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson Tæknimaður: Mark Eldred

Víðsjá
Dimma, Vera mátt góður, net-myndlist, Atburðir við vatn

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 22, 2020 55:00

Í Víðsjá í dag er meðal annars farið í heimsókn í bókabúð sem opnuð verður í miðborg Reykjavíkur á morgun, sumardaginn fyrsta, á vegum útgáfufyrirtækisins Dimmu. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson útgefandi og verslunarstjóri verður tekinn tali í þætti dagsins. Hermann Stefánsson rithöfundur veltir í dag fyrir sér Þursaflokknum, tónlist og texta, hjartslætti og trommuleik, en þó einkum sérkennilegu gömlu íslensku þjóðlagi, Vera mátt góður, sem nýverið kom í ljós að er af ítölskum uppruna. Sunna Ástþórsdóttir heldur áfram að velta fyrir sér myndlist á netinu og fjallar meðal annars um það hvernig hægt er að ferðast um og skoðað heiminn með hjálp slíkra verka. Bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni er skáldsagan Atburðir við vatn eftir sænska rithöfundinn Kerstin Ekman. Sagan kom út árið 1993 og vakti þá mikla athygli og ári síðar hlaut höfundurinn Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir verkið. Þýðinguna gerði Sverrir Hólmarsson. Hlustendur heyra í Höllu Sverrisdóttur í Víðsjá í dag, og hún les brot úr bókinni. Og hlustendur heyra líka Ljóð fyrir þjóð þegar Birgitta Birgisdóttir leikkona les ljóðið Félagslegt raunsæi eftir Þórdísi Gísladóttur.

Segðu mér
Kristján Jóhannsson og Sigurjóna Sverrisdóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later Dec 24, 2019 40:00

Heiðurshjónin Kristán og Sigurjóna rifja upp aðfangadagskvöld síðustu ára og hefðir sem þú geta ekki verið án.

Morgunútvarpið
28. okt. - Skósmiður, krísustjórnun, orkudrykkir, heilablóðföll og íþr

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 28, 2019 130:00

Hólmfríður Högnadóttir, ætlaði fyrst að verða lögfræðingur en breytti algjörlega um stefnu varð skósmiður á Akureyri. Hún fær nú senda skó til sín af öllu landinu. Hún smíðar einnig eigin skó og telur að stuðningur við iðngreinar sé ekki nægilega mikill. Við heyrðum í Hólmfríði. Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, ráðgjafi hjá Aton JL, kom til okkar og sagði okkur frá því hvað fyrirtæki geta gert ef þau standa frammi fyrir krísum, en röng viðbrögð og röng ummæli geta gert illt verra. Bryndís ræðir á ráðstefnu á vegum ferðaþjónustunnar um óvænta atburði sem geta komið upp í þeim geira. Halldóra Þorsteinsdóttir, lektor við lagadeild HR ræddi við okkur um markaðsetningu á orkudrykkjum og hvort hún gangi mögulega á svig við lög en það er bannað að hvetja börn til neyslu á óheilbrigðum matvælum. Valgerður Sverrisdóttir, fyrrum ráðherra til margra ára, þurfti sinn tíma til að jafna sig eftir blóðtappa sem hún fékk. Hún lamaðist meðal annars að hluta í andliti. Hún sagði okkur frá reynslu sinni og nánar á málþingi á Alþjóðlega slagdeginum sem er á morgun. Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, var með í för, en nýjungar í meðferð við heilablóðfalli hafa bjargað mörgum. Við fórum yfir íþróttafréttir vikunnar.

Segðu mér
Ragnhildur Sverrisdóttir stjórnarmaður í hinsegin dögum

Segðu mér

Play Episode Listen Later Aug 12, 2019 40:00

Ragnhildur segist hafa verið bólusett fyrir pólitík fyrir lífstíð, en faðir hennar Sverrir Hermannsson var þingmaður og ráðherra. Hún segir frá heimilislífinu á æskuheimili sínu, en segir brosandi frá því að í dag er hún gift þingmanni, en kona hennar Hanna Katrín Friðriksdóttir situr á þingi. Ragnhildur rifjar upp þann tíma þegar hún kom út úr skápnum og segir brosandi að hún hafi haldið að hún væri eina lesbían á landinu. Hún talar um mikilvægi þess að hafa góðar fyrirmyndir í tengslum við baráttu hinsegin fólks.

Morgunútvarpið
Björgunarskip, mannanöfn, blómatollar, samdráttur og sport

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 3, 2019 130:00

Nýtt björgunarskip Björgunarfélags Ísafjarðar var vígt um helgina. Skipið mun m.a. stytta viðbragðstíma og auka þannig öryggi sjómanna á svæðinu. Við ræddum við Gauta Geirsson, formann Björgunarbátasjóðs Landsbjargar á Ísafirði. Eiríkur Rögnvaldsson, íslenskusérfræðingur með meiru, heimsótti okkur og ræddi lög um mannanöfn, eiginnafnið Kona og nýyrðið hán. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, vakti máls á því á dögunum að blóm eru töluvert dýrari hér á Íslandi en erlendis. Kemur þetta m.a. til af því að innflutt blóm eru tolllögð, í raun tvisvar. Ólafur vill meina að afskorin blóm séu lúxusvara hérlendis og við ræddum þetta mál við hann. Greiningadeild Arionbanka telur að samdrátturinn í samfélaginu geti orðið allt að tvöfalt meiri en spáð hefur verið að undanförnu og að höggið komi að mestu í haust og haustmánuðir verði því erfiðir fyrir íslensk heimili og fyrirtæki. Erna Björg Sverrisdóttir, sérfræðingur hjá greiningadeild Arionbanka fór yfir þetta með okkur. Íþróttadeildin fór yfir íþróttaviðburði helgarinnar með okkur og þar komu Liverpool, Valur og Smáþjóðaleikarnir m.a. við sögu. Tónlist: Nýdönsk - Flugvélar. Vök - Spend the love. Prins Póló - Líf ertu að grínast? Memfismafían - Mannanafnanefnd. Bubbi Morthens - Það er gott að elska. Charlotte Gainsbourg - Bombs away. Stereophonics - Have a nice day. Harry Styles - Two ghosts. Ed Sheeran og Justin Bieber - I dont care.

Morgunútvarpið
Fatasóun, brjóstakrabbi, stytt vinnuvika, fréttaspjall og Hollywood

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Apr 5, 2019 130:00

Á morgun taka félög hér á landi í annað sinn þátt í Nordic Swap Day en um er að ræða nokkurs konar árveknisátak þar sem efnt er til fataskiptimarkaða til að draga úr fatasóun. Vigdís Þorvaldsdóttir hjá Hinu húsinu var á línunni og veit allt um málið. Ný rannsókn hefur leitt í ljós að brjóstakrabbamein er í raun 11 mismunandi sjúkdómar en með því að greina þessar undirtegundir er hægt að spá fyrir um hvaða konur eru líklegar til að læknast og hvaða konur mega eiga von á því að meinið taki sig upp aftur. Ásgerður Sverrisdóttir krabbameinslæknir fór yfir þetta með okkur. Það hefur vakið eftirtekt og jafnvel undrun hversu ólíkur málfluttningur aðila vinnumarkaðarins er þegar kemur að því að túlka ákvæði um styttri vinnutíma launafólks í nýjum kjarasamningi. Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar geldur varhug við því að launamenn fagni þessu ákvæði of snemma því ekkert sé fast í hendi með að vinnuvikan styttist. Hann kom til okkar. Fréttir vikunnar verða á sínum stað. Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins og Anna Lilja Þórisdóttir, aðstoðarfréttarstjóri á Morgunblaðinu, mættu til að rýna í það helsta og kjaramálin verða eðlilega fyrirferðarmest. Freyr Gígja Gunnarsson kom og flutti sinn vikulega pistil um dægurmenningu hér heima og í Hollywood. Tónlist: Nýdönsk - Apaspil. Auður - Ósofinn (ft. GKR). Aldous Harding - The Barrel. Lauryn Hill - Doo Wop (that thing). Halli Reynis - Vinátta. Madness - Never knew your name. Bjartmar - Bissí krissí. Lenny Kravitz - Strut.

hollywood marka hann gunnarsson vigd morgunbla sverrisd eflingar lauryn hill doo wop gkr freyr g aldous harding the barrel
Vikulokin
Ágúst Ólafur, Hildur Sverrisdóttir, Þórhildur Sunna, Willum Þór

Vikulokin

Play Episode Listen Later Oct 27, 2018 55:00

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, Hildur Sverrisdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata og Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins voru gestir Vikulokanna. Rætt var um kynbundinn launamun, stöðu dómsmálaráðherra eftir að umsækjanda um starf dómara við Landsrétt voru dæmdar bætur, breytingar á lögum um birtingu dóma og áherslur ríkisstjórnarinnar í komandi kjaraviðræðum. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson. Tæknimaður: Mark Eldred.