Bodkastið

Follow Bodkastið
Share on
Copy link to clipboard

Bodkastið - Líkamsvirðingarvænt hlaðvarp þar sem líkamsvirðingarkonurnar Elva Björk Ágústsdóttir og Sólrún Ósk Lárusdóttir fjalla um ýmis málefni sem tengjast líkamsmynd, fitufordómum og líkamsvirðingu

Bodkastið - Líkamsvirðingarvænt hlaðvarp


    • Apr 16, 2021 LATEST EPISODE
    • monthly NEW EPISODES
    • 39m AVG DURATION
    • 28 EPISODES
    • 2 SEASONS


    Search for episodes from Bodkastið with a specific topic:

    Latest episodes from Bodkastið

    #25 - Brúðkaupið og útlitspressan

    Play Episode Listen Later Apr 16, 2021 42:38


    Í þessum þætti segir Sólrún okkur frá líkamsmyndar pælingum sínum í tengslum við brúðkaupið hennar. Kjóllinn, förðunin, sokkabuxurnar, brúðkaupsmyndirnar, útlitspressan og fleira og fleira. Brúðkaup geta haft mikil áhrif á líkamsmyndina og geta neikvæðar tilfinningar gagnvart útlitinu, sem mögulega hafa lengi legið í dvala, poppað upp. Elva reynir sitt besta að peppa Sólrúnu enda fyrrum brúður og tengir við margt sem Sólrún hefur áhyggjur af. Lifið í lukku en ekki í krukku! 

    #24 - Tinder og ísskápa stefnumót

    Play Episode Listen Later Apr 9, 2021 42:38


    Í þessum þætti fjalla þær Sólrún og Elva um ólíka hegðun kynjanna á Tinder. Einnig segir Sólrún frá öðrum sérkennilegum stefnumóta forritum eins og ísskápa appinu. Elva talar um the male gaze á Tinder og the female gaze. Sólrún segir okkur frá áhugaverðum hugmyndum og rannsókn á því hvernig hættulegar aðstæður geta kveikt á ástartilfinningum. Þetta og margt margt fleira babl :)

    #23 - Vigtun í skólum, sjónvarpsþættir og annað babl

    Play Episode Listen Later Apr 1, 2021 52:22


    Páska-babl þátturÍ þessum þriðja þætti annarrar seríu spjalla  þær Sólrún og Elva um ýmislegt t.d vigtun hjá skólahjúkrunarfræðingum, sjónvarpsþætti eins og Love Island og Bridgeton, heilögu þrenninguna í fasteigna- og fatakaupum, fitufordóma í heilbrigðiskerfinu, líkamsímynd karla og útlits stríðni. 

    #22 - Fitufordómar og líkamsvirðing á vinnustöðum

    Play Episode Listen Later Mar 25, 2021 32:23


    Í þessum þætti af Bodkastinu segir Sólrún frá því hvernig fitufordómar geta birst á vinnustöðum. Farið er í fitu og útlits spjallið á kaffistofunni, megrunarmenninguna, Biggest Loser og aðrar þyngdartaps aðgerðir eða átök á vinnustöðum. Einnig fer Sólrún yfir þau atriði sem mikilvægt er að hafa í huga þegar kemur að því að bæta líkamsvirðinguna til að mynda í tengslum við vinnufatnað, fræðslu og stóla. Hvetjum ykkur öll til að hlusta og alveg sérstaklega ykkur sem komið að því að skipuleggja eða stjórna vinnustöðum. 

    #21 - Tik Tok, hættuleg "trend" og líkamsímyndin

    Play Episode Listen Later Mar 18, 2021 38:42


    Í þessum fyrsta þætti í annarri seríu af Bodkastinu segir Elva Sólrúnu frá Tik Tok fíkninni sinni. Þær ræða um ýmis hræðileg trend á Tik Tok og áhrif þeirra á líkamsímynd og líðan. 

    #20 - Skyndikúrar, áfall, kvíðaröskun og hárið

    Play Episode Listen Later Jan 22, 2021 48:48


    Þá er komið að 20. þættinum!Í þessum þætta fara þær Sólrún og Elva yfir ýmislegt. Þær ræða um skyndikúraþættina á Rúv, megrunarátök í janúar, lof og last vikunnar og áfall, kvíða og hárlos

    #19 - Megrunarlífið: Biggest Loser, súpukúrinn, fituskitulyfið og Danski kúrinn

    Play Episode Listen Later Jan 8, 2021 43:42


    Nítjandi Bodkast þátturinn og fyrsti þáttur ársins!Í þessum fyrsta þætti ársins munu Bodkast konurnar Elva og Sólrún fjalla um megrun og þeirra eigin reynslu af alls kyns þyngdartaps aðgerðum, alla þá kúra sem þær hafa prófið frá Danska kúrnum yfir í fituskitu lyfjakúrinn. Einnig segja þær frá niðurstöðum rannsókna á langtímaárangri þyngdartaps og fara í rannsókn á þyngdartapi keppenda í Biggest Loser þáttunum. 

    #18 - Stóru brjóstin og heróínlúkkið

    Play Episode Listen Later Dec 30, 2020 37:02


    Í 18. þætti Bodkastsins ræða þær Sólrún Ósk og Elva Björk um brjóst og áhrif þeirra á líkamsmynd og sjálfsmynd. Elva segir frá eigin reynslu af stórum brjóstum og lýtaaðgerð sem hún fór í fyrir um 20 árum síðan. 

    Líkamsmyndar - námskeið - 2. skref

    Play Episode Listen Later Dec 23, 2020 31:30


    Líkamsímynd - NámskeiðÞetta er óhefðbundinn Bodkast þáttur.Hér verður farið í annað skrefið á líkamsmyndarnámskeiðinu sem einnig má finna á Youtube. Hér verður farið í það sem mótar líkamsmyndina.Námskeiðið er í þremur skrefum og gott að taka pásu eftir hvert skref og skrá niður pælingar og spurningar1. skrefið - Kortleggja líkamsmyndina2. skrefið - Hvað mótar líkamsmyndina3. skrefið - Leiðir til að efla jákvæða líkamsmynd

    Líkamsmyndar - námskeið - 3. skref

    Play Episode Listen Later Dec 23, 2020 28:13


    Líkamsímynd - NámskeiðÞetta er óhefðbundinn Bodkast þáttur.Hér verður farið í þriðja og síðasta skrefið á líkamsmyndarnámskeiðinu sem einnig má finna á Youtube. Hér eru leiðir til að efla jákvæða líkamsímynd skoðaðarNámskeiðið er í þremur skrefum og gott að taka pásu eftir hvert skref og skrá niður pælingar og spurningar1. skrefið - Kortleggja líkamsmyndina2. skrefið - Hvað mótar líkamsmyndina3. skrefið - Leiðir til að efla jákvæða líkamsmynd

    Líkamsmyndar - námskeið - 1. skref

    Play Episode Listen Later Dec 22, 2020 17:30


    Líkamsímynd - NámskeiðÞetta er óhefðbundinn Bodkast þáttur. Hér verður farið í fyrsta skrefið á líkamsmyndarnámskeiðinu sem einnig má finna á Youtube. Fyrst er líkamsmyndin þín kortlögð þar sem þú svarar nokkrum spurningum. Námskeiðið er í þremur skrefum og gott að taka pásu eftir hvert skref og skrá niður pælingar og spurningar1. skrefið - Kortleggja líkamsmyndina2. skrefið - Hvað mótar líkamsmyndina3. skrefið - Leiðir til að efla jákvæða líkamsmynd

    #17 - Megrunarvítahringurinn og að öðlast heilbrigt samband við mat

    Play Episode Listen Later Dec 12, 2020 45:11


    Í 17. þætti Bodkastsins spjalla þær Sólrún Ósk og Elva Björk við Ásdísi Ingu sem hefur kynnt sér hugmyndir um intuative eating (að borða í núvitund) og að öðlast heilbrigt samband við mat. Ásdís Inga er einkaþjálfari og félagsráðgjafanemi. Hún kynntist hugmyndum um intuative eating þegar hún var sjálf búin að eiga í óheilbrigðu sambandi við mat í langan tíma og búin að þróa með sér lotugræðgi (bulimia). Hún heldur úti Instagram reikningnum Healthisnotasize þar sem hún fjallar um alls konar líkamsvirðingartengd mál. Í þættinum er einnig fjallað um megrunarvítahringinn, megrunarmenninguna, desember mataræðið og áramótaheit. 

    #16 - Nova auglýsingin, matarvenjur í desember, Britney Spears og Bridget Jones, sjálfsmynd og netfataverslanir

    Play Episode Listen Later Dec 2, 2020 46:14


    Í þessum sextánda þætti af Bodkastinu fara þær Sólrún Ósk og Elva Björk út um víðan völl í líkamsvirðingar pælingum dagsins. Þær velta fyrir sér djörfu Nova auglýsingunni með allri nektinni, mataræðinu í desember, Britney Spears og Bridget Jones, sjálfsmynd og sjálfsskemu og að versla sér föt á netinu. 

    #15 - Veikindi og líkamsímynd

    Play Episode Listen Later Nov 18, 2020 52:57


    Í þessum fimmtánda þætti af Bodkastinu fáum við til okkar góðan gest, Hlín Rafnsdóttur. Hlín hefur gengið í gegnum erfið veikindi og hefur starfað fyrir Kraft, sem er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein. Við spjöllum um áhrif líkamlegra veikinda á líkamsímyndina, þær breytingar sem verða á líkamanum, útlitslegar sem og aðrar breytingar.  Einnig  förum við í nokkur ráð til að efla líkamsímyndina og sjálfssamkennd. 

    #14 - Covid og líkamsvirðing

    Play Episode Listen Later Oct 30, 2020 28:24


    Í þessum fjórtánda þætti af Bodkastinu fjalla Elva Björk og Sólrún Ósk um Covid, ástandið í samfélaginu og áhrif þess á líkamsmynd og líðan. Þær spjalla um Covid kílóin frægu, fjarvinnu, kyrrsetuna og andlitsmyndir á Zoomfundum. 

    #13 - Frægt fólk og líkamsvirðing

    Play Episode Listen Later Oct 23, 2020 31:56


    Í þessum þrettánda þætti af Bodkastinu fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um fræga fólkið og áhrif þeirra á líkamsmynd og líðan. Þær velta fyrir sér áhrifum útlitstengdra frétta á sjálfsmynd og líkamsmynd og þess að dýrka og elska fræga einstaklinga.

    #12 - Babl um líkamsvirðingu, fatakaup, megrunarauglýsingar, ostastrákinn Gotta og sykurlausan september

    Play Episode Listen Later Sep 25, 2020 51:39


    Í þessum babl þætti af Bodkastinu fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamsvirðingar-lífið undanfarna daga, útlitstal og niðurrif, fatakaup, megrunarauglýsingar, sykurlausan september, nammidaga, Kelly Clarkson og Serenu Williams saumaklúbbinn, Ostastrákinn hann Gotta, post-fæðingarkrullurnar og fleira og fleira.

    #11 - Hárplokk, húðkropp og líkamsskynjunarröskun

    Play Episode Listen Later Sep 12, 2020 44:02


    Í þessum ellefta þætti af Bodkastinu fjalla þær Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamstengdarraskanir sem eru nokkuð algengar en ekki vel þekktar, hárplokkunaráráttu eða (trichotillomania) og húðkroppunaráráttu (skin picking disorder), líkamsskynjunarröskun (body dysmorphic disorder) og önnur líkamstengd vandamál. 

    #10 - Líkamsmynd og líðan eftir meðgöngu

    Play Episode Listen Later Sep 5, 2020 39:20


    Í þessum tíunda Bodkast þætti fjalla þær Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamsmynd eftir meðgöngu. Þær segja frá rannsókn sem þær framkvæmdu og fengu 500 svör og reynslusögur frá nýbökuðum mæðrum. Þær fjalla um 6 mánaða dýfuna í líkamsmynd, of litlu gallabuxurnar, þakklæti til líkamans og margt fleira. 

    #9 - Líkamsmynd og kynlíf eftir meðgöngu

    Play Episode Listen Later Aug 28, 2020 30:16


    Í þessum níunda Bodkast þætti fjalla þær Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamsmynd eftir meðgöngu og áhrif líkamsmyndarinnar á kynlíf. Kynfræðingurinn og snillingurinn Indíana Rós mætir aftur í þáttinn og spjallar um kynlíf og pælingar um kynlíf eftir meðgöngu. 

    #8 - Líkamsmynd á meðgöngu

    Play Episode Listen Later Aug 21, 2020 38:31


    Í þessum áttunda Bodkast þætti fjalla þær Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamsmynd á meðgöngu. Hefur meðganga áhrif á líkamsmyndina? Eru verðandi mæður almennt sáttari með eigið útlit en fyrir meðgöngu? Leyfilega bumban....hvað er það? Er óléttur líkami sýningadýr eða almannaeign? Af hverju vilja allir strjúka óléttubumbum?

    #7 - Tinder, tilhugalíf og ástarsambönd

    Play Episode Listen Later Aug 13, 2020 44:31


    Í þessum sjöunda Bodkast þætti fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamsvirðingu og líkamsmynd í tengslum við ástarlífið og deitmenninguna. Hvernig er að vera á Tinder? Hvaða áhrif hefur slæm líkamsmynd á tilhugalífið og ástarsambönd?  Skiptir útlit miklu máli? Hvernig hljómar Jennifer Aniston kenningin?

    #6 - Barnaefni, teiknimyndir og líkamsvirðing

    Play Episode Listen Later Aug 7, 2020 34:01


    Í þessum sjötta Bodkasta þætti fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um teiknimyndir og annað barnaefni. Hvaða skilaboð fá börn frá teiknimyndum? Má finna neikvæðar steríótýpur og jafnvel fitufordóma í barnaefni? Af hverju mátti Klói Kókómjólk ekki bara vera áfram krúttlegur kisi og hvað er málið með fitubrandarana í Peppu Pig? 

    #5 - Hugleiðingar og babl um líkamsvirðingu

    Play Episode Listen Later Jul 31, 2020 40:43


    Í þessum babl þætti af Bodkastinu fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamsvirðingar-lífið undanfarna daga, hreyfingu, pabba líkamann hans Zac Efron, fyrirsætuna Isold Halldórudóttur, Mik Zazon og fitufordóma og steríótýpur í sjónvarpi. 

    #4 - Kynlíf og líkamsímynd

    Play Episode Listen Later Jul 17, 2020 42:52


    Í fjórða þætti af Bodkastinu fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um áhrif líkamsmyndar á kynlíf. Einnig fá þær til sín fyrsta gest þáttarins kynfræðinginn Indíönu Rós.

    #3 - Fegurðarviðmið (beauty ideals) og fyrirmyndir

    Play Episode Listen Later Jul 8, 2020 36:24


    Í þessum þætti af Bodkastinu fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um fegurðarviðmið eða beauty ideals í gegnum tíðina. Hvernig viðmiðin hafa breyst og hverjar þeirra fyrirmyndir voru í æsku

    #2 - Líkamsímynd - hugleiðingar um neikvæða líkamsmynd og hjálpleg ráð

    Play Episode Listen Later Jun 29, 2020 44:09


    Í þessum þætti af Bodkastinu fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um slæma líkamsmynd. Þær ræða um ólíka þætti líkamsmyndar, áhrif neikvæðrar líkamsmyndar og mótunarþætti. Þær segja frá hjálplegum og áhugaverðum líkamsmyndar ráðum sem þær hafa fengið í gegnum tíðina.

    #1 - Bodkastið - Líkamsvirðingarvænt hlaðvarp

    Play Episode Listen Later Jun 29, 2020 26:41


    1. Þáttur - Kynning - Bodkastið er hlaðvarp þar sem Sólrún Ósk og Elva Björk fjalla um ýmis líkamsvirðingatengd málefni. Í þessum fyrsta þætti fara þær út um víðan völl og fjalla til dæmis um líkamsvirðingu, fitufordóma í teiknimyndum, jákvæða líkamsmynd og margt margt fleira. 

    Claim Bodkastið

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel