POPULARITY
Liverpool er svo gott sem orðið meistari en dómgæslan stal senunni þegar nágrannaliðin Liverpool og Everton áttust við á Anfield. Það var heil umferð í ensku úrvalsdeildinni og mættu þeir Magnús Haukur Harðarson og Kristján Atli Ragnarsson í stúdíó til þess að ræða um allt það helsta. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir þættinum.
Rætt er við Nínu Jónsson varaformann stjórnar Icelandair Group en hún á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Nína ólst upp í iðandi flugævintýri Íslendinga í Lúxemborg á áttunda áratugnum og fór í framhaldi af því til Bandaríkjanna að læra til atvinnuflugmanns. Fjöldagjaldþrot flugfélaga varð til þess að hún hélt áfram námi og lauk MBA gráðu frá Rensselaer Polytechnic Institute og B.Sc. gráðu í Air Transport Management. Nína hefur á síðustu árum unnið fyrir mörg stærstu flugfélög heims bæði austan hafs og vestan, einkum varðandi skipulagningu og samsetningu á flugflota félaganna. Þetta er fyrri þáttur af tveimur þar sem rætt er við Nínu. Seinni hluti viðtalsins verður birtur í næsta þætti.
Miðvikudagur 26. febrúar Rannsóknablaðamennska, karlmennska, Ragnar Þór, reynsluboltar og Öskjuhlíð Við hefjum leik á umræðu um spillingu og skyldum fjölmiðla að sporna gegn spillingu í stað þess að strjúka henni. Hefur fallið á trúverðugleika Fjórða valdsins með flokkadráttum? Sigurjón Magnússon Egilsson og Björn Þorláks ræða málin auk þess sem Sigurjón segir frá erfiðasta fréttamáli sem hann hefur glímt við. Viktor Gunnarsson, mma-kappi og Brynjar Karl körfuboltaþjálfari velta fyrir sér líðan karla og lausnum til að vinna úr vanda þeirra. María Lilja ræðir við þá undir yfirskriftinni Karlmennska á krossgötum. Sigurjón Magnús Egilsson kallar Reynsluboltana til leiks í þjóðmálaumræðunni. Þau Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur, Bolli Héðinsson hagfræðingur og Páll Ásgeir Ásgeirsson fjallamaður og fyrrverandi blaðamaður ræða saman um púlsinn í íslensku samfélagi. Einn umtalaðasti þingmaður dagsins í dag, Ragnar Þór Ingólfsson, situr fyrir svörum og ræðir persónulegt líf sitt í seríunni Óþekkti þingmaðurinn. Björn Þorláks spyr nýja þingmanninn spjörunum úr og ber biðlaunamálið á góma. Og Oddný Eir Ævarsdóttir lýkur þættinum með viðtali við Maríu Ericsdóttir Panduro sem kallar skógarhöggið í Öskjuhlíð ekkert annað en eyðileggingu.
Send us a textÍ þessum þætti ræðum við um skemmtileg atvik sem við höfum lent í í gegnum árin í faginu.Support the show
Ágústa Kolbrún var með okkur í dag. Hún er að fara til Egyptalands en er ekki viss um að hún taki egypta með sér heim. Helgi sagði frá fantasíu sinni. Hjálmar bjó til snilldar sögu sem hann sagði börnunum sínum fyrir svefninn.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!
Hefur smekkur okkar áhrif á hvernig aðrir meta okkur? Mads Meier Jæger, prófessor við Kaupmannahafnarskóla, svaraði þeirri spurningu á fyrirlestri sem hann flutti nýlega á vegum félagsfræðinnar og hann ræddi rannsóknir sínar í spjalli við Sigrúnu í kjölfarið. Því hefur oft verið haldið fram að meiri virðing sé tengd smekk sem telst til hámenningar (t.d. að hlusta á óperur eða kunna að meta ostrur) en lægri virðing smekk sem er talinn endurspegla lágmenningu (t.d. að hlusta á þungarokk eða vilja bara ostborgara). Á svipaðan hátt er fólk sem blandar saman há- og lágmenningu oft metið hærra en þau sem hafa einungis áhuga á öðru hvoru forminu. Með megindlegum og eigindlegum aðferðum sýnir Mads fram á að bæði sjónarhornin skipta máli fyrir hvernig fólk er metið í dönsku samfélagi. Danir álíta til dæmis að þau sem þekkja og kunna að meta hluti sem tengjast hámenningu færari á efnahagssviðinu og fólk ber meiri virðingu fyrir slíkum einstaklingum en þau sem að geta blandað saman há-og lágmenningu eru talin áhugaverðari og álitin hafa hærri félagslega stöðu. Þau Sigrún ræða um af hverju og hvernig slíkar skilgreiningar hafa áhuga á möguleika okkar og tækifæri í samfélaginu. Þau setja niðurstöðurnar einnig í samhengi við stefnumótun, en rannsóknir Mads hafa meðal annars verið notaðar til að móta menntastefnu í Danmörku.
Ísland er stofnaðili að Atlantshafsbandalaginu, hér fara fram heræfingar og íslenskir ríkisstarfsmenn starfrækja loftvarnarkerfi. Ísland telst engu að síður herlaust land - og fólk stærir sig oft af því á alþjóðavettvangi - en stenst það? Bjarni Már Magnússon, prófessor og deildarforseti lagadeildar háskólans á Bifröst, hefur undanfarið velt því fyrir sér hvort þetta sé allt saman nógu gagnsætt. Hefur ungt fólk aðgang að lýðræðislegri umræðu? Skiptir lýðræðisleg þátttaka ungs fólk bara máli í aðdraganda kosninga, þegar stjórnmálaflokkar vilja tékka í box og sækja atkvæði til að endurnýja umboð sitt? Við ræðum við Söru Þöll Finnbogadóttur, stjórnmálafræðing, sem var að gefa út handbók fyrir ungt fólk sem hefur meðal annars það markmið að skapa umræðu meðal ungs fólk um lýðræði og kosningar og hvernig ungt fólk getur haft áhrif í lýðræðissamfélagi. Edda Olgudóttir, vísindamiðlari, kemur til okkar í Vísindaspjall og verður á genafræðilegum nótum. Tónlist og stef: DOPAMINE MACHINE - Hanagal.
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fór fram í miðborg Reykjavíkur um helgina. Davíð Roach Gunnarsson var útsendari Lestarinnar á hátíðinni. Hann fer yfir allt það besta í þætti dagsins. Hefurðu einhvern tímann heyrt að allt sem þú setur á internetið muni verða þar að eilífu? Sigríður Þóra Flygenring veltir fyrir sér netinu og tímanum. Kristján og Lóa rífast svo um hvort woke-ismi sé mikilvægt mál í komandi þingkosningum. Er gullöld woke-ismans búin?
Á sama tíma og einræðisríki rísa upp eiga Íslendingar varnir sínar undir Bandaríkjunum, þar sem stór hluti þjóðarinnar styður stefnu sem líkist sífellt meir fasisma. Silja Bára Ómarsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræðir um fallvaltleika lýðræðisins í Bandaríkjunum og hvernig Íslendingar geta brugðist við hættulegri heimi.
Í tæp fjögur ár hefur línuritið sem sýnir meginvexti Seðlabankans hækkað með mislöngum hléum, grafið sýnir ójafnan en brattan tröppugang upp á við - en í dag leitaði það örlítið niður á við aftur. Peningastefnunefnd lækkaði stýrivextina úr 9,25 prósentum í slétt níu. Þetta eru tímamót en óljóst hvaða þýðingu þau hafa og vextirnir enn helvíti háir svo vitnað sé í seðlabankastjóra sjálfan. Við fengum viðbrögð nokkurra vegfarenda í Skeifunni í Reykjavík við þessum tíðindum. Facebook-hópurinn Fjármálatips er einn sá vinsælasti á landinu með yfir fimmtíu þúsund meðlimi. Við ætlum að ræða við Sindra Má Friðriksson, hann stýrir Fjármálatips og raunar hópnum Verðbréfatips líka og fær nokkuð sérstaka innsýn í fjárhag landsmanna. Hefur það hvað börn og ungmenni læra í dag eitthvað með umhverfismál og áskoranir mannkyns að gera. Svarið er já en það virðist ekki augljóst í augum allra. Við fáum pistil um þetta frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi. Síðan heimsækjum við Foreldrahús, ráðgjafamiðstöð fyrir börn og foreldra barna með hegðunar-, tilfinninga-, og vímuefnavanda. Við ætlum að fræðast um starfsemi Foreldrahúsa, um hvernig miðstöðin nálgast yfirstandandi umræðu um vopnaburð, ofbeldi og vímuefnaneyslu meðal barna og ungmenna, og hvort starfsemin sé í hættu vegna viðvarandi fjárskorts.
Balaji Srinivasan fjárfestir og frumkvöðull hefur spáð ýmsu brjáluðu og ekki allt hefur ræst. Ein af lykilkenningum hans er að hægt og rólega taki netríki við af þjóðríkjum, þar sem hópar munu koma sér saman um samfélög á netinu, sem ekki verða skilgreind af veraldlegum landamærum. Hér ræðum við framtíð Íslands á þessum nótum og veltum öllum steinum. Annað sem kemur við sögu: Hefur regluverk staðið í vegi fyrir framþróun á síðustu áratugum? Fjármagnið skiptist í þrennt: Woke Capital, Tech Capital og Communist Capital. Sagan af landnáminu í Bandaríkjunum eins og Balaji sér hana.
Hvernig er best að segja kærustunni að þú viljir tíma fyrir þig í sambandinu? Er ekki bara best að hafa Yazan á Íslandi? Hefur þú fengið hor í munninn í miðjum samförum? P. Diddy að gera góðan til til ná öllum vonduköllunum og er Quang Le ekki bara game over? Þetta og mörg önnur mál líðandi stundar til umræðu í þættinum. Góða skemmtun!
Ert þú alltaf að hlusta á gamla tónlist? Eru kvikmyndirnar sem þú ert að horfa á bara sömu kvikmyndir aftur og aftur? Hér er sagan rakin frá afdrifaríkum hryðjuverkaárásum árið 2001 og fjallað um hvernig menning okkar mótaðist í kringum 2005 og hefur síðan lítið breyst. Algrímin valda því, að mati sérfræðinga, að allt sem við sjáum og heyrum er endurtekning eða endurvinnsla þess sem áður hefur virkað. Annað: Trump vs. Harris kappræður Munurinn á kapítalisma og kommúnisma 9/11 og áhrifin á alheimssamfélagið Nýr iPhone og regluverksfargan Evrópusambandsins Skaðleg sálfræðiþjónusta fyrir ungt fólk með þunglyndi og kvíða Kostir áfengis
Pablo Punyed er einn mesti sigurvegari sem hefur spilað í íslenskum fótbolta. Hann lenti hér á landi aðeins 21 árs gamall og hefur fest hér rætur. Hann lítur núna á sig sem Íslending. Pablo spilar í dag með Íslands- og bikarmeisturum Víkings en hann er staðráðinn í að snúa aftur á fótboltavöllinn eftir að hafa slitið krossband á dögunum. Í þessum hlaðvarpsþætti ræðir hann um meiðslin, ferilinn til þessa og lífið á Íslandi.
Við ætlum að heyra hvað nákvæmlega felst í aðgerðum sem ráðist verður í til að sporna gegn ofbeldi meðal barna. Í lok júní kom út aðgerðaáætlun á vegum ríkislögreglustjóra til að reyna draga úr ofbeldi meðal barna sem hefur aukist um helming á fimm árum og er mikið áhyggjuefni. Hefur enn ein nefndin verið stofnuð og enn ein skýrslan verið gefin út? Eru þetta orðin tóm hjá stjórnvöldum eða verður raunverulega gripið til afgerandi úrræða til að snúa þessari uggvænlegu þróun við? Eygló Harðardóttir Verkefnastjóri afbrotavarna hjá ríkislögreglustjóra sem einnig situr í nýskipuðum aðgerðarhóp kemur til okkar og ræðir þetta. Ættum við að hætta að nota orðið „umhverfisvænt“? Er almennt hægt að segja að eitthvað sé umhverfisvænt eða ekki? Hvernig metum við valkostina sem blasa við okkur í umhverfis- og orkumálum? Þessu veltir Stefán Gíslason fyrir sér í umhverfispistli Samfélagsins í dag. Í lok þáttar ræðum við túrista, fasista og útrásarvíkinga. Þá flytjum við seinni hluta viðtals okkar við Guðrúnu Dröfn Whitehead um hugmyndir okkar um víkinga og birtingarmyndir þeirra í samtímanum.
"Love isn't always a two way street" Hefurðu verið í þeirri stöðu að hafa meiri ást að gefa en maki getur tekið við? Og fundið jafnvel að maki hafi ekki nógu mikla ást að gefa fyrir þig? Í þessum þætti fer ég djúpt ofan í hvernig hjarta okkar getur haldið mismikilli ást, hvernig það getur vaxið og hversu eðlilegt það er að við séum ekki alltaf jöfn í getu og fólkið í kringum okkur. Fyrir öll ykkar sem viljið getað elskað meira, þetta er þáttur fyrir ykkur. Finna mitt ástartungumál - 5 Love Languages Skoða Sundur og saman á instagram
Krabbameinsskrá Íslands fagnar 70 ára afmæli nú í maí og af því tilefni verður blásið til afmælismálþings seinna í dag. Þetta er löng saga og ýmislegt sem hefur gerst og breyst á 70 árum. Þær Sigríður Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsókna- og skráningarseturs Krabbameinsfélagsins og Laufey Tryggvadóttir, faraldsfræðingur og prófessor ræða þessi tímamót. VIð fræðumst um íslensku nýsköpunarvikuna sem hófst í dag, hátíð sem laðar að stórfiska úr heimi tækni og nýsköpunar en snertir líka á listum. Við ræðum við stofnendur hátíðarinnar, þær Eddu Konráðsdóttur og Melkorku Sigríði Magnúsdóttur. Edda Olgudóttir kemur svo í vísindaspjall í lok þáttar - hún segir okkur frá möguleikum crispr-tækninnar, meðal annars til þess að lækna blindu. Tónlist: Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, Ingibjörg Smith - Nú liggur vel á mér. TRAVIS - The Weight. Beatles, The - While my guitar gently weeps.
Hefur það sem við veljum að læra eða starfa við áhrif á velferð okkar og jafnvel lífshamingju? Skiptir máli að starfa við það sem við höfum ástríðu fyrir eða er það aukaatriði í stóra samhenginu. Sif Einarsdóttir, prófessor í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands, ætlar að ræða þetta við okkur en hún fer fyrir stóru alþjóðlegu rannsóknarverkefni, Eldar í iðrum, en markmið þess er að skilja betur hvaða þættir hafa áhrif á þróun starfsferils hjá fólki. Við ætlum að tala um Forbes-listann yfir ríkasta fólk í heimi. Kannski má kalla þetta ríkukallafélagið því þarna raða sér í öll efstu sætin mismiðaldra karlar sem flestir koma úr tæknibransanum. Ekki þó sá sem er í efsta sæti. Hann hefur safnað sínum fáránlega mikla auði með sölu lúxusmerkja; fatnaði, kampavíni, skartgripum og snyrtivörum. Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi og höfundur bókarinnar Peningar, ætlar að renna yfir þennan lista með okkur. Og meira um peninga. Samfélagið frétti af manni sem var að taka til í skúffum og skápum þegar hann fann kassa með gjafabréfum. Þau voru öll útrunnin og verðmæti þeirra reyndist um 200 þúsund krónur. Við tölum um útrunnin gjafabréf, inneignarnótur og önnur verðmæti sem renna fólki úr greipum við Brynhildi Pétursdóttur framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna. Tónlist: EDISON LIGHTHOUSE - Love Grows (Where My Rosemary Goes). ELVIS PRESLEY - Return To Sender.
Í þessum þætti ræðum við um skemmtileg atvik sem við höfum lent í í gegnum árin í faginu. Support the show
Hér er hvatt til endurvakningar vísnahefðarinnar - og nefndir til sögunnar ungir menn sem eru nokkuð líklegir á því sviði, Bergþór fer yfir upplifun sína af ferðalögum til Indlands og Bandaríkjanna, við höldum áfram að veita skýrar leiðbeiningar að andlegri vakningu; önnur spurning í þessu: Er hið norræna velferðarkerfi til þess fallið að hvetja til andlegra afreka eða er það bara fjöldaframleiðsla á meðalmennsku? Grimmileg spurning. Þátturinn í heild á Patreon!
Í dag er fyrsti febrúar og hann er merkisdagur í Íslandssögunni. Það var jú 1. febrúar 1904 sem við Íslendingar fengum heimastjórn frá Dönum. Fyrir 120 árum í dag. Af því tilefni rifjuðum við upp þessi tímamót í íslenskri stjórnskipan og samskiptunum við Dani. Til okkar kom Gunnar Þór Bjarnason sagfræðingur, sem kann þessa sögu vel; hefur rannsakað hana og skrifað um hana bækur. Bændur bera sig illa víða í álfunni og hafa mótmælt svo eftir er tekið, í t.d. bæði Þýskalandi og Frakklandi. Íslenskir bændur - ekki síst ungir bændur - hafa líka vakið athygli á erfiðri stöðu í verðbólgu og hávöxtum. Er um reglubundið upphlaup að ræða eða stendur landbúnaður á tímamótum? Hefur smátt og smátt fjarað undan hefðbundnum búskap? Við veltum þessu fyrir okkur með Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna. Við töluðum um gamlar bækur; bækur sem prentaðar voru í Íslendingabyggðum í Vesturheimi á síðustu áratugum nítjándu aldar og fram á miðja tuttugustu öld. Slíkum prentgripum safnaði Ragnar H. Ragnar sem ungur hélt vestur um haf og nam tónlist. Árnastofnun hefur fengið safn Ragnars að gjöf. Sonur hans, Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld kom til okkar. Tónlist: Naissoo, Tõnu Trio, Naissoo, Tõnu, Melvin, Brian, Krokfors, Ulf - Don't say goodbye. Hljómsveit Jörn Grauengård, Haukur Morthens, Erla Þorsteinsdóttir - Þrek og tár. Hljómsveit Jörn Grauengård, Haukur Morthens - Frostrósir. Baggalútur - Sólskinið í Dakota.
Patrekur Jóhannesson og Ásgeir Jónsson kíktu á Stymma Klippara í Dominos stúdíóið og fóru yfir sögulegan sigur Íslands á Króatíu. Rýndum í framhaldið og hvað yrði að falla með okkur svo Ólympíusætið væri möguleiki. Patti rýndi einnig í gott gengi sinna gömlu lærisveina í Austurríki.
Sérfræðingurinn, Ponzan og Mike gera upp leikinn gegn Serbíu beint frá Hofbrauhaus í Munchen.
Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna segir að lítill tími gefist til að bregðast við ef það fer að gjósa norðan við Grindavík. Hann hefur áhyggjur af fólki sem dvelur í bænum. Hann segir að gist hafi verið í um 30 húsum í nótt og segir búist við að fleiri verði í bænum um áramót. Björgunarsveit er ekki í bænum núna og ef færi að gjósa keyra tveir lögreglubílar um bæinn með vælandi sýrenur til að vekja athygli íbúa á rýmingu, auk þess sem Neyðarlínan sendir út sms á síma í bænum. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur og sérfræðingur í loftslagsmálum hefur í síðustu tveimur þáttum farið yfir nokkrar af algengustu kenningum þeirra sem efast um hlýnun Jarðar, orsakir hennar og afleiðingar ásamt Ævari Erni Jósepssyni. Nú er komið að lokahnykk þeirrar yfirferðar. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred.
Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna segir að lítill tími gefist til að bregðast við ef það fer að gjósa norðan við Grindavík. Hann hefur áhyggjur af fólki sem dvelur í bænum. Hann segir að gist hafi verið í um 30 húsum í nótt og segir búist við að fleiri verði í bænum um áramót. Björgunarsveit er ekki í bænum núna og ef færi að gjósa keyra tveir lögreglubílar um bæinn með vælandi sýrenur til að vekja athygli íbúa á rýmingu, auk þess sem Neyðarlínan sendir út sms á síma í bænum. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur og sérfræðingur í loftslagsmálum hefur í síðustu tveimur þáttum farið yfir nokkrar af algengustu kenningum þeirra sem efast um hlýnun Jarðar, orsakir hennar og afleiðingar ásamt Ævari Erni Jósepssyni. Nú er komið að lokahnykk þeirrar yfirferðar. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred.
Hvað er betra en einstakur og áhrifamikill indie leikur? TVEIR einstakir og áhrifamiklir indie leikir. Þið þekkið þetta, Arnór Steinn kynnir hinn draumkennda Journey frá 2012 og Gunnar kynnir Untitled Goose Game, þar sem þú spilar sem gæs sem veldur usla og skelfingu í bresku þorpi. Hefur þú spilað annan hvorn? Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
Doc fékk þá Viktor Unnar og Jóa Kíró til sín á sunnudagskvöldi.
Rúmt ár er síðan Rishi Sunak varð forsætisráðherra Bretlands. Við upphaf valdatíðarinnar setti hann sér fimm markmið, sum hafa náðst að einhverju leyti en önnur alls ekki, líkt og Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálamaður rakti í spjalli um frammistöðu Sunaks og ástand og horfur í bresku þjóðlífi. Ávaxtaneysla og mataræði barna var umfjöllunarefnið að þessu sinni í vikulegu rabbi Önnu Sigríðar Ólafsdóttur, prófessors í næringarfræði við HÍ, um hollustu. Skólanestið er ekki alltaf nógu gott né framboð af næringarríku fæði á stórum samkomum á borð við íþróttamót sem börn sækja. Garðaríki fyrir þúsund árum er sögusvið nýjustu bókar Vilborgar Davíðsdóttur. Land næturinnar heitir hún og segir af ævintýrum Þorgerðar Þorsteinsdóttur sem Vilborg kynnti fyrst til sögunnar í Undir Yggdrasil sem kom út fyrir þremur árum. Vilborg sagði frá Þorgerði og ferðum hennar. Tónlist: Blakc, brown and beige - Duke Ellington og Mahalia Jackson. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.
Rúmt ár er síðan Rishi Sunak varð forsætisráðherra Bretlands. Við upphaf valdatíðarinnar setti hann sér fimm markmið, sum hafa náðst að einhverju leyti en önnur alls ekki, líkt og Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálamaður rakti í spjalli um frammistöðu Sunaks og ástand og horfur í bresku þjóðlífi. Ávaxtaneysla og mataræði barna var umfjöllunarefnið að þessu sinni í vikulegu rabbi Önnu Sigríðar Ólafsdóttur, prófessors í næringarfræði við HÍ, um hollustu. Skólanestið er ekki alltaf nógu gott né framboð af næringarríku fæði á stórum samkomum á borð við íþróttamót sem börn sækja. Garðaríki fyrir þúsund árum er sögusvið nýjustu bókar Vilborgar Davíðsdóttur. Land næturinnar heitir hún og segir af ævintýrum Þorgerðar Þorsteinsdóttur sem Vilborg kynnti fyrst til sögunnar í Undir Yggdrasil sem kom út fyrir þremur árum. Vilborg sagði frá Þorgerði og ferðum hennar. Tónlist: Blakc, brown and beige - Duke Ellington og Mahalia Jackson. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.
Á síðustu dögum hefur verið greint frá því að fjórir reynslumiklir leikmenn væru horfnir á brott úr leikmannahópi Fjölnis. Það eru þeir Hans Viktor Guðmundsson, Guðmundur Þór Júlíusson, Bjarni Gunnarsson og Dofri Snorrason. Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Fjölnis, ræddi brotthvarf leikmannanna í viðtali í dag. Mikil reynsla er farinn úr hópnum en Úlfur hefur ekki áhyggjur. Úlfur ræddi einnig um tímabil Fjölnis, tímann sem þjálfari hjá Fjölni, Extra völlinn og eftirminnilegt viðtal þar sem hann talaði um Aftureldingu.
Dominos
Aukasendingin fékk leikmann íslenska landsliðsins Hilmar Smára Henningsson í spjall um yngri landsliðin, verkefnin með a landsliðinu, Haukana, hvernig það var að fara ungur út til stórliðs Valencia, afhverju hann hafi ákveðið að ganga til liðs við Eisbaren Bremerhaven í Þýskalandi fyrir komandi tímabil og hvað hann haldi að gerist á næsta tímabili í Subway deildinni.Undir lok upptökunnar velur Hilmar Smári í tvö úrvalsbyrjunarlið. Það fyrra eru bestu leikmenn sem hann hefur spilað við á ferlinum og í hitt velur hann byrjunarlið bestu íslensku leikmanna Subway deildarinnar.Tekið er fram að upptakan fór fram þriðjudag 15. ágúst fyrir leik Íslands gegn Búlgaríu í forkeppni Ólympíuleikanna.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway.
Helgi er að fara á árshátíð andlega fólksins um helgina og Hjálmar lét hann heyra það. Hjálmar er ósáttur með suma íbúa hússins sem hann býr í en hann vill gera nokkrar breytingar í blokkinni.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is! IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Gestur vikunnar er Viktor Orri Valgarðsson, nýdoktor í stjórnmálafræði við háskólann í Southampton í Bretlandi. Viktor lauk doktorsprófi frá sama háskóla en í doktorsverkefni sínu skoðaði hann hvers vegna kosningaþátttaka hefur minnkað í mörgum þróuðum lýðræðisríkjum, með sérstaka áherslu á hvort og hvernig stjórnmálalegt sinnuleysi og firring geti útskýrt þessa þróun. Þessa stundina tekur hann þátt í alþjóðlegu rannsóknarverkefni, TrustGov, en það skoðar eðli, orsakir, afleiðingar og mynstur stjórnmálatrausts á heimsvísu. Hann hefur einnig beint sjónum að því hvernig stjórnmálatraust skiptir máli á tímum heimsfaraldurs COVID-19, til að mynda hvaða hlutverki slíkt traust gengdi í vantrausti til bóluefna. Í þætti vikunnar segir hann Sigrúnu frá doktorsverkefni sínu en einnig frá þeim verkefnum sem hann er að vinna í þessa stundina, sem meðal annars tengjast stjórnmálatrausti á Íslandi í alþjóðlegu samhengi.
Gestur vikunnar er Viktor Orri Valgarðsson, nýdoktor í stjórnmálafræði við háskólann í Southampton í Bretlandi. Viktor lauk doktorsprófi frá sama háskóla en í doktorsverkefni sínu skoðaði hann hvers vegna kosningaþátttaka hefur minnkað í mörgum þróuðum lýðræðisríkjum, með sérstaka áherslu á hvort og hvernig stjórnmálalegt sinnuleysi og firring geti útskýrt þessa þróun. Þessa stundina tekur hann þátt í alþjóðlegu rannsóknarverkefni, TrustGov, en það skoðar eðli, orsakir, afleiðingar og mynstur stjórnmálatrausts á heimsvísu. Hann hefur einnig beint sjónum að því hvernig stjórnmálatraust skiptir máli á tímum heimsfaraldurs COVID-19, til að mynda hvaða hlutverki slíkt traust gengdi í vantrausti til bóluefna. Í þætti vikunnar segir hann Sigrúnu frá doktorsverkefni sínu en einnig frá þeim verkefnum sem hann er að vinna í þessa stundina, sem meðal annars tengjast stjórnmálatrausti á Íslandi í alþjóðlegu samhengi.
Strákarnir byrjuðu þáttinn á svell köldum veruleika. Ef maður heyrir nýtt orð þegar maður er fertugur þá er eitthvað að gerast. Hjálmar hringdi í Seðlabankann og kom með lausnina að verðbólgunni.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is! IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Viðmælandi þáttarins er Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdarstýra Carbfix. Carbfix hefur allt frá árinu 2012 fangað CO2 frá Hellisheiðarvirkjun og dælt því ofan í basaltjarðlög þar sem það umbreytist í stein með náttúrulegum ferlum. Hefur sú aðferð til varanlegrar og öruggrar kolefnisförgunar vakið heimsathygli og starfa nú yfir 30 manns hjá fyrirtækinu. Edda er fædd árið 1981 og er alin upp í Fossvogi, Kópavogi og Danmörku. Hún gekk í Menntaskólann í Reykjavík og kláraði B.S. og Master í efnafræði við Háskóla Íslands og Doktor í forða- og efnafræði frá sama skóla. Edda starfaði sem yfirmaður nýsköpunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur samhliða því að vera verkefnastjóri Carbfix sem byrjaði sem nýsköpunarverkefni innan Orkuveitunnar, Háskóla Íslands og erlendra samstarfsaðila. Carbfix var formlega stofnað sem dótturfyrirtæki OR árið 2019 og tók hún þá við sem framkvæmdastýra fyrirtækisins. Edda hefur einnig setið í ýmsum stjórnum t.d. eins og hjá Gagnaveitu Reykjavíkur, GEORG, Íslenskri NýOrku og danska orkufyrirtækinu Innargi. Þessi þáttur er í boði Icelandair og Krónunnar.
Gleðilega páska kæru hlustendur! Við vonum að þið séuð öll jafnmiklir páskaungar og hann Iddi sem rúllaði upp páskaquiz-i dagsins. Þó það séu páskar var þátturinn þó ekki fullkomlega málaður gulu en Ingvi gefur Chandler bræðrum yfirferð sem eru eflaust bestu fjárfestar sem þú hefur aldrei heyrt um. Arnar er þó meira í páskaþemanu og fer yfir dýrustu páskaegg allra tíma en fer einnig yfir eins árs gamalt efni úr Föstudagskaffinu þar sem þátturinn á eins árs afmæli á morgun! Góða hlustun.
Besta deildin byrjar að rúlla næsta mánudag og það styttist í annan endann á upphitun okkar fyrir mótið. Víkingum er spáð þriðja sæti deildarinnar. Tómas Guðmundsson, fyrrum leikmaður liðsins, kíkti við á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fór yfir málin í Fossvoginum. Hann lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2021 þegar Víkingar urðu tvöfaldir meistarar. Þá var Viktor Örlygur Andrason, miðjumaður Víkinga, á línunni þar sem hann fór aðeins yfir síðasta tímabil og undirbúningsvinnuna í vetur.
Við heimsækjum HafnarHaus, nýtt skapandi rými í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Gestgjafinn Arnar Sigurðsson tekur á móti okkur og sýnir okkur þetta rými sem áður hýsti ráðuneyti en er nú undirlagt skrifstofum skapandi fólks. Hvað gerist þegar óskað er eftir því að hlé verði gert á tækniþróun? Í síðustu viku sendu málsmetandi menn úr tæknigeiranum frá sér opið bréf þar sem þeir vöruðu við þeim hraða sem þróun gervigreindar er á. Er hægt að stöðva tækniþróun? Hefur það verið gert áður. Við ræðum við Stefán Pálsson, sagnfræðing. Patrekur Björgvinsson er nýfluttur til Hollands. Hann upplifði visst menningarsjokk þegar hann kom að klósettsiðum þar í landi og rifjar við tilefnið upp orð slóvenska heimspekingsins, Slavoj Zizkek.
Við heimsækjum HafnarHaus, nýtt skapandi rými í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Gestgjafinn Arnar Sigurðsson tekur á móti okkur og sýnir okkur þetta rými sem áður hýsti ráðuneyti en er nú undirlagt skrifstofum skapandi fólks. Hvað gerist þegar óskað er eftir því að hlé verði gert á tækniþróun? Í síðustu viku sendu málsmetandi menn úr tæknigeiranum frá sér opið bréf þar sem þeir vöruðu við þeim hraða sem þróun gervigreindar er á. Er hægt að stöðva tækniþróun? Hefur það verið gert áður. Við ræðum við Stefán Pálsson, sagnfræðing. Patrekur Björgvinsson er nýfluttur til Hollands. Hann upplifði visst menningarsjokk þegar hann kom að klósettsiðum þar í landi og rifjar við tilefnið upp orð slóvenska heimspekingsins, Slavoj Zizkek.
Aldrei hefur íslenskur þjálfari verið í eins stóru starfi og Milos Milojevic er í núna. Milos, sem er með íslenskan ríkisborgararétt, kom fyrst til Íslands árið 2006 til að spila með Hamri. Hann spilaði svo með Ægi og Víkingi Reykjavík. Síðar meir varð hann aðstoðarþjálfari Ólafs Þórðarsonar hjá Víkingi og svo aðalþjálfari. Hann stýrði Breiðabliki áður en hann fluttist búferlum til Svíþjóðar. Hann hefur unnið sig hratt upp stigann og stýrði Malmö, sigursælasta félagi Svíþjóðar, áður en hann tók við Rauðu stjörnunni í fyrra. Að stýra Rauðu stjörnunni er erfitt starf og því fylgir mikil pressa, en allt bendir til þess að Milos verði serbneskur meistari á næstu vikum. Liðið er enn taplaust eftir 27 leiki í serbnesku úrvalsdeildinni.
Við lítum yfir árið, bæði persónulega og pólitískt. Leitum að hápunktum og lágpunktum og setjumst í Völvusætið fyrir árið 2023. Veltum fyrir okkur áhrifum baráttu á árinu og mögulegum afleiðingum ýmissa atvika sem áttu sér stað á árinu. Hefur baráttan fyrir jafnrétti og mannréttindum skilað einhverju eða erum við bara á leiðinni aftur á bak með þungu bakslagi? Miriam Petra sérfræðingur hjá Rannís og inngildingarfulltrúi landsskrifstofu Erasmus plus og fyrirlesari um rasisma og menningarfordóma og Sóley Tómasdóttir jafnréttis- og fjölbreytileikafræðingur horfa í baksýnisspegilinn og setjast í femínískt Völvusæti fyrir árið 2023. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, ÖRLÖ fyrsta Omega-3 bætiefnið í heiminum með jákvætt kolefnisfótspor og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.
Murdaugh fjölskyldan hefur ekki farið framhjá neinum síðasta eina og hálfa árið. Hún hefur verið í fréttunum nær daglega síðan í júní 2021, þegar hinn tvítugi Paul og 58 ára gamla Maggie Murdaugh voru skotin til bana á heimili sínu. Fyrir var fjölskyldan þekkt og valdamikil í lögfræðigeiranum. Eftir skelfilegt bátaslys sem að átti sér stað árið 2019, þar sem yngsti sonur Murdaugh hjónanna stýrði bátnum drukkinn og ýtarleg rannsókn á málinu fór af stað - Hefur hulunni verið svipt af ógeðfelldri svikamillu Alex Murdaugh. Þetta mál er út í gegn, algjörlega ótrúlegt. Þessi þáttur er í áskrift. Þú getur hlustað á hann í heild sinni með að skrá þig í ILLVERK ÁSKRIFT. Við skráningu færð þú aðgang að yfir 140 aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði og þessa fríu vikulegu án auglýsinga. www.illverk.is
Haukur Guðna hringdi í Útvarp Sögu og heimtaði að fá sönnun fyrir því að þeir væru ekki ríkisstyrktir. Svavar Elliði var að gefa út nýtt lag sem er komið á Spotify og hann segir okkur frá reynslu sinni af skemmtana lífi bæjarins þessa dagana. Helgi hringdi í Jönu bæjarstarfsmann í Mosfellsbæ og tók stöðuna á henni.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Afleysingakennarinn lét AI og Joao Má bakka inn með stútfullan bíl af fótbolta rétt fyrir páska.
Doc, AI og Jói Már fóru yfir það helsta í boltanum.