Classic með Nönnu Kristjáns

Follow Classic með Nönnu Kristjáns
Share on
Copy link to clipboard

Classic með Nönnu Kristjáns er nýr þáttur á Útvarp 101. Classic er afslöppuð og óhefðbundin nálgun á klassíska tónlist fyrir byrjendur og lengra komna. Farið verður yfir líf, störf og helstu verk stærstu nafna tónlistarsögunnar til að sanna að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi þegar kemur að…

Útvarp 101

  • Jun 22, 2020 LATEST EPISODE
  • monthly NEW EPISODES
  • 1h 1m AVG DURATION
  • 20 EPISODES


Search for episodes from Classic með Nönnu Kristjáns with a specific topic:

Latest episodes from Classic með Nönnu Kristjáns

Schubert

Play Episode Listen Later Jun 22, 2020 56:25


Hvert er besta lyfið við sárasótt? Eiga atvinnulausir rétt á að gifta sig? Í þessum þætti af útvarpsþættinum Classic fjallar Nanna Kristjánsdóttir um smágerða snillinginn Franz „sveppaling“ Schubert.

von Bingen

Play Episode Listen Later Jun 8, 2020 53:34


Hver var fyrsti sex-positive feministinn? Hvenær var byrjað að brugga bjór með humlum? Í fyrsta þætti annarar seríu af útvarpsþættinum Classic fjallar Nanna Kristjánsdóttir um tónskáldið og fjölfræðinginn Hildegard von Bingen.

Vivaldi

Play Episode Listen Later Mar 30, 2020 64:37


Sömpluðu tónlistarmenn hvorn annan líka í gamla daga? Eru karlmenn líklegri til að mæta í messu ef að það eru sætar stelpur að spila tónlistina í henni? Í lokaþætti fyrstu seríu af útvarpsþættinum Classic fjallar Nanna Kristjánsdóttir um rauða prestinn Antonio Vivaldi.

Elgar

Play Episode Listen Later Mar 23, 2020 58:08


Hvað er mesta meðalið við lamandi óöryggi? Hvað eiga kvikmyndirnar Dunkirk og The Matrix sameiginlegt? Í 17. þætti af útvarpsþættinum Classic fjallar Nanna Kristjánsdóttir um óskabarn bresku þjóðarinnar, Edward Elgar.

Debussy og Ravel

Play Episode Listen Later Mar 16, 2020 62:55


Eru impressionistar slæmir kærastar? Koma tveir elskulegir síamskettir í stað eiginkonu? Í 16. þætti af útvarpsþættinum Classic fjallar Nanna Kristjánsdóttir um frönsku meistarana Claude Debussy og Maurice Ravel.

Saint-Saëns og Fauré

Play Episode Listen Later Mar 9, 2020 66:40


Er í lagi að mæta í vinnuna beint af djamminu? Hvað er það versta sem getur hent klassískt tónskáld? Í 15. þætti af útvarpsþættinum Classic fjallar Nanna Kristjánsdóttir um félagana Camille Saint-Saëns og Gabriel Fauré.

Gershwin

Play Episode Listen Later Mar 2, 2020 58:23


Hvað táknar það ef maður finnur alltaf lykt af brenndu gúmmíi? Getur bílflauta talist hljóðfæri? Í fjórtánda þætti útvarpsþáttarins Classic fjallar Nanna Kristjánsdóttir um fremsta klassíska tónskáld sem Brooklyn hefur alið, George Gershwin.

Rachmaninoff

Play Episode Listen Later Feb 24, 2020 72:18


Hefur Shaquille O'Neal alla burði til að verða góður píanóleikari? Hvað finnst rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni um hjónabönd systkinabarna? Í þrettánda þætti útvarpsþáttarins Classic kynnumst við Sergei Rachmaninoff.

Lully

Play Episode Listen Later Feb 17, 2020 57:45


Hver er besta leiðin til að fagna velheppnaðri konunglegri endaþarmsskurðaðgerð? Getur það verið lífshættulegt að starfa sem hljómsveitarstjóri? Nanna Kristjánsdóttir veltir þessu fyrir sér, ásamt öðru, í nýjasta þætti af útvarpsþættinum Classic, en umfjöllunarefnið að þessu sinni er barrokkmeistarinn Jean-Babtiste Lully.

Liszt

Play Episode Listen Later Feb 10, 2020 61:39


Hver er uppruni fyrirbærisins „fangirl“? Hvers vegna myndi nokkur kona að geyma sundurtugginn vindlastubb í brjóstaskorunni? Nanna Kristjánsdóttir veltir þessu og öðru fyrir sér í ellefta þætti af útvarpsþættinum Classic, en í þetta skipti er til umræðu ungverski píanósnillingurinn Franz Liszt.

Satie

Play Episode Listen Later Jan 27, 2020 53:16


Hver er besta lausnin við tilvistarkreppu? Hvert er leiðinlegasta tónverk sögunnar? Í 10. þætti af útvarpsþættinum Classic fjallar Nanna Kristjánsdóttir um furðufuglinn Erik Satie.

Wagner

Play Episode Listen Later Jan 20, 2020 69:46


Hver var uppáhaldsópera Hitlers? Hver hinna klassísku meistara á metið í að kokkála? Í níunda þætti útvarpsþáttarins Classic fjallar Nanna Kristjánsdóttir um Richard Wagner.

Chopin

Play Episode Listen Later Jan 13, 2020 66:27


Hvað eiga Serge Gainsbourg og deadmau5 sameiginlegt? Var Victor Hugo queer ally? Í áttunda þætti af útvarpsþættinum Classic fjallar Nanna Kristjánsdóttir um pólska undrabarnið Frédéric Chopin.

Purcell

Play Episode Listen Later Jan 6, 2020 54:15


Hvernig hljóðar djammtónlist fyrri alda? Hvað eiga íbúar London enska bakaranum Thomas Farriner að þakka? Í sjöunda þætti af útvarpsþættinum Classic fjallar Nanna Kristjánsdóttir um hinn enska Henry Purcell.

Jólaclassic

Play Episode Listen Later Dec 23, 2019 54:50


Hvað eiga færeysk jólalög og tónlist Destiny's Child sameiginlegt? Hvernig hélt Ríkharður II konungur Englands upp á jólin 1377? Í sérstakri hátíðarútgáfu af útvarpsþættinum Classic fer Nanna Kristjánsdóttir yfir sögu jólatónlistar.

Mozart 2. hluti

Play Episode Listen Later Dec 16, 2019 58:18


Annar hluti af umfjöllun Nönnu Kristjánsdóttur um snillinginn Wolfgang Amadeus Mozart.

Mozart 1. hluti

Play Episode Listen Later Dec 2, 2019 60:29


Hvernig er best að komast yfir það að vera hafnað af gellunni sem þú elskar? Fíla virðuleg tónskáld líka að vera rimmuð? Þetta og fleira kannar Nanna Kristjánsdóttir í fjórða þætti af útvarpsþættinum Classic, þar sem tekinn er fyrir snillingurinn Wolfgang Amadeus Mozart.

Händel

Play Episode Listen Later Nov 25, 2019 65:34


Hver er besta leiðin til að jafna sig eftir heilablóðfall? Og hvað gerist ef að maður vandar sig ekki að skjóta úr fallbyssu? Í þriðja þætti útvarpsþáttarins Classic fjallar Nanna Kristjánsdóttir um Georg Frederik Händel og mislukkuðustu flugeldasýningu sögunnar.

Tchaikovsky

Play Episode Listen Later Nov 20, 2019 70:21


Hver er besta leiðin til að fela eigin samkynhneigð í Rússlandi? Hvað gerðist ef maður drakk ósoðið vatn í Úkraínu á 19. öld? Í öðrum þætti af Classic fjallar Nanna Kristjánsdóttir um ástir og afrek Pyotr Ilyich Tchaikovsky.

Bach

Play Episode Listen Later Nov 4, 2019 60:38


Hvað gerist ef þú ferð í augnaðgerð hjá skottulækni? Eru geimverur með eyru? Í fyrsta þætti af útvarpsþættinum Classic fer Nanna Kristjánsdóttir yfir líf og störf eins áhrifamesta tónskálds sögunnar, Jóhanns Sebastans Bach, á einfaldan og aðgengilegan máta fyrir byrjendur og lengra komna.

Claim Classic með Nönnu Kristjáns

In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

Claim Cancel