POPULARITY
Föstudaginn 12. júní var Lestin tekin upp í Klúbbi Listahátíðar í Iðnó. Við veltum fyrir okkur stöðu listarinnar í samtímanum - á tímum snjallsíma, samfélagsmiðla, gervigreindar, á tímum þegar lýðræðið á undir högg að sækja, á stríðstímum, verðbólgutímum, á tímum Trump og tækni-kapítalisma. Getur listin sagt eitthvað nýtt og áhugavert um þessa tíma, getur hún haft einhver alvöru áhrif, þegar hún þarf stöðugt að keppa við alla aðra afþreyingu á netinu, á samfélagsmiðlum, í athyglishagkerfinu. Við ræðum við tvo listamenn, Cristophe Meierhans og Mat Dryhurst.
Við erum loksins mættar aftur og byrjum nýja þáttaröð á skemmtilegum spurningum sem við fengum frá fylgjendum okkar!Spurningar sem við förum yfir í þættinum:Er P-TIOX í lagi á rósroða? Hvaða meðferð er góð fyrir fimmtuga konu með vægan rósroða? Getur húðin versnað í upphafi lyfjameðferðar, td rósroði? Double cleansing, er það nauðsynlegt? Mineral eða chemical sólarvörn? Retinól á líkamann? Virkar það Strawberry skin og keratosis pilaris á leggjum - hvað er hægt að gera? Fylgstu með okkur:Húðlæknastöðin.isInstagramTikTokSkinCeuticals vörurEf þú ert með spurningar, ábendingar eða værir til í að heyra okkur ræða eitthvað ákveðið, endilega hafðu samband á Instagram. *Efni þessa hlaðvarps er eingöngu ætlað til fræðslu og almennrar upplýsingagjafar. Það kemur ekki í stað læknisráðgjafar, greiningar eða meðferðar.*Þessi þáttur inniheldur umfjöllun um vörur sem fást á Húðlæknastöðinni.
Þórarinn ræðir öðru sinni við Gumma Hafsteinsson en hann er frumkvöðull sem hefur starfað bæði hjá Google og Apple.Gummi segir ljóst að gervigreind muni valda straumhvörfum á heimsvísu og geta fyrirbærisins kemur honum sífellt meira á óvart. Hann segir skilning stjórnmálamanna vera lítinn en það komi í sjálfu sér ekki á óvart þar sem skilningur flestra sé takmarkaður einfaldlega vegna þess að óvissan er mikil.Í þættinum er spurt að því hvaða gervigreindarforrit sé best, hvort að gervigriend muni auka ójöfnuð, staða nýsköpunar- og hugverkaiðnaðarins á Íslandi, regluverk ESB, hvort Ísland geti tekið þátt í gervigreindarkapphlaupinu og hvernig störf framtíðarinnar munu koma til með að lýta út.Gummi segir mikilvægt að setja ekki of íhaldssamt regluverk í kringum gervigreind og að það geti valdið því að framþróun á Íslandi verði minni en hún gæti orðið. Þrátt fyrir að óvissan sé mikil og að mikilvægt sé að vera með opin augu gagnvart vanköntum gervigreindar er Gummi bjartsýnn fyrir þeim lausnum sem munu fylgja aukinni notkunar gervigreindar.- Vilja Íslendingar búa í framtíðinni?- Getur hið opinbera séð um rekstur gervigreindarlausna?- Mun gervigreind auka ójöfnuð?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25
Í þættinum er rætt við Dr. Sunjoo Advani forstjóra og stofnanda IDT (International Development of Technology) sem Boeing hefur kallað guðfaðir UPRT (Upset Prevention and Recovery Training) þjálfunar í heiminum. Tilefni heimsóknar Dr. Sunjoo til Íslands að þessu sinni er samstarf IDT og þjálfunardeildar Icelandair. Hann segir að rétt þjálfun flugmanna sé meginatriðið í að koma í veg fyrir slys eins og þau sem valdið hafa flestum banaslysum í farþegaflugi í heiminum á síðustu árum. Þau eru flest rakin til þess að flugmenn hafa af einhverjum orsökum misst stjórn á flugvélinni og í kjölfarið ekki náð að fljúga vélinni út úr slíkum aðstæðum þar sem flugvélin er komin langt út fyrir það sem kallast getur venjulegt flug. Flugvélin verður það sem skilgreint er sem „UPSET“. Dr. Sunjoo segir samvinnu allra hagsmunaaðila í flugi vera lykil að góðum árangri og hrósar samstarfi þjálfunardeildar Icelandair, Landhelgisgæslunnar og Samgöngustofu í þessum efnum. Fróðlegt spjall við merkan mann sem hefur um áratuga skeið verið í forystu á alþjóðavettvangi fyrir bættu öryggi í atvinnuflugi.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Stjórnmál Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG Rósa tekur við VG á erfiðum tíma, flokkur utan þings og fylgið mælist lítið. Hvað ætlar hún sér? Getur flokkurinn náð sér á strik á ný? Alþjóðamál Pawel Bartoszek, alþingismaður Stefán Pálsson, sagnfræðingur Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur Átökin fyrir botni Miðjarðarhafsins stigmagnast, Bandaríkjamenn lýsa ítrekað yfir andstöðu við alþjóðalög, Ísland tekur undir málflutning S. Afríku gegn Ísrael og heimsókn utanríkisráðherra til Washington virðist lýsa kuldalegri fjarlægð fremur en samskiptum við samherja. Sannarlega blikur á lofti. Evrópumál Dóra Sif Tynes, lögmaður Eiríkur Svavarsson, lögmaður Hvaða þýðingu hefur þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við ESB? Jafngildir hún aðildarumsókn? Heilbrigðismál og heilbrigðistækni Tryggvi Þorgeirsson, læknir og stofnandi Sidekick Health Davíð Ottó Arnar, yfirlæknir á Landspítala Hvernig getur stafræn heilbrigðisþjónusta styrkt heilbrigðiskerfi sem tekst á við mönnunarvanda, fjölgun aldraðra sjúklinga og vaxandi fjárþörf allt í senn. Eru til leiðir til að styrkja kerfið með því að taka upp nýja tækni í miklu ríkari mæli.
Á þessum árstíma eru kylfingar um allt land að verða alveg viðþolslausir að bíða eftir vorinu og að geta farið út á golfvelli landsins að elta litlu hvítu boltana. Reyndar nýta sífellt fleiri kylfingar innanhús aðstæður sem spretta upp út um allt land eins og gorkúlur og um helgina geta kylfingar fengið forsmekkinn af golfsumrinu í Laugardalshöllinni, en þar fer fram stórsýning á því nýjasta sem í boði er sem tengist golfi og útiveru, Golf Expo. Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri Golfsambands Íslands, og Ómar Már Jónsson, sem stendur að sýningunni um helgina, komu í þáttinn í dag. Hljómsveitin 10CC er á leið til Íslands þar sem Graham Gouldman og tónleikaband hans stíga á svið í Eldborgarsal Hörpu. Sveitin hefur áratugum saman skipað sér sess meðal merkustu nafna poppsins og tónlist hennar heldur áfram að höfða til nýrra kynslóða. Graham stofnandi, bassaleikari, gítarleikari og söngvari hefur stýrt 10CC frá upphafi en núverandi skipan byggir á traustum grunni úr sögu sveitarinnar. Guðbjartur Finnbjörnsson tónleikahaldari kom til okkar í dag. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Hann náði ekki að klára í síðustu viku þegar hann var að tala um þær þrjár leiðir sem meðvirkni getur leitt fólk inn á. Við rifjuðum þær upp og hann fór dýpra ofan í þær og hvað er hægt að gera til þess að lenda ekki í öngstræti. Tónlist í þættinum í dag: Lítið ljóð / Rebekka Blöndal (Rebekka Blöndal og Ásgeir Ásgeirsson, texti Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson) Lítið lausnarorð / Stefán Hilmarsson (Magnús Þór Sigmundsson, texti Stefán Hilmarsson og Friðrik Erlingsson) The things we do for love / 10cc (Eric Stewart & Graham Gouldman) Get Out Your Lazy Bed / Matt Bianco (Danny White & Mark Reilly) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Valdimar Þór Svavarssson ráðgjafi kom, eins og alla fimmtudaga í vetur í Mannlega þáttinn í dag og fræddi okkur um mannleg samskipti. Hann náði ekki að klára í síðustu viku þegar hann var að tala um þær þrjár leiðir sem meðvirkni getur leitt fólk inn á. Við munum því aðeins rifja þær upp og hann fer betur yfir þær og hvað er hægt að gera til þess að lenda ekki í öngstræti.
Þórarinn ræðir við Hilmar Frey Gunnarsson, húsasmíðameistara, um húsnæðismál, stjórnsýsluna, Grindavík og fleira.Hilmar telur að kerfið sporni við því að fólk geti byggt eigið heimili og að það sé nær ómögulegt miðað við áherslur stjórnvalda. Fjallað er um þetta í samhengi við aðgerðir stjórnvalda í Grindavík og hugmyndafræðilegan ágreining sem fylgir náttúruhamförum og frelsi íbúa til þess að snúa aftur heim. Byggingarstaðlar eru einnig til umræðu og hvað þyrfti að gera til þess að bæta þá. Þá er einnig rætt um mismunandi sjónarmið og menningu í byggingargeiranum sem hefur fylgt því að erlendir byggingaraðilar komi en hafa minni þekkingu á íslenskri veðráttu og byggingarstöðlum hér á landi.- Afhverju getur maður ekki byggt sitt eigið heimili?- Afhverju fá Grindvíkingar ekki að snúa heim?- Virða erlendir byggingaraðilar íslenska staðla?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me
Í dag köfum við ofan í heilbrigðisvísindasöguna – og tökum fyrir sjúkrasögu Sigmundar Freud, föður nútímasálgreiningar, sem gekkst undir meira en 30 skurðaðgerðir og geislameðferð á 16 ára tímabili vegna þess sem talið var vera munnkrabbamein. Svend Richter, fyrrverandi dósent við Tannlæknadeild Háskóla Íslands og ritstjóri Tannlæknablaðsins, kíkir til okkar í upphafi þáttar til að ræða þetta og tilgátur um hvort veikindi Freuds hafi mátt rekja til vindlareykinga eða kókaínneyslu. Páll Líndal umhverfissálfræðingur flytur okkur sinn reglulega hálfsmánaðarlega pistil. Í dag ætlar hann að deila með okkur skoðunum sínum á byggingu Nýs Landspítala. Og í lok þáttar fáum við til okkar Arnar Pálsson, erfðafræðing við Háskóla Íslands, sem er orðinn hálfgerður fastagestur hér í Samfélaginu. Hann ætlar að segja okkur frá því hvernig SARS-CoV-2-veiran, sem olli covid-faraldrinum, hefur þróast og breyst síðan faraldurinn reið yfir. Er covid núna bara kvefpest? Getur samband okkar við þessa veiru sagt okkur eitthvað um hvernig við hugsum um flókin vísindaleg fyrirbæri. Meira um þetta í síðari hluta þáttarins. Tónlist í þættinum: Una Torfadóttir - Það sýnir sig. DOLLY PARTON - Just When I Needed You Most. Bob Dylan - Oxford Town.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Alþjóðamál Valur Gunnarsson, rithöfundur Valur fjallar um nýja bók sína, Grænland og fólkið sem hvarf, þar sem hann reynir að ráða gátuna um Íslendingana sem höfðust við á Suður-Grænlandi fram á 15du öld en hurfu eftir það sporlaust. Stjórnsýsla Sigmar Guðmundsson þingflokksformaður Viðreisnar og Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra Sigmar og Sigríður fjalla um stöðu Ríkislögreglustjóra í ljósi frétta af fjármálum embættisins. Getur lögreglustjórinn setið áfram? Vaxtamál, fjármagnskostnaður Dagur B. Eggertsson alþingismaður og Lilja D. Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins rökræða þá hugmynd hvort upptaka Evru gæti lækkað vexti á Íslandi, ef ekki sú leið, hver þá? Efnahagsmál/alþjóðamál Þorsteinn Þorgeirsson, hagfræðingur, Þorsteinn fjallar um ískyggilega stöðu á bandarískum hlutabréfamarkaði þar sem verð hefur hækkað gríðarlega, svo mikið að margir búast nú við snöggri og afdrifaríkri leiðréttingu - sumsé miklu verðfalli með tilheyrandi áhrifum heima fyrir og út um allan heim. Samlíkingar hafa verið dregnar við hrunið 1929, dotcom bóluna og fleiri ámóta áföll. Er efnahagshrun framundan í Bandaríkjunum?
Rætt er við Jóhann Pétur Wium Magnússon flugsálfræðing í tilefni af áhugaverðu erindi hans á flugöryggisráðstefnunni Reykjavik Flight Safety Symposium sem haldin var nýverið. Geðheilbrigðismál hafa á síðustu árum fengið meiri athygli í fluginu eins og víða annars staðar. Nýjar reglur hafa verið settar um eftirlit og flugrekendum einnig gert að hafa úrræði til staðar fyrir sitt starfsfólk. Jóhann Pétur segir að almennt sé fólk að vakna til vitundar um andlega heilsu og umræðan sé af hinu góða því hún vinni gegn fordómum.
Stymmi Klippari, Davíð Már og Geiri Gunn mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Getur eitthvað lið í Olís deild kvenna veitt Val keppni í vetur? Er Viktor Sigurðsson til Fram kaup ársins? Sambandslaust í Garðabænum og æsispennandi leikur í Vestmannaeyjum. Eru liðin sátt með frammistöðu sína eftir að þriðjungur deildinnar er búinn? Hverjir eru búnir að vera bestir og hvað hefur komið á óvart? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins
Fjölþáttaógnir færðust nær Íslandi þegar loka þurfti Kastrup -flugvelli í Kaupmannahöfn vegna óþekktra dróna. Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra segir óvinveittum ríkjum hafa orðið ágengt með þennan hernað sinn; ein lítil og eðlileg bilun geti sett stjórnkerfið af stað. Sérfræðingur í samgöngurannsóknum segir að innviðafélag, líkt og innviðaráðherra vill stofna, ætti að geta leyst úr fjölda verkefna sem lengi hafa legið ókláruð í vegakerfinu. Þar megi ekki einblína of mikið á jarðgöng. Mörg önnur verkefni séu afar brýn, eins og brúagerð og langir kaflar á hringveginum. Útgerðarmenn og bæjaryfirvöld í Stykkishólmi kalla eftir að ráðherra gefi út reglugerð um skel- og rækjubætur tafarlaust þrátt fyrir að endurskoðun byggðakerfis í sjávarútvegi standi yfir. Þótt skelbætur hafi átt að vera tímabundin ráðstöfun benda þau á að gera þurfi upp ójafnvægi í úthlutun veiðiheimilda frá árdögum fiskveiðistjórnunarkerfisins.
Mánudagsútgáfa af Íþróttavikunni þar sem farið er yfir helgina og horft í vikuna sem framundan er.
Þriðjudagur 16. september Seðlabankastjóri, forystumaður, Konukot, 30 fyrir 30 og öryggismál Björn Leví Gunnarsson, pírati mætir til Björns Þorlákssonar og ræðir kosti seðlabankastjóra í stöðunni sem nú er komin upp í seðlabankanum. Getur ástarsamband embættismanns varðað hagsmuni heillar þjóðar? Við fáum svörin við því hér rétt á eftir. Fyrst auglýsingar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir í samtali við Gunnar Smári áherslur þingmanna hóps um öryggisstefnu Íslands og klofning innan Nató. Halldóra R. Guðmundsdóttir, forstöðukona Konukots ræðir við mig, Maríu Lilju um kæru sem barst byggingarfulltrúa Reykjavíkur frá líftæknifyrirtæki vegna fyrirhugaðrar opnunar Konukots á nýjum stað í Ármúla.Kallað er eftir aðgerðum því til til leiðar að náttúruvernd nái til 30 prósent hafsvæðis fyrir árið 2030. Þau; Sigrún Perla Gísladóttir, Valgerður Árnadóttir, Stefán Jón Hafstein eru öll í forsvari fyrir náttúruna með sínum hætti hingað komin á degi íslenskrar náttúru sem jafnframt er afmælisdagur Ómars Ragnarssonar. Þá verður jafnframt að loknu náttúru-spjalli frumsýnt í sjónvarpi, hjér á á Samstöðinni myndband sem unnið var sérstaklega til kynningar á verkefni þessu: 30 fyrir 30. Jóhannes Óli Sveinsson hefur verið kjörinn nýr formaður ungra jafnaðarmanna. Hann spjallar við Björn Þorláks.
Brot úr rauða borðinu 26. júní 2025 Getur útgerðin borgað? Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi skattstjóri, fer yfir veiðigjöld og auðlindarentu með Gunnar Smára. Ættum við kannski að setjast niður, fámenn þjóð í stóru landi með miklum auðlindum, og ákveða hvernig auðlindarentunni er ráðstafað?
Hvað gerist þegar fangar fá að koma saman til að búa til tónlist. Getur það jafnvel stuðlað að jákvæðum breytingum og hjálpað föngum að aðlagast aftur að samfélaginu? Þetta eru vísindamenn við háskólann í Osló í Noregi að rannsaka í þremur löndum, meðal annars á Íslandi. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir ræddi við tvo þeirra og fékk að vita allt um þetta áhugaverða verkefni. Hvað verður til þess að írskur athafnamaður ákveður að helga lífi sínu því að bjarga flækingshundum í Taílandi? Og af hverju hefur starf hans vakið athygli víða um heim? Ólöf Ragnarsdóttir ætlar að segja okkur sögu þessa manns og hunda sem sumir voru nær dauða en lífi en hafa eignast ný heimili víða um heim.
Nýverið kom upp sú hugmynd hvort einhverfir byggju yfir þeim hæfileikum að geta lesið hugsanir. Að sjálfsögðu er þetta kenning á þessu stigi en hvað vitum við? Getur verið að því einhverfari sem manneskja er því líklegri sé hún til að geta lesið hugsanir? Sjáum hvað setur.
Við ætlum heimskautanna á milli í þættinum í dag og einnig að huga að írska tungumálinu. Í síðustu viku bárust fréttir af ásökunum gegn manni sem er í rannsóknarleiðangri þar suðurfrá ásamt öðrum. Hann er sakaður um kynferðisofbeldi og líflátshótanir gegn félögum sínum í rannsóknarleiðangrinum, sem á að standa fram í desember. Okkur langaði að skyggnast betur inn í þennan heim og skoða betur hvaða áhrif algjör einangrun í svona langan tíma getur haft á fólk. Bjarni Pétur ræddi við Ólaf Ingólfsson sem hefur farið í fimm leiðangra á Suðurskautslandið og hann segir að það verði allir pínulítið skrítnir við þessar aðstæður. Getur hip hop bjargað írska tungumálinu? Það er góð spurning og kannski er tríóið Kneecap frá Norður-Írlandi með svarið við því. Írska er að minnsta kosti að ganga í endurnýjun lífdaga í rappi hljómsveitarinnar. Hljómsveitin hefur sagt markmið sitt vera að gera tungumálið aðgengilegra fyrir ungt fólk. En hvað er það við þessa hljómsveit sem hefur vakið nýjan áhuga á tungumálinu? Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir ræddi meðal annars við Áine Mangaong tónlistarfræðing um hljómsveitina, af hverju hún er einstök og írska tungumálið. Þá heyrum við í Hallgrími Indriðasyni, fréttamanni, sem hefur dvalið á Grænlandi síðust daga. Það hafa verið viðburðaríkir dagar þar, í gær kynnti ný ríkisstjórn samstarfssáttmála sinn og varaforseti Bandaríkjanna, J.D. Vance, sótti landið heim.
Heita Sætið 2 er komið í verslanir. Þetta er heitasta jólagjöfin í ár. Helga Hjartað er nýtt hlaðvarp sem Helgi stýrir, hvaðvarpið er komið á helstu hlaðvarpsveitur.Emmsjé Gauti var gestur hjá okkur í dag. Helgi sagði Gauta frá markþjálfa starfi sínu. Gauti ræddi eftirminnileg augnablik á Jülevenner tónleikum. Hjálmar fékk símtal frá Árekstur.is vegna óhapps sem hann lenti í um morguninn.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!
Heita Sætið 2 er komið í verslanir. Þetta er heitasta jólagjöfin í ár. Svala Björgvins og Eyþór Wöhler kíktu í hresst spjall til okkar, þau voru að gefa út geggjuð jólalög. Hópurinn ræddi um tónlistarbransann, tunglendinguna og framtíð gervigreindar.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!
„Eigum við að skipta okkur niður í hlutverk. Soffía er á skráningu. Getur þú verið með tímann á taktgreiningum fyrir okkur? Hún er í “arreste” eins og er þannig að viið þurfum að fá hana bara yfir og við bara byrjum að hnoða,“ segir Þórir Bergsson sérfræðingur í bráðalækningum þegar hann undirbýr komu sjúklings í hjartastoppi á bráðamóttökuna. Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn inn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.
Getur Ísland náð markmiðum sínum í loftslagsmálum með því að framleiða eða kaupa kolefniseiningar? Á ríkið að selja fyrirtækjum sem vilja rækta kolefnisskóga land? Og hvernig á að tryggja að kolefniseiningar sem eru framleiddar eða keyptar geri gagn, dragi úr losun eða þoki heiminum nær kolefnishlutleysi? Við ætlum að fjalla um kolefniseiningar, kaup og sölu á þeim en starfshópur um stöðu og tækifæri til viðskipta með kolefniseiningar hér á landi, skilaði í gær skýrslu með tillögum sínum, eftir rúmlega árs vinnu. Jónas Friðrik Jónsson, hæstaréttarlögmaður leiddi starfshópinn og hann spjallar við okkur í upphafi þáttar. Og í neyslusamfélaginu í dag rannsökum við dularfullt símasambandsleysi í Breiðholtinu. Á Facebook-síðu íbúasamtakanna Betra Breiðholts greina margir íbúar frá óútskýrðu sambandsleysi víða í hverfinu. Við fáum til okkar sérfræðing til að reyna að skilja mögulegar ástæður og átta okkur á því hvað sé til ráða. Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, mætir svo glóðvolg í vísindaspjallið í síðari hluta þáttarins. Tónlist í þættinum: BIG THIEF - Certainty. Wilson, Steven - Personal Shopper.
Landsleikjahléið er búið og fjórða umferðin í ensku úrvalsdeildinni var leikin um helgina. Ágúst Unnar Kristinsson og Óliver Elís Hlynsson, leikmenn ÍR, mættu í heimsókn og fóru yfir málin. Arsenal vann meistarasigur gegn erkifjendum sínum í Tottenham, raunveruleikatékk fyrir Arne Slot, Haaland er vélmenni og Manchester United komst aftur á sigurbraut gegn Southampton. Þetta og fleiri í þætti dagsins af Enski boltinn. Enski boltinn er í boði Nova.
Hvað er perioral dermatitis og af hverju er þetta svona algengur sjúkdómur? Getur verið að aukin notkun virkra húðvara ýti undir einkennin? Í þessum þætti svörum við þessum spurningum og mörgum fleiri varðandi bólgusjúkdóminn perioral dermatitis.
Dr. Football sat með Jökli Vilhjálmssyni, Gústa from the furture og Daníel Ólafssyni.
Jey! Ein uppáhalds mantran mín undanfarin ár fær loksins heilan þátt! Vá hvað ég er spennt að þið fáið að hlusta á þessa litlu hjálplegu speki. Skoðaðu betur Fullvalda LÍF prógrammið sem ég lýsi í þættinum. Gerðu sjálfsvinnuna skemmtilegri í góðum hópi kvenna! Sendu mér skilaboð á instagram og segðu mér hvað þér fannst eða ef þú ert með spurningar um markþjálfun hjá mér.
Skjóta nefnist ný íslensk ópera eftir Sigrúnu Gyðu Sveinsdóttur en hún var frumflutt í Ásmundarsal um síðustu helgi. Óperan fjallar um fótbolta og loftslagsbreytingar og hvernig hálfleikur í fótbolta getur verið myndlíking fyrir afmarkaðan tíma, til ákvarðanatöku, í loftslagsmálum. Verkið blandar saman nýklassískum söng og kraftmikilli danstónlist en leikur sér einnig með rýmið í Ásmundarsal á skapandi hátt. Við ræðum við Sigrúnu Gyðu í þætti dagsins. Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, verður einnig með okkur í dag og heldur áfram að fjalla um félagslegt húsnæði og hýbílaprýði hér á landi. Fjölmenningarsamfélag krefst nýrra orða, hugmynda og nálgana. Hvaða orð og hugtök skortir okkur til þess að fanga breyttan veruleika? Getur þróun tungumálsins haldið í við síbreytilegt samfélag? Þessum spurningum og eflaust mörgum fleiri verður velt upp í Eddu, húsi íslenskunnar, í tengslum við listahátið á sunndag. Viðburðurinn kallast Rótarskot og er einskonar stefnumót skálda með innflytjendabakgrunn og fræðafólks frá Árnastofnun. Rithöfundurinn Pedro Gunnlaugur Garcia, sem stýrir viðburðinum, verður gestur okkar í dag, og einnig flytur skáldið Ewa Marcinek ljóð.
Live Show Hæhæ verður 28. júní í Gamla Bíó. Hæhæ Pub-Quiz verður í Keiluhöllinni 6. júní. Vilbjörn byrjaði þáttinn á því að segja hvaða eiginleika forseti þarf að hafa. Hjálmar hefur ekki gengið í gallabuxum síðan 1990 og eitthvað. Helgi hringdi í Sjóvá og bað þá afsökunar. Helgi gaf Hjálmari tvo mjög erfiða valkosti.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!
Kærasti systur Helga lét Helga heyra það þegar Liverpool tapaði leik um daginn. Strákarnir ræða messenger hópa spjöll. Helgi heyrði í Steinunni Ólínu til að fá það staðfest hvor er rómantískari, Helgi eða Hjálmar.IG: helgijean & hjalmarorn110Hægt er að sjá þáttinn í mynd á pardus.is! Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Hjálmar kom með risafréttir af sjálfum sér. Helgi hringdi í Evu Ruzu en hún sagði hvað Hjálmar hafi brallað í síðustu viku. Helgi er að reyna að komast inn í hæglætisfélagið og bíður spenntur eftir svari frá þeim. Hjálmar ætlar að fara í 90 daga átak sem hefst 1. MarsIG: helgijean & hjalmarorn110Þættina má finna í mynd inni í áskrift á pardus.is!Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Jói Már, Viktor Unnar og Dr. Football.
Hættan af sprungum í Grindavík er viðvarandi og verður næstu misseri og ár, segir Benedikt Ófeigsson jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni. Hættan í bænum er heilt yfir talin minni, en samt mjög mikil hvað sprungur varðar. Víðir Reynisson sviðsstjóri almannavarna vonast til að geta kynnt á morgun skipulag um hvernig Grindvíkingar, sem búa vestan Víkurbrautar, geta komist að vitja eigna sinna. Hann segir að nýjar sprungur hafi komið í ljós í dag austan megin í bænum og að það sé lengra í að íbúar komist þangað. Bændum í Frakklandi fækkar stöðugt. Stéttin eldist og afkoman versnar. Þetta er ástandið sem stéttin býr við í stuttu máli. Bændur segjast vera búnir að fá nóg og krefja stjórnvöld um aðgerðir.
Getur þáttarins er Snorri Steinn Guðjónsson - þjálfari handboltalandsliðsins. Umsjón hafa Helgi og Keli.
Þóra Arnórsdóttir ræðir við Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðing um eðli og tilgang upprunaábyrgða. Til hvers var kerfið búið til og hver er ávinningurinn af því fyrir íslensk orkufyrirtæki og almenning? Hverjir kaupa þessi grænu skírteini og hvers vegna? Virkar kerfið eins og lagt var upp með? Getur Ísland sleppt því að taka þátt? Hvaða áhrif hefði það?
AFSAKIÐ SEINLEIKANN OG SMÁ SKRÝTIÐ HLJÓÐ! Kalli, Maggi, Valsi og Matti komu saman og fóru yfir leikviku sex sem var fremur döpur í sannleika sagt EN það þarf að njóta þegar maður er með NFL á skjánnum! Einnig var spáð fyrir leikviku 7! Allt saman tekið upp í Nóa Síríus stúdíóinu hjá Podcaststöðinni! Boli - TUDDI! Léttöl! Rautt er fallegt allan ársins hring! Pítan - Saffran! Kansas er fyrirtæki fólksins! Lengjan, gerir leikinn skemmtilegri! Gæða veðmál á íslenskum grundvelli! ARENA GAMING! Heimavöllur NFL á Íslandi! Smala saman vinunum og skella sér í proper gæði! Risaskjáir og alvöru tilboð!
17. október 2023 Palestínumenn segja um 500 manns hafa fallið í loftárás á sjúkrahús á Gaza. Betur fór en á horfðist þegar stíflueyðisdufti var kastað í andlit tólf ára stúlku. Yfirmaður öryggismála hjá sænska knattspyrnusambandinu varar stuðningsfólk landsliðsins við því að klæðast treyjum liðsins erlendis. Harkalegu ofbeldi er æ oftar beitt í kynlífi þannig að leiði til ákæru. Hjúkrunarrýmum í Seljahlíð í Breiðholti verður lokað 1. febrúar. Ekki á að fækka hjúkrunarrýmum heldur verða þau færð á önnur hjúkrunarheimili. Sjö ára norskur drengur sem leitað hafði verið síðan síðdegis á sunnudag er látinn. ---- Yfirmaður öryggismála hjá Sænska knattspyrnusambandinu telur að stuðningsfólk landsliðsins setji sig í hættu klæðist það gulbláu landsliðstreyjunni. Tveir áhangendur liðsins voru skotnir til bana í Brussel í gærkvöld. Stjórnarskipti blasa við í Póllandi. Flestir telja að stjórn leidd af Donald Tusk myndi leiða landið á nýjar slóðir, halda því í Evrópu og draga úr áhrifum kirkjunnar. Getur innritunarkerfi í framhaldsskóla haft mikil áhrif á það hvernig fólki vegnar í lífinu? Og vitum við hvernig nemendum vegnar í framhaldsskólum og hvernig gengur í skólakerfinu sjálfu?
17. október 2023 Palestínumenn segja um 500 manns hafa fallið í loftárás á sjúkrahús á Gaza. Betur fór en á horfðist þegar stíflueyðisdufti var kastað í andlit tólf ára stúlku. Yfirmaður öryggismála hjá sænska knattspyrnusambandinu varar stuðningsfólk landsliðsins við því að klæðast treyjum liðsins erlendis. Harkalegu ofbeldi er æ oftar beitt í kynlífi þannig að leiði til ákæru. Hjúkrunarrýmum í Seljahlíð í Breiðholti verður lokað 1. febrúar. Ekki á að fækka hjúkrunarrýmum heldur verða þau færð á önnur hjúkrunarheimili. Sjö ára norskur drengur sem leitað hafði verið síðan síðdegis á sunnudag er látinn. ---- Yfirmaður öryggismála hjá Sænska knattspyrnusambandinu telur að stuðningsfólk landsliðsins setji sig í hættu klæðist það gulbláu landsliðstreyjunni. Tveir áhangendur liðsins voru skotnir til bana í Brussel í gærkvöld. Stjórnarskipti blasa við í Póllandi. Flestir telja að stjórn leidd af Donald Tusk myndi leiða landið á nýjar slóðir, halda því í Evrópu og draga úr áhrifum kirkjunnar. Getur innritunarkerfi í framhaldsskóla haft mikil áhrif á það hvernig fólki vegnar í lífinu? Og vitum við hvernig nemendum vegnar í framhaldsskólum og hvernig gengur í skólakerfinu sjálfu?
Helgi er nýkominn úr retreati á Vestfjörðum, þar sem hann lenti í veseni þegar hann reyndi að kaupa hamborgara í sjoppu. Strákarnir athuguðu hvort það væri hægt að skrá Hjálmar á hlutabréfamarkaði.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Landsliðs-Innkast eftir óþolandi tap gegn Portúgal á Laugardalsvelli. Cristiano Ronaldo skoraði sigurmarkið í lok leiksins en Ísland hafði þá misst Willum Þór Willumsson af velli með rautt spjald. Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og nýjasti besti vinur Ronaldo, Sæbjörn Steinke, gerðu upp leikinn og rýndu í stöðuna.
Til þess að heyra fleiri þætti eins & þennan + yfir 200 til viðbótar - Getur þú skráð þig í illverk áskriftina, þú getur gert það HÉR
Eins og þið Teboðsbesties vitið þá er heitasta umræðan núna The Kardashian Downfall. Sem þýðir að árið 2023 sé endirinn á áhrifum og frægð Kardashian/Jenner systranna. Getur það verið?? Við ætlum að ræða afhverju fólk heldur því fram, hvaða kenningar eru að streyma um netheimana og hvort við teljum þetta vera rétt??!!? MUN ÞEIM EÐA MUN ÞEIM EKKI VERA BOÐIÐ Á MET GALA?!? Tune in besties
THEM er verk um karla að díla við eitraða karlmennsku og konur að díla við karla - og öll að reyna bara að fá að vera… bara vera! Fjórar konur frá Íslandi og Finnlandi kafa ofan í heim karla og segja sögur af ást, stolti, föðurhlutverkinu og óttanum við að vera öðrum byrði. Með því að heimsækja líf annarra leitast leikkonurnar við það að skilja sína eigin stöðu í heimi sem ekki er hannaður fyrir þær. Leikverkið THEM er sýnt aðeins einu sinni í viðbót þann 14. mars í Tjarnarbíói (miðar á TIX) og er afrakstur af viðtalsrannsókn við fjölda karla á Íslandi og Finnlandi. Leitast leikarnir við að varpa ljósi á karlmennsku af mýkt og næmni, án þess að dæma en þó þannig að áhorfandinn geti speglað sig og sín eigin viðhorf. Við spjöllum um leikverkið, tilurð þess, áhrif metoo byltingarinnar sem kemur inn í mitt sköpunarferlið og það hvort og hvers vegna konum leyfist að gera leiksýningu um karlmennsku. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Viðmælendur: Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir leikkonur. Veganbúðin, ÖRLÖ, BM Vallá og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn. Þú getur gerst bakhjarl á karlmennskan.is/styrkja
Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn skoða F, G og H riðla heimsmeistaramótsins og helstu fréttir. Arnar Þór Viðarsson gefur innsýn í belgíska liðið og Aksentije Milisic í það serbneska.
AI og Sigurður fara yfir þá bestu og enska. Getur ekki klikkað
Það var leikið í ensku úrvalsdeildinni um helgina og litu nokkur óvænt úrslit dagsins ljós. Stærst var það að nýliðar Nottingham Forest lögðu Liverpool. Það voru meiðslavandræði hjá Liverpool sem höfðu mikil áhrif. Gummi og Steinke fara vel yfir umferðina; rætt er um óvæntan sigur Forest, stórleik Chelsea og Manchester United, ferð á Tottenham Hotspur Stadium og margt fleira. Þá er rætt um Unai Emery sem er kominn aftur í enska boltann, tekinn við Aston Villa af Steven Gerrard.
Doc fékk Sigurð og Hörð Snævar til að ræða Lengjudeildina og Meistaradeildina.