Deiglan

Follow Deiglan
Share on
Copy link to clipboard

Deiglan Radio - netvarp Deiglunnar. Deiglan er almennt félag með aðsetur í Reykjavík. Útgáfan er ekki rekin í hagnaðarskyni og allt vinnuframlag tengt útgáfunni, þar með talið skrif, hönnun og forritun, er sjálfboðastarf félagsmanna. Pistlahöfundar hafa óskorað frelsi í efnistökum sínum og kunna áhe…

Þórlindur Kjartansson


    • Apr 11, 2021 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 52m AVG DURATION
    • 26 EPISODES


    Search for episodes from Deiglan with a specific topic:

    Latest episodes from Deiglan

    Radíó Deiglan 2021_06 – Á undan sinni framtíð

    Play Episode Listen Later Apr 11, 2021 44:46


    Ræða álitamál sem upp hafa komið í skrifum á Deiglunni síðustu vikuna. Meðal annars fara þeir yfir ýmis konar erindisrekstur sem úthverfafólk þarf að sækja í miðborgina og rifja upp framsýnan pistil stofnandans. Í lokin bjóða þeir upp á ráðgjafaþjónustu fyrir þá hlustendur sem hafa áhuga á því að gerast aðdáendur hafnaboltans.

    Radíó Deiglan 2021_05 Grímulaus æska

    Play Episode Listen Later Feb 28, 2021 29:35


    Einu mennirnir með viti ræða um jarðhræringar og sóttvarnir eins og allir landsmenn. En þar að auki er rætt ástandið á gamalli Ford-bifreið sem þarf á meiri spennu að halda í tilveru sína, annars gæti illa farið.

    Radíó Deiglan 2021_04-Brave New World

    Play Episode Listen Later Feb 21, 2021 34:22


    Hafsteinn Gunnar Hauksson og Þórlindur Kjartansson spjalla saman um hugleiðslu, vímuefni, fíkniefni og bókina Brave New World. Bara svona eins og fólk gerir í hádeginu á laugardögum.

    Radíó Deiglan 2021_03-Meiri loftgæði

    Play Episode Listen Later Feb 14, 2021 39:50


    Einu mennirnir með viti fjalla áfram um raka og loftgæði. Borgar Þór býður upp á nýja þjónustu sem stendur eingöngu til boða á Seltjarnarnesi. Þeir rifja upp dagana þegar veik von um bólusetningu þjóðarinnar varð að algjörri fullvissu. Að lokum er farið ýmis áhugaverð atriði í tengslum við körfuboltadómgæslu, en Þórlindur átti fyrir höndum tvo leiki síðar um daginn.

    Radíó Deiglan 2021_2 – Kjötsúpa

    Play Episode Listen Later Jan 31, 2021 49:42


    Einu mennirnir með viti halda áfram rannsóknum á rakastigi og fjalla um þann leyndarhjúp sem virðist vera um raunverulegt ástand raka á landinu. Þeir ræða um mögulegan forystumann í málefnum Reykjavíkurborgar. Stærstur hluti þáttarins fer þó í að ræða háþróaðar aðferðir Borgars Þórs í kjötsúpugerð.

    Radíó Deiglan 2021_01 – Loftgæði

    Play Episode Listen Later Jan 17, 2021 53:17


    Einu mennirnir með viti heilsa nýju ári og halda upp á afmæli tveggja ritstjóra við erfið en batnandi loftgæði á 8. hæð við Austurströnd. Eftir ítarlega umfjöllun um margvíslegar lausnir í þeim efnum fara þeir stuttlega yfir helstu málefni samtímans, faraldurinn og valdaskiptin í Bandaríkjunum. Og Diego Maradona kemur við sögu.

    Radío Deiglan 20_23 Stjörnufræði og speki, faraldsfræði og speki

    Play Episode Listen Later Dec 27, 2020 60:51


    Í síðasta þætti Radíó Deiglunnar árið 2020, og þeim 23., ræða Einu mennirnir með viti® um daginn, nóttina, veginn og vegaleysur. Fjallað er um sóttvarnalimrur sem gætu komið í stað opinberra sóttvarnaráðstafana og í framhaldinu um verndarhagsmuni sóttvarna- og umferðarlaga. Einnig er tæpt á því helsta sem fram fór á jólaglögg Deiglunnar 2020.

    Radíó Deiglan 20_22-Maradona með meiru

    Play Episode Listen Later Dec 6, 2020 73:30


    Í 22. þætti Radíó Deiglunnar á þessu ári spjalla Einu mennirnir með viti saman um átrúnaðargoðið Diego Armando Maradona og fara yfir fjölbreytt pistlaskrif á Deiglunni síðustu tvær vikur.

    Radíó Deiglan 20_21—Pistlar vikunnar

    Play Episode Listen Later Nov 22, 2020 52:28


    Einu mennirnir með viti fara yfir blómleg pistlaskrif á Deiglunni í liðinni viku. Þar gætti ýmissa grasa og gáfu skrif vikunnar tilefni til margvíslegra vangaveltna.

    Radíó Deiglan 20_20 – Heilinn

    Play Episode Listen Later Oct 25, 2020 63:41


    Davíð Guðjónsson og Þórlindur Kjartansson tala saman um heilann og mikilvægi félagslegra tengsla fyrir manninn. Maður er jú manns gaman. En á tímum covid þá er fólki kennt að forðast hvert annað og jafnvel hræðast, og ungt fólk sem elst upp við þessar aðstæður gæti misst af tækifærum til að mynda ómetanleg vinabönd, eins og þeir félagarnir gerðu þegar þeir kynntust í menntaskóla.

    Radíó Deiglan 20_18 – Kapítalisminn kvaddur

    Play Episode Listen Later Aug 23, 2020 47:24


    Í átjánda þætti ársins tala þeir saman Þórlindur Kjartansson og Pawel Bartoszek um árstíðirnar og Pawel útskýrir af hverju eina rétta svarið við spurningu um uppáhaldsárstíð sé haustið. Svo fer samtalið um víðan völl þar sem sem siðfræði og kapítalismi koma við sögu, einkum spurningar um það hvort hagnaðarvon eða græðgi sé líkleg til þess … Lesa áfram Radíó Deiglan 20_18 – Kapítalisminn kvaddur →

    Radíó Deiglan 20_17 – Ungdómurinn

    Play Episode Listen Later Aug 9, 2020 69:57


    Í sautjánda þætti Radíó Deiglunnar á árinu reyna frændurnir Þórlindur Kjartansson og Kjartan Sveinn Guðmundsson að brúa kynslóðabilið í samtali um allt það sem hæst ber í samfélaginu um þessar mundir og um það sem gengur á í afkimum internetsins þegar foreldrarnir sjá ekki til. Þeir fara yfir félagsleg, fjárhagsleg, menningarleg, líkamleg og andleg áhrif … Lesa áfram Radíó Deiglan 20_17 – Ungdómurinn →

    Einu mennirnir með viti – 20_16 Sögur af landi

    Play Episode Listen Later Jul 26, 2020 54:25


    Einu mennirnir með viti settust niður á laugardagskvöldi og spjölluðu saman um ferðasumarið á Íslandi 2020, íslenskasta sumar í heila kynslóð. Og úr því fór umræðan yfir í íslenskasta tónlistarmann þeirra allra—Bubba Morthens, sem verið hefur innblástur allra skrifa á Deigluna í þessum mánuði.

    Radíó Deiglan 20_15 – Bylting einhver sagði

    Play Episode Listen Later Jul 12, 2020 47:26


    Í fimmtánda þætti Radíó Deiglunnar í ár ræða Þórlindur og Þórhildur saman á afmælisdegi hins fyrrnefnda og hann fær kennslustund í femínisma í afmælisgjöf. Hver er munurinn á jafnrétti og femínisma? Hversu ólík eru kynin? Eru stjórnunarhættir karla og kvenna ólíkir? Eiga karlar að vera hjálpsamir inni á heimilinu, eða mega þeir ráða einhverju sjálfir? … Lesa áfram Radíó Deiglan 20_15 – Bylting einhver sagði →

    Radíó Deiglan 20_14 – Frelsið með Þórhildi

    Play Episode Listen Later Jun 28, 2020 78:52


    Í fjórtánda þætti ársins tala Þórlindur Kjartansson og Þórhildur Þorleifsdóttir um alls konar frelsi. Þau tala um kvenfrelsi, græðgi, pólitískan rétttrúnað, barnauppeldi, persónufrelsi og einkalíf, hagfræði, listsköpun og samt er þátturinn bara rétt rúmlega klukkutími. Og já—Þórhildur segir frá því þegar hún bar út Morgunblaðið. Þátturinn var tekinn upp 26. júní 2020. Radíó Deiglan er … Lesa áfram Radíó Deiglan 20_14 – Frelsið með Þórhildi →

    Radíó Deigan 20_11 – Í kófinu

    Play Episode Listen Later Jun 14, 2020 50:14


    Í ellefta þætti ársins spjalla Einu mennirnir með viti saman fremur stefnulaust um ástand mála í eigin lífi, samfélaginu og heimsbyggðinni. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir sjálfhverfu eru varaðir við þessum þætti.

    20_12 – Hótel Kalifornía

    Play Episode Listen Later May 3, 2020 61:35


    Þórlindur Kjartansson og Jón Steinsson, hagfræðiprófessor í Berkley í Kaliforníu, spjalla saman um ástandið hér og þar. Jón lýsir ástandinu í útgöngubanninu í sumarsælunni við San Francisco flóa. Þeir ræða um ólíka nálgun stjórnvalda og sérfræðinga í Bandaríkjunum og á Íslandi. Þeir ræða líka um kreppur og farsótti, breytingar á atvinnháttum og margt fleira. Í … Lesa áfram 20_12 – Hótel Kalifornía →

    Radíó Deiglan 20_10 Værukærð er veirukærð

    Play Episode Listen Later Apr 26, 2020 32:26


    Hægri mennirnir með vinstri kjörþokkann ræða um vinsældir annars þáttastjórnandans og vinsældir þáttarins. Hlustendur eru minnstir á að sá sem er værukær eru veirukær og í lokin er fjallað um að sumarið 2020 verður að öllum líkindum líkara sumrinu 1985 heldur en 2019.

    20_10 Illugagatan – Takk Vigdís

    Play Episode Listen Later Apr 19, 2020 41:10


    Nýr þáttur „Illugatan“ hefur göngu sína á Radíó Deiglunni. Brynjólfur Ægir Sævarsson og Þórlindur Kjartansson ræða um hvaðeina sem þeim dettur í hug. Í þessum þætti útskýra þeir fyrst hvernig heiti þáttarins er komið til og rifja upp kaffitíma á laugardagsmorgnum. Svo stökkva þeir á #takkVigdís vagninn. Brynjólfur rifjar upp pólitísk klókindi sín þegar hann … Lesa áfram 20_10 Illugagatan – Takk Vigdís →

    Radíó Deiglan 20_09-HFMVK – Hraunbitar

    Play Episode Listen Later Apr 13, 2020 34:17


    Hægra fólkið með vinstri kjörþokkann fagnar því að fulltrúi þáttarins sé kominn á þing. Þessi smávægilega breyting á ráðahag annars þáttastjórnandans er þó afgreidd sem tiltölega smávægilegt aukaatriði í samanburði við mikilvægustu umfjöllunarefni þáttarins sem eru annars vega Hraunbitar og hins vegar brauðtertur.

    Radíó Deiglan 20_08 – HFMVK – Þríeykið

    Play Episode Listen Later Apr 5, 2020 43:11


    Þórlindur Kjartansson og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir spjalla saman. Fyrst ræða þau stuttlega um höfuðsyndirnar sjö í tilefni þess að sería Einu mannnanna með viti hefur verið endurútgefin. En meginefni þáttarins er umfjöllun um heitasta sjónvarpsefnið í dag, Þríeykið. Rætt er um gagnkvæma rafræna aðdáun Þorgjargar Sigríðar og Víðis Reynissonar og tekin ákvörðun um að hann … Lesa áfram Radíó Deiglan 20_08 – HFMVK – Þríeykið →

    Einu mennnirnir með viti – S02E07 – Syndin Losti – Endurbirt

    Play Episode Listen Later Mar 31, 2020 57:51


    Einu mennirnir með viti ljúka umfjöllun sinni um höfuðsyndirnar sjö í lostafengnu uppgjöri við sínar dýrslegustu hvatir. Hafi Einu mennirnir með viti gengið nálægt sjálfum sér í fyrri umfjöllunum þá má segja að þeir séu komnir alveg inn að skinni í þetta sinn. Hlustendur eiga ekkert minna skilið en að þáttastjórnendur komi til dyranna eins … Lesa áfram Einu mennnirnir með viti – S02E07 – Syndin Losti – Endurbirt →

    Einu mennnirnir með viti – S02E06 – Syndin Reiði – Endurbirt

    Play Episode Listen Later Mar 31, 2020 64:49


    Fyrri hluti annarrar seríu hjá Einu mönnunum með viti er óðum að renna sitt skeið á enda. Í næstsíðasta þættinum er fjallað um reiðina. Þáttastjórnendur eru jafnvel enn persónulegri og berskjaldaðri heldur en í umfjöllun um aðrar syndir – enda hafa þær af nógu að miðla í þessum efnum. Corleone fjölskyldan kemur mjög mikið við … Lesa áfram Einu mennnirnir með viti – S02E06 – Syndin Reiði – Endurbirt →

    Einu mennnirnir með viti – S02E05 – Syndin Ofát – Endurbirt

    Play Episode Listen Later Mar 31, 2020 58:11


    Einu mennirnir með viti halda áfram að leggja þjóðinni lífsreglurnar í umfjöllun sinni um höfuðsyndirnar sjö. Að þessu sinni er hlustendum boðið upp á að fá fylli sína – og rúmlega það – af umfjöllun um ofát. Þeir og ausa einnig úr brunni takmarkaðrar þekkingar sinnar á ofdrykkju – og bjóða þar að auki upp … Lesa áfram Einu mennnirnir með viti – S02E05 – Syndin Ofát – Endurbirt →

    Einu mennnirnir með viti – S02E04 – Syndin Öfund – Endurbirt

    Play Episode Listen Later Mar 31, 2020 69:04


    Einu mennirnir með viti bera saman bækur sínar um öfundina og fjalla um ýmsar hliðar á fjórðu höfuðsyndinni sem tekin er fyrir í þáttaröðinni. Johnny Cash og John Lennon koma við sögu – en líka Jimmy Hendrix og að sjálfsögðu Mjallhvít og JR Ewing. Þáttastjórnendur fara yfir öfundina í sínu eigin fari og annarra og … Lesa áfram Einu mennnirnir með viti – S02E04 – Syndin Öfund – Endurbirt →

    Einu mennnirnir með viti – S02E03 – Græðgi – Endurbirt

    Play Episode Listen Later Mar 31, 2020 63:02


    Einu mennirnir með viti halda áfram að synda í syndunum sjö. Þeir halda því fram að þeir séu býsna saklausir af synd þáttarins – græðginni – en Magnús Þór Torfason, gestur þáttarins, bendir þeim á eina tegund græðgi sem þeir geta ekki algjörlega skilið sig undan. Einu mennirnir með viti ræða líka um réttarfar í … Lesa áfram Einu mennnirnir með viti – S02E03 – Græðgi – Endurbirt →

    Claim Deiglan

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel