POPULARITY
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdí´ó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Landsliðið gerði góða ferð til Egyptalands og sigraði heimamenn í tveim æfingarleikjum. Yngri flokkarnir kláruðust um helgina með handboltaveislu í Kaplakrika. Hafa niðurstöður kosninganna áhrif á þj´álfaramál ÍR? Óvænt úrslit í undankeppni HM. Skuldir HSÍ og hvað ætlum við að gera með Handboltapassan? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Velkominn í þátt 300 af Chess After Dark - sögulegur áfangi sem við ætlum að halda upp á með gesti sem þarf vart að kynna.Fimmti forseti lýðveldisins, fyrsti prófessor Háskóla Íslands í stjórnmálafræði, fyrrverandi fjármálaráðherra og núverandi stjórnarformaður Hringborðs Norðurslóða - Ólafur Ragnar Grímsson.Umræðuefni í þættinum:NorðurslóðirLoftslagsmálStórveldinEvrópa og ESBStaða ÍslandsForsetaembættiðFramtíðin - ráð til yngri kynslóðarÞessi þáttur er í boði:KaldiÍslandssjóðirSESSORKappahlKrónanKolumbus ÆvintýraferðirOrka NátturunnarGIGGÓELKOPaydayFröken ReykjavíkKvikmyndaskólinnSuit UpBad MickeyLengjanDave&JonsFrumherjiNjótið vel kæru hlustendur.
Var einn besti fótboltaleikur sögunnar spilaður í gær? Rosalegur afmælisdagur. Björn Berg fer yfir hvernig Reykjavíkurborg reiknar með 400milljón króna afgangi í nóvember en er rekinn í 5 milljarða halla. Framtíðarreikningur barna tekin fyrir líka. Top 7 RG listi vikunnar er athyglisverður. Hopp frímínutur. Mjúku spurningarnar. Meira til!
Þriðjudagur 10. mars ESB, Icelandair, stjórnmálasaga, framtíðin og andlegt líf Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, efast ekki um að í efnahagslegu tilliti gæti verið eftir miklu að slægjast fyrir Ísland að ganga í ESB. Þórður Snær ræðir við Björn Þorláks. Doktor Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur ræðir í spjalli við Björn Þorláks þátt hins opinbera í þjóðaröryggismálum og einkum í millilandaflugi Íslendinga vegna veikrar stöðu Icelandair. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræðir umræðuhefð stjórnmálamanna í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst sem og sögulegan fróðleik. María Lilja spaír í framtíðina og eru viðmælendur hennar Urður Vala og Tíbrá Myrra Freysdætur. Áhugi á trúmálum virðist fara ört vaxandi og prestar sjá breytingar í kirkjustarfi. Séra Sveinn Valgeirsson dómkirkjuprestur reynir að greina orsakir breytinganna í samtali við Björn Þorláks.
Skidresa, svarta backar i första åket och en OS-dag i Cortina som slutar i total chock när Lindsey Vonn kraschar. Sen: rakt in i iskalla Stockholm, lösa framtänder efter pulkabackskaos och mellanlandningar som plötsligt känns… helt okej?Produceras av More Than Words Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Þórarinn ræðir við Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamann með meiru, um stjórnmálin, fjölmiðla, rétttrúnaðinn, menntamál og andverðleikasamfélagið.Jakob telur hugmynd almennings um einkenni og hlutverk fjölmiðla vera brenglað. Hann segir að hlaðvörp séu að sjálfsögðu ekki fjölmiðlar og það að endurtaka fréttir annarra geri menn ekki að blaðamönnum. Þá sé það sérstaklega einkennilegt þegar slíkir einstaklingar eru jafnvel að þiggja fjölmiðlastyrki.Einnig er rætt um sérkennilegt verðmat á fjölmiðlum þar sem hið opinbera plokkar frambærilega blaðamenn úr fjölmiðlastéttinni til þess að gerast almannatenglar eða annað fyrir stofnanir. Inga Sæland veður nú í menntaelítuna og ætlar hún sé stóra hluti í þeim efnum. Rætt er um það í samhengi við læsi og fleira.Er hamingjusama hóran til? Því er svarað hér og fjallað um aðför rétttrúnaðarins að Stefáni Einari Stefánssyni, blaðamanni hjá Morgunblaðinu nú nýverið þegar hann gerði gys á kostnað Nönnu Rögnvaldar sem féll illa í kramið hjá sumum.- Er hamingjusama hóran til?- Er Samstöðin fjölmiðill eða hlaðvarp á sterum?- Lifum við í andverðleikasamfélagi?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me
Í dag hefjast Myrkir músíkdagar, sem standa yfir fram á sunnudag. Við lítum við á æfingu fyrir upphafstónleika Myrkra hér í upphafi þáttar og hittum fyrir þær Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur og Báru Gísladóttur, sem báðar eiga ný hljómsveitarverk sem frumflutt verða á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg í kvöld. Katla Ársælsdóttir rýnir í Merg, nýtt íslenskt tón og leikverk eftir Katrínu Lóu Hafsteinsdóttur, og við lítum inn í Hafnarhús þar sem Katrín Elvarsdóttir opnaði sýninguna Blómstrandi framtíð um liðna helgi. Þar mætast heimar ólíkra plantna sem allar hafa ríkulega sögu að segja.
Þórarinn ræðir við Kolbein H. Stefánsson, kennara við félagsfræðideild háskóla Íslands, og Jökul Sólberg, frumkvöðul og sósíalista.Kastljósinu er beint að alþjóðastjórnmálunum og er rætt um það hvaðan uppspretta nýju strauma heimsvaldastefnunnar er að finna. Fjallað er um Venezuela, þjóðernishyggju, peningastefnu Evrópu, Þorgerði Katrínu, Rússland og Úkraínu.- Eru til jákvæðar hliðar þjóðernishyggju?- Væri sanngjarnt að skila einræðisherranum?- Hvaða stöðu ætti Ísland að taka sér?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me
Gestur okkar í kvöld er María Björk Einarsdóttir forstjóri Símans.María Björk hóf störf hjá Símanum í september 2024.María kom til Símans frá Eimskip þar sem hún starfaði sem fjármálastjóri frá árinu 2021.Umræðuefni í þættinum:Síðasta uppgjörExpansion pælingarStefna & FramtíðarsýnHvaða starfsþættir drífa afkomuna?FjártækniSjónvarp SímansEnski boltinnNýtt skipuritBeefið við SýnStokkurinn og vegferðinRiddaraspurningarÞessi þáttur er í boði:KALDIWOLTÍslandssjóðirSmáríkiðGrillmarkaðurinnOrka NátturunnarDineoutHappatreyjurAPRÓSjöstrandBLUSHLengjanSubwayDave&JonsFrumherjiKEMIEagle golfferðirSuitUpNjótið vel kæru hlustendur.
Ólöf Birna Torfadóttir er handritshöfundur og leikstjóri. Hún hefur meðal annars gert kvikmyndirnar Hvernig á að vera klassadrusla sem kom út árið 2021 og Topp 10 möst sem kom út árið 2024. Ólöf kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá ferlinu á bakvið þessar kvikmyndir. Þau ræða einnig hvernig gervigreind mun breyta kvikmyndaiðnaðinum, hversu mikilvægt það er að vera með gott handrit, hvernig Ólöf nálgast handritagerð þegar hún kennir nemum í Kvikmyndaskólanum, hvort sjónvarpsefni sé betra í dag en í gamla daga og margt, margt fleira.00:00 - Intro00:15 - Bíóblaður spurningaspil02:01 - Handrit skipta máli15:05 - Framtíð kvikmynda og A.I.25:07 - Kvikmyndanám og gæði handrita38:46 - Sjónvarpsþættir45:49 - Streymisveitur og bíóaðsókn59:07 - Hvernig á að vera klassa drusla1:09:35 - Topp 10 möst1:14:41 - Kvikmyndasjóður1:28:20 - Genre myndir á Íslandi1:30:36 - Topp 10 möst1:50:16 - Grín er ekki að selja2:06:57 - Kvikmyndasjóður2:12:06 - Draumaverkefni og lokaorð
AI, SEO och framtidens synlighet: Hur förändras spelet för marknadsförare?Från AI Mode till ChatGPT – vad betyder de nya söktrenderna för synlighet och trafik?SEO i en AI-driven värld: AI, LLM och kampen om synlighetNär Google skakar om SERPen – AI Overview, ChatGPT och nästa steg för SEOSynlighet bortom Google: AI, sociala medier och den nya organiska trafikenAI-fokus: Du har både AI Overview, AI Mode och diskussioner kring ChatGPT/LLM → dessa behöver framgå i titeln.SEO-kärnan: Frågor om synlighet, trafik och E.E.A.T är centrala för att rama in diskussionen.Framtåblick: En titel som pekar på framtiden signalerar att diskussionen handlar om strategi, inte bara nuläget.
Kan du inte vänta tills måndag eller torsdag? Vill du ställa en lyssnarfråga? Gå in på Instagram och följ Ellinor och Melina på:@melina.criborn@ellinorlofgrenProduceras av More Than Words Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Framtíðin mótast ekki bara sjálfkrafa. Hún mótast af því sem við veljum að hugsa, gera og forgangsraða – dag eftir dag. Í þessari tveggja þátta röð ætla ég að deila með þér átta atriðum sem ég sjálf geri í dag – meðvitað og af ásetningi – til að lifa þannig að ég sjái ekki eftir neinu seinna meir. Þetta eru daglegar skuldbindingar, venjur og viðhorf sem styðja framtíð mína. Í þessum síðari þætti af tveimur fer ég meðal annars yfir: Líkamsrækt Gildi Æðri mátt Famtíðina -og af hverju mig hryllir við stöðnun Omega-3 olían sem ég tek: Omega -3 fyrirbyggir og vinnur á bólgum í öllum líkamanum, stuðlar að jafnvægi á blóðsykri, insúlin næmi og fitubrennslu og hormóna heilsu. Olíuna er hægt að panta í 6. mánaða áskrift. Þú færð olíuna senda mánðalega með pósti. Það tekur sex mánuði að fá jafnvægi á milli bólguvaldandi omega - 6 fitusýra og omega-3 í heilanum og í líkamanum. Hér er hlekkur beint á sölusíðun Smelltu á hlekkinn:https://eqology.com/pAbjcs Skráðu þig sem nýjan kúnna. Greiða vöruna. Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ INSTAGRAM ➡️ FACEBOOK ➡️ TAKTU SKREFIÐ FB GRÚPPA ➡️ HEIMASÍÐA ✔️ LÍFSÞJÁLFASKÓLINN - Opið fyrir skráningar á haustönn 2025! ✔️LMLP PRÓGRAMMIÐ ✔️ NÁMSKEIÐ ✔️ VÖRUR ✔️ MAGASÍNIÐ M/LINDU PÉ (ókeypis) P.s. Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir! Smelltu hér til þess.
Framtíðin mótast ekki bara sjálfkrafa. Hún mótast af því sem við veljum að hugsa, gera og forgangsraða – dag eftir dag. Í þessari tveggja þátta röð ætla ég að deila með þér átta atriðum sem ég sjálf geri í dag – meðvitað og af ásetningi – til að lifa þannig að ég sjái ekki eftir neinu seinna meir. Þetta eru daglegar skuldbindingar, venjur og viðhorf sem styðja framtíð mína. Í þessum fyrri þætti fer ég meðal annars yfir: Innsti hringur Peningar Ferðalög Að njóta Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ INSTAGRAM ➡️ FACEBOOK ➡️ TAKTU SKREFIÐ FB GRÚPPA ➡️ HEIMASÍÐA ✔️ LÍFSÞJÁLFASKÓLINN - Opið fyrir skráningar á haustönn 2025! ✔️LMLP PRÓGRAMMIÐ ✔️ NÁMSKEIÐ ✔️ VÖRUR ✔️ MAGASÍNIÐ M/LINDU PÉ (ókeypis) P.s. Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir! Smelltu hér til þess.
Greining á landsleik Íslands og Norður Íra. Rikki hefur áhyggjur! Top 7 RG listi vikunnar. Nostalgíu spurningarnar á Rikka G. Viktor Gísli Hallgrímsson spjallar um stóru félagsskiptin til Barcelona og Arnar Daði um handboltaskóla Framtíðarinnar. Ágúst með nýtt lag. Þetta og mikið meira til í þætti dagsins.
Aðgengi almennings að Heiðmörk kann að verða takmarkað í framtíðinni. Veitur stefna að því að loka grannsvæði vatnsverndar fyrir almennri bílaumferð. Í dag verður haldið málþing á vegum Skógræktarfélags Reykjavíkur þar sem framtíð Heiðmerkur verður rædd. Auður Kjartansdóttir, framkvæmdarstjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, kemur og ræðir við okkur um framtíð Heiðmerkur. Síðan fáum við síðasta pakkann af umfjöllunum frá nemendum í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands. Stefanía Silfá Sigurðardóttir fjallar um tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður á Ísafirði. Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir fjallar um strákahljómsveitir. Þórður Ari Sigurðsson fjallar um níkótínpúðanotkun ungmenna. Og að lokum kíkir Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall og segir okkur frá áhrifum Alzheimers á aðra vefi líkamans.
Í þessum nýja þætti af hlaðvarpinu tekur David Reimer viðtal við Thomas Zimmermann sem er nýdoktor við félagsfræðideild háskólans í Frankfurt.
Mate Dalmay eigandi Fótbolti.net mætti til Dr. Football ásamt Elvari Geir Magnússyni ritsjóra Fótbolta.net til að ræða eigandaskipti á síðunni, fortíð, nútíð og framtíð fótbolta.net
Fyrirhugað er að gera breytingar á því hvernig endurgreiðslum fyrir kvikmynda-og sjónvarpsverkefni verður háttað. Markmiðið á að vera að draga úr ófyrirséðum útgjaldavexti. Ef líkum lætur verður nýtt met slegið á þessu ári í endurgreiðslum; áætlað er að þær nemi sex milljörðum Afkoma bændastéttarinnar, nýliðun, tollvernd og stuðningur við íslenskan landbúnað, var það sem helst brann á bændum í hringferð Bændasamtakanna og atvinnuvegaráðherra í síðustu viku. Formaður Bændasamtakanna segir bændur kalla eftir nýrri hugsun og auknum skilningi stjórnvalda. Framtíð íslensks landbúnaðar felist í nýjungum og nýrri kynslóð bænda. Homicide prediction project - morðspáarverkefnið - miðar að því - eins og nafnið felur í sér - að þróa hugbúnað sem ætlað er að gera yfirvöldum kleift að finna líklega framtíðarmorðingja, með greiningu á fyrirliggjandi gögnum um fólk sem komist hefur í kast við lögin - jafnvel þótt með óbeinum hætti sé. Þetta hljómar óneitanlega eins og lýsing á klisjukenndri vísindaskáldsögu eða bíómynd, en titillinn - Homicide prediction project - var reyndar vinnuheitið á verkefni sem hleypt var af stokkunum í forsætisráðuneyti Bretlands þegar Rishi Sunak réði þar ríkjum, og hefur nú fengið öllu sakleysislegra og stofnanakenndara heiti: „Deiling gagna til að bæta áhættumat“.
Fyrir rúmum áratug var stunduð umfangsmikil bláskeljarækt á Íslandi - síðan hrundi þessi grein - og það sem meira er þörungar sem framleiða taugaeitur hafa gert krækling hættulegan til neyslu. Á greinin sér viðreisnar von? Og hvað er hægt að gera í þessum eiturþörungum? Sara Harðardóttir þörunga- og erfðafræðingur hjá Hafrannsóknastofnun stýrir nú stórri rannsókn á öryggi og hagkvæmni í bláskeljarækt, rannsóknin hefur hlotið tugmilljóna styrki úr ýmsum áttum. Sara ræðir við okkur um framtíð kræklingaræktar á Íslandi. Og síðan ætlum við að huga að framtíð íslenskunnar, þá sérstaklega framtíð kynhlutlausrar Íslensku. Sumir láta kynhlutleysi í íslensku máli fara í taugarnar á sér, aðrir telja það verðugt verkefni að draga úr karllægni tungumálsins. Eiríkur Rögnvaldsson kemur við og spjallar um kynhlutlaust mál og framtíð íslenskunnar. Við förum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið í lok þáttar og kynnumst þar brotum úr sögu Sigfúsar Sighjartarsonar, alþingismanns, sem lést um miðbik síðustu aldar. Tónlist frá útsendingarlogg 2025-03-31 Lucy Dacus - It's Too Late. KARKWA - Marie tu pleures
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari Karl Friðriksson, forstöðumaður Framtíðarseturs Íslands, ræddi við okkur um framtíðina og hvaða meginstraumar munu móta hana. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, ræddi við okkur um kvótasetningu grásleppunnar. Kristján Berg, fiskikóngur og Örn Árnason, leikari fóru yfir sviðið. Eydís Eik Sigurðardóttir, Íris Sævardóttir og Sædís Arna Einarsdóttir, stofnendur MEMM spjölluðu við okkur um nýtt smáforrit. Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Vals í handbolta, og Ásdís, dóttir hans og leikmaður liðsins, ræddu við okkur um stórleik um helgina. Lorena Portmann, nemandi við Háskólann á Hólum, ræddi við okkur um íslenska hestinn og nám í hestafræði. Lagakeppni Bítisins
Lyfjafræðingar eru þreyttir á vantrausti frá heilbrigðiskerfinu og vilja gera meira til að aðstoða sjúklinga. Í dag fáum við til okkar Sigurbjörgu Sæunni Guðmundsdóttur, formann lyfjafræðingafélags Íslands, og Sigríði Pálínu Arnardóttur, lyfjafræðing í Reykjanesapóteki, til að ræða framtíð lyfjafræðinnar og apóteka á Íslandi. Ingunn Sigurjónsdóttir var veik af berklum stóran hluta sinnar barnæsku og var einungis 25 ára þegar hún lést. Sem barn horfði Úlfar Bragason, bróðursonur hennar, og í dag prófessor emerítus í miðaldafræðum, oft á mynd af henni, sem hékk upp á vegg - og spurningum hans um hver þessi kona hefði verið var svarað fálega, um hana átti ekki að tala. Seinna fékk Úlfar að kynnast henni í gegnum bréf sem hún skrifaði ættingjum og vinum af berklahælinu. Í fyrra gaf hann bréfin út á bók - en bréfin frá Ingunni heldur samt áfram að reka á fjörur hans. Tónlist í þættinum: NORAH JONES - Happy Pills. Kavakos, Leonidas, Nagy, Péter, - Suite Italienne for violin and piano. Kavakos, Leonidas, Nagy, Péter - Duo concertant for violin and piano. Katrín Halldóra Sigurðardóttir - Frá liðnu vori.
Andrés Magnússon og Þórður Gunnarsson fara yfir nýafstaðna kosningu um formann Sjálfstæðisflokksins, hvað bar á milli frambjóðenda, hvort að baráttan hafi verið háð á fundinum sjálfum eða fyrir hann, stöðu nýs formanns og hvernig næstu misseri geta litið út og fleira. Auk þess er fjallað um stöðu ríkisstjórnarinnar, undarlegt útspil Dags B. Eggertssonar í umræðu um Evrópumál og margt fleira.
Í dag gerum við upp viðtalsröð okkar um framtíðir og framtíðarsýnir, sem lauk í síðustu viku og hafði staðið yfir í rúmar fjórar vikur. Í þessum viðtölum könnuðum við framtíðarvonir fólks sem tók þátt í framtíðarfestivali Borgarbókasafnsins, sem var haldið í lok janúar, en þær Dögg Sigmarsdóttir og Martyna Karólína Daniel, verkefnastjórar á Borgarbókasafninu, koma til okkar til að gera upp festivalið og viðtölin sem við tókum í kringum það. Við ætlum að fjalla um möguleika fólks með fötlun til að afla sér menntunar. Nýlega fór af stað atvinnumiðað nám ætlað fötluðum hjá öllum símenntunarmiðstöðvum á landinu. Hjá símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, Símey, útskrifuðust sex nemendur á síðustu önn og samtals útskrifuðust 56 á landsvísu. Við spjöllum við Jennýju Gunnarsdóttur, verkefnastjóra hjá Símey, og Daníel Smára Bjarnason, sem er nýlega útskrifaður af námskeiðinu og starfar nú hjá Fagkaupum. Hátt í 60% íbúa jarðar búa í þéttbýli og útlit er fyrir að hlutfallið hækki ört á næstu árum. Þá ver fólk á Vesturlöndum nær öllum sínum tíma innandyra. Páll Líndal, umhverfissálfræðingur, fjallar um þetta í pistli dagsins.
Á árunum 1948-1949 braust út veirufaraldur á Akureyri. Fjöldi fólks veiktist og sum hafa glímt við eftirköst veikinnar, sem jafnan er kölluð Akureyrarveikin, alla ævi. Ýmsum spurningum er enn ósvarað um þennan dularfulla faraldur. Óskar Þór Halldórsson, hefur undanfarin ár grúskað í sögu Akureyrarveikinnar og rætt við hátt í sjötíu manns sem annað hvort veiktust eða þekktu einhvern sem veiktist. Við höldum áfram með viðtalsröð okkar sem hverfist um framtíðir og framtíðarsýnir, í samvinnu við Borgarbókasafnið. Hvernig ímyndum við okkur heimili framtíðarinnar? Og hvernig getum við byggt hús sem hægt er að aðlaga að mismunandi fólki, mismunandi þörfum, aðstæðum og umhverfum. Marjolein Overtoom, hefur lengi velt þessum spurningum fyrir sér, og gerði þessi mál að viðfangi doktorsverkefnis sem hún kláraði nýlega. Og doktorsverkefið var einmitt grunnur að viðburði sem hún hélt á framtíðarfestivali borgarbókasafsins, þar sem þátttakendur hönnuðu hús á nýstárlegan hátt. Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, fræðir okkur um köld böð í lok þáttar. Tónlist í þættinum: IGGY POP - La Vie en rose. Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund). Sharon Van Etten - Everytime the sun comes up
Nú, þegar styttist í þingkosningar á Grænlandi eru spurningar um framtíð landsins, og hverjir eigi að ákveða hana, fleiri og áleitnari en oft áður. Krafa Grænlendinga um sjálfstæði verður sífellt háværari, ekki síst eftir yfirlýsingar og, að sumra mati, hótanir Bandaríkjaforseta um að Grænland verði hluti Bandaríkjanna.
Tjaldurinn er ólíkindatól og undanfarin ár hefur líffræðingurinn Sölvi Rúnar Vignisson einbeitt sér sérstaklega að rannsóknum á honum - við ætlum að ræða við Sölva Rúnar um líf og hegðun Tjalda, sem sumir eru orðnir staðfuglar og jafnvel farnir að yfirgefa fjörurnar fyrir ánamaðka í túnum. Síðan fjöllum við um nýlendustefnu, framtíðina og matarmenningu, afnýlenduvæðingu, sundlaugar og kvikmyndir. Við ræðum við Acholu Otieno, April Dobbins, og Elizabethu Lay, sem voru með viðburð á Framtíðarfestivali Borgarbókasafnsins sem tengist nýlendulausri næringu. Viðtalið er hluti af viðtalsröð Samfélagsins um framtíðir og framtíðarsýnir.
Flóð ógna nýrri skólphreinsistöð í Árborg og á Austfjörðum er fólk farið að velta fyrir sér framtíð opinna vatnsbóla vegna kólí-gerla í jarðvegi. Vaxandi öfgar í veðurfari; þurrkar, flóð og miklar rigningar hafa neikvæð áhrif á fráveitukerfi sem víða um land eru komin til ára sinna. Samorka blés í dag til fundar um þessa ógn. Samfélagið ræddi við þrjá af fyrirlesurum fundarins þá Hlöðver Stefán Þorgeirsson, ráðgjafa, Ágúst Þór Bragason, forstöðumann hjá þjónustumiðstöð Árborgar og Aðalstein Þórhallsson, framkvæmdastjóra HEF-veitna á fljótsdalshéraði. Svo fáum við til okkar Ásdísi Birnu Gylfadóttur og Maríönnu Dúfu Sævarsdóttur, meistaranema í listum og velferð við Listaháskóla Íslands. Þær ætla að segja okkur frá því hvernig þær nálgast samfélagslistir og velferð, framtíðina og táknin sem við notum fyrir framtíðina. Viðtalið er það fimmta í viðtalsröð Samfélagsins um framtíðir og framtíðarýnir, í samstarfi við framtíðarfestival Borgarbókasafnsins. Og að lokum heyrum við í Páli Líndal, pistlahöfundi Samfélagsins. Í dag fjallar hann um græna gímaldið við Álfabakka, þéttingu byggðar og almenningssamgöngur. Tónlist og stef í þættinum: OTIS REDDING - Respect. MUSIC MACHINE - Talk Talk. Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
Hvernig hugsum við um dauðann og örlög jarðneskra leifa okkar eftir hann? Líklega mismikið - á meðan sum eru búin að skipuleggja jarðarförina í þaula er öðrum sléttsama - þau verða hvort eð er ekki lífs. Við ætlum að ræða útfarir og greftrunarsiði samtímans við Dagrúnu Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðing, sem undanfarið hefur rannsakað afstöðu fólks til jarðarfararinnar og hinstu hvílu og skráð hvernig tíðarandinn verkar á dauðann og allt tilstand í kringum hann. Hvað getum við lært um framtíðina í gegnum tedrykkju? Og hvernig tengja þjóðsögur okkur við vistkerfi og menningu? Í dag ræðir Pétur Magnússon við Dariu Testo, sýningarstjóra, sem rannsakar tengsl hefðbundinna athafna eins og að drekka te og segja þjóðsögur, við náttúru og vistkerfi. Viðtalið er það fjórða í viðtalsröð Samfélagsins um framtíðir og framtíðarsýnir, í samstarfi við framtíðar-festival Borgarbókasafnsins. Við heimsækjum svo þjóðskjalasafn Íslands, þar sem Fanney Sigurgeirsdóttir, skjalavörður, fræðir okkur um rafræn skjöl. Tónlist og stef í þættinum: Margrét Eir og Páll Rósinkranz - Forever young. Kammerkór Norðurlands - Nú sefur jörðin. SUFJAN STEVENS - Death with Dignity. Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund). SPILVERK ÞJÓÐANNA - Veðurglöggur.
Um árabil hefur írska persónuverndarstofnunin háð harða baráttu við voldugustu tæknirisa heims. Reglulega berast fréttir af stórum sektum, upp á allt að tugi milljarða evra, sem eru tilraunir til að fá risana til að fara eftir evrópskum lögum sem gilda meðal annars hér á Íslandi. Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar verður gestur okkar í dag. Við spyrjum hana út í þessa baráttu, samspil persónuverndar og taugavísinda og ýmislegt fleira úr heimi persónuverndar. Svo bregðum við vestur á firði, þar sem Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður RÚV á Vesturlandi, ræðir við Eirík Örn Norðdahl um rithöfundastarfið, bókmenntir á landsbyggðinni, menningarmiðjur og ýmislegt fleira. Og svo höldum við áfram viðtalsröð okkar um framtíðir og framtíðarsýnir - í samstarfi við framtíðarfestival Borgarbókasafnsins. Í dag pælum við um gervigreind, myndasögur og borgir framtíðarinnar, ásamt Aroni Daða Þórissyni, forsvarsmanni hópsins myndarsögur. Tónlist úr þættinum: THE BEATLES - Norwegian Wood (This Bird Has Flown).
Rætt er við Guðmund Tómas Sigurðsson nýráðinn flugrekstrarstjóra Icelandair um ýmsar stórar áskoranir framundan í rekstrinum. Endurnýjun flugflota félagsins er hafin og nú þarf að ákveða hvort áfram eigi að reka breiðþotur eða eingöngu mjóþotur í framtíðarleiðarkerfi Icelandair. Guðmundur Tómas fer yfir óásættanlega stöðu á Reykjavíkurflugvelli og útskýrir hvers vegna hindranir í útreiknuðum flugferlum geta aftrað því að flugfélög geti notað völlinn á öruggan og eðlilegan máta. Guðmundur segist bjartsýnn á að Icelandair nái markmiðum í rekstrinum og geti vaxið og dafnað á næstu árum með Keflavík sem öfluga tengimiðstöð.
Hvernig hugsum við um framtíðina? Er hún línuleg? Hringur? Kannski í laginu eins og blóm? Í fyrsta viðtali í framtíðarviðtalsröð Samfélagsins og Borgarbókasafnsins ræðum við við Juan Camilo, fjölmenningarfulltrúa hjá Háskóla Íslands og fræðimann og kennara, í breiðum skilningi þeirra orða, um framtíðina, forvera, menntun og ýmislegt fleira. Síðan fáum við til okkar Eddu Olgudóttur, vísindamiðlara Samfélagsins, sem beinir í dag sjónum sínum að örveraflórunni. Og svo heyrum við viðtal Samfélagsins við Guðrúnu Dröfn Whitehead, safnafræðing, sem tekið var á síðasta ári, um víkingaímyndir, útrásarvíkinga, karlmennsku og pólitískar öfgahreygingar. Tónlist: Lenker, Adrianne - Sadness as a Gift.
Eru endurskoðendur leiðinlegir? Almenningur virðist að minnsta kosti vera þeirrar skoðunar, ef marka má nýja rannsókn Valdimars Sigurðssonar, prófessors við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík. Og þessi ímyndarkrísa endurskoðenda gæti haft alvarleg áhrif, þar sem nýliðun í faginu er lítil og of fáir endurskoðendur eru útskrifaðir til að anna eftirspurn. Við ræðum við Valdimar Sigurðsson og Unnar Friðrik Pálsson, endurskoðanda og framkvæmdastjóra félags löggiltra endurskoðenda, um ímynd endurskoðenda, hvað sé til ráða, og hvort innistæða sé fyrir því að endurskoðendur séu taldir leiðinlegir. En næstu vikur verðum við í samfélaginu með hugann við framtíðina. Í dag kynnum við viðtalsröð þar sem við fáum til okkar alls konar fólk til að ræða um þeirra sýn á framtíðina. Þetta gerum við í samvinnu við Borgarbókasafnið, sem halda svokallað framtíðarfestival í lok mánaðar. Við fáum til okkar Dögg Sigmarsdóttur og Martynu Karólínu Daniel frá Borgarbókasafninu til að ræða þetta. Um fjórðungur barna er með einhvers konar matvendi eða takmarkað fæðuval. Margir foreldrar hafa talsverðar áhyggjur af matvendni barna sinna, enda fylgir matvendni oft mikil streita og álag. En af hverju eru sum börn matvönd og hvers vegna eldist það oftast af þeim. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Sigrúnu Þorsteinsdóttur, kínískan barna- og heilsusálfræðing og Önnu Sigríði Ólafsdóttur, prófessor í næringafræði um matvendni.
Í dag ætlum við að velta okkur upp úr framtíðinni; eða kannski er réttara að segja að við ætlum að velta okkur upp úr framtíðum. Þær eru víst alls konar, mögulegar og ómögulegar. Við heimsækjum Karl Friðriksson og Sævar Kristinsson hjá Framtíðarsetri Íslands, sem nálgast þetta viðfangsefni með aðferðum framtíðarfræðinnar. Íslenskir brauðostar, kotasæla og rifinn ostur innihalda flest rotvarnarefni ólíkt sömu vörum í Danmörku. Rotvarnarefnið Nítrit sem er merkt E-252 er einnig að finna í íslenskum matvörum en minna í dönskum matvörum. Þá eru einnig kekkjavarnarefni, bræðslusölt og önnur rotvarnarefni líka til staðar í nokkrum vöruflokkum svo dæmi sé tekið. Þetta kemur fram í grein Bændablaðsins eftir Önnu Maríu Björnsdóttur kvikmyndagerðarkonu sem er framkvæmdastjóri hjá Lífrænu Íslandi, og Unu Emilsdóttur, sérnámslækni í umhverfislæknisfræði í Danmörku. Þær vilja vekja athygli á skaðsemi þessara efna sem sum hver geta valdið alvarlegum sjúkdómum og nítrit þá sérstaklega. Helga Arnardóttir tók þær tali og ræðir líka sterka neytendavitund Dana og áherslur í Danmörku. Tónlist úr þættinum: THE VELVET UNDERGROUND - All Tomorrows Party's. Pétur Ben - The great big warehouse in the sky.
Sameiginlegur þáttur Víðsjár og Lestarinnar í upphafi ársins 2025. Í þáttum dagsins höldum við úr húsi, förum inn í lágvöruverslunina Prís í Kópavogi, verslunarmiðstöðina Eiðistorg á Seltjarnarnesi, vöðum slabbið út í strætóskýli og tökum líka upp tólið og hringjum út á land: austur, vestur, norður og suður. Hvað var fólk í Prís að hugsa rétt eftir jólin og hvað finnst unglingum á Eiðistorgi um bækur? Hvaða áhrif hefur risa myndlistarsýning á verkum Roni Horn í strætóskýlum á gangandi vegfarendur, nú eða akandi strætóbílstjóra? Hvað er low taper fade, hvað er best að gera á Benidorm og hvernig leggst þetta nýja ár í okkur? Umsjón: Kristján Guðjónsson, Halla Harðardóttir, Lóa Björk Björnsdóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Í meira en fjóra áratugi hefur kaffistofa Samhjálpar tekið við fólki sem hafa ekki tök á að sjá sér fyrir mat sjálft, veitt þeim tímabundið húsaskjól og gefið þeim að borða. Starfsemi kaffistofunnar hefur þróast og breyst í gegnum árin og segja má að starfsemin hafi aldrei verið mikilvægari en í dag. Þó er framtíð kaffistofunnar óljós, en Samfélagið kíkti í heimsókn til að fræðast um starfsemina í Borgartúni. Á dögunum varð eftirlitsmaður Fiskistofu fyrir því að skotið var á dróna sem hann nýtti til eftirlits. Þetta var í þröngum firði vestur á fjörðum og skotin glumdu, þrjú í röð. Manninum var brugðið - enda skammt undan sjálfur, að stjórna drónanum. Viðar Ólason, sviðsstjóri veiðieftirlitssviðs, fiskistofu, er gamall sjómaður. Hann bindur vonir við að atvikið hafi verið undantekning en veit að andúð í garð Fiskistofu grasserar í sumum hópum. Við ræðum þetta alvarlega atvik við Viðar og einnig um fiskveiðieftirlitskerfið í heild, kosti og galla. Tónlist í þættinum: BARR - Allt haf.
Þú setur x við þinn flokk um helgina. Hvað á að kjósa og hvaða flokkar munu ákveða þína framtíð? Ef það fær þig ekki til að hlusta þá fórum við yfir fæðingarþunglyndi og hvernig er best að útfæra dirty weekend í Amsterdam. Þetta og djúp fræðilega greining á því sem mun gerast um helgina. Góða skemmtun!
Kosningarnar í Georgíu á morgun gætu orðið þær afdrifaríkustu síðan þetta fyrrum Sovétlýðveldi lýsti yfir sjálfstæði fyrir meira en þrjátíu árum. Framtíð landsins er í húfi, segir Salome Zourabichvili forseti Georgíu. Bretar státa sig gjarnan af því að eiginlegt þrælahald hafi aldrei tíðkast á Bretlandi. Þeir tala minna um það, að þegar mest lét voru þeir allra þjóða umsvifamestir í þrælakaupmennsku, í skjóli yfirburðastöðu sinnar á heimshöfunum. Og í þættinum verður rætt við tvo unga frambjóðendur í komandi þingkosningum.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 19. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltatíðindi vikunnar, landsliðið, lokabaráttuna í Bestu deildinni og fleira. Hörður Snævar Jónsson ritstjóri 433.is er á línunni og ræðir um landsliðið og framtíð Age Hareide landsliðsþjálfara en Hörður telur framfarirnar ekki nægilega miklar undir hans stjórn. Ragnar Páll Bjarnason formaður fótboltadeildar Fylkis ræðir um vonbrigðatímabil í Árbænum og spennandi þjálfararáðningu. Reiði stuðningsmanna ÍR, nýtt undirlag Laugardalsvallar og ýmislegt fleira kemur við sögu!
Framtíð Åge Fridtjof Hareide, lokaleikirnir í Bestu, enski og KFA tíminn gerður upp. Hlaðvarpsstjórnandinn Mikael lætur gamminn geisa, umsjón hafa Helgi Fannar og Keli.
Hlustið í heild á patreon.com/heimsendirBjört framtíð? Mögulega. Í þessum þætti fjöllum við um framtíð íslenskrar náttúru og efnahags, fólksþróun, menningu og tungumál, listir og alþjóðamál. Er íslenskan á útleið? Verður stofnaður her á Íslandi? Munu jöklarnir bráðna? Þessar og fleiri verða í brennidepli.
Ólafur Andri Ragnarsson, sérfræðingur í tæknimálum, kemur í Þjóðmálastofuna og ræðir um þá miklu tækniþróun sem hefur átt sér stað á liðnum árum. Fjallað er um gervigreind og hvort að ástæða sé að óttast þær breytingar sem hún hefur í för með sér, notkun dróna og róbóta, af hverju nær öll framþróun í tæknimálum á sér stað utan Evrópu, hvernig iðnbyltingar fara af stað, hvað verður um störfin sem síðar verða unnin af tölvum og margt fleira.
Framtíðin: Benjamin Bæring, Ragnar Halldór og Úlfar Kriss by Fimleikafélagið
Við ætlum að vera í Danmörku í SumarHeimskviðum dagsins og ætlum að byrja í Kristjaníu. Þetta er umfjöllin frá því í desember þegar Hallgrímur Indriðason fór með okkur á Pusherstræti. Fyrr á þessu ári var kannabissölu hætt alfarið í fríríkinu, en þessi umfjöllun var unnin í aðdraganda þess. Annað stórt fréttamál frá Danmörku var í vor þegar við fylgdumst mörg með hinni sögufrægu byggingu Børsen brenna í fréttum. Byggingin sem fæst okkar hafa líklega komið inn í nema við höfum átt erindi við viðskiptaráð Danmerkur undanfarin ár, eða þar áður lagt leið okkar í kauphöll landsins. En bygginguna hafa flest sem hafa rölt um stræti Kaupmannahafnar séð. Hún skar sig úr, ekki síst vegna drekaturnspíru sem teygði sig upp af húsþakinu, en er nú hruninn. Oddur Þórðarson vann umfjöllun um Børsen.
Doc, Gunnar Birgisson og Framtíðin, Ágúst Þór Ágústsson after dark.
Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtæki í sjávarútvegi, fjalla um mikilvægi þess að viðhalda og auka við verðmætasköpun í sjávarútvegi, samanburðinn við önnur ríki, samskipti stjórnvalda og atvinnulífs, hvernig framtíðin kann að líta út, fyrirtækin sem verða til vegna nýsköpunar og þróunar og annað sem tengist þessari mikilvægu atvinnugrein okkar Íslendinga.
Heiðar Guðjónsson, hagfræðingur og fjárfestir, ræðir um undarlegar tillögur stjórnvalda sem vilja leggja það til að Íslendingar gerist grænmetisætur og leggi af alla stóriðju, um stöðuna á Norðurslóðum og áhrif breytinga þar í efnahagslegu og samfélagslegu tilliti, um nýsköpun og sjálfbærni, umræðu stjórnmálamanna um atvinnulífið, stöðuna í hagkerfinu og horfurnar framundan, hræðsluna við erlendar fjárfestingar, stöðuna á hlutabréfamarkaði og margt fleira.
Fórum þvert yfir sviðið. Gunnar Birgisson talar frá Malmö. Vestri er bara ofar en Valsmenn í töflunni, Logi Hrafn unplayable, nýr Tiempo og Viktor Bjarki Daðason.
Fyrirvari: Við trúum því ekki að jörðin sé flöt. Hjálmar þarf að komast að því hvenær hann er fæddur og hringir út um allan bæ til að komast að því. Strákarnir hringja í Vilborgu pólfara til að komast að því hvort að jörðin sé flöt.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!
Þau Torfi og Steinunn eru meðstofnendur Intuens. Þetta spennandi fyrirtæki býður upp á byltingarkenndar breytingar hvað varðar heilsu og heilbrigðiskerfi þjóðarinnar. Hjá Intuens getur þú bókað þig í heilskanna og fengið að sjá stöðuna á þínum eigin líkama, án þess að þurfa að bíða eftir samþykki annars staðar frá. Þegar kemur að heilsunni, þá er þekking máttur. Intuens er fyrirtæki sem nýtir sér nýjustu segulómtækni, gervigreind og tölvugreiningar frá Philips til að varpa ljósi á ýmsa kvilla og sjúkdóma. Kynntu þér málið á intuens.is eða á intuenshealth