POPULARITY
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Brynja M. Ólafsdóttir, sérfræðingur í Regluvörslu Landsbankans, ræddi við okkur um netbrot og fjársvik. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokks, ræddi við okkur um gullhúðun. Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, fór yfir ástæður fyrir því að Ísland ætti að klára aðildarviðræður við Evrópusambandið. Margrét Reynisdóttir stofnandi og ráðgjafi hjá Gerum betur, settist niður með okkur. Hinrik Ólafsson, leikstjóri og leikari með meiru, ræddi við okkur um myndina Above Iceland. Sölvi Pálsson, verkefnastjóri stafrænna lausna og TikTok stjarna, ræddi við okkur um sjónvörp.
Sigurgeir Björn Geirsson yfirverkefnastjóri Vaðölduvers um flutning vindmylla Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri Símatími Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir formaður Lyfjafræðingafélags Íslands um Ivermectin Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra Gunnlaugur Már Briem formaður Félags sjúkraþjálfara um stoðkerfisvanda Helgi Gíslason skólastjóri Fellaskóla
Gestir Vikulokanna eru Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins, Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar og Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Þau ræddu meðal annars bæjar- og sveitarstjórnarkosningar, meirihlutaviðræður í Reykjavík, efnahagsmál og boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildaviðræður við Evrópusambandið. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ása Björk Sigurðardóttir, einn af forsprökkum Hreins Íslands, ræddi við okkur um reglulegt plokk. Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ, ræddi við okkur um innviðafélag og stýrivaxtaákvörðun. Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur og ráðgjafi sem starfar jafnframt hjá Reitun, ræddi við okkur um horfur í hagkerfinu og verðmætasköpun. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, var á línunni og brást við stýrivaxtahækkun. Snorri Heimisson, stjórnandi skólahljómsveitar Austurbæjar, ræddi við okkur um virði tónlistarnáms. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar og þingmaður Miðflokks, brást við stýrivaxtahækkun.
Mánudagur 18. maí Kosningaúrslitin, tímamótabók, dáleiðsla og fíkn Blaðamennirnir Jón Trausti Reynisson á Heimildinni og Atli Þór Fanndal, sem starfar sjálfstætt, rýna í helstu atriði kosningaúrslita um helgina og spá fyrir um framhaldið. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Umtalaðasta íslenska bókin þessa dagana er lífsreynslusaga Gyrðis Elíassonar, Ótíð í víti. Þar lýsir Gyrðir eigin baráttu við geðveiki og einkum þeim stökkbreytingum sem urðu til hins verra fyrir nokkrum og leiðir að því líkum að lyfjagjöf sé um að kenna. Guðmundur Andi Thorsson rithöfundur og Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður ræða bókina með Birni Þorláks. “Vöruhús tilfinninganna” er dáleiðsluaðferð með nálgun jákvæðrar sálfræði sem Ingibjörg Bernhöft hefur þróað, sem vakti mikla athygli á alþjóðlegri dáleiðsluráðstefnu í Orlando í síðustu viku. Í þættinum dáleiðir hún Ásdísi Olsen til að hætta á nikótíntyggjói. Í dag greindi Morgunblaðið frá því að Árni Tómas Ragnarsson læknir er látinn fyrir aldur fram. Gunnar Smári Egilsson tók viðtal við hann eftir að landlæknir hafði svipt hann lækningaleyfi fyrir nokkrum misserum, þar sem Árni gaf út lyfseðla á morfín til fólks sem háð er ópíóðum. Árni var læknir fíkla. Við endurbirtum viðtalið.
Skortur á áhættumati, skriflegu verklagi og skýrum áætlunum þegar almannavarnastigi er lýst yfir er meðal þess sem starfshópur dómsmálaráðherra um viðbrögð vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga setur út á í áliti sínu, sem birt var í morgun. Viðbragðsaðilar eru þó sagðir hafa unnið þrekvirki og tekið fram að það sé þeim að þakka að ekki fór verr. Alma Ómarsdóttir ræðir niðurstöður nefndarinnar og viðbrögð við þeim við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Eigendur 820 báta hafa tryggt sér rétt til strandveiða og 583 bátar eru komnir á sjó. Í reglugerð segir að veiðarnar megi stunda í 12 daga innan hvers mánaðar, 48 daga samtals. Undanfarin sex ár hafa sjómenn hins vegar ekkii getað klárað leyfilegt strandveiðitímabil því tiltækar veiðiheimildir klárast jafnan áður en komið er að lokadegi. Þetta eru sjómenn ósáttir við, eog þeim brá líka í brún þegar úthlutun fyrir þetta sumar var minni en í fyrra. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta, en hann fór á bryggjurölt og hitti sjómenn að máli. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Sunnudagurinn 26. apríl Synir Egils: Ráðherrar, kennarar, kosningar og ESB Í Vettvang dagsins komu þau Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins og Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki og varaþingmaður fyrir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. Margt ber á góma í fyrri hlutanum. Mest þó um stjórnmál og samband ráðherra og kennara. Árangur þessa þingvetrar, komandi byggðakosningar, og hvernig þau meta afgreiðslu mála þessa þingvetrar. Eins verður snertilending á ESB. Í seinni hlutanum mæta þau Haraldur Ólafsson og Helga Vala Helgadóttir sem eru fjarri sammála um Ísland og ESB. Við höldum áfram að heyra ólík sjónarmið í þessu viðkvæma máli.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Erna Björnsdóttir, fagstjóri hugvits og tækni hjá Íslandsstofu, ræddi tækni með tvíþætt notagildi. Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknasetri í byggða- og sveitarstjórnarmálum við háskólann á Bifröst, ræddi við okkur um áhugaverða könnun. Arna Lára Jónsdóttir, formaður efnahags og viðskiptanefndar og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, varaformaður efnahags og viðskiptanefndar, ræddu gervigreindina. Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands og Ragna Þorsteinsdóttir, ritari Villikatta, ræddu hræðilegt dýraníð. Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður Leigjendasamtakanna, fór yfir húsaleigupakka Ragnar Þórs. Katrín Ósk Sigurðardóttir, Silvía Sigþórsdóttir, Ísak Leó Freysson, Emilía Þóra Ólafsdóttir, fólkið á bak við drykkinn Eazy, ræddu drykkinn. Benedikt S. Lafleur þýddi bókina Við dauðans dyr ég fann mig.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Björn K Rúnarsson leigutaki í Vatnsdalsá Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins um efnahagstillögur ríkisstjórnarinnar Símatími Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra vegna laga um umsáturseinelti Ingibjörg Davíðsdóttir þinkona Miðflokksins um lokun sendiráðs Íslands í Moskvu Guðmundur Benediktsson sparkspekingur um Bestu deildina
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Eyjólfur Eyvindarson, Sesar A, formaður VÍK, Vináttufélags Íslands og Kúbu, er í Kúbu og tekur þátt í loftbrú með hjálpargögn. Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, ræddi við okkur um virkjanamál. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra ræddi við okkur um erlenda glæpamenn. Hvað getum við bætt í krabbameinsmeðferðum? Sigríður Gunnarsdóttir, prófessor í krabbameinshjúkrun við Háskóla Íslands og forstöðumaður Rannsóknaseturs Krabbameinsskrár hjá Krabbameinsfélagi Íslands og Sigurdís Haraldsdóttir, yfirlæknir krabbameinslækninga á Landspítala og prófessor við læknadeild HÍ, ræddu við okkur um árangur í krabbameinsmeðferðum. Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður Leigjendasamtakanna, ræddi ástandið á leigumarkaði.
Þriðjudagur 17. mars Öfgahreyfingar, kjaramál, Bretland, fjölmiðlar og Íslensk menning Ef íslenskir stjórnmálaflokkar eru að taka við fé frá erlendum öfgahreyfingum til að bjaga og rugla upplýsingar, ætti það nánast að kalla á lögreglurannsókn. Þetta segir Atli Þór Fanndal blaðamaður. Björn Þorláks ræðir við hann. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, nýr framkvæmdastjóri BSRB, ræðir kjaramál og helstu verkefni. Hún gagnrýnir styttingu atvinnubótatímabils svo nokkuð sé nefnt og segir samráð úr sögunni. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur ræðir um stöðu Keir Starmer og bresk stjórnmál. Kolbeinn Tumi Daðason fréttastjóri Stöðvar tvö, Bylgjunnar og Vísis, ræðir stöðu sjónvarpsfrétta Sýnar. Blikur eru á lofti. Björn Þorláks ræðir við hann. Eiríkur Örn Norðdahl skáld og rithöfundur, Auður Jónsdóttir rithöfundur og blaðamaður, Árni Matthíasson blaðamaður og gagnrýnandi og Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona ræða við Gunnar Smára um íslenska menningu, Laufey, hálendið, söguna og söguleysið og margt annað.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Sigurður Þ. Ragnarsson Siggi Stormur hjá vedur ehf um veðrið um helgina Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins og Sigmar Guðmundsson þingflokksformaður Viðreisnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB Símatími Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur um millilandaflug Bjarndís Helga Tómasdóttir formaður Samtakanna 78 um landsþing samtakanna um helgina Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason gera út hlaðvarpið Menn eins og við
Þriðjudagur 17. febrúar Börn, Kúba, áföll, íslensk menning og húmanismi Doktor Ársæll Arnarsson setur Bakkakotsmálið í samhengi í spajlli við Björn Þorláks. María Lilja ræðir við Tamilu Gaméz Garcell, kennara um ástandið á Kúbu en þar ríkir mikil mannúðarkrísa. Áföll og aðstandendur verða helsta umræðuefni doktors Ólafs Ævarssonar geðlæknis og Björns Þorlákssonar í fjórða þætti þeirra félaga um geðveiki. Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar Smára, um vestræna menningu og gildi. Rithöfundurinn Bergsveinn Birgisson segir Birni Þorláks frá húmanisma á viðsjárverðum tímum.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Guðmundur S. Johnsen, formaður Félags lesblindra á Íslandi, fór yfir stöðu lesblindra á Íslandi. Þóra Margrét Júlíusdóttir, höfundur ritgerðar um náttúrumeðferðir, ræddi við okkur um áhugaverðar hugmyndir í heilbrigðiskerfinu. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra ræddi nýja stefnu sem hún kynnti í gær. Þórður Gunnarsson, hagfræðingur ræddi við okkur um hugmyndir ríkisstjórnarinnar að afnema verðtryggingu. Guðrún Eva, Ungfrú Ísland og Lovísa Rós, Ungfrú Ísland Teen, settust niður með okkur og ræddu fegurðarsamkeppnabransann.
Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets, segir að mörgu að hyggja eigi að breyta vinnubrögðum við undirbúning nýrra hápsennulína og samningum við landeigendur. Samningaleiðin sé í flestöllum tilfellum betri en eignarnám. Landsnet stendur víða frammi fyrir andstöðu við lagningu á nýjum háspennulínum, nú síðast í Borgarfirði og Húnavatnssýslum. Í nýjum tölum frá lögreglunni kemur fram að í fyrra var tilkynnt um 133 kynferðisbrot gegn börnum og að þeim hafi fjölgað töluvert milli ára. Tilkynningar um barnaníð voru rúmlega helmingi fleiri en síðustu ár þar á undan. Barnahús sinnir börnum sem grunur leikur á að hafi sætt ofbeldi eða kynferðislegri áreitni og Paola Cardenas, sálfræðingur og teymisstjóri í Barnahúsi, segir að þar verði fjölgunar mála vart. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, kynnti í morgun fjölmargar aðgerðir til að sporna gegn skipulagðri brotastarfsemi. Meðal annars á að uppfæra á hegningarlögin og færa lögreglu rýmri heimildir. Þá á að auka eftirlit með höfnum sem hafa verið notaðar í fíkniefnasmygl, en ekki er bolmagn til að fylgjast jafn vel með því sem flutt er til landsins í gámum og yfirvöld vildu.
Synir Egils 4. jan: Árásir, kjarakrísa, pólitík og menning Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði og ræða stríð og friður í upphafi árs, lífskjör, efnahagsmál og pólitíkina hér heima og erlendis. Síðan ræðum við íslenska menningu á viðsjárverðum tímum. Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri, Auður Jónsdóttir rithöfundur, Kristín Gunnlaugsdóttir málari og Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri ræða áhrif tímanna á menninguna og áhrif menningarinnar á tímann. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Þórarinn ræðir við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um útlendingamál, stjórnmálin á Íslandi, jafnrétti kynjanna, heiðursmorð, hælisleitendur, myndir af árásarrifflum, Helga Magnús, Úlfar Lúðvíksson, vopnaburð unglinga og ESB.Þorbjörg segir að gagnrýni um útlendingastefnu ríkisstjórnarinnar sé vanstillt og að þau skref sem tekin hafa verið hafi alltaf verið á stefnu ríkisstjórnarflokkanna. - Á að spyrja þjóðina um ákvarðanir í útlendingamálum?- Erum við að læra af mistökum hinna Norðurlandanna í útlendingamálum?- Á að loka hælisleitendakerfinu?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið á Hrafnadalur@proton.me
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Benedikt S Benediktsson framkvæmdastjóri SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir um skýrslu starfshóps varðandi reglur um dvalarleyfi á Íslandi Símatími Ólafur Magnússon tæknistjóri Nova um 2g og 3g senda Páll Höskuldsson í Noregi um verndartolla í Noregi Sigurður Ingi Jóhannsson um verndartolla ESB Óli tölva og gervigreindin sem beitir hótunum til að lifa af Þorvaldur Flemming Jensen um sveitastjórnarkosningar í Danmörku
Sigríður Björk Guðjónsdóttir gekk á fund dómsmálaráðherra í ráðuneytinu við Skúlagötu 4 klukkan eitt í gær. Niðurstaða fundarins var að hún myndi hætta sem ríkislögreglustjóri en yrði í staðinn sérfræðingur í aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi hjá ráðuneytinu. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra. Mikill styr stendur um breska ríkisútvarpið BBC, en um helgina hættu bæði útvarpsstjórinn Tim Davie og fréttastjórinn Deborah Turness og vísuðu til umfjöllunar um fréttaskýringarþáttinn Panorama sem væri farinn að skaða BBC. Stjórnarformaðurinn baðst afsökunar á vinnubrögðunum. Ingibjörg Þórðardóttir fyrrverandi ritstjóri hjá BBC trúir ekki á að þar ríki kerfislæg hlutdrægni en oft sé brugðist seint og illa við þegar mistök eru gerð.
Þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, fékk fyrst veður af 160 milljóna viðskiptum ríkislögreglustjóra við ráðgjafafyrirtækið Intru ráðgjöf, á mánudagskvöld í síðustu viku, beið hún ekki boðanna. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, var kölluð á teppið og langlundargeð ráðherrans var ekki mikið. Eftir fund í ráðuneytinu voru Sigríði gefnir fimm dagar til að svara ítarlegri upplýsingabeiðni um þessi viðskipti. Í millitíðinni fundaði ráðherra aftur með ríkislögreglustjóra til að ræða alvarlega stöðu hennar sem forstöðumanns. Leiðtogar og sérfræðingar alls staðar að úr heiminum safnast nú saman í brasilísku borginni Belém, þar sem þrítugasta loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hófst í dag með leiðtogafundi. Talað hefur verið um að þetta eigi ekki að vera ráðstefna umræðna og samningaþófs, heldur ákvarðana og aðgerða, því engan tíma sé að missa. Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir enn mögulegt að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins um að halda hlýnun Jarðar innan 1,5 gráða umfram meðalhita fyrir iðnbyltingu. Vegurinn yfir Öxi á sunnanverðum Austfjörðum liggur úr Berufjarðarbotni upp á Fljótsdalshérað. Mikilvæg samgönguæð að mati heimamanna fyrir austan, þrátt fyrir að þarna sé hlykkjóttur og ósléttur malarvegur. Þetta er innan við 20 kílómetra leið en nýr Axarvegur myndi stytta hringveginn um tæpa 70 kílómetra miðað við núverandi leið um Austfirði. Öxi er ekki síst mikilvæg leið fyrir íbúa á Djúpavogi eftir myndun sveitarfélagsins Múlaþings og þá sameiningu sem henni fylgdi.
Bítið á Bylgjunni með Lilju, Simma og Ómari. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur á málefnasviði hjá Viðskiptaráði Íslands, ræddi skattlagningu á streymisþjónustu. Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, settist niður með okkur. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Miðflokki og Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki sitja bæði efnahags- og viðskiptanefnd og ræddu titring á lánamarkaði. Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann, stjórnendur Skuggavaldsins, ræddu samsæriskenningar sem stjórntæki. Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi og Dr. Gunnar Gunnarsson, forstöðumaður greiningar og ráðgjafar hjá Creditinfo, komu í spjall. Guðný Ósk Laxdal, Royal Icelander, spjallaði við okkur um bresku konungsfjölskylduna. Prjónað í umferðinni - allt að tveggja tíma raðir á höfuðborgarsvæðinu
Laugardagur 4. október Helgi-spjall: Kristín Gunnlaugs Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður segir frá leit sinni frá Maríu mey að kvenmannssköpum og tröllskessum, frá óttanum í foreldrahúsum sem hefur fylgt henni, frá ást og skilnaði, trúarþörf og hættunni af að staðna.
Kristín Gunnlaugsdóttir er níundi listamaðurinn sem valinn er til þátttöku í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur þar sem farið er yfir feril lykilpersóna í íslensku listalífi. Sýningin Ósagt opnaði dyr sínar í Vestursal safnsins nú um liðna helgi og þar gefur að líta verk sem spanna 40 ára feril Kristínar en þau nýjustu eru frá liðnu ári, stór kraftmikil verk þar sem glimmer og stelpu orka er mikilvægur efniviður. Við lítum inn á Kjarvalsstaði í þætti dagsins, og kynnum okkur auk þess glænýja plötu sellóleikarans Sigurgeirs Agnarssonar, Nánd, með einleiksverkum náfrændanna Huga Guðmundssonar og Hafliða Hallgrímssonar.
Sunnudagurinn 21. september Synir Egils: Stjórnmálaátök, fjármál, menningarstríð og Sjálfstæðisflokkurinn Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona, Arna Magnea Danks leikkona og Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi og ræða fréttir vikunnar og stöðuna í stjórnmálunum hér heima og erlendis. Þá kemur Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins og svarar spurningum um stöðu flokksins og stefnu hans. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.
Gestir þáttarins voru Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins, María Rut Kristinsdóttir þingmaður Viðreisnar og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins. Upphaf þingvetursins var í brennidepli þáttarins. Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar var rædd, fjárlagafrumvarpið sem kynnt var í vikunni sem og ný skýrsla þverpólitísks starfshóps um nýja öryggis- og varnarstefnu. Umsjón: Magnús Geir Eyjólfsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Sunna er jazzpíanisti hefur haldið tónleka um víða veröld, en hefur síðastliðin tuttugu ár búið á Íslandi.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair og sérfræðingur í flugrekstri Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra vegna hertra reglna þegar kemur að nálgunarbanni Símatími Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður um CE vottaða glugga Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og ritari Heimssýnar Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur um fund Pútíns XI Jiping Kim Yong UN og Modri Tobba Marinós um hvort Pamela Anderson og Liam Neeson séu hætt saman
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Guðmundur Arnar Sigmundsson forstöðumaður netöryggissveitar cert-is um hrinu svikapósta á Íslandi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir um hugmyndir um leyniþjónustu og varnir Íslands Símatími Kári S Friðriksson hagfræðingur hjá greiningu Arion Banka um vöru- og bensínverð Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra um norsku leiðina í útlendingamálum Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur um goslok og gagnrýni Þorsteinn Ólafsson sölustjóri hjá Vatt sem er umboðsaðili BYD bíla
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hjá Blika.is og verðurvaktinni Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokks um fjármálaáætlun Símatími Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra vill þyngja refsingar við líkamsárásum Hjalti Dagur Hjaltason formaður félags læknanema Gummi Ben um Diogo Jota og gengi íslenska kvennalandsliðsins á EM Sigrún Ósk Kristjánsdóttir nýráðinn upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar um Írska Daga
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Rakel Sveinsdóttir, ritstjóri Atvinnulífsins á Vísi Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra um ný lög um farþegalista Símatími Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Jón Pétur Zimsen þingmaður og fyrrverandi skólastjóri Samúel Karl Ólason, fréttamaður á Vísi vegna Trump og Musk Dóra Guðrún Guðmundsdóttir kennslustjóri í diplómanámi í Jákvæðri sálfræði.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Gylfi Gíslason framkvæmdastjóri Jáverks um húsnæðismál. Gylfi hefur byggt íbúðir á Íslandi í meira en 30 ár hann ræðir húsnæðismarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu og sína sýn á framtíð markaðar þar sem eftirspurn er langt umfram framboð, verð hækkar stöðugt og lítil merki um breytingar á þessari stöðu. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra um dómsmál. Þorbjörg ræðir sín verkefni, málefni saksóknara í kjölfar gagnalekamálsins, lögreglustjórans fyrrverandi á Suðurnesjum, lögreglumál, landamæramál, útlendingamála og fleira. Sigríður Á. Andersen, Halla Hrund Logadóttir og Pawel Bartoszek alþingismenn um utanríksimál. Sigríður, Halla Hrund, og Pawel ræða utanríkismál, stöðu Íslands á óvissutímum, afstöðuna til Ísraels og aðgerðir Íslands vegna ástandsins á Gaza m.a. Anna Hildur Hildibrandsdóttir fagstjóri um skapandi greinar. Anna Hildur sem er fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst og formaður Rannsóknaseturs skapandi greina ræðir nýjar rannsóknir á efnahagslegu mikilvægi skapandi greina fyrir Ísland og landsbyggðina sérstaklega.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi hjá Bjornberg.is um það af hverju við högum okkar óskynsamlega í fjármálum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra um útlendingamál og fordæmalaust ástand í fangelsum landsins Símatími Páll Pálsson fasteignasali um fasteignamarkaðinn Hera Guðlaugsdóttir nýdoktor við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands um niðurstöður rannsóknar á áhrifum brennisteinsríkra eldgosa á norðlægari slóðum á loftslag og veðurfar í kringum Norður-Atlantshaf Ragnhildur L Guðmundsdóttir náms og starfsráðgjafi í Sandgerðisskóla ræddi við okkur um þá hugmynd að koma á fót sérstökum verknámsskóla Jón Axel Ólafsson útvarpsmaður og húsgagnahönnuður hjá Jax handverk um álagningu húsgagnaverslana
VÆB bræður, Matthías og Hálfdán, stíga á svið í Basel fyrir Íslands hönd á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision 13.maí. Hópurinn fer til Sviss síðar í vikunni og það er skiljanlega mikil spenna fyrir því sem koma skal. Rúnar Freyr Gíslason fjölmiðlafulltrúi íslenska hópsins og VÆB var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir það sem er framundan og stemninguna í hópnum. Léttsveit Reykjavíkur er stærsti kvennakór landsins, en hann samanstendur af 100 konum á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn. Léttsveitin á þrjátíu ára afmæli í ár og verður því með ýmsa viðburði tengda afmælinu víða um landið. Við fengum þær Ingibjörgu Margréti Gunnlaugsdóttur, formann kórsins og Helgu Björk Jónsdóttur, kórfélaga, til að segja okkur frá kórnum, starfseminni og afmælisárinu. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag ræddi hann við okkur um rafmagnsleysið á Spáni og í Portúgal undanfarinn sólarhring og tengsl þess við veður. Hann talaði svo um þessa góðu tíð sem hefur verið undanfarið og bar hana saman við sama tíma í fyrra og svo skoðuðum við aðeins horfurnar framundan. Kemur hret? Einar fór með okkur yfir það í veðurspjallinu í dag. Tónlist í þættinum í dag: Vorið kemur / Diddú (Valgeir Guðjónsson, texti Jóhannes úr Kötlum) Róa / VÆB (Ingi Bauer, Gunnar Björn Gunnarsson, Hálfdán Helgi og Matthías Davíð Matthíassynir, enskur texti Peter Fenner) Langferð (Aften) / Léttsveit Reykjavíkur (Matti Borg, texti Eygló Eyjólfsdóttir) Þá mun vorið vaxa / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson, texti Einar Georg Einarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir stjórnvöld getað gripið til margra aðgerða í baráttu sinni gegn skipulagðri brotastarfsemi; fjölga lögreglumönnum, efla fræðslu og auka heimildir lögreglu. Hún viðurkennir að staðan í fangelsismálum sé mjög slæm og það séu eins röng skilaboð og hugsast getur þegar maður hlýtur dóm en þarf aldrei að sitja hann af sér. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við hana. Ef ekki verður gripið inn í sífelldar hækkanir á rafmagni er viðbúið að margir garðyrkjubændur gefist upp fyrr en seinna. Þetta segir Páll Ólafsson garðyrkjubóndi norður í Þingeyjarsýslu sem borgaði 90 milljónir í rafmagn í fyrra. Hann býst við 125 milljóna króna rafmagnsreikningi í ár. Ágúst Ólafsson ræðir við Pál. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari Ragnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í Fjarðabyggð, var á línunni og ræddi mögulega olíuleit á Drekasvæðinu. Þorsteinn Siglaugsson, hagfræðingur og gervigreindarkennari við Endurmenntun Háskóla Íslands, ræddi við okkur um gervigreindaráætlun í Eistlandi. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra ræddi við okkur um fangelsismál, ofbeldi barna, eltihrella og fleira. Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri ræddi við okkur um húsnæðisuppbyggingu á Geldinganesi. Viðar Pétur Styrkársson gervigreindarsérfræðingur og Isabella Holmberg, partner manager hjá gervigreindarfyrirtækinu NVIDIA, ræddu við okkur um framtíð gervigreindar. Söngkonan Guðrún Gunnars ræddi við okkur um tónleika í Salnum í apríl. Óli tölva og gervigreindin
Við hefjum þáttinn á því að taka á móti Önnu Rós Árnadóttur, handahafa Ljóðstafs Jóns úr Vör. Anna Rós les sigurljóðið Skeljar og segir frá innblæstrinum að baki. Myrkir músíkdagar hefjast á morgun og standa yfir fram á sunnudagskvöld með fjölda viðburða. Meðal þeirra eru tvær öróperur Elínar Gunnlaugsdóttur fluttar í stigunum í opnu rými Hörpu. Elín segist hafa sérstaklega gaman af því að leika sér með rými. Það setji klassísk verk eins og öróperurnar hennar í annað samhengi og geri þau aðgengilegri. Elín verður gestur okkar í dag. Jelena Ciric fjallar í pistli um tónlistarfólk sem gaf aðeins út eina hljómplötu í fullri lengd á ferlinum, en sem náði samt að setja mark sitt rækilega á tónlistarsöguna. Og Trausti Ólafsson rýnir í Rakarann í Sevilla í uppsetningu sviðslistahópsins Óðs.
Gestir Vikulokanna eru Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokks, Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokks og Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokks. Þau ræddu meðal annars nýja ríkisstjórn, komandi þingstörf, orkumál og árið sem er að líða. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Iceland has a stunning landscape with glaciers galore … but is more properly fire island. Lava, earthquakes eruptions and volcanoes dominate life and world headlines. Before Christmas 2023, an eruption forced people from their homes in the fishing port of Grindavik. One year and six eruptions later – the townspeople are back. But another eruption nearby is spewing lava across the car park of the famous Blue Lagoon. By the time you hear this podcast, that eruption could be over… or much worse.Yet despite all the risk and uncertainty, many Icelanders say they live here because of their volcanoes not despite them. Why? That's what this podcast is all about. CreditsThanks to Easyjet for flights – direct to Reykjavik every weekday from Edinburgh. Lesley travelled to the Westman Islands in a Europcar vehicle (complete with winter tyres) from Keflavik airport, took the dual fuel Herjolfur ferry (government owned and council run) courtesy of Business Iceland and stayed at the Hotel Vestmannaeyjar thanks to Visit South IcelandAccommodation in Reykjavik was kindly provided by podcast listener Scott Riddell. Big thanks also to interviewees – Laufey Sif Lárusdóttir who runs a pizzeria and Ölverk brewery using geothermal steam in Hveragerði with husband Elvar. She also manages to be mum to three small boys.Páll Zóphóníasson was once Mayor of Heimaey (main town on Westman Islands) and town engineer at the time of the 1973 eruption. Tax office staff, Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir and Ròsa Sveinsdòttir were just children at the time.Kári Valgeirsson is Science Communicator at the Hellisheiði power plant – one of the largest single-site geothermal power plants on the planet. Daily tours available via https://www.on.is/en/geothermal-exhibition/Thanks also to Limma and Gudrun Hannesdottir, Researched, recorded and produced by Lesley RiddochEdited by Pat Joyce ★ Support this podcast ★
Þrjár þingkonur stjórnarandstöðunnar segja það ekki hafa komið á óvart að Samfylkingin, Viðreisn og Flokkur fólksins skyldu hefja samtal um myndun ríkisstjórnar. Þingkona Framsóknarflokksins vonar að þeim takist ætlunarverkið en þingkonur Miðflokks og Sjálfstæðisflokks telja aðra möguleika í stöðunni. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Ingibjörgu Isaksen, Diljá Mist Einarsdóttur og Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Yoon Suk-yeol, forseti Suður-Kóreu, lýsti yfir herlögum í landinu seint á þriðjudagskvöld - en neyddist til að afnema þau sex klukkustundum síðar, þegar í ljós kom að hann hafði lítinn sem engan stuðning á þinginu, ekki einu sinni í sínum eigin flokki. Þúsundir kalla nú eftir afsögn forsetans og stjórnarandstaðan hyggst kæra hann og fleiri til embættismissis - og fyrir tilraun til uppreisnar. Ævar Örn Jósepsson kannaði málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Mangússon
Guðlaugur Þór Þórðarson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Reykjavík norður, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík suður, mætast í Pressu.
Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is Ef einhver á þingi segir hlutina umbúðarlaust þá er það fyrrum saksóknari og núverandi Alþingiskona, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, en við ætlum að kalla hana Obba! Eftir að Obba kom til mín í sinn fyrsta þá hefur hún vakið mikla athygli fyrir sterkar og réttsýnar skoðanir og þess á milli, stórkostlegan húmor. Við förum yfir mál málanna og förum yfir raunhæfa möguleika til þess að komast útúr því ástandi sem er að drekkja okkur Íslendingum eftir nú, sprungna ríkisstjórn. Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
Gestir Vikulokanna eru Ágúst Bjarni Garðarsson þingmaður Framsóknarflokks, Dagbjört Hákonardóttir þingmaður Samfylkingar og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu meðal annars kaup KS á Kjarnafæði/Norðlenska, samkeppni á búvörumarkaði, hæfisreglur þingmanna, fækkun ferðamanna og efnahagsmál. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Þórir Garðarsson framkvæmdastjóri um ferðaþjónustu. Guðmundur Ingi Guðbrandsson formaður VG um stjórnmál. Teitur Björn Einarsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Stefán Vagn Stefánsson alþingismenn um stjórnmál. Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson blaðamaður á Heimildinni um loftslagsmál.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Stefán Vagn Stefánsson alþingismenn um kjara- og efnahagsmál. Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri um nýjan Landspítala. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra um innflytjendamál. Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri SA og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins (SGS) um kjaramál.
Gestir Vikulokanna eru Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, Hörður Ægisson viðskiptaritstjóri og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu stöðuna í stjórnarheimilinu eftir að erjur á milli ráðherra VG og Sjálfstæðisflokks, stöðu efnahagsmála og 15 ára afmæli bankahrunsins. Umsjón: Magnús Geir Eyjólfsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Gestir Vikulokanna eru Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, Hörður Ægisson viðskiptaritstjóri og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu stöðuna í stjórnarheimilinu eftir að erjur á milli ráðherra VG og Sjálfstæðisflokks, stöðu efnahagsmála og 15 ára afmæli bankahrunsins. Umsjón: Magnús Geir Eyjólfsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Sunna Valgerðardóttir ræðir við Friðrik Jónsson, sérfræðing í öryggismálum, um uppreisn Wagner-hersins í Rússlandi. Gestir í hljóðstofu eru þau Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokks, Jóhann Friðrik Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokks, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingkona Viðreisnar. Þau ræða Rússland, ríkisstjórnarsamstarf á völtum fótum, gagnrýni Framsóknar og Sjálfstæðisflokks á ákvörðun ráðherra VG um að banna hvalveiðar og Íslandsbankasöluna. Brot úr viðtali við Eirík Bergmann stjórnmálafræðiprófessor um ríkisstjórnarsamstarfið á Morgunvaktinni heyrist líka. Tæknimaður Vikulokanna er Jón Þór Helgason.
Sunna Valgerðardóttir ræðir við Friðrik Jónsson, sérfræðing í öryggismálum, um uppreisn Wagner-hersins í Rússlandi. Gestir í hljóðstofu eru þau Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokks, Jóhann Friðrik Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokks, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingkona Viðreisnar. Þau ræða Rússland, ríkisstjórnarsamstarf á völtum fótum, gagnrýni Framsóknar og Sjálfstæðisflokks á ákvörðun ráðherra VG um að banna hvalveiðar og Íslandsbankasöluna. Brot úr viðtali við Eirík Bergmann stjórnmálafræðiprófessor um ríkisstjórnarsamstarfið á Morgunvaktinni heyrist líka. Tæknimaður Vikulokanna er Jón Þór Helgason.
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Breiðabliks og landsliðskonan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir alþingiskona og fyrrum saksóknari hefur lengi barist fyrir réttlæti er kemur að málum ofbeldis, en hún hefur til dæmis verið aðstoðarsaksóknari og deildarstjóri ofbeldisbrotadeildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, aðstoðarmaður félags- og jafnréttismálaráðherra og saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara. Í dag situr hún á þingi og ástríða hennar liggur enn í réttlæti þar á bæ. Það var mikill heiður að fá hana til mín og það kom á óvart hvað hún er fáranlega skemmtileg, með geggjaðan húmor og svo hafsjór af visku. Það er ákveðin von sem maður fær í hjartað vitandi að kona eins og Þorbjörg siti á Alþingi og fær forvitni mín algjöra útrás. Njótið vel - Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar