Podcasts about kaliforn

  • 41PODCASTS
  • 140EPISODES
  • 1h 8mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Apr 23, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about kaliforn

Latest podcast episodes about kaliforn

Podcast með Sölva Tryggva
Beggi Ólafs snýr aftur

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Apr 23, 2025 106:37

https://solvitryggva.is/ Sálfræðingurinn Bergsveinn Ólafsson stefndi árum saman að því að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Eftir að hafa lagt allt í boltann áttaði hann sig á því að ástríðan var farin og lagði skóna á hilluna og setti alla sína krafta í að læra og miðla meiru í sálfræðinni. Hann býr nú í Kaliforníu, þar sem hann er í doktorsnámi. Í þættinum ræða Sölvi og Beggi um hugrekki, að elta draumana, karlmennsku, sannleikann, lífið í Los Angeles og margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Kaja Organic - https://www.kajaorganic.com/ Biofit - https://biofit.is/

Frjálsar hendur
Richard Henry Dana 5

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Apr 6, 2025 50:00

Hér segir að lokum frá ferðum Dana og skipsfélaga hans úti fyrir Kaliforníuströndum og merkilegum kaupskap með húðir og fleira sem þeir stóðu í. En hér segir líka frá hrottalegu hátterni skipstjórans á Pílagrímnum en frásögn Dana af því átti eftir að vekja gríðarlega athygli í Bandaríkjunum og víðar - enda ekkert dregið undan.

Frjálsar hendur
Richard Henry Dana 4 - Til Kaliforníu

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Mar 30, 2025 50:02

Áfram er haldið að taka saman efni úr sjóferðaminningum Richard Henry Dana og nú segir frá því er skip hans Pílagrímurinn er komið eftir erfiða siglingu alla leið til Kaliforníu og þar hefst kaupskapur mikill. En babb kemur fljótlega í bátinn.

Podcast með Sölva Tryggva
#349 Beggi Ólafs með Sölva Tryggva (Áskriftarþáttur)

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Mar 17, 2025 20:01

Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Sálfræðingurinn Bergsveinn Ólafsson stefndi árum saman að því að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Eftir að hafa lagt allt í boltann áttaði hann sig á því að ástríðan var farin og lagði skóna á hilluna og setti alla sína krafta í að læra og miðla meiru í sálfræðinni. Hann býr nú í Kaliforníu, þar sem hann er í doktorsnámi. Í þættinum ræða Sölvi og Beggi um hugrekki, að elta draumana, karlmennsku, sannleikann, lífið í Los Angeles og margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Kaja Organic - https://www.kajaorganic.com/

Skoðanabræður
#355 Bók mánaðarins: Play It As It Lays - Joan Didion (Fyrri hluti)

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Feb 1, 2025 20:01

Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís og Saltverk. Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Joan Didion skrifaði skýrt og fallega. Hún kjarnaði 60s í Kaliforníu og tjúnaði sig inn í hjarta Ameríku á sínum 70 ára rithöfundaferli. Hérna er farið yfir hennar vision, pælingar og áhrif. Hún byrjaði mikið af þessu sem við þekkjum vel í dag og hefur m.a inflúensað Lana Del Rey sérstaklega. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

Víðsjá
Brynhildur Þorgeirsdóttir myndhöggvari / svipmynd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 27, 2024 55:02

„Lífið er ekkert nema viðhorf og tímasetning,“ segir Brynhildur Þorgeirsdóttir myndhöggvari. Hjá henni er allt flæði og spuni, bæði í lífinu og listinni. „Það þarf að skynfinna myndlist, skynja frekar en að skilja.“ Það má segja að náttúran sé helsti innblástur Brynhildar og rekur hún það til æskustöðvanna en einnig til sterkrar náttúruupplifunar á hálendinu, þar sem hún starfaði sem landvörður meðfram myndlistarnáminu. Steypa og gler eru helsti efniviður Brynhildar. Hún hóf að vinna með gler í framhaldsnámi í Amsterdam en það var í Kaliforníu sem hún segist hafa uppgötvað eðli og tungumál efnisins. Efnið ræður alltaf för í hennar verkum og glerið er oftar en ekki útgangspukturinn. Svo tekur við leikur á milli kraftanna í efninu og kraftanna í Brynhildi sjálfri.

Lestin
Íslendingar í Ameríku

Lestin

Play Episode Listen Later Nov 6, 2024 53:49

Í þætti dagsins er aðeins eitt mál á dagskrá: Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum sem fóru fram í gær. Við fengum sendar dagbókarfærslur sjö íslendinga í Ameríku dagana 4-6. nóvember. Þau eru staðsett í Arizona, Kaliforníu, Minnesota, Maryland, Conneticut, Flórída og Vermont.

Podcast með Sölva Tryggva
Beggi Ólafs með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Oct 18, 2024 76:51

https://solvitryggva.is/ Sálfræðingurinn Bergsveinn Ólafsson stefndi árum saman að því að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Eftir að hafa lagt allt í boltann áttaði hann sig á því að ástríðan var farin og lagði skóna á hilluna og setti alla sína krafta í að læra og miðla meiru í sálfræðinni. Hann býr nú í Kaliforníu, þar sem hann er í doktorsnámi. Í þættinum ræða Sölvi og Beggi um hugrekki, karlmennsku, sannleikann, lífið í Los Angeles og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/

Draugar fortíðar
#212 Fimmmenningarnir frá Yuba

Draugar fortíðar

Play Episode Listen Later Oct 2, 2024 144:51

Þann 24. febrúar árið 1978 fóru fimm menn frá Yuba-sýslu í Kaliforníu á körfuboltaleik í Chico, nálægum bæ. Uppáhaldsliðið þeirra var að keppa og vildu þeir styðja það. Sjálfir áttu þeir að leika mikilvægan leik daginn eftir. Þeir glímdu allir við minniháttar þroskahamlanir. Þeir stóðu sig þó almennt ágætlega í að takast á við áskoranir lífsins. Þeir voru allir í sama körfuboltaliðinu og daginn eftir var mikilvægur leikur. Sigurvegararnir áttu að fá í verðlaun vikuferð til Los Angeles. Allir voru þeir mjög spenntir fyrir því og ákveðnir í að sigra leikinn. Þetta var í síðasta skipti sem þeir sáust á lífi. Eftir nokkurra daga leit fannst bíll þeirra um 180 km norður af Chico en heimabær mannanna var í þveröfuga átt, um 80 km suður af Chico. Þeir höfðu keyrt upp í fjalllendið í Plumas-þjóðgarðinum. Allar götur síðan hefur þetta hvarf valdið miklum heilabrotum fólks. Sumir voru fljótir að afskrifa þetta vegna þroskaskerðingar mannanna. Ættingjum þeirra hefur alltaf sárnað sú umræða. Enda er nokkuð ljóst að mennirnir voru að miklu leyti færir um að sjá um sig sjálfir. Ýmsar kenningar hafa komið fram um hvað gæti hafa valdið þessu dularfulla hvarfi. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

Hjjj
68. Margrét Harðardóttir, Senior Vice President hjá Arggosy Real Estate

Hjjj

Play Episode Listen Later Sep 13, 2024 79:48

Viðmælandi þáttarins er Margrét Harðardóttir, Senior Vice President hjá Arggosy Real Estate Partners (AREP) þar sem hún er yfir fjáröflun og fjárfestatengslum. Fyrirtækið stýrir framtakssjóðum sem fjárfesta í ákveðnum tækifærum í fasteignum á lægra miðstigi markaðarins  (e. lower middle market) og hefur nú yfir $3,5 milljarða af fasteignum í stýringu. Margrét er alin upp í Bandaríkjunum og á Íslandi, gekk í Menntaskólann í Kópavogi en lauk síðan BS í viðskiptafræði, með aukagrein í alþjóðlegum öryggis- og ágreiningsúrlausnum (e. International Security and Conflict Resolution) frá San Diego State University. Margrét starfaði áður sem framkvæmdastjóri (e. Managing Director) hjá Lateral Investment Management framtakssjóði (e. Private equity) og bar ábyrgð á vöruþróun, stefnumótun og fjáröflun en fyrirtækið var með um $800 milljónir undir stýringu en Margrét var í stofnendateymi sjóðsins. Lateral veitir vaxtarfé til fyrirtækja á miðstigum (e. middle market) með áherslu á B2B tæknifyrirtæki. Áður en hún gekk til liðs við Lateral var Margrét yfir fjárfestatengslum hjá framtakssjóði sem fjárfesti í fasteignum og vann hjá Bainbridge Capital, ráðgjafarfyrirtæki í samruna og yfirtökum (m&a) með aðsetur í La Jolla, Kaliforníu. Þátturinn er kostaður af Indó og Skaga.

Laboratoř
O chuti k jídlu nebo přejídání možná rozhoduje pár buněk

Laboratoř

Play Episode Listen Later Jul 27, 2024 25:55

Malá skupina neuronů rozhoduje o tom, jak rychle se myší pustí do jídla, s jakou chutí a jaké množství ho sní. Kalifornští badatelé zjistili, že když byly takzvané PSNT neurony aktivní, první sousto si myši braly pomaleji, zato rychleji pily vodu. Ovlivnilo to i konzumaci sladkostí.Všechny díly podcastu Laboratoř můžete pohodlně poslouchat v mobilní aplikaci mujRozhlas pro Android a iOS nebo na webu mujRozhlas.cz.

Lestin
Strákasveitin Spark, framritun í baksýnisspeglinum, KUSK

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 5, 2024 54:43

Við rifjum upp gleymda gersemi úr íslenskri tónlistarsögu, plötuna Lífið er leikur með strákasveitinni Spark, sem kom út árið 2005 þegar meðlimir sveitarinnar voru 10 og 11 ára gamlir. Kolbrún Óskarsdóttir, Kusk, sendi frá sér plötuna Rammar undir lok maímánaðar. Hún lítur við í hljóðveri og segir okkur frá. Þórður Ingi Jónsson sendir okkur línu frá Kaliforníu, hann ræddi um framritunartónlist við DJ_Dave og c_robo_ sem eru búsett þar en verða með tónleika á Radar í Reykjavík annað kvöld ásamt íslenskum listamönnum.

Mannlegi þátturinn
Dagur Heyrnar, vegavinkill og Huldar lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 4, 2024 53:57

Yfirvöld hafa áhyggjur af sífellt óhollara hljóðumhverfi fyrir börn, í skólum, að leik og í frístundum. Ástæða er til að skoða stöðu mála og fræða börn, ungmenni, kennara og aðstandendur um mikilvægi góðrar hljóðvistar og heyrnarverndar. Í gær var alþjóðlegur dagur Heyrnar og í síðustu viku var undirritaður þríhliða samstarfssamningur um innleiðingu fjarnáms í heyrnarfræði fyrir íslenska háskólanema. Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Háskólinn í Örebro í Svíþjóð og Háskólinn á Akureyri hafa gert með sér samning sem gerir kleift að bjóða upp á háskólanám í heyrnarfræðum í fyrsta sinn hér á landi. Kristján Sverrisson forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar kom í þáttinn í dag. Við fengum svo vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Í þetta sinn lagði hann vinkilinn við áhugaverða vegagerð, til dæmis vegi og brýr á Skeiðarársandi og hinn stórmerkilega „Plankaveg" vestur í Kaliforníu. Guðjón minnti svo hlustendur á að fara að öllu með gát hvar sem þeir ferðast. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Huldar Breiðfjörð, rithöfundur og handritshöfundur og greinarformaður í ritlist við Háskóla Íslands. Við forvitnuðumst um hvað hann er að gera þessa dagana og svo fengum við auðvitað að vita hvaða bækur hann hefur lesið undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Huldar sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum: When We Cease to Understand the World e. Benjamin Lapatut Endurminningar Annie Ernaux GoatMan e. Thomas Thwaites og svo höfundunum, Þórbergi Þórðarsyni, Brett Easton Ellis og Douglas Coupland. Tónlist í þættinum: Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarsson-Ólafur Haukur Símonarson) Ég heyri svo vel / Olga Guðrún Árnadóttir (Ólafur Haukur Símonarsson) In the year 2525 / Zager and Evans UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Podcast með Sölva Tryggva
#240 Beggi Ólafs með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Jan 8, 2024 20:01

Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Sálfræðingurinn Bergsveinn Ólafsson stefndi árum saman að því að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Eftir að hafa lagt allt í boltann áttaði hann sig á því að ástríðan var farin og lagði skóna á hilluna og setti alla sína krafta í að læra og miðla meiru í sálfræðinni. Hann býr nú í Kaliforníu, þar sem hann er í doktorsnámi. Í þættinum ræða Sölvi og Beggi um hugrekki, karlmennsku, sannleikann, lífið í Los Angeles og margt fleira. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/

Dagbók Urriða
Dagur Árni - Allt um straumflugur fyrir stóru fiskana. (Gamall patreon þáttur)

Dagbók Urriða

Play Episode Listen Later Nov 9, 2023 71:39

Í þessum þætti heyrum við í Dag Árna og lærum mikið um stórar straumflugur og þá tækni sem býr að baki því að ná þessum stóru fiskætum. Við spjöllum líka um Kaliforníu og þær hættur sem leynast þar í veiðinni. Virkilega skemmtilegur þáttur sem mikið er hægt að læra af.

Morðskúrinn
Manndráp: Arlis Perry

Morðskúrinn

Play Episode Listen Later Nov 8, 2023 48:41

Arlis Perry var 19 ára gömul, nýlega flutt til Kaliforníu og var að koma sér þar vel fyrir með sínum manni þegar hún var myrt á hrottalegan máta. Hún hafði rétt ætlað að skreppa inn í kirkju til að biðja eftir að hafa verði í einum af mörgum göngutúrm sínum.  Málið átti eftir að reynast erfitt að leysa og var það ekki fyrr en áratugum síðar sem að pússlin fóru að passa   ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn   www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn  

Lestin
Markaðssnillingurinn Taylor Swift, Grænlenska tónlistarsenan, barnabíó

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 26, 2023 53:20

Nýjasta tónleikaferð bandarísku poppsöngkonunnar Taylor Swift er nú þegar komin í sögubækur tónlistariðnaðarins. Tekjuhæsta tónleikaferð konu frá upphafi og hún verður að öllum líkindum tekjuhæsta tónleikaferð allra tíma, óháð kyni tónlistarmanns. Kvikmynd unnin upp úr tónleikum hennar í Inglewood, í Kaliforníu í ágúst er orðin vinsælasta tónleikakvikmynd allra tíma. Eldheitir aðdáendur, Swifties, um allan heim, meðal annars hér á Íslandi, flykkjast á myndina, skreyttir glitrandi gervidemöntum og vinaböndum, og öskursyngja með einni allra stærstu poppstjörnu samtímans. Í Lestinni í dag ætlum við ekki að sökkva okkur í lögin eða textana heldur að rýna í markaðsvélina sem hefur spilað stóran þátt í velgengi Taylor Swift með Eydísi Blöndal. Við höldum í ferðalag um tónlistarsenuna í okkar næsta nágrannalandi, Grænlandi. Þar rekumst við meðal annars á sleðahunda, mosuxa, lengsta orð grænlensku og rokksveitin Sumé. Leiðsögumaður okkar er tónlistarkonan Katrín Helga Ólafsdóttir. Ef þú hefur ekki séð Duggholufólkið þá hefur þú ekki lifað, segir Hrönn Sveinsdóttir, en þessi sígilda barnamynd sem gagnrýndi snjallsímafíkn fyrir tíma snjallsímans er ein af þeim sem verður sýnd á Alþjóðlegri barnakvikmyndahátíð í Reykjavík. Við hringjum í Bíó Paradís og heyrum um hátíðina.

Lestin
Markaðssnillingurinn Taylor Swift, Grænlenska tónlistarsenan, barnabíó

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 26, 2023

Besta afsögn ársins, Julie Byrne, goðsagnakenndir eyðimerkurtónleikar

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 10, 2023

Risafréttir úr íslenskum stjórnmálum. Bjarni Benediktsson hefur sagt af sér sem fjármálaráðherra. Snemma í morgun birtist álit umboðsmanns Alþingis á sölu ríkisins á hlut sínum í Íslandsbanka í fyrra. Pabbi Bjarna var meðal þeirra sem keyptu hlut í bankanum. Umboðsmaður segir Bjarna hafa verið vanhæfan. Og Bjarni bregst við með að segja af sér. Sumir hafa túlkað þetta sem snjallan pólitískan leik hjá teflon-Bjarna sem sé núna að setja pressu á Svandísi Svavarsdóttur og ætli svo bara að verða utanríkisráðherra, en margir aðrir hafa hrósað honum fyrir að axla ábyrgð, og fyrir virða lýðræðislegar stofnanir - þó hann sé ósammála þeim. Við ætlum hins vegar að rýna í sjálfa afsagnarræðuna, orðin. Árið 1983 voru haldnir þrennir tónleikar í Mojave eyðimörkinni í Kaliforníu þar sem margar af framsæknustu rokksveitum þess tíma komu fram: Sonic Youth, Einstürzende Neubauten og Minuteman. Þessi goðsagnalegu tónleikar, Mojave Exodus, eru oft sagðir hafa lagt grunninn að tónlistarhátíðum á borð við Burning Man og Coachella. Maðurinn á bakvið tónleikana var Stuart Swezey, en hann er viðfangsefni nýrrar heimildamyndar sem nefnist Desolation Center. Þórður Ingi Jónsson útsendari Lestarinnar í Los Angeles ræddi við Stuart um tónleikahald á pönkárunum. Hildur Maral Hamíðsdóttir fjallar um nýja plötu bandarísku indí-kassagítarsöngkonunnar Julie Byrne, The Greatest Wing. Plötu sem er kláruð í skugga fráfalls hennar helsta samstarfsmanns og kærasta Erics Littman.

Lestin
Besta afsögn ársins, Julie Byrne, goðsagnakenndir eyðimerkurtónleikar

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 10, 2023 55:00

Morgunvaktin
Gervigreind í stjórnun og nýráðningum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 5, 2023

Í byrjun þáttar var þess minnst að 55 ár eru í dag frá því að bandaríski stjórnmálamaðurinn Robert F. Kennedy var ráðinn af dögum í Kaliforníu. Morðingi hans, Sirhan Sirhan, hlaut lífstíðardóm og situr enn inni, og hefur ítrekað verið neitað um reynslulausn. Sjómannadagurinn var í gær, og haldið var upp á hann víða um landið, og það á líka við í hinum rótgróna sjávarútvegsbæ Grindavík. Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar í Grindavík sagði frá hátíðarhöldunum þar, og vítt og breitt frá stöðu mála í bænum. Björn Malmquist var með okkur frá torgi í Brussel. Hann sagði frá ferð sinni til Eindhoven á úrslitaleikinn í meistaradeild kvenna í fótbolta, heimsókn Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana til Washington og flutti Morgunvaktinni fleiri fréttir frá Evrópu. Hvernig getur gervigreind komið að notum við stjórnun og við nýráðningar? Er gervigreindin laus við ómeðvitaða fordóma mannfólksins eða, þvert á móti, enn fordómafyllri. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda og prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, er meðal stjórnenda nýs rannsóknarverkefnis sem skoðar þessi mál. Hún var gestur Morgunvaktinnar í síðasta hluta þáttarins. Tónlist: Some Other Spring - Billie Holiday Háa C - Moses Hightower This Guy's In Love With You - Herb Alpert Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Morgunvaktin
Gervigreind í stjórnun og nýráðningum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 5, 2023 130:00

Heimskviður
144| Flóttamannavandi Ítala og ofbeldi í kvennafangelsum Bandaríkjanna

Heimskviður

Play Episode Listen Later Apr 22, 2023 40:00

Flóttamannastraumurinn frá Norður-Afríku, yfir Miðjarðarhafið og til Ítalíu hefur fjórfaldast síðan í fyrra og kostað gífurlegan fjölda mannslífa. Orsakar straumsins er að leita í verra ástandi í þessum löndum, einkum Túnis. Og þetta allt saman veldur miklum vandræðum á Ítalíu. Stjórnvöld þar, sem hafa á stefnuskránni að draga úr þessum flóttamannastraumi, hafa lýst yfir neyðarástandi og segjast ekki ráða við þennan mikla fjölda. Almenningur á Ítalíu er klofinn í afstöðu til þess hvort flóttamennirnir eigi að fara eða vera. Í fyrri hluta þáttarins skoðar Hallgrímur Indriðason málið með aðstoð þeirra sem til þekkja, bæði út frá stöðu flóttamannanna, en líka landsins sem þarf að taka við þeim. Rúmlega 172 þúsund konur og stúlkur sitja inni í fangelsum Bandaríkjanna. Innan veggja eins þeirra, í Dublin alríkisfangelsinu í Kaliforníu, hafa fjölmargar konur sagt frá hrikalegri meðferð og ítrekuðu kynferðisofbeldi af hendi fangavarða. Dublin fangelsið er oft kallað nauðgunarklúbburinn af bæði föngum og fangavörðum. Misnotkun á föngum og þöggun þar um hefur staðið yfir um árabil en flóðgáttirnar hafa verið að opnast undanfarna mánuði. En það sem bíður margra þeirra kvenna sem hafa sagt frá, sem eru flestar innflytjendur eða konur án bandarísks ríkisfangs, er að vera vísað úr landi. Jóhannes Ólafsson fjallar um konur í fangelsum í Bandaríkjunum í síðari hluta þáttarins.

Heimskviður
144| Flóttamannavandi Ítala og ofbeldi í kvennafangelsum Bandaríkjanna

Heimskviður

Play Episode Listen Later Apr 22, 2023

Besta platan
#0170 Fear Factory – Demanufacture

Besta platan

Play Episode Listen Later Apr 21, 2023 100:55

Kaliforníusveitin Fear Factory kom eins og stafrænn stormsveipur inn í miðjan 10. áratuginn með sérstakri blöndu sinni af melódísku þungarokki og dynjandi teknói. Platan Demanufacture frá árinu 1995 er til umfjöllunar hér, enda besta plata Fear Factory.

Frjálsar hendur
Hásetinn Richard Henry Dana Jr.

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Mar 12, 2023 52:00

Illugi Jökulsson les úr bók eftir bandaríska rithöfundinn Richard Henry Dana, sem fæddist í Cambridge í Massachusetts árið 1815. Hann réð sig sem óbreyttur háseti á flutningaskipi sem sigldi fyrir Hornhöfða, syðsta odda Suður-Ameríku til Kaliforníu. Hann skrifaði bókina Two Years Before The Mast, þar sem hann lýsir þvi sem fyrir hann bar. Í maí 1836 lagði hann af stað á öðru skipi til baka, sem hét Alert. Lýsingar Dana eru magnaðar, einkum af því þegar Alert reynir vikum saman að ná fyrir Hornhöfða í illviðrum og hafís um hávetur.

Frjálsar hendur
Hásetinn Richard Henry Dana Jr.

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Mar 12, 2023

Illugi Jökulsson les úr bók eftir bandaríska rithöfundinn Richard Henry Dana, sem fæddist í Cambridge í Massachusetts árið 1815. Hann réð sig sem óbreyttur háseti á flutningaskipi sem sigldi fyrir Hornhöfða, syðsta odda Suður-Ameríku til Kaliforníu. Hann skrifaði bókina Two Years Before The Mast, þar sem hann lýsir þvi sem fyrir hann bar. Í maí 1836 lagði hann af stað á öðru skipi til baka, sem hét Alert. Lýsingar Dana eru magnaðar, einkum af því þegar Alert reynir vikum saman að ná fyrir Hornhöfða í illviðrum og hafís um hávetur.

Lestin
Útlitsaðgerðir, fljúgandi furðuhlutir og Cracker Island

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 1, 2023 55:00

Þórður Ingi Jónsson horfir til himins í Kaliforníu með íslensku ljósmyndurunum Bergdísi Guðnadóttur og Önnu Grímsdóttur. Þær hafa verið að kanna fljúgandi furðuhluti þar vestra þar sem hugtakið UFO hefur verið mikið í deiglunni eins og endranær en hefur víst fengið nýja skammstöfun, UAP. Brynja Hjálmsdóttir flytur okkur lokapistil sinn í Lestinni. Í dag fjallar hún um fegrunar eða útlitslækningar, sögu þeirra og vandamál. Þær kosta víst bara sama og nokkrar klippingar, nokkur skipti út að borða, ekki meira en nokkrir fullir tankar á bílinn? Sumir eiga svo mikla peninga að þeir vita ekki hvað á að eyða þeim í, sumir eyða þeim í undirbúning fyrir það sem óljóst er hvort sé á leiðinni. Í tilefni af Lestarþætti gærdagsins, þar sem farið var rækilega ofan í saumana á heimsendafrásögnum þá og nú rifjum við um innslag Lóu Bjarkar Björnsdóttur um undirbúning hinna offurríka fyrir dómsdag. Við endum á að hlusta á smá brot úr plötunni Cracker Island, áttundu hljóðversplötu teiknihljómsveitinnar Gorillaz sem kom út fyrir helgi.

Lestin
Útlitsaðgerðir, fljúgandi furðuhlutir og Cracker Island

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 1, 2023

Laun, stjörnur og gullgrafaraæði

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 25, 2023 130:00

Við fjölluðum um laun í dag, og virði og mikilvægi ólíkra starfa. Hvort er mikilvægara að hjúkra sjúkum á gjörgæsludeild eða sýsla með verðbréf? Í tilviki hjúkrunarinnar getur verið um líf eða dauða að tefla en verðbréfamiðlun er tilfærsla á peningum. Ég held ég geti fullyrt að almennt séu verðbréfamiðlarar betur launaðir en hjúkrunarfræðingar. Og hvernig ætli standi á því? Hvaða skýringar kann hagfræðin? Við spáðum og spegúleruðum með Þórólfi Matthíassyni, prófessor í hagfræði. Síðasta áratuginn hefur þeim fjölda stjarna sem hægt er að sjá með berum augum á himninum fækkað verulega. Þetta sýnir ný rannsókn, þar sem fólk um allan heim var beðið um að telja stjörnurnar sem það sá á himninum. Ástæðan fyrir þessu er mengun - ljósmengun. Við spjölluðum um stjörnurnar, birtuna og himininn við Sigríði Kristjánsdóttur formann Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Svo var það sagan. Í gær voru liðin 175 ár síðan trésmiðurinn James Marshall kom auga á glitrandi steinvölur í árfarvegi í Coloma í El Dorado-sýslu í Kaliforníu. Það var gull. Fundurinn varð upphafið að fordæmalausu gullæði, sem umbreytti Kaliforníu og lífi tugþúsunda vongóðra gullgrafara, sem streymdu þangað frá öllum heimshornum. Gullið varð þó Marshall sjálfum ekki til mikillar gæfu, líkt og Vera Illugadóttir sagði frá. Tónlist: Brúnaljósin brúnu - Einar Júlíusson 18 yellow roses - Hljómar Viltu dansa ? Einar Júlíusson og Pónik Man of constant sorrow ? Ralph Stanley Ég teikna stjörnu - Hjálmar

Morgunvaktin
Laun, stjörnur og gullgrafaraæði

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 25, 2023

Spegillinn
Verkföll, orkubylting og lögregluhneyksli

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 15, 2022 10:23

Sakborningar í hryðjuverkamálinu ræddu sín á milli um að aka á mannfjölda í gleðigöngunni í Reykjavík. Sérfræðingar Evrópulögreglunnar töldu árás yfirvofandi. Framkvæmdastjóri N4 á Akureyri segir það hafa verið fyrir tilstuðlan þingmanns Framsóknar frá Akureyri, sem hún sendi 100 milljón króna styrkbeiðni til fjárlaganefndar. Mágur framkvæmdastjórans þvertekur fyrir að hafa verið vanhæfur í málinu. Stjórnvöld heims eru langt frá því að ná markmiði um að halda hlýnun harðar innan einnar og hálfrar gráðu. Nýtt stöðumat Loftslagsráðs leiðir í ljós að stjórnvöld hér á landi þurfi að spýta verulega í lófana. Hjúkrunarfræðingar í Bretlandi segjast vera að kikna undan álagi. Á annað hundrað þúsund lögðu niður störf í dag. Kjarnasamruni sem bandarískir vísindamenn greindu frá í vikunni á skilið nóbelsverðlaun og gæti umbylt orkugeiranum. Þetta segir orkumálastjóri. Enn sé þó langur vegur í að hægt sé að hagnýta aðferðina. ---- Yfir eitt hundrað þúsund hjúkrunarfræðingar á Englandi, Norður-Írlandi og í Wales eru í eins sólarhrings verkfalli til að mótmæla bágum kjörum og ófullnægjandi vinnuaðstæðum. Stéttarfélag þeirra Royal College of Nursing eða RCN fer fram á 19,2 prósenta launahækkun. Stjórnvöld segja kröfurnar taka út yfir allan þjófabálk og býður fjögurra prósenta hækkun. Ásgeir Tómasson fjallar um málið. Kjarnasamruninn sem vísindamenn í Bandaríkjunum greindu frá á þriðjudag er einstakt vísindaafrek sem gæti lagt grunn að byltingu í orkuframleiðslu, segir orkumálastjóri. Enn er þó langur vegur í að hægt verði að hagnýta hann. Blásið var í lúðra í Kaliforníu á þriðjudag þegar vísindamenn greindu frá því að þeim hefði í fyrsta sinn tekist að beita svokölluðum kjarnasamruna til að vinna raforku og fengið meiri orku út en sett var inn í ferlið. Tvö hundruð leysigeislum var beint í átt að hylki á stærð við piparkorn, til að fá tvö létt atóm til að renna saman en við það losnar orka úr læðingi. Þessi tilraun hefur verið framkvæmd áður - en það merkilega í þetta sinn var að orkan sem fékkst út var meiri en sú sem þurfti í geislann. Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri segir afrekið gera tilkall til Nóbelsverðlauna. Bjarni Rúnarsson ræddi við hana. Hneykslismál skekur nú yfirstjórn sænsku lögreglunnar. Rætt er um yfirhylmingu og þöggunartilburði í tengslum við meinta áreitni, líkamsárás og umsáturseinelti eins af æðstu yfirmönnum lögreglunnar í Svíþjóð. Kári Gylfason í Gautaborg fjallar um málið. Umsjón:Bjarni Rúnarsson. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Spegillinn
Verkföll, orkubylting og lögregluhneyksli

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 15, 2022

illverk
The Trashbag Killer - Patrick Kearney

illverk

Play Episode Listen Later Dec 10, 2022 5:33

Raðmorðinginn Patrick Kearney gekk laus frá 1962-1977 í Suður Kaliforníu. Skelfilegar aðferðir hans til að drepa og síðan losa sig við fórnarlömbin, gaf honum með tímanum viðurnefnið "The Trashbag Killer" Þessi þáttur er í áskrift. Þú getur hlustað á hann í heild sinni með að skrá þig í ILLVERK ÁSKRIFTINA - Þú getur gert það með að smella HÉR Það kostar 950,-kr á mánuði og veitir þér aðgang að yfir 170+ aukaþáttum, þú færð fimm nýja í hverjum mánuði og fríu þættina án auglýsinga. Kynntu þér endilega málið á illverk.is

VÍDJÓ
Glataðir gaurar (The Lost Boys)

VÍDJÓ

Play Episode Listen Later Nov 15, 2022 99:30

Tveir bræður eru nýfluttir til smábæjar í Kaliforníu og eru þar að fóta sig og reyna að kynnast nýjum vinum. Það gengur ekki betur en svo að fyrsti vinahópur sem þeir kynnast eru vampírur sem lifa gjálífi og myrða bæjarbúa. Þegar eldri bróðirinn smitast af vampírunum og virðist ætla að umbreytast sjálfur í eina slíka eru góð ráð dýr.

Lestin
Nope, nýtt frá Björk, hljóðserían Skerið

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 6, 2022 55:00

Nope, nýjasta mynd bandaríska leikstjórans Jordan Peele kom út í sumar. Geimverumynd sem gerist á hestabúgarði í Kaliforníu. Hingað í Lestina kemur Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður og spekúlant til að ræða Nope og þemu myndarinnar, sem varð til í miðjum heimsfaraldri. Hljóðbókaveitan Storytel er í auknum mæli að snúa sér að framleiðslu hlaðvarpa og útvarpsleikrita - það sem þau kalla reyndar hljóðseríur. Fyrsta íslenska hljóðserían frá Storytel fór í loftið í sumar: Skerið, sem fjallar um íslenskan sjomla sem vaknar upp í óþekktu hótelberbergi eftir djamm á Tenerife. Hann kemst ekki af eyjunni, símasamband er stopult og dularfullir atburðir byrja að eiga sér stað. Við ræðum við höfunda Skersins, parið Áslaugu Torfadóttur og Ragnar Egilsson. Og við ætlum að heyra nýja lagið frá Björk Guðmundsdóttur, Atopos, fyrsta lagið af væntanlegri plötu hennar Fossora, og ræða myndbandið sem inniheldur sveppi og sex bassaklarinett.

Lestin
Nope, nýtt frá Björk, hljóðserían Skerið

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 6, 2022

Draumaliðið
Svona var sumarið UPPGJÖR 2003-2013 - ft. AGG10 og Brunnurinn

Draumaliðið

Play Episode Listen Later Jul 26, 2022 114:11

LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S Orri er kominn í tvöfalt barneignarleyfi og Joe er að flytja til Kaliforníu svo til að kveðju með einhverju var ákveðið að hlaða í uppgjör á síðustu 10 þáttum þar sem áherslan var á því sem gerðist after dark í miðbæ Reykjavíkur eða heimapartýjum í Hafnafirði og góðir gestir voru fengnir til að kryfja gullaldarárin. Svona var sumarið verður ekki lengra að sinni, við þökkum fyrir hlustunina og sjáusmt vonandi eftir ca ár. Til allra sem hafa hlustað, það er bara takk! Til þeirra sem eru ennþá að hlusta og vilja koma að sögum í leiðréttinga- og söguhornið, ekki hika við að heyra í okkur!

Laboratoř
Samičky, nebo samečci? U mravenců o pohlaví rozhodují geny

Laboratoř

Play Episode Listen Later Jun 18, 2022 25:49

O tom, zda mravenčí královna vyprodukuje samičí, nebo samčí kolonii, rozhoduje spíš dědičnost než prostředí, kde žije. Kalifornští vědci zjistili, že tento proces řídí soubory genů, takzvané supergeny. „Korespondují s tím, jak se která kolonie množí,“ vysvětluje entomolog Petr Klimeš.Všechny díly podcastu Laboratoř můžete pohodlně poslouchat v mobilní aplikaci mujRozhlas pro Android a iOS nebo na webu mujRozhlas.cz.

Poppsálin
Súpermamman sem hvarf

Poppsálin

Play Episode Listen Later May 2, 2022 36:42

Þessi þáttur fjallar um mjög sérstakt mannhvarfsmál þar sem  Sherri Papini súpermamma hverfur frá heimili sínu í Kaliforníu. Þetta mál er mjög spes og kemur á óvart!Einnig er fjallað um ýmsar sálfræðilegar hugmyndir í tengslum við hvarfið. Sálfræðilegu pælingarnar eru dýpkaðar í aukaþætti sem áskrifendur geta nálgast á www.patreon.com/poppsalinHægt er að styrkja Poppsálina á Patreon og fá áhugaverða aukaþætti. 

Heimsglugginn
Mjanmar, Norður-Írland og San Quentin

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Feb 3, 2022 21:29

Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir ræddu í Heimsglugganum við Boga Ágústsson um ástandið í Mjanmar, sem áður hét Búrma. Herforingjar rændu völdum þar fyrir ári og síðan hefur ástandið í landinun hríðversnað og svo er komið að óttast er að borgarastyrjöld brjótist út. Herforingjastjórnin hefur barið niður mótmæli og andstöðu af mikilli hörku. Vitað er um 1500 sem her og lögregla hafa orðið að bana en almennt er talið að miklu fleiri hafi verið drepnir. Víðtæk verkföll hafa lamað atvinnulífið og það hefur orðið mikið bakslag, svo mjög að hætta er á hungursneyð. Sameinuðu þjóðirnar áætla að þjóðarframleiðslan í Mjanmar hafi dregist saman um að minnsta kosti tíu prósent á síðasta ári. Alþjóðabankinn segir raunar að ástandið sé enn verra, efnahagssamdráttur vegna valdaránsins og áhrifa covid sé meira en 30 prósent. Michelle Bachelet, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur sagt að ástandið hafi breyst úr pólitískri krísu í mannlegar hamfarir. Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna taldi um mitt ár í fyrra að helmingur þjóðarinnar yrði undir fátækrarmörkum í byrjun þessa árs. Það eru meir en 25 milljónir manns. Framtíðin virðist mjög dökk, lítil von er um frið, fréttaskýrendur hafa sagt vopnaða baráttu gegn herforingjunum nánast vonlausa, hún verði tæpast sigruð á vígvelli. Það eru afar litlar líkur á að efnahagurinn nái sér, raunar margt sem bendir til þess að efnahagsástandið versni enn. Edwin Poots, landbúnaðarráðherra Norður-Írlands, fyrirskipaði í gærkvöld öllum að óvörum að tollverðir ættu að hætta eftirliti með vörum sem koma frá Bretlandi. Það er brot á Brexit-samningunum og getur sett samninga um framkvæmd þeirra í uppnám. Í lokin var rætt um San Quentin fangelsið alræmda í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Hefur Gavin Newsom, ríkisstjóri, fyrirskipað að dauðaganginum í hinu alræmda San Quentin fangelsi verði lokað. Það eru nærri 700 fangar á dauðadeildinni og þeir verða fluttir í önnur fangelsi og þar verður farið með þá eins og aðra fanga sem dæmdir hafa verið í lífstíðarfangelsi án möguleika á að verða látnir lausir. San Quentin hefur komið fyrir mörgum kvikmyndum og sjónvarpsmyndum, margar bækur hafa verið skrifaðar þar sem fangelsið kemur við sögu og svo er náttúrulega hið fræga lag Johnny Cash, sem heitir einfaldlega San Quentin. Þekktasta útgáfa lagsins var tekin upp í fangelsinu sjálfu 1969 þar sem fangar voru áheyrendur. Cash syngur fyrir munn fanga um hversu ömurlegt fangelsið sé, lifandi helvíti og að hann hati hvern þumlung. Fangarnir taka vel undir þegar Johnny Cash bölvar San Quentin.

Heimsglugginn
Mjanmar, Norður-Írland og San Quentin

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Feb 3, 2022

Glæpatíðni, karlmennskuverðlaun og pólifónísk saga

Lestin

Play Episode Listen Later Jan 3, 2022 55:00

Hvernig segir maður margradda sögu í gegnum tónlist. Þessu veltir tónlistar og myndlistarmaðurinn Bergur Anderson fyrir sér á hinni sérkennilegu hljómplötu Night Time Transmissions, plötu sem er meðal annars innblásin af húsnæðisvandræðum listafólks í Amsterdam. Glæpum í Bandaríkjunum hefur fjölgað til muna í faraldrinum, ekki síst í Kaliforníu þar sem glæpagengi sammælast um ráðast inn í búðir og láta greipar sópa. Umræðan um glæpatíðnina í Bandaríkjunum er þó svo samansúrruð af mismunandi hagsmunum að erfitt getur reynst að fá skýr svör um tölfræðina. Þórður Ingi talar frá Los Angeles. Eitt sinn hefðu karlmennskuverðlaun mögulega verið veitt fyrir loðnustu bringuna, flestum sviðakjömmum sporðrennt eða kílóum lyft - en fyrir áramót voru þau veitt nokkrum mönnum sem þóttu hafa skarað fram úr í svokallaðri jákvæðri karlmennsku, mönnum sem nýttu forréttindi sín með uppbyggilegum hætti í þágu jafnréttis.

Í ljósi sögunnar
Hrakningar Donner-flokksins II

Í ljósi sögunnar

Play Episode Listen Later Dec 10, 2021

Síðari þáttur um hrakfarir hins svonefnda Donner-flokks, bandarískra landnema sem reyndu að komast landleiðina vestur til Kaliforníu sumarið 1846. Í þessum þætti segir frá vetursetu fólksins í Sierra Nevada-fjöllum og örvæntingarfullum tilraunum til að komast af. Athugið að lýsingar í þættinum gætu valdið óhug.

Hrakningar Donner-flokksins I

Í ljósi sögunnar

Play Episode Listen Later Dec 3, 2021

Í þættinum er fjallað um svokallaðan Donner-flokk, hóp bandarískra landnema sem freistuðu þess að ferðast þvert yfir Norður-Ameríku til Kaliforníu árið 1846, en lentu í miklum hrakningum á leiðinni. Fyrsti þáttur.

Vandi KSÍ, menningarbylting í íþróttahreyfingunni, ofbeldi í Mexico

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 31, 2021 30:00

Spegillinn 31. ágúst 2021 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Þjálfari karlalandsliðs Íslands í fótbolta segist ekki hafa íhugað að hætta vegna stöðunnar sem upp er komin innan KSÍ. Menntamálaráðherra fundaði með stjórn KSÍ síðdegis og segist treysta forystunni til að leysa úr málinu. Rætt við Arnar Þór Viðarsson. landsliðsþjálfara Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra fundaði með fráfarandi stjórn KSÍ í dag. Hún segist ánægð með þær áætlanir sem henni hafi verið kynntar. Hún treysti knattspyrnuforystunni til að leysa úr málinu, en þykir ekki viðeigandi að tjá sig um málefni einstakra starfsmanna. Framkvæmdastjóri NATO varar Talíbana við því að hindra för flóttafólks. Mikilvægt sé að halda Hamid Karzai flugvellinum í Kabúl opnum. Píratar leggja áherslu á lýðræði, nýja stjórnarskrá, róttækar breytingar í sjávarútvegsmálum og vilja uppræta spillingu fyrir komandi kosningar. Rætt við Björn Leví Gunnarsson, hjá Pírötum. Sjötíu og fimm prósent barna á aldrinum 12 til 17 ára hafa verið bólusett við Covid-19. Þrjátíu og þrjár tilkynningar um aukaverkanir hafa borist Lyfjastofnun. Rætt við Guðrúnu Aspelund, yfirlækni hjá Landlæknisembættinu Gróðureldar brenna glatt í Kaliforníuríki Bandaríkjanna. Tugir þúsunda hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna eldanna Samfélagsleg bylting sem átt hefur sér stað undanfarin ár hefur líka náð til íþróttahreyfingarinnar. Stórkostlegar breytingar eiga sér nú stað í íþróttamenningunni, segir prófessor í félagsfræði. Rætt við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði. Stjórnvöld í Mexíkó hafa höfðað mál á hendur nokkrum bandarískum byssuframleiðendum fyrir dómstóli í Bandaríkjunum. Þau saka framleiðendurna um að auðvelda sölu á vopnum til eiturlyfjagengja í Mexíkó. Hryllileg ofbeldis- og morðalda hefur gengið yfir landið undanfarin 15 ár. Ragnhildur Thorlacius segir frá Á Covid tímum sjást ekki sextíu rútur við Gullfoss en kannski fleiri bílar Íslendinga en áður var. Sama staða er á vinsælum ferðamannaslóðum annars staðar: heimamenn og innlendir ferðamenn hafa þær fyrir sig. Ýmislegt bendir til að þetta muni breytast þegar dregur úr veirufaraldrinum en áhrif aukinnar umhverfisvitundar á ferðalögum fólks er nýr óvissuþáttur. Sigrún Davíðsdóttir fjallar um veirufaraldurinn og ferðaþjónustu víða um heim.

VÍDJÓ
Skarkári (Poltergeist)

VÍDJÓ

Play Episode Listen Later Aug 10, 2021 64:49

Amerísk vísitölufjölskylda flytur í fallegt hús í úthverfi í Kaliforníu og hyggur á huggulegt líf þegar undarlegir andar fara að láta á sér kræla. Yngsta dóttirin verður þeirra fyrst vör og smátt og smátt taka þeir yfir heimilið. Óhugnaðurinn virðist engan enda ætla að taka og foreldrarnir leita ráða vítt og breitt um samfélagið til að ráða niðurlögum á draugaganginum.