Húðkastið

Follow Húðkastið
Share on
Copy link to clipboard

Húðkastið er podkastþáttur Húðlæknastöðvarinnar um allt sem viðkemur húð, frá húðvandamálum til fegrunaraðgerða og allt þar á milli. Við heitum Ragna Hlín, Jenna Huld og Arna Björk og við erum húðlæknar með brennandi áhuga á húðinni.

Húðlæknastöðin


    • Aug 22, 2024 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 45m AVG DURATION
    • 24 EPISODES


    Search for episodes from Húðkastið with a specific topic:

    Latest episodes from Húðkastið

    Perioral dermatitis

    Play Episode Listen Later Aug 22, 2024 27:48


    Hvað er perioral dermatitis og af hverju er þetta svona algengur sjúkdómur?  Getur verið að aukin notkun virkra húðvara ýti undir einkennin?  Í þessum þætti svörum við þessum spurningum og mörgum fleiri varðandi bólgusjúkdóminn perioral dermatitis.

    Decutan, sterka bólulyfið

    Play Episode Listen Later Jan 17, 2024 57:00


    Fyrsti þáttur í nýrri seríu af Húðkastinu! Í fyrsta þætti er fjallað um sterka bólulyfið Decutan. Decutan er verulega áhrifarík meðferð við þrymlabólum (acne vulgaris) en það tekur á öllum þáttum sjúkdómsins, fílapenslunum, fitumynduninni og graftarbólunum. Þetta er löng meðferð (6 mánuðir eða meira) sem getur tekið á þar sem lyfið minnkar ekki aðeins fituframleiðslu húðarinnar heldur einnig slímhúðarinnar. Er því mjög algengt að fá varaþurrk og þurrk í húðina almennt á meðan meðferð stendur. í þessum þætti förum við í gegnum allt sem viðkemur Decutan meðferð gegn þrymlabólum.

    Hvernig virkar háreyðingarlaser?

    Play Episode Listen Later Nov 22, 2022 31:59


    Háreyðing með laser er vinsælasta lasermeðferðin sem við framkvæmum á Húðlæknastöðinni enda er aukin hárvöxtur vandamál sem allmargir glíma við. Það er ýmislegt sem þarf að hafa í huga fyrir og eftir laserháreyðingu og ekki allir sem geta farið í þessa meðferð. Í þessum húðkastsþætti förum við í gegnum allt sem viðkemur laserháreyðingu.

    Hvað er laser?

    Play Episode Listen Later Nov 22, 2022 9:25


    Húðlæknar vinna mikið með lasermeðferðir í daglegu starfi. Bæði er hægt að nota laser í læknisfræðilegum tilgangi, sem og til að sporna við öldrun húðarinnar. Í þessum þætti útskýrum við í einföldu máli hvað laser er, hvernig hann virkar og hvað er hægt að meðhöndla með laserum.

    PCOS - Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni

    Play Episode Listen Later Jun 7, 2022 60:26


    Hvað er PCOS og hvernig er það greint? Hvaða húðeinkenni geta verið til staðar í PCOS og er hægt að meðhöndla sjúkdóminn? Í þessum þætti fær Dr. Ragna Hlín til sín tvo góða gesti, Dr. Heiðdísi Valgeirsdóttur kvensjúkdómalækni og Steinunni Arnarsdóttur innkirtlalækni, og saman fara þær yfir allt sem viðkemur PCOS eða fjölblöðrueggjastokkaheilkenni eins og það heitir á íslensku.

    Atópískt exem (barnaexem) hluti 2 af 2 - Meðferðir

    Play Episode Listen Later Mar 7, 2022 45:51


    Hversu mikilvægt er fyrir fólk með atópískt exem að nota rakakrem daglega og hvaða meðferðir eru í boði ef sterakremin eru hætt að virka? Er hægt að lækna atópískt exem? Í þessum þætti förum við í gegnum þá meðferðarmöguleika sem eru í boði fyrir atópískt exem og hvað sé hægt að gera til að fyrirbyggja endurteknar versnanir á exeminu.

    Atópískt exem (barnaexem) hluti 1 af 2 – Orsakir og einkenni

    Play Episode Listen Later Feb 22, 2022 53:32


    Hvers vegna er atópískt exem svona algengt og hverjar eru orsakir þess? Tengist þessi tegund exems matarofnæmi? Breytast einkenni exemsins með aldri og eru fullorðnir líka með atópískt exem? Þessum spurningum munum við svara og mörgum fleiri í þættinum.

    Keratosis pilaris - kjúklingahúð?

    Play Episode Listen Later Feb 6, 2022 25:43


    Ert þú með litlar bólur á handleggjum og lærum? Viltu vita hvað þetta er & hvort sé hægt að meðhöndla þetta? Í þessum þætti skoðum við þennan mjög svo algenga kvilla sem allt að 40% fullorðna og a.m.k. 50% barna eru með og útskýrum orsakir hans. Einnig ræðum við hvað sé hægt að gera til að halda honum í skefjum.

    ert einnig keratosis pilaris
    Blettaskoðanir og húðkrabbamein

    Play Episode Listen Later Jun 15, 2021 39:58


    Hefur þú farið í blettaskoðun? Ef ekki, útskýrum við hvað felst í því að fara í blettaskoðun hjá húðlækni og hvernig við eigum að fylgjast með fæðingarblettunum okkar. Einnig ræðum við 3 algengustu tegundir húðkrabbameina, m.a. sortuæxlin, og lærum að þekkja einkenni þeirra.

    Af hverju þurfum við sólarvarnir?

    Play Episode Listen Later Jun 4, 2021 48:28


    Útfjólublá geislun sólarinnar er megin orsök húðkrabbameina og 80% af öldrun húðarinnar stafar eingöngu af sólargeislun. Sólarvarnir eru þess vegna nauðsynlegar til að verja okkur. Í þessum þætti ræðum við hvers vegna við eigum að nota sólarvarnir, hvað ber að hafa í huga við val á sólarvörnum og hvernig við eigum að haga okkur í sólinni.

    Lýtaaðgerðir og fylliefni með Hannesi Sigurjónssyni lýtalækni

    Play Episode Listen Later Apr 30, 2021 59:04


    Hannes Sigurjónsson, lýtalæknir á Dea Medica, kom í Húðkastið og sagði okkur frá fitusogi, svuntuaðgerðum, Brasilian buttlift og fleiri lýtaaðgerðum sem eru framkvæmdar á Íslandi. Eining ræðum við um fylliefni og vöntun á reglugerðum þegar kemur að hinum ýmsu fegrunaraðgerðum sem eru gerðar á Íslandi í dag.

    Fylliefni

    Play Episode Listen Later Apr 20, 2021 66:31


    Hvað eru þessi fylliefni sem allir eru að tala um? Eru þetta alveg náttúruleg og skaðlaus efni og til hvers eru þau notuð? Eru þau bara notuð í varafyllingar? Þessum spurningum og mörgum fleirum ætlum við að svara í þætti dagsins sem fjallar um fylliefni.

    Mýtur um bóluhúð

    Play Episode Listen Later Apr 9, 2021 34:42


    Virkar tannkrem á bólur?, Eru unglingar bara með bólur?, Má kreista bólur? Þessum spurningum og mörgum fleirum ætlum við að svara í Húðkastþættinum um algengar mýtur um bólur og bólumeðferðir.

    Lýtaaðgerðir með Davíð Jenssyni lýtalækni

    Play Episode Listen Later Mar 28, 2021 47:26


    Við fengum Davíð Jensson, lýtalækni til að fræða okkur um vinsælar lýtaaðgerðir eins og augnlokaaðgerðir, facelift, fituflutninga og margt fleira spennandi!

    Húðumhirða karlmanna - með Helga Ómars

    Play Episode Listen Later Mar 15, 2021 65:25


    Karlmenn hafa verið tregari til að hugsa vel um húðina en konur. Af hverju, er það feimnismál hjá körlum og hvað getum við ráðlagt þeim sem langar að byrja? Við fengum Helga Ómarsson samfélagsmiðlastjörnu með meiru til að ræða einmitt þetta og margt margt fleira.

    Mýtur í húðumhirðu hluti 2 af 2

    Play Episode Listen Later Mar 1, 2021 37:44


    Við höldum áfram að fara yfir helstu mýturnar í húðumhirðu.

    Mýtur í húðumhirðu hluti 1 af 2

    Play Episode Listen Later Feb 19, 2021 42:57


    Í þessum þætti förum við yfir helstu mýturnar í húðumhirðu.

    Bólur - hluti 2 af 2

    Play Episode Listen Later Dec 17, 2020 29:43


    Bólur eða acne vulgaris er gríðarlega algengur sjúkdómur hjá báðum kynjum og öllum kynþáttum. Sjúkdómurinn hefur mikil áhrif á sjálfmynd og sjálftraust fólk og það er mikilvægt að vita að það eru til lausnir. Þetta er fyrri hluti af tveimur.

    Bólur - hluti 1 af 2

    Play Episode Listen Later Dec 15, 2020 40:17


    Bólur eða acne vulgaris er gríðarlega algengur sjúkdómur hjá báðum kynjum og öllum kynþáttum. Sjúkdómurinn hefur mikil áhrif á sjálfmynd og sjálftraust fólk og það er mikilvægt að vita að það eru til lausnir. Þetta er fyrri hluti af tveimur.

    Toxín

    Play Episode Listen Later Dec 3, 2020 63:03


    Í þætti dagsins fjöllum við um spennandi meðferð, Toxín. Hvað er Toxín, hvernig er það notað og af hverju. Þessum spurningum og mörgum fleirum ætlum við að svara í þætti dagsins.

    Rósroði

    Play Episode Listen Later Nov 26, 2020 66:27


    Í þætti dagsins fjöllum við um rósroða, sem er mjög algengur langvinnur húðsjúkdómur sem einkennis af roða í andliti, háræðasliti og bólum í andliti.

    Öldrun húðarinnar part 2

    Play Episode Listen Later Nov 18, 2020 52:45


    Í þessum þætti höldum við áfram að tala um öldrun húðarinnar og fókusum á anti-aging vörur.

    Öldrun húðarinnar

    Play Episode Listen Later Nov 6, 2020 57:33


    Í þessum fyrsta þætti Húðkastsins ræðum við hið spennandi efni; öldrun húðarinnar. Við komum inn á orsakir húðöldrunar, hvað einkennir aldraða húð og hvað við getum gert til að fyrirbyggja ótímabæra öldrun húðarinnar.

    Kynningarþáttur

    Play Episode Listen Later Nov 6, 2020 16:25


    Hér kynnum við okkur þrjár; Rögnu Hlín, Jennu Huld og Örnu Björk til leiks og förum í gegnum okkar feril, reynslu og störf.

    Claim Húðkastið

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel