POPULARITY
Lækka á sakhæfisaldur í Svíþjóð í þrettán ár fyrir alvarlega glæpi á borð við morð. Rætt hefur verið í nokkur misseri um lækkun sakhæfisaldursins og umdeilt hvort hún skili árangri en sænsk stjórnvöld hafa talið þetta virka í baráttu við skipulögð glæpasamtök, Foxtrott til dæmis, sem æ oftar fái ungmenni og börn til óhæfuverka. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur bendir á að reynslan í Danmörku af lækkun sakhæfisaldurs hafi ekki verið góð. Hefðbundnir fjölmiðlar eiga sér enn hlutverk þegar kemur að djúpri miðlun lýðræðislegrar umræðu og greiningu segir Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Háskóla Íslands, ekki ´síst á tímum samfélagsmiðla, gervigreindar, falsfréttaflóðs og upplýsingaóreiðu. Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Íslensku óperunnar segir það tilbúning að Íslenska óperan hafi dregið til baka vilyrði um gjöf til nýrrar þjóðaróperu því slíkt vilyrði hafi aldrei verið gefið. Íslenska óperan er reiðubúin til að gefa nýrri óperu ósamið verk.
Þriðjudagur 27. janúar Jarðhræringar, menning, gervigreind, flóttafólk og blankt listafólk Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur gagnrýnir harðlega hvernig ráðandi hafi ýtt gagnrýnum röddum frá umræðuborðinu vegna Reykjaneselda. Hann ræðir Grindavík og örlög bæjarins sérstaklega. Þetta kemur fram í snörpu viðtali Björn Þorláks. Björn Þorsteinsson heimspekingur, Viktoría Blöndal höfundur og leikstjóri, Auður Jónsdóttir rithöfundur og blaðamaður og Atli Bollason listamaður, rýnir og eilífðaramatör ræða stöðu íslenskrar menningar á viðsjárverðum tímum við Gunnar Smára. Hverju hefur gervigreind eða vélvit eins og sumir kalla nýlega tækni breytt í stjórnmálunum – hvar liggja tækifærin og hvað ber að varast? Stefán Atli Rúnarsson, sérfræðingur í gervigreind, ræðir við Björn Þorláks. Fjárhagsleg staða listamanna er alvarleg og mikið álag, samkvæmt nýrri skýrslu. Þó betur stæðar þjóðir hafi dregið verulega úr móttöku flóttafólks er vandinn enn til staðar. Afleiðingarnar að aldrei í sögunni hafa verið fleiri á flótta. Gísli Ólafsson framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi er í efnismiklu viðtali á Samstöðinni. Jóna Hlíf Halldórsdóttir talsmaður listamanna, talar enga tæpitungu í samtali við Björn Þorláks um efnahag listafólks og úrelt viðhorf. Menningu og listir þarf að setja á dagskrá af krafti fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor að hennar sögn.
Það reyndi enginn að kaupa vændi við gerð þessa þáttar. Góða skemmtun!
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Sjávarútvegur Sigurjón Þórðarson, alþ.maður, form. Atvinnuveganefndar s:88930919 Sigurjón gagnrýnir harðlega fiskveiðiráðgjöf á Íslandsmiðum, hyggst kalla til erlenda fiskifræðinga strax í janúar til að endurmeta aðferðafræði Hafrannsóknastofnunar (Haf og vatn). Hann gagnrýnir úthlutun makrílkvóta og telur þann stofn vera vanmetinn og veiða eigi miklu meira. Alþjóðamál Baldur Þórhallsson prófessor við HÍ Vilborg Ása Guðjónsdóttir, stjórnmálafræðingur Innrási í Venesúla setti allt í uppnám í gær, hverju skiptir hún í stóru myndinni, t.d. varðandi Úkraínu og gildandi alþjóðalög. Hverju skiptir þessi aðgerð Íslendinga og afstöðu okkar til Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Stjórnmál Sigurður Kári Kristjánsson, fyrrverandi alþ.maður Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus Stefnur og straumar á hægri væng stjórnmálanna - eru hægri flokkar á Íslandi þrír eða bara einn. Hvernig verjast rótgrónir hægri flokkar ásókn popúlískra flokka? Hvað ber nýtt ár í skauti sér í íslenskum stjórnmálum? Skipulagsmál Hlökk Theódórsdóttir, aðjúnkt Ný fræðigrein um mistökin sem gerð voru við veitingu byggingaleyfis ,,græna gímaldsins" við Álfabakka. Hlökk, fyrrverandi skipulagsstjóri ríkisins, fer yfir málið og rökstyður þá kenningu sína að skipulagsvaldið sé í senn veikt og óskýrt.
Í þessum þætti fjalla ég um smækkun – hvernig konur læra að smækka sig, halda aftur af sér og vanmeta eigin kraft. Við skoðum hvernig þetta mynstur birtist í daglegu lífi, af hverju samfélagið þjálfar konur í að smækka sig og hvernig það minnkar sjálfstraust, metnað og möguleika. Síðan förum við í hvað gerist þegar kona hættir að smækka sig, leyfir sér að vera sú sem hún í raun er – og opnar á eigin möguleika. LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráningar í LMLP prógrammið. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. SKRÁ MIG Á BIÐLISTA Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ YOU TUBE ➡️ INSTAGRAM ➡️ FACEBOOK ➡️ TAKTU SKREFIÐ FB GRÚPPA ➡️ HEIMASÍÐA ✔️ LÍFSÞJÁLFASKÓLINN ✔️LMLP PRÓGRAMMIÐ ✔️ NÁMSKEIÐ ✔️ VÖRUR ✔️ MAGASÍNIÐ M/LINDU PÉ (ókeypis) P.s. Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir! Smelltu hér til þess.
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Hello is this Real Madrid? Yes, this is Bjöggi calling. Would you by any chance be interested in securing the services of Julien Faubert on loan?
Gunni og Dóri tóku vaktina tveir í gegnum öldurnar þessa vikuna og fóru yfir það sem hefur gengið á í samstarfi við Brons, Viking Lite (Léttöl), KEF Spa, Soho og Comfyballs!
Doc, Jói Már og Baldvín Már bíða spenntir eftir fyrsta leik Arnars
Send us a textÍ þessum þætti ræðum við um skemmtileg atvik sem við höfum lent í í gegnum árin í faginu.Support the show
Björt Ólafsdóttir, fv. ráðherra og þingmaður, og Jens Garðar Helgason, nýkjörinn þingmaður, ræða um stöðuna í stjórnmálunum, hverjar helstu áherslurnar og hvaða áherslur vantar, þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar og margt fleira. Þá er rætt um komandi formannskjör í Sjálfstæðisflokknum, hvernig það er að reka fyrirtæki hér á landi, stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og margt fleira.
Illugi Jökulsson fjallar hér um frumsögu mannsins og bendir á að listir komu á undan bissniss!
Karen Kjartansdóttir almannatengill og fyrrverandi fjölmiðlakona er fyrsti gestur hlaðvarpsins Pod blessi Ísland. Hún ræddi við Aðalstein og Arnar Þór um fyrstu vikur kosningabaráttunnar, hápunktana úr kappræðum síðasta föstudags og hvað Sigurður Ingi er góður maður (fyrirvari: hún er aðeins að vinna fyrir Framsóknarflokkinn þessa dagana). Einnig ræðum við um hvernig Samfylkingunni hefur tekist að hætta að tala um Sjálfstæðisflokkinn og hvort Píratar séu orðnir jafn þreyttir á túristum og íbúar í smábæ í Svartfjallalandi. Þemalag þáttarins er Grætur í hljóði eftir Prins Póló.
Haukur Már Helgason rithöfundur og heimspekingur fylgdist með heimsókn Volodomirs Zelensky til Íslands í gær. Og hann spilar nokkuð hlutverk í fjórða innslaginu í pistlaröð hans um upplýsingaóreiðu. Haukur fjallar um samstöðu, ofureinfaldanir og óskilvirknina sem felst í lýðræðinu - eða upplýsingaóreiðu. Við heimsækjum kennslustund í íslensku sem annað mál í Háskóla Íslands og spjöllum við annars árs nema. Af hverju að læra íslensku? Kolbeinn Rastrick er mikill áhugamaður um hundamyndir, starfrækir hundamyndaklúbb. Í pistli dagsins fer hann í gegnum sögu hundamynda, mælir með gullmolum og varar við því versta.
Kosningabaráttan fyrir forsetakjör í Bandaríkjunum eftir tvær vikur harðnar. Litlu munar á frambjóðendum Demókrata og Repúblikana og þeir keppast við að ná hópum á kjörstað sem gætu ráðið úrslitum. Umdeild mál eins og þungunarrof setja mark sitt á kosningabaráttuna en efnahagsmálin eru þó það sem flestir kjósendur segja að ráði vali sínu. Anna Kristin Jónsdóttir ræðir við Silju Báru Ómarsdóttur. Þá verður sagt frá því hvað gerðist þegar ráðamenn fengu upplýsingar um að Ísland kæmi til greina sem heppilegur tökustaður fyrir True Detective-þáttaröðina Night Country og HBO vildi fá loforð um að fá endurgreiðslu uppá 35 prósent.
Landsleikur Íslands og Tyrklands var gerður upp í þætti kvöldsins. Lokatölur urðu 2-4 fyrir gestina frá Tyrklandi. Fréttamenn Fótbolta.net, þeir Sæbjörn Steinke, Haraldur Örn og Sölvi Haralds fóru yfir leikinn, vafaatriðin og frammistöðuna. Það var ekki mikil ánægja með dómara leiksins og VAR myndbandstæknina á Laugardalsvelli. Þá var einnig rætt hvers vegna Gylfi Þór Sigurðsson kom ekki við sögu í leiknum og þetta örlitla sem hefði þurft að gerast svo Ísland ætti möguleika á sigri í riðlinum.
Sagan á bakvið það af hverju ég gerðist lífsþjálfi, hverju það hefur breytt í mínu lífi og allt um nýjung hjá mér sem er Lífsþjálfaskólinn. Ef þú vilt mennta þig sem lífsþjálfi þá er tíminn þinn kominn. Nú er opið fyrir skráningar í Lífsþjálfaskólann. ✨
Ef þú hefur áhyggjur af því að makinn þinn hafi ekki sömu áhugamál og þú, hlustaðu á þennan. Í þættinum fjalla ég um mismunandi félagslegar þarfir sem við höfum og hvernig við verðum að fá þeim uppfyllt úr mörgum ólíkum áttum. Lestu um Fullvalda kvennaretreatið (sem þú getur komið á) hér: https://sundurogsaman.me/fullvaldaretreat Njótið vel, hlakka til að heyra frá ykkur á instagram: https://www.instagram.com/sundurogsaman/
Í þessum þætti ræðum við um skemmtileg atvik sem við höfum lent í í gegnum árin í faginu. Support the show
Leiðari Þórðar Snæs Júlíussonar úr 44. tölublaði Heimildarinnar, sem kom út 15. mars 2024. „Það þarf ekki að hræðast stanslaust framtíðina. Hún er björt. Ísland er eitt besta, öruggasta og ríkasta land í heimi. Það þarf bara að taka aðeins til og láta gangverkið virka fyrir fjöldann, ekki fyrst og síðast fyrir hina fáu valdamiklu,“ skrifar hann.
Leiðari Þórðar Snæs Júlíussonar úr 44. tölublaði Heimildarinnar, sem kom út 15. mars 2024. „Það þarf ekki að hræðast stanslaust framtíðina. Hún er björt. Ísland er eitt besta, öruggasta og ríkasta land í heimi. Það þarf bara að taka aðeins til og láta gangverkið virka fyrir fjöldann, ekki fyrst og síðast fyrir hina fáu valdamiklu,“ skrifar hann.
Hver er bestur í tónlist? Er það sá sem getur spilað flóknasta gítarsólóið, snúnustu selló-svítuna? Eða hraðasta trommutaktinn? Er það höfundur margslungnasta eða jafnvel lengsta tónverksins, eða söngvarinn sem kemst upp á hæsta flaututóninn? Eða er það sá sem selur flestar plötur - nær mestum fjölda spilana á streymiveitum? Alla þessa þætti getur reynst erfitt að mæla, en þó eru haldnar hátíðir víða um heim um þessar mundir ár hvert, verðlaunahátíðir sem leitast við að lyfta því upp sem þótti skara fram úr á nýliðnu tónlistarári. Við mælum okkur mót við framkvæmdarstjóra Nexus til þess að ræða Dune: Part Two. Finnst Dúnu aðdáendum myndin góð? Hverju úr bókinni er sleppt? Hvaða áhrif hefur það á söguna? Lagalisti: Björk, Rosalía - Oral Kári - Something Better ex.girls - Manneskja hist og - Umlíðun Sleepyhead - Passion Pit
Fyrir helgi opnaði ný sýning í Nýlistasafninu, sem ber titilinn Af hverju er Ísland svona fátækt? Í sýningunni er nýjum verkum Sæmundar Þórs Helgasonar stillt upp í samtali við valin verk úr safneign safnsins og einlægum spurning um fátækt á Íslandi velt upp. Kanema Mashinkila er nýr pistlahöfundur í Lestinni og í dag flytur hún okkur sinn fyrsta pistil úr nýrri seríu, Sjáumst og heyrumst, þar sem hún veltir fyrir sér birtingarmyndum í sviðslistum. Og úr leikhúsinu færum við okkur yfir í bíó og bókmenntir. Á dögunum fór Poor Things í leikstjórn Yorgos Lanthimos í sýningu í íslenskum bíóhúsum. En að baki myndinni liggur frábær bók, frá árinu 1992, eftir skoska höfundinn Alisdair Gray. Ingibjörg Ágústsdóttir, dósent í breskum bókmenntum 19. og 20. aldarinnar hitti Gray út í Glasgow á sínum tíma. Við spjöllum við hana um muninn á bókinni og bíómyndinni.
Canon, Nikon, Fujifilm, Olympus, Sony, Panasonic, Ricoh, svona mætti lengi telja. Japan er geitin í myndavélaframleiðslu og verður líklega um ókomin ár. En af hverju? Í þessum þætti munum við skoða sögu japanskra myndavélaframleiðanda og leið þeirra á toppinn. Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís en ég minni heldra fólk á Patreon þar sem það getur stutt beint við barnafjölskyldu í Japan. Góðar stundir!
Þetta er sú spurning sem við veltum flest öll fyrir okkur. Hversu oft höfum við lent í því að langa til að hafa eitthvað í lífi okkar, vitandi upp á hár hvað við þurfum að gera til að öðlast það en við fáum okkur ekki til að gera það sem þarf til? Og við endum pirraðar, vonlausar og förum að segja okkur að við getum ekki gert þetta. Þetta sé ekki fyrir okkur og að þetta sé fullreynt. Svarið við þessari spurningu er að finna í þættinum. LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU-BIÐLISTIAðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA NÁNARI UPPLÝSINGAR: LUXE By LINDA Silkisett. Hin fullkomna jólagjöf. Smelltu hér til að skoða. 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar! HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. 7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Magasínið Lífið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök verða meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið Lífið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift. Heimasíða Lindu Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP Prógrammið Lífið með Lindu Pé. Lokað er fyrir skráningu. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!
Það er mánuður frá því að átök blossuðu aftur upp fyrir botni miðjarðarhafs þegar liðsmenn Hamas frömdu fjöldamorð á ísraelskum borgurum og tóku nokkur hundruð gísla sem margir hverjir eru enn í haldi. Í kjölfarið hefur Ísraelsher haldið úti fordæmalausum loftárásum á Gaza-svæðið, sprengt íbúðabyggingar, ráðist á flóttamannabúðir. Lokað er fyrir vatn og rafmagn og heilbrigðisstofnanir geta illa starfað. Tala látinna hækkar hratt og nálgast 10 þúsund. Um helgina fór fram fjölmennur fundur í Háskólabíói þar sem margir komu saman og lýstu yfir stuðningi við Palestínu. Stuðningur við málstað Palestínu virðist vera nokkuð mikill meðal íslensks almennings og mörgum blöskrar að Ísland hafi setið hjá í atkvæðagreiðslu í Sameinuðu þjóðunum þar sem kosið var um ályktun um vopnahlé á svæðinu. Sveinn Rúnar Hauksson mætir og ræðir afstöðu Íslendinga til Ísrael og Palestínu, bæði meðal almennings og stjórnvalda. Tengsl tölvuleikja og jungle-tónlistar eru meiri en marga grunar. Jungle var gríðarlega oft hluti af hljóðmynd tölvuleikja frá árunum 1995-2005. Og tveimur áratugum síðar njóta handvalin mix af þess konar tónlist mikilla vinsælda á Youtube. Hjalti Freyr Ragnarsson pælir í þessum óvæntu tengslum jungle og tölvuleikja. Við endurflytjum líka fyrsta þáttinn í seríunni Gervigreindar-Lestin sem við sendum út í sumar - ævintýralegt ferðalag Kristjáns og Lóu í tilraun til að gera fyrsta gervigreindarsmíðaða útvarpsþátt Íslandssögunnar.
Það er mánuður frá því að átök blossuðu aftur upp fyrir botni miðjarðarhafs þegar liðsmenn Hamas frömdu fjöldamorð á ísraelskum borgurum og tóku nokkur hundruð gísla sem margir hverjir eru enn í haldi. Í kjölfarið hefur Ísraelsher haldið úti fordæmalausum loftárásum á Gaza-svæðið, sprengt íbúðabyggingar, ráðist á flóttamannabúðir. Lokað er fyrir vatn og rafmagn og heilbrigðisstofnanir geta illa starfað. Tala látinna hækkar hratt og nálgast 10 þúsund. Um helgina fór fram fjölmennur fundur í Háskólabíói þar sem margir komu saman og lýstu yfir stuðningi við Palestínu. Stuðningur við málstað Palestínu virðist vera nokkuð mikill meðal íslensks almennings og mörgum blöskrar að Ísland hafi setið hjá í atkvæðagreiðslu í Sameinuðu þjóðunum þar sem kosið var um ályktun um vopnahlé á svæðinu. Sveinn Rúnar Hauksson mætir og ræðir afstöðu Íslendinga til Ísrael og Palestínu, bæði meðal almennings og stjórnvalda. Tengsl tölvuleikja og jungle-tónlistar eru meiri en marga grunar. Jungle var gríðarlega oft hluti af hljóðmynd tölvuleikja frá árunum 1995-2005. Og tveimur áratugum síðar njóta handvalin mix af þess konar tónlist mikilla vinsælda á Youtube. Hjalti Freyr Ragnarsson pælir í þessum óvæntu tengslum jungle og tölvuleikja. Við endurflytjum líka fyrsta þáttinn í seríunni Gervigreindar-Lestin sem við sendum út í sumar - ævintýralegt ferðalag Kristjáns og Lóu í tilraun til að gera fyrsta gervigreindarsmíðaða útvarpsþátt Íslandssögunnar.
Klippan er úr þætti 9. Kristjana Þórarinsdóttir - Hvaða áhrif hafa áföll á okkur? Í klippunni fer Kristjana yfir hvernig hugrof lýsir sér, af hverju heilinn okkar bregst við aðstæðum með því að fara yfir hugrof og hvernig hugrof skýrir ákveðin viðbrögð í hættulegum aðstæðum.
Hjálmar er að verða fimmtugur núna í vikunni. En hann er búin að fara í óumbeðna sjálfsvinnu. Helgi brenndi gamlar myndir frá æskuárunum sínum í eld serimóníu. Hjálmar er búin að finna æskuvin sinn á Linkedin en þeir voru saman í Oxford skóla.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Gestur vikunnar er Viktor Orri Valgarðsson, nýdoktor í stjórnmálafræði við háskólann í Southampton í Bretlandi. Viktor lauk doktorsprófi frá sama háskóla en í doktorsverkefni sínu skoðaði hann hvers vegna kosningaþátttaka hefur minnkað í mörgum þróuðum lýðræðisríkjum, með sérstaka áherslu á hvort og hvernig stjórnmálalegt sinnuleysi og firring geti útskýrt þessa þróun. Þessa stundina tekur hann þátt í alþjóðlegu rannsóknarverkefni, TrustGov, en það skoðar eðli, orsakir, afleiðingar og mynstur stjórnmálatrausts á heimsvísu. Hann hefur einnig beint sjónum að því hvernig stjórnmálatraust skiptir máli á tímum heimsfaraldurs COVID-19, til að mynda hvaða hlutverki slíkt traust gengdi í vantrausti til bóluefna. Í þætti vikunnar segir hann Sigrúnu frá doktorsverkefni sínu en einnig frá þeim verkefnum sem hann er að vinna í þessa stundina, sem meðal annars tengjast stjórnmálatrausti á Íslandi í alþjóðlegu samhengi.
Gestur vikunnar er Viktor Orri Valgarðsson, nýdoktor í stjórnmálafræði við háskólann í Southampton í Bretlandi. Viktor lauk doktorsprófi frá sama háskóla en í doktorsverkefni sínu skoðaði hann hvers vegna kosningaþátttaka hefur minnkað í mörgum þróuðum lýðræðisríkjum, með sérstaka áherslu á hvort og hvernig stjórnmálalegt sinnuleysi og firring geti útskýrt þessa þróun. Þessa stundina tekur hann þátt í alþjóðlegu rannsóknarverkefni, TrustGov, en það skoðar eðli, orsakir, afleiðingar og mynstur stjórnmálatrausts á heimsvísu. Hann hefur einnig beint sjónum að því hvernig stjórnmálatraust skiptir máli á tímum heimsfaraldurs COVID-19, til að mynda hvaða hlutverki slíkt traust gengdi í vantrausti til bóluefna. Í þætti vikunnar segir hann Sigrúnu frá doktorsverkefni sínu en einnig frá þeim verkefnum sem hann er að vinna í þessa stundina, sem meðal annars tengjast stjórnmálatrausti á Íslandi í alþjóðlegu samhengi.
Helgi var tekinn í gegn af sjáandi konu sem sá í gegnum hann. Ágústa sagði nei við strákinn sinn og styrkti tengslin við hann.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is! IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Við förum saman í verslunarferð en það er allt svo fkn dýrt að við gátum bara keypt baunir svo það verða baunir í matinn allan þennan mánuð en það er allt í lagi því það er veganúar bby.
Já OK óskar hlustendum gleðilegs nýs árs og þakka innilega fyrir það liðna. En af hverju höldum við samt áramót um vetur en ekki um sumarið? Af hverju eru áramótabrennur? Hvað varð um áttunda í jólum? Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir langt til baka í tíma í leit að svörum við þessum spurningum. Bíddu bíddu bíddu...hvað eru flugeldafarþegar?
Það að fasta með hléum getur haft margvísleg áhrif á líkamann. Rannsóknir hafa sýnt fram á fjölmarga jákvæða heilsufarslega þætti föstu. Í þessum þætti spjöllum við Ásthildur sem er ljósmóðir, næringarráðgjafi og aðstoðarmanneskjan mín um kosti föstu og hvernig fasta með hléum hefur persónulega bætt líf okkar beggja.- - - Hvernig myndi þér líða ef sjálfsmynd þín væri sterk, aukakílóin væru horfin og þú værir að lifa draumalífinu þínu? Smelltu hér. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Magasínið Lífið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök verða meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið Lífið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift. 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar! 7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Heimasíða Lindu Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP Hér færðu Lindu sem lífsþjálfa þinn. Vikulegir fundir, þú losar þig við aukakílóin, byggir upp sjálfsmyndina, færð aukið sjálfstraust og trú á þig sjálfa-og þú ferð að lifa draumalífin þínu. Skráðu þig í prógrammið Lífið með Lindu Pé. HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!
Nýr Saints Row þar sem ALLT er nýtt … hvað finnst okkur um það? Arnór Steinn og Gunnar ræða nýjustu tilraun Volition til að lífga við seríuna í þætti vikunnar. Borgin Santo Ileso er leikvöllur ykkar í þetta sinn, þar sem þið getið keyrt um, skotið, sprengt upp og almennt valdið usla á ykkar eigin einstaka hátt. Við ræðum persónur, alla spilun, söguna og margt, margt fleira. Við spillum ekki fyrir neinu heldur tölum bara um hvernig okkur finnst leikurinn. Þetta er mjög umdeildur leikur og við erum mögulega með umdeilda skoðun á honum. Þess vegna hvetjum við ykkur - hlustendur - til að senda á okkur ykkar skoðun. Hvað finnst ykkur raunverulega um leikinn? Hvað fór vel? Hvað fór illa? Hverju hefðuð þið breytt? Þökkum Elko Gaming kærlega fyrir eintak af leiknum, en þátturinn er einnig í boði Hringdu.
Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur Fyrri hluti þáttarins fer í klassísk málefni: hinar raunverulegu falsfréttir, Eckhart Tolle, undirmeðvitund og stjórnmálin. Um miðjan þáttinn fer umræðan yfir í stöðu rappleiksins vestanhafs. Í þriðja hluta förum við í samfélagsmiðla, lýtalækni og áhrifavalda.
Stefán Einar Stefánsson og Hörður Ægisson ræða um brotthvarf forseta ASÍ og átök innan verkalýðshreyfingarinnar, áhrif þess á komandi kjaraviðræður, áhrif byltingarinnar á liðsmenn hennar og fleira þessu tengt. Þá er rætt um sölu Símans á Mílu og þann skaða sem Samkeppniseftirlitið hefur valdið í því máli. Loks er rætt um möguleika Seðlabankans til að takast á við verðbólgu og efnahagsaðstæður – en ekki síst um stöðu Ásgeirs Jónssonar innan Seðlabankans, þann mannskap sem hann hefur sér til aðstoðar og hvernig til hefur tekist með sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins
Poppsálin fékk sálfræði snillinginn Sólrúnu Ósk í heimsókn til að ræða um ástina, ástarsorg, óendurgoldna ást og þann sársauka sem ástarsorg getur valdið. Af hverju er ástarsorgin svona sár?Hvað einkennir óendurgoldna ást?Er óendurgoldin ást ást eða eitthvað annað?Hvað gerist þegar við upplifum ástarsorg?Aukaþáttur um vísindalegar skýringar á því af hverju við löðumst að ákveðnu fólki má finna á Patreon: https://www.patreon.com/PoppsalinTHEY'RE NOT SHADOWSSpooky stories of the paranormal, the supernatural and the unexplained with no...Listen on: Apple Podcasts Spotify Leadership SchoolConversations from around the world inspiring you to be an extraordinary leader.Listen on: Apple Podcasts Spotify
Hverju myndir þú svara ef að maki þinn krefðist þess að þú losaðir þig við börnin þín? Því að samkvæmt maka þínum standa börnin í vegi ykkar að geta átt hamingjusamt samband. Það er ansi auðvelt fyrir flesta að svara þessari spurningu - En, ekki fyrir hina 29 ára gömlu Brittany Gosney. Hún þurfti að velta þessari spurningu vel og vandlega fyrir sér, þar sem hún var svo yfir sig ástfangin af hinum 42 ára gamla James Hamilton. Í þessum þætti förum við yfir stórundarlega atburðarás sem að átti sér stað þann 28 febrúar árið 2021 - Ásamt því að rýna í yfirheyrslu þeirra Brittany og James á lögreglustöðinni, sem eru vægast sagt áhugaverðar. Þessi þáttur er í áskrift. Þú getur hlustað á hann í heild sinni með því að skrá þig HÉR Við skráningu í illverk áskriftina færð þú aðgang að yfir 130 aukaþáttum, fimm nýja í mánuði og þessa fríu vikulegu án auglýsinga, 950,- kr á mánuði. Kynntu þér endilega áskriftarleiðina inni á ILLVERK.IS
Af hverju er Seðlabankinn að hækka vexti um heilt prósentustig og hvaða áhrif hefur það á efnahagslífið og fólkið í landinu? Af hverju tekur Seðlabankinn þetta stóra skref núna og hvernig lítur framhaldið út varðandi verðbólgu og efnahagsþróun? Í hlaðvarpinu ræða Gústaf Steingrímsson hagfræðingur hjá Landsbankanum, Ægir Örn Gunnarsson sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum og Rún Ingvarsdóttir sérfræðingur á Samfélagssviði hjá bankanum, um efnahagsmál og þróunina á fjármálamörkuðum.
Lenya Rún Taha Karim er fimmti yngsti varaþingmaður í sögu Íslands og hefur verið nokkuð áberandi undanfarna mánuði eða frá því hún var kosin inn á þing en datt svo út eftir talningaklúður. Lenya á kúrdíska foreldra og hefur vegna þess og húðlitar síns fengið að upplifa fordóma, þjóðernishyggju og andúð á eigin skinni. Við ræðum þó ekki bara rasisma heldur einnig stéttaskiptingu, pólitíkina, mikilvægi samtals milli grasrótar, aktívista og stjórnmála, kúrdíska blóðið og kröfuna sem Lenya hefur upplifað að þurfa að velja á milli hvaða hluta hún megi gangast við í sjálfri sér. Af hverju hún geti ekki fengið að vera bæði íslensk og kúrdísk og útensk og hinsegin. Eitthvað sem, að hennar sögn, hávær minnihluti þjóðarinnar elskar að hata. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) The Body Shop, Dominos, Veganbúðin og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.
Lenya Rún Taha Karim er fimmti yngsti varaþingmaður í sögu Íslands og hefur verið nokkuð áberandi undanfarna mánuði eða frá því hún var kosin inn á þing en datt svo út eftir talningaklúður. Lenya á kúrdíska foreldra og hefur vegna þess og húðlitar síns fengið að upplifa fordóma, þjóðernishyggju og andúð á eigin skinni. Við ræðum þó ekki bara rasisma heldur einnig stéttaskiptingu, pólitíkina, mikilvægi samtals milli grasrótar, aktívista og stjórnmála, kúrdíska blóðið og kröfuna sem Lenya hefur upplifað að þurfa að velja á milli hvaða hluta hún megi gangast við í sjálfri sér. Af hverju hún geti ekki fengið að vera bæði íslensk og kúrdísk og útensk og hinsegin. Eitthvað sem, að hennar sögn, hávær minnihluti þjóðarinnar elskar að hata. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) The Body Shop, Dominos, Veganbúðin og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.
Kæru hlustendur , Endalínan er mætt fullmönnuð beint úr WhiteFox Stofunni. 2 umferðir að baki um helgina og ennþá allt undir í lokaumferðinni sem verður spiluð annað kvöld. - Tímabilið vonbrigði á Heimavelli Hörkunnar ? ÍR í brasi með leikmenn og þjálfara , hvað er næst ? - Er eðlilegt að Blikarnir hendi í bull gameplan í einum af tveim úrslitaleikjunum sem skera út um playoffs vonir liðsins ? - Buzzer lið Íslands úr Grindavík ekki nægilega sterkir gegn bestu liðunum , hvað vantar uppá í Grindavík ? - Er Skagfirðingum farið að dreyma um langt playoff run ? Stólarnir back in buisness og til alls líklegir - Eru liðin farin að átta sig á Lalla og Þór Þ ? Eða munu þeir stíga á bensíngjöfina aftur þegar allt er undir ? - EL CLASICO vika , Nær Njarðvík að landa Deildarmeistaratitlinum á heimavelli eða munu Keflvíkingar eyðileggja draumana um toppsætið ? Hverju má búast við í þessum leik og hvort liðið nær lengra í úrslitakeppninni ? Allt þetta og auðvitað fastir liðir eins og venjulega á Endalínunni í boði White Fox , Viking Lite (léttöl) , Cintamani og KefRestaurant & Diamond Suites
Næsta mánuðinn verða 2 þættir í viku! Þeir kallast „Lífsmolar Lindu" og eru mun styttri en vanalegir þættir, þetta er fróðleikur og ráð á nokkrum mínútum. Í þætti dagsins fer ég yfir hvers vegna og hvað varð til þess að ég kenni þyngdartap. Nánari upplýsingar: Heimasíða Lindu www.lindape.com Prógrammið Lífið með Lindu Pé www.lindape.com/lifid Kíktu endilega yfir á Instagram og láttu mig vita hvernig þér fannst þátturinn. @lindape P.s Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!
Hvar viltu búa og hvað kostar þig að búa þar? Hvar er byggt og af hverju? Af hverju er freistandi að dúndra bara upp nýju úthverfi? Hvað geturu gert fyrir peninginn sem fer í bílinn þinn og hvers virði er tíminn þinn raunverulega? Borgarskipulag hefur víðtæk áhrif og skiptir sköpum þegar kemur að lýðheilsu þjóðar, loftgæðum og umhverfismálum. Lóðaframboð, blönduð byggð, samgöngumátar, deiliskipulag, þétting byggðar og fleiri erfið, og að ég hélt óspennandi hugtök, eru hér útskýrð á mannamáli af Guðmundi Kristjáni Jónssyni, húsasmiði og skipulagsfræðingi.
Hér segi ég þér söguna á bakvið hvers vegna ég fór á „Kálsúpukúrinn" og af hverju megrunarkúrar eru ekki langtímalausn. Nánari upplýsingar: Heimasíða Lindu www.lindape.com Prógrammið Lífið með Lindu Pé www.lindape.com/lifid Kíktu endilega yfir á Instagram og láttu mig vita hvernig þér fannst þátturinn. @lindape P.s Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!
Mig langar að ræða við þig hvernig þú getur skapað þér betra líf með því að breyta viðhorfum þínum til sjálfrar þín. Við ætlum að fara yfir hverju þú trúir um þig og alla þá möguleika sem standa þér til boða. Nánari upplýsingar: Heimasíða Lindu www.lindape.com Prógrammið Lífið með Lindu Pé www.lindape.com/lifid Kíktu endilega yfir á Instagram og láttu Lindu vita hvernig þér fannst þátturinn. @lindape P.s Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!
Fyrri hluta þáttar fáum við að heyra um vegferð Kristrúnar í gegnum Boston University, Yale og hvernig hún vann sig inn og upp stigann hjá Morgan Stanley, einum stærsta fjárfestingabanka heims. Síðari hluti þáttar er ótrúlegt samspil hagræðiþekkingar Kristrúnar og fáfræði minnar. Við förum yfir stöðu hagkerfisins í dag, hvað seðlabankinn gerir, hvernig ákvarðanir seðlabankans hafa áhrif á þig, stýrivextir, hvað lágvaxtaumhverfi þýðir, fasteignaumhverfið, peningaprentun, verðbólgu og af hverju allir eiga bitcoin og bréf í Icelandair á sama tíma og það er kreppa og atvinnuleysi.