POPULARITY
Við fengum svo margar spurningar og því var ekkert annað í stöðunni en að svara restinni í dag! Við þökkum kærlega fyrir þessar frábæru spurningar og hvetjum ykkur eindregið til að senda áfram á okkur. Spurningar sem við förum yfir í þættinum:Toxín (bótox) á milli augnanna? Kemur það vel út?Á hvaða aldri er best að byrja í bótox? Hvað finnst ykkur um preventative (fyrirbyggjandi) bótox á yngri stelpur?Hvaða meðferð er vinsælust hjá 36 ára kvk með djúpar línur og þreytulegt andlit?Húðþétting á maga eftir meðgöngu?Er hægt að laga hrukkóttan háls?Er háreyðing varanleg? Á ég að bíða eftir að ég klára að eignast börn? Fylgstu með okkur:Húðlæknastöðin.isInstagramTikTokSkinCeuticals vörurEf þú ert með spurningar, ábendingar eða værir til í að heyra okkur ræða eitthvað ákveðið, endilega hafðu samband á Instagram. *Efni þessa hlaðvarps er eingöngu ætlað til fræðslu og almennrar upplýsingagjafar. Það kemur ekki í stað læknisráðgjafar, greiningar eða meðferðar.*Þessi þáttur inniheldur umfjöllun um vörur sem fást á Húðlæknastöðinni.
Unnum riðilinn, Binni kemur upp um riðilinn og Villi gefst upp á Villa. by Steve Dagskrá
TYRIL ætlanin ber navn eftir upphavsmanninum, Búa Tyril, ið sjálvur hevur navn frá fjallinum 'Tyril' við Gøtu, har hann vaks upp. Hæddin á fjallinum er 639 metrar, meðan tónleikurin mangan, men ikki altíð, tykist gera tað øvugta av hæddum, nevniliga at knýta jørðsamband við sínum grøvandi rútmum. Í 2018 gav TYRIL sína fyrstu heildarútgávu út, 'Tectonic Change', meðani onnur útgávan frá 2025 ber heitið: 'Glowing Sparkles'. Í báðum førum er talan um sera rútmiskan tónleik, ið vit tosa við Búa Tyril um. Hann fær nógvu hugskotini á gongutúrum. Búi sigur tað ikki sláa falska mentu, at, tá hann gongur ein túr, koma hugskotini streymandi. TYRIL er hansara einmansætlan við gestatónleikarum, sum er serlig við egnum 'Nu World Beat' stíli, ið dyppar í jazz, r&b, rokk, popp og funk. Hóast nógv innflutt ljóð og effektir, er ikki talan um eitt heil-elektroniskt album, tí vanlig ljóðføri verða eisini nýtt. Til dømis spæla tveir gesta-guittaristar á løgunum, og Búi slær sjálvur trummurnar. Umrøðan og spælingin av TYRIL varð gjørd í Plátubarrini 27. desember 2025. Hettta er tó ein nakað longri netútgáva av innslagnum. Í henni eru løgini: 'Conrad of Cork' frá 'Tectonic Change' í 2018, 'Blue Saturday (Run from the Cold)' og 'Rising South' frá seinnu TYRIL útgávuni í 2025, 'Glowing Sparkles'.
Rætt er við Heiðu Njólu Guðbrandsdóttur verkfræðing og forstöðumann hjá Icelandair um þann gríðarlega kostnað sem fellur á íslensk flugfélög í formi umhverfisskatta- og gjalda, en hún er sérfræðingur í margs konar kerfum sem sett hafa verið á flugfélögin í nafni loftlagsmála. Heiða Njóla útskýrir í þættinum hvernig ETS viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir virkar og hver þróunin hefur verið og fer yfir plönin framundan. Annar vaxandi kostnaðarliður í rekstri flugfélaga er SAF eða sjálfbært eldsneyti og hefur ESB sett reglur um að notkun á því skuli margfaldast á næstu árum. Þá er einnig til kerfi á vegum ICAO Alþjóðaflugmálastofnunarinnar sem kallast CORSIA og heldur utan um losun gróðurhúsalofttegunda í alþjóðaflugi, svo eitthvað sé nefnt. Öll þessi kerfi þýða marga milljarða króna kostnað á ári fyrir félag eins og Icelandair og útfærslan þýðir að Ísland ber langhæstu kostnaðarbyrðar allra landa Evrópu í formi loftlagsskatta. Núverandi plön og regluverk gerir ráð fyrir að þessi kostnaður muni bara hækka á næstu árum og það verulega. Áhugavert og upplýsandi viðtal um stöðu flugsins í þessu samhengi.
Andrea Sigurðardóttir og Ingvi Þór Georgsson fara ítarlega yfir það hvernig veiðigjaldafrumvarpið var keyrt áfram síðastliðið vor, þeim blekkingum sem var beitt, gögn sem sögð voru til en aldrei birt, orðræðu sem var í besta falli villandi, hvaða áhrif frumvarpið mun hafa (og er þegar byrjað að hafa) og þannig mætti áfram telja. Gera má ráð fyrir því að sitjandi ríkisstjórn komi með fleiri sambærileg mál fram á kjörtímabilinu og því rétt að kafa aðeins ofan í þær aðferðir sem beitt var til að koma þessu tiltekna máli í gegn. Þá ræðum við um varaformannskjör í Miðflokknum, útrás íslenskra orkudrykkja, skemmtisiglingar í Miðjarahafi og fleira.
Tæknivarpið er komið úr sumarfríi og þeir Elmar, Gulli og Sverrir fara yfir tæknifréttir sumars.
Stefán Einar Stefánsson, Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson skelltu sér í golfferð og dvöldu í góðu yfirlæti á Camiral vellinum á Spáni. Lífið er þó ekki bara leikur því að sjálfsögðu var tekinn þáttur úti þar sem farið er yfir það helsta sem á sér stað heima fyrir. Þar má nefna hvernig forsætis- og utanríkisráðherra sperrtust upp við það að yfirmaður frá Brussel kæmi til landsins, falskar yfirlýsingar um að Íslendingar þrái það að ganga í Evrópusambandið, hvernig sífellt er traðkað á Flokki fólksins, spurningar sem ekki mátti spyrja á blaðamannafundi og fleira. Eðli málsins samkvæmt er einnig rætt um golflífstílinn, dvölina á Spáni og fleira því tengt.
On this episode Ryan, Faz, and Eric begin Thor's death march as "even an immortal can die" sets in. Deep with in the endless city at the center of the maze Thor fights alongside is comrades in a battle of kings. The guys break it down and forecast a little of what is to come.Consider supporting the show on PATREON: https://www.patreon.com/user?u=65477484Join the conversation on DISCORD: https://discord.gg/XHA3a2b2uHCheck out our INSTAGRAM: https://www.instagram.com/manypathspodcasts?igsh=Nm15MjQ2dW10cXZ3&utm_source=qr
VÆB bræður, Matthías og Hálfdán, stíga á svið í Basel fyrir Íslands hönd á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision 13.maí. Hópurinn fer til Sviss síðar í vikunni og það er skiljanlega mikil spenna fyrir því sem koma skal. Rúnar Freyr Gíslason fjölmiðlafulltrúi íslenska hópsins og VÆB var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir það sem er framundan og stemninguna í hópnum. Léttsveit Reykjavíkur er stærsti kvennakór landsins, en hann samanstendur af 100 konum á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn. Léttsveitin á þrjátíu ára afmæli í ár og verður því með ýmsa viðburði tengda afmælinu víða um landið. Við fengum þær Ingibjörgu Margréti Gunnlaugsdóttur, formann kórsins og Helgu Björk Jónsdóttur, kórfélaga, til að segja okkur frá kórnum, starfseminni og afmælisárinu. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag ræddi hann við okkur um rafmagnsleysið á Spáni og í Portúgal undanfarinn sólarhring og tengsl þess við veður. Hann talaði svo um þessa góðu tíð sem hefur verið undanfarið og bar hana saman við sama tíma í fyrra og svo skoðuðum við aðeins horfurnar framundan. Kemur hret? Einar fór með okkur yfir það í veðurspjallinu í dag. Tónlist í þættinum í dag: Vorið kemur / Diddú (Valgeir Guðjónsson, texti Jóhannes úr Kötlum) Róa / VÆB (Ingi Bauer, Gunnar Björn Gunnarsson, Hálfdán Helgi og Matthías Davíð Matthíassynir, enskur texti Peter Fenner) Langferð (Aften) / Léttsveit Reykjavíkur (Matti Borg, texti Eygló Eyjólfsdóttir) Þá mun vorið vaxa / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson, texti Einar Georg Einarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Fórum yfir það helsta úr liðinni week, easter skíðaferðir og umfjöllun um þann soccer sem spilaður var í liðinni week.
Hvussu yndisligir eru føtur hansara, ið kemur við gleðiboðum Símin Hansen og Andrias Hansen tosa um MAF Mission Aviation Fellowship www.maf.dk
Fyrir nokkrum árum fannst gröf Nefertítíar drottningar í Egiftalandi. Það reyndist minna í gröfinni en upphaflega var talið en þessi pistill var skrifaður áður en það kom fyllilega í ljós. En hver var sú góða drottning?
Rýnt í fréttir síðustu vikna. Kemur í ljós að Ísland er frekar ógeðslegt land. Heyrn er lestri ríkari!
Georg Leite er bareigandi í Reykjavík og frumkvöðull á ýmsum sviðum. Í þættinum er rætt um breytingar á skemmtanalífi undanfarin ár sem Georg segir birtast í aukinni glæpa of ofbeldistíðni og telur hann lögregluna hafa fá úrræði til þess að takast á við þennan nýja veruleika.Þá er einnig rætt um getu Íslands til þess að taka á móti fólki með erlendan bakgrunn, rasisma, fréttaumfjallanir og margt fleira.Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling- Kemur hnífsstunguárás á Menningarnótt fólki á óvart?- Er miðbær Reykjavíkur orðinn hættulegri en áður?- Getur lögreglan tekist á við nýjan veruleika?- Afhverju er erlendum aðila sem fremur hundruð afbrota ekki vísað úr landi?Þessum spurningum er svarað hér.
Dr. Football gerir upp sögu Evrópukeppninnar ásamt Stefáni Pálssyni sagnfræðingi og Kanslaranum. Í þessum þriðja þætti eru keppnirnar 1996, 2000 og 2004 teknar fyrir.
Vondi hirðirinn eru nýjir þættir úr smiðju Friðgeirs Einarssonar sem frumfluttir verða um Páskana á Rás 1. Við spjöllum við hann um hluti og tiltekt og drasl. Konráð sonur hans er með í för, kominn í páskafrí. Við rifjum líka upp innslag frá árinu 2019, þar sem Eiríkur Guðmundsson veltir fyrir sér vorinu. Var íslenska vorið fundið upp í Kaupmannahöfn? Kemur vor á Íslandi? Eru fjórar árstíðir? Að lokum segir Katrín Helga Ólafsdóttir okkur frá Lucky Lo, tónlistarkonu sem hún heldur mikið upp á.
Stóra tilflytingin seinastu árini sæst aftur í dagstovnum og í føroyska fólkaskúlanum, sum als ikki er til reiðar til vaksandi talið av børnum, ið ikki skilja føroyskt - og - sambært landsstýrismanninum í barnamálum - eisini hjá Barnaverndini. Kemur tú til Føroya, hevur tú rætt til at fáa tína familju við. Men eru tað virðilig kor, vit bjóða teimum børnum, sum koma til Føroya? Í dag settu við fast track-skipanina, ella snarskipanina á Breddan.
Alþingi kom saman í dag og verkefnin eru ærin. Náttúruhamfarir við Grindavík og framtíð íbúanna þar ber hæst og mörg erfið úrlausnarefni sem tengjast því. Svo hefur verið boðað vantraust á matvælaráðherra í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis vegna frestunar hvalveiða síðastliðið sumar. Það verður lagt fram í dag. Mörg aðkallandi mál liggja svo fyrir þinginu á tíma þegar ríkisstjórnin virðist standa veikum fótum. Við ætlum að spjalla við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur, fréttamann, í upphafi þáttar. Hún er að gera sig klára fyrir annasama daga á þingi. Stór hluti Íslendinga kann ekki skil á grunnhugtökum í fjármálum; skilur ekki orð á borð við vaxtavextir, kaupmáttur og verðbólga. Þetta sýnir nýleg Gallup-könnun. Samtök fjármálafyrirtækja boðuðu á dögunum til ráðstefnu um fjármálavit Íslendinga eða skort á því öllu heldur. Við ræðum þennan vanda og hugsanlegar lausnir við Heiðrúnu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja, og Friðrik Björnsson, markaðsstjóra Gallup. Málfarsmínúta úr smiðju Önnu Sigríðar Þráinsdóttur - gögn og gagn. VIð heimsækjum Þjóðskjalasafn Íslands. Þar ætlum við að kynna okkur stafræna endurgerð teikninga húsameistara ríkisins.
Umsjón: Siggi Gunnars, Lovísa Rut og Gígja Hólmgeirs. Siggi og Lovísa fóru um víðan völl í Popplandi dagsins. Addison Villa eða Andrés Vilhjálmsson krýndur sigurvegari Jólalagakeppni Rásar 2 fyrir lagið Skál fyrir Vésteini. Jólaplata dagsins tekin fyrir sem og plata vikunnar, Jóladraumur með Guðmundi Jónssyni. Svo var opnað fyrir símann og tekið á móti tilnefningum fyrir manneskju ársins. Baggalútur - Beint upp í Breiðholt. Supremes, The, Ross, Diana - Santa Claus is comin' to town. Wonder, Stevie - Christmastime. Donny Hathaway - This Christmas. MICHAEL KIWANUKA - Cold Little Heart. Celebs - I Love My Siblings. Kjalar - Jólaboð hjá tengdó. ANDRI - Jólin koma snemma í ár. Skjóða, Hermigervill, Langleggur - Ætla að verða jólasveinn. Addison Villa - Skál fyrir Vésteini. Langi Seli og Skuggarnir - Öll heimsins ból. FLOTT - L'amour. ELLA FITZGERALD - Rudolph, The Red-Nosed Reindeer. Laufey, Jones, Norah - Have Yourself A Merry Little Christmas. Salka Sól Eyfeld, Jóhann Sigurðarson - Lítil kerti í myrkum heimi. Middle Kids - Driving Home For Christmas. Una Torfadóttir - Í löngu máli. Dua Lipa - Houdini. Joey Diggs - Alltaf Coca-Cola. EYFI, BJÖGGI OG KÓR ÖLDUTÚNSSKÓLA - Svona Eru Jólin. EGILL ÓLAFSSON - Hátíð Í Bæ. SVALA - Ég Hlakka Svo Til. BJÖRGVIN OG SVALA BJÖRGVINSDÓTTIR - Fyrir Jól. Björgvin Halldórsson - Mamma. ELLÝ VILHJÁLMS - Það Heyrast Jólabjöllur. RUT REGINALDS - Jólasveinninn Kemur. Sinfóníuhljómsveit Íslands - Hvít jól. Addison Villa - Skál fyrir Vésteini. TERENCE TRENT D'ARBY - Wishing Well. Lenny Kravitz - TK421. PRINS PÓLÓ - Jólakveðja ft. Gosar. Diljá Pétursdóttir - Say my name. SPIN DOCTORS - Two Princes. Sivan, Troye - Got Me Started. regory Porter - Someday at Christmas. BOGOMIL FONT ÁSAMT STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR - Hinsegin jólatré. Chicago - Christmas time is here. PÁLMI GUNNARSSON - Gleði Og Friðarjól. JAMES TAYLOR - Fire And Rain. BRENDA LEE - Rockin' Around The Christmas Tree.

"Ég myndi gera næstum því hvað sem er fyrir frægðina, nema kannski að koma nakinn fram" sungu Stuðmenn hér um árið, en Aron gerir hvað sem er fyrir frægðina og kemur nakinn fram á skjám landsmanna innan tíðar. Gleðilegan sunnudag kæru Undralendingar!
Daníel Sæberg hefur gengið í gegnum það sem að við óttumst mörg mest. Hann talar einlægt um barnsmissi og hvernig hann tekst á við sorgina. Þessi þáttur er þess vegna algjör viskubrunnur af fallegum einlægum ráðum og það voru mikil forréttindi að fá að læra af hans sýn á lífið í gegnum þessa erfiðu upplifun. Hugarfarið hans Danna er aðdáunarvert, hlustum og lærum. ❤️ Þú getur fylgst með Danna hér: @dannisaeberg
Albert Hafsteinsson og Árni Guðna sem báðir fóru upp um deild voru mættir til Dr. Football.
Rætt er við norska fluggreinandann Hans Jörgen Elnæs um stöðu og horfur á evrópskum flugmarkaði og einkum stöðu íslensku flugfélaganna Icelandair og Play. Tekjur þeirra og sætanýting hefur verið afar góð síðustu mánuði og íslensku félögin hafa líkt og fleiri verið að auka verulega framboð á ferðum og kynna nýja áfangastaði. Hans Jörgen segir allt útlit fyrir að eftirspurnin eftir flugi á Atlantshafinu verði umfram framboð flugfélaganna yfir háannatímann í sumar. Farið er yfir þann öra vöxt sem félögin standa bæði í þessa mánuðina og fjallað um mögulegar hættur framundan í rekstri flugfélaganna og í ferðaþjónustunni hérlendis. Viðtalið var tekið upp um miðjan apríl.
Andrea og Steindór fjalla um mynd Elfars Aðalsteins frá 2022, Sumarljós og svo kemur nóttin.
Pálmasunnudag í kirkjuni við Norðskála. Præstø og Skibinge Kirkers pigekor sang.
Í ágúst 1941 kom Winston Churchill í heimsókn til Reykjavík. Heimsóknin vakti mikla athygli, Reykvíkingar fögnuðu breska forsætisráðherranum ákaft og Churchill fannst lofið gott. En hvað var hann að vilja og hvernig gekk heimsóknin fyrir sig? Hér er leitað fanga m.a. í ævisögu lífvarðar Churchills og einnig vitnað í skrif hans sjálfs um heimsóknina, en þar þakkaði hann sér hugmyndina að hitaveitu á Íslandi. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Sigur Rós er stærsta og þekktasta hljómsveitin okkar íslendinga og ein allra magnaðasta hljómsveit sem við höfum átt. Sigur Rós er einstakt fyrirbæri ? fyrirmynd og viðmið fjölmargra hljómsveita um allan heim. Sigur Rós á aðdáendur um víða veröld og er núna komin HEIM til Íslands til að halda lokatónleika heimstónleikaferðar sinnar í Laugardalshöll næsta föstudagskvöld. Sigur Rós er búin að spila 70 tónleika í útlöndum á árinu og lokatónleikarnir eru þá númer 71. Þeir fóru um Suður Ameríku, norður Ameríku, Ástralíu og Nýja Sjáland, Singapore, Japan, Thailand, og svo um alla Evrópu núna í haust. Þeir hafa verið fjórir á sviðinu allan túrinn, en á tónleikunum hérna heima verður strengjasveitin Amiina með þeim sem og blásarasveitin Brassgat í bala í fyrsta sinn í 14 ár. Sigur Rós hlaut heiðursverðlaun Íslensku Tónlistarverðlaunanna 2021 og þegar allt er tekið með hefur Sigur Rós gengið mjög vel í flestu. En lífið hefur samt ekki verið eintómur dans á rósum og liðsmenn hljómsveitarinnar hafa fengið yfir sig dálítið pus hér og þar á undanförnum árum. Sigur Rós er í aðalhlutverki í Rokklandi í dag og gestur þáttarins er Georg Hólm bassaleikari og einn af stofnendum Sigur Rósar.

Dominos
Ásgeir Trausti kom eins og þruma úr heiðskíru lofti inn í íslenskt og reyndar líka alþjóðlegt tónlistarlíf fyrir áratug þegar hann gaf út plötuna Dýrð í dauðaþögn. Platan er ein af fimm mest seldu plötum íslenskrar útgáfusögu. Hinar eru: Gling Gló með Björk og tríói Guðmundar Ingólfssonar (1990), Vísnaplatan Einu sinni var með Gunna Þórðar, Tomma Tomm og Bo Halldorson (1976), Kardimommubærinn (1979) og Dýrin í Hálsaskógi (1967). Í tilefni af 10 ára afmælinu voru tónleikar í Eldborg í Hörpu í gærkvöldi. Það var uppselt og vel heppnað hef ég séð og heyrt í gær og dag. Tónleikarnir voru teknir upp fyrir RÚV - hljóð og mynd. Og það var líka að koma út afmælis&heiðursplata þar sem ýmsir tónlistarmenn og konur flytja nýjar útgáfur af lögunum á plötunni ; K.Óla, BRÍET, Teitur Magnússon, Prins Póló, Árný Margrét, Moses Hightower, GDRN, Hjálmar, Högni Egilsson og Júníus Meyvant. Platan er komin á steymiveitur - en hvað svo? Kemur vinyll? Hvers vegna var þetta gert? Hver átti hugmyndina og hvernig voru listamennirnir valdir? Guðm. Kristinn Jónsson (Kiddi Hjálmur) hægri hönd Ásgeirs allt frá upphafi, tók upp flest lög plötunnar og stýrði verkefninu í Hljóðrita í Hafnarfirði - þar sem hann ræður ríkjum. Kiddi er gestur Rokklands í dag og við ætlum að hlusta saman á plötuna - ég og Kiddi og allir sem vilja.

Föstur hafa lengi verið talin allrameina bót. Á síðustu árum hafa allskyns mismunandi föstur eins og 16:8, 5:2 og fleiri vaxið gríðarlega í vinsældum. Föstur eru taldar bæði stuðla að bættri heilsu og hjálpa fólki að losna við aukakílóin og komast í betra form. Föstur hafa þó sína "skuggahlið". Hlutir sem fáir tala um en eru gríðarlega mikilvægir þegar kemur að ákvörðuninni um hver eigi að fasta yfir höfuð og hver ekki, hversu lengi og hvenær. Í þessum þætti varpa ég ljósi á þær skuggahliðar fasta sem enginn talar um.
Þetta er fyrri hluti þáttar okkar um list í víðu samhengi. Við köfum djúpt ofaní allt sem kemur að "the arts" og tökum ekkert súrefni með okkur!
Arnar „leikaravinur“ Hauksson kemur í heimsókn til Hemma frænda og lætur grípa fram í fyrir sér. Strákarnir íhuga að taka upp vegan lífstíl eftir að hafa smakkað dýrindis smákökur sem maður prumpar ekki mikið af. Bjarni er að fara að missa íbúðina, Einar býr í hjólhýsi og Arnar er bara að leika sér.
Saga og Birna svara spurningum sem hafa borist til þeirra í gegnum samfélagsmiðla, gefa ráð og ræða málin. Til að skoða vöruúrvalið bendum við á heimasíðuna okkar losti.is
Einhver verðmætasti, og mikilvægasti, farmur sem berst til landsins um þessar mundir eru bóluefni við Covid-19. Í hvert skipti sem skammtar koma hingað eru það Júlía Rós Atladóttir og hennar fólk hjá fyrirtækinu Distica sem sér um viðtökuna, geymsluna og dreifinguna. Þetta er flókið ferli þar sem ekkert má fara úrskeiðis - Júlía Rós kom til okkar og sagði frá þessu öllu saman. Geldingadalir og Meradalir, þetta eru þau örnefni sem við heyrum hvað oftast í fréttunum þessa dagana ásamt auðvitað Fagradalsfjalli. En hvers vegna ætli Meradalir heiti Meradalir? Við spurðum að því, meðal annars í ljósi þess að vitað er ábúendur á Hrauni, jörðinni sem Meradalir tilheyra, áttu í byrjun 18. aldar aðeins eina meri. Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur og sérfræðingur á Árnastofnun sagði frá örnefnum á gosstöðvunum. Ýmislegt bendir til þess að mygla og raki í húsnæði geti haft vond áhrif á röddina okkar. Talsvert hefur verið fjallað um myglu í skólum og nú er talin hætta á að raddir barna og kennara í skólahúsum þar sem mygla er, geti skaðast. Dr. Valdís Ingibjörg Jónsdóttir, raddmeina- og talfræðingur, er raunar á því að hæsi og versnandi raddheilsa geti verið fyrsta merki um rakaskemmdir og myglu. Ágúst Ólafsson fréttamaður á Akureyri ræddi þessi mál við Valdísi. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: You're my world - Cilla Black Anyone who had a heart - Cilla Black Allt mitt líf - Elly Vilhjálms
Helga Lára Þorsteinsdóttir: Kemur með efni úr safni; viðtal tekið í júlí 1959 við Maríu Andrésdóttur en hún var fædd í Flatey á Breiðafirði 1859. Björk Vilhelmsdóttir: Um úrræði fyrir ungmenni sem eru hvorti virk í starfi né námi Ólafur Páll Jónsson, heimspekingur á Menntavísindasviði HÍ: Vísindamaður vikunnar ræðir mikilvægi gagnrýnnar og skapandi hugsunar, gildi menntunar og hæglætis í hröðum heimi.
Heimskviður staldra við í Bandaríkjunum þessa vikuna. Réttarhöldin yfir Derek Chauvin, lögregluþjóninum sem myrti George Floyd í maí í fyrra, hófust í vikunni. Guðmundur og Birta ræða um hvað gerðist í kjölfar morðsins á Floyd, Black Lives Matter, og sjálf réttarhöldin, í fyrri hluta þáttarins. Á síðasta ári hefur fylgdarlausum börnum, sem freista þess að komast yfir landamærin frá Mexíkó til Bandaríkjanna, fjölgað gríðarlega. Í janúar á þessu ári voru þau tvöfalt fleiri en á sama tíma í fyrra. Fyrir þessu eru ýmsar ástæður. Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti fór ekki leynt með andúð sína á nágrönnum sínum í suðri í forsetatíð sinni, og hóf meðal annars að reisa vegg á landamærunum. En þúsundir barna, fylgdarlausra, reyna eftir sem áður að komast til Bandaríkjanna í hverjum mánuði. Kemur þetta til með að breytast með nýjum forseta? Og hvað verður um þessi börn? Jóhannes Ólafsson ætlar að segja okkur nánar frá þessu í síðari hluta þáttarins. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Tæplega sex þúsund manns fengu bólusetningu við Covid 19 hér á landi í nýliðinni viku. Þrjú bóluefni eru í notkun og þrjú til viðbótar vonandi væntanleg. Við fórum yfir bólusetningarmál á Morgunvaktinni í dag - Ingileif Jónsdóttir, prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands og deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu, kom til okkar. Eitt og annað í þjóðlífinu í Sádí Arabíu hefur færst til vestrænni vegar upp á síðkastið. Krónprins Sádí Arabíu; Mohammend bin Salman hefur aðrar hugmyndir um samfélagið heldur en Ibn Sád, stofnandi ríkisins og eftirmenn hans. Í dag hófst reglubundin umfjöllun á Morgunvaktinni um Mið-Austurlönd. Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, mannfræðingur og sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda, verður með okkur annan hvern mánudag og fjallar um eitt og annað í og frá þessum fjölmenna heimshluta og í dag sagði hún okkur meðal annars frá bin Salman. Í spjalli um bresk málefni ræddi Sigrún Davíðsdóttir um ástand mála í Skoska þjóðarflokknum en grunnt er á því góða milli Nickolu Sturgeon leiðtoga og forvera hennar Alex Salmond. Sá síðarnefndi var sýknaður af ákærum um nauðgun og kynferðislega áreitni en nú er pólitísk hlið málsins til skoðunar. Niðurstaðan kann að hafa áhrif á framvinduna í sjálfstæðismálum Skotlands en Skoski þjóðarflokkurinn vill fullt sjálfstæði frá stjórninni í London. Tónlist: A fool on the hill - Bítlarnir Here comes the sun - Bítlarnir Litla-Gunna og litli-Jón - Tríó Guðmundar Ingólfssonar
Kórónuveirufaraldurinn er ekki bara heilbrigðismál heldur svo margt annað og þar á meðal félags- og stéttamál. Það er hætt við - og hefur þegar sýnt sig - að ríka fólkið geti orðið enn ríkara í því ástandi sem við búum við og sárafátækum fjölgi. Þessi nýja heimsmynd dregur fram aðstöðumuninn milli fólks. Fólk í betur launuðum störfum á auðveldara með að vinna heima en lægra launað þarf að mæta á vinnustaðinn og hættan á smiti eykst þar með. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, fór yfir þetta. Fjöl- og samfélagsmiðlar eru ríkur þáttur í lífi margra og til er fólk sem er beinlínis háð því að fylgjast með og tjá sig. Í Þýskalandi starfar hreyfing sem varar við neyslu ruslfæðis á andlega sviðinu; varar við slæmum áhrifum sem drasl á internetinu getur haft og hvetur til vandaðrar fjöl- og samfélagsmiðla-neyslu. Arthúr Björgvin sagði frá þessu, og fór líka yfir það helsta í þýskri pólitík og auðvitað baráttunni við Kórónuveiruna. Það er deilt um ágæti þeirra sóttvarnaráðstafana sem hér gilda, eða í það minnsta eru ólík sjónarmið viðruð. Þau sem nú standa í stafni hafa aldrei áður fengist við nokkuð þessu líkt en fyrir rétt rúmri öld börðust yfirvöld með tiltækum ráðum við útbreiðslu Spænsku veikinnar. Til hvaða ráðstafana var þá gripið? Var einhugur um þær meðal landsmanna? Hvaða áhrif höfðu þær? Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur þekkir þessi mál vel og ræddi þau á Morgunvaktinni. Tónlist: Still crazy after all these years - Paul Simon, 50 ways to leave your lover, Paul Simon
Mikil öryggisgæsla er vegna komu Angelu Merkel, kanslari Þýskalands til landsins. Hún ræðir við Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra á Þingvöllum í kvöld og tekur þátt í fundir forsætisráðherra Norðurlandanna á mrogun. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir segir frá komu Merkel og viðbúnaði á Þingvöllum. Frosti Sigurjónsson, talsmaður Orkunnar okkar segir að hætt sé við því að Ísland verði að greiða milljarðasektir ef stjórnvöld standa í vegi fyrir lagningu sæstrengs. Hann segir líka að væntanlega komi fram kröfur um að skipta Landsvirkjun upp og nýtingarrétturinn boðinn út. Arnar Páll Hauksson ræðir við Frosta. Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formanni BSRB svíður að laun tekjuhæstu ríkisstarfsmannanna hækki mest og oft jafnmikið og heil mánaðarlaun þeirra sem lægri hafa launin. Kristín Sigurðardóttir ræddi við hana. Lögreglan hefur lokað Reynisfjöru vegna grjóthruns. Tveir slösuðust þar í dag, þó ekki alvarlega. Þúsundir hafa þurft að flýja skógarelda á Gran Canaria og slökkviliðsmenn fá lítt við ráðið. Á eyjunni hafa kviknað gróðureldar í þriðja sinn á rúmri viku og þar er líka hitabylgja þessa dagana. Ásgeir Tómasson segir frá. Skýrsla Deloitte til skiptastjóra flugfélagsins WOW air veitir innsýn í rekstur sem sýnir samspil flugfélagsins og félaga í eigu aðaleiganda Wow. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Angela Merkel minntist í morgun með Viktori Orban, forsætisráðherra Ungverjalands Samevrópsku lautarferðarinnar, þar sem hundruð Austur Þjóðverja flýðu yfir landamæri Austurríkis og Ungverjalands fyrir þrjátíu árum. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn útsendingar: Björg Guðlaugsdóttir
Nýtt björgunarskip Björgunarfélags Ísafjarðar var vígt um helgina. Skipið mun m.a. stytta viðbragðstíma og auka þannig öryggi sjómanna á svæðinu. Við ræddum við Gauta Geirsson, formann Björgunarbátasjóðs Landsbjargar á Ísafirði. Eiríkur Rögnvaldsson, íslenskusérfræðingur með meiru, heimsótti okkur og ræddi lög um mannanöfn, eiginnafnið Kona og nýyrðið hán. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, vakti máls á því á dögunum að blóm eru töluvert dýrari hér á Íslandi en erlendis. Kemur þetta m.a. til af því að innflutt blóm eru tolllögð, í raun tvisvar. Ólafur vill meina að afskorin blóm séu lúxusvara hérlendis og við ræddum þetta mál við hann. Greiningadeild Arionbanka telur að samdrátturinn í samfélaginu geti orðið allt að tvöfalt meiri en spáð hefur verið að undanförnu og að höggið komi að mestu í haust og haustmánuðir verði því erfiðir fyrir íslensk heimili og fyrirtæki. Erna Björg Sverrisdóttir, sérfræðingur hjá greiningadeild Arionbanka fór yfir þetta með okkur. Íþróttadeildin fór yfir íþróttaviðburði helgarinnar með okkur og þar komu Liverpool, Valur og Smáþjóðaleikarnir m.a. við sögu. Tónlist: Nýdönsk - Flugvélar. Vök - Spend the love. Prins Póló - Líf ertu að grínast? Memfismafían - Mannanafnanefnd. Bubbi Morthens - Það er gott að elska. Charlotte Gainsbourg - Bombs away. Stereophonics - Have a nice day. Harry Styles - Two ghosts. Ed Sheeran og Justin Bieber - I dont care.