Podcasts about sigurj

  • 124PODCASTS
  • 1,980EPISODES
  • 1h 36mAVG DURATION
  • 5WEEKLY NEW EPISODES
  • Sep 27, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026

Categories



Best podcasts about sigurj

Show all podcasts related to sigurj

Latest podcast episodes about sigurj

Rauða borðið
Synir Egils 27. sept - Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 27, 2026 157:54


Sunnudagurinn 27. september Synir Egils: Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun, Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða kólnandi hagkerfi, aukið atvinnuleysi og viðvarandi verðbólgu og mögulegar aðgerðir og nauðsynlegar. Síðan koma Halla Hrund Logadóttir þingkona, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrum þingkona og framkvæmdastjóri Courage International og Pétur Marteinsson borgarfulltrúi og halda áfram að greina samfélagið og ytri aðstæður; olíukreppu, stríðsátök, Grænland en líka auðlindir og mannréttindi. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári yfir pólitíkina með sínu nefi.

vr gu magn arn sunna sigurj egils courage international marteinsson landsvirkjun atvinnuleysi
Breddin
Breddin: Hækkandi matvøruprísir

Breddin

Play Episode Listen Later Sep 25, 2026 34:52


Tað er vorðið munandi dýrari at seta matin á borðið. Seinastu fimm árini eru prísirnir á mati og drykkjuvørum hækkaðir meira enn 30 prosent. Hetta seinasta árið er mat- og drykkjuvørur vorðnar knapt eitt prosent dýrari, men kjøt er dýrkað nærum átta prosent. Men hví er maturin so nógv dýrari? Er tað fyrst og fremst kríggj, kreppur og príshækkingar uttanlands, sum er orsøkin? Ella er eisini okkurt við føroyska matvørumarknaðinum og kappingini, sum eisini trýstir prísirnar uppeftir? Matvøruprísir er evnið í Breddanum í dag. Gestir: Heri Joensen, hagfrøðingur á Hagstovuni, og Bjarni Dal-Christiansen, fulltrúi í Kappingareftirlitinum. Gjørt sendingina hava: Birita Matras Petersen og Sigurjón Einarsson, sum eisini er redaktørur.

Handkastið
307 daga bið Stjörnunnar á enda og nennir enginn að spila vörn lengur?

Handkastið

Play Episode Listen Later Sep 24, 2026 62:42


Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Sigurjón Friðbjörn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Haukar unnu FH en gerðu sitt besta til að kasta leiknum frá sér. Stjarnan vann loksins í Olís deildinni eftir 307 daga bið. Einar Jónsson var virkilega ósáttur með sína menn. Afturelding fór illa með Selfyssinga. HK fór til Eyja og stal báðum stigunum. Einars Braga hornið hóf göngu sína í Handkastinu. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Breddin
Breddin: Grønland og verjuavtalan

Breddin

Play Episode Listen Later Sep 24, 2026 56:17


Týsdagin var nýggja verjuavtalan millum Grønland, Danmark og USA undirskrivað. Ein avtala, sum gevur USA víðkaðar karmar at hava hernaðarligt virksemi í Grønlandi, men sum samstundis staðfestir danska fullveldið og grønlendska sjálvsavgerðarrættin. Hvat hava londini í veruleikanum fingið burturúr avtaluni? Hevur USA fingið tað, sum USA trygdarpolitiskt vildi hava burturúr, men uttan at fáa Grønland? Harafturat er spurningurin, hvat avtalan merkir fyri framtíðina hjá Grønlandi, tí avtalan staðfestir sjálvsavgerðarrættin hjá grønlendingum. Verður Grønland einaferð sjálvstøðugt, leggur avtalan upp til, at Grønland framvegis skal vera partur av NATO og halda fram við verjuavtaluni. Sendingin viðger eisini, hvussu frítt stendur eitt framtíðar sjálvstøðugt Grønland í veruleikanum, og um friður nú er um Grønland. Við í sendingini: Birita í Dali, stjórnmálafrøðingur, og Heini í Skorini, lektari og ph.d. í altjóða politikki. Gjørt sendingina: Birita Matras Petersen og Sigurjón Einarsson, sum eisini var redaktørur. Framleiðari: Bárður Thomsen. Teknikari: Kári Annand Berg.

Rauða borðið
Rauða borðið 24. sept - Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 24, 2026 315:04


Fimmtudagur 24. september Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Þorsteinn Pálsson ræða utanríkismál og samband Íslands við umheiminn í samtali við Sigurjón Magnús Egilsson. Heimir Hallgrímsson hefur vakið reiði ísraelska knattspyrnusambandsins. Hjálmtýr Heiðdal hjá Ísland-Palestína ræðir við Björn Þorláks um hugrekki knattspyrnuþjálfarans. Oddný Harðardóttir, Steingerður Steinarsdóttir og Thomas Möller eru gestir Sigurjóns í Reynsluboltum, vinnudeila flugvirkja, ESB og fleira til umræðu. Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára um gervigreindarkapphlaup Kína og USA, heimsendaspár og hvernig gervigreindin mun hafa áhrif á samfélagið og ekki síst okkur sjálf. Bjarni Harðarson útgefandi og rithöfundur segir Gunnari Smára frá ferðum sínum um heiminn, en honum finnst best að ferðast einn til staða þar sem hann kann ekki tungumálið. Mao bannaði Kínverjum að stunda Qigong til að koma í veg fyrir sjálfstæða hugsun og frjálsan vilja, segir Þorvaldur Ingi Jónsson Qigong-kennari. Í viðtali við Ásdísi Olsen útskýrir hann kínverska heilsutækni.

united states bj olsen hei qigong mao magn hj thomas m esb sigurj palest egilsson heilbrig heimir hallgr kism ingi j steinarsd fimmtudagur
Breddin
Breddin: Demenssjúka og trygdaravtalan um Grønland

Breddin

Play Episode Listen Later Sep 22, 2026 50:06


Demensur rakar ikki bert tað einstaka menniskja, men eisini familju, vinir og nærumhvørvið. Mett verður, at umleið 1.000 føroyingar hava demenssjúku, og 4.000 eru avvarðandi. Tað eru kommunurnar, sum varða av eldra- og demensøkinum. Allar kommunur eru ikki eins væl fyri, og tí er eisini munur á tænastuni kring landið. Har er einki minstakrav. Hóast føroyska Alzheimerfelagið fylti 25 ár í gjár, á altjóða alzheimerdegnum, so er demenssjúkan framvegis merkt av tabu og vantandi vitan. Hvussu eru umstøðurnar hjá demenssjúkum og avvarðandi? Hvussu verður góða sambandið við demenssjúklingar varðveitt? At síggja til kann drúgva og heldur óvanliga ósemjan um Grønland fáa ein fyribils enda, tá ið stjórnarleiðararnir í Danmark og Grønlandi í dag skriva undir trygdaravtalu við USA. Hvat avtalan ítøkiliga ber í sær, fáa vit kanska at vita meira um seinni í dag, tá ið avtalan verður undirskrivað á aðalfundi hjá Sameindu tjóðum í New York í dag. Gestir: Naina Túgvustein, forkvinna í Alzheimerfelagnum, Unn Justinussen, næstforkvinna í Alzheimerfelagnum, og Anneke Dapper-Skaaning, sálarfrøðingur og serfrøðingur í demens. Vertur: Annika Bolton Mortensen. Gjørt sendingina hava Annika Bolton Mortensen, Birita Matras Petersen og Sigurjón Einarsson, sum eisini er redaktørur.

Rauða borðið
Synir Egils 20. sept - Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 20, 2026 146:42


Sunnudagurinn 20. september Synir Egils: Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík Til okkar koma á vettvang dagsins Árni Helgason þingmaður, Líf Magneudóttir borgarfulltrúi og Margrét Helga Erlingsdóttir sjónvarpskona og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélagsins og síðan þeir Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur Húsnæðis og mannvirkjastofnunar, Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Leigjendasamtakanna að ræða húsnæðismál, en slæm staða þeirra hefur drifið áfram verðbólgu og grafið undan lífskjörum leigjenda mörg undanfarin ár. Er von um breytingu? Í lokin fara þeir bræðir, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Ása Berglind

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 19, 2026 78:16


Laugardagur 19. september Helgi-spjall: Ása Berglind Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona fyrir Samfylkinguna var gestur Sigurjóns Magnúsar í Helgispjallinu þessa helgina. Ása Berglind á rætur í tónlist og spilar til að mynda á trompet. Ása Berglind segir af sjálfri sér og uppvextinum, hvernig það er að verða móðir aðeins 17 ára, frá störfum sínum í bæjarstjórn Þorlákshafnar og frá störfum sínum á Alþingi og hvað henni þykir um Kristrúnu Frostadóttur.

magn helgi sigurj berglind spjall frostad kristr
Bylgjan
Sprengisandur 13.09.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Sep 13, 2026 95:50


Páll Magnússon stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Ítarlegt viðtal við Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, um stjórnmálaástandið núna þegar ríkisstjórnin er að verða hálfnuð með starfstíma sinn. Alþingismennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Sigurjón Þórðarson takast á um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar; og svo – það sem er kannski mikilvægast af þessu öllu: erum við að bregðast börnunum okkar?  Ásgeir Jónsson, Seðlabankastjóri, í ítarlegu viðtali. Það er ekkert annað land í okkar heimshluta með verðtryggingarkerfi eins og það er á Íslandi. Líklega hvergi í heiminum. Af hverju erum við ein búin að vera að þvælast með þetta í nærri hálfa öld? Nærri helmingur íslenskra barna lýkur grunnskólanámi án þess að geta lesið sér til gagns. Freyja Hreinsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ, og Bryndís Haraldsdóttir, alþingismaður, ræða málið.

af gu magn sigurj brynd frostad haraldsd kristr menntav
Rauða borðið
Synir Egils 13. sept - Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 13, 2026 140:54


Sunnudagurinn 13. september Synir Egils: Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál Þau koma og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda; PISA, fjárlagafrumvarp, stefnuræðu, landakort Trump, EES og bókun 35, aðgerðir ríkisstjórnar vegna kjarasamninga, fjölmiðla og fleira. Síðan koma að ræða öryggis- og utanríkismál þau Dagur B. Eggertsson þingmaður, Albert Jónsson fyrrum sendiherra og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæðis og landakorts og símtals Donald Trump. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.

Rauða borðið
Rauða borðið 9. sept - Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 9, 2026 237:31


Miðvikudagur 9. september Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg munu án efa skerða viðkvæma þjónustu við börn og ungmenni og auka hættu á ójöfnuði. Þetta segir Árni Gunnarsson forvarnafulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Kristján Sigurjónsson ritstjóri FF7 ræðir við Gunnar Smára um kosningarnar í Svíþjóð, sem verða um helgina. Verða stjórnarskipti? Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir snýr aftur á Samstöðina eftir hlé og ræðir ásamt Birni Þorláks álitamál í geðheilbrigðisþjónustu. Bergur Ebbi Benediktsson, höfundur, fyrirlesari og uppistandari, segir Gunnari Smára frá nýju bókinni sinni sem fjallar um mennsku og gervigreind. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Víði Sigurðsson íþróttasérfræðing um fótbolta.

Fotbolti.net
Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Starfið undir á Laugardalsvelli?

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Sep 8, 2026


Sigurjón Jónsson og Arnór Gauti Ragnarsson voru gestir í setti í sérstökum upphitunarþætti fyrir viðureign Aftureldingar og Breiðabliks í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Leikurinn fer fram á föstudaginn og er Sigurjón stuðningsmaður Breiðabliks en Arnór er Mosfellingur sem lék sömuleiðis með Breiðabliki. Farið var yfir leiki liðanna í undanúrslitum, gengi þeirra í sumar og spáð í úrslitaleikinn sjálfan.

Rauða borðið
Rauða borðið 8. sept - PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 8, 2026 212:15


Þriðjudagur 8. september PISA, Trumptíminn, fjárlög, sjónvarpsfréttir og hvalveiðar Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, og Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, koma til okkar til að ræða nýjustu PISA-könnunina. Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Ólafur Þ. Harðarson prófessor velta fyrir sér í spjalli við Gunnar Smára hvað Trump er að hugsa og hvað hann ætli að gera. Þingmennirnir Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar, og Stefán Vagn Stefánsson, annar varaformaður nefndarinnar, mæta til að ræða fjárlög ríkisstjórnarinnar. Víst er að þeir eru fjarri því að vera sammála. Sigmundur Ernir Rúnarsson, eitt þekktasta andlit sjónvarpsfrétta sögunnar, ræðir einokunarstöðu Rúv í sjónvarpsfréttum. Hann ræðir einnig þingveturinn fram undan og svartar niðurstöður PISA í samtali við Björn Þorláks. Sú óvænta staða er uppi að allir þingflokksformenn flokka sem eiga sæti á Alþingi lýsa yfir stuðningi við hvalveiðar. Samt er stefna Samfylkingarinnar að hætta hvalveiðum. Valgerður Árnadóttir hvalavinur ræðir þessa þversögn í samtali við Björn Þorláks.

Spegillinn
Stefnt að hallalausum fjárlögum og kosningar framundan í Svíþjóð

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 7, 2026 20:00


Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir fimm milljarða afgangi í fjárlagafrumvarpinu. Það á eftir að fara í gegnum þingið hver verður niðurstaðan eftir það. Rætt við Sigurjón Þórðarson (F) formann fjárlaganefndar og Njál Trausta Friðbertsson (D) sem situr í henni. Þing-, landsþings- og sveitarstjórnarkosningar eru í Svíþjóð 13.september. Skoðanakannanir benda til þess að mjótt verði á mununum milli núverandi ríkisstjórnarflokka og stjórnarandstöðunnar. Rætt við Anders Svenson sænskan blaðamanna um horfurnar.

sv fj sko sigurj framundan stefnt
Rauða borðið
Synir Egils 6. sept - Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 6, 2026 141:00


Sunnudagurinn 6. september Synir Egils: Ísland og Evrópa, kjarasamningar, fjölmiðlar og Alþingi Drífa Snædal talskona Stígamóta, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar mæta á vettvang dagsins og ræða fréttir og stöðu samfélagsins. Síðan kemur Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og þingmennirnir Grímur Grímsson, Arna Lára Jónsdóttir og Ólafur Adolfsson og ræða stöðu mála, flokka og ríkisstjórnar við upphaf haustþings. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.

sn magn sigr evr ingi sigurj alfre adolfsson frams egils brynjar torfason kjarasamningar
Rauða borðið
Rauða borðið 2. sept - Reynsluboltar, uppsagnir, Eiríkur, utanríkisstefna, bekkurinn og hrós

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 2, 2026 288:33


Miðvikudagur 2. september Reynsluboltar, uppsagnir, Eiríkur, utanríkisstefna, bekkurinn og hrós Þórunn Sigurðardóttir, Þröstur Ólafsson og Guðmundur Þ. Ragnarsson ræða helstu mál samfélagsins við Sigurjón Magnús. Kári Sigurðsson formaður Sameykis ræðir uppsagnir hjá Reykjavíkurborg og stöðu kjarasamninga við Gunnar Smára. Jón Kalman rithöfundur ræðir bók, Maríuklefann, sem er að koma út eftir Eirík Guðmundsson, útvarpsmann. Jón ritar eftirmála að bókinni og lýsir fyrir Birni Þorláks hvers konar rit er um að ræða. Eiríkur lést um aldur fram fyrir nokkrum árum. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um áhrif þjóðaratkvæðagreiðslunnar á utanríkisstefnu Íslands. Ættu stjórnvöld að draga úr samþættingu stefnunnar við stefnu Evrópusambandsins? Víðir Sigurðsson ræðir íslenska knattspyrnu við Sigurjón Magnús. Þar er af nógu að taka þegar Íslandsmótið stendur hvað hæst. Við getum verið miklu meira vakandi fyrir því sem vel er gert og þjálfað taugabrautir í heilanum til að sjá það góða og fallega í lífinu, segir Ingrid Khulman. Hún hræðir við Ásdísi Olsen og kennir okkur að hrósa.

Rauða borðið
Rauða borðið 1. sept - Gengisfelling, sjónvarpsfréttafall, tíðindi dagsins, þunglyndi og Sinfó

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 1, 2026 252:18


Þriðjudagur 1. september Gengisfelling, sjónvarpsfréttafall, tíðindi dagsins, þunglyndi og Sinfó Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, segir að fram undan sé stór gengisfelling. Krónan sé allt of sterk. Hann ráðleggur fólki að flytja peningana sína yfir í aðra mynt. Hann ræðir þetta mál og úrslit Evrópukosningarinnar í samtali við Sigurjón Magnús Heimir Már Pétursson og Lára Ómarsdóttir, fyrrverandi fréttamenn á fréttastofu Stöðvar 2/Sýnar, ræða við Björn Þorláks og Sigurjón Magnús þá stöðu sem upp er komin að sjónvarpsfréttir keppinautar Rúv heyra sögunni til. Hvaða áhrif verða af því á samfélagið? Ingibjörg Ottesen eldri borgari, Björk Vilhelmsdóttir félagsráðgjafi og Kristín Erna Arnardóttir hjá Sameyki ræða fréttir líðandi stundar. Þórný Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur fann leið út úr alvarlegu þunglyndi og segir Ásdísi Olsen frá því. Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, ræðir nýjan aðalhljómsveitarstjóra, Barböru Hannigan, og fer yfir hluta af dagskrá sveitarinnar fram að áramótum. Sól Björnsdóttir og Björn Þorláks ræða við Guðna.

Handkastið
Olís deildirnar að byrja, Iðkendagjöld HSÍ og yfirferð á Olísdeild kvenna

Handkastið

Play Episode Listen Later Aug 31, 2026 78:22


Stymmi Klippari, Sigurjón Friðbjörn, Gunnar Valur og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og fóru yfir fréttir vikunnar. Iðkendagjöld HSÍ voru rædd og möguleg útfærsla á þeim. Ákvörðun Víkinga að taka ekki þátt í Olís deild kvenna var rædd. Selfyssingar ósáttir við vinnubrögð Víkinga. Yfirferð yfir öll liðin í Olís deild kvenna Olís deildirnar hefjast í vikunni. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Rauða borðið
Rauða borðið - 27. ágúst Reynsluboltar, vinnueftirlit, lagahorn og sagnfræði

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 27, 2026 186:14


Fimmtudagur 27. ágúst Reynsluboltar, vinnueftirlit, lagahorn og sagnfræði Kristín Ástgeirsdóttir, fyrrum þingkona, Sigurður Már Jónsson blaðamaður og Sigurður Þór Salvarsson blaðamaður eru gestir Sigurjóns Magnúsar. Evrópumál, uppsagnir hjá borginni og önnur fréttamál ber á góma. Steinar Harðarson, fyrrum svæðisstjóri vinnueftirlits, ræðir sögu vinnuverndar í samtali við Björn Þorláks. Hann segir að umbætur hafi að jafnaði komið að utan. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir álitamál í Evrópurétti og hvaða breytingar gætu orðið til góðs eða ills ef Ísland yrði aðili að Evrópusambandinu. Björn Þorláks ræðir við hann. Valur Gunnarsson sagnfræðingur og rithöfundur ræðir árin frá seinni stríði í Evrópu. Þeir sem nú hamast mest gegn ESB myndu verða þeir fyrstu til að krefjast aðstoðar þaðan ef eitthvað hræðilegt myndi gerast hérlendis, segir Valur í samtali við Björn Þorláks.

Rauða borðið
Rauða borðið 25. ágúst - Fréttir dagsins, heilbrigðismál, sakhæfisaldur og vending

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 25, 2026 204:38


Þriðjudagur 25. ágúst Fréttir dagsins, heilbrigðismál, sakhæfisaldur og vending Nei eða já í Evrópukosningunni, uppsagnir í borginni, menntamál og fleira verður krufið í fréttaspjalli Björns Þorlákssonar við Jón Trausta Reynisson blaðamann, Lárus Guðmundsson athafnamann og Margréti Tryggvadóttur rithöfund. Brýn þörf er á að auka við hjúkrunarrými og legupláss. En hvaða fólk á að starfa þar? Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, og Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, hittu Sigurjón Magnús. Að lækka sakhæfisaldur minnkar ekki endilega glæpi heldur þvert á móti. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræðir við Björn Þorláks um skref Svía að fara niður í 14 ár. Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona fór í háskólanám eftir að hafa verið Þjóðeikhússtjóri og ver doktorsritgerð sína á næstu dögum. Hún segir Gunnari Smára frá náminu, þýðingum, leikhúsi og lífinu.

bj gu sj sv magn vending evr margr sigurj steinunn heilbrig tryggvad valdimarsd sakh sandra b franks
Víðsjá
Örn Alexander, Sjónarafl og Skriftamál einsetumannsins

Víðsjá

Play Episode Listen Later Aug 20, 2026 55:14


Síðustu ár hefur á Listasafni Íslands verið unnið að metnaðarfullu fræðsluverkefni í myndlæsi undir yfirskriftinni Sjónarafl. Þar fá nemendur og áhugasamir spurningar og lykla sem opna dyr að heimi myndlistar fyrir alla að njóta. Ragnheiður Vignisdóttir, fræðslu- og útgáfustjóri Listasafns Íslands, upplýsir okkur nánar um verkefnið. Sölvi Halldórsson rýnir í sögufrægt verk eftir Sigurjón Friðriksson sem kom fyrst út árið 1929 og nefnist Skriftamál einsetumannsins. Að lokum lítum við inn í Kling & Bang, en þar opnar á morgun einkasýning Arnar Alexanders Ámundasonar sem nefnist því greinargóða nafni; Sýning sem verður kannski tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna. Þar tekst Örn á við umræðuna um gangverk listheimsins sem fer oftast fram í hálfhljóði.

Rauða borðið
Rauða borðið 19. ágúst - ESB, refur, vextir, áfengissala og Fjalla Eyvindur

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 19, 2026 241:07


Miðvikudagur 19. ágúst ESB, refur, vextir, áfengissala og Fjalla Eyvindur Gunnar Smári ræðir við Bjarka Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðing um hvað veldur því að einn ætlar að segja já en annar nei út frá sömu greiningum á stöðu mála. Ester Rut Unnsteinsdóttir líffræðingur er sérfræðingur í refastofninum á Íslandi. Að auki fylgist hún með stöðu annarra spendýra, svo sem minks og fugla. Hún ræðir við Sigurjón Magnús. Ingibjörg Ottesen, manneskja úti í bæ, fer yfir Evrópumál og einnig vaxtaákvörðun Seðlabankans, sem enn hækkar vexti. Björn Þorláks ræðir við hana. Margt bendir til bakslags til langframa gagnvart lýðheilsu ekki síst ungmenna í áfengis- og vímuvarnamálum hér á landi. Björn Þorláks ræðir við Árna Guðmundsson forvarnafulltrúa. Páll Ásgeir Ásgeirsson náttúruunnandi blandar saman sólmyrkva, Fjalla Eyvindi og Evrópukosningunni í samtali við Björn Þorláks. Hann varð vitni að undri á sjó á Vestfjörðum.

Rauða borðið
Synir Egils 9. ágúst - Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 9, 2026 153:22


Sunnudagurinn 9. ágúst Synir Egils: Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar Synir Egils, þeir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, fá gesti og ræða stöðu mála og stjórnmálin. Í fyrri hluta þáttarins koma þau Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB, klofna þjóð og fallna kjarasamninga. Síðan koma þær Eyrún Magnúsdóttir stofnandi Gímaldsins, Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambandsins og Þóra Jónsdóttir lögfræðingur fjölmiðlanefndar og ræða veika stöðu fjölmiðla. Í lokin taka þeir bræður stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi.

vr magn krist esb margr sigurj rith egils tryggvad eyr bjarni benediktsson kjarasamningar
Spegillinn
Sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 16, 2026 10:02


Íslenskur sjávarútvegur, yfirráð Íslendinga yfir auðlindum hafsins í kringum Ísland og nýtingu þeirra - þetta er jafnan eitt mesta hitamálið þegar tekist er á um kosti og galla hugsanlegrar Evrópusambandsaðildar og jafnvel aðildarviðræðna. Áhrif inngöngu í ESB á þessu sviði eru sögð frá því að vera óveruleg allt upp í algjört afsal á stjórn og nýtingarrétti íslenskra fiskistofna til framkvæmdastjórnar ESB í Brussel - og allt þar á milli. En hver er sameiginleg stefna Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum? Spegillinn spurði Jóhann Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Hafrannsóknastofnunar að því. Hann tók þátt í að undirbúa sjávarútvegskaflann í aðildarumsókn Íslands á árunum 2009 til 2013, en þeim viðræðum var hætt áður en sá kafli var opnaður. Hlutverk Jóhanns var einkum að rýna í Evrópulöggjöfina og bera hana saman við þá íslensku. Hann þekkir því vel til sjávarútvegsstefnu ESB. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Bylgjan
Bítið - 6. júlí 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jul 6, 2026 91:18


Elisabet Reynisdóttir, næringarfræðingur ræddi við okkur um hættuleg fæðubótarefni. Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, ræddi við okkur um hækkandi fiskverð. Margrét Rós Sigurjónsdóttir, umhverfisfræðingur og varaborgarfulltrúi Viðreisnar, ræddi við okkur um trjágróður í Reykjavík. Jónas Hagan, frumkvöðull og stjórnarmaður í hreyfingunni SJÁ - Já til að sjá, ræddi við okkur um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29.ágúst. Dagur Jónsson, nýkominn úr skiptinámi í Brasilíu, settist niður með okkur og ræddi dvölina í Brasilíu. Kalli Lú var með Veiðihornið á sínum stað. Símatími

Rauða borðið
Rauða borðið 25. júní - Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 25, 2026 278:11


Fimmtudagur 25. júní Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn Tófan, hvalurinn og selurinn eru hluti af verðmætum sem Íslendingum ber að vernda. Þetta segir Rósa Líf Darradótir læknir sem segir að manninn hafi borið af leið eins og lýsi sér í svokallaðri “”mannmiðjuvillu”. Björn Þorláks ræðir við hana. Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir og María Hjálmtýsdóttir, framhaldsskólakennarar, ræða stöðu framhaldsskólans með Laufeyju Líndal. Jenný Kristín Valberg teymisstýra í Bjarkarhlíð ræðir fjölbreyttar birtingarmyndir ofbeldis við Ragnheiði Davíðsdóttur. Ólafur Kristjánsson, einnig þekktur sem Óli tölva, ræðir um notkun gervigreindarinnar við Ásdísi Olsen. Víðir Sigurðsson ræðir að lokum við Sigurjón Magnús m.a. um framvindu og stöðuna á HM.

Rauða borðið
Rauða borðið 24. júní - Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 24, 2026 275:43


Miðvikudagur 24. júní Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Ólafur Páll Jónsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára Egilsson um tíma Trump. Sigurjón Magnús ræðir við Guðmund Hálfdánarson um átökin innanlands í samtímanum. Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara ,ræðir við Gunnar Smára um niðurskurð. Lárus Ýmir Óskarsson velti því fyrir sér í spjalli með Birni Þorláks hvort auðræði sé að granda heiminum. Alþýðusönglist og hvernig sá siður hefur haldist víða að syngja í röddum og miðla milli kynslóða verður til umræðu hjá Margréti Bóasdóttur söngkonu og kórstjórnanda og Ingveldi Ýr Jónsdóttur söngkonu og kórstjórnanda. Gildi kórastarfs verður til umræðu.

Ein Pæling
#577 Frosti Sigurjónsson - Afhverju þú ættir að segja nei 29. ágúst

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Jun 20, 2026 72:04


Þórarinn ræðir við Frosta Sigurjónsson um Evrópusambandið.Frosti er mótfallinn því að Ísland gangi inn í Evrópusambandið en hann telur einnig að nei sé hið rétta svar 29. ágúst þegar kosið verður um að fara til aðildarviðræðna við Evrópusambandið.Rætt er um áhrif erlendra valda, Draghi skýrsluna, undanþágur og hvort að Norðmenn séu gullgæsin sem Evrópusambandið sé í raun að sækjast í með því að fá Ísland inn.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270  Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25

draghi evr sigurj afhverju frosti
Rauða borðið
Rauða borðið 18. júní - Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 18, 2026 221:20


Fimmtudagur 18. júní Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn Við byrjum á spjalli Björns, Ásdísar og Gunnar Smára. Svo kemur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisràðherra og fer yfir átakamál í ítarlegu samtali við Björn Þorláks. ESB, Trump, Gaza, efnahagsmálin innanlands og hræðsluáróður ber á góma. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir samkomulag Trumpstjórnarinnar og klerkastjórnarinnar í Íran í samtali við Gunnar Smára. Hvað fékk Trump út úr stríðinu? Hver er staða Íran á eftir? Og hvar stendur Ísrael? Ingibjörg Ottesen, sem verið hefur með gagnrýna umræðu á Facebook, lætur flest flakka um pólitíkina, sjálftöku, það sem hún kallar spilllingaraflanna, mannréttingarmál, skort á náttúruvernd og margt fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir talaði við hana. Í lokin fer Sigurjón yfir HM í fótbolta með Víði Sigurðssyni í Bekknum og eflaust íslenskan fótbolta líka.

Segðu mér
Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later Jun 16, 2026 41:09


Þópra Hrönn býr í Vestmannaeyjum, en rekur heilsugæslu í Gambíu.

sigurj gamb vestmannaeyjum
Rauða borðið
Rauða borðið 15. júní - Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 16, 2026 311:00


Mánudagur 15. júní Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB Réttarhöld um svokallað Edition mál þar sem tvennt lét lífið fjalla um fjarstæðukenndan hrylling. Magnea Marínósdóttir ræðir við Björn Þorláks um hvernig það var að vera viðstödd réttarhöldin. Kristín Ástgeirsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir og Þröstur Ólafsson ræða við Sigurjón Magnús um helstu þjóðmál, erjur í Samfylkingunni og fleira. Hafrún María Zsoldos snyrtifræðingur var nær dauða en lífi vegna sílikonbrjóstapúða. Ásdís Olsen ræðir við Hafrúnu Maríu. Ragnar Baldursson, prófessor í kínverskum fræðum, segir Gunnari Smára frá afstöðu Kínverja til samfélags, ríkis og flokks og veltir fyrir sér hvers vegna Kína sé nú orðið í forystu varðandi sjálfbæra þróun. Henry Alexander Henrysson heimspekingur ræðir þjóðaratkvæðagreiðsluna fram undan, rökræðuna um ESB, lýðræði, siðferði, unglingaveiki smáþjóðar og heiðarleika í samtali við Björn Þorláks.

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - mánudagur 8. júní 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jun 8, 2026 62:39


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Davíð O Arnar yfirlæknir á hjartadeild Landspítala um Christian Ericsen Arnór Sigurjónsson sérfræðingur í varnar og öryggisfræðum varðandi mögulega aðild að ESB og varnarsamninginn við Bandaríkin Símatími Finnur Beck framkvæmdastjóri Samorku um skýrslu norrænu ráðherranefndarinnar um orkuöryggi Brynhildur Georgsdóttir forstöðumaður þróunar og reksturs hjá Íslandsstofu um samkomulag sem snýr að því að vernda landaheitið Ísland og Iceland Magne Kvam framkvædastjóri og stofnandi Icebike Sigrún V. Heimisdóttir, sálfræðingur

reykjav esb sigurj landsp heimisd
Heimskviður
259 - Afganistan og óumflýjanlegur samruni í Hollywood

Heimskviður

Play Episode Listen Later May 23, 2026 43:41


Það styttist í þau tímamót að fimm ár verði liðin frá því að Afganistan féll í hendur talibana. Reglulega hafa borist fréttir af síversnandi aðstæðum Afgana, sér í lagi stúlkna og kvenna. En hvernig er staðan í Afganistan, nú þegar talibana hafa verið við völd í tæp fimm ár ílandinu? Við kynnum okkur það í þættinum og heyrum líka af samruna tveggja af stærstu kvikmyndaverunum í Hollywood. Eftir uppboðsstríð við streymisveituna Netflix tókst Paramount að tryggja sér Warner Bros. á 111 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði um 13.800 milljarða íslenskra króna. Yfirvöld þurfa að samþykkja samrunann en ef af honum verður verða aðeins fjögur stór kvikmyndaver eftir í Bandaríkjunum. Leikarar, framleiðendur, leikstjórar og aðrir hafa áhyggjur af færri tækifærum gangi samruninn í gegn, störfum fækki, kostnaður hækki og að úrval fyrir neytendur verði minna. Sigurjón Sighvatsson framleiðandi sem hefur unnið í Hollywood til áratuga segir að samruninn hafi verið óumflýjanlegur.

Bylgjan
Bítið - þriðjdagur 12. maí 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 12, 2026 67:29


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Halldór Jörgen Olesen er ritstjóri Verðbólguvaktarinnar, verdbolga.net, og hefur tekið saman kostnað við sex stærstu kosningaloforðin. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri FF7, ræddi við okkur um ferðamannabransann og flugið. Elísabet Ingunn Einarsdóttir er í 2.sæti fyrir Sjálfstæðisflokk á Seltjarnarnesi og Skafti Harðarson, oddviti Miðflokks á Nesinu, settust niður með okkur. Goðsagnirnar Magnús Kjartansson og Jakob Frímann ræddu útitónleika í Keflavík næstu helgi. Milla Ósk Magnúsdóttir, eiginkona Einars Þorsteinssonar, oddvita Framsóknar í Reykjavík, gefur öðrum mökum frambjóðenda góð ráð.

Handkastið
Allt undir á fimmtudaginn og ÍBV fengu ekki neyðarlán

Handkastið

Play Episode Listen Later May 4, 2026 81:54


Stymmi Klippari, Kiddi Bjé og Sigurjón Friðbjörn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Það var stórkostlegur leikur í Kaplakrika í kvöld og orðið ljóst að við förum alla leið í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Thea Imani er á leið í atvinnumennsku. Það ræðst í vikunni hvaða lið leika til úrslita í Meistaradeild Evrópu. Handboltaþingið er um helgina og nokkrar breytingartillögur til umræðu. Valur er komið í 1-0 gegn ÍBV í einvígi þeirra um titilinn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Mannlegi þátturinn
Ónæmisgallar, upprifjun í mannlegum samskiptum og býflugur í vísindaspjallinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 22, 2026 54:44


Þessa vikuna er vitunarvakning hjá Lind, félagi fólks með ónæmisgalla. En markmið félagsins er að stuðla að öflugum forvörnum, greiningu og meðferð meðfæddra ónæmisgalla. Hrefna Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á ónæmisdeild Landspítalans kom í hljóðver og Guðrún Jóna Hreggviðsdóttir var á línunni frá Ítalíu, en sonur hennar fæddist með ónæmisgalla. Hún deildi með okkur þeirra sögu og Hrefna fræddi okkur um ónæmisgalla, vitundarvakningavikuna og félagið Lind. Svo kom Valdimar Þór Svavarsson til okkar, í þetta sinn á miðvikudegi, því mannlegu samskiptin eru svo áhugaverð að tala um við hann að það kom ekki til greina að missa hann út þessa vikuna þó að það sé ekki þáttur á morgun, Sumardaginn fyrsta. Ekki nóg með það heldur er þetta næst síðasta skipti sem hann kemur til okkar í bili, því stiklaði hann á stóru í dag og rifjaði upp það sem hann hefur verið að fræða okkur um mannleg samskipti í vetur. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá ákveðnu afbrigði af býflugum sem eru þrautseigari gegn sníkjudýrum og sýklum og gætu því verið með lausnina til að bjarga býflugnastofninum sem hefur verið í hnignun. Tónlist í þættinum í dag: Sveitin mín / Haukur Morthens (Jóhann Helgason) Here Comes the Sun / The Beatles (George Harrison) Okkar ástarvor / Björgvin Halldórsson og Sigurjón Brink (erlent lag, texti Friðrik Erlingsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

bj brink gu halld ekki svo sigurj valdimar landsp hrefna sveitin hreggvi
Handkastið
Allt undir á föstudaginn í Hafnarfirði og stelpurnar fara aftur af stað

Handkastið

Play Episode Listen Later Apr 14, 2026 65:01


Stymmi Klippari, Sigurjón Friðbjörn og Gunnar Valur mættur í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Snorri Steinn og Arnór Atlason gerðu samning við HSÍ til 2032. Stelpurnar Okkar eru á leiðinni á fjórða stórmótið í röð. Valsmenn sópuðu meiðslahrjáðum KA mönnum út Heimaliðin vinna ennþá í einvígi FH og Hauka. Heldur Stjarnan sæti sínu í deildinni í kvöld? Stelpurnar Fara loksins aftur af stað eftir stuttan undirbúning. Þetta og svo miklu miklum meira í nýjasta þætti Handkastins.

Bylgjan
Bítið - þriðjudagur 7. apríl 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 7, 2026 93:30


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor og ráðstefnustjóri Vísinda á vordögum, ræddi við okkur um ráðstefnuna. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, ræddi við okkur um skýrslu samtakanna um vátryggingamarkaðinn. Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans og Pétur Óskarsson, formaður SAF, ræddu fyrirhugaðar skattahækkanir á baðlón og ferðaþjónustuna almennt. Þorgerður Elíasdóttir er á leið til Kenýa í hjálparstarf. Hún ræddi við okkur um ferðina og með henni kom Ingveldur Ýr, formaður Íslensku barnahjálparinnar. Andri Már Kristinsson og Arnar Gísli Hinriksson, stofnendur Digido, ræddu við okkur um auglýsingapeningana sem renna út úr landi. Guðmundur Atli Hlynsson leikstjóri heimildarmyndarinnar 1949 ræddi við okkur um myndina.

gu krist saf sigurj gunnarsd ingibj kristinsson heimi hinriksson neytendasamtakanna breki karlsson
Vikulokin
Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Lilja Alfreðsdóttir og Sigmar Guðmundsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Mar 7, 2026 57:58


Gestir Vikulokanna eru Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Lilja Alfreðsdóttir og Sigmar Guðmundsson. Viðfangsefni þáttarins var fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið þann 29. ágúst. Umsjón: Magnús Geir Eyjólfsson Útsending: Þráinn Steinsson

Segðu mér
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson fyrirlesari

Segðu mér

Play Episode Listen Later Mar 4, 2026 40:46


Sigurður Eyjólfur heimsækir skóla og heldur fyrirlestra um hamlandi kvíða.

Mannlegi þátturinn
Þorbjörg og breytingaskeiðið, Þorvaldur Lúðvík segir sína sögu og vísindaspjall Eddu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 4, 2026 53:57


Hormónar, breytingaskeiðið, mataræði og ýmislegt fleira sem snýr að heilsu kvenna. Þorbjörg Hafsteinsdóttir hjúkrungarfræðingur og næringarþerapisti er komin til landsins og við spjölluðum við hana um þessi mikilvægu mál í dag. Fyrir ári greindist Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson athafnamaður á Akureyri með erfitt krabbamein í vélinda og hefur í kjölfarið þurft á aðgerð að halda, einu sinni í viku, til að halda fæðuvegi opnum. Þær aðgerðir voru framkvæmdar á sjúkrahúsinu á Akureyri en fyrir skemmstu hefur hann þurft að sækja þessa þjónustu til Reykjavíkur. Hann skrifaði nýlega grein í fjölmiðla þar sem hann setur spurningamerki við þessa löngu leið í aðgerðina og reiknaði út að árið 2024 færi fólk af landsbyggðinni 25-30 þúsund ferðir til höfuðborgarinnar til að sækja læknisþjónustu á Landspítalann og kostnaðurinn við það væri rúmur milljarður. Þorvaldur spyr hvort það borgi sig virkilega að Sjúkratryggingar, þ.a.l. ríkið og skattgreiðendur, greiði fyrir allar þessar ferðir til Reykjavíkur til að sækja þangað læknisþjónustu sem í mörgum tilvikum væri hægt að framkvæma á landsbyggðinni? Við ræddum við Þorvald Lúðvík í dag. Eva Olgudóttir kom í þáttinn með vísindaspjall sitt eins og undanfarna miðvikudaga. Í þetta sinn sagði hún okkur frá því hvaða áhrif krabbamein í æsku getur haft á fólk seinna meir í lífinu. Tónlist í þættinum Þú trumpar ekki ástina / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason) Jag har det så travlt / Tina Dickow (Tina Dickow) Dont Blame It on That Girl / Matt Bianco (Mark Reilly & Mark Fisher) Harvest / Rufus Wainwright, Chris Stills og Andrew Bird (Neil Young) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

sj jag hann reykjav fyrir horm akureyri sigurj landsp segir eddu hafsteinsd bogomil font
Bylgjan
Reykjavík síðdegis - mánudagur 23. febrúar 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Feb 23, 2026 74:02


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Theodór Carl Steinþórsson framkvæmdastjóri hjá Securitas um morgunverðarfund vegna tíðra innbrota Mummi Týr Þórarinsson Mummi í Mótorsmiðjunni og Götusmiðjunni varðandi Bakkakot og fleiri mál tengd barnavernd Símatími Anna Karin Hjálmarsdóttir sem er búsett í New York um veðurofsann þar Arnór Sigurjónsson sérfræðingur í varnar og öryggisfræðum fyrrverandi liðsforingi í Norska hernum um þriðju heimsstyrjöldina Tímavélin: Icesave, ófrjósemi vegna farsíma og Google gleraugun Friðrik Larsen stofnandi Brandr og prófessor í HÍ og vörumerkjasérfræðingur

Bylgjan
Bítið - fimmtudagur 19. febrúar 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Feb 19, 2026 88:59


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Þorvaldur Flemming var í beinni frá Danmörku. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, viðskiptafræðingur, flugmaður og áhugamaður um bætt mannlíf um land allt, ræddi við okkur um heilbrigðisþjónustu. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks í Reykjavíkurborg, ræddu leikskólamálin í borginni. Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni, ræddi við okkur um hvað pör þurfa að ræða áður en þau ganga í hjónaband. Þuríður Blær Jóhannsdóttir leikur aðalhlutverkið í Röskun og Bragi Þór Hinriksson, leikstjóri myndarinnar, settust niður með okkur. Græjuhornið.

sj flemming reykjav danm anna j febr sigurj bragi heimi theod eflingar hinriksson hildur bj fimmtudagur
Bylgjan
Bítið - mánudagur 9. febrúar 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Feb 9, 2026 82:56


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, ræddi við okkur um kostnað við erlenda leikmenn í körfuboltanum. Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur BHM, ræddi við okkur um veikindaforföll á vinnumarkaði. Njörður Sigurjónsson, einn af stjórnarmönnum FAB, Félags Akademískra starfsmanna á Bifröst og Selma Klara Gunnarsdóttir, nemandi og hagsmunafulltrúi Nemendafélags Háskólans á Bifröst, ræddu ástandið á Bifröst. Jói dans fór yfir dansmenninguna.  

ge fab bhm febr sigurj bifr atlason heimi akadem
Bylgjan
Reykjavík síðdegis - þriðjudagur 20. janúar 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jan 20, 2026 72:17


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Sævar Helgi Bragason Stjörnu Sævar vísindamiðlar um mögnuð norðurljós síðustu daga og plánetuna K2-18b sem er 120 ljósár í burtu Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður og fyrrverandi utanríkisráðherra um viðbót við varnarsamninginn frá 2017 Símatími Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um lögheimili Arnór Sigurjónsson sérfræðingur í varnar og öryggisfræðum fyrrverandi liðsforingi í Norska hernum um stöðuna innan NATO í ljósi nýjustu vendinga á Grænlandi Arnar Þór Ólafsson fjármálaverkfræðingur auratal.is og þáttastjórnandi Viltu finna milljón á Sýn um sparnaðarráð Henry Birgir Gunnarsson fréttastjóri íþrótta hjá Sýn um leikinn gegn Ungverjalandi framundan á EM karla í handbolta

Bylgjan
Bítið - þriðjudagur 13. janúar 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jan 13, 2026 93:54


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ólöf Embla Einarsdóttir, rekstrarstjóri Straumlindar, ræddi við okkur um rekstur raforkusala. Dönskukennarinn Simon Cramer Larsen býður sig fram sem formaður Félags framhaldsskólakennara.   Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, ræddu ferðaþjónustuna og framtíðarhorfur. Sara Rut Arnardóttir, listrænn stjórnandi Improv Ísland, fór yfir undarlegt mál sem tengist samkomuhúsinu Bifröst á Sauðárkróki. Stefán Atli og Atli Már ræddu framtíðina í gervigreind og nýtt verkefni sem heitir Litla kríli. Jóhann Atli Jóhannsson og Andri Geir Jónasson eru stofnendur Eignar sem er nýtt sprotafyrirtæki sem gagnast fólki í fasteignaviðskiptum.   Sigrún Valsdóttir og Kolbrún Tómasdóttir settust niður með okkur og ræddu bókina Systir mín sem enginn sér.      

Bylgjan
Bítið - þriðjudagur 6. janúar 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jan 6, 2026 89:34


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.    Kristján Sigurjónsson hjá FF7 var á línunni og ræddi flugið. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, ræddi við okkur um raforkuverð.   Agnar Jónsson og Ómar Sigurðsson, vinir mannsins sem slasaðist í bílslysinu í Suður-Afríku, fóru yfir stöðuna. Róbert Ragnarsson, sækist eftir oddvitasæti Viðreisnar í borginni. Hann vill breyta strúktúr innan borgarinnar þegar kemur að borgarfulltrúum og launum.   Gunnar Leó Pálsson hjá Rent A Party og Heimaform kíkti í stúdíóið.

Vikulokin
Arnór Sigurjónsson, Pia Hansson og Dagur B. Eggertsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Dec 13, 2025 57:57


Gestir Vikulokanna eru Arnór Sigurjónsson fyrrverandi skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu og sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum, Pia Hansson forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar. Þau ræddu öryggis- og varnarmál, sniðgöngu Íslands í Eurovision og sæðisgjafamálið. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þráinn Steinsson

eurovision arn hansson sigurj umsj eggertsson samfylkingarinnar dagur b
Handkastið
Strákarnir mættu taka stelpurnar sér til fyrirmyndar

Handkastið

Play Episode Listen Later Nov 30, 2025 64:55


Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Sigurjón Friðbjörn mættu í stúdíó Handkastsins gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Stelpurnar okkar eru komnar í milliriðil sem hefst á þriðjudaginn sem þeir eiga fínan séns á að sækja úrslit í. Leikgleðin hjá hópnum skín í gegn og vill Sérfræðingurinn sjá Strákana Okkar taka þetta sér til fyrirmyndar á næsta stórmóti. ÍR eru komnir með sinn fyrsta sigur í deildinni og framundan er stórleikur á Selfossi. Fusche Berlin eru að setja saman eitthvað svakalegasta lið handboltasögunnar. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Spegillinn
Slagurinn um yfirráðin í borgarstjórn, friðaráætlun fyrir Úkraínu og umræða um Hafrannsóknastofnun á Alþingi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 24, 2025 20:00


Það er smám saman að komast mynd á það hvernig flokkarnir í Reykjavík ætla að raða á sína lista fyrir sveitastjórnarkosningarnar í vor. Slagurinn um yfirráðin í borginni er á milli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði, telur það ekki skipta sköpum fyrir ríkisstjórnina hverjir fara með völd í þessu langstærsta sveitarfélagi landsins. Friðaráætlun fyrir Úkraínu, sem Bandaríkjaforseti lagði blessun sína yfir, er óþægilega í takt við hugmyndir Rússa að mati Erlings Erlingssonar hernaðarsagnfræðings. Það sé erfitt að upphafspunktur viðræðna sé óskalisti Rússlandsforseta. Hann efast líka um að Rússar myndu samþykkja tillögurnar. Staða Hafrannsóknastofnunar var til umræðu á Alþingi í dag. Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður atvinnuveganefndar, hóf máls á þessum málaflokki og lagði spurningar fyrir atvinnuvegaráðherra. Hann var gagnrýninn í sinni framsögu og velti upp ýsmsum hugmyndum um nýjungar í hafrannsóknum.