POPULARITY
Heil og sæl. Í dag er heldur fjör hjá okkur þar sem Siggi Hlö hinn eini sanni er í heimsókn. Við förum í boltann um helgina og stórleik Liverpool og Man.City. Siggi er á hreinu með hvert Klopp fer í sumar. Við tölum um Benedikt Gunnar Óskarsson handboltasnilling. Spáum í leikina í vikunni og margt margt fleira. Takk BK-kjúklingur, Marpól og Slysalogmenn.is Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Sigurður Helgi Hlöðversson er gestur Íþróttavikunnar. Umsjón hafa Helgi Fannar og Keli.
Þá er komið að síðasta þættinum í Tónlistarhéranum þessa páskana. Eins og áður kemur margt og mikið við sögu í lagalistum og spurningunum dagsins. Lög um bíla, Eurovision-slagarar, íslenskir 90's hittarar, Duran Duran og Queen svo fátt eitt sé nefnt. Það eru tvö ólseig lið sem mætast. Siggi Hlö og Una Stef mynda lið Voffa sem mæta liði Gassins en í því eru þeir Hallgrímur Ólafsson eða Halli Melló og Hreimur Örn Heimisson.
Gestur minn þessa vikuna er Sigurður Helgi Hlöðversson oft þekktur sem Siggi Hlö. Siggi rekur ferðaskrifstofu, er fyrrum útvarpsmaður, sjónvarpsmaður, rak auglýsingastofu og margt fleira. Hann er gjörsamlega frábær og magnaður. Það var yndislegt, gott, gaman, áhugavert og fræðandi að spjalla við Sigga. Þú ert frábær! Ást og friður.
Siggi Hlö kíkti í heimsókn, hann var að klára sinn síðasta Veistu hver ég var? núna á laugardaginn. Við ræddum æskuna, ástina og eftirminnilegustu símtölin sem hann fékk í þáttinn. IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
384.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Tippari vikunnar er að þessu sinni Siggi Hlö hinn eini sanni. Kappinn sá heldur með Víkingi og Man.Utd. svona ef það skyldi hafa farið framhjá einhverjum. Hann tippar á 5 leiki á Lengjunni og við ræðum um liðin og einnig um ferðaskrifstofubransann en Siggi á Visitor.is sem sérhæfir sig í fótboltaferðum meðal annars. Þá er Þórhallur Dan á línunni en við ræðum um Lengjudeildina, PepsiMax, enska boltann, þýska boltann, Mourinho, fréttir og slúður. Nóg um að vera hjá okkur félögum. Njótið helgarinnar.
Víðir Sigurðsson íþróttafréttamaður hjá Mbl er í góðu spjalli um íslenska boltann. Siggi Hlö er með athyglysverða spá um PepsiMax deild karla í sumar og Kristin Ýr fræðir okkur um PepsiMax deild kvenna.
S01E01 – Siggi Hlö er maður í mörgum lögum. Ímyndin er eitt og hann fyllir svo sannarlega út í hana en þá er sagan svo sannarlega ekki öll. Breiðholtið, uppeldi þá og nú, Með hausverk um helgar, líf, dauði, töff og ekki töff. – Fáðu 15% afslátt af öllum DJ-græjum í vefverslun Hljóðfærahússins með afsláttarkóðanum STVF og vertu plötusnúður – eins og Siggi Hlö.
Stórfurðulegur þáttur hjá Gandalf þessa vikuna. Hringdum í alla og ömmur þeirra. Hannes formaður KKÍ, Böddi formaður kr, Gaupi, Hamarsmenn brjálaðir, Siggi Hlö og meira að segja Felix Bergson tók síman. Ást og friður, Gandalf....alltaf góður !
Siggi Hlö er einn ástsælasti fjölmiðlamaður og partýkóngur landsins. Fyrrum auglýsingafrömuður og nú ferðafrömuður ásamt því að stjórna stuði þjóðarinnar alla laugardagseftirmiðdaga. Það er partý hjá Spekingum þessa vikuna.
Það hefur ýmislegt gengið á hjá Manchester United á þessu tímabili en gengi liðsins hefur verið undir væntingum. Siggi Hlö og Jóhann Skúli Jónsson kíktu á Magnús Má Einarsson í Miðjuna í dag og ræddu ítarlega um Manchester United. Meðal efnis: Gengi Manchester United í vetur, Jose Mourinho og stælarnir í honum, vandræðin í vörninni, frammistaða Paul Pogba, vakning hjá Martial, markaþurrð Lukaku, hreinsun næsta sumar, sigurinn á Juventus, fyrirliðamálin, söngvarnir á Old Trafford og margt fleira.
Hópur fólks var fengin til að velja tónlist frá níunda áratug síðustu aldar. Lögin þurftu að hafa ná einhverjum vinsældum en náðu kannski aldrei til Íslands og/eða eru að mestu gleymd í dag. Þórður Helgi Þórðarson og Sigurður Helgi Hlöðversson, betur þekktur sem Siggi Hlö, rifja upp nokkra gleymda smelli. Cry boy cry - Blue Zoo ´82 Never again - Classix Nouveaux ´81 Heya Heya - Blaze ´83 What are you doing tonight - Tomas Ledin ´83 Free Nelson Mandela - The Specials ´84 Runaway - Bon Jovi ´82 Where is my man - Eartha Kitt ´83
Hópur fólks var fengin til að velja tónlist frá níunda áratug síðustu aldar. Lögin þurftu að hafa ná einhverjum vinsældum en náðu kannski aldrei til Íslands og/eða eru að mestu gleymd í dag. Þórður Helgi Þórðarson og Sigurður Helgi Hlöðversson, betur þekktur sem Siggi Hlö, rifja upp nokkra gleymda smelli. Cry boy cry - Blue Zoo ´82 Never again - Classix Nouveaux ´81 Heya Heya - Blaze ´83 What are you doing tonight - Tomas Ledin ´83 Free Nelson Mandela - The Specials ´84 Runaway - Bon Jovi ´82 Where is my man - Eartha Kitt ´83