Markaðsstofan

Follow Markaðsstofan
Share on
Copy link to clipboard

Podcast by VERT Markaðsstofa

VERT Markaðsstofa


    • Jul 5, 2019 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 27m AVG DURATION
    • 10 EPISODES


    Search for episodes from Markaðsstofan with a specific topic:

    Latest episodes from Markaðsstofan

    Vörumerkja- og höfundaréttur og marketing s01e09

    Play Episode Listen Later Jul 5, 2019 52:42


    Vörumerkjaréttur, höfundaréttur og hugverkaréttur. Hvað hefur það með markaðsmál að gera? Reyndar ótrúlega mikið. Til umræðu í dag er m.a. Vörumerkjaréttur, höfundaréttur og hugverkaréttur. Hvað má og hvað má ekki þegar kemur að notkun á efni og svo ræðum við einfaldlega hverju má stela … það er minna en þú heldur :) Réttara sagt þegar þú heldur að þú sért ekki að gera neitt rangt … þá má vel vera að þú sért að STELA efni. En nánar um það í þættinum. Fólk sem vinnur við markaðsmál stendur oft frammi fyrir spurningunni um hvort það megi nota ákveðið efni í sínu markaðsstarfi. Það getur verið myndefni, hugmynd, setning, hljóð- eða tónbrot eða nánast hvað sem við getum birt. Vegna þessa fékk MARKAÐSSTOFAN landsins færasta lögfræðing (mín fullyrðing - ekki hennar) í hugverkarétti í þáttinn. Gesturinn í níunda þætti MARKAÐSSTOFUNNAR og þar með fyrsti gestur okkar EVER er Lovísa Jónsdóttir, hugverkalögfræðingur hjá TEGO - www.tego.is Lovísa gerir sitt besta til að útskýra fyrir okkur hugverkarétt, vörumerkjarétt og hvað þetta heitir allt saman. Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að hér sé um viðtal við fagaðila er engin lögfræðileg ábyrgð er tekin á neinu sem er sagt :) Allir þættir MARKAÐSSTOFUNNAR eru hér: www.vert.is/podcast/ Þú finnur VERT markaðsstofu á helstu samfélagsmiðlum hér: VERT á facebook: www.facebook.com/VERTmarkadsstofa/ VERT á Instagram: www.instagram.com/umtalsvert/ VERT á Twitter: www.twitter.com/umtalsVERT

    Verð er mikilvægasta P-ið - S01E08

    Play Episode Listen Later Jun 5, 2019 22:00


    Vara, verð, vettvangur, vegsauki - þetta er söluráðarnir sem þú hefur til umráða til að búa til virði. Þetta eru þessi klassísku 4P (Product, price, place & promotion) - 4 vöff á íslensku. Það er talað um samval söluráða eða "the marketing mix" þegar vísað er til þess að beita þessum mikilvægu markaðslegutólum. Í þættinum í dag fjöllum við um VERÐ. Verð er mikilvægasta "P-ið". Skýring: Þú notar alla söluráðana til að búa til virði. Vara, vettvangur og vegsauki (auglýsingar) kosta þig peninga. Eina leiðin til að fá fjárfestinguna til baka er VERÐ. Því er það mikilvægast. Hlustaðu vel - VERÐ er VIP! Þú getur hlustað á okkur ræða hví verð er VIP á öllum helstu stöðum sem þú hlustar á Hlaðvörp.

    CRM er sölu og markaðsmál S01E07

    Play Episode Listen Later May 27, 2019 14:57


    CRM (Customer Realtionship Management) eða stjórnun viðskiptatengsla er okkur á Markaðsstofunni hugleikið í nýjasta podcastinu okkar. Vilt þú halda utanum samskiptasögu viðskiptavina? Viltu veita betri þjónustu? Viltu ná betri árangri í markaðsstarfinu og sölustarfinu? Þá ættiru á hlusta. Við tókum stutt spjall um CRM og mikilvægi þess fyrir fyrirtæki til þess að ná betri árangri í sölu og markaðsstarfi. Það er samt mikilvægt að muna að CRM kerfi eitt og sér nær ekki árangri. Þú og þitt fyrirtæki þurfið að tileinka ykkur aðferðafræðina. Þú getur hlustað á okkur ræða CRM á öllum helstu stöðum sem þú hlustar á Hlaðvörp.

    S01E06 Super Bowl 2019 Auglýsingar

    Play Episode Listen Later Feb 4, 2019 30:17


    Super Bowl LIII (53) fór fram sunnudaginn 3. febrúar Skemmst er frá því að segja að leikurinn var ekki skemmtilegur. Í tilefni dagsins tylltum við okkur niður og ræddum það sem við höfum skoðun á… Auglýsingarnar sem voru birtar í kringum leikin. 30 sekúnda auglýsing kostaði 5.25 milljónir dollara eða 631.417.500 kr íslenskar!! Það er eins gott að vanda til verka þegar svona mikið er lagt undir. Við tókum saman helstu auglýsingarnar þær sem okkur fannst bestar, sístar og þær sem féllu þar á milli og ræddum meðal okkar. Þú getur hlustað á okkur ræða það í öllum helstu stöðum sem þú hlustar á Hlaðvörp. Eða bara hér :) Hér getur þú svo séð playlista sem við tókum saman með helstu auglýsingnum Playlisti augl. hja.vert.is/superbowl2019 Þú finnur VERT markaðsstofu á helstu samfélagsmiðlum hér: VERT á facebook: www.facebook.com/VERTmarkadsstofa/ VERT á Instagram: www.instagram.com/umtalsvert/ VERT á Twitter: www.twitter.com/umtalsVERT

    Höfuðsyndirnar 7 Í Efnismarkaðssetningu S01E05

    Play Episode Listen Later Dec 30, 2018 25:38


    Við töluðum um höfuðsyndirnar 7 í efnismarkaðssetningu. Hverjar eru þær og hvenær nákvæmlega ræðum þær? Syndirnar og tímasetningar: 1. Ég um mig frá mér til mín - 3:35 2. Of langt - 6:20 3. Of faglegt - 8:20 4. Ekki aðgerðarhæft -12:00 5. Illa framsett - 14:40 6. Illa skrifað eða ekki vel komið á framfæri - 16:20 7. Stendur ekki við stóru orðin - 18:20 Að lokum viljum við óska ykkur gleðilegs nýs árs og óskum ykkur velfarnaðar í markaðsstarfinu árið 2019. P.s. Ef þú þekkir einhvern sem gæti haft gagn og gaman að þá skaltu ekki hika við að deila hlaðvarpinu með þeim. Þú finnur alla þætti MARKAÐSSTOFUNNAR á www.vert.is/podcast Þú finnur VERT markaðsstofu á helstu samfélagsmiðlum hér: VERT á facebook: www.facebook.com/VERTmarkadsstofa/ VERT á Insta: www.instagram.com/umtalsvert/ VERT á Twitter: twitter.com/umtalsVERT Góða skemmtun!

    Inbound marketing s01e04

    Play Episode Listen Later Dec 9, 2018 39:30


    Allt sem þú hefur nokkurn sinnum viljað vita um Inbound marketing, eða innværa markaðsfærslu eins og við ákváðum að kalla það á íslensku. Hvað er inbound marketing grein - inbound.vert.is VERT á facebook: www.facebook.com/VERTmarkadsstofa/ VERT á Insta: www.instagram.com/umtalsvert/ VERT á Twitter: twitter.com/umtalsVERT “Marketing is a race without a finishing line” Philip Kotler Stigin í inbound marketing eru í grunnin fjögur: 1. Laða að 2. Umbreyta 3. Selja 4. Gleðja Allt um lendingarsíður…. Þjónustufall er markaðslegt tækifæri Kostandi þáttarins er Lýsi - Alla daga!

    Inbound vs outbound marketing S01E03

    Play Episode Listen Later Nov 29, 2018 29:12


    Efni þriðja þáttar er Inbound vs. outbound marketing, eða hver er munurinn á inbound marketing og outbound marketing. Undanfarin ár hafa ýmis markaðshugtök komist í tísku og mögulega má segja að Inbound marketing sé eitt þessara tískuhugtaka.  Önnur sem falla í þennan flokk eru locatioin marketing, destination marketing, permission marketing, personal branding o.fl.  Oftast eru þetta hugtök sem leggja áherslu á eitthvað ákveðið svið eða einhverja ákveðna aðferðafræði.  Sjaldan er í raun um eitthvað nýtt að ræða, annað en áherslubreytingu. Annað málefni sem kemur uppí hugann þegar verið er að skoða vinsæl markaðs hugtök er þýðingin á þeim.  Það er mikið af hugtökum sem ekki er búið að sammælast um hvernig eigi að þýða, eitt þeirra er inbound marketing.  Okkar hugmynd er að þýða það sem innvær markaðsfærsla - við erum þó svo sannarlega opin fyrir hugmyndum :) Í þessum þætti er ekki farið djúpt í hvernig innvær markaðsfærsla virkar.  Aðal áherslan er á að skilgreina og skýra inbound og outbound og fara í hver munurinn er á þessu tvennu.  Þetta er ekki mjög flókið, en þess vert að fara í gegnum það.  Í þætti 4 munum við svo fara ítarlegar í það hvað inbound er og hvernig þú nýtir þér inbound marketing. Við endum þátt #3 á því að smá níði og hraustlegu hrósi. Þú finnur alla þætti MARKAÐSSTOFUNNAR á www.vert.is/podcast Góða skemmtun!

    Markaðsdrifið - Markaðsstofan s01e02

    Play Episode Listen Later Oct 3, 2018 24:28


    Markaðsdrifið - Markaðsstofan s01e02 by VERT Markaðsstofa

    Markaðsáætlun - Markaðsstofan s01e01

    Play Episode Listen Later Sep 23, 2018 33:50


    *Jæja! Þá er það fyrsti þáttu MARKAÐSSTOFUNNAR.* Þetta er Markaðsstofan S01E01 - gleðilega hátið! Markaðsstofan er mas um markaðsmál. Við munum á komandi vikum og mánuðum ræða um allt og ekkert sem tengis markaðsmálum. Sumt verður fræðilegt, annað verður ófræðilegt. Stundum munum við ræða það sem er að gerast í dag, s.s. herferðir sem eru áberandi og stundum munum við ræða eitthvað þurrt og drepleiðinlegt - fyrir þá sem ekki eru markaðsnerðir. Efni fyrsta þáttar er áætlanagerð. Meðal þess sem við ræðum er: - Helstu afsakanir fyrir því að gera ekki áætlanir - Hví gerum við áætlanir - Aðferðafræði og nokkur tól sem nota má og sitthvað fleira. Ef þú lærir eitthvað í dag er það vonandi að: - það borgar sig að gera markaðsplan - það er minna mál en þú heldur - það er einfalt að fá aðstoð (migvantarhjalp@vert.is) - Áætlunardagatal VERT er væntanlegt (cal.vert.is) og að lokum: - Hver á að gera hvað, hvenær og hvað á það að kosta. Við þökkum kostanda þáttarins, Virtus, fyrir. VIRTUS - virtus.is Að lokum, nokkur góð ráð: - fáðu þér ársdagatal (cal.vert.is) - hripaðu niður það sem gerist yfir árið - Byrjaðu núna - Fáðu þér áskrift að þessu podcasti ;) Kynning byggð á þessu podcasti, eða öfugt, má finna hér: vert.is/podcast *ekki klárt.... verður komið fljótlega :)

    Ótrúlega ómarkvisst mas um allt nema markaðsmál

    Play Episode Listen Later Sep 18, 2018 6:13


    [VERT markaðsstofa](www.vert.is)vinnur með viðskiptavinum sínum í stefnumótum, rannsóknum, vöruþróun og vörumerkjavinnu auk þess að framleiða kynningarefni af öllu tagi og sjá um [birtingar](lp.vert.is/birtingar). **Ekkert markaðstengt er okkur óviðkomandi.** Auk þess er VERT vottaður samstarfsaðili [HubSpot](www.hubspot.com). HubSpot er leiðandi í heiminum þegar kemur að [inbound marketing](http://blog.vert.is/hva%C3%B0-er-inbound-marketing). Ef þú hefur áhuga á að kynna þér HubSpot og fá kynningu á því hvernig þetta getur nýst þér betur þú bókað kynningu með því að smella [HÉR](https://lp.vert.is/meetings/hordur/stutt-kynning-um-hubspot-15-30-mntur). MARKAÐSSTOFAN er podcast VERT markaðsstofu um allt sem tengist markaðsmálum. **Stjórnendur þáttarins eru:** [Agnar Gunnarsson](mailto:agnar@vert.is) [Guðjón Guðmundsson](https://www.facebook.com/gudjong) [Hörður Harðarson](https://www.linkedin.com/in/hordurhardarson/) Sendu póst á VERT ef þú hefur áhuga á aðstoð við markaðsmál: SENDA PÓST

    Claim Markaðsstofan

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel