POPULARITY
Stundum æxlast lífið þannig að hlutir frestast og það á svo sannarlega við um hlaðvarp vikunnar. Í því ræðir Sigrún við Bjarka Þór Grönfeldt sem var lektor við Háskólann við Bifröst þegar viðtalið var tekið vorið 2023. Síðan hafa leiðir Bjarka legið í ýmsar áttir, en hann var meðal annars aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar fyrrverandi Félags- og vinnumarkaðsráðherra en vinnur nú sem sérfræðingur í samfélagsmálum hjá Landsvirkjun. Bjarki lauk námi í stjórnmálasálfræði frá Háskólanum í Kent í desember 2022, en hann hefur meðal annars skoðað sjálfhverfu, ófrjálslyndi og hvernig þjóðernishyggja hafði áhrif á stuðning við lýðheilsuaðgerðir á tímum heimsfaraldurs. Í hlaðvarpinu ræða þau Sigrún um námsferil hans, stjórnnmálasálfræði og helstu rannsóknaráherslur.
Jarðneskar leifar eþíópísks prins og marmastyttur af sögufrægu grísku hofi eru meðal formninja sem geymdar eru í Bretlandi en eiga uppruna sinn á mun fjarlægari slóðum. Talsverður styr hefur staðið um skil á mununum, sem mörgum finnst að eigi að skila tafarlaust. Söfn heimsins geyma marga muni sem hvílir yfir ára samviskubits í ljósi sögunnar. En þetta er ekki alveg einfalt. Stundum eru rök þeirra sem geyma munina að þau séu að bjarga þeim frá eyðileggingu, sem sannarlega er oft raunin. En það er ekki endilega samasemmerki milli varðveislu um ákveðinn tíma og eign til frambúðar. Birta Björnsdóttir skoðaði málið og ræðir meðal annars við Hörðu Þórsdóttur, þjóðminjavörð. Í síðari hluta þáttarins ætlar Oddur Þórðarsona að greina vegferð eins frægasta sjónvarpsmanns heims, Dr. Phil, inn á hið pólitíska svið. Dr. Phil er hættur að sálgreina gesti í sjónvarpssal og virðist vera að reyna að endurforrita bandarísku þjóðina með pólitískum skilaboðasendingum á nýstofnaðri sjónvarpsstöð sinni, þar sem forseta Bandaríkjanna og forsætisráðherra Ísraels hefur brugðið fyrir, auk fleiri.
Þriðjudagur 18. mars Þjóðarmorð, fátækt, klám, orgelleikur og guð Fólkið í Gazaborg var vakið upp við loftárásir Ísraela og Bandaríkjanna. Félagið Ísland Palestína stóð fyrir mótmælum í morgun og þrýsti á íslenska ráðamenn um að setja á viðskiptabann og slíta stjórnarsamstarfi. María Lilja fær til sín Svein Rúnar Hauksson, formann FÍP og fara þau yfir fréttir dagsins frá Palestínu. Skylt er að vara við myndefni sem spilað verður í innslaginu en María Lilja klippti saman efni frá blaðafólki og almenningi á staðnum. Vaxtaumhverfi námslána er út úr kú og hafa breytingar sem orðið hafa á kerfinu sumpart aukið efnahagslega stéttaskiptingu. Þetta segir Lísa Margrét Gunnarsdóttir forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta en Björn Þorláksson ræðir við hana um slembilukku, tengda pólitískri hugmyndafræði hverju sinni sem veldur því að sumar kynslóðir fá hagstæð námslán en aðrar alls ekki. Við ræðum um ást og klám við Láru Martin, kvikmyndagerðarkonu og kvikmyndafræðing sem ræðir um erkitýpu vændiskonunnar í menningu okkar og gagnrýni kynlífsverkafólks á myndina Anora. Við endum Rauða borðið á umræðu um nýstárlega notkun guðshúsa. Björn Þorláksson ræðir við Kristján Hrannar Pálsson, organista. Stundum er sagt að kirkjurnar, hús í eigu almennings, standi of mikið auðar og að hugsanlega mætti auka nýtingu þessara bygginga sem sum okkar kalla guðshús.Við kynnum okkur nýjung í viðburðastarfi, svokallað orgelbíó sem Kristján Hrannar Pálsson organisti fræðir okkur um og fleira.
Stundum þarf starfsfólk bráðamóttökunnar að fjarlægja sprittbrúsa af göngum bráðamóttökunnar svo sjúklingar komist ekki í alkóhólið. Oft eru vandamál við komu þessara sjúklinga - andleg vanlíðan. Í þættinum er kafað ofan í erfið tilfelli sem tengjast andlegri vanlíðan og alvarlegum afleiðingum áfengisdrykkju og vímuefnaneyslu. Þá koma fram ráð til fólks sem líður illa og hvað við sem samfélag getum gert til að hjálpa þeim. Í lok þáttarins fáum við fréttir um líðan móður þáttastjórnanda. Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.
Send us a textÍ þessum þætti ræðum við allskonar skemmtilegt, hvað er að koma nýtt og hvað er vinsælt þessa dagana. Okkur finnst bara mjög gaman að tala einsog þið ættuð að vita ❤️Support the show
Heita Sætið 2 er væntanlegt á næstu dögum. Þetta verður heitasta jólagjöfin í ár.Jólabingó Hæ Hæ verður Sunnudaginn 1. Desember í beinni útsendingu á pardus.isHjálmar byrjaði þáttinn á miklu ranti en hann lenti í miklum hremmingum í gærkvöldi. Helgi lét ChatGPT búa til minningargrein um Hjálmar. Hjálmar er að fara búa til sína eigin rafmynt. Helgi sá frægan fótboltamann í USA.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Doc sat með uppáhaldi krakka og unglinga í boltanum. Sigurði og Kela.
Stundum þarf maður bara að kíkja til prumpulæknis ... Þættir hættu í framleiðslu (í bili) desember 2023.
Stundum verður maður bara að halda rokktónleika í sundlaug ... Þættir hættu í framleiðslu (í bili) des 2023.
Svikahrappar og svindlarar hafa ætíð vakið sérstaka athygli og jafnvel aðdáun meðal almennings. Stundum er ekki annað hægt en að dáðst að hugkvæmni þeirra sem nýta sér persónutöfra og samskiptahæfni til að koma sér áfram í lífinu. Vissulega eru til svindlarar sem engin ástæða er til að dást að. Fólk sem markvisst nýtir sér jafnvel neyð annarra og hagnast á því. Carlos Henrique Raposo fellur ekki í þann flokk hreinræktaðra illmenna en svikahrappur var hann vissulega og er í dag fyrstur til að viðurkenna það. Carlos fékk viðurnefnið Kaiser því hann þótti líkjast Frans Beckenbauer sem var einatt kallaður "Keisarinn". Eins og margir ungir drengir í Brasilíu dreymdi Carlos um að verða frægur fótboltamaður. Hann hafði útlitið og stæltan líkama. Þó var eitt mikilvægt sem Carlos vantaði: Hann var vita hæfileikalaus í fótbolta. Carlos var þó ákveðinn í að láta það ekki stoppa sig. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook
Í þessum þætti ræðum við allskonar skemmtilegt, hvað er að koma nýtt og hvað er vinsælt þessa dagana. Okkur finnst bara mjög gaman að tala einsog þið ættuð að vita
Stundum festumst við í eigin hugsunum og lifum eftir þeim eins og þær séu staðreyndir. Á tímabili í eigin lífi upplifði ég mig sem fórnarlamb og gaf þar með valdið frá mér varðandi þetta atriði. Í þættinum deili ég með þér sögu úr eigin lífi, þar sem ein hugsun bókstaflega breytti lífi mínu og ég veit að hún getur gert slíkt hið sama fyrir þig. LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU-BIÐLISTIAðgangsglugginn í Prógrammið m/Lindu Pé er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA NÁNARI UPPLÝSINGAR: 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar! HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. 7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Magasínið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök eru meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift. Heimasíða Lindu Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. Prógrammið með Lindu Pé Nú er lokað fyrir skráningu. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Linda Blöndal frétta- og fjölmiðlakona. Hún lærði stjórnmálafræði og hefur unnið í fjölmiðlum í á þriðja áratug, hún byrjaði á Bylgjunni en færði sig svo yfir á Rás 2 rétt fyrir aldamótin í Morgunútvarpið var einnig í Síðdegisútvarpinu og fleiri þáttum. Hún færði sig svo yfir í fréttirnar og hefur verið fréttakona hér á RÚV, á Stöð 2 og svo á Hringbraut, áður en hún kom aftur á fréttastofu RÚV. Við fórum með Lindu aftur í tímann og fengum hana til að segja okkur frá æskuárunum í Breiðholtinu og í Æfinga- og tilraunaskólanum. Svo sagði hún okkur frá tengslum sínum við eyjuna Möltu og þegar hún fór í kosningaeftirlit til Tadsjikistan og að lokum sagði hún áhugaverðar sögur úr fréttamennskunni. Svo var það auðvitað matarspjallið, Sigurlaug Margrét kom til okkar og í þetta sinn töluðum við um ísskáps- og búrhreinsun. Þegar við búum til mat úr því sem er til í eldhúsinu, sem getur oft orðið glettilega gott. Stundum er það eini valkosturinn, til dæmis ef gesti ber óvænt að garði. Tónlist í þættinum í dag: Ég fann þig / Björgvin Halldórsson (Bandarískt þjóðlag, Jón Sigurðsson) I Walk the Line / Johnny Cash (Johnny Cash & Burt Bacharach) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Um verslunarmannahelgina í fyrra mátti fólk undir 23 ára aldri ekki tjalda á tjaldsvæðinu á Flúðum, stundum eru haldin böll þar sem engum undir þrítugu er hleypt inn og fyrir nokkrum árum var fjallað um það í fréttum að Icelandair væri hætt að ráða flugfreyjur og flugþjóna yfir 35 ára aldri. Við höldum áfram að ræða aldurstakmarkanir hvers konar í Samfélaginu í dag, meðal annars þær sem fyrirtæki setja en það eru breytingar í farvatninu, í sumar taka gildi lög sem banna mismunun á grundvelli aldurs á öllum sviðum, en slík mismunun er þegar bönnuð á vinnumarkaði. Við ræðum þetta við Jón Fannar Kolbeinsson, lögfræðing hjá Jafnréttisstofu. Íslenska hátæknifyrirtækið VAXA Technologies hefur gert tímamótasamning við matvælarisann Oterra um nýtingu á hráefnum úr smáþörungarækt fyrirtækisins á Hellisheiði. Við ætlum að kynnast þessu fyrirtæki, Vaxa technologies, og starfsemi þess og fáum framkvæmdastjórann, Kristinn Hafliðason, og markaðsstjórann, Hörð Ágústsson, í spjall. Við heyrum svo umhverfispistil frá ungum umhverfissinnum, endurfluttan frá því í fyrra, en þar gerir Finnur Ricart Andrason upp loftslagsráðstefnuna, COP 28. Tónlist: Una Torfadóttir - Stundum. Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
Síðasti örþáttur Árna Snævarr um Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna fór í loftið í þættinum í dag. Rætt var við Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, um yfirlýsinguna. Traust til stofnana og stjórnmála var til umræðu á Morgunvaktinni í dag. Er fólk hætt að treysta stjórnvöldum, og ef svo er, hvað hefur það í för með sér? Viktor Orri Valgarðsson er nýdoktor í stjórnmálafræði við Háskólann í Southampton og hefur rannsakað traust. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, sem síðar í dag fær heitið FF7, var með okkur. Meðal þess sem við ræddum var boðað verkfall flugumferðarstjóra og áhrif þess, og áform um að hefta heimagistingu. Niðurstöður PISA könnunarinnar voru áfram til umræðu. Brynhildur Þórarinsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri og rithöfundur, og Þorvar Hafsteinsson, formaður Heimilis og skóla, ræddu við okkur. Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Bee Gees - To love somebody. Ylja - Dansaðu vindur. Una Torfadóttir - Stundum.

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, rýndi meðal annars í nýleg árshlutauppgjör stóru bankanna þriggja, hagnaðurinn er myndarlegur í milljörðum talið - en er hann mikill þegar tekið er tillit til umfangs bankanna? Við veltum því fyrir okkur og töluðum að auki um verðbólgu og fasteignalán. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur frá listmálaranum Caspar David Friedrich sem var í hópi fremstu málara á sinni tíð og hafði áhrif á listamenn í öðrum listgreinum. Hann fjallaði líka um þýska ríkisútvarpið en aldarafmæli þess er fagnað um þessar mundir. Þá sagði hann frá tíðindum úr þýskri pólitík. Meira var fjallað um menningu og listir í síðasta hluta þáttarins, þegar við forvitnuðumst um Listasafn ASÍ - það kom stuttlega við sögu hér í þættinum fyrir helgi. Safninu var komið á fót 1961 þegar Ragnar í Smára færði Alþýðusambandinu að gjöf myndarlegt listaverkasafn sitt. Safnið átti Ásmundarsal við Freyjugötu í 20 ár en seldi fyrir nokkru og hefur síðan verið listasafn á hjólum, eins og það er orðað. Elísabet Gunnarsdóttir safnstjóri var gestur okkar. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Ben and The Boys, Best, Denzil, Page, Hot Lips, Drayton, Charlie, Webster, Ben, Hart, Clyde - Tea for two. Sigur Rós - Gold (bonus track wav). Sinfóníuhljómsveit Berlínarútvarpsins - Söngur Sólveigar. Una Torfadóttir - Stundum.

Mörg skip hafa farist við Íslandsstrendur. Það er kaldranaleg tilhugsun að svartur sandur og hvítir jöklar hafa stundum verið það síðasta sem margir erlendir sjómenn sáu áður en hafið og kuldinn tóku líf þeirra. Stundum gerast atvik sem maður getur þó ekki annað en gapað yfir. Þátturinn í dag fjallar um slíkan viðburð sem átti sér stað fyrir 120 árum. Þá strandaði þýskur togari á einum allra versta stað sem hægt var að stranda á við þetta harðbýla land með sínum vægðarlausu vindum. Togarinn strandaði á Skeiðarársandi. Þessir menn neituðu þó að gefast upp og er saga þeirra hreint ótrúleg og vitnisburður um hvað er fólki fært ef lífsviljinn slokknar ekki. Barátta tók þó sinn toll og kom þá til kasta landa okkar sem fundu þá nær dauða en lífi. Þar hefst önnur hetjusaga þar sem íslenskir læknar og aðstoðarfólk þeirra vinna afrek. Þetta er harmsaga en inniheldur einnig hugrekki og von. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook
Stundum þarf einfaldlega að make the call. Dr. Football hringdi til Norð Vestur Englands, suðupott fótboltans í heiminum og ræddi við Jóhann Berg Guðmundsson. Hvað finnst honum um 100 mínútna leiki? Salah til Sádí? Gylfi i landsliðið og að vera orðinn allt í einu gamli maðurinn í Burnley.
Við fjölluðum um tyrknesk stjórnmál en Tyrkir ganga að kjörborðinu á sunnudag og kjósa bæði til þings og embættis forseta. Erdogan forseti sækist eftir endurkjöri en á undir högg að sækja í könnunum. Eins og nú horfir þarf hann að rýma forsetahöllina fyrir mótframbjóðandanum Kilis-dar-olu. En um hvað er kosið og hvernig er ástand mála í þessu stóra og fjölmenna ríki? Sema Erla Serdarólu fylgist vel með og ræddi við okkur. Njósnir eru líka á dagskrá. Nýverið spurðist af umfangsmiklum njósnum Rússa á innviðum Norðurlandanna; ljósleiðurum, rafmagnsköplum og fleiru slíku. Þetta kom kannski ekki á óvart en var í alla staði óþægilegt. Vitað er að ríki stunda allskonar upplýsingasöfnun um önnur en hvenær verður slík söfnun að njósnum? Hvar liggja mörkin? Við ræddum þessi mál við Smára McCarthy, fyrrverandi alþingismann. Og svo er það komman. Hún á víst undir högg að sækja í dönsku ritmáli - Borgþór Arngrímsson sagði okkur frá því í spjalli um dönsk málefni í gær. En hver er staða kommunnar í íslensku ritmáli? Já og annarra greinarmerkja? Jóhannes B. Sigtryggsson íslenskufræðingur, rannsóknardósent hjá Árnastofnun, og ritstjóri Stafsetningaorðabókarinnar. Tónlist: Gerry and The Pacemakers - Ferry cross the Mersey. Costello, Elvis - Sleepless nights. SIGURÐUR GUÐMUNDSSON & MEMFISMAFÍAN - Orðin mín.

Stundum er snjór, stundum er enginn snjór.Sama hvort það er þá þurfum við að ræða það og vera tilbúin í allar aðstæður, hvernig á að skafa rúðuna? Hvernig á að losa bílinn?Við leysum það hér! ❄️
Stundum er talað um að allir hafi köllun eða tilgang í lífinu. Ég trúi því að okkar dýpstu þrár og langanir séu áttavitinn að því sem okkur er ætlað að gera. Það er svo ótrúlega auðvelt að fara í gegnum dagana sína á sjálfsstýringu, algjörlega ómeðvituð um dýpstu langanir okkar og hreinlega velta þessu aldrei fyrir sér. Í þessum þætti tala ég um það sem er kraumandi undir niðri og við horfumst ekki í augu við. Það er raunveruleg þrá okkar, dýpsta þrá sem við höfum allar en margar hverjar hafa lokað á og leyfa sér ekki að fara þangað í huganum. Hvað dreymir þig um en segir engum frá? LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU-BIÐLISTIAðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA NÁNARI UPPLÝSINGAR: Magasínið Lífið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök verða meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið Lífið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift. 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar! HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. 7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Heimasíða Lindu Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP Prógrammið Lífið með Lindu Pé. Lokað er fyrir skráningu. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!
Forsætisráðherra segir stjórnvöld ekki ætla að grípa inn í kjaraviðræður með lagasetningu að svo stöddu. Grannt sé þó fylgst með framvindu verkfalla. Komið er að úrslitastund um hvort formlegum kjaraviðræðum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins verður fram haldið. Stjórn og trúnaðarráð Eflingar situr nú á fundi Sænska lögreglan hefur synjað tveimur umsóknum um leyfi til að brenna Kóraninn í Stokkhólmi. Ástæðan er sögð hryðjuverkaógn sem slíkum mótmælum getur fylgt. Fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna neitar að bera vitni í rannsókn sérstaks saksóknara á þætti Donalds Trumps í áhlaupi á þinghúsið í Washington fyrir tveimur árum. ------- Í dag hófst atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna Eflingar um næstu lotu verkfalla. Þar kjósa um 600 starfsmenn hótela og gistiheimila um hvort leggja eigi niður störf. Verði það samþykkt er allt félagsfólk Eflingar sem starfar á hótelum komið í verkfall. Einnig nær það til um 400 öryggisvarða hjá Securitas og Öryggismiðstöðinni og 650 manns í ræstingum hjá Dögum og Sólar auk minni fyrirtækja, samtals um 1650 manns. Þeirri atkvæðagreiðslu lýkur á mánudag. Verði verkföllin samþykkt eiga þau að hefjast á hádegi þriðjudaginn 28. febrúar, í þarnæstu viku. Og áhrif verkfalla sem hófust í gær verða sífellt meiri. Olía og bensín fer minnkandi á nokkrum stöðvum á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Ferðaþjónustan óttast að ferðamenn verði á hrakhólum fljótlega í kring um helgina. Bjarni Rúnarsson tekur saman atburði dagsins. Sérstakur saksóknari sem rannsakar þátt Donalds Trumps, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í þinghúsárásinni 6. janúar 2021 stefndi á dögunum Mike Pence, varaforseta hans, til að bera vitni. Saksóknarinn starfar á vegum dómsmálaráðuneytisins. Að sögn bandarískra fjölmiðla var Pence birt stefnan eftir langar samningaviðræður stjórnvalda og lögmanna hans. Haft var eftir varaforsetanum fyrrverandi í bandarískum fjölmiðlum í gær að hann ætlaði ekki að mæta til yfirheyrslu undir neinum kringumstæðum. Hann væri jafnvel tilbúinn að fara fyrir hæstarétt til að fá stefnunni hnekkt. Það hefur lengi legið í loftinu að Mike Pence yrði stefnt til að mæta fyrir rannsóknarnefndina til að svara spurningum um atburðina sjötta janúar. Í viðtali í fréttaþætti CBS Face The Nation í nóvember sagði hann að ekki kæmi til greina að mæta. Ásgeir Tómasson segir frá. Vitað er um 160 tilvik þar sem olía og önnur spilliefni hafa farið í sjóinn utan ströndum Svíþjóðar, á síðustu þremur árum. Stundum í mjög miklu magni. Ekkert þessara mála hefur þó leitt til sakfellingar. Kári Gylfason í Gautaborg fjal

Margir eiga í mjög flóknu sambandi við markmiðasetningu og hafa jafnvel gefist upp á að setja sér markmið. Sagan er orðin of löng af óuppfylltum markmiðum og vantrúin og sjálfsefinn hafa náð yfirhöndinni. Stundum viljum við ekki setja okkur markmið af ótta við vonbrigðin sem við upplifum þegar við náum þeim ekki. Þetta kalla ég að upplifa vonbrigðin fyrir fram og ég mæli aldrei með því. Í þessum þætti ætla ég að kenna þér betri leið til að setja þér markmið og framfylgja þeim. Viltu setja þér spennandi markmið fyrir 2023? Markmiðavikan í LMLP prógramminu hjálpar þér að setja markmiðin sem færa þér lífið sem þú sækist eftir. Láttu þig hlakka til að gera spennandi sjálfsvinnu, setja þér markmið og læra aðferð til að ná þeim. Gerðu þetta með mér og þú munt lifa draumalífinu þínu árið 2023! Markmiðavika hefst 16. janúar 2023 og er innifalin í LMLP prógramminu. Þú hefur til 15. janúar að skrá þig. Skráðu þig með því að smella hér https://www.lindape.com/skramig Aðgangsgluggi LMLP lokar 15. janúar kl.23.59. Hingað til hefur verið hægt að skrá sig í LMLP prógrammið allt árið en nú hefur fyrirkomulagið breyst. Aðgangsglugginn er opinn núna frá 1.-15.janúar Þá er hægt að skrá sig í prógrammið. Eftir það lokast glugginn og opnast ekki fyrr en síðar á árinu. https://www.lindape.com/skramig
Astral Magic Apparition's Breath, Pt. Two 4:30 Apparition's Breath 2022 Hidria Spacefolk Terra Hidria 6:58 Symbiosis 2002 Edena Gardens An t-eilean Dubh 6:49 Edena Gardens 2022 Prana Crafter Prana Crafter's Abode 6:58 Rupture of Planes 2015 Miles Davis Spanish Key 17:29 Bitches Brew 1969 Papir Tuesday #2 4:31 Stundum 2011 Dohnavùr New Objectivity (Werra Foxma […]
Ísland er bílaland, flestir ferðast einir í sínum bíl og reka þau erindi sem hver og einn þarf sinna. Stundum er eins og enginn sé í vinnunni, því umferðin er þung alla daga. Við ætlum að huga að samgöngum í þætti dagsins. Það eru ýmsir möguleikar, t.d. að ganga, hjóla og taka strætó og nýlega bættust svokölluð hopphjól eða skútur í hópinn. Bílar eru semsagt ekki til umræðu í dag. Við heilsum uppá Sindra Frey Ásgeirsson formann samtaka um bíllausan lífsstíl, heimsækjum vegagerðina og ræðum við Bryndísi Friðriksdóttur svæðisstjóra höfuðborgarsvæðsins hjá Vegagerðinni og ábyrgðarmaður Borgarlínu og Arndísi Ólfafsdóttur Arnalds forstöðumann verkefnastofu Borgarlínu, báðar verkfræðingar auðvitað, en við byrjum uppá Höfða og hittum framkvæmdastjóra Strætó Jóhannes Svavar Rúnarsson.
Stundum þarf maður bara að fara úr fötunum og leyfa náttúrunni að vinna sitt verk.Við Tveir Loðnir vitum allt um það og ræðum það í þessum þætti.
Flest fæðumst við heilsuhraust en um leið og við eigum samskipti við veröldina, annað fólk og nýjar aðstæður, leggst ákveðinn hjúpur ofan á heilsu okkar. Stundum er það ótti. Stundum eru það á áhyggjur og stundum er það löngunin eftir staðfestingu á því að við séum nógu góð eða samþykki annarra. Stundum leggjast á okkur hjúpar eftir áföll eða frá umhverfinu. En burtséð frá því hvaðan þeir koma er heilsuhreysti þitt náttúrulega ástand og það eina sem við þurfum að gera er að koma þér aftur þangað. Ef það þyrmir yfir þig, þú ert gröm, óttaslegin eða finnst þú lítils virði kann að vera að þú sért að vanrækja mikilvæga heilsustólpa. Stólpa sem er ekki krefjandi að sinna en þú hefur bara ekki gert það. Þar til nú. Þessir heilsustólpar eru: Tilfinningaleg heilsa Fjárhagsleg heilsa Félagsleg heilsa Andleg heilsa Næringarleg heilsa Líkamleg heilsa Breyttu lífi þínu á einni viku með því að skrá þig á Heilsuviku* sem fer fram dagana 12. -17. september nk. Þar mun ég kenna þér litlu atriðin sem þú getur alltaf gripið í til að láta þér líða betur. Og þegar þú skráir þig færðu heilsusamlegar uppskriftir og matarplan sem styður við heilsu þína á meðan þú ferð í gegnum á Heilsuviku*. Þú getur svo nýtt þér það aftur og aftur. Heilsuvika: Gerðu betur. Lifðu betur. *HEILSUVIKA er innifalin í aðild að prógramminu Lífið með Lindu Pé. Verðmæti 39.900. Hægt verður að kaupa Heilsuviku innan skamms sem sér námskeið.
Stundum getum við drukknað í dýptinni.. þá má synda yfir í barnalaugina og hafa gaman í grynninu. :) Það eru alveg líkur á því að haustið verði skemmtilegra þannig, skoðum'etta.
Stundum þegar ég er að þjálfa konurnar mínar fæ ég að heyra að það sé svo erfitt að gera eitthvað. Í mínum huga er það akkúrat ástæðan fyrir því að við eigum að gera hlutina. Mig langar að tala um þetta í dag. Af hverju við eigum að gera erfiða hluti. Einhverra hluta vegna segjum við okkur stundum að hlutir eigi eftir að verða erfiðir og við látum það draga úr okkur. Eins og við eigum skilið að hafa allt auðvelt. Eins og það sé markmiðið að lifa eins auðveldu lífi og hægt er. En ef þið spáið aðeins í það að þá er maður yfirleitt aldrei með eins góðar tilfinningar eins og þegar maður hefur afrekað eitthvað sem var erfitt, ekki satt? Það er af því að við þurfum að vaxa og þroskast þegar við gerum eitthvað sem krefst mikils af okkur, þegar við gerum hluti sem reyna á okkur. Ef við erum alltaf að gera auðvelda hluti þá er enginn hvati til að stækka okkur sjálfar, þroska okkur. Ég vil að þú gerir líka erfiðu hlutina, hlustaðu til að læra meira. NÁNARI UPPLÝSINGAR: 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar! 7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Heimasíða Lindu Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP Hér færðu Lindu sem lífsþjálfa þinn. Vikulegir fundir, þú losar þig við aukakílóin, byggir upp sjálfsmyndina, færð aukið sjálfstraust og trú á þig sjálfa-og þú ferð að lifa draumalífin þínu. Skráðu þig í prógrammið Lífið með Lindu Pé. HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!
Stundum þarf maður að gera hluti seinna eða á eftir, en það á það til að gleymast, semsagt gleymast að gera hlutinn. Við Tveir loðnir tókum fyrir þau atvik sem við gerum seinna og förum yfir hvernig hægt er að leysa þau vandamál.
Hverfisgallerí í miðbæ reykjavíkur er nú í þann mund að opna sínar dyr fyrir gestum, þar er Davíð Örn Halldórsson búinn að setja upp sýninguna Mitt litla líf - pappír eða plast. Í Stofunni hefur Davíð Örn 58 myndir til sýnis, af fundnum fyrirbærum sem hann hefur átt við og dregið fram síkadelíska fantasíu út úr hversdagslegum hlutum eins og afklippum af pappakössum og póstkortum. Verkin eru flestöll unnin síðastliðin þrjú ár en Davíð býr og starfar í Stuttgart í Þýskalandi. Við lítum inn í Hverfisgallerí og tökum smá forskot á sæluna með listamanninum sjálfum. P-tungumál er leynitungumál sem notað var af börnum þegar þau vildu ekki að fullorðnir skildu sig. Regla p-tungumálsins er sú að innan hvers atkvæðis, á undan sérhljóða, er bætt inn péi með sama sérhljóða á undan. Þannig breytist td orði gassi, í gapassipi. Gapassipi er einmitt nafn á innsetningu sem Magnús Pálsson sýndi í Ráðhúsi Reykjavíkur árið 1995, þar sem p-tungumál kom við sögu. Hljóðverkið var nýverið gefið út ásamt textum í bók sem Mumbling Eye gefur út, en það er nýtt útgáfuhús sem stefnir á að gefa út hljóðinnsetningar og gjörninga. Framhlið Ísskápa er vinsælt sýningarými hversdagsins. Stundum er hún fagurlega skreytt en hún getur líka verið eins og vel útsett óreiðuinnsetning. Sumir vilja hafa ísskápana sína án allra skreytinga, aðrir setja á þá örfáa hluti. Hvað segja þessir máttarstólpar eldhússins um eigendur sína og hvað er það sem endar á ísskápnum og hversvegna? Spæjarastofa Hversdagssafnsins á Ísafirði fer á stúfana og skoðar ísskáp í dag. Og Selma Reynisdóttir flytur okkur sinn síðasta pistil um Dans á tímum dansbanns. Pistlarnir skoða dans þegar ekki má dansa og hafa meðal annars skoðað hliðstæður samkomutakmarkana og óbeit kirkjunnar á dansi fyrr á öldum og kjarabaráttu dansara. Í dag segir Selma frá því hvernig er að finna aftur taktinn og innblásturinn eftir tveggja ára dansbann. Umsjón: Halla Harðardóttir og Jóhannes Ólafsson

Tómas Kristjánsson sálfræðingur útskýrir þunglyndi, sjálfsvígshugsanir og leiðir til að vinna úr erfiðum tilfinningum. Ef þú finnur þig vonlausan er vert að leita sér aðstoðar t.d. í símanumerinu 1717 og 1717.is sem er opið allan sólahringinn, hjá Píeta samtökunum, Berginu (fyrir ungt fólk til 25 ára), hjá sálfræðingum víða um land en mikilvægast er að segja einhverjum sem þú treystir að þér líði illa. „Stundum segist fólk vera þunglynt en er í raun að vísa til depurðar. En þunglyndi er röskun, vissulega er depurð og leiði einkennandi í þeirri röskun. Þunglyndi snýst um miklu meira og hefur áhrif á hegðun, líkamleg einkenni og er sambland af vítahringjum sem halda okkur föstum.“ Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Átakið jákvæð karlmennska er fjármagnað af VÍS, BSRB, Íslandsbanka, forsætisráðuneytinu og félagsmálaráðuneytinu.

Það er fátt sem meira er talað um þessa dagana en húsnæðismarkaðurinn og hækkun íbúðaverðs, verðbólgu og hækkun vaxta. Stundum finnst manni að það sé lögmál hér á landi og sveiflur séu svona miklar. Markaðurinn hér er tölvert öðruvísi en í nágrannalöndunum og nú sitja menn og ráða ráðum sínum hvernig eigi að bregðast við. Forsætisráðherra hefur stofnað starfshóp, nokkuð stóran eða 11 manns, fólk héðan og þaðan úr samfélaginu. Við tölum um verðbólgu, vexti og húsnæðismarkaðinn í þætti dagsins, ræðum við Unu Jónsdóttur hagfræðing hjá Landsbankanum, Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðing í fjármálum og Bjarna Þór Sigurðsson sem situr í ofangreindri nefnd fyrir hönd ASÍ.

Stundum koma vers sem er erfitt að skilja, stundum eru þau notuð og túlkuð á rosalega skrítinn hátt af mörgum útaf því að það er erfitt að skilja þau. Gunni og Svava demba sér í þessa skemmtilegu pælingu.
Spegillinn 28. janúar 2022 Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður: Mark Eldred Aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar dugar skammt, segir veitingamaður sem horfir fram á þriðju mánaðamótin í röð án greiðslu frá ríkinu. Hann segir að janúarmánuður sé sá versti í manna minnum. Ísland hafnar í sjötta sæti á EM í handbolta eftir grátlegt tap gegn Norðmönnum í dag. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sakar vesturveldin um að hafa að engu áhyggjur Rússa af útþenslu Atlantshafsbandalagsins í Evrópu og stöðu Úkraínu. Hvassviðri gengur yfir stóran hluta landsins í kvöld og nótt. Gul viðvörun tekur gildi þegar líður á kvöldið. Lengri umfjöllun: Afléttingaáætlun stjórnvalda var kynnt í dag. Hún er þríþrepa og verður fyrsta skrefið stigið á miðnætti. Þá mega 50 manns koma saman í stað 10, tveggja metra reglan verður að metersreglu og áhorfendur verða til að mynda leyfðir á íþróttaviðburðum. Opnunartími veitingastaða rýmkar til klukkan ellefu. Eftir þrjár vikur er svo stefnt að því að rýmka almennar samkomutakmarkanir í 200 manns og aflétta öllum takmörkunum um miðjan mars. Líneik Anna Sævarsdóttir formaður velferðarnefndar og þingmaður Framsóknarflokksins og Oddný G. Harðardóttir fyrsti varaformaður velferðarnefndar og þingmaður Samfylkingarinnar ræddu við Bjarna Rúnarsson um afléttingaáætlunina. Íþróttahatur er bakhliðin á hverjum verðlaunapeningi. Stundum vilja menn láta þetta hatur ganga út yfir bæði fortíðina og allar minjar um hana. Þannig er Christian den tiende Danakonungur nú hataðasti maður á Íslandi. En hvernig fer svona íþróttahatur í sálina á frændum okkar Norðmönnum? Þeir sitja uppi með sænskan kóng á hesti fyrir framan konungshöllina sína og kenna frægustu götu lands síns við þennan sama útlenda kóng. Er ekki mál að linni? Gísli Kristjánsson fjallar um málið. Á sunnudag eru 50 ár liðin frá því að breski herinn skaut 13 kaþólikka til bana og særða aðra 13 skotsárum í mótmælagöngu í borginni Derry á Norður Írlandi. Þessi atburður markaði þáttaskil í ófriðnum a Norður Írlandi - The Troubles - Átökin hörðnuðu og ofbeldið jóxt um allan helming allt þar til friðarsamkomulag var undirritað í apríl 1998, 26 árum síðar. Gunnar Hansson dagskrárgerðarmaður á RÚV og Sólveig Jónsdóttir rithöfundur og stjórnmálafræðingur heimsóttu Derry fyrr í mánuðinum og ræddu við fólk sem varð vitni að þessum atburði - blóðuga sunnudeginum. Afrakstur þessarar ferðar má heyra í tveimur klukkustundar löngum útvarpsþáttum á rás eitt. Kristján Sigurjónsson ræddi við Gunnar Hansson.

Ráða þarf hjúkrunarfræðinga í 200 stöðugildi til að Landspítalinn geti starfað með eðlilegum hætti. Þetta segir starfandi forstjóri spítalans. Spítalann bráðvantar líka ljósmæður á bakvarðalista. Samkeppniseftirlitið telur tilefni til að skoða kaup sjóðastýringarfyrirtækisins Ardian á Mílu, dótturfélagi Símans, á grundvelli samrunaákvæða samkeppnislaga. Ung kona sem smitast hefur tvisvar af kórónuveirunni segist myndu þiggja örvunarskammt ef hann stæði til boða. Hún vill ekki hætta á verri veikindi í þriðja skiptið. Forseti Frakklands segir Frakka ætla að halda áfram að berjast fyrir sjómenn landsins og áfram verði krafist sama fjölda veiðiheimilda við Jersey og fyrir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Lengri umfjallanir (frá 10. mínútu) Margir norskir þingmenn virðast hafa misskilið reglur um húsnæðisstyrk sér í hag. Forseti norska stórþingsins sagði af sér í dag. Gísli Kristjánsson í Noregi segir frá þessu. Forstjóri Hrafnistu segir hjúkrunarheimili nauðsynlega þurfa stuðning sérfræðinga til að sinna tannheilsu íbúa. Þarfirnar séu orðnar flóknari og einstaklingsbundnari en áður. Hjúkrunarheimili virðast meðvituð um vandann en verkefni til að bæta þjónustuna hafa tafist eða strandað vegna heimsfaraldurs, fjárskorts og meints áhugaleysis tannlækna. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Maríu Fjólu Harðardóttur, forstjóra Hrafnistu, Helgu Ágústsdóttur, sérfræðing í öldrunartannlækningum, Kristrúnu Sigurðardóttur tannfræðing og Hólmfríði Guðmundsdóttur, tannlækni hjá Embætti landlæknis. Stundum gengur svo mikið á í stjórnmálunum að einstaka dagar verða sögulegir. Þannig var miðvikudagurinn í Bretlandi. Hörð átök í breska þinginu þar sem þingforsetinn þaggaði einarðlega niður í Boris Johnson forsætisráðherra. Stóru átakaefnin eru aukastörf þingmanna, lestarframkvæmdir og jöfnun aðstöðumunar milli landshluta og umönnun utan sjúkrastofnana. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
„Stundum er þetta bara skemmtilegt en stundum er það smá þreytandi sérstaklega þegar það er fjallað um hvað ég er að borða í morgunmat.“ segir Edda Falak fjármálafræðingur, hlaðvarpsstjórnandi og áhrifavaldur um nærgöngulan áhuga fjölmiðla á lífi hennar. Edda hefur verið ansi áhrifamikil í umræðunni undanfarana mánuði með 30 þúsund fylgjendur á Instagram, þúsundir á Twitter og með vinsælasta hlaðvarpið á Íslandi. Skoðanir Eddu og málefnin sem hún fjallar um vekja oft upp sterk viðbrögð og hreyfa við mörgum. Í 45. hlaðvarpsþætti Karlmennskunnar ræðum við Edda um fyrirmyndir, fordóma, áhrifavalda, gillz-áhrifin og mini-gillzara og þau áhrif sem Edda vill hafa á íslenskt samfélag. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Intro/outro: ON (instrumental) - Jói P. og Króli Þátturinn er tekinn upp í stúdíó Macland og er í boði Veganbúðarinnar og The Body Shop.

Í þessum þætti spjalla strákarnir um fylgjendahópinn sinn sem að kallar sig horny gang, vandræðaleg moment í kynlífi, gamalt fólk, Illuga, nýja Instagram aðgang Sterakastsins, marktækni rannsókna í næringafræði og svo að sjálfsögðu aðeins um typpi. Lofum við góðum þætti? Neibs, við lofum ekki neinu.
Í fimmtugasta þætti Heimskviða er fjallað um vopnaða hópa sem bandaríska alríkislögreglan telur eina mestu ógn sem steðji að landsmönnum, um hópnauðganir á Indlandi og baráttu fyrir afleiðingum slíkra ofbeldisverka og svo er sagt frá sístækkandi hópi fólks sem ákveður að láta sig hverfa í Japan. Hópar vopnaðra manna í Bandaríkjunum verja miklum tíma í að búa sig undir þann möguleika að þurfa á einhverjum tímapunkti að taka upp vopnin gegn sínum eigin stjórnvöldum. Þeir eru hluti af því sem bandaríska alríkislögreglan FBI telur mestu ógnina sem steðjar að Bandaríkjunum - meiri en öll þau erlendu hryðjuverkasamtök sem við þekkjum nöfnin á. Í síðustu viku komust hópar af þessu tagi í fréttirnar þegar upp komst um áform þeirra um að ræna ríkisstjóranum í Michigan. Nýr liðsmaður Heimskviða, Þórunn Elísabet Bogadóttir, fjallar um málið. Undanfarinn mánuðinn hefur fjöldi fólks tekið þátt í mótmælum á Indlandi. Mótmælum gegn viðhorfum og aðgerðum, eða aðgerðaleysi, löggæslumanna þegar kynferðisofbeldi er annars vegar. Tvær ungar konur hafa verið drepnar við samskonar aðstæður þar undanfarnar vikur, nauðgað af fleiri en einum manni svo illa að þær lifðu það ekki af. Konurnar tilheyrðu báðar lægstu stéttum samfélagsins, fólkinu sem er á Indlandi kallað hin ósnertanlegu. Birta Björnsdóttir fjallar um málið. Talið er að þúsundir Japana láti sig hverfa á ári hverju - segi skilið við fyrra líf og byrji upp á nýtt annars staðar. Stundum er þetta leið kvenna út úr ofbeldissamböndum og stundum telur fólk, af ýmsum ástæðum, betra að það fari að eilífu frekar en að kalla einhvers konar skömm yfir fjölskyldu sína. Stofnuð hafa verið svokölluð nætur-flutningafyrirtæki þar sem fólk getur fengið aðstoð við að hverfa sporlaust yfir nótt. Dagný Hulda Erlendsdóttir segir okkur frá. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.