POPULARITY
Á morgun verða mót tónlistar og gervigreindar rannsökuð í Salnum í Kópavogi, þegar Þórhallur Magnússon, rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands og prófessor í tónlist við Háskólann í Sussex verður með erindi í viðburðarröð sem heitir Menning á miðvikudögum í Kópavogi. Á viðburðinum fer hann yfir sögu gervigreindar í tónlist og fer yfir helstu uppgötvanir og þróanir á þessu sviði – og hann ætlar að kíkja við hjá okkur í dag og spjalla um samband gervigreindar og tónlistar. Notkun kannabisefna í lækningaskyni er umræða sem skýtur upp kollinum af og til og hvort leyfa beri slíka notkun. Reyndar eru tvö lyf sem innihalda kannabis þegar í notkun hér á landi, að sögn Steinunnar Þórðardóttur formanns Læknafélags Íslands. Hún segir að efnið dugi fyrst og fremst til að minnka ýmis einkenni og verki, en síður til lækninga - en varast skuli að slá það út af borðinu. Mikil gróska er í kannabisrannsóknum, meðal annars er verið að rannsaka áhrif kannabis á fólk með alzheimer. Við ræðum þetta við Steinunni í dag. Við fáum að heyra pistil frá Esther Jónsdóttur umhverfisstjórnmálafræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. Og undir lok þáttar endurflytjum við viðtal við Önnu Soffíu Víkingsdóttur, doktor í félagsfræði, um rannsóknir hennar á ofbeldismenningu í íþróttum. Tónlist í þættinum í dag: LÚPÍNA - Lúpínu bossa nova. Bon Iver - S P E Y S I DE.
Umræðu um dánaraðstoð skýtur reglulega upp kollinum hér á landi, þingsályktunartillögur, frumvörp og skýrslur hafa litið dagsins ljós og í fréttaskýringaþættinum Kveik í gærkvöld var fjallað um Jón Grímsson sem sótti um dánaraðstoð í Washington-ríki í Bandaríkjunum. Steinunn Þórðardóttir, formaður læknafélagsins, segir að það verði ekki aftur snúið verði þetta skref tekið. Reynsla frá þeim löndum þar sem þetta hefur verið leyft sýni líka að mörkin verði sífellt óljósari. Þá megi ekki gleyma því að þetta sé eðlisbreyting á hlutverki lækna. Freyr Gígja Gunnarsson talar við Steinunni. Í nýrri skýrslu Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar kemur fram, að þrátt fyrir mikinn þrýsting og fögur fyrirheit um að draga hratt og mikið úr losun helstu gróðurhúsalofttegunda hefur styrkur þeirra þvert á móti aukist og hefur aldrei mælst meiri en í fyrra. Reyndar hefur ekki verið jafnmikill koltvísýringur í lofthjúp Jarðar síðan fyrir þremur til fimm milljónum ára, þegar meðalhitinn var tveimur til þremur gráðum hærri en nú og yfirborð sjávar tuttugu til þrjátíu metrum hærra. Styrkur gróðurhúsalofttegunda eykst líka hraðar það sem af er þessari öld en dæmi eru um. Ævar Örn Jósepsson fjallar um þetta og nýja skýrslu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, þar sem fram kemur að gildandi aðgerðaáætlanir ríkja heims séu óravegu frá því að tryggja að hlýnun Jarðar fari ekki umfram 1,5 gráður. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Núna tel ég réttast að kveðja formlega hlaðvarpið Karlmennskan. Reyndar munu bakhjarlar sjá til þess að það verði áfram opið og aðgengilegt en ég mun ekki taka upp fleiri þætti. Það hefur verið afskaplega gaman að hitta og spjalla við svo margt frótt fólk með áhugaverða reynslu eða sjónarhorn á samfélagið. Markmiðið var alltaf að varpa ljósi á virkni feðraveldis í gegnum mismunandi birtingamyndir, sem höfðu einhvern snertiflöt við karla eða karlmennsku. Veit að það tókst oft vel upp. Og það gleður mig að vita að ennþá eru nokkur hundruð einstaklingar að hlusta á gamla þætti. Takk öll sem hlustuðuð. Takk öll sem gáfu tíma ykkar, reynslu og þekkingu í hlaðvarpinu. P.S. Þau ykkar sem þráið meira af svipuðu efni getið gerst áskrifendur að vikulega hlaðvarpinu Sópað undan teppinu með Þorsteini V. og Huldu Tölgyes. Hlaðvarpið er að finna á þriðja.is
Eins og stundum á mánudögum í sumar förum við upp um fjöll og firnindi í dag; í leiðsögn Ólafs Arnar Haraldssonar. Reyndar var ferðalag dagsins í dag ekki mikið á fótinn; við fórum eftir Kóngsvegi sem lagður var í tilefni Íslandsheimsóknar Friðriks áttunda kongungs uppúr aldamótunum þarsíðustu. Bílaverkstæði hafa í gegnum tíðina verið miklir karlavinnustaðir. En á því kann að verða breyting; það lítur út fyrir að stelpur sæki í auknum mæli í bílgreinanám. Ársæll Guðmundsson, skólameistari Borgarholtsskóla, ræddi þessi mál við okkur. Finnlandsforseti hélt upp á 75 ára afmælið sitt í gær með því að fara í göngutúr um Töölönlahti-flóa í Helsinki. Með því vildi hann hvetja landa sína til að hreyfa sig og spjalla við annað fólk. Lukka Pálsdóttir heilsusérfræðingur veit ýmislegt um gagnsemi göngutúrsins fyrir líkama og sál og sagði okkur frá. Tónlist: Skoller, Eddie - En enkel sang om frihed. Peter, Paul and Mary - Blowin' in the wind. Peter, Paul and Mary - Don't think twice. Knight, Gladys, Pips, The - Midnight train to Georgia.

Fylgi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins er nánast jafnt í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Tíu ár eru síðan fylgi Vinstri grænna mældist jafn lítið eða um sjö prósent. Plássleysi, undirmönnun og niðurskurður til nýs Landspítala hefur orðið til þess að læknar á bráðamóttöku hafa sagt upp störfum að undanförnu. Tugir hjúkrunarfræðinga hafa einnig sagt upp. Innviðaráðherra segir Suðurnesjalínu tvö varða þjóðarhag og að eitt sveitarfélag komi í veg fyrir lagningu hennar. Það sé grafalvarleg staða. Kuldatíð í nýliðnum desember skilar honum í fjórða sæti yfir köldustu desembermánuði frá upphafi mælinga. Seinast var desember viðlíka kaldur árið 1916. Þess er krafist að varnarmálaráðherra Þýskalands segi af sér eftir að hún birti óviðeigandi myndskeið á Instagram á gamlárskvöld. ----- 3. áfangi rammaáætlunar var samþykktur í sumar eftir mikið karp. Þegar rykið sest fara þau virkjanaáform sem sett eru í nýtingarflokk yfirleitt í umhverfismat. Nú þegar hefur verið gefið út virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá, en framkvæmdaleyfi hefur ekki verið afgreitt af sveitarstjórnum sem liggja að Þjórsá. Tveir virkjanakostir eru á Vestfjörðum, annars vegar Hvalárvirkjun sem stendur til að ráðast í og hins vegar Austurgilsvirkjun, en Landsvirkjun setti þau áform á ís fyrir afgreiðslu rammaáætlunar. Veituleið Blönduvirkjunar er einnig í nýtingarflokki. Þau háhitasvæði sem eru í nýtingarflokki eru flest á Reykjanesskaga, en einnig á Kröflusvæðinu og í Bjarnarflagi á Norðausturlandi. Þá eru vindorkuver í nýtingarflokki á tveimur stöðum á landinu, annars vegar við Búrfell og hins vegar við Blöndu. En hvað svo. Hvað tekur við eftir að rammaáætlun er samþykkt. Þóra Ellen Þórhallsdóttir er prófessor í grasafræði við Háskóla Íslands og sat í verkefnastjórn rammaáætlunnar. Stjórnarandstæðingar í Þýskalandi krefjast þess að Christine Lambrecht varnarmálaráðherra segi af sér. Ella reki Olaf Scholz kanslari hana úr embætti. Jafnframt krefjast þeir þess að hún biðjist afsökunar á orðum sem hún lét falla í Instagram-myndskeiði á gamlárskvöld. Reyndar greinist varla hvað hún segir fyrir látunum í sprengjuglöðum Berlínarbúum sem fengu sitt fyrsta tækifæri síðan um áramótin 2019 til að láta til sín taka. Umsjón: Bjarni Rúnarsson. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Gísli Marteinn Baldursson fyrrverandi borgarfulltrúi og þáttastjórnandi vinsælasta skemmtiþáttar landsins, Vikan með Gísla Marteini, var kallaður til viðtals til að létta aðeins á efnistökum hlaðvarpsins í aðdraganda jólanna. Reyndar slysaðist ég aðeins til að kveikja á borgar- og skipulagsmála Marteini en þaðan leiðumst við í umræðu um veganisma, femínisma, byltingar, meint hlutleysi í þögninni, vináttu og hvernig forréttindafullur kallavinahópur á sextugsaldri vinnur úr kröfum samtímans. Kannski ekkert brjálæðislegt léttmeti, en Gísli Marteinn var allavega í jólaskapi. Það er eitthvað. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.
Rússar segjast ætla að hörfa frá Kherson héraði í Úkraínu. Ráðamenn þar taka þeim fyrirætlunum með fyrirvara. Úrslita er enn beðið í fimm ríkjum í Bandaríkjunum eftir kosningarnar í gær. Rauðu holskeflunni sem Repúblikanar spáðu hefur verið líkt við bleika skvettu. Auka þarf fjárframlög til geðheilbrigðismála til að stytta biðtíma eftir þjónustu og taka á viðvarandi manneklu. Þingmenn lýstu áhyggjum af stöðu mála á Alþingi í dag. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Belarús segir leiðina í átt að lýðræði markast af þjáningu og tárum. Erfitt sé að vera bjartsýnn þegar vinir manns eigi yfir höfði sér dauðadóm fyrir andóf. Tæpum eitthundrað þrjátíu og tvö þúsund tonnum af loðnu er úthlutað til íslenskra fiskiskipa á komandi vertíð. Tuttugu og eitt skip er skráð með loðnukvóta. ----- Rauða bylgjan eða jafnvel holskeflan sem Repúblikanar í Bandaríkjunum spáðu að myndi rísa í kosningunum í gær minnti frekar á bleika skvettu, svo vitnað sé í fyrirsögn á vef Time fréttatímaritsins. Reyndar bendir fátt til annars en að þeir tryggi sér meirihluta í fulltrúadeild þingsins en tvísýnt er um úrslit í öldungadeildinni. Undir kvöld höfðu Demókratar tryggt sér 48 þingsæti og Repúblikanar 47. Búist er við að úrslit í Nevada verði ekki kynnt fyrr en að nokkrum dögum liðnum vegna tímans sem það tekur að telja utankjörfundaratkvæði. Þá stefnir allt í bráðabana í Georgíu milli Raphaels Warnocks, þingmanns Demókrata, og Repúblikanans Herschels Walkers, sem bauð sig fram á móti honum. Þar þarf frambjóðandi að fá 50 prósent atkvæða til að ná kjöri. Bráðabaninn fer að líkindum fram fljótlega eftir mánaðamót. Ásgeir Tómasson tók saman atburði næturinnar og dagsins. Þingkosningarnar í Bandaríkjunum voru æsispennandi og margt sem kom nokkuð á óvart. Ekki er von á endanlegri niðurstöðu strax, en úrslit í öldungadeildinni eru svo gott sem ráðin, en þó getur ennþá ýmislegt gerst. En ef svo fer sem horfir þá verður sætum í öldunadeildinni skipt jafnt, aftur, og þá myndi Kamala Harris varaforseti hafa oddaatkvæði. Þessar kosningar eru merkilegar fyrir margra hluta sakir.Bjarni Rúnarsson ræddi við Silju Báru Ómarsdóttur prófessor í stjórnmálafræði og Hafstein Einarsson dósent við Stjórnmálafræðifræðideild Háskóla Íslands. Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Þegar árið 1980 gekk í garð fóru okkar menn að vinna sína næstu plötu sem yrði þá fyrsta platan án allra fjögurra meðlima sveitarinnar. Þarna var Peter hættur í KISS og sló því ekki högg á plötunni og söng ekki eitt einasta lag. Meðlimir voru hér nokkuð hræddir við hvað aðdáendur myndu segja ef þeir vissu að einn af þeim væri hættur og fóru þeir því með þetta eins og mannsmorð, enginn mátti vita að fjarveru Peters. Þetta var jú í fyrsta skiptið sem mannabreytingar voru að eiga sér stað í KISS, en svo sannarlega ekki það síðasta. Anton Fig (eða Figgarinn frægi) fékk það starf að tromma plötuna en Peter var þó skráður fyrir trommuleiknum og prýddi framhlið plötunnar ásamt öðrum meðlimum sveitarinnar. Reyndar var það þó vel ljóst að endirinn var í aðsigi hjá Ace líka, en hann hékk þó aðeins lengur á vagninum. Þó kom hann ekki að öllum lögum þessarar næstu plötu þeirra og var þá restin af gítarleiknum í höndum Paul, Gene og Bob Kulick. Upptökustjórinn Vini Poncia sem þótti skila fínu starfi á plötunni Dynasty ári áður var fenginn aftur til að taka þá upp. Aftur tóku okkar menn upp plötu sem fikrast meira í átt að poppinu fremur en rokkinu en í takt við ákveðin tíðaranda þessa tíma. Að einhverjum ástæðum héldu KISS að poppið væri eitthvað sem þeir þyrftu að halla sér að á meðan bönd eins og AC/DC og Van Halen tættu í sig vinsældarlistana. Kannski voru það mikil mistök en þessi plata varð fyrsta platan síðan „Dressed to Kill“ kom út sem ekki fór í platínum-sölu, heldur náði hún „aðeins“ í gull þann 30.júlí 1980. Engu að síður þá kom þessi plata út þann 20. maí 1980 og náði hún bara í 35. sæti Billboard vinsældarlistans í Bandaríkjunum. KISS voru opinberlega ekki lengur konungar Bandaríska tónlistarmarkaðarins. Þó er það ekki þar með sagt platan Unmasked, sem hér um ræðir, hafi verið hafnað út um allan heim. Hreint alls ekki, því sem dæmi þá elskuðu Ástralskir aðdáendur hreinlega þessa plötu og var þetta sennilegast platan sem gerðu KISS endanlega að guðum þar í landi með brjálæði sem samsvaraði Bítlaæðinu. Sem dæmi varð lagið Shandi mikill hittari þar í landi á sama tíma og ekkert lag af plötunni varð að hittara í heimalandinu. Túrinn sem farið var á var fyrsti túrinn hans Eika Carr með KISS og fór hann allur fram í Evrópu, Ástralíu og Nýja-Sjálandi ef frá er talið einir tónleikar í New York, sem voru þeir fyrstu á Unmasked túrnum. Í þessum þætti sem margir hafa beðið spenntir eftir kíkjum við betur á Unmasked. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Hljómsveitin - fyrirbærið - fjöllista-hópurinn - Gus Gus fagnaði 25 ára afmæli með fernum tónleikum í Hörpu um daginn og það var algjör snilld sögðu þeir sem upplifðu það. Reyndar er Gus Gus 27 ára en það dróst á langinn að halda upp á afmælið sem var 2020 - Gus Gus varð til 1995 og er jafngömul Rokklandi. Gus Gus hlaut á dögunum Íslensku tónlistarverðlaunin í fyrsta skipti - fyrir Popp plötu ársins. Það var kominn tími til, platan er frábær ? kannski besta plata Gus Gus. Gestur Rokklands í dag er Biggi Veira ? Birgir Þórarinsson sem er sá eini sem hefur verið í Gus Gus frá byrjun. Margir hafa komið og farið og svo komið aftur, og það voru margir sem komu aftur á afmælistónleikunum enda allt í mesta bróðerni - svona yfirleitt. Ég ætla að spyrja um allskonar í dag og Biggi ætlar að segja frá. Stay the ride -

Sumarið 1983 fóru KISS í hljóðverið til að taka upp sína 11. hljóðversplötu, plötu sem átti að fylgja þeirri sem á undan kom (Creatures of the night) fast á eftir. Aftur var Michael James Jackson við stjórnvölinn en hann skilaði af sér flottu starfi á fyrrnefndri plötu og náði hreint út sagt mögnuðum tilþrifum úr okkar mönnum og þessum þunga hljómi. Vinnie Vincent var orðinn fullgildur meðlimur hljómsveitarinnar og fékk hann meira að segja að prýða framhlið þessarar næstu plötu ásamt auðvitað Gene, Paul og Eric. Platan Lick it Up er afurðin og kom hún út þann 23. september 1983. Hún vakti mun meiri athygli en Creatures og það kannski af einni aðalástæðu. KISS tóku þarna loksins af sér málninguna sem er eitthvað sem þeir höfðu rætt að gera lengi. Vinnie Vincent samdi í 8 af 10 lögum á þessari plötu auk nokkurra á Creatures of the Night og var því egóið hans farið að fljúga hærra en góðu hófi gegnir þegar hér er komið sögu. Sumir halda því fram munið þið að Vinnie hafi bjargað KISS, en hvað sem því líður þá fannst honum sjálfum hið minnsta hann bera fulla ábyrgð á að endurvekja risann af léttum blundi. Lick it up náði allavega í gegn, hún seldist mjög vel og fór skömmu síðar í platinum sölu. Reyndar hafði engin KISS plata selst þetta vel síðan Dynasty kom út árið 1979. KISS voru því mættir aftur og nú með plötu sem fór í 24. sætið á Billboard vinsældarlistanum í Bandaríkjunum og alla leið í upp 5. sætið hér á Íslandi. Titillag plötunnar varð algjör hittari og er fyrir löngu orðið fastur liður á setlista KISS. Það má segja að hér sé um hreinan vendipunkt að ræða í KISSTORY. Í þættinum ræðum við þessa mögnuðu plötu sem Lick it up er, þar sem þáttastjórnendur voru furðu sammála en samt alls ekki. Hlustun er lygasögu ríkari. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Björk Guðmundsdóttir sest um borð í Lestina í dag.Tónleikaröðin Björk Orkestral fer fram þessa dagana í Hörpu en þar flytur hún berstrípaðar útgáfur af lögum sínum. En markmiðið er ekki síst að draga fram og leggja áherslu á útsetningarnar sem hún hefur unnið á undanförnum áratugum. Björk spjallar okkur við tónleikana og áhrifin sem kófið hefur haft á væntanlega plötu hennar. Við heyrum um hugtakið Blackfishing sem hefur fengið aukna athygli síðustu daga vegna frumraunar Little Mix söngkonunnar Jesy Nelson á Bandaríkjamarkaði. Lag hennar, Boyz, byggir á sampli úr P.Diddy smellinum Bad Boys 4 Life og líkir eftir myndbandi hans auk þess sem hún sækir menningararf og útlit svartra bandaríkjamanna - meira að segja húðlitinn. Laufey Haraldsdóttir flytur okkur pistil um pistil um vinn sinn, bandaríska uppistandarann John Mulaney. Reyndar veit Mulaney ekkert hver Laufey er - en samband hennar við grínistann er hálf-félagslegt.

Það hlaut að koma að þessu. Gestir þáttarins að þessu sinni eru mæðraveldið sjálft, skaparar alls sem við þekkjum, the ones that started it all og konurnar sem við dýrkum meira en lífið sjálft, hinar einu sönnu MÖMMUR OKKAR. Bergþóra(mamma Lóu) og Magga Stína(mamma Sölku) ræða við dætur sínar um norræna glæpaþætti, hekl, barnabörnin sín, kisur og hvort símar séu verkfæri djöfulsins. Reyndar var svo gaman að tala við þær að við þurftum að skipta þættinum í tvennt og kemur seinni hlutinn í næstu viku.
Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: SSteinn og Einar Matthías Real Madríd bíður í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og hressandi yfirspilun á Emirates var einmitt upphitunin sem við þurftum fyrir það. Reyndar líka þessi upphitun frá því í gær. Baráttan um Meistaradeildarsæti er síður en svo búin en Liverpool nær að spila svona áfram.
Þríeykið í Ísland vaknar var létt í lund þennan Mánudagsmorguninn og velti fyrir sér ýmsum málum. Rómantíkin var ofarlega á baugi í kjölfar konudagsins. Reyndar sagði JAX að hjá honum væru allir dagar konudagar. Í þættinum voru áhugaverð viðtöl um góða leið til að skoða loftgæðin hjá sér til að geta brugðist við ef til þarf, hvernig ungir knattspyrnumenn geta sótt sér væna styrki til að stunda nám við bandaríska háskóla og svo sagði Björn Ingi frá lopapeysunni sinni sem setti íslenskt prjónasamfélag á annan endan um helgina. Ellý Ármanns spáði fyrir hlustendum og virtist hitta naglann á höfuðið eins og oft áður.
Í síðustu viku birtu fimm heimspekingar grein í Fréttablaðinu þar sem velt var upp siðferðislegum álitamálum um hugsanlega rannsókn á virkni bóluefnis Pfizer á Íslandi. Greininni var ýmist tekið mjög vel eða mjög illa, líkt og Finnur Dellsén, dósent við Háskóla Íslands og einn heimspekinganna fimm, fór yfir í þættinum. Hann segir það skyldu siðfræðinga að draga fram áleitnar spurningar um umdeild mál líkt og í þessu tilviki en ekki sé allsstaðar frjór jarðvegur fyrir slíkar vangaveltur. Í Lundúnaspjalli sagði Sigrún Davíðsdóttir meðal annars frá aðkomu Bretadrottningar að lagasetningu í Bretlandi. Vitað var að hún þarf að staðfesta lög, líkt og forseti Íslands, en á óvart kom að hún - eða lögmenn á hennar snærum - hefur hlutast til um efni frumvarpa sem henni berast áður en þau eru lögð fyrir þingið. Rannsóknir blaðsins Guardian sýna að hún hefur t.d. beitt sér varðandi lög sem snúa að hlutabréfaeign drottningar. Valentínusardagurinn var í gær. Af því tilefni sagði Vera Illugadóttir frá Valentínusi þeim sem dagurinn er helgaður við. Reyndar er á reiki hvaða Valentínus á í hlut, þrír koma til greina og mögulega voru þeir einn og sami maðurinn. Hvað sem því líður hefur dagurinn lengi verið dagur ástar og tilhugalífs. Tónlist: Blue Moon - Haukur Morthens, Hagavagninn - Haukur Morthens, My Funny Valentine - Miles Davis.

Já, þetta trukkast áfram. Reyndar er ótrúlega mikið magn af jólabjór eftir að smakka. Hér halda piltasrnir reyndar áfram og í þessari röð smakka þeir: JólaKalda frá Bruggsmiðjunni Kalda, Grýlu frá Ölverk í Hveragerði, Santas Blue Balls frá Smiðjunni, Vík í Mýrdal, Ekkert sérstaklega jólaleg jól frá Ægisgarði, JólaKisa frá Malbygg og loks Gluggagægi frá Borg Brugghúsi. Það er samt nóg eftir. Áfram veginn…
Vissuði að það eru bara 9 föstudagar til jóla? Það þýðir bara eitt. 9 fimmtudagar! Sem þýðir auðvitað líka 9 Morðcastþættir fram að jólum. Jahérnahér, tíminn flýgur. Allavega. Nýr þáttur! Reyndar bara eitt mál þó hann sé langur. Í þætti dagsins fer Unnur mjög djúpt ofaní merkilegt franskt mál þar sem franskur "læknir" og narsisisti fer mikinn. Bylgja er á meðan bæði mjög undrandi og þreytt. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid mordcastid@gmail.com
Forsendunefnd vegna Lífskjarasamningsins komst ekki að niðurstöðu í dag. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segist gera þá kröfu til viðsemjenda sinna að þeir sýni sveigjanleika þegar allt hafi breyst eins og raunin sé nú. Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða tveimur systkinum samtals rúmlega tvær milljónir króna, auk vaxta, í miskabætur vegna mistaka á Landspítalanum sem urðu til þess að faðir þeirra lést árið 2014. Miðflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun MMR, en fylgi Samfylkingarinnar dalar. Björgunarskipið Alan Kurdi er á leið til hafnar í Frakklandi með á annað hundrað manns sem var bjargað undan ströndum Líbíu um síðustu helgi. Það ræðst væntanlega á morgun hver niðurstaða forsendunefndar kjarasamninga verður. Ekki er vilji innan verkalýðshreyfingarinnar að rifta samningum. Það myndi þýða að ekkert yrði úr boðuðum launahækkunum um áramótin. Hins vegar eru blikur á lofti að atvinnurekendur segi upp samningum. Þeir hafa ítrekað bent á að ekki sé innistæða fyrir boðuðum launahækkunum. Staðreyndin sé að forsendur kjarasamninga Lífskjarasamningsins séu brostnar miðað við það efnahagsástand sem ríkti þegar samningar voru undirritaðir í apríl í fyrra. Þorsteinn Víglundsson fyrrverandi þingmaður Viðreisnar og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins benti á þessa staðreynd í grein í Fréttablaðinu í dag. Arnar Páll Hauksson talaði við Þorstein Víglundsson. Í gær greindust 57 ný kórónuveirusmit, tekin voru rúmlega fimm þúsund sýni og um hemingur þeirra sem greindust var í sóttkví. Reyndar er það svo að á fimmta þúsund eru komnir í sóttkví. Tveir eru á sjúkrahúsi með COVID-19 eins og verið hefur síðustu daga. Frá því í lok síðustu viku hefur á þriðja hundrað smita greinst. Þessi fjöldi smitaðra í gær kemur ekki óvart? Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Víði Reynisson. Norska flugfélagið Norwegian er enn á ný nær gjaldþrota og peningar sem ríkið lagði til í vor á þrotum. Því er unnið að björgun félagsins fyrir veturinn. Helst eru bundnar vonir við að norska ríkið kaupi hlut í félaginu. Gísli Kristjánsson sagði frá.

Spegillinn 17. ágúst 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason Flugfélög gætu þurft að breyta lendingartímum ef mikið álag myndast í sýnatöku eftir að nýjar reglur um komu til landsins taka gildi. Mótmælin gegn Lukashenko forseta Hvíta Rússlands verða sífellt öflugri. Hann segist tilbúinn í nýjar kosningar ef mótmælum linni. Yfirlögregluþjónn segir að breyta þurfi upplýsingum á covid.is til að tryggja samræmi milli upplýsingavefsins og nýjustu auglýsingar heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum. Tollstjórinn í Líbanon var handtekinn í dag í tengslum við sprenginguna miklu í Beirút á dögunum. Dómsmál eru í uppsiglingu gegn mörgum líbönskum embættismönnum. Vinna við nýja sjóvarnargarða á Sauðárkróki hófst í morgun. Lengri umfjöllun: Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra útlokar ekki að hlutabótaleiðin verði framlengd. Hann segir að skuldir ríkissjóðs aukist nú um rúmlega milljarð króna á dag. Hann segir ljóst að aðgerðir vegna COVID-19, sem taka gildi á miðvikudaginn, dragi mjög úr ferðavilja hingað til lands. Hann segir að ákvaraðnir séu ekki teknar út frá ferðamönnum, heldur sé verið að horfa til landamæranna. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir talaði við Bjarna í dag. Ástandið í Hvíta Rússlandi. Fjölmenn mótmæli hafa nú staðið yfir í Hvíta-Rússlandi, eða Belarús, frá því að kjörstjórn í landinu tilkynnti að Alexander Lúkasjenko hefði verið endurkjörinn forseti með yfir 80 prósentum atkvæða fyrir einni viku. Mótmælin hafa farið stigvaxandi og þeim hefur verið mætt með mikilli hörku af lögreglu og öryggissveitum. Hvíta Rússland hefur nokkra sérstöðu meðal nágrannalýðvelda sinna sem áður voru innan Sovétríkjanna og pólitísk þróun varð þar með allt öðrum hætti en t.a.m. í Eystrasaltsríkjunum eftir fall Sovétríkjanna árið 1990. Jón Ólafsson heimspekiprófessor við Háskóla Íslands hefur lengi fylgst með málum þar eystra. Kristján Sigurjónsson talar við hann. Kvótaúthlutun Evrópusambandið og Brexit. Hugtakið ,,afstæður stöðugleiki“ hljómar eins og hugtak úr heimspólitík kalda stríðsins. Reyndar er hugtakið frá þeim tíma: var, og er enn, lykilhugtak í kvótaúthlutun Evrópusambandsins. Bretar vilja breyttar úthlutunarreglur en saga þessa hugtaks skýrir af hverju Bretum gæti gengið erfiðlega að fá sitt fram. Og ekki auðveldar það Brexit. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.

Til okkar mætti upprennandi uppistandarinn Karen Björg. Við ræddum um hvernig er að flytja úr smábænum í Grenivík - í borg óttans: Reykjavík. Hvernig er að koma sér á framfæri - starta sínu eigin giggi - og láta hlutina gerast!IG: karenbjorg & helgijean & hjalmarorn110
Vinkonurnar ræða þennann blessaða show off lista.. Show off listi vs bucketlisti? Reyndar ræddu þær allskonar annað í þættinum líka, eins og þeim ber að gera - Við þekkjum okkar konur. En ef við drögum þáttinn saman fyrir þær þá pæla þær mest í því hvað þær ætla að skilja eftir sig. Hvað skiptir mestu máli? Bara Við er í boði CeraVe á Íslandi.
Askurinn, Íslandsmeistarakeppni í matarhandverki fer fram síðar í mánuðinum, en frestur til að skrá sig til þátttöku rennur út eftir helgi. En hvað er matarhandverk og hverjir geta tekið þátt? Óli Þ. Hilmarsson ráðgjafi hjá Matís kíkti til okkar í morgunkaffi og sagði okkur meira af þessu. Kvikmyndin Game Changers sem sýnd er á Netflix hefur vakið mikla athygli en í henni kemur fram að íþróttamenn geti bætt árangur sinn verulega með því að sleppa dýraafurðum og borða bara plöntumiðað fæði. Reyndar er fullyrt að kjöt og dýraafurðir vinni beinlínis gegn árangri íþróttafólks. Elísabet Margeirsdóttir, næringafræðingur og ofurhlaupari, kom til okkar og við spurðum hana hvort þetta séu réttar fullyrðingar í myndinni. Við höfum rætt ummæli biskups um siðrof hér í Morgunútvarpinu sl. daga, m.a. við fríkirkjuprest og formann Siðmenntar. Við héldum áfram með þetta mál í dag og fengum við til okkar Pétur G. Markan samskiptastjóra Biskupsstofu sem fór yfir sjónarmið kirkjunnar. Fréttir vikunnar voru svo auðvitað á sínum stað. Ómar R. Valdimarsson, lögmaður, og Nadine Guðrún Yaghi, fréttamaður á Stöð 2, komu til okkar. Freyr Gígja Gunnarsson snéri aftur með langþráðar fréttir úr heimi ríka og fræga fólksins í hégómavísindahorninu vinsæla og þar komu höfundar Krúnuleikanna, Harry og Meghan og Hugh Grant við sögu. Tónlist: KK - Kærleikur og tími. Pearl Jam - Future days. Ásgeir Trausti - Bernskan. Billie Eilish - All the good girls go to hell. Björk - Big time sensuality. Sváfnir Sig - Fer sem fer. Queen - Don't stop me now.

Þrjár nýjar lífverur hafa tekið sér bólfestu í Surtsey; ein plöntutegund og tvær pöddutegundir. Þetta leiddi árlegur leiðangur Náttúrufræðistofnunar í sumar í ljós. Það eru 56 ár síðan Surtsey kom upp úr hafinu, síðan þá hefur eyjan verið ómetanleg rannsóknarstöð fyrir líffræðinga. Erling Ólafsson skordýrafræðingur var einn þeirra sérfræðinga sem fór til Surtseyjar í sumar. Hann sagði hlustendum frá leiðangrinum í sumar. Það er talsverður byrjendabragur á nýrri ríkisstjórn Boris Johnson í Bretlandi og Johnson sjálfur nýtur minna fylgis í upphafi valdaferils síns en flestir forverar hans í Downingstræti. Reyndar eiga báðir stóru flokkarnir í Bretlandi í nokkrum tilvistarvanda og langt síðan þeir hafa notið svo lítils fylgis. Sigrún Davíðsdóttir fór yfir stöðuna í breskum stjórnmálum. 9. kvikmynd hinst virta bandaríska kvikmyndaleikstjóra Quentins Tarantino var frumsýnd í Bandaríkjunum í síðustu viku og hún verður frumsýnd hér á landi um miðjan ágúst. Mynda Tarantino er jafnan beðið með mikilli eftirvæntingu og þessi en engin undantekning. Tónlist skipar jafnan stóran sess í myndum Tarantino, Morgunvaktin skoðaði lítillega þá tónlist sem Tarantino hefur notað í myndum sínum. Tónlist: Tu Hevur Taer Dyrastu Perlur - Gudrid Hansdottir Katrín og Óliver - Randver Láttu mig vera - 200.000 naglbítar & Lúðrasveit verkalýðsins Rabbia e Tarantella - Ennio Morricone Stuck in the Middle with You - Stealers Wheel Flowers on the Wall - The Statler Brothers Didn´t I blow Your Mind this Time - The Delfonics Bang Bang - Nancy Sinatra Ich wollt' ich wär ein Huhn - Lillian Harvey og Willy Fritsch Mrs. Robinson - Simon & Garfunkel
Vörumerkjaréttur, höfundaréttur og hugverkaréttur. Hvað hefur það með markaðsmál að gera? Reyndar ótrúlega mikið. Til umræðu í dag er m.a. Vörumerkjaréttur, höfundaréttur og hugverkaréttur. Hvað má og hvað má ekki þegar kemur að notkun á efni og svo ræðum við einfaldlega hverju má stela … það er minna en þú heldur :) Réttara sagt þegar þú heldur að þú sért ekki að gera neitt rangt … þá má vel vera að þú sért að STELA efni. En nánar um það í þættinum. Fólk sem vinnur við markaðsmál stendur oft frammi fyrir spurningunni um hvort það megi nota ákveðið efni í sínu markaðsstarfi. Það getur verið myndefni, hugmynd, setning, hljóð- eða tónbrot eða nánast hvað sem við getum birt. Vegna þessa fékk MARKAÐSSTOFAN landsins færasta lögfræðing (mín fullyrðing - ekki hennar) í hugverkarétti í þáttinn. Gesturinn í níunda þætti MARKAÐSSTOFUNNAR og þar með fyrsti gestur okkar EVER er Lovísa Jónsdóttir, hugverkalögfræðingur hjá TEGO - www.tego.is Lovísa gerir sitt besta til að útskýra fyrir okkur hugverkarétt, vörumerkjarétt og hvað þetta heitir allt saman. Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að hér sé um viðtal við fagaðila er engin lögfræðileg ábyrgð er tekin á neinu sem er sagt :) Allir þættir MARKAÐSSTOFUNNAR eru hér: www.vert.is/podcast/ Þú finnur VERT markaðsstofu á helstu samfélagsmiðlum hér: VERT á facebook: www.facebook.com/VERTmarkadsstofa/ VERT á Instagram: www.instagram.com/umtalsvert/ VERT á Twitter: www.twitter.com/umtalsVERT
Stórbruninn í Notre Dame kirkjunni í París á dögunum ýtti við mönnum hér að huga að brunavörnum í gömlum kirkjum hér á landi. Þetta sagði Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar, í viðtali við Morgunvaktina á Rás 1. Hann sagði að margar þessara kirkna væru úr alfaraleið og jafnvel nokkuð afskekktar. Hann sagði að engu að síður þyrfti að fara varlega í allar endurbætur á brunavörnum. Aðallega væri miðað við að húsin stæðust þær kröfur um brunavarnir sem voru í gildi þegar húsin voru byggð. Væri gengið lengra væri alltaf ákveðin hætta á að óeðlilega mikið væri hróflað við húsunum. Björn sagði að aukin tíðni myglu í skólum á höfuðborgarsvæðinu væri Mannvirkjastofnun áhyggjuefni. Reyndar hefði mygla verið áhyggjuefni mannkyns í árþúsundir og svo yrði áfram. Til að mynda gæti það skapað aukna hættu á myglu í húsum þegar þau verða of loftþétt, þá leikur lítið sem ekkert loft um húsnæðið og það eru kjöraðstæður fyrir myglu. Sigrún Davíðsdóttir rakti feril Nigel Farage, stofnanda UKIP, sem átti stóran þátt í að Bretar samþykktu að ganga úr Evrópusambandinu. Í Lundúnaspjalli sínu rakti hún feril Farage, en nýr flokkur hans, Brexit, fer með himinskautum í skoðanakönnunum fyrir kosningar til Evrópuþingsins sem fram fara síðar í vikunni. Þá ræddi Sigrún um stöðuna í Íhaldsflokknum og hverjir væru líklegir arftakar Theresu May forsætisráðherra þegar hún lætur af embætti. Vera Illugadóttir er nýkomin úr ferðalagi til Sarajevo, höfuðborgar Bosníu. Hún sagði hlustendum frá heimsókninni og hvernig borgarbúum hefði tekist að rísa úr öskustónni eftir borgarastyrjöldina á 10. áratugnum en umsátrið um Sarajevo stóð yfir í á 4. ár, frá 1992 til 1996. Borgin ber mörg ör eftir stríðið, sum er látin standa til minningar um þá hræðilegu tíma sem borgarbúar fóru í gegnum, komandi kynslóðum til áminningar. Tónlist: Paolo Conte - Vie con me Hari Mata Hari -
Þá er aðfangadagur runninn upp, ekki mjög bjartur á þessari stundu en vonandi gleðilegur hjá sem flestum. Margir Íslendingar hafa einhvers konar siði á þessum degi, til dæmis finnst sumum gott að byrja daginn í einhverri af fjölmörgu sundlaugum landsins. Við hringdum í sundlaug Dalvíkur, sem opnaði kl. 6:15. Þar var hún Katla Árskóg á vakt sem sagði okkur tíðindi að norðan. Að minnsta kosti 300 manns eru látnir eftir flóðbylgju sem varð í Indonesíu um helgina. Hún varð vegna eldgoss í eldjallinu anak krakatá en það fjall stendur í stórum gíg þar sem gaus árið 1883. Það var eitt allra stærsta gos á sögulegum tíma og sprengingin sem þá varð heyrðist um allan heim og í kjölfarið kólnaði á jörðinni í nokkur ár. Sævar Helgi Bragason ræddi þær hamfarir við okkur. Við heyrðum líka í Jóni Erni Stefánssyni, eiganda Kjötkompanísins, en það eru menn á fullu fram eftir degi að gera jólasteikina klára fyrir fólk. Við ætlum að forvitnast um hvernig gengur og hvað er nú vinælast fyrir þessi jól. Á aðventunni og á jólum er oft talað um þá sem minnst mega sín, hafa lítið á milli handanna og upplifa fátækt. Reyndar hefur t.d. Sirrý Arnardóttir bent á að það sé ekkert betra að vera fátækur þegar sumarfrí eru handan við hornið en á jólunum. En hvað um það, við fengum til okkar tvær konur sem þekkja þessi mál út og inn. Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir frá Pepp, samtökum fólks í fátækt og Hjördís Kristinsdóttir frá Hjálpræðishernum. Mikið af rusli fellur til um jólin og við fáum góð ráð um hvernig við eigum farga þessu öllu, mandarínukössum, pakkaböndum. jólatrjám og fleiru. Ragna Halldórsdóttir frá Sorpu gaf góð ráð. Mikil viðvera í eldhúsinu tengist jólahaldinu mjög víða. Einn þeirra sem ætlar að standa fyrir framan pottana í allan dag er söngvarinn Friðrik Ómar. Hann er staddur á Akureyri yfir hátíðina og við hringdum í hann og fengum á hreint hvað hann ætlar að bardúsa í eldhúsinu í dag.
Gestur Füzz í kvöld er rithöfundurinn Stefán Máni sem var að senda frá skáldsöguna Krýsuvík sem er hans tuttugasta bók sem gefin er út. Hann mætir með uppáhalds rokkplötuna sína klukkan 21.00 Plata þáttarins er Chinese Democracy sem er sjötta og nýjasta stúdíóplata Guns N' Roses, en platan kom út 23. Nóvember 2008, nákvæmlega fyrir áratug upp á dag. Og þegar hún kom út var hún fyrsta plata Guns´n Roses síðan The Spaghetti Incident? Kom út 1993, og fyrsta platan með frumsöndum lögum síðan Use Your Illusion I og II komu út 1991. Og á þessari plötu var Axl Rose orðinn einn eftir af upphaflegu hljómsveitinni. Það komu upp allskyns vandamál í samstarfinu og gítarleikararnir Slash og Gilby Clarke, bassaleikarinn Duff McKagan og trommarinn Matt Sorum höfðu allir annaðhvort hætt eða verið reknir úr sveitinni. Reyndar var píanóleikarinn Dizzy Reed með allan tímann og svo voru hinir og þessir með Axl á plötunni. Chinese Democracy er líkast til dýrasta rokkplata spögunnar en hún kostaði 13 milljónir dollara eða c.a. 1600 íslenskar milljónir og platan átti upphaflega að koma út 1999. En Axl henti öllum uppahfelag uptökunum og tók alla plötuna upp árið 2000. Hún var tekin upp í einum 15 hljóðverum víðsvegar um heiminn og með mörgum mismunandi upptökustjórum. Og platan kom svo loksins út 2008. Hér er lagalistinn: Ensími - Atari Utangarðsmenn - Canvas city Guns´n Roses - Better Greta Van Fleet - You´re the one Lenny Kravitz - Are you gonna go my way Rolling Stones - It´s only rock´n roll but i like it Elvis - Shake rattle and roll Little Richard - Lucille SÍMATÍMI Ramones - Do you wanna dance Fræbbblarnir - Positively 4th street Nightwish - Storytime (óskalag) Todmobile - Stúlkan (óskalag) The Death South - Deadmans idle (óskalag) Hayseed Dixie - Ace of spades GARGFRÉTTIR Krónika - Tinnitus forte (óskalag) Whitesnake - In the still of the night (óskalag) Vintage Caravan - The way STEFÁN MÁNI GESTUR FÜZZ Nirvana - Pennyroyal tea STEFÁN MÁNI II AC/DC - Hells bells STEFÁN MÁNI II - Rock´n roll aint noise pollution Guns´n Roses - Madagaskar A+B Katla - kaldidalur (A) Katla - Dómadalur (B) Ted Nugent - The great white Buffalo Utangarðsmenn - Pretty girl