Podcasts about okkar

  • 100PODCASTS
  • 353EPISODES
  • 1h 20mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • May 20, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about okkar

Latest podcast episodes about okkar

Mannlegi þátturinn
Bændasamtökin, Ungliðahreyfing Amnesty og ókeypis sumarnámskeið Okkar heims

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 20, 2025 50:00


Bændasamtök Íslands standa að herferðinni - Við erum öll úr sömu sveit - þessa dagana. Beinir snertifletir almennings við bændur og matvælaframleiðslu eru færri en áður sem óhjákvæmilega bitnar á tengslum og innsýn. Samtökin vilja minnka bilið milli bænda og þjóðarinnar og opna faðminn og samtal við þjóðina. Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna var hjá okkur í dag og sagði betur frá þessu. Svo kynntum við okkur starfsemi Ungliðahreyfinar Amnesty International, sem er er félagsskapur fyrir ungt fólk á aldrinum 14 til 25 ára. Hlutverk hennar er að vekja athygli á mannréttindum og mannréttindabrotum um allan heim. Heiðrún Vala Hilmarsdóttir og Cynthia Anne Namugambe, úr Ungliðahreyfingunni og Árni Kristjánsson, ungliða- og aðgerðarstjóri Íslandsdeildar Amnesty International sögðu okkur allt um þetta í þættinum. Að lokum fræddumst við um Okkar heim og ókeypis sumarnámskeið fyrir börn foreldra sem glíma við geðrænan vanda. Okkar heimur er stuðningsúrræðið sem stendur að þessum námskeiðum auk annars fræðslu- og stuðningsstarfs fyrir þennan hóp barna, en eitt af hverjum fimm börnum í heiminum á foreldra með geðrænan vanda. Sigríður Gísladóttir, framkvæmdastjóri Okkar heims, og Þórunn Edda Sigurjónsdóttir, félagsráðgjafi, komu í þáttinn. Tónlist í þættinum í dag: Sólarsamba / Bræðrabandalagið (Magnús Kjartansson, texti Halldór Gunnarsson) Sólarlag / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir, texti James G. Johnson) Sólin er komin / Mugison (Örn Elías Guðmundsson) Sól mín sól / Anna Pálína Árnadóttir (Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Kiss Army Iceland Podcast
097 - Útpressa

Kiss Army Iceland Podcast

Play Episode Listen Later Apr 10, 2025 93:22


Við sáum okkur knúna til að henda í einn neyðarþátt þar sem margt er að grasserast í KISS heimum þessa dagana. Okkar menn eru að koma saman á ný og halda þannig upp á 50 ára afmæli KISS ARMY í Vegas síðar á þessu ári, 2025. Við höfum nú slegið á þráðinn til Bill Starkey af minna tilefni. Við förum hér yfir stöðuna og heyrum í okkar besta manni í lok þáttar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Ólafssynir í Undralandi
Velmegun okkar byggir á þrælum fortíðar

Ólafssynir í Undralandi

Play Episode Listen Later Mar 23, 2025 51:48


Já kæru hlustendur, í dag bjóðum við upp á 52 mínútur af heilaleysi, en aftur á móti áhugaverðum umræðum um byggingar, þrælahald og margt fleira. Hafið það náðugt þennan sunnudaginn.

Videoleigan
The Mummy (1999)

Videoleigan

Play Episode Listen Later Mar 17, 2025 112:53


Við erum komnir aftur!

Handkastið
Strákarnir okkar komnir á EM! Hausverkur hjá Snorra fyrir næsta verkefni?

Handkastið

Play Episode Listen Later Mar 16, 2025 63:14


Sérfræðingurinn, Klipparinn og Einar Örn Jónsson fóru yfir landsliðsvikuna, Olís-deild karla og Olís-deild kvenna.

FM957
TRAFFÍKIN! #13. MARS. 25 - Verður þetta okkar fyrsta kæra?

FM957

Play Episode Listen Later Mar 15, 2025 81:22


Naglacastið's Podcast
Fantastic four ! Okkar uppáhlds 4 efni !

Naglacastið's Podcast

Play Episode Listen Later Feb 12, 2025 48:45


Send us a textOkkar uppáhlds 4 efni ! þetta er must have af okkar mati !Support the show

Þjóðmál
#290 – Hver þarf sjónvarp þegar við fáum allt okkar drama í stjórnmálunum?

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Feb 11, 2025 61:58


Björn Ingi Hrafnsson og Ólöf Skaftadóttir ræða um krísustjórnina á stjórnarheimilinu, það sem helst kom fram – og kom ekki fram – í stefnuræðu forsætisráðherra og umræðum um hana í gærkvöldi, um formannskjör í Sjálfstæðisflokknum og loks stöðuna í Reykjavíkurborg og hvernig framhaldið kann að líta út eftir að borgarstjóri rauf meirihlutasamstarf vinstri flokkanna.

Mannlegi þátturinn
Tinna Hrafnsdóttir föstudagsgestur og þorramatarspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 24, 2025 53:31


Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Tinna Hrafnsdóttir, leikstjóri, leikkona handritshöfundur og framleiðandi. Hún er annar leikstjóra sjónvarpsþáttanna um Vigdísi Finnbogadóttur, hún gerði kvikmyndina Skjálfta upp úr bók Auðar Jónsdóttur, hún leikstýrði sjónvarpsþáttunum Heima er best auk þess að skrifa handritið ásamt tveimur öðrum og hún hefur leikið í fjölda verkefna á sviði og fyrir framan myndavélina. Við fórum með Tinnu aftur í tímann, á æskuslóðirnar og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, sem auðvitað var á sínum stað í dag eins og aðra föstudaga. Í dag er bóndadagur, fyrsti dagur í þorra, og það er þorramaturinn sem verður umræðuefnið í dag. Íslenski þorramaturinn komst á alþjóðlegan lista sem er ekki endilega listinn til að vera á, sem við skoðuðum aðeins. Sviðakjammi, sviðasulta, rófustappa, súrir hrútspungar og allt þetta góðgæti sem við elskum en vekja jafnvel furðu hjá öðrum þjóðum. Tónlist í þættinum: Okkar eigin Osló / Valdimar Guðmundsson og Memfismafían (Helgi Svavar Helgason, texti Bragi Valdimar Skúlason) Af því að pabbi vildi það / Jonee Jonee (Jonee Jonee) Morning has Broken / Cat Stevens (Cat Stevens & Eleanor Farjeon) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Handkastið
Strákarnir okkar eru óstöðvandi!

Handkastið

Play Episode Listen Later Jan 22, 2025 49:35


PBT og Mike kíktu til okkar í Dominos stúdíóið og gerðu upp leik Íslands og Egyptalands. Það er óhætt að segja að Snorri Steinn sé búinn að smíða vél og handboltaæði á Íslandi er farið að gera vart við sig.

Handkastið
HM vegferðin hafin - Skyldusigur hjá Strákunum Okkar

Handkastið

Play Episode Listen Later Jan 16, 2025 50:30


Stymmi Klippari, Andri Geir og Stefán Rafn mættu í stúdíó og gerðu upp landsleikinn gegn Grænhöfðaeyjum. Vegferðin á HM er hafin og leiðin hefur aldrei verið greiðari!

Mannlegi þátturinn
Að setja og virða mörk og Sigurbjörn um Elvis Presley

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 8, 2025 48:41


Okkar daglega líf felur oftast í sér að vera í kringum annað fólk, hvort sem það er á vinnustað, í námi, á meðal fjölskyldu og vina eða einfaldlega ókunnugra í ýmsum aðstæðum. Í öllum tilvikum þar sem við erum að umgangast annað fólk, hvort sem við eigum í beinum samskiptum við það eða ekki, þá reynir á mörkin okkar. Sumir eru með skýr mörk á meðan aðrir eru markalausir. Sumir virða mörk annarra á meðan aðrir gera það ekki. Þetta er áhugaverð umræða því öll viljum við að mörkin okkar séu virt en setjum við öðrum mörk og hvað þýðir það? Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi hefur mikla reynslu af því að hjálpa öðrum á sviði meðvirkni og að setja mörk, hann kom í þáttinn í dag. Elvis Presley fæddist á þessum degi árið 1935, hann hefði því orðið 90 ára í dag ef hann hefði lifað. Sigurbjörn Arnar Jónsson er mikill áhugamaður um Elvis og ævi hans. Sigurbjörn kom fram á 10. áratug síðustu aldar í gervi Elvis, meðal annars þrisvar í sjónvarpinu. Við fengum Sigurbjörn í þáttinn í dag til að segja okkur frá Elvis Presley, ferlinum og lífi hans og af hverju hann varð svona mikill aðdáandi. Tónlist í þættinum: Ég vil fá mér kærustu / Hjálmar (lagahöfundur ókunnur, texti Indriði Einarsson) Heimförin / Ásgeir Trausti og Sinfóníuhljómsveit Íslands (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Einar Georg Einarsson) Suspicuous Minds / Elvis Presley (Mark James) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Stundin
Flækjusagan: Af hverju sigraði okkar tegund

Stundin

Play Episode Listen Later Dec 15, 2024


Illugi Jökulsson fjallar hér um frumsögu mannsins og bendir á að listir komu á undan bissniss!

Handkastið
Stelpurnar okkar hófu leik á EM og heimatilbúið VAR í Kórnum!

Handkastið

Play Episode Listen Later Nov 29, 2024 69:47


Strákarnir gerðu upp 12.umferð í Olísdeildinni. Stelpurnar okkar hófu leik á EM gegn Hollendingum. Það var af nægu að taka í leikjum kvöldsins. Meistaradeildin var á sínum stað og Handkastið kíkti á kosningarnar.

Víðsjá
Á okkar máli, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma, Reykjavík Dance Festival/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 21, 2024 52:04


Fyrir nokkrum árum síðan varð myndlistarkonan Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir vör við fjölgun flóttamanna í heimabæ sínum, Hafnarfirði. Hún tók líka eftir því að þar var fátt sem greip fólkið og ákvað að hafa frumkvæði að því að búa til vettvang þar sem fólk með ólíkan bakgrunn hefði tækifæri til þess að kynnast og taka þátt í samfélaginu. Úr varð fjölbreytt starf með reglulegum listasmiðjum, viðburðum og samverustundum og stofnun hjálparsamtakanna GETU, sem styður við flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Hafnarfirði, Kópavogi og nágrenni. Hafnarborg er meðal samstarfsaðila GETU og þar verður á laugardag boðið upp á fjöltyngda listasmiðju þar sem arabísk leturtákn verða innblástur fyrir listræna sköpun, undir leiðsögn listamannanna Yöru Zein og Ingunnar Fjólu. Við lítum við á vinnustofu þeirra í hafnarfirði og heyrum af viðburðinum og samstarfinu. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins var stofnuð fyrir 20 árum og heldur upp á það með tvennum tónleikum í Langholtskirkju um helgina. Sveitin var stofnuð um það leyti sem sett var tónlistardeild við Listaháskóla Íslands því það vantaði vettvang fyrir nemendur Gunnsteinn Ólafsson hljómsveitarstjóri er einn stofnenda hljómsveitarinnar og verður gestur okkar í þætti dagsins. Reykjavík Dance Festival lauk eftir nokkurra daga veislu síðastliðinn sunnudag. Katla Ársælsdóttir og Nína Hjálmarsdóttir fóru á nokkrar sýningar sem þær munu rýna í, í þætti dagsins og í næsta þætti. Katla ríður á vaðið í dag með umfjöllun um Konukroppa og When a duck turns 18 a boy will eat her. En við hefjum þáttinn á símtali við semballeikarann Halldór Bjarka Arnarson, sem búsettur er í Sviss, en heldur tónleika undir yfirskriftinni Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma, í Breiðholtskirkju á laugardag. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Ein Pæling
#362 Gunnar Páll Tryggvason - Peningar, pólitík og skólarnir okkar

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Nov 15, 2024 76:40


Gunnar Páll Tryggvason er stofnandi og framkvæmdarstjóri Alfa framtak. Í þessum þætti er rætt um áhrif fjármagns á mismunandi svið samfélagsins. Fjallað er um dugnað, drifkraft, stjórnmálin, menningu, fjölmiðla og margt fleira.

Handkastið
Strákarnir okkar mæta til leiks eftir hálfs árs bið

Handkastið

Play Episode Listen Later Nov 6, 2024 51:40


Ferðalagið á EM 2026 hefst í kvöld þegar strákarnir taka á móti Bosníu. Landsliðsumræða - Olís-deildirnar og Stymmi fer yfir Handborgarann á Grill-inu.

Tölvuleikjaspjallið
223. Silent Hill 2 Remake með Óla Jóels

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Nov 6, 2024 56:38


Þegar 23 ára gamall leikur er endurgerður er það algjör guðsgjöf að hafa einhvern sem spilaði upprunalega leikinn við útgáfu. Okkar eini Óli Jóels mætir í sett og spjallar við Arnór Stein um þessa stórgóðu endurgerð. Hvaða endi fengu þeir í leiknum? Hvað þýða allar þessar óvinatýpur? Meikar sagan einhvern sens? Mikilvægasta spurningin er auðvitað: er leikurinn þess virði? Í stuttu máli: JÁ Takk Óli fyrir komuna! Þátturinn er í boði Elko Gaming.

Mannlegi þátturinn
Slagdagurinn okkar, fræðsla ekki hræðsla og kaffi og kólestról

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 31, 2024 54:25


Hár blóðþrýstingur getur farið leynt og afleiðingarnar geta verið alvarlegar. Á laugardaginn er Slagdagurinn okkar og af því tilefni verður boðið uppá ókeypis blóðþrýstingsmælingu og ráðgjöf í Kringlunni og á Glerártorgi á Akureyri. Þórir Steingrímsson formaður Heilaheilla og Dr. Anna Bryndís Einarsdóttir, taugasérfræðingur, yfirlæknir Taugadeildar Landspítalans, komu í þáttinn og fræddu okkur um til dæmis merkin sem við verðum að vera vakandi um, sem gætu bent til þess að slag sé hafið, en þau eru S.L.A.G.: Sjóntruflanir, Lömun útlima, Andlitslömun og Glatað mál. Ef þessi merki eiga við hjá okkur skiptir öllu máli að hringja strax í 112 því hver mínúta er mikilvæg í að lágmarka afleiðingar heilablóðfalls. Ofbeldi virðist vera að færast í aukana hjá ungu fólki og veldur áhyggjum, hverjar eru orsakirnar og hvernig getum við brugðist við? Við fengum Soffíu Ámundadóttur, verkefnastjóra Menntafléttunnar og kennara, og Arnrúnu Maríu Magnúsdóttur, leikskólakennara í þáttinn í dag. En þær fræddu okkur um málstofu á vegum Menntafléttunnar sem ber yfirskriftina Ræðum um ofbeldi og lausnir.Soffía hefur rannsakað og fjallað um ofbeldi nemenda í meistararitgerð sinni og Arnrún María rekur eigið fyrirtæki, Samtalið fræðsla ekki hræðsla þar sem hún leggur áherslu á samtalið við börn, sem sagt að fræða en ekki hræða. Í lok þáttar glugguðum við í grein í norska ríkisútvarisins NRK, sem fjallar um hvernig kaffidrykkja getur haft áhrif á kólestrólmagn eða blóðfitu. Það er ekki sama hvernig kaffi við drekkum og hversu mikið af því. En olía í kaffi getur leitt til hækkaðs kólestrólmagns í líkamanum. Tónlist í þættinum Ferðabar / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Tíu dropar / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague) Kaffi til Brasilíu / Stephan Hilmarz og Milljónamæringarnir (Hillard & Miles, texti Stefán Hilmarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Endalínan
247. Þáttur - NIce Mar

Endalínan

Play Episode Listen Later Oct 13, 2024 79:22


Frábær umferð að baki, fullt af svörum og enn feiri spurningar! Okkar besti Friðrik Stefánsson bauð okkur í heimsókn og við fórum yfir umferðina og miklu meira. Allt í samstarfi með Viking Lite (Léttöl), Soho og Brons!

Mannlegi þátturinn
Stundin okkar tekur á loft, Downs heilkennið og Grófin og Lausa skrúfan

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 10, 2024 50:00


Stundin okkar er elsti sjónvarpsþáttur landsins en fyrsti þátturinn var sendur út árið 1966. 26 umsjónarmenn hafa séð um þáttinn frá upphafi og 116 þáttaraðir hafa verið sýndar. Nú er komið að nýrri þáttarröð og nýjum manneskjum í brúnni og í þetta sinn verður tekið á loft, bókstaflega, því þáttaröðin er tekin upp í nýju sýndarmyndveri RÚV Andrés P. Þorvaldsson Laskowski, sem leikur aðalhlutverkið Loft, og Erla Hrund Halldórsdóttir hugmyndasmiður, leikstjóri, handritshöfundur og framleiðandi, komu í þáttinn í dag. Nýlega var haldið málþing um fóstur- og nýburaskimanir þar sem ræddar voru meðal annars siðfræðileg álitamál við fóstur- og nýburaskimanir, álitamál um tækni, samfélag og félagslegt réttlæti, reynsla af ráðgjöf og þjónustu við foreldra hjá Fósturgreiningardeildinni og fleira. Við fengum Guðmund Ármann Pétursson, formann Félags áhugafólks um Downs heilkennið, til að koma og segja okkur frá erindi sínu á málþinginu sem kallaðist Downs heilkennið í nútíð og framtíð. Grófin geðrækt á Akureyri er gjaldfrjálst úrræði fyrir einstaklinga 18 ára og eldri á öllum stigum bataferlisins sem vilja bæta heilsuna með geðrækt og batavinnu gegnum hópastarf á jafningjagrundvelli. Grófin er eina opna geðræktin á Norðurlandi og þar er vettvangur fyrir öll þau sem vilja vinna að geðrækt á jafningjagrunni, hvort sem þau eru notendur geðheilbrigðisþjónustunnar, fagaðilar, aðstandendur eða og áhugafólk um framfarir í geðheilbrigðismálum. Verkefnið Lausa skrúfan er valdeflandi nýsköpunarverkefni sem unnið er af notendum Grófarinnar og við fræddumst um það og Grófina þegar Sigurður Gísli Gunnlaugsson, hugmyndasmiður Lausu skrúfunnar og Pálína Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Grófarinnar og iðjuþjálfi, komu í þáttinn. Tónlist í þættinum: Sigling / Magnús Þór Sigmundsson (Magnús Eiríksson) Kvöldsigling / Ólafur Þórarinsson (Gísli Helgason og Jón Sigurðsson) Sigling / Andrea Gylfadóttir (Friðrik Bjarnason og Örn Arnarson) Sigling / Ásgeir Óskarsson (Ásgeir Óskarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Helgaspjallið
Þáttur 195 - Sunneva Halldórs / Efnasúpan um fræðsluna sína um skaðleg efni í umhverfinu okkar

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Sep 1, 2024 75:41


Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Ég var svo spenntur að fá til mín Sunnevu Halldórsdóttur, meistaranemi í líf- og læknavísindum, en hún heldur uppi með Instagram reikning og Tiktok reikning undir nafninu Efnasúpan. Ég er mikill aðdáandi, en það sem Sunneva gerir sem á það til að vanta á fræðsluvettvöngum af þessu tagi, er að hún er með ótrúlega kærleiksríka nálgun sem fær mann ekki til að vilja fela sig undir teppi vegna mistaka, heldur frekar hvatning til að skoða hvaða breytingum hægt er að skoða í eigin lífi. Sannleikurinn er vissulega sá að við erum alltaf að læra meira og meira inná skaðleg efni útum allt, og við förum yfir hinar ýmsu leiðir til að skoða hvernig við hægt og rólega getum breytt örlítið til í okkar lífi til að lifa skaðaminna lífi hvað varðar skaðleg efni í nærumhverfi. @efnasupan á bæði Instagram & Tiktok Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Kiss Army Iceland Podcast
091 - Rúllustigar (1978 - seinni hluti)

Kiss Army Iceland Podcast

Play Episode Listen Later Aug 16, 2024 200:22


Hér tökum við fyrir seinni hluta ársins 1978. Þetta var ekki fjörugasta árið í KISSögunni, en þó gerðist nú nokkuð hjá okkar mönnum. Sólóplöturnar fjórar litu dagsins ljós ásamt auðvitað sjónvarpsmyndinni KISS: Meets The Phantom Of The Park sem frumsýnd var á NBC sjónvarpsstöðinni þar sem nánast öll Ameríka poppaði, kom sér fyrir í sófanum og horfði. Okkar menn fengu frekar furðulegar Platinum plötur eftir smá fiff hjá hæstvirtum Neil Bogart og glanstímaritin elskuðu að birta myndir og fjalla um nýja ofurparið, Gene & Cher. Við kíkjum einnig örlítið út í geim að vanda með hjálp StarPower, en einnig fer hann yfir málin í páfagarði þess tíma ásamt miklu fleiru fróðlegu stöffi. Forsetinn segir okkur frá skemmtiferð fjölskyldunnar nú í sumar en kynnir líka fyrir okkur hvað annað var að gerast í tónlistinni í heiminum árið 1978 og kemur pönkið nokk mikið við sögu. Þetta allt, en bara svo miklu, miklu meira til. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

nbc kiss acast platinum amer star power okkar seinni neil bogart kiss meets the phantom of the park forsetinn
Stundin
Flækjusagan: Gætum við þurft að henda sögubókunum okkar?

Stundin

Play Episode Listen Later Aug 11, 2024


Illugi Jökulsson bíður eftir nýjustu tíðindum frá Gunung Padang en þar var verið að grafa eitthvað afar óvænt upp úr frumskógarmoldinni.

Helgaspjallið
Þáttur 188 - Jara Giantara um að nýja heiminn, fyrri líf, hausinn okkar og ferð sína til Japan

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Jul 19, 2024 93:07


Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Bpro - www.bpro.is Nings - www.nings.is Ég veit fátt betra en að setjast niður á móti stjörnuspekingnum per excellance, vinkonu minni og viskubrunninum Jöru Giantöru en hún er án efa með stærstu tilfinningagreind sem ég hef upplifað og að hlusta á hana er eins að vera krakki að hlusta á einhverja stórspennandi sögu. Svo sem fullorðinn læri ég alltaf eitthvað nýtt og hún opnar alltaf fyrir eitthvað fallegt í höfðinu á manni. Í þetta skipti settumst við niður í mega kósí, ræddum ferð hennar til Japans, fyrri líf, stjörnuspeki og hvað er í gangi í rosalega mörgum retrograde-um ásamt svo mörgu öðru. www.giantara.com fyrir nýja námsskeiðið hennar sem við ræðum einnig í þættinum. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Messi Ronaldo Neymar and Mbappe
Hákon Arnar Haraldsson The Rise | Strákarnir okkar

Messi Ronaldo Neymar and Mbappe

Play Episode Listen Later May 24, 2024 4:40


The rise of Hákon Arnar Haraldsson Hákon Arnar Haraldsson is an Icelandic professional footballer who plays as a winger for French Ligue 1 club Lille and the Iceland national team.

Kvíðakastið
73. Spurningar til okkar! - Q&A

Kvíðakastið

Play Episode Listen Later May 13, 2024 57:14


Þátturinn er í boði World Class og Reykjavík Foto! Í þættinum förum við yfir spurningar sem við fengum á instagram um sálfræðinámið (inntökuferli, mun á HÍ og HR og fleira), hundahræðslu, dagbókarskrif og annað létt og skemmtilegt!

Handkastið
Enn eitt stórmótið bíður strákana okkar

Handkastið

Play Episode Listen Later May 9, 2024 47:53


25 marka sigur strákanna okkar á Eistlandi gefur góð fyrirheit fyrir seinni leikinn um helgina. Sæti á HM í janúar bíður. Úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitil kvenna er farið af stað og það með miklum látum. Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar var gestur þáttarins.

Teboðið
#234 - er JLO orðin "JLULU"?

Teboðið

Play Episode Listen Later Apr 17, 2024 76:32


Okkar kona JLO er trending núna eftir hún gaf út tónlistarplötu, musical og heila bíóspólu um sig... En afhverju er fólk að gera grín af Jenny litlu?   Þátturinn er í boði: Beautyklúbburinn Netgíró  Blush Eleven Australia & K18 Reykjavík Foto  

Naglacastið's Podcast
Fantastic four

Naglacastið's Podcast

Play Episode Listen Later Mar 13, 2024 49:02


Okkar uppáhlds 4 efni ! þetta er must have af okkar matiSupport the show

Teboðið
#227 - BIRTA B-DAY BESTIE

Teboðið

Play Episode Listen Later Mar 3, 2024 74:48


Dr. Football
Doc án landamæra - Okkar eigin Hannes

Dr. Football

Play Episode Listen Later Feb 20, 2024 59:20


Dr. Football fékk þá Sigurð Bond og Kela til sín í barna og unglingaþáttinn Doc án landamæra.

Kiss Army Iceland Podcast
087 - Tugur, tólf & tríó (1977 - fyrri hluti)

Kiss Army Iceland Podcast

Play Episode Listen Later Feb 10, 2024 213:02


Við erum komin að árinu 1977 í þessari sögulegu yfirferð okkar um KISSÖGUNA. Sennilega er þetta ár það ár sem okkar menn eru algerlega á toppnum á sínum ferli. En þetta er líka árið þar sem maskínan fer að liðast í sundur. KISS fá sín fyrstu verðlaun á ferlinum og það fyrir lagið Beth. Spurning hvort að sú staðreynd hafi ekki gillað egóið hans Peter ansi vel? Okkar menn gáfu út eina hljóðversplötu á þessu ári og eina tónleikaplötu en þetta er einmitt árið þar sem Ace þorði að byrja syngja. Tónleikaferðirnar voru hins vegar þrjár þetta árið, alveg ótrúlega viðburðaríkt ár hjá okkar mönnum svo ekki sé meira sagt. Hér förum við yfir það allra helsta eins og okkur er lagið og berum það saman við söguna í þessum fyrri hluta á árinu 1977. Þá skoðum við auðvitað líka hvað "KISS heimar" bjóða okkur upp á um þessi misserin. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Handkastið
Gleðilegt EM - Handkastið x Dr. Football

Handkastið

Play Episode Listen Later Jan 10, 2024 75:00


EM í Þjóðaríþróttinni hefst í dag og það var því tilvalið að fá sjálfan Dr. Football, Hjörvar Hafliðason, til okkar í stúdíó og fórum yfir hans uppáhalds stórmót, draumalið og fleira. Hituðum upp fyrir fyrsta leik strákanna okkar gegn Serbíu á föstudaginn, Stymmi Klippari henti í veðmál. Björgvin Páll er að gefa út nýtt Podcast og eru "Strákarnir Okkar" vannýtt vörumerki?

Handkastið
Ásgeir Örn siglir í strand og fyrsta korterið drap Stelpurnar Okkar

Handkastið

Play Episode Listen Later Nov 30, 2023 71:28


Fóru yfir fyrst leik hjá Íslenska kvenna landsliðinu á Heimsmeistaramótinu í handbolta þegar þær töpuðu gegn Slóvenum. Gerðum upp 11.umferð í Olís deild karla ásamt því að fara yfir Meistaradeild Evrópu. Síðan henti Bjöggi í Status.

Pyngjan
Fimmtudagskaffið: Ísfélagið er jólakonfektið okkar allra

Pyngjan

Play Episode Listen Later Nov 23, 2023 50:45


Já kæru hlustendur, BizQuiz í kvöld. Miði er möguleiki ef þú skráir þig í áskrift á https://pardus.is/pyngjan. Hlökkum til að sjá ykkur!

Helgaspjallið
Þáttur 158 - Arna Engilberts um örlagaríka æsku og heilun á innra barninu okkar

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Nov 19, 2023 75:42


Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Arna Engilberts er stílisti, vegan kokkur og eigandi Rokyo.is en hún hefur stundað mikla sjálfsvinnu og í hvert skipti sem ég hitti hana, þá líður mér eins og hún hafi blásið mig uppí loft með innblæstri og sálarfæðu. Ég er svo þakklátur að fá hana í þáttinn, við ræðum örlagarík veikindi sem hún fór í gegnum og endaði lömuð, ásamt hversu mikilvægt það er að skoða að hefja sjálfsvinnuna að heila barnið sitt og hvernig við gerum það. Arna tekur okkur í ferðalagið sitt og ég gæti ekki mælt meira með að hlusta á þessa stórkostlegu mannveru og vona að þið getið tekið fallegt með ykkur frá þessu spjalli. Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Handkastið
Landsliðin okkar í brennidepli og handboltaæði í Færeyjum

Handkastið

Play Episode Listen Later Nov 1, 2023 58:22


Stútfullur þáttur. Rætt um bæði karla og kvennalandsliðin okkar. Úrvalslið 1-8 umferðar Olís-deildar karla. Uppgjör um leikina í 7.umferð Olís-deildar kvenna. Sérfræðingur Handkastsins um kvennaboltann á línunni. Finnur Hansson á línunni frá Færeyjum og almenn gleði. Enginn Teddi - bara gleði.

Heimskviður
159| Landamæri og kosningar í Póllandi og söguslóðir bardaga í Belgíu

Heimskviður

Play Episode Listen Later Oct 21, 2023 40:00


Meðferð flóttafólks á landamærum Póllands og Belarús er eins og andstyggilegur borðtennisleikur, segir aðgerðarsinni sem hefur veitt mannúðaraðstoð á svæðinu. Við ætlum að fjalla um þetta ástand og nýafstaðnar kosningar í Póllandi sem fara líklega í sögubækurnar, ekki síst fyrir metkosningaþátttöku. Ólöf Ragnarsdóttir fór til Varsjár síðustu helgi og segir okkur frá. Stjórnvöld í velflestum ríkjum Evrópu hafa sameinast, undir hatti Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins, um að styðja úkraínsk stjórnvöld og milljónir flóttafólks frá Úkraínu hafa fengið skjól í öðrum ríkjum. Innrásin hefur líka haft víðtæk áhrif á hvernig íbúar og stjórnvöld í Evrópuríkjum líta á öryggismál, Finnland lét af áratugalangri stefnu um hlutleysi og fékk aðild að NATO, og Svíþjóð er á sömu vegferð þangað. Háværar raddir innan Evrópusambandsins þrýsta nú á um bjóða fleiri þjóðum, þar á meðal Úkraínu, í þennan klúbb sem upphaflega var stofnaður til að tryggja friðsamleg samskipti þjóða sem iðulega höfðu borist á banaspjótum, síðast fyrir um áttatíu árum. Að þeim tímapunkti ætlum við að beina sjónum okkar í þættinum í dag, nánar tiltekið til Belgíu, á vetrarmánuðum ársins 1944. Okkar maður í Brussel, Björn Malmquist, fór á söguslóðir einnar stærstu einstöku orystu Bandamanna í Evrópu, sem háð var í suðurhluta Belgíu, um það leyti sem jólin voru að ganga í garð fyrir sjötíu og níu árum. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Heimskviður
159| Landamæri og kosningar í Póllandi og söguslóðir bardaga í Belgíu

Heimskviður

Play Episode Listen Later Oct 21, 2023


Meðferð flóttafólks á landamærum Póllands og Belarús er eins og andstyggilegur borðtennisleikur, segir aðgerðarsinni sem hefur veitt mannúðaraðstoð á svæðinu. Við ætlum að fjalla um þetta ástand og nýafstaðnar kosningar í Póllandi sem fara líklega í sögubækurnar, ekki síst fyrir metkosningaþátttöku. Ólöf Ragnarsdóttir fór til Varsjár síðustu helgi og segir okkur frá. Stjórnvöld í velflestum ríkjum Evrópu hafa sameinast, undir hatti Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins, um að styðja úkraínsk stjórnvöld og milljónir flóttafólks frá Úkraínu hafa fengið skjól í öðrum ríkjum. Innrásin hefur líka haft víðtæk áhrif á hvernig íbúar og stjórnvöld í Evrópuríkjum líta á öryggismál, Finnland lét af áratugalangri stefnu um hlutleysi og fékk aðild að NATO, og Svíþjóð er á sömu vegferð þangað. Háværar raddir innan Evrópusambandsins þrýsta nú á um bjóða fleiri þjóðum, þar á meðal Úkraínu, í þennan klúbb sem upphaflega var stofnaður til að tryggja friðsamleg samskipti þjóða sem iðulega höfðu borist á banaspjótum, síðast fyrir um áttatíu árum. Að þeim tímapunkti ætlum við að beina sjónum okkar í þættinum í dag, nánar tiltekið til Belgíu, á vetrarmánuðum ársins 1944. Okkar maður í Brussel, Björn Malmquist, fór á söguslóðir einnar stærstu einstöku orystu Bandamanna í Evrópu, sem háð var í suðurhluta Belgíu, um það leyti sem jólin voru að ganga í garð fyrir sjötíu og níu árum. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Helgaspjallið
Þáttur 156 - Helgi & Ragga Nagli um mörkin sem við þurfum að setja á okkar sjálf og aðra

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Oct 20, 2023 60:11


Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Við Ragga Nagli sameinum krafta okkar enn á ný og í þetta skipti með námsskeiðinu okkar "Sjálfsefling - Allur pakkinn" sem verður haldið í fyrsta skipti núna í október, fullt er á námsskeiðið en við komum til með að halda fleiri. Í þessum þætti förum við yfir ýmislegt sem fram kemur á námsskeiðinu, meðal annars mörk, vináttur, sjálfstal og hvernig við getum stillt okkur inn og sett okkar eigin mörk á þessum sturluðu tímum í heiminum. Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Kiss Army Iceland Podcast
085 - Vasaprentari (1976 - seinni hluti)

Kiss Army Iceland Podcast

Play Episode Listen Later Oct 4, 2023 159:09


Seinni hluti þessa stóra og mikilvæga árs í KISSÖGUNNI, 1976. Okkar menn halda áfram túrnum sem nú breyttist í "Spirit of ´76 tour". Þeir drita frá sér smáskífum og fara í Star Theatre ásamt Eddie "effing" Kramer til að taka upp næstu plötu. Vélin er farin af stað og verður að fá olíu. Endalausa olíu. "KISS: The Originals" kemur út á fæðingardegi Forseta vors, þeir koma fram í hinum fræga "Paul Lynde Halloween Special", Ace Frehley fær raflost á sviði og spilað er á sögufrægum og einkar vel heppnuðum tónleikum bæði á Anaheim Stadium sem og á Roosevelt Stadium svona svo eitthvað sé nefnt. Beth slær í gegn eftir óvænt útspil útvarpsstöðvar nokkurrar í Kanada og Peter er þá skyndilega orðinn aðal kallinn. Svo fer jólamyndatakan í hundana sökum ástands Ace Frehley sem var í afar sérkennilegu jólaskapi þegar hún fór fram. Á sama tíma fagnar Tommy Thayer sínu 16 ára afmæli og Bubbi Morthens kemur fram opinberlega á tónleikum í fyrsta skiptið hér upp á Ísa-landi. Þetta og svo margt og mikið meira í þessum seinni hluta yfirferðar okkar um KISS-árið 1976. Endilega munið að gefa þættinum svo stjörnur í spilaranum sem notaður er við hlustun og þá minnum við á umræðuhóp þáttarins á Facebook. (KISS ARMY ICELAND hlaðvarpið - Umræðuhópur.) Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Handkastið
Breytingar á Ásvöllum og Arnar Birkir á línunni frá Svíþjóð

Handkastið

Play Episode Listen Later Sep 26, 2023 64:36


Lokaleikur 3.umferðar gerður upp, hitað var upp fyrir 4.umferð Olís deildar karla, kíkt á hvað Strákarnir Okkar eru að gera í Evrópu, Olís deild kvenna gerð upp og Arnar Birkir á línunni frá Svíþjóð.

VÍDJÓ
097 Strákarnir okkar (Team America: World Police)

VÍDJÓ

Play Episode Listen Later Sep 12, 2023 91:06


Alheimslögregla Bandaríkjanna er orðin ráðþrota í baráttunni við hryðjuverkamenn og ræður því til sín Gary, stærsta leikarann á Broadway til að svindla sér inn í herbúðir óvinanna. Hann beitir öllum sínum leikhæfileikum til að bjarga heiminum og finnur ástina.

Teboðið
#201 - Hvað verður trending haustið '23? x Hildur Sif

Teboðið

Play Episode Listen Later Aug 23, 2023 61:07


Is it too soon? Nei það er aldrei of seint að preppa skápinn fyrir haustið og vita hvað er IN og hvað er OUT, right? Okkar bestie Hildur Sif kom til okkar í tískuspjalli þar sem við förum yfir það sem við höldum að verði trending í haust. SO TUNE IN BESTIES

Teboðið
óvinsælu skoðanir okkar! [áskrift]

Teboðið

Play Episode Listen Later Jul 25, 2023 5:01


Brot úr nýjasta áskriftarþættinum okkar!   Fyrir aðeins 990kr á mánuði getur þú orðið heiðurs Teboðsgestur!   Áskriftar besties fá 2-3 auka þætti í mánuði, the inside scoop og allskonar skemmtilegt aukaefni bara fyrir ykkur!   WWW.TEBODID.IS

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Við ljósritum oft ævi foreldra okkar” -#391

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Jul 10, 2023 49:06


Pub Quiz verður í Keiluhöllinni 20. Júlí kl: 21Helgi borgaði leigubílstjóra 10 þúsund krónur íslenskar fyrir 4 klukkustunda akstur í Gvatemala. Hjálmar vann sem loftskeytamaður þegar hann var yngri en tvö skip sigldu í strand.IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Steve Dagskrá
Besta deildin ™️, Ridge Forrester á Hlíðarenda og munum að faðma Arsenal fólkið okkar.

Steve Dagskrá

Play Episode Listen Later Apr 11, 2023 76:53


Dominos

arsenal besta okkar ridge forrester
Helgaspjallið
114 - Jensína Edda skólastýra - "Lífið streymir til okkar og við þurfum að læra að bregðast við"

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Nov 25, 2022 85:26


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Þeir sem þekkja þessa drottningu, þeir vita afhverju hún er sest í sætið hér á Helgaspjallinu. Jensína Edda Hermannsdóttir er ein magnaðasta manneskja sem ég þekki og það var mér mín mesta ánægja og heiður að fá að sitja á móti henni og hlusta á hana. Hún er skólastýra á Laufásborg og hefur unnið með Hjallastefnunni síðan hún hóf starf sitt. Það er varla hægt að telja niður allar sleggjurnar sem Jensína talar um en ég skal reyna. Við ræðum um hvernig við nálgumst börn í uppeldi, okkar eigin berskjöldun og styrkurinn í henni, taka eignarhald á sjálfum sér, bera ábyrgð á sjálfum sér, að lána ekki það sem við eigum ekki og ég gæti haldið endalaust áfram. Fyrir foreldra og ekki foreldra, njótið vel. Jensína er gjörsamlega stórkostleg. Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.

Dr. Football
Vikulok Dr. Football - Hvað segir sá danski um strákana okkar?

Dr. Football

Play Episode Listen Later Nov 4, 2022 58:15


Vikulok Dr. Football - Hvað segir sá danski um strákana okkar? by Hjörvar Hafliðason