POPULARITY
Í neyðartilvikum getur hver mínúta skilið á milli lífs og dauða - sérstaklega þegar um hjartastopp er að ræða. Þegar hjartahnoð hefst strax aukast lífslíkur sjúklingsins verulega. Þrátt fyrir þetta treysta sumir sér ekki til að veita aðstoð á vettvangi á meðan sjúkrabíll er á leiðinni á vettvang. Í seinni hluta þáttarins ræðum við mikilvægi þess að kunna fyrstu hjálp og hvernig rétt viðbrögð allra á vettvangi geta bjargað mannslífum. Við höldum áfram ferð okkar um bráðamóttökuna og kynnumst fjölbreyttum verkefnum starfsfólksins.Við heyrum sögu fjölskyldu sem starfar saman á bráðamóttökunni og hjónum sem starfa bæði sem þyrlulæknar. Við fylgjumst með þyrlunni lenda með fárveikan sjúkling við bráðamóttökuna og þegar sjúklingur með blóðtappa þarf tafarlausa aðstoð. Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.
Kalak er heiti á vinafélagi Grænlands og Íslands var stofnað í mars árið 1992. Markmið KALAK er að vinna að auknum samskiptum Íslands og Grænlands, einkum á sviði félags- og menningarmála. Félagið hefur gegnum tíðina haldið fjölmörg mynda- og fræðslukvöld, staðið fyrir grænlenskum dögum og stutt við samfélagsleg verkefni á Grænlandi, sérstaklega í þágu ungs fólks. Stærsta verkefni KALAK hefur verið heimsókn 12-13 ára barna, frá litlu þorpunum á austurströnd Grænlands. Hingað hafa þau komið ásamt fylgdarliði kennara og til dæmis sótt skóla í Kópavogi, þar sem þau kynnast jafnöldrum. KALAK hefur líka frá upphafi tekið virkan þátt í skáklandnámi og verkefnum Hróksins á Grænlandi. Jósep Gíslason formaður og Skúli Pálsson gjaldkeri komu í þáttinn í dag. Georg Lúðvíksson var hjá okkur í dag með það sem við köllum fjármálin á mannamáli. Í þetta sinn talaði hann um fjármál og sambönd. Mikilvægi þess að vera á sömu blaðsíðu í fjármálum í sambandi eða hjónabandi. Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Þórhildur Þorkelsdóttir framkvæmdastjóri hjá ráðgjafafyrirtækinu Brú Strategy, hlaðvarpsstjórnandi og dagskrárgerðarkona. Hún sagði okkur hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Þórhildur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Þúsund bjartar sólir e. Khaled Hosseini Small things like these e. Klare Ceegan Karitas án titils / Óreiða á striga e. Kristín Marja Baldursdóttir Everything I know about love e. Dolly Alderton Á milli landshorna e. Sigurður Sigurmundsson frá Hvítárdal (afi Þórhildar) Bróðir minn ljónshjarta e. Astrid Lindgren Tónlist í þættinum í dag: Austurstræti / Laddi (Þórhallur Sigurðsson) Verum í sambandi / Sprengjuhöllin (Bergur Ebbi Benediktsson og Snorri Helgason) Aleinn og mæddur / HIGG & HB (Jimmy Cox, texti Gunnar Jóhannes Gunnarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í síðustu viku var sérstök umræða á þingi um alvarlega stöðu í orkumálum, flestir tóku undir að staðan væri það sannarlega og viku líka að rammaáætlun og viðruðu um hana efasemdir. Mikilvægt væri að sameinast um næstu skref en þau yrðu ekki tekin á grundvelli rammaáætlunar sagði málshefjandinn. Orkumálaráðherra sagði að núverandi stjórn ætlaði að rjúfa kyrrstöðu sem ríkt hefði. Rammaáætlun hefur oft verið þrætuepli og átök um virkjanir hverfast gjarnan um hana - en í raun er ekki hægt að búast við að rammaáætlun geri meira en að leggja grunn fyrir upplýsta umræðu og ákvörðun Alþings um virkjanakosti að dómi Jóns Geirs Péturssonar formanns verkefnisstjórnarinnar. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hann. Aukin notkun á gervigreind, styrkir til að kaupa reiðhjól en fyrst og fremst sameining stofnana og einfaldara stjórnkerfi eru meðal þeirra hugmynda sem ráðuneytin leggja til um hagræðingu í ríkisrekstri. Starfshópur forsætisráðherra er kominn með drög og ætlar að skila fullgerðum tillögum á tilsettum tíma. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman og ræddi við Björn Inga Victorsson, forstjóra Steypustöðvarinnar, löggiltan endurskoðanda og formann starfsfhóps forsætisráðherra. Þjóðverjar ganga til kosninga sunnudaginn 23. febrúar, hálfu ári fyrr en ætlað var, þar sem stjórn Jafnaðarmanna, Frjálslyndra demókrata og Græningja liðaðist í sundur. Ævar Örn Jósepsson fer yfir stöðu flokkanna eins og hún er í skoðanakönnunum nokkrum dögum fyrir kosningar og líkleg stjórnarmynstur. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Joensen, Hansen, Jacobsen og Olsen voru algengustu ættar- eða eftirnöfnin í Færeyjum fyrir tíu árum. Núna er þetta að breytast og Færeyingar farnir að gera miklu meira af því að kenna sig við heimahagana. Eða gera eins og Íslendingar og kenna sig við foreldra sína og enda nöfnin á -son eða -dóttir. Við ræðum þessar breytingar við Hönnu í Horni, sendiherra Færeyja á Íslandi, Elsbu Danjálsdóttur, sem vinnur í sendiráðinu, og Pál Björnsson sagnfræðing. Svo fjöllum við um Indland, sem stefnir að því að verða stórveldi 21. aldarinnar. Mikilvægi Indlands alþjóðlega er að aukast og til marks um það var Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, með þeim fyrstu sem Trump Bandaríkjaforseti bauð til sín í Hvíta húsið. En það bíða margar áskoranir heima fyrir þrátt fyrir mikinn uppgang í efnahagslífinu síðustu ár. Við ætlum að fjalla um hvaða leiðir Indverjar geta farið til að þess að verða eitt af farsælustu stórveldum 21. aldarinnar.
Símennt eru samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva, en 11 símenntunarmiðstöðvar um allt land eiga aðild að samtökunum. Mikilvægt er að vinna að símenntun og framhaldsfræðslu á Íslandi þar sem lögð er áhersla á að efla þekkingu og hæfni einstaklingsins. Það er margt í boði fyrir fólk sem hefur t.d. hætt framhaldsskólanámi og vill bæta við sig, þá er í boði raunfærnismat sem hægt er að fá metna reynslu af vinnumarkaði. Við töluðum við Guðjónínu Sæmundsdóttur forstöðukonu miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum, hún er einnig formaður heildarsamtakanna. Eftir áramót byrjuðum við með það sem við köllum Fjármálin á mannamáli, þar sem Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í fjármálum heimilanna, fræðir okkur um ýmsar hliðar á fjármálunum. Í dag sagði hann okkur frá áhugaverðri rannsókn frá Danmörku, þar sem kemur fram að danskir ellilífeyrisþæegar nýti sér afar lítið af ævisparnaði sínum á efri árum. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur og rithöfundur. Hann sendi frá sér tvær stórar og miklar bækur á síðasta ári. Annars vegar Rauði krossinn á Íslandi - hundrað ára saga og hins vegar Börn í Reykjavík. Við spurðum hann aðeins út í þessar bækur og fengum svo auðvitað að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Guðjón talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Móðurást e. Kristínu Ómarsdóttur Himintungl yfir heimsins ystu brún e. Jón Kalman Stefánsson Jörundur hundadagakonungur e. Sarah Bakewell Sögur Jóns Trausta, t.d. Anna frá Stóruborg, Sögur úr Skaftáreldum Tónlist í þættinum: January / Pilot (David Paton) June in January / Dean Martin (Ralph Rainger og Leo Robin) January / Elton John (Elton John & Bernie Taupin) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Halldór Armand skrifaði nýlega bók sem að heitir Mikilvægt rusl og fjallar um sorphirðufólk á tímum hrunsins. Í upphafi hlaðvarpsins er rætt stuttlega um bókina en þorri hlaðvarpsins fer í að ræða listamannalaun, hugmyndafræði og stjórnmálin.- Er maður líklegri til að fá listamannalaun ef maður skrifar um loftslagskvíða á Gaza?- Eru stjórnmálaflokkar raunverulega femínískir?- Er fyrirtækjum á Íslandi raunverulega annt um fjölbreytileikann?- Voru hvítir karlar afhöfðaðir við úthlutun listamannalauna?Þessum spurningum er svarað hér.
Í gær var tilkynnt að Ásta Fanney Sigurðardóttir verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2026. Valið var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands í gær þar sem kampavín og kaka komu við sögu. Við ræðum við Ástu Fanneyju í þætti dagsins. Fyrir skömmu sendu GDRN og Magnús Jóhann frá sér sönglagaplötuna Nokkur jólaleg lög. Á plötunni flytja þau þekkt jólalög og vetrarlög í lágstemmdum en einlægum útgáfum ásamt nokkrum góðum gestum. Tómas Ævar sest niður með þeim Magnúsi og Guðrúnu og ræðir við þau um gerð plötunnar. Við heyrum einnig rýni í nýja skáldsögu Halldórs Armand, Mikilvægt rusl, í þætti dagsins, en Sölvi Halldórsson hefur nýlokið við lesturinn. Og við fáum einnig ferðasögu frá Helsinki frá Trausta Ólafssyni, einn af leikhúsrýnum þáttar, en hann var þar í mikilli leikhúsreisu.
Aukin harka er komin í samskipti barna í öllum árgöngum grunnskóla en þó sérstaklega á miðstigi og unglingastigi. Strákar þurfa að vera harðir og óhræddir og mega ekki klaga. Húmorinn er grimmur og stelpa eiga það til að lenda undir og láta lítið fyrir sér fara, en þar á bæ skiptir útlitið hvað mestu máli. Þetta segir Gunnlaugur Víðir Guðmundsson félagsmálafræðingur sem starfað hefur með ungu fólki í tvo áratugi bæði á Akureyri og í Reykjavík og er nú forstöðumaður Gleðibankans, félagsmiðstöðvar Hlíðaskóla. Við ræddum þetta við Gunnlaug í dag og leituðum skýringa og ræddum hvaða þættir hafa áhrif á þessa hegðun barna og hvernig við getum brugðist við henni. Við fengum vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkillinn var að þessu sinni borinn að höfðum okkar, nánar til tekið að húfum og höfuðfötum. Guðjón velti því fyrir sér hvernig húfan sem slík verður til í mannkynssögunni, hvers vegna og hvað það er sem gerist í mannslíkamanum við of mikinn kulda og of mikinn hita. Að lokum skoðaði hann örlítið hvers vegna sum okkar virðast alltaf þurfa að vera með húfu á meðan önnur setja þær helst ekki upp. Og svo var það lesandi vikunnar sem í þetta sinn var Tanja Rasmussen frásagnafræðingur og bóksali. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Tanja talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Limits to Growth e. Donellu Meadows o.fl. Mikilvægt rusl e. Halldór Armand Moldin heit e. Birgittu Björgu Guðmarsdóttur Eldri konur e. Evu Rún Snorradóttur Jólabókarleitin e. Jenny Colgan Twilight serían e. Stephenie Meyer Sjálfstætt fólk e. Halldór Laxness Tónlist í þættinum: Litli tónlistarmaðurinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson og Ellý Vilhjálms (Freymóður Jóhannsson) Ást / Ragnheiður Gröndal (Magnús Þór Sigmundsson, texti Sigurður Nordal) Lapis Lazuli / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson) UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Nings - www.nings.is - afsláttarkóði: helgaspjallid Iceherbs - iceherbs.is HeilsuErla, drottningin á bakvið eitt af mínum allra uppáhalds hlaðvörpum Með lífið í lúkunum kom til mín í spjall, við splæstum í tveir fyrir einn en við tókum einnig þátt inná hennar hlaðvarpi mér til mikillar gleði. Erla er með orku sem maður vill helst baða sig í og mest smitandi bros sem finnst. Hún hefur tileinkað sér fræði heilsu og miðlar því áfram á hinum ýmsu stöðum. Við ræðum lífið hennar, óvænta og skyndilega kulnun, heilsuna og að leggja inná heilsubankann. Ég mæli með Erlu, að öllu leyti, en hér á Helgaspjallinu. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
Þegar 23 ára gamall leikur er endurgerður er það algjör guðsgjöf að hafa einhvern sem spilaði upprunalega leikinn við útgáfu. Okkar eini Óli Jóels mætir í sett og spjallar við Arnór Stein um þessa stórgóðu endurgerð. Hvaða endi fengu þeir í leiknum? Hvað þýða allar þessar óvinatýpur? Meikar sagan einhvern sens? Mikilvægasta spurningin er auðvitað: er leikurinn þess virði? Í stuttu máli: JÁ Takk Óli fyrir komuna! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Kosningarnar í Georgíu á morgun gætu orðið þær afdrifaríkustu síðan þetta fyrrum Sovétlýðveldi lýsti yfir sjálfstæði fyrir meira en þrjátíu árum. Framtíð landsins er í húfi, segir Salome Zourabichvili forseti Georgíu. Bretar státa sig gjarnan af því að eiginlegt þrælahald hafi aldrei tíðkast á Bretlandi. Þeir tala minna um það, að þegar mest lét voru þeir allra þjóða umsvifamestir í þrælakaupmennsku, í skjóli yfirburðastöðu sinnar á heimshöfunum. Og í þættinum verður rætt við tvo unga frambjóðendur í komandi þingkosningum.
Í kvöld verður fyrsti þátturinn á dagskrá sjónvarps í þáttaröðinni Vegur að heiman. Þetta eru þættir þar sem skoðað er, af hverju fólk flytur, í gegnum 24 sögur í sex þáttum. Þá erum við ekki að tala um að flytja úr einu húsi í annað heldur þegar fólk skiptir um félagslegt umhverfi, s.s. búferlaflutningar, eins og á milli landa og landshorna. Í hverjum þætti er ein saga skoðuð tvisvar, fyrir og eftir flutning. Þá er líka talað við nokkra sérfræðinga og fjölda fólks í örviðtölum í hverjum þætti. Halla Ólafsdóttir er umsjónarmaður þáttana og hún kom í þáttinn í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þetta sinn fjallaði hann um afleiðingar breytinga á fjölskyldumynstri, en líka um fyrirbærið kefír, en samkvæmt pistlahöfundi er þar um að ræða bragðgóðan mjólkurdrykk, sem mannkynið hefur notið í 3700 ár, ef eitthvað er að marka fornleifafræðina. Ævintýraleg saga af kefíráhuga Blandov bræðranna rússnesku og samstarfskonu þeirra, Irinu Sakharovu, rak síðan lestina í vinkli dagsins. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur, en bókin hans Mikilvægt rusl er nýútkomin. En við fengum auðvitað að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Halldór talaði um eftirfarandi bækur: Lessons in Chemistry e. Bonnie Garmus Keisararnir 12 e. Súetóníus Truflunin e. Steinar Braga Broken Money e. Lyn Alden Andrés blöðin, Lukku Láki og Tinni Góði dátinn Sveijk e. Hasek og svo rithöfundurinn Don DeLillo Tónlist í þættinum: Við höfum það gott / B.G. og Ingibjörg (Baldur Geirmundsson og Ingibjörg G. Guðmundsdóttir) Vegurinn heim / Markéta Irglová (Magnús Eiríksson) Sérstaklega gert fyrir þættina hennar Höllu Ólafsdóttur. Three Little Birds / Bob Marley (Bob Marley) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Hópur fólks hér á landi sem hefur glímt við alvarleg og langvinn veikindi eftir COVID kallar eftir vitundarvakningu og úrræðum í íslensku heilbrigðiskerfi. Þessi eftirköst og veikindin hafa gert það að verkum að fólk er nánast óvinnufært og glímir við margvíslegan heilsubrest á borð við eilífðar flensueinkenni, mæði, slæma hausverki, ógleði, heilaþoku, máttleysi og margt fleira. Þær Hafdís Inga Helgudóttir Hinriksdóttir og Sigríður Elín Ásgeirsdóttir sem báðar hafa verið heilsuhraustar og miklar íþróttakonur segja líf sitt hafa kollvarpast eftir að þær greindust með Covid fyrir tveimur árum. Þær komu í þáttinn. Hljóðóþol er taugaröskun sem lýsir sér í því, að upplifum tiltekinna hljóða veldur svo mikilli vanlíðan að það truflar allar athafnir daglegs lífs. Mikilvægt er að greina börn með hljóðóþol snemma þannig að hægt sé að gera ráðstafanir sem koma í veg fyrir að hljóðóþolið trufli nám og félagslegan þroska og það þarf að útbúa greiningartól og fræðsluefni fyrir starfólk menntastofnana. Heyrnarhjálp vinnur nú í að undirbúa ráðstefnu um Hljóðóþol og ráðstefnan verður 15.okt. Halla B. Þorkelsson formaður Heyrnarhjálpar og Hjörtur H Jónsson fv. Formaður,komu í þáttinn. Fólk sem greinist með efnaskiptavillu eða hvers kyns lífsstíls kvilla sem geta leitt til alvarlegra sjúkdóma geta nú fengið ráðgjöf um sitt heilsufar, mataræði og lífstíl og leiðrétt það með hjálp tveggja lækna, sem eru reyndar líka hjón en þau stofnuðu nýlega heilsufyrirtækið Sound Health lífstílslækningar í þeim tilgangi að veita fólki ráðgjöf um hvernig það getur sjálft gripið í taumana. Þau Kjartan Hrafn Loftsson og Tekla H. Karlsdóttir ræddu um efnaskiptaheilsu og einnig úrræði fyrir langvinn Covid einkenni. Tónlist í þættinum: Eyjólfur Kristjánsson - Kiddi greifi. Thomas, B.J. - Raindrops keep fallin' on my head. Beatles, The - Blackbird. Umsjón Helga Arnardóttir og Guðrún Gunnarsdóttir
Nassim Nicholas Taleb er sérfræðingur í líkindum, fjárfestingum og almennum kóngalífstíl. Tvímælalaust einn af mikilvægari höfundum samtímans, eins og stöðugar vinsældir bóka hans sýna. Á meðal þeirra: Fooled by Randomness, Black Swan, Antifragile og Skin in the Game. Í þessum þætti förum við efnislega yfir einstaka, nýstárlega og nærandi hugmyndafræði Taleb, sem getur líklega gert þig að betri manni. Viltu til dæmis hætta að vera viðkvæmur og verða beinlínis andviðkvæmur? Engrar þekkingar á neinu krafist til þess að ýta bara á play!

15. apríl 2024 Bankasýslan skilaði á föstudag skýrslu um kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Bankasýslan finnur kaupunum og aðdraganda þeirra flest til foráttu og undrast að valin hafi verið eina leiðin sem hvorki kallaði á aðkomu né samþykki hluthafa. Kaupin hafa dregið dilk á eftir sér og sýnist sitt hverjum, eins og Freyr Gígja Gunnarsson fer yfir í umfjöllun sinni um málið. Við heyrum í Helgu Björk Eiríksdóttur, fráfarandi bankaráðsformanni Landsbankans, Tryggva Pálssyni, stjórnarformanni Bankasýslunnar, Lilju Dögg Alfreðsdóttur viðskiptaráðherra og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra. Fyrir réttu ári, 15. apríl 2023, brutust út blóðug átök milli súdanska stjórnarhersins og hinnar vopnuðu hreyfingar RSF í Kartúm, höfuðborg Súdans. Tólf mánuðum síðar eru hátt í tíu milljónir karla, kvenna og barna á vergangi, Tugþúsundir almennra borgara hafa verið drepnar og tugir þúsunda dáið af völdum hungurs og sjúkdóma sem rekja má beint til stríðsins, aðallega börn. Þótt stríðið hafi staðið í ár er sagan á bak við það heldur lengri. Ævar Örn Jósepsson stiklar á stóru í þeirri blóðugu sögu og ræðir við Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi. Mikilvægt er að ræða um ofþyngd og offitu af nærgætni og forðast fordóma, segir Kamilla Dóra Jónsdóttir læknanemi, sem vann að nýlegri rannsókn á þyngd kvenna á meðgöngu. Rannsóknin sýnir að 30% þeirra flokkuðust með offitu við upphaf meðgöngunnar. Selma Margrét Sverrisdóttir tók saman og ræddi við Kamillu Dóru. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.
Jóhanna Jóhannesdóttir, félagsráðgjafi, MA og nemi í fjölskylduráðgjöf kemur til okkar í dag og ætlar að fræða okkur um Tengslavandamál hjá leik- og grunnskólabörnum sem er vandi alls nærumhverfis barnsins. Mikilvægasta grunnþörf barns er að tengjast tilfinningaböndum við foreldra og fá með því þörfum sínum fyrir kærleika, öryggi og vernd mætt án skilyrða. Jóhanna kom í þáttinn og fræddi okkur betur um þetta og sagði meðal annars að enginn getur tekist á við þennan vanda einn, ekki foreldrarnir einir og ekki skólinn einn. Við fjölluðum um Heilsubrú Heilsugæslunnar fyrir um það bil ári síðan en Heilsubrú er ný miðlæg þjónustueining hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar er þjónusta sem styður og bætir við þjónustu heilsugæslustöðva og þjónustan hefur verið í mótun og ýmislegt hefur bæst við á undanförnum mánuðum sem við fræddumst um í þættinum í dag. Kvenheilsa, andlega heilsa, sykursýki og sérhæfð mæðravernd er meðal þess sem áhersla er lögð á. Sólrún Ólína Sigurðardóttir fagstjóri komi í þáttinn. Svo að lokum fræddumst við um áhrif umhverfis innandyra á líðan og heilsu fólks. Flestir verja stórum hluta tíma síns innandyra. Umhverfi innandyra er samspil ólíkra þátta og hefur mismunandi áhrif á fólk. Þannig hefur umhverfið heima önnur áhrif en vinnuumhverfið, það er ólík upplifun að vera í skóla eða á sjúkrahúsi, í verlun eða leikhúsi. Páll Líndal doktor í umhverfissálfræði kom í þáttinn og sagði frá. Tónlist í þættinum: Sjóddu frekar egg / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason) Arietta / Dag Arnesen Trio (Edward Grieg) O Happy day / Edward Hawkins singers (Edwin Hawkins) Dont try to fool me / Jóhann G Jóhannsson(Jóhann G. Jóhannsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Heilaheilsa og þjálfun hugans er nafn á námskeiði sem Ólína G. Viðarsdóttir, sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum við HÍ stýrir á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands. Á námskeiðinu er fjallað um heilann og hugarstarf og markmiðið er að þáttakendur öðlist þekkingu á hugrænum þáttum og hvaða hlutverki þeir gegna í okkar daglega lífi. Einnig að þeir öðlist betri innsýn í eigin hugræna styrkleika og veikleika og læri leiðir til að þjálfa hugann og efla heilaheilsu. Ólína kom í þáttinn og sagði okkur meira frá heilaheilsu í dag. „Hvernig varð ég til?“ er bók fyrir öll börn sem verða til með aðstoð egg- eða sæðisgjafa. Bókin hentar einstaklingum sem eignast börn ein og einnig samkynja- og tvíkynja pörum. Bókin aðstoðar fjölskyldur við að upplýsa börn um hvernig þau urðu til, þar sem áherslan er á fólk sem fær aðstoð frá egg- eða sæðisgjafa við barneignarferlið. Mikilvægt er að foreldrar séu opinská og heiðarleg gagnvart börnum um hvernig þau urðu til og ekki er alltaf auðvelt að vita hvernig á að bera sig að. Markmiðið með bókinni er að vera ákveðið verkfæri til að aðstoða foreldra við samtalið. Andrea Björt Ólafsdóttir er höfundur bókarinnar kom til okkar í dag. Veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni var svo í dag. Í þetta sinn talaði Einar við okkur um veðurútlitið næstu daga og vikur. Hvort hægt sé að spá með viti í marsveðráttuna og með hvaða aðferðum þá. Hann ætlar líka að rifja upp þegar 1500 manns sátu fastir í bílum sínum í Þrengslunum 27.febrúar árið 2000, þegar fjöldi þusti út til að berja Heklugos augum. Þá hafði verið tilkynnt í fréttum að gos myndi hefjast innan 30 mínútna, en lítið sást til gossins, en í staðinn gerði byl með ófærð. Þetta var ein viðamesta björgunaraðgerð á vegum úti í Íslandssögunni. Tónlist í þættinum: Skólaball / Brimkló (Magnús Kjartansson) Marz / John Grant (John Grant) 4:30 AM / Solveig Slettahjel (Peder Kjellsby & Solveig Slettahjell) Nacho verduzco /Kronos Quartet (Chalino Sanchez) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
22. febrúar 2024 Samkomulag ríkisstjórnarinnar um heildarsýn í útlendingamálum felur í sér aðkomu ekki færri en sjö ráðuneyta. Í því koma fram háleit markmið um að leggja áherslu á mannúð og virðingu og vinna gegn skautun og stéttskiptingu. Rætt við Ingibjörgu Isaksen (B) og Sigmar Guðmundsson (C) um útlendingmál og frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum. Mikilvægt er að rannsaka mögulega jarðvegsmengun strax og byrjað er að skipuleggja íbúðabyggð þar sem áður var iðnaðarsvæði, eins og algengt um þessar mundir. Þetta segir formaður FUMÍS, Fagfélags um mengun á Íslandi.
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Þrjúhundraðasti þátturinn, „I keep it 300, like the Romans“ sagði skáldið. Við byrjum á því að fara yfir Jafnréttisstofu (FUERA!) og nýju herferð hennar sem snýst um það að segja fólki hvernig það eigi að hugsa? Spurning. Síðan tölum við um Peter Thiel og nýju ólympíuleikana hans þar sem leyfilegt er að dópa. Mikilvægi testósteróns rætt. Að lokum, og þetta er mikilvægur kafli, er farið yfir þýðingu Bergþórs á lokakafla bókarinnar The Science of Getting Rich. Hlustið á þetta kæra bræðralag og verðið rík, þetta er svona einfalt. Guð blessi ykkur!
Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi, eftir Harald Sigurðsson skipulagsfræðing, hlaut á dögunum Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns efnis. Haraldur hefur eftir þrjátiu ára störf við skipulagsmál enn trú á sömu hlutum og toguðu hann upphaflega í nám til Toronto. Mikilvægast af öllu sé verndun náttúrunnar, að nýta landið vel og með kynslóðir framtíðar í huga. Að sama skapi sé fjölbreytt húsnæði, blöndun félagshópa og lækkun húsnæðiskostnaðar mikilvægasta verkefnið. Haraldur verður gestur okkar í dag. Vordagskrá Jazzklúbbsins Múlans hófst á Björtuloftum í Hörpu í síðasta mánuði en tónleikar á þeirra vegum munu fara fram á hverju miðvikudagskvöldi fram í lok máimánaðar. Næsta miðvikudagskvöld verður dúettakvöld og stíga á stokk tveir nokkuð framsæknir dúettar. Annars vegar eru það Tumi Torfason og Bjarni Már Ingólfsson og hins vegar Sölvi Kolbeinsson og Magnús Trygvason Elíassen. Við ræðum við einn útsendara úr hverri sveit í þætti dagsins, þá Tuma og Sölva.
Þórður Snær Júlíusson spjallaði um efnahag og samfélag. Við ræddum um hlutabréfaverð sem hefur lækkað nokkuð og útsvar sveitarfélaga sem á að hækka í Garðabæ, sem og um möguleg efnahagsleg áhrif þess ef fer að gjósa í Svartsengi. Mörg verjum við þónokkrum tíma á internetinu - jafnvel mjög miklum. Og ekki er það allt til gagns sem við sækjum þangað. Á fáeinum árum hafa orðið til örfá risastór fyrirtæki sem veita þjónustu á netinu - eða í tengslum við það - og er nú svo komið að þau hafa í raun náð á því ægivaldi og þar með okkur. Þessi fyrirtæki, fimm talsins, eru stærri og valdameiri en nokkurt heimsveldi hefur verið, að mati Margrétar Hugrúnar Gústafsdóttur sem um árabil var blaðamaður og hefur lengi velt fyrir sér samfélagsmiðlum og nemur nú mannfræði við háskólann. Svo var Arthúr Björgvin Bollason á sínum stað eftir Morgunfréttir og sagði okkur frá því sem er efst á baugi í þýsku þjóðlífi. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Armstrong, Louis, Oliver, Sy and his Orchestra, Fitzgerald, Ella - Dream a little dream of me. R.E.M. - Leaving New York. Green, Freddie, Young, Snooky, Foster, Frank, Coker, Henry, Grey, Al, Count Basie and his Orchestra, Payne, Sonny, Mitchell, Billy, Basie, Count, Culley, Wendell, Fowlkes, Charlie, Newman, Joe, Jones, Eddie, Jones, Thad, Powell, Benny, Wess, Frank, Royal, Marshall, Williams, Joe - Going to Chicago. Kraftwerk - The model.

Móey Pála og Júlíana Dögg, mágkona hennar, ákváðu með stuttum fyrirvara að taka upp þátt. Tilefnið var því miður ekki gleðilegt en David, maki Móeyar, lenti í leiðindaatviki í sundi á dögunum. Þar fékk hann að finna fyrir fordómum vegna húðlitar síns sem komu honum og fjölskyldunni allri úr jafnvægi. Júlíana Dögg er fædd og uppalin á Íslandi og á ættir að rekja til Mosambik. Hún og Móey ræða fordóma vegna uppruna, fyrirmyndir og staðalmyndir, óþægilegar athugasemdir og hvað er hægt að gera til að láta ganga betur. Mágkonuspjallið er í anda fjölskyldunnar; beint frá hjartanu, með heiðarleika og hreinskiptni að vopni með hárnákvæmu dassi af húmor.Hvað er það sem við þráum öll sama hverjir foreldrar okkar eru, hverja við elskum eða hvernig við lifum lífinu? Mikilvægt samtal nú sem endranær.Styrktaraðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: fjolskyldanehf@gmail.com
Í fyrsta hluta þáttarins var fjallað stuttlega um Barnamenningarhátíðina Púkann sem hefst á Vesfjörðum í dag og stendur í tíu daga. Skúli Gautason, menningarfulltrúi Vestfjarðastofu, sagði frá. Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, ræddi um ástand og horfur í samfélaginu. Verkalýðsfélögin vinna að kröfugerðum fyrir komandi kjaraviðræður. Finnbjörn telur mikilvægast að verja kaupmátt launafólks en hann hefur rýrnað mjög á síðustu misserum með aukinni verðbólgu og vaxtahækkunum. Björn Malmquist fjallaði um stjórnmál í Evrópu í spjalli frá Brussel. Fyrir dyrum standa kosningar í Póllandi og Slóvakíu og enn hefur ekki tekist að mynda ríkisstjórn á Spáni eftir kosningarnar þar í júlí. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins flytur stefnuræðu á miðvikudag. Í síðasta hluta þáttarins var fjallað um staðla. Hægt er að kaupa og taka upp staðla fyrir hitt og þetta í flestri starfsemi samfélagsins og tryggja þar með að bestu leiðir séu farnar við ákvarðanatöku og framkvæmd. Til dæmis eru til staðlar gegn mútum og annarri spillingu. Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs, var gestur. Tónlist: Bátarnir á firðinum - Haukur Morthens, Hann Tumi fer á fætur - Björgvin Halldórsson, Sagan af Sigga - Ragnheiður Gröndal, Minkurinn í hænsnakofanum - Ómar Ragnarsson, Ég ætla að mála allan heiminn elsku mamma - Kristín Lilliendahl. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Hagvöxtur og ámóta mælikvarðar eru gjarnan notaðir til að mæla ástand þjóðar og bera þjóðir saman. Mikilvægt er að mæla líka aðra þætti samfélagsins, svokölluð óáþreifanleg verðmæti sem eru t.d. líðan, heilbrigði og félagsauður. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, hefur rannsakað mælingar á hagsæld í víðum skilningi og telur rétt að slíkar mælingar verði teknar upp með formlegum hætti og setta fram með svipuðu móti og hagvöxturinn. Valdarán hafa verið framin í sjö Afríkuríkjum á síðustu þremur árum, nú síðast í Gabon og Níger. Geir Konráð Theodórsson býr í Eþíópíu en bjó áður í Níger. Hann sagði frá þessum valdaránum og ástandi mála í nokkrum ríkjanna. Flest eiga þau sameiginlegt að hafa verið nýlendur Frakka en þrátt fyrir sjálfstæði fyrir um 60 árum hafa Frakkar ekki alveg sleppt hendinni af stjórn landanna og meðferð auðlinda þeirra. Á húsnæðisþingi í síðustu viku var Arnhildur Pálmadóttir arkitekt heiðruð fyrir störf sín á sviði vistvænnar mannvirkjagerðar og -hönnunar. Hún ræddi vítt og breitt um efnið en brýnt er að hennar mati að huga að vistlegum þáttum á öllum stigum byggingaframkvæmda og endurnýta byggingarefni. Tónlist: The last farwell - Roger Whittaker, Kvennaskólapía - Ríó tríó, Umboðsmenn drottins - Jakob Frímann Magnússon. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson

Í upphafi þáttar var slegið á þráðinn til Róberts Arnar Stefánssonar, forstöðumanns Náttúrustofu Vesturlands. Hann átti glæsilega mynd af erni á forsíðu Morgunblaðsins á þriðjudag og sagði frá henni og stöðu arnarstofnsins. Nýliðinn júlímánuður var sá næstsólríkasti í Reykjavík frá upphafi veðurmælinga. Og mánuðurinn var þurr, en ekki sérlega hlýr. Kristín Björg Ólafsdóttir, sérfræðingur á sviði veðurfarsrannsókna á Veðurstofu Íslands, sér um að taka saman upplýsingar um tíðafarið í hverjum mánuði. Hún var gestur Morgunvaktarinnar og sagði frá tíðinni í sumar og hvernig staðið er að veðurfarsmælingum. Borgþór Arngrímsson ræddi dönsk málefni. Danir líkt og Svíar glíma við Kóranbrennur og eftirmál þeirra og leita leiða til að koma böndum á brennurnar. Borgþór sagði frá nýjustu vendingum í því máli og fleiru sem efst er á baugi í Danmörku. Í lok þáttar lá leiðin á Gjögraskaga, skagans milli Eyjafjarðar og Skjálfandaflóa sem sumir kalla Flateyjarskaga. Björn Ingólfsson, fyrrverandi skólastjóri á Grenivík, hefur skrifað bók um skagan, sem full er af fróðleik um fjöllina og dalina, bæina og lækina. Hann sagði frá. Tónlist: Western Island - Archie Fisher Djelem, djelem - Saban Bajramovic & Mostar Sevdah Reunion Fram í heiðanna ró - GÓSS Forårsdag - Anne Linnet Vor í Vaglaskógi - Vilhjálmur Vilhjálmsson og hljómsveit Ingimars Eydal Í sól og sumaryl - Bjarki Tryggvason og hljómsveit Ingimars Eydal Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir.

Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1 Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Ágústa Kolbrún Roberts er mikill brauðryðjandi í andlegum málum á Íslandi, en hún sprakk fyrst á samfélagsmiðlum þegar hún deildi myndböndum árið 2011 með andlegum hugleiðingum og hefur síðan þá tileinkað lífinu sínu í að aðstoða fólk með að tengjast sjálfum sér betur. Ágústa er jóga kennari og heilari og byrjaði vegferð hennar snemma eftir erfiða æsku þegar hún ferðaðist til Ítalíu og naut sína með indjánum í Ameríku aðeins tvítug. Við förum yfir allskonar viðfangsefni, meðal annars hvernig við þurfum að læra og skoða að sitja með okkur, foreldra okkur, tala fallega til okkar og þannig ná tökum á hver við erum innra með okkur. Við tölum um innsæið og andleg ferðalög ásamt svo mörgu öðru. Þið finnið Ágústu á samfélagsmiðlum, Instagram og Tiktok undir nafninu: @agustajoga - Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
Bogi Ágústsson fjallaði um verðbólgu og efnahag í Evrópu í Heimsglugga vikunnar. Bogi fór einnig yfir vandræði þýskra bílaframleiðenda og horfði til Suður-Asíu, Indlands og Bangladesj. Skjalasöfn hafa verið mikið í umræðunni undanfarin misseri, bæði málefni héraðsskjalasafna og Þjóðskjalasafns. Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður var gestur Morgunvaktarinnar og fór yfir starfsemi Þjóðskjalasafns og mikilvægi skjalasafna. Í lok þáttar var fjallað um Héðin Valdimarsson og Sigurjón Ólafsson. Fyrirhugað er að styttan af Héðni, sem Sigurjón gerði, fari aftur á stall sinn við Hringbraut í Reykjavík í næsta mánuði. Hún var tekin niður árið 2017 og var þá alls ekki gert ráð fyrir svona langri fjarveru. Tónlist: Endurfundir - Upplyfting Vindbarin vísa - Guðrún Gunnarsdóttir Á ég ást mína að játa? - Guðrún Gunnarsdóttir Bangla Desh - George Harrison Lífsbókin - Guðrún Gunnarsdóttir Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Spegillinn 13. júní 2023 Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstjóri netöryggissveitarinnar Certis telur líklegt að lokun sendiráðs Íslands í Moskvu sé ein ástæða þess að netárásir voru gerðar á opinbera stjórnsýslu og Alþingi í dag. Rætt við Guðmund og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur innviðaráðherra. Sólveig Klara Ragnarsdóttir tók saman. Utanríkisráðherra Dana segir mikilvægt að loka ekki á samskipti við Rússa, þó stríðsrekstur þeirra í Úkraínu sé óforsvaranlegur. Mikilvægt sé að norrænu löndin standi saman. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir tók saman. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað um 40 prósent á tólf mánuðum. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir að lækkunin skili sér ekki að fullu til íslenskra neytenda. Benedikt Sigurðsson ræddi við Runólf Ólafsson. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda segir að nýlegar lagabreytingar sem heimila stærri fiskiskipum að veiða nær landi en áður geti haft neikvæð áhrif á hrygningarslóðir þorsks. Höskuldur Kári Schram ræddi við Örn. Laxveiðisumarið fer vel af stað og veiðileyfi í bestu laxveiðiánum eru uppseld. Ágúst Ólafsson ræddi við Jón Helga Björnsson, formann Landssambands veiðifélaga, sem er ánægður með upphafsdagana. --------- Minnst ein jarðgöng verða ávallt í byggingu næstu áratugi, gangi samgönguáætlun eftir, þar á meðal ný Hvalfjarðargöng, göng undir Öxnadalsheiði og átta göng önnur. Byggja á flugstöð á Reykjavíkurflugvelli og ljúka við stækkun flugstöðvar á Akureyri. Þá á að útrýma einbreiðum brúm á helstu vegum á næstu 15 árum, en þær eru 80. Sunna Karen Sigurþórsdóttir ræddi við Sigurð Inga Jóhannsson innviðaráðherra um nýja samgönguáætlun, Ragnhildur Thorlacius tók saman. Fæðuöryggi er stefnt í hættu og heimsmarkaðsverð á matvælum á eftir að hækka vegna stíflunnar sem eyðilagðist í Úkraínu í síðustu viku, að mati sérfræðings Sameinuðu þjóðanna. Ásgeir Tómasson fjallar um málið. Fjársýsla ríkisins tilkynnti í fyrra að launahækkun 260 kjörinna fulltrúa og embættismanna hefði verið meiri en efni stóðu til, þar sem stuðst hafi verið við rangt viðmið er hún var reiknuð út. Fjársýslan ákvað þá að lækka laun þessa hóps, afturvirkt, sem nam reikningsskekkjunni. Dómarar eru ósáttir við þetta. Einn þeirra fór í mál við ríkið með stuðningi Dómarafélagsins og því eru allir dómarar vanhæfir til að dæma í málinu. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Kristbjörgu Stephensen, formann Dómarafélags Íslands, um þessa óvenjulegu st

Stýrivaxtahækkun Seðlabankans var harðlega gagnrýnd á Alþingi í dag. Ríkisstjórnin þurfi að bregðast við. Umboðsmaður skuldara telur blikur á lofti og ástæða sé til að hafa áhyggjur af þeim sem skulda mikið. Boris Johnson segir að það hefði verið ómögulegt að virða samkomutakmarkanir í Downingstræti 10 vegna þrengsla. Hann kveðst hafa sagt þinginu satt og rétt frá - eftir því sem hann vissi á sínum tíma. Oddviti Vinstri grænna í Hafnarfirði segir fullt tilefni til að krefjast íbúakosningar vegna hugmynda um förgun koldíoxíðs í Hafnarfirði. Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir aðgengi fatlaðs fólks að stafrænum lausnum vera ábótavant. Ráðherrar á Norðurlöndunum undirrituðu í dag yfirlýsingu um að bæta þar úr. Þjóðaröryggi snýst um fleira en varnir og varnarmál, þó að þau séu vissulega áleitin þegar barist er í Evrópu. Þjóðaröryggi snýst líka um samfélag, efnahag, umhverfi og stjórnmál segir prófessor í alþjóðasamskiptum . ----- Þjóðaröryggi felur í sér miklu meira en varnir lands þó að umræða um þær sé orðin áleitnari nú en hún hefur verið um langa hríð segir Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands. Hún var þátttakandi á ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í dag þar sem varpað var fram þeirri spurningu hvernig nýta megi alþjóðasamstarf til að tryggja öryggi þjóðar á breyttum tímum. Forsætis- og utanríkisráðherra ávörpuðu gesti í upphafi og nýleg heimsókn þeirra beggja til Úkraínu var þeim hugleikin. Utanríkisráðherra ræddi þar um hvað og hvernig Ísland gæti beitt sér þrátt fyrir og í krafti smæðar sinnar. Mikilvægt væri fyrir herlausa þjóð að verða verðugur þátttakandi á alþjóðavettvangi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Silju Báru Ómarsdóttur prófessor í alþjóðasamskiptum. Í gær var tilkynnt að loka eigi Ungmennabúðum Ungmennafélags Íslands á Laugarvatni. Ástæðan er sú að mygla greindist í húsnæðinu sem búðirnar hafa til umráða, gamli Íþróttakennaraskólinn á Laugarvatni. Dvöl í búðunum er oft mikið ævintýri fyrir börn í 9. bekk. Vikudvöl úti í sveit utan skarkala hversdagsins. Markmið með dvölinni er að styrkja félagsfærni ungmenna, efla vitund þeirra fyrir umhverfi sínu og samfélagi ásamt mikilvægi þess að hafa heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi. Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri Bláskógabyggðar segir að framtíð hússins verði ákveðin á fundi sveitarstjórnar á mánudag. Framkvæmdir yrðu of dýrar og það sé í raun ekki hlutverk sveitarfélaga að eiga og reka húsnæði sem nýtist starfsemi þess ekki. Hún segir líklegt að húsið verði auglýst til sölu á næstunni, en

Mikilvæg skilaboð að handan eru hvatinn að baki nýrri sýningu GJörningaklúbbsins sem opnar dyr sínar í Gallerí Porti um helgina. Þær Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir, sem hafa starfað saman í rúma tvo áratugi að listinni, hafa í auknum mæli nýtt sér sjáendur við upphaf sköpunarferlis, aðferð sem þær kalla miðil-miðil. Sýningin í Gallerí Porti mun hverfast um miðilsfund sem átti sér stað í húsi við Bergstaðarstræti 2019, í húsi Ásgríms Jónssonar listmálara. Á fundinum náðist samband við Ásgrím sem vildi koma mikilvægum skilabopðum á framfæri. Þær Eirún og Jóní hafa hingað til ekki opinberað miðilsfundina sjálfa en í þessu tilfelli vilja þær gefa fólki kost á að komast í þessa frumheimild. Við heyrum upptökur af miðilsfundinum og ræðum við listakonurnar í þætti dagsins. Kammerkór Norðurlands er á faraldsfæti þessa dagana, kórinn hefur starfað í yfir 20 ár og hefur frá stofnun haft að markmiði að flytja nýja íslenska kórtónlist, samhliða ýmsum öðrum verkefnnum og gefið út þrjá hljómdiska, síðast árið 2020, en þar er að finna ljóð Davíðs Stefánssonar við ný og eldri íslensk lög. Nú beinir kórinn sjónum sínum til Bandaríkjanna og flytur nokkur af nýrri kórverkum höfuðtónskálda Bandaríkjanna í bland við dægurlög í kórútsetningum. Meðlimir kórsins eru flestir tónlistarmenntaðir og/eða atvinnufólk í tónlist sem koma víða að af Norðurlandi, búsettir allt frá Kópaskeri að Hrútafirði og kórstjórinn, Við ræðum við Guðmund Óla Gunnarsson í þætti dagsins. Og að gefnu tilefni rifjum við upp umfjöllun um konur sem tengdust hreyfingu súrrealista á fyrri hluta síðustu aldar. Umsjón: Halla Harðardóttir og Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir

Dominykas Milka ræðir við Davíð Eld ritstjóra Körfunnar um mikilvæga leiki landsliðsins gegn Spáni og Georgíu, nýjustu vendingar í NBA deildinni, reglur um leikmannaskipti í deildum Evrópu og margt fleira.Social Chameleon er í boði Kristalls, Lykils og Subway.
Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur og varþingmaður. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um hlutverk ríkisnis, Mikilvægi þess að vera hugrakkur, fasisma, frelsi og fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/
Dr. Football fékk þá Davíð Lúther og Atla Fannar Bjarkason til að ræða mikilvægi So-Me fyrir íþróttafélög og landslið.
Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Söngvarinn og þjóðargersemin Jón Jónsson settist niður með mér korter í jól og ég fékk aðeins að forvitnast um manninn sem við þekkjum öll sem ljósbera í íslensku samfélagi. Það sem mér fannst magnaðast hvernig hann deilir því hvernig ásetningur hans að vera góður við náungann hefur í raun og veru gefið honum aukin lífsgæði ásamt því að hann gleðji fólkið sem hann mætir og skemmtir. Ég forvitnast inní hver lykillinn er að 20 ára sambandi og hjónabandi ásamt því hvernig þau hjón takast á við að eiga fjögur börn með tilheyrandi vinnum og verkefnum. Jón er eins stórkostlegur einstaklingur og við sjáum á skjánum og hlustendur fá eflaust að kynnast honum á örlítið dýpri hátt í þessum þætti. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
Börn á meðferðarheimilinu Laugalandi í Eyjafirði voru beitt andlegu og líkamlegu ofbeldi, að því er fram kemur í nýrri skýrslu. Í viðtölum sögðust fjölmörg börn hafa upplifað óttastjórnun, harðræði og niðurbrot. Ekki hafa færri kórónuveirutilfelli greinst á heimsvísu frá í mars 2020. Forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar segir endalok faraldursins í sjónmáli. Pétur Magnússon tók saman. Magdalena Andersson forsætisráðherra Svíþjóðar hefur viðurkennt ósigur eftir þingkosningar um helgina. Hún boðaði afsögn sína á blaðamannafundi síðdegis. Fylking hægri flokka á nú í stjórnarmyndunarviðræðum. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir sagði frá. Stjórn Dýraverndarsambands Íslands styður aukið eftirlit með hvalveiðum. Stjórnarmaður í sambandinu segir mikilvægt að gögn sem fáist með eftirlitinu verði gerð opinber. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við Sigurstein Másson, stjórnarmann í Dýraverndarsambandinu. Starf alþjóðlegu mannúðarsamtakanna Læknar án landamæra er ekki algjörlega áhættulaust en reynslan sem fæst engu lík, segir Helena Jónsdóttir starfsmaður samtakanna. Amanda Guðrún Bjarnadóttir tók saman. Um 200 heilbrigðisstofnanir og yfir 1.400 sérfræðingar í heilbrigðismálum hafa undirritað áskorun á ríki heims um að gera bindandi samkomulag um að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Þeir segja mannkynið verða að velja á milli heilsunnar eða jarðefnaeldsneytis. Róbert Jóhannsson sagði frá. Fasteignamarkaðurinn er að stillast og íbúðum í sölu að fjölga, en þörf fyrir íbúðarhúsnæði er mikil og ekki útlit fyrir að úr henni dragi segir aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka. Evrópusambandið ætlar að skattleggja arðgreiðslur orkufyrirtækja og nota peninginn til að lækka svimandi orkureikninga heimila og fyrirtækja. Orkuverð í Evrópu hefur rokið upp eftir að Rússar takmörkuðu gassölu til álfunnar. Á sama tíma skila orkufyrirtæki methagnaði. Alexander Kristjánsson sagði frá. Mikilvægt er að huga að heilbrigðisstarfsfólki þegar alvarleg atvik koma upp í heilbrigðisþjónustu, segir formaður fagráðs Landspítala. Fagráð Landspítala stóð fyrir málþingi um alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu í dag. Kristín Sigurðardóttir ræddi við Mörtu Jóns Hjördísardóttur, formann fagráðs Landspítala. Umsjónarmaður: Alexander Kristjánsson. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Kristín Björg Viggósdóttir fékk þau Viðar Halldórsson og Guðlaugu Ingibjörgu Þorsteinsdóttur í spjall um tilgang íþróttaiðkunar fyrir börn. Þau ræddu aðgengi barna að íþróttum og hvernig íþróttir gætu verið meira á forsendum barnanna frekar en á forsendum íþróttagreina. Til að mynda hefur sýnt sig að börn innflytjenda taka síður þátt í íþróttum og stelpur síður en strákar. Einnig getur verið flókið fyrir börn með tvö lögheimili að stunda íþróttir. Þá ræddu þau um mismunandi styrkleika barna, hversu óþarft og skaðlegt það getur verið að umbuna eða veita börnum á yngri árum verðlaun fyrir afrek í íþróttum. Hvernig getum við foreldrar sýnt góð og styðjandi viðbrögð við frammistöðu barnsins í íþróttum? Mikilvægt sé að ræða við börnin um hvernig þeim leið í keppni. Að lokum var rætt um skólasund og skólaíþróttir og hvað mætti betur fara þar.Viðar Halldórsson er prófessor í félagsfræði og hefur einnig starfað sem ráðgjafi fyrir mörg af bestu íþróttaliðum landsins. Viðar hefur rannsakað og skrifað um félagslegar forsendur árangurs. Viðar hefur látið til sín taka í umræðu um afreksvæðingu íþrótta á Íslandi en til eru margar greinar eftir hann og viðtöl við hann. Nýlega skrifaði Viðar bók um stemningu og liðsheild í íþróttum fyrir breska útgáfufyrirtækið Routledge. Bókin heitir Sport in Iceland: How small nations achieve international success og er meðal annars til á Amazon.Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir íþrótta- og lýðheilsufræðingur starfar hjá geðheilsuteymi Höfuðborgarsvæðisins. Guðlaug spilaði lengi íshokkí og var íþróttastjóri og þjálfari hjá Skautafélagi Reykjavíkur. Að auki hefur Guðlaug þjálfað börn og fullorðna í íþróttum og heilsurækt. Þess má geta að Guðlaug er fyrrum nemandi Viðars úr íþróttafræði í HR.
Í þessum þætti ræði ég ákveðið málefni sem ég tel hafa fengið of aðeins of litla athygli. Þá sérstaklega hjá þeim sem stunda reglulega þjálfun og hreyfingu. Þetta eru sölt og steinefni. Í þættinum ætla ég að fara yfir hvað þetta er nákvæmlega, afhverju þetta ætti að skipta þig máli, hvort þú ættir að auka inntöku eða minnka inntöku á þessum efnum, hvernig þá og af hverju. Sömuleiðis fer ég yfir af hverju ég er ósammála hefðbundnum ráðleggingum um að við ættum að lágmarka saltneyslu fyrir bætta heilsu.
Sterarkastið X Patreon LFG! Það eru tvær ástæðu fyrir því að við ætlum að byrja að punga út auka þáttum á Patreon: 1. We need dat lambo 2. Ef að við þrengjum aðeins hópinn okkar þannig að #HornyGang members eru einu hlustendurnir að þá getum við leyft okkur að go-a aðeins harðar þegar að það kemur að því að go stupid on-em. Við höldum áfram að gefa út 1 þátt á viku en við gefum líka út 2 auka þætti á mánuði á Patreon. Þessi þáttur er góður! En sorry með mig, nmr. 69 sem að er kominn á Patreon er betri. www.patreon.com/sterakastid
Dr. Matthew Walker er prófessor við Berkeley háskóla og sérfræðingur í svefni, sálfræði og taugalífeðlisfræði. Fókus þáttarins eru aðstæðurnar sem Íslendingar lifa við, áhrif þessara aðstæðna á svefninn okkar og hvað við getum gert til að jafna leikinn. Gefðu þér klukkutíma til að hlusta á þáttinn áður en þú grípur næsta kaffibolla í svartasta skammdeginu. Umræðuefni eru meðal annars: Mikilvægi svefns á mismunandi æviskeiðum Koffíndrykkja (kaffi vs. orkudrykkir og hvernig skal hámarka ávinning/lágmarka skaða koffíns) Sólarljós og líkamsklukkan Testesterón og vaxtarhormónar Svefn sem varnarhlið andlegra kvilla (sérstaklega fyrir ungmenni) Af hverju það er álitið leti að vilja sofa lengur