POPULARITY
Helgi Pétursson, eða Helgi Pé eins og hann er jafnan kallaður, kemur upprunalega úr Kópavoginum og hefur lengst af verið kenndur við Ríó Tríó, en þeir félagar stofnuðu hljómsveitina kornungir. Undanfarin ár hefur hann starfað fyrir Landsamband eldri borgara og hefur látið að sér kveða á þeim vettvangi, en er nú að hætta störfum sem framkvæmdastjóri sambandsins. Við buðum Helga velkomin sem föstudagsgest og fórum með honum yfir það helsta eftir þessi fjögur ár hjá LEB, svo fórum við aftur í tímann og hann rifjaði upp hvernig hann og Ólafur Þórðarson byrjuðu að spreyta sig á tónlist og söng fyrir 10 ára aldur. Svo fengum við að vita hvað er framundan hjá Helga. Í matarspjalli dagsins ákváðum við að tala um mat sem byrjar á M af því nú er maímánuður nýhafinn. Maís, mangó, marhnútur og marengs til dæmis. Við fengum ábendingar frá hlustendum og rifjuðum upp erfiða lífsreynslu tengda keppni í marengstertugerð. Tónlist í þættinum í dag: Alltaf einn / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Þegar hjartað segir frá / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Létt / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Umfangi heimilisofbeldis gegn konum á Bretlandseyjum hefur verið lýst sem neyðarástandi. Talið er að tvær milljónir breskra kvenna verði fyrir einhvers konar ofbeldi á ári hverju. Undanfarin ár er að meðaltali ein kona drepin þriðja hvern dag á Bretlandseyjum. Blaðamaður hjá Guardian, sem hefur tekið saman upplýsingar um kvennamorð það sem af er ári, segir að refsingar við morði innan veggja heimilis séu alla jafna mun vægari en þegar konur eru drepnar á götum úti. Svo heyrum við af heimsókn Björns Malmquist fréttamanns á belgíska náttúruminjasafnið í Brussel þar sem hann stóð augliti til auglitis við síðasta geirfuglinn, sem talið er að hafi verið drepinn í Eldey fyrir rúmum 180 árum - sumarið 1844. Björn talaði við Gísla Pálsson, fyrrverandi prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, sem hefur fjallað ítarlega um sögu og útdauða geirfuglsins. Hann segir geirfuglinn og sögu hans svo mikilvæga því hún sannfærði menn um að aldauði af mannavöldum væri stórt vandamál og því þyrfti að snúa vörn í sókn.
Marta Nordal leikhússtjóri hjá LA, hún er að söðla um og verður sérfræðingur í sviðslistum í Menningar- og Viðskiptaráðuneytinu. Hún segir frá námi sínu i Bristol, heimkomu og stofnun Aldrei stelandi sem hún og Edda Björg Eyjólfsdóttir stofnuðu. Undanfarin 6 ár hefur hún verið listrænn stjórnandi LA, og loka sýningin á hennar vegum var And Björk of course. Tónlist: Love´s in need for love today - Stevie Wonder Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann að venju upp úr klukkan hálf átta. Á dögunum var póstsending frá Færeyjum opnuð. Það er kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að pakkinn var 214 ára gamall -- meira af því á eftir. Bogi ræddi líka um kosningarnar um helgina í Portúgal og um framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Töluvert er rætt um kynþáttafordóma á Íslandi þessa dagana. Á föstudag hefst Hugvísindaþing í Háskóla Íslands, og meðal þess sem þar verður rætt um eru sögulegar rætur kynþáttahyggju. Kristín Loftsdóttir mannfræðingur er ein þeirra sem hafa rannsakað þessi mál og hún var gestur okkar eftir morgunfréttirnar klukkan átta. Undanfarin ár hafa boðið upp á margar áskoranir fyrir Reykjanesið og ferðaþjónustan hefur fundið fyrir því. Eyþór Sæmundsson verkefnastjóri miðlunar og markaðssetningar hjá Markaðsstofu Reykjaness kom á Morgunvaktina og ræddi um Reykjanesið sem áfangastað fyrir ferðamenn. Ongi orð - Døgg Nónsgjógv. Andakt - Haraldur Þorsteinsson, Björgvin Gíslason, Ásgeir Óskarsson. Farin - Jónas Gaard og Sigríð.
Í þættinum hittir Víðsjá mynslistakonuna Tinnu Royal á vinnustofu sinni á Akranesi. Undanfarin ár hefur Tinna vakið nokkra athygli fyrir afar fjölbreytt verk. Allt frá málverkum til höggmynda af kleinuhringjum og nammiumbúðum til lágmynda af ryðguðum húsum til eyrnalokka og jólaskrauts. Sýningin Orðið var opnuð um liðna helgi í Neskirkju en þar sýnir Jóna Hlíf Halldórsdóttir úrval verka sem hún hefur unnið á undanförnum árum. Í verkum sínum vinnur Jóna Hlíf með tungumálið í allri sinni breidd og dýpt. Innblásturinn sækir hún oft á tíðum í forna bókmenntatexta sem hún nýtir, meðal annars, til að varpa ljósi á málefni samtímans. Sjálf segist hún í kjarnann alltaf vera að skoða hvað það þýði að vera manneskja. Við lítum við á sýningunni í þættinum. Nýtt TMM kom út fyrir skemmstu og þar er að finna þýðingu á ljóði eftir palestínska ljóðskáldið Refaat Alareer en hann var drepinn í loftárás ísraelsmanna þann 6. Desember síðastliðin. Þórdís Helgadóttir þýddi ljóðið fyrir tímaritið og flytur í þættinum. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson
Einelti og áreitni á vinnustöðum er erfitt fyrirbæri sem eyðileggur starfsanda, dregur úr starfsánægju og spillir árangri verkefna. Einnig dregur þetta ástand úr sálrænu öryggi fólks á vinnustað og getur orðið til þess að hæft starfsfólk flæmist út af vinnumarkaði og andleg og líkamleg heilsa getur verið í hættu. Það getur reynst erfitt að greina vandann en það gerir einmitt Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur og hún kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá því hvað hægt er að gera í svona tilvikum. Undanfarin ár hefur hugtakið gigg- hagkerfið hljómað í auknum mæli,sérstaklega á Covid tímabilinu og í kjölfar þess. Talsverður fjöldi fólks kýs að vinna ekki í svokölluðum 9-5 vinnum heldur í verkefnum, eða giggum. Þetta getur verið tónlistarfólk, sviðslistafólk, fólk í ýmis konar iðnaðarstörfum, bílstjórar, sérfræðingar í hundalabbi og fleiri. Aron Bergmann Magnússon, sem hefur unnið við fjölbreytt gigg-störf og Önnu Katrínu Halldórsdóttur, frá Alfreð.is, komu í þáttinn og töluðu um að vinna á þessum forsendum. Þau sögðu okkur frá nýja appinu Giggó, sem er eins konar markaðstorg fyrir gigg, hvort sem fólk er að leita eftir einhverjum til að vinna verk fyrir sig, eða er að leita sér að verkefnum. Jóhanna Vilhjálmsdóttir kom svo til okkar í heilsuspjall í dag. Hún ætlar að tala í dag um ilmefni í kremum, þvottaefnum og fleiru. Hún sagði til dæmis frá þalötum, sem eru mjög víða, aðallega í plastefnum og ilmefnum og geta haft talsverð áhrif á okkur. Tónlist í þættinum í dag: Fjórir kátir þrestir / Egill Ólafsson og Edda Heiðrún Backman (erlent lag, texti e. Jón Sigurðsson) Lipurtá / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Allentown / Billy Joel (Billy Joel) Mississippi / The Cactus Blossoms (Jack Torrey) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Yfirvöld í einræðisríkinu Sádi-Arabíu eru sökuð um íþróttaþvætti (sportswashing á ensku) með því að setja fjármuni í íþróttir víða um heim til að bæta ímynd sína. Þetta hefur víða heppnast vel frá þeirra sjónarhóli. Eitt dæmi um þetta er að síðasta sumar komu margir af bestu knattspyrnumönnum heims í lið í sádiarabísku deildinni gegn himinháum launum. Sú tilraun virðist ekki ganga vel og farið er að bera á ósætti og jafnvel brotthvarfi leikmanna. Hallgrímur Indriðason skoðar ástæðurnar fyrir því, og hvaða áhrif það hefur. Meira en helmingur af heimsbyggðinni gengur að kjörborðinu á þessu ári, rúmlega fjórir milljarðar manna. En þrátt fyrir það á lýðræðið mjög undir högg að sækja, því víða er ekki gert nóg til að tryggja frjálsar og sanngjarnar kosningar. Kjördagur er bara toppurinn á ísjakanum, fyrir þau sem fylgjast með og hafa eftirlit með kosningum í aðildarríkjum ÖSE - Öryggis og samvinnustofnunar Evrópu. Þetta eru þau sammála um, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrum yfirmaður hjá ÖSE, og Albert Jónsson, fyrrum sendiherra í þessari umfjöllun Björns Malmquist. Undanfarin ár hafa þau bæði leitt hópa sérfræðinga sem aðildarríki samtakanna hafa boðið að koma og meta undirbúning og framkvæmd kosninga, en ekki síður hvort stjórnvöld í viðkomandi ríki sjái til þess að stjórnmálaflokkar hafi jöfn tækifæri til að koma sínum málstað á framfæri; hvort kjósendur hafi forsendur til að taka upplýsta ákvörðun. Með öðrum orðum: hvort lýðræðið virkar.
Sigríður Þorgeirsdóttir er heimspekingur og prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands. Hún lagði stund á fagið í Boston og Berlín þaðan sem hún lauk doktorsprófi 1993 og fjórum árum síðar varð hún fyrst kvenna til að verða fastráðinn kennari í heimspeki við Háskóla Íslands. Á ferli sínum hefur Sigríður leitast við að stunda rannsóknir á heimspeki sem byggir á reynslu og upplifun; lífinu sjálfu. Hún hefur rannsakað þátt kvenna í sögu heimspekinnar og sýnt að konur hafa allt frá fornöld lagt stund á fagið þó lítið verið gert úr framlagi þeirra í hugmyndasögu fræðanna. Undanfarin misseri hefur Sigríður staðið fyrir heimspekigjörningnum Minisophy eða Smáspeki sem rannsakar heimspekilega vídd hversdagslegra fyrirbæra, en innan háskólans hefur hún leitt rannsóknarverkefnið Líkamleg gagnrýnin hugsun eða Embodied Critical Thinking, verkefni sem endurnýjar aðferðir heimspekilegrar hugsunar með að hugsa markvisst út frá reynslu.
Ein helsta sérstaða fríríkisins Kristjaníu í Kaupmannahöfn er gatan Pusherstræti, þar sem lengi fór fram sala á hassi fyrir opnum tjöldum án verulegra afskipta yfirvalda. Undanfarin ár hafa yfirvöld haft sífellt meiri afskipti af Pusherstræti og nú bendir allt til þess að þessi kannbissala hætti alfarið. Hallgrímur Indriðason skoðar hvað skýrir þessa breytingu og hvaða áhrif hún hefur á þróun og tilvist fríríkisins. Eins og staðan er núna er líklegast að tvö afar kunnugleg nöfn standi á kjörseðli Bandaríkjamanna á næsta ári þegar velja á nýjan forseta.En nýr verður forsetinn kannski ekki því flest bendir til þess að þeir Joe Biden og Donald Trump berjist aftur um búsetu í Hvíta húsinu næstu fjögur árin. En hvernig má það vera að í þessu fjölmenna og stóra landi standi valið aftur á milli núverandi forsetans, sem er nú þegar orðinn sá elsti til að gegna embættinu og þrír af hverjum fjórum Bandaríkjamönnum vilja ekki að bjóði sig aftur fram. Hinn valkosturinn er svo fyrrum forsetinn sem hefur verið í fullri vinnu síðan hann lét af embætti að svara fyrir ýmsar sakir í dómssölum. Eða eru þeir tveir kannski bara best til þess fallnir að stýra landinu? Birta og Bjarni Pétur spá í spilin nú þegar ár er til kosninga þar vestra. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

16. október 2023 Vígasveitir Hamas-samtakanna hafa varpað fjölda eldflauga á Tel Aviv og Jerúsalem síðustu klukkustundir. Samtökin segja árásirnar svar þeirra við árásum Ísraela á saklausa borgara. Þó nokkrir bjuggu í iðnaðarhúsnæði í Reykjavík sem kviknaði í síðdegis. Einn var fluttur á sjúkrahús. Maður sem bjó í húsinu hljóp út þegar hann heyrði í brunabjöllu. Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar segir Agnesi M. Sigurðardóttur ekki hafa verið með umboð til að víkja Gunnari Sigurjónssyni úr embætti sóknarprests við Digraneskirkju. Nefndin fellst ekki á að biskup geti verið ráðinn með ráðningarsamningi. Ég mun vanda mig eins vel og ég mögulega get, segir nýr fjármálaráðherra um framhald á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka, það sé forgangsverkefni. Miklar breytingar voru gerðar á norsku ríkisstjórninni í dag. Helsta ástæðan fyrir breytingunum er slakt gengi Verkamannaflokksins í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Þrír ráðherrar hverfa úr ríkisstjórninni. Launaþjófnaður frá aðfluttu og ungu launafólki hleypur á hundruðum milljóna króna hér á landi á hverju ári. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu ASÍ. ------------- Sameinuðu þjóðirnar segja að heilbrigðiskerfið á Gazasvæðinu sé að hrynja fyrir augum heimsins. Hundruð tonna af hjálpargögnum bíða við landamæri Egyptalands og Gaza. Ofbeldisgáttin 112.is varð til í covidfaraldrinum þegar erfitt var að nálgast upplýsingar í eigin persónu og yfirvöld hér líkt og víða annars staðar höfðu áhyggjur af vaxandi heimilisofbeldi og að fólk vissi ekki hvert hægt væri að leita til að fá aðstoð. Eygló Harðardóttir er verkefnastjóri afbrotavarna hjá Ríkislögreglustjóra sem hefur unnið með Neyðarlínunni að gáttinni. Undanfarin ár hafa verið annasöm hjá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Hver stóratburðurinn rekið annan. En hvernig fylgjast Almannavarnir með með breytingum í náttúrunni, til að búa sig undir það sem verða vill. Björn Oddsson er fagstjóri hjá Almannavörnum Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Júlía Margrét Ingimarsdóttir.

Verjandi 17 ára stúlku sem sætir gæsluvarðhaldi vegna morðsins í Hafnarfirði furðar sig á því að henni skuli ekki hafa verið sleppt eftir yfirheyrslur í gærkvöld. Hún sé vitni í málinu, ekki gerandi. Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir að hjúkrunarfræðingar sýni stjórnvöldum rauða spjaldið með því að samþykkja naumlega fyrsta kjarasamninginn í tíu ár. Koma verði í veg fyrir flótta úr stéttinni. Ofbeldisbrotum, og sérstaklega brotum þar sem hnífum er beitt, hefur fjölgað mikið síðustu misseri. Afbrotafræðingur segir að bregðast verði hart við en það sé ekki rétt að setja ungt fólk í fangelsi. Það geri það ekki að betri manneskjum. Tíu ár gæti tekið að byggja upp riðulausa sauðfjárstofna á Íslandi. Þetta sýna frumniðurstöður Landbúnaðarháskóla Íslands. Ólöf Rún Erlendsdóttir ræddi við Jón Hjalta Eiríksson. ------ Undanfarin misseri hefur fjölgað mjög brotum þar sem vopnum er beitt, sérstaklega hnífum. Fjögur ungmenni voru handtekin fyrir helgi, grunuð um að hafa orðið manni að bana í Hafnarfirði á fimmtudagskvöld. Þau sæta gæsluvarðhaldi til fmmtudags. Þrjú þeirra eru ekki orðin átján en það fjórða er á nítjánda ári. Maðurinn var stunginn oftar en einu sinni með hnífi og lést af sárum sínum. Árásin var tekin upp á myndband sem lögregla hefur undir höndum og hún telur sig hafa nokkuð skýra mynd af því sem gerðist. Heimildir fréttastofu herma að samskipti ungmennanna og mannsins sem lést hafi byrjað á bar í grenndinni og færst svo yfir götuna á bílastæðið við Fjarðarkaup. Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur og dósent við Háskóla Íslands, telur þetta mál dæmi um ógnvekjandi þróun sem sjáist víðar en hér, en hún varar við refsigleði. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Margréti. Mörg okkar eiga erfitt með að lesa, skrifa og stafa. Lesblinda háir mörgum í námi, leik og starfi allt frá æsku. En því fyrr sem brugðist er við, því betra. Rúmlega fimmta hvert ungmenni á aldrinum átján til tuttugu og fjögurra ára er með lesblindu. Þetta segja niðurstöður nýrrar rannsóknar á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Hvernig gengur skólakerfinu að takast á við lesblindu? Ásdís Aðalbjörg Arnalds er forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Bjarni Rúnarsson ræðir við hana. Engar vísbendingar eru um að stríðandi fylkingar í Súdan ætli að leggja niður vopn þrátt fyrir tilraunir margra þjóðarleiðtoga til að stilla til friðar. Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði þegar hann kom til fundar með utanríkismálaráði sambandsins í Lúxemborg í morgun að hann hefði verið í samb

Það er margt sem bendir til þess að ýmsar pestir herji nú af meiri krafti á samfélög sem gripu til sóttvarnaraðgerða þegar covid faraldurinn var í hámæli. Undanfarin tvö ár fækkaði t.d. mjög tilfellum inflúensu og RS vírus svo dæmi séu tekin. En nú virðast hinar og þessar pestir vera á fleygiferð - kannski eðlilega. Og svo virðist covid vera mallandi í samfélaginu líka. Sigríður Dóra Magnúsdóttir er framkvæmdastjóri lækninga hjá heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins. Hún fer yfir þessi mál með okkur. VIð ræðum svo við líffræðiljósmyndarann Svanhildi Egilsdóttur í dýraspjalli dagsins, hún starfar hjá Hafró og eitt hennar hlutverka er einmitt að mynda þær fjölbreyttu lífverur sem tengjast hafinu, ekki auðvelt verkefni enda þurfa lífverurnar helst að vera lifandi og ferskar - sem þýðir að Svanhildur þarf oft að vinna sín ljósmyndastörf út á rúmsjó. Svanhildur elskar líka fjörurferðir og segir fjöruferðir vera allra meina bót - og vill auka veg þeirra með aukinni fræðslu og þekkingarmiðlun. Hingað kemur líka Gunnar Dofri Ólafsson hjá Sorpu. Hann ætlar að segja okkur allt um stóru húsasorpsrannsóknina sem er í gangi núna. Þá er kafað djúpt í heimilissorpið og það greint í smæstu smáatriði. Svo verður málfarsmínútan á sínum stað.

Raddir margbreytileikans – 32. þáttur: „Andstæð sjónarmið skapa óvissu kringum rannsóknarstarf safna“ Ólöf Gerður Sigfúsdóttir fæddist 13. desember 1975 á Sauðárkróki. Hún lauk BA prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og MA í sömu grein árið 2002 frá Chicago háskóla og lauk síðan doktorsprófi í safnafræði frá Háskóla Íslands í október 2022. Í þessum þætti er rætt um doktorsritgerð Ólafar Gerðar, sem og mannfræðirannsóknir hennar. Doktorsritgerð Ólafar Gerðar beinir sjónum að rannsóknahlutverki opinberra safna, en rannsóknastarf safna er gjarnan hulið safngestum og fellur oft í skuggann af öðrum starfsþáttum eins og söfnun, skráningu, varðveislu, miðlun og fræðslu. Þannig miðar verkefnið að því að draga fram rannsóknir sem einn af grunnþáttum faglegs safnastarfs og skapa gagnrýna umræðu um hvað felst í því að stunda rannsóknir á safni. Mörg söfn, hvort sem er hér á landi eða erlendis, segjast ófær um að sinna þeim grunnþætti sem rannsóknir eru vegna skorts á starfsmönnum, tíma og fjármagni, meðan önnur líta á rannsóknir sem innbyggðan hluta af öllu því daglega starfi sem fer fram á söfnum. Þessi tvö andstæðu sjónarmið skapa andrúmsloft óvissu kringum rannsóknastarf safna, sem aftur á móti leiðir til óræðni um hvað telst til rannsókna á söfnum og hvað ekki. Doktorsritgerðin varpar ljósi á þessa óræðni með því að kanna hvernig þekking er sköpuð og henni miðlað á söfnum. Ritgerðin er byggð á fjórum ritrýndum tímaritsgreinum sem samanlagt móta mynd af safnarannsóknum gegnum fjögur sjónarhorn: hið safnafræðilega, hið stofnanalega, hið sýningarstjórnunarlega og hið þekkingarfræðilega. Undanfarin ár hefur Ólöf Gerður verið virk í opinberri umræðu um myndlist, söfn og rannsóknarpólitík hér á landi og tekið þátt margvíslegu starfi sem tengist söfnum og safnarannsóknum og tengslum þeirra við listir.
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum þætti ræða þær við Edythe Mangindin ljósmóður um upplifun erlendra kvenna sem fæða börn hér á landi. Edythe er fædd og uppalin í San Francisco í Kaliforníu en foreldrar hennar komu upphaflega frá Filippseyjum. Hún flutti til Íslands árið 2009. Hún fékk áhuga á að læra ljósmóðurfræðina í kjölfar þess þegar hún gekk sjálf í gegnum fæðingu fyrsta barns hennar. Hún byrjaði í hjúkrunarfræðinámi á íslensku strax á öðru ári sínu á landinu og lærði um leið íslenskuna. Eftir að hafa lokið hjúkrunarfræðinámi bætti hún við tveim árum til að verða ljósmóðir. Undanfarin fjögur ár hefur hún unnið á deildum sem sinna konum fyrir og eftir fæðingu. Hún er meðal annars alþjóðlegur IBCLC brjóstagjafaráðgjafi og er núna í doktornámi þar sem viðfangsefnið er upplifun erlendra mæðra af mæðravernd og fæðingum á Íslandi. Edythe fjallar um niðurstöður rannsókna og fer meðal annars yfir fæðingar-útkomu og upplifun kvenna af fæðingum og barneignarferlinu. Hverjar eru helstu hindranir tengdar aðstæðum og kerfinu og hvernig tryggjum við jafna, örugga og einstaklingsmiðaða þjónustu? Túlkaþjónusta, réttindamál, félagsleg tengsl, menningarhæfni og margt fleira með Edythe. The midwives Stefanía Ósk and Sunna María are back and for the first time in English, a language they aren't that great in but thankfully Edythe M. Mangindin, did most of the talking. In this episode, Edythe, a woman of many titles but first and foremost a Filipino-American-Icelandic wife, mother, nurse and midwife, talks about the outcomes and experience offoreign women who receive maternity care in Iceland. How do we ensure respectful, safe and equal care for women of foreign origin? This and other important questions will be discussed in today's episode.
Smá bónus fyrir Poppsálarhlustendur. Hér fáiði þátt um heimili fyrir "vandræða" unglinga sem ofurstjarnan Paris Hilton var vistuð nauðug á. Undanfarin ár hefur Paris vakið athygli á ofbeldinu sem þrífst á þessum heimilum. Rætt verður um reynslu Paris af svona unglingaheimilum og sagt frá hræðilegu ofbeldi og vanrækslu sem á sér stað á þessum heimilum, sem flest öll eru í Utah í Bandaríkjunum.
Hér fáiði þátt um heimili fyrir "vandræða" unglinga sem ofurstjarnan Paris Hilton var vistuð nauðug á. Undanfarin ár hefur Paris vakið athygli á ofbeldinu sem þrífst á þessum heimilum. Rætt verður um reynslu Paris af svona unglingaheimilum og sagt frá hræðilegu ofbeldi og vanrækslu sem á sér stað á þessum heimilum, sem flest öll eru í Utah í Bandaríkjunum. Þetta er aukaþáttur fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Hægt er að gerast áskrifandi og nálgast fleiri aukaþætti hér: https://www.patreon.com/Poppsalin
Böðvar Sturluson flutningabílstjóri þekkir lífið á veginum betur en flestir. Hann var varla farinn að tala þegar hann var orðinn svo heillaður af vörubílum að ekkert annað komst að. Hann reyndi að fara aðrar leiðir í lífinu en þessi óbilandi áhugi á vélum og vörubílum hafði betur. Undanfarin àr hefur hann glímt við nýrnabilun á lokastigi sem gerði það að verkum að hann var bundinn við nýrnavél hálfan sólarhringinn. Í byrjun síðasta árs öðlaðist hann nýtt líf þegar hann fékk nýtt nýra.

Á plötunni Persian Path frá árinu 2020 renna saman íslensk og írönsk þjóðlagatónlist í útsetningum tónlistarmannsins Ásgeirs Ásgeirssonar. Undanfarin ár hefur Ásgeir sótt sinn tónlistarlega innblástur austur til Balkansskaga og Mið-Austurlanda. En bakgrunnurinn er öllu hefðbundnari vestrænt popp og rokk hér heima. Við ræðum við Ásgeir Ásgeirsson um tónlist þessara ólíku menningarheima í lok þáttar. Aðdráttarafl Verksmiðjunnar á Hjalteyri á listamenn er óumdeilanlegt. Staðsetning hennar á jaðrinum, hvort sem miðað er við íslenskan eða alþjóðlegarn listheim, í rústum gamals síldarævintýris, sveipar hana ákveðnum ljóma. Hún á þátt í að skapa ímynd sem hið fullkomna listamannarekna rými þar sem starfsemin er óháð stigveldi, stofnunum og pólitískum áformum um uppbyggingu. Svo segir í texta listfræðingsins Margrétar Elísabetar Ólafsdóttur í bók sem er nýkomin út; Draumarústir. Útgáfan fagnar 10 ára afmæli Verksmiðjunnar á Hjalteyri, við ræðum við Margréti Elísabetu í þætti dagsins . Einnig fáum við sendingu frá Feneyjum. Hópur nýtúrskrifaðra listfræðinga, listamanna, kvikmyndafræðinga, listheimspekinga og menningarmiðlara dvelja nú í Feneyjum og sjá um íslenska skálann á Feneyjatvíæringnum. Næstu vikur munu Víðsjá berast pistlar frá þessum hópi þar sem þau segja okkur frá tvíæringum og því sem hæst ber í listheiminum um þessar mundir. Fyrsti pistillinn berst frá Eyju Orradóttur kvikmyndafræðingi. Eyja veltir fyrir sér myndbandsverkum á hátíðinni, framsetningu verkanna og miðlinum sjálfum. Á myndbandsmiðillin vel við á hátið þar sem gestir ráfa um og skoða verk tilviljunarkennt og í stutta stund? Heyrum þær vangaveltur hér á eftir. En við byrjum í leikhúsinu. Eva Halldóra Guðmundsdóttir fór að sjá Heimferð, brúðuleikhús sem fer fram í húsbíl sem ferðast um landið. Það er brúðuleikhúshópurinn Handbendi, sem skapar þessa sýningu, en hópurinn hefur aðsetur á Hvammstanga er er handhafi Eyrarrósarinnar. Umsjón: Halla Harðardóttir og Jóhannes Ólafsson

Undanfarin ár hefur vantað um þúsund manns til starfa í byggingariðnaði á Íslandi. Á sama tíma eru langir biðlistar eftir því að hefja nám í iðngreinum. Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar, ræddi stöðu iðnnáms. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá raunum breskra fótboltaunnenda í París, áframhaldandi vandræðum Boris Johnsons forsætisráðherra vegna partístands í Covid-lokunum og sjötíu ára ríkisafmæli Elísabetar Bretadrottningar í Lundúnaspjalli dagsins. Tré sem einkenna öll Norðurlöndin verða gróðursett í nýjum trjálundi í Kópavogi í tengslum við 100 ára afmæli Norræna félagsins á Íslandi. Tryggvi Felixson, formaður Landverndar og stjórnarmaður í höfuðborgardeild Norræna félagsins, sagði frá lundinum og mikilvægi norræns samstarfs. Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir Tónlist: Cry me a river ? Dinah Washington One for My Baby (and One More for the Road) ? Billie Holiday They Can't Take That Away From Me - Ella Fitzgerald & Louis Armstrong Sommarkort - Cornelis Vreeswijk

Undanfarin áratug hefur Gunnar helgað feril sinn skrifum metnaðarfullra barnabóka. Nú er komin út ný bók um grallarann Stellu, Hanni Granni dansari. Gunnar fær endalausar hugmyndir og reynir ekki að kæfa þeir heldur hugsi um þær látlaust.

Kolbeinn H. Stefánsson félagsfræðingur og annar skýrsluhöfunda um brotthvarf nemenda úr framhaldsskólum og Siv Friðleifsdóttir, formaður Velferðarvaktarinnar, ræddu niðurstöður skýrslunnar Brotthvarf úr skólum - birtingarmynd ójafnra tækifæra? Þar er fjallað um brotthvarf úr framhaldsskólum frá öðru sjónarhorni en venjan er og ýmsar vísbendingar um að brotthvarf úr framhaldsskólum sé stærra vandamál á Íslandi en í helstu samanburðarlöndum. Bogi Ágústsson fjallaði í Heimsglugganum um innrásina í Úkraínu og þær breytingar sem hafa orðið á heimsmynd, ekki síst Evrópubúa, í kjölfarið. Skelfilegar fréttir berast af árásum á barnaspítala og fæðingardeildir í Mariopol og flóttafólk streymir til nágrannaríkjanna. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri Kara Connect en Kara Connect er vefhugbúnaður sem tengir fólk saman, ekki síst í heilbrigðis- og velferðargeiranum. Undanfarin tvö ár hafa verið blómatími fyrir fjarfundi og fjarfundarbúnað og mikil eftirspurn eftir öruggum hugbúnaði þar sem hægt er að fara með viðkvæmar upplýsingar. Tónlist: Hættu að gráta hringaná - Gunnar Gunnarsson á píanó og Gunnar Hrafnsson á bassa Troðinn snjór - Moses Hightower I think of you - Rodríguez Soon - Monica Zetterlund Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir og Sigríður Halldórsdóttir.

Undanfarin tvö ár hafa skólar átt fullt í fangi með að reyna að halda sjó vegna heimsfaraldursins. Fagráð eineltismála hefur lýst yfir áhyggjum af því að eineltismál hafi mátt sitja á hakanum á þessu tímabili. Að samkomutakmarkanir hafi takmarkað þær lausnir sem skólar hafa haft í erfiðum samskipta- og eineltismálum eins og t.d námskeið, fyrirlestra, ráðgjöf, sértæka bekkjarfundi og viðtöl. Við fengum þær Sigurbjörgu Sigurpálsdóttur sálfræðing og Ólöfu Helgu Þór, náms- og starfsráðgjafa, en báðar eru þær í fagráðinu, til að koma í þáttinn og segja okkur frá stöðu mála í þessum mikilvæga málaflokki. Svo kom í þáttinn Jan Alexander van Nahl dósent í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands. Hann er fæddur í Þýskalandi en hefur verið búsettur hér á landi í nokkur ár og náð góðum tökum á málinu en hann er með doktorsgráður í norðurlandafræði, fornleifafræði og norrænum fræðum frá Háskólanum í Munchen. Meðal útgefinna verka hans eru tvær bækur um Snorra Sturluson, bók um konungasögur og kennslubók í norrænum miðaldafræðum. Hann sagði okkur í þættinum frá rannsókn sem hann vinnur að þessa dagana og snýr að því að kortleggja myrkrið í Íslendingasögunum. Hversu áberandi er myrkrið og hvaða áhrif hefur það á sögusvið og framvindu atburðarrásarinnar í þessum sögum? Lesandi vikunnar í þetta sinn var Sverrir Norland, rithöfundur, þýðandi, útgefandi, fyrirlesari, sjónvarpsmaður, útvarpsmaður, hlaðvarpsgerðarmaður, sendill, lagerstarfsmaður, handritshöfundur, kennari, tveggja barna faðir, íslenskur skattgreiðandi og bjartasta von Hlíðaskóla 2001. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG ÞORGERÐUR ÁSA AÐALSTEINSDÓTTIR

"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Viðmælandi Helgu Sifjar að þessu sinni er Rósa María Guðmundsdóttir, sérfræðingur í geðhjúkrun og hjúkrunar- og teymisstjóri geðheilsusviðs Reykjalundar.Að loknu stúdentsprófi fór Rósa María í Hjúkrunarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan í janúar 1982. Það árið starfaði hún á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut, en færði sig svo á deild 32C sem þá var bráða- og móttökugeðdeild. Samhliða tók hún vaktir á hinum ýmsu deildum sem tilheyrðu geðsviði Landspítala og kynntist því vel starfseminni á þeim árum. Haustið 1990 hóf Rósa María síðan störf á Reykjalundi þar sem hún hefur starfað að mestu óslitið síðan. Fyrstu árin vann Rósa María á blandaðri deild, en lengst af frá þeim tíma á geðheilsusviði Reykjalundar. Undanfarin tólf ár hefur hún verið hjúkrunar- og teymisstjóri geðheilsusviðsins.Samhliða vinnu sinni hjá Reykjalundi lauk Rósa María BS-prófi við Háskóla Íslands árið 2001 og meistaraprófi í geðhjúkrun árið 2007. Gegnum tíðina hefur hún lært og tileinkað sér ýmis sálræn meðferðarform og má þar nefna hugræna atferlismeðferð (HAM) og klíníka dáleiðslu. Rósa María hefur skrifað greinar, leiðbeint og meðal annars verið með fræðslu um endurhæfingarhjúkrun, HAM og meðferðarform sem stuðla að von. Einnig hefur hún setið í ýmsum nefndum og ráðum.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans. SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/gedvarpid-06
Það er óhætt að segja að Hermann Hreiðarsson sé sannkölluð fótbolta goðsögn en hann spilaði með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í 15 ár frá árunum 1996- 2011 og hefur hann spilað flesta leiki í ensku úrvalsdeildinni af öllum Íslendingum þar sem hann gerði garðinn frægann meðal annars í Crystal Palace, Charlton og Portsmouth. Undanfarin ár hefur hann snúið sér að þjálfun og er hann um þessar mundir að undirbúa flutninga til Vestmannaeyja ásamt fjölskyldu sinni þar sem hann hefur tekið við liði ÍBV. Hermann kynntist sínum betri helmingi, Alexöndru Fanneyju Jóhannsdóttur snemma árs 2017 en hún var þá flugfreyja hjá Icelandair. Þetta var virkilega skemmtilegt spjall og er greinilegt að þeirra samband hefur verið fullt af ævintýrum, ferðalögum og skemmtilegum uppákomum eins og heyra má í viðtalinu og eiga þau í dag saman tvo stráka en fyrir átti Alexandra einn son og Hermann tvær dætur. Í þættinum fórum við um víðan völl og ræddum meðal annars upphaf þeirra sambands og að Alexandra hafi í raun haldið að það væri verið að gera símaat í sér þegar Hermann hringdi í hana í fyrsta skipti til þess að bjóða henni út, matarástina og keppnisskap þeirra beggja, atvinnumennskuna og tímann í ensku úrvalsdeildinni, mómentið þegar Hermann hélt að Alexöndru hefði verið rænt, matareitrun á bifvélaverkstæði í Queens, flutningana til Vestmannaeyja og margt fleira en þátturinn er stútfullur af geggjuðum sögum úr þeirra sambandstíð. Njótið vel!Aha.is - https://aha.isBlush.is - https://blush.is/Bagel 'n' Co - https://https://www.bagelnco.is/Ajax
Specialisterne fagna 10 ára afmæli um þessar mundir, en Specialisterne, eða Sérfræðingarnir, eru sjálfseignarstofnun sem stuðlar að því að einstaklingar á einhverfurófi eigi jöfn tækifæri og aðrir á atvinnumarkaði. Bjarni Torfi Álfþórsson framkvæmdastjóri kom til okkar og fræddi okkur um starfið og þau tækifæri og áskoranir er mætir fólki á einhverfurófinu þegar að atvinnumálum kemur. Aurora velgjörðarsjóðurinn hefur komið að fjölmörgum þróunarverkefnum síðastliðinn áratug í Sierra Leone og markmið sjóðsins er m.a. að rækta sköpunarkraft sem flestra. Undanfarin ár hefur sjóðurinn leitt saman erlenda hönnuði og handverksfólk í landinu með þá von í brjósti að samvinnan og gagnkvæmur lærdómur hlúi að skapandi greinum. Regína Bjarnadóttir er framkvæmdastjóri sjóðsins og hún er stödd hér á landi og leit við og sagði okkur meira. Peningar eru sívinsælt umræðuefni og einn þeirra sem stundum fræðir okkur um fjármál er Björn Berg Gunnarsson. Hann hefur nú tekið ýmis konar skemmtilegan fróðleik saman og gefið út á bók sem heitir einfaldlega Peningar. Björn Berg kíkti í morgunkaffi og ræddi peninga. Fyrirgefningin, sáttin og endurkoma gerenda í kynferðisbrotamálum, misalvarlegum þó, hefur verið eitt aðal umræðuefni vikunnar í kjölfar fréttaskýringaþáttarsins Kveiks á þriðjudag en þar var flutt viðtal við Þóri Sæmundsson leikara. Við héldum því samtali áfram og fengum til okkar tvo menn, þá Ómar R. Valdimarsson lögfræðing og Jón Trausta Reynisson ritstjóra Stundarinnar til að velta upp öllum þeim álitamálum sem einkenna þessa umræðu og hvort við, sem samfélag, getum fundið einhverja lausn sem allir yrðu sáttir við. UMFÍ og ÍSÍ hafa veitt fjórum íþróttafélögum styrk vegna verkefna sem hafa það að markmiði að hvetja börn og ungmenni af erlendum uppruna og fjölskyldur þeirra til þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi. Við slógum á þráðinn til Auðar Ingu Þorsteinsdóttur framkvæmdastjóra UMFÍ og heyrðum af þessu. Í lok þáttar tengdumst við hljóðveri okkar á Akureyri og röbbuðum við Gígju Hólmgeirsdóttur um bann við lausagöngu katta. Heyrðum í leiðinni í Smára J. Lúðvíkssyni umhverfisstjóra Norðurþings í síma. Tónlist: Snorri Helgason - Ingileif. Elvis Costello - Alison. Lights on the highway - Ólgusjór. Adele - Easy on me. Pálmi Gunnarsson - Komst ekki aftur. Lenny Kravitz - Stillness of heart. Vök - Running wild. Sturla Atlas - Kviksyndi.

Undanfarin ár hefur verið áberandi umræða um stöðu kvenna í ýmsum geirum atvinnu- og menningarlífs. Oftar en ekki er staðan sú að konur sem vilja hasla sér völl í karllægum geira glíma við ýmsar áskoranir sem hafa áhrif á hvernig þær nálgast sín verkefni. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Auði Viðarsdóttur þjóðfræðing og tónlistarkonu. Í vorhefti Skírni birtist grein um rannsókn hennar á konum í raftónlist og þeim áskorunum sem þær standa frammi fyrir. Auður fjallar um efnið meðal annars út frá feminísku sjónarhorni og greinir upplifanir kvenna af því hvað þær þurfi að gera til að á þær sé hlustað og mark tekið á þeim eins og strákunum í tónlistarsenunni. Þá fjallar hún um tengsl kvenna við græjurnar sínar, mikilvægi sjáanlegra fyrirmynda og segir frá tónlistarsamtökunum og rokkbúðunum Stelpur rokka sem Auður hefur unnið með í 10 ár. Auður er einnig nýbyrjuð í doktorsnámi og segir stuttlega frá rannsóknarefni sínu. Um er að ræða þverfaglega rannsókn sem skoðar leiðir að gera mataræði fólks bæði vistvænna fyrir umhverfið og heilsusamlegra. Í rannsókninni mun Auður taka viðtöl við fólk sem hagar mataræði sínu með þeim hætti að það sé bæði vistvænt sem og heilsusamlegt. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa Dagrún Ósk Jónsdóttir og Vilhelmína Jónsdóttir doktorsnemar í þjóðfræði.
Það eru eðlileg mannréttindi að geta farið út undir bert loft, segir Maríanna Bernharðsdóttir, deildarstjóri fíknigeðdeildar Landspítalans, en það er ekki hægt á lokuðum geðdeildum við Hringbraut. Sunna Valgerðardóttir ræddi við hann. Hlaup er hafið í Vestari-Jökulsá í Skagafirði Sex hundruð manns eru á biðlista eftir húsnæði hjá Öryrkjabandalaginu og á annað hundrað bíða árum saman hjá borginni. Það blasir við hverjum manni að svona gengur þetta ekki lengur með húsnæðismál fatlaðra, segir Grétar P. Geirsson, formaður Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu. Þýska lyfjaþróunarfyrirtækið BioNTech, sem þróaði Pfizer-bóluefnið gegn COVID-19, hyggst sækja um markaðsleyfi fyrir covid-bóluefni fyrir börn á aldrinum 5-11 ára fyrir miðjan október, meðal annars í Evrópu. Hildur Margrét Jóhannsdóttir sagði frá. Framkvæmdastjóri bresku öryggisþjónustunnar óttast að valdataka Talibana í Afganistan auki á hryðjuverkaógn í Bretlandi. Undanfarin fjögur ár hafi rúmlega þrjátíu hryðjuverkaárásum verið afstýrt þar. Ný skýrsla sýnir að hver íbúi Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps hefur greitt sem svarar um 50 þúsund krónum á ári með rekstri hjúkrunar- og dvalarheimilisins Nausts á Þórshöfn. Heimilið er í eigu sveitarfélagsins og hefur rekstrarsamning við Sjúkratryggingar Íslands. Jónas Egilsson, sveitarstjóri segir það neyðarbrauð að skila rekstrinum til ríkisins. Óðinn Svan Óðinsson talaði við hann. Íbúi bjargaði nágranna sínum þegar eldur kviknaði í kjallaraíbúð við Týsgötu í Reykjavík í dag. Töluverður reykur var í íbúðinni þegar slökkvilið kom á vettvang. Kristín Sigurðardóttir talaði við Hjálmar Hallgrímsson, varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Breiðablik er komið í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í fótbolta, fyrst íslenskra liða. Það ætti að hvetja önnur félög til að leggja enn meiri áherslu á kvennaboltann segir Helena Ólafsdóttir sparkspekingur við Einar Örn Jónsson fréttamann. --------- Á geðdeild í Bretlandi, sem færð var úr aldargömlu húsnæði yfir í nýtt, fækkaði legudögum og dró úr árásargirni sjúklinga. Rannsóknir á arkitektúr sýna að náttúruleg birta og gott aðgengi að gróðri hefur áhrif á líðan sjúklinga segir Hildigunnur Sverrisdóttir, deildarforseti arkitektadeildar Listaháskólans. Áratugum saman hefur kosninga- og stjórnmálahegðun íslenskra kjósenda verið könnuð í Íslensku kosningarannsókninni. Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands, heldur utan um fjölmiðahluta þessarar stóru rannsóknar og þar er verið að bæta í, skoða miðlun pólitískra upplýsinga í ko

Radíó Efling er þáttur um félagsfólk Eflingar og allt sem viðkemur þeim. Undanfarin ár hefur fólk í Eflingu sagt frá lífi á lægstu launum, farið í verkföll og haldið uppi grunnþjónustu í heimsfaraldri. Í þessum þáttum verður rætt við félaga í Eflingu og ýmsa fulltrúa og fagfólk um hag verkafólks á Íslandi, sögur þeirra og líf í og utan vinnu. Þórunn Hafstað og Benjamín Julian, starfsmenn Eflingar – stéttarfélags, sjá um þáttinn. Í fyrsta þættinum er rætt við Þuríði Hörpu Sigurðardóttur, Þorbjörn Guðmundsson og Stefán Ólafsson. Samkvæmt nýútkominni skýrslu frá Eflingu eru skerðingar í íslenska lífeyriskerfinu með því hæsta sem gerist í heiminum. Á meðan lífeyriskerfið hefur vaxið hefur ríkið skert almannatryggingar svo mjög að fjöldi lífeyrisþega, eldri borgarar og öryrkjar, lifa undir framfærslu og undir lágmarkslaunum. Hvernig fer þetta með fólk, og hvað er til ráða? Umsjón með þættinum í dag hefur Benjamín Julian. Tónlist: Funky Moon eftir Stefan Kartenberg (CC BY 3.0).
Hótel Borg er elsta hótelið í Reykjavík, og var lengi vel það eina þar til Hótel Saga og Hótel Holt tóku til starfa fyrir margt löngu. Undanfarin ár hefur aldeilis bæst í flóruna eins og landsmenn vita. Í Kvosinni og nágrenni eru ótal ný hótel sum þegar tekin til starfa eins og Hótel Exeter við Tryggvagötu. Þrjú stór hótel eru í byggingu, Mariot við Hörpu, Reykjavíkur hótel byggir við Lækjargötu og Lindarvatn er að leggja lokahönd á Hótel Curio by Hilton við Krikjustræti, eða á Landsímareitnum. Það sá engin fyrir heimsfaraldur þegar þessar byggingar voru skipulagðar, og vonandi förum við að sjá fyrir endan á því ástandi svo gestir geti innritað sig á þessi hótel í framtíðinni. Hótelið á Landsímareitnum verður til umfjöllunar í þætti dagsins. Í stúdíó anddyri sitja Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi og Jóhannes Stefánsson framkvæmdastjóri Lindarvatns. Rætt er við arkitektinn að hótelinu Frey Frostason hjá THG arkitektum.

Undanfarin fimm ár hafa þrír kennarar á Hugvísindasviði, þau Rúnar Helgi Vignisson, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Jón Karl Helgason, ritstýrt ritröðinni Smásögur heimsins. Fimmta og síðasta bindi ritraðarinnar er nú komið út Af þessu tilefni hefur Hugvarp fengið ritstjórana til að velja sér smásögu úr bókunum til upplestrar fyrir ykkur kæru hlustendur. Nú er komið að Rúnari Helga Vignissyni að ljúka þessari yfirferð, en hann valdi að lesa smásögu sem hann þýddi sjálfur, eftir norska rithöfundinn Lailu Stien sem kom út árið 1979 og heitir Ferðin út í eyjuna.
Undanfarin fimm ár hafa þrír kennarar á Hugvísindasviði, þau Rúnar Helgi Vignisson, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Jón Karl Helgason, ritstýrt ritröðinni Smásögur heimsins. Fimmta og síðasta bindi ritraðarinnar er nú komið út og er það helgað smásögum frá Evrópu, en áður hafa komið út smásögur Norður-Ameríku, Afríku, Rómönsku Ameríku og Asíu og Eyjaálfu. Af þessu tilefni hefur Hugvarp fengið ritstjórana til að velja sér smásögu úr bókunum til upplestrar og nú er röðin komin að Kristínu Guðrúnu Jónsdóttur, dósent við Mála- og menningardeild, sem les sögu sem hún þýddi sjálf og birtist í Smásögum Rómönsku-Ameríku. Sagan, sem er eftir gvatemalska rithöfundinn Augusto Monterroso, birtist á frummálinu árið 1959 og heitir Mr. Taylor.
Undanfarin fimm ár hafa þrír kennarar á Hugvísindasviði, þau Rúnar Helgi Vignisson, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Jón Karl Helgason, ritstýrt ritröðinni Smásögur heimsins. Fimmta og síðasta bindi ritraðarinnar er nú komið út og er það helgað smásögum frá Evrópu, en áður hafa komið út smásögur Norður-Ameríku, Afríku, Rómönsku Ameríku og Asíu og Eyjaálfu. Af þessu tilefni hefur Hugvarp fengið ritstjórana til að velja sér smásögu úr bókunum til upplestrar fyrir ykkur kæru hlustendur. Það er Jón Karl Helgason, prófessor við Íslensku og menningardeild Háskóla Íslands sem ríður á vaðið og les sögu sem hann þýddi sjálfur og birtist í Evrópuhefti ritraðarinnar. Sagan, sem kom fyrst út árið 2009 og er eftir króatíska rithöfundinn Zoran Malkoč, heitir „Þegar ég var Pila gamla, dauð en í blóma lífsins“
Ríkisstjórnin fundar í dag á Hellu á Rangárvöllum. Undanfarin tvö ár hefur stjórnin haldið sérstaka sumarfundi úti um landið; á Snæfellsnesi fyrir tveimur árum og í Mývatnssveit í fyrra. Búast má að mál er tengjast kórónuveirufaraldrinum verði á dagskrá fundarins en að honum loknum fundar stjórnar með fulltrúum sveitarfélaga á Suðurlandi. Við ræddum við Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóra Rangarþings ytra. Hann sagði víst að málefni jöfnunarsjóðs sveitarfélaga yrðu á dagskránni. Það hefur betri áhrif á efnahag þjóðarbúsins að nánast loka landinu fyrir almennum ferðamönnum heldur en að halda því opnu og hvetja útlendinga til að sækja Ísland heim. Og það þrátt fyrir að það þýði að fjölmörg fyrirtæki í ferðaþjónustu - nánast öll - verði meira eða minna tekjulaus á meðan þetta ástand varir. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, fór yfir þessa niðurstöðu ráðgjafa og sérfræðinga stjórnvalda. Þótt enn sé ár til kosninga til þýska sambandsþingsins er kosningabaráttan að nokkru leyti hafin - stjórnmálamenn eru í það minnsta komnir í stellingar. Jafnaðarmenn útnefndu kanslaraefni sitt í síðustu viku og miklar umræður eru í Þýskalandi þessa dagana um kanslaraefni annarra flokka og möguleg stjórnarmynstur. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá þessu. Deilur um andlitsgrímur komu líka við sögu sem og menningarlífið í Þýskalandi sem er auðvitað svipað og hér; með daufasta móti. Aðsókn í Verkmenntaskóla Austurlands er með mesta móti og tekið verður á móti fleirum en venjulega þetta haustið. Smæð skólans hjálpar til þennan veturinn og gerir, að óbreyttu, mögulegt að halda úti hefðbundnu námi. Iðngreinar hafa verið kenndar í Neskaupstað frá 1944. Lilja Guðný Jóhannesdóttir, skólameistari VA, sagði okkur frá.

Nú liggur fyrir tillaga að nýju hverfisskipulagi Breiðholts sem ætlað er að efla hverfið; fjölga íbúum og styrkja þjónustu. Ævar Harðarson sem stýrir deild hverfisskipulags Reykjavíkurborgar sagði frá breyttu Breiðholti. Mikil reiði ríkir meðal fjölmargra nemenda, foreldra og kennara í Bretlandi eftir niðurstöður A-prófanna, stúdentsprófa, þar í landi. Svo virðist sem reiknileiðir sem notaðir voru til að gefa einkunnir hafi hyglt nemendum í einkaskólum og hegnt þeim sem ganga í fátækari almenningsskóla. Sigrún Davíðsdóttir í Lundúnum fór yfir þetta, kreppuna sem skollin er á í Bretlandi og nýjustu vendingar í kórónuveirufaraldrinum. Undanfarin ár hefur talsvert verið rætt um brýna þörf á að fjölga nemum í iðnnámi - það hefur vantað fólk í þessi mikilvægu störf sem teljast til iðngreina. En svo hefur borið á því að ekki sé hægt að taka við öllum þeim sem vilja læra. Hvernig stendur á þessu? Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans, kom á Morgunvaktina og ræddi þessi mál, og veturinn framundan. Skólar hafa fengið aukið fjármagn þetta haustið til að geta boðið fleirum skólavist en annars hefði verið, en þó er það svo að ekki allir komast að í iðnnám. Aðsókn hefur aukist undanfarin tvö ár. Tónlist: Der truer os i tiden - Pia Raug, Er det mon sandt - Otto Brandenburg

Nú stendur yfir æðardúnsleit um landið, en Ísland selur langmest af æðardúni í heiminum. Undanfarin ár hefur sala á þessari verðmætu afurð verið lítil sem engin og því kreppir að fyrir æðardúnsbændur hér á landi. Við töluðum við Erlu Friðriksdóttur, varaformann Æðarræktarfélags Íslands. Málefni útigangsfólks hafa verið mikið í deiglunni undanfarna daga en byggingu smáhýsa í útjarðri Hlíðahverfis hefur verið mótmælt harðlega af íbúum og íþróttafélaginu Val. Þessari gagnrýni vill starfsfólk skaðaminnkunarúrræðisins Frú Ragnheiður svara en það er í daglegum samskiptum við hópinn sem kemur til með að búa í þessum smáhýsum. Elísabet Brynjarsdóttir, hjúkrunarfræðingur Frú Ragnheiðar kemur til okkar til að ræða þessi mál. Skjálftahrinan úti fyrir Siglufirði hefur fundist víða um land en þrír skjálftar yfir fimm af stærð hafa orðið á síðustu tveimur sólarhringum, sá síðasti í gærkvöldi, 5,8 að stærð. Enn mælist mikið af minni skjálftum á svæðinu og áfram eru líkur á því að fleiri stærri skjálftar muni verða. Því hvetja Veðurstofan og Almannavarnir, fólk sem býr á þekktum jarðskjálftasvæðum til þess að gera viðeigandi ráðstafanir vegna jarðskjálfta. Ein þeirra sem hefur fundið fyrir skjálftunum er Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir sem er forseti bæjarstjórnar í Fjallabyggð, en hún var einmitt í fjallgöngu þegar fyrsti skjálftinn reið yfir. Forsetakosningar verða á laugardaginn næstkomandi. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands var gestur þáttarins.
MANNLEGI ÞÁTTURINN MÁNUDAGUR 22.JÚNÍ UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG MARGRÉT BLÖNDAL Ferðaskrifstofa Harðar Erlingssonar fagnar 40 ára starfsafmæli ár. Undanfarin 50 ár hefur Hörður Erlingsson skipulagt og verið leiðsögumaður í ferðum þýskumælandi fólks um Ísland. Þegar Hörður var við nám í Þýskalandi á árunum 1967 til 1974 fékk hann óvænt boð um að fara með hóp til Íslands. Fyrirvarinn var stuttur, tveir dagar og Hörður sló til og það varð ekki aftur snúið. Hörður kom til okkar hér á eftir og rifjar upp það helsta úr starfinu . Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði tók til stafa fyrir 65 árum. Jónas Kristjánsson læknir einn af brautryðjendum náttúrulækningastefnunnar á Íslandi, hafði forystu um undirbúning og uppbyggingu Heilsuhælisins eins og stofnunin hét þá og í byrjun var hægt að taka á móti 40 gestum. Margt hefur breyst síðan þá og sífellt er unnið að þróun starfseminnar án þess þó að missa sjónar á grunngildunum. Samkomubannið hefur sett svip sinn á starfsemina í ár eins og flesta - en starfsemin er smátt og smátt að færast í eðlilegt horf og ýmislegt framundan á næstu vikum. Við skruppum í heimsókn á föstudaginn og settumst út í sólina með Inga Þór Jónssyni markaðsstjóra og tókum stöðuna. Og lesandi vikunnar var Svavar Knútur tónlistarmaður.

Framsal hlutabréfa í Samherja frá foreldrum til barna felur líklega í sér hæstu fjárhæð sem greidd hefur verið í arf nokkru sinni á Íslandi. Þetta er meðal þess sem Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, ræddi í vikulegu spjalli um samfélag og efnahag. Aðaleigendur og stofnendur Samherja tilkynntu um þessar breytingar í síðustu viku, og tilfærslan var blanda af fyrirframgreiddum arfi og sölu hlutabréfanna. Þórður Snær ræddi líka um stöðuna hjá Icelandair, sem hefur mjög skamman tíma til stefnu til að klára samninga við flugstéttir, semja við Boeing um afgreiðslu nýrra flugvéla og semja við kröfuhafa sína. Lífið er óðum að færast í eðlilegra horf í Þýskalandi, og nú hafa kaffihús og veitingastaðir opnað dyr sínar á ný. Þjóðverjar fara þó varfærnislega af stað, og hafa ekki troðfyllt veitingastaði eða almenningsgarða. Þessu sagði Arthúr Björgvin Bollason frá í Berlínarspjalli. Hann talaði líka um pólitíska óróann sem er fylgifiskur ástandsins, en óttast er að öfgaöfl nýti sér mótmæli og að þau geti orðið að hættulegu báli. Undanfarin ár hefur ferðaþjónustan verið langstærsta atvinnugreinin í Mýrdalshreppi og mikill meirihluti íbúa hefur unnið á einn eða annan hátt í greininni. Höggið sem hreppurinn hefur fengið síðustu mánuði er þungt. En það er líka vor í lofti og bjartsýni, stór verkefni eins og Netflix-þættir hafa komið á besta tíma inn í samfélagið á Vík, og innviðirnir eru sterkir, eins og Þorbjörg Gísladóttir, sveitarstjóri í Mýrdalshreppi, sagði okkur frá. Tónlist: I wanna be around - Dinah Washington, Mövekvæði - Þokkabót.

Undanfarin ár hefur sú skoðun orðið furðulega útbreidd að jörðin sé ekki hnöttur, eins og vísindin hafa haldið fram í nokkrar aldir, heldur flöt. Nokkur hópur fólks heldur því fram að vísindamenn sé þátttakendur í stóru samsæri eða hafi hreinlega rangt fyrir sér. Tómas Ævar Ólafsson hefur verið að kynna sér deilurnar og er hættur að vita hverju hann á að trúa. Rapparar eru þekktir fyrir að nýta sér hinar ýmsu neysluvörur sem fylgihluti og áhersluauka. Í miðjum heimfaraldri er eftirsóttur hlífðarbúnaður og hinar ýmsu hreinlætisvörur farnar að skjóta upp kollinum í rappmyndböndum. Við rýnum í nokkur rappmyndbönd úr kófinu Og við rifjum upp heimsókn Önnu Gyðu Sigurgísladóttur á vinnustofu Erró í París en við byrjum á Halldóri Armand Ásgeirssyni. Í dag er hann að hugsa um skatta, lýðræði og hagkerfi sem riðar til falls.

Kristinn Guðmundsson mun væntanlega seint losna við miðnafnið Soð. Undanfarin ár hefur hann birst á tölvu- og sjónvarpsskjáum landsmanna sem kærulaus áhugakokkur sem heillar áhorfendur með frumlegum uppátækjum og matargleði. Keflvíkingurinn skemmtilegi er þó fyrst og fremst listamaður sem hefur fengist við dans, gjörninga, leikstjórn og ljósmyndun, svo fátt eitt sé nefnt.
Tómas Ingi Tómasson fór víða á fótboltaferlinum, var eini atvinnumaður Íslands í Austur Þýskalandi og náði flottum árangri hér á landi sem ytra. Eftir ferilinn breytti hann leiknum í fótboltaumfjöllun í sjónvarpi og fór svo í þjálfarastörf. Undanfarin ár hefur hann átt í erfiðri baráttu við heilsuna. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunnar á Fótbolta.net í dag. Þátturinn í dag er í boði Boðleiðar. Með lausnum frá Boðleið er vinnustaðurinn þar sem þú ert, fullkomnar lausnir í fjarvinnu. Nánar er hægt að kynna sér málið á www.bodleid.is Meðal efnis: - Spilaði með pabba sínum í framlínu ÍBV - Skipti um númeraplötur á lögreglubílnum - Drukku þrjú 2 lítra stígvél af bjór á dag í æfingaferðinni - Atvinnumaður í Austur Þýskalandi þegar múrinn var að falla - Maður skotinn fyrir utan húsið hans - Í stríði við kallana á hólnum í eyjum - Ekki hrifinn af klefaöskri Gauja Þórðar - Stórundarleg æfing hjá Sogndal - Luka Kostic bannaði honum að taka skæri - Einn af 10 mestu fávitum ævinnar í Raufoss - Dúxaði í nuddnámi í Noregi - Heil vetrarvertíð á línubát til að geta strítt Heimi Hallgríms - Keypti sér veðhlaupahest í Noregi - Datt í það þegar díllinn við Scunthorpe klúðraðist - Hafnað af ÍBV en fór í Þrótt og átti þátt í 21 af 27 mörkum - Svikinn um 3 milljónir af Þrótti - Ranglega tekið af honum mark í úrslitaleik deildarinnar 2001 - Átti skilið betri framkomu frá ÍBV fyrir riftun samningsins - Blöskraði drasl þættir um fótbolta og bauð sig fram í Pepsi mörkin - Sendi Eyjólfi Sverrissyni bréf og bað um að vera aðstoðarmaður hans - Rekinn frá HK tveimur dögum eftir lokaleik á EM - Ósætti milli U21 og A-landsliðsins - Tók Jón Jónsson af lífi og fékk hann svo til að syngja fyrir sig - Misheppnuð mjaðmaaðgerð og 8 mánuðir á sjúkrahúsi - Taldi sig af náð heilsu en endaði í tveimur aðgerðum í nóvember
Ágúst Thór Sólimann er skipstjórinn á skútunni Jón Guðmundsson. Undanfarin ár hefur hann verið á siglingu um Atlants-, Miðjarðar- og Eyjahaf þar sem hann hefur boðið fólki að slást í för með sér til að læra að sigla skútu eða einfaldlega njóta lífsins á fallegum stöðum. Gústi segir okkur frá ferðalögum sínum og hvernig hann fékk þá hugmynd að leggja í þetta ævintýri. Áhugasamir geta pantað ferðir á Facebook síðunni hans Solimann Sailing eða skoðað myndir á Instagram reikningnum solimannsailing.
Síðar í vikunni sendir tónlistarmaðurinn Benni Hemm Hemm frá sér sína áttundu breiðskífu, Kast spark fast. Undanfarin ár hefur Benni gefið út lágstemmt svefnherbergispoppið sem hefur ekki alltaf ratað í útvarp eða á tónleika. En nú snýr hann aftur endurnærður með hljómsveit skipaðri stórskotaliði íslenskra indítónlistarmanna. Benni Hemm Hemm heimsækir Lestina í dag. Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil að venju á þriðjudegi. Í þetta sinn er hann að hugsa um hversu óafsakanlega dýrt er að búa á Íslandi og einhvern veginn kemur Ódysseifur við sögu. Á síðustu misserum hafa hlaðvörp rutt sér til rúms í hinni íslensku fjölmiðlaflóru. Þau fjalla um allt milli himins og jarðar, frá morðum yfir í meðgöngu og koma í ýmsum formum - geta verið spjallþættir, einræður eða jafnvel leikin. Næstu vikur hyggst Lestin kynna sér þessa nýju ólínulegu dagskrárflóru landsins, eitt hlaðvarp í einu. Við byrjum á hlaðvarpi Granda 101.

Svett er aldagömul athöfn sem hefur á síðustu áratugum fest rætur hér á landi. Athöfnin á rætur að rekja í samfélag indíána og þykir til dæmis mjög streitulosandi og nærandi fyrir bæði sál og líkama. Ásrún Laila Awad hefur í mörg ár leitt svett hér á landi en hún er með höfuðstöðvar sínar að Birkihofi sem er í næsta nágrenni við Laugarvatn. Laila fræddi okkur allt um svettið og sögu þess á Íslandi í þættinum í dag. Garðyrkja er kannski ekki það fyrsta sem manni dettur í hug á þessum árstíma. En „íJörð“ er garðyrkjuverkefni fólki er kennd matjurtarækt. Undanfarin tvö ár hefur hópi hælisleitenda verið boðið upp á að taka þátt í verkefninu, en nú er komið að því að færa verkefnið á næsta stig og bjóða almenningi uppá stutt námskeið í lífrænni ræktun, fyrst á netinu og með vorinu í verklegum námskeiðum. Aðstandendur verkefnisins bjóða nú fyrir hátíðirnar upp á gjafabréf á námskeiðin sem eina leið til að gefa grænar gjafir og koma af stað umræðu um heislubætandi áhrif veru úti í náttúrunni, og tillögur að hverskonar umhverfisvænum gjöfum. Við fengum þær Þóru Hinriksdóttur, frá íJörð og Þórey Mjallhvíti upphafskonu Seljagarðs, þar sem ræktunin fer meðal annars fram, í þáttinn til að segja frekar frá. Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður er vön því að lesa í fortíðina til að skilja samtíðina en hún hefur líka gaman af ýmis konar yndislestri. Margrét var lesandi vikunnar að þessu sinni og bauð okkur upp á kræsilegt hlaðborð bóka sem hún hefur verið að lesa. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐFINNUR SIGURVINSSON

Það er ekki hlaupið að því að velja stund til að selja banka.Á Alþingi ræddu menn um sölu ríkisbanka í dag og veltu fyrir sér lærdómi sögunnar, umgjörð og regluverki. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman sérstaka umræðu á þingi þar sem meðal annars tóku til máls þau Oddný Harðardóttir (S), Ólafur Ísleifsson (M), Willum Þór Þórsson (B), Þorsteinn Víglundsson (C), Bjarni Benediktsson (D). Ungmennum sem drekka daglega meira en einn orkudrykk fjölgaði um 150 prósent á tveimur árum. Drykkjan getur leitt til vítahrings kvíða og svefnleysis, segir Vilborg Hjörný Ívarsdóttir, forvarnaráðgjafi. Úlla Árdal ræddi við hana. Forseti Chile segir landið eiga í stríði við öflugan og óvæginn óvin. Ellefu hafa látið lífið frá því að óeirðir brutust út fyrir helgi. Ásgeir Tómasson sagði frá. Áfram er óvissa um hvenær breska þingið greiðir atkvæði um nýjan útgöngusamning ríkisstjórnarinnar við Evrópusambandið. Það stefnir í skæruverkföll blaðamanna í næsta mánuði, nánast ekkert miðar í samningaviðræðum þeirra segir Hjálmar Jónsson formaður Blaðamannafélags Íslands. Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti lögreglunnar á Suðurnesjum fékk sambærilegt launasamkomulag og yfir- og aðstoðaryfirlögregluþjónum hjá Ríkislögreglustjóra stendur til boða. Lögreglumaðurinn fer á eftirlaun innan skamms. Magnús Geir Eyjólfsson segir frá. ---------------- Undanfarin ár hefur ekkert verið sérstaklega góður tími til þess að selja banka segir Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands, en ekkert segi að betra sé að bíða þó að eftirspurn eftir hlutafé í bönkum sé ekki endilega mikil þessa stundina. Laugardagurinn var enn einn dagurinn þegar stefndi í að Brexit-línurnar skýrðust þar sem breska þingið átti að greiða atkvæði um útgöngusamning bresku stjórnarinnar við Evrópusambandið. Það fór þó á annan veg og ekki voru greidd atkvæði um samning forsætsiráðherrans í dag. Sigrún Davíðsdóttir hefur fylgst með þróun mála. Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna hvetur almenning til þess að gefa alls ekki upp kreditkortanúmer í símasölu eða símasöfnunum, biðja sölufólk um að senda sér tölvupóst ef það vill kaupa eða styrkja, eða styrkja beint í gegnum heimasíðu viðkomandi. Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna hvetur almenning til þess að gefa alls ekki upp kreditkortanúmer í símasölu eða símasöfnunum, biðja sölufólk um að senda sér tölvupóst ef það vill kaupa eða styrkja, eða styrkja beint í gegnum heimasíðu viðkomandi. Kristján Sigurjónsson ræddi við Brynhildi Pétursdóttur.

Hvernig verða bankar framtíðar? Verða kannski engir bankar? Undanfarin ár hafa orðið hraðar breytingar í bankageiranum og það eru frekari breytingar framundan. Breytingar sem áttu þátt í því að hundrað starfsmönnum var sagt upp í Arion banka í gær. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Gunnlaug Jónsson. Ólafur Árnason hjá Verkfræðistofunni Eflu hefur verkstýrði hópi fólks sem rýndi í gögn um ástand ferðaþjónustunnar í dag og hvernig best væri að standa að atvinnugreininni í framtíðinni. Kristján Sigurjónsson ræddi við Ólaf í dag. Tyrkneskir sjónvarpsþættir fara sigurför um heiminn og eru orðnir ein helsta útflutningsvara landsins. Vinsældir draumasmiðjunnar í Tyrklandi á heimsvísu nálgast nú ört Hollywood sem í áratugi hefur verið allsráðandi á markaðnum. Pálmi Jónasson segir frá.
Hreinn Loftsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra. Hreinn var lögmaður í máli gegn Haraldi Jóhannessen ríkislögreglustjóra. Forseti Bandaríkjanna neitar því staðfastlega að hafa brotið af sér í símtali við forseta Úkraínu. Demókratar segja að málið liggi ljóst fyrir enda sé vitað hvað forsetunum fór á milli. Stefnt er að því að Ísland verði leiðandi á heimsvísu í sjálfbærni ferðaþjónustu. Ferðaþjónustan er víða farin að nálgast þolmörk. Aukin samkeppni frá litlum fjármálafyrirtækjum, fjártæknifyrirtækjum og lífeyrissjóðum vó þungt í þeirri ákvörðun stjórnenda Arion banka að segja upp hundrað starfsmönnum. Fulltrúar ungmenna sem efnt hafa til loftslagsverkfalla á Austurvelli á föstudögum urðu fyrir vonbrigðum á fundi með ráðherrum í dag þar sem þau afhentu þeim kröfugerðir. Lýðræðissinnar í Hong Kong eru mættir til mótmæla sem eiga að standa fram á þriðjudag, þegar Kínverjar fagna sjötíu ára afmæli alþýðulýðveldisins. Fjölmiðlanefnd er ekki starfhæf. Skipun nýrrar nefndar hefur frestast þar sem Blaðamannafélag Íslands hefur ekki ákveðið hvort það ætlar að tilnefna sinn fulltrúa. Hvernig verða bankar framtíðar? Verða kannski engir bankar? Undanfarin ár hafa orðið hraðar breytingar í bankageiranum og það eru frekari breytingar framundan. Breytingar sem áttu þátt í því að hundrað starfsmönnum var sagt upp í Arion banka í gær. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Gunnlaug Jónsson. Ólafur Árnason hjá Verkfræðistofunni Eflu hefur verkstýrði hópi fólks sem rýndi í gögn um ástand ferðaþjónustunnar í dag og hvernig best væri að standa að atvinnugreininni í framtíðinni. Kristján Sigurjónsson ræddi við Ólaf í dag. Tyrkneskir sjónvarpsþættir fara sigurför um heiminn og eru orðnir ein helsta útflutningsvara landsins. Vinsældir draumasmiðjunnar í Tyrklandi á heimsvísu nálgast nú ört Hollywood sem í áratugi hefur verið allsráðandi á markaðnum. Pálmi Jónasson segir frá.
Undanfarin ár hefur sést til grátrönur víða um landið, en grátrönur hafi lengi verið flækingsfuglar hér á landi. Fæstir áttu von á því að grátrönur tækju upp á því verpa hérlendis en þær hafa samt sem áður orpið hér á landi í nokkur ár. Þetta vakti áhuga okkar, við hringdum til Húsavíkur í Yann Kolbeinsson náttúrufræðing hjá Náttúrustofu Norðausturlands og fengum hann til að fræða okkur um flækingsfugla á Íslandi í þættinum. Við vorum einu sinni sem oftar að grúska í gullkistu útvarpsins og fundum áhugaverða frásögn af því þegar síðasti geirfuglinn var drepinn árið 1844 og þegar Eldey var klifin í fyrsta sinn af þremur ungum Vestmanneyingum. Leiðangurinn út í Eldey var ekki einfalt mál á þessum tíma, eða árið 1894. Það var Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi sem tók saman og las pistil um þessi efni í þáttröðinni: Eyjar við Ísland - Eldey sunnan Reykjaness, árið 1962. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Ingibjörg Gréta Gísladóttir, leikkona og framkvæmdastjóri Reykjavík International Film Festival, eða RIFF, sem verður sett í þessari viku. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Undanfarin þrjú ár hefur verið fjárfest í ferðaþjónustu fyrir rúma 243 milljarða. Fjárfestingar í hótelum hafa aldrei verið meiri en í ár, 38 milljarðar. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur boðað til neyðarfundar vegna útbreiðslu ebólu. Boris Johnson, frambjóðandi í leiðtogabaráttu í Íhaldsflokknum breska, ætlar ekki að standa að útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu án samnings, nema það sé síðasti valkosturinn sem býðst. Fjölmörgum kjarasamningum er ólokið. Svo gæti farið að kjaraviðræður færist fram á haustið. Sumarlokun verður hjá ríkissáttasemjara í júlí og fram yfir verslunarmannahelgi. Stjórnmálafræðingur og aðjúnkt í siðfræði óttast að hamslaust hatur færist í vöxt í netheimum. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardótir Tæknimaður: Mark Eldred
Hvað er fegurra eða friðsælla en töfrar íslenskrar sumarnætur? Einmitt þá er ómótstæðilegt að reima á sig gönguskóna og ganga inn í bjarta nóttina, segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir sem í sumar mun leiða kvöldgöngur á vit sumarnæturinnar þar sem fólk getur andað að sér gróðurmagni og orku og virt fyrir sér grös og steina. Um leið verða rifjaðar upp sagnir og fróðleikur um lífið í okkar fallega landi, eftir því sem við á. Ólína kom í þáttinn í dag. Hugi Garðarsson, 21 árs, lagði af stað frá Krabbameinsfélaginu Skógarhlíð í gær kl.14 en hann ætlar að ganga hringinn í kringum landið til styrktar Krabbameinsfélaginu í sumar, til minningar um ömmu sína sem lést úr krabbameini árið 2014. Hugi gerir ráð fyrir að vera um 100 daga á leiðinni, heimsækja 70 sveitarfélög og ganga 3.000-3.500 kílómetra. Hugi mun ganga með hjólbörur hringinn og Í þeim geymir Hugi allt sem hann þarf til ferðalagsins, tjald, svefnoka, matarbirgðir, bækur og gítar sem hann spilar á daglega. Við slógum á þráðinn til Huga í þættinum. Það er ekki föstudagur í dag, en við ræddum samt um það að fasta í þættinum. Kolbrún Björnsdóttir, grasalæknir fastar reglulega og losar út eiturefni í líkamanaum. Undanfarin ár hafa sífellt fleiri fastað á einn eða annan hátt. Kolbrún kom í þáttinn og gaf góð ráð og fræddi okkur um kosti þess að fasta. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Knattspyrnumaðurinn, Albert Brynjar Ingason er gestur Miðjunnar í þessari viku. Albert gekk á dögunum í raðir Fjölnis frá uppeldisfélagi sínu Fylki. Albert hefur á ferli sínum leikið með Fylki, Þór, Val, FH og nú Fjölni. Hann varð til að mynda Íslandsmeistari með FH sumarið 2012. Undanfarin ár hefur hann vakið mikla athygli á Twitter og þá sérstaklega undanfarnar vikur. Í miðjunni í dag ræðum við, við Albert um sögurnar á bakvið nokkrar af vinsælustu twitter færslum hans og meira til.
Í 74 ár hafa brottfluttir Ísfirðingar haldið Sólarkaffi til að fagna því þegar sólin skín aftur á Eyrina á Ísafirði eftir að hafa falið sig bak við fjöllin. Sólarkaffið í ár er framundan og við heyrðum í Guðmundi Fr. Jóhannssyni um gleðina. Undanfarin ár hafa miklar breytingar orðið í hafinu við Ísland. Tegundir sem áður sáust ekki hér við land, hafa fundist hér í miklu magni og aðrar fært sig um set. Ein þessara tegunda er loðnan sem við Íslendingar höfum veitt í gríðarlegu magni frá því um miðjan sjöunda áratuginn, mest um eina og hálfa milljón tonna á ári. Mælingar þennan veturinn benda til þess að hrygningarstofninn nái ekki 300 þúsund tonnum og því ekki lágmarkinu sem þarf til að veiðar fái að hefjast. Við ræddum við einn reyndasta loðnuskipstjóra flotans, Grétar Rögnvarsson, skipstjóra á Jóni Kjartanssyni SU, og heyrðum hans upplifun af þessu öllu saman. Það gengur talsvert á í lífi Siglfirðinga - og gott ef ekki Ólafsfirðinga líka - á hverju sunnudagskvöldi, nánar til tekið í sjónvarpsþáttunum Ófærð. En hversu vel eða illa tekst þáttunum að fanga raunveruleikann á Siglufirði, ef eitthvað? Hafa þættirnir haft áhrif á ferðamannastraum nyrðra og hvað segja þeir sem eru kunnugir staðháttum á staðnum, hversu vel fylgja ferðir Andra lögreglumanns og félaga raunverulegum vegum og áttum á staðnum? Bæjarstjórinn, það er að segja alvöru bæjarstjórinn Gunnar Birgisson, ekki þessi í haldi mannræningjanna, var á línunni hjá okkur. Átakshópur ríkisstjórnarinnar skilaði af sér í gær 40 tillögum til að bæta ástandið á húsnæðismarkaði og er meðal annars vonast til að tilögurnar liðki til fyrir lausn kjarasamninga. Áhersla er þar lögð á að draga úr byggingakostnaði, leigufélög að norrænni fyrirmynd og ýmsar úrbætur á leigumarkaði svo fátt eitt sé nefnt. Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, annar höfunda skýrslunnar og aðstoðarforstjóri Íbúðarlánasjóðs, fór yfir tillögurnar með okkur. Guðmundur Jóhannsson kom í sitt vikulega tæknispjall og ræddi m.a. persónuvernd og fleiri fyndin tæki. Tónlist: Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar - Án þín, með þér. Sade - Smooth operator. The Beatles - Here comes the sun. Sting - Brand new day. Vök - Spend the love. Jón Jónsson - Gefðu allt sem þú átt. Leon Bridges - Coming home. Moses Hightower - Trúnó. Richard Ashcroft - Thats when I feel it.
Efni þriðja þáttar er Inbound vs. outbound marketing, eða hver er munurinn á inbound marketing og outbound marketing. Undanfarin ár hafa ýmis markaðshugtök komist í tísku og mögulega má segja að Inbound marketing sé eitt þessara tískuhugtaka. Önnur sem falla í þennan flokk eru locatioin marketing, destination marketing, permission marketing, personal branding o.fl. Oftast eru þetta hugtök sem leggja áherslu á eitthvað ákveðið svið eða einhverja ákveðna aðferðafræði. Sjaldan er í raun um eitthvað nýtt að ræða, annað en áherslubreytingu. Annað málefni sem kemur uppí hugann þegar verið er að skoða vinsæl markaðs hugtök er þýðingin á þeim. Það er mikið af hugtökum sem ekki er búið að sammælast um hvernig eigi að þýða, eitt þeirra er inbound marketing. Okkar hugmynd er að þýða það sem innvær markaðsfærsla - við erum þó svo sannarlega opin fyrir hugmyndum :) Í þessum þætti er ekki farið djúpt í hvernig innvær markaðsfærsla virkar. Aðal áherslan er á að skilgreina og skýra inbound og outbound og fara í hver munurinn er á þessu tvennu. Þetta er ekki mjög flókið, en þess vert að fara í gegnum það. Í þætti 4 munum við svo fara ítarlegar í það hvað inbound er og hvernig þú nýtir þér inbound marketing. Við endum þátt #3 á því að smá níði og hraustlegu hrósi. Þú finnur alla þætti MARKAÐSSTOFUNNAR á www.vert.is/podcast Góða skemmtun!
Mannskæðir skógareldar geisa nú í Grikklandi og Svíar hafa barist við skógarelda víða um Svíþjóð dögum og vikum saman. Þeir hafa þurft að fá hjálp frá öðrum þjóðum við að ráða niðurlögum þeirra. Við heyrðum í Birgi Finnssyni, aðstoðarslökkviliðsstjóra Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, um það hvernig slökkvistarfi í skógareldum er háttað, við hvaða aðstæður skógareldar kvikna og hvenær þeir fara úr böndunum. Formaður Landssambands sauðfjárbænda var í viðtali hjá okkur í gær og lýsti áhyggjum af stöðu greinarinnar. Bændur leita nú ýmissa leiða til að auka verðmæti afurða sinna, og er ein þeirra að selja beint frá býli. Matís bauð nýlega upp á námskeið fyrir bændur um möguleika tengda nýsköpun í landbúnaði, sölu og dreifingu afurða úr heimaslátrun. Hrönn Ólína Jörundsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís, kom til okkar. Undanfarin misseri hefur staðið yfir endurskoðun stefnumörkunar þjóðgarðsins á Þingvöllum. Þingvallanefnd leggur nú fram tillögu að endurskoðaðri stefnumörkun til kynningar, en stefnt er að því að ný stefnumörkun verði samþykkt á haustmánuðum. Einar Sæmundssen þjóðgarðsvörður kom til okkar og ræddi þessi mál. Guðmundur Jóhannsson tæknigúru kíkti í sína vikulegu heimsókn með helstu fréttir úr tækniheiminum. Tónlist: The Cranberries - Linger. Amy Winehouse - Back to black. Amabadama - Óráð. Christopher Cross - Ride like the wind. Sálin hans Jóns míns - Aldrei liðið betur. James Taylor - Fire and rain. Jón Jónsson & Friðrik Dór - Á sama tíma, á sama stað. First Aid Kit - Silver lining. Elín Sif - Make you feel better. Pearl Jam - Daughter. Arcade Fire - Put your money on me. Billy Idol - Hot in the city.
Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að ljósmyndun, garðhúsgögnum og borgaralaunum. Nú á dögunum var formlega stofnað Félag borgara, eða Fellowship of citizen, hagsmunasamtök sem er ætlað að sýna fram á fýsileika borgaralauna og þrýsta á að þau verði tekin upp á Íslandi. Félagsskapurinn var kynntur á myndlistarsýningu Sæmundar Þórs Helgasonar í Arebyte galleríinu í London. Sæmundur Þór tekur sér far með Lestinni í dag. Ljósmyndir Þórsteins Sigurðssonar hafa vakið talsverða athygli á síðustu árum. Hann er þekktur fyrir að fanga íslenska jaðarmenningu sem annars ber lítið á. Undanfarin ár hefur hann unnið að verkefninu Container Society þar sem hann skyggnist inn í líf tveggja manna sem búa í gámum á Grandanum í Reykjavík. Við fræðumst nánar um verkefnið í þætti dagsins. Halldór Armand Ásgeirsson flytur að venju pistil á þriðjudegi, og í dag veltir hann fyrir sér sálfræðilegu mikilvægi garðhúsgagna.
Við skoðuðum hjólreiðar í Reykjavík í þættinum í dag. Undanfarin ár hefur verið gríðarlega mikil aukning í að fólk ferðist um borgina á hjólum og hjólastígar komnir víða. Sumir fagna aukningunni á meðan öðrum finnst nóg um. Við fengum þau Björgu Helgadóttur og Kristinn Jón Eysteinsson, verkefnastjóra í samgöngu- og borgarhönnun hjá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur til okkar í dag. Þau sögðu meðal annars frá hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar til ársins 2020 og tilraunaverkefni með rafhjól. Leikhópurinn Óríon, frumsýnir leikritið Leigumorðið, sem fjallar um ungt fólk sem leigir saman, en það fjallar líka um kynhneigð, BDSM og málefni hinsegin fólks. Bryndís Björk Kristmundsdóttir, leikstjóri sýningarinnar, sagði okkur meira frá sýningunni og leikhópnum. Vaxandi fjöldi lífeyrisþega leitar sér nú tannlækninga í Evrópu. Lög sem leyfa slíkt tóku gildi 2016 og síðan þá hefur þeim fjölgað á hverju ári sem fara til útlanda til lækninga. Grímur Axelsson, alþjóðahagfræðingur er umboðsmaður tannlæknastofu í Búdapest. Bergljót Baldursdóttir ræddi við hann á Heilsuvaktinni í dag. Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Lauryn Hill úr hljómsveitinni The Fugees er á leiðinni í tónleikaferð um Bandaríkin í sumar þar sem hún ætlar að halda upp á 20 ára afmæli fyrstu og einu sólóplötunar sinnar; The Miseducation of Lauryn Hill. Eftir að hafa gefið út tvær plötur með Fugees sem þeyttu henni og félögum hennar, þeim Wyclef Jean og Praz MIchael upp á stjörnuhimininn sagði hún skilið við Fugees og gerði sólóplötu árið 1998. Platan sló í gegn, seldist vel og sópaði að sér verðlaunum og er í dag orðin klassík - plata sem skiptir máli í poppsögunni. Undanfarin 20 ár hefur gengið á ýmsu hjá Lauryn Hill. Hún hefur haldið sig að mestu utan sviðsljóssins, hefur ekki gert aðra plötu í stúdíói en sent frá sér lag og lag undanfarin ár. Hún hefur leikið í nokkrum kvikmyndum en hún hefur líka hafnað mörgum stórum hlutverkum í stórmyndum. Lauryn lenti í vandræðum með skattamál og þurfti að sitja í fangelsi í nokkra mánuði fyrir nokkrum árum vegna þess. Hún á 6 börn, þar af 5 með Rohan Marley sem er einn af sonum Bob´s Marley - yngsta barnið á hún með öðrum manni. En hvað gerðist? Hvernig atvikaðist það að þessi hæfileikaríka unga kona gerði bara þessa einu plötu og sagði svo næstum skilið við músíkina, eða kannski frekar músík-bransann fyrir öllum þessum árum. Rokkland reynir að finna út úr því í dag. U2, Tamino, Prince og Gryff Rhys koma líka við sögu.

Mjög var rætt um óveðurs- og ófærðarspá morgunsins. Mikil óvissa ríkir í kjarsamningaviðræðum 750 þúsund opinberra starfsmanna í Danmörku. Ef samningar takast ekki á næstu dögum gæti komið til verkfalla í byrjun apríl. Mikið ber í milli, og stéttarfélögin vilja meðal annars að kjarasamningar kennara, sem ákveðnir voru með lagasetningu fyrir fimm árum verði ógiltir. Þetta var rætt við Borgþór Arngrímsson í Kaupmannahöfn. Ríkissjóður er um það bil að selja þrettán prósenta hlut sinn í Arionbanka fyrir rúma 23 milljarða króna. Verðið var ákveðið í samningum árið 2009. Er ríkið að fá of lítið fyrir hlutinn og á það yfirleitt að selja? Ætti það kannski frekar að kaupa hin 87 prósentin í bankanum? Már Wolfgang Mixa, lektor í fjármálum við Háskólann í Reykjavík, velti stöðunni fyrir sér. Maldíveyjar eru kunnur ferðamannastaður, paradísareyjar í Indlandshafi miðju. Undanfarin ár hafa eyjarnar aðallega ratað í fréttir vegna hættunnar sem að þeim steðja vegna hækkunar sjávarmáls, en á síðustu misserum hafa eyjurnar logað í pólitískum deilum, deilum sem stórveldin Indland og Kína hafa nú dregist inn í. Vera Illugadóttir sagði frá. Christian McBride og félagar fluttu lagið Laura. Það styttist óðum í gangsetningu kísilverksmiðju PCC á Bakka við Húsavík. Umræðan um verkefnið á Bakka hefur markast nokkuð af miklum ógöngum United Silicon í Helguvík og þeirri mengun sem angraði íbúa í nágrenni verksmiðjunnar. Forsvarsmenn PCC hafa fullvissað Húsvíkinga að slíkt muni ekki henda við opnun verksmiðjunnar á Bakka, allt verði gert til að forðast það. Ágúst Ólafsson ræddi við Hafstein Viktorsson, forstjóra PCC Bakki Silicon, um stöðu mála. Þættinum lauk á því að Cæcilie Norby söng lagið What do you see in her.
Mannlegi þátturinn 11.janúar 2018 Umsjón Lísa Pálsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir Leigumarkaðurinn á Íslandi hefur ekki verið uppá marga fiska, helst hafa einstaklingar leigt út eina og eina íbúð. Undanfarin ár hafa hins vegar verið stofnuð nokkur leigufélög, sem bjóða íbúðir hér og hvar á landinu. Almenna leigufélagið er eitt þeirra, og stefnir á markað. Við kynnum okkur rekstur og möguleika leigufélaga hér eftir stutta stund og ræðum við Maríu Björk Einarsdóttur framkvæmdastjóra Almenna leigufélagsins. Við höldum áfram að rifja upp gömul viðtöl úr safni Útvarpsins, í samstarfi við safnadeildina okkar. Að þessu sinni heyrum við viðtal frá árinu 1953, þá var á dagsskrá þátturinn Búnaðarþáttur í umsjón Gísla Kristjánssonar ritstjóra. Hann ræðir við Jón Brynjólfsson sem er þarna 84 ára gamall. Jón rifjar upp ýmislegt frá ævi sinni, hann er fæddur að Sóleyjarbakka í Hrunamannahreppi árið 1868 og býr að Nýbýlavegi 12 í Kópavogi þegar viðtalið er tekið. Meðal þess sem rifjað er upp í þættinum er konungsheimsóknin 1874, þegar Kristján níundi kom til landsins, harða vorið 1882 og jarðskjálftanum 1896 og fleiru. Heyrum þetta hér á eftir. Prump í Paradís er mánaðalegur viðburður í Bíó Paradís. Hugleikur Dagsson sýnir bestu verstu myndir í heimi og talar um þær ásamt góðum gestum. Prumpið að þessu sinni er stórvirkið MIAMI CONNECTION (1987) sem segir frá ævintýrum munaðarleysingja-ninja-hljómsveitarinnar Dragon Sound í Orlando. Ekki Miami. Þó að myndin heiti Miami Connection. Eftir myndina munu Hugleikur, Saga Garðarsdóttir og Valdimar Gudmundsson ræða um myndina.
Í höfuðstað Danmerkur eru tvö knattspyrnulið sem eru ein þau sigursælustu í dönskum fótbolta. Það eru F.C. København (sem oftast er einfaldlega kallað FCK) og Brøndby. Þessi lið eru með þeim stærstu á öllum Norðurlöndunum. Sparkvarpið ræðir sögu þessara liða og baráttu þeirra um völdin í Kaupmannahöfn í þætti dagsins. Danskir knattspyrnuunnendur flykkjast á leiki þessara liða í dönsku deildinni og í bikarmótum, oftar en ekki vopnaðir blysum og risastórum fánum. Það getur því verið mikil upplifun að vera viðstaddur viðureign þessara liða. Undanfarin ár hefur annað liðið hins vegar tekið fram úr hinu. FCK hefur unnið hvern titilinn á fætur öðrum í Danmörku undanfarin 10 ár og reglulega tekið þátt í Evrópukeppnum á meðan Brøndby hefur átt erfitt uppdráttar. Besti árangur liðsins í dönsku úrvalsdeildinni síðustu 10 árin er annað sætið árið 2006.
Í þætti vikunnar er sjónum beint til Hamburg í Þýskalandi. Þar í borg eru tvö fræg knattspyrnulið; klúbbarnir St. Pauli og HSV. Liðin hafa sjaldan verið í sömu deild en þrátt fyrir það er mikill rígur milli þeirra. St. Pauli hefur höfuðstöðvar sínar í rauða hverfinu í Hamburg þar sem Bítlarnir gerðu garðinn frægan á sínum tíma. Klúbburinn er afar ólíkur öllu sem tíðkast í dag. Hann á sér mikla sögu þrátt fyrir að hafa ekki afrekað stóra hluti innan vallar. Hann er einnig frægur fyrir sína pönkara stuðningsmenn sem halda fast í gömul gildi klúbbsins og forðast að dragast í markaðssetningu nútíma knattspyrnu. HSV er hins vegar mun sigursælla og eina liðið í Þýskalandi sem hefur leikið öll tímabilin í Bundesligunni frá stofnun deildarinnar. Liðið er gríðarlega stórt og eitt það stærsta í Þýskalandi. Það vann frækinn sigur í Evrópukepninni árið 1983 gegn sterku liði Juventus. Undanfarin ár hefur liðið verið í miklu basli en samt alltaf náð að bjarga sér frá falli. Útlitið er svart fyrir bæði liðin en þau hafa unnið 1 leik samtals á tímabilinu og neðst í sínum deildum. HSV skipti um stjóra í síðasta mánuði og spurningin er hvort að þeir nái að bjarga sér enn og aftur frá falli eða hvort að þeir fari niður í fyrsta sinn og mæti mögulega grönnum sínum í St.Pauli á næsta tímabili.
Það fagfólk sem hefur vanið sig á að vinna sína vinnu á Apple-tölvur mun í auknum mæli skipta um umhverfi og leita á náðir Windows-stýrikerfisins ef tæknirisinn í Kaliforníu uppfærir ekki MacBook Pro og Mac Pro-vélarnar fyrir þessa notendur. Fagfólk gerir oftar en ekki ríkari kröfu um að hægt sé að skipta út og bæta við vélbúnaði, hvort sem hann er innbyggður eða liggur fyrir utan tölvuna sjálfa. Undanfarin ár hefur Apple hannað tölvur og tæki sín með einfaldari vinnslu í huga, færri tengimöguleikum og færri möguleikum á viðbótum eða uppfærslum á vélbúnaði. Það hentar Pro-notendum ekki og því er hætt við að þetta fólk feli öðrum framleiðendum traust sitt. Í Tæknivarpinu er spjallað um stöðu Apple og afstöðu fyrirtækisins til fagfólks. Gestir þáttarins eru Pétur Jónsson, pródúsent Íslands, tónlistarmaður og hluthafi í Apple, og Hörður Ágústsson, eigandi Maclands. Umsjónarmenn eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson og Atli Stefán Yngvason. Nýlega kynnti Apple uppfærslu á MacBook Pro-tölvunni sinni þar sem þessi þróun virðist verða að vandamáli. Hámarks minni þessara nýju tölva er 16 mb og þar eru engin innbyggð tengi á borð við HDMI. Nýjasta Mac Pro-vélin sem stenst ítrustu kröfur fagfólks og er í sölu hér á landi er þriggja ára gömul týpa. Í dag kostar sú vél hátt í 600 þúsund krónur, ef tekið er venjulegt dæmi, og ef hún er uppfærð eins mikið og hægt er má búast við að verðmiðinn verði nær tveimur milljónum króna.
Fleetwood Mac þekkja allir. Undanfarin tíu ár hefur það verið hipstera-standard að hlusta á adult contemporary stöffið frá síðla-sjöu Fleetwood Mac og fíla það beint upp úr sósupakkanum.
Þáttarnótur: Áhyggjur KÍ: http://www.visir.is/fleiri-munu-ljuka-grunnskola-i-niunda-bekk/article/2016160208750 Lagfærð mynd um styttingu: http://ingvihrannar.com/wp-content/uploads/2016/01/stytting_nams_lagfaert.jpg Samræmd próf færð í 9.bekk: http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=CLP43218 Education and Longer Working Lives: http://bit.ly/243GEv1 The Effect of Educational Attainment on Adult Mortality in the U.S: http://www.prb.org/Publications/Reports/2013/us-educational-attainment-mortality.aspx Ólafur Proppé „Skýrsla um niðurstöður úr samræmdum prófum 1976-1977.“ „Undanfarin ár og áratugi hefur námsárangur nemenda almennt í skólum landsins verið metinn […]