POPULARITY
Þessi tími árs er runninn upp. Allir listamenn þjóðarinnar halda sumartónleika. Við erum engin undantekning. Gjöriði svo vel.
Á debut EP'ini "Future Sports" eru 6 sangir á enskum máli og eitt ljóðførislag, sum Baldur Nikolaj Heinesen Olsvig hevur skrivað. Tónleikin hevur Baldur framleitt saman við Alexander Bie, August Ørvad Jacobsen og Emil Mors Rasmussen. Allir sangirnir eru grundaðir á klassiska bólkakonstellation við bassi, guitari, trummum og sangi - víðkað og litað av ljóðborðum, vocodarum, talkbox og soundscape-elementum, sum vekja ein futuristiskan sci-fi-stemning. Í tíðindaskrivið verður greitt frá, at stílurin og ljóðið á EP'in Future Sports er ein samanrenning millum Sci-fi disco, synthpop og sport vibes - eitt ljóð, sum kom til í einum lítlum kamari í Havn, har teir 7 sangirnir vórðu skrivaðir ein myrkan vetur, við íblástri frá føroyska náttarlívinum og einum longsli eftir várinum. Tað ítróttarliga og futuristiska endurtekur seg eisini í tekstunum, har sci-fi tilvísingar og ítróttarhugtøk renna saman sum myndamál. Í kjarnuni snýr Future Sports seg um menniskju, sum bróta seg úr stagnation og søkja framgóngd, og um stríðið at mennast og finna sína egnu leið. Skotsmál: 8/10 stjørnum: Páll Oddur Rubbeksen 7/10 stjørnum: Birgar Larsen Eyðfinn Jensen leggur til rættis.
Arsenal er með pálmann í höndunum þegar liðið á tvo leiki eftir í ensku úrvalsdeildinni. Núna þarf bara eitthvað ótrúlegt að gerast svo þeir verði ekki meistarar. Arsenal vann 0-1 sigur á West Ham um helgina þar sem einn stærsti VAR-dómur sögunnar leit dagsins ljós. Mikið var rætt um þetta í Enski boltinn hlaðvarpinu sem og um aðra leiki helgarinnar en það er barátta á flestöllum vígstöðum þegar lítið er eftir af deildinni. Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum og gestir eru ÍR-ingarnir Ágúst Unnar Kristinsson og Sölvi Haraldsson.
Við kynntumst aðeins starfi Aldin, samtaka eldri aðgerðarsinna gegn lofslagsvá í þættinum í dag. Sólveig Baldursdóttir og Halldór Reynisson eru félagar í Aldin og þau komu til okkar og sögðu frá tilurð samtakanna, starfinu, samnefndum kór og þýðingu hans í þeirra starfi. Í lokin fengum við svo að heyra upptöku af kóræfingu. National Theatre Live er framtak Breska Þjóðleikhússins þar sem margar af bestu sýningum leikhússins eru sýndar í völdum kvikmyndahúsum um allan heim. Bíó Paradís er samstarfsaðili NTL á Íslandi og meðal sýninga framundan er uppfærsla Breska Þjóðleikhússins, All My Sons, eða Allir synir mínir eftir Arthur Miller, sem sýnd verður 25.maí. Ása Baldursdóttir dagskrárstjóri í Bíó Paradís og Sigríður Jónsdóttir, verkefnastjóri á leikminjasafni Þjóðminjasafnsins, komu í þáttinn og fóru til dæmis yfir hvaða sýningar verða í boði. Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í dag í veðurspjallið. Hann byrjaði á veðurútlitinu og veðurhorfum fram á kjördag og mikilvægi þess að almennar kosningar á landinu eru tímasettar á þeim árstíma þegar auðvelt er að komast leiðar sinnar. Svo fjallaði hann um muninn á veðri, tíðarfari, veðurfari og loftslagi. Að lokum voru það svo El-Nino og La-Nina, sem eru fyrirbæri í Kyrrahafinu og Einar skýrði fyrir okkur hver munurinn á þeim er og tengsl þeirra við veður á jörðinni og hnattræna hitann. Tónlistin í þættinum: Og co. / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Þór Sigmundsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson) Jörðin mín / Aldin kór (Jón Ásgeirsson, texti Ludvig Guðmundssyni) Glaumbær / Dúmbó og Steini (Jóhann G. Jóhannsson) Ítalskur calypso / Erla Þorsteinsdóttir (Monte & Merrell, texti Loftur Guðmundsson) Landsímalína / Spilverk þjóðanna (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Björn Ingi Hrafnsson og Daði Kristjánsson rýna í atburði líðandi stundar. Við ræðum hina umtöluðu páskaeggjaleit í heilbrigðisráðuneytinu á meðan starfsfólk Landspítalans stendur eftir með tómar hendur, nýjar vendingar í ESB-leiðangri Viðreisnar, hvort að íslensk stjórnvöld séu að sofa á verðinum gagnvart gervigreind, krísu í efnahagsmálum, umfjöllun Rúv um uppgjör sjávarútvegsfyrirtækja og margt fleira. Þá er hrós vikunnar á sínum stað ásamt hraðaspurningum, þar sem tónlistarsmekkur Sigmundar Davíðs kemur m.a. við sögu.
Manchester City vann deildarbikarinn um helgina með 2-0 sigri gegn Arsenal, og fyrsti bikarinn farinn á loft á þessu tímabili. Það var í raun ekkert lið sem flestir íslenskir stuðningsmenn halda með sem unnu um helgina. Aðeins átta leikir fóru fram í deildinni en þar tapaði Liverpool gegn Brighton, Chelsea tapaði fyrir Everton, Tottenham tapaði fyrir Nottingham Forest, Newcastle tapaði fyrir Sunderland. Á meðan Manchester United gerði jafntefli við Bournemouth og Leeds gerði jafntefli við Brentford.Haraldur Örn fór yfir alla þessa leiki í 31. umferð deildarinnar með Arnóri Gauti Ragnarssyni fyrrum leikmanni Aftureldingar og Loga Páli Aðalsteinssyni samfélagsmiðlastjörnu og Liverpool stuðningsmaður.
Þessi dagur fer heldur betur niður í bækurnar og er okkur mjög hátíðlegur því hún stórglæsilega Birta Líf okkar á stórafmæli í dag Við fögnum því með því að tileinka þættinum til our Queen í nánast beinni útsendingu!! Thirty, flirty and thriiiiiving Allir að óska Birtu okkar innilega til hamingju með stórafmælið við værum ekki hér án hennar Birta Líf, WE LOVE YOU SO MUCH BESTIE CHEERS TO YOU Þátturinn er í boði: Bestís & MINI Bestís Tres Locos Hagkaup Blush Happy Hydrate Ballerina Coca Cola Natracare Laugar Spa Indó Eldum rétt
"Sólskin" er heiti á nýggjastu heildarútgávuni við (74 ára gamla) Stanley Samuelsen úr Fuglafirði, sum seinastu 55 árini hevur búð í Danmark. Á fløguni eru 10 sangir, sum Stanley antin hevur gjørt sjálvur, týtt til føroyskt, og/ella sett lag til. Allir eru á føroyskum máli uttan heitislagið "Solskin", sum er yrking á donskum eftir William Heinsesen. Upptøkurnar hava Jónas Bloch Danielsen, Finnur Hansen og Flemming Rasmussen staðið fyri. Jóhannus á Rógvi hevur framleitt, og Óli Poulsen hevur ljóðblandað og frumbandað útgávuna, sum plátufelagið Tutl gevur út. Ólavur Larsen hevur samskipað verkætlanina. Skotsmál: 8/10 stjørnum: Regin Toftegaard 8/10 stjørnum: Páll Oddur Rubbeksen Eyðfinn Jensen hevur lagt til rættis.
Þórarinn ræðir við Omar Rondon en hann er flóttamaður frá Venezuela. Omar telur að allir ættu að samgleðjast Venezuelabúum nú þegar Nicolás Maduro hefur verið steypt af stóli og situr nú í bandarísku fangelsi í New York. Hann segir að Venezuelabúum sé sama um það hvernig olíunni verði ráðstafað nú þegar Bandaríkjamenn segjast vilja stýra landinu einfaldlega vegna þess að um langt skeið hafi íbúar landsins hvort eð er ekki notið góðs af olíuauð þess.Omar er samt sem áður áhyggjufullur yfir því hvort að bjartari tímar muni koma nú strax í kjölfarið. Hann segir að menningarlega hafi margt gengið á og traust sé lítið, bæði gagnvart lögreglu, öðrum íbúum og hernum í landinu.- Er gott að Maduro hafi verið steypt af stóli?- Afhverju eru viðhorf Vesturlandabúa svona frábrugðin þeim sem sjást meðal Venezuelabúa?- Hvernig mun framtíð Venezuela lýta út?Þessar spurningar eru ræddar hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me
Stefán Pálsson mætti til Dr. Football og sagði sögu Grande Torino en allir leikmenn liðsins létust í flugslysi árið 1949. Þeir voru þá yfirburðar lið á Ítalíu.
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Jóhann Kristófer Stefánsson er tónlistarmaður sem vakið hefur verðskuldaða athygli á undanförnum árum. Í þættinum ræða Sölvi og Joey um listina, samfélagsmál, andlega vakningu og margt margt fleira. Allir hlustendur fá 20% afslátt af tónleikunum hans sem eru í næstu viku með kóðanum: "solvi20" Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/
Gunnlöð er besti ljómyndari Íslands. Hún ´útskýrir af hverju. Spoiler það snýst aðalega um hvernig þú stillir ljósopið á myndavélinni þinni. Hlustun er sögu ríkari.
Hvað hefðum við fengið af peningum að fara á HM? Hvað með neyslu hér heima yfir HM? Afhverju er miðaverðið svona hátt í Norður Ameríku? Hvað kosta að falla í 1.deild á Íslandi? Ónýt bikarkeppni hvað er til ráða? Heilagt stríð Vísis gegn bjór á vellinum Allir að byggja völl eða stækka Heimildamyndir tengdar íþróttum ströggla HSÍ ráða framkvæmdastjóra. Og fleira með Birni Berg og Jóa Má
Betur hefði mátt standa að upplýsingagjöf til borgarráðs þegar bensínstöðvasamningar Reykjavíkurborgar við olíufélögin voru samþykktir á tveimur fundum. Allir fulltrúar hefðu þó átt að vera meðvitaðir um að olíufélögin höfðu fjárhagslegan ávinning af samningunum. Margt virðist hins vegar hafa verið óljóst og annað hvorki skoðað né greint nægilega vel. Þetta kemur fram í úttekt innri endurskoðunar borgarinnar á samningunum. Rætt við borgarfulltrúana Einar Þorsteinsson (B), Hildi Björnsdóttur (D) og Líf Magneudóttur (V) um samningana.
Líkasum Jesus segði við hin deyða: “Ungi maður, eg sigi tær, reis teg upp!” soleiðis hevur hann eisini máttin til at siga tað sama við okkum og yvir okkara grøv! Lestur: 1 Kong 17,8-10a og 17-24. Evangelium: Luk 7,11-17. Sálmur fyri prædiku: 448 (Her møtast allir vegir)
Liverpool eru með 5 stiga forskot í deildinni eftir 2-1 sigur í Bítlaborgarslagnum gegn Everton. Arsenal og Man City gerðu 1-1 jafntefli á Emirates. Man Utd unnu mikilvægan sigur á Chelsea 2-1 á Old Trafford. Allir nýliðarnir náðu í stig um helgina. Brighton og Tottenham gerðu 2-2 jafntefli á Amex og Bournemouth og Newcastle skildu markalaus 0-0 á suðurströndinni.
Leikvika 1 liðin og skemmtileg helgi að baki. Kalli, Jóli og Maggi í Bolastúdíói Podcaststöðvarinnar og Matti í léttölskompunni á Egilstöðum. Stórskemmtileg helgi að baki! Comeback hjá Bills, Packers taka RaRa-lausa Lions og Chiefs koma andlausir til leiks. Allir leikir helgarinnar ræddir og spá fyrir leikviku 2. Þetta byrjar vel!Tíu Jardarnir eru í boði Bola léttöls og Arena gaming eru mættir aftur, heimavöllur NFL!#tiujardarnir#nflisland
It's Sunny's Day ☀️ Í þessum þætti fögnum við afmælisdegi drottningarinnar okkar, Sunny!
AB VARAHLUTIR - Á FERÐ OG FLUGI - BÍLAPUNKTURINN - BÍLJÖFUR - TORFÆRUAPPIÐBragi fékk til sín Pétur Bakara, Sigga Braga og Bogga á rallýbílasýningunni í vor. Allir kepptu þeir um Íslandsmeistaratitilinn í ralli árið 2008.
Allir geta lent í því að koma að fólki sem hefur lent í áfalli, slysi, ofbeldi, náttúruhamförum eða einhverjum öðrum alvarlegum atburðum. Þá geta fyrstu viðbrögð verið mikilvæg og ýmislegt sem ber að varast. Auðvitað ætti fagfólk að veita slíka hjálp en alvarlegir atburðir gera oft ekki boð á undan sér, því getur verið gott að kunna einföld viðbrögð sem geta hjálpað þangað til fagfólk getur komið inn í aðstæðurnar. Belinda Karlsdóttir leiðbeinandi hefur kennt sálræna fyrstu hjálp hjá Rauða krossi Íslands og á næstunni ætlar Rauði krossinn að bjóða almenningi upp á netnámskeið í sálrænni fyrstu hjálp. Belinda ræddi um þetta. Barnabarn Helgu Steffensen, Hörður Bent Steffensen hefur tekið við Brúðubílnum af ömmu sinni eftir nokkurra ára hlé og býður upp á fjölda sýninga í sumar ásamt góðu teymi. Hann er leikari að mennt og var mikill aðdáandi Brúðubílsins alla sína æsku og fékk loks að taka þátt í sýningum á unglingsaldri. Hörður sagði frá sýningum sumarsins og hversu vel amma hans hélt upp á brúðurnar, handritin og leikmyndirnar sem fylgja Brúðubílnum sem á um hálfrar aldar sögu. Póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Magnús er nýkominn til Eyja eftir ferðalag erlendis og lentur í norðanbrælu og kulda. Hann rifjaði upp þegar hann kom fyrst til Eyja fyrir fjórum árum þá var honum sagt að það væri þrennt sem ekki mætti krítisera í Eyjum og hann fer yfir það í póstkortinu. Í seinni hlutanum sagði hann aðeins frá brosinu sem er nánast einstakt í dýraríkinu hér á jörð. Tónlist í þættinum í dag: Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir) Sveitin mín / Haukur Morthens (Jóhann Helgason) Dýrin úti í Afríku / Brúðubíllinn (Helga Steffensen) Sveitastúlkan og sveitapilturinn / Marína og Mikael (Charlie Parker, texti Marína Ósk Þórólfsdóttir) Hafið / Egill Ólafsson (Matti Lauri Kallio, texti Egill Ólafsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
Katrín Aagestad markaðsstjóri Prís er frá Selfossi og fór í FSU í framhaldsskóla þar sem hún tók þátt í leikriti og nemendafélagsstarfi. Eftir framhaldsskóla fór hún í heimsreisu og byrjaði síðan í viðskiptafræði við HÍ en hætti eftir eitt ár þegar hún komst að því að markaðsfræði og stjórnun voru áhugaverð en hagfræði og bókhald minna. Hún komst inn í leiklistarskóla í Kaupmannahöfn en skólinn lokaði vegna fjármálasjárnar. Kennararnir stofnuðu nýjan skóla en Katrín ákvað að læra multimedia design í staðinn, sem opnaði nýja heimana fyrir hana. Hún kláraði síðan bachelor-nám í vörumerkjaþróun (branding) og kom heim til Íslands eftir fimm ár í Danmörku. Katrín fjallar m.a. óvissu í námi og leið að hennar til að finna sína braut í markaðsmálum. Hennar reynsla sýnir mikilvægi þess að prófa sig áfram, læra af mistökum og finna það sem maður hefur virkilega áhuga á. Vinna hennar hjá Prís sýnir hvernig hægt er að ná árangri með skapandi lausnir þrátt fyrir takmarkaða fjármuni. Katrín byrjaði að vinna hjá Pegasus í kvikmyndaframleiðslu þar sem hún var í starfsnámi. Hún vann sem koordinator með allt að 40 manna teymi, sá um transport, flug, hótel og gistingu. Þetta var "bootcamp í skipulagi" sem nýttist henni vel síðar í markaðsstarfi. Eftir ár hjá Pegasus sótti Katrín um vinnu hjá Nova og var ráðin í markaðsdeildina, fyrst sem "textasmiður" en þróaðist í að vera verkefnastjóri og síðan auglýsingamegin. Hún vann þar með Brandenburg auglýsingastofunni og var meira í kreatífu hlutverki. Hjá Nova lærði hún öguð vinnubrögð með daglegum morgunfundum og vikulegum skipulagsfundum. Hún varð síðan markaðsstjóri með mannaforráð í fyrsta skipti. Meðal herferða sem hún vann að voru "Allir úr" auglýsingin og "Elskum öll" herferðin sem henni þykir sérstaklega vænt um. Í dag vinnur Katrín hjá Prís, lágvöruverðsverslun á Smátorgi 3 í Kópavogi. Fyrirtækið hefur mælst með ódýrasta verðið frá upphafi samkvæmt ÁSÍ og markmið þeirra er að bæta hag almennings með því að lækka matvöruverð á Íslandi. Prís hefur ekki mikið markaðsfé til ráðstöfunar þar sem þeir vilja halda lítilli yfirbyggingu til að geta boðið besta verðið. Þetta þýðir að þeir þurfa að nýta hverja krónu sem best og hugsa snjallt um hvaða miðla þeir nota. Óvænt fyrir Katrínu hefur samfélagsmiðlaefni orðið þeirra besta auglýsingatól. Mest allt efni fer organic og tekur "náttúrlegan flug" án þess að þurfa að fjárfesta miklu í auglýsingum. Þeir búa til efni sem fólk vill horfa á tvisvar frekar en bara einu sinni. Stærsta áskorunin er að brjóta upp venjur fólks - flestir fara alltaf í sömu búð í sömu rútínu. Prís er staðsett uppi á Smátorgi sem er líka hindrun. Þrátt fyrir þetta hefur fyrirtækið vaxið jafnt og þétt síðan það opnaði í ágúst 2022 og er að byggja upp fastan viðskiptavinahóp. Prís er í stöðugri tilraunastarfsemi og prófar mismunandi aðferðir. Þeir fylgjast aðallega með engagement á samfélagsmiðlum sem besta mælikvarðann á árangur. Þeir hafa líka prófað að setja sérstakan fókus á ákveðnar vörur, eins og grillaðan kjúkling, með góðum árangri. Katrín sækir innblástur víða - úr samtölum við aðra, myndlistarsýningum og kreatífri starfsemi utan vinnu. Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að hafa skýr markmið og vita nákvæmlega hvernig vörumerkið á að tala, sem gerir það auðvelt að meta hvort hugmyndir passa við stefnuna. Prís vinnur með Sirkus auglýsingastofu og Katrín leggur áherslu á mikilvægi góðs samtals þegar þeir eru að hugsa um næstu skref í vörumerkjasögunni. Katrín hvetur fólk til að prófa eins mikið og mögulegt er til að finna hvað þeim finnst skemmtilegt, þar sem það leiðir til betri árangurs. Hennar eigin markmið er einfalt: "að hafa bara gaman" og taka allar ákvarðanir út frá því hvort verkefnið sé skemmtilegt. Hún leggur líka áherslu á mikilvægi áskorana - þegar engar áskoranir eru til staðar hættir vinnan að vera skemmtileg. Katrín sjálf er ánægð með núverandi stöðu en segist ekki hafa nógu góða hugmynd fyrir eigið fyrirtæki ennþá.
Oft eru gerðar miklar kröfur um samskiptahæfileika í atvinnuauglýsingum, jafnvel í störfum þar sem þeirra er ekki þörf. Þetta getur haft útilokandi áhrif fyrir einhverfa sem búa oft yfir öðrum styrkleikum sem nýtast vel í starfi. Eru gáfur jafnvel að fara til spillis vegna þess að vinnumarkaðurinn er of einsleitur? Í meistararitgerð með yfirskriftinni: Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga, rannsakar Bjarney L. Bjarnadóttir þessi mál. Við ræðum við hana um rannsóknina hér á eftir. Og í dag flytjum við líka sérstakan pistil úr smiðju Estherar Jónsdóttur, pistlahöfundar Samfélagsins. Pistill dagsins fjallar um hafið og í honum komum við meðal annars við á eyjunni Maui, í kvikmyndahúsi í Reykjavík á frumsýningu merkilegrar kvikmyndar, í Háskólasetri Vestfjarða og á stöndinni við Hólmavík.
Allir þekkja Jóhannes Kjarval og margir Ingimund fiðlu bróður hans en þriðji bróðirinn Þorsteinn er ekki eins þekktur. En hann skrifaði gagnmerka ævisögu þar sem hann segir frá uppvexti sínum í mikilli fátækt í Meðallandi og síðan vist sinni hjá vandalausum á Austfjörðum.
Loksins er leyndamálið komið út við kynnum í samstarfi við Kjörís: MINI BESTÍS
Allir landvættirnir mættir í dag. Slúður, Fjársjóðurinn var gull, Topp 3, Umræðan er nýr liður og Helgin framundan. Matti mætti með tollinn.Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
Sigurbjörn Bárðarson, hestamaður, tamningameistari, landsliðsþjálfari og afreksmaður er þjóðsagnapersóna í lifanda lífi og einn verðlaunaðasti íþróttamaður íslenskrar íþróttasögu. Hann var kjörinn íþróttamaður ársins árið 1993 og var tekinn inn í heiðurshöll Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í ársbyrjun 2025. Á laugardaginn verður frumsýnd ný íslensk heimildarmynd, Sigurvilji, um Sigurbjörn og hann var hjá okkur í dag og við ræddum við hann um þennan ótrúlega feril, heimildarmyndina, fjölskylduna og auðvitað samband hans við hestinn. Karlakórinn Voces Masculorum er að eigin sögn langbesti og hógværasti karlakór landsins. Kórinn var stofnaður árið 2000 og hefur aðallega helgað sig söng við jarðafarir. Nú er kórinn 25 ára og heldur uppá það með tónleikum og á dagskránni eru, eins og þeir orða það, aðallega lögin við vinnunna eða útfararsálmar en einnig hefðbundin karlakóraviðfangsefni bæði innlend og erlend. Gissur Páll Gissurarson og Hjálmar P. Pétursson komu til okkar í dag í spjall og við fengum í lokin að heyra í kórnum. Tónlist í þættinum í dag: Reiðmenn vindanna / Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna (Stan Jones, texti Bragi Valdimar Skúlason) Allir eru að fara í kántrí / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason) Heilig heilig / Voces Masculorum (Franz Schubert) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Loksins er komið að löngu tímabæru kosningauppgjöri Tuðsins. Allir sem náðu inn á þing virðast sigurvegarar og bara þau sem þurrkuðust út töpuðu. En hver fær að mæta í jólaglögg Alþingis? Þemalag þáttarins er Grætur í Hljóði eftir Prins Póló.
Doc, Arnar Sveinn Geirsson og Jói Már á sunnudagskvöldi.
Góða kvöldið, Fámennt en góðmennt á Endalínunni í kvöld. Nú hafa öll liðin unnið leik og stefnir í mikla baráttu héðan í frá í þessari stórskemmtilegu deild.
Það var fullmannað Podcaststúdíó Podcaststöðvarinnar þegar Valur, Maggi og Kalli heyrðu í Matta á Egilsstöðum og ræddu viku 11 í NFL.DD Við hvetjum alla til að mæta í Arena Gaming á sunnudaginn næsta en þar verða strákarnir með Live show frá klukkan 16:45! Allt þetta í boði Arena Gaming og Lengjunnar.
Hugmyndafræði sósíalismans hefur ekki beðið skipbrot heldur virðast allir flokkar verða sósíalískari fyrir kosningar. Þetta segir Sanna Magdalena Mörtudóttir, leiðtogi Sósíalistaflokksins, fyrir komandi þingkosningar. Hún segir að eigin reynsla af því að alast upp við fátækt sé drifkraftur hennar og boðar réttlátara skattkerfi og stefnubreytingu í húsnæðisuppbyggingu. Þar eigi hið opinbera að stíga inn og fjármagna uppbyggingu á félagslegum grunni.
Þyngsti dómur yfir konu í heila öld féll í Héraðsdómi Reykjaness í gær, móðir var dæmd í átján ára fangelsi fyrir að verða barni að bana og tilraun til manndráps. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir slíkt afar fátítt. Fjármálaráðherra Þýskalands var látinn taka pokann sinn í gær og kanslarinn sparaði honum ekki kveðjurnar, lítilsigldur og huglaus voru einkunnirnar og við blasir stjórnarkreppa. Allir vilja atkvæði ungra kjósenda en kosningaþátttakan er minni en hjá þeim sem eldri eru. Hvað er hægt að gera til að virkja unga kjósendur? Rætt við Evu Laufeyju Eggertsdóttur stjórnmálafræðing og einn höfunda handbókarinnar Lýðræðisvitans.
Sjaldan gerist það að maður verði frægur á einni nóttu. Svo var þó bókstaflega um Gísla Oktavíanus Gíslason frá Uppsölum í Selárdal. Hann var nánast algjörlega óþekktur áður en Ómar Ragnarsson, landskunnur sjónvarpsmaður, bankaði upp á hjá honum árið 1981. Þátturinn Stiklur var sýndur á jóladag árið 1981. Þá var íslenskt samfélag að nútímavæðast hratt. Allir vildu eiga nýjustu tækin, hvort sem um var að ræða litasjónvarp, myndbandstæki, fótanuddtæki eða Soda-Stream. Því sat þjóðin gapandi af undrun og horfði á viðtal við mann sem virtist eins og hann væri nýkominn frá 1881. Á Uppsölum var ekkert sjónvarp eða Soda-Stream. Þar var einfaldlega ekkert rafmagn né rennandi vatn. Gísli notaðist enn þá við orf og ljá. Hann heillaði fólk þó með einlægni sinni og glettni. Einnig er ekki annað hægt en að dást að seiglunni og ósérhlífninni sem einkenndi einbúann í Selárdal. En saga hans er þó einnig harmsaga manns sem átti vonir og drauma sem ekki rættust. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook
Eyþór Wöhler var gestur Dr. Football ásamt Kela.
Þann 24. febrúar árið 1978 fóru fimm menn frá Yuba-sýslu í Kaliforníu á körfuboltaleik í Chico, nálægum bæ. Uppáhaldsliðið þeirra var að keppa og vildu þeir styðja það. Sjálfir áttu þeir að leika mikilvægan leik daginn eftir. Þeir glímdu allir við minniháttar þroskahamlanir. Þeir stóðu sig þó almennt ágætlega í að takast á við áskoranir lífsins. Þeir voru allir í sama körfuboltaliðinu og daginn eftir var mikilvægur leikur. Sigurvegararnir áttu að fá í verðlaun vikuferð til Los Angeles. Allir voru þeir mjög spenntir fyrir því og ákveðnir í að sigra leikinn. Þetta var í síðasta skipti sem þeir sáust á lífi. Eftir nokkurra daga leit fannst bíll þeirra um 180 km norður af Chico en heimabær mannanna var í þveröfuga átt, um 80 km suður af Chico. Þeir höfðu keyrt upp í fjalllendið í Plumas-þjóðgarðinum. Allar götur síðan hefur þetta hvarf valdið miklum heilabrotum fólks. Sumir voru fljótir að afskrifa þetta vegna þroskaskerðingar mannanna. Ættingjum þeirra hefur alltaf sárnað sú umræða. Enda er nokkuð ljóst að mennirnir voru að miklu leyti færir um að sjá um sig sjálfir. Ýmsar kenningar hafa komið fram um hvað gæti hafa valdið þessu dularfulla hvarfi. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook
þá vorum við þrír.... lauf létt upphitun fyrir verslunarmannahelgina, Sesi búinn að fara sjö hringi í kringum landið á tveimur vikum, Jón tók þyrluna á "hótelherbergi" Slúðrið, Top 3 og Gull Lite testið Spekingar taka upp í Podcaststöðinni og eru í boði Gull Lite.
Evrópumótið í fótbolta hefst núna á föstudaginn með opnunarleik Þýskalands og Skotlands. Það er afar spennandi mót framundan og mörg lið sigurstrangleg. Guðmundur Aðalsteinn fékk nýverið Gunnar Birgisson og Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamenn á RÚV, í heimsókn til að hita upp fyrir mótið. Farið var í gegnum alla riðlana og liðin skoðuð. Skemmtileg yfirferð svona stuttu fyrir mót.
Doc, Arnar Sveinn og Jói Már um íslenska og enska.
Björgvin Páll Gústavsson kom í spjall til okkar og ræddi handboltaferilinn, æskuna og gaf góð svefnráð. Hjálmar byrjaði þáttinn á því að tala um sinn handboltaferil. Björgvin tók stóra lífs ákvörðun eftir að hann hlustaði á Alan Watts. IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!
Dr. Football á mánudegi. Allir steinar á einum stað. Kóngurinn og Jói Már gestir.
Já kæru hlustendur , Endalínan er mætt og gerir upp stöðuna eftir 19.umferðina í Subway Deild Karla. Allir punktarnir um liðin og leikina ásamt hefðbundnum dagskrárliðum á Endalínunni í boði Cintamani , Viking Lite, Brons , Soho , Miðherja , Fisk og Kjötbúð Reykjaness , Just Wingin it , Macland og Betson.
Það var leikið í ensku úrvalsdeildinni í miðri viku en það má með sanni segja að tveir efnilegir og spennandi leikmenn hafi stolið senunni. Gummi og Steinke komu sér vel fyrir í Thule-stúdíóinu í dag og fóru yfir leiki umferðarinnar með Óskari Smára Haraldssyni, þjálfara kvennaliðs Fram. Einnig var aðeins farið yfir gluggadaginn í gær en hann var fremur bragðdaufur.
En annað rantið um jólamyndir, spjall um lífið um jólin og hvað það er gott að vera til. Allir að passa borða nóg um jólin
Jói, Keli og Mr. Bond á miðvikudagskvöldi
Jói, Keli og Arnar Sveinn á sunnudagskvöldi.
Skoðum hversu veruleikafirrt, eða dululu, fólk getur almennt verið. Við ræddum svokallað "girl math" og "boy math" sem er út um allt á tiktok og öðrum miðlum þessa dagana. En er mögulega sálfræðilegur ávinningur við það að vera delulu? Perhaps maybe.
Á 20. öld átti Ísland í hatrammri deilu um fiskveiðilögsögu við margar þjóðir. Hörðust var deilan við Bretland sem sendi sjálfan flotann í þrígang á Íslandsmið til að skakka leikinn. Bretar göntuðust með að ekki væri nóg að það væri "Cold War", heldur væri nú komið "Cod War", eða þorskastríð. Nafnið hefur fest sig í sessi þrátt fyrir að þetta hafi á engan hátt verið stríð, í fullri merkingu þess orðs. Þessi deila er merkileg að mörgu leyti. Nú gátu stórveldi ekki lengur vaðið yfir þau smáu í krafti herstyrks. Ísland og Bretland voru saman í hernaðarbandalagi og vera Íslands þar var afar mikilvæg hvað öryggi Bretlands varðaði. Breytingar og umbætur á hafréttarlögum spiluðu einnig stórt hlutverk og nýttu Íslendingar sér það óspart, með góðum árangri. Deilan varð þó svo hörð að ýmsir óttuðust að Ísland myndi jafnvel senda bandaríska herinn úr landi. Ekkert varnarmálaráðuneyti á Vesturlöndum vildi sjá það gerast. Deilan er því ansi áhugaverð hvað alþjóðasamskipti og sögu kalda stríðsins varðar. Allir fjórir þættir septembermánaðar verða um þorskastríðin. Við mælum með því að rifja upp kynni við þátt númer 79 sem heitir "Togaraskelfirinn" og fjallar um landhelgisgæslu Dana við Ísland í upphafi 20. aldar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook
Ingó Sig og sú Litla með Dr. Football á fimmtudegi.