POPULARITY
Þórarinn ræðir við Hermann Nökkva Gunnarsson, blaðamann á Morgunblaðinu, um stjórnmálin á Íslandi, hægrisveifluna, Trump, leikskólamál, og margt fleira. Sérstök áhersla er lögð á Suðurnesin en Þórarinn og Hermann telja báðir að Reykjanesskaginn í heild sinni fái minni athygli en hann á skilið í opinberri umræðu. Rætt er um jarðshræringar og Grindavík, hælisleitendamálin á Ásbrú, álit embættismanna í Reykjavík og margt fleira. - Afhverju ákváðu embættismenn í Reykjavík að lítið hverfi á Ásbrú gæti tekið við 1400 hælisleitendum? - Standa Keflvíkingar verst er varðar aðgengi að leikskóla fyrir börn? - Hverjar eru fyrirætlanir Donald Trump í Bandaríkjunum? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón
Miðvikudagur 9. apríl Stjórnarandstaða, tollastríð, reynsluboltar, dauðastríð, óþekktur þingmaður, vá og ópera Er Sjálfstæðisflokkurinn að missa það? Þannig spyr einn af þingmönnum ríkisstjórnarinnar, Sigurjón Þórðarson sem ræðir um grímulaust málþóf minnihlutans, fýlu, frekju og eignarhald í spjalli við Björn Þorláks. Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild HÍ, ræðir um tolla og efnahagsstefnu Trump við Gunnar Smára. Reynsluboltarnir koma í spjall við Sigurjón Magnús: Bolli Héðinsson, hagfræðingur Einar Kárason rithöfundur Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur og fyrrum þingkona. Mest bar á umræðunni um veiðigjöld útgerðarinnar. Og auðvitað Donald Trump. Fyrsta langreyðurin sem Hvalur hf. skaut eftir að veiðar hófust á ný, eftir tímabundna stöðvun, háði 35 mínútna dauðastríð. María Lilja fær til sín þær Rósu Líf Darradóttur, lækni og formann samtaka um dýravelferð og stjórnarkonu Hvalavina auk Valgerðar Árnadóttur, nema í stjórnmálafræði og talskonu Hvalavina sem eru á einu máli um að ekki sé mögulegt að veiða stórhveli með mannúðlegum hætti. Óþekkti þingmaðurinn í þessari viku er Guðmundur Ari Sigurjónsson. Hver er hann? Hverjar eru hans persónulegu hliðar, hvað leynist bak við yfirborðið? Hvernig fékk hann örið á andlitinu? Björn Þorláks ræðir við nýjan þingmann á Alþingi. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, jarðfræðingur og Guðmundur Steingrímsson doktorsnemi ræða um véfengingu Frosta Sigurjónssonar og fleiri um vá sem steðjar að okkur vegna hlýnunar jarðar af manna völdum. Friðrik Margrétar-Guðmundsson tónskáld og Hanna Dóra Sturludóttir söngkona segja okkur frá Brím, nýrri íslenskri óperu sem tekur á heitri umræðu um kúltúrbörn.Er Sjálfstæðisflokkurinn að missa það? Þannig spyr einn af þingmönnum ríkisstjórnarinnar, Sigurjón Þórðarson sem ræðir um grímulaust málþóf minnihlutans, fýlu, frekju og eignarhald í spjalli við Björn Þorláks. Friðrik Margrétar-Guðmundsson tónskáld og Hanna Dóra Sturludóttir söngkona segja okkur frá Brím, nýrri íslenskri óperu sem tekur á heitri umræðu um kúltúrbörn.
Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum í gær. Frá því að hann tók við embætti forseta í Janúar hefur hann unnið að því að gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið. Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið að bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar. Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem stýrir samfélaginu eins og sprotafyrirtæki. Það þarf að byggja upp einveldi, nýtt konungsdæmi, segja jafnvel sumir. Þessa dagana sökkvum við okkur ofan í þessar byltingarhugmyndir og hugsuðina á bakvið þær, konungssinnana í Kisildal. Í þætti dagsins kynnum við okkur hugmyndir fjárfestisins Marc Andreessen. Marc hefur þangað til nýlega verið yfirlýstur demókrati en nú styður hann Trump. Hann tók þátt í því að hjálpa Trump að velja inn starfsfólk í nýju Trump-stjórnina og kallar sig ólaunaðan lærling hjá D.O.G.E. Hvað gerðist? Hverjar eru skoðanir Marc Andreessen, sem hefur stundum verið kallaður hugmyndafræðingur Kísildalsins?
Sérfræðingurinn, Klipparinn og Ragnheiður Júlíusdóttir fara yfir EM kvenna. Hverjar gætu hætt og hverjar eru næstar inn? Hverjar gætu farið út og er eitthvað betra að fara út? Spáð var í spilin fyrir 13.umferð Olís-deildar karla sem hefst annað kvöld.
Við höldum áfram að ræða tónlist sem er smíðuð með skapandi spunagreind. Nú lítum við út fyrir landssteinana og skoðum dæmi gervigreindartónlist sem hefur náð inn á vinsældalista í nokkrum löndum, t.d. í Þýskalandi, Noregi og Svíþjóð. Við pælum líka í því hvort tónlist geti orðið að samskiptaaðferð, ekki einstaklings við hóp hlustenda, heldur bara milli tveggja einstakling. Haukur Már Helgason fylgdist með heimatilbúnu stjörnuhrapi yfir suðvesturríkjum Bandaríkjanna síðustu helgi. Sjónarspilið varpar meðal annars ljósi á það hversu alltumlykjandi Elon Musk er orðinn í samtímanum, og hvernig það er hvergi hægt að vera "úti." Njörður Sigurjónsson ræðir erindi sitt á Þjóðarspeglinum 2024 sem heitir Hinsvegar: Ólík gildi innan menningargeirans eins og þau koma fyrir í orðræðu stjórnenda. Hverjar eru helstu áskoranir þeirra sem vinna við að stýra menningarstofnunum?
Hverjar verða áherslur nýju Samfylkingarinar undir leiðsögn Kristrúnar? Þurfa ekki allir flokkar að vera með plan? Hvernig viðheldur Samfylkingin fluginu? Þessar spurningar og fleiri koma fram í nýjum þætti hlaðvarpsins Ein Pæling.
FH hafði betur gegn Haukum í Hafnarfjarðarslagnum sem fór ekki framhjá neinum. Hitað upp fyrir 4.umferðina í Olís-deild karla sem hefst í kvöld. Hverjar hafa skarað framúr í Olís-deild kvenna og Strákarnir okkar erlendis. Kíkt var til ársins 2015 í "Aftur til fortíðar" þegar íþróttasíður Morgunblaðsins voru stútfullar af fréttum um Þjóðaríþróttina.
Páll Erlingsson kennari kemur til okkar og segir okkur frá stöðu Grindvíkinga sem eru á flótta undan landinu. Hvaða framtíð sjá þeir? Hverjar eru vonirnar, hvað óttast fólk mest og hvaðan kemur stuðningurinn? Við fáum Eirík Örn Norðdahl til að ræða við okkur um hversu rasísk utanríkisstefna stjórnvalda er og hversu mikið kynþáttahyggja litar stofnanir samfélagsins. Erum við blind fyrir þessu? Eða bara sátt? Í lokin kemur Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur og segir okkur frá Reykjaneseldum fortíðar og þeim nýju sem nú eru hafnir og munu líklega halda áfram næstu áratugina.
Hugtak þáttarins er feðraveldi. Hjalti og Oddur útskýra hugtakið með því að taka dæmi úr Laxdælu. Hverjar voru Unnur djúpúðga og Melkorka Mýrkjartansdóttir og hvernig notaði hún reglur feðraveldisins ser í hag?
Stífar samningaviðræður um hækkun skuldaþaksins í Bandaríkjunum hafa staðið yfir undanfarið. Oddur Þórðarson rýndi í þetta fyrirbæri, hvað er skuldaþak og til hvers er það? Og hvers vegna er settur á svið samkvæmisleikur og samningaviðræður þegar kemur að nauðsynlegri hækkun skuldaþaksins. Fólk í dag eignast töluvert færi börn nú en fyrir 50 árum. Fæðingartíðnin í löndum OECD er nú komin niður fyrir það sem stofnunin telur nauðsynlegt til að viðhalda mannkyninu og yfir 100 þjóðir eru undir þeim mörkum, þar á meðal Ísland. Hverjar eru skýringarnar og hvað er hægt að gera til að breyta þessu? Hallgrímur Indriðason skoðar málið með aðstoð Ara Klængs Jónssonar, doktors í mannfjöldafræði. Umsjónarmenn Heimskviða eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Hverjar eru top 3 leiðirnar til þess að koma kærustunni á óvart í rúminu? Maður skyr sig. Þáttur af gamla mátanum: Komum allir með heilráð, ræðum erfiðu málin og endum þáttinn á CLASSIC 3x3. Njótið!
Þessi þáttur er í áskrift. Ég mæli með að hlusta í Patreon appinu! Hver eru hættulegustu dýr Japans? En glæpamenn? Hverjar eru frægustu konur Japans? Skrýtnar auglýsingar, staðreyndir og ríkasta fólkið. Allt þetta og meira til í þætti dagsins þar sem ég fjalla um topp 5 Japans í ýmsum flokkum. Önnur umræðuefni eru baðhúsamenning, hjólreiðar og hlutabréf.Kæri hlustandi, árið 2023 ætla ég að stækka Patreon fjölskylduna upp í 50 manns. Viltu vera með? Náðu þá í Patreon appið, finndu Heimsendi og skráðu þig. Það kostar ekki nema 700 kr. á mánuði. Takk fyrir að hlusta!
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum þætti ræða þær við Edythe Mangindin ljósmóður um upplifun erlendra kvenna sem fæða börn hér á landi. Edythe er fædd og uppalin í San Francisco í Kaliforníu en foreldrar hennar komu upphaflega frá Filippseyjum. Hún flutti til Íslands árið 2009. Hún fékk áhuga á að læra ljósmóðurfræðina í kjölfar þess þegar hún gekk sjálf í gegnum fæðingu fyrsta barns hennar. Hún byrjaði í hjúkrunarfræðinámi á íslensku strax á öðru ári sínu á landinu og lærði um leið íslenskuna. Eftir að hafa lokið hjúkrunarfræðinámi bætti hún við tveim árum til að verða ljósmóðir. Undanfarin fjögur ár hefur hún unnið á deildum sem sinna konum fyrir og eftir fæðingu. Hún er meðal annars alþjóðlegur IBCLC brjóstagjafaráðgjafi og er núna í doktornámi þar sem viðfangsefnið er upplifun erlendra mæðra af mæðravernd og fæðingum á Íslandi. Edythe fjallar um niðurstöður rannsókna og fer meðal annars yfir fæðingar-útkomu og upplifun kvenna af fæðingum og barneignarferlinu. Hverjar eru helstu hindranir tengdar aðstæðum og kerfinu og hvernig tryggjum við jafna, örugga og einstaklingsmiðaða þjónustu? Túlkaþjónusta, réttindamál, félagsleg tengsl, menningarhæfni og margt fleira með Edythe. The midwives Stefanía Ósk and Sunna María are back and for the first time in English, a language they aren't that great in but thankfully Edythe M. Mangindin, did most of the talking. In this episode, Edythe, a woman of many titles but first and foremost a Filipino-American-Icelandic wife, mother, nurse and midwife, talks about the outcomes and experience offoreign women who receive maternity care in Iceland. How do we ensure respectful, safe and equal care for women of foreign origin? This and other important questions will be discussed in today's episode.
Keppni í 2. deild kvenna er lokið og ljóst er að Fram stendur uppi sem sigurvegari. Þjálfarar liðsins, þau Aníta Lísa Svansdóttir og Óskar Smári Haraldsson eru gestir Heimavallarins að þessu sinni en þau ræða sumarið og deildina sem hefur aldrei verið betri. Þá rýna gestirnir einnig í Meistaradeildarbaráttuna sem er framundan. Þátturinn er að sjálfsögðu í boði Orku Náttúrunnar, Heklu og Dominos.
Kristrún Frostadóttir þingkona er enn sem komið er ein í framboði til formanns Samfylkingarinnar. Hún kemur í Helgi-spjall Rauða borðsins og ræðir um flokkinn sinn, pólitíkina og sjálfa sig. Hver er Kristrún og hvað vill hún? Hverjar eru hennar skoðanir á sköttum, kvóta, einkavæðingu, verkalýðsbaráttu og öðrum átakamálum okkar tíma. Vill hún gera Samfylkinguna sósíalískari og draga úr identity stjórnmálum? Aukaefni: Dagbjört Rós Jónsdóttir fjallar um hægri öfgahópa á Norðurlöndunum í lok þáttar.
Íslenska neðar// The midwives Stefanía Ósk and Sunna María are back and for the first time in English, a language they aren't that great in but thankfully Edythe M. Mangindin, did most of the talking. In this episode, Edythe, a woman of many titles but first and foremost a Filipino-American-Icelandic wife, mother, nurse and midwife, talks about the outcomes and experience of foreign women who receive maternity care in Iceland. How do we ensure respectful, safe and equal care for women of foreign origin? This and other important questions will be discussed in today's episode. //Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu og spreyta sig í fyrsta sinn á ensku. Gestur þáttarins er hin reynslumikla og sprenglærða ljósmóðir Edythe Mangindin sem ræðir við Legvörpur um málefni erlendra kvenna í barneignarferlinu á Íslandi, og því er þátturinn að sjálfsögðu á ensku. Edythe fjallar um niðurstöður rannsókna og fer meðal annars yfir fæðingar-útkomu og upplifun kvenna af fæðingum og barneignarferlinu. Hverjar eru helstu hindranir tengdar aðstæðum og kerfinu og hvernig tryggjum við jafna, örugga og einstaklingsmiðaða þjónustu? Túlkaþjónusta, réttindamál, félagsleg tengsl, menningarhæfni og margt fleira með Edythe. Komið með og látum orðið berast til enskumǽlandi kvenna!
Bjarni Helgason, blaðamaður á Morgunblaðinu, ræddi við Sæbjörn Steinke um nýja þætti sem sýndir eru á mbl.is. Bjarni heimsótti leikmenn í kvennalandsliðinu og eru tveir þættir þegar komnir út. Þættirnir heita Dætur Íslands. Rætt er um þættina og þá er einnig tekinn snúningur á landsliðshópnum sem tilkynntur verður á föstudag. Hverjar verða valdar?
Fyrsti þáttur ársins og þáttastjórnendur leggja spilin á borðið. Hvernig verður þetta ár? Hverjar eru lexíur ársins 2021? Við ræðum undarlegt blogg leikkonunnar Juliu Fox sem fjallar um stefnumót hennar við Ye. Nýju uppáhalds þættina okkar, Verbúðina, og svo margt fleira í þessum stórkostlega þætti í fullri lengd.
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Gestur þessa þáttar er Kristín Rut Haraldsdóttir, sérfræðiljósmóðir á fósturgreiningardeild Landspítala. Kristín segir skemmtilegar sögur af uppbyggingu fósturgreiningarþjónustu á norðurhjara veraldar á tímum tækniframfara. Einnig ræðir hún við Legvörpur um fjölbreytta starfsemi deildarinnar, siðferðislegar vangaveltur í tengslum við fósturskimanir og framtíðardrauma. Það er erfitt að hrífast ekki með ástríðu þessarar ótrúlegu hugsjónarkonu. Hverjar eru þessar konur sem sitja dagana langa á kollum í myrkvuðum sónarherbergjum og rýna á skjáinn? Komiði með!Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á samfélagsmiðlum spítalans, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Þess má geta að Sunna María og Stefanía Ósk hafa haldið úti Legvarpinu um nokkurt skeið og eldri þætti má meðal annars finna á bæði Soundcloud og Spotify.Krosssaumuð píka: Birta Rún Sævarsdóttir.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/legvarpid-07
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Kristín Rut Haraldsóttir, sérfræðiljósmóðir á Fósturgreiningardeild Landspítalans. Kristín segir skemmtilegar sögur af uppbyggingu fósturgreiningar-þjónustu á norðurhjara veraldar á tímum tækniframfara. Einnig ræðir hún við Legvörpur um fjölbreytta starfsemi deildarinnar, siðferðislegar vangaveltur í tengslum við fósturskimanir og framtíðardrauma. Það er erfitt að hrífast ekki með ástríðu þessarar ótrúlegu hugsjónarkonu. Hverjar eru þessar konur sem sitja dagana langa á kollum í myrkvuðum sónarherbergjum og rýna á skjáinn? Komiði með!
Drífa Snædal, forseti Alþýðusambandsins, ræðir um vaxtahækkanir, kauphækkanir tengdar hagvexti, húsnæðismálin og annað tengt komandi stéttaátökum. Hverjar verða kröfur verkalýðsins í komandi samningum? Og hvað vilja andstæðingarnir? Samstöðin á Facebook: https://www.facebook.com/samstodin Samstöðin á YouTube: https://www.youtube.com/c/Samstöðin Samstöðin á vefnum: https://samstodin.is
Hverjar eru helstu fóbíur fræga fólksins? Sjórinn? Klósett? Höfrungar? Það er mikið sem stjörnurnar hræðast og margt er relateable en sumt er alveg frekar skrítið, en skemmtilegt. TUNE IN Þátturinn er í boði: Laugar Spa - https://organicskincare.is/ Mist & Co. - https://www.mistandco.is/Við erum með skart frá myletra - https://www.myletra.is/
Mikilvægt er að fækka slysum í umferðinni og að vera vel tryggð ef eitthvað kemur upp á. Hvernig undirbúum við nýja ökumenn fyrir umferðina? Hverjar eru helstu áskoranirnar þegar kemur að umferðaröryggi? Hver er munurinn á lögboðinni ökutækjatryggingu og kaskótryggingu? Þetta og margt fleira hér í spjalli Hrefnu Sigurjónsdóttur, verkefnastjóra forvarna, við Jón Hannes Kristjánsson, sérfræðing í ökutækjatjónum og ökukennara.
Það er langt liðið á sumarið og línur aldeilis að skýrast í öllum deildum. Heimavöllurinn fer yfir allt það helsta með góðum gestum, þeim Alexöndru Bíu Sumarliðadóttur og Sigríði Dröfn Auðunsdóttur, sem hafa fjallað vel um boltann á Fótbolta.net í sumar.
Umsjón Felix Bergsson og Helga Margrét Hallgrímsdóttir 7.15 Úrslitaleikurinn í Evrópumótinu í knattspyrnu karla var leikinn í gærkvöldi á Wembley og stóðu Ítalar þar uppi sem sigurvegarar eftir ótrúlega vítaspyrnukeppni. Þessi árangur Ítala er mjög eftirtektarverður og viðsnúningurinn algjör en fyrir þremur árum komst liðið ekki í úrslitakeppni HM sem þótti mikið áfall. Við hringdum til Rómar og heyrðum frá Ingólfi Árnasyni íbúa í borginni hvernig stemmningin var í gærkvöldi og nótt. 7.35 Þann 23 júní var heilbrigðisráðherra afhent áskorun frá rúmlega eitt þúsund læknum þar sem þeir ?mótmæla langdregnu sinnuleysi stjórnvalda í garð heilbrigðiskerfisins? eins og sagði í áskoruninni. Í kjölfarið áttu læknar fund með Birgi Jakobssyni fyrrum landlækni og aðstoðarmanni ráðherra. Menn létu vel af þeim samræðum en hvað hefur gerst síðan? Er heilbrigðiskerfið okkar virkilega svona illa statt og eru þá breytingar í farvatninu? Hverjar eru kröfur lækna? Theodór Skúli Sigurðsson svæfingarlæknir og einn forsvarsmanna undirskriftanna kom í morgunútvarpið. 8.05 Ástand mála á Haiti hefur verið mjög til umræðu undanfarna daga í kjölfar þess að forseti landsins var ráðinn af dögum. Það virðist algjört stjórnleysi í landinu og það má rekja allt aftur til ársins 2010 en þá reið jarðskjálfti yfir landið sem varð um 300 þúsund manns að bana og er talinn vera einn mannskæðasti jarðskjálfti sögunnar. Lilja Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur fór með hópi Íslendinga á vegum Rauða krossins og vann með bágstöddum á Haítí og kynntist þar landi og þjóð. Hún kom og sagði okkur frá þeirri lífsreynslu. 8.30 Og að lokum skoðuðum við íþróttir helgarinnar með Einari Erni Jónssyni íþróttafréttamanni

Guðrún Inga Torfadóttir og Eva Rún Guðmundsdóttir hafa oft rætt saman með áhyggjufullum tóni eftir að börnin þeirra fóru upp á grunnskólastigið. Hverjar hafa áhyggjur þeirra verið? Jú, önnur er með strák og hin með stelpu. Þær hafa báðar haft áhyggjur af því að ánægja barnanna af að lesa fölni í umhverfi leshraðamælinga, límmiðagjafa og einkunnaspjalda. Börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í umhverfi sem snýst allt um að mæla snilli þeirra og duglegheit.Og, sem betur fer, vorum við með góða gesti sem gátu sannarlega lyft þessari umræðu á hærra plan og gert hana fjölbreytta og skemmtilega. Bergrún Íris Sævarsdóttir er barnabókarithöfundur og hefur velt þessum hlutum fyrir sér út frá ólíkum hliðum og er virðingarríkt foreldri sjálf. Hermundur Sigmundsson er prófessor við Háskóla Íslands og Háskólann í Þrándheimi í Noregi og auðvitað metnaðarfullur pabbi og afi. Við spjölluðum lauflétt um þessi mál; um lestur - áhugahvöt - sköpunargáfu - þjálfun - ástríður - skjánotkun - hreyfingu - og virðingarríka aðkomu foreldra og kennara að þessu ferli öllu.Nýjustu rannsóknir um hvatir sýna að þegar fólki eru boðnar háar fjárhæðir fyrir að ljúka ákveðnu verkefni fellur sköpunarkraftur og áhugi þeirra talsvert niður. Verðlaun hjálpa fólki að leysa mekanísk verkefni en um leið og vitrænnar færni er krafist þvælast verðlaunin fyrir. Þessar óvæntu niðurstöður hafa verið fengnar með endurteknum rannsóknum. Jafnframt kemur í ljós að þeir þrír þættir sem drífa fólk mest áfram eru sjálfstæði (sense of autonomy, drive to be self-directed), mastery (sjálfsprottin þörf til að þróa getu okkar og verða betri í einhverju) og tilgangur (tilfinning fyrir því að það sem við gerum skipti máli og hafi gildi).Að lokum gefa Bergrún Íris og Hermundur börnum hlustenda góð ráð - sem má heyra á 1 klst. 51 mínútu. Minnst er á: Mihaly Csikszentmihalyi - Beyond Boredom and Anxiety: Experiencing Flow in Work and PlayHeikki Lyytinen Manfred Spitzer - Digitale DemenzTeacher TomRagnheiði Briem heitna, kennslufræðingDröfn Vilhjálmsdóttur, bókasafnsfræðing í Seljaskóla
Hverjar eru birtingarmyndir fatlaðra í menningunni okkar? Af hverju eru aðeins 3.1% leikara í sjónvarpi fatlaðir? Hvers vegna endaði Quasimodo ekki með Esmeröldu í lokin? Einnig -er ekki kominn tími á fatlaðan karakter sem er horny? Við spjöllum um kvikmyndirnar Forrest Gump, Me Beore You, Million Dollar Baby, Hringjarann frá Notre Dame, Shape of Water og A Quiet Place, Peanut Butter Falcon og X-Men og þættina Sex Education, Crip Camp, Master of None og bókina Sitting Pretty sem er einmitt bók mánaðarins í bókaklúbbi Flóru þann 23. maí næstkomandi.TW: Minnumst á kynferðislegt ofbeldi og ableismahttps://www.aruma.com.au/about-us/blog/run-forest-run-disability-stereotypes-in-the-media/
Hverjar eru þessar lesbíur? Eða hinsegin konur almennt? Við dýfum okkur í skilgreiningar, komum allar út úr skápnum og skoðum birtingarmyndir kvenna sem elska konur í kvikmyndasögunni.
Starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum og með aukinni tæknivæðingu er líklegt að breytingar verði jafnvel enn hraðari á komandi árum. Hverjar eru ógnirnar og hvar liggja helstu tækifærin. Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdatjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi er gestur í Landsbyggðum.
Rafmyntabylting, hugleiðsla, uppljómanir, psychedelics, heimspeki, hagfræði, verkfræði, völd og stjórnmál, sannleikar, orka og efni, bankar, óstöðugleiki, hagnaður og tap, fjölmiðlar (brjálæðingar að skrifa um aðra brjálæðinga), bláar skyrtur og málaliðar, að aflæra áróður og margt fleira! Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur 06:15 Hvers vegna Crypto? 45:10 Munurinn á rafmyntum og venjulegum peningum 57:00 Hverjar eru neikvæðu hliðar rafmyntarinnar? 1:04:00 Hvernig er hægt að kynna sér Bitcoin og rafmyntir? Hvernig byrjar maður? 1:25:00 Breytingar á alsheimkerfum og hugarfar fátæktar 01:40:10 Hvernig er hægt að breyta kerfinu innanfrá 01:48:15 Hugleiðsla og psychedelics 2:09:00 Uppljómunarferlið 2:28:00 Hugleiðsla í beinni Gunnar á Twitter: @00qq22 www.bitcoinblack.is
Þórarinn ræðir við Gunnar Smára Egilsson um sósíalíska baráttu á Íslandi.Tímalína:•00:01:00 – Samstöðin og elítu miðlar•00:03:00 – Kurteisi umræðunnar•00:17:20 – Hverjar yrðu áherslur sósíalistaflokksins með hreinan alþingismeirihluta?•00:25:00 – Frelsi og hinn frjálsi markaður•00:39:00 – Krónutöluhækkanir og lífskjör•00:47:00 – Lýðræðisfyrirtæki•00:57:00 – Sjálfstæðisflokkurinn og velferðarkerfið•01:02:30 – Fjölmiðlar•01:10:40 – Afhverju gefa ungir rapparar sig á vald elítunnar•01:18:00 – Lausnamiðuð stjórnmál
Hverjar eru áskoranir eldri borgara og hvernig er hægt að eiga innihaldsríkt líf alla ævi? Öldrunarráð Íslands og Landssamband eldri borgara standa fyrir fræðslufundinum, Velferð eldri borgara sem verður á RÚV í dag milli kl. 13.00 ? 15.00. Öldrunarráð Íslands hefur árlega staðið fyrir ráðstefnu um málefni sem varða eldri borgara. Á kórónuveirutímanum hefur ekki verið hægt að halda slíka ráðstefnu. Úr varð að halda fræðslufund í samstarfi við RÚV. Þar með gafst einstakt tækifæri til að tengjast eldri borgurum um allt land, þar sem samkomutakmörk og fjarlægðir setja engin takmörk. Við fengum Jórunni Ósk Frímannsdóttur Jensen, formann Öldrunarráðsins í þáttinn til að segja okkur frekar frá fræðslufundinum og efni hans. Rúmlega 50 fuglategundir hafa sést í einstökum görðum á Íslandi. Á námskeiðinu Garðfuglar - fóðrun og aðbúnaður hjá Endurmenntun Háskóla Íslands, verður fjallað um helstu tegundir sem búast má við í íslenskum görðum, sýndar myndir af fuglunum, farið í helstu náttúrulegar fæðugerðir vetur og sumar og hvað sé best að bjóða þeim ef þeir sýna sig í garðinum. Við hringdum í Örn Óskarsson líffræðing og framhaldsskólakennara, sem stjórnar námskeiðinu, og fræddumst eilítið um fuglana sem syngja í görðunum okkar. Guðný Rúnarsdóttir tók við stöðu skólastjóra við Grunnskóla Drangsness síðastliðið haust. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, hitti Guðnýju og ræddi við hana um skólann, samfélagið á Ströndum og ýmislegt annað. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Fram og til baka 6.febrúar 2021 Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins - söngvakeppnin frá 2016, Ég sé þig, Hljómsveitin Eva Fimman - Hanna María Karlsdóttir leikkona Fimm lönd sem hún hefur heimsótt eða búið í Bandaríkin Ástralía Dubai Indland Indónesía Viðtal - Árni Friðriksson kennari ME og leikskáld. Höfundur Sunnefu sem verður endurfrumsýnt í Tjarnarbíói í lok febrúar Sunnefa Jónsdóttir er tvívegis dæmd til drekkingar snemma á átjándu öld. Hún var sögð hafa eignast börn með yngri bróður sínum fyrst þegar hún var sextán ára og svo þegar hún var átján. Á Þingvöllum 1743 neitar hún sök og segir að faðir seinna barnsins sé enginn annar en sýslumaðurinn sem dæmdi hana. Hvernig dirfðist fátæk alþýðustúlka að rísa upp gegn yfirvaldinu? Hvað veitti henni slíkan kjark? Leikhópurinn Svipir setur upp kvennatvíleik þar sem leikkonurnar kafa ofan í magnaða sögu Sunnefu. Þær sanka að sér heimildum, rannsaka og reyna að átta sig á hver þessi unga kona var sem lifði svo myrka tíma. Hvert var raunverulegt faðerni barna hennar? Hvað var í húfi þegar hulunni var svipt af sannleikanum? Hverjar voru þessar ?ólánskonur? sem létu lífið í drekkingarhyljum landsins og það oft fyrir litlar sakir? Leikkonurnar raða brotunum saman, kafa dýpra, setja sig í spor Sunnefu og smám saman lifnar saga hennar á sviðinu. Fréttagetraun

250.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir boltann og fleira til. Hver verður næsti formaður ÍTF? Hverjar eru tillögurnar fjórar um deildarkeppnina í PepsíMax, Lengjudeildinni og neðri deildum? Þetta og margt fleira. Njótið
Söguskoðun snýr aftur ef dágott jólafrí á nýju ári 2021! Í dag spjalla Ólafur og Andri m.a. um tímabilaskiptingu sögunnar og þann atburð sem talinn er marka upphaf evrópskra miðalda og var vafalaust einn mest mótandi atburður í sögu álfunnar: Fall Rómarveldis. Róm var ekki byggð á einum degi, og ekki féll Rómarveldi daginn sem síðasta keisaranum var steypt af stóli árið 476. Hvenær féll Rómarveldi? Hverjar eru orsakir falls þessa heimsveldis, og með því hins rómverska heims, sem síðari tíma Evrópubúar áttu eftir að móta sögu sína út frá?
Við fjölluðum áfram um atburðina í Bandaríkjunum í fyrradag. Nancy Pelosi, demókrati og forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sagði í gærkvöldi að stjórnvöldum beri að beita 25. viðauka við stjórnarskrá Bandaríkjanna og víkja Donald Trump úr embætti. Verði það ekki gert muni þingið ákæra forsetann fyrir embættisglöp. Kári Hólmar Ragnarsson, lektor í þjóðarétti við Háskóla Íslands, kom á Morgunvaktina til að ræða um bandarísku stjórnarskrána og lýðræðið. Við reyndum líka að skyggnast inn í bandaríska þjóðarsál í þættinum. Hvaða fólk var það sem réðist inn í þinghúsið í Washington? Úr hvaða jarðvegi sprettur það og hvernig verða næstu misseri í Bandaríkjunum eiginlega? Birna Anna Björnsdóttir rithöfundur hefur verið búsett í Bandaríkjunum um árabil og talaði um þessi mál við okkur. Í takti við stöðu covid mála hafa horfur er varða hitt og þetta sveiflast upp og niður. Þannig lyftist brúnin þegar spurðist að bóluefni væri handan við hornið en hún tók að síga á ný þegar í ljós kom að framleiðsla og bólusetning ganga hægt. Hverjar eru horfurnar varðandi ferðalög í sumar, nú í byrjun árs? Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, sagði okkur frá útlitinu í ferðaspjalli. Hann talaði að þessu sinni úr fjallakofa þar sem frostið er víst fast að 25 gráðum. Tónlist: Elvis Presley - Suspicion Elvis Presley - Blue moon

Í fyrsta þáttinn af Rauða borðinu á nýju ári koma hagfræðingarnir Gylfi Zoega, Ásgeir Brynjar Torfason, Guðrúnu Johnsen og Ólaf Margeirsson og ræða stöðuna við upphaf árs tvö í kórónakreppu. Á síðasta ári varð mesti efnahagssamdráttur í manna minnum, sá mesti í meira en hundrað ár. Hvað mun gerast á næsta ári? Verður allt eins og áður var strax í sumar eða haust? Eða mun kórónakreppan hafa varanlegar breytingar? Hverjar eru helstu hætturnar á leiðinni, geta stjórnvöld magnað upp kreppuna, misst af tækifærum til að stytta hana og grynnka? Munu allir ná sér jafn hratt og á sama augnabliki; allir geirar, allar stéttir, allar byggðir, öll lönd? Og svo hin knýjandi spurning: Er Ísland best í heimi í þessari kreppu sem og svo mörgu öðru?
Konur þáttarins eru jólakonur, auðvitað þær María Mey, móðir frelsarans, og Grýla, móðir jólasveinana. Hverjar eru konurnar á bakvið þessa frægu menn? Hvað tákna þær fyrir þau sem trúa á tilvist þeirra, og fyrir þau sem trúa ekki? Mæður, meyjur, fósturlandsins freyjur, þessar tvær konur eru umluknar þjóðsagnakenndri dulúð þrátt fyrir að vera vel þekktar. Í samstarfi við Flóru útgáfu, www.flora-utgafa.is Lífsbiblían eftir Öldu Karen Hjaltalín og Silju Björk Björnsdóttur er í forsölu á www.forlagid.is en kemur í búðir 5. janúar 2021.
Hvað gera uppáhalds stjörnurnar okkar um jólin? Hverjar eru þeirra jólahefðir og hvernig verða jólin í ár útaf Covid 19 ?! Þetta eru allt vangaveltur sem að við erum að spekúlera í, í þessum þætti! Þátturinn er í boði: Laugar Spa - https://organicskincare.is/
Byrjum þáttinn á kvikmynda spjalli, förum yfir í jólamyndir og jólahefðir. Við erum núna komnir í frí út árið en snúum aftur 10.Janúar. Hverjar voru/eru jólahefðirnar ykkar? Hendið ykkur inná Facbook síðu þáttarins Tveir Feitir og annar í fríi!
Vissir þú að Unnur og Lilja hafa bara þekkst í tvo mánuði? Í þessum þætti yfirheyra þær hvor aðra og ræða sjálfsmynd, stolt og skoðanir annara.
Hverjar eru birtingarmyndir kynbundins ofbeldis? Hverjir eru gerendur og hvernig er hægt að stuðla að opinskárri umræðu við þá? Ríkir friður inni á íslenskum heimilum? Í þessum þætti ræðir Margrét Marteinsdóttir við Stellu Samúelsdóttur, framkvæmdastýru UN Women á Íslandi, Örnu Hauksdóttur og Unni Valdimarsdóttur, prófessora við Háskóla Íslands og rannsakendur Áfallasögu kvenna og Drífu Jónasdóttur, afbrotafræðing og doktorsnema við Læknadeild Háskóla Íslands. Í lok þáttar heyrum við brot úr pistli eftir Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmdastýru UN Women. Þátturinn er unninn í samstarfi við UN Women á Íslandi. Þátturinn er hluti af Friðardögum í Reykjavík 2020: Er friðurinn úti? sem haldnir eru á vegum Höfða friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands, í samstarfi við UNICEF á Íslandi, UN Women á Íslandi, Félag Sameinuðu þjóðanna og utanríkisráðuneytið. Umsjónarmaður þáttanna er Margrét Marteinsdóttir, fjölmiðlakona.
Berglind Bergmann Sverrisdóttir sérnámslæknir kemur í Dagál læknanemans og ræðir hita án uppruna. Hverjar eru helstu ástæður hita og hvernig eru uppvinnslu hagað? Hvernig er hiti án uppruna skilgreindur? Hvaða rannsóknum er beitt við leita að fókus hitans? Berglind uppljóstrar einnig um uppáhaldsréttinn sinn í "Landspítala Mathöll". Stjórnendur Dagáls læknanemans eru Sólveig Bjarnadóttir læknanemi á 6. ári og Teitur Ari Theodórsson læknanemi á 5. ári. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala.
Í dag taka gildi hertar reglur varðandi samkomur og ýmsa starfsemi eins og flestir vita. M.a. er líkamsræktarstöðvum gert að loka öðru sinni á meðan sundlaugar fá að vera opnar áfram þó gestum verði fækkað. Margir hafa velt þessu fyrir sér sem og þeirri ákvörðun að loka um allt land, en á sumum svæðum eru fá eða engin smit. Einn þeirra sem hafa tjáð sig um þetta er Tryggvi Kristjánsson framkvæmdastjóri líkamsræktarstöðvarinnar Bjargs á Akureyri, en hann segir ekki síður mikilvæga hagsmuni liggja í að hafa opið. Við heyrðum í honum. Mikið hefur verið rætt undanfarna daga um frumvarp á Alþingi vegna barna með ódæmigerð kyneinkenni eftir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins talaði um að frumvarpið sem eitt óhugnanlegasta þingmál sem hann man eftir í seinni tíð. En um hvað snýst þetta umdeilda mál? Við fengum Kitty Anderson, formann Intersex Ísland til að útskýra það fyrir okkur. Dr. Erla Björnsdóttir sem sérhæfir sig í rannsóknum á svefni og meðferðum gegn svefnleysi hefur nú ritað bók sem ætluð er börnum og kallast Svefnfiðrildin. Erlu fannst vanta efni fyrir börn um mikilvægi svefns og hvíldar og er Svefnfiðrildunum ætlað að svara þeirri þörf. Hún var í símanum hjá okkur og spjallaði við okkur um börn og svefn m.a. Veikindi Donald Trump er stærsta frétt síðari tíma. Hún vekur líka athygli á því sem haldið hefur verið fram í fjölmiðlum að Covid 19 virðist leggjast sérstaklega þungt á eldri karlmenn. Er þetta rétt? Hverjar eru þá ástæður þess? Og hvernig er staðan í Bandaríkjunum þar sem meira en 200 þúsund manneskjur hafa látist? Fá almennir sjúklingar meðferð af sama tagi og forsetinn? Bryndís Sigurðardóttir smitsjúkdómalæknir þekkir vel til bæði hér heima og í Bandaríkjunum og hún var á línunni. Íþróttir helgarinnar voru á sínum stað upp úr kl. hálfníu þar sem við fórum yfir helstu tíðindi með Evu Björk Benediktsdóttur íþróttafréttamanni. Tónlist: Stebbi og Eyfi - Góða ferð. Bread - Everything I own. Valdimar Guðm. - Upphaf. Lay Low - By and by. Axel O. og Co - You are trouble. Wings - Another day. Svala - Sjálfbjarga. Duran Duran, Nile Rodgers og Janelle Monae - Pressure off. Kiriyama Family - Every time you go.

Ég hef verið að pæla lengi í fantasíum (ÞVÍ ÞÆR ERU SVO MIKILVÆGAR!) og ætla af því tilefni að hendast í að halda kvöldstund um það fyrirbæri! Hverjar eru algengustu fantasíurnar og hvað þýða þær? Má fantasera um hvað sem er og hvern sem er, hvernig sem er? Hvað segir fantasían manns um mann? Hvernig býr maður til fantasíu? Hvernig aðgreinir maður á milli fantasíu og raunveruleika? Hvernig skapar maður öruggt rými í sambandinu sínu til að ræða fantasíuna sína? Viðburðurinn fer fram fimmtudaginn 24.september kl.19:30 - 22.30 í lokuðu rými í versluninni Losta /vinnurými Siggu Daggar kynfræðings í Borgartúni 3. ATH - Takmarkaður fjöldi þátttakanda. Verð fyrir einstakling: 3900 kr Verð fyrir par: 6900 kr Nánari upplýsingar: instagram.com/sigga_dogg_sexologist/ facebook.com/siggadogg.is

Makinn hlustar ekkert á mig. Við heyrum þessa setningu svo oft og er hun grunnurinn að tengslaleysi. Í þessum þætti skoðum við hvernig ég get orðið góður hlustandi!Æfið ykkur endilega á þessu1Spurningar sem þú getur spurt á meðan þú hlustar: 1. Hvað ertu að upplifa?2. Hvað annað ertu að upplifa?3. Hverjar eru grunnþarfir þínar hérna?4. Hvers óskar þú þér helst?5. Hvernig þróaðist þetta allt?6. Hverjir eru aðal karakterarnir í þessum grunn tilfinningum sem þú ert að tala um? 7. Hvað viltu raunverulega segja hérna? Og við hvern?8. Hvaða tilfinningar eru hér sem þú óttast að tala um?9. Eru einhverjar blandaðar tifinningar hér? Hverjar eru þær?10. Hverjir eru valmöguleikar þínir eins og þú sérð þá?11. Hverjir eru + og - við valmöguleika þína?12. Upplifir þú að þetta hafi haft áhrif á samband þitt (eða önnur sambönd) ef svo, hvernig?13. Er einhver möguleiki á að þú hafir viljað gera hlutina öðruvísi? Ef svo, hvernig?14. Hverjar eru skyldur þínar hér?15. Áttu einhverja möguleika?16. Hvers væntir þú af mér?17. Hvað segja gildi þín þér hérna?18. Hugsaðu um einhver sem þú lítur upp til, hvað myndi hann eða hún gera og hvernig myndi viðkomandi sjá þessar aðstæður? Tjá skilning og samkennd á meðan þú hlustar: 1. Ég get sett mig í þín spor 2. Þú hlýtur að upplifa þessar aðstæður erfiðar/vonlausar3. Þú ert í erfiðum aðstæðum hérna4. Ég get fundið sársauka þinn5. Ég vildi óska að þú þyrftir ekki að upplifa þetta6. Þetta hljómar virkilega illa og hlýtur að taka á7. Þú hlýtur að upplifa þig hjálparlausa/n8. Ég er algjörlega sammála þér9. Þú hljómar virkilega sannfærandi 10. Ég skil mjög vel að þú sért í uppnámi11. Ég held þú hafir rétt fyrir þér hérna12. Ég skil, leyfðu mér að draga þetta saman, það sem þú ert að upplifa hér er... Hlustunar æfing: Skiptist á að spyrja hvert annað þessara spurninga: Notaðu þá listann á undanförnum bls. til að hjálpa þér að verða góður hlustandi Segðu mér hvað í heiminum fær þig til að upplifa þessar tilfinningar: Reiði sorg hrædd/ur/áhyggjufull/ur vonglaða/nHamingjusama/nBjartsýn/nÖrvængingarfull/urStreitufulla/n
Það eru rúmar tvær vikur í að keppni í Lengjudeild kvenna hefjist og í nýjasta þætti Heimavallarins er spáð í spilin fyrir tímabilið. Gestur þáttarins er knattspyrnuþjálfarinn Aníta Lísa Svansdóttir og hún fer yfir málin með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur. Meðal efnis: -Spáin opinberuð: 1.sæti-10.sæti -Hverjar verða mikilvægastar í sínum liðum? -Hvaða efnilegu leikmönnum þurfum við að fylgjast með? -Hvaða lið fara upp í Pepsi Max? -Hvaða leikmenn verða bestar í Lengjudeildinni? -Hvaða lið falla? Meðal efnis í fréttapakkanum: -Undankeppni EM keyrð aftur í gang -Landsliðsfyrirliðinn orðuð við Barcelona - búin að ákveða sig? -Enska knattspyrnusambandið til skammar -Sif berst fyrir réttindum óléttra knattspyrnukvenna -Kona vikunnar - mögnuð endurkoma -Helena skiptir Fjölni út fyrir Pepsi Max mörkin -Heitustu félagaskiptin korter í mót -Loksins fótbolti og æfingaleikjahryna -Augnablik vinnur óþekktar Eyjakonur -Afhverju var KR með einn varamann í æfingaleik? -Er besti markmaðurinn kominn í Selfoss?
Ljósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar. Í þessum þætti Legvarpsins verður fjallað um mænurótardeyfingu í góðum félagsskap ljósmóðurinnar Katrínar Sifjar Sigurgeirsdóttur. Hvers vegna hefur orðið veruleg aukning á notkun mænurótardeyfinga í fæðingum? Hverjar eru afleiðingarnar? Og eru konur í raun að taka UPPLÝSTA ákvörðun um þessa verkjameðferð? Komið með í eldheitar umræður um þetta umdeilda fyrirbæri sem virðist hreyfa við tilfinningum á þann hátt að það er freistandi að hlaupa undan umræðum um málið, eða í það minnsta tipla á tánum. Upphafsstef: Stefanía Helga Sigurðardóttir
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar og Tómas ræddu stuttlega um gervigrasið í Egilshöll og félagaskipti Odion Ighalo til Manchester United. Svo var Mitch Freeley, íþróttafréttamaður beIN SPORTS í Katar á línunni. Illa hefur gengið hjá Al-Arabi, liði Heims Hallgrímssonar og Arons Einars Gunnarssonar, að undanförnu. Hverjar eru væntingarnar hjá Al-Arabi og hvernig er staða Heimis? Mitch svaraði því.
Hverjar eru konurnar á bakvið Kona er nefnd? Hvaðan kemur hugmyndin og, af hverju? Stutt kynning á nýja íslenska hlaðvarpinu Kona er nefnd!
Inga Auðbjörg Straumland formaður Siðmenntar og Eyja Margrét Brynjarsdóttir heimspekingur: Hverjar eru stóru siðferðilegu spurningar 21. aldarinnar? Sandra Rán Ásgrímsdóttir sjálfbærniverkfræðingur: Umhverfis og samfélagslegur ávinningur íslenskra orkujurta. Guðrún Línberg Guðjónsdóttir: Málfarsmínútan - Heitið sóley Máni Gautason skálavörður hjá Ferðafélaginu: Það var opnað óvenjusnemma inn í Landmannalaugar í ár.
Hver er þekking íslendinga á umhverfis- og loftslagsmálum? Hverjar eru ástæður loftslagsbreytinga og hvernig er frammistaða stjórnvalda til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og hver er upplifun og líðan Íslendinga í tengslum við loftslagsbreytingar? Niðurstöður Umhverfiskönnunar Gallup 2018 voru kynntar síðastliðinn föstudag á Umhverfisráðstefnu Gallup sem haldin var í Hörpu. Könnunin hefur verið gerð nú í tvígang og við fengum Ólaf Elínarson, sviðsstjóra markaðsrannsókna hjá Gallup, til að fara með okkur yfir niðurstöðurnar. Kaffibarþjónarnir Sonja Björk Grant og Njáll Björgvinsson, stofnuðu nýlega fyrirtækið Kaffibrugghúsið, sem þau lýsa sem marghliða kaffifyrirtæki og er til húsa niðrá Granda. Bæði búa þau yfir margra ára reynslu úr kaffi-heiminum sem þau vilja nýta til að breikka íslenska kaffiflóru. Við heimsóttum Kaffibrugghúsið og urðum margs vísari og vitum fyrir víst að það eru heilmikil vísindi á bak við kaffibollann. Leitin að hamingjunni hefur aldrei verið eins áköf og núna, einmitt þegar óhamingja og firring fer sívaxandi í veröldinni og er orðið að stærra vandamáli nú en nokkru sinni áður. Í pistli Magnúsar R. Einarssonar í dag sagði hann frá nokkrum bókum sem hafa verið gefnar út og fjalla um vandamálið. UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Við töluðum um höfuðsyndirnar 7 í efnismarkaðssetningu. Hverjar eru þær og hvenær nákvæmlega ræðum þær? Syndirnar og tímasetningar: 1. Ég um mig frá mér til mín - 3:35 2. Of langt - 6:20 3. Of faglegt - 8:20 4. Ekki aðgerðarhæft -12:00 5. Illa framsett - 14:40 6. Illa skrifað eða ekki vel komið á framfæri - 16:20 7. Stendur ekki við stóru orðin - 18:20 Að lokum viljum við óska ykkur gleðilegs nýs árs og óskum ykkur velfarnaðar í markaðsstarfinu árið 2019. P.s. Ef þú þekkir einhvern sem gæti haft gagn og gaman að þá skaltu ekki hika við að deila hlaðvarpinu með þeim. Þú finnur alla þætti MARKAÐSSTOFUNNAR á www.vert.is/podcast Þú finnur VERT markaðsstofu á helstu samfélagsmiðlum hér: VERT á facebook: www.facebook.com/VERTmarkadsstofa/ VERT á Insta: www.instagram.com/umtalsvert/ VERT á Twitter: twitter.com/umtalsVERT Góða skemmtun!
Veðurhvellurinn síðasta sólarhringinn hefur reynt á björgunarsveitir og aðra viðbragðsaðila. Þegar vá ber að höndum eða slys verða treystum við á að net viðbragðsaðila komi til hjálpar. Þar er um að ræða stóran hóp atvinnufólks og sjálfboðaliða. En hvernig er hugað að þjálfun og samhæfingu alls þessa hóps? Málþing slysavarna- og viðbragðsaðila var haldið í gær. Einar Örn Jónsson, slysavarna- og björgunarmaður, sagði að niðurstaða málþingsins hefði verið sú að setja þyrfti á stofn sameiginlega þjálfunarmiðstöð á landinu. - Hvernig var stemmningin í veislu forseta lýðveldisins fyrir alþingismenn og maka á Bessastöðum í gærkvöld? Hverjar verða afleiðingarnar af lágkúrulegri framgöngu nokkurra þingmanna á opinberum stað og af niðrandi ummælum sem féllu þar um fjarstaddar þingkonur sérstaklega? Við spurðum tvo alþingismenn þessara spurninga: Kolbein Óttarsson Proppé og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur. Og við ræddum líka stöðu fullveldisins og inntak þess - í tilefni af því að á morgun fagna Íslendingar því að öld er liðin frá því að Ísland varð fullvalda ríki. - Það er stundum sagt að við megum ekki gleyma. Ef við munum eftir mistökum fortíðar geta þau síður endurtekið sig. Með það fyrir augum hafa þau Sif Sigmarsdóttir rit- og pistlahöfundur í samstarfi við Halldór Baldursson skopmyndateiknara, gefið út bókina Sjúklega súr saga, sem er einfaldlega Íslandssagan í nýjum, gamansömum búningi. Tilgangurinn er að glæða söguáhuga hjá yngri kynslóðum. Sif Sigmarsdóttir var á línunni frá Lundúnum. - Já, við fögnum því á morgun að hundrað ár verða liðin frá því fámenn og fátæk þjóð varð fullvalda og sjálfstætt ríki. Við báðum Gunnar Þór Bjarnason, sagnfræðing, að draga upp mynd af þessum mikilvæga degi í sögu þjóðarinnar, 1.desember 1918, aðdragandanum og breytingunum í kjölfarið. Gunnar Þór hefur ritað bókina Hinir útvöldu - Söguna af því þegar Ísland varð sjálfstætt ríki árið 1918. - Tónlist: Bob Markey - Is this love?; Einar Scheving - Draumalandið.
Eftir rúmlega 8 mánaða þögn hefur Angela Merkel, Þýskalandskanslari, svarað tillögum Emmanuels Macron, Frakklandsforseta, um framtíð Evrópusambandsins. Kanslarinn virðist ekki reiðubúin að ganga jafn langt og Macron þegar kemur að fjárframlögum til sambandsins. Hverjar eru horfurnar í Evrópusambandinu í ljósi þessa? Við veltum því fyrir okkur. Arthúr Björgvin Bollason í Þýskalandi sagði frá þessu og fleiru. - Íslenskir stjórnmálamenn virðast ágætlega launaðir - við þekkjum síðasta úrskurð Kjararáðs um kaup Alþingismanna og ráðherra og áhrif hans á kaup sveitarstjórnarmanna sem komu í ljós og voru nokkuð til umræðu fyrir kosningar. Borgum við stjórnmálafólkinu okkar há laun? Kannski óþarflega há? Ætli launin ráði miklu um hvort fólk fer í framboð? Hvernig standa nágrannaþjóðirnar að þessu? Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, ræddi þessi mál. - Er vinnan að drepa okkur? Fólk upplifir miklu frekar nú en fyrir áratug að vinnuálag sé mikið og vísbendingum um slæmar afleiðingar álags fjölgar stöðugt. Kulnun í starfi er þar á meðal. Gallup á Íslandi hefur gert vinnustaðagreiningar á síðustu árum og hefur gott yfirlit um þróunina. Vala Jónsdóttir, viðskiptastjóri, sinnir mannauðsrannsóknum og ráðgjöf hjá Gallup. Hún sagði frá vinnuálaginu og leiðum til að bregðast við því. - Reykjavíkurborg er auðvitað fjölmennasta sveitarfélag landsins og á miklar eignir, margar byggingar og lóðir. Skyggnast var um í höfuðborginni undir leiðsögn Hrólfs Jónssonar, sem þekkir innviði borgarinnar vel, bæði sem fyrrverandi slökkviliðsstjóri og síðast skrifstofustjóri eigna- og atvinnuþróunar. Hrólfur lauk þættinum með því að leika lag eftir sjálfan sig.
Er Ísland hin raunverulega jafnréttisparadís heimsins? Hverjar eru hugmyndir ungra Íslendinga um karlmennsku og kvenleika, og hvernig hafa þær hugmyndir áhrif á líf og reynslu þeirra? Af hverju mega karlar vera berir að ofan í sundi en konur ekki? Hvers vegna gerðist “free the nipple” á Íslandi en ekki einhvers staðar annars staðar? Af hverju er “ógeðslegt” að sofa hjá stelpum með líkamshár en ekki strákum? Þetta eru sumar af þeim spurningum sem Sigrún og Ásta Jóhannsdóttir veita innsýn í þessa vikuna í hlaðvarpinu, en Ásta er nýjasti íslenski doktorinn í félagsfræði. Hún varði doktorsritgerð sína núna í maí en hún ber heitið “Gender Identities in Gender Equal Iceland: Possibilities and Limitations in the Performance of Gender among Young People in Reykjavik, 2012-2016.”
Rætt var ítarlega um komandi umferð í Pepsi-deildinni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7. Farið var yfir alla leikina og ýmsum spurningum velt fram. Getur Fjölnir fallið? Hverjar eru líkurnar á því að Valur verði meistari? Er rétta lausnin að reka Willum? og fleiri spurningar flugu. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson ræddu um allt það helsta. Einnig var Inkasso-deildin skoðuð.
Bíó Tvíó ferðast alla leiðina til Íslands til að fjalla um Fúsa, kvikmynd Dags Kára frá 2015. Hvernig getur ein íslensk kvikmynd um þroskasögu íslensks karlmanns toppað hinar? Hverjar er afleiðingar þess að borða duft alla daga? Erum við öll föst í sýndarveruleika? Stóru spurningarnar, auk umfjöllunar um íslenskar kvikmyndir, allt þetta og meira í Bíó Tvíó.

Hvað er bylting? Hvaðan kemur þetta orð og hvað þýðir það? Hverjar eru helstu byltingarnar? Hvað þýðir að byltingin éti börnin sín? Hvað er ógnarstjórn, valdarán og uppþot? Í gamla daga dóu oft margir í byltingum hver er þá munurinn á byltingu og stríði? Hvað lærðum við af Frönsku byltingunni og hvaða áhrif hafði hún? Þetta og margt fleira spennandi í þættinum. Sérfræðingur þáttarins er: Njörður Sigurjónsson byltingarfræðingur