POPULARITY
Landssamband eldri borgara, LEB, hefur undanfarin misseri unnið að stefnumörkun í kjaramálum eldra fólks, í samstarfi við félaga í aðildarfélögunum 55, sem mynda Landssamband eldri borgara. Í þessari stefnumörkun eru lagðar fram ýmsar leiðir til úrbóta fyrir stjórnvöld og í dag kl.13 verður sérstakt málþing um kjör eldri borgara á Hilton Reykjavík Nordica og yfirskriftin er: Við bíðum... EKKI LENGUR. Helgi Pétursson er formaður Landsambands eldri borgara og hann kom í þáttinn í dag. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þetta sinn lagði hann vinkilinn að uppáhelltu kaffi, espresso og Goethe sjálfur var svo í aukahlutverki. Kamilla Einarsdóttir rithöfundur var svo lesandi vikunnar í þetta sinn. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Kamilla talaði um eftirtaldar bækur: Hlustum frekar lágt e. Þórarinn Eldjárn Kletturinn e. Sverri Norland Vegamyndir e. Óskar Árna Óskarsson Dauðaslóðin e. Söru Blædel Lína Langsokkur e. Astrid Lindgren Einar Áskell e. Gunnilla Bergström Tónlist í þættinum Ég vil bara beat músík / Ríó tríó (Dixon, Mason og Ómar Ragnarsson) Í rökkurró / Helena Eyjólfsdóttir (Al Nevins, Artie Dunn, Marty Nevins og Jón Sigurðsson ) Númi / Kristín Lárusdóttir (Kristín Lárusdóttir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Skammdegið er í hámarki þessa fyrstu daga janúarmánaðar og eflaust margir farnir að telja niður í sumar, sælu og frí á framandi slóðir. Við hendum því í Ferðalagahristing í þætti dagsins. Allar spurningar tengjast ferðalögum, fríum og spennandi áfangastöðum um víða veröld. Gunna Dís situr sem gestaspyrill með Jóhanni Alfreð og liðin tvö sem keppa eru Klandur Vest sem í eru Andri Freyr Viðarsson og Elísabet Inga Sigurðardóttir en þau mæta liði Djúpsins sem mynda þau Kamilla Einarsdóttir og Jakob Birgisson. Meðal þess sem kemur við sögu er sælueyjan Tenerife, íslenskir heimshornaflakkar, íslensk flugfélög og mest sóttu ferðamannastaðir í heimi í keppni sem reyndist æsispennandi.
Í Víðsjá dagsins kynnum við okkur nýlega og mjög metnaðarfulla listahátíð í Kópavoginum, Hamraborg Festival. Rithöfundarnir Emil Hjörvar Petersen og Kamilla Einarsdóttir sögðu okkur aðeins frá hátíðinni, endurnýjaðri ímynd Kópavogs og nýútkominni bók, Með Hamraborg á heilanum, sem kemur út í tilefni af hátíðinni. Þá fáum við óvenjulega heimsókn í hljóðstofu: Myndlistarkonan Freyja Eilíf og handarannsakandinn Jana Napoli lásu í lófa Höllu og sögðu okkur frá verkefninu Hendur Íslands, sem felst í því að lesa í lófa og taka myndir af höndum 1% Íslendinga. Lófalestur þeirra Jönu og Freyju verður meðal fjölda viðburða á Hamraborg Festival um helgina. Friðgeir Einarsson hefur síðustu vikur fært okkur pistla um sumarfrí og deilt með okkur áhyggjum og vangaveltum um allt það sem huga þarf að á þessum krefjandi tíma ársins. Í sínum síðasta pistli af fjórum heldur Friðgeir á Hornstrandir í leit að svörum. Og við heyrum smá spuna frá Davíð Þór Jónssyni, píanóleikara, sem tekur á móti gestum á síðustu stofutónleikum sumarsins á Gljúfrasteini á sunnudaginn.

Borgarbúar hafa tekið eftir fjölgun á komum einkaþota á Reykjavíkurflugvelli undanfarið. Hvernig er skimun háttað á vellinum? Stefán Smári Kristinsson hjá Ace Fbo veit allt um málið og var á línunni. Ný íslensk kvikmynd, Amma Hófí, er frumsýnd í kvöld. Edda Björgvinsdóttir leikur eitt aðalhlutverkanna, á móti Ladda, en þau gerast glæpamenn á efri árum. Edda var á línunni. Viðburðurinn Elskum plötubúðir fer fram í borginni næstu þrjá laugardaga. María Rut Reynisdóttir hjá Tónlistarborgin Reykjavík og Benedikt Reynisson frá Smekkleysu sögðu hlustendum frá þessu. Fréttir vikunnar. Þær Kamilla Einarsdóttir og Tobba Marinós komu og fóru yfir fréttir vikunnar. Team Rynkeby, er hópur hjólafólks sem er á hringferð um landið á hjólum. Þau eru að styðja við Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna með uppátækinu. Hringnum er lokað á morgun, laugardag, þegar hópurinn tekur þátt í KIA Gullhringnum á Laugarvatni.. Elvar Jónsson, einn liðstjóra hópsins, var á línunni. Stjórnendur Morgunútvarpsins í dag voru Rúnar Róbertsson og Atli Fannar Bjarkason.

Í þætti dagsins mætir lið leikara, þau Arnmundur Ernst Backman og Ebba Katrín Finsdóttir, liði radda almennings sem í eru Hrafn Jónsson og Kamilla Einarsdóttir.

Rætt verður um Góða landsmenn/Þorsta e Steinda jr og Gauk Úlfars, Sequences og plötuna Ghosteen eftir Nick Cave, Gestir þáttarins verða Kamilla Einarsdóttir, Björn Teitsson og Áslaug Guðrúnardóttir. Umsjón Bergsteinn.

Klámkynslóðin, Eymdin og lausnin á loftslagsvandanum. Kamilla Einarsdóttir hefur marga fjöruna sopið, hún er einn skemmtilegasti rithöfundurinn í augnablikinu og heldur fylgjendum sínum á Twitter á tánum. Nýjasti Athyglisbresturinn fjallar að þessu sinni um hugðarefni Kamillu, ást hennar á tónleikum, vinnu hennar á strippstað rétt fyrir aldarmótin, það að elska eymdina og lausn hennar á loftslagsvandanum. Svo tölum við að sjálfsögðu um heita gaura og piss.
Gestur Matta er rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir.
Kristín Maríella Friðjónsdóttir er fiðluleikari sem býr á Balí og hefur haldið 75 námskeið á tveimur árum, í Singapúr og hér á landi, um virðingaríkt tengslauppeldi eða RIE. En hvað er það? Kristín kom í þáttinn í dag og sagði frá. Á miðvikudaginn verður bókakvöld á Kaffi Bismút þar sem systurnar Júlía Margrét og Kamilla Einarsdætur ætla að lesa brot úr nýútkomnum skáldsögum sínum. Kamilla er eldri, hún lærði sagnfræði í Háskólanum, en Júlía Margrét hefur meistaragráði í kvikmyndahandritsskrifum. Þær eiga ekki langt að sækja áhuga sinn á skrifum, en faðir þeirra er rithöfundurinn Einar Kárason og móðir þeirra og amma eru bókasafnsfæðingar. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Vilhelm Anton Jónsson, eða Vísinda-Villi og Villi Naglbítur. Hann þekkja flestir úr fjölmiðlum, en hann hefur komið þar víða við, auk þess að vera tónlistarmaður og rithöfundur. Við forvitnuðumst um hvaða bækur eru á náttborðinu hjá honum, hvað hann er að lesa þessa dagana og hvaða höfunda og bækur hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina. Umsjón Lísa Pálsdóttir og Gunnar Hansson
Júlía Margrét og Kamilla Einarsdætur Kárasonar kíktu í morgunkaffi í Efstaleitinu og ræddu um nýútkomnar bækur sínar Drottningin á Júpíter og Kópavogskróníku. Ýmislegt fleira bar á góma eins og venjan er. Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar kom líka við og fór yfir málin, heilsurækt, kaffidrykkju og framtíð læknavísindanna. Fréttir vikunnar í tónlist, Eurovision lagið, Barnatíminn og fleiri fastir dagskrárliðir voru einnig á sínum stað.