Athyglisbrestur á lokastigi er nýr útvarpsþáttur sem fjallar um það sem við dýrkum og fyrirlítum mest: Menningu. Poppmenning er það sem gefur lífi okkar allra tilgang og við þurfum að ræða hana. Þátturinn er í stjórn þeirra Lóu Bjarkar Björnsdóttur og Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur (Salka). Salka og…
„Mig langar að Men in Black gaurarnir komi með ljósið og láti mig gleyma öllu sem gerðist eftir árið 2011, sem var árið sem ég fékk mér Twitter“ - Lóa Eru liðsmenn íslenska handboltalandsliðsins heitustu menn í heimi? Er Þórir Sæm kominn aftur á Twittter? Hverju má búast við í nýrri seríu af Euphoria? Þetta og fleira til umfjöllunar í þessum þætti, sem tekinn var upp 21.janúar og hefði komið inn fyrr ef athyglisbrests-lyfið Elvanse hefði ekki allt í einu orðið ófáanlegt svo vikum skipti í lok janúar. Umfjöllunarefni hans eru þ.a.l. vintage en samt ekkert svo! Njótið!
Helga Braga hefur bókstaflega gert allt: Skrifað og leikið í Fóstbræðrum, leiðsagt túristum á rútu, átt kommbakk á leikhúsfjölunum, skartað pappabrjóstum á fyrsta uppistands-gigginu á félagsheimili í Borgarfirði, og farið í burnout löngu áður en það var í tísku. Stelpurnar nutu þess í botn að tala við þessa algjöru drottningu sem elskar að vera í "einhverju skrýtnu", enda mætti hún í þennan þátt.Elskum ykkur babylotion, njótið vel!
Rapparinn og raunveruleikastjarnan Bassi Maraj... Hver er hann í raun og veru? Hlustendur fá að skyggnast bakvið tjöldin í raunveruleikaþættinum Æði, heyra hvaða Bassa fannst um Lóu þegar hann hitti hana fyrst og komast að því hver framtíðarplön Bassa eru. Bassi rekur það hvernig það var að fara í hlaðvarpsþáttinn Karlmennskan og hvaða afleiðingar það hafði fyrir hann.
Rassamyndir á Tene, að lenda í því að það sé hrækt framan í mann (sérstaklega ef manneskja með fjölþættan fíknivanda á í hlut) og að vera ein af fyrstu manneskjum á Íslandi með Pod. Þetta eru þau mál sem voru efst á baugi í þessum nýja þætti af Athyglisbresti á Lokastigi. Saga Garðars er svo fyndin og skemmtileg að þetta er must listen og share with friends kind of episode. Saga Garðarsdóttir er ekki bara geggjuð leikkona og grínisti heldur er hún líka podcast frumkvöðull á Íslandi, en hún stýrði þættinum Ástin og leigumarkaðurinn ásamt vinkonu sinni Uglu Egils.
Fyrsti þáttur ársins og þáttastjórnendur leggja spilin á borðið. Hvernig verður þetta ár? Hverjar eru lexíur ársins 2021? Við ræðum undarlegt blogg leikkonunnar Juliu Fox sem fjallar um stefnumót hennar við Ye. Nýju uppáhalds þættina okkar, Verbúðina, og svo margt fleira í þessum stórkostlega þætti í fullri lengd.
Hér er Athyglisbrests-þáttur sem ber nafn með rentu, en til þess að hringja inn hátíðarnar fengum við sanna regulars í þáttinn: Engin önnur en þau Hjalta Vigfússon og Ásdísi Maríu Viðarsdóttur, enda fá önnur sem geta látið okkur hlæja jafn mikið og á sama tíma gert okkur jafn brjáluð í skapinu
Þær eru komnar aftur - og þær eru í góðu jafnvægi. Eitthvað extra wholesome þáttur í dag - stelpurnar tóku upp þátt eftir að síðasti þáttur hvarf út í himingeima, þeim líður vel og eru uppfullar af bjartsýni þrátt fyrir að lýðræðið sé blekking - semsagt já, við ræðum nýja ríkisstjórn, þakkargjörðarbæn Kanye West, jólin(edgy) og hvað okkur langar í jólagjöf frá vinnustaðnum okkar (sumsé ykkur - spoiler: Lóu finnst Sölku vanta flotta úlpu).
Uppistandið, mömmu-retreatið, ný sería af Morning Show, brúðkaup Paris Hilton, Succession (og sú óumdeilanlega staðreynd að Tom er aðalpersónan), Fortuna Invest og tími andhetjunnar. Stelpurnar eru solo í þætti vikunnar og living.
Það er tímabær og strategískur fundur með Heklu Elísabetu í þættinum að þessu sinni, enda eru stelpurnar að fara að sýna uppistand á laugardaginn og hafa því aldrei hugsað færri fyndnar hugsanir - kvíði og athyglisbrestur eru nefnilega æði! Hekla er ekki aðeins uppistandari og handritshöfundur allra þátta sem Laddi leikur í þessa dagana, heldur líka pólitískt ljón sem vill að ungt fólk láti sig málin varða - hvað sem það nú þýðir. Stelpurnar ræða hvort Pete Davidson sé daddy, hvort Covid sé þjáning(SORRY að við séum að tala um veiruna skæðu at all), Hekla og Lóa gagnrýna danssýninguna Neind Thing sem Salka performaði í á dögunum - og auðvitað greinum við líka Umræðuna á samfélagsmiðlum. Allavega, komið á uppistandið okkar ef ykkur finnst við einhvers virði! Miðar á tix ;)
Í veipskýi í Egilsstofu á Útvarpi 101 ræddu Salka og Lóa við reyndan podcastara, Skoðanabróðir, ábyrgðarking og dyggan hlustanda Athyglisbrests, Bergþór Másson. Kveiksþátturinn með Þóri Sæm, Leynilöggan og samskipti kynjanna. Geta karlmenn elskað konur eins og þeir elska karlmenn? Vita perrar að þeir eru perrar?
Magnaður morð-þáttur þessa vikuna elskurnar, enda er gestur þáttarins hin stórskemmtilega Viktoría Blöndal - rithöfundur, listakona, þriggja barna teen mom og ein af fáum manneskjum í heiminum sem les ennþá bækur.Við förum um víðan völl með Viktoríu en snertum meðal annars á hvort það sé athyglissýki að breyta föðurnafninu sínu, hvernig það gerðist að Salka átti miða á 10 ára afmæli FM95blö gegn vilja sínum og líka fullt af BÓKUM og LEIKHÚSI þannig að spennið beltin - stelpurnar eru hugsandi manneskjur þessa viku!--Takk fyrir að hlusta bestu, við minnum á að ef þið gerist patrons fáiði þáttinn fyrr en allir aðrir, getið fengið aukaþætti og allskonar annað sniðugt: https://www.patreon.com/athyglisbrestur
Í þessum þætti eru að þessu sinni einungis salka og lóa mættar í hljóðverið. Þær ræða nýja seríu Succession stuttlega, Netflix þættina Maid, innkomu Sigurðar nokkurs á Twitter og börnin sem eru engin mörk sett í símanotkun sinni. Við eigum kannski í ofbeldissambandi við síma en viljum við að börnin okkar séu það líka? Takk fyrir góðar viðtökur við seinasta þætti. Elskum ykkur. Það er alltaf gaman að tala um djammið.
Við ræðum við vinkonu, grafískan hönnuð, listakonu, tvíbura, móður, eiginkonu, hlustanda podsins... hina eldkláru, Helgu Dögg Ólafsdóttur. Það eru öll mest djúsi umræðuefnin á borðinu að þessu sinni... djammið, aldur, Covid, að vilja vera séð og þráð, að vera á lausu? Að vera elstu konurnar á klúbbnum. Einlægt samtal og í raun eldfimur þáttur, þar sem við förum yfir mörk Lóu, mörk Sölku og sennilega mörkin hennar Helgu, en fyrst og fremst yfir mörk föður Sölku, Þórarins, sem ætti aldrei að fá að hlusta á þetta podcast og við vonum að hann verði við þeirri ósk okkar, að hlusta aldrei.
Facebook miðlarnir lágu niðri í upphafi vikunnar, sem var eins og að fara í frí. Stelpurnar fjalla um Facebook uppljóstrarann, nýjustu seríu Sex Education og Netflix seríunna The Chair. Við þurfum að byrja aftur að shame-a en bara ekki á þann hátt og er gert núna, þetta er flókið samt þú verður að hlusta til að skilja. Þú verður að hlusta á allann þáttinn í gegn. Lóa var andvaka eftir þáttinn því henni fannst hljóma eins og hún væri að gefa í skyn að Reddit og 4chan væru kúl hliðar internetsins, henni finnst það ekki, en það kom þannig út. Vonandi .... jafnar fólk sig á því, þó að Lóa hafi ekki gert það.
Það er kominn tími á crossover episode! Það er einhleypur, einmana og eirðarlaus athyglisbrestur því þau Steiney Skúladóttir og Pálmi Freyr Hauksson eru gestir stelpnanna að þessu sinni. Steiney og Pálmi eru bæði grínistar á öllum sviðum sem hægt er: Sketsum, spuna og dýfa jafnvel tánni í uppistand, auk þess að halda úti hlaðvarpinu Einhleyp, einmana og eirðarlaus. Í þættinum drógum við upp úr þeim geggjaðar deitsögur sem involva furðulega mikið af blóði og sársauka, auk þess sem Steiney leikur fyrir okkur hvernig henni tókst að fara af leiðinlegu deiti eftir að aðeins 10 mínútur voru liðnar af því. Auk þess ræðum við geðheilsu þegar maður er 21 árs, hvernig maður dílar við það þegar dicks úr menntaskóla eru allt í einu í framboði og hvort pick me stelpur séu ekki bara mennskar?
Að þessu sinni er feðraveldið sjálft, Þórarinn Leifsson, gestur þáttarins, enda kominn tími til að Lóa og Salka heyri loksins skoðanir alvöru miðaldra íslensks karlmanns - „Nothing about us without us“ og allt það. Þórarinn, eða Tóti Nei eins og hann var kallaður á unglingsárunum er pabbi Sölku og rithöfundur, en í þættinum ræðum við nýútkomna bók hans Út að drepa túrista, léttar alhæfingar um þjóðir, hvað kosningabarátta er leiðinleg og af hverju karlmenn á miðjum aldri deita yngri konur eftir tuttugu ára hjónabönd.
Hvað finnst okkur að íslenskum feministum í dag? Hvers vegna er Salka hætt að horfa á Love Island? Hvaða skandal gerði Lóa á Austfjörðum? Af hverju eru mæður okkar í betra formi en við? Afsakið biðina á nýjum þætti! Við þökkum þolinmæðina og viljum senda sérstaka kveðju til Péturs Marteins. Hér er droppið! Og droppið er risa stórt. Við fengum til okkar kæran gest sem hefur hlustað mikið á þáttinn. Það er alltaf gaman að fá gesti sem eru hlustendur og vilja ræða ákveðin mál við okkur. Gesturinn er stjarna í kvikmyndaheiminum, Katrín Björgvinsdóttir. Hún er nýútskrifuð úr virtu kvikmyndanámi í Den Danske Filmskole og er að skrifa handrit að sínum eigin sjónvarpsþætti fyrir TV2. Við ræddum við hana um þáttinn hennar, konur í uppistandi og konur sem vilja vera meira en bara konur. Lóa stingur upp á því að við förum aftur að segja problematic brandara, Salka tekur það ekki í mál og Katrín verður eins og brúðumeistari þáttarins.
Stelpurnar ræða StÓrU mÁLiN í þessum þætti: Kosningar 2021 nálgast hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Hér kemur þekking stelpnanna á sviðslistum sterk inn enda eru þær sammála um að kosningabarátta er ekki annað er leikrit og að formenn flokkanna myndu sóma sér betur á leiksviði en í pólitík(Nema Glúmur, hann ætti kannski bara að halda sig heima). Skiptir stefnuskrá flokks meira máli en að fólkið í flokknum séu góðar og ábyrgar manneskjur? Er vinstrið enn og aftur í ruglinu? Ætti Sölku að vera eitthvað annað en drull um kosningaloforð Samfylkingarinnar um fullar barnabætur? Eru Miðflokkurinn, Flokkur Fólks og Sósíalistaflokkurinn same flokkur different take? Er knésetning kapítalismans bara fjarlægur og barnalegur draumur? Ættu stelpurnar kannski bara að segja fokkitt og kjósa Sjálfstæðisflokkinn? Eða er kannski bara málið að sleppa því að kjósa eins og elsku Lóan okkar tradpilled femcel er að pæla í? Einnig á dagskrá er nýjasta plata Kanye West: Donda. Lóa ræðir plötuna af sömu ástríðu og Salka talaði um Love Island um daginn og stelpurnar velta fyrir sér hvert hlutverk listamannsins sé í nútímasamfélagi, hvaða þýðingu stuðandi gjörningar West hafa á umræðuna og hvaða hópur það sé sem vilji hvað mest sjá þennan umdeilda en risastóra listamann stíga feilspor.
White Lotus, 9 Líf, Íslandsleiði og Ketamín er til umræðu í þessum nýja athyglisbresti. Lítill athyglisbrestur hér, bara mikill fókus á stórkostlega nýja HBO þætti úr smiðju Mike White, sem er einna þekktastur fyrir School of Rock og Emoji movie. Það eina sem við vitum í raun er að Jennifer Coolidge er svo stórkostleg leikkona að við vitum ekki hverju við eigum von á næst. White Lotus: great acting, great writing and we are loving the vibe. Enginn gestur. Deal with it bitch.
Það er komið að honum - mesti athyglisbrestsþáttur Athyglisbrests til þessa. Bjartur Örn Bachmann, sviðshöfundur, leikarabarn og trúður er gestur þáttarins og það fyrsta sem hann gerir er að labba út úr upptöku því hann þarf að pissa. Framhaldið er eftir því .Þríeykið ræðir þriggja daga gönguna sem þau voru í um helgina, súr TikTok-hljóð, hversu snemma er hægt að tweeta um áramótin og auðvitað Íslandsklukku Halldórs Laxness. Heldur þann versta en þann næstbesta amirite??
Í podi dagsins eru engir gestir nema þá bara þunglyndið hennar Lóu. Stelpurnar ræða covid infested podstudioið, spyrja sig hvort Kim K sé listakona, hvort Ben og J-lo séu í alvöru saman osfrv. Stór hluti þáttarins fer þó í að ræða Love Island, lýtaaðgerðirnar, rifrildin og geðheilsu eyjaskeggja. Og já hvort Salka sé búin að skipta um skoðun á crocs eftir áhorfið (spurning frá hlustanda).
Hún selur gleraugu á Hverfisgötu. Hún er uppistandari. Hún er djammlegend og hún er viðmælandi dagsins. Stelpurnar spjalla við hana um hvernig hún álpaðist út í uppistand, breytingaskeiðið, konur sem eru sjálfri sér verstar og athyglisbrest að sjálfsögðu. Hún er fyndnasta kona íslands. Það er því bara eitt að segja: Njóttu elsku besta mín. xoxoxo
Guð er til og hann býr á hálendi Íslands. Guð er til og hann er kona? Guð er sá sem bjó til yfirvaraskeggsfilterinn á Insta. Guð er þetta pod, sem er loksins komið úr sumarfríi. Salka og Lóa setjast niður í kók stúdíóið og ræða málin. Þær fara yfir bækurnar sem þær lofuðu að lesa í sumarfríinu. Það má því líta á þennan þátt sem framhald seinasta þátts fyrir sumarfrí.
Hæjjjjjjj. Í þessum langa og góða þætti mæla Salka og Lóa með bókum sem þær ætla að lesa í sumarfríinu sínu. Bækurnar sem við tölum um í þættinum eru Capitalist Realism eftir Mark Fisher, Conflict is not abuse eftir Söruh Schulman og Communion eftir bell hooks. Stelpurnar ræða pælingar í sambandi við samskipti, sambönd og ofbeldi. Metoo, konur sem fórnarlömb og eðlileg viðbrögð við því að vera sakaður um ofbeldi. Lóa vill taka fram að hún varð mjög steikt í þessum þætti og átti erfitt með að útskýra það sem hún var að hugsa og hún vildi klippa þáttinn en ákvað að gera það ekki heldur leyfa ykkur frekar að heyra hálfbakaða pælingu og vona að þið skiljið eitthvað hvað hún er að fara. Við erum farnar í tveggja vikna sumarfrí og við munum sakna ykkar. Living. Eigið gott frí og látið okkur vita ef þið tékkið á þessum bókum.
Smellum saman? Nýtt lag eftir Króla og Rakel Björk eða jákvæð auglýsingaherferð fyrir sætisbelti? Katla, lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna eða sköpunarverk miðaldra horny incels? Skoðanabræður, vinir eða óvinir? Antivax, problematic eða skiljanlegt? Lóa vakir alla nóttina til að horfa á Silicon Valley, þættir á HBO sem kláruðust árið 2019 og Salka microdosar Kötlu. Ef þú höndlar ekki gagnrýni frá Jóni Viðari: Get out of Art.
Gestur þáttarins er engin önnur en drottningin Kolfinna Nikulásdóttir: leikskáld/leikstýra/móðir/sviðshöfundur/ólíkindatól! Athyglisbresturinn er í hámarki í þessum þætti svo hlustendur eiga að sjálfsögðu gott eitt í vændum: Lóa ekki búin að taka lyfin í marga daga og búið að cancella hana á twitter, Salka í mömmu og aktívisma burnouti og Kolfinna nýbúin í Keratín meðferð og nöglum, er hægt að biðja um meira? Svarið er JÁ, það er hægt, við erum nefnilega líka allar með Ztonelove á heilanum og Lóa er alltaf að ýta á takka sem gera pirrandi hljóð effekta á meðan á upptöku stendur
Gestur þáttarins er engin önnur en drottningin Kolfinna Nikulásdóttir: leikskáld/leikstýra/móðir/sviðshöfundur/ólíkindatól! Athyglisbresturinn er í hámarki í þessum þætti svo hlustendur eiga að sjálfsögðu gott eitt í vændum: Lóa ekki búin að taka lyfin í marga daga og búið að cancella hana á twitter, Salka í mömmu og aktívisma burnouti og Kolfinna nýbúin í Keratín meðferð og nöglum, er hægt að biðja um meira? Svarið er JÁ, það er hægt, við erum nefnilega líka allar með Ztonelove á heilanum og Lóa er alltaf að ýta á takka sem gera pirrandi hljóð effekta á meðan á upptöku stendur
Í þessum þætti grafa stelpurnar stríðsöxina, en það var stutt í vinslit meðan á Evróvisíón stóð. Þær gera upp reiðina og ósættið og greina kepnnina fyrir fans og ekki fans af þessum menningarviðburði vikunnar. Þær krýna arftaka Dúu Lipa og Ariönu Grande, ræða stuttlega óvinsæla skoðun Lóu sem gerir heiðarlega tilraun til að vera cancelled af woke bullies í þættinum. Aldursmunur í unglingasamböndum, trauma porn í metoo, fósturlát og kynferðisofbeldi eru til umræðu svo það sé tekið fram. Þáttur sem byrjar léttur en endar þungur eins og allt sem er gott í þessum heimi.
Í þessum þætti Athyglsibrests ræða Lóa og Salka af hverju konur yfir 25 mega ekki vera einlægir aðdáendur ungra tónlistarmanna(spoiler: það er af því það má ekkert lengur) og rjúfum ærandi þögn okkar(sem var ekki það ærandi) um nýja bylgju #metoo. Salka fór að gráta yfir að Jóhann í Gagnamagninu væri með Covid en Lóu er alveg sama enda skortir hana almennt samkennd með öðrum. Lóa frumflytur líka einkennissetningar (catchphrase endilega dm um hvort það sé góð þýðing) nýrrar seríu af Æði....mhm...
Í þessum splunkunýja þætti af Athyglisbresti fáum við iconic listatvíeykið, Tatjönu Dís og Jóhann Kristófer í hljóðverið til okkar. Við tölum um hypothetical toxic syni, mæðradaginn sem snerist ekki um Lóu, að Tatjana djammaði í LHÍ, Salka horfði á Nomadland og Jói komi alltaf seint. Og vegna þess að það er gagnkynhneigður maður í þættinum þá ræðum við fjárfestingar og rafmyntir. Ztonelove á lokalag þáttarins.
JÆJA. Lóa Janssen er komin með bólusetningu og Salka fór (ekki viljandi) á fyrirlestur hjá Begga Ólafs um daginn svo það mætti segja að þær báðar séu betri manneskjur í dag en í gær. Þar sem það er eins og allir vita EKKERT í gangi í samfélaginu sem þarf að ræða fengu stelpurnar til sín í þáttinn góðan fastagest Athyglisbrestsins, HJALTA VIGFÚSSON, sem jafnframt er lögfræðingur stelpnanna.Kaotísk orka í þætti vikunnar og krakkarnir ræða hvort Athyglisbrestur á lokastigi sé kristilegt podcast, hvort það sé þess virði að vera í langtímasambandi og stærsta sakamál í sjávarútvegi sem upp hefur komið í Danmörku(Salka horfði á kvöldfréttir á RÚV í gær).
Í þessum þætti af Athyglisbresti á lokastigi ræðum við nýja seríu af The Circle á Netflix, sem við mælum með af öllu hjarta. En það hlaut líka að koma að því við mellurnar tækjum þátt í Official OnlyFans „Umræðunni“ sem hefur tjahhhhhhhhhhh sett íslenska internetið á hliðina í nokkra daga. P.s. Lóa hafði neytt ceremonial Cacao í þessum þætti og hafði tekið lyf þannig vonandi útskýrir það sumt sem fór fram. P.s. 2 Salka er líka að reyna að hætta á nikótíni en hún var ekkert grumpy
Hér er þá komið að seinni hlutanum með mæðraveldinu. Mömmu eru bestar, við föttuðum það í part 1. en núna er part two og þá förum við að tala um hvernig við gerum heiminn að betri stað og af hverju manni finnst stundum sitt eigið barn ekki vera fyndnasta barnið á uppistandinu. Stóru málin.
Það hlaut að koma að þessu. Gestir þáttarins að þessu sinni eru mæðraveldið sjálft, skaparar alls sem við þekkjum, the ones that started it all og konurnar sem við dýrkum meira en lífið sjálft, hinar einu sönnu MÖMMUR OKKAR. Bergþóra(mamma Lóu) og Magga Stína(mamma Sölku) ræða við dætur sínar um norræna glæpaþætti, hekl, barnabörnin sín, kisur og hvort símar séu verkfæri djöfulsins. Reyndar var svo gaman að tala við þær að við þurftum að skipta þættinum í tvennt og kemur seinni hlutinn í næstu viku.
Stelpurnar eru komnar ferskar úr páskafríi. Lóa fer yfir lyfin sín og Salka opinberar ótta sinn gagnvart hugsanlegum framtíðar kærasta Lóu. TIl umræðu í þessum þætti eru kvartanir til fyrirtækja (siðlaust eða samfélagslega ábyrgt?), heimilisstörf og appið HEIMA, 3 myndir sem Lóa mælir með og svo ítarleg kvikmyndarýni um myndina Promising Young Woman, sem er skrifuð og leikstýrt af Emerald Fennell (2020).
Stelpurnar kafa á dýpið í umræðu um trúðinn Chet Hanks sem hefur lýst yfir að sumarið 2021 verði White Boy Summer, svik þjóðarinnar við hetjuna Bassa Maraj og hvort það sé Hrúta-orka í loftinu eða kannski bara svifryk?
Tjah. Hvað getum við sagt? Bókstaflega? Í þessum nýja þætti förum við kannski létt yfir tilfinningarnar sem fylgja hertum aðgerðum. Hvar stöndum við í menningarstríðinu um eldfjallið? Erum við bugaðar? Já. Munum við hætta að tjá okkur um poppmenningu? Aldrei. Við erum hérum og við erum ekki almannavarnir heldur bara tvær konur með míkrafóna og það er betra en nokkuð annað í þessum heimi og betra en kári stef að tala um bóluefni. Og þú veist það. Þátturinn fjallar að stærstum hluta um réttarhöld yfir kunningja okkar, Elínborgu, sem er sótt til saka fyrir mörg smávægileg brot gegn lögreglunni. Sjá titil þáttar.
Narsissisminn í Exit og þorstagildrur á TikTok eiga hug stelpnanna allan í nýjasta þætti Athyglisbrestsins.
Gestur þáttarins er íslensk barnastjarna, vinur, fyrrum nágranni, leikari í sjónvarpsþáttunum Brot, MH-goðsögn og hingað til yngsti viðmælandi þáttarins. Enginn annar en fyndnasti og besti Grettir Valsson. Grettir er Grettir og þessi þáttur hét næstum Greiningarnar hans Grettis eða Grettir og Greiningarnar, því að við hreinlega gátum ekki hætt að sjúkdómsgreina hann. Við förum yfir allt það helsta, ástina, menntaskóla, Gillz, uppgang feminisma, OPRAH viðtalið (!!!!) og framtíðarhorfur Grettis. Þegar unga fólkið talar þá eigum við að hlusta. Þegar unga fólkið segist ætla í Trúðaskóla þá berum við virðingu fyrir því.
Hvernig er rétt að bregðast við þegar fólk verður uppvíst að rasisma? Finnst okkur sem hvítu fólki stundum pirrandi að annað hvítt fólk þurfi að axla ábyrgð á hlutum sem virka smávægilegir þegar kemur að kynþáttafordómum? Við köfuðum aðeins ofan í atburðina í Reply All v.s. Bon Appetit málinu, Salka útskýrir hvernig Bachelor-vörumerkinu hefur mistekist að taka á þessu og svo ræða stelpurnar myndirnar Small Axe sem eru í uppáhalds efnisveitunni okkar, Rúv Sarpinum. https://www.patreon.com/athyglisbrestur
Ef það var einhverntímann athyglisbrestsþáttur þar sem við tölum um jafnrétti kynjanna, kynin, menntakerfið, félagsmótun, hvernig strákar haga sér og hvernig stelpur haga sér, þá er þetta sá þáttur. Þetta er ultimate SÁ þáttur. Heimildarmyndin 'Hækkum rána' snerti einhverja strengi innra með okkur. Okkar innri litlu stelpur töluðu í gegnum okkur í þessum þætti. Myndin er sýnd á Sjónvarpi Símans og fjallar um stúlknalið í körfubolta og þjálfara þeirra. Þjálfarinn beitir aðferðum og hörku sem ekki tíðkast varla á Íslandi í dag og sér í lagi ekki í stúlknaþjálfun. Þjálfarinn, Brynjar Karl, er vægast sagt umdeildur þó hann eigi sér vissulega einhverja stuðningsmenn/talsmenn, en heimildarmyndin er allavega í öllu falli stórkostleg.
Heimildarmyndinn Framing Britney kom út þann 5. febrúar síðastliðinn. Af því tilefni fengum við til okkar sérfræðing í Britney Spears, hana Grétu Þorkelsdóttur til að ræða við okkur um heimildarmyndina, goðsögnina Britney, allt sem er ekki í myndinni og sömuleiðis útskriftarverkið hennar úr grafískri hönnun í LHÍ, sem var glæislegt bókverk um Britney. Hvernig fóru fjölmiðlar svona illa með yndislega stelpu frá Kentwood, Louisiana?
Eftir klúður seinustu viku þurftum við að sækja stóru byssurnar. Enginn annar en TV-superstar, Vikan með Gísla Marteini kom til okkar í podið. Gísli vígir með okkur nýjan lið í þættinum, Seven Minutes in Heaven. Stelpurnar ræða gestina í Gísla Marteini, sænsku sjónvarpsþættina Gösta, Eurovison, Málsvörn, Hrunið 2008, svo fátt eitt sé nefnt. Allt nema borgarskipulag og bóluefni er á borðinu.
Er í lagi að finnast einhver sem óbeint/beint olli íslenska efnahagshruninu sexy a.f? Til umræðu í þessum nýja þætti eru enn á ný menn sem stelpurnar eru ósammála um hvort séu heitir eða ekki. Jón Ásgeir Jóhannesson og.... ofc allir mennirnir í Dönsku kvikmyndinni Druk. Stórar siðferðislegar spurningar vakna þegar stelpurnar ræða Kveiksviðtalið sem Helgi Seljan (virðing á nafnið) tók við Jón Ásgeir. Lóa opinberar óra sem hið kapítalíska samfélag hefur kveikt innra með henni. Salka fer ófögrum orðum um nýlegt fyrirbæri á íslenskum vefsíðum.
Veistu hvað barnið þitt er að gera á tiktok? Líklegast kommenta haturskommentum á vídjóin hennar Lóu. Salka og Lóa ræða í þætti vikunnar málefni snjallmiðla. Þeirra einstaka sýn varpar að þessu sinni litlu ljósi á alvarleika stöðunnar og niðurstaðan er engin, því miður. Áframhaldandi fíknihegðun og botnhegðun í símanum er mögulega það eina í stöðunni? Salka fer yfir þrjú mest horny gymmin og stelpurnar fara yfir týpurnar sem þú gætir fundið í gymminu. Lóa vill ekki verða fræg (loksins) og Salka Low-Key ekki heldur. Við erum að lifa versta tíma ársins, allir að vera duglegir í D-vítamíninu. Kellyanne Conway, kosningastýra Trump og dóttir hennar Claudia eru trending á soc med eftir að Claudia afhjúpar ofbeldi mömmu sinnar.
Þrítugasti þáttur af Athyglisbresti á lokastigi og guð minn góður stelpurnar eru í stuði. Loksins hafa þær fundið tíma til að kryfja mál Hilaria Baldwin. Lóa er að vanda Team Alec Baldwin, Sölku til mikils ama. Er siðferðilega réttlætanlegt að kalla 12 ára dóttur sína svín því hún svarar ekki símanum? Er kaþólsk trú góð? Stelpurnar ræða auðvitað lestarslysið sem er soc med nærvera Lönu Del Rey, Sigurjón Sighvats í viðtali hjá Jakobi Bjarnar - tveir stórkostlegir listamenn þar á ferðinni (kemur í ljós að Sigurjón er svolítill Banksy í sér) og tvær gjörólíkar Netflix seríur eru teknar fyrir, Bridgerton (sem er ekkert nema 3,2,1 - horny klám cringe í búningum (... eða hvað....?) og þátturinn Pretend it's a city - þar sem rithöfundurinn og New York-erkitýpan Fran Leibowitz fær sviðið.
Stelpurnar héldu að skilnaður Kim og Kanye yrði stóra frétt dagsins, það reyndist ekki rétt. Neckbeards í USA gerðu tilraun til valdaráns, en stelpurnar ræða það ekki neitt. Hvenær lauk hjónabandi Kimye í raun og veru? Stelpurnar eru ekki sammála um það. Salka kom þó ekki bara til að rífast við Lóu um skilnaðinn heldur kom hún líka spitting facts um brauð og co og færandi hendi með rjúkandi heitt eintak af Lífsbiblíunni beint úr prentsmiðjunni. Það er bókakynning á þessari merku útgáfu og stelpurnar kveða upp dóm sinn. Lóa, aumkunarverður leigjandi, beitir stéttaofbeldi þegar hún ræðst gegn lægstu stétt samfélagsins, afgreiðslufólki.
Áramótaþáttur Athyglisbrests er eini þátturinn sem þið þurfið að hlusta á þessi áramót. Þátturinn er fullkomin, kaotísk yfirferð á öllu því góða og slæma sem þetta ár færði okkur. Lóa og Salka fá til sín O.G gest þáttarins, hann var með þeim í allra fyrsta þættinum af Athyglisbresti, Hjalta Vigfússon. Í sameiningu fara þau yfir hæðir og lægðir ruglaðasta ársins: Fræga fólkið söng Imagine til að losna við Covid, Söngvakeppnin sem var haldin rétt áður en samkomutakmarkanir skullu á, Mentor kom út, Salka gerði sitt fyrsta tattú, Hjalti ákvað að verða sjálfstæður í Plex-málum, það var hrækt á Lóu á Hlemmi - og það er bara toppurinn á ísjakanum.