POPULARITY
Íslendingar hafa sýnt af sér ákveðna værukærð hvað varðar eftirlit með hafinu og auðlindum þess. Þótt ekki sé hægt að segja að við höfum trassað ábyrgð okkar í varnarmálum þurfa menn að stíga upp og tryggja við séum verðugir bandamenn í alþjóðlegu samstarfi, segir Auðunn Kristinsson, aðgerðastjóri Landhelgisgæslunnar, í samtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Fyrirhugaðar breytingar á veiðigjaldi gætu haft mikil áhrif í sjávarbyggðum víða um land. Vífill Karlsson, prófessor í hagfræði, telur að ef breytingarnar valdi erfiðleikum í sjávarútvegi bitni það frekar á fiskvinnslu í landi en fiskveiðum. Afar mikilvægt sé að gefa sér góðan tíma og skoða vandlega áhrif af stórum ákvörðunum eins og um hækkun veiðigjalds. Ágúst Ólafsson ræðir við Vífil. Stjórnvöld og markaðir víða um heim bíða nánast með öndina í hálsinum eftir tilkynningu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um það, á hvaða innflutta varning hann hyggst leggja nýja eða hærri tolla en áður, og hversu háir þeir verða. Forsetinn er enda búinn að byggja upp heilmiklar væntingar - eða áhyggjur - með málflutningi sínum um boðaða frelsun Bandaríkjanna frá þeim mikla órétti sem hann telur Bandaríkin hafa verið beitt áratugum saman af nánast öllum sínum viðskiptaríkjum. Ekki eru allir sannfærðir um að forsetinn nái markmiðum sínum með tollunum og sjá nokkrar grundvallar mótsagnir í stefnu hans. Ævar Örn Jósepsson skoðaði málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Atli Þór Kristinsson, sagnfræðinemi, var í vinnu, námi og stundaði félagslífið af krafti en eftir að hafa smitast af COVID-19 er hann óvinnufær. Sjúkdómur Atla Þórs heitir Long Covid og hann líkir honum við spennitreyju. Atli Þór segir okkur frá upplifun sinni af sjúkdómnum. Hann hefur í rannsóknum sínum kafað ofan í veruleika ungs fólks sem dvaldi á elliheimilum á síðustu öld, og segja má að hann hafi sjálfur fengið smjörþefinn af veruleika rannsóknarviðfanga sinna þegar hann innritaði sig á heilsustofnunina í Hveragerði, langtum yngri en aðrir sjúklingar. Við fjöllum nánar um þennan sjúkdóm, Long Covid, sem hrjáir hátt í 3000 manns hér á landi. Hrönn Stefánsdóttir situr í stjórn ME-félagsins og er fulltrúi þess í vinnuhópi um Long Covid hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni í Evrópu. Samtökin stóðu um síðustu helgi fyrir herferð til að auka meðvitund um sjúkdóminn og þá sérstaklega á veruleika barna sem glíma við hann hér á landi. Edda Olgudóttir kemur svo til okkar í vísindaspjall í lok þáttar. Við ræðum plastmengun í lungum fugla. Tónlist: DIRE STRAITS - Walk Of Life. VALDIMAR - Stimpla mig út.
Við ætlum að fjalla um það hvernig Landhelgisgæsla Íslands bregst við skipsbrunum, árekstrum skipa á hafi úti og alvarlegum umhverfisslysum. Í gær sigldi portúgalska flutningaskipið Solong á bandaríska olíuskipið Stena Immaculate, sem lá fyrir akkeri í Norðursjó, 16 kílómetra úti fyrir höfninni í Hull. Bæði skipin standa í ljósum lögum. Mikið magn flugvélaeldsneytis lekur í sjóinn og til að bæta gráu ofan á svart er óttast að þangað berist líka baneitrað natríumblásýrusalt. Þetta hefði allt eins getað gerst innan björgunar- og leitarsvæðis Landhelgisgæslu Íslands og hvað þá? Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri Aðgerðarsviðs Landhelgisgæslu Íslands, kemur til okkar og ræðir þessi mál. Síðan ætlum við að flytja tvö viðtöl sem við tókum á hugvísindaþingi í Háskóla Íslands síðasta föstudag, við Toby Erik Wikström og Svövu Sigurðardóttur. Og að lokum fáum við pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi. Tónlist úr þættinum. PAUL SIMON - Graceland. Tutu - Qulliit. GDRN - Vorið.
Þorvaldur er rithöfundur, bókmenntaritstjóri og aktivisti í baráttu hinsegins fólks
Þriðjudagur 11. febrúar Stjórnmálaátök, karlmennska, íslenskan, réttindi fatlaðra, píanókeppni og Marmarabörn Við ræðum um stjórnmálaátökin á þinginu og í borgarstjórn, Ágúst Bjarni Garðarsson, fráfarandi þingmaður, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, prófessor, Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og Gunnar Smári Egilsson, blaðamaður spjalla við Sigurjón Magnús. María Lilja veltir fyrir sér karlmensku á krossgötum og fær til sín turnana tvo Frosta Logason, fjölmiðlamann og Þorstein V. Einarsson, kynjafræðing sem hafa tekist á í gegnum árin og þau leita af samnefnara til að bæta megi líðan karla í samfélaginu og mögulega spyrna gegn ofbeldi. Við ræðum um ögrandi áskorun varðandi innflytjendur á Íslandi: Tölum fokking íslensku. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, almannakennari og aðjúnkt í HÍ kemur frá Ísafirði og segir okkur frá afstöðu sinni til íslensku sem annars máls, ræðir hugtakið almannakennari og mikilvægi samfélagslegrar þátttöku í máltileinkun í spjalli við Oddnýju Eir. Brandur Bryndísarson Karlsson lamaðist fyrir neðan háls fyrir rúmum tíu árum síðan. Hann er í dag mikill baráttumaður fyrir réttindum fatlaðra milli þess sem hann sinnir myndlistinni og ferðast en hann er nýkominn heim eftir að hafa ferðast um Nepal öðru sinni. Brandur ræðir takmarkanir vegna fötlunar, myndlistina og ferðalög við Maríu Lilju. EPTA-píanókeppninni sem átti að halda í næsta mánuði í Salnum í Kópavogi hefur verið frestað með skömmum fyrirvara vegna peningaskorts og hringlandaháttar stjórnvalda. Þrír píanókennarar sem allir tengjast keppninni, Ólöf Jónsdóttir, Kristinn Örn Kristinsson og Birna Hallgrímsdóttir ræða málin við Björn Þorláksson. Marmarabörnin Sig¬urð-ur Ar¬ent Jóns¬son og Saga Kjerúlf Sigurðardóttir ræða við Gunnar Smára um sýninguna Árið án sumars, dans-tilraunaleikhús á stóra sviði Borgarleikhússins.
Aftakaveður gengur yfir allt Ísland. Veðurstofa Íslands hefur gefið út rauða viðvörun sem nær yfir allt landið nema hluta Vestfjarða, þar sem appelsínugul viðvörun er í gildi. Veðrið gengur heldur niður seint í kvöld og nótt, en magnast svo aftur með morgninum og verður enn verra á fimmtudag, gangi spár eftir. Mikil úrkoma fylgir óveðrinu, sem eykur hættu á skriðuföllum. Björgunarsveitir höfðu þegar farið í tugi útkalla þegar þátturinn var sendur út en ekkert meiriháttar tjón hafði þá orðið á mannvirkjum og engin slys á fólki. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Runólf Þórhallsson, sviðsstjóra Almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra, Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra í Vestmannaeyjum, Halldór Kristinsson björgunarsveitarmann á Snæfellsnesi, Hlyn Snorrason yfirlögregluþjón á Vestfjörðum, Jóhannes Sigfússon aðstoðaryfirlögregluþjón á Akureyri og Birtu Líf Kristinsdóttur veðurfræðing á Veðurstofu Íslands. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Í dag ætlum við að velta okkur upp úr framtíðinni; eða kannski er réttara að segja að við ætlum að velta okkur upp úr framtíðum. Þær eru víst alls konar, mögulegar og ómögulegar. Við heimsækjum Karl Friðriksson og Sævar Kristinsson hjá Framtíðarsetri Íslands, sem nálgast þetta viðfangsefni með aðferðum framtíðarfræðinnar. Íslenskir brauðostar, kotasæla og rifinn ostur innihalda flest rotvarnarefni ólíkt sömu vörum í Danmörku. Rotvarnarefnið Nítrit sem er merkt E-252 er einnig að finna í íslenskum matvörum en minna í dönskum matvörum. Þá eru einnig kekkjavarnarefni, bræðslusölt og önnur rotvarnarefni líka til staðar í nokkrum vöruflokkum svo dæmi sé tekið. Þetta kemur fram í grein Bændablaðsins eftir Önnu Maríu Björnsdóttur kvikmyndagerðarkonu sem er framkvæmdastjóri hjá Lífrænu Íslandi, og Unu Emilsdóttur, sérnámslækni í umhverfislæknisfræði í Danmörku. Þær vilja vekja athygli á skaðsemi þessara efna sem sum hver geta valdið alvarlegum sjúkdómum og nítrit þá sérstaklega. Helga Arnardóttir tók þær tali og ræðir líka sterka neytendavitund Dana og áherslur í Danmörku. Tónlist úr þættinum: THE VELVET UNDERGROUND - All Tomorrows Party's. Pétur Ben - The great big warehouse in the sky.
Gestur minn þessa vikuna er Kristinn Rúnar Kristinsson, LA Kröddz. Kristinn er mikill baráttumaður fyrir geðheilbrigðismálum og hefur hann gert frábæra hluti. Hann er einnig rithöfundur, ritstjóri, fyrirlesari og margt fleira. Það var gott, gaman, yndislegt, valdeflandi, áhugavert og fræðandi að spjalla við Kidda. Þú ert frábær! Ást og friður.
Laugardagur 4. janúar Helgi-spjall: Þorvaldur Kristinsson Þorvaldur Kristinsson bókmenntafræðingur, ritstjóri, þýðandi, rithöfundur og baráttumaður segir frá lífshlaupi sínu í gegnum listir og réttlætisbaráttu.
This is a free preview of a paid episode. To hear more, visit www.widerlenspod.comThe relationship between education systems, families, and communities must be one of cooperation and respect, resisting ideological control and ensuring that diverse perspectives are welcomed. In this framework, the role of government is to support, protect, and enable individuals to pursue their own paths, while maintaining the necessary checks and balances to safeguard the rights of all citizens. This ideal society fosters transparency in governance, allowing citizens to understand and influence the decisions that affect their lives. A well-balanced society encourages intergenerational dialogue, where the wisdom of previous generations informs the decisions of the present and future, and where collective well-being is nurtured through collaboration, not coercion. It is built on the foundation of individual freedom, strong family structures, and a government that serves, not controls, its people—ensuring that authority is decentralized.In this bonus episode for premium subscribers, Eldur Smári Kristinsson emphasizes the growing urgency for individuals with differing perspectives to engage in political discourse, drawing attention to international trends in the U.K. and the U.S. He believes that timely political engagement can catalyze a societal shift, empowering citizens to challenge prevailing ideologies and reclaim their freedoms. Eldur warns, “We are being institutionalized from the day we're born till the day we die,” stressing the importance of cross-generational relationships and highlighting how state-controlled education has led to a disconnect between parents and children. He critiques Iceland's compulsory schooling system, advocating for the legalization of homeschooling, greater parental transparency, and a balanced mix of public and private education options to foster healthy competition. Eldur also calls for reforms that ensure parents retain the primary role in their children's education, criticizing the lack of transparency in school curricula—particularly regarding contested sociological theories—and emphasizing the risks of indoctrination when state oversight replaces parental involvement.Watch our full length episode with Eldur Smári Kristinsson: https://www.widerlenspod.com/p/episode-194For instructions on setting up a private feed to listen to our premium content in your favorite podcast app, visit https://www.widerlenspod.com/p/how-to-listen-to-our-full-premium.
Stella and Sasha welcome freelance writer, free-thinker, and current chairman of the Lesbian and Gay Alliance in Iceland, Eldur Smári Kristinsson, offering a revealing overview of Iceland's rapid societal transformation into what he describes as a "gender-crazed dystopia”. In this episode, Eldur describes how over the last 25 years, Iceland has transitioned from a nation advancing progressive gay rights to one where gender ideology has infiltrated institutions, including government, education, and even the Church of Iceland. This change, Eldur argues, has been driven by ideological activists and well-funded interest groups seeking to perpetuate their influence.His testimony underscores the deep societal shifts underway in Iceland and the challenges of addressing contentious gender issues amid institutional complicity and media narratives.For links and resources relevant to this episode, access the full show notes at https://www.widerlenspod.com/p/episode-194 Buy Our Book – When Kids Say They're Trans: A Guide for Thoughtful Parents at https://whenkidssaytheyretrans.com/ Join Our Listener Community to Access Exclusive Content at https://www.widerlenspod.com/ Support the Show at https://www.widerlenspod.com/p/support-the-show Join the conversation on YouTube at www.youtube.com/@widerlenspod For more information about Sasha's & Stella's parent coaching membership groups, visit:Sasha Ayad: https://sashaayad.com/parenting-coaching Stella O'Malley: http://www.stellaomalley.com/parent-coaching To learn more about our sponsors, visit:Therapy First at https://www.therapyfirst.org/ Genspect at https://genspect.org/ This is a public episode. If you'd like to discuss this with other subscribers or get access to bonus episodes, visit www.widerlenspod.com/subscribe This is a public episode. If you'd like to discuss this with other subscribers or get access to bonus episodes, visit www.widerlenspod.com/subscribe
Reykjavíkurborg hefur sett sér markmið til næstu ára um að bæta loftgæði í borginni og vill hvetja íbúa til að taka þátt í þeirri vegferð. Eitt af fyrstu og mikilvægustu skrefunum er að draga verulega úr notkun nagladekkja, sem spilar stóran þátt í slæmum loftgæðum, sérstaklega yfir vetrartímann. Fyrir utan við svifryksmyndun og slæm loftgæði, valda nagladekk miklu sliti á götum sem eykur viðhald og kostnað. Svava Svanborg Steinarsdóttir, heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar kom í þáttinn og fræddi okkur um sviryk og mikilvægi loftgæða. Hafdís Helgadóttir næringafræðingur kom svo til okkar en hún fræddi okkur um næringu og hvernig við getum aðstoðað börnin okkar og yngri kynslóðirnar að skilja betur næringu og áhrif hennar á líkamann og þá getum við, fullorðna fólkið, einnig lært heilmikið í leiðinni. Hún fékk innblástur í fræðandi barnaefni úr sinni æsku, eins og teiknimyndaþáttunum Einu sinni var sem kenndu börnum til dæmis mannkynssögu á skemmtilegan hátt. Því ákvað hún að búa til barnabók. Hafdís sagði okkur frá því hvernig hún nýtti sér gervigreind og endaði svo sjálf sem bókaútgefandi. Rafsegulmeðferð, eða TMS meðferð eins og hún er kölluð, hefur reynst verulega árangursrík fyrir þá sem glíma við þrálátt þunglyndi og hafa ekki fundið viðunandi úræði við sínum sjúkdómi og eru jafnvel í svo mikilli vanlíðan að hún hefur djúpstæð áhrif á daglegt líf þess. Byrjað var að veita TMS meðferðina hér á landi fyrir tveimur árum og hafa á annað hundrað manns nýtt sér hana. Helga Arnardóttir ræddi á Heilsuvaktinni við Dag Bjarnason geðlækni og yfirlækni á Heilaörvunarmiðstöðinni í Skógarhlíð en þangað geta allir á landinu sótt þjónustu. Tónlist í þættinum Lífsgleði / Pónik (Jean & Vanguard, texti Þorvaldur Halldórsson og Erlendur Svavarsson) Allar þínar gjafir / Ragnheiður Gröndal og Finnur Árnason og Co. (Finnur Árnason, texti Árni Grétar Finnsson) Lifðu hægt / Hildur Vala (Svavar Knútur Kristinsson, texti Karl Ágúst Úlfsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 21. september. Sæbjörn Steinke er með þeim í þættinum. Rætt er um fréttir vikunnar, umspil Lengjudeildarinnar, bikarúrslitaleikinn, Bestu deildina og fleira. Gestur þáttarins er Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram.
Fimmtudagurinn 8. ágúst Megas, óeirðir í Bretlandi, James Baldwin og heimsmálin Þáttur kvöldsins í er í umsjón Gunnars Smára og Steinunnar Ólínu. Þau fá Spessa ljósmyndara í heimsókn og ræða við hann um heimildarmynd hans um Megas. Björn Þorláks slær á þráðinn til Michael Jóns Clark sem segir honum frá rasisma í Bretlandi, rót óeirðanna þar. Við spyrjum hvers vegna Elon Musk kallaði Kamölu Harris kommúnista. Þorvaldur Kristinsson segir okkur frá James Baldwin, baráttumanni, rithöfundi og homma. Í lokin kemur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og fjallar um ófriðarhorfur í heiminum.
The Laki Fissure Eruption was a volcanic event in Iceland in 1783 lasted for months, leading to the deaths of thousands of people and affecting the climate in a lot of the world. Research: “Laki Fissure Eruption, 1783.” URI Graduate School of Oceanography. https://volcano.uri.edu/lava/LakiEruption/Lakierupt.html Barone, Jennifer. “World Versus the Volcano.” Discover. Mar 2007, Vol. 28 Issue 3, p20-20. Brahic, Catherine. “Giant eruptions in Iceland led to Nile famine.” New Scientist. 11/23/2006. https://www.newscientist.com/article/dn10649-giant-eruptions-in-iceland-led-to-nile-famine/ Britannica, The Editors of Encyclopaedia. "Laki". Encyclopedia Britannica, 16 Oct. 2023, https://www.britannica.com/place/Laki. Accessed 2 July 2024. Casey, Joan A. et al. “Sun smoke in Sweden: Perinatal implications of the Laki volcanic eruptions, 1783–1784.” Epidemiology. 2019 May ; 30(3): 330–333. doi:10.1097/EDE.0000000000000977. Grattan, John and Mark Brayshay. “An Amazing and Portentous Summer: Environmental and Social Responses in Britain to the 1783 Eruption of an Iceland Volcano.” The Geographical Journal , Jul., 1995, Vol. 161, No. 2 (Jul., 1995). Via JSTOR. https://www.jstor.org/stable/3059970 Grattan, John et al. “Modelling the distal impacts of past volcanic gas emissions. Evidence of Europe-wide environmental impacts from gases emitted during the eruption of Italian and Icelandic volcanoes in 1783.” Quaternaire Année 1998 9-1 25-35. https://www.persee.fr/doc/quate_1142-2904_1998_num_9_1_2103 Gunnarsdóttir, Margrét. “Facing natural extremes: The catastrophe of the Laki eruption in Iceland, 1783–84.” 1700-tal: Nordic Journal for Eighteenth-Century Studies, 19 (2022). 72–93. https://doi.org/10.7557/4.6611 Harvard Map Collection. “Laki, 1783-1784.” A Exhibition in Pusey Library from 14 Dec 2016 to 19 April 2017. https://archive.blogs.harvard.edu/wheredisasterstrikes/volcano/laki-1783-1784/ Jackson, E.L. “The Laki Eruption of 1783: impacts on population and settlement in Iceland.” Geography , January 1982, Vol. 67, No. 1 (January 1982). https://www.jstor.org/stable/40570468 Karlsson, Gunnar; Kristinsson, Valdimar and Matthíasson, Björn. "Iceland". Encyclopedia Britannica, 3 Jul. 2024, https://www.britannica.com/place/Iceland. Accessed 3 July 2024. Kleeman, Katrin. “A Mist Connection: An Environmental History of the Laki Eruption of 1783 and Its Legacy.” Historical Catastrophe Studies. Walter de Gruyter GmbH. 2023. Kleemann, Katrin. “Telling Stories of a Changed Climate.” RCC Perspectives , No. 4, COMMUNICATING THE CLIMATE: From Knowing Change to Changing Knowledge (2019) Via JSTOR. https://www.jstor.org/stable/10.2307/26760163. Kleemann, Katrin. “The Laki Fissure eruption, 1783-1784.” Encyclopedia of the Environment. 1/14/2020. https://www.encyclopedie-environnement.org/en/society/laki-fissure-eruption-1783-1784/ Klemetti, Erik. “Local and Global Impacts of the 1783-84 Laki Eruption in Iceland.” Wired. 6/7/2013. https://www.wired.com/2013/06/local-and-global-impacts-1793-laki-eruption-iceland/ Najork, Daniel. “Jón versus the Volcano: Reading an Eighteenth-Century Icelandic Priest's Account of a Moment of Crisis in the midst of the COVID-19 Pandemic.” Medievalist.com. https://www.medievalist.com/articles/strongjn-versus-the-volcano-an-eighteenth-century-icelandic-priests-account-of-a-moment-of-crisisstrong National Science Foundation. “Tree rings and Iceland's Laki volcano eruption: A closer look at climate.” 2/3/2021. https://new.nsf.gov/news/tree-rings-icelands-laki-volcano-eruption-closer Oman, Luke. “High-latitude eruptions cast shadow over the African monsoon and the flow of the Nile.” Geophysical Research Letters. 9/30/2006. https://doi.org/10.1029/2006GL027665 Penn State. “Benjamin Franklin: Politician, Inventor, Climatologist.” https://www.e-education.psu.edu/rocco/node/1990 The Economist. “The summer of acid rain.” 12/19/2007. https://www.economist.com/christmas-specials/2007/12/19/the-summer-of-acid-rain White, Gilbert. “The Natural History of Selborne.” January 1st, 1788. https://www.gutenberg.org/cache/epub/1408/pg1408-images.html Wieners, Claudia E. “Haze, Hunger, Hesitation: Disaster aid after the 1783 Laki eruption.” Journal of Volcanology and Geothermal Research. Volume 406, 15 November 2020. https://www.sciencedirect.com/science/article/abs/pii/S0377027319305220 Witze, Alexandra. “Island on Fire: Societal Lessons From Iceland's Volcanoes.” Natural Hazards Observer Volume XL - Number 1 Island on Fire. 9/28/2015. https://hazards.colorado.edu/article/island-on-fire-societal-lessons-from-iceland-s-volcanoes See omnystudio.com/listener for privacy information.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Rætt er um EM og íslenska boltann en gestur er Kjartan Henry Finnbogason aðstoðarþjálfari FH og EM sérfræðingur. Einnig er Ögmundur Kristinsson nýr markvörður Vals á línunni frá Aþenu og Anton Freyr fréttamaður Fótbolta.net er á írskum dögum á Akranesi.
Some Icelanders are becoming unsettled by this existential question: Will their language still be spoken in the future? Comedian and former Reykjavik mayor Jón Gnarr is convinced that this uniquely archaic-yet-modern language will one day die out. He says his children express themselves beautifully in English but speak limited Icelandic. Give it a couple more generations, and who knows? For Gnarr and many others, speaking Icelandic is an essential part of being Icelandic. Without the language, Iceland's patriotic anthem "Land, Nation and Tongue" would lose its meaning. Among Iceland's multitude of avid book-readers though, the language is showing few signs of disappearing. For now at least, Icelandic authors are committed to writing in their mother tongue. This is part two of our reporting on Icelandic. Listen to the first part, Icelandic, the language that recycles everything. In addition to Jón Gnarr, we hear from novelists Auður Ava Ólafsdóttir and Sverrir Norland, as well as literary translator Larissa Kyzer, linguist Ari Páll Kristinsson, and Ethiopian-born restaurant owner Azeb Kahssay. Music in this episode by Luella Gren, Hysics, Medité, Farrell Wooten, J.S. Bach/Eric Jacobsen, Jon Björk, and Trabant 33. The photo is of a poster in Reykjavik celebrating the Icelandic language. Read a transcript of the episode here. Sign up for Subtitle's newsy, nerdy, fortnightly newsletter here.

Gestur Fimmunnar í Fram og til baka þennan morguninn var Magnús Trygvason Eliassen tónlistarmaður. Maggi er einn frambærilegasti og eftirtektarverðasti trommari landsins, ættaður í aðra röndina frá Þrándheimi og í hina frá Vatnsenda í Kópavogi. Magnús er meðlimur Moses Hightower, ADHD, Histog, Tilbury og fleiri hljómsveita og hefur hann því í sínu starfi heimsótt marga góða tónleikastaði á landinu. Hann deildi með hlustendum Fram og til baka þeim fimm tónleikastöðum sem hann hefur sérstakt dálæti á. Í seinni hluta þáttar var tónlistin allsráðandi. Leikin voru lög sem eiga það sameiginlegt að hafa komið upp úr Söngvakeppni Sjónvarpsins í gegnum tíðina en þó ekki fagnað sigri. Það leynast ýmsar perlur úr þeim sarpi og við fengum að heyra nokkrar sem hafa lifað með þjóðinni og önnur sem eiga skilið að vera spilaðar oftar. Hér eru lögin sem heyrðust í þætti dagsins: Frá kl. 08-09. Change - Yakkety yak smacketty smack. Moses Hightower - Tíu dropar. The Band - The Night they drove old Dixie down. Prins Póló, Moses Hightower - Eyja (feat. Prins Póló). Tilbury - Tenderloin. Frá kl. 09-10. Friðrik Dór - Í síðasta skipti (Söngvakeppnin 2015). Björgvin Halldórsson, Katla María - Sóley. Guðrún Árný Karlsdóttir - Andvaka. Magni Ásgeirsson - Hugarró(Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012). Haffi Haff - Gía. Dr. Gunni og Heiða Eiríks - Ísinn. Friðrik Ómar - Hvað ef ég get ekki elskað (Söngvakeppnin 2019). Svavar Knútur Kristinsson, Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm - Lífið snýst. Rúnar Júlíusson - Ást á skítugum skóm. Tinna Marína Jónsdóttir, Böddi - Á ballið á. Heiða og Heiðingjarnir- Tangó. Heimilistónar - Kúst og fæjó. Erna Gunnarsdóttir - Aldrei ég gleymi.
Í þættinum var farið um víðan völl, Rúnar Kristinsson er geitin, Arnar Gunnlaugs er a gentleman and a scholar og Adam Pálsson henti í instafærslu.
Arkitektúr er ekki bara að teikna hús, segir Jón Kristinsson arkitekt, heldur svo margt annað. Arkitektúr er að vita hvar sólin kemur upp, hvernig þú athafnar þig við eldavélina, hvernig halda megi húsi hreinu og þurru, hvernig spara megi orku og skilja eitthvað eftir fyrir komandi kynslóðir. Því þú teiknar aldrei hús fyrir sjálfan þig, heldur alltaf fyrir komandi kynslóðir. Í verkum Jóns er formið ekki upphafið, heldur alltaf afleiðing af sjálfbærri hugsun. Jón er fæddur á Stýrimannastíg í Reykjavík árið 1936. Eftir stúdentspróf fluttist hann til Hollands þar sem hann nam arkitektúr við Tækniháskólann í Delft. Í Hollandi er Jón landsþekktur maður og hans þekktasta hús, Villa Flora frá 2012, er kallað vistvænasta hús Hollands og þó víðar væri leitað. Jón hefur verið kallaður faðir sjálfbærs arkitektúrs enda hefur hann alla tíð hannað á framúrstefnulegan hátt, með umhverfisvitund og orkusparnað að leiðarljósi. Umsjón: Halla Harðardóttir
Af hverju eru öll blúslög eins? Þessi spurning var yfirskrift Tónlistarkaffis sem haldið var í Borgarbókasafninu í spönginni um síðustu helgi. Á viðburðinum skoðaði Valgeir Gestsson, sérfræðingur í tónlistardeild safnsins, hljómfræðina sem mætti segja dvelji í undirmeðvitund okkar; hljómfræðina sem við finnum fyrir en kunnum kannski eða kannski ekki skil á. Við ræðum hljómfræðina við Valgeir í þætti dagsins. Nýverið gaf Angústúra út skáldsöguna Saga af svartri geit eftir Peruamal Muragan, í þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur. Saga af svartri geit er saga af samfélagi, stétt og kærleika frá einum frumlegasta höfundi Indlands, en Murugan er fyrsti tamíslki höfundurinn sem gefin er út á íslensku. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í verkið í þætti dagsins. Á fimmtudaginn verður blásið til málþings um Jón Kristinsson arkitekt í Veröld, húsi Vigdísar. Málþingið er haldið til að fagna 60 ára starfsafmæli Jóns og einnig til að kynna hugmyndir hans sem eru lítt þekktar hér á landi en hann er meðal annars þekktur fyrir að hafa hannað vistvænustu byggingu Hollands og fyrir uppfinningar sínar á sviði sjálfbærni. Í upphafi þessa árs hlaut hann fálkaorðu fyrir frumkvöðlastarf í vistvænni húsagerðarlist á alþjóðavettvangi. Við ræðum við Inga Rafn Ólafsson, skipuleggjanda málþingsins í þættinum.
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - PRÓTÍN.IS - DOMINO'S R3 RÁÐGJÖF Við fengum eina leikmanninn sem spilaði í öllum undankeppnunum sem við höfum farið yfir til þessa upp í stúdíó og bárum undir hann alla þá vitleysu sem við höfum matreitt í síðustu þáttum (Byrjar þarna eftir ca 20 mínútur eftir mikilvæga umræðu um Köttinn Kela, sem þarf meiri ást (brúðan ekki punditinn). Enduðum þáttinn á að fá fyrri viðmælendur til þess að fara yfir að þeirra mati bestu leikmennina sem þeir spiluðu með í landsliðinu á þessum tíma. Því miður fundum við ekki símtölin við Hörð Magnússon og Pétur Ormslev. Formleg kvörtun hefur verið lögð inn hjá tölvudeild ónefnds tölvufyrirtækis.
Helgi Fannar fékk Rúnar Kristinsson, þjálfara Fram í gott spjall um tímabilið framundan.
4. janúar 2024 Umskurður á drengjum af trúarlegum ástæðum er umdeilt mál hér á landi. Sigurður Kristinsson, prófessor í heimspeki segir mikilvægt að mismunandi lífsskoðanir séu virtar og telur það geta haft skaðaminnkandi áhrif, ef umskurður standi til boða á heilbrigðisstofnunum. Umskurður drengja hafi djúpstæða, táknræna og trúarlega merkingu fyrir lítinn hóp fólks hér á landi, og beri þvi frekar vitni um umhyggju foreldra en vanhæfni. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við SIgurð. Stríðið í Úkraínu hefur staðið í tæp tvö ár. Svo virðist sem heldur hafi dregið úr stuðningi Vesturlanda við Úkraínu í stríði þeirra við innrásarher Rússa. Þar er þó ekki allt sem sýnist, segir Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur. Bæði Evrópusambandið og Bandaríkin geti gert ýmislegt til að styðja við bakið á Úkraínumönnum, þrátt fyrir andstöðu ákveðinna afla á báðum stöðum. Hann telur Úkraínumenn geta bætt vígstöðu sína með áframhaldandi stuðningi Vesturlanda, en sér þó ekki fyrir endann á stríðinu í bráð. Ævar Örn Jósepsson talaði við Erling. Frakkar kalla hann Þurs og vísa þar til hvorutveggja útlits hans og hegðunar. Kunnasti og umdeildasti kvikmyndaleikari Frakka, Gérard Depardieu, er enn og aftur í sviðsljósinu en ekki fyrir kvikmyndaleik frekar en fyrri daginn. Að þessu sinni þótti mörgum hann fara yfir strikið með hneykslanlegum ummælum sem birtust fyrir jól, þótt jafnvel sjálfur Frakklandsforseti reyni að koma þessari þjóðargersemi til varnar. Jón Björgvinsson segir frá. Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason

Við fáum nýjan forseta 1. ágúst - Guðni Th. Jóhannesson gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Hann upplýsti um ákvörðun sína í nýársávarpinu í gær. Um þá ákvörðun fjölluðum við klukkan hálf níu - sem og áramótaávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á gamlársdag. Eva Heiða Önnudóttir, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskólans, var gestur okkar. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, kom líka til okkar. Við spjölluðum um peninga í dag; meðal annars um þær breytingar sem gengu í gildi á skattkerfinu um áramót, þá fjármuni sem verkalýðshreyfingin vill að ríkið leggi af mörkum svo kjarasamningar takist í góðri sátt og plús og mínus tölur í Kauphöllinni. Þá var Berlínarspjall á sínum stað og í dag fór Arthúr Björgvin Bollason yfir það sem hæst bar í þýsku þjóðlífi á nýliðnu ári og sagði frá væntingum Þjóðverja til nýja ársins. Tónlist: Ragnar Bjarnason, Sigrún Jónsdóttir - Ljúfa vina. Svavar Knútur Kristinsson, Kristjana Stefánsdóttir - Hjá lygnri móðu. Holly, Buddy - Heartbeat. In a sentimental mood ? Duke Ellington & John Coltrane Blue in Green - Miles Davies

Páll Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar KR ræðir við Fótbolta.net um ráðningu á Gregg Ryder sem nýjum þjálfara karlaliðs félagsins. KR tilkynnti ráðningu enska þjálfarans á fréttamannafundi í KR-heimilinu í vesturbænum í dag og eftir fundinn settumst við niður með Páli og fórum yfir málin. Til umræðu - Þrumuræðan í byrjun fréttamannafundar - Gagnrýnin á ferlið - Ógrynni starfsumsókna frá stórum nöfnum sem KR fékk - Formlegir fundir með sex aðilum - Svakalega flottur fyrsti fundur Gregg Ryder - Ráðning á Guðjóni Erni ein stærsta fjárfesting KR - Er peningakall mættur með fúlgur fjár í KR? - Fær Rúnar Kristinsson að taka Ole Martin í Fram? - Þykir umræðan skrítin - Var Óskar Hrafn eini kosturinn fyrst? - Hvenær breytist aðstaðan hjá KR? - Leikmannamál
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 28. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar. Gregg Ryder tekur við KR og Rúnar Kristinsson var kynntur í Ulfarsárdal. Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA segir frá undirbúningi Skagamanna fyrir Bestu deildina. Baldvin Már Borgarsson fer yfir enska boltann.
Rúnar Kristinsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fram og tekur formlega til starfa sem þjálfari liðsins í Bestu deildinni um mánaðamótin. Eftir fréttamannafund í dag ræddi Elvar Geir Magnússon við Rúnar í fundarherbergi í Úlfarsárdalnum. Rætt er um nýtt verkefni Rúnars og ýmislegt fleira.
Árás á spítala á Gaza fyrr í vikunni vakti upp gríðarlega reiði og hefur verið fordæmd sérstaklega. Ástæðan er ekki síst sú að það má ekki sprengja upp sjúkrahús - ekki heldur í stríði. Í stríði gilda nefnilega reglur. Hvað má og hvað má ekki? Og hvenær er stríð stríð? Við fórum yfir það með Kára Hólmari Ragnarssyni, lektor í lögfræði við Háskóla Íslands. Það getur verið erfitt fyrir sálina að fylgjast með hörmungum heimsins, hvort sem er vegna frétta hér heima eða úti í heimi. Hvernig er best fyrir okkur að takast á við þetta? Þóra Sigfríður Einarsdóttir sálfræðingur ræddi þetta við okkur. Við fórum yfir í allt önnur mál í síðasta hluta þáttarins. Þá töluðum við um bækur. Við rýndum í jólabækurnar og greinum jólabókaflóðið sem er á næsta leiti með þeim Önnu Leu Friðriksdóttur bókaútgefanda hjá Sölku og Kolbrúnu Ósk Skaftadóttur bókastjóra hjá Bókabeitunni. Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir Tónlist: Miller, Glenn and his Orchestra, Eberle, Ray - It's a blue world. Sálgæslan Hljómsveit - Út í myrkrið. Tolentino, Ife - Distante Canção. Svavar Knútur Kristinsson, Kristjana Stefánsdóttir - Þín hvíta mynd. Haden, Charlie, Jarrett, Keith - Don't ever leave me.

Samskip krefjast bóta frá Eimskipi fyrir að hafa borið á félagið rangar sakargiftir í tengslum við sátt sem Eimskip gerði við Samkeppniseftirlitið. Ráðist var á ráðstefnugest sem bar hinsegin tákn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld. Lögregla rannsakar hvort árásin hafi verið hatursglæpur. Fimmtíu þúsund hafa flúið Nagorno-Karabakh í vikunni. Hafrannsóknastofnun ætlar að endurskoða áhættumat erfðablöndunar laxa. Í ágúst sluppu um 3500 laxar úr einni kví Arctic Fish í Patreksfirði. Storytel hyggst nota gervigreind við þýðingar á erlendum bókum - yfir á íslensku. Dómsmálaráðherra New York ríkis krefst þess að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna greiði 250 milljónir dollara í skaðabætur fyrir að hafa ofmetið eignir sínar umtalsvert. Þetta á hann að hafa gert til að blekkja banka og tryggingafélög til að fá lán á hagstæðum kjörum. Það er mörgum fullorðnum lokuð bók hvað ungmenni aðhafast á samfélagsmiðlum. Þórður Kristinsson doktorsnemi og framhaldsskólakennari hefur fengið að skoða efni sem unglingar á grunnskólaaldri sjá á TikTok. Hann segir að þau hagi sér með mjög kynjuðum hætti á samfélagsmiðlum. Hann segir að það sé komið nýtt félagslegt handrit - að það megi gráta og segja frá erfiðum upplifunum en það þurfi að fylgja ákveðnu skapalóni til að það sé félagslega samþykkt. Loftslagsþolið Ísland er yfirskriftin á skýrslu sem unnin var fyrir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og birt var í gær. Skýrslan inniheldur tillögur stýrihóps á vegum ráðuneytisins fyrir gerð landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum. Rætt er við Önnu Huldu Ólafsdóttur, sem á sæti í stýrihópnum og er yfir skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands. Umsjónarmaður var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon. Margrét Júlía Ingimarsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

Skólabyrjun og tilfinningar sem henni tengjast. Samfélagið fór í heimsókn í Lindaskóla í Kópavogi og ræddi við Nönnu Hlín Skúladóttur kennara og Ásu Margréti Sigurjónsdóttur skólasálfræðing. Það hefur lengi tíðkast að vista ungt fólk með fötlun á hjúkrunarheimilum og Atli Þór Kristinsson, sagnfræðinemi, er að skoða þessa tilhneigingu sem teygir sig aftur til þriðja áratugarins þegar fyrstu heimilin fyrir aldraða voru stofnuð. Stefán Gíslason flytur umhverfispistil um áhyggjur og andvaraleysi í loftslagsmálum.

Sunna Valgerðardóttir ræðir við Hildu Jönu Gísladóttur, bæjarfulltrúa og varaþingmann Samfylkingarinnar á Akureyri, Sigurð Kristinsson, prófessor í heimspeki og siðfræði við Háskólann á Akureyri, og Þórarinn Inga Pétursson, þingmann Framsóknarflokksins og bónda. Þau ræða söluna á Íslandsbanka og afleiðingar hennar, siðfræðina í stjórnmálunum, ríkisstjórnarsamstarfið og brothætt traust almennings á þeim sem ráða. Þátturinn er sendur út frá RÚV á Akureyri og tæknimaður í Efstaleiti er Joanna Warzycha.

Í þættinum er fjallað um sýningarverk sem Sifjuð tók þátt í að setja upp á HönnunarMars í samstarfi við Elínu Örnu Ringsted (https://handverk.cargo.site/Elin-Arna-Ringsted-Halla-Hauksdottir). Um er að ræða samansafn textílverka sem, hvert og eitt, er túlkun á íslensku orði; uppruna þess, þeirri hugmynd sem liggur því að baki og þar með eiginlegri merkingu þess. Í þættinum er fjallað um orðin sem verkin byggja á (bara, hvenær, alveg, ég og þú og hljóð) og viðtal tekið við Elínu Örnu sem lýsir samstarfinu og hönnunarferlinu. Þá er stutt viðtal tekið við Höllu Helgadóttur, framkvæmdastýru Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, sem útskýrir þá tvímerkingu sem fólgin er í nafninu HönnunarMars. //////////////// Ari Páll Kristinsson, Halldóra Jónsdóttir og Steinþór Steingrímsson (ritstjórar). (2016). Málið. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://malid.is/ /// Ásgeir Blöndal Magnússon. (1989). Íslensk orðsifjabók. Reykjavík: Mál og menning. /// Halldóra Jónsdóttir og Þórdís Úlfarsdóttir (ritstjórar). (2013). Íslensk nútímamálsorðabók. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://islenskordabok.arnastofnun.is/ /// Harper, Douglas (ritstjóri). (2001). Online Etymology Dictionary. Sótt af https://www.etymonline.com/ /// Jón Hilmar Jónsson (aðalritstjóri). (2006). Íslenskt orðanet. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af http://ordanet.is/ /// Mattsson, Christian (aðalritstjóri). Svenska Akademiens ordbok. Stokkhólmur: Svenska Akademien. Sótt af https://www.saob.se/ /// Þórdís Úlfarsdóttir (aðalritstjóri). (2011). ISLEX. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://islex.arnastofnun.is/is/ /// Elín Arna Ringsted og Halla Helgadóttir
Hörður fær til sín Rúnar Kristinsson, þjálfara KR
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar, enskar og íslenskar. Rætt um stóru fréttirnaf af Manchester City, tíðindi á íslenska leikmannamarkaðnum, undirbúningsleiki og Rafn Markús Vilbergsson segir okkur frá áhugaverðum leikmanni sem Njarðvík var að fá frá Malasíu. Gestur þáttarins er Rúnar Kristinsson, þjálfari KR. Rætt er um Bestu deildina, síðasta tímabil KR-inga og það sem hefur gerst hjá félaginu í vetur.
Bjarni heldur upp á 25 ára söngafmæli sitt en Bjarni er í hópi þeirra íslensku óperusöngvarar sem náð hafa lengst á erlendri grund.
Hulda Geirsdóttir ræddi við tónelska söngparið Lilju Guðmundsdóttur og Bjarna Thor Kristinsson um lífið og listina. M.a. fóru þau yfir uppvöxtinn í Garðinum og á Kópaskeri, líf óperusöngvarans sem býr í ferðatösku og baráttu Lilju fyrir betri greiningu og meðferð við endómetríósu sem hefur haft mikil áhrif á hennar líf. Þá sögðu þau frá margra ára glímu sinni við ófrjósemi og ótal frjósemisaðgerðum erlendis, sem nú hafa loksins borið árangur.