Guðmundur Hörður

Follow Guðmundur Hörður
Share on
Copy link to clipboard

Podcast by Guðmundur Hörður Guðmundsson

Guðmundur Hörður Guðmundsson


    • Oct 17, 2021 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 44m AVG DURATION
    • 25 EPISODES


    Search for episodes from Guðmundur Hörður with a specific topic:

    Latest episodes from Guðmundur Hörður

    Stéttaátök og kosningasvindl

    Play Episode Listen Later Oct 17, 2021 32:25


    Í alþingiskosningum 1927 urðu tveir menn uppvísir að atkvæðafölsunum í máli sem hefur verið nefnt Hnífsdalsmálið, eina kosningasvindlinu hér á landi sem hefur komið inn á borð kjörbréfanefndar Alþingis, Hæstaréttar og Scotland Yard. Ég rakti þessa sögu í pistli sem hægt er að lesa á gudmundurhordur.medium.com, en hér ætla ég að fylgja pistlinum eftir með viðtali við Sigurð Pétursson sagnfræðing, en hann hefur skrifað mikið um vestfirska verkalýðssögu og þar á meðal um Hnífsdalsmálið.

    Þjóðgarður er meira en merkimiðinn

    Play Episode Listen Later Dec 30, 2020 60:34


    Umhverfisráðherra hefur lagt fram stjórnarfrumvarp á Alþingi um hálendisþjóðgarð. Viðbrögð við frumvarpinu hafa vakið furðu, sér í lagi margir fyrirvarar samstarfsflokka Vinstri Grænna í ríkisstjórn, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Af þessu tilefni ræddi ég við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Landverndar, en náttúruverndarhreyfingin hefur fjölmargt við hálendisfrumvarpið að athuga þó að það hafi ekki farið eins hátt í fjölmiðlum og óánægja sveitarstjórnarmanna. 

    Íslandsmet í undirskriftasöfnun

    Play Episode Listen Later Oct 12, 2020 41:36


    Stjórnarskrárfélagið safnar nú undirskriftum almennings við þá kröfu að Alþingi virði niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar frá 2012 og lögfesti nýju stjórnarskrána. Ríkisstjórn Vinstri-grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks hefur ekki viljað heyra á þetta minnst og hefur boðað eigin stjórnarskrártillögur. Flokkarinar virðast að vísu ekki ná samstöðu um þessar tillögur og nú er margt sem bendir til að við förum í gegnum enn eitt kjörtímabilið þar sem stjórnarskráin tekur engum breytingum. Undirskriftasöfnun stjórnarskrárfélagsins lýkur mánudaginn 19. október og af því tilefni sló ég á þráðinn til Katrínar Oddsdóttur, eins af forsvarsmönnum Stjórnarskrárfélagsins, og óskaði henni til hamingju með árangurinn, en þegar við ræddum saman voru undirskriftirnar 27494, en eru nú tveimur dögum seinna 28.526. Það er líklega nýtt met innan þess undirskriftakerfis sem rekið er á vegum stjórnvalda á island.is.

    Slembivalin borgaraþing og rökræðufundir

    Play Episode Listen Later Sep 1, 2020 79:27


    Viðtal við Sævar Finnbogason, doktorsnema í heimspeki sem leggur stund á lýðræðisrannsóknir, stjórnarmann í Öldu lýðræðisfélagi og einn af þeim sem komu að skipulagningu og úrvinnslu rökræðufundar stjórnvalda um breytingar á stjórnarskrá síðastliðið haust. Hann varar við afleiðingum þess að stjórnvöld hunsi endurtekið niðurstöður lýðræðislegs samráðs við almenning, það muni grafa undan trausti á slíkum aðferðum og leiða til þess að fólk sjái ekki ástæðu til að verja tíma sínum í slíkt samráð.

    Öll þjóðfélög á öllum tímum hafa notað vímuefni

    Play Episode Listen Later Jun 5, 2020 90:10


    Hlaðvarpið að þessu sinni er viðtal sem ég átti við Þorstein Úlfar Björnsson, en hann hefur skrifað bækur um sögu vímuefnanotkunar og það sem hann kallar fáránleika fíknistríðsins. Þá hefur hann nýverið birt nokkrar greinar um sama efni á Kjarnanum. Við settumst niður og ræddum um frjálslyndari viðhorf til kannabisneyslu, aukinn skilning á læknandi áhrifum hugvíkkandi efna og cbd-olíu, áhrif nýrra laga um neyslurými og reynslu Þorsteins af neyslu sveppa sem hann segir að hafi hjálpað sér að vinna úr erfiðum tilfinningum. Hér má nálgast bækur Þorsteins.

    „Þú ert fólkið sem kaus þig“. Viðtal við Andrés Inga Jónsson

    Play Episode Listen Later May 10, 2020 121:30


    Viðtal sem ég átti við Andrés Inga Jónsson, þingmann utan flokka, en hann hefur setið á þingi fyrir Vinstri Græna frá 2016 en sagði sig úr þingflokknum fyrir hálfu ári síðan. Við ræddum um það hvernig sé að vera þingmaður án flokks, um stjórnarmyndunina 2017, dramatíska flokkráðs- og þingfundi, stjórnarskrána, lýðræðismálin, umhverfismálin og framtíð Andrésar í stjórnmálum. Síðan svaraði hann einnig nokkrum spurningum af twitter og facebook, m.a. um smekk á tónlist, bjór og sósum.

    Stundin: Bankar eiga að vera bankar Sjálfstæðisflokksins

    Play Episode Listen Later May 7, 2020 7:40


    Um bankakerfið, Sjálfstæðisflokkinn og samfélagsbanka.

    Þjóðaratkvæðagreiðsla um auðlindaákvæði

    Play Episode Listen Later Mar 12, 2020 27:58


    Nú eru fimm ár liðin síðan hópur fólks safnaði undirskriftum undir yfirskriftinni „Þjóðareign“ með það að markmiði að stöðva frumvarp Sigurðar Inga Jóhannsson, þáverandi sjávarútvegsráðherra, um að afhenda útgerðum makrílkvóta til lengri tíma en eins árs. Tæplega 54 þúsund Íslendingar ljáðu hópnum nafn sitt og varð þetta því fimmta fjölmennasta undirskriftasöfnun sem hefur farið fram hér á landi. Og frumvarpið varð aldrei að lögum. Nú hefur þessi sami hópur sent forseta Alþingis og öllum formönnum þingflokka áskorun þess efnis að þjóðin fái að kjósa milli tveggja tillagna að auðlindaákvæði í stjórnarskrá, annars vegar tillögu Stjórnlagaráðs og hins vegar tillögu sem ríkisstjórnin lagði fram til umsagnar um mitt ár í fyrra. Ég ræddi við Bolla Héðinsson, en hann er einn af þeim sem að áskoruninni standa.

    Stytting vinnuvikunnar

    Play Episode Listen Later Feb 15, 2020 60:53


    Það hefur sýnt sig að stytting vinnuvikunnar eykur bæði afköst og hamingju starfsfólks. En hvers vegna erum við þá ekki komin lengra á þessari vegferð? Ég ræddi við Guðmund D. Haraldsson, stjórnarmann í Öldu og áhugamann um styttingu vinnutímans.

    Pólitíska eldflaugin

    Play Episode Listen Later Aug 6, 2019 56:10


    Okkur sem þykja stjórnmálin yfirleitt full værðarleg hér á landi söknum Birgittu Jónsdóttur af pólitíska sviðinu – pólitísku eldflauginni eins og einn vinur hennar kallaði hana nýverið. Ég sló því á þráðinn til Birgittu og ræddi við hana stöðuna innan Pírata – en fyrst ræddum við m.a. um málskotsréttinn, handahófsvalda almenningsdeild Alþingis, friðhelgi einkalífsins, kínverska eftirlitssamfélagið, óvandvirkni við innleiðingu Evrópusambandreglugerða, drauma stjórnskipan Elon Musk, vernd uppljóstrara, Julian Assange, forseta í felum og skoðanakannanir sem benda til þess að Miðflokkurinn sé að bæta við sig fylgi vegna andstöðunnar við þriðja orkupakkann.

    Ómar og orkupakkinn

    Play Episode Listen Later May 18, 2019 35:27


    Í umræðunni um þriðja orkupakkann hef ég talsvert rekist á spurninguna – hvar eru náttúruverndarsinnarnir? Og þeir hafa vissulega ekki verið háværir í þessari umræðu. Þess vegna hitti ég náttúruverndar-goðsögnina Ómar Ragnarsson og ræddi við hann um málið.

    N-ið: Pálmey Gísladóttir og Einar Bergmundur

    Play Episode Listen Later Oct 23, 2018 48:52


    Í þessum þætti fjalla ég um Neytendasamtökin – stöðu þeirra, fortíð og framtíð. Til þess að ræða þetta hef ég fengið tvo góða gesti, þau Pálmey Gísladóttur og Einar Bergmund, en þau hafa bæði gefið kost á sér til stjórnar Neytendasamtakanna, en kosningin fer fram um næstu helgi.

    N-ið: Drífa Snædal

    Play Episode Listen Later Sep 18, 2018 26:56


    Í þessum þætti hitti ég Drífu Snædal, framkvæmdastjóra Starfsgreinasambands Íslands, en hún sækist nú eftir því að verða kjörin forseti Alþýðsambandsins. Við ræddum auðvitað um sameiginleg hagsmunamál stéttarfélaga og neytendasamtaka, t.d. neysluskatta, mannsæmandi húsnæðiskerfi, stöðu verkafólks í landbúnaðarkerfinu, samvinnufélög og hvort taka þurfi verðtrygginguna úr sambandi ef gengið fer að falla og verðbólga að hækka.

    N-ið: Þorsteinn Sæmundsson

    Play Episode Listen Later Sep 9, 2018 54:48


    Í þessum þætti fór ég niður á Alþingi og talaði við Þorstein Sæmundsson. Hann hefur verið einn þeirra þingmanna sem sett hefur neytendamál á oddinn í sínum málflutningi. Við spjölluðum um matvörumarkaðinn, landbúnaðarkerfið og bankana.

    N-ið: Jóhannes Gunnarsson

    Play Episode Listen Later Aug 20, 2018 25:39


    N-ið, hlaðvarp um neytendamál. Viðtal við Jóhannes Gunnarsson, fyrrverandi formann Neytendasamtakanna.

    Stundin / „Auðvitað já!“

    Play Episode Listen Later Jan 8, 2018 3:40


    Pistill birtur á Stundinni 8.1.2017

    Bar-rabb / Atli Þór Fanndal

    Play Episode Listen Later Aug 21, 2017 49:02


    Bar-rabb / Atli Þór Fanndal by Guðmundur Hörður Guðmundsson

    Bar-rabb / Jón Þórisson

    Play Episode Listen Later Apr 26, 2017 45:34


    Viðtal við Jón Þórisson um stjórnmálaástandið og störf hans með Evu Joly og Pírötum. Tekið á Mímisbar 24. apríl 2017.

    Bar-rabb / Sigurður Hólm Gunnarsson

    Play Episode Listen Later Dec 5, 2016 36:14


    Viðtal við Sigurðu Hólm Gunnarsson um Samfylkinguna. Tekið á Lofti í Bankastræti 1. desember 2016.

    Bar-rabb / Heiða Guðný Ásgeirsdóttir

    Play Episode Listen Later Nov 26, 2016 28:37


    Bar-rabb / Heiða Guðný Ásgeirsdóttir by Guðmundur Hörður Guðmundsson

    Bar-rabb / Ragnar Þór Ingólfsson

    Play Episode Listen Later Nov 17, 2016 25:24


    Viðtal við Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmann í VR og Hagsmunasamtökum heimilanna. Tekið á Kaffi Laugalæk 17. nóvember 2016.

    Bar-rabb / Kristinn Már Ársælsson

    Play Episode Listen Later May 29, 2016 48:19


    Bar-rabb með Kristni Má Ársælssyni, doktorsnema og stofnanda Öldu lýðræðisfélags.

    Bar-rabb / Eydís Franzdóttir

    Play Episode Listen Later May 24, 2016 26:56


    Bar-rabb með Eydísi Franzdóttur, stjórnarmanni í Náttúruverndarsamtökum Suðveturlands og landeiganda á Suðurnesjum.

    Bar-rabb / Þór Saari

    Play Episode Listen Later Mar 24, 2016 34:16


    Bar-rabb með Þór Saari, fyrrverandi þingmanni og höfundi bókarinnar Hvað er eiginlega að þessu Alþingi?

    Bar-rabb / Svavar Knútur

    Play Episode Listen Later Mar 18, 2016 37:12


    Bar-rabb með Svavari Knúti, tónlistarmanni og meðmælanda.

    Claim Guðmundur Hörður

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel