POPULARITY
Andrés Magnússon og Örn Arnarson ræða um nýjan meirihluta í Reykjavík og blendnar tilfinningar hægri manna til samstarfsins við Viðreisn og Framsókn, auk þess sem rætt er um áform um sölu á Ljósleiðaranum og Carbfix. Sjónum er beint að Alþingi og yfirlæti Þorgerðar Katrínar gagnvart þeim sem ekki fylgja ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, umræðu um eignarhald útgerðarinnar í íslensku atvinnulífi, stöðunni hjá Icelandair og verkfallsaðgerðum flugmanna og mörgu öðru. Þá eru hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar frá gestum Kringlukrárinnar að sjálfsögðu á sínum stað.
Síðastliðinn laugardagur – 16. maí – kjördagur – var góður dagur fyrir alla hægrimenn á Íslandi. Haldi forystufólk borgaralegra afla rétt á spilunum geta sveitarstjórnarkosningarnar markað tímamót – orðið straumhvörf í íslenskum stjórnmálum. Fyrir ríkisstjórnarflokkana eru úrslitin hins vegar áfall. Í höfuðborginni var samanlagt fylgi Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins aðeins rétt liðlega 32% á móti rúmlega 51% stjórnarandstöðunnar. Flokkur fólksins þurrkaðist út. Sjálfstæðisflokkurinn er langstærsti stjórnmálaflokkurinn í Reykjavík, undir forystu Hildar Björnsdóttur. Miðflokkurinn fékk góða kosningu en Framsóknarflokkurinn tapaði verulegu fylgi en hélt einum borgarfulltrúa.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Rvk. Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Rvk. Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingar í Rvk. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokks í Rvk. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vors til vinstri í Rvk. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Rvk. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingar í Kópavogi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingar Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins Reykjanesbæ Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-lista Akureyri.
Þórarinn ræðir við Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóra og oddvita Framsóknar fyrir borgarstjórnarkosningar.Rætt er um menntamál, rekstur borgarinnar, afhverju það er ekki hægt að starfa með Samfylkingunni, starfsmannamál, stöðu Framsóknar, meirihlutaviðræður og margt fleira.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25
Gestur minn þessa vikuna er Einar Þorsteinsson. Einar er oddviti Framsóknar í Reykjavík, borgarfulltrúi, fyrrum borgarstjóri og margt fleira. Hann er gjörsamlega frábær og magnaður. Við ræddum meðal annars um jákvæðni, hugrekki, áskoranir, Framsókn, stefnumál Framsóknar, komandi sveitarstjórnarkosningar, Reykjavíkurborg og pólitík. Þú ert frábær! Ást og friður. Jákastið er í boði: - Dressmann - Pizza Popolare- 15% afsláttur með kóðanum JAKASTID - Egils Kristall - World Class
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Halldór Jörgen Olesen er ritstjóri Verðbólguvaktarinnar, verdbolga.net, og hefur tekið saman kostnað við sex stærstu kosningaloforðin. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri FF7, ræddi við okkur um ferðamannabransann og flugið. Elísabet Ingunn Einarsdóttir er í 2.sæti fyrir Sjálfstæðisflokk á Seltjarnarnesi og Skafti Harðarson, oddviti Miðflokks á Nesinu, settust niður með okkur. Goðsagnirnar Magnús Kjartansson og Jakob Frímann ræddu útitónleika í Keflavík næstu helgi. Milla Ósk Magnúsdóttir, eiginkona Einars Þorsteinssonar, oddvita Framsóknar í Reykjavík, gefur öðrum mökum frambjóðenda góð ráð.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Stefanía Hulda Marteinsdóttir frá bidlisti.is og Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, settust niður með okkur. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi við okkur um launaþróun opinberra starfsmanna. Matthías Bjarnason, oddviti Framsóknar í Árborg er 26 ára og Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalista í Reykjavík er 25 ára. Petra Sigurðardóttir, tannlæknir frá Tannlæknaþjónustunni, ræddi tannheilsu eldri borgara. Gunnar Dan, geimverusérfræðingur ræddi svakalegar vendingar í Bandaríkjunum. Sebastian Óli, samfélagsmiðlafréttamaður hjá RÚV, fór yfir hvernig flokkarnir í borgarstjórnarkosningum hafa staðið sig á samfélagsmiðlum. Enski Boltinn
Gestur okkar í dag er Orri Hlöðversson forseti bæjarstjórnar í Kópavogsbæ og stjórnarformaður Frumherja.Orri býður sig fram aftur fyrir hönd Framsóknarflokksins í Kópavogsbæ nú í ár en sveitarstjórnarkosningarnar verða þann 16. Maí nk.Umræðuefni í þættinum:Fréttir vikunnarKópavogsmódelið & leikskólamálinFjárhagur & SkipulagsmálBæjarandi, íþróttir og þjónusta í KópavogiKosningabaráttan, meirihlutasamstarfið og árangurinnFramsókn á landsvísu og landsmálinÍTF & KSÍBreiðablikBesta deildinRiddaraspurningarÞessi þáttur er í boði:KaldiÍslandssjóðirSESSORKappahlKrónanKolumbus ÆvintýraferðirOrka NátturunnarGIGGÓELKOPaydayFröken ReykjavíkKvikmyndaskólinnBad MickeyLengjanDave&JonsFrumherjiNjótið vel kæru hlustendur.
Þórarinn ræðir við Orra Hlöðversson, oddvita Framsóknarflokksins í Kópavogi.Rætt er um átakastjórnmál, hver munurinn á Framsókn og Sjálfstæðisflokknum er í Kópavogi, íþróttastarf, Miðflokkinn, fánamál, borgarlínuna og margt fleira.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Grímur Kristjón Gunnarsson hjá Bréfdúfufélagi Íslands ræddi við okkur um bréfdúfusportið. Þorvaldur Flemming var í beinni frá Kaupmannahöfn. María Ellen Steingrímsdóttir, oddviti Viðreisnar og Orri Hlöðversson, oddviti Framsóknar, bæði í Kópavogi, fóru yfir sínar áherslur. Þóra Björg Jónsdóttir, lögfræðingur og stjórnendamarkþjálfi og Fjóla María Ágústsdóttir, umbóta-, stefnu og teymaráðgjafi, ræddu við okkur um hvernig má bæta þjónustu við börn og ungmenni. Eva Katrín, læknir og Arna Þorsteinsdóttir, markaðsstjóri Kolumbus ævintýraferða, ræddu við okkur um ævintýralegar heilsuferðir. Arinbjörn Hauksson, markaðsstjóri Elko, ræddi við okkur um glænýja græju. Krista Hall og Oddur frá Eldum rétt drógu út milljón króna ferðavinning í beinni. Eva Laufey rak inn nefið.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Þór Sigfússon hjá Íslenska sjávarklasanum settist niður í spjall. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, var á línunni og ræddi útspil yfirvalda í húsnæðismálum. Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði og oddviti Framsóknar og Karólína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar, fóru yfir helstu málin sem brenna á Hafnfirðingum. Paul Hourican talar á Iceland Innovation Week og ræddi við okkur um tónlistarsköpun og sköpun yfir höfuð. Sindri Bergmann, þróunarstjóri Abler, ræddi við okkur um fyrirtækið og uppgang þess. Gummi Ben ræddi við okkur um leikinn í gær þar sem Bayern Munchen heimsótti PSG.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Arnar Pétursson hlaupari og margfaldur Íslandsmeistari um hlauparann sem hljóp maraþon á undir tveimur tímum Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík Símatími Óskar H Valtýsson tækniþróunarstjóri hjá Laka Power um strandflutningar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrrverandi utanríkisráðherra og verðandi sendiherra Tímavélin Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi hjá bjornberg.is um ávöxtun lífeyrissjóða
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis orku og loftslagsráðherra um jöfnun raforkukostnaðar Símatími Lilja Dögg Jónsdóttir framkvæmdastjóri Almannaróms um stöðu íslenskunnar gagnvart erlendum tæknifyrirtækjum Halla Hrund Logadóttir þingkona Framsóknarflokksins um samgöngur til Vestmannaeyja og rannsóknir á hafsbotni Íris Angela Jóhannesdóttir, innkaupa- og markaðsstjóri Víkurverks um hjólhýsi húsbíla og tjaldvagna
Viðmælendur í Vikulokununm 25. apríl voru: Ágúst Bjarni Garðarsson, ráðgjafi og fyrrverandi þingmaður og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Hafnarfirði Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Sjúkratryggingum og fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ Pétur Markan, bæjarstjóri í Hveragerði Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Óskar Finnsson matreiðslumeistari um grillráð sumarsins Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra um uppbyggingu hjúkrunarheimila Símatími Magnea Gná Jóhannsdóttir 2 sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík og Pétur Markan bæjarstjóri Hveragerðis um skýrslur Veðurstofu um hraunflæði í byggð Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í Reykjavík
Bolli Már og Egill Ploder. Hjammi mætir til að reyna á vináttuna við Bolla. Feðgarnir í góðum gír. Hringjum til Tene í Rikka sem endar með ósköpum. Orri Hlöðversson sem skipar 1. sæti hjá Framsókn í Kópvogi ræðir við okkur um helstu mál. Þetta og mikið meira til í þætti dagsins.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Hörður Ægisson rýna stóru málin í íslenskri pólitík og efnahagslífi. Í þættinum ræðir Lilja Dögg um áherslur sínar sem nýr formaður Framsóknarflokksins og bregst við hugmyndum um hvort flokkurinn eigi að leita frekar til vinstri. Sjónum er beint að efnahagsmálum, svonefndu „verðlækkunarsumri“ ríkisstjórnarinnar sem virðist hafa litla merkingu og áformum um handstýringu á eldsneytisverði. Við rýnum í stöðvun Samkeppniseftirlitsins á samruna Arion og Kviku ásamt því að ræða mögulega sölu ríkisfyrirtækja. Þá eru ESB-málin til umræðu, allt frá dularfullum könnunum Stjórnarráðsins til vantrausts á forystu Viðreisnar í aðildarviðræðum. Hraðaspurningar og hrós vikunnar er á sínum stað auk þess sem Hörður kemur með ítarlegasta bókardóm sem heyrst hefur í íslensku hlaðvarpi til þessa.
Eldur Ólafsson og Þórður Gunnarsson kryfja málin í líflegu spjalli þar sem farið er yfir allt frá fótbolta yfir í alþjóðastjórnmál. Við ræðum áhugaverða könnun meðal leikmanna í Bestu deildinni þar sem yfirgnæfandi meirihluti styður hægri flokka, sem leiðir af sér kenningar um tengsl keppnisskaps og stjórnmálaskoðana. Farið er yfir pólitísku sviðsmyndina á Íslandi þar sem nýjustu kannanir sýna Framsóknarflokkinn utan þings og vaxandi óánægju með ríkisstjórnina. Aðildarumsókn að Evrópusambandinu er einnig undir smásjá og fólk er byrjað að kasta ógreiddum námslánum inn í röksemdarpakkann og fv. forsætisráðherra vill hefta frelsi fólks í atvinnulífinu til að tjá sig ef það er ekki fylgjandi aðild. Þá er farið yfir framtíðarsýn um vestnorrænt samstarf Íslands, Grænlands og Færeyja, þau tækifæri sem leynast í hrávörugeiranum á Grænlandi, stöðuna í alþjóðamálum, átökin í Íran og áhrif þeirra á olíuverð og margt fleira.
Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds Bílaleigu Akureyrar, ræddi við okkur um kílómetragjaldið. Rósalind Signýjar Kristjánsdóttir, talmeinafræðingur og framkvæmdastjóri Talþjálfunar Vesturlands, spjallaði við okkur um stöðu talmeinafræðinga. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, settist niður með okkur og ræddi pólitík og efnahagsmál. Kristinn R. Ólafsson ræddi íslenskt mál við okkur. Býflugur. Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, ræddi við okkur um bíótónleika í Hörpu. Henson um Melavöllinn.
Gestur okkar í kvöld er Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar fyrir Framsóknarflokkinn.Umræðuefni í þættinum:Kosningabaráttan framundanSamstarfið í bæjarstjórnFramsókn í Hafnarfirði og landsmálinFramsókn á landsvísuUppbyggingin í HafnarfirðiStóru áskoranirnarSamgöngumálÁrangur og næstu skrefMenninginÍþróttalífiðBæjarstjórinn og maðurinnRiddaraspurningarÞessi þáttur er í boði:KaldiÍslandssjóðirSmáríkiðGrillmarkaðurinnHeimaformKrónanBad MickeyOrka NátturunnarGIGGÓELKOECITLengjanDave&JonsFrumherjiNjótið vel kæru hlustendur.
Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson og Jón Gunnarsson.Í fyrstu er rætt um borgarstjórnarmálin en Brynjar hyggst ætla sér í framboð og telur mikilvægt að Reykjavíkurborg breyti sinni stefnu undir forystu nýs meirihluta.Spurt er hver beri ábyrgð á eyðimerkurgöngu Sjálfstæðisflokksins og hvort að til sé sá veruleiki að flokkurinn verði hið nýja varadekk Samfylkingarinnar í borgarstjórn.Einnig er rætt um Evrópusambandið og versandi samkeppnisstaða álfunnar og afhverju þetta sé nú komið á dagskrá en tvímenningarnir telja ástæðuna vera að ríkisstjórninni hafi ekki tekist að takast á við verðbólguna og atvinnuleysið.Að lokum er rætt um útlendingamál og spurt hvort að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins hafi verið varaðir við því að taka á móti ákveðnum einstaklingum frá Palestínu líkt og Helgi Magnús, fyrrum vararíkissaksóknari hefur fullyrt.- Vöruðu Ísraelar íslensk stjórnvöld við?- Verður Sjálfstæðisflokkurinn nýja varadekk Samfylkingarinnar í borginni?- Á hvern skrifast eyðumerkurganga Sjálfstæðisflokksins?
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Ísak Aron Jóhannsson frá Múlakaffi er kokkur ársins og Þórir Erlingsson forseti klúbbs matreiðslumeistara Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins um olíuverðhækkanir og verðbólgu Símatími Óli Rúnar Jónsson framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar um Collab drykkinn Jóhann Páll Einarsson hjá Neytendasamtökunum um notaða bíla Tímavélin Davíð Rúnar Gunnarsson hjá Viðburðarstofu Norðurlands
Gestir þáttarins voru þau Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Stefán Vagn Stefánsson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd Alþingis. Til umræðu var meðal annars fjármálaáætlun sem kynnt var í vikunni, húsnæðismál, kjaramál og verðbólga. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Sósíaldemókratar - jafnaðarmenn - eru enn stærsti flokkurinn en töpuðu allra flokka mest af fylgi, 6.5 prósentum, og fengu rétt tæp 22 prósent atkvæða, sem er versta útreið sem þeir hafa fengið frá 1903. Venstre - hægriflokkurinn sem var með þeim í ríkisstjórn, tapaði líka miklu og fékk verstu kosningu frá stofnun flokksins, eða 10,1 prósent. Þriðji stjórnarflokkurinn tapaði mun minna fylgi en tapaði þó. Það breytir því þó ekki að formaður hans er með pálmann í höndunum eftir kosningarnar. Borgþór Arngrímsson segir Ævari Erni Jósepssyni hvers vegna það er. Utanríkisráðherra ítrekaði á fundi utanríkismálanefndar í morgun að hvorki formlegar né óformlegar viðræður væru hafnar við Evrópusambandið. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vildu fá öll gögn upp á borðið um samskipti við ráðamenn í Brussel, og formaður Miðflokksins vildi vita hvort forystumenn ESB vissu um hvað ætti að kjósa síðsumars. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Sunnudagurinn 22. mars Synir Egils: Stýrivextir, kjarasamningar, átök og Sjálfstæðisflokkurinn Fyrst koma Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins og Þorsteinn Víglundsson forstjóri BM. Vallár og formaður Samtaka iðnaðarins koma til okkar í fyrri hluta þáttarins. Efnahagsmálin verða í forgrunni, og er víst að þessir fínu gestir okkar hafa margt um það að segja. Hvers vegna sökkvum alltaf í sama vesenið. Sama hvaða fólk stýrir landinu og hvað fólk er í stafni hjá launafólki og atvinnurekendum. Guðrún Hafsteinsdóttir kemur vel nestuð frá flokkstjórnarfundi Sjálfstæðisflokksins. Víst er að flokkkurinn eigi mikið undir hvern til tekst nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna um vátryggingamarkaðinn og verðbólgu Lilja Benatov Hjartar meðlimur kaþólsku kirkjunnar um viðhorf kirkjunnar til samkynhneigðar Símatími Diljá Mist Einarsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins um kostnað vegna efnaskiptaaðgerðir Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins Halla Hrund Logadóttir þingkona Framsóknarflokksins um neyðarbirgðir olíu og orkuöryggi Auður Ottesen ritstjóri Sumarhússins og Garðsins um sumarblómin
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Hildur Eir Bolladóttir prestur Akureyrarkirkju um hversu háar upphæðir fólk er að gefa í fermingagjafir Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur um stöðuna í Íran Símatími Sigurður Sigurðsson byggingaverkfræðingur ræddi við okkur um nýja bygginginu Landspítalans Magnús Hafliðason framkvæmdastjóri N1 um eldsneytisverð Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins um efnahagsstöðuna Rósa Guðbjartsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins vill leggja niður fjölmiðlanefnd Elín Birna Gunnarsdóttir verkefnastjóri FabLab Reykjavíkur
Diljá Mist Einarsdóttir og Kristín Gunnarsdóttir fara yfir það helsta úr liðinni viku og ræða um bollur og fyrirhugaðan óhollustuskatt, stöðu barnafjölskyldna, ráðherra sem skóla hagfræðinga til í hagfræði, nýjan formann Framsóknarflokksins, ryk á götum Reykjavíkur, pirring starfsmanns Rúv yfir því að forsetinn hafi sótt Viðskiptaþing og margt fleira.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ingibjörg Ísaksen, þingflokksformaður Framsóknar, ræddi við okkur um stöðuna á sjúkrahúsinu á Akureyri. Sigurdís Haraldsdóttir, yfirlæknir krabbameinslækninga við Landspítalann og dósent við læknadeild Háskóla Íslands, ræddi við okkur um ristilkrabbamein. Einar Bárðarson og Jógvan Hansen fóru yfir fréttir vikunnar. Júlíana Sara Gunnarsdóttir, leikkona og þáttarstjórnandi í Bakaríinu, ræddi óhugnalega reynslu sem dóttir hennar og vinkonur lentu í. Guðný Ósk Laxdal, The Royal Icelander, ræddi við okkur um handtöku Andrew Mountbatten-Windsor. Jón Erik Sigurðsson, skíðakappi settist niður með okkur nýkominn af Ólympíuleikunum.
Bítið á Bylgjunni með Lilju, Sigmari og Ómari. Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefnd, ræddi heildarendurskoðun á lögum um almannavarnir. Soffía Ámundadóttir, verkefnisstjóri námssamfélaga á NýMennt á Menntavísindasviði HÍ, leiðir verkefnið Menntafléttuna. Hún ræddi skólaforðun við okkur. Hart tekist á um óvænt hitamál. Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokks og Kristján Þórður Snæbjarnarson, varaformaður velferðarnefndar, þingmaður Samfylkingar, fóru yfir hitamálið í dag - tenging almannatrygginga við launavísitölu. Helgi Steinar Gunnlaugsson, blaðamaður ræddi Chinamaxxxing við okkur. Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar, ræddi götuhreinsanir við okkur. Bjössi Thor
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Hafdís Hanna Ægisdóttir, aðstandandi manns sem hefur beðið eftir hjúkrunarrými síðan í lok október, ræddi við okkur um þennan biðtíma og álagið á fjölskylduna. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins, ræddi við okkur um dóminn í svokölluðu Hvalsmáli. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins, settist niður með okkur. Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir, stjórnendur Skuggavaldsins, ræddu Rothschild-fjölskylduna. Símatími
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir það helsta fyrir helgina. Við ræðum meðal annars um framboðsmál flokkanna í Reykjavík, nauðvörn ríkisstjórnarinnar vegna þrálátrar verðbólgu, þvermóðskuna við frumvarp um hækkun bóta umfram laun sem allir málsmetandi aðilar vara við, formannskjör í Framsóknarflokknum, fyrirhugaðan sykurskatt, liðugasta bóndann á Íslandi, sölu Valhallar, deilur á Bifröst og margt fleira.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins sem situr í velferðarnefnd um stöðu Landspítalans Símatími Helga Vala Helgadóttir varaformaður Evrópuhreyfingarinnar og Hjörtur J Guðmundsson sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur Ólafur Guðmundsson umferðaröryggissérfræðingur um ástandið á götum borgarinnar Hulda Bjarnadóttir varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins Magnús Andri Ólafsson eða "Slakur barber" hárskeri hjá studio 220 og harður United maður um hárið á Frank Illett
Á hverju ári er valin stofnun ársins á vegum og byggir valið á mannauðskönnun hjá starfsfólki stofnana ríkisins og vinnustaði Reykjavíkurborgar o.fl. tæplega 35.000 manns. Á sama degi og úrslitin eru kynnt fer fram málþing um mannauðsmál undir yfirskriftinni Virkni og vellíðan á vinnumarkaði og við fengum Kára Sigurðsson formann Sameykis, en Sameyki stendur fyrir báðum þessum viðburðum, og með honum kom Jakobína Þórðardóttir, deildarstjóri félagsdeildar Sameykis og þau sögðu okkur betur frá. Hvað einkennir góðan leiðtoga? Hvað er þjónandi forysta? Við tölðum við Skúla Ólafsson sóknarprest í Neskirkju og Sirrý Arnardóttur, stjórnendaþjálfara, fyrirlesara, rithöfund og fjölmiðlakonu, en þau standa saman að námskeiði sem kallast Framsækni og forysta - hámarkaðu árangur þinn í starfi og daglegu lífi. Við fengum þau til að svara þessum spurningum og fleirum í dag. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni. Þrjá undanfarna fimmtudaga hefur hann talað um samskipti á vinnustaðnum. Öll komum við með mismunandi reynslu og bakgrunn í farteskinu inn á vinnustaðinn og það getur verið talsvert flókið að stilla saman strengina svo fólki líði vel og samskipti gangi vel fyrir sig. Í dag tók hann þetta saman og kláraði vinnustaðasamskiptin, að minnsta kosti í bili. Tónlist í þættinum í dag: Bláir fuglar - Grafík (Helgi Björnsson, Rafn Jónsson og Rúnar Þórisson) I Can See Clearly Now - Johnny Nash (lag eftir flytjanda). Down Under - Men at work (Colin Hay og R. Strykert) Meðan nóttin fellur á - Snæfríður Ingvarsdóttir og Memfismafían (Þorsteinn Einarsson og Bragi Valdimar Skúlason) UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Jón Halldórsson formaður HSÍ um skort á miðum fyrir íslenska stuðningsmenn undanúrslitaleiknum á morgun gegn Dönum Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins um verðbólguna Símatími Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík um Borgarlínuna Jens Garðar Helgason varaformaður Sjálfstæðisflokksins um útlendingamál Hafsteinn Einarsson dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands um framtíðina í lækningum Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðingur Ragga Nagli um einmannaleika
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Henry Birgir Gunnarsson fréttastjóri íþrótta hjá Sýn um EM í handbolta Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um stöðuna á Grænlandi Símatími Pétur Marteinsson frambjóðandi í oddvitasæti Samfylkingar í Reykjavík Hafsteinn Dan Kristjánsson sérfræðingur í stjórnsýslurétti og prófessor við lagadeild HR um hvort hægt sé að neita að greiða sektir sem ekki koma frá ríkinu Halla Hrund Logadóttir þingkona Framsóknarflokksins um þróunina á norðurslóðum Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins um starfslokasamninga Bjartur Guðmundsson frammistöðuþjálfi um hvort makinn sé oft neikvæður
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Ágústa Þorbergsdóttir málfræðingur hjá Árnastofnun um aldur og áratugi Inga Dóra Guðmundsdóttir fyrrverandi fjölmiðlakona búsett á Grænlandi um Trump og áhuga hans á Grænlandi Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur Símatími Karl Andersen hjartalæknir um áfengið og hjartað Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins um stöðu barna og ungmenna Ásta Logadóttir Teymisstjóri og Lýsingarsérfræðingur hjá Lotu ráðgjöf um breytingu á byggingarreglugerð með tilliti til ljósvistar Stefán Máni á 30 ára rithöfundarafmæli í ár og ætlar að bjóða lesendum sínum að hitta Hörð Grímsson söguhetju sína á hóteli úti á landi og fara í morðgátu
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Kristján Sigurjónsson hjá FF7 var á línunni og ræddi flugið. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, ræddi við okkur um raforkuverð. Agnar Jónsson og Ómar Sigurðsson, vinir mannsins sem slasaðist í bílslysinu í Suður-Afríku, fóru yfir stöðuna. Róbert Ragnarsson, sækist eftir oddvitasæti Viðreisnar í borginni. Hann vill breyta strúktúr innan borgarinnar þegar kemur að borgarfulltrúum og launum. Gunnar Leó Pálsson hjá Rent A Party og Heimaform kíkti í stúdíóið.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Rakel Sveinsdóttir ritstjóri Atvinnulífsins á Vísi Helen Hafgnýr Cova rithöfundur frá Venesúela en hefur búið á Íslandi í mörg ár um horfur mála í Venesúala Símatími Inga Dóra Guðmundsdóttir fyrrverandi fjölmiðlakona búsett á Grænlandi um Trump og áhuga hans á Grænlandi Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar um atvinnuleysi við upphaf nýs árs Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins um hækkandi raforkuverð Ævar Þórólfsson aðferðafræðingur og verkefnisstjóri hjá félagsvísindastofnun Háskóla Íslands um heppni landsmanna Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur um orð ársins
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður sem hefur sérhæft sig í að leita að börnum, settist niður með okkur. Ingibjörg Ísaksen, þingflokksformaður Framsóknar, gagnrýnir áætlarnir barna- og menntamálaráðherra þegar kemur að framhaldsskólunum. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA og Elliði Vignisson, bæjarstjóri sveitarfélagsins Ölfuss, ræddu við okkur um samgöngubætur í Þorlákshöfn. Heiða Ingimarsdóttir, varaþingmaður Viðreisnar og vinnur í upplýsinga- og kynningarmálum fyrir sveitarfélagið Múlaþing, ræddi við okkur um samgönguáætlun. Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson var á línunni og ræddi framtíð Íslands í Eurovision. Símatími.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Víðir Reynisson þingmaður Samfylkingar og formaður allsherjarnefndar um Pots og long covid Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins Breytt utanríkisstefna USA Símatími Halla Hrund Logadóttir þingkona Framsóknarflokksins um lækna Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar um málefni útlendinga Nadine Guðrún Yaghi og Þórhildur Þorkelsdóttir um Eftirmál Jóna Björg Sætran markþjálfi og feng shui ráðgjafi um tiltekt fyrir jólin
Gestir Vikulokanna voru þau Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og oddviti Samfykingar í Reykjavík, Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Rætt var um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og áhrif þess á sveitarfélög, dagvistunar- og leikskólamál, skipulagsmál og fleira tengt borgarmálunum. Umjón: Alma Ómarsdóttir Útsending: Kári Guðmundsson
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Edda Björk Þórðardóttir, sálfræðingur og dósent við Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands, ræddi við okkur um viðburð á föstudaginn þar sem fjallað verður um skammdegið. Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, var á línunni. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í borginni og Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, ræddu réttindi fatlaðs fólks. Tinna Dögg og Atli Rafn hjá Brokk.is kíktu í heimsókn. Sævar Þór Sveinsson hjá Utan vallar fór yfir styrki til íþróttafélaga. Snæfríður Ingadóttir, fjölmiðlakona á Akureyri, verður með húllauppistand á Græna hattinum á morgun og hitar upp fyrir „hefðbundið“ uppistand.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins um verndartolla ESB Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um verndartolla ESB Símatími Steinunn Þórðardóttir öldrunarlæknir og formaður Læknafélags Íslands um rannsókn frá Ástralíu um að yngra fólk en áður er að greinast með minnisglöp líklega vegna samfélagsmiðla og skjánotkunar Stefán Einar Stefánsson um myndband sem er í dreifingu á Tik Tok Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðslokksins um verndartolla ESB Lára Zulima Ómarsdóttir fyrrverandi fréttamaður og almannatengill um frétta-sjónvarpsstöðina NFS sem fór í loftið fyrir 20 árum Skúli Bragi Geirdal varaþingmaður Framsóknarflokksins og sviðsstjóri hjá Netvís netöryggismiðstöðvarinnar um netöryggi barna
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Alþjóðamál Valur Gunnarsson, rithöfundur Valur fjallar um nýja bók sína, Grænland og fólkið sem hvarf, þar sem hann reynir að ráða gátuna um Íslendingana sem höfðust við á Suður-Grænlandi fram á 15du öld en hurfu eftir það sporlaust. Stjórnsýsla Sigmar Guðmundsson þingflokksformaður Viðreisnar og Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra Sigmar og Sigríður fjalla um stöðu Ríkislögreglustjóra í ljósi frétta af fjármálum embættisins. Getur lögreglustjórinn setið áfram? Vaxtamál, fjármagnskostnaður Dagur B. Eggertsson alþingismaður og Lilja D. Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins rökræða þá hugmynd hvort upptaka Evru gæti lækkað vexti á Íslandi, ef ekki sú leið, hver þá? Efnahagsmál/alþjóðamál Þorsteinn Þorgeirsson, hagfræðingur, Þorsteinn fjallar um ískyggilega stöðu á bandarískum hlutabréfamarkaði þar sem verð hefur hækkað gríðarlega, svo mikið að margir búast nú við snöggri og afdrifaríkri leiðréttingu - sumsé miklu verðfalli með tilheyrandi áhrifum heima fyrir og út um allan heim. Samlíkingar hafa verið dregnar við hrunið 1929, dotcom bóluna og fleiri ámóta áföll. Er efnahagshrun framundan í Bandaríkjunum?
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í borginni, settist niður með okkur og ræddi hagræðingu, eða skort á henni, í Reykjavíkurborg. Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins, ræddi þingsályktunartillögu um öryggis- og varnarmál. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar ræddu við okkur um óveðursský í íslensku samfélagi. Páll Höskuldsson flutti til Noregs fyrir 16 árum síðan og bar saman lífsgæði þar og á Íslandi. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, stjórnarformaður DRM-LND og Sesselja Katrín Hauksdóttir, eigandi DRM-LND settust niður með okkur. Sævar Kristinsson og Karl G. Friðriksson voru að gefa út bókina Síungir karlmenn.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Sigurður Örn Ragnarsson járnkarl og einn eigenda Greenfit Gylfi Magnússon prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fyrrum viðskiptaráðherra um kælingu hagkerfisins Símatími Ingibjörg Ísaksen formaður þingflokks Framsóknarflokksins um úrræðaleysi stjórnvalda í efnahagslífinu Páll Pálsson fasteignasali Eva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði um pólitíkina í borginni Atli Stefán Yngvason framtíðarstjóri Mílu og einn stjórnenda Tæknivarpsins um háhraðanet og gervihnattanet
Leið Lilju Alfreðsdóttur að formannsstóli Framsóknarflokksins er ekki jafn greið og margir telja. Skorað hefur verið á oddvita flokksins í Reykjavík að gefa kost á sér og í einu af höfuðvígjum flokksins renna margir hýru auga til Willums Þórs Þórsson. Tveir þingmenn eru sömuleiðis að þreifa fyrir sér. Fjöldi fólks safnaðist saman við heimili Nicolas Sarkozy fyrrverandi Frakklandsforseta í morgun til að lýsa stuðningi við hann og stappa í hann stálinu þar sem yfirgaf heimili sitt og í fylgd konu sinnar og barna og steig upp í einn margra ómerktra lögreglubíla í mikilli bíla- og mótorhjólalest sem flutti hann í La Santé-fangelsið í París. Nær allir fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa rýmt skrifstofur sínar í varnarmálaráðuneytinu í mótmælaskyni við nýjar reglur. Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir aðför Trump-stjórnarinnar að fjölmiðlum minna á þróun mála í Rússlandi eftir valdatöku Pútíns - og að sú aðför hafi byrjað strax í kosningabaráttunni fyrir fyrra kjörtímabil hans.
Í Vikulokunum voru verðtryggingin, vopnahlé á Gaza og skólamál til umræðu. Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, ritaði áhugaverða grein um verðtrygginguna í vikunni og ræddi hana í þættinum. Þá fóru Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík, Helga Þórólfsdóttir sáttamiðlari sem starfað hefur á átakasvæðum í áratugi og Magnús Þór Jónsson yfir eitthvað af málefnum líðandi viku. Umsjón með þættinum hafði Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn útsendingar var í höndum Jóns Þórs Helgasonar.
Orri Hauksson vélaverkfræðingur og Þórður Gunnarsson hagfræðingur fara yfir allt það helsta, þau fyrirsjáanlegu tíðindi að stýrivextir héldust óbreyttir, hvaða lesa mátti úr orðum seðlabankamanna, hvaða áhrif það hefur að vaxtakostnaður sé orðinn næst stærsti útgjaldaliður ríkisins, gullverð sem nú er í hæstu hæðum, fyrirhugaðan samruna Íslandsbanka og Skaga, væntanlegan formansslag í Framsóknarflokknum, atvinnuvegaráðherra sem hefur lítinn áhuga á því að tala við atvinnulífið og margt fleira. Þá hlýðum við á sérstakan upplestur á fræðsluefni fyrir kennara þar sem þeim er kennt að fjalla um hugtakið hagvöxt, en fræðsluefnið var gefið út undir forystu Vinstri grænna/Landverndar.