POPULARITY
Þórarinn ræðir við Líf Magneudóttur, eina borgarfulltrúa Vinstri grænna í Reykjavík, um stjórnmálin. Rætt er um framtíð Vinstri grænna, borgarmeirihlutann, pólitíkina, hægribylgjuna, útlendingamál, húsnæðismál, leikskólamálin og borgarlínuna. - Afhverju telur Líf no borders hugmyndafræðina vera ómögulega?- Hver er framtíð Vinstri grænna?- Hvenær verður borgarlínan kláruð?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:www.pardus.is/einpaelingeðaLeggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar:Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu PylsurAlvörubón
Sunnudagurinn 1. júní Synir Egils: Sjómenn, veiðigjöld, stjórn og stjórnarandstaða, hægri og vinstri Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þau Jódís Skúladóttir, lögfræðingur og fyrrum þingkona, Kári Gautason búfjárerfðafræðingur og fyrrum aðstoðarmaður ráðherra og Benedikt Erlingsson leikstjóri en síðan þau Bolli Héðinsson hagfræðingur, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Stefán Pálsson sagnfræðingur. Í tilefni sjómannadags rifjum við upp ávörp óþekka sjómannsins sem Þröstur Leó Gunnarsson, leikari og trillukarl, flutti og þeir bræður taka púlsinn á pólitíkinni.
Miðvikudagur 14. maí Trump, náttúra, vinstrið, reynsluboltar, norðurslóðir og blíðan Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um ferð Trump til Sádí Arabíu og nágrannalanda og um mögulegar friðarviðræður í Istanbúl á morgun. Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir Oddnýju Eir hvernig þrengt er að starfi frjálsra félagasamtaka í náttúruvernd. Einar Már Jónsson, sagnfræðingur, rithöfundur og prófessor við Sorbonne-háskóla í París ræðir við Oddnýju Eir um möguleikann á vinstri breiðfylkingu í pólitík dagsins. Reynsluboltar heimsækja Sigurjón Magnús og ræða fréttir dagsins: Erna Indriðadóttir fréttakona, Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri og Páll Ásgeir Ásgeirsson fjallamaður. Magnús Árni Skjöld, dósent og stjórnmálafræðingur við Háskólann á Bifröst, ræðir við Gunnar Smára um Ísland og norðurslóðir í breyttum heimi, ekki síst vegna stjórnmálalegrar óvissu í Bandaríkjum Trump. Trausti Jónsson veðurfræðingur upplýsir í samtali við Björn Þorláks að ef undan er skilinn janúar hafi veður hér á landi verið mjög milt og gott allt árið, svo gott að sætir tíðindum.
Vinstri ríkisstjórn þriggja flokka undir forsæti Kristrúnar Frostadóttur minnir æ meira á aðra vinstri stjórn – ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna á árunum 2009 til 2013. Þá lögðu Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon til atlögu við atvinnulífið og millistéttina. Skattar voru hækkaðir og haft í hótunum við undirstöðuatvinnugreinar landsins. Hugmyndafræði vinstri manna hefur því ekkert breyst. Hún byggir á þeirri trú að ríkissjóður sé að „kasta frá sér tekjum“ ef skattar eru ekki hækkaðir. Ekki sé verið að „nýta tekjutækifæri ríkisins“ og ríkissjóður sé að „afsala sér tekjum“ ef skattar og gjöld eru lækkuð.
Gestir Vikulokanna voru þær Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi í Garðabæ og samskipta- og kynningarstjóri Samtakanna '78. Til umræðu var meðal annars staðan í alþjóðastjórnmálum, áhrif ákvarðana Bandaríkjaforseta á réttindi kvenna og hinsegin fólks og breytt heimsmynd.
Siggi og Lovísa voru í góðum gír í Popplandi dagsins. Póstkassinn var opnaður, fullur af kveðjum frá íslensku tónlistarfólki. Nýtt efni frá Sycamore Tree, Árnýju Margréti, Baggalúti og Önnulísu. Árni Matt og Júlía Ara gerðu upp plötuna Fyllt í eyðurnar með Elínu Hall, sem var plata vikunnar þessa vikuna, rjúkandi upphitun fyrir seinni undanúrslit Söngvakeppninnar á laugardaginn og margt fleira skemmtilegt. Salka Sól Eyfeld - Tímaglas. RIHANNA and KANYE WESTand PAUL McCARTNEY - Four five seconds. Crockett, Charley - Solitary Road. Johnny King, Goldies - Nútíma kúreki. JOHNNY CASH - Personal Jesus. Lón - Hours. ELECTRIC LIGHT ORCHESTRA - Mr. Blue Sky. Júlí Heiðar Halldórsson, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir - Eldur. BRONSKI BEAT - Smalltown boy. Night Tapes - To be free. SNOW PATROL - Just Say Yes. Jade - Fantasy. Carey, Mariah - Fantasy. RAVEN - fyllt í eyðurnar (lifandi flutningur í Hljóðriti). Elín Sif Halldórsdóttir - Í kvöld (Söngvakeppnin 2015). Elín Hall - afmæli (Live). Elín Hall - barnahóstasaft (Live). Elín Hall, RAVEN - fyllt í eyðurnar (lifandi flutningur í Hljóðriti). Elín Hall - afmæli (Live). Elín Hall - gaddavír (Live). Elín Hall - föðurlandssól (Live). Elín Hall, Elín Hall, RAVEN - fyllt í eyðurnar (lifandi flutningur í Hljóðriti). Elín Hall - gaddavír (Live). Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Allt í lagi. Dean, Olivia, Ezra Collective - No Ones Watching Me. TOPLOADER - Dancing In The Moonlight. Katla Yamagata - Ókunnuga ástin mín. LORDE - Green light. Abrams, Gracie - That's So True. U2 - Sweetest Thing. Sycamore tree - I Scream Your Name. Sycamore tree - Scream Louder. Coldplay - ALL MY LOVE. NORAH JONES - Don?t Know Why. Annalísa - Hvern andardrátt. Annalísa - Hvað ef. ALL SAINTS - Never Ever. ELTON JOHN FT. BRITNEY SPEARS - Hold Me Closer. Snorri Helgason - Borgartún. Nýdönsk - Raunheimar. Hera Björk Þórhallsdóttir - Scared Of Heights. Bjarni Arason - Aðeins lengur. Greiningardeildin, Bogomil Font - Bíttu í það súra. Moses Hightower - Lífsgleði. BEYONCÉ - CUFF IT. Chappell Roan - Pink Pony Club. BEATLES - I Will. JONI MITCHELL - Big Yellow Taxi. ÁRNÝ MARGRÉT - Greyhound Station. BON IVER - SPEYSIDE. GDRN - Þú sagðir. JUNGLE - Back on ‘74.
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir stöðuna á markaði, yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræður, hvort að staða ríkissjóðs sé í raun verri en áður var haldið, mikla hækkun á gengi Amaroq MInerals, erlendar fjárfestingar á Íslandi og margt fleira. Í þættinum eru jafnframt flutt tíðindi um Áramótasprengju Þjóðmála, þar sem árið verður gert upp í Borgarleikhúsinu mánudaginn 30. desember nk. Miðasala á viðburðinn hefst strax eftir helgi.
Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og fyrrverandi formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs mætti í viðtal í dag, reyndar bæði á RÚV og stöð2. Fyrstu viðtölin að segja má frá því í forsetakosningunum í vor. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hana fyrr í dag. Það hefur ekki heyrst mikið í Katrínu síðustu mánuði en það er ekki vegna þess að ekki hafi verið eftir því falast. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Bashar al-Assad Sýrlandsforseti flúði land á sunnudaginn, þegar við blasti að sveitir uppreisnarmanna væru að taka öll völd í landinu eftir aðeins nokkurra daga, óvænta leiftursókn. Assad flúði til Rússlands, þar sem honum hefur verið veitt hæli af mannúðarástæðum, eins og nafnlaus heimildarmaður úr rússneska stjórnkerfinu orðaði það við rússnesku fréttatofuna Interfax. Með þessu lauk rúmlega hálfrar aldar valdatíð al-Assad fjölskyldunnar. Ævar Örn Jósepsson stiklar á stóru í valdatíð Bashar al-Assads. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Andrés Magnússon og Þórður Gunnarsson ræða um mögulegt ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, ákvörðun Bjarna Benediktssonar að heimila hvalveiðar, einkunnagjöf fráfarandi ráðherra og margt fleira sem helst ber á góma á vettvangi þjóðmálanna þessa dagana.
Þriðjudagur 3. desember Kosningar, spilling, kosningakerfi, vinstrið, fangar og bridge Var nógu mikið rætt um spillingu fyrir kosningarnar? Veltur á því hvaða flokkar skipa stjórn hve mikið aðhald verður gegn spillingu? Þau Marínó G. Njálsson kerfisfræðingur, Jasmina Vajzovic ráðgjafi og Atli Þór Fanndal ráðgjafi, ræða úrslit kosninganna og framtíðina. Það gera líka Þorvaldur Gylfason prófessor, einkum brotið kosningakerfi, og Andrés Ingi Jónsson fyrrum þingmaður Vg og Pírata, einkum um stöðu vinstrisins. Sindri Freysson hefur skrifað bók um íslenska fanga Breta á hernámsárunum og segir okkur sá sögu. Í lokin segir Matthías Imsland framkvæmdastjóri Bridgesambandsins hvers vegna hugaríþróttir efla rökhyggju ungmenna.
Hvað þýða niðurstöður Alþingiskosninganna fyrir vinstrið? Samfylkingin fékk flest sæti á Alþingi en 9,2% atkvæða sem fóru til flokka sem teljast til vinstri urðu að engu vegna 5% reglunnar. Eiga vinstrimenn fulltrúa á Alþingi? Við veltum fyrir okkur spurningunni: vann vinstrið eða tapaði það? í þætti dagsins. Viðmælendur eru Elísabet Jónsdóttir varaborgarfulltrúi Pírata og tölvunafræðingur, og Ævar Kjartansson, útvarpsmaður og frambjóðandi Sósíalista.
Mánudagur 2. desember Nýir þingmenn, vinstrið, Píratar og ástandið Sigurjón Magnús Egilsson fær til sín nýja þingmenn og ræðir við þá um pólitíkina: Ólafur Adólfsson frá Sjálfstæðisflokki, Jón Gnarr frá Viðreisn, Ása Berglind Hjálmarsdóttir frá Samfylkingu og Halla Hrund Logadóttir frá Framsókn. Ögmundur Jónasson fyrrum ráðherra VG fer yfir stöðu vinstrisins og Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður Pírata metur hvað fór úrskeiðis hjá þeim flokki. Guðrún Jónína Magnúsdóttir segir okkur svo frá því stúlkur máttu þola á ástandsárunum.
Næstkomandi laugardag taka kjósendur ákvörðun um hvort hér komist til valda vinstri ríkisstjórn eða borgaraleg ríkisstjórn með öflugum Sjálfstæðisflokki. Skoðanakannanir benda til að fyrri kosturinn verði niðurstaðan þar sem Samfylking og Viðreisn taka höndum saman og skjóta einhverju varadekki undir. Við vitum af reynslunni að vinstri stjórn býður alltaf upp á Rússíbanareið fyrir fólk og fyrirtæki. Með hliðsjón af sögunni og reynslunni af vinstri stjórnum eiga allir kjósendur að vita hvað býður þeirra á komandi kjörtímabili, ef niðurstaða kosninganna verða í takt við skoðanakannanir: Hærri skattar heimilanna Lægri ráðstöfunartekjur launafólks Hærri skattar fyrirtækja Atlaga að einyrkjum og sjálfstæðum atvinnurekendum Stóraukin ríkisútgjöld Auknar millifærslur Stærra og flóknara bákn Endurtekinn ESB-skollaleikur síðustu vinstri stjórnar Samdráttur í atvinnuvegafjárfestingu Minni hagvöxtur Hærri verðbólga Hærri vextir
Þáttur #95 er samantekt Flugvarpsins frá kosningafundi Flugmálafélags Íslands um flugmál sem haldinn var 19. nóvember 2024. Þar var fulltrúum frá framboðum til Alþingiskosninga boðið að mæta og skýra frá stefnu og áherslum sínum í flugmálum. Auk almennra stefnumiða í flugmálum voru framboðin spurð um menntamál flugsins, Reykjavíkurflugvöll og framtíð hans og rekstrarform ISAVIA svo eitthvað sé nefnt. Fundinum stýrði Matthías Sveinbjörnsson forseti Flugmálafélagsins. Þeir sem mættu frá framboðum til Alþingis voru: Grímur Grímsson frá Viðreisn, Rúnar Sigurjónsson frá Flokki fólksins, Njáll Trausti Friðbjörnsson frá Sjálfstæðisflokknum, Arnar Þór Jónsson frá Lýðræðisflokknum, Jón Þór Þorvaldsson frá Miðflokknum, Indriði Ingi Stefánsson frá Pírötum, Kristján Þórður Snæbjarnarson frá Samfylkingu og Jóhannes Loftsson frá Ábyrgri framtíð. Enginn fulltrúi mætti frá Vinstri grænum og enginn frá Sósíalistum. Fulltrúi Framsóknarflokksins ætlaði að mæta en afboðaði vegna veikinda.
Þórarinn ræðir við Finn Ricart Andrason, oddvita Vinstri grænna í Reykjavík Norður. Finnur er ungur maður sem hefur verið áberandi í umræðum um loftslagsbreytingar og umhverfisvernd og telur hann að rödd náttúrunnar þurfi að heyrast á þingi. Í þættinum er fjallað um kvenfrelsismál, náttúrumál, orkumál, borgarlínu og margt fleira.
Hér er Inga Sæland, formaður flokks fólksins eftirfarandi spurninga:- Verður Inga sami einræðisherra í ríkisstjórn eins og hún er í flokknum?- Munu stefnumálin snúa að því að niðurgreiða allskonar fyrir aumingja?- Afhverju vill Inga að Vinstri grænir falli af þingi?Til að styrkja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeling
Mánudagurinn 11. nóvember Pólitíkin, fátækt, þöggun og vinstrið Við byrjum á umræðu um stöðuna í pólitíkinni. Drífa Snædal talskona Stígamóta, Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Páll Baldvin Baldvinsson rithöfundur og Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins greina stöðuna. Verður fátækt kosningamál? Ætti fátæk að vera kosningamál? Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, Vilborg Oddsdóttir félagráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og Laufey Líndal Ólafsdóttir formaður Pepp samtaka fólks í fátækt ræða stöðuna. Jóhann Hauksson blaðamaður ræðir mál Jóns Gunnarssonar, sem sakar Heimildina um alvarleg óheilindi, er til umræðu. Í lokin kemur Steingrímur J. Sigfússon og ræðir um stöðu Vg og vinstrisins.
Staða Vinstri grænna er þung. Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, gerir sér grein fyrir því að það sé á brattann að sækja en segir mikinn þrótt og kraft í flokksfólki. Hún sakar Bjarna Benediktsson um trúnaðarbrest í aðdraganda stjórnarslita sem olli því að Vinstri græn gátu ekki hugsað sér að taka þátt í starfsstjórn. Það sé fullgild spurning hvort það hafi verið of dýru verði keypt að vera í ríkisstjórnarsamstarfi með Sjálfstæðisflokknum.
Þórarinn ræðir við Svandísi Svavarsdóttur, formann Vinstri grænna, um stöðu flokksins, femínisma, útlendingamál og fleira.
Gestir Vikulokanna eru Orri Páll Jóhannsson þingflokksformaður Vinstri grænna, Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks og Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu stjórnarslit, þingstörfin og komandi kosningar. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Haukur Már Helgason flytur sinn þriðja pistil um upplýsingaóreiðu, að þessu sinni fær hann aðstoð frá gervigreindarspjallmenni. Við kíkjum niður í Norræna húsið þar sem stendur yfir sýningin Open house, sem er hluti af grísk-íslensku listahátíðinni Head-2-Head. Í norræna húsinu eru sýnd verk tveggja grískra listamanna og þriggja íslenskra. Meðal annars má þar finna athyglisverðar möppur sem Eiríkur Páll Sveinsson, læknir á akureyri, gerði. Hann skráði niður öll smáatriði lífs síns, skráði inn í tölvu, prentaði og bjó fallega um möppurnar með sérhönnuðum forsíðum. Við ræðum við Evu Árnadóttur, barnabarn Eiríks, og tvo af aðstandendum Open: Hildigunni Birgisdóttur og Örn Alexander Ámundason. En við byrjum á því að reyna að skilja vinstri og hægri, og miðju. Við kíkjum niður í Háskóla Íslands og ræðum bæði við kennara og nemendur um þessa flokkun stjórnmálaflokka til vinstri eða hægri.
Ný gögn varpa ljósi á að það var Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sem tók ákvörðun um að stöðva brottflutning hins tólf ára gamla Yazans Tamimi í síðasta mánuði, innan við klukkustund áður en til famkvæmdar brottvísunarinnar kom. Þáverandi formaður Vinstri grænna hafði þá verið í beinum samskiptum við hvorutveggja forsætisráðherra og ríkislögreglustjóra um málið. Freyr Gígja Gunnarsson kafar ofan í þessi og önnur samskipti ráðafólks í aðdraganda þessarar ákvörðunar. Ægiöflugur fellibylur, Milton, er þegar farinn að láta til sín taka við strendur Flórída, innan við tveimur vikum eftir að mannskæður fellibylurinn Helena herjaði á Flórída og fleiri ríki á austurströnd Bandaríkjanna og kostaði minnst 225 manneskjur lífið. Veðurfræðingar vara við því að Milton verði jafnvel enn skæðari, Talið er að ofsaveðrið muni skella á Tampa kvöld og að vindhraði verið allt að 270 kílómetrar á klukkustund, eða 75 metrar á sekúndu þegar verst lætur. Þá er spáð allt að fjögurra og hálfs metra metra háum sjávarflóðum á vesturströnd ríkisins og líka á norðausturströndinni, og þessi flóð eru talin jafnvel enn hættulegri en veðurofsinn sjálfur. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Einar Sveinbjörnsson um þennan óvenjulega fellibyl, sem óx upp í 5 stigs byl á einum sólarhring. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Mánudagurinn 7. október Vinstrið, pólitíkin, kannabis, þjóðarmorð og rauðar heimsbókmenntir Við höldum fund með rótum Vg: Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrrverandi þingkona, Einar Ólafsson skáld og bókavörður, Margrét Pétursdóttir verkakona og Guðmundur Auðunsson hagfræðingur, sem öll hafa verið í Vg, ræða um stöðu vinstrisins í dag. Í Þinginu ræðir Björn Þorláks við Ólaf Harðarson stjórnmálafræðing. VG og framtíð ríkisstjórnarinnar ber þar hæst. Við ræðum hamp og kannibis við fjórar konur: Lára Bryndís Pálmadóttir hefur tekið inn cbd-olíu vegna verkja, Brynhildur Arthúrsdóttir er móðir stúlku með flogaveiki sem hefur líka notað cbd, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er aðstandandi sjúklings sem tók inn kannabisolíur og Þórunn Jónsdóttir er stofnandi og varaformaður Hampfélagsins og stendur fyrir ráðstefnu um hamp. María Lilja ræðir við mótmælendur á tímamótum sem hafa staðið vaktina með Palestínu síðasta árið. Bókmenntafræðingarnir Anna Björk Einarsdóttir og Benedikt Hjartarson eru gestaritstjórar Ritsins sem fjalla um rauða heimsbókmenntirnar. Þau segja okkur frá áhrifum þeirra á menningu og pólitík.
Fátt ef nokkuð getur komið í veg fyrir að Svandís Svavarsdóttir verði næsti formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs þegar kosið verður um embættið á Landsfundi flokksins um helgina. Svandís tekur við stöðunni af Guðmundi Inga Guðbrandssyni sem varð formaður þegar Katrín Jakobsdóttir hætti í stjórnmálum. VG er í erfiðri stöðu og hefur ekki mælst með þingmann í síðustu könnunum. Fundurinn um helgina er því mikilvægur fyrir sögu þessa stjórnmálaflokks sem fagnar aldarfjórðungs afmæli á næsta ári og hefur, af þessum 25 árum, verið í ríkisstjórn í tólf ár. Rætt verður við verðandi formann og Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur sem er á landsfundinum. Arthur Schubarth er 81 árs gamall búgarðseigandi í Montana í Bandaríkjunum, sem um áratuga skeið hefur ræktað ýmsar fágætar og óvenjulegar skepnur á búgarði sínum. Dýrin selur hann svo aðallega fólki og fyrirtækjum sem sérhæfa sig í að selja veiðileyfi á alls kyns skepnur á afgirtum veiðilendum í Texas og víðar. Þetta eru einkum dýr á borð við fjallakindur, fjallageitur og hófdýr af ýmsu tagi, segir í umfjöllun The Guardian, og þótt einhverjum kunni að þykja lítil reisn í því að rækta og selja dýr í því augnamiði einu að selja skotleyfi á þau á lokuðum svæðum þá er slíkt ekki ólöglegt.
Gestir Vikulokanna eru Steinunn Þóra Árnadóttir þingmaður Vinstri grænna, Sandra Hlíf Ocares varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og Gísli Rafn Ólafsson þingmaður Pírata. Þau ræddu meðal annars orkumál, rannsókn lögreglu í byrlunarmálinu, starfsmannaleigur, efnahagsmál og stöðuna í stjórnmálunum. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Eitt verst geymda leyndarmálið í íslenskum stjórnmálum var opinberað í dag þegar Svandís Svavarsdóttir tilkynnti að hún vildi verða næsti formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Hún sagðist um leið vera fylgjandi því að kosið yrði í vor en ekki í haust þegar kjörtímabili ríkisstjórnarinnar lýkur. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Evu H. Önnudóttur, stjórnmálafræðiprófessor, um hvort kosningar að vori eða hausti breyti miklu og hvort það sé líklegt að einhver skori Svandísi á hólm í kjöri um formannsstólinn. Tækni í erfðagreiningum hefur fleygt fram en spurningar um margbreytileika, fósturskimanir og möguleika sem fylgja aukinni tækni verða sífellt áleitnari.
Mál Yazans Tamimi, sem er með vöðvahrörnunarsjúkdóm, er orðið hápólítískt eftir að formaður Vinstri grænna og félagsmálaráðherra bað dómsmálaráðherra um að fresta brottvísun hans. Ríkisstjórnin fundar á morgun eins og venja er og dómsmálaráðherra segir brottvísun fjölskyldunnar standa þótt aðeins séu fimm dagar þar til forsendur fyrir máli Yazan gjörbreytast. Metfjöldi býður sig fram til forystu í flokki frjálslyndra demókrata í Japan, valdamesta flokki landsins um áratuga skeið, í skugga hneykslismála og fylgishruns.
Mánudagurinn 16. september Samfylking, áfengi, djöfulsins karlar og eitrið í samfélaginu Logi Már Einarsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar ræðir pólitískan samtíma og sögu flokksins frá því að Vinstri stjórnin var við völd eftir hrun. Árni Guðmundsson félagsfræðingur kærði sjálfan sig fyrir ólögleg áfengiskaup til að láta reyna á lög og reglur samfélagsins. Hann lýsir áhyggjum af bresti í forvörnum ungmenna og hans skilaboð til Hagkaupa eru: Hættið að selja áfengi! Þórdís Gísladóttir þýðandi segir okkur frá bókinni Þessi djöfulsins karlar eftir Andrev Walden, sem er uppvaxtarsaga en fjallar líka um konu sem vill bjarga körlum sem reynast bölvaðir drullusokkar þegar á reynir. Séra Örn Bárður Jónsson jarðsöng Bryndísi Klöru, sautján ára stúlku sem lést eftir árás. Hann segir að Íslendingar þurfi að ræða eitrið í samfélaginu.
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson sameinast á ný eftir mánaðar viðskilnað í hlaðvarpi Þjóðmála. Við ræðum um fylgi Sjálfstæðisflokksins sem mælist sífellt lægra, stofnun nýrrar mannréttindaskrifstofu fyrir Vinstri græna, kynjaða skuldabréfaútgáfu ríkisins og annað af vettvangi stjórnmála. Þá er rætt um yfirtökuna á Marel og hvaða áhrif hún kann að hafa á markaðinn, vendingar í Seðlabankanum þar sem mögulega þarf að fylla tvo mikilvæga stóla og loks tökum við fyrir spurningar frá hlustendum.
Gestir Vikulokanna eru Líf Magneudóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna, Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði og Friðjón Friðjónsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og varaþingmaður. Þau ræddu meðal annars vantrauststillögu á matvælaráðherra, stöðuna í íslenskum stjórnmálum og komandi kosningar í Frakklandi og Bretlandi. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, fer yfir stöðuna í pólitíkinni. Ríkisstjórnin fékk að vera að mestu í fríði á meðan forsetakosningum stóð, en nú þegar þær eru yfirstaðnar hefur komið í ljós að sem svo oft áður er mikill órói á stjórnarheimilinu. Við ræðum um flókna stöðu Vinstri grænna sem leita að nýjum leiðtoga, skrif starfsmanna flokksins um stjórnarsamstarfið, stöðu Sjálfstæðisflokksins sem virðist skorta erindi, kröfur Framsóknar um aukin ríkisútgjöld og skattahækkanir, umræðuna um stjórnmálamenn í aðdraganda forsetakosninga – og margt fleira.
Það var langt í frá sjálfgefið að ríkisstjórnarflokkarnir þrír, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Vinstri grænir, héldu áfram samstarfi í nýrri ríkisstjórn, eftir að Katrín Jakobsdóttir baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Myndun nýrrar ríkisstjórnar er aldrei einföld. Allra síst þegar fulltrúar ólíkra póla í stjórnmálum gerast samverkamenn, jafnvel þótt reynslan af rúmlega sex ára samstarfi sé í mörgu góð. Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar stendur frammi fyrir mörgum áskorunum. Fyrir alla stjórnarflokkana er mikilvægt að þeim verði mætt og að árangur náist á þeim stutta starfstíma sem ríkisstjórnin hefur. Aðeins árangur réttlætir ákvörðun flokkanna um að halda samstarfinu áfram.
Gestir Vikulokanna eru Orri Páll Jóhannsson þingflokksformaður Vinstri grænna, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata og Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi ráðherra. Þau ræddu brotthvarf Katrínar Jakobsdóttur úr embætti forsætisráðherra og yfirstandandi viðræður stjórnarflokkanna um áframhaldandi stjórnarsamstarf. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Davíð Berndsen
4. apríl 2024 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra staðfesti í gær að hún hefði íhugað forsetaframboð af mikilli alvöru. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, aflýsti för sinni á 75 ára afmælisfund Atlantshafsbandalagsins í Brussel og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins frestaði boðuðum fundarhöldum á Austurlandi. Heimildir fréttastofu herma að þeir tveir eigi nú í viðræðum við Guðmund Inga Guðbrandsson, varaformann Vinstri grænna, um framhald ríkisstjórnarsamstarfs flokkanna þriggja. Flest - og jafnvel allt - bendir því til þess að Katrín ætli í framboð og muni tilkynna það áður en þing kemur saman á mánudag, líklega strax á morgun. Ævar Örn Jósepsson ræðir þessa dæmalausu stöðu við Eirík Bergmann Einarsson stjórnmálafræðing. Forsetakosningarnar í sumar verða sögulegar, hvernig sem á það er litið. Fari forsætisráðherra fram, sem flest bendir til að verði niðurstaðan, er það stefnubreyting og opnar um leið ákveðna möguleika fyrir forsetaembættið. Þetta segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur í samtali við Frey Gígju Gunnarsson. Í sumar verða tuttugu og sjö pósthús og samstarfspósthús eftir á landinu öllu. Þau voru meira en tvöfalt fleiri fyrir fimmtán árum. Sveitarstjórar í smærri byggðarlögum hafa áhyggjur af þjónustuskerðingu og segja að póstbox komi ekki í stað pósthúss. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman og ræddi við Björn Bjarka Þorsteinsson, Unni valborgu Hilmarsdóttur og Jón Björn Hákonarson. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Alls greiddu einstaklingar um 333 milljörðum króna lægri fjárhæð í tekjuskatt á ellefu ára tímabili (2013-2023) en þeir hefðu greitt ef skatthlutföll og skattareglur hefðu verið óbreytt frá tíð vinstri ríkisstjórnarinnar Samfylkingar og Vinstri grænna 2009 til 2013. Tryggingagjöld hafa lækkað verulega og sama má segja um tolla og vörugjöld, erfðafjárskatt og fjármagnstekjuskatt tekjulægri hópa með verulegri hækkun frítekjumarks. Alls eru þeir skattar sem hafa lækkað nær 128 milljöðrum lægri en þeir væru að óbreyttu. Á móti koma hins vegar ýmsar skattahækkanir alls upp á 43 milljarða króna. Ekki er hægt að mæla á móti því að frá árinu 2013 hafi töluvert áunnist í að hemja skattagleði ríkisins þetta er þvert á möntru sem jafnvel hægri menn í dygðaskreytingum halda fram. Árangurinn blasir við þegar rýnt er í tölulegar upplýsingar. En jafnvel þótt flest skrefin sem stigin hafa verið síðasta áratuginn séu í rétta átt, stendur sú staðreynd óhögguð að Ísland er háskattaland í alþjóðlegum samanburði. Ég hef verið óþreytandi við að benda á að skattbyrði launafólks og fyrirtækja, hafi bæði áhrif á samkeppnishæfni þjóðarinnar og á lífskjör. Skattaglaðir vinstri menn fara yfirleitt af taugum þegar minnst er á skattalækkanir. Kaldur hrollur fer um þá alla þegar þeir átta sig á því að árangur (ekki nægilega mikill) hefur náðst á síðustu tíu árum við að létta skattbyrðar einstaklinga og fyrirtækja. Með skattalækkunum hafa ráðstöfunartekjur heimilanna aukist og hlutfallslega hefur aukningin verið mest hjá þeim sem lægstu launin hafa.
Gestir Vikulokanna eru Teitur Björn Einarsson þingmaður Sjálfstæðisflokks, Hanna Katrín Friðriksson formaður þingflokks Viðreisnar og Orri Páll Jóhannsson formaður þingflokks Vinstri grænna. Þau ræddu hvalveiðimálið og stöðu matvælaráðherra, kjaraviðræður, orkumál og þjóðarhöll. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Gestir Vikulokanna eru Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar, Jódís Skúladóttir þingmaður Vinstri grænna og Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu sjókvíaeldi, stefnu íslenskra stjórnvalda varðandi átökin á Gaza, efnahagsmál og komandi kjaraviðræður og jarðskjálftana á Reykjanesskaga. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Gestir Vikulokanna eru Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar, Jódís Skúladóttir þingmaður Vinstri grænna og Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu sjókvíaeldi, stefnu íslenskra stjórnvalda varðandi átökin á Gaza, efnahagsmál og komandi kjaraviðræður og jarðskjálftana á Reykjanesskaga. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson
10. október 2023 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að afsögn fjármálaráðherra sé virðingarverð. Hún hafi óhjákvæmilega áhrif á ríkisstjórnina en milli þeirra ríki traust. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur lýsir ánægju með að fjármálaráðherra hafi ekki látið reyna á hæfi sitt í embætti fyrir dómstólum heldur frekar vikið. Ráðherrar sem yfirmenn framkvæmdavaldsins þurfi að fylgja flóknu regluverki í sínum verkefnu og megi ekki hygla einni atvinnugrein eða frændfólki. Hólmganga Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins segir formaður miðflokksins um afsögn fjármálaráðherra. Stjórnvöld í Finnlandi segja einsýnt að skemmdarverk hafi verið unnin á gasleiðslu sem liggur yfir Finnska flóa til Eistlands. Þau neita að tjá sig um um hver hafi verið að verki. Í stríði milli Ísraels og Hamas, eins og í öðrum stríðum, eru það börn sem þjást mest, segir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Rafmagns- og vatnsleysi á Gaza sé lífshættulegt. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kári Guðmundsson. Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir
10. október 2023 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að afsögn fjármálaráðherra sé virðingarverð. Hún hafi óhjákvæmilega áhrif á ríkisstjórnina en milli þeirra ríki traust. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur lýsir ánægju með að fjármálaráðherra hafi ekki látið reyna á hæfi sitt í embætti fyrir dómstólum heldur frekar vikið. Ráðherrar sem yfirmenn framkvæmdavaldsins þurfi að fylgja flóknu regluverki í sínum verkefnu og megi ekki hygla einni atvinnugrein eða frændfólki. Hólmganga Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins segir formaður miðflokksins um afsögn fjármálaráðherra. Stjórnvöld í Finnlandi segja einsýnt að skemmdarverk hafi verið unnin á gasleiðslu sem liggur yfir Finnska flóa til Eistlands. Þau neita að tjá sig um um hver hafi verið að verki. Í stríði milli Ísraels og Hamas, eins og í öðrum stríðum, eru það börn sem þjást mest, segir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Rafmagns- og vatnsleysi á Gaza sé lífshættulegt. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kári Guðmundsson. Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir
Gestir Vikulokanna eru Steinunn Þóra Árnadóttir þingmaður Vinstri grænna, Guðmundur Árni Stefánsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu efnahagsmál, bakslag í réttindabaráttu hinsegin fólks, málefni hælisleitenda og samgöngusáttmála á höfuðborgarsvæðinu. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Gestir Vikulokanna eru Steinunn Þóra Árnadóttir þingmaður Vinstri grænna, Guðmundur Árni Stefánsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu efnahagsmál, bakslag í réttindabaráttu hinsegin fólks, málefni hælisleitenda og samgöngusáttmála á höfuðborgarsvæðinu. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Björgunarsveitum í Marokkó gengur seint að koma til aðstoðar fólki sem missti allt í jarðskjálftanum á föstudagskvöld. Hátt í 2.700 hafa fundist látin. Höfuðkúpubein úr manni fundust í fyrri viku undir gólffjölum í risi Ráðherrabústaðarins við Tjarnargötu, þar sem endurbætur standa yfir. Margrét Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og fyrrverandi Þjóðminjavörður, gerir ráð fyrir að beinunum hafi verið komið fyrir í húsinu eftir að það var flutt frá Önundarfirði, þar sem það stóð upphaflega. Geðhjálp segir að því fari fjarri að fatlað fólk sé ofþjónustað. Fjármálaráðherra sendi fötluðu fólki kaldar kveðjur þegar hann segir að skoða þurfi hvort því sé veitt þjónusta umfram það sem lög bjóða. Setja á fullkomna gasmæla í hvern þéttbýliskjarna á Reykjanesskaga þar sem búast má við fleiri eldgosum á skaganum. Verið er að bæta viðbúnað Umhverfisstofnunar við eldgosum, í stað þess að redda mælum þegar gos er hafið. Formaður deildar sauðfjárbænda segir að göngur og réttir hafi gengið vel í haust en hefur áhyggjur af því að fleiri bændur bregði búi. Landbúnaðurinn hefur ekki aðgang að sama fé og fjárfestar sem kaupi upp jarðir. Laufey Lín Jónsdóttir tónlistarkona hefur slegið met Lady Gaga og Tonys Bennett á streymisveitunni Spotify í flokki djasstónlistar. Þing verður sett á morgun. Fjármálaráðherra hefur boðað miklar aðhaldsaðgerðir. Í vor og sumar hefur mikið verið rætt um ágreining eða núning milli stjórnarflokkanna og þá helst Sjálfstæðisflokksins og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Eva Heiða Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir alltaf erfitt að sjá fyrir hvað veldur helst ágreiningi en útlendingamálin og boðaður niðurskurður í fjárlögum sé til þess líklegur. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred. Útsendingu stjórnaði Annalísa Hermannsdóttir.
Björgunarsveitum í Marokkó gengur seint að koma til aðstoðar fólki sem missti allt í jarðskjálftanum á föstudagskvöld. Hátt í 2.700 hafa fundist látin. Höfuðkúpubein úr manni fundust í fyrri viku undir gólffjölum í risi Ráðherrabústaðarins við Tjarnargötu, þar sem endurbætur standa yfir. Margrét Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og fyrrverandi Þjóðminjavörður, gerir ráð fyrir að beinunum hafi verið komið fyrir í húsinu eftir að það var flutt frá Önundarfirði, þar sem það stóð upphaflega. Geðhjálp segir að því fari fjarri að fatlað fólk sé ofþjónustað. Fjármálaráðherra sendi fötluðu fólki kaldar kveðjur þegar hann segir að skoða þurfi hvort því sé veitt þjónusta umfram það sem lög bjóða. Setja á fullkomna gasmæla í hvern þéttbýliskjarna á Reykjanesskaga þar sem búast má við fleiri eldgosum á skaganum. Verið er að bæta viðbúnað Umhverfisstofnunar við eldgosum, í stað þess að redda mælum þegar gos er hafið. Formaður deildar sauðfjárbænda segir að göngur og réttir hafi gengið vel í haust en hefur áhyggjur af því að fleiri bændur bregði búi. Landbúnaðurinn hefur ekki aðgang að sama fé og fjárfestar sem kaupi upp jarðir. Laufey Lín Jónsdóttir tónlistarkona hefur slegið met Lady Gaga og Tonys Bennett á streymisveitunni Spotify í flokki djasstónlistar. Þing verður sett á morgun. Fjármálaráðherra hefur boðað miklar aðhaldsaðgerðir. Í vor og sumar hefur mikið verið rætt um ágreining eða núning milli stjórnarflokkanna og þá helst Sjálfstæðisflokksins og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Eva Heiða Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir alltaf erfitt að sjá fyrir hvað veldur helst ágreiningi en útlendingamálin og boðaður niðurskurður í fjárlögum sé til þess líklegur. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred. Útsendingu stjórnaði Annalísa Hermannsdóttir.
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, ræðir um stjórnarsamstarfið og samskipti ríkisstjórnarflokkanna, það hvort að flokksráðsfundir Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna hafi kveikt einhverja neista í ástlausu hjónabandi flokkanna, um helstu áskoranirnar framundan, flókin mál sem stjórnmálamenn forðast að ræða og margt fleira.
Höskuldur Kári Schram ræðir við Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur þingmann Vinstri grænna, Diljá Mist Einarsdóttur þingmann Sjálfstæðisflokks og Gísla Rafn Ólafsson þingmann Pírata um launhækkanir æðstu ráðamanna, stjórnmál, hvalveiðar og efnahagsmál. Tæknimaður: Joanna Warzycha
Höskuldur Kári Schram ræðir við Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur þingmann Vinstri grænna, Diljá Mist Einarsdóttur þingmann Sjálfstæðisflokks og Gísla Rafn Ólafsson þingmann Pírata um launhækkanir æðstu ráðamanna, stjórnmál, hvalveiðar og efnahagsmál. Tæknimaður: Joanna Warzycha
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fv. forsætisráðherra, ræðir um aðdragandann að myndun ríkisstjórnar árið 2013, um mistökin við að verja minnihlutastjórn falli árið 2009 og mörg af þeim pólitísku álitamálum sem við erum að eiga við í dag. Rætt er um óumdeilda stjórnmálamenn sem Sigmundur Davíð segir gagnslausa, átök við embættismenn og það hvernig stjórnmálamenn hafa afsalað sér völdum til embættismanna, galnar hugmyndir um lög um tjáningarfrelsi og margt fleira.
Höskuldur Kári Schram ræðir við Bjarna Jónsson þingmann Vinstri grænna og formann utanríkismálanefndar Alþingis, Vilborgu Ásu Guðjónsdóttur alþjóðastjórnmálafræðing og fyrrverandi ráðgjafa þingmanna Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins og Jón Ólafsson prófessor í menningar- og Rússlandsfræðum við Háskóla Íslands um leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík. Tæknimaður var Davíð Berndsen.
Höskuldur Kári Schram ræðir við Bjarna Jónsson þingmann Vinstri grænna og formann utanríkismálanefndar Alþingis, Vilborgu Ásu Guðjónsdóttur alþjóðastjórnmálafræðing og fyrrverandi ráðgjafa þingmanna Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins og Jón Ólafsson prófessor í menningar- og Rússlandsfræðum við Háskóla Íslands um leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík. Tæknimaður var Davíð Berndsen.