Podcasts about Gunnarsson

  • 306PODCASTS
  • 2,104EPISODES
  • 1h 23mAVG DURATION
  • 5WEEKLY NEW EPISODES
  • Sep 26, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026

Categories



Best podcasts about Gunnarsson

Show all podcasts related to gunnarsson

Latest podcast episodes about Gunnarsson

Ein Pæling
#618 Brynjar Níelsson og Þórður Gunnarsson í Beinni Pælingu 16. september 2026

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Sep 26, 2026 82:25


Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson og Þórð Gunnarsson þann 16. september 2026.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.einpaeling.iseða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270  Samstarfsaðilar:  Poulsen  Þ. ÞorgrímssonBæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isKaldiHD - Iðn- og tækniþjónustaHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á hrafnadalur@einpaeling.is

Rauða borðið
Rauða borðið 17. sept - Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 17, 2026 245:01


Fimmtudagur 17. september Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur ræðir hvers vegna opinberar stofnanir hundsa íbúalýðræði og náttúruvernd. Björn Þorláks ræðir við hann. Ragnheiður Davíðsdóttir, Hákon Gunnarsson og Þorsteinn Sæmundsson voru gestir í Reynsluboltum Sigurjóns. Að venju var víða komið við. Kannski stal Donald Trump senunni með öllum sínum tilskipunum. Ýmislegt fleira bar þó á góma. Dr. Magnús Thorson segir Ásdísi Olsen allt um Cannabis Entrepreneurship. Gunnar Bender, ritstjóri Sportveiðiblaðsins, kom og sagði okkur frá veiði sumarsins. Hvar veiðimenn voru kátastir með aflann og hvar ekki. Einn dagur í góðri á kostar frá 4 til 500 þúsund krónur. Heildræn heilsuhátíð fer fram í Mosfellsbæ um helgina í 16. sinn, þar sem boðið er upp á allskonar andlegt og óhefðbundið, skrítið og skemmtilegt. Vigdís Steinþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og fyrrilífsdáleiðari segir Ásdísi Olsen frá því helsta sem verður á dagskrá.

Ein Pæling
#618 Brynjar Níelsson og Þórður Gunnarsson í Beinni Pælingu

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Sep 17, 2026 34:04


Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson og Þórð Gunnarsson þann 16. september 2026.Þáttinn má nálgast í heild á www.einpaeling.is

Bylgjan
Reykjavík síðdegis 11.09.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Sep 11, 2026 57:11


Í þessum þætti: Helgi Magnús Gunnarsson fyrrverandi vararíkissaksóknari um að Mohamad Th. Jóhannessyni, áður Kourani, sætir 30 ára endurkomubanni inn á allt Schengen-svæðið Sigurður Sigurðsson byggingaverkfræðingur um Tvíburaturnana Símatími: Arngrímur - Sigurður Guðni - Svanur  Einar Sigurjónsson sjúkraþjálfari hjá Heil heilsumiðstöð um harðsperrur Páll Magnússon um Sprengisand Sigmundur Traustason viðburðarstjóri Hefðarfólks á hjólum sem verða á ferð um Reykjavík 

Rauða borðið
Rauða borðið 9. sept - Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 9, 2026 237:31


Miðvikudagur 9. september Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg munu án efa skerða viðkvæma þjónustu við börn og ungmenni og auka hættu á ójöfnuði. Þetta segir Árni Gunnarsson forvarnafulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Kristján Sigurjónsson ritstjóri FF7 ræðir við Gunnar Smára um kosningarnar í Svíþjóð, sem verða um helgina. Verða stjórnarskipti? Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir snýr aftur á Samstöðina eftir hlé og ræðir ásamt Birni Þorláks álitamál í geðheilbrigðisþjónustu. Bergur Ebbi Benediktsson, höfundur, fyrirlesari og uppistandari, segir Gunnari Smára frá nýju bókinni sinni sem fjallar um mennsku og gervigreind. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Víði Sigurðsson íþróttasérfræðing um fótbolta.

Frjálsar hendur
Jón Arason hálshöggvinn - þrisvar

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Sep 6, 2026 60:54


7. nóvember 1550 voru Jón Arason biskup á Hólum og synir hans Björn og Ari líflátnir í Skálholti. Þrír íslenskir skáldsagnahöfundar hafa lýst aftökunni í verkum sínum, Torfhildur Hólm, Gunnar Gunnarsson og Ólafur Gunnarsson. Umsjónarmaður fjallar stuttlega um aðdraganda aftökunnar og les síðan kaflana þrjá.

bj gunnarsson umsj gunnar gunnarsson
Vikulokin
Fjárlög, fjölmiðlar og málefni barna

Vikulokin

Play Episode Listen Later Sep 5, 2026 57:00


Í Vikulokunum í dag var rætt um fjárlög og kjaramál, fjölmiðlalandslagið og þær fréttir sem hafa snúist um börn og ungmenni í vikunni, aukna áfengisdrykkju, útivistartíma og annað. Fyrsti hluti: - Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra Annar hluti: - Birkir Karl Sigurðsson, stjórnandi hlaðvarpsins Chess after dark - Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins - Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður á Sýn Þriðji hluti: - Erlingur Sigvaldason, frístundaráðgjafi og kennaranemi - Árni Guðmundsson, sérfræðingur í æskulýðsmálum - Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Rimaskóla

Segðu mér
Hjónin Guðni Gunnarsson og Guðlaug Pétursdóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later Aug 27, 2026 40:51


Hjónin Guðni og Guðlaug tala um ástina, vitund og nærveru.

Þjóðmál
#452 – Kaffispjall með Stefáni Einari og Þórði – ESB mun vilja hagnaðinn af Landsvirkjun

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Aug 25, 2026 60:55


Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson mæta í líflegt samtal þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan um aðild að Evrópusambandinu og orkumálin eru í brennidepli. Við rifjum upp vel heppnað bjórkvöld Þjóðmála á Selfossi, fjöllum um eftirvæntinguna fyrir Þjóðfundi Þjóðmála á föstudaginn kemur, rýnum í Epic-stuðlana, beinum sjónum okkar að einkaviðtali Rúv við utanríkisráðherra nokkrum dögum fyrir kosningar og ósvöruðum spurningum um sjávarútvegsmál. Þá er rætt um grein Þórðar í Morgunblaðinu í morgun og þá staðreynd að orkumál hafa gleymst í umræðunni þó svo að vitað sé að ESB mun sækjast eftir íslenskri orku.

epic inns stef esb vilja gunnarsson evr morgunbla selfossi einari landsvirkjun
Þjóðmál
#451 – Maraþonþáttur IV – Epic útgáfa

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Aug 21, 2026 276:15


Fjórði maraþonþáttur Þjóðmála er mættur á allar helstu veitur og á Youtube. Gestir þáttarins eru Hörður Ægisson, Lárus Welding, Björt Ólafsdóttir, Örn Arnarson, Konráð S. Guðjónsson, Arnar Þór Stefánsson, Andrés Magnússon, Vilhjálmur Birgisson, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Andrea Sigurðardóttir, Þórður heitinn Gunnarsson, Bjarni Benediktsson, Einar Sigurðsson, Stefán Einar Stefánsson, Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir. Hér er um 4,5 klst. skemmtun fyrir alla þjóðina.

Bylgjan
Reykjavík síðdegis fimmtudagur 13. ágúst 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Aug 13, 2026 68:45


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Teitur Atlason íbúi við Hringbraut í Vesturbænum Helgi Magnús Gunnarsson fyrrverandi vararíkissaksóknari um Angjelin Sterkaj Símatími Steingrímur J Sigfússon fyrrverandi formaður Vinstri grænna Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins Elísabet Inga Sigurðardóttir fréttakona hjá Sýn Jakob Birgisson uppistandari

reykjav gunnarsson vinstri lilja alfre fimmtudagur
Þjóðmál
#446 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Er skaðinn skeður?

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Aug 7, 2026 98:10


Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin í skugga þess að almyrkvi á sól er framundan. Strákarnir rifja upp vel heppnað golfmót Þjóðmála sem fram fór í gær og bjórkvöld Þjóðmála um hábjartan dag í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Þá er rætt um sjálfsmörk þeirra sem telja að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið, villandi málflutning um tengingu sænsku krónunnar við evru, framleiðslu Rúv á efni fyrir Já til að sjá hreyfinguna, nýjar fylgismælingar og stöðuna í veðbönkum, vandræðalega aðdáun yfirmanns Maskínu á utanríkisráðherra og fleira. Við veltum því líka upp hvort að nú þegar sé búið að skaða samfélagið með því hvernig fulltrúar Viðreisnar og Samfylkingar hafa talað um atvinnulífið, hagkerfið, gjaldmiðilinn og fleira. Loks eru fastir liðir á sínum stað, hrós vikunnar, bókameðmæli, hraðaspurningar og fleira.

Þjóðmál
#444 – Kaffispjall með Adda í Gunnbjarnarholti

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Jul 28, 2026 54:30


Þórður Gunnarsson ræðir við Arnar Bjarna Eiríksson, bónda og athafnaskáld í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Arnar Bjarni varpar ljósi á áskoranir og tækifæri í íslenskum landbúnaði og deilir sýn sinni á nýsköpun í landbúnaði og rekstur hans auk mikilvægi þess íslenskar sveitir haldist í byggð. Rætt er um mögulegt aðlögunarferli að Evrópusambandinu og áhrif þess á íslenskan landbúnað, hver áhrifin af inngöngu í Evrópusambandið yrðu á hann, staðreyndir um áhrif innlendra matvæla á verðlag á Íslandi og margt fleira.

BLUE CAST by TENCEL™  / CARVED IN BLUE®
BLUE CAST 604 - Maria Gunnarsson

BLUE CAST by TENCEL™ / CARVED IN BLUE®

Play Episode Listen Later Jul 13, 2026 48:24


BLUE CAST Ep 604 - Maria GunnarssonThis BLUE CAST Episode, Tuncay Kilickan talks with Maria Gunnarsson - Founder of AMK Atelier.About Maria GunnarssonMaria Gunnarsson is a specialist in Technical Design, Visual Merchandising, and Sustainable Solutions.With a passion for creating products that combine quality, functionality, and exceptional fit. She believes that every successful garment begins with thoughtful design and careful attention to detail throughout the entire development process.The name AMK stands for Anna, Maria, Krestina - names inherited from the creative women in her family. Growing up in the Swedish countryside, Maria developed a deep appreciation for craftsmanship, longevity, and the value of giving products a second life.Inspired by the women who shaped her, Maria's approach to design is rooted in sustainability and mindful creation. Her mother, Anna-Krestina, instilled the belief that nothing should go to waste and that everything has the potential for a new purpose. Her grandmother, Anna-Stina, worked with natural dyes and inspired Maria with her creativity, resourcefulness, and positive outlook on life. These values continue to influence Maria's work and her commitment to creating products with care for both people and the planet.Based in Amsterdam and working internationally, Maria collaborates with brands across the globe, offering both remote consultancy and on-site project support. Through her expertise, she helps businesses develop beautiful, functional, and sustainable products while sharing knowledge that empowers teams to create with greater purpose and responsibility.Tuncay Kilickan - Highly respected Industry figure, having cut his teeth at Turkish giant ISKO spanning 20 years. Most recently Tuncay was part of R&D team of ISKO. Tuncay has a number of patents under his name. No doubt most of us have worn fabrics developed by him and his team. Tuncay takes on the Head of Global Business Development - Denim at LENZING.BLUE CAST by TENCEL™ / CARVED IN BLUE®   A podcast series created Lenzing's TENCEL™ Denim team. Each month, they will host an in-depth talk with a special guest working in the industry or on the fringes of the denim community. Listen for discussions on sustainability, career trajectories, personal denim memories and more.Find us on Instagram, Linkedin, X, and Facebook @carvedinblue.And get in touch: denim@lenzing.com

Þjóðmál
#437 – Helgarvaktin með Bergþóri og Önnu Hrefnu – Bestu kveðjur vestur um haf

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Jul 3, 2026 80:45


Þórður Gunnarsson stýrir Helgarvaktinni að þessu sinni og fær til sín Bergþór Ólason og Önnu Hrefnu Ingimundardóttur til að fara yfir stóru málin. Við ræðum um 250 ára afmæli Bandaríkjanna, fylgi flokkanna hér á landi, kostnaðarsama styttingu vinnuvikunnar fyrir samfélagið, framtakið Áfram Ísland þar sem breiðfylking er mynduð um þá afstöðu að berja fólki jákvæðni í brjóst um sjálfstæði landsins, kjánaleg kynningarmyndbönd utanríkisráðherra, vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins og margt fleira. Þá eru fastir liðir eins og hrós vikunnar, hraðaspurningar og bókameðmæli að sjálfsögðu á sínum stað.

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - fimmtudagur 2. júlí 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jul 2, 2026 58:02


Öll viðtöl þáttarins ásamt símatíma: Sigurður Þ Ragnarsson -Siggi stormur hjá veður ehf um júlíveðrið  Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtakanna um verðlag og stöðu bænda vegna ESB Símatími Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna um að álagning á bensín hefur hækkað um fjórðung að raunvirði frá árinu 2022 og álagning á dísilolíu um helming Ragnar Sigurðsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð og bindindismaður Davíð Rúnar Gunnarsson hjá Viðburðarstofu Norðurlands

sj reykjav sigur gunnarsson fjar neytendasamtakanna fimmtudagur
Bylgjan
Reykjavík síðdegis - þriðjudagur 30. júní 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jun 30, 2026 70:14


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Björg Eva Erlendsdóttir Framkvæmdastjóri Landverndar um lúpínu Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins um hvalveiðar Símatími Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður leigjendasamtakanna Eiríkur Finnur Greipsson skrifstofustjóri hjá Frímúrarareglunni Hlynur Hafberg Snorrason yfirlögregluþjónn á Ísafirði ræddi við okkur um sólmyrkvan og framkvæmdir í kringum hann Hjálmar Waag Árnason leiðsögumaður í Færeyjum og „kvart-Færeyingur“

bj sj reykjav gunnarsson sigr waag framkv landverndar
Mannlegi þátturinn
Söngleikir án vettvangs, hreinlæti í Reykjavík frá 1968 og Grétar Halldór lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 22, 2026 50:00


Þór Breiðfjörð tónlistarmaður er nýútskrifaður úr meistaranámi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Meistararitgerðin hans heitir Vinsældir án vettvangs, staða söngleikjalistformsins á Íslandi sem menningarvettvangs. Þór kom í þáttinn og sagði okkur betur frá efni ritgerðarinnar, enda hefur hann heldur betur lifað og hrærst í söngleikjaforminu í gegnum tíðina. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom svo til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn leyfði hún okkur að heyra hluta af spjalli Stefáns Jónssonar við Gústaf Pálsson borgarverkfræðing úr þættinum Hálftíminn: Um hreinlætið í Reykjavík frá árinu 1968. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Grétar Halldór Gunnarsson, prestur við Kópavogskirkju. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Grétar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Skrifað í sand - æviminningar Karls Sigurbjörnssonar Sálumessa syndara - æviminningar Esra Péturssonar geðlæknis (Ingólfur Margeirsson ritaði) Siddharta e. Hermann Hesse (íslenskuð af Haraldi Ólafssyni) Páll postuli Sigurbjörn Einarsson Tónlist í þættinum í dag: Bjartsýni / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) (Café Song) Empty Chairs and Empty Tables / Þór Breiðfjörð (Alain Boublil, texti Claude-Michel Schönberg, Úr Vesalingunum) Út á stoppistöð / Stuðmenn ( Jakob Frímann Magnússon) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Þjóðmál
#431 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Þeir vita sem vita

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Jun 12, 2026 124:00


Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin. Við ræðum nýafstaðna vorferð Þjóðmála norður í land og komandi golfmót á Írlandi, nýja könnun sem gerð var fyrir Þjóðmál um viðhorf fólks gagnvart mögulegu varaformannsframboði Dags B. Eggertssonar, skipun Ara Edwald í stjórnarformennsku í Orkuveitunni og þörfina á því að losa um Carbfix svindlið, Pollýönnuaðferð ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum, hugmyndafræðilegan slag um bankaskatta, ESB-vegferðina sem tekur á sig sífellt skrýtnari mynd, hlutdrægni Rúv, einkennilegt innlegg Samkeppniseftirlitsins og margt fleira. Þá er hrós vikunnar og hraðaspurningar frá gestum Kringlukráarinnar að sjálfsögðu á sínum stað.

Bylgjan
Sprengisandur 07.06.2026 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jun 7, 2026 95:00


Kolbeinn Tumi Daðason leysir Kristján Kristjánsson af og stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Krónan og efnahagurinn Már Kristófersson fjármálaráðherra. Staða Icelandair Jens Þórðarson fyrrverandi flugrekstrarstjóri Icelandair og Marínó Örn Tryggvason fyrrverandi forstjóri Kviku. Brottfarastöð Jón Gunnarsson þingmaður, Rósa Björk Brynjólfsdóttir VG og Birna Þórarinsdóttir UNICEF. Bubbi   Gunnlaugur Jónsson tónlistarsérfræðingur og Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur.

Lab Rats to Unicorns
Powering the Quantum Revolution with David Gunnarsson_e.084

Lab Rats to Unicorns

Play Episode Listen Later Jun 3, 2026 51:29


In this episode of Lab Rats to Unicorns, John Flavin sits down with Dr. David Gunnarsson, Chief Business Development Officer at Bluefors, the global leader in cryogenic measurement systems powering the future of quantum technology. With a background spanning quantum physics, low-temperature research, and commercialization, David has spent his career helping transform quantum computing from a theoretical concept into an emerging industry. David reflects on his early fascination with physics and space, his introduction to quantum computing during university, and the realization that quantum mechanics could evolve from pure theory into a practical technology. He explains the fundamentals of quantum computing, why cryogenic environments are essential for quantum systems, and how companies like Bluefors are building the infrastructure required to scale the field. The conversation also explores David's transition from academia into industry, the importance of timing and commercialization in deep tech, and how collaboration between startups, universities, and major companies is shaping the quantum ecosystem. Along the way, he shares his perspective on the relationship between AI and quantum computing, and why the next decade could unlock major breakthroughs in chemistry, drug discovery, and computational science. At its core, this episode is about curiosity, persistence, and the challenge of turning frontier scientific ideas into technologies capable of reshaping the world.

Mannlegi þátturinn
Ljósmyndir af hversdagsleikanum, íslenski refurinn og vísindaspjall með Eddu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 20, 2026 53:42


Á morgun verður opnuð ljósmyndasýning í Ljósmyndasafni Reykjavíkur Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum, ljósmyndir eftir Þórdísi Erlu Ágústsdóttur. Þórdís hefur myndað fólk, sem flest er henni náið eða vel kunnugt, yfir löng tímabil. Myndirnar segja sögur af ólíku fólki sem hún hefur fylgt eftir og velur stundir úr hversdeginum, lítil augnablik sem segja stærri sögu. Þórdís kom í þáttinn í dag og sagði frá. Við fræddumst svo um íslenska refinn í dag en Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýrafræðingur á Náttúrufræðistofnun hefur rannsakað tófuna um árabil og á næstunni verður haldið málþing á vegum Náttúrufræðistofnunar þar sem verður einmitt rætt um íslenska refinn, sérstöðu stofnsins, svipgerðir, erfðafræði og fleira. Ester sagði okkur frá refnum og málþinginu í dag. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, en í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að góðgerlar sem finnast í kimchi geti hjálpað til við að losa líkamann við nanoplast. Tónlistin í þættinum: Sólarsamba / GÓSS (Magnús Kjartansson, texti Halldór Gunnarsson) Í sól og sumaryl / Stebbi & Eyfi (Gylfi Ægisson) Hr. Reykjavík / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson) Daglega fer mér fram / Mannakorn (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Ofurhlauparinn Karlotta, bókin Hamingja og Olga Hörn á Heilsuvaktinni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 19, 2026 49:54


Við töluðum í dag við Karlottu Ósk Óskarsdóttur sem hefur verið kölluð ofurhlaupari og það er ekki fjarri sanni. Hún lætur sér ekki nægja til dæmis bara venjulegt maraþonhlaup, heldur hljóp hún 75 kílómetra að meðaltali á dag, tíu daga í röð, eða samtals 750 kílómetra í Búlgaríu í síðustu viku. Hún hefur slegið sjö Íslandsmet á síðustu níu mánuðum, þar af þrjú í Búlgaríu og það hlaup var lengsta vegalengd sem Íslendingur hefur farið í keppnishlaupi. Við ræddum við Karlottu í þættinum í dag og spurðum hana til dæmis af hverju hún hreinlega er að standa í þessu? Mars Baldurs er verðlaunað ungskáld sem stundar nám á Akureyri og nú í byrjun vors kom út bók eftir hann i pastelritröð Flóru menningarhúss á Akureyri. Bókin heitir Hamingja og við mæltum okkur mót við Mars á kaffihúsi fyrir norðan. Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Fargufur hafa notið sívaxandi vinsælda síðustu ár og Helga náði tali af einum svokölluðum gusumeistara, Olgu Hörn Fenger, í Rjúkandi fargufu á Ægissíðu, við heyrðum þeirra spjall á Heilsuvaktinni í dag. Tónlistin í þættinum: Frækorn og flugur / Dúmbó og Steini (H. Newman, texti Ellert Borgar Þorvaldsson) Gvendur á Eyrinni / Dátar (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson) Heim í Búðardal / Ðe Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Crohns og sáraristilbólga, efni af Þjóðskjalasafni og Pétur Már lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 18, 2026 50:00


Alþjóðlegur vitundardagur tileinkaður bólgusjúkdómum í meltingarvegi er á morgun 19.maí. Talið er að yfir 10 milljónir, þar af um 3,4 milljónir í Evrópu, séu annaðhvort með Crohns-sjúkdóm eða sáraristilbólgu, oft nefnda IBD. Á Íslandi hefur tíðnin aukist mikið frá 1950 og nýgengi sáraristilbólgu á Íslandi er u.þ.b. 22 á hverja 100.000 íbúa sem er með því hæsta í heiminum. Í ár vekja samtökin athygli á því að það á ekki að vera neitt feimnismál að tala um sjúkdómana eða það sem þeim fylgir, þótt þeir tengist þörmum og salernisferðum og mjög mikilvægt að eyða öllum fordómum. Hjalti Þór Davíðsson kom til okkar í dag en hann tekur þátt í vitundarvakningunni fyrir CCU samtökin, sem stendur fyrir Crohn's og Colitis Ulcerosa, eða sáraristilbólgu. Svo fórum við í heimsókn á Þjóðskjalasafnið og fengum Ólaf Arnar Sveinsson, sviðsstjóra miðlunar og rannsókna þar á bæ, til að segja okkur frá sakamáli, svokölluðu dulsmáli, frá árunum 1832-33 í Tálknafirði á Vestfjörðum. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Pétur Már Gunnarsson, myndlistar- og garðyrkjumaður. Við fáum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Pétur Már talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Frjáls e. Lea Ypi Nói bátasmiður - Lífshlaup Nóa skráð af Erlingi Davíðssyni Sorgin í fyrstu persónu e. Ko Un í þýðingu Gyrðis Elíassonar Tokyo-Montana hraðlestin e. Richard Brautigan Daníil Kharms og Brautigan Tónlistin í þættinum: Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason) Fegurðin svo hrá / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) He'll Always Know / Elísabet Eyþórsdóttir ( Elísabet Eyþórsdóttir) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Þjóðmál
#422 – Aukaþáttur – Stefán Einar og Þórður kryfja kosningarnar – Kristún reif upp sverðið en tapaði

Þjóðmál

Play Episode Listen Later May 17, 2026 74:29


Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson rýna í og greina með ítarlegum hætti niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna sem fram fóru í gær. Við ræðum stöðuna eftir einstaka sveitarfélögum, mögulega samstarfsmöguleika ýmissa flokka, stöðu ríkisstjórnarflokkanna eftir kosningar, innkomu og áhrif forsætisráðherra í kosningabaráttunni og margt annað.

Vikulokin
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, Oddur Ævar Gunnarsson og Hafdís Helga Helgadóttir

Vikulokin

Play Episode Listen Later May 16, 2026 57:56


Gestir í Vikulokunum 16. maí voru: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður á Sýn Hafdís Helga Helgadóttir, upplýsingafulltrúi og fyrrverandi fréttamaður

gunnarsson lilja helgad hafd ragnarsd oddur
Handkastið
ÍBV svara fyrir sig og fyrsta ótímabær spáin

Handkastið

Play Episode Listen Later May 10, 2026 54:29


Stymmi Klippari, Davíð Már Kristinsson og Ásgeir Gunnarsson mættu í Rapyd stúdíó-ið og ræddu handboltann undanfarna daga. ÍBV gerðu sér lítið fyrir og pökkuðu Val saman í leik þrjú hjá þeim. Þórsarar halda áfram að styrkja sig fyrir átökin á næsta ári. Ársþing HSÍ fór fram um helgina og nóg að ræða þaðan. Fyrsta ótímabæra spá næsta tímabils leit dagsins ljós. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Bylgjan
Bítið - fimmtudagur 30. apríl 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 30, 2026 101:00


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Grímur Kristjón Gunnarsson hjá Bréfdúfufélagi Íslands ræddi við okkur um bréfdúfusportið. Þorvaldur Flemming var í beinni frá Kaupmannahöfn. María Ellen Steingrímsdóttir, oddviti Viðreisnar og Orri Hlöðversson, oddviti Framsóknar, bæði í Kópavogi, fóru yfir sínar áherslur. Þóra Björg Jónsdóttir, lögfræðingur og stjórnendamarkþjálfi og Fjóla María Ágústsdóttir, umbóta-, stefnu og teymaráðgjafi, ræddu við okkur um hvernig má bæta þjónustu við börn og ungmenni. Eva Katrín, læknir og Arna Þorsteinsdóttir, markaðsstjóri Kolumbus ævintýraferða, ræddu við okkur um ævintýralegar heilsuferðir. Arinbjörn Hauksson, markaðsstjóri Elko, ræddi við okkur um glænýja græju. Krista Hall og Oddur frá Eldum rétt drógu út milljón króna ferðavinning í beinni. Eva Laufey rak inn nefið.

bj fj flemming elko gunnarsson kristj arna kolumbus hauksson frams kaupmannah heimi oddur fimmtudagur
Palmemordet
520. Viktor Gunnarsson del 26

Palmemordet

Play Episode Listen Later Apr 28, 2026 46:56


Vi fortsätter att titta på vad Viktor gjorde på ett amerikanskägt företag i småländska Emmaboda under tidigt 80-tal. Var det en stöld? Ett olaga intrång? Eller kanske inget av det? I samma utredning förhörs också ett stort antal lärarkollegor till Viktor, som inte är odelat positiva till honom...Av och med Tobias Henricsson/PRS Media.Sponsra Palmemordet på Patreon: https://www.patreon.com/palmemordetKontakta Palmemordet: zimwaypodcast@gmail.com Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þjóðmál
#415 – Helgarvaktin með Þórði Gunnars og Guðmundi Kristjáns eftir vel heppnaða sjávarútvegssýningu í Barcelona

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Apr 24, 2026 119:50


Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, og Þórður Gunnarsson ræða sjávarútveg og efnahagsmál. Farið er yfir helstu tíðindi af sjávarútvegssýningunni í Barcelona og rýnt í undarlega Facebook-færslu matvælaráðherra í kjölfar hennar. Þá er fjallað um umtalaða umfjöllun danska blaðsins Berlingske, stöðuna í efnahagsmálum og á vinnumarkaði, næstu skref í ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, hvalveiðar í sumar og margt fleira. Að sjálfsögðu eru síðan hraðaspurningar, hrós vikunnar og bókadómur vikunnar á sínum stað.

Bylgjan
Bítið - föstudagur 24. apríl

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 24, 2026 102:00


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Guðlaug María Bjarnadóttir, formaður Lindar, félags fólks með meðfædda ónæmisgalla og Súsanna Antonsdóttir, gjaldkeri félagsins, ræddu við okkur um vitundarvakningarviku. Þóra Jónasdóttir, yfirdýralæknir Matvælastofnunar, ræddi alvarleg mál er varðar ofbeldi og hótanir gegn starfsfólki MAST. Tommi Steindórs, dagskrárstjóri X-ins 977 og Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður á Sýn, fóru yfir fréttir vikunnar. Jón Jósep Snæbjörnsson, viðskiptatengslastjóri Aurbjargar og Baldvin Egill Baldvinsson, fjártæknisérfræðingur ræddu bráðsniðugt lífeyristól. Sigga Ósk, nýkrýnd Ungfrú Ísland, og Manuela Ósk, keppnishaldari mættu í spjall. Óskar Einarsson, Gospelfrömuður kíkti í spjall. Jakob Frímann Magnússon settist niður með okkur.

Podcast með Sölva Tryggva
Guðni Gunnars snýr aftur

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Apr 21, 2026 74:09


https://solvitryggva.is/ Guðni Gunnarsson er lífsstílsráðgjafi og einn af helstu frumkvöðlum Íslands á sviði heilsuræktar. Guðni hefur í áratugi unnið með fólki um allan heim þegar kemur að heilsu. Hann snýr aftur í þáttinn, þar sem farið er yfir sjálfsábyrgð, leiðir til að elska sjálfan sig, mátt orða og andlega og líkamlega velferð. Þátturinn er í boði; Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/    

Palmemordet
519. Viktor Gunnarsson del 25

Palmemordet

Play Episode Listen Later Apr 21, 2026 46:34


En märklig detalj bland många med Gunnarsson är det påstådda inbrottet på en företag i Emmaboda. Vad var det egentligen som hände? Och varför är Palmeutredarna intresserade av det fem år efter att det hänt?Av och med Tobias Henricsson/PRS Media.Sponsra Palmemordet på Patreon: https://www.patreon.com/palmemordetKontakta Palmemordet: zimwaypodcast@gmail.com Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þjóðmál
#411 – Helgarvaktin með Eldi Ólafs og Þórði Gunnars – Búum til fleiri íþróttamenn

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Apr 10, 2026 98:30


Eldur Ólafsson og Þórður Gunnarsson kryfja málin í líflegu spjalli þar sem farið er yfir allt frá fótbolta yfir í alþjóðastjórnmál. Við ræðum áhugaverða könnun meðal leikmanna í Bestu deildinni þar sem yfirgnæfandi meirihluti styður hægri flokka, sem leiðir af sér kenningar um tengsl keppnisskaps og stjórnmálaskoðana. Farið er yfir pólitísku sviðsmyndina á Íslandi þar sem nýjustu kannanir sýna Framsóknarflokkinn utan þings og vaxandi óánægju með ríkisstjórnina. Aðildarumsókn að Evrópusambandinu er einnig undir smásjá og fólk er byrjað að kasta ógreiddum námslánum inn í röksemdarpakkann og fv. forsætisráðherra vill hefta frelsi fólks í atvinnulífinu til að tjá sig ef það er ekki fylgjandi aðild. Þá er farið yfir framtíðarsýn um vestnorrænt samstarf Íslands, Grænlands og Færeyja, þau tækifæri sem leynast í hrávörugeiranum á Grænlandi, stöðuna í alþjóðamálum, átökin í Íran og áhrif þeirra á olíuverð og margt fleira.

Spegillinn
Gunnar Bragi um aðildarviræður við ESB, erlendur áróður og

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 8, 2026 20:00


Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur falið lögmanni sínum að krefja utanríkisráðuneytið um gögn og samskipti vegna aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu og lúkningu hennar á þeim tíma sem hann var utanríkisráðherra. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Gunnar Braga. Þrír fjórðu aðspurðra í könnun sem gerð var fyrir fjölmiðlanefnd og Netvís um lýðræði og skautun í vetur segjast hafa orðið varir við áróðursherferðir erlendra ríkja á síðustu 12 mánuðum og langflestir segjast sjá slíkt á Facebook. Rúmur þriðjungur hefur miklar áhyggjur af að áróður erlendra ríkja hafi áhrif á kosningar eða þjóðaratkvæðagreiðslur. Rétt um helmingur segist geta séð vel í gegnum undirróðurinn. Skúli Bragi Geirdal sviðsstjóri Netvíss segir erfitt að svara hvað það er sem fólk sér þegar það segist verða vart við áróðursherferðir á netinu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Skúla Braga. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir

braga gunnarsson evr netv bragi umsj anna krist eysteinsd freyr g
Palmemordet
516. FBI om Viktor Gunnarsson del 2

Palmemordet

Play Episode Listen Later Mar 31, 2026 42:21


I förra avsnittet i den här serien skrev Gunnarsson ett brev till Ronald Reagan (!). Han följer upp det med att idag skriva till den amerikanska ambassadören i Stockholm, och det han skriver får mottagaren att höja på ögonbrynen... Dessutom: Mer information om Gunnarssons påstådda medlemskap i EAP.Av och med Tobias Henricsson/PRS Media.Sponsra Palmemordet på Patreon: https://www.patreon.com/palmemordetKontakta Palmemordet: zimwaypodcast@gmail.com Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Spegillinn
Breytt viðhorf til lögreglu - og í lögreglu; hnignun fiskistofna í hlýnandi Norðurhöfum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 30, 2026 20:03


Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, telur það ekki til marks um ótta meðal lögreglumanna þótt þeir skrifi ekki lengur undir lögregluskýrslur með nafni. Þetta merki miklu frekar að þeir vilji vernda friðhelgi einkalífs síns og fá tækifæri til að skilja lögreglubúninginn eftir í vinnunni. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir breyttar aðstæður og breytt viðhorf til lögreglustarfa við Fjölni. Viðvarandi - eða bara krónísk - hlýnun sjávar veldur mikilli og verulega uggvekjandi hnignun lífríkis í norðurhöfum, þar sem ætla má að svo lítið sem 0,1 gráðu hlýnun á áratug valdi að meðaltali um 7,2 prósenta rýrnun fiskistofna á sama tímabili. Þetta er meginniðurstaða stórrar og mikillar rannsóknar spænskra vísindamanna, þar sem rýnt er í frumgögn, niðurstöður yfir 700.000 rannsókna á afkomu nær 34.000 fiskistofna af 1.566 tegundum frá 1993 til 2021. Jónas Jónasson sviðsstjóri á Hafrannsóknastofnun ræðir þetta við Ævar Örn Jósepsson. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason

fj nandi gunnarsson helgason umsj freyr g landssambands hafranns
Bylgjan
Reykjavík síðdegis - mánudagur 30. mars 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Mar 30, 2026 72:02


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Ísak Aron Jóhannsson frá Múlakaffi er kokkur ársins og Þórir Erlingsson forseti klúbbs matreiðslumeistara Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins um olíuverðhækkanir og verðbólgu Símatími Óli Rúnar Jónsson framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar um Collab drykkinn Jóhann Páll Einarsson hjá Neytendasamtökunum um notaða bíla Tímavélin Davíð Rúnar Gunnarsson hjá Viðburðarstofu Norðurlands

Spegillinn
Kosningar í Danmörku, ESB-umræður í utanríkismálanefnd

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 25, 2026 20:00


Sósíaldemókratar - jafnaðarmenn - eru enn stærsti flokkurinn en töpuðu allra flokka mest af fylgi, 6.5 prósentum, og fengu rétt tæp 22 prósent atkvæða, sem er versta útreið sem þeir hafa fengið frá 1903. Venstre - hægriflokkurinn sem var með þeim í ríkisstjórn, tapaði líka miklu og fékk verstu kosningu frá stofnun flokksins, eða 10,1 prósent. Þriðji stjórnarflokkurinn tapaði mun minna fylgi en tapaði þó. Það breytir því þó ekki að formaður hans er með pálmann í höndunum eftir kosningarnar. Borgþór Arngrímsson segir Ævari Erni Jósepssyni hvers vegna það er. Utanríkisráðherra ítrekaði á fundi utanríkismálanefndar í morgun að hvorki formlegar né óformlegar viðræður væru hafnar við Evrópusambandið. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vildu fá öll gögn upp á borðið um samskipti við ráðamenn í Brussel, og formaður Miðflokksins vildi vita hvort forystumenn ESB vissu um hvað ætti að kjósa síðsumars. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Spegillinn
Síminn vill kaupa vísi og útvarpshluta Sýnar, Ísland hluti af málssókn á hendur Ísrael

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 12, 2026 20:00


Síminn og Sýn tilkynntu í morgun að fyrrnefnda félagið hefði hug á að kaupa Vísi.is, annan af tveimur vinsælustu fréttavefjum landsins, og útvarpsstöðva Sýnar, meðal annars FM957 og Bylgjuna. Fyrir eigendur Símans er þetta rökrétt skref á þeirri leið sem félagið hefur verið á; fyrir stjórnendur Sýnar gæti þetta verið leiðin út úr tilvistarkreppunni sem félagið hefur verið í. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Kolbein Tuma Daðason fréttastjóra Sýnar. Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag, þar sem farið er fram á að Ísrael verði dæmt brotlegt gegn alþjóðasáttmálanum um þjóðarmorð með hernaði sínum á Gaza. Ísland bættist þar með í hóp nær tuttugu þjóða, sem eiga þátt í málsókn Suður-Afríku með svokallaðri meðalgöngu. Þórdís Ingadóttir prófessor við HR er annar höfunda álitsgerðar Íslands, Ævar Örn Jósepsson talaði við hana.

Spegillinn
Hryðjuverkadómur ómerktur, kjarnavopn og öryggi þjóða

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 11, 2026 20:00


Enn sér ekki fyrir endann á hryðjuverkamálinu svokallaða eftir að Hæstiréttur ómerkti sýknudóm Landsréttar og sendi málið þangað aftur. Ómögulegt er að segja til um það hvenær endanleg niðurstaða fæst um hvort tveir Íslendingar hafi verið að skipuleggja hryðjuverk eða ekki. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir málið við Margréti Valdimarsdóttur afbrotafræðing. Hver kjarnorkuafvopnunarsamningur stórveldanna af öðrum hefur fallið úr gildi undanfarin misseri, sá síðasti, START-samningurinn hinn nýrri, í byrjun febrúar. Þá er bara einn eftir, sá fyrsti og víðtækasti, um takmörkun og í raun bann við frekari útbreiðslu kjarnavopna og minnkun kjarnorkuvopnabúra heimsins eftir því sem kostur er. Nú boða Frakkar stækkun eigin kjarnavopnabúrs - til að auka öryggi Evrópubúa. Þýðir þetta að fyrsti og síðasti gildandi kjarnavopnasamningurinn sé líka í hættu? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Guttorm Þorsteinsson, formann Samtaka hernaðarandstæðinga. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

gu hver enn gunnarsson evr margr umsj samtaka valdimarsd landsr frakkar freyr g guttorm
Þjóðmál
#401 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði Gunnars – Raddir skynseminnar fá ekki áheyrn ríkisstjórnarinnar

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Mar 6, 2026 124:24


Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir helstu fréttir og atburði vikunnar. Við ræðum um arfleið Davíðs Oddssonar, átökin í Íran, frumvarp um tengingu bóta við launavísitölu, plan ríkisstjórnarinnar sem er alls ekki að virka, fylgi flokkanna, sögur úr Eyjum, komandi átök við Fjölmiðlanefnd og margt fleira.

Spegillinn
Vargöld í friðsælli Bláskógabyggð og stríð í Íran

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 5, 2026 20:00


Júdókempa, garðyrkjufræðingur á sjötugsaldri og þrítugur Íslendingur sem nýverið var dæmdur fyrir tilraun til manndráps eru meðal sex sakborninga sem ákærðir eru fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og ræna af honum ævisparnaðinum. Martraðir eftir árásina halda vöku fyrir manninum. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. „Ég held að flestum Bandaríkjaforsetum frá írönsku byltingunni hafi langað til að ráðast inn í Íran en enginn verið nógu vitlaus til að gera það þangað til núna," segir Guttormur Þorsteinsson formaður Samtaka hernaðarandstæðinga meðal annars, aðspurður um líklegar ástæður ólöglegra árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Árásir þeirra síðastnefndu á bandarískar herstöðvar í nágrannaríkjum þeirra ættu að vekja Íslendinga til umhugsunar. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Guttorm. Stríðsrekstur hefur oft verið réttlættur með vísan til trúar og vilja guðs og virðist slík réttlæting lifa góðu lífi vestanhafs, ef marka má flóð tilkynninga undanfarna daga um málflutning bandarískra herforingja sem vísa til dómsdags og endaloka heims til að brýna hermenn í stríði við Íran. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um þetta. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

str bandar gunnarsson varg umsj samtaka anna krist guttorm freyr g guttormur
Podcast með Sölva Tryggva
#423 Guðni Gunnars með Sölva Tryggva (Áskriftarþáttur)

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Mar 4, 2026 10:01


Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Guðni Gunnarsson er lífsstílsráðgjafi og einn af helstu frumkvöðlum Íslands á sviði heilsuræktar. Guðni hefur í áratugi unnið með fólki um allan heim þegar kemur að heilsu. Hann snýr aftur í þáttinn, þar sem farið er yfir sjálfsábyrgð, leiðir til að elska sjálfan sig, mátt orða og andlega og líkamlega velferð. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/

Spegillinn
Kosningar í Danmörku, þjóðaratkvæði um Evrópusambandsviðræður

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 26, 2026 20:02


Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur kom löndum sínum á óvart í dag með því að boða til þingkosninga eftir tæpar fjórar vikur, þriðjudaginn 24. mars. Kjósendur viti fyrir hvað hún standi, sagði hún, og það, hvort hún haldi áfram sem forsætisráðherra, velti fyrst og fremst á því, hversu sterkt umboð kjósendur gefa flokki hennar, Jafnaðarmönnum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Jórunni EInarsdóttur í Danmörku og Hallgrím Indriðason fréttamann. Umræðan um mögulegar aðildarviðræður Íslendinga við Evrópusambandið komst á flug eftir að forsætisráðherra sagði stefnt að þjóðaratkvðagreiðslu um áframhald viðræðna á „næstu mánuðum." Hvað þýðir þetta - og hvað finnst stjórnarandstæðingum um það? Freyr Gígja Gunnarsson kannaði málið og ræddi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, og Ólaf Adolfsson, þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Spegillinn
Gróðureldar, ástand jökla og íslenska óperan

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 25, 2026 20:00


Þriggja daga barátta slökkviliðs Borgarbyggðar við Mýraelda árið 2006 brýndi viðbragðsaðila í að huga sérstaklega að hvernig vinna ætti á gróðureldum, segir slökkviliðsstjórinn. Hætta á þeim eykst með lengri þurrkatímabilum og breyttri búsetu í dreifbýli. Gréta Sigríður Einarsdóttir ræðir við Heiðar Örn Jónsson, slökkviliðsstjóra í Borgarbyggð. Á vef Veðurstofunnar segir að jökulárið 2024 - 25 hafi reynst jöklum landsins þungt í skauti, niðurstöður síðustu rannsókna sýni að þeir hafi rýrnað um 15 gígatonn - 15 milljarða tonna - á þessu eina jökulári. Hvað þýðir þetta fyrir stærð jöklanna og framtíð? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Hrafnhildi Hannesdóttur jöklafræðing á Veðurstofu Íslands. Íslenska óperan bauð fram sýningarrétt að ósaminni óperu um Agnesi Magnúsdóttur, væri menningarráðuneytið reiðubúið að leggja til á annan tug milljóna í veglega lokatónleika sem hún vildi halda. Þegar ráðuneytið óskaði eftir frekar skýringum á hvað fælist í slíkum sýningarrétt varð fátt um svör. Samtal er hafið um örlög Agnesar. Freyr Gígja Gunnarsson fer yfir málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Spegillinn
Samgönguáætlun, loftslagsmál, havarí í bresku hirðinni

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 19, 2026 20:00


Varaformaður Sjálfstæðisflokksins telur samgönguáætlun innviðaráðherra hafa verið afhjúpaða sem hreinræktað kjördæmapot. Þingmaður Samfylkingarinnar segir umfjöllun síðustu daga brýna þingmenn að vanda vel til verka. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Jens Garðar Helgason og Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur. Loftslagsráð Evrópusambandsins hvetur ráðamenn þar til að búa sig undir allt að 3,3 gráðu hlýnun í álfunni á þessari öld - annars sé voðinn vís. En hvað er þetta ráð og í hverju felast ráðleggingar þess? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Halldór Björnsson, fagstjóra veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands. Karlmaður á sjötugsaldri var handtekinn í morgun og húsleit gerð á heimili hans í Norfolk segir í tilkynningu lögreglunnar í Thames-dalnum á Englandi, vegna rannsóknar á misferli í opinberu starfi. Brot sem getur varðað lífstíðarfangelsi. Maðurinn er í vörslu lögreglu, ekki er vitað hvar og hann er ekki nefndur í tilkynningunni. Maðurinn er Andrew Mountbatten Windsor, betur þekktur sem Andrés prins, sem þó er ekki lengur prins. Anna Kristín Jónsdóttir reifar málið og ræðir við Sigrúnu Davíðsdóttur í Lundúnum. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Loftslagsmál, byggðakvóti og umdeildur körfuboltaþjálfari

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 18, 2026 20:00


Veðurlag hefur um margt verið óvenjulegt í vetur. Hér voru hlýindi langt fram eftir hausti en miklar froststillur og þurrkur einkenna byrjun þessa árs. Óvenju hlýtt hefur verið á Grænlandi en óvenju kalt í Danmörku og Norður-, Mið- og Austurevrópu almennt - og líka óvenjuþurrt. Í sunnanverðri álfunni hefur hins vegar gengið á með úrhellisrigningu og miklum flóðum. Að hve miklu leyti má rekja þetta til loftslagsbreytinga og hvernig er það gert? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Halldór Björnsson. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar allsherjarendurskoðun á úthlutunarkerfi almenns byggðakvóta. Þetta er gert með vísan í úttekt Ríkisendurskoðunar, þar sem kerfið er harðlega gagnrýnt. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta og ræðir við Örn Pálsson, framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda. Forsvarsmenn íþróttafélagsins Aþenu eru ósáttir við hversu langan tíma mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið sér í að afgreiða kvörtun vegna álits embættis samskiptaráðgjafa Íþrótta- og æskulýðsstarfs á þjálfunaraðferðum körfuboltaþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar. Þeir telja álitið hafa valdið Brynjari, félaginu og iðkendum óafturkræfum skaða. Freyr Gígja Gunnarsson reifar þetta mál. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Tíu Jardarnir
E254 - GW18. Playoffs byrja núna! Ft. Valur Gunnarsson

Tíu Jardarnir

Play Episode Listen Later Jan 6, 2026 99:05


Kalli, Jóli og Valur í Bolastúdíói Podcaststöðvarinnar ásamt Matta í léttölsstúdíóinu á Egilstöðum.Við siglum í átt að Wildcard Weekend! Fórum yfir heilmikið í þætti vikunnar. Black Monday þar sem árlegum uppsögnum var gefið gaum. Þeir leikir sem skiptu máli ræddir úr leikviku 18 og svo Wildcard weekend grandskoðuð og leikirnir teknir sérstaklega vel fyrir. Allt í boði Bola (léttöl) og Arena Gaming, heimili NFL á Íslandi. Redzone og góður matur alla sunnudaga!#tíujardarnir#NflÍsland

Podcast með Sölva Tryggva
Helgi Magnús með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Dec 23, 2025 94:11


https://solvitryggva.is/ Helgi Magnús Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi Ríkissaksóknari. Í þættinum fara Sölvi og Helgi yfir samfélagsmál, atburðarrásina sem leiddi til þess að Helgi fór á eftirlaun, rétttrúnað og þöggun og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/