POPULARITY
Kristinn Sigmundsson ætlaði sér lengi vel alls ekki að verða söngvari. Faðir hans var lengst af á sjó, mamma hans líka útivinnandi og sem strákur gerði hann mikið af því að passa bróður sinn og dorga niðri á höfn. Foreldrar þeirra lögðu áherslu á að bræðurnir fengju góða menntun og leið Kristins lá í Menntaskólann við Hamrahlíð, þar sem hann var plataður í kórinn hjá Þorgerði Ingólfsdóttur, en hélt svo í háskólanám í líffræði. Þrítugur lauk hann prófi frá Söngskólanum en eftir að hann tók skrefið út í heim fékk hann fljótlega fastráðningu við óperuna í Wiesbaden í Þýskalandi. Þaðan lá leiðin sífellt hærra, og áður en langt um leið var Kristinn farinn að syngja í velflestum stærstu óperu- og tónlistarhúsum heims. Líklega gera margir sér ekki grein fyrir hversu tilkomumikill ferill Kristins er. Sjálfur er hann lítillætið og hógværðin uppmáluð, rólyndismaður sem elskar fátt meira en ljóðsöng og fluguveiði og leitar í íslenska náttúru í huganum, mitt í skarkala erlendra stórborga. Stórsöngvarinn Kristinn Sigmundsson er gestur Svipmyndar í Víðsjá dagsins. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Listakonan Inga Elín hefur frá unga aldri tileinkað líf sitt listinni. Ástríða Ingu á keramík hófst í Myndlistaskóla Reykjavíkur og elti hún draum sinn um að verða listamaður og hönnuður í Listháskóla Íslands. Þaðan var förinni heitið til Kaupmannahafnar þar sem hún stundaði nám við Skolen for Brugskunst sem er betur þekktur í dag sem Denmark Design. Í byrjun árs 2020 enduropnaði Inga Elín verslun sína við Skólavörðustíg eftir 25 ára fjarveru og í þetta skiptið með syni sínum Kristni Ísaki, sem sér um skipulags- og markaðsmál fyrirtækisins. Við heimsóttum Ingu Elínu og Kristinn á vinnustofuna út á Granda. Það er mánudagur og þá eru fjármálin á mannamáli á dagskrá í þættinum og Georg Lúðvíksson sérfræðingur í heimilisbókhaldi kom til okkar og hélt áfram að fræða okkur. Í sinn talaði Georg um utanaðkomandi áhrif sem hafa áhrif á okkur og okkar fjármálahegðun, eins og til dæmis verðbólgu, hrun og svo framvegis. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Sigríður Rún Tryggvadóttir, prófastur í Austurlandsprófastsdæmi og prestur í Egilsstaðaprestakalli. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfunda hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigríður talaði um eftirfarandi bækur og höfundar: Játning e. Ólaf Jóhann Ólafsson Þessir djöfulsins karlmenn e. Andrev Walden Guð hins smáa e. Arundhati Roy Veisla undir grjótvegg, smásögur e. Svövu Jakobsdóttur og svo var það bók bókanna, Biblían. Tónlist í þættinum í dag: Bíttu í það súra / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason) Byrjaðu í dag að elska / Geirfuglarnir (Rokkmúsirnar) Það er svo ótalmargt / Ellý Vilhjálms (Jackie Smith, Derry Lindsay, texti Jóhanna G. Erlingsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Þriðjudagur 11. febrúar Stjórnmálaátök, karlmennska, íslenskan, réttindi fatlaðra, píanókeppni og Marmarabörn Við ræðum um stjórnmálaátökin á þinginu og í borgarstjórn, Ágúst Bjarni Garðarsson, fráfarandi þingmaður, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, prófessor, Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og Gunnar Smári Egilsson, blaðamaður spjalla við Sigurjón Magnús. María Lilja veltir fyrir sér karlmensku á krossgötum og fær til sín turnana tvo Frosta Logason, fjölmiðlamann og Þorstein V. Einarsson, kynjafræðing sem hafa tekist á í gegnum árin og þau leita af samnefnara til að bæta megi líðan karla í samfélaginu og mögulega spyrna gegn ofbeldi. Við ræðum um ögrandi áskorun varðandi innflytjendur á Íslandi: Tölum fokking íslensku. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, almannakennari og aðjúnkt í HÍ kemur frá Ísafirði og segir okkur frá afstöðu sinni til íslensku sem annars máls, ræðir hugtakið almannakennari og mikilvægi samfélagslegrar þátttöku í máltileinkun í spjalli við Oddnýju Eir. Brandur Bryndísarson Karlsson lamaðist fyrir neðan háls fyrir rúmum tíu árum síðan. Hann er í dag mikill baráttumaður fyrir réttindum fatlaðra milli þess sem hann sinnir myndlistinni og ferðast en hann er nýkominn heim eftir að hafa ferðast um Nepal öðru sinni. Brandur ræðir takmarkanir vegna fötlunar, myndlistina og ferðalög við Maríu Lilju. EPTA-píanókeppninni sem átti að halda í næsta mánuði í Salnum í Kópavogi hefur verið frestað með skömmum fyrirvara vegna peningaskorts og hringlandaháttar stjórnvalda. Þrír píanókennarar sem allir tengjast keppninni, Ólöf Jónsdóttir, Kristinn Örn Kristinsson og Birna Hallgrímsdóttir ræða málin við Björn Þorláksson. Marmarabörnin Sig¬urð-ur Ar¬ent Jóns¬son og Saga Kjerúlf Sigurðardóttir ræða við Gunnar Smára um sýninguna Árið án sumars, dans-tilraunaleikhús á stóra sviði Borgarleikhússins.
Rætt er við þá Kristinn Pál Guðmundsson og Össur Brynjólfsson sem stofnuðu ásamt þremur öðrum fyrirtækið V-ONE þegar kóvid gekk yfir. Stofnendur félagsins sem allir hafa yfirgripsmikla reynslu og þekkingu í þjálfun flugmanna settu á fót flugskóla til að þjónusta erlend flugfélög. Nú örfáum árum síðar hefur fyrirtækið markað sér gott orðspor á alþjóðlegum vettvangi og stærstu kúnnar þess eru flugfélögin DHL Bahrein og DHL Austria. Velta fyrirtækisins hefur vaxið stöðugt síðustu misserin og á árinu 2024 var V-ONE með um 2000 kennslustundir í flughermum Icelandair/CAE í Hafnarfirði. Þá eru umsvif viðskiptavina V-one hérlendis umtalsverð í keyptri þjónustu á hverju ári. Kristinn Páll og Össur segja sér frá tilurð V-One og hvernig þeir sjá fyrir sér að fyrirtækið geti vaxið enn frekar á næstu árum.
Kristinn R. Þórisson er viðmælandi Lestarinnar í dag. Hann er prófessor við Háskólann í Reykjavík og hefur fengist við rannsóknir á gervigreind í áratugi. Við ræðum við hann um DeepSeek, nýtt kínverskt gervigreindartól, spjallmenni sem gerir það sama og ChatGPT, sem hefur verið mikið í fréttum undanfarna daga. Þegar við gerðum heilan Lestarþátt með gervigreind fyrir tveimur árum tókum við viðtal við Kristinn. En hvað hefur gerst á þessum tveimur áðum síðan þá? Er allt breytt? Eða nokkurn veginn eins? Við ræðum líka átökin í Silicon Valley, Trump og kapphlaup stórveldanna, Bandaríkjanna og Kína.
Gestur minn þessa vikuna er Kristinn Rúnar Kristinsson, LA Kröddz. Kristinn er mikill baráttumaður fyrir geðheilbrigðismálum og hefur hann gert frábæra hluti. Hann er einnig rithöfundur, ritstjóri, fyrirlesari og margt fleira. Það var gott, gaman, yndislegt, valdeflandi, áhugavert og fræðandi að spjalla við Kidda. Þú ert frábær! Ást og friður.
Samfélagið sendir út frá Þjóðarbókhlöðunni í Reykjavík, kynnir sér Kvennasögusafnið og fleira á fyrstu hæð byggingarinnar en fær líka að sjá vistarverur drauga og rannsaka harðlæsta hvelfingu í kjallaranum. Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður, ræðir umferðaröryggi, hraðasektir og jólin við Ásmund Kristinn Ásmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi. Tónlist: BOB DYLAN & THE BAND - Odds and Ends (Take 2).
Laugardagurinn 19. október Helgi-spjall: Kristinn Sigmunds Kristinn Sigmundsson segir okkur frá ferð sinni um lífið og óperuheiminn, hvernig tilviljanir og heppni ráða oft mestu í lífinu og hvernig best er að sætta sig við það og njóta.
Ívar Kristinn Jasonarson, sérfræðingur hjá Loftslagi og grænum lausnum, segir okkur frá hringrásarhagkerfinu. Hvernig fellur starfsemi Landsvirkjunar að því?
Kristinn Már Gunnarsson forstjóri Baridi Group og frumkvöðull af Guðs náð.Baridi Group er tansanískt félag stofnað árið 2022 af Kristni.Félagið vinnur að uppbyggingu auðlindanýtingar í Tansaníu.
Ísak Óli og Sindri Kristinn by Fimleikafélagið
ClubDub-arinn og athafnamaðurinn Aron Kristinn mætti til okkar í kærkomið spjall, stútfullt af pælingum og vísdómsorðum. Hann er upplýstur, hann horfist í augu við óttann, hann tekur ákvarðanir og stendur við þær. Eitthvað fyrir alla í þessu eyrnakonfekti úr smiðju Undralandsins. Verið góð hvert við annað.
Kæru hlustendur, Takk fyrir tímabilið! Nýafstaðið tímabil er eitthvað sem gleymist aldrei, stórar sögulínur bæði innan vallar og utan. Dramatík og frábær körfubolti, skemmtilegir leikmenn og mikil dramtík. Endalínan valdi fimm stærstu sögulínur tímabilsins og þær eru: 5. Sveiflur. Sjaldan eða aldrei höfum við séð jafn mikinn mun á milli spá sérfræðinga og loka niðurstöðu í deildinni. 4. Umgjörðin. Umgjörðin í úrslitakeppninni var rosaleg! En hvernig teygjum við þessa gleði og þessa stemmingu inn í tímabilið. 3. Þjálfarar/Njarðvík. Það voru ótrúlega margar frábærir þjálfarar á þessu tímabili, þar má segja að sveiflurnar á milli spá sérfræðinga og að loka niðurstöðu hafi Benedikt Guðmundsson troðið sokkum og náði frábærum árangri í Njarðvík. 2. Kiddi Páls og Valur. Kristinn Pálsson kom heim fyrir tímabilið og sýndi svo sannarlega hvað hann er góður. Frábært tímabil hjá Kidda og Val! 1. GRINDAVÍK! Númer eitt kom ekkert annað til greina Grindavík. Það er ekki nokkur leið fyrir utanaðkomandi að setja sig í spor þessa fólks. Byrjuðu snemma að setja saman frábært lið, koma Kane til landsins, erfið byrjun, rýming, Smárinn, frábært run og svo ein stærsta úrslitakeppni sem maður hefur orðið vitni af. Ingibergur formaður Grindavíkur kom til okkar og fór aðeins yfir hugarheim Grindvíkinga og framtíðar áform.
Kristinn Johnson framkvæmdastjóri Eirberg er gestur Heilsuvarpsins. Eirberg selja vörur sem efla heilsu, auka lífsgæði, auðvelda störf og daglegt líf. Undir þeim hatti eru ALTRA hlaupaskór sem og Vivo barefoot skór. Umfjöllunarefni þáttarins er hvernig skór eru bestir í hlaup, göngur sem og daglegt líf. Mjög fróðlegur þáttur fyrir alla sem vilja gefa fótunum sínum alla ást sem þeir eiga skilið með hágæðaskóm. @eirberg Heilsuvarpið er í boði Nettó og Now á Íslandi @nowiceland @netto.is
Tvígrip karfan kortlögð 8. þáttur 1996-1997 Starfsmenn Tvígrips gerðust heimsborgarar og hringdu til USA og töluðu við Damon Johnson um tímann sinn á Íslandi. Breytt fyrirkomulag á Íslandsmótinu, ný keppni og nýr formaður KKÍ. Gaui þorsteins fór yfir körfuboltann fyrir Vestan og tenginguna við KR. Körfuboltamenn í eldri kantinum fara í atvinnumennskuna, Grindvíkingar kærðu og voru kærðir. Örvars-hornið á sínum stað. Opið bréf enn og aftur frá Grindvíking. Siggi Ingimundar kíkti í spjall sem og Kristinn Óskarsson dómari og fór yfir störf dómara þá og nú. Einnig kom Kiddi með skemmtilegar sögur af sérkennilegum leikjum. Þjálfarar og leikmenn reknir eins og venjulega svo voru leikmenn settir í agabönn, sumir fyrir það að djamma með fótboltaliði bæjarins. KR-ingar í hremmingum með liðið sitt.Podcast Körfunnar er kostað af Lengjunni, Subway, Lykil, Kristal og Tactica.
Tvígrip: Karfan körtlögðTímabilið 1995 til 1996 / Fyrri hlutiPétur Guðmundsson í Tindastól, Ingólfur Hannesson lætur KKÍ heyra það en Pétur Hrafn svaraði fullum hálsi. Var þáttastjórnandi Tvígrips svikinn um miða á NBA leik í London eða var það bara misskilningur? Ef leikmaður er í banni má hann ekki sitja á bekknum? Héldu KR-ingar að þeir yrðu Íslandsmeistarar eftir 9 umferðir? Herbert Arnars á línunni, en þar fer hann yfir víðan völl. Við hringjum einnig í Paxel sem fer vel yfir úrslitakeppnina ásamt Örvars-horninu þar sem Örvar segir frá miður skemmtilegu atviki á Valsmótinu. Kristinn rekinn, Axel rekinn, Hreinn rekinn og Burns rekinn ásamt fleirum. Podcast Körfunnar er kostað af Lengjunni, Subway, Lykil, Kristal og Tactica.
Í þættinum eru leikin lög úr ýmsum áttum, ný og gömul. Fyrsta lagið heitir Draumsýn og er eftir Hörpu Þorvaldsdóttur. Hún syngur það með saxófónleikaranum Kristni Svarssyni og félögum. Hún syngur tvö frumsamin lög til viðbótar með hljómsveitinni Brek, en það eru lögin Athvarf og Soaring Crow. Kristinn Svavarsson og Kristjana Stefánsdóttir flytja lagið Í fjarska eftir Kristinn og hann leikur svo lagið Samferða eftir Magnús Eiríksson. Pálmi Gunnarsson syngur tvö lag, annarsvegar Ég skal breyta heiminum og hinsvegar Í tímavél. Síðan syngur Mjöll Hólm lögin Gamli rokkarinn og Vornætur eftir Ingva Þór Kormáksson og lokalagið er Næturljóð - Gleymdu því aldrei góð sem Hjördís Geirsdóttir syngur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Eu queria ter uma tatuagem igual dos Yakuza, você queria ter "gratidão" escrito no pulso. Não, não somos iguais.. Separe trinta minutos do seu dia e aprenda com o professor Vítor Soares (@profvitorsoares) sobre o que é a Yakuza. - Se você quiser ter acesso a episódios exclusivos e quiser ajudar o História em Meia Hora a continuar de pé, clique no link: www.apoia.se/historiaemmeiahora - Compre nossas camisas, moletons e muito mais coisas com temática História na Lolja! www.lolja.com.br/creators/historia-em-meia-hora/ - PIX e contato: historiaemmeiahora@gmail.com Apresentação: Prof. Vítor Soares. Roteiro: Prof. Vítor Soares e Prof. Victor Alexandre (@profvictoralexandre) REFERÊNCIAS USADAS: - ÁRNASON, Kristinn. Yakuza: History of the Yakuza. - KAPLAN, David E.. Yakuza: Japan 's Criminal Underworld - Um breve olhar sobre a história da Yakuza no Japão | Coisas do Japão - A História dos Yakuza no Japão | Nerdologia Criminosos (@filipefigueiredoXV)
Við kynnumst starfsemi Grænna skáta, þið kannist kannski við flöskugáma þeim merktum, starfsemin er umfangsmikil, tvær móttökustöðvar, þrjátíu starfsmenn flestir með skerta starfsgetu og milljónir dósa, að sjálfsögðu - þetta er ógurlegt umstang en fer langt með að fjármagna skátastarf á Íslandi. Við ræðum við Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóra, Júlíus Aðalsteinsson, rekstrarstjóra og fleiri. VIð ræðum við Auði Ottesen á Selfossi. Hún er garðyrkjufræðingur og smiður og formaður samtakanna Umhverfi og vellíðan. Auður ætlar að segja okkur frá áhugaverðu verkefni sem snýr að lóðum fjölbýlishúsa. Möguleikum á matjurtaræktun við fjölbýlishús og rannsóknir sem tengjast þeim. Við heyrum eina málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall.

Í dag er Kennaradagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim og þá verður tilkynnt um hverjir eru tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna í ár. Árlega er óskað eftir hugmyndum að tilnefningum frá almenningi og er verðlaunað fyrir fjóra flokka: Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur, framúrskarandi kennari, framúrskarandi þróunarverkefni og framúrskarandi iðn- eða verkmenntun. Gerður Kristný rihöfundur og ljóðskáld er formaður nefndar um Íslensku menntaverðlaunin og hún kom í þáttinn í dag og greindi frá því í beinni útsendingu hverjar tilnefningarnar í ár eru. Nýja íslenska heimildamyndin Konungur fjallanna var sýnd í kvikmyndahúsum í september og svo hér á RÚV í sjónvarpinu 24. september þar sem hún fékk mikið áhorf. Í myndinni er fylgst með Kristni Guðnasyni fjallkóngi og gangnamönnum í leitum á Landmannaafrétti. Í myndinni er gefin raunsönn mynd af leitum og samspili manna, dýra og náttúru. Fjallkóngurinn sjálfur, Kristinn kom í spjall í þáttinn í dag. Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert, hér á landi var fyrst haldið upp á hann árið 1996. Í ár verður dagskrá í Bíó Paradís, sem sagt næsta þriðjudag kl.14 , þar sem haldin verða ávörp, fyrirlestrar og skemmtiatriði. Við fengum Orra Hilmarsson, formann dagsins hér á landi í viðtal í dag. Tónlist í þættinum í dag: Fly Me to the Moon / Hljómar (Hljóðritað í Útvarpssal Skúlagötu 4, þann 9. október 1963. Upptaka gerð fyrir óskalagaþáttinn Lög unga fólksins, fyrst heyrist Einar Júlíusson, þáverandi söngvari, kynna alla hljómsveitina.) Hey love / Marína Ósk (Marína Ósk Þórólfsdóttir) Snert hörpu mína /Edda Heiðrún (Atli Heimir Sveinsson og Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Miss Chatelaine / KD Lang (KD Lang og Ben Mink) Mississippi / The Cactus Blossoms (Torrey) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Kristinn Sigmarsson er ungur maður sem hefur sérhæft sig í öllu sem snýr að heilsu og bættum lífsstíl. Eftir að hafa ætlað að taka eigið líf aðeins 15 ára gamall lagði hann allt í sölurnar til að finna hamingjuna og starfar nú við að hjálpa fólki. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Heilsubarinn - https://www.heilsubarinn.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er markvörður FH í Bestu deild karla Sindri Kristinn Ólafsson. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
Spegillinn 18. apríl 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Þorbjörn Gísla Kolbrúnarson. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Erlent flutningaskip strandaði við Ennishöfða á Húnaflóa í dag. Magnús Pálmar Jónsson stýrimaður og sigmaður hjá Landhelgisgæslunni segir áhöfnina bera sig vel og ekki þörf á að flytja fólk frá borði. Ekki verður reynt að losa skipið í kvöld. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við Magnús. Búið er að lóga öllu fé á bænum Syðri-Urriðaá í Miðfirði og setja hræin í lekahelda gáma segir Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir, urðunarstaður finnist vonandi fljótlega. Benedikt Sigurðsson talaði við hana. 1.373 börn fengu leikskólapláss á borgarreknum leikskólum Reykjavíkur í fyrsta hluta, úthlutunar ársins. Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar telur þetta á pari við síðustu misseri. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við Helga. Mörg hundruð manns koma að undirbúningi fundar Evrópuráðsins sem verður í Reykjavík í maí segir Rósa Björk Brynjólfsdóttir verkefnisstjóri alþjóðamála hjá forsætisráðuneytisins. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við Rósu. Kristinn starfsmaður bandarísku póstþjónustunnar USPS krefst þess að fá að halda hvíldardaginn heilagan. Krafa hans verður tekin fyrir í hæstarétti Bandaríkjanna í dag, og gæti niðurstaða hans haft mikil áhrif á réttindi starfsmanna á vinnustöðum. Róbert Jóhannsson tók saman. ------------ Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti Alþýðusambands Íslands er nokkuð bjartsýnn að á þingi þess í næstu viku takist félögum að ná saman þó að vissulega sé ágreiningur um ýmis mál hjá sambandinu. Öllu skipti ap ASÍ geti sem heild unnið saman að brýnum verkefnum. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Það styttist í fund Evrópuráðsins í Reykjavík. Fundinum fylgir mikil öryggisgæsla og umstang, Bjarni Rúnarsson sagði frá og rifjaði upp leiðtogafundinn í Höfða 1986. Glefsur með Ingva Hrafni Jónssyni, Gunnari Kvaran og Ómari Ragnarssyni. Leiðtogar Skoska þjóðarflokksins voru boðaðir til fundar í skyndi eftir að lögregla greindi frá því 71 árs karlmaður væri í haldi vegna rannsóknar á fjármálum og fjármögnun flokksins. Colin Beattie gjaldkeri flokksins var reyndar ekki nafngreindur, en engin fór um grafgötur um að hann væri sá handtekni. Ásgeir Tómasson tók saman. Nýkjörinn leiðtogi Skoska þjóðarflokksins og fyrsti ráðherra heimastjórnarinnar, Humza Yousaf, varð klumsa við fréttirnar.

Í Víðsjá dagsins: samtal um myndlist og tímann og tilfinningar í Íslendingasögum. Í Hverfisgalleríi var opnuð á laugardag sýningin allt er nálægt þar sem finna má ný og nýleg verk eftir Kristinn Hrafnsson. Verkin hafa öll með sjálfan tímann að gera, hvernig hann streymir áfram á sínum skrykkjótta hraða, hvaðan hann kemur og hvert hann fer. Við hittum myndlistarmanninn í galleríinu. Við veltum líka fyrir okkur tilfinningum í Íslendingasögum, að gefnu tilefni. Að springa af stríði: Sorg og sársauki í Íslendingasögunum er yfirskrift erindis sem Sif Ríkharðsdóttir prófessor í almennri bókmenntafræði flytur í Neskirkju á morgun - þar fjallar hún um tilfinningar í þessum sagnaarfi Íslendinga og beinir sjónum sínum sérstaklega að birtingarmynd sorgar og sársauka. Þetta hefur verið rannsóknarefni hennar ásamt fleirum af fræðasviðinu, tilfinningarannsóknir á miðaldatextum þar sem tilfinningar eru skoðaðar í sögulegu samhengi. Umsjón með Víðsjá hafa Jóhannes Ólafsson og Guðni Tómasson. Ath. Rangt var farið með nafn Kristins í þættinum og beðiðst er velvirðingar á því. Tónlist: Tom Waits - Time.

Hlynur Kristinn Rúnarsson er stofnandi samtakann Það er von Markmið þeirra er að vinna gegn fordómum, skömm og vekja von hjá þeim sem glíma við fíknisjúkdóma og gefa annað tækifæri í lífinu. Hlynur á sjálfur ótrúlega sögu af bata en hann hefur verið edrú í næstum 4 ár. Hann er nýútskrifaður með BS í lögfræði og er nú í mastersnámi. Heilsuvarpið hvetur alla til að gerast Vonarliðar og leggja samtökunum lið og hjálpa að gefa fólki með fíkn nýja von. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Heil og sæl. Í dag förum ég og Kristinn Hjartarson yfir víðan völl í sportinu. Íslenska landsliðið í fótbolta er til umfjöllunar en þættinum barst bréf og Kristinn svarar fyrir sig. Við tölum um meistaradeildina í fótbolta, evrópudeildina, enska boltann, ítalska boltann og þann spænska. Þá spáum við í bikarúrslitin í handbolta sem eru á morgun og sitthvað fleira. Njótið helgarinnar.
Mikið hefur verið fjallað um húsnæðiskostnað undanfarið, sem er kannski ekki skrýtið nú á tímum verðbólgu, hárra vaxta og hækkandi leigu. Við fræddumst um samtökin Búsetufrelsi, sem eru sem sagt hagsmunasamtök fólks með búsetu í heilsárshúsi í frístundabyggðum Grímsnes- og Grafningshrepps. Sem sagt fólk sem býr í heilsárshúsi eða frístundahúsi og hefur þar sitt aðal heimili. Stofnfélagar samtakanna voru 10 þegar félagið stofnuð fyrir tæpu ári, en í dag eru félagar orðnir 70. Heiða Björk Sturludóttir, formaður Búsetufrelsis, kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um félagið. Nú er í garð genginn tíma aðalfunda í húsfélögum í fjölbýlishúsum. Þá ber að halda einu sinni á ári, fyrir lok apríl. Þar eru teknar ákvarðanir um hagsmuni og mál sem geta haft í för með sér mikla skuldbindingar og fjárútlát. Því er eins gott að vanda til verka og Tinna Andrésdóttir, lögfræðingur hjá Húseigendafélaginu, kom í þáttinn og fór með okkur yfir það helsta sem hafa ber í huga og hvað er gott að varast í aðdraganda og framkvæmd á slíkum húsfundum. Næst síðustu tónleikar í verkefninu Ár íslenska einsöngslagsins, þeir sjöundu í röðinni í vetur fara fram að sunnudeginum 19. Mars. Á tónleikunum er bæði þekktum og minna þekktum íslenskum einsöngslögum gert hátt undir höfði. Ein forsenda þessarar tónleikaraðar er hátíðarútgáfa á Íslenskum einsöngslögum, alls 289 lög eftir 66 tónskáld, samin á árunum 1918?2018, sem kom út í tilefni fullveldisafmælis þjóðarinnar 1. desember 2018. Það var forlagið Ísalög og eigandi þess, Jón Kristinn Cortez, sem annaðist útgáfuna og hlaut hann íslensku fálkaorðuna fyrir verkið. Jón Kristinn kom í þáttinn í dag. Tónlist í þættinum í dag Perlur og svín / Emilíana Torrini (Ólafur Gaukur Þórhallsson og Hallgrímur Helgason) Litlir kassar / Þokkabót (Pete Seeger og Þórarinn Guðnason) Augun þín blá / Katrín Halldóra Sigurðardóttir (Jón Múli og Jónas Árnasynir) Íslenskt vögguljóð á Hörpu / Garðar Cortez (Jón Þórarinsson og Halldór Laxness) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

ÖRLÖ er samstarfsaðili Karlmennskunar sem býður upp á hlaðvarpið og fræðslumiðlun á samfélagsmiðlum. Í þessum aukaþætti Karlmennskunnar ætlum við að fræðast um hvað ÖRLÖ er, hvað er svona merkilegt við þeirra vörur og framleiðslu og hvers vegna VAXA technologies (sem framleiða ÖRLÖ) vilja tengjast Karlmennskunni. Hörður Águstsson sölu- og markaðsstjóri og Kristinn Hafliðason framkvæmdastjóri VAXA Thecnologies útskýra þetta nánar. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Þessi aukaþáttur er kostaður af ÖRLÖ. Þú færð 20% afslátt með kóðanum „karlmennskan“ inni á ÖRLÖ.IS
Það ætti ekki að hafa farið framhjá mörgum að 50 ár voru liðin frá upphafi eldgossins í Heimaey þann 23.janúar. Gosið setti líf Vestmannaeyinga í uppnám, heilu fjölskyldurnar þurftu að yfirgefa heimili sín með hraði og skilja megnið af aleigunni eftir. Um tveimur vikum eftir að gosið hófst hóf göngu sína útvarpsþáttur í Ríkisútvarpinu sem kallaðist Eyjapistill. Þátturinn var í loftinu í rúmt ár og urðu þættirnir alls tvöhundruð sextíu og einn. Í þeim voru til dæmis tekin fjölbreytt viðtöl tengd gosinu og Vestmannaeyjum, það voru birtar tilkynningar um týnda muni, sagðar fréttir af fólki og þróun mála í gosinu og spiluð tónlist. Við fengum þá bræður, Arnþór og Gísla Helgasyni, sem voru umsjónarmenn Eyjapistilsins, í þáttinn til að rifja upp þennan merkilega tíma og þættina, auk þess sem við fengum að heyra brot úr Eyjapistlinum í þættinum í dag. Rannsóknir sýna að sú andlega og tilfinningalega vinna sem fylgir því að skipuleggja heimilislíf, sem sagt önnur og þriðja vaktin, veldur ofálagi. Bent hefur verið á í því sambandi að þessi vinna sé ósýnileg, óþekkt og vanmetin, sem rekja megi til þess að úrelt kynjaviðmið séu enn við líði í nútíma samfélagi. Haukur Þór Stephensen og Helgi Már Friðgeirsson, nemendur í viðskiptafræði með áherslu á verkefnastjórnun við Háskólann á Bifröst, skrifuðu ritgerð um hversdagslega verkefnastjórnun og notkun hennar til að jafna verkaskiptingu hvað varðar aðra og þriðju vaktina. Markmið ritgerðarinnar var að skyggnast inn í og einangra þá þætti í lífi íslenskra fjölskyldna sem verkfæri verkefnastjórnunar geta auðveldað og aukið á jafnari dreifingu verkefna milli fjölskyldumeðlima. Þeir Haukur og Helgi sögðu okkur frá þessari rannsókn og fræddu okkur líka í byrjun hreinlega um hvað önnur og þriðja vaktin eru, því það vita það ekki allir. Tónlist í þættinum í dag Vestmannaeyjar / Gísli Helgason (Arnþór Helgason) Heimaslóð / Ási í Bæ (Alfreð Washington Þórðarson og Ástgeir Kristinn Ólafsson) El duende / Egill Ólafsson og Ellen Kristjánsdóttir (Egill Ólafsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Þetta rauða, það er ástin er nýjasta skáldsaga Rögnu Sigurðardóttur. Söguhetju bókarinnar, Elsu, langar að mála og stefnir að því af miklum metnaði þótt fyrirmyndirnar séu fáar um miðja 20. öld. Við ræðum við Rögnu í þætti dagsins, um Elsu og stöðu kvenna á þessum tíma, þögninga sem var fylgifiskur áfalla og ábyrgð listamanna á tímum þegar myndlistin var upp á líf og dauða. Í byrjun desember opnuðu þrjár nýjar sýningar á Listasafninu á Akureyri. Ein þeirra ber titilinn Málverk og er sýning á verkum Kristins G. Jóhannssonar. Ferill Kristins spannar nokkra áratugi en hann hélt sína fyrstu myndlistarsýningu árið 1954. VIð lítum í heimsókn á vinnustofu Kristins í þætti dagsins. Og Sölvi Halldórsson rýnir í Skurn , eftir Arndísi Lóu Magnúsdóttur.

705.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri ég í tveimur aðilum. Fyrst er það Svanvhít Valtýsd. og við tölum um leikinn á HM í gær og leikinn í kvöld. Við tölum einnig um leik Vals og Ystads í Evrópudeildinni og förum aðeins í fréttir og slúður og svo hringi ég í Kristin Hjartarson. Við tölum um Marokkó sem mætir Frakklandi á HM í kvöld. Kristinn er nefnilega ansi fróður um þá þjóð og kemur með eina sturlaða staðreynd um HM. Njótið.
Entrevista en La FM con Kristinn Hrafnsoon, editor general y portavoz de WikiLeaks sobre reunión con Gustavo Petro
solvitryggva.is Kristinn Sigmarsson er ungur maður sem hefur sérhæft sig í öllu sem snýr að heilsu og bættum lífsstíl. Eftir að hafa ætlað að taka eigið líf aðeins 15 ára gamall lagði hann allt í sölurnar til að finna hamingjuna og starfar nú við að hjálpa fólki.
AB VARAHLUTIR - TÆKJAFLUTNINGAR NORÐURLANDS - BÍLJÖFUR - BÍLAPUNKTURINN - OLÍS Bragi fékk til sín þá Kristinn Sveinsson og Heimi Snæ Jónsson sem að kepptu saman í Jepparallinu. Báðir hafa þeir lengi keppt í ralli en þetta var glæný áskorun. Mynd: Gamli Feiti Bitri Gaurinn
Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra vill fjölga þyrluflugmönnum hjá Landhelgisgæslunni. Það sé óboðlegt að ekki sé hægt að manna áhöfn vegna veikinda starfsmanns. Alma Ómarsdóttir ræddi við hann. Herinn á Sri Lanka hefur fengið fyrirmæli um að skjóta alla sem staðnir eru að verki við lögbrot. Skálmöld er í landinu og útgöngubann, sem stjórnarandstæðingar virða að vettugi. Ásgeir Tómasson tók saman. Kristinn Þorsteinsson, formaður Skólameistarafélags Íslands telur að skólayfirvöld í Flensborgarskóla hafi brugðist eðlilega við líkamsárás á árshátíð skólans í mars. Möguleikar til að reka nemendur séu takmarkaðir. Urður Örlygsdóttir talaði við hann. Maður sem hafði benslað fjöldann allan af rafhlaupahjólum í Reykjavík gaf sig fram við fyrirtækið Hopp í dag og kvaðst hafa gert þetta í mótmælaskyni. Sunna Karen Sigurþórsdóttir talaði við Sæunni Ósk Unnsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Hopps. Á Íslandi hafa um þrjú hundruð manns greinst með lupus. Alþjóðlegum degi sjúkdómsins er ætlað að vekja á honum athygli og vonir standa til að það geti flýtt fyrir greiningum og auðvelda líf þeirra sem af honum þjást. Rebekka Líf Ingadóttir talaði við Hrönn Stefánsdóttur, formann Lupus-hóps Gigtarfélags Íslands. Systur freista þess að komast áfram í Júróvisjón í kvöld. Urður Örlygsdóttir tók saman og talaði við Ellen Kristjánsdóttur og Eyþór Gunnarsson foreldra Systra. ---- Hlutabréf féllu í kauphöllum víða um heim og líka á Íslandi í gær. Stýrivextir voru hækkaðir í síðustu viku um eitt prósentustig og litlar horfur á að þeir lækki í bráð. Seðlabankinn spáir því að verðbólgan sem var 7,2% í síðasta mánuði gæti farið í 8% í haust og líkur á að enn þurfi að herða tökin til að hemja verðbólgu. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, játar því bæði og neitar að við stöndum á tímamótum í efnahagsmálum. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa fundið tengsl áður óþekktra erfðabreytileika við iktsýki í stærstu erfðarannsókn sem gerð hefur verið á sjúkdómnum. Hafdís Helga Helgadóttir settist niður með Sædísi Sævarsdóttur og Ingileif Jónsdóttur. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Gísli Kjaran Kristjánsdóttir.

Það er farið að vora, bikarinn er farinn af stað og liðin að klára sinn undirbúning fyrir Íslandsmót. Það er því ekki seinna vænna að hita upp fyrir boltann á Norðurlandi í sumar og nákvæmlega það gerðu þeir Egill Sigfússon og Sæbjörn Steinke. Rætt var við Völsunginn Jóhann Kristinn og Sauðkrækinginn Donna. Þá var rætt um hin liðin á Norðurlandi og rýnt í stöðu þeirra. Fyrsti leikur KA fer fram á Dalvík eftir rúma viku, Þórsarar komnir með nýjan þjálfara í brúna og Þór/KA fengið stórar og þekktar stærðir aftur heim.
Today's guest is Kristinn Gylfason, Compliance Officer at Sidekick Health and a lawyer who specializes in privacy.Sidekick Health was founded by two doctors, who worked for years treating patients with lifestyle-related illnesses. They explored ways to prevent chronic illnesses, help patients manage them, and improve their quality of life. Sidekick Health combines strong clinical validation with gamification, behavioral economics, and artificial intelligence (AI) to deliver engaging and personalized patient experience.Previously, Kristinn worked as a consultant focusing on General Data Protection Regulation (GDPR) before joining Sidekick Health in November 2019. Since then, he has focused on registering Sidekick Health as a manufacturer of medical devices. In doing so, Kristinn has gotten involved more with quality matters. Sidekick Health's platform is rated in the top 0.1% in quality by ORCHA, which has more than 30,000 users and clinical validation and successful customer launches across multiple therapeutic areas – ranging from type 2 diabetes to ulcerative colitis.Key Takeaways:How to enter new marketsWhy quality is important for Software as a Medical Device (SaMD) companiesHow to scale your business while keeping culture top of mind Show Notes: Kristinn Gylfason on LinkedInSidekick HealthGeneral Data Protection Regulation (GDPR)FDA - SaMD FDA - Classify Your Medical DevicePfizerORCHAeHealth Award 2020No Rules RulesApplication to be on the show: From Lab to LaunchQualioMusic by keldez
Fimmtíu mega koma saman frá og með morgundeginum og 200 á lista- og íþróttaviðburðum. Opnunartími kráa og veitingastaða verður lengdur en vertar hefðu viljað ganga lengra. Engin tilfelli inflúensu hafa greinst hér á landi í ár og hún hefur heldur ekki náð sér á strik á heimsvísu, segir yfirlæknir smitsjúkdómalækninga á Landspítala. Hins vegar hafa greinst hér óvenjulega mörg tilfelli af veiru sem veldur heilahimnubólgu. Sóttvarnalæknir Svíþjóðar óttast að hið breska og bráðsmitandi afbrigði kórónuveirunnar verði alls ráðandi í Evrópu innan hálfs mánaðar. Flugvirkjar hjá Landhelgisgæslunni segja að landamæraverkefni Landhelgisgæslunnar geti verið í uppnámi. Samkvæmt úrskurði gerðardóms um nýjan kjarasamning Þeim sé ekki skylt að vinna erlendis nema um það sé sérstaklega samið. Samkomubann verður rýmra frá og með morgundeginum því þá mega koma saman fimmtíu í einu í stað tuttugu. Alls mega hundrað og fimmtíu manns vera saman í rými í skólum og eins metra reglan leysir tveggja metra regluna af hólmi. Þá mega allt að tvö hundruð manns vera á viðburðum eins og íþróttaviðburðum. Áhorfendur verða að vera skráðir í sæti og einn metri verður að vera milli óskyldra. Almennt gildir þó áfram tveggja metra reglan og grímuskylda verður óbreytt. Skólastarf í framhaldsskólum kemst í nánast eðlilegt horf við breytingu á sóttvarnarreglum. Miklar breytingar verða á félagslífi nemenda og því fagna þeir ákaft. Faraldurinn hefur þó þau áhrif að einhverjir framhaldsskólanemar munu seinka námi eða hætta jafnvel alveg. Þá sjá íþróttafélög fram á auknar tekjur og stuðning með því að fá að taka á móti áhorfendum. Kristín Sigurðardóttir Talar við Steinunni Björnsdóttur, Kristinn Þorsteinsson og Önnur Sóleyju Stefánsdóttur. Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að sækja um ráðningarstyrki til að skapa ný störf og draga úr atvinnuleysi. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að ýmis fyrirtæki innan ferðaþjónustunnar séu að skoða þetta úrræði. Ráðningarstyrkjum fjölgaði eftir bankahrunið og voru tæplega 1900 árið 2012. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Jóhannes Skúlason og Aldísi Hafsteinsdóttur.
Í Heimskviðum í dag erfjallað um næsta kafla í sögunni endalausu, úrgöngu Breta úr Evrópusambandinu, Julian Assange og #MeToo í Danmörku. Brexit-sagan endalausa tók á sig nýja mynd í síðustu viku þegar Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands lagði fram nýtt frumvarp, sem brýtur í bága við alþjóðalög og útgöngusamning Breta við Evrópusambandið. Margir hafa brugðist ókvæða við, þar á meðal Evrópusambandið, sem er einmitt í viðræðum við Bretland um fríverslunarsamning. Hallgrímur Indriðason skoðar þessa nýju stöðu og möguleg áhrif hennar á útgöngu Breta. Önnur MeToo bylgja ríður nú yfir í Danmörku. Á annað þúsund konur í fjölmiðlum þar í landi lýsa yfir stuningi við nýlega frásögn Sofie Linde af áreitni og misrétti í starfi sínu. Allir virðast sammála um að kynbundið misrétti og áreitni eigi ekki að viðgangast í Danmörku, en það virðist hægara sagt en gert að uppræta það. Birta Björnsdóttir fjallar um málið. Málsmeðferð Julian Assange, stofnanda Wikileaks, hófst að nýju í Lundúnum í síðustu viku. Bandaríkjastjórn hefur farið fram á að Assange verði framseldur til Bandaríkjanna vegna birtingar á gögnum sem sína fram á stríðsglæpi Bandaríkjanna í Afganistan og Írak. Nýir ákæruliðir hafa litið dagsins ljós en málið er á lægsta dómstigi í Bretlandi. Guðmundur Björn ræðir við Kristinn Hrafnsson, ristjóra Wikileaks og nánasta eins nánasta samstarfsmanns Assange. Kristinn segir ljóst að ef Assange verður framseldur til Bandaríkjanna, breyti dómurinn blaðamennsku til framtíðar, þar sem þeir sem fjalli um málefni Bandaríkjastjórnar geti hvergi um frjálst höfuð strokið. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.