POPULARITY
In this thought-provoking episode of Pod Songs, host Jack Stafford sits down with Icelandic singer-songwriter Svavar Knútur and Neil and Sarah from the YouTube channel Leftist Cooks for a wide-ranging conversation on empathy, activism, and the fight to preserve cultural identity through language and music.Together, they explore how streaming platforms like Spotify contribute to the erosion of minority languages, why kindness and emotional intelligence are essential tools for social change, and how art and activism intersect in a divided world. Topics include ageism, implicit bias, feminism, sex positivity, the politics of inclusion, and the importance of embracing nuance in difficult conversations.Whether you're passionate about linguistic diversity, progressive politics, or the healing power of music, this episode offers rich insights and emotional depth.Stream the song: https://ffm.to/receipeforsomethinghttps://www.youtube.com/TheLeftistCookshttps://www.svavarknutur.com00:00 Introduction and Guest Welcome01:20 Catching Up and Personal Updates04:54 Discussing the Leftist Cook08:07 Reflections on Ageism and Society11:04 Life in Iceland and Touring Challenges13:28 Grandparenthood and Family Life14:20 Preparing for the Interview19:28 Welcoming Neil and Sarah21:02 Current Projects and Challenges24:55 Deep Dive into Feminist Texts and Sex Positivity28:14 The Core Principle of Helpfulness29:09 Navigating Epistemic Conundrums30:05 Addressing Anger and Moving Forward30:55 The Importance of Dual Perspectives33:08 Introducing the Leftist Cooks33:58 Challenging Ageism and Boomer Stereotypes37:34 The Complexity of Social Taboos45:09 Implicit Bias and Internal Struggles53:12 The Role of Art in Social Movements59:07 Redefining Happiness and Embracing Grief01:11:23 Engaging in Difficult Conversations01:14:57 Navigating Difficult Conversations01:15:50 Meeting People Where They Are01:17:21 The Importance of Diverse Voices01:18:48 The Challenge of Inclusion01:22:48 The Fragility of Human Emotions01:32:20 Cultural Genocide in Music01:35:39 The Power of Language01:40:34 Concluding Thoughts and Reflections// SUPPORT THIS CHANNEL //Newsletter, donations and download the song for €/$1 @ https://podsongs.com// LINKS //Website: https://podsongs.comPodcast episodes: https://podsongs.com/podcast-episodesSongs: https://podsongs.com/musicSpotify artist: https://open.spotify.com/artist/32FYyRx1y1ex3jHHAgLMC7?si=4Nv7WW85SbSPZvCsj1o7IgSpotify playlist: https://open.spotify.com/playlist/6sN1viy82HPiNTVX2YBxpq?si=1b84c2b9bdea4656// SOCIAL //Twitter: https://twitter.com/podsongsInstagram: https://instagram.com/podsongsFacebook: https://facebook.com/podsongs
Les mares de la llum. Crítica teatral de l'obra «La veritat sobre la llum», d'Audur Ava Ólafsdóttir. Adaptació d'Anna Maria Ricart Codina. Traducció de Macià Riutort (a partir de la versió islandesa). Intèrprets: Maria Casellas, Roger Julià, Andrea Portella Fontbernat i Rosa Renom. Il·luminació: Ferran Utzet. Escenografia: Sergi Corbera Gaju. Vestuari: Giulia Grumi. Espai sonor: Guillem Rodríguez. Suport il·luminació i cap tècnic: Àngel Puertas. Producció executiva: Els Telers Produccions. Suport a la producció: Arnau Nadal. Fotografies: Felipe Mena. Fotografia d’assaig: Alba Lajarín. Agraïments: Pilar Artigas, Josep Caselles, Llàtzer Garcia, Montserrat Tolosa, Fundació AISGE, La Perla 29, Centre d’Arts Santa Mònica i Roberto Montes (trezze.23). Una coproducció d’Els telers produccions i Teatre Akadèmia. Amb el suport de l’ICEC i la Diputació de Barcelona. Equip Teatre Akadèmia: Direcció artística: Guido Torlonia. Gerència i cap de producció: Meri Notario. Cap de premsa i assistència a la direcció artística: Fernando Solla. Cap de màrqueting i comunicació: Ana Flores. Comunicació i públics: Vinyet Vila. Cap tècnic: Lluís Serra. Tècnic auxiliar: Víctor Castro. Taquilla: Xavi Gómez. Community Manager: Eladi Bonastre. Coproducció d'Els Telers i Teatre Akadèmia. Ajudanta de direcció de l'espectacle: Clara Moraleda. Direcció de l'espectacle: Ferran Utzet. Teatre Akadèmia, Barcelona, 9 abril 2025. Veu: Andreu Sotorra. Música: Sofðu unga ástin mín. Interpretació: Svavar Knútur. Composició: Jóhann Sigurjónsson (cançó de bressol islandesa). Àlbum: Vögguvísur, 2012.
Svavar Knútur er nýkomin úr tónleikaferðalagi um Ástralíu og Evrópu og nú er hann lagður af stað hringinn í kringum landið með tvöfalt nýtt plötualbúm í farteskinu. Þessi tónlist er á vissan hátt 15 ára úrvinnsla sorgar segir Svavar Knútur sem var í hljóðstofu RÚV á Akureyri í beinni útsendingu í dag. Svo komu þær Áslaug Thorlacius og Björg Jóna Birgisdóttir í þáttinn til að segja okkur frá listnámi í Myndlistaskólanum í Reykjavík fyrir einstaklinga með þroskaskerðingu. Áslaug er skólastjóri Myndlistaskólans og Björg fylgdi systur sinni, Lilju Dögg, í gegnum námið. Björg segir námið hafa verið valdeflandi fyrir systur sína á mörgum sviðum og hafi gríðarlega þýðingu og að það sé mannbætandi að geta boðið upp fólki með þroskaskerðingu listnám. Viðvarandi blóðsykurssveiflur yfir daginn geta verið orsök þreytu og orkuleysis, vakið upp falska svengdartilfinningu, raskað þyngdarstjórnun og valdið alvarlegum sjúkdómum á við sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómum, fitulifur og hvers kyns bólgusjúkdómum sem nú þegar herja á samfélagið í auknum mæli. En við þessu geta verið einföld ráð. Ef við neytum fyrst grænmetis og annarra trefja, fitu eða próteina á undan kolvetnum virkar það eins og sía áður en sykurinn kemst út í blóðið og þar með komum við í veg fyrir óhóflega blóðsykurshækkun í líkamanum. Þetta sagði Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir á Selfossi, sem er umfram allt áhugamaður um rót vandans, þegar Helga Arnardóttir ræddi við hann á Heilsuvakt dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Sannaðu til / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) Refur / Svavar Knútur (Svavar Knútur Kristinsson) Joc de doi din Banat / Virgil Muzur (Virgil Muzur) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Við kíktum niður í Hörpu á æfingu hjá kvennakórnum Kötlu en þær eru með árlega vortónleika næstu helgi og kórinn er fjölmennur, en um 80 konur eru skráðar í hann og sérstök áhersla er lögð á búninga, leikmuni og gleði. Þær vilja líka láta gott af sér leiða í okkar samfélagi. Samstýrur kórsins, Hildigunnur Rúnarsdóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir, sögðu okkur frá starfinu og einnig var rætt við konur í búninganefnd kórsins, þær Ragnheiði Bjarnadóttur og Elínu Hörpu Valgeirsdóttur og svo að lokum stjórnarkonurnar Guðrúnu Helgadóttur, Söndru Harðardóttur og Sólveigu Ingólfsdóttur . Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Í Þýskalandi standa núna yfir réttarhöld yfir næstum þrjátíu manns sem eru ákærðir fyrir að skipuleggja vopnaða byltingu gegn stjórn landsins. Aðalsprautan í hópnum er sjötíu og tveggja ára fasteignasali sem kallar sig prins Hinrik þrettánda. Frá þessu var sagt í póstkorti dagsins, en Magnús er nýkominn frá Þýskalandi þar sem þetta er ein aðalfréttin í fjölmiðlum. Hann sagði líka frá heimsókn sinni í pyntingartækjasafn í borginni Rothenburg, en safnið geymir ótrúleg tæki og tól frá miðöldum sem voru notuð til knýja fram játningar hjá sakamönnum aðallega konum sem voru kærðar fyrir galdra. Sjónaukinn, árleg ráðstefna heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri fór fram í síðustu viku. Þar voru flutt fjölmörg fjölbreyttu erindi en stór hluti af erindum á ráðstefnunni eru kynningar nema sem eru að ljúka meistaranámi í heilbrigðisvísindum á rannsóknarverkefnum sínum. Vera Sif Rúnarsdóttir kynnti niðurstöður rannsóknar á tengslum áfalla í æsku við almennt heilsufar á fullorðinsárum. Vera sagði okkur meira frá því í þættinum í dag. Tónlist í þættinum í dag: Þín hvíta mynd / Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur Kristinsson (Sigfús Halldórsson og Tómas Guðmundsson) Everybody's Talkin' / Harry Nilson (Fred Neil) Adios Muchachos / Stanley Black (Sanders & Vedani) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Gestur Fimmunnar í Fram og til baka þennan morguninn var Magnús Trygvason Eliassen tónlistarmaður. Maggi er einn frambærilegasti og eftirtektarverðasti trommari landsins, ættaður í aðra röndina frá Þrándheimi og í hina frá Vatnsenda í Kópavogi. Magnús er meðlimur Moses Hightower, ADHD, Histog, Tilbury og fleiri hljómsveita og hefur hann því í sínu starfi heimsótt marga góða tónleikastaði á landinu. Hann deildi með hlustendum Fram og til baka þeim fimm tónleikastöðum sem hann hefur sérstakt dálæti á. Í seinni hluta þáttar var tónlistin allsráðandi. Leikin voru lög sem eiga það sameiginlegt að hafa komið upp úr Söngvakeppni Sjónvarpsins í gegnum tíðina en þó ekki fagnað sigri. Það leynast ýmsar perlur úr þeim sarpi og við fengum að heyra nokkrar sem hafa lifað með þjóðinni og önnur sem eiga skilið að vera spilaðar oftar. Hér eru lögin sem heyrðust í þætti dagsins: Frá kl. 08-09. Change - Yakkety yak smacketty smack. Moses Hightower - Tíu dropar. The Band - The Night they drove old Dixie down. Prins Póló, Moses Hightower - Eyja (feat. Prins Póló). Tilbury - Tenderloin. Frá kl. 09-10. Friðrik Dór - Í síðasta skipti (Söngvakeppnin 2015). Björgvin Halldórsson, Katla María - Sóley. Guðrún Árný Karlsdóttir - Andvaka. Magni Ásgeirsson - Hugarró(Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012). Haffi Haff - Gía. Dr. Gunni og Heiða Eiríks - Ísinn. Friðrik Ómar - Hvað ef ég get ekki elskað (Söngvakeppnin 2019). Svavar Knútur Kristinsson, Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm - Lífið snýst. Rúnar Júlíusson - Ást á skítugum skóm. Tinna Marína Jónsdóttir, Böddi - Á ballið á. Heiða og Heiðingjarnir- Tangó. Heimilistónar - Kúst og fæjó. Erna Gunnarsdóttir - Aldrei ég gleymi.
Við fræddumst í dag um heimildarmyndina Tölum um ENDÓ, þar sem rætt er við konur á ýmsum aldri um einkenni og áhrif sjúkdómsins endómetríósu á þeirra líf og störf. Sjúkdómurinn var áður kallaður legslímuflakk, en nú er talað um endó í daglegu tali. Þóra Karítas Árnadóttir, leikstjóri og framleiðandi myndarinnar kom í þáttinn og sagði okkur frá myndinni, með henni kom Karen Ösp Friðriksdóttir, en hún deilir sinni reynslu af endómetríósu í myndinni, auk þess að vera gjaldkeri Endósamtakanna. Mörg hlaðvörpin hafa litið dagsins ljós undanfarin ár og fjalla þau um nánast allt milli himins og jarðar. Litli mallakúturinn heitir eitt þeirra og þar má finna viðtöl við fólk sem á það sameiginlegt að hafa gengist undir aðgerð á maga vegna offitu. Sá sem stjórnar og stýrir því heitir Gunnar Ásgeirsson, kerfisstjóri, og við ræddum við hann í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í dag í veðurspjall. Hann talaði við okkur í dag um hafís og áhrif hans á vorveðráttuna, en hafísinn er í meiri útbreiðslu nú en undanfarin ár. Hann rifjaði svo upp þegar ís fyllti firði og flóa vorið 1979. Svo að lokum skoðaði hann með okkur veðurspána framundan, þar sem hitinn fer loksins hækkandi, að minnsta kosti í bili. Tónlist í þættinum Bolur inn við bein / Brimkló (erlent lag, texti Jónas Friðrik og Björgvin Halldórsson) Lítið ljóð/ Rebekka Blöndal (Rebekka Blöndal og Ásgeir Ásgeirsson, texti Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson) Betri tíð/ Hildur Vala (Valgeir Guðjónsson og Þórður Árnason) Þín hvíta mynd / Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur (Sigfús Halldórsson og Tómas Guðmundsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Við kynntum okkur starfsemi Heimilisfriðar í þættinum í dag. Heimilisfriður er meðferðar- og þekkingarmiðstöð um ofbeldi í nánum samböndum, og er með meðferðarúrræði fyrir einstaklinga sem beita, eða hafa beitt, ofbeldi í nánum samböndum. Heimilisfriður býður upp á sálfræðimeðferð fyrir þau sem eiga erfitt með að stjórna skapi sínu og skaða þá sem þau elska, jafnvel þó þau vilji það ekki. Jóhanna Dabgjartsdóttir sálfræðingur hjá Heimilisfriði kom til okkar í dag og sagði okkur meira frá starfseminni og niðurstöðum úttektar sem Félagsvísindastofnun HÍ gerði á starfseminni á síðasta ári. Við fengum svo Guðríði Helgadóttur garðyrkjufræðing og líffræðing, því nú er vorið að nálgast, sólin er komin hærra á loft og fuglarnir eru farnir að syngja. Er ekki kominn tími til að huga að garðverkunum? Það er að mörgu að hyggja, en hvar eigum við að byrja? Hvaða garðverk þurfum við að huga að á þessum tíma árs? Við komum auðvitað ekki að tómum kofanum hjá Guðríði, hún er full af fróðleik eins og fyrri daginn og fór með okkur í gegnum vorverkin og gaf okkur góð ráð í dag. Tónlist í þættinum: Hverjum hefði getað dottið í hug? / Svavar Knútur og Kristjana Stefánsdóttir (Svavar Knútur Kristinsson) Jolene / Lay Low (Dolly Parton) Ævilagið / Hljómsveitin Eva (Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoniasardóttir) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Við forvitnuðumst í dag um nýja próteingjafa á borð við skordýr og örþörunga, en markmiðið með því að nýta þá er að minnka umhverfisáhrif, draga úr sóun, vatnsnotkun og kolefnisspori í framleiðslu á matvörum fyrir fólk og fóðri fyrir dýr. Margrét Geirsdóttir, matvælafræðingur og verkefnastjóri hjá Matís, kemur í þáttinn og sagði okkur frá því hver þróunin er í þessum málum, meðal annars frá framleiðslu og nýtingu á skordýrapróteini, einfrumupróteini og örþörungum. Marche hérað er eitt best geymda leyndarmál Ítalíu segja margir. Þetta rólega og strjálbýla hérað liggur á milli Adríahafsins og öllu þekktari eru nágrannahéruð þess, Toskana og Umbria. Sumir segja að Marche sé eins og Toskana var fyrir 50 árum síðan, hrátt en undurfallegt. Ágústa Sigrún Ágústsdóttir mannauðsstjóri og leiðsögumaður kom til okkar í dag en þetta svæði er í miklu uppáhaldi hjá henni og hún heldur úti ferðasíðunni Flandrr.is. Tónlist í þættinum: Háa c / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Daníel Friðrik Böðvarsson, Magnús Trygvason Eliassen og Steingrímur Teague) Ölduslóð / Svavar Knútur (Svavar Knútur) Scenes from an Italian Restaurant / Billy Joel (Billy Joel) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Við heimsækjum höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur. Þar hafa sem kunnugt er staðið yfir mjög umfangsmiklar framkvæmdir vegna alvarlegs galla í húsinu og skemmda vegna leka. Einn möguleiki var hreinlega að rífa húsið en ákveðið var að ráðast í að fjarlægja útveggi hússins, rétta það af og endurbyggja veggina. Nú eru þessar framkvæmdir í fullum gangi og stefnt að því að taka húsið í notkun í byrjun næsta árs. Festa, miðstöð um sjálfbærni, hélt í gær stóra ráðstefnu, sem bar yfirskriftina við skrifum mannkynssöguna. Þar ræddu fulltrúar fyrirtækja um sjálfbærni og áskoranir henni tengdar. Sandrine Dixson Decleve, forseti Rómarklúbbsins, félagasamtaka sem hafa frá árinu 1968 krufið heimsmálin, ávarpaði ráðstefnuna og sagði hagvöxt ekki þjóna mannkyninu og að hagkerfi sem tryggði ríkasta eina prósentinu nær tvöfalt meira en öllum hinum væri slæmt fyrir atvinnulífið og samfélagið. Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Festu verður á línunni hjá okkur, og ræðir ráðstefnuna hér á eftir. Dýraspjall með Veru Illugadóttur. Rottusjálfur. Tónlist: Svavar Knútur - Janúar. THE POLICE - De do do do, de da da da.
Flökkusinfónía, samstarfsverkefni Gjörningaklúbbsins og Sinfóníuhljómsveitar íslands, verður frumflutt á myrkum músíkdögum næstkomandi fimmtudag. Við gerð verksins fengu þær Gjörningaklúbbskonur, Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir, tónskáldin Unu Sveinbjarnardóttur og Óla Björn Ólafsson til liðs við sig ásamt einvala liði kvikmyndagerðar fólks, dansara, leikara og fimleikafólks. Útkoman verður veisla fyrir öll skynfæri og útkoman mun mögulega örva flökkutaugina. Víðsjá kynnir einnig til leiks nýjan pistlahöfund. Viktoría Blöndal, höfundur og leikstjóri, ætlar að reyna að fanga andrúmsloft hér á næstu vikum. Og í sínum fyrsta pistli í dag kannar hún andrúmsloftið í sauðfjárréttum norður í Hörgársveit. Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur sendi á dögunum frá sér pistil á samfélagsmiðlinum Linkedin sem fjallaði um vandasamt streymisveitumál sem íslenskir tónlistarmenn standa frammi fyrir í dag. Gígja Hólmgerisdóttir ræðir við hann í þætti dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson
Við fáum nýjan forseta 1. ágúst - Guðni Th. Jóhannesson gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Hann upplýsti um ákvörðun sína í nýársávarpinu í gær. Um þá ákvörðun fjölluðum við klukkan hálf níu - sem og áramótaávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á gamlársdag. Eva Heiða Önnudóttir, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskólans, var gestur okkar. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, kom líka til okkar. Við spjölluðum um peninga í dag; meðal annars um þær breytingar sem gengu í gildi á skattkerfinu um áramót, þá fjármuni sem verkalýðshreyfingin vill að ríkið leggi af mörkum svo kjarasamningar takist í góðri sátt og plús og mínus tölur í Kauphöllinni. Þá var Berlínarspjall á sínum stað og í dag fór Arthúr Björgvin Bollason yfir það sem hæst bar í þýsku þjóðlífi á nýliðnu ári og sagði frá væntingum Þjóðverja til nýja ársins. Tónlist: Ragnar Bjarnason, Sigrún Jónsdóttir - Ljúfa vina. Svavar Knútur Kristinsson, Kristjana Stefánsdóttir - Hjá lygnri móðu. Holly, Buddy - Heartbeat. In a sentimental mood ? Duke Ellington & John Coltrane Blue in Green - Miles Davies

Í fyrsta viðtali dagsins var rætt við Guðmund Magnússon sagnfræðing um séra Friðrik en bók hans um æskulýðsleiðtogann hefur vakið mikla athygli vegna upplýsinga um kynferðislegar hneigðir hans. Einkum var í viðtalinum fjallað um æsku Friðriks en hann fæddist inn í blásnauða fjölskyldu norður í landi. Færa á nám í skapandi sjálfbærni í Hallormsstaðaskóla á háskólastig. Bryndís Fiona Ford skólameistari sagði frá skapandi sjálfbærni og lífinu á Hallormsstað. Tæknin þróast hratt, ekki síst gervigreindin. Framtíðarnefnd Alþingis hefur fjallað um hana og efnir til málstofu um efnið í dag. Lilja Rannveig Sigurgeirsóttir, alþingismaður og formaður framtíðarnefndar þingsins, spjallaði um gervigreind og stjórnmál. Hún telur hana munu nýtast ræðuskrifa, upplýsingaöflunar og lagasetningar í framtíðinni. Tónlist: Blús í G - Mannakorn, Hagavagninn - Stórsveit Reykjavíkur, Við Vatnsmýrina - Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur, Rise up - Júníus Meyvant. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.

Hulda Geirsdóttir stýrði Popplandi og lék fjölbreytta tónlist auk þess að fylgjast með stöðu mála á gosvaktinni við Grindavík. Gígja Hólmgeirsdóttir var á línunni frá Krýsuvík og fór yfir stöðuna við Grindavík eftir að gripið var til rýmingar um miðjan dag. Lagalisti: SYKURMOLARNIR - Deus. KULA SHAKER - Tattva. Pale Moon - Spaghetti. Una Torfadóttir, Baggalútur - Casanova. POLICE - Wrapped Around Your Fingers. BEABADOOBEE - The way things go. RAZORLIGHT - In The Morning. INHALER - Love Will Get You There. ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR OG ÞORSTEINN EINARSSON - Hluthafi í heiminum. Jazzygold - Lonely afterparties. Justin Timberlake - Can't Stop The Feeling. GusGus - Breaking Down (feat. Earth and Högni). Tayo Sound, Pixey - Daisy Chain. THE BLESSED MADONNA & THE JOY - Shades Of Love. KK - Þjóðvegur 66. NO DOUBT - Its My Life. Julian Civilian - Fyrirmyndarborgari. The Smiths - There Is A Light That Never Goes Out. ED SHEERAN - Celestial. BAT FOR LASHES - Daniel. Sycamore tree - Heart Burns Down. Libertines, The - Run Run Run. LORDE - Royals. Svavar Knútur - Haustvindar. JOHN MAYER - Last Train Home. FUGEES - Killing Me Softly. MUGISON - Stóra stóra ást. Hreyfing - In Line. COLDPLAY - Viva La Vida. Diljá Pétursdóttir - Say my name. Post Malone - Something Real. JOHN GRANT - It's Easier (plata dagsins 14. okt). Jónfrí - Aprílmáni. Una Torfadóttir - Í löngu máli. Tappi tíkarrass - Tekinn upp. U2 - I'll Go Crazy If I Don't Go Crazy Tonight. SIGRÚN STELLA - Baby Blue. KÁRI - Sleepwalking.

Árás á spítala á Gaza fyrr í vikunni vakti upp gríðarlega reiði og hefur verið fordæmd sérstaklega. Ástæðan er ekki síst sú að það má ekki sprengja upp sjúkrahús - ekki heldur í stríði. Í stríði gilda nefnilega reglur. Hvað má og hvað má ekki? Og hvenær er stríð stríð? Við fórum yfir það með Kára Hólmari Ragnarssyni, lektor í lögfræði við Háskóla Íslands. Það getur verið erfitt fyrir sálina að fylgjast með hörmungum heimsins, hvort sem er vegna frétta hér heima eða úti í heimi. Hvernig er best fyrir okkur að takast á við þetta? Þóra Sigfríður Einarsdóttir sálfræðingur ræddi þetta við okkur. Við fórum yfir í allt önnur mál í síðasta hluta þáttarins. Þá töluðum við um bækur. Við rýndum í jólabækurnar og greinum jólabókaflóðið sem er á næsta leiti með þeim Önnu Leu Friðriksdóttur bókaútgefanda hjá Sölku og Kolbrúnu Ósk Skaftadóttur bókastjóra hjá Bókabeitunni. Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir Tónlist: Miller, Glenn and his Orchestra, Eberle, Ray - It's a blue world. Sálgæslan Hljómsveit - Út í myrkrið. Tolentino, Ife - Distante Canção. Svavar Knútur Kristinsson, Kristjana Stefánsdóttir - Þín hvíta mynd. Haden, Charlie, Jarrett, Keith - Don't ever leave me.

Sameiginlegur narsissismi er hugtak sem hefur rutt sér til rúms undanfarin ár og vísar til útblásinnar trúar einhvers á ágæti hóps sem viðkomandi tilheyrir. Bjarki Þór Grönfeldt lektor við Háskólann á Bifröst hefur rannsakað fyrirbærið og sagði frá. Á morgun er 17. júní, lýðveldisdagurinn, og ýmiss konar dagskrá um allt land í tilefni af því. 17. júní er auðvitað frídagur, en á morgun ber hann hvort sem er upp á frídag. Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Háskólann á Akureyri, er talsmaður þess að breyta frídagafyrirkomulagi okkar, hann ræddi málið. Á sagnavöku Þjóðdansafélags Reykjavíkur eru sungin fornkvæði og vikivaki stiginn. Gestir eru hvattir til að mæta með skotthúfur. Meðal skipuleggjenda sagnavökunnar eru Atli Freyr Hjaltason þjóðfræðingur og Karl Friðrik Hjaltason tónlistarmaður, þeir voru gestir Morgunvaktarinnar og sögðu frá þjóðdansamenningu. Tónlist: Húfan dýra - Anna Pálína Árnadóttir & Draupner Hverjum hefði getað dottið í hug - Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur Murr Murr - Mugison Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur kom í þáttinn í dag og fór yfir vorverkin og það sem sniðugt er að gera á þessum árstíma í garðinum eða jafnvel á svölunum. Hvað ber að hafa í huga til dæmis þegar kemur að því að klippa tré og runna, setur næturfrostið strik í reikninginn þegar kemur að því að hreinsa beðin? Guðríður svaraði því í þættinum og sagði einnig frá opnu húsi í Garðyrkjuskólanum við Hveragerði sem er einmitt alltaf á Sumardaginn fyrsta. Þar verður kaffisala, markaðstorg og börn geta farið á hestbak ásamt ýmsu öðru. Svo spurðum við Guðríði líka út í nýju bókina, Fjölærar plöntur. Það verður æ algengara að fólk, til dæmis sem komið er á eftirlaun, ákveði að búa hluta ársins og jafnvel allt árið á hlýrri slóðum, til dæmis á Spáni. Dóra Stefánsdóttir, sérfræðingur í starfsmenntun, fór á eftirlaun fyrir ári síðan og ákvað með eiginmanni sínum, Stefáni Rafni Geirssyni, að dvelja nokkra mánuði á Kanaríeyjum í vetur. Þau eru nýkomin heim og við ákváðum að forvitnast um dvölina þar ytra og heyrðum í Dóru í þættinum. Lög í þættinum í dag: Komdu / Hraun (Hraun og Svavar Knútur) Hinn elskulegi garðyrkjumaður / Kristjana Stefánsdóttir (Páll Torfi Önundarson) My Sweet Lord / George Harrison (George Harrison) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Tanya Aleksandersdóttir er frá Úkraínu en hefur búið á Íslandi um árabil. Hún er kennari og túlkur og þekkir vel til og hefur aðstoðað þau sem hafa komið hingað til lands frá Úkraínu frá því að stríðið hófst. Tanya kom í þáttinn og sagði okkur frá sinni reynslu af því að koma sér fyrir í íslensku samfélagi. Með henni kom Sigurvin Lárus Jónsson, prestur í Fríkirkjunni í Reykjavík, hann sagði okkur frá sjónvarpsþætti sem verið er að vinna á vegum Fríkirkjunnar undir yfirskriftinni friður og fjölmenning. Í þættinum koma saman einstaklingar af fjölbreyttum uppruna sem iðka mismunandi trúarbrögð og til dæmis sameinast í bæn fyrir friði auk þess sem flutt verður lifandi tónlist og hugvekjur. Þau Tanya og Sigurvin sögðu okkur meira frá þessu í þættinum. Vegna afbókunar með stuttum fyrirvara endurfluttum við viðtal frá því á þriðjudaginn við Dr. Gyðu Eyjólfsdóttur, sálfræðing og sérfræðing í klínískri sálfræði. Við höfum fjallað talsvert undanfarið í þættinum um áföll og afleiðingar áfalla og áfallastreitu og meðferðarúrræði. Í þeim umræðum, við sálfræðinga og sérfræðinga hefur EMDR meðferð oft verið nefnd. En hvað er EMDR meðferð? Dr. Gyða kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um EMDR meðferðir. Í dag, 23. mars, eru 70 ár frá stofnun Neytendasamtakanna hér á landi, en þau eru með elstu neytendasamtökum í heimi. Samtökin, eins og nafnið bendir til, vinna að hag hins almenna neytanda á Íslandi og Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um sögu og þróun samtakanna og svo skoðuðum við stöðuna í dag, hvað ber hæst í starfseminni í dag og Breki rýndi með okkur í framtíð neytendamála. Tónlist í þættinum í dag Lítið ljóð / Rebekka Blöndal (Ásgeir Ásgeirsson, Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugs) Ást og friður / Halli Reynis og Vigdís Jónsdóttir (Halli Reynis) Lady Winter / Svavar Knútur (Svavar Knútur Kristinsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Í dag er alþjóðlegur dagur hamingjunnar og við forvitnuðumst af því tilefni um Qigong lífsorkuæfingar sem hafa verið stundaðar í Kína í 5000 ár. Æfingarnar byggja á djúpri öndun, mjúkum og styrkjandi hreyfingum, með heilandi hugleiðslu. Þorvaldur Ingi Jónsson kom í þáttinn í dag, en hann lærði Qigong hjá Gunnari Eyjólfssyni leikara. Það er mánudagur í dag og því fengum við vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Í þetta sinn bar hann vinkilinn upp við bæði magurt og feitt, eins og hann orðar það, og eins kom Vilhjálmur Stefánsson heimskautafari við sögu. Svo var það lesandi vikunnar sem í þetta sinn var Þóra Kolbrá Sigurðardóttir, ritstjóri matarvefs mbl.is. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Þóra sagði frá forritinu Blinkist og talaði um eftirfarandi bækur og höfund: Á vit hins ókunna e. Erlend Haraldsson The 5 A.M. Club e. Robin Sharma Astrid Lindgren, Enyd Blydon og J.K. Rowling Tónlist í þættinum í dag Er hann birtist / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson) Sjómannavalsinn / Hjaltalín (Svavar Benediktsson og Kristján frá Djúpalæk) Hvert örstutt spor / Svavar Knútur Kristinsson (Jón Nordal og Halldór Laxness) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Háskólakennarar á eftirlaunum með langa reynslu af starfi með alkóhólistum og rannsóknum, skrifuðu saman bók sem byggir á 50 viðtölum við alkóhólista sem höfðu verið án vímu í 5 ár eða lengur. Viðmælendur bókarinnar voru spurðir hvað þeir hefðu gert til að takast að vera vímulausir svo lengi. Svörin voru tekin í þemu og niðurstöðurnar, sem voru mjög afgerandi, eru birtar í bókinni Sigurinn liggur í uppgjöfinni. Sigurlína Davíðsdóttir, doktor í félagssálfræði er annar höfunda bókarinnar og hún kom í þáttinn í dag. Sagnfræðingafélag Íslands stendur fyrir málþingi í næstu viku undir yfirskriftinni Er sagnfræði siðleg? Kristín Svava Tómasdóttir sagnfræðingur heldur þar erindi sem nefnist Að segja sögur og nefna nöfn. Í erindinu veltir hún fyrir sér hvernig nálgast á viðkvæm viðfangsefni og hvaða stíl á að tileinka sér þegar fjallað er um fólk og persónuleg málefni þeirra. Hvenær á að nafngreina fólk í söguskoðun, því sagnfræðingar sem vinna með viðkvæm málefni, t.d. á sviði heilbrigðissögu, eru alls ekki sammala um það. Kristín Svava sagði okkur betur frá þessu í þættinum. Herdís Helga Arnalds, hagfræðingur og tölvunarfræðingur, hefur haft óbilandi áhuga á trjárækt og plöntulífríkinu frá barnæsku. Hún stofnaði fyrirtækið Blómstru fyrir stuttu og hjálpar hún þúsundum viðskiptavina við að halda lífi í plöntunum sínum í gegnum plöntuáskriftarþjónustu og sendir fólki meðal annars leiðbeiningar og fróðleik. Herdís Helga kom í þáttinn í dag. Tónlist í þættinum í dag: Ferrari / Ragnheiður Gröndal (Páll Torfi Önundarson) Dag eftir dag / Múgsefjun (Eva Hafsteinsdóttir og Hjalti Þorkelsson) Gamli góði vinur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Lifðu hægt / Hildur Vala Einarsdóttir (Svavar Knútur og Karl Ágúst Úlfsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Umræða hefur skapast um mannréttindi fólks á hjúkrunarheimilum í kjölfar viðtals í Silfrinu við Sigrúnu Huld Þorgrímsdóttur. Þar kom fram að nauðungt væri oft og víða beitt. Slíkt er ólölegt að sögn Brynhildar G. Flóvenz. Hún er dósent í lögum við HÍ og formaður nefndar er veitir undanþágur frá beitingu nauðungar í starfi með fötluðu fólki. Í Heimsglugganum fjallaði Bogi Ágústsson um nýafstaðnar kosningar í Bandaríkjunum og væntanlegar kosningar í Færeyjum. Góð hljóðvist er mikilvæg og eigendum húsa ber að tryggja góða hljóðvist samkvæmt lögum og reglum. Ólafur Hafstein Pjetursson verkfræðingur sagði frá áhrifum slæmrar hljóðvistar á fólk og rétti fólks til að njóta góðrar hljóðvistar. Tónlist: Þú ein - Hljómar, Öldur rísa - Gautar, Faðmlag - Svavar Knútur og Kristjana Stefánsdóttir, An ending - Brian Eno. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Gígja Hólmgeirsdóttir.

Við veltum fyrir okkur búsetu í þessum þætti. Við byrjum á að heimsækja söngvaskáldið Svavar Knút sem nýlega flutti ásamt fjölskyldunni til Akureyrar. Því næst er ferðinni heitið á Laugarbakka þar sem við hittum hjónin Ólínu Sófusdóttur og Einþór Skúlason sem nýlega fluttu á Laugarbakka og byggðu þar hús. Við heyrum líka í dóttur þeirra hjóna, Dagbjörtu Diljá Einþórsdóttur, sem var sú fyrsta úr fjölskyldunni að flytja á svæðið. Að lokum höldum við til Grímseyjar þar sem við hittum fyrir útgerðarmanninn Bjarna Reykjalín Magnússon sem ólst upp í Grímsey og vill búa þar áfram. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Óðinn Svan Óðinsson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Fyrir tveimur vikum var Margrét Sigfúsdóttir, fyrrverandi skólastýra Hússtjórnarskólans, sérfræðingur þáttarins þar sem hún svaraði spurningum sem hlustendur höfðu sent inn um allt sem viðkom heimilishaldi. Innkaup, þrif, matseld og svo framvegis. Spurningarnar voru svo margar að hún náði ekki að komast í gegnum þær allar, því var hún hjá okkur aftur í dag. Hún tók upp þráðinn frá því síðast og kláraði þær spurningar sem eftir voru og svo svaraði hún fleiri spurningum sem hlustendur höfðu sent okkur. Svo fengum við þær Ragnhildi Gunnarsdóttur og Guðrúnu Rútsdóttur til að segja okkur frá PCOS, eða fjölblöðrueggjastokkaheilkenni, sem ekki margir vita hvað er, en er einn algengasti innkirtlasjúkdómur hjá konum. PCOS samtökin standa fyrir fræðslufundi í kvöld og þær sögðu okkur frá fundinum og fræddu okkur um þetta heilkenni í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Saumakonuvalsinn / Pálmi Gunnarsson (Jón Jónsson og Hreiðar E. Geirdal) Lene Májjá / Mari Boine (Mari Boine, Svein Schultz, Ole Jörn Myklebust) Like an angel passing through my room / Svavar Knútur og Kristjana Stefáns(Benny Andersson og Björn Ulvaeus) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG ÞORGERÐUR ÁSA AÐALSTEINSD.

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Karl Ágúst Úlfsson. Það sem hann hefur áorkað á u.þ.b. 40 árum á sínum ferli er ansi magnað, hvort sem er sem leikari, leikstjóri, leikskáld, þýðandi og rithöfundur. Það var auðvitað Spaugstofan, tæplega fimm hundruð þættir á næstum þrjátíu árum, svo eru það öll leikverkin, þýðingarnar, bækurnar, við hefðum getað eytt þættinum í að telja upp allt sem hann hefur gert, en það var miklu skemmtilegra að fá hann sjálfan til að stikla á stóru með okkur. Við fórum með honum aftur í tímann og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Og svo forvitnuðumst við líka um nýja verkið hans, Fíflið, sem er sýnt í Tjarnarbíói, en hann bæði skrifar og leikur í því. Sigurlaug Margrét kom svo til okkar í matarspjallið í dag. Hún er nýkomin frá London, þar sem hún meðal annars var óvart í jarðaför Elísabetar drottningar. Það var því breskt þema með konunglegu ívafi í matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Hvítu mávar / Helena Eyjólfsdóttir (Walter Lange og Björn Bragi Magnússon) Lalala / Hildur Vala Einarsdóttir (Svavar Knútur Kristinsson og Karl Ágúst Úlfsson) Mér er ekkert heilagt / Karl Ágúst og Eyvindur Karlsson (Eyvindur Karlsson og Karl Ágúst Úlfsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Þegar Þóra Hrund Guðbrandsdóttir var í meistaranámi í stjórnun og stefnumótun, velti hún fyrir sér af hverju fleiri væru ekki að nota fræði og hin ýmsu verkfæri stjórnunar og fyrirtækjarekstrar fyrir árangursríkara heimilishald sem myndi skila öllu heimilisfólki meiri ánægju, árangri og einfaldara lífi. Af hverju eru fjölskyldur ekki að vinna meira með framtíðarsýn, stefnumótun, markmið og gildi? Fjölskyldan ehf. Hún er að vinna að þvi að skrifa bók um þetta. Þóra Hrund kom í þáttinn í dag. Hélène Magnusson er frönsk að uppruna. Hún lauk meistaraprófi í lögum og starfaði um skeið sem lögmaður í París. Árið 1995 söðlaði hún um og flutti til Íslands þar sem hún hefur starfað sem fjallaleiðsögumaður meðfram því að læra textíl og fatahönnun við Listaháskóla Íslands þaðan sem hún útskrifaðist árið 2005. Hún er einna þekktust fyrir rannsóknir sínar á íslensku rósaleppaprjóni og gaf í því samhengi út nokkrar bækur um prjón eins og bókina Rósaleppaprjón í nýju ljósi sem nú er fáanleg á þremur tungumálum. Einnig heldur hún úti netritinu Prjónakerling. Hélène var gestur þáttarins í dag. Svo fengum við Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðing í mannlegt veðurspjall í dag. Undanfarinn sólarhring hafa verið rykský á lofti hér á suðvesturhorninu, hvaðan koma þau? Eru þau hættuleg? Elín talaði einnig um vinda og vindmyndun í spjallinu. Tónlist í þættinum í. dag: Lítið og væmið / Valdimar (Valdimar Guðmundsson) Bella símamær / Björk Guðmundsdóttir og Tríó Guðmundar Ingólfssonar (Marc Fontenoy og Guðmundur Guðmundsson) Þín hvíta mynd / Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur (Sigfús Halldórsson og Tómas Guðmundsson) Í stóru húsi / Hildur Vala Einarsdóttir (Halldór Gylfason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Úndína Ýr Þorgrímsdóttir dýralæknanemi vinnur þessa dagana að rannsókn á magasári í hrossum. Slík rannsókn hefur ekki verið gerð áður á Íslandi og hefur vakið athygli. Úndína hefur verið að kynna rannsóknina fyrir hestafólki og Hulda kíkti við á kynningu og fékk að vita meira. Jólaverslunin er byrjuð af fullum þunga en nú er flestum tilboðsdögum lokið þó margir eigi enn eftir að klára, og jafnvel hefja, jólagjafainnkaupin. Rannsóknarsetur verslunarinnar spáir aukningu í innlendri jólaverslun en að hún verði engan veginn nærri því stökki sem hún tók á síðasta ári. Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir, forstöðukona Rannsóknarsetursins, var gestur okkar. Jólasveinarnir í Dimmuborgum hafa tekið á móti gestum í desember í áraraðir og það verður engin breyting á því í ár, en þeir ætla að halda opnunarhátíð næstu helgi. Við heyrðum í Gluggagægi og forvitnuðumst um hvað jólasveinarnir eru að bralla þegar líða fer að jólum. Í lok síðustu viku heimilaði Lyfjastofnun Evrópu notkun Pfizer bóluefnisins við bólusetningar barna á aldrinum 5-11 ára. Talið er að bólusetningar hér á landi fyrir aldurshópinn geti því hafist í næsta mánuði. Vart hefur orðið við meiri mótstöðu á samfélagsmiðlun gegn bólusetningum svo ungra barna, en áður sást við bólusetningar fullorðinna, og við fengum til okkar Valtýr Stefánsson Thors, barnasmitsjúkdómalækni, til að ræða bólusetningar og réttmæti þeirra fyrir aldurshópinn. Við bundum á okkur ballettskóna upp úr hálfníu þegar við fengum gesti úr dansheiminum. Margir eiga sínar jólahefðir, horfa á jólamyndir, fara á tónleika eða sjá hinn heimsþekkta ballett Hnotubrjótinn sem kemur með jólin til margra. Í kvöld verður sýning á þessum fræga ballett í Borgarleikhúsinu sem Dansgarðurinn stendur að. Við fengum þær Guðrúnu Óskarsdóttur skólastjóra Óskanda og Hrafnhildi Einarsdóttur, skólastjóra Klassíska Listdansskólans til að segja okkur meira. Sævar Helgi Bragason hjólaði svo til okkar undir lok þáttar og færði okkur fróðleik úr heimi vísindanna þar sem hann ræddi m.a. skordýraeitur og IGNobel verðlaunin. Tónlist: Tryggvi - Allra veðra von. Bruce Springsteen - Ill see you in my dreams. Karen Ósk og Friðrik Dór - Haustið. Stjórnin - Hleypum gleðinni inn. Ragnhildur Gísladóttir og Brunaliðið - Jóla- jólasveinn. Svavar Knútur - November. Sting - Rushing water. Kacey Musgraves - High horse.
Föðurnafnasiðurinn er forn á Íslandi, þ.e. að kenna sig við föður og hefur hann einkennt okkur í alþjóðlegu samhengi og gerir enn, sbr. t.d. myllumerkið dóttir sem víða er notað í íþróttasamhengi nútímans. Í seinni tíð hefur hins vegar aukist að fólk kenni sig við móður eða jafnvel báða foreldra, en svo eru líka til ættarnöfn á Íslandi. En það eru ekki allir sem vita að um þau hafa staðið deilur nær sleitulaust frá 19. öld. Páll Björnsson sagnfræðingur hefur ritað bók um þessi mál sem heitir einfaldlega Ættarnöfn á Íslandi, átök um þjóðararf og ímyndir. Við heyrðum í Páli. Láttu peningana vinna fyrir þig er frasi sem stundum heyrist, en venjulegu fólki vex það þó kannski í augum að finna út úr því hvernig það er best gert, en nú hafa athafnakonurnar ungu á bak við Fortuna Invest tekið saman fróðleik fyrir þau sem vilja stíga sín fyrstu skref í fjárfestingum. Við fengum góð fjárfestingarráð frá þeim Rósu Kristinsdóttur og Kristínu Hildi Ragnarsdóttur. Hátt í 700 manns eru á biðlista eftir því að komast að á meðferðarsjúkrahúsinu Vogi en biðlistar hafa lengst mikið á meðan kórónuveirufaraldurinn geisar. Sjúkratryggingar Íslands hafa hafnað beiðni SÁÁ um niðurgreiðslu á fjarþjónustu sem samtökin bjóða upp á, en hún gæti, að þeirra sögn, komið sérstaklega til hjálpar fyrir þau sem búa á landsbyggðinni og vilja leita aðstoðar við fíkn. Einar Hermannsson, formaður SÁÁ, kom til okkar og ræddi málið. Íslendingar hafa orðið varir við vöruskort í hinum ýmsu vöruflokkum og gámaskortur hefur haft áhrif á innflutning til landsins. Þeir Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu og Björn Einarsson framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptastýringar hjá Eimskip komu til okkar og fóru yfir stöðuna eins og hún er núna. Nú er rétt rúmur mánuður til jóla, aðventan framundan og margt sem gleður hug og hjarta. En það hlakka ekki allir til jólanna og margir fyllast streitu og kvíða á þessum tíma, nokkurs konar jólaóróa. Á morgun hefjast sérstakar stuðnings samverustundir í Seljakirkju fyrir fólk sem kvíðir jólunum og verða þær í boði á þriðjudagskvöldum fram undir jól. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prestur kom til okkar og sagði okkur aðeins meira af þessu. Við fórum svo yfir helstu tíðindi úr heimi íþróttanna þegar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson kom til okkar. Tónlist: Thin Jim and the Castaways - Confessions. Adele - Easy on me. Jón Jónsson - Fyrirfram. Memfismafían og Sigurður Guðmundsson - Mannanafnanefnd. John Mellencamp og Bruce Springsteen - Wasted days. Svavar Knútur - November. Quarashi - Mess it up.
Rjúpan hefur verið mikið til umfjöllunar síðustu daga og í dag hefst veiðitímabilið, að vísu ekki fyrr en á hádegi og stendur út mánuðinn. Dúi Landmark er einn reynslumesti rjúpnaveiðimaður landsins og í dag kemur út bókin Gengið til rjúpna eftir hann. Þar er ýmis konar fróðleik að finna varðandi veiðarnar. Við heyrðum í Dúa. Lítill hluti þeirra 120 Afgana sem stjórnvöld áætla að taka á móti í ljósi neyðarástands í Afganistan er kominn hingað til lands. Afganir sem búsettir eru hér á landi hafa sótt um að fjölskyldumeðlimir þeirra fái hér vernd, hluti þeirra hefur verið samþykktur, en óljóst er hvenær fólkið kemur til landsins. Atli Viðar Thorstensen, sviðsstjóri hjá Rauða krossinum, ræddi við okkur um stöðuna í Afganistan. Tuttugasta og sjötta loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hófst í Glasgow í gær, en formlegar viðræður þjóðarleiðtoga- og sendinefnda hefjast í dag. Um 30 Íslendingar taka þátt í ráðstefnunni, þar á meðal Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. Við ræddum við hana um ráðstefnuna og stjórnarmyndunarviðræður nú þegar rúmar fimm vikur eru liðnar frá Alþingiskosningum. Skortur varð á vissum tegundum grænmetis í verslunum í haust en innlend framleiðsla á spergilkáli og blómkáli kláraðist fljótt og háir innflutningstollar á þeim afurðum til gerðu það nánast óforsvaranlegt að flytja þær inn. Áður fyrr voru tollar sveigjanlegir og hægt var að bregðast við eftir framboði innanlands hverju sinni, en fyrir tveimur árum var lögunum breytt í þá veru að nú leggjast tollar á innflutt grænmeti á vissum dagsetningum. Þær Vigdís Häsler framkvæmdastjóri Bændasamtakanna og Ásta Sigríður Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar, ræddu málið hjá okkur. Spænska dagblaðið El País birti í gær viðamikla umfjöllun um eldgosið á Heimaey árið 1973 og uppbyggingu byggðarinnar þar á eftir, með vísan í eldgosið á La Palma sem nú stendur yfir. Þrír blaðamenn heimsóttu Eyjar og ræddu við heimafólk, m.a. Kristínu Jóhannsdóttur safnstjóra Eldheima, sem rakti sögu gossins í Eyjum og hvatti íbúa La Palma til að halda í vonina. Við hringdum í Kristínu. Sportið var svo á sínum stað hjá okkur, en Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður leit við sagði okkur allt um úrslit helgarinnar og eitt og annað áhugavert úr heimi íþróttanna. Tónlist: Hjálmar - Áttu vinur augnablik. Kacey Musgraves - Justified. Friðrik Dór - Hvílíkur dagur. Adele - Easy on me. Ásgeir Trausti - Leyndarmál. Emilíana Torrini - Tookah. Svavar Knútur ásamt Irish Mythen - Hope and fortune. Alicia Keys - Fallin. Bríet - Sólblóm. Eddie Vedder - Long way.
Helgina 22.-24. október nk. verður boðið til heilmikillar skemmtunar á Hótel Hamri við Borgarnes undir heitinu Heilabrot á Hamri. Þar verður boðið upp á alls kyns spurningaleiki, krossgátur, skrafl og ratleik svo eitthvað sé nefnt. Allsherjar nördagleði svo vísað sé í kynningu skipuleggjenda. Ævar Örn Jósepsson fréttamaður, rithöfundur og sitthvað fleira veit allt um málið og hann kíkti við hjá okkur og sagði okkur meira. Landsbjörg heldur ráðstefnuna Slysavarnir 2021 á föstudag og laugardag og þar verða margvísleg málefni um slysavarnir og öryggismál krufin. Við fengum til okkar sérfræðing á þessu sviði, Jónas Guðmundsson, sem starfar hjá Landsbjörg og kemur að ráðstefnunni, til að fara yfir stöðu mála í fjölbreyttum málaflokki slysavarna. Slúður er eitthvað sem við þekkjum flest og vitum að það getur haft margs konar afleiðingar. Sumir eru þó áhugasamari um slúður en aðrir og það á við um Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur, kynjafræðing og doktorsnema við Háskólann á Akureyri. Hún hefur rannsakað samfélagsleg áhrif slúðurs á ungar konur í sjávarþorpum, meðal annars til að skoða hvort og þá hvernig slúður hefur áhrif á búferlaflutninga og búsetuánægju. Við slógum á þráðinn til Grétu Bergrúnar, sem mun einmitt í dag kynna rannsóknir sínar á málþingi í Háskólanum á Akureyri. Um síðustu helgi fór fram ráðstefna um atvinnumál fatlaðra undir heitinu Göngum í takt. Þar kom fram að víða er pottur brotinn í þeim málum og úrbóta og framfara er þörf sem og þegar kemur að menntunartækifærum fatlaðra. Sara Dögg Svanhildardóttir verkefnastjóri hjá Þroskahjálp brennur fyrir þessi málefni og hún kom til okkar og fór yfir stöðuna. Valdimar Guðmundsson tónlistarmaður er með mörg járn í eldinum þessa dagana. Hann er nýbakaður faðir, stofnaði hljómsveitina Lón, skipuleggur margfrestaða afmælistónleika hljómsveitarinnar Valdimars og nú ætlar hann að henda sér inn á jólatónleikamarkaðinn alls óhræddur. Við fengum Valdimar í heimsókn og spjölluðum um lífið og listina. Tónlist: Krummi - Frozen teardrops. Bríet - Sólblóm. Nik Kershaw - The riddle. Klassart - Landamæri. Svavar Knútur og Irish Mythen - Hope and fortune. Big Country - Look away. Lón - Earthquake. HAIM - The steps. Lizzo og Cardi B. - Rumors.
Þrátt fyrir að öflug umhverfissamtök, hópar og jafnvel einstaklingar hafi sett mikla orku í hreinsun strandlengjunnar á Íslandi virðist af nógu af taka. Blái herinn hefur komið að mörgum slíkum verkefnum og við heyrðum í Tómasi Knútssyni herforingja um næstu verkefni. Gríðarlegir skógareldar hafa geisað við Miðjarðarhafið að undanförnu en miklar hitabylgjur og þurrkar hafa ríkt á svæðinu. Eðlilegt er að að skógareldar kvikni við slíkar aðstæður, en þar með er ekki öll sagan sögð. Yfirvöld á Ítalíu kenna nefnilega mafíunni um mikinn hluta þeirra skógarelda sem geisað hafa í landinu í sumar. Umhverfisráðherra Ítalíu telur til að mynda að yfir 70 prósent eldanna sé afleiðing vísvitandi íkveikju, og margir þeirra hafa kviknað í þjóðgörðum. Til að ræða þetta fengum við til okkar land- og sagnfræðinginn René Biasone, sem þekkir vel til í umhverfismálum sem og sögu glæpasamtaka í heimalandi sínu Ítalíu. Nýuppteknar kartöflur, radísur, rófur, blómkál, grænkál . Allt eru þetta dæmi um lostæti sem ræktendur keppast nú við að uppskera úr görðum sínum. En hvernig veit maður að grænmetið sé tilbúið til uppskeru, á að rífa upp með rótum eða klippa bara stilkinn, og hvernig er svo best að geyma og nýta sem best alla þessa flóru matjurta. Til að svara slíkum spurningum fengum við til okkar garðyrkjufræðinginn Jóhann Thorarensen frá Matjurtagörðum Akureyrar. Margir þekkja söguna af kúnni Sæunni og hún var reyndar sett á bók fyrir nokkrum misserum. Sagan hverfist um sund Sæunnar og undanfarin ár hefur verið boðið upp á sjósund henni til heiðurs þar sem synt er klaufför hennar. Sundið féll niður í fyrra, en nú stendur til að halda sundið um komandi helgi og Bryndís Sigurðardóttir, sem veit allt um það, kom til okkar og sagði okkur meira. Sævar Helgi Bragason færði okkur fróðleik úr heimi vísindanna í vísindahorni dagsins þar sem skröltormar, loftslagsmál og stjörnuskoðun komu við sögu. Tónlist: Þursaflokkurinn - Í gegnum holt og hæðir. Svavar Knútur og Irish Mythen - Hope and fortune. Jack Johnson - Sitting, waiting, wishing. Ceasetone, Rakel og JóiPé - Ég var að spá. Billie Eilish - NDA. Hákon - Barcelona. The Weeknd - Take my breath.
Óbyggð - kortlagning víðerna er heiti á verkefni til verndar víðerna á hálendi Íslands, en að því koma bæði fræðimenn og áhugafólk. Markmiðið er kortlagning annars vegar og vitundarvakning hins vegar og Finnur Ricart Andrason, einn þeirra er að verkefninu standa, leit við hjá okkur og sagði okkur nánar um hvað málið snýst. Við Norðurkot II í Suðurnesjabæ er eitt stærsta kríuvarp landsins að finna. Þar býr Sigríður Hanna Sigurðardóttir, húsfreyja og æðarbóndi, en hún hefur ásamt eiginmanni sínum annast æðavarp á staðnum í rúm 20 ár. Sigríður Hanna segir árið í ár hafa verið gott kríuár og við slógum á þráðinn suður með sjó og heyrðum meira af því. Neysla landsmanna virðist hafa aukist mikið undanfarið. Kortavelta í júlí mældist meiri en í hefðbundnum júlímánuði fyrir Covid-faraldurinn og einnig meiri en í síðustu jólavertíð. Ferðalög til útlanda hafa aukið kortaveltu erlendis og nú hægir á aukningu innlána í bankakerfinu. Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbankans. Una Jónsdóttir hagfræðingur hjá Landsbankanum kíkti í heimsókn til okkar. Talibanar tóku völdin hratt í Afganistan eftir að Bandaríkin sendu herlið sitt á brott úr landinu. Í Kabúl hefur ríkt ringulreið þar sem mikill fjöldi hefur reynt að komast úr landi. Margir geta ekki hugsað sér að búa áfram í borginni undir ógnarstjórn Talíbana þar sem réttindi kvenna eru virt að vettugi og tjáningarfrelsi fótum troðið. Alþjóðaráð Rauða krossins hefur sent frá sér ákall vegna ástandsins í Afganistan og hér á landi hafa samtökin hafið neyðarsöfnun. Atli Viðar Thorstensen, sviðsstjóri Hjálpar- og mannúðarsviðs Rauða krossins ræddi þessi mál við okkur. Við fengum akstursíþróttakonuna Hönnu Rún Ragnarsdóttur til okkar. Hún hefur, þrátt fyrir ungan aldur, fjölbreytta reynslu úr akstursíþróttaheiminum, sem ökumaður, aðstoðarökumaður, dómari og keppnisstjóri. Hún er einmitt keppnisstjóri Rallý Reykjavík sem er framundan um helgina og við ræddum mótorsportið við hana. Tónlist: Moses Hightower - Lífsgleði. Svavar Knútur og Irish Mythen - Hope and fortune. Nýdönsk - Flugvélar. Draumfarir og Kristín Sesselja - Með þér. GDRN, Flóni og Sinfó - Lætur mig. Sade - The sweetest taboo. Maneskin - Beggin. Prefab Sprout - Cars and girls. Queen - I want it all.
Nú er leitað að 100 unglingum á aldrinum 12- 18 ára, til að taka þátt í gjörningi sem tengist ljóði Halldórs Laxness, Únglingurinn í skóginum. Gjörningurinn verður frumsýndur í Öskjuhlíðaskógi á listahátíðinni Plöntutíð í byrjun september, þar sem öll verkin eru á einhvern hátt tengd gróðri eða plöntum. Listakonan og dansarinn Ásrún Magnúsdóttir sem stendur fyrir leitinni að unglingunum og gjörningnum, sagði okkur betur frá þessu. Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið FLOW hefur vakið athygli í Bretlandi eftir að BBC fjallaði um það í nýsköpunar- og tækniþættinum Click, sem nær til 350 milljóna áhorfenda á heimsvísu. FLOW framleiðir hugleiðslubúnað byggðan á sýndarveruleika þar sem notendur geta m.a snúið sér í 360 gráðu hring og skoðað sig um á gossvæðinu í Geldingadölum, á meðan þeir eru leiddir í gegnum hugleiðsluæfingu undir íslenskri tónlist. Stefán Árni Þorgeirsson og Tristan Elisabeth Gribbin stofnendur FLOW komu til okkar og sögðu okkur frá FLOW. Við forvitnuðumst um fjallahjólaleiðir í Fljótsdal og heyrðum í Júlíu Hjartardóttur fyrir austan sem rekur Hel-fjallahjólaferðir. Sífellt fleiri leiðir eru skráðar inn á Fatmap sem er þrívíddarkort fyrir útivistarfólk. Við slógum á þráðinn austur. Landvernd sendi í gær frá sér harðorða yfirlýsingu í kjölfar skýrslu IPCC um loftslagsmál. Landvernd krefst róttækra breytinga á loftslagsstefnu Íslands og að loftslagsaðgerðir verði ríkjandi kosningamál allra flokka og fjölmiðla í komandi alþingiskosningum. Niðurstöður skýrslunnar séu engar nýjar fréttir og nú verði að grípa til aðgerða. Þær Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri og Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir varaformaður Landverndar komu til okkar og fóru yfir málið. Thule ferðavörufyrirtækið, sem er eitt af þeim stærri í heiminum, ætlar að taka upp allt sitt markaðsefni á Íslandi í þessum mánuði og þeim næsta. Um risavaxið verkefni er að ræða og kemur fjöldi þekktra jaðaríþróttamanna fram í myndefninu þar sem íslensk náttúra verður í forgrunni. Bjarni Ingimar Júlíusson sölustjóri hjá Stillingu sagði okkur meira af þessu. Tónlist: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Ég fer í nótt. Helgi Björnsson - Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker. Selma Björnsdóttir - If I had your love. The Beatles - Day tripper. Snorri Helgason - Haustið 97. Foxy Brown - Oh yeah. Hipsumhaps - Bleik ský. Lorde - Solar power. Leon Bridges - Steam. Svavar Knútur og Irish Mythen - Hope and fortune. U2 - Beautiful day. Sigrid - Mirror.
Skógareldar geisa í Tyrklandi, ferðafólk hefur neyðst til að forða sér frá vinsælum áfangastöðum við ströndina og mannfall hefur orðið. Slökkviliðsmenn berjast enn við skógarelda á sjö stöðum í Tyrklandi en tekist hefur að slökkva 120 elda. Þá hafa eldar líka geisað í Grikklandi en þar er fordæmalaus hitabylgja. Vilhjálmur Egilsson, fyrrum alþingismaður og rektor, dvelur í Tyrklandi ásamt konu sinni um þessar mundir og er staddur við Eyjahafið í borginni Didim. Við hringdum í Vilhjálm og spurðum frétta. Metfjöldi Covid smita hefur greinst undanfarna daga, en fjöldi smitaðra hefur verið bólusettur. Meirihlutinn virðist ekki verða mikið veikur og því virðist sem bólusetningarnar haldi. Þá er spurning hvort talning á smitum sé rétta leiðin í næstu aðgerðum sóttvarnayfirvalda gegn faraldrinum? Við tókum stöðuna á staðgengli sóttvarnarlæknis, Kamillu Sigríði Jósefsdóttur. Við hringdum til Japans og tókum stöðuna á Ólympíuleikunum með Einar Erni Jónssyni íþróttafréttamanni. Í dag hefjast Hinsegin dagar sem standa yfir í viku. Gleðigangan hefur verið stór partur, og í raun hápunktur, Hinsegin daga. En í ár verður ekkert af henni frekar en í fyrra vegna samkomutakmarkanna. En það verður samt nóg um að vera og við hringdum í Ragnar Veigar Guðmundsson sem er í stjórn Hinsegin daga. Tæknihornið snéri aftur eftir sumarfrí í dag þegar Guðmundur Jóhannsson mætti til okkar og ræddi djúpfalsanir, morgunkornssjálfsala og snjallsápuskammtara. Tónlist: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Tölum saman. Sade - Flower of the universe. Svavar Knútur og Irish Mythen - Hope and fortune. Friðrik Dór - Hvílíkur dagur. Harry Styles - Sign of the times. Grafík - Þúsund sinnum segðu já. Elín Ey - Ljósið. Blur - Song 2. Manic Street Preachers - Orwellian. Prins Póló - Niðri á strönd. Unnsteinn Manúel - Lúser.
Svavar Knútur - Janúar - a 2019 single on Dimma Records.Support the show: https://www.kexp.org/donateSee omnystudio.com/listener for privacy information.