Háskaleikur

Follow Háskaleikur
Share on
Copy link to clipboard

Háskaleikur er danstónlistarþáttur með Áskeli (BORG) í beinni útsendingu á föstudagskvöldum á Útvarp 101 og á 101.live milli kl. 20:00 - 22:00. Þátturinn er klukkutími af tónlist og tali þar sem Áskell rennir yfir nýjustu strauma og stefnur í danstónlistarheiminum auk klukkutíma gestamix.

Útvarp 101


    • Dec 13, 2019 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 1h 59m AVG DURATION
    • 35 EPISODES


    Search for episodes from Háskaleikur with a specific topic:

    Latest episodes from Háskaleikur

    13. Des 2019 - Jónbjörn

    Play Episode Listen Later Dec 13, 2019 114:04


    Jónbjörn kom í Háskaleik og hitaði upp fyrir giggið sitt á Kaffibarnum seinna sama kvöld.

    8. Nóv 2019 - Kerr Wilson (Breakfast 013)

    Play Episode Listen Later Nov 8, 2019 124:32


    Áskell renndi yfir glænýja tónlist ásamt því að spila upptöku af Kerr Wilson setti frá Breakfast viðburðinum

    18. Október 2019 - Yamaho - You Got To Believe Mix

    Play Episode Listen Later Oct 18, 2019 123:05


    Í nýjasta þætti Háskaleiks spilaði Áskell glænýja tónlist fyrri klukkutímann og svo fékk You Got To Believe mixið hennar Yamaho að óma þann seinni. Þéttur þáttur af góðri tónlist.

    11. Október 2019 - Áskell

    Play Episode Listen Later Oct 11, 2019 119:07


    Áskell sneri aftur eftir mánaðarfjarveru með stútfullan þátt af glænýrri tónlist

    4. Október 2019 - Fruit

    Play Episode Listen Later Oct 4, 2019 119:43


    Lokaþáttur Lagaffe Tales takeover var ekki af verri endanum. Jónbjörn tók í spilarana í fyrri klukkutímanum með blöndu af breakbeats og elektrói! Fruit, íslenskur producer/dj búsettur í Kaupmannahöfn, sendi yfir hressandi mix fyrir seinni klukkutímann, njótið!

    27. September 2019 - Intr0beatz

    Play Episode Listen Later Sep 30, 2019 121:05


    Lagaffe Tales fengu til sín engan annan en Intr0beatz í stúdíóið þessa vikuna! Jónbjörn og Viktor Birgiss spiluðu alskonar hressa tóna fyrri klukkutímann áður en Intr0beatz steig á stokk, njótið!

    20. September 2019 - Moff & Tarkin

    Play Episode Listen Later Sep 27, 2019 121:59


    Lagaffe Tales takeover heldur áfram, Jónbjörn og Viktor Birgiss tóku b2b DJ sett fyrsta klukkutímann með slatta af fersku húsi. Góðkunningi Lagaffe til margra ára, Moff & Tarkin, tók yfir seinni klukkutímann með funheiti gestamix beint frá Vín, njótið!

    13.September 2019 - BROT Special (Jónbjörn & Felix Leifur)

    Play Episode Listen Later Sep 15, 2019 124:05


    Lagaffe Tales takeover heldur áfram, í þetta skiptið eru Jónbjörn og Felix Leifur með BROT special. Tveggja tíma spjall þar sem þeir fara yfir ýmislegt tengdu Lagaffe Tales og nýju vinyl seríu þeirra: BROT

    6. September 2019 - Lagaffe Tales Takeover

    Play Episode Listen Later Sep 6, 2019 120:22


    Lagaffe Tales tóku yfir Háskaleik í september meðan Áskell var í fæðingarorlofi. Jónbjörn og Viktor Birgiss hafa rekið útgáfufyrirtækið Lagaffe Tales við góðan orðstír síðustu ár og verið áberandi um allan heim.

    30. Ágúst 2019 - Jónbjörn

    Play Episode Listen Later Aug 30, 2019 120:13


    Jónbjörn hefur verið áberandi nafn í íslensku senunni síðustu ár enda ekki við eina fjölina felldur. Hann hefur verið búsettur í Berlín og getið sér góðs orðstírs fyrir plötusnúðakænsku sína þar. Jónbjörn rekur útgáfuna Lagaffe Tales með Viktori Birgiss auk þess að hafa gefið út sínar eigin tónsmíðar hjá D.KO, Neo Violence, FALK og Pompon records. Mikill heiður að fá Jónbjörn aftur heim til Íslands og Háskaleikur þakkar honum kærlega fyrir komuna í þáttinn.

    16. Ágúst 2019 - Áskell

    Play Episode Listen Later Aug 16, 2019 119:55


    Áskell spilaði glænýja tónlist í Háskaleik

    02. Ágúst 2019 - Áskell

    Play Episode Listen Later Aug 2, 2019 62:11


    Áskell spilaði nýja sumarlega tóna í Háskaleik

    5. Júlí 2019 - Sonur Sæll

    Play Episode Listen Later Jul 5, 2019 116:20


    Sonur Sæll hefur verið áberandi bak við spilarana í höfuðborginni síðustu ár. Hann mætti í þráðbeina útsendingu og spilaði allskonar geggjaða gullmola

    28. Júní 2019 - Fusion Groove

    Play Episode Listen Later Jun 28, 2019 117:47


    Fusion Groove kom í heimsókn til Áskels í Háskaleik og spilaði feska tóna.

    14. Júní 2019 - DJ Caspa & Intr0beatz

    Play Episode Listen Later Jun 14, 2019 117:50


    DJ Caspa & Intr0beatz tóku yfir Háskaleik í fjarveru Áskels föstudagskvöldið 14. júní. Ferskir tónar og hjal, banters og góð tónlist

    7. Júní 2019 - Áskell

    Play Episode Listen Later Jun 7, 2019 121:37


    Áskell spilaði ferska tóna í Háskaleik í fínu sumarstuði

    31. Maí 2019 - Carla Rose

    Play Episode Listen Later May 31, 2019 120:25


    Carla Rose var gestur Háskaleiks síðasta föstudagskvöld maímánaðar. Hún kemur fram á Secret Solstice hátíðinni í sumar og hitaði upp með smá spjalli og góðum tónum

    24. Maí 2019 - Jack The House Crew

    Play Episode Listen Later May 24, 2019 123:34


    Jack The House Crew mætti með stútfulla tösku af oldschool jackin house plötum beint frá Japan og tók þrumu sett í Háskaleik.

    17. Maí 2019 - Áskell

    Play Episode Listen Later May 22, 2019 125:00


    Áskell spilaði glænýja tónlist og ferska tóna í beinni útsendingu í Háskaleik á Útvarpi 101 föstudaginn 17. maí.

    10. Maí 2019 - Símon fknhndsm

    Play Episode Listen Later May 13, 2019 122:10


    Hinn fjallmyndalegi plötusnúður og gleðigjafi Símon fknhndsm kom í stúdíóið til Áskels og tók þrusu sett með glænýrri tónlist. Símon hefur verið áberandi á bak við spilarana á hinum ýmsu skemmtistöðum ásamt því að vera útvarpsmaðurinn á bak við Funkþáttinn og Partý Zone! https://soundcloud.com/simonfknhndsm

    03. Maí 2019 - Sbeen Around

    Play Episode Listen Later May 6, 2019 120:40


    Sbeen Around var gestur Áskels í Háskaleik föstudagskvöldið 3. maí. Sbeen Around hefur verið virk plötusnælda í íslensku hússenunni síðustu ár og vakið athygli með mixseríurnar House Salad Music og MUG Melodies þar sem hún spilar djúpa og jackin' hústóna. https://soundcloud.com/sbeenaround

    26. Apríl 2019 - Ezeo

    Play Episode Listen Later Apr 29, 2019 117:56


    Ezeo var gestur Áskels í Háskaleik þann 26. apríl. Ezeo er maðurinn á bak við ViBES collective sem hafa gert góða hluti á klúbbum Reykjavíkur síðustu ár. Ezeo spilar djúpa og minimalíska tóna í hæsta gæðaflokki. https://soundcloud.com/dj-ezeo

    12. Apríl 2019 - DJ Katla

    Play Episode Listen Later Apr 16, 2019 123:17


    DJ Katla kom í Háskaleik og tók sett eins og hún gerir best. Allskonar skemmtilegir stílar og stuð blandað saman í klukkutíma mix.

    5. Apríl 2019 - Áskell

    Play Episode Listen Later Apr 8, 2019 123:19


    Áskell spilaði ferska tónlist í nýjasta þætti Háskaleiks á Útvarp 101

    29. Mars 2019 - Janus Rasmussen

    Play Episode Listen Later Apr 2, 2019 122:05


    Janus Rasmussen sendi frá sér sína fyrstu sólóplötu, Vín, síðasta föstudag og kom í Háskaleik að ræða plötuna og ferilinn ásamt því að taka DJ sett í sérstökum takeover þætti.

    22. Mars 2019 - Áskell

    Play Episode Listen Later Mar 25, 2019 126:01


    Í Háskaleik þann 22. mars á spilaði Áskell nýja tónlist auk þess sem settið hans frá bílakjallaranum á Sónar Reykjavík árið 2017 fékk að hljóma

    15. Mars 2019 - Felix Leifur

    Play Episode Listen Later Mar 18, 2019 120:21


    Felix Leifur var sérstakur gestur Háskaleiks föstudaginn 15. mars. Áskell spurði hann spjörunum úr varðandi ferilinn, Brot, tónlistina, sömplin og næstu skref. Öll tónlistin í þættinum er frumsamin, óútgefið og útgefið í bland og margt sem hefur aldrei heyrst í útvarpi áður. This is a Felix Leifur special edition of Háskaleikur. All the music is made by Felix Leifur. A lot of the tunes are unreleased.

    8. Mars 2019 - Polar Attraction

    Play Episode Listen Later Mar 12, 2019 118:00


    Gestur þáttarins 8. mars var Polar Attraction. Polar Attraction er samstarfsverkefni Jadzia & Kosmodod sem búsett eru í Berlín. Lagið þeirra „Slippin“ kemur út á safnplötunni „Blizzard People“ á Sweaty Records síðar í mánuðnum. Settið þeirra fyrir Háskaleik samanstendur einungis af frumsömdu efni.

    01. Mars 2019 - KrBear

    Play Episode Listen Later Mar 4, 2019 122:06


    Gestur þáttarins 1. mars var KrBear. KrBear hefur verið áberandi á skemmtistöðum Reykjavíkur síðustu ár með sín djúpu og dulúðarfullu sett. Hans fyrsta útgáfa kemur út síðar á árinu og má heyra mikið af frumsömdu efni í settinu hans. https://soundcloud.com/krbear

    22. Feb 2019 - Viktor Birgiss

    Play Episode Listen Later Feb 25, 2019 120:07


    Gestur þáttarins þessa vikuna var Viktor Birgiss. Viktor Birgiss hefur verið virkur þátttakandi í íslensku hússenunni síðastliðinn áratug. Viktor og Jónbjörn stofnuðu útgáfufyrirtækið Lagaffe Tales árið 2012 og hefur tónlist þeirra dreifst út um allan heim á síðustu árum. Tónsmíðar Viktors hafa verið gefnar út á labelum s.s. Love Potion, Etoka Shapes og á Lagaffe Tales. https://soundcloud.com/birgiss

    15. Feb. 2019 - Ómar E

    Play Episode Listen Later Feb 18, 2019 120:37


    Gestur þáttarins þessa vikuna var Ómar E. Ómar E stofnaði útgáfufyrirtækið BORG ásamt Áskeli og Jóni Reginbald árið 2014. Ómar E hefur komið víða við á síðustu árum með DJ giggum í Leicester, Berlín og Amsterdam. https://soundcloud.com/omaregill

    8. Feb 2019 - Thorgerdur Johanna

    Play Episode Listen Later Feb 11, 2019 120:42


    Gestur þáttarins þessa vikuna var Thorgerdur Johanna sem hefur verið að gera góða hluti í Oslóar senunni síðustu ár. Hún er ein af mest spennandi nýjum íslenskum DJ-um sem komið hafa fram síðustu ár. Thorgerdur Johanna kemur fram á Sónar Reykjavík 2019. @thorgerdur-johanna

    01. Feb 2019 - Carlo & Intr0beatz

    Play Episode Listen Later Feb 4, 2019 122:05


    Háskaleikur er danstónlistarþáttur með Áskeli í beinni útsendingu á föstudagskvöldum á Útvarp 101 og á 101.live milli kl. 20:00 - 22:00. Gestir þáttarins eru: Carlo & Intr0beatz DJ Áskell for the first hour and then Carlo & Intr0beatz guestmix for the second hour

    25. Jan 2019 - DJ Caspa

    Play Episode Listen Later Jan 28, 2019 122:05


    Háskaleikur er danstónlistarþáttur með Áskeli í beinni útsendingu á föstudagskvöldum á Útvarp 101 og á 101.live milli kl. 20:00 - 22:00. Gestur þáttarins er: DJ Caspa DJ Áskell for the first hour and then DJ Caspa special guestmix for the second hour https://soundcloud.com/tundecas41

    18. Jan 2019 - DJ Yamaho

    Play Episode Listen Later Jan 21, 2019 121:44


    Háskaleikur er glænýr danstónlistarþáttur með Áskeli í beinni útsendingu á föstudagskvöldum á Útvarp 101 og á 101.live milli kl. 20:00 - 22:00. Fyrsti gestur var engin önnur en DJ Yamaho https://soundcloud.com/yamaho

    Claim Háskaleikur

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel