POPULARITY
Ljúfmennið Gunnleifur Gunnleifsson mætti til Gandalf í þessari viku. Mjög gott spjall um tilfinninguna að vera hættur, ógleði og kvíði í leik á móti Hollandi og margt fleira mjög áhugavert. Íslenski boltinn, enski boltinn, Dominos á bullandi yfirsnúningi og smá handkast sem strákarnir vissu ekkert um. Loksins aftur áhugaverður þáttur hjá Gandalf.....alltaf góður samt !
Dr. Football, Keli og Gunnleifur Gunnleifsson
Ólafur Stígsson þjálfari Fylkis í PepsiMax deild karla var á línunni og Arnar Grétarsson sérfræðingur þáttarins í deildinni kom í hljóðver. Gunnleifur Gunnleifsson leikmaður Breiðabliks á afmæli í dag og ég sló á þráðinn. Þá heyrði ég í Kristínu Ýr um PepsiMax deild kvenna. Allt var þetta í beinni á SportFM 102.5 í dag milli klukkan 16 og 18.
Spurningakeppni milli liðanna í Pepsi Max deildinni. Við byrjum með 8 liðum og svo stendur uppi einn sigurvegari. Fyrsta viðureign er leikur HK og Breiðabliks. Hafsteinn Briem keppir fyrir HK en goðsögnin Gunnleifur Gunnleifsson fyrir Breiðablik.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net hélt upp á tíu ára afmæli sitt á X977 á síðasta ári með því að velja úrvalslið áratugarins í efstu deild á Íslandi, 2009-2019. Heyrt var í öllum leikmönnum liðsins og þjálfari valinn fyrir þetta magnaða lið. Hér er samantektarþáttur þar sem spiluð eru brot úr viðtölum við þessa fræknu kappa sem komust í þetta magnaða lið. Liðið: Gunnleifur Gunnleifsson; Pétur Viðarsson, Daníel Laxdal, Eiður Aron Sigurbjörnsson, Bjarni Ólafur Eiríksson; Davíð Þór Viðarsson, Bjarni Guðjónsson, Baldur Sigurðsson, Atli Guðnason, Óskar Örn Hauksson, Atli Viðar Björnsson. Þjálfari Heimir Guðjónsson.
Í þættinum fáum við heldur betur góða gesti til okkar. Gunnleifur Gunnleifsson markmaður Breiðabliks og Stefán Árni Pálsson fréttamaður og íþróttalýsari ræddu hlutina með okkur. Við fórum yfir leiki helgarinnar og gerðum upp árið í Enska Boltanum ásamt því að ræða Pepsi Max deildina og Íslenska Landsliðið.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir fyrstu 8 umferðirnar í Ensku Úrvalsdeildinni og komandi verkefni Íslenska karla landsliðsins. Gestur þáttarins er Gunnleifur Gunnleifsson.
Elvar Geir og Tómas Þór héldu upp á tíu ára afmæli útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 í dag. Farið var yfir sögu þáttarins og einnig hitað upp fyrir Pepsi Max-deildina og farið yfir tíu leikmenn sem þáttastjórnendur eru virkilega spenntir fyrir að sjá í deildinni í sumar. Gestur var Gunnleifur Gunnleifsson sem var einlægur og skemmtilegur.
Aðeins að hita upp fyrir fimmtudaginn þarnæsta í Keiluhöllinni. Aron Bjarnason og Gunnleifur Gunnleifsson mættust í Hjöbbquiz. Veit ekki hvort þetta verði reglulegt en þetta er smá test.
Tónlist, spjall og fróðleikur að hætti hússins.
Halla Tómasdóttir er flutt til New York með fjölskyldu sinni og er orðin forstjóri alþjóðlegu samtakanna B-Team. Hún kom í Sunnudagssögur og ræddi um nýtt starf og markmið þessara merkilegu samtaka. Hún gerði upp forsetakosningarnar árið 2016 og sagði frá því augnabliki þegar hún mældist með 1% fylgi einum og hálfum mánuði fyrir kosningar og endaði með tæplega 28% fylgi, næst mesta fylgið á eftir Guðna Th. Jóhannessyni. Halla ræddi einnig upplifun sína sem móður og athafnkonu í íslensku viðskiptalífi árin fyrir efnahagshrunið. Gunnleifur Gunnleifsson markvörður og fyrirliði Breiðabliks í Pepsídeildinni var annar gestur þáttarins. Þar ræddi hann æsku sína og uppvöxt, sérkennilegan áhuga sinn fyrir Sovíetríkjunum þegar hann var sjö ára, baráttu sína við brennivínið og þegar hann tók ákvörðun 19 ára að hætta að drekka og hefur ekki drukkið síðan. Hann sagði einnig frá erfiðum foreldra-og bróðurmissi og hvernig hann langaði að verða betri maður. Í kjölfar ítrekaðra áfalla ákvað hann að hætta að blóta og segir það bestu ákvörðun sem hann hafi tekið. Umsjón: Helga Arnardóttir

Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Breiðabliks, er sigurvegarinn í litlu spurningakeppninni sem hefur staðið yfir á Fótbolta.net undanfarnar vikur. Hvert félag úr Pepsi-deildinni sendi einn fulltrúa í spurningakeppnina. Úrslitaeinvígið fór fram í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 í dag.