Í þáttunum förum við yfir mörg mismunandi málefni úr íþróttaheiminum. Í hverjum þætti tökum við eitthvað ákveðið mál fyrir tengt íþróttum hvort sem það er gamalt eða nýtt.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir allt það helsta. Meistaradeildin í vikunni, heimsfaraldur COVID 19 og Enski Boltinn.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir ýmislegt. Maggi segir okkur frá ferð sinni til Dublin og einnig fórum við vel yfir Manchester slaginn og allt það helsta frá helginni.
Í þættinum hringir Haffi í Magga sem er staddur í Dublin í Írlandi. Saman förum við yfir allt það helsta úr í vikunni og spáum í spilin fyrir leiki helgarinnar. Þar á meðal stórleikinn á Old Trafford.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir ýmislegt. Eurovison, Larp, Enska Boltann um helgina og skemmtilegt lið Búlgara árið 1994.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir Meistaradeildina í vikunni og allt það helsta sem er að frétta úr fótboltaheiminum. Í lokin spáum við fyrir um leiki helgarinnar í Enska Boltanum.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir umferð helgarinnar í Enska Boltanum og spá í Meistaradeildina í vikunni.
Í þættinum fáum við góðan gest til okkar. Birnir Snær Ingason leikmaður HK kíkti í heimsókn og spjallaði við okkur um sinn knattspyrnuferil hingað til og Enska Boltann.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir það helsta í fréttum og gera upp helgina í Enska Boltanum ásamt því að skoða Meistaradeildina í vikunni.
Í þættinum fáum við góðan gest til okkar. Bergsveinn Ólafsson fyrirliði Fjölnis kíkti í heimsókn og fór yfir ferilinn sinn í knattspyrnu hingað til. Margt skemmtilegt sem hann hafði að sega. Íslandsmeistari með FH, spilaði í Evrópukeppni og margt fleira.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir ýmis málefni. Þar stendur hæst Enski Boltinn um helgina. Spurs með frábærann sigur, Everton komu til baka og Bruno Fernandes spilaði sinn fyrsta leik fyrir Man Utd.
Gestur þáttarins er Hrafn Kristjánsson. Í þættinum förum við yfir leiki vikunnar og spáum í Enska Boltanum um helgina.
Í þættinum fáum við Hrafn Kristjánsson til okkar. Við ræddum fráfall Kobe Bryant, fórum yfir ferilinn og áhrif hans á íþróttaheiminn í heild sinni.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir umferðina sem var nú í miðri viku í Enska Boltanum ásamt því aða spá aðeins í Pepsi Max deildinni.
Í þættinum fáum við góðan gest til okkar. Runólfur Trausti stuðningsmaður Manchester United kíkti á okkur að ræddi með okkur heildarstöðu klúbbsins í dag. Við spáum svo í stórleikinn um helgina sem og aðra leiki.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir ýmis málefni. Þar ber helst að nefna Enska Boltann um helgina. Kun Aguero setti tvö met og Rashford er að eiga sitt besta tímabil.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir ýmis málefni. Allt frá Raunveruleikaþáttum yfir í tónlist úr Hafnarfirði. Aðalumræðuefnið var samt að sjálfsögðu knattspyrna. Bæði Íslensk og Erlend.
Í þættinum fáum við heldur betur góða gesti til okkar. Gunnleifur Gunnleifsson markmaður Breiðabliks og Stefán Árni Pálsson fréttamaður og íþróttalýsari ræddu hlutina með okkur. Við fórum yfir leiki helgarinnar og gerðum upp árið í Enska Boltanum ásamt því að ræða Pepsi Max deildina og Íslenska Landsliðið.
Í þættinum fáum við skemmtilegan gest til okkar. Adam Pálsson leikmaður Keflavík gerir upp jólin í Enska Boltanum með okkur og meira til.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir það helsta sem gerðist í vikunni og ræddum jólatörnina í Enska boltanum sem er alltaf skemmtileg.
Í þættinum ræða Maggi og Haffi leikina í Enska boltanum um helgina og tala aðeins um jólin og það sem fylgir þeim.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir ýmis málefni. Þar á meðal gerðum við upp Champions League í vikunni og veltum fyrir okkur helginni í Enska Boltanum.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir leiki helgarinnar í Enska Boltanum. Í seinni hlutanum fengum við góðan gest til okkar og fórum aðeins í Ítalska og Spænska boltann.
Knattspyrnu og tónlistarmaðurinn Logi Tómasson kíkir í heimsókn til okkar og fer yfir árið 2019 hjá sér. Í seinni hlutanum fóru Maggi og Haffi yfir leiki helgarinnar í Enska Boltanum.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir ýmis málefni líðandi stundar og skoða Meistaradeildina í vikunni ásamt því að spá í Enska boltann um helgina.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir leiki helgarinnar í Enska Boltanum og skoða Meistaradeildina í vikunni.
Í þættinum fáum við Hrannar Már Gunnarsson stuðningsmann Tottenham í heimsókn og ræðum atburði vikunnar ásamt því að hita upp fyrir helgina.
Í þættinum fáum við góðan gest til okkar. Haraldur Hróðmarsson yfirþjálfari í yngri flokkum hjá Val ræðir Íslenska Landsliðið og meira til.
Í þættinum fáum við góðan gest til okkar. Damir Muminovic leikmaður Breiðabliks talar um sinn feril og fer yfir leiki helgarinnar með okkur í Enska boltanum.
Í þættinum fáum við góðan gest til okkar. Ásta Eir Árnadóttir leikmaður Breiðabliks og Íslenska landsliðsins ræðir við okkur sinn feril og Íslenska Kvennaknattspyrnu. Einnig hitum við upp fyrir leiki helgarinnar á Englandi.
Í þættinum fáum við til okkar mjög skemmtilegan gest. Guðmundur Þór Júlíusson leikmaður HK og einn af dáðustu sonum 112 mætti og fór yfir leiki helgarinnar í Enska Boltanum og meira til.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir Carabao Cup úr vikunni og hita um upp fyrir helgina í Enska Boltanum.
Í þættinum fáum við góðan gest til okkar og gerum upp leiki helgarinnar í Enska boltanum og margt fleira. Gestur þáttarins er Stefán Árni Pálsson.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir meistaradeildina í vikunni og ræða það sem er framundan í Enska boltanum um helgina.
Í þættinum fáum við frábæran gest. Hjálmar Örn skemmtikraftur kíkti í heimsókn til okkar og fór yfir leiki helgarinnar í Enska Boltanum. Í seinni hlutanum fengum við okkar helsta sérfræðing varðandi Ítalska boltann og ræddum að sjálfsögðu Íslendingana okkar sem gerðu það gott um helgina.
Í þættinum hitum við upp fyrir helgina í Enska boltanum. Fórum yfir vandræði Spurs, stórleikinn á Old Trafford og margt fleira. Gestur dagsins er Hrannar Már. Mikill Víkingur og Spursari.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir leikina gegn Frökkum og Andorra. Einnig skoðum við möguleika Íslands í framhaldinu. Gestur þáttarins er Hörður Magnússon.
Í þættinum fara Maggi og Haffi yfir fyrstu 8 umferðirnar í Ensku Úrvalsdeildinni og komandi verkefni Íslenska karla landsliðsins. Gestur þáttarins er Gunnleifur Gunnleifsson.
Í þættinum fara Maggi, Haffi og Örvar um víðann völl og ræða mörg mismunandi málefni úr íþróttaheiminum. Í seinni hlutanum áttum við skemmtilega umræðu um Iconic framherjapör úr boltanum.
Í þættinum fara Maggi, Haffi og Örvar yfir liðin í Ensku Úrvalsdeildinni og hvað er framundan hjá þeim í sumar. Í seinni hlutanum ræddum við hvaða lið gætu ógnað topp 6 og völdum draumalið leikmanna fyrir utan topp 6.
Í þættinum fara Maggi, Haffi og Örvar yfir þau áhrif sem Jurgen Klopp hefur haft á Liverpool og í seinni hlutanum ræddum við Íslenska landsliðið og dómara á Íslandi.
Í þættinum fara Maggi, Haffi og Örvar yfir það hvað hefur breyst hjá Manchester United eftir að Sir Alex Ferguson hættir og renna svo yfir byrjunina á Pepsi Max deildinni.
Í þættinum fara Maggi, Haffi og Örvar yfir grófa leikmenn í PremierLeague sem höfðu ekki mikil gæði en reyndu að bæta það upp með misgáfulegri vitleysu. Í seinni hlutanum rifjuðum við svo upp nokkrar sögur af leikmönnum sem hafa átt erfitt uppdráttar utan vallar í einkalífinu.
Í þættinum fara Maggi, Haffi og Örvar yfir áhrif erlendra leikmanna á Ensku Úrvalsdeildina og velta fyrir sér hvaða leikmenn hafa staðið upp úr í sögunni. Í lokin ræddum við örstutt seinni leikina í Meistaradeildinni.
Í þættinum fara Maggi, Haffi og Örvar yfir feril þessara leikmanna og skiptast á skoðunum um hver þeirra hafi verið bestur. Allir þrír frábærir leikmenn, en fólk hefur rifist um það í nokkur ár hver hafi staðið upp úr.