Podcasts about Hauksson

  • 64PODCASTS
  • 1,051EPISODES
  • 42mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • May 13, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about Hauksson

Latest podcast episodes about Hauksson

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - þriðjudagur 13. maí 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 13, 2025 84:55


Öll viðtölin úr þætti dagsins ássamt símatíma: Einar Sveinbjörnsson um góða veðrið og spá fyrir júní Jón G. Hauksson, fyrrverandi ritstjóri Frjálsrar verslunar og nú annar umsjónarmanna hlaðvarpsins Hluthafaspjallið Símatími Yrsa Löve ofnæmislæknir Svanur Guðmundsson, sjávarútvegsfræðingur og framkvæmdastjóri Bláa hagkerfisins Ingrid Kuhlman leiðbeinandi og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun um hrós á vinnustöðum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson um brotthvarf Úlfars Lúðvíkssonar lögreglustjóra á Suðurnesjum Sigga Beinteins um 35 ára afmæli lagsins Eitt lag enn  

Rauða borðið
Rauða borðið 7. maí - Þjóðarmorð, reynsluboltar, fríhöfn, rafmagnsleysi, þroski barna og bridge

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 7, 2025 283:59


Miðvikudagur 7. maí Þjóðarmorð, reynsluboltar, fríhöfn, rafmagnsleysi, þroski barna og bridge Gunnar Smári slær á þráðinn til Qussay Odeh í Jerúsalem og innir hann eftir viðbrögðum Palestínumanna við þjóðarmorðinu og vaxandi kúgun. Sigurjón fær til sín reynslubolta að ræða samfélagsmál: Ásmundur Friðriksson fyrrverandi þingmaður, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Jón G. Hauksson blaðamaður ræða helstu fréttamál. Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir Gunnar Smára hvernig erlent fyrirtæki sem rekur Fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli misnotar einokunarstöðu sína til þrýsta niður verði frá birgjum. Fyrst og fremst til að auka eigin hagnað. Árni Baldur Möller verkfræðingur og Jón Skafti Gestsson hagfræðingur hjá Landsneti ræða um stórfellt rafmagnsleysi á Íberíuskaganum og velta fyrir sér í samtali við Gunnar Smára hvort sambærilegur skaði gæti orðið vegna veikleika flutningskerfisins hérlendis. Að fæðast snemma á árinu er stærri breyta en áður hefur verið talið þegar kemur að því að börn fái tækifæri til að keppa í úrvalshópum í námi og íþróttum. Daði Rafnsson doktorsnemi segir Birni Þorláks frá því hverju það skiptir að fæðast snemma árs eða seint. Bridgeþáttur Samstöðvarinnar fjallar í kvöld um úrslit Íslandsmótsins í sveitakeppni og hið stórskemmtilega kjördæmamót. Aðalsteinn Jörgensen stigahæsti spilari landsins og Ragnar Magnússon menntaskólakennari og glænýr Íslandsmeistari ræða við Björn Þorláks þáttastjórnanda og ber doblaða alslemmu á góma!

Segðu mér
Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og Arnar Hauksson leikarar

Segðu mér

Play Episode Listen Later Apr 16, 2025 40:49


Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og Arnar Hauksson leikarar segja frá útvarpsleikritinu „Sorrí hvað ég svara seint“ sem flutt verður um páskana.

FM957
Brennslan - 3. apríl 2025

FM957

Play Episode Listen Later Apr 3, 2025 100:07


Hvað er það erfiðasta við að verða örvhentur? Arinbjörn Hauksson, markaðsstjóri Elko fer yfir allt það helsta fyrir fermingar. Hversu vel er Egill að sér í dýraríkinu? Hvað þýða Íslensk orðatiltæki? Afhverju fengu allir leikarar í LOTR svona lítið greitt? Þetta og miklu meira til í þætti dagsins

Spegillinn
Samkeppnislagabrot sem fyrnast, gagnrýni á strandveiðar og umdeildir gestir á ísraelskri ráðstefnu um gyðingahatur

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 27, 2025 20:00


Rannsókn héraðssaksóknara á samkeppnislagabrotum fjögurra starfsmanna Samskipa og Eimskips var hætt í desember þar sem of langt hlé hafði verið gert á rannsókninni og hún taldist því fyrnd. Fjórir voru með réttarstöðu sakbornings í nærri sjö ár. Héraðssaksóknari og Samkeppniseftirlitið ætla að ræða stöðuna við dómsmálaráðherra. Formaður Neytendasamtakana segir samkeppnislagabrot hafa lítinn fælingarmátt ef engin sætir ábyrgð. Freyr Gígja Gunnarsson rýndi í málið og ræddi við Ólaf Þór Hauksson og Breka Karlsson. Sveitarstjórnir víða um land hafa lýst efasemdum um þær breytingar sem ríkisstjórnin hefur boðað á strandveiðum svo tryggja megi 48 daga samfellda vertíð. Ekki hafi verið sýnt fram á hvert eigi að sækja veiðiheimildir fyrir aukna strandveiði. Það megi ekki skerða kvóta til annarra útgerða. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta og ræðir við Gylfa Ólafsson og Jón Björn Hákonarson. Í dag lýkur alþjóðlegri, tveggja daga ráðstefnu í Jerúsalem, um gyðingahatur og hvernig skuli takast á við það. Ráðstefnan er haldin á vegum ráðuneytis um málefni gyðinga utan Ísraels og baráttu gegn gyðingahatri, undir yfirskriftinni: Hver eru helstu öflin á bak við gyðingahatur nútímans? Umræðuefnið er aðkallandi, því andúð og hatur í garð gyðinga hefur sannarlega farið vaxandi í hinum vestræna heimi undanfarin misseri. Þátttaka fjölda evrópskra öfga-hægrimanna hefur hins vegar vakið mikla gagnrýni og margir hættu við þátttöku. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson

Rauða borðið
Rauða borðið 18. mars - Þjóðarmorð, fátækt, klám, orgelleikur og guð

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 18, 2025 168:07


Þriðjudagur 18. mars Þjóðarmorð, fátækt, klám, orgelleikur og guð Fólkið í Gazaborg var vakið upp við loftárásir Ísraela og Bandaríkjanna. Félagið Ísland Palestína stóð fyrir mótmælum í morgun og þrýsti á íslenska ráðamenn um að setja á viðskiptabann og slíta stjórnarsamstarfi. María Lilja fær til sín Svein Rúnar Hauksson, formann FÍP og fara þau yfir fréttir dagsins frá Palestínu. Skylt er að vara við myndefni sem spilað verður í innslaginu en María Lilja klippti saman efni frá blaðafólki og almenningi á staðnum. Vaxtaumhverfi námslána er út úr kú og hafa breytingar sem orðið hafa á kerfinu sumpart aukið efnahagslega stéttaskiptingu. Þetta segir Lísa Margrét Gunnarsdóttir forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta en Björn Þorláksson ræðir við hana um slembilukku, tengda pólitískri hugmyndafræði hverju sinni sem veldur því að sumar kynslóðir fá hagstæð námslán en aðrar alls ekki. Við ræðum um ást og klám við Láru Martin, kvikmyndagerðarkonu og kvikmyndafræðing sem ræðir um erkitýpu vændiskonunnar í menningu okkar og gagnrýni kynlífsverkafólks á myndina Anora. Við endum Rauða borðið á umræðu um nýstárlega notkun guðshúsa. Björn Þorláksson ræðir við Kristján Hrannar Pálsson, organista. Stundum er sagt að kirkjurnar, hús í eigu almennings, standi of mikið auðar og að hugsanlega mætti auka nýtingu þessara bygginga sem sum okkar kalla guðshús.Við kynnum okkur nýjung í viðburðastarfi, svokallað orgelbíó sem Kristján Hrannar Pálsson organisti fræðir okkur um og fleira.

Bylgjan
Bítið - fimmtudagur 13. mars

Bylgjan

Play Episode Listen Later Mar 13, 2025 102:39


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari   Björk Úlfarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis-, gæða og öryggismála hjá Colas og formaður félags kvenna í vegagerð, ræddi við okkur um áhugaverða rannsókn sem hún er með í bígerð. Hlustendur tjáðu sig.   Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur og Bjarni Már Magnússon, prófessor við Háskólann á Bifröst, ræddu við okkur um varnarmál. Þórhildur Halldórsdóttir, dósent í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og barnasálfræðingur, ræddi við okkur um börn og samfélagsmiðla, símabann og fleira.   Arinbjörn Hauksson, forstöðumaður markaðsviðs Elko, mætti í Græjuhornið. Lagakeppni Bítisins.

Rauða borðið
Rauða borðið 12. feb - Spilling, öryggi, pólitík, jaðarljóð, klassík, brúarsmíði og heilnæmi

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 12, 2025 340:48


Miðvikudagur 12. febrúar Spilling, öryggi, pólitík, jaðarljóð, klassík, brúarsmíði og heilnæmi Þorvaldur Logason stjórnarformaður Transparency, Jóhann Hauksson blaðamaður og Þorvaldur Gylfason hagfræðingur eru sammála um að mæliskekkja hafi verið gerð varðandi spillingu á Íslandi fremur en að spilling sé á undanhaldi. Valur Ingimundarson prófessor ræðir öryggismál Evrópu í ljósi ummæla og stefnu Donald Trump. Sigurjón Magnús fær til sín reynslubolta að ræða daginn og veginn: Drífa Sigfúsdóttir varaformaður Landssambands eldri borgara, Ólafur Þ. Harðarson prófessor og Arnar Björnsson fréttamaður fara yfir stöðuna. Þorbera Fjölnisdóttir, varaformaður NPA miðstöðvar og Sigríður Jónsdóttir, aktivisti, listakona, liðskonur Tabú, femínískrar fötlunarhreyfingar, koma að Rauða borðinu og segja okkur frá Ljóðakvöldi RVK Poetics #17: Frá hjartarótum: Skrif eftir fatlaðar konur og jaðarsett kyn. Tónlistarnemarnir Sól Björnsdóttir og Sóley Lóa Smáradóttir taka á móti Hildigunni Halldórsdóttir fiðluleikara og Helga Jónssyni slagverkskennara og ræða tónlist og tónlistarkennslu. Auður Aðalsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit og Svartárkotssysturnar Sigurlína Tryggvadóttir og Guðrún S. Tryggvadóttir, sauðfjár og ferðaþjónustubændur, huldukonur í stjórn Huldu-Náttúruhugvísindaseturs, ræða um brúarsmíðina til framtíðar. Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, lögfræðingur og umhverfissinni og Guðrún Birna le Sage, framkvæmdastjóri SUM og verkefnastjóri Pietasamtakanna segja okkur frá Samtökum um áhrif umhverfis á heilsu, helstu ógnum og mikilvægi heilnæms umhverfis fyrir okkur öll.

Víðsjá
Veðurskeytin, Jinn andar, Ifigenía í Ásbrú/rýni, Myrkir músíkdagar/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 30, 2025 54:37


Veðurskeytin er leikin heimildarmynd sem verður frumsýnd í Rotterdam um helgina. Myndin fjallar um tímamót í lífi ástríðufulls fræðimanns, en Marteinn Helgi Sigurðsson, doktor í miðaldafræðum frá Cambridge-háskóla, þarf að endurskoða líf sitt þegar hann er greindur með geðhvörf. Bergur Bernburg leikstýrir og skrifar einnig handritið ásamt Jóni Atla Jónassyni, en þeir eru æskuvinir Marteins Helga. Jón Atli verður gestur okkar í dag. Annað kvöld býður Lífspekifélagið upp á fyrirlestur um yfirnáttúrulega anda í íslamskri trú og menningu. Fyrirlesturinn flytur Kristján Þór Sigurðsson, doktor í mannfræði, sem hefur sérhæft sig í íslamskri menningu. Hann kom í hljóðstofu í morgun og gaf okkur smá innsýn inn í tilvist þessara ósýnilegu eld-anda, sem kallaðir eru Jinn. Trausti Ólafsson rýnir í Ifígeníu í Ásbrú og Halldór Hauksson rýnir í upphafstónleika Myrkra músíkdaga.

Rauða borðið
Rauða borðið: Pólitíkin, fátækt, þöggun og vinstrið

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Nov 11, 2024 221:29


Mánudagurinn 11. nóvember Pólitíkin, fátækt, þöggun og vinstrið Við byrjum á umræðu um stöðuna í pólitíkinni. Drífa Snædal talskona Stígamóta, Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Páll Baldvin Baldvinsson rithöfundur og Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins greina stöðuna. Verður fátækt kosningamál? Ætti fátæk að vera kosningamál? Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, Vilborg Oddsdóttir félagráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og Laufey Líndal Ólafsdóttir formaður Pepp samtaka fólks í fátækt ræða stöðuna. Jóhann Hauksson blaðamaður ræðir mál Jóns Gunnarssonar, sem sakar Heimildina um alvarleg óheilindi, er til umræðu. Í lokin kemur Steingrímur J. Sigfússon og ræðir um stöðu Vg og vinstrisins.

Rauða borðið
Rauða borðið: Kosningar, skólamál, forseti USA, kennaraverkfall og heilbrigðiskerfið

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 28, 2024 258:49


Mánudagurinn 28. október Kosningar, skólamál, forseti USA, kennaraverkfall og heilbrigðiskerfið Við höldum áfram að ræða komandi kosningar: Bolli Héðinsson hagfræðingur, Davíð Þór Jónsson prestur og frambjóðandi Sósíalista, Halldóra Mogensen þingkona Pírata og Úlfar Hauksson stjórnmálafræðingur og skútuskipstjóri ræða stöðuna. Skólamál verða eitt af kosningamálunum: Kristín Björnsdóttir formaður Kennarafélags Reykjavíkur, Björgvin Þór Þórhallsson aðstoðarskólastjóri og Ragnar Þór Pétursson kennari Í Norðlingaskóla ræða skólamálin og meta áhrif þeirra á kosningarnar. Guðmundur Hálfdanarson prófessor og Magnús Helgason sagnfræðingur greina æsispennandi forsetakosningar í Bandaríkjunum og áhrif þeirra innanlands og utan. Kennarar eru að fara í verkfall: Þórunn Sif Böðvarsdóttir kennari í Laugalækjarskóla, Halldóra Guðmundsdóttir leikskólastjóri í Drafnarsteini, Helga Baldursdóttir varaformaður Félags framhaldsskólakennara og kennir í Tækniskólanum og Egill Helgason kennari í Drafnarsteini ræða stöðuna og í lokin ræðir Gunnar Alexander Ólafsson heilsuhagfræðingur um heilbrigðiskerfið.

Les podcasts de RadioVino, la radio du bon goût
Hoss Hauksson - Vigneron Islandais en Suisse

Les podcasts de RadioVino, la radio du bon goût

Play Episode Listen Later Oct 22, 2024 11:17


Août 2024 à Zurich. L'Association Suisse Vin Nature/ Verein Schweizer naturewein,  organisait son 4ème festival. L'occasion rêvée pour RadioVino de pouvoir parcourir en une journée, les cépages, les cantons et les différents vignobles suisses. Des langues, des expériences, des paysages, des profils si différents et des réalités si complémentaires réunis en un seul lieu.

Pathmonk Presents Podcast
Mastering B2B Digital Marketing: From Vikings to AI | Kristjan Hauksson from The Engine Nordic

Pathmonk Presents Podcast

Play Episode Listen Later Sep 30, 2024 16:38


In this insightful episode, we welcome Kristjan Hauksson, founder and CSO of The Engine Nordic, a digital marketing agency with roots in pre-Google SEO. Kristjan shares his journey from engineering to marketing, focusing on B2B strategies and account-based marketing. He discusses The Engine Nordic's approach to solving complex marketing challenges, their unique client acquisition methods, and the role of their website in lead generation. Kristjan also delves into the importance of understanding website visitors, the integration of AI in marketing, and the fascinating connection between Icelandic culture and their business approach.  

Spegillinn
Netsvik færast í aukana, hrottalegt morð í Bretlandi og vinsælt lag á Tiktok

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 27, 2024 20:05


Almennt og gegnumgangandi traust Norðurlandabúa til stofnana og næsta manns gerir þá berskjaldaða gagnvart netþrjótum. Þetta kemur fram í nýju sameiginlegu áhættumati norrænna löggæsluyfirvalda. Rætt verður við Ólaf Þór Hauksson, héraðssaksóknara. Fjallað verður um hrottalegt morð á Bretlandseyjum þar sem drengir á þrettánda aldursári voru sakfelldir. Fjölskyldan fórnarlambsins er ósátt með lengd dómanna því drengirnir tveir verða tvítugir þegar þeir ljúka afplánun. Hressilegt og kunnuglegt lag hefur verið notað meira en milljón sinnum undir stutt myndskeið á tiktok, instagram og youtube. Líklega hafa nær allir sem einhvern tíma hafa slæðst inn á þessa miðla heyrt það en færri þekkja líklega höfund þess. Í nýlegri umfjöllun í npr-útvarpinu bandaríska er sjónum og hlustum beint að Kevin MacLeod sem samdi lagið fyrir um tíu árum.

Fotbolti.net
Haukur Heiðar - Bikarúrslit, Deano og Alexander Isak

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Sep 17, 2024


Á laugardag fer fram bikarúrslitaleikur KA og Víkings á Laugardalsvelli; annað árið í röð mætast liðin í úrslitaleiknum. Í tilefni af því var KA-maðurinn Haukur Heiðar Hauksson fenginn til að hita aðeins upp fyrir leikinn. Haukur lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2021. Hann er uppalinn hjá KA, varð svo Íslands- og bikareistari með KR áður en hann tók skrefið út í atvinnumennsku og varð sænskur meistari með AIK. Stiklað er á stóru á ferli Hauks, í viðtalinu er rætt um Dean Martin, Alexander Isak, tilboð frá Leeds, EM 2016 og meiðslin sem settu strik í reikninginn.

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Fjósamennska í íslenska boltanum

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Aug 10, 2024


Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 10. ágúst. Lengjudeildin skoðuð, Kristinn Kjærnested fer yfir Bestu deildina og helstu fréttamál þaðan og Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA er á línunni frá Akranesi. Í lok þáttarins er rætt um enska boltann.

Karfan
Fyrstu fimm: Hermann Hauksson

Karfan

Play Episode Listen Later Aug 1, 2024 52:15


Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer fyrrum leikmaðurinn og sérfræðingur Körfuboltakvölds Hermann Hauksson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Ferill Hermanns í meistaraflokki var frá 1990 til 2002, en á honum lék hann fyrir KR, Njarðvík og Saint Niklas í Belgíu, en árið 1997 var hann valinn besti leikmaður efstu deildar á Íslandi. Þá var hann einnig á þessum tíma, 1994 til 2000 lykilleikmaður í íslenska landsliðinu, en í heild náð hann 64 leikjum fyrir Ísland.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.

Rauða borðið
Synir Egils: Flokkar, forseti, stjórnmál og hryllingurinn á Gaza

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 21, 2024 187:10


Sunnudagurinn 21 . apríl Synir Egils: Flokkar, forseti, stjórnmál og hryllingurinn á Gaza Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Árelía Eydís Guðmundsdóttir borgarfulltrúi Framsóknar, Katrín Oddsdóttir lögmaður og Vilhjálmur Þorsteinsson forritari og ræða helstu fréttir og stöðu samfélags og stjórnmála. Þá munu bræðurnir taka stöðunni á pólitíkinni og síðan kemur Sveinn Rúnar Hauksson læknir og baráttumaður fyrir frelsi Palestínu í tilefni af því að í vikunni verður hálft ár frá innrás Ísraelshers á Gaza sem þróast hefur í þjóðarmorð.

Samfélagið
Rammáætlun endurskoðuð, Arnar Páll á þöglu ströndinni, málfar og pistill frá Páli Líndal

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 19, 2024 59:31


Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra stofnaði á dögunum starfshóp sem á að endurskoða hlutverk rammaáætlunar - þess ferlis sem á að meta heildrænt og með langtímahagsmuni að leiðarljósi, hvað á að vernda, hvað á að virkja og hvað á að skoða betur. Hópurinn á að leggja fram tillögur að einfaldara og skilvirkara regluverki og á grundvelli þeirra tillagna hyggst ráðherra leggja fram frumvarp að nýjum lögum - Ekki síðar en á næsta löggjafarþingi. Í morgun fór fram málstofa þar sem fólk ræddi ólík sjónarmið, kosti en þó einkum galla rammaáætlunar, bæði stjórntækisins sjálfs og það hvernig því hefur verið beitt. Kolbeinn Óttarsson Proppé, ætlar að ræða við okkur um rammaáætlun. Hann á sæti í starfshópnum. Við símum til Tenerife. Þar er núna glampandi sól og 25 stiga hiti. Og í þessari ferðamannaparadís er Arnar Páll Hauksson, fyrrverandi fréttamaður hér á RÚV til áratuga og ritstjóri Spegilsins. Og hann situr ekki auðum höndum heldur starfar hann nú sem sjálfboðaliði og tekur þátt í stóru hreinsunarverkefni sem hann ætlar að segja okkur betur frá. Málfarsmínúta - orðið það. Páll Líndal, umhverfissálfræðingur, á sínum stað með pistil. Tónlist: DIONNE WARWICK - I'll Never Fall In Love Again. RAGNHEIÐUR GRÖNDAL - Don't Wake Me Up.

90 mínútur
433.is - Jón Þór Hauksson

90 mínútur

Play Episode Listen Later Mar 11, 2024 31:23


Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA er gestur þáttarins. Umsjón hefur Hörður Snævar Jónsson.

Mannlegi þátturinn
Áfallasaga kvenna, G vítamín og Grænhöfðaeyjar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 31, 2024 51:46


Ríflega 30 þúsund konur á aldrinum 18-69 ára tóku þátt í rannsókninni Áfallasaga kvenna, á árunum 2018-2019, sem gerir rannsóknina að einni þeirri stærstu sinnar tegundar á heimsvísu. Konurnar svöruðu ítarlegum spurningalista, meðal annars um áföll á mismunandi ævistigum, geðræn einkenni og heilsufar á fullorðinsárum. Áfallasaga kvenna er vísindarannsókn á vegum fræðikvenna við Háskóla Íslands og niðurstöðurnar hafa verið birtar í fjölmörgum vísindagreinum í virtum alþjóðlegum vísindaritum. Þær hafa meðal annars sýnt að 40% kvenna hafa orðið fyrir ofbeldi á lífsleiðinni og það er sterkur áhættuþáttur ýmissa geðrænna einkenna/raskana og hjarta- og æðasjúkdóma. Arna Hauksdóttir prófessor í Lýðheilsuvísindum kom í þáttinn og sagði okkur betur frá og því að aðstandendur rannsóknarinnar eru að fara af stað með eftirfylgdarrannsókn þar sem leitað er til kvennanna 30 þúsund sem tóku þátt í upphafi. Landssamtökin Geðhjálp hafa ýtt úr vör hinu árlega 30 daga geðræktarátaki sem ber heitið G-vítamín. Í ár er fjórða árið sem samtökin standa fyrir þessu átaki á þorranum. Geðhjálp býður því upp á 30 dagleg hollráð sem er ætlað að bæta geðheilsu landsmanna yfir Þorrann. Þessir 30 skammtar af hollráðum eru kallaðir G-vítamín. Á föstudaginn verður styrktarþáttur í beinni útsendingu hér á RÚV, í sjónvarpinu, G vítamín - Gott fyrir geðheilsuna. Þar verður stóra mynd geðheilbrigðismála Íslendinga skoðuð í áhugaverðri og skemmtilegri útsendingu, eins og segir í fréttatilkynningu. Sveinn Rúnar Hauksson, heimilislæknir og stjórnarmaður í Geðhjálp kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þættinum og G vítamíninu. Við fengum svo póstkort í dag frá Magnúsi R. Einarssyni. Í korti dagsins bar Magnús saman Kúbu og Cabo Verde þar sem hann er í heimsókn núna. Þjóðir með svipaðan uppruna en ólík örlög. Hann segir frá sérkennilegum frönskum aðalsmanni sem settist að á einni eyjunni seint á nítjándu öld og varð elskaður og dáður af fólkinu og af honum er kominn mikill ættbogi. Magnús segir líka af fólki sem hann hefur kynnst í borginni Praia, fyrrum embættismanni og lækni, þjóni og þúsund þjala smiði, efnilegri söngkonu og hennar meðspilurum. Tónlist í þætti dagsins: Brauðbúðarbúgí / Borgardætur (Wolfie & Wood, texti Einar Thoroddsen) Ókeypis / Egill Ólafsson og finnsk-íslenska vetrarbandalagið(Matti Kallio og Egill Ólafsson) Let your boss be your lesson / Allison Krauss og Robert Plant ( Milt Campbell) Jacaré sumiu / Alcione (Mauro Diniz & Sereno) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Spegillinn
Gaza, Miðausturlönd og héraðslækningar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 29, 2024 20:05


29. janúar 2024 Daginn eftir að Alþjóðaglæpadómstóllinn í Haag ákvað að taka til efnislegrar meðferðar kæru Suður-Afríku á hendur Ísraelsríki fyrir brot á alþjóðalögum um þjóðarmorð sökuðu Ísraelsmenn tólf af um það bil 30.000 starfsmönnum Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna við Palestínu um aðild að hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael 7. október síðastliðinn. Í kjölfarið ákváðu nokkur ríki, þar á meðal Ísland, að frysta greiðslur til stofnunarinnar. Rætt er við Svein Rúnar Hauksson, lækni og stjórnarmann í Félaginu Ísland-Palestína, um þessa atburði. Sérfræðingar í málefnum Miðausturlanda eru margir uggandi yfir því að ástandið eigi eftir að versna enn frekar eftir að þrír bandarískir hermenn féllu í drónaárás á bækistöðvar þeirra í Jórdaníu í gær. Íranar eru sakaðir um að hafa staðið á bak við hana. Þeir segjast hvergi hafa komið nærri. Ásgeir Tómasson segir frá. Stefnt er að innleiðingu nýrrar sérnámsleiðar í læknisfræði, héraðslækninga – það eru lækningar í dreifbýli. Héraðslækningar verða þá undirsérgrein heimilislækninga. Eyjólfur Þorkelsson læknir sem stýrði málstofu um héraðslækningar á læknadögum segir þörfina fyrir þessa sérhæfingu mikla. Ásta Hlín Magnúsdóttir ræðir við hann. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Lestin
Af hverju styðja Íslendingar Palestínu?, tölvuleikjatónlist, AI-Lestin

Lestin

Play Episode Listen Later Nov 6, 2023 55:00


Það er mánuður frá því að átök blossuðu aftur upp fyrir botni miðjarðarhafs þegar liðsmenn Hamas frömdu fjöldamorð á ísraelskum borgurum og tóku nokkur hundruð gísla sem margir hverjir eru enn í haldi. Í kjölfarið hefur Ísraelsher haldið úti fordæmalausum loftárásum á Gaza-svæðið, sprengt íbúðabyggingar, ráðist á flóttamannabúðir. Lokað er fyrir vatn og rafmagn og heilbrigðisstofnanir geta illa starfað. Tala látinna hækkar hratt og nálgast 10 þúsund. Um helgina fór fram fjölmennur fundur í Háskólabíói þar sem margir komu saman og lýstu yfir stuðningi við Palestínu. Stuðningur við málstað Palestínu virðist vera nokkuð mikill meðal íslensks almennings og mörgum blöskrar að Ísland hafi setið hjá í atkvæðagreiðslu í Sameinuðu þjóðunum þar sem kosið var um ályktun um vopnahlé á svæðinu. Sveinn Rúnar Hauksson mætir og ræðir afstöðu Íslendinga til Ísrael og Palestínu, bæði meðal almennings og stjórnvalda. Tengsl tölvuleikja og jungle-tónlistar eru meiri en marga grunar. Jungle var gríðarlega oft hluti af hljóðmynd tölvuleikja frá árunum 1995-2005. Og tveimur áratugum síðar njóta handvalin mix af þess konar tónlist mikilla vinsælda á Youtube. Hjalti Freyr Ragnarsson pælir í þessum óvæntu tengslum jungle og tölvuleikja. Við endurflytjum líka fyrsta þáttinn í seríunni Gervigreindar-Lestin sem við sendum út í sumar - ævintýralegt ferðalag Kristjáns og Lóu í tilraun til að gera fyrsta gervigreindarsmíðaða útvarpsþátt Íslandssögunnar.

Lestin
Af hverju styðja Íslendingar Palestínu?, tölvuleikjatónlist, AI-Lestin

Lestin

Play Episode Listen Later Nov 6, 2023


Það er mánuður frá því að átök blossuðu aftur upp fyrir botni miðjarðarhafs þegar liðsmenn Hamas frömdu fjöldamorð á ísraelskum borgurum og tóku nokkur hundruð gísla sem margir hverjir eru enn í haldi. Í kjölfarið hefur Ísraelsher haldið úti fordæmalausum loftárásum á Gaza-svæðið, sprengt íbúðabyggingar, ráðist á flóttamannabúðir. Lokað er fyrir vatn og rafmagn og heilbrigðisstofnanir geta illa starfað. Tala látinna hækkar hratt og nálgast 10 þúsund. Um helgina fór fram fjölmennur fundur í Háskólabíói þar sem margir komu saman og lýstu yfir stuðningi við Palestínu. Stuðningur við málstað Palestínu virðist vera nokkuð mikill meðal íslensks almennings og mörgum blöskrar að Ísland hafi setið hjá í atkvæðagreiðslu í Sameinuðu þjóðunum þar sem kosið var um ályktun um vopnahlé á svæðinu. Sveinn Rúnar Hauksson mætir og ræðir afstöðu Íslendinga til Ísrael og Palestínu, bæði meðal almennings og stjórnvalda. Tengsl tölvuleikja og jungle-tónlistar eru meiri en marga grunar. Jungle var gríðarlega oft hluti af hljóðmynd tölvuleikja frá árunum 1995-2005. Og tveimur áratugum síðar njóta handvalin mix af þess konar tónlist mikilla vinsælda á Youtube. Hjalti Freyr Ragnarsson pælir í þessum óvæntu tengslum jungle og tölvuleikja. Við endurflytjum líka fyrsta þáttinn í seríunni Gervigreindar-Lestin sem við sendum út í sumar - ævintýralegt ferðalag Kristjáns og Lóu í tilraun til að gera fyrsta gervigreindarsmíðaða útvarpsþátt Íslandssögunnar.

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Óvænt útspil KR og undirbúningur á Akranesi

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Oct 28, 2023


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 28. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar. Gregg Ryder tekur við KR og Rúnar Kristinsson var kynntur í Ulfarsárdal. Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA segir frá undirbúningi Skagamanna fyrir Bestu deildina. Baldvin Már Borgarsson fer yfir enska boltann.

Mannlegi þátturinn
Skaðaminnkun, Ungleikhús og haustveðrið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 17, 2023


Helena Bragadóttir, geðhjúkrunarfræðingur, kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá erindi sem hún og Sigurður Örn Hektorsson munu flytja á ráðstefnu um fíknistefnu sem skipulögð er af RIKK, Rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við HÍ og Rótinni. Erindið er um skaðaminnkun og heilbrigðisþjónustu í íslenskum fangelsum og við fengum Helenu til að segja okkur betur frá erindinu í þættinum, en ráðstefnan fer fram í dag og á morguná Hótel Reykjavík Grand. Þar verður sjónum er beint að stöðu og framtíð í fíknistefnu og vímuefnanotkun í velferðarríkjum og erlendir og innlendir sérfræðingar munu ræða stefnumótun í málaflokknum. Hið nýstofnaða Ungleikhús byggir í grunninn á hugmyndafræði Broadway Junior þar sem markmiðið er að efla börn og ungt fólk í sviðslistum og skapa þeim tækifæri til þátttöku og áhrifa í fjölbreyttum uppsetningum. Ungleikhúsið er staður fyrir áhugasama krakka, sem eru með einhverja reynslu fyrir, til þess að öðlast enn meiri reynslu í gegnum þátttöku í fjölbreyttum verkefnum. Við ræddum við Sigyn Blöndal ein af þeim sem stendur að Ungleikhúsinu, í dag. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo til okkar í dag í veðurspjallið. Í dag ræddi Einar við okkur um haustið, skammdegið og áhrif veðursins á sálartetrið og hann var meira að segja dálítið á skáldlegu nótunum. TÓNLIST Í ÞÆTTINUM Í DAG: Meira, meira / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson og Jónas Friðrik) 50 Ways to Leave Your Lover / Paul Simon (Paul Simon) Leyndarmál / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti, Einar Georg Einarsson og Júlíus Aðalsteinn Róbertsson) Ég læt mig dreyma / Ellen Kristjánsdóttir (Friðrik Karlsson, Eiríkur Hauksson og Birgir Bragason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Skaðaminnkun, Ungleikhús og haustveðrið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 17, 2023 50:00


Helena Bragadóttir, geðhjúkrunarfræðingur, kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá erindi sem hún og Sigurður Örn Hektorsson munu flytja á ráðstefnu um fíknistefnu sem skipulögð er af RIKK, Rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við HÍ og Rótinni. Erindið er um skaðaminnkun og heilbrigðisþjónustu í íslenskum fangelsum og við fengum Helenu til að segja okkur betur frá erindinu í þættinum, en ráðstefnan fer fram í dag og á morguná Hótel Reykjavík Grand. Þar verður sjónum er beint að stöðu og framtíð í fíknistefnu og vímuefnanotkun í velferðarríkjum og erlendir og innlendir sérfræðingar munu ræða stefnumótun í málaflokknum. Hið nýstofnaða Ungleikhús byggir í grunninn á hugmyndafræði Broadway Junior þar sem markmiðið er að efla börn og ungt fólk í sviðslistum og skapa þeim tækifæri til þátttöku og áhrifa í fjölbreyttum uppsetningum. Ungleikhúsið er staður fyrir áhugasama krakka, sem eru með einhverja reynslu fyrir, til þess að öðlast enn meiri reynslu í gegnum þátttöku í fjölbreyttum verkefnum. Við ræddum við Sigyn Blöndal ein af þeim sem stendur að Ungleikhúsinu, í dag. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo til okkar í dag í veðurspjallið. Í dag ræddi Einar við okkur um haustið, skammdegið og áhrif veðursins á sálartetrið og hann var meira að segja dálítið á skáldlegu nótunum. TÓNLIST Í ÞÆTTINUM Í DAG: Meira, meira / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson og Jónas Friðrik) 50 Ways to Leave Your Lover / Paul Simon (Paul Simon) Leyndarmál / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti, Einar Georg Einarsson og Júlíus Aðalsteinn Róbertsson) Ég læt mig dreyma / Ellen Kristjánsdóttir (Friðrik Karlsson, Eiríkur Hauksson og Birgir Bragason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Víðsjá
Pabbastrákar, Kammermúsík Og The Simple Act of Letting Go

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 26, 2023 55:00


Þegar Kammermúsíkklúbburinn var stofnaður árið 1957 var kammertónlist sjaldan flutt í Reykjavík. Markmiðið með stofnun klúbbsins var að hefja markvissan flutning á lifandi kammertónlist. Nokkrum árum og mörghundrum tónleikum síðar er klúbburinn jafn lifandi sem fyrr og hefur þetta starfsár með pompi og prakt með tvennum tónleikum í Hörpu um helgina. Við ræðum við Halldór Hauksson, píanóleikara og stjórnarmeðlim kammermúsíklúbbsins í þætti dagsins. Íslenski dansflokkurinn sýnir um þessar mundir verkið The Simple Act of Letting Go eftir ísraelska danshöfundinn Tom Weinberger á nýja sviði Borgaleikhússins. Erna Ómarsdóttir listdansstjóri Íslenska dansflokksins heimsækir okkur og segir frá sýningunni. Leikverkið Pabbastrákar fjallar um íslenska karlmenn sem fara í tilboðsferð til Playa Buena á Spáni árið 2007. Við ræðum við höfundana, þá Hákon Örn Helgason og Helga Grím Hermannsson.

Víðsjá
Pabbastrákar, Kammermúsík Og The Simple Act of Letting Go

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 26, 2023


Þegar Kammermúsíkklúbburinn var stofnaður árið 1957 var kammertónlist sjaldan flutt í Reykjavík. Markmiðið með stofnun klúbbsins var að hefja markvissan flutning á lifandi kammertónlist. Nokkrum árum og mörghundrum tónleikum síðar er klúbburinn jafn lifandi sem fyrr og hefur þetta starfsár með pompi og prakt með tvennum tónleikum í Hörpu um helgina. Við ræðum við Halldór Hauksson, píanóleikara og stjórnarmeðlim kammermúsíklúbbsins í þætti dagsins. Íslenski dansflokkurinn sýnir um þessar mundir verkið The Simple Act of Letting Go eftir ísraelska danshöfundinn Tom Weinberger á nýja sviði Borgaleikhússins. Erna Ómarsdóttir listdansstjóri Íslenska dansflokksins heimsækir okkur og segir frá sýningunni. Leikverkið Pabbastrákar fjallar um íslenska karlmenn sem fara í tilboðsferð til Playa Buena á Spáni árið 2007. Við ræðum við höfundana, þá Hákon Örn Helgason og Helga Grím Hermannsson.

Tveir Fellar
#72 Pálmi Freyr Hauksson

Tveir Fellar

Play Episode Listen Later Sep 13, 2023 77:00


Pálmi kom til okkar í skemmtilegt spjall. Hann sagði okkur frá hugleiðslusetri sem hann fór til í Englandi. Hann rifjaði upp hversu góður hann er að teikna og hversu góð handklæði eru frá Sprite. Hann svaraði spurningum hlustenda um besta sketsinn í Kanarí. --- Send in a voice message: https://podcasters.spotify.com/pod/show/tveirfellar/message

Já OK
Ávaxtasjúklingar (feat. Kolbeinn Ari Hauksson)

Já OK

Play Episode Listen Later Jul 26, 2023 60:05


Í þessum þætti fá Villi og Fjölnir annan gest til sín, að þessu sinni er það sagnfræðingurinn, grunnskólakennarinn og æskuvinur Villa, hann Kolbeinn Ari Hauksson. Það verður talað um alsskonar ávexti, það verður talað um alsskonar pólitík, og það verður talað um alsskonar bull, enda er það hin klassíski Já OK þáttur, að fræða og bulla.

Morgunvaktin
Aldrei fleiri á flótta í heiminum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 15, 2023 130:00


Aldrei hafa fleiri verið á flótta í heiminum en í lok síðasta árs, samkvæmt skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna sem kom út í gær. Innrásin í Úkraínu er auðvitað einn stærsti þátturinn í því, en líka fjöldi annarra stríðsátaka og annars konar erfiðleika. Eva Bjarnadóttir sviðsstjóri hjá UNICEF var gestur Morgunvaktarinnar. Í Heimsglugga vikunnar fór Bogi Ágústsson yfir ákærur á hendur Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta vegna leyniskjala sem hann geymdi á setri sínu, vandamál Boris Johnsons og Nicolu Sturgeon í Bretland og minntist annars góðkunningja þáttarins, Silvio Berlusconi. Við fórum líka í heimsókn í Stykkishólmskirkju en á dögunum valdi alþjóðlega byggingarlistartímaritið Architectural Digest kirkjuna sem eina af 10 fegurstu kirkjum heims. Guðni Tómasson fór og hitti sóknarprestinn í Stykkishólmi séra Gunnar Eirík Hauksson. Tónlist: All Things Are Quite Silent - Steeleye Span Vér göngum svo léttir í lundu - Andrea Gylfadóttir & Tríó Bjössa Thor Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Morgunvaktin
Aldrei fleiri á flótta í heiminum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 15, 2023


Aldrei hafa fleiri verið á flótta í heiminum en í lok síðasta árs, samkvæmt skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna sem kom út í gær. Innrásin í Úkraínu er auðvitað einn stærsti þátturinn í því, en líka fjöldi annarra stríðsátaka og annars konar erfiðleika. Eva Bjarnadóttir sviðsstjóri hjá UNICEF var gestur Morgunvaktarinnar. Í Heimsglugga vikunnar fór Bogi Ágústsson yfir ákærur á hendur Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta vegna leyniskjala sem hann geymdi á setri sínu, vandamál Boris Johnsons og Nicolu Sturgeon í Bretland og minntist annars góðkunningja þáttarins, Silvio Berlusconi. Við fórum líka í heimsókn í Stykkishólmskirkju en á dögunum valdi alþjóðlega byggingarlistartímaritið Architectural Digest kirkjuna sem eina af 10 fegurstu kirkjum heims. Guðni Tómasson fór og hitti sóknarprestinn í Stykkishólmi séra Gunnar Eirík Hauksson. Tónlist: All Things Are Quite Silent - Steeleye Span Vér göngum svo léttir í lundu - Andrea Gylfadóttir & Tríó Bjössa Thor Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

90 mínútur
Lengjudeildin - Gary Martin, Jón Þór og Gaui Lýðs ræða málin

90 mínútur

Play Episode Listen Later May 25, 2023 32:23


Vikulegur hlaðvarpsþáttur um Lengjudeildina verður á dagskrá á 433.is, má hlusta á þættina á Spotify og í öllum helstu hlaðvarpsveitum sem í boði eru, Gary Martin framherji Selfoss ræðir málin í þætti dagsins en hann hefur ekki enn náð að skora mark í deildinni í sumar. Grannaslagur gegn Ægi bíður hans á morgun. Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA ræðir hlutina og þá staðreynd að Nordsjælland sé að kaupa Daníel Inga Jóhannesson. Lok ræðir Guðjón Pétur Lýðsson miðjumaður Grindavíkur gott gengi liðsins. Þátturinn er í boði Netgíró og Slippfélagsins.

90 mínútur
Lengjudeildin - Jón Þór, Magnús Már og Sammi í spjalli

90 mínútur

Play Episode Listen Later May 11, 2023 38:13


Vikulegur hlaðvarpsþáttur um Lengjudeildina, Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA ræðir málin, Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar einnig á línunni og Samúel Samúelsson formaður Vestra á sínum stað. Hrafnkell Freyr fer svo yfir hlutina en hann er sérfræðingur deildarinnar. Allt þetta er í boði Netgíró og Slippfélagsins.

Sunnudagssögur
Magnús Hauksson

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Apr 23, 2023


Magnús Hauksson er eilífðar töffari, Ísfirðingur og eigandi Tjöruhússins var tekin tali í skemmunni sinni fyrir vestan. Þar voru æskuárin rifjuð upp, talað um ferilinn í eldhúsinu og á videoleigunni. Umsjón: Andri Freyr Viðarsson.

Sunnudagssögur
Magnús Hauksson

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Apr 23, 2023 75:00


Magnús Hauksson er eilífðar töffari, Ísfirðingur og eigandi Tjöruhússins var tekin tali í skemmunni sinni fyrir vestan. Þar voru æskuárin rifjuð upp, talað um ferilinn í eldhúsinu og á videoleigunni. Umsjón: Andri Freyr Viðarsson.

Hjjj
38. Orri Hauksson, forstjóri Símans

Hjjj

Play Episode Listen Later Apr 21, 2023 99:39


Viðmælandi þáttarins er Orri Hauksson, forstjóri Símans. Orri er fæddur árið 1971 og er alinn upp í Vesturbænum. Hann gekk í Melaskóla, Hagaskóla og Menntaskólann í Reykjavík og kláraði CS próf í vélaverkfræði frá Háskóla íslands og MBA frá Harvard Business School. Orri hefur m.a. starfað hjá Eimskipafélaginu og Maskínu, sem aðstoðarmaður forsætisráðherra, framkvæmdastjóri þróunarsvið Símans, fjárfestingastjóri Novators fjárfestingafélags og framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Orri varð forstjóri Símans árið 2013 en hjá fjarskipta- og fjölmiðlasamsteypunni starfa nú um 270 manns og veltir fyrirtækið um 25 ma. kr. Samsteypan hefur nýlega selt tvö dótturfyrirtækin sín, upplýsingatæknifyrirtækið Sensa til norska upplýsingatæknifyrirtækisins Crayon og innviðafyrirtækið Mílu til franska eignastýringafyrirtækisins Ardian árið 2022. Orri hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja, skráðra og óskráðra, á Íslandi og á öðrum Norðurlöndum, sem og í Bandaríkjunum og Bretlandi. Þátturinn er í boði Icelandair.

Fotbolti.net
Sama ástríða með yngri flokka KA og Öster í Svíþjóð

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Mar 26, 2023


Srdjan Tufegdzic er þjálfari sænska liðsins Öster sem spilar í B-deildinni. Liðið hefur verið lengi í næstefstu deild en setur stefnuna á efstu deild. Á síðasta tímabili fór liðið í umspilið um sæti í efstu deild en tapaði þar. Stefnan er sett á sæti í Allsvenskan á komandi tímabili. Túfa, eins og hann er alltaf kallaður, er Serbi sem kom fyrst til Íslands árið 2006 og lék með KA. Hann lagði skóna á hilluna tímabilið 2012 og var þá farinn að þjálfa hjá KA. Hann var aðstoðarmaður Bjarna Jóhannssonar árin 2013, 2014 og hálft tímabilið 2015 áður en hann tók við sem aðalþjálfari. Túfa stýrði KA svo út tímabilið 2018. Fyrir tímabilið 2019 tók hann við Grindavík og eftir það tímabil varð hann aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar hjá Val. Túfa ræddi um lífið í Svíþjóð, tímabilið í fyrra, komandi tímabil og ýmsilegt fleira í viðtalinu. Hann var þá spurður sérstaklega út í þá Alex Þór Hauksson og Rúnar Þór Sigurgeirsson sem eru leikmenn Öster.

Organic Wine Podcast
Hoss Hauksson - Vitiforestry Polyculture in Switzerland

Organic Wine Podcast

Play Episode Listen Later Feb 20, 2023 71:33


My guest for this episode is Hoss Hauksson, and he practices a form of viticulture in Switzerland that integrates elements of vitiforestry or a silvoculture polyculture, using a biodynamic approach, with the world's smallest sheep and technologies like drone spraying and UV robots. His wine takes the idea of terroir literally, incorporating medicinal and aromatic herbs and trees as infusions in both the vineyard ecosystem and in his pinot noir. In other words, I think I discovered my long lost soul twin. Hoss is one of the only, if not the one and only, Icelandic winemakers on earth, (which means he's probably related to Steve Matthiasson) and he tells us about his journey from wanting to be “the hero winemaker” to a focus on just becoming a good farmer. Hoss's holistic, ecological view of fostering a healthy farm ecosystem from which the best, most interesting wine can be made, leads us from some really important discussion about the soil microbiome through to expressing terroir by making a pet-nat infused with wormwood, hyssop, and yarrow. Along the way we find out the importance of promoting a fungal-dominant soil that recreates the forest floor from which vines evolved, how he uses different trees and herbs for different purposes in and around the vines, and how his adorable miniature sheep are vital to the entire ecosystem. Fertile nuggets of information, rich with wisdom, are scattered everywhere through this interview like sheep poop in a vineyorchard. You're in for a treat. Hauksson Wine https://www.centralaswine.com/ Sponsor: https://www.catavinotours.com/owp Contact Oom & Use referral code OWP Support this podcast via Patreon.

Pyngjan
Ársreikningar: Storytel

Pyngjan

Play Episode Listen Later Jan 31, 2023 63:48


Við höldum áfram í Sænska þemanu okkar og nú er það Storytel. Flestir kannast nú orðið við fyrirtækið en það sem kannski færri vita er það að það var Íslendingur að nafni Jón Hauksson sem stofnaði fyrirtækið árið 2005. Stórskemmtileg saga og ennþá skemmtilegri ársreikningur. Góðar stundir.

Bylgjan
Sprengisandur 20.11.2022 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Nov 20, 2022 95:38


Kristján Kristjánsson stýrir skeleggri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Pawel Bartoszek vara-borgarfulltrúi um samgöngu- og borgarmál. Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar um loftslagsmál / Cop 27 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um stjórnmál. Ólafur Hauksson almannatengill og Andrés Jónsson almannatengill um HM í Katar.   

90 mínútur
7. nóvember 2022: Jón Þór Hauksson

90 mínútur

Play Episode Listen Later Nov 14, 2022 47:50


Gestur þáttarins er Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA.

Segðu mér
Eiríkur Hauksson kennari og söngvari

Segðu mér

Play Episode Listen Later Oct 4, 2022 40:00


Eiríkur segir frá lífi sínu í Noregi og rifjar einnig upp þegar hann var lítill drengur í Vogahverfinu.

Segðu mér
Eiríkur Hauksson kennari og söngvari

Segðu mér

Play Episode Listen Later Oct 4, 2022


Eiríkur segir frá lífi sínu í Noregi og rifjar einnig upp þegar hann var lítill drengur í Vogahverfinu.

Segðu mér
Eiríkur Hauksson kennari og söngvari

Segðu mér

Play Episode Listen Later Oct 4, 2022


Eiríkur segir frá lífi sínu í Noregi og rifjar einnig upp þegar hann var lítill drengur í Vogahverfinu.

Fotbolti.net
Enski boltinn - Stórliðin í brennidepli fyrir lokasprettinn

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 13, 2022


Arnar Laufdal, stuðningsmaður Liverpool, sér um þáttinn að þessu sinni. Eysteinn Þorri Björgvinsson, stuðningsmaður Manchester United og Brynjar Örn Hauksson, stuðningsmaður Chelsea, eru með honum. Stórliðin eru í brennidepli í þættinum fyrir spennandi lokasprett sem er framundan. Það eru úrslitaleikir á næsta leyti og Manchester City er í góðri stöðu fyrir lokaleikina í úrvalsdeildinni.

Originalverkorkt Podcast
OBP182 – Wein am Sonntag – Hauksson, Alpberg Müller-Thurgau 2018

Originalverkorkt Podcast

Play Episode Listen Later Apr 24, 2022 16:34


OBP182 – Wein am Sonntag – Hauksson, Alpberg Müller-Thurgau 2018

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Styttist í Bestu deildina og enski farinn aftur af stað

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 2, 2022


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 4. apríl. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.Íslenski boltinn er aðalmálið í fyrri hlutanum og farið yfir fréttir vikunnar. Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA og Baldur Sigurðsson eru á línunni.Í seinni hlutanum fer Kristján Atli yfir enska boltann og gefur skýrslu úr leik Liverpool og Watford sem Liverpool vann 2-0.

Spegillinn
Árás á kjarnorkuver fordæmd og Barnaþing

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 4, 2022


Fulltrúar Bandaríkjanna, Frakklands og annarra ríkja fordæmdu árás Rússa á stærsta kjarnorkuver Evrópu á neyðarfundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Sendiráð Bandaríkjanna í Kænugarði hefur sakað Rússa um stríðsglæpi vegna árásarinnar. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá. Atlantshafsbandalagið ætlar ekki að verða við beiðni Úkraínustjórnar um loftferðabann yfir Úkraínu. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir tóninn misjafnan í kollegum sínum í NATO, nágrannaríki Rússlands hafi réttmætar áhyggjur af fyrirætlunum Rússlandsforseta. Ólöf Ragnarsdóttir talaði við hana. Rólegra er yfir Kýiv núna en fyrstu daga stríðsins þrátt fyrir að bardagar hafi harðnað annars staðar í landinu segir Óskar Hallgrímsson sem býr í miðborg Kyiv. Brynjólfur Þór Guðmundsson talaði við hann. Vladimir Pútín, forseti Rússlands, aðvaraði í dag ríki sem hafa beitt Rússland refsiaðgerðum vegna innrásarinnar. Að sögn Mikhails Noskovs. sendiherra Rússlands á Íslandi verður refsiaðgerðunum svarað. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræddi við hann. Tveir tíu ára strákar á Akureyri hafa undanfarna daga teiknað myndir og selt bæjarbúum til styrktar börnum í Úkraínu. Óðinn Svan Óðinsson tók saman. Anna Þorbjörg Jónasdóttir talaði við Kjartan Gest Guðmundsson og Helga Hrafn Magnússon. ------------- Rússnesk yfirvöld hafa hert mjög ritskoðun og sá sem flytur það sem yfirvöld skilgreina sem ?falskar upplýsingar? á yfir höfði sér fimmtán ára fangelsisdóm. Öllum óháðum útvarps- og sjónvarpsstöðvum sem og erlendum fjölmiðlum hefur verið lokað. Bogi Ágústsson sagði frá. Oft er haft á orði að hlusta þurfi betur á það sem börn hafa að segja um mál sem snerta þau og í dag fékk á annað hundrað barna tækifæri til að láta í sér heyra á Barnaþingi. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Hrafnhildi Eddu Ingvarsdóttur og Söru Katrínu Vignisdóttur, Rúnar Frostason og Vilhjálm Hauksson. Helsti flokkur andstæðinga Atlantshafsbandalasins ? NATO ? í Noregi er að guggnað á andstöðunni. Þetta er Sósíalíski vinstriflokkurinn, systurflokkur gamla Alþýðubandalagsins og afkomenda þess. Gísli Kristjánsson segir frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason: Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir.